Andvarpið - hlaðvarp foreldra

Follow Andvarpið - hlaðvarp foreldra
Share on
Copy link to clipboard

Andvarpið hlaðvarp foreldra er fyrir foreldra, um foreldra, til foreldra. Í þessum þætti ræðum við almennt um foreldrahlutverkið, það að detta á hnéð með kúk í poka, að neyða börnin með í skíðaferð og að muna hvern einasta dag að 30 % eru það sem þarf til að standa sig.

Andvarpið

  • Dec 2, 2020 LATEST EPISODE
  • every other week NEW EPISODES
  • 46m AVG DURATION
  • 54 EPISODES


Search for episodes from Andvarpið - hlaðvarp foreldra with a specific topic:

Latest episodes from Andvarpið - hlaðvarp foreldra

Púrtvínslegnar mæður í aðventukófi

Play Episode Listen Later Dec 2, 2020 46:50


Púrtvínslegnar mæður, börn með kakóskegg, á sleða á jólum og enn og aftur hversu bráð nauðsynlegt það er að fjárfestingar TInder komist í loftið fyrir allar okkur frábæru hugmyndir! Tvær úr úthverfinu boða letilega og kósí aðventu -ef ég nenni !!!Þátturinn er í boði VÍS og Kaaber heima og var tekinn upp í Dal fjölskyldukaffihúsi.

Með tíu í útvíkkun

Play Episode Listen Later Nov 24, 2020 41:57


Gráta ljósmæður yfir hverri fæðingu rétt eins og við Emma þegar við horfum á One born every minute? Sýnir það sig nú undir lok árs að margir hafi kosið heimaleikfimi unfram Netflix og séu að eignast börn? Við fengum Helgu Reynisdóttur ljósmóður sem starfar sem ljósmóðir á Landspítalanum og heldur úti Fæðingarfræðslu Helgu Reynis í spjall. Hún segir gaman að upplifa hvað konur séu upplýstar og starfið sé alltaf jafn magnað.Þátturinn er í boði VÍS og Kaaber Training.

Gleðin í hinu smáa

Play Episode Listen Later Nov 17, 2020 55:31


Rakel Magnúsdóttir ráðgjafi og fyrirlesari hjá Reislu ráðgjöf kom í spjall til okkar. Við ræddum daglegt líf á skrýtnum tímum, núvitund, sem sífellt fleiri rannsóknir sýna að hafi góð áhrif á börn og fullorðna m.a. á það hvernig heilinn mótast, og að veita athygli því smáa í lífinu. Finna t.d. hlýjuna og hitann af kaffibollanum og nota önnur svæði í heilanum til að fá smá hvíld. Þátturinn er í boði VÍS og Kaaber Training.

Bugaðar konur í kápu

Play Episode Listen Later Nov 15, 2020 55:36


Konan á bak við Cocopuffs í stígvéli myndina, sem ætti að hanga upp á vegg allra foreldra í landinu, Lóa Hjálmtýsdóttir kom í viðtal. Lóa er myndlistarkonan á bak við Lóaboratorium, hún er líka tónlistarkona og bara einstaklega fyndin og skemmtileg. Við ræddum við hana um þá staðreynd að hún andvarpar meira en meðal konan, sprungin dekk, grafalvarlegar listir og uppeldi. Njótið!Þátturinn er í boði VÍS og Kaaber Training.

Á ofurkonan heima í endurvinnslunni?

Play Episode Listen Later Oct 29, 2020 53:53


Hin svokallaða Ofurkona hefur verið í umræðunni síðustu daga og talið að þörf sé á að endurskilgreina það hugtak. Við veltum fyrir okkur hvort hugtakið eigi heima í endurvinnslunni eða hreinlega á ruslahaugunum. Emma og Mæja kryfja málin og skafa ekki utan af því. Þátturinn er í boði VÍS.

Það er komið vetrarfrí

Play Episode Listen Later Oct 22, 2020 42:56


Dekkjaskipti og vetrarfrí - eru ekki allir sexí ???Þátturinn er í boði VÍS.

Svo miðaldra að það hálfa væri nóg

Play Episode Listen Later Oct 15, 2020 47:11


Jæja þetta hafðist ! Leiðin var löng og ströng - vonandi njótið þið í botn okkar kæru hlustendur. Þátturinn er í boði VÍS.

Tjúllaðar í tuðinu

Play Episode Listen Later Oct 7, 2020 53:31


Það er komið að þessu enn á ný. Tvær mæður, tveir staðir, tveir símar, ein sál sem heitir Andvarpið. Hér er upphafið að endinum, næsta Covid skeið framundan, við verðum með ykkur alla leið! Já og ekki fylgja uppeldisreglum Kattholts, þær eru pínu yfir strikið.

Mánudagssteik með sósu, enn eina ferðina

Play Episode Listen Later Sep 29, 2020 37:14


Vinkonur á trúnó um skólatöskur, Playmobil myndina, heima-vinnuna og önnur stór mál sem foreldrar ættu að láta til sín taka.

Skipulag á dag kemur skapinu í lag!

Play Episode Listen Later Sep 22, 2020 48:52


Virpi elskar að takast á við óreiðu og er ekki feimin að viðurkenna það ! Það þarf enginn að óttast að bjóða henni heim til sín í drasl en hún tekst á við stór sem smá skipulagsverkefni með bros á vör. Auk þess að reka eigið fyrirtæki, Á réttri hillu, hefur hún einnig hlotið nafnbótina Verndari óskilamuna í skóla barnanna sinna.

Þær eru komnar aftur !!!

Play Episode Listen Later Sep 15, 2020 39:39


Upp með skipulagsdagbókina það er komið haust! Og er einhver ekki búin að ganga frá tjaldhælunum ... ja hérna hér ??? Við stöllurnar förum yfir sumarið í buxum og erum ágætlega ánægðar með okkur. Velkomin í aðra seríu af Andvarpinu ! Þátturinn er í boði VÍS.

42. Þetta verður bara fínt

Play Episode Listen Later Jun 30, 2020 61:50


Í þessum síðasta þætti vetrarins förum við yfir stóru málin. Er 17. júní dauður? Hvenær þarf að panta sal fyrir fermingarveislur næsta árs? Er brauðterta besti matur í heimi? Setjum markið fyrir miðju og pössum að klára ekki af eigin tanki. Þökkum samfylgdina í vetur!

Makaval

Play Episode Listen Later Jun 24, 2020 45:55


Gestur Andvarpsins í kvöld er Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur sem í dag sinnir að stærstum hluta parameðferð. Við ræðum um það vandasama verk að velja sér maka, það að geta rætt um tilfinningar sínar og mikilvægi þess að geta leitað sér aðstoðar. Sama hvort það er til að ná aftur saman eða skilja í góðu.Þátturinn er í boði Slow Cow og VÍS.

40. Segjum meira fokk it

Play Episode Listen Later Jun 3, 2020 53:18


Andrea á mörg börn, miklu fleiri en við ! Hún hefur skrifað bók um allt það sem tengist meðgöngu, fæðingu og tilbehör og er nú að vinna að þáttaröðinni Líf dafnar sem er sjálfstætt framhald af Líf kviknar. Við ræddum um #raunin, það að segja bara fokk it meira og hvernig það gengur að vinna með kærastanum sínum í bílskúrnum heima.Þátturinn er í boði Slow Cow og VÍS.

39. Einstakar mæður

Play Episode Listen Later May 27, 2020 48:42


Við fengum til okkar þær Söru Pétursdóttur og Helen Breiðfjörð til að segja okkur frá reynslu sinni af því að eignast börn upp á eigin spýtur. Við ræðum líka um mikilvægi vináttunnar og þess að henda skutlum fram eftir aldri, samfélagsmiðlapressuna og allt það helsta sem gott er og fallegt.Þátturinn er í boði Slow Cow og VÍS

Galvaskar í frotté dragt

Play Episode Listen Later May 19, 2020 43:35


Tvær úthverfa mæður hittust yfir kaffi og köku á sunnudegi og fóru yfir foreldra vikuna. Niðurstaðan varð sú að Emma hefur enn ekki fundið hið eina, rétta tjald, Mæja þarf að fara meira á barinn og svo þarf einhver virkilega að fara að hanna og sauma frotté dragtir !!! Þær væru svo mikla meira smart til að taka á móti gestum í heldur en joggarinn...Þátturinn er í boði Slow Cow á Íslandi og VÍS.

Bara ef það hentar mér

Play Episode Listen Later May 11, 2020 60:42


Við fengum gesti !!! Þær Agnes og Kara hjá Hraust komu í fróðlegt og skemmtilegt spjall til okkar. Þær stöllur eru sjúkraþjálfarar sem stofnuðu eigið fyrirtæki í kjölfar fæðingarorlofs. Við ræddum um það flókna verkefni að kynnast líkama sínum aftur eftir barnsburð, að haga hreyfingu eftir sínum hentugleika og vera ekki alltaf í keppni við allt og alla. Vinsamlegast spennið grindarbotninn og látið fara vel um ykkur!Þátturinn er í boði Slow Cow og VÍS

Út af með dómarann inn á með barnið hans !

Play Episode Listen Later May 5, 2020 42:37


Þá er nýtt líf hafið ! Við ræðum um hvort eitthvað hafi breyst í dag (4. maí á upptökudegi) ræðum um útileguhasarinn mikla framundan, biðlista fyrir trampólín og tjöld, að láta börn um að leysa ágreining sinn á milli og allt þar á milli. Njótið og fljótið !Þátturinn er í boði Slow Cow og VÍS.

Þetta er gubb - ekki borða það!

Play Episode Listen Later Apr 28, 2020 36:01


Jæja þá er hér 35. þáttur Andvarpsins, sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér! Niðurtalning fyrir 4. maí hafinn og hvað gerist eiginlega þá??? Tvær á röngunni ræða hversdagslífið, deit með bjór í bakpoka, rauða spjaldið á börn og þá hugmynd hvort stemning sé fyrir Andvarpsferð?Þátturinn er í boði Slow Cow og VÍS

Tuðað í tilbreytingarleysi eða trúnó á túttunum

Play Episode Listen Later Apr 22, 2020 54:25


Enn er Andvarpið rafrænt og ó hvað við hlökkum til partýsins 4 maí. Ættum kannski bara að fá Víði í heimsókn??? Líklegast vill hann samt vera bara heima með börnum og barnabarni... Við sýnum ykkur hina hliðina á okkur í kvöld og byrjum að undirbúa spenandi ferðalag þar sem verðum dregnar um á sleða af lamadýrum. Stay tuned!Þátturinn er í boði Slow Cow og VÍS.

Enginn verður óbarinn biskup...í rúminu

Play Episode Listen Later Apr 6, 2020 45:49


Við leggjum til að foreldrar taki Víði sér til fyrirmyndar í væntingastjórnun og reynum að létta ykkur komandi páska með nokkrum hugmyndum að samkvæmisleikjum. Einnig ræðum við brostnar föndurvonir, konuna sem keypti einföld kolvetni fyrir 10.000 krónur og barnið sem bauð móður sinni vín í morgunmat.Þátturinn er í samstarfi við Slow Cow og VÍS og þökkum við bakhjörlum okkar kærlega fyrir stuðninginn. Rólegheit í dós og F plús fjölskyldutrygging er hagur okkar allra.

Það sem ekki má

Play Episode Listen Later Mar 31, 2020 49:19


Tvær lífhræddar konur sem þora varla í sporvagn, hvað þá í flugferð til Glasgow, ræða allt nema það eina sem er til umræðu þessa dagana. Húðflúrað Andvarp á bakið, listin að drekka allt úr rauðvínsbeljunni og svo miklu miklu fleira í nýjasta Andvarpinu ykkar.

Þegar 30% verða að duga

Play Episode Listen Later Mar 24, 2020 35:55


Við fórum aðeins yfir málin og deilum með lesendum vorum nokkrum góðum ráðum frá henni Soffíu Bæringsdóttur sem starfar sem fjölskylduráðgjafi og doula. Þessa dagana er best að stilla væntingunum verulega í hóf og sýna mildi í eigin garð og annara.

Móðir mín í sóttkví

Play Episode Listen Later Mar 17, 2020 39:49


Þrítugasti þáttur Andvarpsins og sá tæknilegasti fram til þessa en hér er um að ræða fyrsta fjar-Andvarpið okkar ! Í anda stöðunnar í samfélaginu í dag hittumst við stöllurnar fyrir framan tölvuna með rauðvín, te, Bugles og súkkulaði og fórum aðeins yfir stöðuna. PS: Prófarkalesarinn ratar út.

Það má ekki endurvinna börn (og ekki kasta grjóti on´í skurð...)

Play Episode Listen Later Mar 10, 2020 43:10


Langar þig stundum að endurvinna börnin þín? Við getum sagt þér að það má ekki en lang flest annað má endurvinna. Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, þýðandi bókarinnar; Engin sóun - leiðarvísir að einfaldara, sorplausu heimili kom til okkar í áhugavert og skemmtilegt spjall. Við ræddum um málefnið tengt börnum og fjölskyldulífi og komum m.a. inn á það að reyna að minnka allt dótið sem berst inn á heimilið, fá frekar lánað en að kaupa og nýta sér það hvað börn eru forviting og móttækileg fyrir fræðslu og hugmyndum varðandi málefni sem þessi.

28. Yfirbugun í grennd

Play Episode Listen Later Mar 3, 2020 38:04


Magapestir, vetrarfrí, sóttkví. Við fórum yfir stöðu mála í hamfaravikunni. Hvernig á að lifa öskudaginn af? Og hvað tekur langan tíma að læra það? Hvar fást aðeins minna kynjuð barnaföt? Hvað á eiginlega að vera í matinn?!

27. Hversdagsleikinn er alveg nóg

Play Episode Listen Later Feb 24, 2020 46:13


María Reyndal, höfundur og leikstjóri verksins Er ég mamma mín? og leikkonan María Ellingsen komu til okkar í spjall og sköpuðust fróðlegar umræður við borðstofuborðið. María Ellingsen gaf okkur góð ráð til að búa til fleiri klukkutíma í sólarhringinn og María Reyndal deildi með okkur fæðingarsögu af galtómri sundlaug. Verkið Er ég mamma mín?, sem nú er sýnt í Borgarleikhúsinu, er byggt á minningum Maríu sjálfrar og segir hún það vera uppgjör sinnar kynslóðar við þann tíma þegar konur voru að brjótast út af heimilunum. Við ræddum hið margslungna hlutverk að vera móðir og þau djúpu tilfinningatengsl sem eru á milli móður og dóttur.

26. Slipp o-hoj á Slippbarnum

Play Episode Listen Later Feb 18, 2020 53:47


Við hittum fólk á Slippbarnum og messuðum yfir því. Það vildi svo vel til að við mundum eftir því að ýta á REC. Njótið með víni skál í boðinu !

25. Er húmor bannaður í barnauppeldi?

Play Episode Listen Later Feb 11, 2020 62:17


Við stöllur grétum bæði af gleði og sorg yfir leikritinu Mæður sem nú er sýnt í Iðnó. Við fengum Lilju Nótt Þórarinsdóttur, leikkonu og framleiðanda sýningarinnar til okkar í spjall um hvernig er að sýna leikrit með salinn fullan af ungbörnum og hversu mikilvægt það er að geta talað upphátt og gert grín að sjálfum sér, aðstæðunum og uppeldinu.

24. Hvar fást pakkaferðir fyrir fimm ?

Play Episode Listen Later Feb 5, 2020 40:47


Fæðingartíðni hríðlækkar og konur byrja seinna en ella að eignast börn. Til að viðhalda náttúrulegri fólksfjölgun þarf 2,5 barn á hverja konu. Ætli við séum orðin of gömul til að nenna að eignast mörg börn eftir þrítugt, ætli sé of dýrt að eiga börn í dag eða er fæðingartíðnin kannski í raun bara að hrapa úr einhverju óraunhæfu og óhóflegu í eitthvað viðráðanlegra? Við erum með handrit og förum yfir stóru málin í kvöld.

23. Fæðingarsögur feðra óskast

Play Episode Listen Later Jan 28, 2020 43:40


Við fengum góða gesti í stúdíóið, þau Grétu Maríu og Ísak sem nú vinna að því að safna saman fæðingarsögum feðra sem þau ætla að gefa út í bók. Gréta María er ljósmóðir en Ísak verkefnastjóri í hugbúnaðarfyrirtæki og með framtakinu vilja þau skapa vettvang fyrir feður og opna umræðuna þannig að þeim verði jafn tamt og mæðrum að ræða reynsluna sín á milli. Feður á öllum aldri eru hvattir til að senda sína sögu á Facebook síðuna Fæðingarsögur feðra sem má finna hér eða á netfangið faedingarsogurfedra@gmail.com

22. Hugguleg skemma í Skútuvogi óskast leigð

Play Episode Listen Later Jan 21, 2020 52:01


Emma foreldraði yfir sig um helgina og pakkaði okkur hinum algjörlega saman. Örvæntið þó ei því á móti gleymdi Mæja að þvo kuldagallann og pollagallinn var enn blautur á mánudagsmorgni. Auk þess ræddum við nauðsyn þess að framleiða meira af íslensku barnaefni fyrir sjónvarp og reyna þannig að draga úr Youtube glápi, villta drauma um huggulegt barna kaffihús í Skútuvogi og komandi febrúar með blóm í haga.

21. Þekkir þú góðan múrara?

Play Episode Listen Later Jan 14, 2020 36:34


Tala foreldrar bara um lélega sokka,sistema box og framkvæmdir? Eru takmörk fyrir því hvað hægt er að vera leiðinlegur og er þessi lægð alla andlega að drepa? Annars ætlum við að reyna að vera minna tuðandi og skemmtilegri foreldrar 2020. Byrjum það örugglega af krafti í febrúar! Við rokkum og þið líka - takk fyrir að hlusta :-)

20. Er greindargliðnun læknanleg?

Play Episode Listen Later Jan 7, 2020 43:31


Tvær með greindargliðnun settust niður, fengu sér te, lofuðu endurkomu rútínunnar, fóru yfir gamlárskvöld með börn og deildu með hlustendum sínum háleitum markmiðum fyrir nýtt ár. Njótið kæru hlustendur - við erum vin í lægðinni.

19. Áramótabomba Andvarpsins

Play Episode Listen Later Dec 31, 2019 45:16


Við þökkum kærlega fyrir frábært ár kæru unnendur Andvarpsins ! Við hófum þessa vegferð með það að leiðarljósi að rífa niður glansmyndina og vera vin í eyðimörkinni. Vonandi höfum við öll lært eitthvað örlítið af þessu og förum inn í nýtt ár með það í huga að upplifa hlutina eins og þegar maður þurfti að bíða í mánuð eftir slidesmyndunum úr framköllun í Danmörku. Þið skiljið hvert við erum að fara....30% eru nóg - muna að vera og ekkert endilega að gera. Knús miklu frekar en hreint hús ! Takk fyrir stuðninginn elsku þið við erum meyrar og marineraðar og hlökkum til 2020 !!!

18: Die hard og danskt jólaöl

Play Episode Listen Later Dec 1, 2019 18:29


Gestur Andvarpsins er unglingur sem leiðir okkur í sannleikann um það hvað það er sem skiptir máli í jólaamstrinu. Bestu og verstu jólahefðirnar, það sem skiptir máli og það sem má algjörlega missa sín. Náið ykkur í teppi og jólaöl og hafið kósí með okkur!

17: Ef ég nenni

Play Episode Listen Later Dec 1, 2019 34:08


Hver ætlar að borða hrekkjavökuhúsið hennar Emmu og nennir Helgi Björns ekki neinu? Hvor okkar er að vinna aðventu keppnina og er Mæja alveg að klúðra þessu? Okkar skilaboð á aðventunni eru þessi: Borðið bara smákökudeig ef þið nennið ekki að baka það og slökkvið svo bara ljósin og kveikið á kertum og ekki skúra veggina. Eins þökkum við fyrsta pabbanum fyrir spjallið í Andvarpinu en hann varð fyrir því á dögunum að týna tveimur uppkomnum börnum en finna þau skömmu síðar með aðstoð Íslendingabókar. Hugljúf og dálítið dramatísk aðventu frásögn sem kennir okkur að vera góð við börnin okkar og njóta þeirra meðan þið eigið eitthvað í þeim.

16: Stjórnaðu eigin orgíu

Play Episode Listen Later Dec 1, 2019 49:19


Aðventan og jólin eru dásamlegur tími en líka skipulögð orgía sem við þurfum öll á að halda í svartasta skammdeginu til að minna okkur á vorið. Við fengum Sólu (Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðing) í áhugavert og þjóðfræðilegt jólaspjall um jólasiði þá og nú og jólasiði hér og í öðrum löndum. Og fórum að sjálfsögðu yfir það hvort allur þessi æsingur sé nauðsynlegur og hver séu fórnarlömb nútíma jólagleði? VARÚÐ LÁTIÐ EKKI BÖRN HLUSTA Á ÞENNAN ÞÁTT ÞVÍ VIÐ RÆÐUM UM JÓLASVEINANA.

15: Að sofa ekki og ekki sofa hjá

Play Episode Listen Later Nov 26, 2019 63:31


Við fengum sálfræðingana Hrefnu Hrund og Ólöfu Eddu í spjall um áhrif barneigna á parasambandið. Við komumst að því að góð samskipti eru lykillinn og að hugsanalestur ber engan árangur. Þá getur rómantíkin jafnvel leynst í kryddskúffunni eða í ósamstæðu sokkahrúgunni. Þær stöllur halda úti vefsíðunni Parameðferð þar sem finna má góð ráð af ýmsu tagi.

14: London hringir - ekki svara

Play Episode Listen Later Nov 19, 2019 48:53


Í þessum þætti ræðum við enn og aftur um utanlandsferðir með börn, samviskubitslausar sumarbústaðaferðir með vinkonunum og mikilvægi þess að velja og hafna á aðventunni.

13: Mánudags steik með extra sósu

Play Episode Listen Later Nov 12, 2019 35:47


Tvær dálítið blúsaðar og utan við sig á mánudegi. Jafnvel með næstum allt niður um sig, myndu sumir segja. En þannig er lífið bara oftast þegar það er búið að taka filterinn af og ýta á PLAY !

12: Þolinmæði og þrautseigja

Play Episode Listen Later Oct 31, 2019 71:20


Í þessum þætti fáum við í viðtal Önnu Steinsen, þjálfara og eiganda Kvan. Við spjöllum um humar, muninn á stórum og litlum málum í uppeldinu og mikilvægi þess að efla þrautseigju og seiglu í börnunum okkar.

Fyrsti viðburður Andvarpsins nálgast

Play Episode Listen Later Oct 31, 2019 3:20


Hér er örlítil gleðisprengja handa ykkur í morgunsárið á föstudegi auka ör-hlaðvarp ! Takk kærlega fyrir að hlusta og fyrir að kaupa miða og vonandi sjáum við ykkur sem flest, já flest ekki bara flestar. Miðasala fer fram hér - sjáumst á fræðandi og notalegu foreldrakvöldi með góðum gesti henni Soffíu Bæringsdóttur sem starfar sem fjölskyldufræðingur og doula hjá Hönd í Hönd.

11: Kíkt í pakkann

Play Episode Listen Later Oct 29, 2019 38:59


Í þessum þætti andvörpum við yfir afskiptasemi fólks af uppeldi annara, gerum atlögu að stóra skvísumálinu og ræðum það svo að kíkja í pakkann. Kíktum við sjálfar í pakkann og héldum við partý? Er best að skella bara í grill og bjór eða er kynjakaka málið? Allt þetta og miklu fleira í Andvarpi dagsins. Svo minnum við á viðburðinn okkar þann 6. nóvember næstkomandi miða má kaupa hér

10: Tekið upp úr töskunum

Play Episode Listen Later Oct 22, 2019 51:09


Við fögnum tíunda þætti Andvarpsins með spænsku rauðvíni í sokkavíti Maríu. Við förum yfir foreldravikuna þar sem Emma stillti sér upp til sigurs og ræðum um það dásamlega havarí að ferðast til útlanda með þrjú börn undir fimm ára. María gefur foreldrum er huga á ferðalög góð ráð en besta ráðið er í raun bara að vera heima eða taka með þér herdeild aðstoðarmanna. Já og gæti einhver græjað geggjað barnasvæði á flugvelli ??? Takk fyrir bless!

09: Sjálfselska er nauðsynleg

Play Episode Listen Later Oct 14, 2019 54:37


Í öðrum viðtalsþætti Andvarpsins fáum við til okkar Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, fjöllistakonu. Við spjöllum um flest sem skiptir máli; foreldrahlutverkið, leikgleði, sjálfselsku, sumarfrí, möguleika útigrillsins og margt fleira.

08: Tognun á geirvörtu

Play Episode Listen Later Oct 8, 2019 41:38


Viðtalsþátturinn sem er samt ekki viðtalsþáttur fyrir konur sem hafa verið með samviskubit yfir brjóstagjöf án þess að vita alveg af hverju. Við ræðum líka foreldravikuna og svo barst þættinum bréf sem ekkert ykkar má láta framhjá sér fara.

07: Bjargvætturin í búðinni og gubbupestin

Play Episode Listen Later Oct 1, 2019 27:56


Í þessum þætti förum við í saumana á gubbupestinni, óvini foreldra á pari við njálginn og lúsina. Við dýfum tánum í þróun samviskubitsins með fjölgun barna og hvetjum svo til byltingar á meðal foreldra í samvinnu og samkennd. Þið standið ykkur vel!

06: Þarf ég að strauja nærbuxurnar?

Play Episode Listen Later Sep 24, 2019 53:43


Í þessum þætti fáum við til okkar fyrsta viðmælanda Andvarpsins sem er engin önnur en Sirrý, stjórnendaþjálfari, kennari við Háskólann á Bifröst og rithöfundur. Hún er flestum landsmönnum vel kunn en við fengum hana til að ræða við okkur um tilfinningalega ábyrgð kvenna, hið eilífa samviskubit og almennt það hvernig er að vera foreldri í nútíma samfélagi.

05: Er verra að fæða barn en að láta gera við tönn?

Play Episode Listen Later Sep 17, 2019 58:05


Er hægt að fæða barn á réttan hátt eða er mögulega hægt að klúðra því samkvæmt fæðingarplaninu? Hvað gerist þegar fæðingarlæknirinn er heima að grilla pylsur? Hvers vegna er Óskajógúrt svona rosalega góð hálftíma eftir fæðingu? Við ræðum um fæðingar í þessum þætti og förum yfir okkar eigin reynslu og upplifun af þessum málum.

04: Ófrjósemi á (ó)léttu nótunum

Play Episode Listen Later Sep 10, 2019 63:19


Hvert barn er blessun og alls ekki sjálfgefið að fá að ganga með og ala barn. Emma og maður hennar háðu þriggja ára baráttu við að eignast sitt annað barn og voru það lánsöm að dæmið gekk upp að lokum sem er heldur ekki sjálfgefið. Í einlægu viðtali lýsir Emma yfir mánaðarlegum vonbrigðum þegar blæðingar hófust, samviskubitinu yfir því að vera ekki „nógu ófrjó“ og því hversu berskjaldað fólk verður í tæknifrjóvgunarferlinu þar sem ekkert er lengur heilagt og sjálfsvirðingin er sett í kassa inn í geymslu á meðan.

Claim Andvarpið - hlaðvarp foreldra

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel