POPULARITY
Þættir sem spá fyrir um flutning á hjúkrunarheimili og umönnunarbyrði aðstandenda, er heiti á doktorsritgerð sem Inga Valgerður Kristinsdóttir sérfræðingur í Heimahjúkrun varði í Hjúkrunarfræði við Hjúkrunar og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, fyrir 2 vikum. Doktorsrannsóknin hafði það að markmiði að varpa ljósi á þessa stöðu til að greina hvernig mætti þróa heimaþjónustu til að bregðast betur við þessum þörfum og styðja við eldra fólk til áframhaldandi búsetu á eigin heimili. Einnig er staðan hér á landi borin saman við nokkur lönd í Evrópu og niðurstaðan úr þeim samanburði er áhugaverð. Inga sagði okkur betur frá þessu í þættinum. Í dag kom Georg Lúðvíksson til okkar í síðasta sinn í bili í það sem við höfum kallað fjármálin á mannamáli. Því leit hann yfir farinn veg með okkur í dag og fór aðeins aftur yfir það helsta sem hann hefur talað um síðastliðna mánudaga: sparnað, lífeyrissjóðsmálin, lánaumhverfið, vextina og fleira. Sem sagt samantekt á mannamáli með Georgi í dag. Svo var það lesandi vikunnar, sem var í þetta sinn Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Svala talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Rokið í stofunni e. Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur Álfadalur e. Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur A Very Private School e. Charles Spencer Býr Íslendingu hér? e. Garðar Sverrisson Hin hljóðu tár, ævisaga Ástu Sigurbrandsdóttur e. Sigurbjörgu Árnadóttur Lífsstríðið, æviferð Margrétar Þórðardóttur e. Eirík Jónsson Tónlist í þættinum í dag: Velkomin heim / Haraldur Reynisson (Haraldur Reynisson) Let It Be Me / The Everly Brothers (Mann Curtis, Pierre Delanoe) It's Only a Paper Moon / Perry Como (Billy Rose, Harlod Arlen & Yip Harburg) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Velkomin til leiks. Siggi Sveins og Einar Jónsson ræða við mig um strákana okkar í handboltalandsliðinu og HM í handbolta. Hvernig fer leikurinn í kvöld gegn Któatíu? Kemst Ísland í 8-liða úrslit? Þeir kappar svara þessu og fleiru til. Þórhallur Dan og Svanhvít spjalla við mig um meistaradeildina, evrópudeildina, enska boltann og Bónusdeildina í körfubolta ásamt einhverju slúðri og kannski eins eða tvær Krummasögur. Njótið helgarinnar og ég minni á Mín Skoðun er á Facebook. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. ÁFRAM ÍSLAND.
Velkomin til leiks. Þáttur dagsins er óvenjulegur að mörgu leiti. Hann er tekinn upp í gær miðvikudag og í dag. Í gær talaði ég við Andra Stein Birgisson og Svanhvíti. Lengjudeildin, Besta deildin, Víkingur í evrópukeppninni og enski boltinn. Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR er svo á línunni í dag vegna kæru KR útaf framkvæmd leiksins HK-KR en dómstóll KSÍ kvað upp úrskurð sinn í morgun. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur.
Jóhann Már, Arnar Sveinn og Dr. Football. Doc mætir aftur 29.júlí.
Doc, Arnar Sveinn Geirsson og Gunnar Birgisson í Hamraborginni.
Doc, Hörður Snævar og Viktor Unnar Illugason í Ölsen.
Gunnar Ormslev og Jóhann Már mættu til Dr. Football í morgun.
Sigurður og Hrafnkell Már mættu í Dr. Football á þriðjudegi.
Doc, Arnar Sveinn og Gunnar Birgisson.
Dr. Football á Selfossi. Guðmundur Benediktsson og Tómas Þóroddsson gestir.
Arnar Sveinn Geirsson mættir reiður í Tuborg Tíuna í Hamraborg. Hann sat með Gunnari Birgissyni og Dr. Football.
Dr. Football fór yfir sviðið með Sigurði Bond og Kela.
Arnar Sveinn Geirsson og Jói Már kíktu til Ölsen hjá Dr. Football.
Dr. Football með Tedda Ponzu og Gunnari Birgissyni.
Dr. Football sat með þeim Jóa Má og Gunnari Ormslev.
Til Ölsen mættu þeir Sigurður Bond og Hrafnkell Freyr.
Velkomin til Ölsen. Arnar Sveinn og Jóhann Már með Dr. Football.
Gunnar Birgisson og Teddi Ponza með Dr. Football á 6 ára afmælinu.
Sigurður Bond og Keli með Dr. Football.
Gunnar Birgisson og Jóhann Már með Dr. Football á miðvikudegi.
Guðlaugur Victor Pálsson mætti til Ölsen á þriðjudagsmorgni. Hann hefur búið í nánast öllum Evrópulöndum og þekkir boltann í álfunni inn og út.
Dr. Football frá Ölsen í Vestur Þýskalandi. Helmut Kohl Þýskalandi.
Velkomin til leiks. Í dag er fjör í bænum. Enski boltinn um helgina og loks vann Man.United bikar. Neverlusen vann þýska bikarinn og við förum í Bestu deildina um helgina og spáum í leikina á fimmtudag auk þess sem við förum yfir hverjir voru aða fá leikbönn. Benedikt Gunnar Óskarsson,Evrópumeistari, er í viðtali hjá okkur en hann er á leiðinni til Noregs. Við heyrum í Inga Þór Steinþórssyni körfuboltagúrú en úrslitaleikur Vals og Grindavíkur er á morgun. Afturelding og FH mætast svo í fjórða leik liðanna í úrslitum handboltans. Afhverju þurfa þessir leikir að vera á sama tíma? Fréttir og slúður er á sínum stað og takk fyrir að vera með okkur, BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is
Velkomin til leiks. Í dag er aldeilis fjör hjá okkur. Við förum í fótboltann, körfuboltann og handboltann hér heima, karla og kvenna. Hringjum í Jón Halldórsson formann handknattleiksdeildar Vals og hann svarar mörgum óspurðum spurningum um þátttöku Vals í evrópukeppninni. Við spáum í spilin í enska boltanum og förum í fréttir og slúður þar á bæ ásamt því að tala um VAR. Spáum að sjálfsögðu í leiki helgarinnar hér heima og kynnum til leiks tvö skemmtileg lög þar sem annað þeirra er gamalt og gott og hitt kemur frá Ítalíu. Takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is.
Velkomin til leiks. Í dag er af nógu að taka. Besta deildin er tekin ítarlega fyrir, dómgæsla, rauð spjöld, leikirnir og fleira. Við förum einnig í körfubolta umræðu, spáum í spilin í Meistaradeildinni, Evrópudeildinni og Smabandsdeildinni. Lengjudeildin og handboltinn fá sinn skerf sem og Besta deild kvenna. Fréttir og slúður og fleira til. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is
Velkomin til leiks. Í dag er aldeilis fjör. Besta deildin er tekin fyrir sem og enski boltinn. Við förum í spár fyrir Lengjudeildina og hringjum í Hauk Guðberg Einarsson formann knd. Grindavíkur auk þess sem við spáum fyrir um gengi liðanna í sumar. Körfuboltinn fær sinn stað að venju sem og handboltinn og til hamingju Valur með Evrópukeppnina. Við tökum fyrir dagskrá næstu daga í sportinu og spáum í spilin og margt, margt fleira. Takk BK-kjúklingur, Marpól hreinsivörur og Slysalogmenn.is
Velkomin til leiks. Það er aldeilis nóg um að vera í dag. Besta deildin er að fara af stað. Við spáum í spilin fyrir tímabilið og fyrstu umferð auk þess sem yfirmaður dómaramála, Þóroddur Hjaltalín, fer yfir áherslur í dómgæslunni í sumar og varar spurningunni um VAR og fleira. Körfuboltinn er tekinn fyrir, Ísland-Pólland kvenna í fótbolta í EM, Ísland Færeyjar í EM kvenna í handbolta. Nokkrar Krummasögur detta inn hér og þar. Enski boltinn fær að sjálfsögðu sitt pláss og við minnum á BK-Tippleikinn á Facebook síðu þáttarins fyrir leik Víkings og Stjörnunnar. Þetta og sitthvað fleira. Njótið helgarinnar og takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is
Velkomin til leiks. Í dag er fjörug umræða um fótboltann hér heims. Víkingur vann Val í gær í leiknum um Meistarar Meistaranna. Spáin um Bestu deildina var kunngerð í dag. Hversu vel á Gylfi Sig eftir að nýtast Val? Við tölum um enska boltann og spáum í leikina nú í vikunni. Körfubolta umræðan er á sínum stað og svo einnig Olís deild karla og til hamingju Valur með undanúrslitin í evrópukeppninni. Ítalski boltinn, þýski boltinn og svo margt, margt fleira. Njótið og Takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn,is.
Velkomin til leiks. Í dag er ítarlega umræða um leik Íslands og Ukraínu í gær. Við gefum einkunnir og rýnum til gagns. Körfuboltinn er til umræðu en næst síðasta umferðin í Subway deild karla fer fram á morgun. Valur leikur gegn St.Búkarest um helgina í evrópukeppninni í handbolta og við spáum í spilin fyrir enska boltann þar sem leikur Man.City og Arsenal er aðal leikurinn. Úrslitaleikur Lengjubikarsins er í kvöld og við spáum í leik Breiðabliks og ÍA. Kiddi Hjartar en með fréttir frá Sauðárkróki. Þetta og margt fleira í dag. Takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is og GLEÐILEGA PÁSKA.
Velkomin. Í dag eru VBV, Svanhvít og Þórhalur Dan í þættinum. Subway deildin er tekin fyrir, rekstur nokkurra knattspyrnudeilda er til umfræðu og þar eru skrítnar tölur. Krummasögurnar eru á sínum stað, enski boltinn og stórleikur Liverpool og Man.City. Þið getið spáð í úrslit og markaskorara á Facebook síðunni okkar. Þetta og margt fleira. Takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Velkomin til leiks. Það er nóg um að tala í dag. Mörg vafaatriði í boltanum um helgina, í Englandi og á Spáni til dæmis. Við förum í enska boltann, þýska boltann og Alonso. Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði stórt fyrir svíum. Við tölum um Lengjubikarinn og þá sérstaklega leik Breiðabliks og Vestra. Við spáum í leikina í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni sem eru í vikunni og margt margt fleira. Takk fyrir BK-kjúklingur, Slysalogmenn.is og Marpól. Njótið vel. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Velkomin til leiks. Í dag er mjög svo gaman hjá okkur. Við tölum um íslensku kvennalandsliðin í handbolta og fótbolta. Við tölum um spilafíkn og fleira í þeim efnum. Rashford var að opna sig, nýr formaður Fram. Við spáum í spilin fyrir leiki helgarinnar, hvernig fer City-United? Dagatalið okkar er á sínum stað og ég er eflaust að gleyma einhverju í þessari upptalningu. Takk BK-kjúklingur, Slysalogmenn.is og Marpól fyrir að vera með okkur. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Velkomin til leiks. Við förum ítarlega í enska boltann og Kiddi burger er mættur með okkur aftur. Aron Jó málið er til umræðu, fer hann til blika? Skandall í Reykjavíkurmótinu enn og aftur. KSÍ er ekki í náðinni hjá afrekssjóði ÍSÍ frekar en fyrri daginn. Kyle Walker er ekki alveg að slá í gegn í einkalífinu. Þetta og margt fleira. Takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Velkomin í nýjasta þátt af Þú veist betur. Ég heiti Atli Már og í þetta skiptið ætlum við að fara yfir manngert efni, sem er bókstaflega allt í kringum okkur. Án þess veit ég ekki almennilega hvernig borgir okkar eða bæir myndu líta út. En sem betur fer þurfum við ekki að velta því lengi fyrir okkur því nema þið séuð út í göngutúr eru allar líkur á því að þið getið komið við steypu á innan við 5 sekúndum. En hvernig varð steypa til, hvernig er hún gerð og af hverju notum við svona ótrúlega mikið af henni? Til að segja okkur allt um steypuna fékk ég til mín Ólaf Wallevik sem er óhætt að segja að sé einhver mesti sérfræðingur sem við Íslendingar eigum varðandi steypu. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Ólafur Wallevik

LOKSINS! Paradís er eins og jólin, kemur bara einu sinni á ári og Lilja og Jóna alltaf jafn spenntar! Afhverju er Blake heitasti maðurinn á ströndinni? Afhverju eru alla skotnar í jakka Will? Og afhverju er Rachel með arfaslakann smekk á mönnum?
Leikin eru lög af þremur íslenskum hljómplötum sem komu út árið 1978, og hafa að mestu fallið í gleymsku. Það eru plöturnar Dansað á dekki með Fjörefni, Linda með Lindu Gísladóttur og Velkomin í gleðskapinn með Alfa Beta. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þær eru mættar, ykkar allra uppáhalds Jóna og Lilja með fyrsta þátt af nýrri Bachelorette seríu! WHOOP!
Förum yfir lögin eða eitthvað...
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um öra verðlækkun á Marel sem hefur áhrif á allan hlutabréfamarkaðinn, uppgjör Festi sem er á skjön við umræðu um meintar verðhækkanir matvörurisa, það hvort að bankarnir eiga að lina þjáningar fólks vegna hækkandi vaxta, hlutverk Seðlabankans sem stendur einn í baráttu við verðbólguna, það hvort að við þurfum í raun og veru aukin lífsgæði, hugmyndir um frekari skattahækkanir, nýskipan varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits og margt fleira. Fjölbreytt umræða í þætti sem fagnar fjölbreytileikanum.
María Mey sem hin hreina mær hefur verið einn helsti innblástur listamanna af öllu tagi frá því að hún kom fram á sjónarsviðið. Hin hreina og óflekkaða mær er þó ekki svo óflekkuð í huga allra og í seinni tíð hafa femínískir guðfræðingar varpað ljósi á allskyns annarskonar útgáfur af Maríu, sem í sumum tilfellum er nærbuxnalaus og dónaleg. Sigríður Guðmarsdóttir guðfræðingur er ein þeirra sem tekur til máls á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands á morgun, þar mun hún fjalla um birtingarmyndir Maríu í nýrri sálmabók Þjóðkirkjunnar, með vísan í fræðimenn og myndlisarverk Kristínar Gunnlaugsdóttur. Við ræðum við Sigríði í þætti dagsins. Heimildarmynd um aðstæður hinsegin fólks í Téténíu verður sýnd í Bíó Paradís á sunnudaginn. Lucy Shtein, meðlimur Pussy Riot, segir hinsegin fólk ofsótt á svæðinu og að mikilvægt sé að muna að aðstæður margra séu bágar í Rússlandi. Hún verður gestur okkar í þætti dagsins.

Spegillinn 1. desember 2022. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Velkomin að Speglinum, umsjón hefur Anna Kristín Jónsdóttir. Morgundagurinn sker úr um hvort tekst að semja að mati Vilhjálms Birgissonar, formanns Starfsgreinasambandsins. Hægt verði að semja til lengri tíma í haust þegar óvissa verði minni. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hann. Meirihluti borgarráðs samþykkti í dag sparnaðar og hagræðingaraðgerðir sem eiga að skila rúmlega milljarði króna. Meðal annars á að spara í innkaupum til skóla og stækka og breyta gjaldsvæði bílastæða. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Samfylkingin yrði næst stærsti þingflokkurinn með tuttugu og eitt prósent fylgi og fimmtán þingmenn yrði kosið í dag. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Ekkert lát er á óöldinni sem ríkir í Íran. Forsetinn hvetur fólk til að bjóða erlendum hvatamönnum mótmæla í landinu byrginn. Oddur Þórðarson sagði frá. Verðhækkanir á þjónustu sérgreinalækna koma niður á heilbrigðiskerfinu síðar meir að sögn Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur formanns Öryrkjabandalags Íslands. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir talaði við hana. ------------ Norðurlandasamstarfið breytist við inngöngu Svía og Finna í atlantshafsbandalagið segja nefndarmenn í utanríkismálanefnd sem nú fjallar um breytingar á þjóðaröryggisstefnu. Þar eru undir brýnni mál en nokkru sinni. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Njál Trausti Friðbertsson (D) og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur (C). Sameinuðu þjóðirnar fara fram á fimmtíu og einn og hálfan milljarð dollara til að veita á fjórða hundrað milljónum jarðarbúa mannúðaraðstoð á næsta ári. Stærsti hlutinn á að renna til aðstoðar flóttafólki frá Úkraínu. Ásgeir Tómasson tók saman, heyrist í Martin Griffith, framkvæmdastjóri mannúðarmála hjá SÞ og Imogen Foulkes fréttaritari BBC í Genf í Sviss.

Velkomin í nýjan þátt af þú veist betur, ég heiti Atli Már Steinarsson og í þetta skiptið hugsum við smátt. Nánast eins smátt og hægt er, svo lengi sem þú ferð ekki að hugsa um atóm. Það er annar þáttur, engar áhyggjur. Ég sá nefnilega á internetinu fyrir stuttu mynd sem fullyrt var að væri nákvæmasta mynd af frumu sem hefði verið tekin. Ef ég ætti að reyna að lýsa henni í orðum þá var myndin eins og blanda af hekluðu teppi í margvíslegum litum blandað við mynd af geimnum. Ég veit ekki hvort það segi ykkur eitthvað en ég bara get ekki betur. Bæði djúp og smágerð, full af alls kyns mismunandi formum. Þið getið prófað að skrifa inn ?picture of a cell? í Google og þetta ætti að birtast á skotstundu. En hvað um það, ég fylltist auðvitað forvitni og áhuga á þessu fyrirbæri sem við erum öll gerð úr. Hvernig það virkar og verður til, hvernig við sem mannfólk lærðum að sjá það og kynnast því betur. Ég fékk til mín Þórarinn Guðjónsson og í þetta skiptið förum aðeins örsnöggt í söguna, þar sem það er ógjörningur að fara yfir hana alla, því eins og alltaf er það svo annar þáttur, þróunarsagan, en eyðum mestum af okkar tíma í að kynnast frumunni betur. Umsjón: Atli Már Steinarsson
Velkomin að speglinum. Umsjón hefur Hafdís Helga Helgadóttir. Vísindamenn segja að búast megi við því að eldgosið á Reykjanesskaga verði langlíft. Gervihnattamyndir sýna landbreytingar á skaganum en vísindaráð almannavarna telur það ekki vera vegna kviku. Alríkislögregla Bandaríkjanna gerði í gær fyrirvaralausa húsleit í húsakynnum Trump, fyrrverandi forseta. Leitað var klukkustundum saman að leyniskjölum sem óvitað er hvort hafi fundist. Foreldrar verða sér út um ófáanleg lyf á samfélagsmiðlum. Yfirlæknir barnaspítalans segir mikla ábyrgð liggja á herðum þess sem útvegi barni lyf ólöglega, komi til alvarlegs atviks. Sérfræðingur ASÍ segir mikilvægt að styðja vel við barnafjölskyldur á tímum verðhækkana. Yfir hundrað prósent munur er milli sveitarfélaga þegar kemur að gjöldum fyrir skóladagvistun og mat. Rússlandsstjórn bregst illa við ákalli forseta Úkraínu um að Vesturlönd banni komur rússneskra ferðamanna. Talsmaður Rússlandsstjórnar segir kröfuna út í hött. Veðrið hefur leikið við íbúa á Austurlandi í dag. Von er á hlýrra lofti suðvestanlands, en því fylgja djúpar lægðir að sögn veðurfræðings.

Landsliðsuppgjör í Innkastinu að þessu sinni og einnig hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni sem fer aftur af stað á miðvikudaginn. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke ræða um jafnteflið gegn Ísrael og landsleikjagluggann í heild. Dráttur íslensku liðanna í Evrópu og U21 landsliðið eru einnig til umræðu ásamt því að Lengjudeildarhornið er á sínum stað.