POPULARITY
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Davíð O Arnar yfirlæknir á hjartadeild Landspítala um Christian Ericsen Arnór Sigurjónsson sérfræðingur í varnar og öryggisfræðum varðandi mögulega aðild að ESB og varnarsamninginn við Bandaríkin Símatími Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku um skýrslu norrænu ráðherranefndarinnar um orkuöryggi Brynhildur Georgsdóttir forstöðumaður þróunar og reksturs hjá Íslandsstofu um samkomulag sem snýr að því að vernda landaheitið Ísland og Iceland Magne Kvam framkvædastjóri og stofnandi Icebike Sigrún V. Heimisdóttir, sálfræðingur
Sería Sögufélags er ný ritröð um Íslandssögu þar sem vandaðar rannsóknir eru settar fram í lifandi frásögn. Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og er hver bók um sig nákvæmlega 100 blaðsíður. Ragnheiður Kristjánsdóttir er ein af fyrstu höfundum í þessum nýjum bókaflokki og hún kom til okkar í dag. Bók Ragnheiðar nefnist Þurfamenn fá mannréttindi, en árið 1927 var gerð breyting á íslenskum fátækralögum en fram að því var gert ráð fyrir að þau sem þáðu fátækrastyrk væru svipt ýmsum borgaralegum réttindum, svo sem atvinnufrelsi og kosningarétti. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar með gullmola af safninu eins og hún hefur gert annan hvern mánudag í vetur. í dag kom hún með tvo fréttaauka frá árinu 1955 frá heimsókn forseta Íslands, Ásgeirs Ásgeirssonar, til Noregs. Fyrst stutt umfjöllunum Bjarna Guðmundssonar blaðaafulltrúa utanríkisráðuneytisins ferðina og svo frá heimkomu forsetahjónanna og móttökunum sem þau fengu, ræðu Auðar Auðuns bæjarstjóra og Ásgeirs sjálfs. Helga Lára sagði okkur meira frá þessu í þættinum. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Andri Fannar Óttósson starfsmaður BUGL, barna- og unglingageðdeildar Landspítalans. Hann ætlar sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Andri talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ljóðasafn Einars Braga, Lunch Poems e. Frank O'Hara Morgunþula í stráum e. Thor Vilhjálms Faðir vorið Selurinn Snorri Skólaljóðin og Íslendingasögurnar Tónlistin í þættinum: Sól bros þín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Negril / Bjartmar Guðlaugsson (Bjartmar Guðlaugsson) Gott er að lifa / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Laugardagur 23. maí Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars Ragnari var nýlega sagt upp störfum á Landspítalanum sem hefur vakið sterk viðbrögð. Hann er vinsæll og vel metinn lyf- og gigtarlæknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hann segir yfirstjórn spítalans vanhæfa og segir óhræddur skoðun sína á Landspítalanum og hvað mætti bæta í heilbrigðiskerfinu okkar. Ragnar er í Helgi-spjalli vikunnar með Ásdísi Olsen.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Thelma Kristín Kvaran einn af eigendum Intellecta og ráðgjafi í ráðningum stjórnenda og sérfræðinga Víðir Reynisson formaður alsherjar- og menntamálanefndar um endurkomubann vegna skipulagðrar glæpastarfsemi Símatími Erna Milunka Kojic yfirlæknir smitsjúkdómadeild Landspítalans um veiruskipið Snorri Másson þingmaður Miðflokksins um að frjósemi standi í stað hér á landi og hefur ekki verið minni frá því að mælingar hófust fyrir rúmum hundrað og sjötíu árum. Jóhannes Bjarni Sigtryggsson íslenskufræðingur og rannsóknardósent hjá Árnastofnun Baldur Héðinsson stærðfræðingur um kosningaspá Vísis
Þessa vikuna er vitunarvakning hjá Lind, félagi fólks með ónæmisgalla. En markmið félagsins er að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla. Hrefna Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á ónæmisdeild Landspítalans kom í hljóðver og Guðrún Jóna Hreggviðsdóttir var á línunni frá Ítalíu, en sonur hennar fæddist með ónæmisgalla. Hún deildi með okkur þeirra sögu og Hrefna fræddi okkur um ónæmisgalla, vitundarvakningavikuna og félagið Lind. Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar, í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá ákveðnu afbrigði af býflugum sem eru þrautseigari gegn sníkjudýrum og sýklum og gætu því verið með lausnina til að bjarga býflugnastofninum sem hefur verið í hnignun. Tónlist í þættinum í dag: Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason) Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison) Okkar ástarvor / Björgvin Halldórsson og Sigurjón Brink (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestir þáttarins eru tvær fagkonur frá Vökudeild Landspítala, þær Snjólaug Sveinsdóttir nýburalæknir og Björk Áskelsdóttir ljósmóðir. Þær fjalla um áhrif nikótín-notkunar á meðgöngu og í brjóstagjöf á nýburann til skemmri og lengri tíma og má til dæmis nefna fráhvarfseinkenni á borð við öndunarerfiðleika og óværð. Gríðarleg aukning hefur orðið á nikótín-neyslu síðustu ár með vaxandi notkun nikótín-púða meðal ungmenna og fólks á barneignaraldri. Talið er að 20% kvenna á barneignaraldri neyti nikótíns daglega og um þriðjungur karla í sama aldursflokki en erfitt er að vita hve mikið magn nikótíns er notað vegna skorts á merkingum og innihaldslýsingum á púðunum. Því er til mikils að vinna þegar kemur að vitundarvakningu um áhrif nikótín-notkunar og hér er framlag Legvarpsins!
Þórarinn ræðir við Ragnar Frey Ingvarsson, formann Læknafélags Reykjavíkur, um stöðu heilbrigðismála á Íslandi.Ragnar telur opinberan heilbrigðisrekstur vera ósveigjanlegan og það sé ástæðan fyrir því að sama hversu miklu fé sé varið í þjónustuna sé sífellt aukin þörf á meiru. Hann segir opinberar heilsugæslustöðvar hitta tvöfalt færri sjúklinga en þær sem reknar eru í einkarekstri og því mikill afkastamunur. Í þættinum er rætt um DRG kerfið og hvernig megi auka afköst á Landspítala. Ragnar segir að einkareknar heilsugæslur og klíníkin gæti komið til með að auðvelda störf Landspítalans og að auka þurfi sjálfstæði lækna innan allra kerfa.Auk þessa er rætt um kjaramál hjúkrunarfræðinga, núning milli lækna og hjúkrunarfræðinga, hvaða áhrif það hefur að hjúkrunarfræðingar hafi betur upp úr því að sinna bókhaldsvinnu og hvort að útvista eigi fleiri verkefnum til einkarekinna aðila til þess að bæta störf bráðamóttökunnar og annarra deilda á Landspítala.- Afhverju afkasta einkareknar heilsugæslur tvöfalt meir heldur en þær sem reknar eru af hinu opinbera?- Eiga læknar að vera á hærri launum en hjúkrunarfræðingar?- Eru heilbrigðisstarfsmenn best til þess fallnir að sinna bókhaldsverkefnum spítalans?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25
Björn Ingi Hrafnsson og Daði Kristjánsson rýna í atburði líðandi stundar. Við ræðum hina umtöluðu páskaeggjaleit í heilbrigðisráðuneytinu á meðan starfsfólk Landspítalans stendur eftir með tómar hendur, nýjar vendingar í ESB-leiðangri Viðreisnar, hvort að íslensk stjórnvöld séu að sofa á verðinum gagnvart gervigreind, krísu í efnahagsmálum, umfjöllun Rúv um uppgjör sjávarútvegsfyrirtækja og margt fleira. Þá er hrós vikunnar á sínum stað ásamt hraðaspurningum, þar sem tónlistarsmekkur Sigmundar Davíðs kemur m.a. við sögu.
Kosningabaráttan í Danmörku var snörp því Mette Fredediksen, leiðtogi jafnaðarmanna og forsætisráðherra, boðaði óvænt til kosninga fyrir tæpum mánuði. Í gær sagðist um fimmtungur danskra kjósenda ekki vera búinn að gera upp hug sinn. Það er búist við spennandi kosninganótt því mjótt verði á munum milli rauðu og bláu fylkinganna, Hallgrímur Indriðason hefur fylgst með lokasprettinum. Til stendur að gjörbylta bráðamóttökunni í Fossvogi til að koma í veg fyrir þá örtröð og troðning sem hefur einkennt hana síðustu ár. Rafn Benediktsson framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu á Landspítalanum vonar að breytingarnar marki tímamót. Norska fótboltahetjan Erling Braut Haaland hefur fært heimabyggð sinni góða gjöf, rúmlega fjögurra alda gamla þýðingu á íslensku höfuðriti um norska konunga, Heimskringlu.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Eyjólfur Eyvindarson, Sesar A, formaður VÍK, Vináttufélags Íslands og Kúbu, er í Kúbu og tekur þátt í loftbrú með hjálpargögn. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, ræddi við okkur um virkjanamál. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra ræddi við okkur um erlenda glæpamenn. Hvað getum við bætt í krabbameinsmeðferðum? Sigríður Gunnarsdóttir, prófessor í krabbameinshjúkrun við Háskóla Íslands og forstöðumaður Rannsóknaseturs Krabbameinsskrár hjá Krabbameinsfélagi Íslands og Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir krabbameinslækninga á Landspítala og prófessor við læknadeild HÍ, ræddu við okkur um árangur í krabbameinsmeðferðum. Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna, ræddi ástandið á leigumarkaði.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Hlustendur veltu vöngum yfir dýrtíðinni. Hjörtur Gíslason, meltingafæraskurðlæknir á Landspítala og í Svíþjóð, ræddi við okkur um sína hlið á efnaskiptaaðgerðum á Íslandi. Vigdís Hauksdóttir og Ólafur Arnarson fóru yfir pólitík og efnahagsmál. Sólveig Ólafsdóttir, rannsakandi við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, ræddi við okkur um áhugavert námskeið um matarvenjur Reykvíkinga á 20. öld. Ástrós Erla Benediktsdóttir leiddi okkur í allan sannleikann um orkulækningar. Elfar Logi Hannesson og Rakel Björk Björnsdóttir, leikarar sýningarinnar Heilsugæslan, settust niður með okkur. Guðni Ágústsson og Gissur Páll ræddu við okkur um Brennju-Njáls sögu.
Um hundrað sjúklingar eru á Landspítalanum en bíða eftir því að komast í hjúkrunarrými og þrátt fyrir að leitað sé logandi ljósi að plássum um allt land hefur lítið gengið undanfarnar vikur. Í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um hópmorð er kveðið á um að ríkjum sem eiga aðild að honum beri skylda til að gera sitt til að koma í veg fyrir hópmorð og refsa þeim sem þau fremja. En hvernig eru færðar sönnur á ásetning um hópmorð? Rætt við Þórdísi Ingadóttur prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðing í þjóðarrétti.
Björn Zoëga, forstjóri King Faisal-sjúkrahússins í Sádi-Arabíu, fjallar um starfið sem hann gegnir nú, tímann sem hann átti sem forstjóri Karolínska sjúkrahússins í Stokkhólmi og þar áður sem forstjóri Landspítalans hér á landi. Við ræðum einnig um það hvort að hið fullkomna heilbrigðiskerfi eða hinn fullkomni spítali sé til í raun og veru, hverjar helstu áskoranirnar eru í rekstri spítala, hvernig tæknin er að gjörbreyta heilbrigðisþjónustu ef hún er nýtt rétt, hvort að mögulegt sé að útrýma ákveðnum sjúkdómum og margt fleira.
Hormónar, breytingaskeiðið, mataræði og ýmislegt fleira sem snýr að heilsu kvenna. Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrungarfræðingur og næringarþerapisti er komin til landsins og við spjölluðum við hana um þessi mikilvægu mál í dag. Fyrir ári greindist Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson athafnamaður á Akureyri með erfitt krabbamein í vélinda og hefur í kjölfarið þurft á aðgerð að halda, einu sinni í viku, til að halda fæðuvegi opnum. Þær aðgerðir voru framkvæmdar á sjúkrahúsinu á Akureyri en fyrir skemmstu hefur hann þurft að sækja þessa þjónustu til Reykjavíkur. Hann skrifaði nýlega grein í fjölmiðla þar sem hann setur spurningamerki við þessa löngu leið í aðgerðina og reiknaði út að árið 2024 færi fólk af landsbyggðinni 25-30 þúsund ferðir til höfuðborgarinnar til að sækja læknisþjónustu á Landspítalann og kostnaðurinn við það væri rúmur milljarður. Þorvaldur spyr hvort það borgi sig virkilega að Sjúkratryggingar, þ.a.l. ríkið og skattgreiðendur, greiði fyrir allar þessar ferðir til Reykjavíkur til að sækja þangað læknisþjónustu sem í mörgum tilvikum væri hægt að framkvæma á landsbyggðinni? Við ræddum við Þorvald Lúðvík í dag. Eva Olgudóttir kom í þáttinn með vísindaspjall sitt eins og undanfarna miðvikudaga. Í þetta sinn sagði hún okkur frá því hvaða áhrif krabbamein í æsku getur haft á fólk seinna meir í lífinu. Tónlist í þættinum Þú trumpar ekki ástina / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Jag har det så travlt / Tina Dickow (Tina Dickow) Dont Blame It on That Girl / Matt Bianco (Mark Reilly & Mark Fisher) Harvest / Rufus Wainwright, Chris Stills og Andrew Bird (Neil Young) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við kynntumst Ingibjörgu Eiríksdóttur ljósmóður, sérfræðingur í ljósmóðurfræðum og brjóstagjafaráðgjafa í þættinum í dag. Landspítalinn stóð fyrir heiðursmálþingi vegna starfsloka hennar sem sérfræðiljósmóður við spítalann og miðað við erindin sem þar voru flutt þá er óhætt að segja að hún hafi markað djúp spor í faginu og verið fyrirmynd og áhrifavaldur. Ingibjörg er brautryðjandi í umönnun og fræðslu í fjölburameðgöngum, fæðingum og brjóstagjöf á Landspítalanum. Við töluðum við Ingibjörgu á þessum tímamótum, fengum hana til að rifja aðeins upp ferilinn og þróunina í faginu í þættinum. Kjarakönnun sem Gallup framkvæmdi undir lok síðasta árs fyrir norðlenska stéttarfélagið Einingu Iðju sýnir að vaxandi hlutfall félagsmanna hefur þurft að neita sér um læknis- og tannlæknisþjónustu vegna kostnaðar og stór hluti þeirra sem eru með börn á leikskóla er ósáttur við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá þeirra og hafa neyðst til að breyta vinnutíma sínum. Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast eiga erfitt með að greiða af lánum sínum ekki verið hærra síðan 2019 og yngra fólkið á sífellt erfiðara með að búa sér mannsæmandi líf. Við ræddum við Tryggva Jóhannsson varaformann Einingar Iðju í dag. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að sykurneysla fyrstu 1000 daga ævinnar (þ.m.t. á skeiði fósturþroska) getur haft neikvæð áhrif á hjarta og æðaheilsu. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum. Tónlist í þættinum í dag Dag eftir dag / Múgsefjun (Eva Hafsteinsdóttir og Hjalti Þorkelsson) Ævintýri / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson) Just Breathe / Willie Nelson & Lukas Nelson (Eddie Vedder) Á rauðum sandi / Ylja (Guðný Gígja Skjaldardóttir, Bjartey Sveinsdóttir og Smári Tarfur Jósepsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þórarinn ræðir við Jón Magnús Kristinsson, starfandi aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, en hann hefur einnig mikla reynslu af heilbrigðiskerfinu og starfaði sem yfirlæknir bráðamóttökunnar áður en hann hóf störf í ráðuneytinu.Rætt er um stöðu Landspítalans í samhengi við einkarekstur og opinberan rekstur. Fjallað er um hugmyndafræði, greiðsluþátttöku, nýtingu, hagræðingu, framleiðni og skort.Jón Magnús segir mikilvægt að huga að samfélagssáttmálanum þegar rætt er um heilbrigðiskerfið. Hann telur að almenn sátt liggi á bakvið þá ákvörðun að heilbrigðisþjónusta sé fjármögnuð í gegnum sameiginlega sjóði og ekki eigi að vera hægt að borga sig fram fyrir röðina.Einnig er. rætt um DRG-kerfið, kjarasamninga hjúkrunarfræðinga og lækna, hvata lækna til þess að starfa á Íslandi og fleira.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.me
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ingibjörg Ísaksen, þingflokksformaður Framsóknar, ræddi við okkur um stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri. Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir krabbameinslækninga við Landspítalann og dósent við læknadeild Háskóla Íslands, ræddi við okkur um ristilkrabbamein. Einar Bárðarson og Jógvan Hansen fóru yfir fréttir vikunnar. Júlíana Sara Gunnarsdóttir, leikkona og þáttarstjórnandi í Bakaríinu, ræddi óhugnalega reynslu sem dóttir hennar og vinkonur lentu í. Guðný Ósk Laxdal, The Royal Icelander, ræddi við okkur um handtöku Andrew Mountbatten-Windsor. Jón Erik Sigurðsson, skíðakappi settist niður með okkur nýkominn af Ólympíuleikunum.
Svifrykið sem mælst hefur á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana í froststillunum er mjög skaðlegt fyrir heilsu fólks. Það eykur tíðnina á hjartaáföllum og heilablóðföllum er krabbameinsvaldandi og í svifrykinu eru baneitraðar hárfínar agnir sem eru að berast inn í líkamann og valda heilsutjóni. Þetta er haft eftir Hjalta Má Björnssyni formanni félags lækna gegn umhverfisvá í viðtali á Vísi í gær. Hjalti kom í þáttinn í dag. Hvað er málfærni? Hvernig er að vera í viðkvæmri stöðu þegar kemur að málfærni? Og hvernig notar fólk málbeitingu og breytileika tungumálsins í sína þágu? Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni og talmeinafræðingur við Landspítalann kom til okkar í dag og sagði frá erindi sem hún kallar Mál og vald. Við fengum hana til að segja okkur betur frá því í þættinum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo í dag í veðurspjallið. Í framhaldi af viðtali okkar í gær við Andra Snæ Magnason, byrjaði Einar á því að setja stórar og illskiljanlegar tölur, sem Andri nefndi, um jöklaafkomu í samhengi. Svo er það hlýjasti janúar í sögu mælinga í Nuuk á Grænlandi, en á sama tíma kaldasti janúar í Dammörku. Það setti hann svo í samhengi við tíðina hér heima og snjóleysið sunnanlands í vetur. Í lokum sagði Einar frá breytingum framundan í veðrinu, snjókomuspá og sitthvað fleira. Tónlist í þættinum í dag: Einu sinni var / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Svavar Benediktsson, texti Kristján frá Djúpalæk) Ekki bíl / Hrekkjusvín (Valgeir Guðjónsson, texti Pétur Gunnarsson) Vor við flóann / Ragnar Bjarnason (Leon T. René, texti Jón Sigurðsson) Gamla gatan / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Alþjóðamál Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur Davíð Stefánsson formaður Varðbergs Hin árlega Öryggisráðstefnan í Munchen stendur yfir. Fyrir ári settu Bandaríkjamenn allt i uppnám með ræðu varaforsetans, nú situr hann heima og tóninn er diplómatískari í garð Evrópu. En hefur stefnan eitthvað breyst? Heilbrigðismál Alma Möller, heilbrigðisráðherra Bráðamótttaka Landspítalans stendur í ljósum logum. Starfsfólk óánægt, þjónustan versnar, sjúklingar á göngunum og ríkið ráðalaust eins og mörg undangengin ár. Hvað hyggst heilbrigðisráðherrann gera? Evrópumál Dagbjört Hákonardóttir, alþingismaður Erna Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Heimssýn Evrópuumræðan er komin á fullt en er hægt að greiða atkvæði um framhald viðræðna ef samningsmarkmið Íslendinga liggja ekki ljós fyrir áður en sú atkvæðagreiðsla fer fram? Er um eitthvað að semja hvort eð er? Efnahagsmál Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar Eru launavísitölufrumvarp ríkisstjórnarinnar efnahagslegt sjálfsmark? Er útilokað fyrir Ísland að ná niður verðbólgu og 2,5% markmið Seðlabankans óraunhæft með öllu. Eru verðhækkanir m.ö.o. innbyggðar í íslenskt efnahagslíf.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jón Kristinn Þorsteinsson íbúi í Grafarvogi segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eftir að hafa verið rændur Rósa Guðbjartsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins vill skipta Bráðamóttöku Landspítala upp og hleypa einkaaðilum að. Segir stefnuna nú vera mannfjandsamlega Símatími Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögreluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Ómar Úlfur Eyþórsson dagskrárstjóri Bylgjunnar og Höskuldur Sæmundsson verkefnastjóri alþjóðadags útvarps um útvarpsdaginn sem er í dag 13. febrúar Albert Eiríksson matarbloggari og sérfræðingur í borðsiðum og royalisti um Valentínusardaginn
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Sigvaldi "Svali" Kaldalóns á Tenerife Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala um 5 milljarða niðurskurðakröfu Landspítala og stöðuna á bráðamóttöku Símatími Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson sem eru stjórnarmenn í Samtökum skattgreiðenda Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir varaþingkona Samfylkingarinnar um erlent eignarhald innviðafyrirtækja Einar Bárðarson framkvæmdastjóri SVEIT Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði um veitingageirann sem er kominn að þolmörkum Kristján Leó Guðmundsson tölvunarfræðingur með Slapp appið
Miðvikudagur 11. febrúar Staðsetning geðdeildar, Trumptíminn, Réttur er settur og trúverðugleiki Margir lýsa vaxandi áhyggjum af staðsetningu nýja Landspítalans. Hildigunnur Sverrisdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks ýmis álitaefni er tengjast staðsetningunni og mikilvægi geðverndar. Hún deilir jafnframt persónulegri sögu. Þau Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafi og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst og Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent á menntavísindasviði HÍ mæta í Trumptímann til Laufeyjar Líndal að þessu sinni. Farið er yfir fréttir vikunnar úr landi Trump sem að venju eru margar og skrautlegar og misskemmtilegar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir júritísk álitamál sem tengjast fréttum líðandi stundar í samtali við Björn Þorláks. Epstein-skjölin, jöfnun atkvæðisréttar í tengslum við nýja stjórnarskrá, gervigreind og börn og fleira ber á góma. Hefur trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar beðið hnekki með háu vaxtastigi og verðbólgu? Hvað með ESB? Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, ræðir stöðuna og horfurnar við Björn Þorláks.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á Landspítala. Alex ræðir við okkur um málefni og upplifun trans- og kynsegin fólks af barneignarferlinu og samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þessi hópur mætir ýmsum áskorunum innan heilbrigðiskerfisins, sérstaklega þegar kemur að kynheilsu og frjósemi og heyrum við því góð ráð til að tryggja jafna topp þjónustu fyrir öll. Alex er sjálfur trans og fjölskyldufaðir og heyrum við frá hans upplifun af því að koma út sem trans og stofna síðar fjölskyldu. Komiði með!
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, vonar að komið sé að vendipunkti í þessari umræðu. Heilbrigðiskerfið hafi verið vanfjármagnað í lengri tíma og í því samhengi nefnir hún skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítalann sem kom út fyrir rúmu ári. Þar hafi verið bent á lausatök og úrræðaleysi, að yfirsýn skorti og fjármagnaða heildaraðgerðaáætlun. Það vita færri - en þó allir sem vilja - að staðan á hernumdum Vesturbakkanum er líka skelfileg þótt hún sé til allrar hamingju fjarri því jafn slæm og á Gaza. Þar halda Ísraelar áfram að ræna landi Palestínumanna sem Ísraelum, sem hernámsaðilum, ber þó skýr lagaleg skylda til að verja. Þvert á móti leggjast þar allir á eitt, Ísraelsher, ísraelsk stjórnvöld og svo landræningjarnir sjálfir, bæði þeir um það bil 700.000 sem fyrir eru og þeir sem hyggja á nýtt landrán Allt frá því að gríðarstór skriða féll í Hítará árið 2018 hefur verið rætt um hvort tilefni sé til að endurheimta fyrri farveg árinnar. Skriðan er farartálmi fyrir laxa á leið heim á hrygningarstöðvarnar og nýi farvegurinn er torfær fyrir laxinn. Kostnaðurinn við að grafa gegnum skriðuna gæti hlaupið á hundruðum milljóna en fyrir landeigendur í dalnum eru talsverðir hagsmunir í húfi.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er Alexander Björn Gunnarsson, félagsráðgjafi í Transteymi fullorðinna á Landspítala. Alex ræðir við okkur um málefni og upplifun trans- og kynsegin fólks af barneignarferlinu og samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þessi hópur mætir ýmsum áskorunum innan heilbrigðiskerfisins, sérstaklega þegar kemur að kynheilsu og frjósemi og heyrum við því góð ráð til að tryggja jafna topp þjónustu fyrir öll. Alex er sjálfur trans og fjölskyldufaðir og heyrum við frá hans upplifun af því að koma út sem trans og stofna síðar fjölskyldu. Komiði með!
Stjórnendur Landspítalans hafa varað við því um nokkurt skeið að það stefndi í óefni á sjúkrahúsinu. Í þremur minnisblöðum sem þeir hafa sent ráðherra á síðustu vikum kemur fram að vandinn á spítalanum ógni heilsu aldraðra og tafarlausra aðgerða er krafist. Hart er sótt að Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands vegna skipunar hans á Peter Mandelson í sendiherrastöðu þrátt fyrir tengsl þess síðarnefnda við Jeffrey Epstein. Kristján Guy Burgess stjórnmálafræðingur telur að þó naprir vindar blási um Starmer verði hann enn á ráðherrastóli um sinn. Í sumar er búist við heldur færri farþegaskipum en í fyrra og þeim hafði þá fækkað frá því í hitteðfyrra. Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri hjá Cruise Iceland telur að það taki nokkurn tíma fyrir greinina að jafna sig eftir þá fækkun sem megi helst rekja til óvissu og álagningu skatta og gjalda.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Bryndís Ásta Bragadóttir, sérfræðiljósmóðir á Landspítalanum og ræðir hún við okkur um yfirþyngd og offitu á meðgöngu. Við veltum málefninu fyrir okkur út frá ýmsum hliðum, allt frá frjósemi yfir í langtímaheilsu kvenna eftir meðgöngur. Áhrif yfirþyngdar og offitu á meðgöngu geta verið margvísleg þegar kemur að útkomum móður og barns og fræðumst við því um það sérhæfða eftirlit sem stendur þessum hópi til boða til þess að stuðla að heilbrigði, vellíðan og öryggi á meðgöngu, í og eftir fæðingu.
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Sigmari og Ómari. Sigurveig Þ Sigurðardóttir, yfirlæknir ónæmis- og ofnæmislækninga við Landspítalann, ræddi rannsóknir á ofnæmislyfinu Xolair. Magnús Kári, handboltadómari ræddi við okkur um dómgæsluna í leik Íslands og Ungverjalands. Fyrrverandi þingmennirnir Brynjar Níelsson og Helga Vala Helgadóttir fóru yfir hið pólitíska svið. Dóra Björt Guðjónsdóttir, Samfylkingu ræddi við okkur um húsnæðismarkaðinn. Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði, ræddi nýja bók um ástarkraft. Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskipta í Háskólanum í Reykjavík, ræddi við okkur um Framadaga. Henry Birgir Gunnarsson, fréttastjóri íþróttamála hjá Sýn, var á línunni frá Svíþjóð.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Brynja Ingadóttir, prófessor við ljósmóður- og hjúkrunarfræðideild og sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala og Helga Dagný Sigurjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri Icepharma Velferð, ræddu við okkur um heilsulæsi. Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur ræddi við okkur um stöðuna í Íran og heiminum öllum. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir ráðherraskipti og pólitíkina heilt yfir. Kristján Berg, fiskikóngurinn ræddi við okkur um atvik sem kom upp í versluninni hans. Símatími.
Í dag köfum við ofan í heilbrigðisvísindasöguna – og tökum fyrir sjúkrasögu Sigmundar Freud, föður nútímasálgreiningar, sem gekkst undir meira en 30 skurðaðgerðir og geislameðferð á 16 ára tímabili vegna þess sem talið var vera munnkrabbamein. Svend Richter, fyrrverandi dósent við Tannlæknadeild Háskóla Íslands og ritstjóri Tannlæknablaðsins, kíkir til okkar í upphafi þáttar til að ræða þetta og tilgátur um hvort veikindi Freuds hafi mátt rekja til vindlareykinga eða kókaínneyslu. Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur okkur sinn reglulega hálfsmánaðarlega pistil. Í dag ætlar hann að deila með okkur skoðunum sínum á byggingu Nýs Landspítala. Og í lok þáttar fáum við til okkar Arnar Pálsson, erfðafræðing við Háskóla Íslands, sem er orðinn hálfgerður fastagestur hér í Samfélaginu. Hann ætlar að segja okkur frá því hvernig SARS-CoV-2-veiran, sem olli covid-faraldrinum, hefur þróast og breyst síðan faraldurinn reið yfir. Er covid núna bara kvefpest? Getur samband okkar við þessa veiru sagt okkur eitthvað um hvernig við hugsum um flókin vísindaleg fyrirbæri. Meira um þetta í síðari hluta þáttarins. Tónlist í þættinum: Una Torfadóttir - Það sýnir sig. DOLLY PARTON - Just When I Needed You Most. Bob Dylan - Oxford Town.
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin journalist Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: Icelandic Made A Must For Hospital StaffAll staff at Landspítali are expected to be able to speak Icelandic according to the hospital's newly approved language policy. These requirements will first be applied to nurses, nursing assistants, and medical residents. Better Icelandic proficiency means higher pay.New Hospital Being Built, But Will There Be A Helipad?The most expensive building in Iceland's history, a new hospital in Reykjavík, will be opened in 2030 according to plans. However, issues remained unsolved regarding a helipad for said hospital. In an interview this weekend, minister of Health Alma Möller told RÚV that the plan is either to build a helipad on top of one of the buildings of the new hospital, or to acquire a plot of land near by the hospital, probably near the BSÍ Bus Terminal, for that purpose. Two Tourists Rescued North Of Torfajökull On Saturday night two tourists, driving god-knows-how north of Torfajökull in the Icelandic highlands, got their Suzuki Jimny stuck in the river Dalakvísl. The two SARS teams sent to rescue them took eight hours to do so.40 Years Of TV News On Weekends OverSýn, which used to be known as Stöð 2 until recently, announced Friday, that the TV news on their station would be no more. The network, founded in 1986 as the first non-state owned TV station, has been facing financial troubles recently, as have many media companies. The announcement , that also brought with it news of layoffs, added to an ongoing discussion about the dire financial straits media companies in Iceland find themselves in.Thanksgiving Is Becoming Popular In IcelandRÚV reported that more turkey is being sold at this time of year than before and that celebrating Thanksgiving seems like it is becoming something Icelanders do, along with celebrating Halloween. Dorrit Moussaief Mugged In LondonFormer First Lady of Iceland, Dorrit Moussaief, was, according to her own instagram #mugged in #London, this weekend, calling the incident, appropriately, a #crime. ------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://steadyhq.com/en/rvkgrapevine/You can also support the Grapevine by shopping in our online store: https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------ This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is
Við fengum heimsókn frá þremur rithöfundum í hljóðver RÚV á Akureyri, ungar konur sem eiga það sameiginlegt að vera allar að gefa út sínar fyrstu bækur og þær hafa þann háttinn á að vera saman í því að kynna þær. Þær sögðu okkur frá ferlinu að skrifa bækurnar og lásu svo allar stutta kafla úr bókum sínum, þ.e. Sesselía Ólafs úr bók sinni Silfurberg, Ester Hilmarsdóttir úr bók sinni Sjáandi og Nína Ólafsdóttir úr bók sinni Þú sem ert á jörðu. Við töluðum svo við Irisi Eddu Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni við HÍ og talmeinafræðing við Landspítalann. Hún og samstarfsfólk hennar vinna í mörgu áhugaverðu, meðal annars með því að nýta nýjustu tækni sem við ætlum að fengum hana til að segja okkur frá í dag. Hvernig talgreiningarforrit nýtast, hvernig raddupptökur geta nýst til að skima eftir röskunum og sjúkdómum og meta ávinning meðferðar. Auk þess fræddi hún okkur um íslenskar tölvuraddir, risamállíkön og átak sem er framundan í að safna röddum til að nútímatæknin skilji betur íslensku og þar af leiðandi nýtist betur sem greiningartæki. Svo voru það Mannlegu samskiptin, Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var aftur hjá okkur, eins og undanfarna fimmtudaga. Síðustu tvær vikurnar var það narsissisminn, nú ræddi hann um mörk og markaleysi. Hvað það er að setja sér mörk, innri og ytri mörk og ýmislegt fleira. Tónlist í þættinum í dag: Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson) Út á stoppustöð / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) Handle With Care / Traveling Wilburys (Travelin Wilburys) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Doktor Erla Björnsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Erla svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. Erla hefur haldið fjölda fyrlestra og námskeiða um svefn og svefnvenjur og stendur nú fyrir undirskriftum um að leiðrétta klukkuna á Íslandi. Leiðrétting á klukkunni felur í sér að seinka klukkunni um eina klukkustund, og halda þeim tíma allt árið. Erla segir að Ísland fylgi tímabelti sem samræmist illa sólarhæð og náttúrulegum sólargangi að staðarklukka okkar sé ekki rétt stillt miðað við legu landsins, og þetta misræmi hefur verið viðvarandi frá árinu 1968 þegar ákveðið var að festa landið á miðtíma (UTC) allt árið. Umboðsmaður barna heldur barnaþing í fjórða sinn á fimmtudag og föstudag. Um 130 börn eru skráð á þingið, þau eru á aldrinum 11-15 ára og voru valin með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Markmið barnaþings er að efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja þau í umræðu um málefni sem snerta þau. Agla Björk Kristjánsdóttir og Stef Jón Aðalsteins komu í þáttinn í dag en þau voru á síðasta barnaþingi og eru í ráðgjafahóp fyrir þingið í ár. Með þeim kom Salvör Nordal Umboðsmaður barna. Svo var það heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Í dag fræddumst við um sjúkdóminn sykursýki eitt sem minna er talað um í samanburði við sykursýki tvö sem er áunnin og hefur færst í aukana vegna heilsu- og lífsstílsbreytinga fólks undanfarin ár. Sykursýki eitt er hins vegar mjög íþyngjandi ólæknanlegur sjálfsofnæmissjúkdómur. Helga ræddi við Arndísi Finnu Ólafsdóttur sykursýkishjúkrunarfræðing á göngudeild innkirtla og gigtarsjúkdóma á Landspítalanum um byltingingarkennda tækni úr sprautum í sjálfvirkar insúlíndælur, blóðsykursnema og annan búnað sem hafa aukið lífsgæði fólks með sykursýki eitt en hún ræðir einnig um svokallaða sykursýkiskulnun sem er þekkt orð í sykursýkisheiminum. Arndís á líka tvö börn sem bæði greindust með sykursýki eitt við fjögurra ára aldur en hún hefur alltaf hvatt börnin sín að láta sjúkdóminn ekki stoppa sig. Tónlist í þættinum i dag: Draumaprinsinn / GÓSS (Magnús Eiríksson) Svefninn laðar / Nýdönsk (Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst Haraldsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson) All I Have To Do Is Dream / Everly Brothers (Boudleaux Bryant) Óli lokbrá / Björgvin Halldórsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir (Carl Billich, texti Jakob V. Hafstein) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þórarinn Eldjárn, rithöfundur og ljóðskáld, kom í þáttinn í dag. Hann þarf auðvitað ekki að kynna fyrir hlustendum, hann hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka, smásagna og skáldsagna sem eru samofin menningu okkar. Auk þess hefur hann þýtt mikið úr Norðurlandamálum og ensku, en hann lærði í Svíþjóð og bjó þar nánast allan áttunda áratuginn. Þórarinn hefur þýtt fjögur leikrita Shakespeare og við ræddum við hann um það í dag, því það er ekkert smá verkefni, enda eru þau að mestu í bundnu máli. Stakhendur Shakespeare og flókinn orðaforði þeirra er ekki bara hristur fram úr erminni, og í ljósi umræðna um stöðu íslenskunnar var mjög áhugavert að heyra hvernig Þórarinn fer í slíkar glímur. Slagdagurinn svokallaði er núna á laugardaginn, þetta er dagur alþjóðlegs átaks gegn slagi eða heilablóðfalli. Slagdagurinn verður í Kringlunni í Reykjavík og á Glerártorgi Akureyri frá kl.13-15. Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir taugasérfræðingur og yfirlæknir taugadeildar Landspítalans, og Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla komu í þáttinn og fóru meðal annars yfir þau einkenni sem við þurfum að vera vakandi fyrir og gætu bent til slags. Kristjana Arngrímsdóttir söngkona og José Manuel Neto, einn virtasti gítarleikari samtímans á portúgalskan gítar, koma saman á fadotónleikum í Hörpu 1. nóvember. Það er ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst á að heyra Fado tónlist á Íslandi á tónleikum en og hér gefst tækifæri til þess að heyra portúgalska örlagatónlist og íslensk ljóð og lög fléttast saman. Kristjana kom í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum í dag: Dagar og nætur / Björgvin Halldórsson (Jóhann G. Jóhannsson) Þakka þér fyrir / Stefán Hilmarsson (Gunnar Þórðarsson, texti Stefán Hilmarsson) One of These Things First / Nick Drake (Nick Drake) Lítið ástarljóð / Kristjana Arngrímsdóttir (Kristjana Arngrímsdóttir, texti Elísabet Geirmundsdóttir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Ísraelar hafa hindrað för skipa sem sigla með vistir til Gaza - handtekið fólk um borð og sent svo úr landi. Í morgun fóru ísraelskir hermenn um borð í skipið Conscience sem er hluti af friðarflotanum og handtóku meðal annarra tónlistarkonuna Möggu Stínu. Eru þær handtökur löglegar? Snjólaug Árnadóttir dósent við HR og sérfræðingur í Hafrétti svarar því. Bútasaumur er orð sem Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítalans finnst lýsandi um rekstur spítalans á meðan beðið er eftir nýjum. Hann hefur áhyggjur af því að tæki spítalans séu að verða úrelt, fjármagn vanti til að fara í nauðsynlegt viðhald og að Ísland sé smám saman að dragast aftur úr nágrannalöndunum. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hann. Verð á gulli hefur hækkað hratt og mikið undanfarna mánuði og fór í dag í 4.031 Bandaríkjadal á únsuna, sem er hin staðlaða eining í gullviðskiptum. Þetta er í fyrsta skipti sem verð á gulli fer upp fyrir 4.000 dollara á únsuna, en það hefur hækkað um 50 prósent á hálfu ári. Ævar Örn Jósepsson fjallar um þetta og ræðir við Eld Ólafsson, framkvæmdastjóra gullnámufyrirtækisins Amaroq. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason
Lind, félag fólks með meðfædda ónæmisgalla, vill vekja athygli á því að félagsmenn þess geta þurft á ævilangri lyfjagjöf að halda. Fram að þessu hafa flestir farið inn á sjúkrahús á þriggja til fjögurra vikna fresti í lyfjagjöf og þurfa þá að sækja lyfjagjöfina á Landspítala sama hvar á landinu þau búa. En annar möguleiki er lyfjagjöf undir húð með dælu heima einu sinni í viku og sá möguleiki eykur lífsgæði sjúklinga verulega, tekur t.d. minni tími frá vinnu og skóla, fyrir utan mikinn sparnað fyrir heilbrigðiskerfið. Í þessari viku heldur félagið tvo fræðslufundi, annan fyrir fagfólk í heilbrigðiskerfinu og hinn fyrir almenning. Guðlaug María Bjarnadóttir, leikkona og kennari hefur átt við meðfæddan ónæmisgalla að stríða alla ævi, kom í þáttinn í dag ásamt Sigurveigu Þ. Sigurðardóttur lækni og sérfræðing í barna- og ónæmislækningum. Við forvitnuðumst svo um málþingið Álfastund, um álfa og huldufólk, sem verður haldið í Borgarnesi á laugardaginn. Þar verða flutt stutt erindi frá ólíkum sjónarhornum sjáenda, fræðafólks, listafólks og almennings. Bryndís Fjóla Pétursdóttir garðyrkjufræðingur, heilari og starfandi völva, kom í þáttinn ásamt Sigríði Ástu Olgeirsdóttur sviðslistakonu en þær munu báðar tala á málþinginu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni, hann var í beinu sambandi frá Ísafirði þar sem hann sækir ráðstefnuna SNOW2025, sem haldin er í tilefni þess að nú eru um 30 ár frá snjóflóðunum miklu 1995. Hann sagði okkur aðeins frá því sem þar fer fram og til dæmis nýju skafrennings- og snjósöfnunarlíkani sem hann og sonur hans, Sveinn Gauti, kynntu þar. Svo sagði Einar okkurfrá fellibyljunum Humberto og Imeldu sem að óbreyttu gætu orðið að skaðræðislægð með stefnu á Bretlandseyjar og munu líka hafa áhrif á spánna hér á landi í lok vikunnar. Tónlist í þættinum í dag: Ég veit þú kemur / GDRN og Magnús Jóhann (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) Puppet on a String / Sandie Shaw (Bill Martin, texti Phil Coulter) Kall sat undir kletti / Þokkabót (Jórunn Viðar, texti Halldór Björnsson) You've Lost that Lovin' Feeling / Righteous Brothers (Phil Spector, Cynthia Weil og Barry Mann) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIr
Hvar eiga heimilislausar konur að vera ef þær eru óvelkomnar alls staðar? Við ræddum stöðu þeirra hér í dag í tilefni af grein sem birt var fyrir skömmu á Vísi um yfirstandandi ósætti um að Konukot, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur, flytji tímabundið í nýtt húsnæði í Ármúla 34. Húsnæðið þar sem Konukot er rekið í Eskihlíð er nánast ónýtt og komið að þolmörkum í viðhaldi. 84 konur gistu í Konukoti í fyrra, að meðaltali 9 á dag. Leit hefur staðið lengi að hentugu húsnæði en nú hafa eigendur annarrar starfsemi í Ármúla sett fyrirvara við því að þessi hópur komi þangað. Halldóra R. Guðmundsdóttir forstöðukona Konukots og Bjartey Ingibergsdóttir hjúkrunarfræðingur á göngudeild smitsjúkdóma hjá Landspítalanum komu í þáttinn í dag og við ræddum starfsemi Konukots, hvort raunverulega stafi hætta af heimilislausum konum eða hvort þetta séu fordómar og vanþekking á þessum viðkvæma jaðarsetta hópi. Í sögufrægu húsi að Fischerundi 3 rekur fjölskylda hönnunarverslun þar sem boðið er upp á upplifun fyrir skilningarvitin. Fischersund var kjörin besta hönnunarbúðin í ár af The Reykjavik Grapevine og þau eru nýkomin frá hönnunarvikunni í Helsinki þar sem þau vöktu mikla athygli, en þau sögðu frá ilmgerð fjölskyldunnar og töfrandi ilmheimi Íslands, þau hafa verið með viðlíka viðburði með ilmviðburði víða erlendis. Lilja Birgisdóttir er ein af stofnendum Fischersunds og hún kom í þáttinn og sagði okkur meira frá ilmum, útilykt og fleiru. Tónlist í þættinum í dag: Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) Michelle / The Beatles (Lennon & McCartney) Gathering Stories / Jónsi (Jón Þór Birgisson, texti Jón Þór Birgisson og Cameron Crowe) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Davíð O Arnar yfirlæknir á hjartadeild Landspítala um nýja rannsókn á Stafrænni heilbrigðisþjónustu Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins og Jóna Þórey Pétursdóttir, aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Símatími Björn Berg Gunarsson fjármálaráðgjafi í hvað er fólk að setja sparnaðinn Friðrik Jónsson sendiherra Íslands í Póllandi og sérfræðingur í öryggis og varnarmálum Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir um lækningarmátt sveppa Atli Stefán Yngvason hjá Tæknivarpinu um nýja Iphone og ios stýrikerfið
Fjögurra daga aðalmeðferð í Þorlákshafnarmálinu svokallaða lauk í dag þegar saksóknari og verjendur sakborninga fóru yfir málflutning sinn. Fimm eru ákærð, þrír menn fyrir manndráp, frelsissviptingu, rán og fjárkúgun. Á ýmsu hefur gengið við rannsókn þessa umfangsmikla máls, til að mynda reyndi einn sakborningur að fá annan til að taka alla sökina á sig og skipta um lögmann á meðan þeir sátu í gæsluvarðhaldi. Sveitarfélögum landsins fer fækkandi og þau sem eftir standa verða um leið fjölmennari. Sameiningar sveitarfélaga þurfa þó alltaf að hljóta samþykki íbúa í kosningum og sums staðar á landinu halda fámennar sveitir fast í sjálfstæði sitt. Þriðja fámennasta sveitarfélag landsins er Skorradalshreppur, sem hefur ítrekað hafnað sameiningu við aðrar sveitir við Borgarfjörð. 194 sjúklingar fengu skilaboð í gegnum kerfi Landspítalans eftir að bæklunarlæknir í hlutastarfi fletti þeim upp í sjúkraskrá. Þetta voru allt sjúklingar að bíða eftir liðskiptaaðgerð og þeim boðið að koma í skoðun á stofu sem læknirinn starfaði á.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri Kjósarhrepps, ræddi við okkur um skráningu á lögheimili í frístundahúsum. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ræddi við okkur vítt og breitt um menntakerfið. Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, ræddi við okkur um Reykjavíkurmaraþonið, efnahaginn og krónuna. Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ræddi við okkur um umferðina. Katrín Þórarinsdóttir, yfirlæknir gigtarlækninga á göngudeild Landspítala, ræddi við okkur um gigt og Reykjavíkurmaraþonið. Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Beint frá býli og smáframleiðenda
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þæti: Orkumál Ríkarður Örn Ragnarsson verkefnastjóri Vindorkuvers í Garpsdal Ríkarður segir frá verkefninu sem nýlega var flutt í nýtingarflokk, fyrst einkarekinna verkefna á Íslandi. Stjórnmál Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagbjört Hákonardóttir alþingismaður Þau Guðlaugur og Dagbjört rökræða Evrópumálin, fyrirhugaða umsókn Íslands um aðild að ESB sem þegar hefur kallað á kunnuglega og kröftuga andstöðu. Heilbrigðismál Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans Runólfur ræðir heilbrigðiskerfið í ljósi nýrra skýrsla Ríkisendurskoðunar um Sjúkratryggingar og mönnun og þjónustu Landspítalans. Runólfur lýsir stefnuleysi í kerfinu og segir róttækra breytinga þörf ef það á geta annað eftirspurn. Nýsköpun Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar Ásgeir ræðir um nýsköpun, skapandi greinar og hlutverk smáfyrirtækja í framtíðinni en Vísbending hefur nýverið helgað tvö viðamikil blöð þessum greinum.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætt: Heilbrigðismál Alma Möller, heilbrigðisráðherra, Ráðherra mun bregðast við nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítala fyrsta sinni - skýrslan gerir glögga grein fyrir mönnunarvanda og álagi á spítalanum sem síðan smitar út í allt kerfið. Hvernig er hægt að bregðast við því sem þar er lýst? Stjórnmál Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur Haukur ræðir ástandið á þinginu, kjarnorkuákvæðið og beitingu þess, málþóf og stöðu þingsins eftir þessa hörðu hríð að undanförnu. Stjórnmál Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins Forystukonur ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu takast á um stjórnmál dagsins og þá einkum veiðgjöldin og afgreiðslu þingsins á því máli. Alþjóðamál Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA Hilmar ræðir stöðuna í Úkraínu. Stríð hefur nú geisað í 40 mánuði og hægt og bítandi er Rússland að bæta stöðu sína - er fall Úkraínu orðið óumflýjanlegt, ef ekki, hvað þarf til að snúa stöðunni við?
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Gísli Már Gíslason prófessor emeritus í líffræði um muninn á lýsmýi og bitmýi Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra um uppbyggingu hjúkrunarheimila Símatími Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir og yfirlæknir á Landspítala og Hulda María Einarsdóttir ristilskurðlæknir um nýja rannsókn sem gefur vísbendingar um að markviss hreyfing geti bætt lífshorfur fólks sem fengið hefur ristilkrabbamein Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA um N1 mótið og stemninguna á Akureyri
Ríkisendurskoðun birti í gær skýrslu um stöðu Landspítalans þar sem dreginn er upp kunnugleg en um leið alvarleg mynd af stöðunni á stærstu heilbrigðisstofnun landsins; Landspítalanum. Í skýrslunni eru heilbrigðisyfirvöld sökuð um úrræðaleysi þegar kemur að mönnunarvanda spítalans sem er áfram í þeim vanda að of margir sjúklingar hans væru betur settir á hjúkrunarheimili - í þeim efnum er skuldinni skellt á stjórnvöld þar sem áform þeirra um uppbyggingu hjúkrunarrýma hafa engan vegin gengið eftir.
Fólk á ekki að þurfa leggja líf sitt að veði til að sækja sér neyðaraðstoð, en þannig er staðan á Gaza. 170 hjálparsamtök fordæma hvernig hjálpargögnum er dreift og krefjast þess að GHF hætti þar störfum. Það vantar sárlega fólk til starfa í heilbrigðiskerfinu og ekki síst vantar sjúkraliða á Landspítalann. Í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á spítalnum, mönnun og flæði sjúklinga kemur fram að 50 stöðugildi hjúkrunarfræðinga, 30 stöðugildi lækna, 14 stöðugildi ljósmæðra og um 380 stöðugildi sjúkraliða voru ómönnuð í fyrra. Því miður ekki óvænt tíðindi segir Sandra Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
Are you enjoying this? Are you not? Tell us what to do more of, and what you'd like to hear less of. The Reykjavík Grapevine's Iceland Roundup brings you the top news with a healthy dash of local views. In this episode, Grapevine publisher Jón Trausti Sigurðarson is joined by Heimildin journalist Aðalsteinn Kjartansson, and Grapevine friend and contributor Sindri Eldon to roundup the stories making headlines in recent weeks. On the docket this week are: ✨ A Silicon Factory near Húsavík, North-East Iceland, PCC are laying off 30 people and at least temporarily closing down production. We talk about how this is not the first such factory in Iceland to go belly up.✨ Socialist Party infighting continues. We half-heartedly explore the Icelandic Socialist Party's journey towards self-destruction.✨Moomins in Akureyri. A new set-to-be-open soon Moomin themed outdoor area near Akureyri runs into copyright issues. ✨MRI scanner problems in Landspítali Hospital. One of the few MRI machines in Iceland went offline as a floor cleaning machine got stuck on its exterior a couple of weeks ago. The floor cleaning machine has now been (finally) separated from the MRI machine, but the MRI machine is still broken.✨Heart shaped traffic lights in Akureyri are to be removed. Now the President of Iceland has intervened on the behalf of the traffic lights. ✨We discuss a 2023 door bell prank with consequences. ------------------------------------------------------------------------------------------SHOW SUPPORTSupport the Grapevine's reporting by becoming a member of our High Five Club: https://steadyhq.com/en/rvkgrapevine/You can also support the Grapevine by shopping in our online store: https://shop.grapevine.is------------------------------------------------------------------------------------------ This is a Reykjavík Grapevine podcast.The Reykjavík Grapevine is a free alternative magazine in English published 18 times per year, biweekly during the spring and summer, and monthly during the autumn and winter. The magazine covers everything Iceland-related, with a special focus culture, music, food and travel. The Reykjavík Grapevine's goal is to serve as a trustworthy and reliable source of information for those living in Iceland, visiting Iceland or interested in Iceland. Thanks to our dedicated readership and excellent distribution network, the Reykjavík Grapevine is Iceland's most read English-language publication. You may not agree with what we write or publish, but at least it's not sponsored content.www.grapevine.is
Við hugsum sjaldnast um lungun – nema þegar þau bregðast. En samt eru þau okkur bókstaflega lífsnauðsynleg, öndunartakturinn sem heldur okkur gangandi alla ævi. Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að þessari líffæravél sem við öndum í gegnum, frá fyrstu andardrætti til síðasta útöndunar. Ég fékk Ólaf Baldursson til mín, lungnalækni sem hefur fylgst með þróun læknisfræðinnar á þessu sviði og veit hversu miklar breytingar hafa orðið – og hvað framtíðin gæti boðið upp á. Við ræðum byggingu lungnanna, hlutverk þeirra, hvernig við höfum farið með þau í gegnum tíðina og hvað við getum gert til að vernda þau betur. Meira um Ólaf Baldursson: Ólafur er lyflæknir og lungnalæknir, sem hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum, kennslu- og vísindastarfi auk lyfjaþróunar. Grunnvísindaverkefni sem hann hefur tekið þátt í hafa tvisvar leitt til þróunar lyfja. Hann hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala frá árinu 2009 en hefur verið í leyfi frá henni í þrjú ár. Á þeim tíma hefur hann starfað sem forstöðumaður lungna- og ofnæmislækninga á Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi og við verkefni á vegum heilbrigðisráðuneytisins hér heima, m.a. varðandi framtíðarhorfur mannafla í læknisþjónustu. Umsjón: Atli Már Steinarsson
við heyrum í Húsvíkingum eftir íbúafund með Carbfix, verkefni sem Hafnfirðingar vildu ekki sjá í bakgarðinum hjá sér, heyrum af atburðum í Úkraínu og á Gaza síðasta sólarhringinn en byrjum á geðheilbrigðismálum - Ekki er fyllilega ljóst hvar ný bygging undir geðþjónustu Landspítala verður og hennar er hvergi getið í þeirri fjármálaáætlun sem kynnt var í vikunni.. Kostnaður við að reisa bygginguna og kaupa þann búnað sem þarf er áætlaður um 24 milljarðar og framkvæmdatíminn um fimm ár og á meðan er geðdeildin með starfsemi á tveimur stöðum í húsnæði sem allir vita að er úr sér gengið og hentar hvorki sjúklingum né starfsmönnum. Formaður Geðráðs segir þörfina brýna og að nýtt hús verði að vera á næstu fjármálaáætlun
Í neyðartilvikum getur hver mínúta skilið á milli lífs og dauða - sérstaklega þegar um hjartastopp er að ræða. Þegar hjartahnoð hefst strax aukast lífslíkur sjúklingsins verulega. Þrátt fyrir þetta treysta sumir sér ekki til að veita aðstoð á vettvangi á meðan sjúkrabíll er á leiðinni á vettvang. Í seinni hluta þáttarins ræðum við mikilvægi þess að kunna fyrstu hjálp og hvernig rétt viðbrögð allra á vettvangi geta bjargað mannslífum. Við höldum áfram ferð okkar um bráðamóttökuna og kynnumst fjölbreyttum verkefnum starfsfólksins.Við heyrum sögu fjölskyldu sem starfar saman á bráðamóttökunni og hjónum sem starfa bæði sem þyrlulæknar. Við fylgjumst með þyrlunni lenda með fárveikan sjúkling við bráðamóttökuna og þegar sjúklingur með blóðtappa þarf tafarlausa aðstoð. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Stundum þarf starfsfólk bráðamóttökunnar að fjarlægja sprittbrúsa af göngum bráðamóttökunnar svo sjúklingar komist ekki í alkóhólið. Oft eru vandamál við komu þessara sjúklinga - andleg vanlíðan. Í þættinum er kafað ofan í erfið tilfelli sem tengjast andlegri vanlíðan og alvarlegum afleiðingum áfengisdrykkju og vímuefnaneyslu. Þá koma fram ráð til fólks sem líður illa og hvað við sem samfélag getum gert til að hjálpa þeim. Í lok þáttarins fáum við fréttir um líðan móður þáttastjórnanda. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.