Podcasts about helgi bj

  • 21PODCASTS
  • 333EPISODES
  • 2h 14mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • May 28, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about helgi bj

Latest podcast episodes about helgi bj

Mannlegi þátturinn
Erfið staða fjölmiðla á Íslandi og tíbetskur lama á leiðinni til landsins

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 28, 2025 52:12

Ísland skipar 17.sætið á heimsvísu þegar kemur að frelsi fjölmiðla á meðan Noregur trónir á toppnum níunda árið í röð samkvæmt nýlegri úttekt samtakanna Blaðamenn án landamæra. Er fækkun og hnignun fjölmiðla undanfarin ár um að kenna eða er versnandi samband milli stjórnmálafólks og fjölmiðla ástæða þessarar niðurstöðu, í samanburði við hin Norðurlöndin? Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, komu í þáttinn í dag og ræddu þetta ásamt því að greina frá niðurstöðum svokallaðs Lausnamóts sem haldið var á vegum félagsins með fólki úr blaðamannastétt og öðrum stéttum samfélagsins til að leita lausna við þeim vanda sem nú steðjar að íslenskum fjölmiðlum. Við fræddumst svo um það hvað þarf að leggja á sig til að verða lama, eða andlegur kennari í Tibet búddisma, en Ringu Tulku er einmitt hátt settur tíbetskur lama og er á leiðinni til Íslands. Gunnar L. Friðriksson kom til okkar í dag en hann er í Félagi tíbetbúddista á Íslandi og sagði frá Ringu Tulku og Hugleiðslu- og friðarmiðstöðinni í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Tætum og tryllum / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Þorparinn / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson) Þúsund sinnum segðu já / Grafík (Helgi Björnsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Drengir á jaðrinum, Crazy Puffin ferðaskrifstofa og Ólína um heilaheilsu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 22, 2025 54:27

Í gærkvöldi var á dagskrá sjónvarpsins norska heimildarmyndin Drengir á jaðrinum, sem fjallar um reynslu 36 drengja í 10.bekk sem höfðu fundið sig illa í skólakerfinu og lífinu og voru flestir búnir að taka þá ákvörðun að fara ekki í framhaldsskóla. Þeir fengu tilboð um að fara í tveggja vikna skólabúðir, þétt skipulagðar. Símarnir voru teknir af þeim og þeir voru saman allan sólarhringinn í námi, leikjum, samtölum og fleiru. Kennararnir voru með þeim allan tímann líka. Það gekk á ýmsu, upp og niður en til að gera langa sögu stutta gjörbreyttu þessar tvær vikur þeirra viðhorfi til skólans og ekki síst til þeirra sjálfra og þeir allir enduðu með að fara í framhaldsskóla. Margrét Kristín Sigurðardóttir, tónlistarkona og kennari, hefur unnið talsvert með nemendum sem finna sig ekki í skólakerfinu sá myndina áður en hún var sýnd hér í sjónvarpi og hreifst svo mikið af henni að hún fór beint á fund í Menntamálaráðuneytinu og hjá Reykjavíkurborg til þess að kynna þetta úrræði fyrir þeim sem málið varða. Margrét kom í þáttinn í dag. Við heyrðum svo í Birni Pálssyni, en hann rekur ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í ferðum til landa sem eru ekki kannski þessi hefðbundnu sumarleyfisstaðir, en vissulega gríðarlega áhugaverð. Sýrland, Afghanistan, Yemen, Túrkmenistan, Máritanía, Írak, Alsír og fleiri staðir. Björn býr sjálfur á Sri Lanka, en er staddur á Akureyri, hvaðan hann spjallaði við okkur í dag. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði og eigandi Heilaheilsu, sem er þjónusta fyrir fólk með hugrænan vanda og heilaáverka. Ólína lenti í því sjálf sem fótboltakona að fá ítrekaðan heilahristing og fann ekki miklar upplýsingar um hvernig hún gæti náð bata eftir að hafa fundið fyrir sjóntruflunum, heilaþoku, langvarandi úthaldsleysi og þreytu. Hún segir mikilvægasta skrefið að gera allt til að róa taugakerfið og hvíla heilann vel gagnvart öllu áreiti en byrja þó fljótlega að hreyfa sig skynsamlega aftur til að fá blóðið af stað og mælir með stuttum göngutúrum til að byrja með. Huga þurfi að mataræði og forðast þekkta bólguvalda á borð við sykur, unnar matvörur, stýra streituvöldum og passa upp á svefn. Helga Arnardóttir ræddi við Ólínu Guðbjörgu á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Sumarlag / Stjórnin ( Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (Höfundur óþekktur, texti Þorsteinn Eggertsson) Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Poppland

Greiningardeildin, Bogomil Font - Þú trumpar ekki ástina. Ragga Hólm - Þorparinn (ft Margrét Rán). The Weeknd - Blinding Lights. STJÓRNIN - Nei Eða Já. Chappell Roan - The Giver. Júníus Meyvant - Raining Over Fire. HARRY STYLES - Late night talking. Jóhann Helgason Tónlistarmaður, Gammar - Stay. Carpenter, Sabrina - Espresso. ANASTACIA - I'm Outta Love. Birgir - Blackberry Mule - kynning (plata vikunnar 2025, 20. vika). Birgir - Blackberry Mule. MIIKE SNOW - Animal. Una Torfadóttir - Fyrrverandi. PAUL SIMON - 50 Ways To Leave Your Lover. EYJÓLFUR KRISTJÁNS OG STEFÁN HILM - Draumur Um Nínu. TOTO - Georgy Porgy. Emmsjé Gauti - Þetta má (ft. Herra Hnetusmjör). ST. VINCENT - Los Ageless. HERBERT GUÐMUNDSSON - Can't Walk Away. Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi. Ásdís - Touch Me. SHANIA TWAIN - Man! I Feel Like A Woman. Daniil, GDRN - Hugsa oft. ROXY MUSIC - Love Is The Drug. Miley Cyrus - Flowers. SCARLET PLEASURE - What A Life (úr kvikmyndinni Druk). NIALL HORAN - Heaven. DJ Sammy - Heaven. MADNESS - Our House. Helgi Björnsson - Lífið sem eitt sinn var. Sébastien Tellier - Divine. JARVIS - Angela. DOLLY PARTON - 9 to 5. MUGISON - Stóra stóra ást. ICY - Gleðibankinn. FRIÐRIK DÓR - Hún er alveg með þetta. THE BLACK KEYS - Gold On The Ceiling. Gosi - Á floti. KIM CARNES - Bette Davis Eyes. Birgir - Coffee - kynning (plata vikunnar 2025, 20. vika). Birgir - Coffee. NÝDÖNSK - Kirsuber. Doechii - Anxiety. HAFDIS HULD - Tomoko. THE BEACH BOYS - Kokomo. HOZIER - Take Me To Church. Vampire Weekend - M79. ELÍN EY & PÉTUR BEN, ELÍN EY & PÉTUR BEN - Þjóðvegurinn.

dolly parton carpenter walk away paul simon hj druk daniil margr gosi weeknd blinding lights fyrrverandi herra hnetusmj emmsj gauti helgi bj ways to leave your lover kim carnes bette davis eyes bogomil font
Poppland
Lille fredag

Poppland

Play Episode Listen Later Apr 30, 2025 195:00

Ný lög frá Bogomil Font & Greiningardeildinni og Soffíu Björgu. Andrea Jóns og Arnar Eggert rýna í plötu vikunnar, Snúsnú í gröfinni með Geirfuglunum. Skapti Ólafsson - Allt á floti. Helgi Björns - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker. Daði Freyr Pétursson - I don't wanna talk. PETER GABRIEL - Sledgehammer. Lizzo - Still Bad. THE POLICE - Every Breath You Take. Þórhallur Sigurðsson - Jón spæjó. MUGISON - Kossaflóð. Ásdís - Flashback. Oates, John, Hall, Daryl, Hall and Oates - You make my dreams. Geirfuglarnir - Fyrirheitna landið - kynning plata vikunnar 2025 18. vika. Geirfuglarnir - Fyrirheitna landið. Ellen Kristjánsdóttir - Lifði og dó í Reykjavík. CMAT - Running/Planning. Stereolab - Aerial Troubles. Wet Leg - Catch These Fists. Men without Hats - The Safety Dance. GREININGADEILDIN, BOGOMIL FONT - Trumpar ekki ástina. ELLE KING - Ex's And Oh's. Wet Leg - Catch These Fists. Króli - Kókómjólk. KIM LARSEN, KIM LARSEN - DE SMUKKE UNGE MENNESKER. MIKE OLDFIELD & MAGGIE REILEY - Moonlight Shadow. RÍÓ - Dýrið Gengur Laust. Lipps Inc. - Funky Town. Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi. Geirfuglarnir - Oftast nær. Geirfuglarnir - Lazy boy. Geirfuglarnir - Ekki taka þessa töflu. Geirfuglarnir - Út um gluggann. JUSTIN BIEBER - Sorry. CHRISTINA AGUILERA, LIL' KIM, MÝA & PINK - Lady Marmelade. Dacus, Lucy, Hozier - Bullseye. FLEETWOOD MAC - The Chain. Chappell Roan - The Giver. Bill Medley, JENNIFER WARNES - (I've Had) The Time Of My Life. ELASTICA - Line Up. BLACK GRAPE - Reverend Black Grape. RÚNAR JÚLÍUSSON OG UNUN - Hann Mun Aldrei Gleym'enni. Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík. JIMMY SOUL - If You Wanna Be Happy. Soffía Björg Óðinsdóttir - Redwing. EDIE BRICKELL & THE NEW BOHEMIANS - What I Am. PULP - Babies. Geirfuglarnir - Byltingin. JÓNAS SIG - Baráttusöngur uppreisnarklansins á skítadreifurunum [Radio Edit]. Balu Brigada - The Question. CHRISTINE AND THE QUEENS - Tilted. 4 NON BLONDES - What's up?.

Poppland
Alþjóðlegi dansdagurinn og Helgi Björns

Poppland

Play Episode Listen Later Apr 29, 2025 195:00

Alþjóðlegi dansdagurinn er í dag svo áhersla er lögð á lög sem fá okkur aðeins til að dilla okkur. Helgi Björns kíkti í heimsókn með nýtt lag. Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík. ÞÚ OG ÉG - Dans, Dans, Dans. Emmsjé Gauti, Króli - 10 Þúsund. Suede - Beautiful ones. TLC - No scrubs. HILDUR - I'll Walk With You. KAISER CHIEFS - Ruby. MANNAKORN - Gamli Skólinn. UNUN - Lög Unga Fólsins. STEELY DAN - Dirty Work. Snorri Helgason - Ein alveg. ARETHA FRANKLIN - Think. ÞÓRUNN ANTONÍA - Too late. Nutini, Paolo - New shoes. NANCY SINATRA - These boots are made for walking. Helgi Björnsson - Kókos og engifer. Helgi Björnsson - Lífið sem eitt sinn var. THE CARDIGANS - Sick And Tired. PLACEBO - Every you every me. ED SHEERAN - Shape of you. Ellen Kristjánsdóttir, Mannakorn - Línudans. PRINS PÓLÓ - Læda slæda. GERRY RAFFERTY - Baker Street. Geirfuglarnir - Kastað á glæ. Jungle - Back On 74. Sigríður Thorlacius & Sigurður Guðmundsson - Vindar að hausti. LANA DEL RAY - Summertime Sadness. ELASTICA - Line Up. BLACK GRAPE - Reverend Black Grape. NO DOUBT - Don't Speak. Daniil, GDRN - Hugsa oft. KIM CARNES - Bette Davis Eyes. Combs, Luke - Fast car. KÖTT GRÁ PJE og NOLEM - Aheybaró. Laufey - Silver Lining. Bryan Ferry - Don't stop the dance. PÁLL ÓSKAR - Jafnvel þó við þekkjust ekki neitt. Una Torfadóttir - Þú ert stormur (Pride lagið 2023). ALICIA KEYS & JAY-Z - Empire State Of Mind. TOPLOADER - Dancing In The Moonlight. JÓNAS SIG - Dansiði. Geirfuglarnir - Pastoral. Lizzo - Good As Hell. ELASTICA - Line Up. BLACK GRAPE - Reverend Black Grape. Í SVÖRTUM FÖTUM - Dag Sem Dimma Nátt. Unnsteinn Manuel - Lúser. GRAFÍK - Presley. BRÍET & ÁSGEIR - Venus. ELTON JOHN - Tiny Dancer.

pride speak dans kr gu alicia keys combs legi upp sigur daniil sigr ed sheeran shape vindar no doubt don thorlacius unga f gerry rafferty baker street aretha franklin think emmsj gauti tlc no helgi bj nutini kim carnes bette davis eyes elton john tiny dancer
Mannlegi þátturinn
Málþingið Hvað um okkur? Og íslenskir ástargerðarmeistarar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 10, 2025 53:36

Á morgun standa Landssamtökin Þroskahjálp og diplómanám HÍ fyrir málþingi þar sem fatlað fólk er í aðalhlutverki. Yfirskrift málþingsins er „Hvað um okkur?“ Þar verða flutt erindi og svo fer fram óformlegt sófaspjall þar sem fólk með fötlun deilir sinni reynslu úr atvinnulífinu, menntun, aðgengismálum og bara lífinu sjálfu. Það eru hindranir og áskoranir á öllum þessum sviðum og þau sem upplifa þær daglega eru auðvitað best í því að miðla því hverjar þær eru. Hekla Björk Hólmarsdóttir og Jóhanna Brynja Ólafsdóttir komu í þáttinn og sögðu frá sinni reynslu og með þeim kom Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Fyrirtækið Livefood ehf. var stofnað í nóvember 2019 með það að markmiði að framleiða hágæða íslenska grænkera osta. Livefood festi kaup á iðnaðarhúsnæði í Hveragerði sem hefur aðgengi að jarðvarma þar sem þau rækta mikið af því hráefni sem notað er í þeirra vörur. Kartöfluostar eru sérstaða ostanna, eða ástanna, og þróunarvinna hefur staðið í langan tíma þar sem áherslan var lögð á að geta framleitt plöntuost úr íslensku hráefni. Þessa osta er hægt að rífa, sneiða, smyrja og bræða og við fengum Erlend Eiríksson ástagerðarmeistara og Ingólf Þór Tómasson, viðskiptafélaga hans til að segja okkur allt um þetta ævintýri í þættinum í dag. Tónlist í þættinum í dag: Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Toggi, Þorgrímur Haraldsson og Páll Óskar Hjálmtýsson) Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson Þusund sinnum segðu já / Our Lives og Toggi (Rúnar Þórisson, Rafn Jónsson, Helgi Björnsson og Örn Jónsson, texti Helgi Björnsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Þættir um Arnar og Bjarka, gengið til Rómar og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 49:32

Við forvitnuðumst í dag um nýja sjónvarpsþáttaröð sem kallast A&B og er saga tvíburanna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona. Þeir vöktu fljótt mikla athygli fyrir mikla hæfileika á knattspyrnuvellinum á Skaganum. Þeir fóru ungir í atvinnumennskuna, léku með landsliðinu og saga þeirra þar er rakin í þáttunum. Þeim er svo fylgt eftir í gegnum viðskiptaævintýri eftir atvinnumennskuna og hvernig þeir fundu báðir aftur fótboltann og nú er til dæmis Arnar orðinn landsliðsþjálfari hjá karlalandsliðinu. Þetta er saga drengja sem upplifa drauma sína, en lenda líka í hremmingum innan sem utan vallar. Gunnlaugur Jónsson, umsjónarmaður, handritshöfundur og framleiðandi þáttanna, kom í þáttinn ásamt Arnari, öðrum bróðurnum. Steinunn Harðardóttir leiðsögukona hefur í 12 ár farið í pílagrímsgöngur áleiðis til Rómar en á miðöldum gengu fjölmargir íslenskir pílagrímar til Rómar. Einn þeirra var Nikulás ábóti á Munkaþverá í Eyjafirði en hann fór til Noregs og Danmerkur og gekk þaðan til Rómar og svo alla leið til Jerúsalem. Hann skrifaði leiðarvísi fyrir aðra pílagríma árið 1153-4, „Leiðarvísir og borgarskipan“ er sá eini sinnar tegundar frá þessum tíma sem hefur varðveist í Evrópu. Þegar Steinunn kom til Rómar síðasta haust stóðu yfir miklar viðgerðir á borginni vegna Heilags árs hátíðarhöldum sem hófust á jólum 2024 og standa út allt þetta ár. Heilög ár eru haldin af kaþólsku kirkjunni á 25 ára fresti. Steinunn kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það er hafið nýtt eldgos suðaustur af Þorbirni við Grindavík, því fór Einar aðeins yfir stöðuna, til dæmis hvað varðar gasdreifingu. Svo gerði hann aðeins upp veturinn, en með mars lauk veðurstofuvetrinum. Einar talaði svo að lokum um mikla hita sem nú geysa á fjarlægum slóðum, s.s. sunnarlega í Bandaríkjunum, í Kákasus og á Tælandi og merkilegt marsveður sem Madrídingar og Spánverjar hafa upplifað. Tónlist í þættinum í dag: Ég skal bíða þín / Helgi Björnsson (Michel Legrande, texti Hjördís Morthens) April in Paris / Count Basie orchestra (Vernon Duke) Creepin' in / Dolly Parton og Norah Jones (Lee Alexander) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Parkinson og borðtennis, fjármál á mannamáli og Bjarni lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 3, 2025 53:37

Hannes Guðrúnarson fékk í upphafi þessa árs styrk úr Íþróttasjóði og Lýðheilsusjóði til að bjóða upp á borðtennisæfingar fyrir fólk með Parkinson en hann hefur starfað sem borðtennisþjálfari og dómari í allnokkur ár og þegar hann heyrði af því að borðtennis hefði jákvæð áhrif á fólk sem glímir við Parkinson ákvað hann að kynna sér málið betur. Hannes er með hóp sem hittist tvisvar í viku í TBR húsinu og hann vonar að borðtennis geti stuðlað að betra lífi hjá þeim því skjálftinn virðist alveg hverfa á meðan þau spila. Við kíktum á æfingu í TBR húsið og töluðum við Hannes þjálfara og Atla Þór sem glímir við Parkison. Georg Lúðvíksson kom aftur í þáttinn, eins og undanfarna mánudaga, með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í dag ræddi hann um fjárfestingar og sparnað, hvernig er best að ávaxta peningana sína. Svo var það lesandi vikunnar, sem var í þetta sinn Bjarni Jónsson leikskáld, dramatúrg, leikstjóir, þýðandi og framleiðandi. Hann hefur komið að uppsetningu fjölda leikverka út frá framantöldum titlum, nú síðast var hann í hlutverki leikstjóra og dramatúrgs, eða leiklistarráðunautar, í uppsetningu leikritsins Innkaupapokanum, sem leikhópurinn Kriðpleir spinnur umhverfis veröld Elísabetar Jökulsdóttur og leikrit hennar „Mundu töfrana“. En Bjarni sagði okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bjarni talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Min Kamp e. Karl Ove Knausgaard Jóhannes á Borg e. Stefán Jónsson Bækur Halldórs Laxness Leikrit William Shakespeare Tónlist í þættinum í dag: Léttur í lundu / Bítlavinafélagið (Karl Hermannsson) Húsið og ég / Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson, Rúnar Þórisson, Örn Jónsson, texti Vilborg Halldórsdóttir) Uppboð / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Poppland
Dúettar, Elon Musk, brasilískt popp og allt hitt líka

Poppland

Play Episode Listen Later Feb 18, 2025 195:00

Siggi og Lovísa á sínum stað í Popplandi. Árni Matt fór með hlustendur undir yfirborðið eins og alltaf á þriðjudögum. Allskonar nýtt íslenskt efni og eitthvað utan úr heimi, plata vikunnar á sínum stað: Hlið A, Hlið B sem Hreimur var að senda frá sér. BERNDSEN - Supertime. Baltimora - Tarzan boy. Collins, Phil - You'll be in my heart. BILLIE EILISH - What Was I Made For. Carlile, Brandi, John, Elton - Never Too Late [Clean]. PRINCE - 1999. NÝDÖNSK - Nostradamus. Una Torfadóttir, Leikhópur úr sýningunni Stormur - Málum miðbæinn rauðan. Fontaines D.C. - Favourite. CORNELIA JAKOBS - Hold Me Closer (Svíþjóð). Tinna Óðinsdóttir - Words. Snorri Helgason - Borgartún. 10CC - The Wall Street shuffle. Teddy Swims - Guilty. FIRST AID KIT - My Silver Lining. Mendes, Shawn - Heart of Gold. Hildur Vala Einarsdóttir - Þú hittir. Perez, Gigi - Sailor Song. BARAFLOKKURINN - I don't like your style. Viagra Boys - Man Made of Meat. Sigríður Beinteinsdóttir, Celebs - Þokan. Bjarni Arason - Aðeins lengur. THE EMOTIONS - Best Of My Love. Helgi Björnsson - E?g stoppa hno?ttinn með puttanum. Jón Jónsson Tónlistarm., Una Torfadóttir - Vertu hjá mér. Moses Hightower - Nýfallið regn. GEORGE EZRA - Blame It On Me. Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi. Thee Sacred Souls - Live for You. NINA SIMONE - My Baby Just Cares For Me. FRIÐRIK DÓR - Í síðasta skipti (Söngvakeppnin 2015). CHRIS STAPELTON - Tennessee whiskey (radio edit). Mumford and Sons - Rushmere. Jungle - Let's Go Back. VÆB - Róa. John, Elton - Who Believes In Angels?. NICK CAVE - Into my Arms. ELÍN HALL - barnahóstasaft. STEREOPHONICS - Have a Nice Day. HREIMUR - Hinum megin við. FLEETWOOD MAC - Hold Me. KAKTUS EINARSSON & DAMON ALBARN - Gumbri. GDRN - Áður en dagur rís (feat. Birnir)

Mannlegi þátturinn
Ný heimildarmynd um Sigurbjörn Bárðarson og Voces Masculorum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 6, 2025 51:04

Sigurbjörn Bárðarson, hestamaður, tamningameistari, landsliðsþjálfari og afreksmaður er þjóðsagnapersóna í lifanda lífi og einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Hann var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1993 og var tekinn inn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í ársbyrjun 2025. Á laugardaginn verður frumsýnd ný íslensk heimildarmynd, Sigurvilji, um Sigurbjörn og hann var hjá okkur í dag og við ræddum við hann um þennan ótrúlega feril, heimildarmyndina, fjölskylduna og auðvitað samband hans við hestinn. Karlakórinn Voces Masculorum er að eigin sögn langbesti og hógværasti karlakór landsins. Kórinn var stofnaður árið 2000 og hefur aðallega helgað sig söng við jarðafarir. Nú er kórinn 25 ára og heldur uppá það með tónleikum og á dagskránni eru, eins og þeir orða það, aðallega lögin við vinnunna eða útfararsálmar en einnig hefðbundin karlakóraviðfangsefni bæði innlend og erlend. Gissur Páll Gissurarson og Hjálmar P. Pétursson komu til okkar í dag í spjall og við fengum í lokin að heyra í kórnum. Tónlist í þættinum í dag: Reiðmenn vindanna / Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna (Stan Jones, texti Bragi Valdimar Skúlason) Allir eru að fara í kántrí / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Heilig heilig / Voces Masculorum (Franz Schubert) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Poppland
Undir yfirborð og ofan

Poppland

Play Episode Listen Later Feb 4, 2025 195:00

Poppland var þétt eins og vanalega, Siggi og Lovísa stýrðu þættinum og spiluðu fjölbreytta tónlist. Árni Matt kíkti undir yfirborðið, plata vikunnar á sínum stað, upphitun fyrir Söngvakeppnina og margt fleira sniðugt. Einar Lövdahl - Um mann sem móðgast. Guðmundur Jónsson Söngvari - Eyjólfur. THE POLICE - Roxanne. HALL & OATES - Family Man (80). MIKE OLDFIELD & MAGGIE REILEY - Moonlight Shadow. Crockett, Charley - Solitary Road. Jade Bird - Uh Huh. JÚNÍUS MEYVANT - Gold laces. Karl Olgeirsson - Janúar. Royel Otis - Murder on the Dancefloor (triple j Like A Version). Ágúst Þór Brynjarsson - Eins og þú. Árný Margrét - Day Old Thoughts. Daniil, Izleifur - Andvaka. ROMY - Enjoy Your Life. Helgi Björnsson - Kókos og engifer. Kiwanuka, Michael - The Rest Of Me. Khruangbin - So We Won't Forget. Daði Freyr Pétursson - I'm not bitter. Bía - Norðurljós. David, Damiano - Born With A Broken Heart. TALKING HEADS - Once In A Lifetime. Ferreira, Sky - Leash. GEORGE MICHAEL - Father Figure (80). THE CRANBERRIES - Linger. Bryan, Zach - This World's A Giant. Jón Jónsson - When You're Around. Superserious - Duckface. Unnsteinn Manuel - Lúser. Valdimar Guðmundsson Tónlistarm., Issi - Gleyma. Salka Sól Eyfeld - Tímaglas. Hildur - Dúnmjúk. Jade - Fantasy. Izleifur - Plástur. Doechii - Denial is a River (Clean). ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA - All over the world. BEYONCÉ - Halo. BIRGO - Ég flýg í storminn. Käärijä - Cha Cha Cha. HERRA HNETUSMJÖR - Elli Egils. LÓN - Rainbow. GIGI PEREZ - Sailor Song.

Samfélagið
Elli hunda og katta, markaðsbrestur Stefáns og löggæsla án valdbeitingar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 31, 2025 55:00

Öldrunarmálin verða okkur hugleikin í dag, við eldumst öll og það gera dýr líka. Hanna Arnórsdóttir Rodgers, dýralæknir, ætlar að ræða við okkur um aldurstengda færnisskerðingu hjá hundum og köttum og hvernig eigendur geta annast þessa ferfætlinga í ellinni þá í ellinni. Hvernig upplifa minnihlutahópar á Íslandi samskipti við lögregluna? Og getum ímyndað okkur framtíð þar sem við tryggjum öryggi fólks án valdbeitingar? Í dag höldum við áfram viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir, í samvinnu við Borgarbókasafnið. Pétur Magnússon fær til sín Armando Garcia, sem hefur rannsakað samskipti minnihlutahópa og lögreglu, til að ræða um framtíð löggæslu á Íslandi. Við fáum svo pistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi um miðbik þáttar, hann ætlar að fjalla um markaðsbrest. Tónlist í þættinum: BOB DYLAN - If Dogs Run Free (Alternate Version, New Morning). ARETHA FRANKLIN - Freeway Of Love. Helgi Björns og Fjallabræður - 1000 sinnum segðu já (Tónaflóð 2016)

Mannlegi þátturinn
Hrafnhildur og útikennsla og Lára Sigurðardóttir um neyslu nikótínpúða

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 3, 2024 54:24

Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ, hlaut Íslensku menntaverðlaunin sem voru veitt á dögunum við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut hún í flokknum framúrskarandi kennsla, en Hrafnhildur var verðlaunuð fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt. Hrafnhildur var hjá okkur í dag og við fengum hana til að segja okkur frá sínum störfum og aðferðum við útikennslu. Nikótín hefur mikil og neikvæð áhrif á taugakerfi ungmenna, veldur kvíða, hjartsláttartruflunum, svefnleysi og er í raun örvandi og ávanabindandi efni sem þau þurfa raunverulega að vara sig á. Í Heilsuvakt dagsins ræddi Helga Arnardóttir við Láru Sigurðardóttur, lækni og lýðheilsufræðing, um sívaxandi nikótín notkun meðal ungmenna, í formi púða og veips, sem eru stundum með margfalt meira magn nikótíns en sígarettur. Lára segir nikótínið rótsterkt efni, sem hafi neikvæð áhrif á svefn og einbeitingu ólíkt því sem margir halda fram. Hún lýsir einnig hvernig líkamleg fráhvörf koma fram þegar neyslu þess er hætt og gefur góð ráð til þeirra sem vilja venja sig af þessum óþverra. Tónlist í þættinum: Ef ég nenni / Helgi Björnsson (Zucchero, texti Jónas Friðrik Guðnason) Þitt fyrsta bros / Pálmi Gunnarsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) Happy Holiday, The Holiday Season / Silva & Steini (Irving Berlin) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Samskipti ungmenna, húfuvinkill og Tanja lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 2, 2024 50:00

Aukin harka er komin í samskipti barna í öllum árgöngum grunnskóla en þó sérstaklega á miðstigi og unglingastigi. Strákar þurfa að vera harðir og óhræddir og mega ekki klaga. Húmorinn er grimmur og stelpa eiga það til að lenda undir og láta lítið fyrir sér fara, en þar á bæ skiptir útlitið hvað mestu máli. Þetta segir Gunnlaugur Víðir Guðmundsson félagsmálafræðingur sem starfað hefur með ungu fólki í tvo áratugi bæði á Akureyri og í Reykjavík og er nú forstöðumaður Gleðibankans, félagsmiðstöðvar Hlíðaskóla. Við ræddum þetta við Gunnlaug í dag og leituðum skýringa og ræddum hvaða þættir hafa áhrif á þessa hegðun barna og hvernig við getum brugðist við henni. Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn var að þessu sinni borinn að höfðum okkar, nánar til tekið að húfum og höfuðfötum. Guðjón velti því fyrir sér hvernig húfan sem slík verður til í mannkynssögunni, hvers vegna og hvað það er sem gerist í mannslíkamanum við of mikinn kulda og of mikinn hita. Að lokum skoðaði hann örlítið hvers vegna sum okkar virðast alltaf þurfa að vera með húfu á meðan önnur setja þær helst ekki upp. Og svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Tanja Rasmussen frásagnafræðingur og bóksali. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tanja talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Limits to Growth e. Donellu Meadows o.fl. Mikilvægt rusl e. Halldór Armand Moldin heit e. Birgittu Björgu Guðmarsdóttur Eldri konur e. Evu Rún Snorradóttur Jólabókarleitin e. Jenny Colgan Twilight serían e. Stephenie Meyer Sjálfstætt fólk e. Halldór Laxness Tónlist í þættinum: Litli tónlistarmaðurinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ellý Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson) Ást / Ragnheiður Gröndal (Magnús Þór Sigmundsson, texti Sigurður Nordal) Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Alli á Eyri, Svava og sinnepið og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 51:28

Grindvíkingurinn og netagerðameistarinn Aðalgeir Jóhannsson, eða Alli á Eyri eins og hann er jafnan kallaður, er einn þeirra sem er fluttur aftur heim til Grindavíkur eftir rýmingu bæjarins þann 10. nóvember 2023. Alli er einn af viðmælendum Gígju Hólmgeirsdóttur í heimildaþáttum hennar sem fjalla um hvernig líf Grindvíkinga hefur þróast frá rýmingu. Gígja heimsótti Alla í vor og hann sagði henni þá frá nýútkominni bók sinni sem kallast Grindavíkurblús. Þættirnir Grindavík eru á dagskrá kl.13 á sunnudögum og þættina má finna í spilara RÚV. Svava H. Guðmundsdóttir lyfjafræðingur bjó og starfaði í Svíþjóð og eftir að hún flutti aftur heim til Íslands byrjaði hún að prófa sig áfram með að búa til sína eigin útgáfu af sænsku sinnepi sem hún saknaði. Til að gera langa sögu stutta þá hefur hún þróað ýmsar tegundir af sinnepi sem hún notar íslensk hráefni eins og t.d. aðalbláber, blóðberg og rabarbara og á krukkunum kallar hún sig íslensku sinnepskonuna. Svava kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá þessu sinnepsævintýri sínu. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins segir frá söngkonu frá Grænhöfðaeyjum sem kom hingað til lands og söng á tvennum tónleikum. Hún hafði aldrei áður séð snjó og varð himinlifandi þegar hún sá norðurljósin. Póstkortið fjallar líka um fyrirkomulag Alþingiskosninga sem Magnúsi finnst afleitt, talningin seinleg og úrslitin lengi að berast. Þessu er öðruvísi farið í flestum Evrópulöndum þar sem úrslit eru kunn um það bil tveim tímum eftir að kjörstöðum lokar. Í lokin segir af nýlegri könnun í Bandaríkjunum sem sýnir að neysla unglinga á kannabis hefur minnkað en snaraukist hjá eldri borgurum. Tónlist í þættinum Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Vegurinn heim / Markéta Irglová (Magnús Eiríksson) Ég skal bíða þín / Helgi Björnsson og reiðmenn vindanna (erlent lag, texti Hjördís Morthens) Maria Elena / Cesaria Evora (Lorenzo Barcelata) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Helgi Björnsson föstudagsgestur og vetrarmatur

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 25, 2024 50:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngvarinn og leikarinn Helgi Björnsson. Hann heldur þessa dagana upp á fjörutíu ár í tónlistarbransanum með tónleikum þar sem hann fer yfir vinsælustu lögin á farsælum ferli, í hljómsveitunum Grafík og Síðan skein sól og á mörgum hljómplötum í eigin nafni. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar, en hann er fæddur og uppalinn á Ísafirði, flutti svo suður, lærði leiklist og hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. 40 ár af Helga Björns í þættinum í dag. Á morgun er fyrsti vetrardagur og í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti fórum við yfir það sem hún kallar vetrarmat. Gúllas, kássur og fleira í matarspjallinu í dag. Tónlistin í þættinum Tangó / Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson) Mér var svo kalt / Síðan skein sól (Helgi Björnsson) Himnasmiðurinn / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Þormóður Eiríksson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

tang graf hann eir helga bj helgi bj sigurlaugu margr
Mannlegi þátturinn
Skynjun og skynörvun, heimilisbókhaldið og Valgerður biskupsfrú

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 24, 2024 53:50

Við leitumst við að stunda líkamsrækt og hreyfingu til að halda líkamanum við, halda vöðvunum við, en skynfærin geta gleymst. Við fræddumst í dag um skynjun og skynfærin okkar. Berglind Indriðadóttir, iðjuþjálfi, stendur fyrir námskeiðinu Skynjun og skynörvun - leiðir að betri líðan notenda öldrunarþjónustu þar sem hún kennir leiðir til að halda skynfærunum við. Berglind fjallar um leiðir til þess að flétta örvun fyrir skynfærin inn í daglegar athafnir. Berglind var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það hvernig við getum örvað skynjun okkar og skynfærin. Georg Lúðvíksson er sérfræðingur í heimilisfjármálum og stofnandi Meniga sem sérhæfir sig í persónulegum fjármálum. Georg hefur haldið ógrynni námskeiða um mikilvægi þess að hafa fjármálin á hreinu og fjallað um heimilisbókhald, hvernig hægt er að halda eyðslunni í skefjum, borgað niður skuldir, hvernig lán á að taka osfrv. Við heyrðum í Georgi í dag, þegar heimilisbókhaldið hefur sjaldan skipt meira máli, enda hefur allt hækkað og vextir eru háir. Þegar Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú (1771-1856) var borin til grafar voru þau orð látin falla að hún hefði verið í „öllu tilliti merkiskona“. Hún safnaði miklum auði, stóð í viðskiptum og var ein ríkasta kona Íslands á sínum tíma. Halldóra Kristinsdóttir starfar sem sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns sagði okkur nánar frá lífshlaupi Valgerðar í þættinum. Tónlistin í þættinum Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens) Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson) Let's keep dancing / Emilíana Torrini (Emillíana Torrini og Simon Byrt) Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Poppland
Rúnar Róbertsson leysir af í Popplandi í dag

Poppland

Play Episode Listen Later Mar 27, 2024 195:00

Rúnar Róbertsson leysir af í Popplandi í dag. Arnar Eggert og Andrea Jóns komu með dóm um plötu vikunnar. 12:40 KLEMENS HANNIGAN - Spend Some Time On Me Baby. SPILLER - Groovejet. Maggie Rogers - Don't Forget Me. Úlfur Úlfur - Myndi falla. GDRN - Þú sagðir. PATTI SMITH - Because the Night. SIMPLE MINDS - Don't You (Forget About Me). Bashar Murad - Wild West. M83 - Midnight City. GARY NUMAN - Cars. U2 & GREEN DAY - The Saints Are Coming. Júlí Heiðar, PATRi!K - Heim. Júlí Heiðar - Farfuglar. ÁSGEIR TRAUSTI - Sumargestur. MAUS - Ungfrú Orðadrepir. Geislar - Sunspot. 14:00 NÝDÖNSK - Flauel. KISS - Crazy Crazy Nights. THE STONE ROSES - Fools Gold. Daði Freyr Pétursson - I'm not bitter. JAMIROQUAI - Space cowboy EMF - Unbelievable. Pet Shop Boys - Loneliness. MONO TOWN - Peacemaker. Ensími - New leaf. LONDONBEAT - I've been thinking of you. BUTTERCUP - Meira Dót. Beyoncé - Texas Hold 'Em. 15:00 Guðmundur R. Gíslason og Árni Bergmann - Orð gegn orði. MUGISON - Gúanóstelpan (Live - Aldrei fór ég suður 2014). Páll Óskar Hjálmtýsson - Allt fyrir ástina. SOFT CELL - Tainted Love. Sophie Ellis-Bextor - Murder On The Dancefloor [PNAU Remix]. Eivör Pálsdóttir - Human child. STEREO MC's - Connected. EGÓ - Móðir. Hera Björk Þórhallsdóttir - Scared Of Heights. Helgi Björnsson - Himnasmiður. DR. ALBAN - Sing Halelujah. STEBBI OG EYFI - Góða Ferð.

Poppland
Huggulegur mánudagur

Poppland

Play Episode Listen Later Mar 25, 2024 195:00

Lovísa Rut var skipstjóri í Popplandi dagsins. Plata vikunnar kynnt til leiks, platan 33 með Júlí Heiðari. Allskonar nýtt og spennandi í bland við gamalt og gott. Gunnar Þórðarson - Manitoba. Khruangbin - May Ninth. LAUFEY - Falling Behind. Redinho - Charmed. Metronomy - Right on time. Snorri Helgason, Friðrik Dór Jónsson - Birta. SMALL FACES - Itchycoo Park. Júníus Meyvant - Guru. Boone, Benson - Beautiful Things. Janelle Monae - Make Me Feel. GDRN - Þú sagðir. Raye - Worth It. SILK SONIC - Smokin' Out The Window. Júlí Heiðar, Gugusar - Algleymi. TOTALLY ENORMOUS EXTINCT DINASAURS - Crosswalk. Green Day - 21 Guns. Vampire Weekend - Capricorn. LED ZEPPELIN - Good Times Bad Times. HJÁLMAR & TIMBUKTU - Dom Hinner Aldrig I fatt. ELÍN HALL - Rauðir draumar. MICHAEL KIWANUKA - Home Again. DOLLY PARTON - Jolene. Beyoncé - Texas Hold 'Em (Explicit). ÁSDÍS - Angel Eyes. Lipa, Dua - Training Season. Hera Björk Þórhallsdóttir - Scared Of Heights. COLDPLAY - Speed Of Sound. Helgi Björnsson - Himnasmiður. Marcagi, Michael - Scared To Start. Elbow - Lovers' Leap. Kings of Leon - Mustang. Jones, Norah - Running. LAY LOW - By And By. Emilíana Torrini - Let's keep dancing. Rogers, Maggie - Don't Forget Me. BENNI HEMM HEMM & URÐUR & KÖTT GRÁ PJÉ - Á óvart. Willie Wright - Nantucket Island. Good Neighbours - Home. Ritt Momney - Put Your Records On. MR. SILLA - Naruto (say you wanna run away). Dina Ögon - Bakom glaset. RED HOT CHILI PEPPERS - Scar Tissue. SPACESTATION - Fokking lagið. JÚLÍ HEIÐAR - Haltu mér, slepptu mér. FLEETWOOD MAC - Dreams. TEITUR MAGNÚSSON - Fjöllin og fjarlægðin

Mannlegi þátturinn
Sigríður Margrét föstudagsgestur og matarspjall um pylsur

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 22, 2024 52:52

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sigríður Margrét Oddsdóttir, hún er í dag framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, áður var hún meðal annars framkvæmdasjtóri Skjás miðla, forstjóri Já.is og forstjóri Lyfju. Í starfi sínu hefur hún auðvitað staðið í ströngu undanfarið í samningamálum, eins og komið hefur fram í fréttum síðustu mánaða. En við byrjuðum auðvitað á því að skyggnast með Sigríði aftur í tímann á æskuslóðirnar á Skagaströnd og í Njarðvík, Verslunarskólanámið, háskólanámið á Akureyri og þannig fórum við með henni á handahlaupum í gegnum tímann til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið. Sigurlaug Margrét, besti vinur bragðlaukanna, kom og við ræddum pylsur. Pylsa er ekki bara pylsa. Það eru til talsvert margar útgáfur af pylsum og þá erum við bara að tala um íslenskar útgáfur, auðvitað eru ótal fleiri út um allan heim og sitt sýnist hverjum. Pylsur og pulsur í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum: Núna / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson) Close To Me / The Cure (Robert Smith) Himnasmiður / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Poppland
Heitfengir kuldabolar og nýtónlistarhorn

Poppland

Play Episode Listen Later Mar 21, 2024 195:00

Lovísa Rut stóð vaktina í Popplandi dagsins. Arnar Eggert og Andrea Jónsdóttir gerðu upp plötu vikunnar Fuel to Escape með Ensími. Nóg af nýju efni í nýtónlistarhorni dagsins, Ariana Grande, Flo, Madison Beer, Jawny og fleiri. Ragnhildur Gísladóttir - Draumaprinsinn. Una Torfadóttir - Um mig og þig. Jones, Norah - Running. Billy Stewart - Sitting in the park. Dina Ögon - Jag vill ha allt. Benni Hemm Hemm, Kórinn - Ljósið. WARMLAND - Overboard. Geislar - Sunspot. THE WHITE STRIPES - My doorbell. McRae, Tate - Greedy. Björk & Rosalia - Oral. Beyoncé - Texas Hold 'Em (Explicit). WHEATUS - Teenage Dirtbag. Ensími - New leaf. Ensími - Away. ENSÍMI - Hold Hands. Ensími - Early morning. Ensími - In front. NO DOUBT - It?s My Life. YG Marley - Praise Jah In the Moonlight. BRÍET & ÁSGEIR - Venus. U2 - Electrical Storm. Grande, Ariana - Yes, and?. HJÁLMAR og MR. SILLA - Er hann birtist. Grande, Ariana - We can't be friends (wait for your love). Michael Marcagi - Scared To Start. Flo - Cardboard Box (Clean). Flo - Walk Like This [Clean]. Beer, Madison - Make You Mine. THE BEATLES - Here, There And Everywhere. Teitur Magnússon - Fjöllin og fjarlægðin. Drugdealer & Kate Bollinger - Pictures of You. Hurray For The Riff Raff - Alibi. MUMFORD & SONS - The Cave. VALDIMAR GUÐMUNDSSON & ÞORSTEINN EINARSSON - Ameríka (Hljómskálinn). Orri Harðarson - Gangi þér allt að sólu. Júlí Heiðar, PATRi!K - Heim. OJBA RASTA - Ég veit ég vona. Helgi Björnsson - Himnasmiður. ÚLFUR ÚLFUR - Myndi falla. JAWNY - Running. LITTLE SIMZ - GORILLA. A TRIBE CALLED QUEST - Electric Relaxation. DEPECHE MODE - Enjoy The Silence. BASHAR MURAD - Wild West. LANA DEL REY - Off To The Races. SILJA RÓS - Honey… HJALTALÍN - Crack in a Stone. VAMPIRE WEEKEND - Capricorn. FRIÐRIK DÓR - Aftur ung (Dansaðu við mig)

Poppland
Þrumustuð á miðvikudegi

Poppland

Play Episode Listen Later Mar 20, 2024 195:00

Lovísa var við stýrið í Popplandi, plata vikunnar á sínum stað, alls konar tónlist og tónlistarfréttir. KÁRI - Sleepwalking. MACY GRAY - I Try. Helgi Björnsson - Himnasmiður. Laufey - Goddess (Explicit). Adele - Send My Love (To Your New Lover). Future Islands - The Thief. Vampire Weekend - Capricorn. ALT-J - Tessellate. Cage the Elephant - Neon Pill. Ensími - More than the World. JÚNÍUS MEYVANT - Rise up. Jónfrí - Draumur um Bronco. GEORGE HARRISON - Got My Mind Set On You. Beyoncé - Texas Hold 'Em (Explicit). Una Torfadóttir - Um mig og þig. Systur, Sísý Ey Hljómsveit, Bjørke, Kasper - Conversations. PATRi!K, Háski - Hvert ertu að fara?. BERNDSEN - Supertime. RAVEN & RÚN - Handan við hafið. Lipa, Dua - Training Season. BASTILLE - Pompeii. Daði Freyr Pétursson - I'm not bitter. OJBA RASTA - Gjafir jarðar. YG Marley - Praise Jah In the Moonlight. GDRN - Ævilangt. Elbow - Lovers' Leap. DAVID BOWIE - Heroes. Kings of Leon - Mustang. UTANGARÐSMENN - Kyrrlátt Kvöld. Hasar - Drasl. FM Belfast - Underwear. SOFI TUKKER - Jacare. KK - Þjóðvegur 66. Musgraves, Kacey - Deeper Well. BILLY IDOL - Dancing With Myself. Ensími - In front. Á móti sól - Okkur líður samt vel. Júlí Heiðar, PATRi!K - Heim. Girl in Red - DOING IT AGAIN BABY. PREFAB SPROUT - Cars and Girls. CALEB KUNLE - All in your head. Khruangbin - May Ninth. HJALTALÍN - Love from 99. Thee Sacred Souls - Can I Call You Rose?. Emilíana Torrini - Let?s keep dancing. Kahan, Noah, Fender, Sam - Homesick.

Poppland
Nýtt og spennandi en líka gamalt og gott

Poppland

Play Episode Listen Later Mar 19, 2024 195:00

Lovísa Rut stýrði þætti dagsins og þar var allt með nokkuð hefðbundnum hætti. Plata vikunnar á sínum stað, Fuel to Escape með hljómsveitinni Ensími, allskonar tónlist og þessar helstu tónlistarfréttir. Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Fjöllin og fjarlægðin. KC AND THE SUNSHINE BAND - Please Don't Go (80). Emilíana Torrini - Let?s keep dancing. GDRN - Áfram. Khruangbin - May Ninth. Fred again.. & Obongjayar - Adore u. Kasper Bjørke & Systur & Sísý Ey - Conversations. MODEST MOUSE - Float On. KATE BUSH - Running Up That Hill. Djo - End of Beginning. Ensími - Monument. NEW ORDER - Blue Monday 88. Liam Gallagher & John Squire - Mars To Liverpool. Gosi - Ófreskja. Del Rey, Lana - A&W (Lyrics!) (bonus track wav). Boone, Benson - Beautiful Things. PÁLL ÓSKAR - Allt Fyrir Ástina. Jungle - Back On 74 [Radio Edit]. SVALA - The Real Me. Beyoncé - Texas Hold 'Em (Explicit). BUBBI & KATRÍN HALLDÓRA - Án Þín. Celeste - There will come a day. LAUFEY - From The Start. Helgi Björnsson - Besta útgáfan af mér. Friðrik Dór Jónsson - Aftur ung (Dansaðu við mig). FLEETWOOD MAC - Landslide. JACK JOHNSON - Better Together. Paolo Nutini - New shoes. Benni Hemm Hemm & Kórinn - Frosinn. Daði Freyr - I'm not bitter. FLORENCE AND THE MACHINE - Spectrum. Royel Otis - Murder on the Dancefloor (triple j Like A Version). Úlfur Úlfur Hljómsveit - Myndi falla. TATE MCRAE - Greedy. THE LA'S - There She Goes. MAGGIE ROGERS - Don't Forget Me. UNA TORFA - Það sýnir Sig (Stúdíó RÚV) MITSKI - Stay Soft. ENSÍMI - Away. FRANK OCEAN - Novacane. BIRNIR - 200. THUNDERCAT - Them Changes. WINGS - Arrow Through Me. DINA ÖGON - Mormor. NATASHA BEDINGFIELD - Unwritten.

Poppland
Fuel To Escape og slatti af öðru nýju

Poppland

Play Episode Listen Later Mar 18, 2024 195:00

Þéttur þáttur að vanda, allskonar tónlist og tónlistarfréttir. Plata vikunnar kynnt til leiks, Fuel to Escape með hljómsveitinni Ensími. Lovísa var við stjórnvölin í þættinum og kynnti hlustendur fyrir TikTok tónlist, nýrri þjóðlagatónlist frá Bandaríkjunum og nýju íslensku efni. Julian Civilian - Fyrirmyndarborgari. Electric Light Orchestra - Strange magic. Emilíana Torrini - Let?s keep dancing. Rogers, Maggie - Don't Forget Me. Drugdealer, Bollinger, Kate - Pictures of You. HELGI JÚLÍUS & VALDIMAR GUÐMUNDSSON - Þú ert mín. Helgi Björnsson - Himnasmiður. Jóhann G. Jóhannsson - Don't Try To Fool Me. Silja Rós Ragnarsdóttir - Honey.... Parks, Arlo, Lous and The Yakuza - I'm Sorry. GKR, Tatjana - Þykir það leitt. BLUR - Country House. Ensími - New leaf. Lipa, Dua - Training Season. Shygirl, SG Lewis - Mr useless. Klangkarussell - Sonnentanz (radio edit). Kiriyama Family - Weekends. Djo - End of Beginning. Electric Youth, College - A Real Hero. PLÁHNETAN & BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Ég Vissi Það. McKenna, Declan - Slipping Through My Fingers. SIGRID - Don't kill My Vibe. McRae, Tate - Greedy. Hera Björk Þórhallsdóttir - Scared Of Heights. FLOTT - L'amour. DIDO - Thank You. Kjerúlf - Alice. Lykke Li - Utopia (bonus track mp3). OF MONSTERS & MEN - Little Talks. Spacestation - Fokking lagið. EGÓ - Í hjarta mér. Árni Bergmann Jóhannsson, Guðmundur R - Orð gegn orði. Musgraves, Kacey - Deeper Well. UNUN - Lög Unga Fólsins. Vampire Weekend - Capricorn. Alex Ebert - Truth. KHRUANGBIN - Texas Sun (ft. Leon Bridges). Lenker, Adrianne - Sadness As A Gift (Radio Edit) (bonus track wav). Laufey - Goddess. THE VELVET UNDERGROUND & NICO - Sunday Morning. ED SHEERAN - Celestial. Ensími - In front. HARRY STYLES - Satellite. Systur, Bjørke, Kasper, Sísý Ey Hljómsveit - Conversations. Jones, Norah - Running. Una Torfadóttir - Um mig og þig.

Poppland
Poppland

Poppland

Play Episode Listen Later Mar 13, 2024 195:00

Rúnar Róbertsson leysti af í Popplandi í dag. Við heyrðum lög af Plötu vikunnar sem er með JónFrí. Kíktum á verðlaunahafa á Íslensku tónlistarverðlaununum frá því kvöldið áður. 12:40 Friðrik Dór Jónsson - Aftur ung (Dansaðu við mig). Royel Otis - Murder on the Dancefloor (triple j Like A Version). Lizzo - JUICE. The Black Keys - Beautiful People (Stay High). Pet Shop Boys - Loneliness. VÖK - Waterfall. OMD - Secret. THE SOURCE ft. CANDY STATON - You Got The Love. DÚKKULÍSUR - Pamela Í Dallas. SúEllen - Ferð án enda. Guðmundur R og Árni Bergmann - Orð gegn orði. Raye - Worth It. THE FLAMING LIPS - Do You Realize?. Jónfrí - Skipaskagi. RUFUS WAINWRIGHT - Going To A Town. Beyoncé - Texas Hold 'Em. SUZANNE VEGA - Tom's Diner (DNA Mix). Pearl Jam - Dark Matter. 14:00 EMILÍANA TORRINI - To Be Free. Noah Kahan og Sam Fender - Homesick. Daði Freyr Pétursson - I'm not bitter. Sigur Rós - Gold. Jóhann Egill Jóhannsson - SAND. Sharon Jones & The Dapkings - How Long Do I Have To Wait For You. GDRN - Ævilangt. James Morrison - I Need You Tonight. Jónfrí - Sumarið er silungur. Elbow - Lovers' Leap. QUEEN - Somebody To Love. Benni Hemm Hemm, Kórinn - Valið er ekkert. MAMMÚT - Blóðberg. 15:00 Á móti sól - Okkur líður samt vel. U2 - Atomic City. THE CARDIGANS - Erase/Rewind. Sakaris - Allarbesti. GORILLAZ - Feel Good Inc.. Boz Scaggs - Lido Shuffle. PATRi!K & LUIGI - Skína. JFDR - Life Man. FLOTT - Hún ógnar mér. Helgi Björnsson - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker. Silja Rós - Honey... The Smiths - Bigmouth strikes again Björn Jörundur og Ragga Gröndal - Reiknaðu með mér

Poppland
Mánudags popp og Haust

Poppland

Play Episode Listen Later Mar 4, 2024 195:00

Siggi og Lovísa voru Popplandsverðir í þætti dagsins. Mánudagur en samt bjart í hjörtum. Plata vikunnar kynnt til leiks, Haust með hljómsveitinni Á Móti Sól. Jón Jónsson - When You're Around. Bogomil Font & Greiningardeildin - Sjóddu frekar egg. The Allergies & Marietta Smith - Take Another Look At It. Ólafur Bjarki - Yfirhafinn. Kinks - A Well Respected Man. PAUL SIMON - Me And Julio Down By The Schoolyard. NOAH AND THE WHALE - 5 Years Time. Kasper Bjørke & Systur & Sísý Ey - Conversations. YG Marley - Praise Jah In the Moonlight. LEAVES - Parade. Royel Otis - Murder on the Dancefloor (triple j Like A Version). PREFAB SPROUT - Cars and Girls. Rogers, Maggie - Don't Forget Me. MACY GRAY - I Try. Benson Boone - Beautiful Things. Á móti sól - Höldum áfram. John Mayer - Slow Dancing in a Burning Room. Númer 3 - Feluleik. GDRN - Ævilangt. Kenya Grace - Strangers. ARCADE FIRE - No Cars Go. Teitur Magnússon - Fjöllin og fjarlægðin. Sakaris - Allarbesti. Helgi Björns - Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker. Hipsumhaps - Góðir hlutir gerast hææægt. Nanna - The vine. Bon Iver - AUATC. NÝDÖNSK - Klæddu Þig. Á móti sól - Best. Paul Russell - Lil Boo Thang. TOM TOM CLUB - Genius of Love. The Black Keys - Beautiful People (Stay High). MAMMÚT - Rauðilækur. EMMSJÉ GAUTI - Þúsund hjörtu. Kacey Musgraves - Deeper Well. ÚLFUR ÚLFUR - Myndi falla. CHILDISH GAMBINO - 3005. LOGI PEDRO & HUGINN - Englar Alheimsins. CHARLES WRIGHT & THE WATTS 103rd STREET RHYTHM BAND - Express Yourself. DAÐI FREYR - I'm Not Bitter. PAUL MCCARTNEY & WINGS - Silly Love Songs. UNA TORFA - Í löngu máli. DECLAN MCKENNA - Slipping Through My Fingers. AL GREEN - Let's Stay Together. BEYONCÉ - Texas Hold'Em.

Mannlegi þátturinn
Knapi ársins, vinkill um matarhefðir og Gústav Adolf lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2024 53:40

Við hófum Mannlega þáttinn að þessu sinni á að slá á þráðinn til hestamanns á Hvolsvelli og forvitnast um hvaða verkefni eru efst á baugi í hesthúsinu um þessar mundir. Er búið að taka inn, hvað eru margir hestar á húsi, hvenær þarf að moka út og gefa og hvaða stóru viðburðir eru framundan hjá hestafólki? Á línunni til svara var nýkrýndur knapi ársins og tamningamaðurinn Elvar Þormarsson. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn skoðaði hann matarhefðir, íslenskar og erlendar, sem hann hefur kynnst í gegnum lífið og hvaðan þær koma. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, doktorsnemi í heimsspeki. Það eru reyndar ekki nema 5 dagar í doktorsgráðuna, en hann ver doktorsritgerð sína næstkomandi föstudag í Háskóla Íslands. Hann sagði okkur svo auðvitað frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gústav talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: It's lonely at the end of the world e. Zoe Thorogood Prophet song e. Paul Lynch Um sársauka annarra e. Susan Sontag Can the monster speak? e. Paul Preciado Dhammapada e. Buddha og svo Frank og Jóa seríuna e. Franklin W. Dixon Tónlist í þættinum í dag: Milli gærdags og á morgun / Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson (Árni Ísaksson og Michel Legrand) Ríðum sem fjandinn / Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna (höf. Ókunnur) Never Loved Someone So Much / Klemens Hannigan (Klemens Hannigan, Leifur Björnsson og Howie B.) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Poppland
Febrúar, fjör og ferskt popp

Poppland

Play Episode Listen Later Feb 1, 2024 195:00

Poppland var víða í dag, Siggi og Lovísa við stjórnvölinn. Febrúar loksins lentur. Arnar Eggert og Andrea Jóns gerðu upp plötu vikunnar, Aska & Gull með Sváfni Sig. Tiktok fréttir, nýtt frá Axel Flóvent, Black Keys, Bombay Bicycle Club, Heru og fleirum. ÁSGEIR & ÁRNÝ MARGRÉT - Part of me. THE SOURCE ft. CANDY STATON - You Got The Love (New Voyager Radio Edit). Julian Civilian - Þú straujar hjarta mitt. James Morrison - I Need You Tonight. JÓN JÓNSSON - Spilaborg. JÚDAS - Systurnar (vínilripp). EDDIE VEDDER - Society. Helgi Björnsson - Besta útgáfan af mér. Axel Flóvent - Have This Dance. PRINCE - Purple Rain. THE BEATLES - Hey Jude. ENSÍMI - In front. Sváfnir Sigurðarson - Allt of gamall. Sváfnir Sigurðarson - Flóð og fjara. Sváfnir Sigurðarson - Svarið. Sváfnir Sigurðarson - Hamingjan horfir á. Sváfnir Sigurðarson - Aska & gull. Sváfnir Sigurðarson - Aðeins ég og nóttin. Sváfnir Sigurðarson - Á meðan sólin er að deyja. Sváfnir Sigurðarson - Land hinnar eilífu þrár. Sváfnir Sigurðarson - Dýrðin. STING - Englishman in New York. Bubbi Morthens - Velkomin. LANA DEL REY - Take Me Home, Country Roads. Laufey & Beabadoobee - A Night To Remember. ARLO PARKS & LOUS & THE YAKUZA - I'm Sorry. CAT STEVENS - The First Cut Is The Deepest. GDRN - Ævilangt. KK - Kærleikur og tími. DECLAN MCKENNA - Slipping Through My Fingers. THE NATIONAL & PHEOEBE BRIDGERS - Laugh Track. WHEATUS - Teenage Dirtbag. CMAT - Stay For Something. THE BLACK KEYS - Beautiful People (Stay High). PAUL RUSSELL - Lil Boo Thang. TODMOBILE - Brúðkaupslagið. HERA - Hardcore. LEAVES - Parade. MAGDALENA - Never enough. SIGGA ÓZK - Um allan alheiminn. TROYE SIVAN - One Of Your Girls. BOMBAY BICYCLE CLUB - Fantasneeze. HARRY STYLES - As it Was. TALOR SWIFT - Cardigan. BJÖRK & RÓSALÍA - Oral. MASSIVE ATTACK - Paradise Circus. CELESTE - Love is Back. RAYE - Worth It. QUANTIC & RATIONAL - Unconditional. GUS GUS - When We Sing.

Víðsjá
Kosmos/Kaos, Veislumatur á Landnámsöld, Piparfólkið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 13, 2023 55:00

Við stingum nefinu inn í Listasafni Árnesinga í þætti dagsins, en þar er opin, í þremur sölum safnsins, yfirlitssýning á verkum Ragnheiðar Jónsdóttur, myndlistamans, sem nefnist Kosmos / Kaos. Á veggjunum hanga nokkrar vel valdar seríur úr smiðju Ragnheiðar bæði grafíkverk og kolateikningar en einnig er einn salur undirlagður fyrir glænýja seríu kolateikninga sem nefnist einmitt Kosmos / Kaos. Við ræðum við Daríu Sól Andrews, sýningarstjóra. Hvað ætli fólk hafi borðað á landnámsöld? Grillaðan geirfugl, sel í byggsósu, soðna heiðagæs með kúalubbum, mjaðarsoðinn lunda eða grísabjúgu með osti og hvítlauk?þetta gæti allt komið vel til greina þvi öll þessi hráefni voru tiltæk hér á landi um landnám. Sagnfræðingurinn Kristbjörn Helgi Björnsson og kokkurinn Úlfar Finnbjörnsson hafa gefið út matreiðslubók, Veislumat á landnámsöld, þar sem hráefni úr íslendingasögunum eru innblástur í uppskriftir. Við ræðum við þá félaga í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á leikhúsinu. Piparfólkið, sem sýnt er um þessar mundir í Kornhlöðunni, rými sem staðsett í Bankastræti 2, er afsprengi listatvíeykisins Díó. Trausti Ólafsson tekur nú við. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Víðsjá
Kosmos/Kaos, Veislumatur á Landnámsöld, Piparfólkið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 13, 2023

Nám í öryggisfræðum, bananabrauðsvinkill og Þórir lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023

Háskólinn á Bifröst er eini íslenski háskólinn sem býður uppá námslínu í áfallastjórnun og á næsta ári er ætlunin að byggja undir þá línu með grunnnámi í Almannavörnum og öryggisfræðum. Áfallastjórnunarnáminu var komið á fyrir nokkrum árum í samstarfi við ýmsa viðbragðsaðila en við heyrum meira um þetta hér á eftir. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir deildarforseti og prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst kom í þáttinn í dag. Guðjón Helgi Ólafsson sendi okkur vinkil í dag eins og vanalega á mánudögum. Í dag lagði Guðjón vinkilinn að bananabrauði, álftum, ísbirni og mengun. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Þórir Georg Jónsson grafískur hönnuður og tónlistarmaður. Við fengum að vita hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Þórir talaði um eftirfarandi bækur: Our Band could be Your life e. Michael Azerrad Skugga Baldur e. Sjón Inadvertend e. Karl Ove Knausgaard Childhood e. Tove Ditlevsen Hringadrottinssaga e. Tolkien Tónlist í þættinum Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason) Leyndarmál / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, Einar Georg Einarsson og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Banana Pancakes / Jack Johnson (Jack Johnson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Nám í öryggisfræðum, bananabrauðsvinkill og Þórir lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 18, 2023 50:00

Risakýrin Edda og ferðalangurinn Eiríkur Viljar Hallgrímsson Kúld

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 17, 2023

Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir Núna á laugardaginn þann 19. ágúst verður risakýrin Edda formlega vígð en Edda er tveggja tonna listaverk úr smiðju Beate Stormo, eldsmiðs og bónda á bænum Kristnesi í Eyjafirði. Kýrin er þrír metrar á hæð og fimm á lengd og er hugsuð sem tákn Eyjafjarðarsveitar enda eru mörg blómleg mjólkurbú á svæðinu. Við forvituðumst um þetta merkilega listaverk hér í Mannlega þættinum í dag. Í sumar höfum við heyrt alls kyns ferðasögur í útvarpinu og höfum fengið ábendingar frá hlustendum um ferðalanga sem hafa eytt miklum tíma í ferðalög og jafnvel bara einir á ferð. Eiríkur Viljar Hallgrímsson Kúld er einn af þeim sem hefur farið víða, fyrst með öðrum en eftir að hafa prófa að ferðast einn var ekki til baka snúið. Hann fór með vinum sínum til Víetnam fyrir nokkrum árum og þeir fóru á mótorhjólum þvert yfir landið. Hann hefur hjólað niður Suður Kóreu til Busan, fór til Kína einn á mótorhjóli og var þar í tæpa 4 mánuði, til Kúbu hvar hann hjólaði þvert yfir eyjuna á 21 dögum og nú í byrjun september er stefnan tekin á mótorhjólaferð um Bandaríkin,Mexico og Mið Ameríku, ferðalag sem tekur næstum því eitt ár. Við ræddum við Eirík í dag, Ertu viss/Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson-Aðalsteinn Ásberg) Ég fer á Landrover frá Mývatni á Kópasker/Helgi Björnsson(Helgi Björnsson,Guðmundur Óskar og Atli Bollason) Sang til Byen/Kari Bremnes(Kari Bremnes)

Mannlegi þátturinn
Risakýrin Edda og ferðalangurinn Eiríkur Viljar Hallgrímsson Kúld

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 17, 2023 50:00

FM957
VEISLAN - HELGI BJÖRNS

FM957

Play Episode Listen Later Aug 10, 2023 85:41

Því að dj-inn er Helgi Fkn Björns!

helgi bj
Mannlegi þátturinn
Hvítar lygar, gönguhátíð í Reykjavík og lestarferðalag fyrir 60+

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 31, 2023

Hvítar lygar nefnist glæný fjögurra þátta sjónvarpssería sem fjallar um sambönd fimm ungmenna á menntaskólaaldri, vináttu þeirra og áskoranir. Þar er tekist á við stórar spurningar um lífið og tilveruna, eins og: Hvað erum við tilbúin að gera fyrir þau sem við þekkjum og þykir vænt um? Hvenær segjum við þeim sannleikann þótt hann sé erfiður og hvenær beygum við sannleikann til að hlífa þeim? Til að segja okkur betur frá þáttunum og tilurð þeirra fengum við til okkar Dominique Gyðu Sigrúnardóttur, leikstjóra og handritshöfund verksins, og Ágúst Örn Wigum Börgesson, einn leikaranna. Gönguhátíð í Reykjavík fer fram í þriðja sinn og hófst í gær og stendur til 3.júní. ( Í dag er í boði skemmtileg innanbæjarganga um Laugardal, upp á Laugarás og niður að sjó þar sem gengið verður meðfram sjávarsíðunni að Laugarnesi og svo upp með Kringlumýrarbrautinni og aftur á upphafsstaðinn.) Einar Skúlason kom til okkar á eftir og sagði okkur frá en næstu daga verður boðið uppá margar áhugaverðar göngur fyrir alla. Við töluðum við Björgu Árnadóttur sem er að hefja heilmikið ferðalag og ætlar að vera á bakpokaferðalagi næstu þrjá mánuði, interrail 60+ . Þetta ferðalag hefur verið draumur hjá Björgu síðan árið 1973 og hana langar að hvetja Íslendinga til að ferðast með lestum um Evrópu og eldri konur til að flakka einar á milli farfuglaheimila. Hún ætlar að blogga um ferðalagið meðan á því stendur. Tónlist í þættinum í dag: Öll þessi ást/Snorri Helgason og Of monsters and man(Snorri Helga og Bragi Valdimar Skúlason) Lapis Lazuli/Helgi Björns(Guðmundur Óskar Guðmunds-Helgi Björnsson, texti Helgi Björnsson) The fool on the hill/ Berliner Philharmoniker. Zwölf Cellisten

Mannlegi þátturinn
Hvítar lygar, gönguhátíð í Reykjavík og lestarferðalag fyrir 60+

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 31, 2023 50:00

Jóhannes og Sævar um Storm, vinkill og Starri lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 27, 2023

Eftir rúm tvö ár af faraldrinum og öllu sem honum fylgdi þá er ekki víst að margir hafi, við fyrstu tilhugsun, verið tilbúin að horfa á heila þáttaröð um faraldurinn. En engu að síður hefur nýja heimildarþáttaröðin Stormur náð að fjalla um þetta tímabil og baráttuna við COVID-19 þannig að fólk límist við skjáinn og getur ekki hætt að horfa. Í þáttunum er fylgst með störfum þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í faraldrinum og einblínt er á mannlega hlið faraldursins og sagt frá sorgum og sigrum í baráttu þjóðarinnar við að hemja útbreiðslu veiru sem setti heimsbyggðina á hliðina. Við fengum tvo af þeim sem stóðu að þessum þáttum, þá Jóhannes Kr. Kristjánsson og Sævar Guðmundsson, til þess að segja okkur frá vinnslu þáttanna í þættinum. Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þetta sinn bar hann vinkilinn að bók úr einkasafni og fróðleiksþorsta almennt eins og hann orðar það sjálfur. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Starri Reynisson bóksali og háskólanemi. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Starri talaði um eftirfarandi bækur: The Left Hand of Darkness e. Ursula Leguin Ljósagangur e. Dag Hjartarson Gestakomur í Sauðlauksdal e. Sölva Björn Sigurðsson Ljóðabækur Þórarins Eldjárns og þýðingu hans á Inferno e. August Strindberg Skugga-Baldur og Argóarflísina e. Sjón Tónlist í þættinum í dag: Ég er ekki að skilja ((Ást i framvinduhorfi) / Jón Ólafsson (Jón Ólafsson og Bjarki Karlsson) Það bera sig allir vel / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Bragi Valdimar Skúlason) Lífið er undur / Egill Ólafsson og Ellen Kristjánsdóttir (Egill Ólafsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Jóhannes og Sævar um Storm, vinkill og Starri lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 27, 2023 50:00

Samvinna eftir skilnað, orsakir áfallastreitu og póstkort

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 15, 2023 50:00

Á föstudaginn næstkomandi heldur Félagsráðgjafafélag Íslands félagsráðgjafaþing í samstarfi við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands og ÍS-FORSA og yfirskrift þingsins er: Vinnuumhverfi, valdefling og tækni. Gyða Hjartardóttir félagsráðgjafi kom til okkar og sagði okkur frá rannsókn um hvernig til hefur tekist með innleiðingu stafræna vettvangsins SES (Samvinna eftir skilnað) og hvert mat foreldra og þeirra reynsla af því. Þessi rannsókn er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og við heyrðum frá Gyðu helstu niðurstöðurnar í þættinum. Við fengum Andra Steinþór Björnsson prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands í þáttinn í dag. Hann sagði okkur frá nýjum rannsóknum sem snúa að áföllum sem bendir til þess að félagsleg áföll geti valdið áfallastreitueinkennum og jafnvel áfallastreituröskun. Hingað til hefur skilgreining orsaka áfallastreitu verið talsvert þrengri, því geti þessar nýju niðurstöður aukið skilning á áföllum og hjálpað til við meðferð þeirra. Andri fír betur yfir þetta með okkur í dag. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í lok þáttar. Magnús hefur verið á ferðalagi um Spán undanfarinn hálfan mánuð og hann segir meðal annars frá heimsóknum sínum til ýmissa borga, þar á meðal Madrid, Granada, Ronda og Málaga. Hann segir frá því þegar hann heimsótti Granada fyrir fjörutíu og fjórum árum og hvernig brogarbragurinn hefur breyst frá þeim tíma. Kjötkveðjuhátíðin er byrjuð á Spáni og stendur í allt að hálfan mánuð í sumum borgum. Hann segir líka frá upphafi karnivalsins í Málaga. Tónlist í þættinum í dag Sýnir/Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir og Steinn Steinarr) Kókos og engifer / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason) Valentine / Laufey (Laufey Lín Bing Jónsdóttir og Spencer Stewart) Come And Get Your Love / Redbone (Lolly Vegas) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Samvinna eftir skilnað, orsakir áfallastreitu og póstkort

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 15, 2023

Spegillinn
Samkomulag ríkissáttasemjara og Eflingar; stýrivaxtahækkun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 8, 2023 10:08

Ásakanir hafa gengið á víxl milli stjórnenda Íslandshótela og verkfallsvarða Eflingar um verkfallsbrot og hótanir. Samkomulag náðist á milli ríkissáttasemjara og lögmanns Eflingar í dag varðandi kjörskrá félagsins. Róbert Jóhannsson tók saman, rætt við Aðalstein Leifsson ríkissáttasemjara. Annarri umræðu um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lauk nokkuð óvænt á Alþingi í dag þegar þingmenn Pírata, sem hafa verið sakaðir um málþóf, tóku sig af mælendaskrá. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata hélt 130 ræður um málið á Alþingi og hún beindi orðum sínum að stjórnarflokkunum í síðustu ræðunni í dag. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að vaxtahækkun Seðlabankans í morgun hafi ekki komið á óvart. Það hafi hins vegar rökstuðningurinn gert og trúverðugleiki bankans hafi beðið hnekki. Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga gagnrýnir að svo virðist sem áhættumati fyrir laxeldi hafi verið breytt á hæpnum forsendum og mögulegt eldi aukið án tilefnis. Rúnar Snær Reynisson talaði við hann. Prófessorar og háskólakennarar lýsa áhyggjum vegna niðurskurðar í Háskóla Íslands. Pétur Henry Petersen, formaður fagfélags prófessora segir að áhrifin geti verið alvarleg. Pétur Magnússon talaði við hann. --------------------- Stýrivextir Seðlabankans voru hækkaðir í morgun í ellefta sinn í röð og eru 6,5%. Verðbólga í nýliðnum mánuði var 9,9%. Seðlabankastjóri segir kjarasamninga hafa reynst dýrari en vonir stóðu til. Forysta verkalýðsfélaga sem hefur nýverið skrifað undir kjarasamninga fordæmir hækkunina og segir hana gera kjarabætur nýrra samninga að engu. Bjarni Rúnarsson tók saman, Haukur Holm talaði við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra, Halldór Benjamín Þorbergsson og Ragnar Þór Ingólfsson formann VR. Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu var fagnað mjög þegar hann ávarpaði breska þingið, frá Bretlandi fer hann til Frakklands og heldur svo til Brussel. Ásgeir Tómasson segir frá ferðum hans og móttökunum. Brot úr kynningu Lindsey Hoyle, forseta neðri deildar breska þingsins, Zelensky og Charles Michel forseta leiðtogaráðs ESB. Nichole Mosty, forstöðumaður Fjölmenningarseturs segir að líta beri á fólk sem leitar hér skjóls sem innflytjendur. Í mörg horn sé að líta en á sjötta hundrað flóttamenn hafa komið til landsins það sem af er ári. Markús Þór Þórhallsson talaði við hana.

Spegillinn
Samkomulag ríkissáttasemjara og Eflingar; stýrivaxtahækkun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 8, 2023

Reynsla af sorpflokkun, snjór og skíði, hvað þýðir að nenna?

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 13, 2022 55:00

Sorp er samfélagslegt mál. Hvert eitt og einasta okkar hendir einhverju daglega, og samkvæmt lögum og reglum sem taka gildi um áramótin eigum við að bæta flokkunina, sérstaklega þegar kemur að lífrænum úrgangi. Fyrir sum sveitarfélög, eins og þau á höfuðborgarsvæðinu, er þetta mikið stökk - en önnur eru komin lengra og við ætlum forvitnast um hvernig þetta hefur gengið hjá Ísafjarðarbæ. Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður umhverfisnefndar Ísafjarðabæjar. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri verður opnað á föstudaginn. Og það þrátt fyrir að lítið hafi snjóað. Við forvitnumst um snjóframleiðslu og undirbúning opnunar Hlíðarfjalls á eftir og spjöllum við Brynjar Helga Ásgeirsson forstöðumann skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. Svo er málfarsspjall. Ef við nennum. Hvað þýðir það að nenna? Er það að vera latur og áhugalaus? Og hvaða leiðindi eru þetta þá í jólalaginu kunna Ef ég nenni sem Helgi Björns syngur. Eða er kannski eitthvað meira við þetta orð? Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur fer yfir það með okkur.

Samfélagið
Reynsla af sorpflokkun, snjór og skíði, hvað þýðir að nenna?

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 13, 2022

Sorp er samfélagslegt mál. Hvert eitt og einasta okkar hendir einhverju daglega, og samkvæmt lögum og reglum sem taka gildi um áramótin eigum við að bæta flokkunina, sérstaklega þegar kemur að lífrænum úrgangi. Fyrir sum sveitarfélög, eins og þau á höfuðborgarsvæðinu, er þetta mikið stökk - en önnur eru komin lengra og við ætlum forvitnast um hvernig þetta hefur gengið hjá Ísafjarðarbæ. Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður umhverfisnefndar Ísafjarðabæjar. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri verður opnað á föstudaginn. Og það þrátt fyrir að lítið hafi snjóað. Við forvitnumst um snjóframleiðslu og undirbúning opnunar Hlíðarfjalls á eftir og spjöllum við Brynjar Helga Ásgeirsson forstöðumann skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. Svo er málfarsspjall. Ef við nennum. Hvað þýðir það að nenna? Er það að vera latur og áhugalaus? Og hvaða leiðindi eru þetta þá í jólalaginu kunna Ef ég nenni sem Helgi Björns syngur. Eða er kannski eitthvað meira við þetta orð? Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur fer yfir það með okkur.

Morgunútvarpið
8. júlí - Metalmessa, sumarfrí, Landsmót, Garden Party og ferðalög

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 8, 2022

Í tilefni af því að Eistnaflug verði haldið í Neskaupstað um helgina verður blásið til ,,Þungarokks messu" eða ,,Metal messu" af finnskri fyrirmynd. Um er að ræða hefðbundna messu en í stað hefðbundins sálmasöngs með orgelleik verða erlendir þungarokkssálmar spilaðir en íslenskur texti verður aðgengilegur í sálmaskrá. Séra Benjamín Hrafn Böðvarsson var á línunni. Leikskólarnir loka í dag og margir foreldrar því að sigla inn í sumarfrí núna um helgina. Það getur hins vegar reynst erfitt fyrir marga að kúpla sig alveg frá vinnu þegar fríið loksins hefst. Við ræddum við Þórkötlu Aðalsteinsdóttur, sálfræðing og ráðgjafa í mannauðsmálum, um fríið. Fréttablaðið fjallaði á dögunum um það að Íslendingar hafi ekki lengur ráð á gistingu í eigin landi - og að hótelgeirinn geri ekki ráð fyrir Íslendingum í gistingu í sumar. Við ræddum þessi mál við Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnar. Venju samkvæmt fórum við yfir fréttir vikunnar að loknum átta fréttum. Fjölmiðlafólkið Arnar Björnsson og Fanndís Birna Logadóttir komu til okkar. Landsmót hestamanna er ekki bara hestamót heldur líka mikið mannamót þar sem aðdáendur íslenska hestsins alls staðar að úr heiminum koma saman. Boðið er upp á alls kyns varning og veitingar fyrir gesti og Hulda okkar fór á stúfana og heyrði af ferskum fiski, hreinni mjólk... og svo auðvitað hestum. Tónlistar,- matar- og fjölskylduhátíðin Garden Party verður haldin í Laugardal laugardaginn 13 ágúst nk. Hátíðin er hugsuð sem lítil bæjarhátíð fyrir Reykjavík þar sem öll fjölskyldan getur komið saman og skemmt sér í öruggu og hlýlegu umhverfi. Þorsteinn Stephensen hefur veg og vanda að þessari hátíð og hann kom til okkar. Tónlist: Krummi - Bona Fide Arcade Fire - Unconditional love Kaleo - I walk on water Una Torfadóttir - En Tal Bachman - She's so high Pale Moon - I confess Helgi Björns og Reiðmenn vindanna - Sem lindin tær Mezzoforte - Garden Party

Rússneskar hersveitir í Donbas; stjórnarandstaðan og loðna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 22, 2022

Rússneska þingið hefur samþykkt einróma að beita hernum utan landamæra Rússlands. Jón Ólafsson, sérfræðingur í málefnum Rússlands segir meiri líkur á stríði eftir ákvörðun Pútíns. Ólöf Ragnarsdóttir tók saman. Ekki verður unnt að opna Hellisheiði og Þrengsli í dag, en enn er unnið að því að losa bíla sem þar hafa setið fastir í nærri sólarhring. Arnar Björnsson talaði við Árna Pálsson snjómokstursmann í Þrengslunum. Dóra Sigurðardóttir, bóndi á Vatnsdalshólum í Húnavatnssýslu segist aldrei hafa upplifað viðlíka veðurofsa og gekk yfir í nótt. Mikið tjón varð á húsum og tækjum á bænum. Stjórnvöld stefna enn að því að aflétta öllum sóttvarnaaðgerðum fyrir vikulok segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Valgeir Örn Ragnarsson talaði við hann. Mannekla innan heilbrigðiskerfisins vegna covid fer síversnandi um land allt. Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir stöðuna þunga, ekki hafi margir skráð sig á bakvarðalista. Anna Þorbjörg Jónasdóttir talaði við hann. ------------- Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur er vel að sér í málefnum Rússlands og Úkraínu þar sem hann lagði stund á nám. Hann efast um að yfirlýsingar Pútíns lýsi ríkjandi viðhorfi Rússa til landsins. Þetta séu frændþjóðir og rík tengsl á milli. Hann telur ekki að innrás sé Pútín í hag til lengri tíma litið. Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra telur mögulegt að Rússar hyggi á stærri hernaðaraðgerðir. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman og talaði við Val. Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir alveg ljóst að nú, þegar sjái fyrir endann á faraldrinum og afnám allra sóttvarnareglna, þurfi efnahagsmálin að vera í aðalhlutverki og þá helst hvernig eigi að grípa viðkvæmustu hópana. Hann segir ríkisstjórnina ósamstíga eftir samstöðu í faraldrinum og innrás Rússa í Úkraínu geti haft mikla afleiðingar hér innanlands, staðan þar sé grafalvarleg. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Loga í Alþingishúsinu í dag. Norðmenn þurfa að hætta loðnuveiðum við Ísland í dag og brenna inni með milljarða verðmæti í óveiddum kvóta. Þeir kvarta undan skilyrðum Íslendinga og segja þau hafi tafið veiðar. En þeir mættu líka seint á miðin og setja sjálfi skilyrð meðal annars til að norsk skip landi loðnunni frekar í heimalandinu. Rúnar Snær Reynisson, fréttamaður á Austurlandi fór yfir málið. Umsjón: Andri Yrkill Valsson. Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Spegillinn
Rússneskar hersveitir í Donbas; stjórnarandstaðan og loðna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 22, 2022 9:54

The Snorri Björns Podcast Show
#96 - Þorsteinn Bachmann

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Jul 14, 2021 115:18

Þorsteinn Bachmann fer með stórleik í þessum þætti. Við útskýringar á aðferðarfræði Chekhov og Stanislavski var hann við það að bresta í grát þáttastjórnandi líka. Við förum yfir hlutverkið hans í Kötlu, hvernig Helgi Björns kickstartaði leikferli Þorsteins og feimnina sem hann þurfti að yfirstíga til að mæta á svið - sem var svo mikil að hann kastaði upp á milli sena.