Fjórtaktur

Follow Fjórtaktur
Share on
Copy link to clipboard

Hlaðvarp þar sem hestafólk talar við hestafólk um íslenska hestinn og allt sem honum tengist!Samstarf og fyrirspurnir: fjortaktur@fjortakur.is Facebook & Instagram: Fjórtaktur

Fjórtaktur


    • Oct 10, 2021 LATEST EPISODE
    • monthly NEW EPISODES
    • 48m AVG DURATION
    • 29 EPISODES


    Search for episodes from Fjórtaktur with a specific topic:

    Latest episodes from Fjórtaktur

    Hvað með magasár?! - Úndína Ýr Þorgrímsdóttir segir frá

    Play Episode Listen Later Oct 10, 2021 64:37


    Úndína Ýr er ungur dýralæknir sem lýkur nú námi sínu við Kaupmannahafnarháskóla með stórri rannsókn hér á Íslandi þar sem könnuð er tíðni magasára og eðli þeirra.  Úndína segir okkur frá því hvað magasár eru, hvernig einkenni þeirra gætu birst okkur, ástæður fyrir því að þau myndast og hvað sé til ráða. Við ræddum líka rannsóknina og dýralæknanámið sem hefur verið strembið er skemmtilegt! 

    magas segir kaupmannahafnarh
    Hvernig læra hestar -Inngangur í þjálfunarfræði með Jóhönnu Þorbjörgu

    Play Episode Listen Later Sep 25, 2021 55:51


    Fyrsti þáttur í nýrri seríu er komin út!

    Hindrunastökk frá A - Ö ( ÓL Special! )

    Play Episode Listen Later Aug 3, 2021 57:41


    Allt sem þú þarft að vita um hindrunastökkið á Ólympíuleikunum í Tokyo! 

    Söfnun eða samþjöppun?

    Play Episode Listen Later Apr 22, 2021 60:02


    Í þessum síðasta þætti Fjórtakts í bili ræðum við söfnun og samþjöppun, skilgreininguna á því fyrrnefnda og hver munurinn er.  Þátturinn er ekki með sama þema og verið hefur í vetur þar sem við höfum stutt okkur ætíð við vísindagreinar og staðreyndir heldur ræðum við hér hugmyndafræðina um söfnun sem rituð hefur verið í bækur um gildi klassíska reiðmennsku. 

    Öndun hesta og knapa - Virkni og beiting

    Play Episode Listen Later Mar 4, 2021 69:34


    Í þessum þætti ræðum við öndunarkerfi hrossa, virkni þess og hvað er vert að hafa í huga þegar við þjálfum hross. Við ræddum einnig öndun knapans og hvernig hún tengir okkur við hestinn og getur hjálpað okkur við þjálfun. 

    Hrossasótt, orsök hennar og meðhöndlun - Andrea Dýralæknir

    Play Episode Listen Later Feb 18, 2021 58:59


    Andrea dýralæknir settist niður með okkur og ræddi allt það sem tengist hrossasótt. Við fórum yfir orsakir, einkenni og Pain Face, sem gefur okkur skýr merki um að eitthvað ónáði hestinn. 

    Fullkomið jafnvægi? - Misstyrkur, þjálfun og afleiðingar

    Play Episode Listen Later Jan 19, 2021 74:40


    Við ræðum misstyrk, hvaðan hann á rætur sínar í náttúrulegu eðli hestanna okkar og hvernig hann birtist okkur þegar það er komið að því að þjálfa hestinn. Við ræddum vandamálin sem misstyrkur getur valdið og leiðir til þess að gera hestinn samspora ásamt smá umræðu um mikilvægi þess að hesturinn sé jafnvígur þrátt fyrir að mælistikurnar fyrir misstyrk séu litlar þegar komið er í keppni, sama hver reiðstíllinn er! 

    Markmiðasetning og hugarþjálfun - Lyklar árangur

    Play Episode Listen Later Jan 6, 2021 50:24


    Í þættinum förum við yfir lykilatriði markmiðasetningar, hvað það er sem skiptir máli þegar við veljum vegferð verkefna og hvernig við getum nýtt mátt hugans til að koma okkur þangað. 

    Hitastýring hrossa, erfðasyndin og rakstur reiðhrossa

    Play Episode Listen Later Dec 25, 2020 59:59


    Þátturinn fjallar um hitastýrikeri íslenskra hrossa sem flokkast sem kaldblóðshestar. Við förum yfir þá erfðasynd íslenskra, sá mikli hæfileiki til að halda á sér hita! Líkt og áður berum við fyrir okkur rannsóknir og greinar dýralækna við dýpri umfjallanir líkt og þessa og ræðum kosti og galla þess að raka, nota ábreiður og valið að gera ekki neitt! 

    Hnakkurinn frá A-Ö með Eveliinu Marttisdóttur

    Play Episode Listen Later Nov 9, 2020 46:35


    Ertu í alvöru með réttan hnakk?! Í þessum þætti ræddum við heima og geima hnakkana með Eveliinu Marttisdóttur sem rekur hnakkastillingarfyrirtækið Hestbak. Eveliina sérhæfir sig í því að skoða, mæla og greina bök hrossa og velja þeim hnakk sem þjónar þeirra þörfum, sem og knapans. Við ræddum allt sem tengist hnökkum, undirdýnum og áhrifum þess að vera með rétta og RANGAN hnakk á milli hests og knapa! 

    Manngerving - Hættur hennar og ábati

    Play Episode Listen Later Oct 16, 2020 25:42


    Þáttur vikunnar fjallar um stóra vísindalega skilgreiningu sem tengist öllu sem við upplifum og gerum við dýrahald! Manngerving (e. Anthropomorphism) er innvinklað í alla hegðun mannskepnunnar, enda er það hennar helsti eiginleiki að reyna að skilja eðli alls, hvort sem að baki því er vísindaleg nálgun eða ekki. Manngerving er ástæða þess að við tengjumst dýrunum okkar, hvati okkar til þess að halda áfram að þjálfa þau og elska þau. Við förum yfir hvað þetta er, hvað þetta þýðir, hverjir ábatarnir eru og afhverju þetta getur komið í veg fyrir framfarir eða jafnvel ógnað velferð dýranna okkar!  

    Andleg örvun hrossa á húsi

    Play Episode Listen Later Oct 3, 2020 31:58


    Það að taka hest úr náttúrulegu umhverfi sínu í haganum með stóðinu og inn í hesthús í ófjölbreyttara umhverfi getur verið mikil breyting og hreinlega niðurdrepandi fyrir hestana. Í þætti þessarar viku ræddum við hvað andleg örvun er, hvernig við getum örvað skynfæri hrossana okkar í hinum ýmsu aðstæðum sem eru sett í sem reiðhross og hin ýmsu leikföng sem hægt er að notast við!  

    Stíustærðir og líðan í hesthúsi

    Play Episode Listen Later Sep 27, 2020 36:02


    Þáttur vikunnar er helgaður rannsóknum á stíustærðum og uppsetningum hesthúsa og reglugerðum hérlendis og erlendis! Við veltum fyrir okkur óskastærðum hesthúsastía, hvíld hrossa á húsi í samhengi við stærðir stíanna og svo er það stóra spurningin, vill hesturinn deila stíunni eða hafa hana út af fyrir sig?! 

    14. Q&A feldhirða með Theodóru

    Play Episode Listen Later Feb 24, 2020 55:19


    Í þessum seinni þætti sem tileinkaður er feldhirðu hrossa fara Thelma og Theodóra yfir spurningar sem bárust frá hlustendum og ræða hverja þeirra í þaula! Þátturinn er í boði Carr & Day & Martin. Þessar bresku gæðavörur, sem bera merki bresku krúnunnar, eru umrómaðar fyrir gæði sín og nytsemi. Spreyjin eru í miklu uppáhaldi þáttastjórnanda enda bæði bæði neytandavænar vörur og áhrifaríkar. Þú finnur allar þínar uppáhalds Carr & Day and Martin vörur í Líflandi og á fleiri stöðum! 

    13. Julio borba part 2

    Play Episode Listen Later Feb 10, 2020 82:06


    Nú er komið að seinni þætti Fjórtakts með Julio Borba. Daginn eftur stóra laugardaginn í Fákaseli settumst við saman niður og fórum yfir spurningar hlustenda. Við fengum að heyra skemmtilegar sögur úr fyrri tíð ásamt góðum ráðum.

    12. Julio Borba partur 1

    Play Episode Listen Later Feb 3, 2020 18:00


    Þáttur vikunnar er upphitun fyrir stóra daginn í Fákaseli næstkomandi laugardag! 

    11. Feldhirða með Theodóru Róbertsdóttur

    Play Episode Listen Later Jan 27, 2020 42:43


    Þáttur vikunnar fer djúpt inn á svið feldhirðu hrossa! 

    10. Þórdís Erla Gunnarsdóttir

    Play Episode Listen Later Jan 21, 2020 27:25


    Þórdís Erla Gunnarsdóttir er íþróttakona af öllu hjarta sem spilaði handbolta með landsliði Íslands á yngri árum og hefur alla tíð stundað hestamennsku af mikilli natni. Það voru þó örlögin sem gripu í taumana og sigldu henni inn á þá braut sem hún er í dag. Hún stundar tamningar, þjálfun og kennslu á Grænhól, hrossaræktarbúi fjölskyldunnar. Við fengum að skyggnast inn í líf Þórdísar og hennar nálgun á sportið.

    Allskonar pælingar í upphafi nýs árs!

    Play Episode Listen Later Jan 2, 2020 33:00


    Í upphafi nýs hestaárs fara Bjarney og Thelma yfir það sem er þeim efst í huga þegar nýr vetur byrjar! Rakstur, að baða strax þegar hesturinn kemur inn og hvenær er eiginlega rétti tíminn til þess að taka inn?! 

    8. Liga Liepina - Ævintýri ljósmyndarans

    Play Episode Listen Later Dec 12, 2019 37:28


    Liga Liepina hefur á örfáum árum skipað sér í hóp þekktustu hestaljósmyndara á Íslandi sem mynda íslenska hesta. Hún hefur myndað fyrir herferðir Horses of Iceland, átt kápumynd Stóhestabókarinnar í nokkur skipti og fylgjendafjöldinn á Instagram hleypur á þúsundum. Hún hóf sína hestamennsku í Lettlandi þar sem hún kynntist stórhestum en í dag á hún íslenska hryssu, eitt folald og annað á leiðinni. Í þættinum segir hún okkur frá því hvað það er sem heillar hana við ljósmyndun hesta í íslenskri náttúru, hvernig ævintýrið byrjaði og þeim fiðrildaáhrifum sem þetta áhugamál hefur haft á líf hennar. 

    7. Markmið og árangur - Hinrik Sigurðsson

    Play Episode Listen Later Sep 12, 2019 84:15


    Gestur þáttarins er Hinrik Sigurðsson reiðkennari og spekúlant sem hefur sökkt sér í þessi fræði og nálgast stöðu sína sem leiðbeinandi af miklum metnaði og hugsjón. Við ræddum markmiðasetningu, hugarþjálfun, hvernig maður tæklar vandamál, hvernig maður verður betri leiðbeinandi, Reiðmanninn og hvort skipti meira máli, að ná lokatakmarkinu eða njóta vegferðarinnar.Haustið er svo sannarlega tími til að líta um öxl, móta sér ný markmið, hugsa inn á við og láta sig dreyma. Vonandi verður þessi þáttur góð viðbót fyrir hestamenn sem vilja ná enn lengra, sama hvað þeir ætla sér! 

    6. Aðalheiður Anna

    Play Episode Listen Later Aug 29, 2019 28:48


    Gestur þessa þáttar er Aðalheiður Anna. Hún er hestakona fram í fingurgóma, vandvirk og stefnuföst í sinni þjálfun og búin að uppskera mjög svo í samræmi við það. Við Bjarney fengum hana til að segja okkur frá hestunum sem hafa sett sinn svip á ferilinn, hvernig hún þjálfar og hvar áhuginn byrjaði hjá stelpu sem var alls ekki fædd inn í hestaheiminn. Styrktaraðilar þessa þáttar er hrossaræktarbúið Stangarlækur 1. Þau Birgir og Ragna hafa stundað hrossarækt og hestamennsku allan sinn búskap en ræktunin í sinni núverandi mynd er þó ekki svo löng. Þau standa að baki hæðst dæmda klárhesti í heimi og rækta hross sem eiga rætur sínar að rekja til Kjarnholts. Við kunnum Stangarlæk 1 bestu þakkir fyrir stuðninginn! 

    5. Gæðingakeppni frá A - Ö

    Play Episode Listen Later Aug 23, 2019 37:04


    Í þessum þætti af Fjórtakti fá hlustendur að kynnast gæðingakeppninni frá A-Ö! Þeir Valdimar Ólafsson og Sindri Sigurðsson Landsdómarar sögðu okkur frá því hvað felst í þessari keppnisgrein, hverju er verið að leita að í dómgæslu og í hvaða greinum er hægt að keppa. Gæðingakeppni er fyrsta keppnisgreinin sem búin var til fyrir íslenska hestinn og þeir sögðu okkur frá hvernig dómgæslu var háttað á þeim tíma og hvaða nýju greinar eru að líta dagsins ljós núna síðustu ár. Styrktaraðili þáttarins er KEMIS. Ef þú ert að hugað að því leggja reiðtstíg eða laga reiðgerðið þá mælum við með að kíkja til þeirra á Breiðhöfða 15 og fá ráðleggingar um bestu jarðvegsdúkana! 

    4. Stangarlækur 1

    Play Episode Listen Later Aug 14, 2019 53:10


    Hjónin á Stangarlæk 1 eru gestir þessa þáttar!Þau hafa stundað hrossarækt meðfram sinni hestamennsku um árabil en færðu sig yfir í Kjarnholtsblóðið þegar þau festu kaup á tveim hryssum úr stóði Magnúsar bónda. Í dag hefur ræktunin borið heldur betur blómlegan ávöxt, hann Kveik frá Stangarlæk. Kveikur hefur hlotið hæðstu einkunn fjórgangara í heiminum og nýbyrjaður sinn keppnisferil með sínum snjalla og metnaðarfulla þjálfara. Þau Birgir og Ragna eru metnaðarfullir ræktendur, drifin áfram af ástríðu. Í þessum þætti segja þau okkur frá upphafinu, afhverju Kjarnholtsblóðið heillaði þau, hugsjónum þeirra og vegferðinni sem það er að rækta heimsmethafa. 

    3. Olil Amble

    Play Episode Listen Later Aug 8, 2019 75:32


    Gestur þáttarins er Olil Amble! Hún er frábær þjálfari, metnaðarfull reiðkona og gjöfull kennari sem hefur sýnt mátt sinn í verki á keppnisvellinum, nú síðast á heimsmeistaramótinu í Berlín þar sem hún kemur efst inn í A - úrslit í fimmgangi á hinum heimaræktaða Álfarinn frá Syðri- Gegnishólum. Hún er, ásamt manni sínum Bergi Jónssyni, margverðlaunaður ræktandi og býr nú á Syðri- Gegnishólum og rekur þar hrossaræktarbú með miklum myndarskap með honum.Hún sagði okkur frá sínum fyrstu kynnum af hestum, vegferðinni frá upphafi sinna atvinnumennsku og örlagadísinni hennar, Álfadís frá Selfossi.Við minnum á að Fjórtaktur er bæði á Facebook og Instagram og svo má alltaf senda okkur línu á fjortaktur@gmail.com!

    2. Hákon Dan Ólafsson

    Play Episode Listen Later Aug 2, 2019 35:41


    Gestur þáttarins er hinn ungi Hákon Dan Ólafsson. Hann byrjaði hestamennskuna í reiðskólanum Faxabóli og síðan þá hefur hann verið heillaður af íþróttinni. Í dag á hann bæði Íslandsmeistaratitla, Reykjavíkurmeistaratitla og er nú í landsliði Íslands á Heimsmeistaramótinu í Berlín. Hákon spjallaði við okkur um sinn stutta en árangursríka feril, hvernig hann nálgast íþróttina og þá vegferð sem það er að komast í landsliðið. Styrktaraðili þáttarins er KEMIS. Ef þú ert að hugað að því leggja reiðtstíg eða laga reiðgerðið þá mælum við með að kíkja til þeirra á Breiðhöfða 15 og fá ráðleggingar um bestu jarðvegsdúkana! 

    HM Upphitun - Aukaútgáfa

    Play Episode Listen Later Jul 27, 2019 62:10


    Fyrsti þáttur Fjórtakts fór í loftið föstudaginn 26. júlí og hafa viðtökurnar verið frábærar, en rúmlega 1.000 manns víðs vegar um heiminn hafa hlustað á þáttinn. Að því tilefni hefur verið sett í loftið sérstök HM upphitun þar sem þau Gísli Guðjónsson og Thelma Harðardóttir rýna í íþróttakeppnistímabilið hér heima, landslið Íslands og helstu keppinauta Íslendinga.Rætt er um flesta þá sem keppa fyrir íslandshönd á HM. Því miður gafst ekki tími til að ræða um kynbótahrossin en Eiðfaxi hefur fjallað ýtarlega um hvert og eitt þeirra og má finna þá umfjöllun á vef Eiðfaxa.

    1. Árni Björn Pálsson

    Play Episode Listen Later Jul 25, 2019 35:13


    Fjórtaktur í samstarfi við Eiðfaxa kynnir: Árni Björn Pálsson! Hann er ættaður frá Teig í Fljótshlíðinni og stundaði hestamennsku með fjölskyldunni sinni í uppeldisfélaginu Fáki í Víðidal. Í dag hefur hann verið valinn knapi ársins þrisvar sinnum, unnið Meistaradeildina í hestaíþróttum fjórum sinnum, er fimmfaldur íslandsmeistari í tölti , unnið Landsmót nokkrum sinnum og þá er alls ekki allt upp talið. 

    Fjórtaktur: INTRO

    Play Episode Listen Later Jul 21, 2019 11:49


    Kynning á þáttarstjórnendum, tilurð þáttarins og efnistökum.Endilega fylgið okkur á okkar samfélagsmiðlum@fjortaktur á Instagram og Facebookfjortaktur@gmail.com 

    Claim Fjórtaktur

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel