POPULARITY
Notkun svefnlyfja getur haft ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér og skert lífsgæði, sérstaklega eldra fólks, en í þeim hópi er notkun svefnlyfja mest. Rannsóknir sýna að langtímanotkun svefnlyfja sé gagnslaus, en þau geta haft alvarlegar hættur í för með sér og neikvæð áhrif á heilsuna. Hildur Þórarinsdóttir formaður Félags íslenskra öldrunarlækna og Drífa Sigfúsdóttir varaformaður Landssambands eldri borgara komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá mikilvægi þess að minnka svefnlyfjanotkun og herferðinni „Sofðu vel“. Við skruppum svo út með hljóðnemann og spurðum fólk á förnum vegi hvort það þekkti ráðherrana í ríkisstjórninni og í hvaða ráðuneyti þau eru. Svörin voru áhugaverð og ljóst að ekki allir eru með þetta á hreinu, ríkisstjórnin er þó auðvitað ekki búin að starfa mjög lengi. Gjörunnin matvæli eru að öllu jöfnu orkurík vegna mikils magns sykurs og/eða fitu en þetta mikla magn lækkar hlutfall mikilvægra næringarefna á móti. Þetta eru matvæli sem oft eru kölluð skyndifæða og ýmis efni eins og litarefni og sætuefni eru notuð til að gera matvælin girnileg. Við heyrðum í dag viðtal sem Helga Arnardóttir tók við Kristján Þór Gunnarsson heimilislækni á Selfossi um gjörunnin matvæli. Viðtalið var áður í þættinum í júní í fyrra. Tónlist í þættinum í dag: Riddarar kærleikans / GDRN (Dagmar Helga Helgadóttir og Valgerður Rakel Rúnarsdóttir) Serendpity / Laufey (Laufey & Spencer Stewart) I'm a believer / The Monkees (Neil Diamond) All I Have to do is Dream / The Everly Brothers (Boudleaux Bryant) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Hvernig tökumst við á við breytta heimsmynd vegna loftslagsbreytinga, hnignunar líffræðilegs fjölbreytileika og annarra umhverfisógna. Á dögunum kom út samnorrænt greinasafn sem fjallar um hlutverk lista, bókmennta og skapandi athafna í að bregðast við þessum breytingum. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, er annar ritstjóra safnsins og hún ætlar að kíkja til okkar til að ræða þetta áhugaverða safn, ásamt Önu Stanicevic, doktor í menningarfræðum frá Háskóla Íslands og lektor við Háskólann í Helsinki. Svokallaðar básabúðir þar sem fólk getur leigt bás undir notaðar flíkur skjóta víða upp kollinum þessa dagana. Bræðurnir Hlynur Snær Jóhannesson og Styrmir Jarl Rafnsson opnuðu eina slíka á Selfossi í ársbyrjun, alveg við þjóðveginn í miðju iðnaðarhverfi. Arnhildur hitti Hlyn á ferð Samfélagsins um Suðurlandið í síðustu viku og ræddi við hann um reksturinn og hringrásarhugsunina á bak við hana. Og síðan ætlum við að heyra áður óflutt viðtal við Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði við HÍ. Við ræddum við hana í kringum alþingiskosningarnar síðasta nóvember um listabókstafi og ýmislegt fleira sem tengist pólitík. Viðtalið var aldrei flutt vegna óviðráðanlegra aðstæðna, en í lok þáttar fær það loksins að líta dagsins ljós.
Hrefna Sigfinnsdóttir er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Hún vann hjá afa sínum og ömmu á skrúfubarnum í BYKO og kynntist á Stuðmannaballi á Selfossi og er þakklát mentorum sínum og samferðafólki
Viðmælandi þáttarins er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, stofnandi og meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi. Lindex er sænsk verslunarkeðja sem selur kven- og barnaföt og Gina Tricot er sænsk tískukeðja sem selur kvenmannsföt. Lóa er fædd árið 1979 og alin upp í Flóanum og á Selfossi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavogi og lauk síðan BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Eftir útskrift vann hún sem verkefnastjóri um tíma hjá Innovit, sem hélt m.a. utan um viðskiptaáætlanakeppnina Gulleggið. Lóa flutti síðan til Svíþjóðar ásamt manni sínum Alberti Þór og tveimur sonum og stofnaði verslunina Emil og Línu við eldhúsborðið sem seldi sænskar vörur á Íslandi. Þau fengu svo hugmyndina að fá sérleyfi fyrir Lindex á Íslandi og eru verslanirnar nú um tíu talsins. Seinna fengu þau svo um sérleyfi fyrir Gina Tricot og eru verslanirnar nú um fjórar talsins. Þau hafa nú nýverið tekið við rekstri barnafataverslunarinnar Dimmalimm á Laugavegi og samhliða því tryggt sér sérleyfi fyrir spænska barnafatamerkið Mayoral og vinnur Lóa þessa dagana í að vekja upp Lína og Emil vörumerkið og koma upp eigin framleiðslu á barnafötum. Þessi þáttur er í boði Arion, Sólar og KPMG.
Sjötti maðurinn breytti útaf vananum þar sem var farið í King of the court útgáfu eða viðtalsútgáfu. Í þáttinn fékk Sjötti maðurinn þjálfarann Árna Þór Hilmarsson sem þjálfað hefur til fjölda ára í yngri flokkum sem og meistaraflokki og þá aðallega á Flúðum, en síðast var hann með meistaraflokk karla á Selfossi. Árni hefur líka tekið að sér yngri landsliðsverkefni og margt margt fleira. Í þættinum kemst Sjötti maðurinn að ýmsu varðandi bæði leikmanninn Árna og þjálfarann Árna. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Aðeins þarf að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. laugardagur 21. september 13:00 Selfoss-Árbær (JÁVERK-völlurinn) 13:00 KFA-Tindastóll (Fjarðabyggðarhöllin) Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, ræddi við Fótbolta.net í morgunsárið um sumarið á Selfossi en lið hans flaug upp úr 2. deildinni. Einnig var farið yfir undanúrslitin í þessari keppni sem Bjarni er svo hrifinn af. Hann segir hana stórskemmtilegt fyrirbæri og mikla gulrót fyrir leikmennn að komast á Laugardalsvöll.
Svavar Knútur er nýkomin úr tónleikaferðalagi um Ástralíu og Evrópu og nú er hann lagður af stað hringinn í kringum landið með tvöfalt nýtt plötualbúm í farteskinu. Þessi tónlist er á vissan hátt 15 ára úrvinnsla sorgar segir Svavar Knútur sem var í hljóðstofu RÚV á Akureyri í beinni útsendingu í dag. Svo komu þær Áslaug Thorlacius og Björg Jóna Birgisdóttir í þáttinn til að segja okkur frá listnámi í Myndlistaskólanum í Reykjavík fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu. Áslaug er skólastjóri Myndlistaskólans og Björg fylgdi systur sinni, Lilju Dögg, í gegnum námið. Björg segir námið hafa verið valdeflandi fyrir systur sína á mörgum sviðum og hafi gríðarlega þýðingu og að það sé mannbætandi að geta boðið upp fólki með þroskaskerðingu listnám. Viðvarandi blóðsykurssveiflur yfir daginn geta verið orsök þreytu og orkuleysis, vakið upp falska svengdartilfinningu, raskað þyngdarstjórnun og valdið alvarlegum sjúkdómum á við sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum, fitulifur og hvers kyns bólgusjúkdómum sem nú þegar herja á samfélagið í auknum mæli. En við þessu geta verið einföld ráð. Ef við neytum fyrst grænmetis og annarra trefja, fitu eða próteina á undan kolvetnum virkar það eins og sía áður en sykurinn kemst út í blóðið og þar með komum við í veg fyrir óhóflega blóðsykurshækkun í líkamanum. Þetta sagði Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir á Selfossi, sem er umfram allt áhugamaður um rót vandans, þegar Helga Arnardóttir ræddi við hann á Heilsuvakt dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Sannaðu til / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur Kristinsson) Joc de doi din Banat / Virgil Muzur (Virgil Muzur) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
11. apríl 2024 Tveir sænskir sérfræðingar hafa verið fengnir til að vinna álit á krufningarskýrslu sem unnin var hér á landi vegna andláts konu á Selfossi fyrir ári síðan. Samstarf og stuðningur Evrópusambandsins við ríki þaðan sem flóttafólk og innflytjendur koma til Evrópu verður aukinn, til að draga úr þeim fjölda fólks sem sækist eftir hæli og dvalarleyfi í aðildaríkjum ESB. Félag íslenskra bókaútgefenda, FÍBÚT, fagnar þeim yfirgripsmiklu og metnaðarfullu áformum stjórnvalda sem birtast í þingályktunartillögu menningarmálaráðherra um nýja bókmenntastefnu en gjalda varhug við hugmyndum um fast verð á bókum og að halda skuli þeim frá streymisveitum í ákveðinn tíma eftir útgáfu.
Límónutréð heimsótti Hugrúnu Helgadóttur leikskólakennara í leikskólanum Jötunheimum á Selfossi. Hugrún sagði okkur frá meistararannsókn sinni sem heitir Ærslaleikur ungra barna: óþarfa hamagangur eða fyrstu skref í samleik?
18.umferðin var gerð upp í þessum þætti. - HK-ingar mættu á Selfoss með skóflurnar og grófu upp Selfyssinga - Andri Berg er að elda eitthvað svakalegt í Safamýrinni - EuroLalli var með hausinn á Söngvakeppninni - Leikbann Ágústar Inga reyndist Gróttumönnum dýrt - Ungu strákarnir hjá KA fengu hjálp frá þeim eldri til að ná prófinu - Martröð HK í hornafærunum heldur áfram - Aron Pálmarsson mætti með flugeldasýningu þökk sé FitnessSport - Hvaða lið fara í bikarúrslit? - Kvennalandsliðið lenti á vegg í Svíþjóð - Jonas Maier hefur múrað fyrir í Grill66-deildinni - Fer Seðilinn upp með Fjölni?
Olís-deildar umræða, Evrópubikarinn, Strákarnir okkar í mennskunni og hitað upp fyrir næstu leiki. Hugur okkar er á Selfossi þessa dagana þar sem mikið svartnætti ríkir. Ekki er staðan betri fyrir norðan hjá gulklæddum KA-mönnum. Eyjamenn skelltu sér á Irish-man Pub eftir kærkominn sigur um helgina og Víkingarnir lifa í voninni um að halda sér uppi.
15.umferðin í Olís-deildinni var gerð upp í þætti kvöldsins. Slúðurmolarnir voru fjölmargir og áhyggjuefnin ekki færri. Hvaða fimm félög heyrðu í Halldóri Jóhanni? Hvert fer Einar Baldvin? Rasimas hefur fengið kveðjubréfið á Selfossi og AP4 hefur fengið hvíld fyrir bikarleikinn gegn Haukum. Sjö umferðir eftir og staðan í fallbaráttunni er stórhættuleg.
Bjarni Jóhannsson er mættur aftur í þjálfun eftir að hafa tekið sér árspásu. Bjarni hefur verið ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 2. deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar. Hann gerir tveggja ára samning við félagið. Bjarni hefur verið í þjálfun í meira en 30 ár og komið víða við á ferlinum. Næsta stopp er Selfoss þar sem hann stefnir að koma liðinu aftur upp í Lengjudeildina eftir vonbrigðarsumar. Selfoss er félag sem á ekki að vera í 2. deild í fótbolta. Í þættinum fer Bjarni yfir nýtt verkefni á Selfossi og hann fer vel yfir fríið sem hann tók frá þjálfun. Þessi mikli reynslubolti er gríðarlega spenntur að hefjast handa á nýjan leik.
Viðmælandi þáttarins er Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Tulipop. Tulipop er íslenskur ævintýraheimur fyrir börn sem hefur notið mikilla vinsælda um áraraðir. Helga er fædd árið 1979 og ólst upp í Noregi, bjó svo um nokkurra ára skeið á Selfossi og flutti svo í Háaleitishverfið í Reykjavík þar sem hún sleit barnsskónum. Hún gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk BS prófi í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Helga vann sem viðskiptastjóri og markaðsstjóri í hugbúnaðarbransanum á Íslandi en fluttist svo búferlum til London þar sem hún lauk MBA námi frá London Business School og vann þar einnig í stefnumótun og markaðsmálum fyrir American Express. Helga flutti síðan til Íslands árið 2009 eftir að hafa lokið MBA náminu og hóf þá störf í fyrirtækjaráðgjöf hjá PwC og starfaði þar þar til hún stofnaði fyrirtækið Tulipop árið 2020. Þátturinn er kostaður af Arion, Icelandair og Krónunni.
Við fræddumst í dag um Ayurveda, sem eru yfir 5000 ára gömul lífvísindi, ættuð frá Indlandsskaganum og iðkuð víða um heim, til dæmis af um 80% íbúum Indlands og Nepal. En hvað er Ayurveda? Heiða Björk Sturludóttir, næringarþerapisti, jógakennari og umhverfisfræðingur hefur nú gefið út bókina Ayurveda, listin að halda jafnvægi í óstöðugri veröld. Bókinni er ætlað að vera leiðarvísir um þessi indversku lífvísindi. Heiða kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá bókinni og Ayurveda. Stærðfræðin þyngist talsvert á unglingastigi grunnskólans, frá 8. - 10. bekk, og margir nemendur geta lent í verulegum vandræðum, þar sem þá skortir grunn og skilning. Ákveðinn vítahringur getur þá myndast og verið afar erfiður viðureignar. Halldór Örn Þorsteinsson, stærðfræðikennari til 14 ára, kallar sig stærðfræðihvíslarann og vinnur við að hjálpa nemendum sem eiga erfitt með að læra stærðfræði. Hann kom í þáttinn í dag. Alexander Jarl Þorsteinsson tenór mun syngja á óperutónleikunum Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands sem verða haldnir á Höfn, í Vestmannaeyjum og á Selfossi í næstu viku. Alexander Jarl sem er aðalsöngvari tónleikanna uppgötvaði ástríðu sína fyrir óperu aðeins fimm ára að aldri, þökk sé föðurafa hans sem gjarnan lét hann hlusta á helstu perlur óperuheimsins frá unga aldri. Ári síðar, þá rétt orðinn sex ára hóf hann söngnám. Árið 2016 hóf Alexander nám við the Royal College of Music í London og eftir útskrift hefur Alexander Jarl sungið víðsvegar um Evrópu í fjölmörgum virtum óperuhúsum og nýlega þreytti hann frumraun sína sem Alfredo úr La Traviata eftir Verdi í Flórens. Alexander kom í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum Heima / Haukur Morthens og hljómsveit Jörns Grauengaards (Oddgeir Kristjánsson og Ási í bæ) Must be love / Laufey (Max Wolfgang, Freddy Wexler & Laufey) Vísa Fiðlubjörns / Snorri Helgason (Snorri Helgason, höf. texta ókunnur) Mamma / Alexander Jarl Þorsteinsson Heiðlóarkvæði / Alexander Jarl Þorsteinsson og Eva Þyri Hilmarsdóttir (Atli Heimir Sveinsson og Jónas Hallgrímsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Viðmælandi þáttarins er Ægir Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. Ægir er fæddur árið 1973 og er alinn upp á Selfossi. Hann gekk í Fjölbrautaskóla Suðurlands, R.A. Long High School og kláraði síðan BA próf í sálfræði og Master í vinnusálfræði frá Háskóla Íslands. Ægir starfaði um árabil hjá Capacent, þekkingar- og ráðgjafyrirtæki, og vann þar sem ráðgjafi, mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs. Hann starfaði síðan sem mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála áður en hann tók við forstjórastólnum hjá Advania á Íslandi árið 2015. Advania er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni og tilheyrir Advania samstæðunni sem er með starfsemi víða í Evrópu. Mikill vöxtur hefur verið hjá Advania á síðustu árum og í dag starfa þar um 4500 manns, þar af um 630 manns á Íslandi en sjóður á vegum Goldman Sachs keypti meirihluta í Advania árið 2021. Ægir hefur einnig setið í stjórn Viðskiptaráðs og Festu, miðstöðvar um sjálfbærni, auk nokkurra dótturfélaga Advania. Þátturinn er kostaður af Arion, Icelandair og Krónunni.
Áhrifavaldurinn, markaðsstjórinn og umboðsmaðurinn Birgitta Líf Björnsdóttir mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi sjómanninum og þúsundþjalasmiðnum Enok Jónssyni.Birgitta hefur verið áberandi í íslensku samfélagi til fjölda ára en er hún einn stærsti áhrifavaldur landsins. Ásamt því starfar hún einnig sem markaðsstjóri í fjölskyldufyrirtækinu World Class á milli þess sem hún sér um umboðsstörf fyrir Pretty boy chokko en eins og það sé ekki nóg er hún líka að gefa út aðra seríu af þáttunum LXS sem sýndir verða á stöð 2 og fara þeir í loftið núna 6. september næstkomandi.Enok er sannkallaður þúsundþjalasmiður en hefur undanfarið verið að skella sér á sjóinn og kann hann mjög vel við það. Á milli þess sem hann vinnur á sjónum vinnur hann í allskyns iðnaði og er þessa stundina að hjálpa til við stækkun á World Class stöðinni á Selfossi.Birgitta man fyrst eftir að sjá Enok þegar hann var að halda upp á tvítugs afmælið sitt á skemmtistaðnum hennar Bankastræti Club en minntist þess þó að hafa áður þurft að hafa afskipti af honum fyrir alls kyns uppákomur inn á þeim stað. Það var þó ekki fyrr en töluvert síðar að Enok vissi af því að hún væri í góðra vina hópi og snýkti sig inn í þá samkomu og hafa þau ekki verið í sundur síðan og eiga í dag von á sínu fyrsta barni.Í þættinum ræddum við meðal annars um áhrifavalda mennskuna og hvernig það er að vera mikið á milli tannanna á fólki, hvernig það er að díla við neikvæð komment, sjómennskuna, óléttuna, athyglina, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum meðal annars frá raunverulegu augnarblikinu sem þau hittust fyrst.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten - https://smittendating.com/
Spegillinn 29. júní 2023. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Jón Guðni Ómarsson, nýr bankastjóri Íslandsbanka segist kominn til að vera og vill endurheimta traust. Hann hafi sjálfur ekki komið að sölunni á fimmtungshlut í bankanum, að öðru leyti en því að hafa kynnt bankann fyrir fjárfestum. Pétur Magnússon ræðir við Jón Guðna. Kvikubanki hefur slitið samrunaviðræðum við Íslandsbanka. Stjórn Kviku telur að ekki séu forsendur til að halda samningaviðræðum áfram í ljósi atburða síðustu daga. Í apríl seldist aðeins 531 íbúð á landinu öllu. Kári S. Friðriksson, hagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir að það gæti hreinlega verið betra að spara peninga á góðum innlánsvöxtum frekar en að kaupa fasteign. Benedikt Sigurðsson ræðir við Kára. Jens Stoltenberg verður áfram framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins næsta árið, samkvæmt samkomulagi sem fulltrúar aðildaríkja NATO hafa komist að. Það stefnir í illvíg átök á milli landeigenda og sauðfjárbænda vegna smölunar á ágangsfé og vilja bæði innviðaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga að lög verði endurskoðuð sem fyrst. Rúnar Snær Reynisson segir frá. Hestamennska er fjölbreytt og rúmar alla, segir Hekla Katharína Kristinsdóttir landsliðsþjálfari íþróttarinnar. Íslandsmót hestamanna fer nú fram á Brávöllum á Selfossi. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir talar við Heklu og Sigurbjörn Bárðason. ------ Forsvarsmenn Sorpu greindu frá því nýverið að stefnt sé að því að flytja allt að 43.000 tonn af brennanlegu sorpi til Svíþjóðar á ári hverju, nýr urðunarstaður fyrir sorp af höfuðuborgarsvæðinu er enn ófundinn, skortur hefur verið á metangasi á fólksbíla og Sorpa þarf að líkindum að borga tekjuskatt, sem byggðasamlög eru að öllu jöfnu undanþegin. Ævar Örn Jósepsson spurði Gunnar Dofra Ólafsson, samskipta- og viðskiptaþróunarstjóra Sorpu fyrst út í sorpflutningana. Það voru sagðar af því fréttir á dögunum að Barnavernd Reykjavíkur hefði aldrei fengið jafn margar tilkynningar og fyrstu þrjá mánuði ársins. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Agnesi Eide Kristínardóttur og Unnar Þór Bjarnason hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Og hælisleitendur í Bretlandi verða ekki sendir til Rúanda, samkvæmt breskum áfrýjunardómstól. Ásgeir Tómasson segir frá.

Hvað gerist þegar tvær traustar vinkonur sem kynntust í gegnum félagsskap okkar í kringum virðingarríkt uppeldi og búa á Selfossi taka spontant viðtal við barnalækninn á svæðinu sem önnur þeirra var svo ánægð með í síðustu heimsókn?Þessi þáttur.Vignir Sigurðsson læknir leyfir sér hér að segja það sem stendur hjarta hans nær. Vinkonurnar tvær blómstra í þessu spjalli sömuleiðis.Sértu heilbrigðisstarfsmaður sem stundum eða alla daga þjónustar börn, hlustaðu.Sértu væntanlegt eða núverandi foreldri eða umönnunaraðili, hlustaðu. Uppeldisbækur sem hafa haft áhrif á Vigni að hans sögn eru Hjálp fyrir kvíðin börn og How To Talk So Kids Will Listen and Listen So Kids Will Talk. 59. þáttur þessa hlaðvarps fjallar einmitt um síðarnefndu bókina hvað viðkemur ungum börnum og við mælum líka með honum.
Í þessu póstkorti sagði Magnús frá nokkrum áhugamálum sínum sem hann hefur verið að sinna eftir að hann gerðist pensjónisti. Hann sagði frá dansiðkun sinni, sem hann stundar í laumi, aleinn. Hann sagði líka frá hljóðfærunum sínum og músíkupptökum, sem taka heilmikinn tíma á hverjum degi. Tungumálanámið er líka alltaf hluti af hverjum degi og nú er það þýska sem hefur mesta ástundun þetta sumarið. Við litum við á flugstöðinni á Akureyri en þar eru miklar breytingar fram undan, bæði utanhúss en ekki síst innan úss. Í kaffiteríunni hefur hann Baldvin Sigurðsson veitingamaður staðið vaktina í ein 20 ár, en nú er komið að tímamótum í hans lífi enda er síðasti dagurinn hans á morgun. Við settumst niður með Baldvini í Flugkaffi og spjölluðum um lífið og tilveruna. Sumarlestur er ókeypis lestrarhvetjandi námskeið fyrir krakka í 3.-5. bekk. Börnin koma á bókasafnið einu sinni í viku í 4 vikur þar sem þau fá skemmtilega fræðslu og taka þátt í lestrarhvetjandi uppákomum enda markmiðið að viðhalda lestrarhæfni og kynna ævintýraheim bóka fyrir börnunum. Sumarlesturinn á bókasafni Árborgar á Selfossi hófst 7. júní og verður alla daga miðvikudaga mánaðarins kl. 13:00. Við heyrum í Heiðrúnu Dóru Eyvindardóttur sem er bókasafnsstýra þar á bæ. Tónlistin í þættinum: Í kjallaranum - Óðinn Valdimarsson (Jón Sigurðsson) From the Start - Laufey You turn me on, I'm a Radio - Joni Michell Du elskling er som en ros - Kristian Rusbjerg

Spegillinn 2. Júní 2013 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ríkislögreglustjóri keypti skotvopn og skotfæri fyrir 185 milljónir króna vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins. Annar búnaður kostaði 150 milljónir til viðbótar. Benedikt Sigurðsson ræddi við Runólf Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjón. Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir jákvætt að færri noti reiðufé í viðskiptum sínum þó hann vilji ekki að notkun þess leggist alfarið af. Hins vegar eigi það eftir að gerast einn daginn og annað taka við. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við hann. Óttast er að tugir hafi látist í lestarslysi á Indlandi í dag. Minnst tvö hundruð slösuðust. Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir karlmanni vegna rannsóknar á andláti konu á Selfossi í apríl. Starfshópur á vegum félagsmálaráðherra vill að skoðað verði hvort tilefni sé til þess að láta eltihrella og þá sem ítrekað hafa rofið nálgunarbann til að sæta rafrænu eftirliti. Starfshópurinn telur þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis ómarkvissa. Valur Grettisson sagði frá. Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir félaga Rafiðnaðarsambandsins sem starfa hjá Landsneti hefst í næstu viku. Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir verður í eldlínunni með þýska liðinu Wolfsburg sem mætir Barcelona í úrslitaleik meistaradeildarinnar í fótbolta á morgun. Sveindís segir að pressan sé öll á Barcelona og að hún ætli að njóta þess að spila á stærsta sviðinu. Björn Malmquist talaði við hana. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vonast til þess að afkoma ríkissjóðs á þessu ári verði betri en fram kom í fyrri efnahagsspám. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann. Atlantshafsbandlagið eykur þrýsting á Tyrki að hleypa Svíum í Evrópusambandið. Ásgeir Tómasson sagði frá. Þverfaglegur starfshópur starfar á vegum Umhverfisstofnunar með það að leiðarljósi að veita faglega ráðgjöf um áhrif umhverfis á heilsu fólks. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ragnhildi Guðrúnu Finnbjörnsdóttur, verkefnisstjóra hópsins.

Gervigreind er mikið til umræðu þessi dægrin, og áhrif hennar á margvíslegar hliðar lífsins og tilverunnar. Hvaða áhrif gæti þessi tækni haft á dómskerfi? Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, ræddi um dómskerfið og tæknina. Nýi miðbærinn á Selfossi hefur vakið mikla athygli. Öll nýju húsin; eftirmyndir þekktra horfinna húsa hvaðanæva að af landinu. Nú stendur til að byggja meira og til að setja þetta í samhengi þá eru þrettán hús risin en áform um að reisa 37 til viðbótar. Svo allt gangi eftir þarf að breyta um skipulagi og um það kjósa nú íbúar Árborgar. Við forvitnuðumst um hvaða sögufrægu hús ætlunin er að reisa ? ef svo má segja - í miðbænum á Selfossi. Leó Árnason sem að þessu stendur var hjá okkur. Og svo var Björn Malmquist fréttamaður í Brussel með okkur að vanda. Við spjölluðum um leiðtogafundinn í Reykjavík í síðustu viku, G-7 fundinn í Hirosima og evrópska stjórnmálabandalagið, sem svo er kallað, en það kemur saman í Moldavíu í næstu viku. Tónlist: Armstrong, Louis - What a wonderful world. Mánar - Leikur að vonum. Steely Dan - Dirty work.

Spegillinn 5. maí 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir og Margrét Júlía Ingimarsdóttir Setja þarf hömlur á notkun reiðufjár í atvinnurekstri til að sporna gegn skattsvikum, að mati starfshóps fjármálaráðherra. Töluvert er um að tilhæfulausir reikningar séu gefnir út í því skyni að svíkja undan skatti. Alexander Kristjánsson sagði frá. Lögregla hefur lagt hald á umtalsvert af kannabisefnum í formi sælgætis. Tveir eru með réttarstöðu sakbornings vegna málsins. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir meira af því í umferð og hvetur foreldra til að vera á varðbergi. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við hann. Allt bendir til þess að eldsvoðann í Hafnarfjarðarhöfn á mánudag megi rekja til opins elds. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki sé hægt að fullyrða um hvort vísvitandi hafi verið kveikt í húsinu eða hvort eldurinn hafi óvart farið úr böndunum. Flugmenn Landhelgisgæslunnar samþykktu miðlunartillögu ríkissáttasemjara í deilu við samninganefnd ríkisins síðdegis. Pétur Magnússon talaði við Jón Þór Þorvaldsson, formann FÍA. Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir manni vegna dauða ungrar konu á Selfossi í síðustu viku. Hvíta húsið hefur kallað saman yfirmenn þriggja stórra tæknifyrirtækja. Fyrirmæli til þeirra frá stjórnvöldum eru að fyrirtækjunum beri að vernda almenning fyrir gervigreind. Ísak Regal sagði frá. Samtök bjórbruggara og kráareigenda í Bretlandi, BBPA, áætla að drukknar verði 62 milljónir pinta eða hálfpotta af bjór á krám landsins um helgina, 17 milljónum meira en um venjulega helgi. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir í viðtali við Ævar Örn Jósepsson að viðskiptabankarnir þurfi að gæta hófs þrátt fyrir stýrivaxtahækkanir Seðlabankans. Íhaldsmenn í Bretlandi fá þungan skell í sveitarstjórnarkosningunum í gær. Ásgeir Tómasson tók saman. Um helmingur allra hitaveitna á landinu sér fram á að lenda í vandræðum með að mæta aukinni eftirspurn eftir heitu vatni sem má rekja til fólksfjölgunar, sífjölgandi ferðafólks og uppbyggingar ýmis konar iðnaðar. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir ræddi við Auði Öglu Óladóttur og Guðlaug Þór Þórðarson.

Bandaríska hljómsveitin Wilco var stödd á íslandi um páskana og spilaði fjórum sinnum á þremur dögum. Þrisvar í eldborg í Hörpu og einu sinni rétt hjá Selfossi. Tónleikagestirnir voru mestmegnis frá útlöndum ? aðdáendur Wilco héðan og þaðan úr heiminum en flestir frá Bandaríkjunum. Rokkland tók þátt í þessu ævintýri af lífi og sál. Við heyrum í Wilco, hluta af þeim 1250 aðdáendum sveitarinnar sem komu til Íslands til að sjá hljómsveitina spila þrjú kvöld í röð í Hörpu. Þetta fólk er frá Oslo, Boston, Alaska, Texas, New York og Reykjavík t.d. Heyrum líka í Ethan Schwartz sem stóð að komu Wilco til Íslands. Svo er það gítarleikarinn Tommy Emmanuel. Hann er staddur á landinu og er með tónleika í Silfurbergi í Hörpu í kvöld og Rás 2 ætlar að taka tónleikana upp. Tommy er einn fremsti gítarleikari Heims, spilar eins og það sé spilað á 2 eða jafnvel 3 gítara í einu. Hann er Ástrali fæddur 1955 og búinn að spila síðan hann var barn. Tónleikarnir í kvöld eru lokahnykkur á Tommy Emmanuel guitar camp, gítar masterclass námskeiði sem 200 gítarleikarar allstaðar að úr heiminum hafa tekið þátt í hér á Íslandu undanfarna daga. Bjössi Thor er að spila með Tommy í kvöld og Bjössi hafði milligöngu um Tommy kæmi í heimsókn í Efstaleitið í stúdíó 12 síðasta fimmtudag og Tommy spilaði og svo spiluðu þeir saman.

Sigurhljómsveit Músíktilrauna í ár kemur frá Hornafirði og Selfossi. Hljómsveitin Fókus var stofnuð síðasta haust og er skipuð Hornfirðingunum Amylee Trindade, Alexöndru Hernandez, Önnu Láru Grétarsdóttur, Pia Wrede, skiptinema frá Þýskalandi og Selfyssingnum Arnbjörg Ýr Sigurðardóttir. Til að hljómsveitin geti æft þurfa þær iðulega að taka langar strætóferðir, 6-7 klukkustundalangar, til að komast á milli Selfoss og Hafnar. Kvikmyndin Tár hefur vakið töluverða athygli, enda viðfangsefni myndarinnar mikið til umræðu í samfélaginu eftir vitundarvakninguna #MeToo. Hljómsveitarstjóri sinfóníuhljómsveitar, Lydia Tár, verður uppvís að kynferðisofbeldi, misnotar valdastöðu sína og brýtur á ungum og efnilegum tónlistarkonum. Höfundur og leikstjóri myndarinnar er Todd Field og aðalleikonan, Cate Blanchett, er sannfærandi Maestra. Við ræðum kvikmyndina og hliðstæður hennar í klassíska tónlistarheiminum við manneskjur sem þekkja til, tónlistarkonurnar Unu Sveinbjarnardóttur og Þórdísi Gerði Jónsdóttur. Bandaríski dúettinn 100gecs hefur vakið athygli undanfarin ár fyrir brjálæðislega blöndu sína af fjölmörgum ólíkum tónlistarstefnum í yfirgengilegan hyper-pop hrærigraut. Fyrsta platan þeirra hét 1000 gecs og nýja platan bætir við enn öðru núlli, tíu þúsund gecs. Davíð Roach segir frá tíu þúsund gecs.

Við forvitnumst um hvernig námi í lögreglufræðum er háttað hér á landi. Hver eru inntökuskilyrðin, hvað eru margir nemendur teknir inn, hvernig eru kynjahlutföllin og hvar og hvernig fer kennsla fram? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem við í Samfélaginu munum leita svara við í dag. Og sú sem svarar þessum spurningum okkar er Eyrún Eyþórsdóttir, brautarstjóri í lögreglufræðum. Svo fáum við að vita allt um nýja Ölfusárbrú sem gert er ráð fyrir að reisa norður af Selfossi innan skamms. Brúin er hluti af miklum vegabótum sem staðið hafa yfir á Suðurlandsvegi undanfarið og verður heilmikið mannvirki. Við tölum við Guðmund Val Guðmundsson sem stjórnar þessu verkefni fyrir Vegagerðina. Að lokum endurflytjum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi um fagið umhverfissálfræði.

HM í handbolta byrjar í næstu viku og þjóin er nú þegar við það að fara á límingunum. Við tökum virkan þátt og hitum í þessum þætti upp fyrir HM ásamt því að minna fólk á það sem framundan er á Selfossi. Hjörtur Leó Guðjónsson tók á móti Árna Geir Hilmarssyni aðstoðarþjálfara mfl kvenna, Erni Þrastarsyni íþróttastjóra og Hörpu Brynjarsdóttur betri helmingur Ómars Inga og fyrrverandi leikmaður mfl. kvenna. Já það eru vissulega spennandi tímar framundan!
Elín er tónskáld og kennir í LHÍ, hún rekur einnig með eiginmanni sínum Bókakaffið á Selfossi og rifjar upp líf sitt í Laugarási þegar hún fór á mjólkurbílnum í þverflaututíma.

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Selfossi um helgina. Þar verður keppt í fjölbreyttum keppnisgreinum víða um bæjarfélagið, en mótið er fyrir ungt fólk á aldrinum 11-18 ára. Guðríður Aadnegard formaður HSK er ein þeirra sem hafa leitt undirbúninginn og við slógum á þráðinn austur fyrir fjall og heyrðum í henni. Svo var það lokaniðurstaðan um hvernig viðrar á landsmenn um helgina. Siggi stormur hefur legið yfir kortunum og sagði okkur í hvað stefnir veðurfarslega. Í gær bárust fréttir af því að vísindamenn við Francis Crick stofnunina í London hafi fundið bóluefni sem lofar góðu gegn öllum afbrigðum kórónuveirunnar sem og hinu almenna kvefi. Við hringdum í Ingveldi Jónsdóttur prófessor í ónæmisfræði við HÍ og deildarstjóra hjá Íslenskri erfðagreiningu og fengum hana til að rýna í þessar niðurstöður og það sem framundan er í bóluefnamálum. Við héldum svo áfram yfirferð okkar um þær hátíðir sem boðið er upp á um land allt um þessa helgi. Í dag forvitnuðumst við um Neistaflug í Neskaupstað og hringdum í Maríu Bóel Guðmundsdóttur sem er framkvæmdarstjóri hátíðarinnar. Lífskúnstnerinn, fagurkerinn og hárgreiðslumaðurinn Óli Boggi Heiðarsson hefur litið við hjá okkur undanfarna föstudaga og farið yfir það nýjasta í matarmenningunni og þá viðburði sem eru í gangi um helgar. Óli Boggi er Eyjamaður í húð og hár og hann er kominn heim og er staddur í Dalnum þar sem hann ræddi við okkur. Tónlist: Ragnheiður Gröndal - Ást. Paul Simon - 50 ways to leave your lover. Prefab Sprout - The sound of crying. Skítamórall - Myndir. Grafík - Húsið og ég. Stuðmenn - Út í kvöld. Lenny Kravitz - The Chamber. Opus - Life is life. Fjallabræður og Sverrir Bergmann - Þar sem hjartað slær. Greifarnir - Skiptir engu máli.

Selfoss hlaðvarpið snýr aftur með sérstakan þátt þar sem nýjir þjálfarar meistaraflokka karla og kvenna í handboltanum eru kynntir til leiks. Það eru þeir Eyþór Lárusson sem hefur verið í kringum handboltan á Selfossi frá unga aldri og hins vegar Þórir Ólafsson goðsögn í lifandi lífi, en þó fyrst og fremst reglulegur spekingur í Selfoss hlaðvarpinu. Þeir eru báðir að takast á við sín stærstu verkefni í þjálfun til þessa og báðir eru þeir heimamenn. Selfoss hlaðvarpið óskar Eyþóri og Þóri hjartanlega til hamingju með ráðninguna og óskar þeim frábærs gengis. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Í larí lei, Stuðlabandið
Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Viðar Örn Kjartansson fóru yfir stormasöm ár í neðri hluta Pepsi deildarinnar 2013 hjá Víkingi Ólafsvík og Selfossi.
Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! "Svíarnir" Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Björn Sigurbjörnsson tóku vel á móti Mist Rúnarsdóttur á Selfossi og fóru yfir C-riðil mótsins. Þar munu mætast Holland, Svíþjóð, Sviss og Portúgal.
Baldur Sig gaf in depth skýringar á innkomu Gary Martin í KR, hruni liðsins eftir Verslunarmannahelgina og gæðin í Birni Jónssyni. Alexander Scholz fór yfir tíma sinn á Íslandi eins og þegar amma hans hræddi líftóruna úr Kennie Chopart. Jón Daði rifjaði upp erfitt ár á Selfossi sem þó var gott persónulega og hvernig Hannes Halldórs hefur ekki enn jafnað sig á screamernum sem hann setti í grillið á honum.
Segja má að nánast öll alþjóðleg samskipti við Rússa hafi lagst af eftir innrás þeirra í Úkraínu og vegna þeirra hörðu refsiaðgerða sem vestræn ríki hafa gripið til. Þetta gildi einnig um Norðurskautsráðið. Bogi Ágústsson ræddi við dr. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðing og sérfræðing í málefnum norðurslóða. Bertelsen er danskur, prófessor við háskólann í Tromsø í Norður-Noregi en ólst upp að hluta á Íslandi. Hann er nýútnefndur Nansen gestaprófessor við Háskólann á Akureyri. Hann var fyrst spurður um áhrif innrásarinnar á samstarf á norðurslóðum og starf Norðurskautsráðsins. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð Garðyrkjuskólans að Reykjum í Ölfusi. Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, tilkynnti í byrjun seinasta árs að hefja skyldi undirbúning þess að skilja Garðyrkjuskólann frá Landbúnaðarháskóla Íslands og færa til Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Námið færist milli stofnananna frá og með næsta hausti. Í byrjun vikunnar var fjórum kennurum við skólann sagt upp störfum. Enginn fastráðinn kennari er því við garðyrkjunámið á Reykjum. Í Garðyrkjuskólanum eru um 100 nemendur, bæði í staðnámi og fjarnámi. Þeir kalla eftir því að skólinn verði sjálfstæður. En í morgun dró til tíðinda í málinu. Að loknum ríkisstjórnarfundi greindi Ásmundur Einar Daðason, mennta og barnamálaráðherra, frá því að samkomulag væri í höfn á milli hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Garðyrkjuskólinn verður áfram að Reykjum. Bjarni Rúnarsson fjallaði um málið. Um hundrað lögreglumenn eru sárir eftir alvarlegar óeirðir í fjölda sænskra borga. Yfirvöld segja glæpagengi standa að baki óeirðunum sem urðu í kjölfar kosningafunda og bókabrenna hægriöfgamannsins Rasmus Paludans. Kári Gylfason segir talar frá Gautaborg. Helstu atriði frétta: Bretar og Hollendingar ætla að taka þátt í rannsókn Alþjóða sakamála dómstólsins á meintum stríðsglæpum Rússa í Úkraínu. Aðalsaksóknari dómstólsins segir að litið sé á allt landið sem glæpavettvang. Níðstöng blasti við íbúum á Kjalarnesi í morgunb þar sem afskorið hestshöfuð var fest á girðingastaur. Íbúi lítur á stöngina sem hótun. Leikskólinn Furuskógur í Fossvogi er óstarfhæfur vegna myglusveppa. Starfsemin flyst yfir í Safarmýrarskóla, en foreldrar hafa einnig kallað eftir myglumælingum í því húsi. Garðyrkjuskólinn á Reykjum verður áfram starfræktur þar. Kennari við skólann kallar eftir því að uppsagnir kennara verði dregnar til baka. Rasmus Gjedssø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum norðursl

Ástrós Guðjónsdóttir kíkti til mín í spjall og við töluðum um ferilinn hennar sem dansari, danshöfundur og danskennari. Ástrós er einn af þremur dönsurum Hatara og var að opna dansskóla á Selfossi. Hún sagði mér m.a. frá því þegar að hún ákvað að taka sér pásu frá LHÍ til að fara í dáleiðslu og vinna í því að meðhöndla kvíðann sinn sem tengdist því töluvert að ætla að tileinka lífi sínu atvinnumennsku í dansi. Ástrós talaði líka um að við erum orðin svo hættulega vön því að keyra okkur út og að það þurfi ekki allir og öll atvinnusvið að bjarga mannslífum til að skipta máli. Virkilega skemmtilegt að spjall við algjöra kjarnakonu. IG: @astrosgudjons & @katavignis