Podcasts about hennar

  • 46PODCASTS
  • 104EPISODES
  • 51mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Mar 20, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about hennar

Latest podcast episodes about hennar

Radio Sunnmøre
Ord til ettertanke Intervju med Marianne Bjørdal Sporsheim

Radio Sunnmøre

Play Episode Listen Later Mar 20, 2025 5:19

Denne veka er det Marianne Bjørdal Sporsheim som er andaktshaldar i Ord til ettertanke på Radio Sunnmøre. Ho er pastor i Vineyard og fortel at når ho er i møte med Gud så krymper problemar. Hennar største problem er kampen mot motløshet. - Vi trenger å sjå på Han som er så mykje større enn mine problem, dagleg, slik at problema ikkje overskygger alt, seier Sporsheim i eit intervju på Radio Sunnmøre. Ho deler sine tankar om eit liv med Gud i vekas ord til ettertanke. Ho seier at Gud er med alltid og det beste er å vere i tett dialog med Han.

Víðsjá
Svipmynd af Hennar rödd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 5, 2025 55:45

Hennar rödd eru félagasamtök stofnuð af þeim Chanel Björk Sturludóttir og Elínborgu Kolbeinsdóttur með það að markmiði að vekja athygli á stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Innblástur verkefnisins kom frá Letetia B. Jonsson, móður Chanel, en hún er af jamaískum og breskum uppruna og bjó hér á landi fyrir um það bil 10 árum síðan og tók virkan þátt í samfélagi kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og vildi miðla sögum þeirra. Samtökin Hennar rödd hafa frá árinu 2018 staðið fyrir pallborðsumræðum og ráðstefnum þar sem mál erlendra kvenna á íslandi eru í brennidepli en í ár, í samstarfi við Elinóru Guðmundsdóttur hjá bókaútgafunni Vía, gefa þær út veglega bók þar sem raktar eru sögur rúmlega þrjátíu kvenna af erlendum uppruna sem búa hér á landi. Í þættinum segja þær Elínborg og Elinóra frá bókinni; Hennar rödd: sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. En þar á eftir rekja tvær konur sem koma fyrir í verkinu sínar sögur, þær Marvi og Jóhanna.

Víðsjá
Vínartónleikar, Áslaug Jónsdóttir og Yerma/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 54:30

Í gær var veisla hér í Útvarpshúsinu þegar Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar að viðstöddum viðurkenningarhöfum og gestum. Veittar voru tvær viðurkenningar úr Rithöfundasjóði og tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu. Mugison fékk Krókinn, verðlaun fyrir framúrskarandi lifandi flutning, og tilkynnt var um valið á orði ársins 2024, sem er hraunkælingarstjóri, eins og komið hefur fram í fréttum. Birnir Jón Sigurðsson hlaut hvatningarverðlaun Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, en þetta árið er það Áslaug Jónsdóttir sem er handhafi viðurkenningar Rithöfundasjóðs RÚV. Ásdís segir sjálf að hún sé bókverkakona, en frá 1990 hefur hún ritað og myndlýst fjölda barnabóka, skrifað ljóð og leikrit, auk þess að taka þátt í myndlistar- og bókverkasýningum. Hennar nýjustu sköpunarverk eru ljóðabókin Til minnis og limrubókin Allt annar handleggur, sem komu út árið 2023 og Skrímslaveisla sem kom út í fyrra, en Ásdís er sennilega þekktust fyrir bækurnar um skrímslin sem eru orðnar 11 talsins. Ásdís verður gestur okkar í þætti dagsins. Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fara fram í Eldborg Hörpu í kvöld og næstu tvo daga. Sambærilegir viðburðir fara fram í öllum helstu borgum Evrópu í upphafi árs og tónleikum Vínarfílharmóníunnar er sjónvarpað um heim allan á nýársdag. Vinsældir vínartónleika eru gífurlegar og áheyrendur flykkjast í tónleikasalina til fagna hefðinni og nýju ári í lakkskóm og pallíettukjólum. Margir gætu haldið að rætur slíkra hátíðahalda lægju í menningarblóma 19. aldar. En sagan er talsvert styttri en svo og á sér raunar nokkuð dökkar hliðar. Við heyrum einnig leikhúsrýni í þætti dagsins. Að þessu sinni rýnir Katla Ársælsdóttir í jólasýningu Þjóðleikhússins, Yermu eftir ástralska leikskáldið Simon Stone. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Mannlegi þátturinn
Sigrún Eðvaldsdóttir föstudagsgestur og matarspjall um kjötbollur

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 8, 2024 51:22

Föstudagsgesturinn okkar í þetta sinn var Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sigrún hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur en lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og lauk bakkalárprófi frá Curtis tónlistarháskólanum í Philadelphiu í Bandaríkjunum 1988. Hún hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra fiðlukeppna; varð í öðru sæti í Leopold Mozart keppninni árið 1987, hlaut bronsverðlaun í Síbelíusar-keppninni árið 1990 og önnur verðlaun í Carl Flesch keppninni árið 1992. Sama ár hlaut hún bjartsýnisverðlaun Brøste. Hennar er getið sem eins af áhugaverðustu fiðluleikurum framtíðarinnar í bók Henry Roth og hún hefur gegnt stöðu 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998 og sama ár var hún sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir störf sín á sviði tónlistar. Við fórum með Sigrúnu aftur í tímann á æskuslóðirnar í Garðabæ og hún sagði okkur hvenær fiðlan kom inn í hennar líf, hún talaði um námið og keppnisskapið og frá erfiðri reynslu þegar hún handleggsbrotnaði í Svíþjóð árið 2022. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti töluðum við aðeins meira um færeysku matreiðslubókina og þær athugasemdir sem komu frá glöggum hlustendum í kjölfarið og svo töluðum við um kjötbollur og kalkúnahakk. Tónlist í þættinum Óvissan / Guðmundur Rafnkell Gíslason (Björn Hafþór Guðmundsson) Minning / Sigrún Eðvaldsdóttir og Selma Guðmundsdóttir (Þórarinn Guðmundsson) Schindler's List meginstef / Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sigrún Eðvaldsdóttir (John Williams höfundur, stjórnandi Daníel Bjarnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Stundin
Pod blessi Ísland #3: Karen Kjartansdóttir segir frá því af hverju maðurinn hennar elskar Ingu Sæland

Stundin

Play Episode Listen Later Nov 5, 2024

Karen Kjartansdóttir almannatengill og fyrrverandi fjölmiðlakona er fyrsti gestur hlaðvarpsins Pod blessi Ísland. Hún ræddi við Aðalstein og Arnar Þór um fyrstu vikur kosningabaráttunnar, hápunktana úr kappræðum síðasta föstudags og hvað Sigurður Ingi er góður maður (fyrirvari: hún er aðeins að vinna fyrir Framsóknarflokkinn þessa dagana). Einnig ræðum við um hvernig Samfylkingunni hefur tekist að hætta að tala um Sjálfstæðisflokkinn og hvort Píratar séu orðnir jafn þreyttir á túristum og íbúar í smábæ í Svartfjallalandi. Þemalag þáttarins er Grætur í hljóði eftir Prins Póló.

Radio Sunnmøre
Aud Kindervåg Halsne går av som leiar i Plussreiser

Radio Sunnmøre

Play Episode Listen Later Aug 15, 2024 6:45

-Det har vore veldig spanande og veldig givande, fortel Aud Kindervåg Halsne om sin tid som dagleg leiar for Plussreiser til Radio Sunnmøre. Aud Kindervåg Halsne, som fyller 62 år i oktober, gir seg som leiar etter eige ynskje i Plussreiser. Ho held fram i selskapet som reiseleiar og prosjektmedarbeidar.   Aud starta i selskapet i 2014, og har sidan då vore ei viktig drivkraft i selskapets utvikling. Ho har blant mykje anna stått i bresjen for ei stor samanslåing av dei tre reiseselskapa SI-Reiser, Sabra Fokusreiser og Ravinala Reiser til merkevara Plussreiser. Styreleiar Karl Arne Austnes takkar henne for ein formidabel innsats gjennom både koronakrisen og no sist då av deler av marknaden fall bort som følge av Hamas sitt terrorangrep og påfølgande krig. - Aud har saman med ein dyktig stab sørga for å finne nye marked og likevel klart å oppretthalde god omsetning. Det er eigarane svært takknemlege for, seier Austnes. Han legg til at Aud vil bli sakna, både for sine evner til å sjå moglegheiter og sin klokskap i møte med kundar, tilsette og reiseleiarar. - Tilbakemeldingane vi får frå kundane er gode. Aud har alltid hatt kunden i fokus og sørga for at våre tenester har halde høg kvalitet. Hennar leiarskap har vore prega av profesjonalitet og engasjement. Vi er svært takknemlege for hennar innsats over fleire år, seier Austnes. - Eg ser tilbake på ti meiningsfulle og spanande år, seier Aud, som gler seg til å halde fram i ei ny rolle for reiseselskapet ho er så glad i. - Stillinga som dagleg leiar i Plussreiser er no lyst ut, og vi ser fram til å finne ein etterfølgar som kan bygge vidare på det solide grunnlaget Aud har lagt, avsluttar Austnes.   Høyr heile intervjuet på Radio Sunmøre.

hamas aud hennar halsne leiar
Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“ Þú ert barnið hennar konunar þinnar” -#485

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jul 9, 2024 50:29

Helgi var að koma heim frá Portúgal þar sem hann og Steinunn Ólína fóru á umhverfisráðstefnu, þar lentu þau í miklum ævintýrum. Hjálmar fór í sumarbústað um helgina sem er mjög óvenjulegt fyrir hann. Steinunn Ólína segir ástæðuna fyrir því af hverju Helgi er ekki í sambandi.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Audio Poem of the Day
hugur hennar stóð hærra en almennt gerðist

Audio Poem of the Day

Play Episode Listen Later Jun 13, 2024 1:05

By Kristín Svava Tómasdóttir

hennar almennt
Samfélagið
Vasinn hennar Lísu og fleiri forvitnilegir munir, að úða garðinn eða úða ekki, málfar og upptaka úr safni RÚV

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 10, 2024 55:52

Það leynast gjarnan gamlir, mögulega verðmætir hlutir á heimilum landsmanna sem forvitnilegt væri að heyra af. Þjóðminjasafnið hefur stundum boðið fólki að koma með slíka muni, sem kunnáttumenn skoða. Sjálfsagt eru margir hér á landi sem hafa séð breska þáttinn Antik roadshow, þar sem vel er mætt með alla vega hluti, sagðar sögur og fá verðmat. Við ræðum við Lilju Árnadóttur fyrrverandi sérfræðing hjá Þjóðminjasafni Íslands eftir skamma stund. Að úða eða úða ekki - það er spurning sem brennur á mörgum. Við ætlum að ræða garðaúðun við Ísak Sigurjón Bragason, sérfræðing hjá umhverfisstofnun. Svo förum við 16 ár aftur í tímann og kynnumst starfsemi verslunarinnar Brynju við laugaveg, en árið 2008 átti verslunin, sem nú er hætt, 90 ára afmæli. Elísabet Indra Ragnarsdóttir, dagskrárgerðarmaður, miðlaði stemmningunni í versluninni og ræddi við starfsfólk og fastakúnna. Tónlist: JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi. ÁSGEIR TRAUSTI - Myndir. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.

Pyngjan
Föstudagskaffið: María Lena stofnandi M-Fitness & Hannes karlinn hennar

Pyngjan

Play Episode Listen Later Apr 26, 2024 66:39

Þau komu til okkar María og Hannes sem saman reka fatamerkið M-Fitness. Saga þeirra er stórmerkileg en merkið hefur hlotið mikillar velgengni sem kom svo sannarlega ekki af sjálfri sér, en í þættinum rekja þau söguna aftur og gefa okkur smjörþef af því hvernig skal bera sig að í frumkvöðlastarfsemi. Þennan þátt skaltu ekki láta framhjá þér fara, kæri hlustandi!

Lestin
Herbergið hennar Tove, rappstyrjöld, Juno Paul

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 18, 2024 58:05

Juno Paul er listamannsnafn tónlitstarmannsins Andra Franz Baldvinssonar, sem skaust fram á sjónarsviðið á síðasta ári. Andri hefur verið áberandi í reykvísku grasrótarsenunni undanfarið, og nú styttist í útgáfu á hans fyrstu plötu. Það standa yfir miklar deilur í rappheimum vestanhafs þessa stundina, en Kendrick Lamar og Drake hafa meðal annars átt í útistöðum upp á síðkastið. Þeir hafa gripið til þess að kveðast á, komið skotum hvor á annan með grimmilegum níðvísum, diss-lögum. Sævar Andri Sigurðarson fer yfir stöðuna og segir frá sögu diss-lagsins. Þórdís Gísladóttir, rithöfundur og þýðandi hefur þýtt tvær bækur eftir danska höfundin Tove Ditlevsen. Um þessar myndir er í sýningu myndin Tove's værelse, í Bíó Paradís, þrúgandi stofudrama byggt á bók eftir Tove. Við ræðum myndina og líf þessarar merkilegu skáldkonu.

Mín skoðun
#889 | Bréfið hennar Bjarkar er lesið

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Feb 26, 2024 10:39

Heil og sæl. Í dag er fjörug umræða um kjör KSÍ sem var um helgina og bréfið fræga er lesið. Við förum í körfuboltalandsliðið, íslenska kvennalandsliðið í fótbolta, spáum í enska bikarinn, Liverpool hvolpasveitin tók bikarinn, Krummasaga, og svo margt, margt fleira. Takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Radio Sunnmøre
Eit møte med styreleiar for NSP Aid Gunhild Sjøvik

Radio Sunnmøre

Play Episode Listen Later Feb 2, 2024 11:14

I det nyaste programmet frå NSP Aid tek Per Gunnar Hamnøy ein prat med styreleiar Gunhild Sjøvik. Hennar far var med å starte opp NSP Aid og engasjementet har gått til generasjonen vidare. Sjøvik fortel om arbeidet og om kvifor ho er engasjert saman med sin bedrift i hjelpearbeidet inn mot Kenya og Etiopia.

Studio 2
Sahra Wagenknecht og hennar nye parti

Studio 2

Play Episode Listen Later Jan 9, 2024 16:12

Den tyske politikaren Sahra Wagenknecht har lenge vore den store stjerna i partiet Die Linke, men etter lang konflikt med partiet trakk ho seg ut i haust. No i januar dannar ho nytt parti som enkelte refererer til som høgreekstremistisk. Men kven er ho eigentlig, og kva er status på høgreestremismen i Tyskland i dag? Hør episoden i appen NRK Radio

Helgaspjallið
Þáttur 164 - Hera Gísla um lífsleiðina og köllun hennar sem stjörnuspekingur

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 29, 2023 86:09

Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Hera Gísladóttir settist hjá mér að spjalla um lífið og veginn og köllun hennar sem stjörnuspekingur. Hera sameinaðist stjörnuspekingnum Gunnlaugi Guðmundssyni nýlega í þætti á Bylgjunni og eru þau með heimasíðuna www.orkugreining.is þar sem þau bjóða uppá stjörnukort fyrir einstaklinga. Hera er ekkert eðlilega opin og lífleg og ekkert smá gaman að hlusta á hana. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Samfélagið
Efsta hillan í ísskápnum, plastmengun í norðri, umhverfispistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 23, 2023

Leikhópurinn Kriðpleir stóð fyrir áhugaverðri vinnustofu um síðustu helgi undir yfirskriftinni Efsta hillan. Þátttakendur vinnustofunnar voru beðnir um að taka með sér fjórar krukkur eða sósutúbur sem hefðu dagað uppi í ísskápnum. Fortíð og uppruni krukknanna voru rannsökuð, og leitast við að skapa kringumstæður sem miðla sögu þeirra. Ragnar Ísleifur Bragason ætlar að kafa í krukkurnar með okkur á eftir. Nú stendur yfir alþjóðleg ráðstefna í Hörpu um plastmengun á norðurslóðum á vegum utanríkisráðuneytisins í samvinnu við matvælaráðuneytið og umhverfis- orku og loftlagsráðuneytið. Ein þeirra sem þar talaði er Ásta Margrét Ásmundsdóttir, efnafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri. Hennar erindi fjallaði um örplast í kræklingi. Hún sest hjá okkur á eftir og ræðir við okkur um örplast. Umhverfispistill frá ungum umhverfissinna; Báru Örk Melsted.

Samfélagið
Efsta hillan í ísskápnum, plastmengun í norðri, umhverfispistill

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 23, 2023 55:00

Leikhópurinn Kriðpleir stóð fyrir áhugaverðri vinnustofu um síðustu helgi undir yfirskriftinni Efsta hillan. Þátttakendur vinnustofunnar voru beðnir um að taka með sér fjórar krukkur eða sósutúbur sem hefðu dagað uppi í ísskápnum. Fortíð og uppruni krukknanna voru rannsökuð, og leitast við að skapa kringumstæður sem miðla sögu þeirra. Ragnar Ísleifur Bragason ætlar að kafa í krukkurnar með okkur á eftir. Nú stendur yfir alþjóðleg ráðstefna í Hörpu um plastmengun á norðurslóðum á vegum utanríkisráðuneytisins í samvinnu við matvælaráðuneytið og umhverfis- orku og loftlagsráðuneytið. Ein þeirra sem þar talaði er Ásta Margrét Ásmundsdóttir, efnafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri. Hennar erindi fjallaði um örplast í kræklingi. Hún sest hjá okkur á eftir og ræðir við okkur um örplast. Umhverfispistill frá ungum umhverfissinna; Báru Örk Melsted.

Spegillinn
Jarðhræringar á Reykjaneshrygg, Úkraína, loftslag og samfélag

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 6, 2023

6. nóvember 2023 Ef gera á allt sem hægt er - til að verja orkuverið í Svartsengi og þar með Grindavíkurbæ þarf að reisa háa og áberandi varnargarða, segir Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna hjá ríkislögreglustjóra. Hann segir að nú þurfi að ákveða hvort ráðast eigi í það verkefni og vill að það verði skoðað alvarlega að reisa varnargarða við orkuverið í Svartsengi. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann eftir fund almannavarna. Volodymyr Zelenzky, forseti Úkraínu mótmælir fullyrðingum um að stríðið við innrásarher Rússlands sé orðið að þrátefli. Hann kannast ekki við að leiðtogar vestrænna ríkja hafi þrýst á hann um að hefja friðarviðræður við Rússa. Þetta sagði forsetinn á fréttafundi eftir ávarp Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem kom í óvænta heimsókn til Úkraínu. Róttækrar breytingar er þörf á hugarfari og gildismati almennings í ljósi yfirstandandi loftslagsbreytinga. Ekki sé hægt að kaupa sig frá hnattrænum afleiðingum þeirra, sem bitni líka á Íslendingum. Þetta segir Helga Ögmundardóttir mannfræðingur og dósent við Háskóla Íslands, en hún er einn höfunda fjórðu samantektarskýrslu vísindanefndar um loftslagsmál. Hennar sérsvið er áhrif loftslagsbreytinga á íslenskt samfélag, menningu og listir.

Spegillinn
Jarðhræringar á Reykjaneshrygg, Úkraína, loftslag og samfélag

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 6, 2023 20:00

Skaftárhlaup, bankaskýrsla, regnbogatröppur skemmdar, loðdýrarækt

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 29, 2023

Rennsli eykst enn í Skaftá, en hægt hefur á aukningunni. Búið er að loka Hólaskjóli - hálendismiðstöðinni. Enn er óljóst úr hvorum Skaftárkatli hleypur. Rætt var við Áróru Bryndísi Ásgeirsdóttir sem starfar í Hólaskjóli og Þorstein Þorsteinsson, sérfræðing í jöklarannsóknum á Veðurstofunni. Vaxtamunur hefur ekki minnkað þrátt fyrir bætta afkomu og minni rekstrarkostnað bankanna. Gjaldskrár eru óskýrar og oft óljóst fyrir hvað fólk er að borga. Skógareldarnir í Grikklandi eru þeir mestu innan Evrópusambandsins frá aldamótum. Regnbogatröppur á Akureyri voru spreyjaðar svartar í nótt. Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem skemmdarverk hafa verið unnin á regnbogaskreyttum gönguleiðum. Linda Björk Pálsdóttir forvarna- og félagsmálaráðgjafi hjá Akureyrarbæ telur hugsanlegt að innblástur af verknaðinum hafi verið fenginn af svipuðu skemmdarverki á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Svifryksmengun er alvarlegasta heilsufarsógnin sem steðjar að jarðarbúum segir í nýrri skýrslu um ástand loftslagsmála í heiminum. Ef dregið yrði úr henni sem næmi markmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar lengdi það ævi þeirra um 2,3 ár að meðaltali. Viðskiptabankarnir þrír hafa heilt yfir náð fram verulegri hagræðingu í starfsemi sinni og arðsemi bankanna er núna almennt nokkuð hærri en hjá bönkum af svipaðri stærðargráðu á öðrum Norðurlöndunum. Og vaxtamunur bankanna er mun meiri hér en þar. Erfitt getur verið fyrir neytendur að átta sig á hvaða þjónustu þeir eru að kaupa. Þetta eru meginniðurstöður starfshóps sem Lilja Alferðsdóttir viðskiptaráðherra skipaði fyrir ári, til að skoða um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna sem sat í starfshópinum. Fuglaflensa hefur komið hart niður á loðdýrabúum í Finnlandi. Hennar hefur orðið vart á um 25 búum og þegar er búið að lóga öllum dýrum á þeim, meira en 120 þúsund minkum og refum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Einar Eðvald Einarsson á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Hann er formaður loðdýradeildar Bændasamtakanna. Einar hefur ekki miklar áhyggjur af fuglaflensa berist í loðdýr hér, aðstæður á búunum séu aðrar. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Spegillinn
Skaftárhlaup, bankaskýrsla, regnbogatröppur skemmdar, loðdýrarækt

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 29, 2023 9:41

Lóa Dagbjört framkæmdastjóri Lindex á Íslandi

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jul 4, 2023 80:35

Í þessu stórkostlega viðtali fáum við til okkar Lóu Dagbjörtu framkvæmdastjóra Lindex sem hefur svo sannarlega fengið að kynnast velgengni. Þessi velgengni er þó vel verðskulduð enda var leið hennar á toppinn ekkert grín og í sumum tilfellum lyginni líkust. Hennar saga verður sögð í Pyngjunni í dag og við hvetjum hvert einasta mannsbarn til að leggja við hlustir!

Spegillinn
Illviðri, vantraust og fjármálaáætlun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 29, 2023

Appelsínugul veðurviðvörun gengur í gildi á Austfjörðum klukkan sjö vegna mikillar snjókomu. Reitur fjórtán var rýmdur að nýju á Seyðisfirði í dag. Viðbúið er að færð spillist og hætta á snjóflóðum aukist. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir tók saman. Hækka á tekjuskatt á fyrirtæki, hagræða í rekstri ríkisstofnana og draga úr opinberum framkvæmdum samkvæmt fjármálaáætlun sem kynnt var í dag. Þingmenn úr nær öllum flokkum stjórnarandstöðu lögðu í dag fram vantrauststillögu gegn Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra. Hann hafi með framgöngu sinni hindrað Alþingi í störfum sínum. Tillagan verður tekin fyrir á Alþingi á morgun. Jóhanna vigdís Hjaltadóttir segir frá. Yfirtaka svissneska bankans UBS á Credit Suisse er stærsti einstaki fjármálagerningur síðan í fjármálakrísunni 2008. Þetta segir stjórnarformaður UBS, sem hefur ráðið til baka fyrrverandi forstjóra til að leiða samrunann. Oddur Þórðarson segir frá. ------ Í dag var kynntur einn af staksteinum ríkisfjármálanna á ári hverju, fjármálaáætlun. Þar er hægt að sjá hvert stjórnvöld stefna með nokkuð ítarlegum hætti í ríkisrekstrinum. Hennar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu í þetta skiptið, því í henni sýnir ríkisstjórnin á spilin með hvaða hætti eigi að bregðast við í ríkisfjármálunum til að bregðast við verðbólgu og efnahagsvandanum sem við blasir. Markmið með fjármálaáætluninni er að útfæra markmið um tekjur og gjöld hins opinbera og þróun þeirra. Fjármálaáætlun er sett fram til næstu fimm ára hið skemmsta og skal fjármála- og efnahagsráðherra leggja hana fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar fyrir 1. apríl ár hvert. Bjarni Rúnarsson fer yfir áætlunina ásamt Alexander Kristjánssyni fréttamanni. Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, segist merkja aukinn skilning innan Evrópusambandsins á sjónarmiðum Íslands varðandi losunarheimildir í flugi og hún segir að þýsk stjórnvöld deili skoðunum Íslands hvað þetta mál varðar. Lilja var í Brussel í gær og í dag, þar sem hún átti fundi með embættismönnum í framkvæmdastjórn ESB, og tók einnig þátt í ráðstefnu flugfélaga sem haldin var í borginni. Björn Malmquist, fréttamaður RÚV í Brussel fylgdist með þessari ráðstefnu og ræddi við Lilju Vladimír Pútín Rússlandsforseti kann að fá öflugan keppinaut þegar hann sækist eftir endurkjöri í mars á næsta ári. Sérfræðingar hugveitunnar Institute for the Study of War eða ISW í Washingtonborg draga þá ályktun í nýjustu uppfærslu sinni um gang innrásarinnar í Úkraínu, að Yevgeny Prigozhin, stofnandi og stjórnandi Wagner málaliðahópsins, hyggist bjóða sig fr

Spegillinn
Illviðri, vantraust og fjármálaáætlun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 29, 2023 29:51

Jóhanna Birna, Lifðu núna og börn við fátækt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 9, 2023

Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir vakti mikla athygli á dögunum þegar hún hélt erindi á ráðstefnu BUGL um skólaforðun, áskoranir og úrræði. Hennar skólaganga gekk aldeilis ekki þrautalaust, hún átti mjög erfitt með lestur því hún er lesblind, auk þess að vera með ADHD, á einhverfurófi, auk þess að glíma við mikil heilsufarslegar áskoranir, en á tímabili var hún bundin við hjólastól og rúmliggjandi vegna veikinda. Á magnaðan hátt fann hún sína leið og í dag stundar hún nám í menntavísindum og heilsueflingu í virtum háskóla í Bandaríkjunum og ætlar sé að nýta sér sína reynslu og menntun til að aðstoða börn í svipaðri stöðu og hún var í. Jóhanna Birna deildi sögu sinni í þættinum í dag. Vefsíðan Lifðu núna var stofnuð árið 2014 og markmiðið var að gera líf og störf þeirra sem eru komnir um og yfir miðjan aldur sýnilegri og auka umræðu um þau málefni sem tengjast þessu æviskeiði. Fjölmennustu árgangar Íslandssögunnar eru að eldast og á næstu áratugum mun fjölga verulega í þeim hópi sem verður 55 ára og eldri og það er reiknað með að árið 2050 verði um fjórðungur þjóðarinnar kominn á eftirlaun. Á þessum aldri hefst nýtt æviskeið, sem stundum er kallað þriðja æviskeiðið, með nýjum viðfangsefnum og áskorunum. Erna Indriðadóttir, stofnandi síðunnar, kom í þáttinn í dag. Barnaheill hefur ýtt úr vör undirskriftarsöfnun til að þrýsta á stjórnvöld til að grípa til aðgerða og marka sér stefnu til að uppræta fátækt á Íslandi. Samkvæmt nýrri skýrslu Evrópuhóps Barnaheilla búa um 10.000 börn við fátækt á Íslandi og hefur sú tala hækkað á milli ára. Linda Hrönn Þórisdóttir, leiðtogi innlendra verkefna hjá Barnaheill, kom í þáttinn og sagði betur frá þessu. Tónlist í þættinum í dag: Sól mín sól / Anna Pálína Árnadóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Piensa en mí / Linda Ronstadt (Augustin Lara) Time and Tears / Dolly Parton (Dolly Parton) Illi milli / Ragnhildur Gísladóttir (Ragnhildur Gísladóttir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Jóhanna Birna, Lifðu núna og börn við fátækt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 9, 2023 50:00

Kvíðakastið
45. Bryndís Jóna Jónsdóttir - Núvitund og samkennd í skólastarfi

Kvíðakastið

Play Episode Listen Later Feb 12, 2023 71:42

Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Bryndís Jóna er aðjúnkt á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands og einn að stofnendum Núvitundarsetursins. Hennar sérþekking snýr að núvitund og jákvæðri sálfræði, sérstaklega í skólastarfi. Í þættinum förum við m.a. yfir formlegar og óformlegar núvitundaræfingar, jákvæðar afleiðingar núvitundar og hvernig núvitund tengist samkennd.

Morgunvaktin
Heimsglugginn, ófærðin og afleiðingar hennar, jól á kúabúi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 22, 2022

Bogi Ágústsson var með okkur í dag að venju. Hann fjallaði um stjórmálin í Færeyjum, um Bandaríkjaheimsókn Úkraínuforseta og framlög Bandaríkjanna til úkraínskra varna gegn Rússum. Svo var haldið til Argentínu þar sem þjóðin er enn í sigurvímu eftir að fótboltalandsliðið vann HM. En þegar hún rennur af fólki tekur veruleikinn við og hann er dapur; miklir efnahagserfiðleikar eru í landinu. Illviðrið og ófærðin á dögunum lék marga grátt, ekki síst ferðalanga í millilandaflugi. Það má segja að allt hafi farið í skrúfuna. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fylgdist með atburðarásinni og hann tók þetta saman fyrir okkur. Við ræddum matarleysi í flugstöðunni, upplýsingamiðlun til flugfarþega og áhrif svona lagaðs á ímynd landsins. Í lok þáttar slógum við á þráðinn til Herdísar Mögnu Gunnarsdóttur, bónda á Egilsstaðabúinu og formanns kúabænda, og spurðum hana út í hvernig jólunum er háttað fjósum landsins. Í upphafi þáttar var einnig spilað innslag frá Ágústi Ólafssyni fréttamanni sem var á ferð á Þórshöfn á dögunum. Þar er verið að undirbúa opnun þekkingarmiðstöðvar þar sem Landsbankinn var áður til húsa. Langanesbyggð keypti húsið en Þekkingarnet Þingeyinga sér um starfsemina. Ágúst hitti Heiðrúnu Óladóttur verkefnisstjóra hjá Þekkingarnetinu. Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Tónlist: 5 mínútur í jól - Lón Fairytail of New York - Pogues og Kirsty McColl It's the most wonderful time of the year - Andy Williams Það snjóar - Lón I'll be home for Christmas - Elvis Presley

Morgunvaktin
Heimsglugginn, ófærðin og afleiðingar hennar, jól á kúabúi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 22, 2022 130:00

Fór í magaermisaðgerð og kryddin hennar Safa

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 1, 2022

Við fengum Daníel Gunnarsson til að segja okkur sína sögu, en hann hefur frá unga aldri barist við ofþyngd. Eftir að hafa kynnt sér vel efnaskiptaaðgerðir fór hann í magaermisaðgerð fyrir um það bil einu og hálfu ári. Síðan þá hefur hann unnið markvisst með andlegu og líkamlegu heilsuna í kjölfar slíkrar aðgerðar og það er óhætt að segja að líf hans hafi tekið miklum breytingum á þessum 18 mánuðum því fyrir 10 dögum stóð hann uppi á sviði í sundskýlu og tók á móti silfurverðlaunum á bikarmóti í fitness karla. Daníel sagði okkur betur frá þessu ferðalagi í þættinum í dag. Safa Jemai kom til Íslands frá Túnis fyrir fjórum árum og hefur nýtt tímann vel því hún fór strax að læra íslensku og vinna sem forritari en hefur í dag helgað sig innflutningi á kryddi. Það eru krydd sem móðir hennar þurrkar heima hjá sér í sólinni í Túnis og það hefur ekki verið einfalt að standa í þeirri skriffinsku sem þessu fylgir bæði hér og í Túnis. En nú horfir til betri tíma og í Grósku hefur Safa komið sér fyrir ásamt fleiri litlum sprotafyrirtækjum og Íslendingar hafa tekið vel í að prófa eitthvað nýtt í sinni matargerð. Við skruppum í Grósku og ræddum við Safa Jemai í dag. Tónlist í þættinum í dag: Það snjóar / Sigurður Guðmundsson (Norman Newell, Iller Pattacini og Bragi Valdimar Skúlason) Everywhere / Fleetwood Mac (Christine McVie og Lindsay Buckingham) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Fór í magaermisaðgerð og kryddin hennar Safa

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 1, 2022 50:00

Sorg, hennar rödd og dýrspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 28, 2022 55:00

Sorg er sammannleg tilfinning sem tekur á sig ýmsar myndir. Enginn kemst í gegnum lífið án þess að upplifa sorg. Sorgarmiðstöð er staður sem styður við syrgjendur. Þau Karólína Helga Símonardóttir stjórnarformaður Sorgarmiðstöðvar og Gísli Álfgeirsson stjórnarmeðlimur ræða sorgina og það starf sem fram fer í Sorgarmiðstöðinni. Hennar rödd eru félagasamtök sem starf með það að markmiði að auka vitund meðal almennings á stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Samtökin hlutu í vikunni jafnréttisviðurkenningu á jafnréttisþingi. Þær Chanel Björk Sturludóttir og Elínborg Kolbeinsdóttir segja okkur meira frá Hennar rödd. Málfarsmínútan er svo á sínum stað. Í lok þáttar fáum við dýraspjallið svokallaða, dagskrárliður sem fjallar ekkert endilega alltaf um dýr, heldur eru vistkerfin öll jafnan undir og við fáum þá gjarnan til okkar náttúruvísindafólk og forvitnumst um þeirra störf og sérfræðiþekkingu - að þessu sinni er það Rakel Guðmundsdóttir líffræðingur hjá Hafró sem kom til okkar, hún sérhæfir sig meðal annars í útreikningum á burðarþoli íslenskra fjarða - getur þá reiknað út hvort og hversu mikið af sjókvíaeldi þeir þola - en eldisræktun er umdeilt hitamál á Íslandi og því eflaust fróðlegt að heyra af störfum Rakelar.

Samfélagið
Sorg, hennar rödd og dýrspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 28, 2022

Eigin Konur
Ólafía Gerður - Setti hníf upp við háls hennar og ógnaði öryggi hennar í fjögur ár

Eigin Konur

Play Episode Listen Later Oct 26, 2022 10:00

Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur Ólafía Gerður bjó með ofbeldisfullum barnsföður sínum í tæp fjögur ár, frá því hún var 16 ára. Barnsfaðir hennar steig nýlega fram í viðtali þar sem hann lýsti sambandinu þeirra sem “stormasömu”. Ólafía segir frá líkamlegu, andlegu, kynferðislegu og stafrænu kynferðisofbeldi sem hún mátti þola á heimilinu. “Hann reyndi að kirkja mig og endar á því að nauðga mér. Þetta er eitt af mínum stærstu minningum sem ennþá daginn í dag, tæpum sex árum seinna, er ég að fá martraðir.” Segir Ólafía í þættinum. Ástæðan fyrir því að Ólafía ákvað að segja sögu sína er tvíþætt. “Ég ætla að skila skömminni og styrkja sjálfa mig.” Svo er það hitt: “það var ótrúlega erfitt að sjá hann koma fram í viðtali, ég titraði bara og mér var óglatt.” Henni er fyrirmunað að skilja af hverju fjölmiðlar birta viðtöl við menn sem hafa verið kærðir fyrir ofbeldi.

Eigin Konur
Freyja Huld - Barnsfaðir hennar dæmdur fyrir brot gegn barni

Eigin Konur

Play Episode Listen Later Aug 10, 2022 4:05

Patreon hlekkur: https://www.patreon.com/eiginkonur Barnsfaðir Freyju hlaut tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Maí 2020, fyrir tilraun til kynferðislegrar áreitni gegn barni í rituðum samskiptum á Skype. Í Desember 2021 var hann síðan sakaður um að hafa átt samskipti við 14 ára stúlku í gegnum samfélagsmiðla. Hann hafi sótt hana í heimhúsi og frelsisvipt stúlkuna í þrjá klukkutstundir þar sem hann meðal annars nauðgaði henni. Freyja var sjálf þolandi sem barn og segir mál barnsföður síns vera erfitt fyrir sig og börnin. Freyja lýsir því í þættinum þegar tálbeitan hringir í hana um nóttina og sendir henni mynböndin og samtölin milli barnsföður hennar og það sem átti að vera 13 ára stelpa. “Mér leið skelfilega því mér fannst hann hafa svikið mig með því að vera inná einkamál og svo var hann þarna að tala við einhvern sem hann hélt að væri 13 ára gömul stúlka” segir Freyja í þættinum. “Ég tók þessu bara þannig að […] Þetta er rétt eftir að ég slasast og ég er ekki búin að vera nóg” segir hún. Freyja og barnsfaðir hennar slitu sambandinu eftir fyrsta brotið en héldu þau áfram að búa saman. “Auðvitað þykir mér vænt um þennan mann, hann gaf mér barnið mitt og ég hef ekkert val. Ég Þarf að vera í samskiptum við þennan mann, sama hvað hann gerði” segir Freyja. Hún gagnrýnir kerfið og segir barnavernd ekki hafa haft samband við hana eftir að barnsfaðir hennar fékk dóm fyrir að brjóta á barni. Er eðlilegt að maður sem sakaður er um brot gegn barni umgangist börnin sín? Hvernig á að miðla upplýsingum til barna hans?

Morgunútvarpið
6. júlí - Hennar rödd, Boris Johnson, lífeyrismál og EM kvenna

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 6, 2022 130:00

Það stendur til að gefa út bókina Hennar rödd: Sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, sem ætlað er að heiðra framlag kvenna af erlendum uppruna til íslensks samfélags auk þess að gera lesendum betur kleift að skilja stöðu kvenna af erlendum uppruna, sem mæta tvöfaldri mismunun vegna kyns og stöðu sinnar sem innflytjendur. Við ræddum við yfirritstjóra bókarinnar, Elinóru Guðmundsdóttur. Sífellt berast fréttir af íslendingum sem flytjast til Spánar, eða annara landa þar sem verðlag og veðurlag er hagstætt, og vekur það upp spurningar hvort þeim sé að fjölga sem það gera. Í ársskýrslu Tryggingarstofnunar fyrir árið 2021 kemur fram umtalsverð aukning á greiðslum inná erlenda reikninga. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins og 1. varaforseti ASÍ kom til okkar til að ræða lífeyrismálin. Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins og bresku stjórnarandstöðunnar, sagði í gærkvöldi að Boris Johnson, forsætisráðherra, ætti að segja af sér. Rishi Sunak og Sajid Javid, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra Bretlands, sögðu af sér síðdegis í gær og sögðust ekki lengur bera traust til Johnsons. Við ræddum við Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, um stöðuna í breskum stjórnmálum. Eins og flestir vita er Landsmót hestamanna í fullum gangi á Gaddstaðaflötum við Hellu og Hulda Geirsdóttir liðsmaður okkar er þar. Hún hitti á Fríðu Hansen tónlistarkonu og reiðkennara og tók hana tali um tónlistina, hestamennskuna og hvernig maður semur lög á Landveginum. Bæjar- og tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar hefst á morgun fimmtudag í Bæjarabíói. Fjöldi viðburða vera næstu daga og meðal tónlistarmanna sem þar koma fram er Björgvin Halldórsson, Jónas Sigurðsson, Bríet og Stuðmenn. Þá mun Björn Jörundur Friðbjörnsson vera með ferilstónleika þann 15. Júlí en hann kom til okkar með Páli Eyjólfssyni sem skipuleggur hátíðina. Evrópumót kvenna í knattspyrnu hefst í dag á Englandi þegar gestgjafarnir mæta Austurríki klukkan sjö í kvöld. Fyrsti leikur Íslands er á sunnudaginn gegn Belgíu - og við hringdum út í vinstri bakvörðinn okkar , Hallberu Guðnýju Gísladóttur. Tónlist: Emilíana Torrini - Big Jumps Youssou Ndour - 7 seconds Curtis Harding - I wont let you down Bjarni Arason - Þegar sólin sýnir lit Model - Lífið er lag Tame Impala - Turn up the sunshine Nýdönsk - fram á nótt Stjórnin - Ég lifi í voninni Dikta - Thank you

Morgunútvarpið
6. júlí - Hennar rödd, Boris Johnson, lífeyrismál og EM kvenna

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 6, 2022

illverk
MORÐIÐ Á HRAFNHILDI LILJU (ÁSKRIFT)

illverk

Play Episode Listen Later Jul 1, 2022 5:33

Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var 29 ára gömul þegar hún fór á vit ævintýranna. Hún yfirgaf Ísland þann 3. apríl árið 2008 og ferðaðist til Ástralíu, Dubai og endaði svo í Dóminíska Lýðveldinu. Þar fékk hún starf á hótelinu Extreme, sem er staðsett á Kite Beach, Cabarete. Hennar plan var að upplifa nýja hluti, kynnast nýrri menningu og nýju fólki - Örlögin tóku þó óvænta stefnu.  Heimur ástvina Hrafnhildar hrundi þegar þær fréttir bárust að Hrafnhildur hafi fundist látin - Einhver hafði orðið henni að bana. Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með að skrá þig HÉR Við skráningu færð þú einnig aðgang að yfir 140 auka þáttum, 5 nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga. www.illverk.is

Lestin
Almodóvar, örverubjór og Jóns Ásgeirs-skyrtan hennar Lóu

Lestin

Play Episode Listen Later May 4, 2022 55:00

Það er ekki sama hverju maður klæðist. Lóa fann skyrtu á bás í Hringekjunni, búð sem selur notaðar flíkur, sem hafði verið áður í eigu umsvifamikils kaupsýslumanns. Þegar hún klæðist skyrtunni fær hún lánað brot af sjálfsöryggi hans. Í Lestinni í dag söfnum við saman svipuðum sögum fólks af flíkunum sem þau klæðast þegar mikið stendur til. Hönnunarhátíðin Hönnunarmars hófst í dag í Reykjavík. Það er margt um að vera og hönnuðir kynna afurðir sínar víða um borgina. Fatnaðar, nytjahlutir, hugmyndir og matur eru meðal þess sem boðið verður upp á. Við kíkjum í Ásmundarsal þar sem hönnunartvíeykið Grugg og Makk var að setja upp í hádeginu, en þeir ætla að kynna nýjan villibjór sem ræktaður er úr örverum úr nýju hrauni. Spænski kvikmyndagerðarmaðurinn Pedro Almodovar er einn dáðasti leikstjóri Evrópu. Um þessar mundir má sjá 23. kvikmynd Almodóvars, Madres Paralelas, Samhliða mæður, í Bíó Paradís. Kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar Gunnar Ragnarsson er forfallinn aðdáandi og var því spenntur að kíkja á ræmuna.

Lestin
Almodóvar, örverubjór og Jóns Ásgeirs-skyrtan hennar Lóu

Lestin

Play Episode Listen Later May 4, 2022

Karlmennskan
#55 „Já, þetta er varaliturinn hennar mömmu“ - Jón Gnarr

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Oct 8, 2021

„Ég hef alla tíð verið frekar ringlaður og svo er ég bullukollur og rugludallur. Ef það er einhver hæfileiki sem ég hef þá er það þvaður. Ég get þvaðrað endalaust.“ segir Jón Gnarr meðal annars í samtali sem átti að vera 30 til 45 mínútur um kallakalla og vináttu en leiddist út í 75 mínútna spjall um allskonar. Enda er ekki auðsótt að leiða samtal við Jón Gnarr inn á eina braut. Við ræðum um kallakallinn sem hefur stundum af honum völdin, hvernig það er að vera hvítur miðaldra karlmaður, afahlutverkið, foreldrahlutverkið, karllægni íslenskunnar, karlmennsku og upphandleggsvöða, móðurmissinn, borgarstjórnartímann og vináttu svo fátt eitt sé nefnt. Þátturinn er tekinn upp í stúdíó Macland og er í boði Dominos, Veganbúðarinnar og The Body Shop og bakhjarla Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja). Intro: Futuregrapher Outro: Jói P. og Króli - ON (instrumental)

Lífið með Lindu Pé
29. Streita og áhrif hennar á líf okkar

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Jul 12, 2021 8:00

Næsta mánuðinn verða 2 þættir í viku! Þeir kallast „Lífsmolar Lindu" og eru mun styttri en vanalegir þættir, þetta er fróðleikur og ráð á nokkrum mínútum. Hvað gerist þegar við búum við langvarandi streitu? Í þættinum lærirðu hvað gerist í líkamanum þegar þú ert í streitu og mikilvægi þess að stjórna streitustiginu. Ég nota sjálf smáforrit til að minnka streitu, frá Chopra og Calm. Nánari upplýsingar: Heimasíða Lindu  www.lindape.com Prógrammið Lífið með Lindu Pé www.lindape.com/lifid Kíktu endilega yfir á Instagram og láttu mig vita hvernig þér fannst þátturinn. @lindape P.s Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Eigin Konur
1. Kamilla Ívarsdóttir - Ofbeldi í nánu sambandi og hvernig sjúk ást heltók líf hennar

Eigin Konur

Play Episode Listen Later Mar 25, 2021 60:59

Kamilla Ívars er 19 ára gömul og kom fyrst fram á sínum eigin miðli 2019 þar sem hún reif þögnina yfir ofbeldi af hálfu þáverandi kærasta sínum. Kamilla kom og ræddi við okkur um hrottalegt ofbeldi sem hún hefur mátt þola síðan hún var 14 ára.

Trú og Líf
Bæn og áhrif hennar

Trú og Líf

Play Episode Listen Later Feb 26, 2021 48:05

Bók mánaðarins var "A Praying Life" eftir meistarann Paul Miller, en hún fjallaði auðvitað um bænina, og dílar í raun mikið við trú í heimi sem er fullur af tortryggni, Gunnar er því miður einn í þessum þætti en gerir sitt besta að reyna að ræða þetta á skemmtilegan og uppbyggjandi máta.

Heimsglugginn
Minkamálið erfitt dönsku stjórninni, faraldurinn breiðist enn út

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Nov 12, 2020

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson um minkamálið í Danmörku og stöðu kórónuveirufaraldursins í heiminum. Hart er sótt að dönsku stjórninni og aðallega Mogens Jensen, landbúnaðarráðherra, vegna þess að lög heimiluðu ráðherrum ekki að fyrirskipa að öllum minkum í landinu skyldi lógað. Þetta var vegna hættu af stökkbreyttri kórónaveiru í minkum. Stjórnmálaskýrendur í Danmörku segja hins vegar að margt bendi til þess að hinn raunverulegi skúrkur í málinu sé Mette Frederiksen. Hún hafi keyrt málið í gegn. Hennar staða er ekki talin í hættu, stuðningsflokkar stjórnarinnar á þingi vilji ekki hætta á að hún þurfi að hrökklast úr embætti því þar með félli stjórnin. Enginn hafi áhuga á þingrofi og nýjum kosningum Faraldurinn er enn í vexti í mörgum löndum heims en sums staðar virðist sem tekist hafi að ná böndum á kórónuveirunni. Ástandið heldur þó áfram að versna í Bandaríkjunum þar sem þeim fjölgar dag frá degi sem greinast og eru lagðir inn á sjúkrahús. Í Svíþjóð var Stefan Löfven, forsætisráðherra, svartsýnn í tali á fundi með fréttamönnum í gær.

Heimsglugginn
Minkamálið erfitt dönsku stjórninni, faraldurinn breiðist enn út

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Nov 12, 2020 21:10

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson um minkamálið í Danmörku og stöðu kórónuveirufaraldursins í heiminum. Hart er sótt að dönsku stjórninni og aðallega Mogens Jensen, landbúnaðarráðherra, vegna þess að lög heimiluðu ráðherrum ekki að fyrirskipa að öllum minkum í landinu skyldi lógað. Þetta var vegna hættu af stökkbreyttri kórónaveiru í minkum. Stjórnmálaskýrendur í Danmörku segja hins vegar að margt bendi til þess að hinn raunverulegi skúrkur í málinu sé Mette Frederiksen. Hún hafi keyrt málið í gegn. Hennar staða er ekki talin í hættu, stuðningsflokkar stjórnarinnar á þingi vilji ekki hætta á að hún þurfi að hrökklast úr embætti því þar með félli stjórnin. Enginn hafi áhuga á þingrofi og nýjum kosningum Faraldurinn er enn í vexti í mörgum löndum heims en sums staðar virðist sem tekist hafi að ná böndum á kórónuveirunni. Ástandið heldur þó áfram að versna í Bandaríkjunum þar sem þeim fjölgar dag frá degi sem greinast og eru lagðir inn á sjúkrahús. Í Svíþjóð var Stefan Löfven, forsætisráðherra, svartsýnn í tali á fundi með fréttamönnum í gær.

Frjálsar hendur
Páskahátíðin og uppruni hennar

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Apr 21, 2019 45:23

Páskahátíðin var upphaflega gyðingleg hátíð þar sem Gyðingar minntust þess þegar Móses leiddi þá burt frá Egiftalandi. En hvernig lentu þeir þar á annað borð? Í þættinum kemur við sögu Jósef, egifskar kýr (bæði feitar og magrar) og þáttastjórnandi reynir að svara spurningunni: Er eitthvað hæft í þessum sögum yfirleitt?