Podcasts about markmi

  • 53PODCASTS
  • 348EPISODES
  • 1h 2mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Apr 14, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about markmi

Latest podcast episodes about markmi

Fotbolti.net
Niðurtalningin - Víkingur með háleit markmið

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 14, 2025

Það er aðeins einn dagur í það að Besta deild kvenna fari af stað; fyrstu tveir leikirnir eru á morgun. Við höldum áfram að telja niður en í þriðja sæti í spánni er Víkingur. Selma Dögg Björgvinsdóttir og Erna Guðrún Magnúsdóttir, leikmenn liðsins, komu í heimsókn í dag og fóru yfir stöðu mála í Víkinni.

Spegillinn
Breytingar á endurgreiðslum og hringferð bænda og ráðherra

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 14, 2025 20:00

Fyrirhugað er að gera breytingar á því hvernig endurgreiðslum fyrir kvikmynda-og sjónvarpsverkefni verður háttað. Markmiðið á að vera að draga úr ófyrirséðum útgjaldavexti. Ef líkum lætur verður nýtt met slegið á þessu ári í endurgreiðslum; áætlað er að þær nemi sex milljörðum Afkoma bændastéttarinnar, nýliðun, tollvernd og stuðningur við íslenskan landbúnað, var það sem helst brann á bændum í hringferð Bændasamtakanna og atvinnuvegaráðherra í síðustu viku. Formaður Bændasamtakanna segir bændur kalla eftir nýrri hugsun og auknum skilningi stjórnvalda. Framtíð íslensks landbúnaðar felist í nýjungum og nýrri kynslóð bænda. Homicide prediction project - morðspáarverkefnið - miðar að því - eins og nafnið felur í sér - að þróa hugbúnað sem ætlað er að gera yfirvöldum kleift að finna líklega framtíðarmorðingja, með greiningu á fyrirliggjandi gögnum um fólk sem komist hefur í kast við lögin - jafnvel þótt með óbeinum hætti sé. Þetta hljómar óneitanlega eins og lýsing á klisjukenndri vísindaskáldsögu eða bíómynd, en titillinn - Homicide prediction project - var reyndar vinnuheitið á verkefni sem hleypt var af stokkunum í forsætisráðuneyti Bretlands þegar Rishi Sunak réði þar ríkjum, og hefur nú fengið öllu sakleysislegra og stofnanakenndara heiti: „Deiling gagna til að bæta áhættumat“.

Samfélagið
Námsmenn gagnrýna námslánakerfið, tilraunabúið á Hesti, gangverk náttúrunnar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 13, 2025 58:12

Í dag tökum við snúning á hagsmunabaráttu stúdenta. Á dögunum birtist frumvarp um breytingu á lögum um menntasjóð námsmanna. Markmið frumvarpsins er að skýra lögin, þá sérstaklega fyrirkomulag um námsstyrki og endurgreiðslur, en hagsmunasamtök stúdenta hafa gagnrýnt hluta frumvarpsins og segja að breytingarnar geti, í einhverjum tilfellum, gert illt verra fyrir stúdenta. Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssambands íslenskra stúdenta, kíkir við og ræðir þessi mál við okkur. Og síðan fáum við umfjöllun frá Grétu Sigríði Einarsdóttur, fréttamanni RÚV á Vesturlandi. Hún kom við á Tilraunabúinu Hesti á dögunum og við fáum að heyra allt um það um miðbik þáttar. Og að lokum fáum við pistil frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Tónlist úr þættinum: TOM PETTY - Learning To Fly. ROBERT PLANT & STRANGE SENSATION - All The Kings Horses. LOLA YOUNG - Messy.

Mannlegi þátturinn
Skaðaminnkunarverkefni RKÍ, Dagur heyrnar og veðrabrigði í veðurspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2025 53:49

Við fræddumst í dag um skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, Frú Ragnheiði og Ylju neyslurými. Sigríður Ella, teymisstjóri skaðaminnkunar- og félagsverkefna Rauða Krossins og Jónína Guðný Bogadóttir hjúkrunarfræðingar í skaðaminnkunarverkefnunum komu í þáttinn og fræddu okkur til dæmis um hugmyndafræði skaðaminnkunar, þau áhrif sem verkefnin hafa og þær ranghugmyndir sem gjarnan koma upp gagnvart skaðaminnkunarverkefnum. Dagur heyrnar var í gær og þema dagsins í ár er Breytt viðhorf, gættu réttinda þinna. Markmið dagsins er að vekja fólk til umhugsunar um eigin ábyrgð á heyrnaheilsu. Hildur Heimisdóttir kennsluráðgjafi Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands og í Hlíðaskóla, kom í þáttinn. Einar Sveinbjörnsson var svo hjá okkur í dag með veðurspjallið. Í dag talaði Einar um sjávarflóðin undanfarið og að í rauninni hafi heppnin verið með okkur að ekki fór verr, til dæmis með tilliti til sjávarborðshækkunar síðustu 70 árin. Svo eru að verða veðrabrigði, í dag ætti að vera síðasti dagurinn með rosaveðri. Einar sagði okkur frá þessu og fleiru í veðurspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Lífsbókin / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, texti Laufey Jakobsdóttir) That's What Friends are For / Dionne Warwick, Elton John, Gladys Knight og Stevie Wonder (Burt Bacharach & Carole Bayer Sager) Regndropar falla við hvert fet / Engilbert Jensen (Burt Bacharach, texti Þorsteinn Eggertsson) Nýfallið regn / Moses Hightower (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Samfélagið
Gervigreind heimsk eða hjálpleg? Rúntað um Reykholt og heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands

Samfélagið

Play Episode Listen Later Feb 17, 2025 55:00

Á hvaða sviðum er gervigreindin gagnleg og á hvaða hátt er hún heimsk? Á dögunum hélt einn helsti gervigreindarsérfræðingur Norðurlandanna, Serge Belongie, prófessor í tölvunarfræði við Kaupmannarhafnarháskóla og forstöðumaður Pioneer-stofnunarinnar um gervigreind, fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík. Markmið hans var að svipta hulunni af meintum töfrum gervigreindarinnar og hvetja til Norræns samstarfs í þróun hennar. Pétur Magnússon ræddi við Serge um heimsku gervigreindarinnar, valdaójafnvægi í þróun tækninnar og framtíð gervigreindar á Norðurlöndunum. Við förum á rúntinn í Reykholti í Biskupstungum með Helga Kjartanssyni, oddvita sveitarstjórnar Bláskógabyggðar. Þar um slóðir boruðu menn sig nýlega niður á sjóðheitt vatn í miklu magni, sem er mikil búbót fyrir samfélagið. Við ræðum við hann um þennan happafund og þorpið Reykholt sem stækkar ört með tilheyrandi vaxtarverkjum. Við förum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands og hittum fyrir Hans Hreinsson, skjalavörð. Þar koma bæði Zeppelin loftskip og skipaverkfræði við sögu. Tónlist í þættinum: TRAVIS - Selfish Jean ÁSGEIR TRAUSTI - Öldurótið

Mannlegi þátturinn
Börn og strætó, ástarljóð um eiginkonuna og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 4, 2025 53:23

Um helgina fór fram fundur á vegum Umboðsmanns barna í samvinnu við ungmennaráðin á höuðborgarsvæðinu og UNICEF þar sem málefni Strætó voru rædd. Markmið fundarins var að koma á formlegum umræðum milli barna og ungmenna, Strætó og sveitastjórnum um umbætur á strætókerfinu með hag barna að leiðarljósi. Þau Dagur Jónsson og Júlíanna Rós Skúladóttir voru tveir af fulltrúum ungmenna á fundinum, þau voru hjá okkar í dag og sögðu okkur frá því helsta sem ungmennin komu á framfæri á fundinum, til dæmis öryggismál og samskipti við vagnstjóra og hvernig var tekið í tillögurnar. 64 ára gamall húsasmiður og innanhúsarkitekt úr Hafnarfirði var að gefa út sína fyrstu bók, ljóðabók sem heitir Þú ert engill. Hans Unnþór Ólason heitir höfundurinn og hefur fengist við að raða saman orðum í rúmlega hálfa öld og yrkisefnið í þessari ljóðabók er konan hans Helena Mjöll en hann segir að hún sé engill í mannsmynd. Við töluðum við Hans í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í Veðurspjallið í dag. Hann talaði um ótíðina að undanförnu og djúpar lægðir á Atlantshafinu. Svo sagði hann okkur frá veðurspám sem verða sífellt nákvæmari og hvernig verkefni veðurfræðinga hefur því breyst frá því að spá í veðrið yfir í að túlka og vara við á réttum tíma og stöðum og þar mun gervigreindin, eða hermigreindin, gegna miklu hlutverki í túlkun veðurspárinnar. Svo ræddi hann um vetrarvertíð til forna sem hófst eftir Kyndilmessu (2.feb) og erfiða sjósókn um hávetur. Einar horfði svo til verstöðvarinnar í Dritvík og við enduðum á lestri Jóns Helgasonar á Áföngum, 3. erindi um Dritvík. Tónlist í þættinum í dag: Önnur sjónarmið / Edda Heiðrún Bachman (Hilmar Oddsson) Dagný / Eivör Pálsdóttir og Egill Ólafsson (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson) Ást / Orri Harðarson (Orri Harðarson) Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Kristján Kristjánsson og Magnús Eiríksson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
ADHD málþingið Konur - vitund og valdefling og Sigríður Pétursdóttir á Heilsuvaktinni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 8, 2024 50:30

Málþing ADHD samtakanna, Konur - vitund og valdefling, verður haldið á föstudaginn. Markmið þingsins verður að fjalla um ADHD út frá styrkleikum, sjálfsmildi og sigrum. Þar verða fjöldi fyrirlestra um efni sem spurt hefur verið eftir meðal kvenna með ADHD. Við fengum Elínu H. Hinriksdóttur, sérfræðing hjá ADHD Samtökunum, til að segja okkur frá því hver efni fyrirlestranna er og Kristín Þórsdóttir, kynlífsmarkþjálfi kom með henni, en hún verður með fyrirlestur um kynlíf, hvatvísi og heilarugl og hún sagði okkur frá honum og einnig sinni reynslu en hún greindis með ADHD fyrir aðeins tveimur árum í kjölfar þess að dóttir hennar fór í gegnum greiningu. Svo var það heilsuvaktin, sem er komin úr sumarfríi. Helga Arnardóttir talaði í dag við Sigríði Pétursdóttur kvikmyndafræðing, sem þurfti að gera upp við sig hvort hún vildi verða verkjuð til langs tíma og rúmliggjandi vegna liðagigtar og óþols við lyfjagjöf eða umbylta sínu mataræði og lífstíl. Hún valdi seinni kostinn og hefur verið lyfjalaus í fimm ár og aldrei liðið betur. Hún tók út öll gjörunnin matvæli, sykur og gervisykur, mjólkurvörur og hveiti og eldar allt frá grunni. Þótt það sé flókið á köflum þá segir hún það allt á sig leggjandi til að vera verkjalaus og geta stundað daglegt líf. Við heyrðum þeirra spjall á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum: Borgin / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson) Two of Us / The Beatles (Lennon & McCartney) Frostrósir / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Freymóður Jóhannsson, eða 12.september) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Karlmennskan
Lokaþáttur - Leiðarlok hlaðvarpsins Karlmennskan

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 27:09

Núna tel ég réttast að kveðja formlega hlaðvarpið Karlmennskan. Reyndar munu bakhjarlar sjá til þess að það verði áfram opið og aðgengilegt en ég mun ekki taka upp fleiri þætti. Það hefur verið afskaplega gaman að hitta og spjalla við svo margt frótt fólk með áhugaverða reynslu eða sjónarhorn á samfélagið. Markmiðið var alltaf að varpa ljósi á virkni feðraveldis í gegnum mismunandi birtingamyndir, sem höfðu einhvern snertiflöt við karla eða karlmennsku. Veit að það tókst oft vel upp. Og það gleður mig að vita að ennþá eru nokkur hundruð einstaklingar að hlusta á gamla þætti. Takk öll sem hlustuðuð. Takk öll sem gáfu tíma ykkar, reynslu og þekkingu í hlaðvarpinu.   P.S. Þau ykkar sem þráið meira af svipuðu efni getið gerst áskrifendur að vikulega hlaðvarpinu Sópað undan teppinu með Þorsteini V. og Huldu Tölgyes. Hlaðvarpið er að finna á þriðja.is

Samfélagið
Rökrætt um fósturskimanir, nýjar krabbameinsrannsóknir og málspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 24, 2024 58:12

Í dag standa tvö ráðuneyti, heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið fyrir málþingi um fóstur- og nýburaskimanir. Markmiðið er að skapa þarna samtalsvettvang um þessi mál og hvaða hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframförum á þessu sviði. Þarna verða líka rædd ýmis siðferðileg álitamál sem tengjast fóstur og nýburaskimunum. Til að ræða þetta fáum til okkar Rannveigu Traustadóttur prófessor og forstöðumann Rannsóknaseturs í fötlunarfræði hjá Háskóla Íslands og Henry Alexander Henryson, doktor í heimspeki við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Í dag er alþjóðlegur dagur krabbameinsrannsókna - og af því tilefni býður Krabbameinsfélagið til málþings þar sem fjallað verður um niðurstöður nýjustu rannsókna á þessu sviði, mikilvægi þeirra og framfarir sem orðið hafa á grunni rannsókna. Þórhildur Halldórsdóttir, lektor í klínískri sálfræði og erfðafræði við Háskóla Íslands, Heiðdís Björk Valdimarsdóttir, prófessor við sálfræðideild HR og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, koma til okkar og fara yfir það helsta. Og í lok þáttar fáum við til okkar Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, í málspjall.

Lestin
Nýnasistar gera leikhús, innflytjendur með uppistand, ratleikur

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 4, 2024 55:19

Árið 1999 ákvað eitt þekktasta leikskáld heims, svíinn Lars Norén, að búa til leikrit í samstarfi við þrjá fanga sem afplánuðu langa dóma í öryggisfangelsi - þar af tvo nýnasista. Leikritið 7:3 vakti mikla athygli og umtal en ferlið endaði með tveimur morðum. Þessu verkefni eru gerð skil í nýrri leikinni þáttaröð, Sársaukapunktur, Smärtpunk. Við ræðum söguna á bakvið þættina við Hlín agnarsdóttur. Daniel Roh segir okkur frá uppistandssýningunni Belonging? sem verður haldin í Salnum í Kópavogi næstkomandi föstudagskvöld. Fram munu koma 6 manns sem öll eiga það sameiginlegt að vera erlendis frá en nú búsett hér á landi, sem þekkjast úr alþjóðlegu uppstandssenunni í Reykjavík. Ratleikur Hafnarfjarðar er hafinn í 27. sinn. Markmið leiks er að leiða þátttakendur vítt og breitt um uppland Hafnarfjarðar til að njóta útivistar og náttúru. Lögð eru 27 merki vítt og breitt um uppland Hafnarfjarðar. Þemað í ár er; þjóðsögur og ævintýri.

Mannlegi þátturinn
Málbjörg og Stamvarpið, Veganestið á Vesturlandi og veðurspjallið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 3, 2024 51:03

Málbjörg er fyrir fólk sem stamar og aðstandendur þeirra. Markmið félagsins er að stuðla að umræðu um stam og vera vettvangur fyrir sjálfshjálp og einnig gefa þeim sem stama möguleika á að hjálpa hvert öðru með því að ræða saman í góðu umhverfi og skiptast á skoðunum og reynslu. Nú hefur félagið sett á fót hlaðvarp, Stamvarpið, og sú sem heldur utan um það heitir Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir og við ræddum við hana í þættinum og heyrðu brot úr Stamvarpinu, en í hljóðbútnum heyrðist í Sveini Snæ Kristjánssyni. Páll Ásgeir Ásgeirsson, útivista- og leiðsögumaður, sem kom í Sumarmál á þriðjudögum í sumar, kom í eitt síðasta skipti til okkar í dag. Hann sagði okkur frá áhugaverðum stöðum á Vesturlandi og tengdi meira að segja Vesturland við álfa, huldufólk, skrímsli og geimverur. Veðurspjallið með Einar Sveinbjörnssyni er komið aftur á dagskrá og í dag gerðum við upp með Einari veðursumarið, hita og úrkomu og fáaeina góða daga. Við sppjölluðum einnig um veðrið á Svalbarða sem hefur verið ótrúlega hlýtt sem og í N-Evrópu. Að lokum fjallaði Einar um horfurnar, hvort einhverjar breytingar séu í vændum og hvað gefa lengri tíma spár til kynna. Tónlist í þættinum: Ef að ég má / Friðrik Ómar (erlent lag, texti Óttar Felix Hauksson) Wonderful / Toggi (Hallgrímur Jón Helgason, Helgi Egilsson, Don Pedro,Sveinbjörn Bjarki Jónsson,Toggi, texti Toggi) Fyrirheitna landið / Geirfuglarnir og Jóhann Sigurðarson (Þorkell Heiðarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Víðsjá
Þjóð í mynd, Bruce Springsteen í Sjomlahorni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 18, 2024 50:28

Sjomlahornið heldur áfram göngu sinni í þættinum en þar skoðum við hin ýmsu menningarfyrirbæri sem karlmenn hafa laðast sérstaklega að í gegnum tíðina með þeim afleiðingum að skapast hefur eins konar gaurastemning í kringum tiltekin verk eða listamenn. Að þessu sinni hugum við að bandaríska tónlistarmanninum Bruce Springsteen og fáum hjálp frá Bergi Ebba til að greina sjomlastemninguna í kringum goðið. En við hefjum þáttinn í Þjóðminjasafninu. Í gær voru 80 ár frá stofnun lýðveldisins Íslands og af því tilefni opnaði þar dyr sínar sýningin Þjóð í mynd. Markmið sýningarinnar er að varpa ljósi á þátttöku og upplifun almennings í landinu við stofnun lýðveldisins. Við hittum þau Bryndísi Erlu Hjálmarsdóttur, verkefnisstjóra sýningarinnar og Gunnar Tómas Kristófersson hjá Kvikmyndsasafninu, og fáum innsýn í þeirra vinnu.

Mannlegi þátturinn
Andrea Margrét, Móðurmál 30 ára og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 5, 2024 54:59

Það er aldrei of seint að skella sér í nám og láta draumana rætast. Þetta eru skilaboð Andreu Margrétar Þorvaldsdóttur, sem er nýútskrifaður rafvirki frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Andrea er nýorðin fimmtug og er þessa vikuna að klára sveinspróf en hún er búin með þrjú próf af fimm. Á unglingsárum ýjaði kennari að því að hún gæti einfaldlega ekki lært stærðfræði og það kom í veg fyrir að hún færi í frekara nám á yngri árum. Við töluðum við Andreu í þættinum í dag. Móðurmál – samtök um tvítyngi á þrjátíu ára afmæli í ár. Móðurmál er hagsmuna- og regnhlífasamtök sem styðja við og halda utan um móðurmálskennslu á höfuðborgarsvæðinu. Markmið samtakanna er að styðja við móðurmálshópa og móðurmálskennara, að vinna með foreldrum fjöltyngdra barna að því að skapa börnunum tækifæri til að læra móðurmál sín og þannig styðja við virkt fjöltyngi í samfélaginu. Frú Vigdís Finnbogadóttir er verndari samtakanna. Oksana Shabatura, stjórnarkona og Þórður Arnar Árnason, verkefnastjóri hjá Móðurmáli, komu í þáttinn í dag og sögðu okkur frá samtökunum, starfseminni og afmælinu. Við fengum svo að lokum póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús segist vera kominn með opinbera staðfestingu á því að vera nú orðinn eyjamaður. Vandi fylgir vegsemd hverri og hann lenti strax í deilum við fólk af fasta landinu um ýmislegt sem gengur á í Vestmannaeyjum. Hann segir líka frá þeirri sektarkennd sem fylgir því að horfa á hnefaleika í sjónvarpinu. Í lokin fjallar hann aðeins um hvernig Saudi Arabía er að reyna að laga vonda ímynd sína í veröldinni með því að kaupa viðburði og afburða íþróttamenn. Tónlist í þættinum í dag: Nýfallið regn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Sjóddu frekar egg / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Danska lagið / Bítlavinafélagið (Eyjólfur Kristjánsson) Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Staðan á Heilsugæslunni, Stóri plokkdagurinn og Finnur Eydal

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 11, 2024 51:57

Við fáum stundum ábendingar eða óskir frá dyggum hlustendum um umfjöllunarefni í þáttinn og nýlega barst ein slík um stöðuna á heilsugæslunni. Það er að segja viðkomandi var að reyna að fá tíma hjá heimilislækni og fékk tíma í júní. Þriggja mánaða bið. Hvað veldur? Læknaskortur og aukið álag er eitthvað sem við heyrum reglulega. Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn og fór með okkur yfir stöðuna. Stóri plokkdagurinn verður haldinn í sjöunda sinn um allt land sunnudaginn 28.apríl. Það er Rótarýhreyfingin á Íslandi sem skipuleggur daginn. Markmiðið er að fyrirtæki, vinnufélagar, nágrannar, húsfélög, heilu hverfin eða jafnvel sveitarfélögin geta skipulagt hreinsunarátak á þeim degi í nágrenni sínu og sínu nærumhverfi. Það þarf ekki mikið til, kannski bara hanska og/eða tangir og glæran poka til að safna ruslinu sem plokkað er af jörðinni. Ómar Bragi Stefánsson umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi kom í þáttinn og sagði okkur meira frá plokkdeginum og aðkomu Rótarý hreyfingarinnar. Að lokum kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Hann hefur nýlega sagt okkur frá Berta Möller, Erlu Stefánsdóttur, Sigrúnu Jónsdóttur, Bergþóru Árnadóttur og fleirum. Í dag fræddi hann okkur um Finn Eydal tónlistarmann og klarinettuleikara frá Akureyri. Finnur var gríðarlega hæfileikaríkur tónlistarmaður og fjölhæfur, hann lést langt fyrir aldur fram aðeins 56 ára gamall. Tónlist í þættinum: Mikki / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Sleðaferð / Magnús Þór og KK (Magnús Þór Sigmundsson) Bjórkjallarinn / Hljómsveit Finns Eydal (Ludwig Fischer) Stakir Jakar / Hljómsveit Ingimars Eydal (Finnur Eydal) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Galdrar og geimferðir, Delta Kappa Gamma og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 10, 2024 51:27

Við fræddumst í dag um það hvernig kennararnir Ármann Halldórsson, ensku- og heimspekikennari við Verslunarskólann og dr. Sveinn Guðmundsson, mannfræðingur og jafnréttisfulltrúi við Háskóla Íslands, nýta sér dægurmenningarfyrirbærin Star Trek og Harry Potter í kennslu. Í gegnum þessa söguheima skoða þeir hvernig dægurmenning getur dregið fram umdeild málefni samfélagsins og jafnvel virkað sem breytingarafl þegar kemur að þeim. Þeir Ármann og Sveinn sögðu okkur frá því hvernig söguheimar galdradrengsins og geimferða nýtast þeim í kennslu í þættinum. Svo kynntumst við Delta, Kappa, Gamma, sem er samtök kvenna í fræðslustörfum. Samtökin hafa starfað hér á landi í tæp 50 ár, í þeim eru um 340 konur í alls kyns störfum sem tengjast menntamálum á öllum skólastigum, í ráðuneytum og fleiri stofnunum innan menntageirans. Markmið samtakanna eru m.a. að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og styðja hvers konar viðleitni til umbóta í menntamálum. Árný Elíasdóttir, forseti landssambands DKG, og Málfríður Þórarinsdóttir varaforseti, komu í þáttinn í dag og sögðu okkur frekar frá samtökunum og vorráðstefnu þeirra sem fram fer 20. apríl á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi. Við fengum svo að lokum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Póstkort dagsins fjallar til að byrja með um veðrið í Eyjum, en þrátt fyrir skaplegt veður að undanförnu flykkjast Eyjamenn til Tenerife, eða Tene eins og þeir kalla eyjuna sér til hægðarauka. Ferðamönnum hefur hins vegar fjölgað svo mikið að heimamönnum þar syðra er farið að ofbjóða og boða til mótmæla. Það ríkir neyðarástand á Tene vegna vatnsskorts. Undir lokin er fjallað aðeins um hina miklu leit að vellíðan og hamingju. Tónlist í þættinum: Hún hring minn ber / Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar og Vilhjálmur Vilhjálmsson (erl.lag - texti Baldur Pálmason) Where Do You Go To My Lovely / Peter Sarstedt (Peter Sarstedt) Goodbye Yellos Brick Road / Elton John (Elton John & Bernie Taupin) Svona er ástin / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson og Jónas Fririk Guðnason) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Víðsjá
Hark og svipmynd af kollektífu / Yrkjur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 28, 2024 52:51

Í þætti dagsins heyrum við af upplifun Trausta Ólafssonar af gamanrokksöngleiknum Hark sem frumsýndur var í síðustu viku í Tjarnabíói. Síðan tekur svipmynd af Skáldakollektífunni Yrkjum við. Yrkjur er skáldakollektífa ungra kvenna sem stofnuð var í byrjun árs 2022. Markmið þeirra er að skapa samfélag þar sem ungir höfundar geta komið saman, lært hver af öðrum og komið sér á framfæri, hvort sem er á upplestrarkvöldum, í vinnustofum eða með bókaútgáfu. Yrkjur hófu starfsemi sínu með því að bjóða upp á ritsmiðju á Hátíðinni á Borðeyri en vöktu mikla athygli þegar þær hleyptu af stað ljóðakvöldum í Mengi síðasta vor þar sem ungskáld úr öllum áttum fengu tækifæri til að koma fram, tjá sig, prófa sig áfram og kynnast hvert öðru. Kollektífuna Yrkjur skipa þær Ása Þorsteinsdóttir, Eyrún Úa Þorbjörnsdóttir, Jana Björg Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Guðjónsdóttir og Steinunn Kristín Guðnadóttir. Þær eiga það allar sameiginlegt að skrifa og leggja stund á nám allt frá bókmenntafræði yfir í ensku, frönsku, kennaranám og myndlist. Fyrir svipmynd dagsins fáum við tvo meðlimi kollektífunnar í hljóðstofu, þær Ásu Þorsteinsdóttur og Ragnheiði Guðjónsdóttur og ræðum við þær vítt og breitt um kollektífuna.

Spegillinn
Raforkumál á ís, viðbrögð ráðamanna við hugleiðingum Macron, var Binden of fljótur á sér?

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 27, 2024 20:00

Drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum var kynnt fyrir ári. Markmið þess var að tryggja raforkuöryggi og framboð raforku, enda væri þetta grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. En nú hefur málið verið sett á ís. Emmanuel Macron Frakklandsforseti velti því upp í gær að það væri ekkert útilokað að senda hermenn inn í Úkraínu til að berjast gegn Rússum. Við heyrum af viðbrögðum annarra evrópskra ráðamanna við því. Joe Biden Bandaríkjaforseti var gestur í kvöldþætti NBC-sjónvarpsstöðvarinnar í gær og brá sér út á götu með þáttarstjóranum Seth Meyers til að taka upp dagskrárkynningu fyrir kvöldið. Hann sagðist þar vona að það yrði komið vopnahlé á Gaza næsta mánudag.

Lestin
Hrægammar Kanyes, Club Zero

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 27, 2024 57:44

Í rúmar tvær vikur hefur tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson verið að hlusta á og melta nýjasta listaverk Kanye West, plötuna Vultures 1 sem hann gaf út ásamt Ty Dolla $ign. Platan er sjálfútgefin og trónir á toppi vinsældarlista. En hvaða siðferðilegu klemmur fylgja því að vera Kanye West aðdáandi? Club Zero er níunda kvikmynd Austurríska leikstjórans Jessicu Hausner. Í myndinni fylgjumst við með hópi nemenda við alþjóðlegan heimavistarskóla sem skrá sig í róttækan næringarfræðikúrs hjá hinni undarlegu Ungfrú Novak. Markmiðið er að stunda meðvitað át eða “conscious eating” - sem gengur í grófum dráttum út á að borða minna. Við ræðum myndina við Tinnu Guðjónsdóttur, sem situr í stjórn Félags fagfólks um átraskanir og vinnur töluvert með ungmennum með átraskanir í starfi sínu sem hjúkrunarfræðingur á BUGL. Lagalisti: Lög af Vultures 1 Markus Binder - Gum Markus Binder - Auto Markus Binder - Moodrum Frank Ocean - Self Control

Mannlegi þátturinn
Heilaheilsa, Hvernig varð ég til, veðurspjallið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 27, 2024 52:37

Heilaheilsa og þjálfun hugans er nafn á námskeiði sem Ólína G. Viðarsdóttir, sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum við HÍ stýrir á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. Á námskeiðinu er fjallað um heilann og hugarstarf og markmiðið er að þáttakendur öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi. Einnig að þeir öðlist betri innsýn í eigin hugræna styrkleika og veikleika og læri leiðir til að þjálfa hugann og efla heilaheilsu. Ólína kom í þáttinn og sagði okkur meira frá heilaheilsu í dag. „Hvernig varð ég til?“ er bók fyrir öll börn sem verða til með aðstoð egg- eða sæðisgjafa. Bókin hentar einstaklingum sem eignast börn ein og einnig samkynja- og tvíkynja pörum. Bókin aðstoðar fjölskyldur við að upplýsa börn um hvernig þau urðu til, þar sem áherslan er á fólk sem fær aðstoð frá egg- eða sæðisgjafa við barneignarferlið. Mikilvægt er að foreldrar séu opinská og heiðarleg gagnvart börnum um hvernig þau urðu til og ekki er alltaf auðvelt að vita hvernig á að bera sig að. Markmiðið með bókinni er að vera ákveðið verkfæri til að aðstoða foreldra við samtalið. Andrea Björt Ólafsdóttir er höfundur bókarinnar kom til okkar í dag. Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo í dag. Í þetta sinn talaði Einar við okkur um veðurútlitið næstu daga og vikur. Hvort hægt sé að spá með viti í marsveðráttuna og með hvaða aðferðum þá. Hann ætlar líka að rifja upp þegar 1500 manns sátu fastir í bílum sínum í Þrengslunum 27.febrúar árið 2000, þegar fjöldi þusti út til að berja Heklugos augum. Þá hafði verið tilkynnt í fréttum að gos myndi hefjast innan 30 mínútna, en lítið sást til gossins, en í staðinn gerði byl með ófærð. Þetta var ein viðamesta björgunaraðgerð á vegum úti í Íslandssögunni. Tónlist í þættinum: Skólaball / Brimkló (Magnús Kjartansson) Marz / John Grant (John Grant) 4:30 AM / Solveig Slettahjel (Peder Kjellsby & Solveig Slettahjell) Nacho verduzco /Kronos Quartet (Chalino Sanchez) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Þú veist betur

Hvað er meira við hæfi svona í byrjun árs en að velta fyrir sér hreyfingu og hvaða hreyfing sem við stundum á sér lengri sögu en hlaup. Einn fót fram fyrir annan og svo framvegis. En hlaup eru ekki bara hlaup, innan þess rúmast skokk, spretthlaup, maraþon og alls kyns mismunandi útgáfur þar á milli. Sjálfur hef ég aldrei verið mikið fyrir hlaup og kannski er það aldurinn, en eftir þennan þátt byrjaði ég að prófa mig áfram og hef gaman af enn sem komið er. Markmið þáttarins er þó ekki að koma ykkur út að skokka, heldur að pæla í þróun hlaups í gegnum árin, í hverju munurinn felst og hver framtíðin gæti verið. Það er því ekkert hlaupa prógram sem þið fáið út úr þættinum en viðmælandi okkar er samt einstaklingur sem hefur gert ófá þannig bæði fyrir sig og aðra. Arnar Pétursson, sem hefur orðið íslandsmeistari 58 sinnum hvorki meira né minna.

Lífið með Lindu Pé
160. Markmiðasetning og orð ársins 2024

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Jan 3, 2024 27:19

Í upphafi árs er nauðsynlegt að setja sér ásetning fyrir árið. Orð ársins, markmið og skilgreining framtíðarsjálfsins eru allt gríðarlega kröftugar nálganir sem byggja á þeim ásetningi sem við höfum ásett okkur. Í þættinum fer Linda yfir hvernig hún persónulega vinnur markmiðsetningu og velur sér orð ársins og gefur þér 3 ráð þar að lútandi. Hver vil ég vera 2024?  Þér er boðið á 2ja daga markmiðanámskeið dagana 8. og 9. janúar nk. Þú lærir hvernig þú setur þér markmið- sem þú munt ná árið 2024! Fullt verð 15.900. -Skráðu þig strax og þú borgar ekkert! Smelltu hér til að skrá þig strax →https://lindape.com/2024

Spjallið
#102 Nýárs þáttur & markmið fyrir árið

Spjallið

Play Episode Listen Later Jan 3, 2024 93:27

Þátturinn er í boði Maarud & Kúmen í Kringlunni

Samfélagið
Loftgæðaspár, staðan í aðdraganda COP28, hugvitsmaður úr fortíðinni

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 20, 2023

Við veltum fyrir okkur loftgæðum í höfuðborginni, vöktun á þeim og leiðum til að spá fyrir um loftgæði - jafnvel í einstökum hverfum. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir okkur frá aðferðum sem stofnunin beitir til þess. Þetta er árið sem farið var að tala um hnattræna stiknun, haustið hefur verið óvenjulegt og hitamet fallið. Ástandið í loftslagsmálum er alvarlegt. Markmið, lausnir og skortur á þeim verða rædd í þaula á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í Dúbaí í lok nóvember. Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands fer yfir vísindin, stöðuna og væntingar til ráðstefnunnar. Málfarsmínúta. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV leyfir okkur að heyra upptöku úr safninu. Að þessu sinni viðtal við hugvitsmanninn Magnús K. Guðnason sem hannaði merkileg hljóðfæri á borð við strokhörpu.

Samfélagið
Loftgæðaspár, staðan í aðdraganda COP28, hugvitsmaður úr fortíðinni

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 20, 2023 55:00

Við veltum fyrir okkur loftgæðum í höfuðborginni, vöktun á þeim og leiðum til að spá fyrir um loftgæði - jafnvel í einstökum hverfum. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir okkur frá aðferðum sem stofnunin beitir til þess. Þetta er árið sem farið var að tala um hnattræna stiknun, haustið hefur verið óvenjulegt og hitamet fallið. Ástandið í loftslagsmálum er alvarlegt. Markmið, lausnir og skortur á þeim verða rædd í þaula á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í Dúbaí í lok nóvember. Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands fer yfir vísindin, stöðuna og væntingar til ráðstefnunnar. Málfarsmínúta. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV leyfir okkur að heyra upptöku úr safninu. Að þessu sinni viðtal við hugvitsmanninn Magnús K. Guðnason sem hannaði merkileg hljóðfæri á borð við strokhörpu.

Spegillinn
Sprungur í Grindavík og víðar, samkomustaður fyrir Grindvíkinga

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 14, 2023 20:11

Víða má finna sprungur á Reykjanesskaga og á austasta hluta höfuðborgarsvæðisins. Sprungur gætu leynst undir húsum á fleiri stöðum en í Grindavík. Ásta Rut Hjartardóttir jarðeðlisfræðingur hefur kortlagt sprungur. Hún segir að sprungan sem liggur i gegnum Grindavík hafi verið þekkt og telur að gliðnunin geti haldið áfram í nokkrar vikur. Stjórnsýsla Grindavíkur hefur fengið aðstöðu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þorsteinn Gunnarsson borgaritari starfaði áður og bjó í Grindavík en hann er alinn upp í Vestmannaeyjum til sjö ára aldurs, en þá þurfti hann að flýja heimili sitt vegna eldgossins í Heimaey. Þorsteinn segir að álag á starfmenn Grindavíkurbæjar sé mikið og þau verði að fá tíma til að ná áttum. Mestu máli skipti, og það þekki hann sjálfur frá Eyjagosinu, að bæjarbúar hittist. Stefmt er að því að gamla Tollhúsið í Reykjavík verði samkomustaður Grindvíkinga. Markmið um kolefnislosun á þessum áratug eru langt frá því að nást, samkvæmt skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar birtu í dag.

Spegillinn
Sprungur í Grindavík og víðar, samkomustaður fyrir Grindvíkinga

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 14, 2023

Víða má finna sprungur á Reykjanesskaga og á austasta hluta höfuðborgarsvæðisins. Sprungur gætu leynst undir húsum á fleiri stöðum en í Grindavík. Ásta Rut Hjartardóttir jarðeðlisfræðingur hefur kortlagt sprungur. Hún segir að sprungan sem liggur i gegnum Grindavík hafi verið þekkt og telur að gliðnunin geti haldið áfram í nokkrar vikur. Stjórnsýsla Grindavíkur hefur fengið aðstöðu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þorsteinn Gunnarsson borgaritari starfaði áður og bjó í Grindavík en hann er alinn upp í Vestmannaeyjum til sjö ára aldurs, en þá þurfti hann að flýja heimili sitt vegna eldgossins í Heimaey. Þorsteinn segir að álag á starfmenn Grindavíkurbæjar sé mikið og þau verði að fá tíma til að ná áttum. Mestu máli skipti, og það þekki hann sjálfur frá Eyjagosinu, að bæjarbúar hittist. Stefmt er að því að gamla Tollhúsið í Reykjavík verði samkomustaður Grindvíkinga. Markmið um kolefnislosun á þessum áratug eru langt frá því að nást, samkvæmt skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar birtu í dag.

Samfélagið
Vinnustaðamenning, búseta á hjólum og kolefnismerkingar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 9, 2023

Vinnueftirlitið ýtti í gær úr vör átaki, eða aðgerðavakningu eins og þau kalla það, á baráttudegi gegn einelti. Markmiðið er að vekja athygli á því að heilbrigð vinnustaðamenning stuðli að öryggi og vellíðan starfsfólks og sé ein áhrifaríkasta forvörnin gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. En hvað er þá heilbrigð vinnustaðamenning? Við komumst að því þegar Sara Hlín Hálfdanardóttir, verkefnastjóri hjá Vinnueftirlitinu sest hjá okkur. Á iðnaðarplani við gamla verksmiðju á Sævarhöfða býr hópur fólks í hjólhýsum og húsbílum, áður voru þau á tjaldsvæðinu í Laugardal en nú eru þau þarna - og verða í vetur, þvert á loforð pólitíkusa. Við förum á svæðið, hittum meðal annars Geirdísi Hönnu Kristjánsdóttur, einn íbúa og formann samtakanna Hjólabúa, og Dóru Björt Guðjónsdóttir, formann skipulagsráðs borgarinnar sem var þar að taka út aðstöðuna, í fyrsta sinn. Við fáum líka neytendaspjall að norðan. Brynhildur Pétursdóttir ræðir við okkur um kolefnismerkingar.

Samfélagið
Vinnustaðamenning, búseta á hjólum og kolefnismerkingar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 9, 2023 55:00

Vinnueftirlitið ýtti í gær úr vör átaki, eða aðgerðavakningu eins og þau kalla það, á baráttudegi gegn einelti. Markmiðið er að vekja athygli á því að heilbrigð vinnustaðamenning stuðli að öryggi og vellíðan starfsfólks og sé ein áhrifaríkasta forvörnin gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. En hvað er þá heilbrigð vinnustaðamenning? Við komumst að því þegar Sara Hlín Hálfdanardóttir, verkefnastjóri hjá Vinnueftirlitinu sest hjá okkur. Á iðnaðarplani við gamla verksmiðju á Sævarhöfða býr hópur fólks í hjólhýsum og húsbílum, áður voru þau á tjaldsvæðinu í Laugardal en nú eru þau þarna - og verða í vetur, þvert á loforð pólitíkusa. Við förum á svæðið, hittum meðal annars Geirdísi Hönnu Kristjánsdóttur, einn íbúa og formann samtakanna Hjólabúa, og Dóru Björt Guðjónsdóttir, formann skipulagsráðs borgarinnar sem var þar að taka út aðstöðuna, í fyrsta sinn. Við fáum líka neytendaspjall að norðan. Brynhildur Pétursdóttir ræðir við okkur um kolefnismerkingar.

Víðsjá
Pabbastrákar, Kammermúsík Og The Simple Act of Letting Go

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 26, 2023 55:00

Þegar Kammermúsíkklúbburinn var stofnaður árið 1957 var kammertónlist sjaldan flutt í Reykjavík. Markmiðið með stofnun klúbbsins var að hefja markvissan flutning á lifandi kammertónlist. Nokkrum árum og mörghundrum tónleikum síðar er klúbburinn jafn lifandi sem fyrr og hefur þetta starfsár með pompi og prakt með tvennum tónleikum í Hörpu um helgina. Við ræðum við Halldór Hauksson, píanóleikara og stjórnarmeðlim kammermúsíklúbbsins í þætti dagsins. Íslenski dansflokkurinn sýnir um þessar mundir verkið The Simple Act of Letting Go eftir ísraelska danshöfundinn Tom Weinberger á nýja sviði Borgaleikhússins. Erna Ómarsdóttir listdansstjóri Íslenska dansflokksins heimsækir okkur og segir frá sýningunni. Leikverkið Pabbastrákar fjallar um íslenska karlmenn sem fara í tilboðsferð til Playa Buena á Spáni árið 2007. Við ræðum við höfundana, þá Hákon Örn Helgason og Helga Grím Hermannsson.

Víðsjá
Pabbastrákar, Kammermúsík Og The Simple Act of Letting Go

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 26, 2023

Þegar Kammermúsíkklúbburinn var stofnaður árið 1957 var kammertónlist sjaldan flutt í Reykjavík. Markmiðið með stofnun klúbbsins var að hefja markvissan flutning á lifandi kammertónlist. Nokkrum árum og mörghundrum tónleikum síðar er klúbburinn jafn lifandi sem fyrr og hefur þetta starfsár með pompi og prakt með tvennum tónleikum í Hörpu um helgina. Við ræðum við Halldór Hauksson, píanóleikara og stjórnarmeðlim kammermúsíklúbbsins í þætti dagsins. Íslenski dansflokkurinn sýnir um þessar mundir verkið The Simple Act of Letting Go eftir ísraelska danshöfundinn Tom Weinberger á nýja sviði Borgaleikhússins. Erna Ómarsdóttir listdansstjóri Íslenska dansflokksins heimsækir okkur og segir frá sýningunni. Leikverkið Pabbastrákar fjallar um íslenska karlmenn sem fara í tilboðsferð til Playa Buena á Spáni árið 2007. Við ræðum við höfundana, þá Hákon Örn Helgason og Helga Grím Hermannsson.

Dr. Football
Doc Sports Business - Sádarnir eyða miklu en hvert er markmiðið?

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jun 13, 2023 62:05

Björn Berg og Jói Már kafa ofan í þær breytingar sem eru í heimi fótboltans með tilkomu þeirra miklu peninga sem Sádí Arabía setur nú í fótbolta og aðrar íþróttir.

Spegillinn
Illviðri, vantraust og fjármálaáætlun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 29, 2023

Appelsínugul veðurviðvörun gengur í gildi á Austfjörðum klukkan sjö vegna mikillar snjókomu. Reitur fjórtán var rýmdur að nýju á Seyðisfirði í dag. Viðbúið er að færð spillist og hætta á snjóflóðum aukist. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir tók saman. Hækka á tekjuskatt á fyrirtæki, hagræða í rekstri ríkisstofnana og draga úr opinberum framkvæmdum samkvæmt fjármálaáætlun sem kynnt var í dag. Þingmenn úr nær öllum flokkum stjórnarandstöðu lögðu í dag fram vantrauststillögu gegn Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra. Hann hafi með framgöngu sinni hindrað Alþingi í störfum sínum. Tillagan verður tekin fyrir á Alþingi á morgun. Jóhanna vigdís Hjaltadóttir segir frá. Yfirtaka svissneska bankans UBS á Credit Suisse er stærsti einstaki fjármálagerningur síðan í fjármálakrísunni 2008. Þetta segir stjórnarformaður UBS, sem hefur ráðið til baka fyrrverandi forstjóra til að leiða samrunann. Oddur Þórðarson segir frá. ------ Í dag var kynntur einn af staksteinum ríkisfjármálanna á ári hverju, fjármálaáætlun. Þar er hægt að sjá hvert stjórnvöld stefna með nokkuð ítarlegum hætti í ríkisrekstrinum. Hennar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu í þetta skiptið, því í henni sýnir ríkisstjórnin á spilin með hvaða hætti eigi að bregðast við í ríkisfjármálunum til að bregðast við verðbólgu og efnahagsvandanum sem við blasir. Markmið með fjármálaáætluninni er að útfæra markmið um tekjur og gjöld hins opinbera og þróun þeirra. Fjármálaáætlun er sett fram til næstu fimm ára hið skemmsta og skal fjármála- og efnahagsráðherra leggja hana fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar fyrir 1. apríl ár hvert. Bjarni Rúnarsson fer yfir áætlunina ásamt Alexander Kristjánssyni fréttamanni. Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, segist merkja aukinn skilning innan Evrópusambandsins á sjónarmiðum Íslands varðandi losunarheimildir í flugi og hún segir að þýsk stjórnvöld deili skoðunum Íslands hvað þetta mál varðar. Lilja var í Brussel í gær og í dag, þar sem hún átti fundi með embættismönnum í framkvæmdastjórn ESB, og tók einnig þátt í ráðstefnu flugfélaga sem haldin var í borginni. Björn Malmquist, fréttamaður RÚV í Brussel fylgdist með þessari ráðstefnu og ræddi við Lilju Vladimír Pútín Rússlandsforseti kann að fá öflugan keppinaut þegar hann sækist eftir endurkjöri í mars á næsta ári. Sérfræðingar hugveitunnar Institute for the Study of War eða ISW í Washingtonborg draga þá ályktun í nýjustu uppfærslu sinni um gang innrásarinnar í Úkraínu, að Yevgeny Prigozhin, stofnandi og stjórnandi Wagner málaliðahópsins, hyggist bjóða sig fr

Spegillinn
Illviðri, vantraust og fjármálaáætlun

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 29, 2023 29:51

Heilsuvarpid
#73 Hlynur Kristinn Það er Von

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Mar 24, 2023 60:56

Hlynur Kristinn Rúnarsson er stofnandi samtakann Það er von Markmið þeirra er að vinna gegn fordómum, skömm og vekja von hjá þeim sem glíma við fíknisjúkdóma og gefa annað tækifæri í lífinu. Hlynur á sjálfur ótrúlega sögu af bata en hann hefur verið edrú í næstum 4 ár. Hann er nýútskrifaður með BS í lögfræði og er nú í mastersnámi. Heilsuvarpið hvetur alla til að gerast Vonarliðar og leggja samtökunum lið og hjálpa að gefa fólki með fíkn nýja von. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is

Spegillinn
Þjóðaröryggi og ungmennabúðum skellt í lás

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 22, 2023

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans var harðlega gagnrýnd á Alþingi í dag. Ríkisstjórnin þurfi að bregðast við. Umboðsmaður skuldara telur blikur á lofti og ástæða sé til að hafa áhyggjur af þeim sem skulda mikið. Boris Johnson segir að það hefði verið ómögulegt að virða samkomutakmarkanir í Downingstræti 10 vegna þrengsla. Hann kveðst hafa sagt þinginu satt og rétt frá - eftir því sem hann vissi á sínum tíma. Oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði segir fullt tilefni til að krefjast íbúakosningar vegna hugmynda um förgun koldíoxíðs í Hafnarfirði. Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir aðgengi fatlaðs fólks að stafrænum lausnum vera ábótavant. Ráðherrar á Norðurlöndunum undirrituðu í dag yfirlýsingu um að bæta þar úr. Þjóðaröryggi snýst um fleira en varnir og varnarmál, þó að þau séu vissulega áleitin þegar barist er í Evrópu. Þjóðaröryggi snýst líka um samfélag, efnahag, umhverfi og stjórnmál segir prófessor í alþjóðasamskiptum . ----- Þjóðaröryggi felur í sér miklu meira en varnir lands þó að umræða um þær sé orðin áleitnari nú en hún hefur verið um langa hríð segir Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands. Hún var þátttakandi á ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í dag þar sem varpað var fram þeirri spurningu hvernig nýta megi alþjóðasamstarf til að tryggja öryggi þjóðar á breyttum tímum. Forsætis- og utanríkisráðherra ávörpuðu gesti í upphafi og nýleg heimsókn þeirra beggja til Úkraínu var þeim hugleikin. Utanríkisráðherra ræddi þar um hvað og hvernig Ísland gæti beitt sér þrátt fyrir og í krafti smæðar sinnar. Mikilvægt væri fyrir herlausa þjóð að verða verðugur þátttakandi á alþjóðavettvangi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðasamskiptum. Í gær var tilkynnt að loka eigi Ungmennabúðum Ungmennafélags Íslands á Laugarvatni. Ástæðan er sú að mygla greindist í húsnæðinu sem búðirnar hafa til umráða, gamli Íþróttakennaraskólinn á Laugarvatni. Dvöl í búðunum er oft mikið ævintýri fyrir börn í 9. bekk. Vikudvöl úti í sveit utan skarkala hversdagsins. Markmið með dvölinni er að styrkja félagsfærni ungmenna, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi. Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir að framtíð hússins verði ákveðin á fundi sveitarstjórnar á mánudag. Framkvæmdir yrðu of dýrar og það sé í raun ekki hlutverk sveitarfélaga að eiga og reka húsnæði sem nýtist starfsemi þess ekki. Hún segir líklegt að húsið verði auglýst til sölu á næstunni, en

Spegillinn
Þjóðaröryggi og ungmennabúðum skellt í lás

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 22, 2023 9:46

Samstaða gegn Pútín, alheimslyfjaskortur og tuttugu ára innrás í Írak

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 20, 2023 9:24

Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Mikið af gögnum liggja fyrir varðandi handtökuskipun alþjóðasakamáladómstólsins gegn Vladimír Pútín. Mikil samstaða er meðal aðildarríkja dómstólsins að sögn Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Róbert Jóhannsson tók saman. Forstjóri Landsvirkjunar segir að svo virðist sem sjálfstæður vilji stofnana geti komið í veg fyrir nauðsynlegar virkjanaframkvæmdir og málsmeðferartími sé of langur. Benedikt Sigurðsson tók saman og talaði við Hörð Arnarson. Rafiðnaðarsambandið og félag vélstjóra- og málmtæknimanna skrifuðu í dag undir kjarasamning. Enn á eftir að semja við nokkur orkufyrirtæki en lögmaður Samtaka atvinnulífsins er vongóður um að samningar verði undirritaðir á næstu vikum. Arnar Björnsson talaði við Guðmund Heiðar Guðmundsson og Kristján Þórð Snæbjarnarson. Vestmannaeyjabær skrifaði í dag undir samning um móttöku þrjátíu flóttamanna. Níu sveitarfélög hafa skuldbundið sig til að taka á móti samtals um þrjú þúsund flóttamönnum í samstarfi við stjórnvöld. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við Írisi Róbertsdóttur. Forstjóri Lyfjastofnunar segir stofnunina og yfirvöld vinna hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að alvarlegur lyfjaskortur á við þann í vetur endurtaki sig. Viðvarandi og alvarlegur skortur hefur verið á sýklalyfjum um allan heim undanfarið og er Ísland þar ekki undanskilið. Kjörlyfið gegn streptókokkum var til að mynda ófáanlegt nær allan febrúar þrátt fyrir skæðar sýkingar. Hafdís Helga Helgadóttir talði við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar Í dag eru tuttugu ár liðin frá því að Bandaríkjamenn og Bretar réðust inn í Írak. Þrjátíu ríki, þar á meðal Ísland, studdu innrásina. Markmiðið var að koma Saddam Hussein frá völdum í Írak. Hann og ríki hans byggju yfir gereyðingarvopnum og af þeim stafaði hætta. Forsendur innrásarinnar hafa alla tíð verið umdeildar og jafnvel taldar uppspuni. Eftir því sem tíminn líður verður ákvörðunin umdeildari. Bjarni Rúnarsson fór yfir málið og talaði við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.

Spegillinn
Samstaða gegn Pútín, alheimslyfjaskortur og tuttugu ára innrás í Írak

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 20, 2023

Pútín ákærður, stórframkvæmdir í Hafnarfirði, vantraust á Macron

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 17, 2023

Spegillinn 17. Mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Alþjóðasakamáladómstóllinn í Haag gaf í dag út handtökuskipun gegn Vladimír Pútín Rússlandsforseta vegna stríðsglæpa í Úkraínu. Auk hans er þess krafist að Maria Alekseyevna Lvova-Belova verði handtekin, en hún er yfir skrifstofu réttinda barna sem er undir embætti forsetans. Bresk stjórnvöld fögnuðu handtökuskipuninni undir kvöld. Hið sama gerði utanríkismálastjóri Evrópusambandsins sem sagði að ákvörðun dómstólsins væri afar mikilvæg fyrir úkraínsku þjóðina og réttlæti í heiminum. Róbert Jóhannsson sagði frá. Hafnarfjörður stefnir á milljarða króna innviðauppbyggingu tengda verkefni Coda Terminal. Áætlað er að 600 störf skapist vegna framkvæmdanna. Allt í allt er áætlað að framkvæmdirnar muni kosta Hafnarfjörð hátt í níu milljarða króna. Langstærstur hluti þeirra snýr að nýrri stórskipahöfn sem verður reist við Ísal í Straumsvík. Markmiðið er að þjónusta sér-útbúin skip sem flytja koldíoxíð til landsins. Valur Grettisson og ræddi við Valdimar Víðisson, oddvita Framsóknarflokksins í Hafnarfirði. Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs hófst í dag. Katrín Jakobsdóttir formaður setti fundinn. Hún sagði það forgangsverkefni að ná verðbólgu niður. Þá gaf hún í skyn að skattahækkanir væru á næsta leiti. Ríkisstjórnin myndi kynna fjármálaáætlun á næstu dögum. Hróp voru gerð að Katrínu meðan hún flutti setningarræðuna. Fundargestur sakaði hana meðal annars um að segja ósatt og vera í stríði við þjóðina. Hann var beðinn um að yfirgefa salinn. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá. Stjórnarandstæðingar á franska þinginu lögðu í dag fram vantrauststillögu gegn stjórn Emmanuels Macrons Frakklandsforseta vegna umdeildra breytinga á lífeyrislögum. Bertrand Pancher, leiðtogi hins svokallaða LIOT-hóps sem samanstendur af þingmönnum smáflokka og óháðra beggja vegna miðjunnar, segir tillöguna leiða til lausnar á þeirri djúpu pólitísku upplausn sem málið hafi valdið.Róbert Jóhannsson sagði frá. Það hefur staðið styrr um málefni Lindarhvols undanfarnar vikur og mánuði. Þrýst hefur verið á forseta Alþingis að gera upplýsingar um úttekt á starfsemi félagsins opinberar en hann hefur ekki orðið við því. Þingmenn stjórnarandstöðu segja þetta leyndarhyggju og að það sé eitthvað sem ekki þoli dagsljósið þar að finna. Bjarni Rúnarsson rifjaði atgurðaráðs undanfarinna mánaða. Framleiðsla kókaíns hefur náð áður óþekktum hæðum í heiminum. Þetta kemur fram í fyrstu skýrslu fíkniefna- og

Spegillinn
Pútín ákærður, stórframkvæmdir í Hafnarfirði, vantraust á Macron

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 17, 2023 9:35

121. Markmið frá auðvídd

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Feb 22, 2023 19:54

Í heimi lífsþjálfunar er lögð mikil áhersla á að vera alltaf með einhvers konar markmið. Ég er stundum spurð út í það hvort öll þessi áhersla á markmið stangist ekki á við það að lifa í núinu. Núvitundina sem er líka svo mikilvæg. Þegar ég hélt áfram námi mínu og jók skilning minn á því hvernig við vinnum með markmið kom þetta allt heim og saman í huga mínum og í þessum þætti ætla ég að útskýra þetta fyrir ykkur. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTIAðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift.  28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Prógrammið Lífið með Lindu Pé. Lokað er fyrir skráningu. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Karlmennskan
#113 „Réttlæti fyrir brotaþola er að geta haldið áfram að lifa í sínu samfélagi“ - Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir og Elín Björk Jóhannsdóttir

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Feb 1, 2023

Recognising Sexual Violence: Developing Pathways to Survivor-Centred Justice hét ráðstefna sem haldin var í lok október sl. af RIKK (rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands) í samstarfi við háskólana í Lundi og Osló. Rannsóknir á reynslu og hugmyndum þolenda kynferðisbrota sýna að réttlæti er mun flóknara en svo að eingöngu sé hægt að styðjast við réttarkerfið; hegningarlög og refsirétt. Auk þess má réttilega segja að réttarkerfið nái afar illa utan um kynferðisbrot eins og reynsla þolenda hefur sýnt fram á. Markmið ráðstefnunnar var að draga fram hvernig þolendamiðað réttlæti getur litið út, sem krefst þess að við endurhugsum ólík réttlætiskerfi og þróum pólitískar, félagslegar og lagalegar leiðir að réttlæti. Til þess að ræða þetta nánar spjallaði ég við Elínu Björk Jóhannsdóttur verkefnisstjóra hjá RIKK, skipuleggjanda ráðstefnunnar og Steinunni Gyðu og Guðjónsdóttur talskonu Stígamóta sem sat ráðstefnuna og hefur starfað með þolendum í rúman áratug. Á meðal spurninga sem við leitum svara við eru: Hvers vegna gengur ekki að vera með viðbragðsáætlun í skólum sem grípa má til þegar upp koma kynferðisbrot? Hvað er félagslegt réttlæti, uppbyggileg réttvísi og umbreytandi réttlæti? Hvernig geta skólar og vinnustaðir brugðist við þegar upp koma kynferðisbrot? Hvers vegna ættu gerendur að taka þátt í ábyrgðarferli og gangast við brotum sínum? Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja) bjóða upp á þennan þátt.

Helgaspjallið
Þáttur 125 - Dagbjört Jóns, konan á bakvið bókina Fundið Fé um auðveldari fjármál og markmið

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jan 26, 2023 87:09

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Fylgjendur og unnendur bókarinnar Fundið Fé hafa kannski tekið eftir að höfundur hennar heldur sér nokkuð mikið útúr sviðsljósinu. En í dag mætti hún á móti mér í stólnum og var mesta ánægja að spjalla við hana um fjármál á algjöru mannamáli og markmið þegar kemur að peningum. Dagbjört kann að meta "fokkjú money" og er langt frá því að vera excel týpan og í kjölfarið hannaði hún og gerði bók sem hún þurfti sjálf. Við tölum um allt í kringum hvernig við getum lært um fjármál og hvernig við erum að eyða peningunum okkar, hvernig við getum auðveldað markmið okkar og að framkvæma draumana okkar, sem krefjast peninga. Tölum um sparnaðarráð í lífi og til dæmis ferðalögum ásamt svo mörgu öðru. Það var svo ótrúlega gaman að kynnast henni á meðan við tókum upp og hvernig þessi þáttur okkar á milli varð til. Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Lífið með Lindu Pé
117. Mistök fortíðar

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Jan 25, 2023 14:00

„Framtíðin ræðst af því sem þú gerir í dag“ - Mahatma Ghandi Eitt af því mikilvægasta sem ég kenni í LMLP prógramminu mínu er að við látum fortíðina ekki spá fyrir um framtíðina. Við látum mistök fortíðar ekki spá fyrir um hvernig okkur á eftir að vegna í framtíðinni. Við erum alltaf bara einni ákvörðun frá því að breyta lífi okkar og þá ákvörðun er hægt að taka í dag. Dagurinn í dag er sá dagur sem skiptir máli, ekki gærdagurinn. Markmið eru mjög mikilvæg fyrir framtíð okkar af því að þau gera okkur kleift að hanna okkar eigið líf. Markmiðasetning setur okkur í stellingar sem við þurfum að fara í til að spyrja okkur kröftugra spurninga og plana fram í tímann. Þetta er upptaka af beinni útsendingu í Facebookgrúppuni Taktu skrefið.   LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTIAðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift.  28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Prógrammið Lífið með Lindu Pé. Lokað er fyrir skráningu. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Lífið með Lindu Pé
Við lokum-síðasti séns!

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Jan 9, 2023 3:47

Það lokar fyrir nýskráningar í LMLP prógrammið! Nú er rétti tíminn til að gera breytingar á lífi þínu. Aðgangsglugginn í LMLP er opinn til og með 15.janúar. Þá er hægt að skrá sig í prógrammið en eftir það lokast fyrir nýskráningar og opnast ekki aftur fyrr en síðar á árinu. Nýjar aðildarkonur í prógramminu fá sérstaka aðstoð til að koma sér af stað nú í upphafi árs og konurnar sem hafa verið lengi í prógramminu mínu og eru komnar lengra fá að sjálfsögðu líka allan þann stuðning sem þær þurfa.    Markmiðavika hefst 16.janúar!   Fjölbreytt námskeið eru innifalin í LMLP prógramminu. Fyrsta námskeiðið hefst 16.janúar og heitir Markmiðavika. Þar lærir þú að setja þér markmið og hvernig best er að gera það svo þú náir árangri. Þú tímasetur og planar draumana þína með því að nota tímastjórnunnar verkfæri sem ég kenni.   Í Markmiðaviku setur þú þér markmið varðandi: þyngdartap sjálfsrækt fjármál   Þetta eru undirstöðu atriði þess að þú lifir frábæru lífi í góðu jafnvægi. Settu þér ný og spennandi markmið fyrir árið 2023 og skráðu þig núna.  Ekki fresta sjálfri þér lengur. Þetta er tækifærið þitt til að gera langvarandi breytingar á lífi þínu og verða sú kona sem þú vilt verða. Komdu í LMLP prógrammið - og náðu markmiðum þínum.

Lífið með Lindu Pé
114. Markmiðavika

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Jan 4, 2023 22:08

Margir eiga í mjög flóknu sambandi við markmiðasetningu og hafa jafnvel gefist upp á að setja sér markmið. Sagan er orðin of löng af óuppfylltum markmiðum og vantrúin og sjálfsefinn hafa náð yfirhöndinni. Stundum viljum við ekki setja okkur markmið af ótta við vonbrigðin sem við upplifum þegar við náum þeim ekki. Þetta kalla ég að upplifa vonbrigðin fyrir fram og ég mæli aldrei með því. Í þessum þætti ætla ég að kenna þér betri leið til að setja þér markmið og framfylgja þeim. Viltu setja þér spennandi markmið fyrir 2023? Markmiðavikan í LMLP prógramminu hjálpar þér að setja markmiðin sem færa þér lífið sem þú sækist eftir. Láttu þig hlakka til að gera spennandi sjálfsvinnu, setja þér markmið og læra aðferð til að ná þeim. Gerðu þetta með mér og þú munt lifa draumalífinu þínu árið 2023! Markmiðavika hefst 16. janúar 2023 og er innifalin í LMLP prógramminu. Þú hefur til 15. janúar að skrá þig. Skráðu þig með því að smella hér https://www.lindape.com/skramig   Aðgangsgluggi LMLP lokar 15. janúar kl.23.59. Hingað til hefur verið hægt að skrá sig í LMLP prógrammið allt árið en nú hefur fyrirkomulagið breyst.  Aðgangsglugginn er opinn núna frá 1.-15.janúar Þá er hægt að skrá sig í prógrammið. Eftir það lokast glugginn og opnast ekki fyrr en síðar á árinu.  https://www.lindape.com/skramig  

Fotbolti.net
Elísabet leyfir smábænum að dreyma - Hvað tekur svo næst við?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 29, 2022

Elísabet Gunnarsdóttir er einn besti fótboltaþjálfari sem hefur komið frá Íslandi, það er óhætt að fullyrða það. Hún hefur frá því í janúar árið 2009 þjálfað Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur náð mjög svo eftirtektarverðum árangri. Þar áður gerði hún Val að besta liði landsins, mögulega var það besta lið Íslandssögunnar. Í þessum hlaðvarpsþætti fer Elísabet yfir byrjunina á þjálfaraferlinum, verkefnið í smábænum Kristianstad, framtíðina og margt fleira. Markmiðin eru skýr fyrir næstu leiktíð en hvað gerist næst eftir að þessum langa Kristianstad-kafla lýkur? Það verður fróðlegt að sjá en hún er með samning við félagið út næstu leiktíð.

Poppsálin
Stanford fangelsis tilraunin - Siðlaus en athyglisverð sálfræðitilraun

Poppsálin

Play Episode Listen Later Dec 29, 2022 34:07

Sumarið 1971 var ein af siðlausustu sálfræðitilraunum  allra tíma framkvæmd í kjallara Sálfræðideildar Stanford háskólans. Sálfræðiprófessorinn Philip Zimbardo vildi rannsaka hegðun fólks í fangelsi og breytti því kjallara skólans í sýndarfangelsi og skipti saklausum nemendum skólans í tvo hópa, fanga og fangaverði. Markmiðið var að kanna áhrif aðstæðna á hegðun fólks. 

Lífið með Lindu Pé
112. Lágmarksviðmið

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Dec 21, 2022 13:50

Í dag ætla ég að tala um mjög kröftugt hugtak sem ég kenni í LMLP prógramminu mínu sem kallast lágmarksviðmið. Þegar við ætlum að gera breytingar í lífinu okkar, hverjar sem þær eru, kemur frumheilinn okkar til með að mótmæla. Þessi hluti heilans er þannig hannaður að hann vill aldrei gera breytingar. Markmið hans er að halda okkur á lífi og hann trúir því að ástæða þess að við séum á lífi í dag sé vegna alls þess sem við höfum gert hingað til. Frumheilinn gerir engan greinarmun á því hvort við séum að lifa lífi sem er uppfullt af neikvæðum tilfinningum og slæmum lífstíl eða draumalífinu okkar. Og honum er í raun sama. Hann vill bara að við séum á lífi og ef við erum það í dag, hlýtur það sem við gerðum í gær að vera lykillinn að því. Lágmarksviðmiðið snýst um að læra að gera það sem við ætlum okkur að gera.   NÁNARI UPPLÝSINGAR: Magasínið Lífið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök verða meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið Lífið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift. 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!

Karlmennskan
#107 „Hinseginleikinn minn trompar það ekki að ég sé barn“ Hinsegin félagsmiðstöðin - Hrefna, Nóam og Tinni

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Nov 25, 2022

Hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna 78 og frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar er fyrir öll ungmenni á aldrinum 10-17 ára sem eru hinsegin eða tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Markmið starfseminnar er að vinna mark­visst að því að bæta lýð­heilsu hinsegin barna, unglinga og ungmenna og vinna gegn for­dóm­um, mis­munun og ein­elti sem bein­ist gegn hinsegin börnum í skóla og frí­stunda­starf­i. Hrefna Þórarinsdóttir forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar og Andreas Tinni og Nóam Óli sem eru 17 ára og hafa tekið virkan þátt í starfinu frá 13 ára aldri segja okkur frá reynslu sinni og upplifun, veita innsýn í reynsluheim hinsegin barna og ungmenna og hvaða þýðingu hinsegin félagsmiðstöðin hefur fyrir þá. Hrefna lýsir sínum innri átökum við að taka að sér starf forstöðukonu félagsmiðstöðvarinnar og hvernig mætingin fór úr 10-15 börnum í 120 á hverja opnun. Þrátt fyrir blómlegt starf þá telja Tinni og Nóam að unglingar í dag séu jafnvel fordómafyllri en ungmenni og rekja það til áhrifa samfélagsmiðla og bakslags í baráttu hinsegin fólks. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, Anamma og bakhjarlar Karlmennskunnar bjóða upp á þennan þátt.