POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ólafur Guðmundsson, umferðaröryggissérfræðingur ræddi við okkur um hraðahindranir, auglýsingaskilti og fleira. Sælín Sigurjónsdóttir ræddi sín mál, en hún á heima á Reyðarfirði en móðir hennar á Egilsstöðum. Anna Birna Almarsdóttir, prófessor við Lyfjafræðideild Kaupmannahafnarháskóla og verkefnisstjóri Sofðuvel-átaksins, settist niður með okkur og ræddi svefn. Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar - Samtaka gegn kynbundnu ofbeldi, ræddi við okkur um hræðilega frásögn Kathryn Gunnarsson. Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um laun borgarstjóra og borgarfulltrúa. Símatími
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu að þessu sinni við Boga Ágústsson um stöðu efnahagsmála í Evrópu, verðbólga fer minnkandi, litlum hagvexti er spáð og vextir eru enn háir. Í mörgum Evrópulöndum er skortur á vinnuafli og jafnvel ríkisstjórn Ítalíu undir forsæti Giorgiu Meloni hefur rætt við Afríkuríki að fólk til starfa. Meloni og stjórn hennar eru annars afar andvíg innflutningi fólks. Í Danmörku hefur vinnuveitendasambandið beðið stjórnvöld um að fá 50 þúsund útlendinga til starfa. Meginumræðuefni Heimsgluggans var þó staða Samveldis þjóða, sem áður var þekkt sem breska samveldið. Ástralskur prófessor í breskri sögu við Kaupmannahafnarháskóla segir að samveldið sé í vanda, það sé eiginlega ekki til neins og langt sé síðan að það hafi haft einhverja pólitíska eða efnahagslega þýðingu. Sennilega lifi það þó áfram af því enginn vilji verða til þess að leggja það niður.

Úndína Ýr er ungur dýralæknir sem lýkur nú námi sínu við Kaupmannahafnarháskóla með stórri rannsókn hér á Íslandi þar sem könnuð er tíðni magasára og eðli þeirra. Úndína segir okkur frá því hvað magasár eru, hvernig einkenni þeirra gætu birst okkur, ástæður fyrir því að þau myndast og hvað sé til ráða. Við ræddum líka rannsóknina og dýralæknanámið sem hefur verið strembið er skemmtilegt!
Í þakkarávarpi við viðtöku bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs á miðvikudag mótmælti rithöfundurinn Jonas Eika innflytjendalöggjöfinni í heimalandinu og gagnrýndi dönsku ríkisstjórnina harðlega. Sagði hann lögin bæði rasísk og ofbeldisfull. Gottskálk Þór Jensson, rannsóknardósent við Kaupmannahafnarháskóla, sagði frá umræðum í Danmörku um orð Jonasar en stjórnmálamenn mótmæltu þeim. Á móti tóku ýmsir, ekki síst rithöfundar, undir með honum. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, skýrði löggjöfina - sem hann segir þá ströngustu í Vestur-Evrópu - og setti hana í sögulegt ljós. Stórsveit Reykjavíkur flytur lög eftir Duke Ellington sem nefndur hefur verið konungur jassins á tónleikum í Hörpu á sunnudag. Af því tilefni voru leikin lög eftir Duke og lesið úr grein um hann sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1945. Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun, 1. nóvember. Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands, kom í þáttinn og spjallaði um rjúpur og rjúpjaveiði. Ætla má að milli 5 og 6 þúsund manns gangi til rjúpna í ár og veiði alls um eða yfir 50 þúsund rjúpur. Tónlist: Andar í útlegð - Mógil, Sophisticated lady - Duke Ellington, Blues for Jerry - Duke Ellington, Basin street blues - Duke Ellington.

Minnst ellefu óbreyttir borgarar hafa látið lífið af völdum árása Tyrkja á norðurhluta Sýrlands. Sameinuðu þjóðirnar segja um hundrað þúsund hafa flúið heimili sín. Íslensk stjórnvöld hafa komið þeim skilaboðum áleiðis til danskra yfirvalda að þau hafi hug á að fjármagna stöðu íslensku-lektors við Kaupmannahafnarháskóla. Leggja á stöðuna niður vegna niðurskurðar. Menntamálaráðherra segir sérstakt að danska ríkið vilji ekki leggja til fjármagn í stöðuna. Formaður Stúdentafélags Háskólans Akureyri segir töluverða gremju vera meðal nemenda í diplómanámi í lögreglufræðum eftir að í ljós kom að af þeim 160 nemendum sem stunda nám við deildina þurfa 120 að hætta um áramót. Hundrað þúsund manns þurfa að flýja að heiman vegna gróðurelds austan við Los Angeles í Kaliforníu. Eldar loga á átta stöðum í ríkinu. Gerlamengun í borholunni í Grábrókarhrauni er óeðlileg og hefur ekki komið upp frá því vatnsbólið var tekið í notkun 2007. forsætisráðherra Eþíópíu, hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Hann bauð nágrönnum sínum í Erítreu frið í fyrra. Arctic circle er stórmerkileg samkoma, þetta segir utanríkisráðherra um þing hringborðs Norðurslóða sem nú er í fullum gangi. Samískir hreindýrabændur taka undir. Spegillinn kynnti sér þetta stóra þing sem laðar að 2000 gesti víðsvegar að úr veröldinni og beinir líka sjónum að ungum héraðsstjóra við heimskautssbaug sem Pútín hefur handvalið.

Eyþór Einarsson er styrktarþálfari með Level 1 þjálfunargráðu í Crossfit. Hann hefur þjálfað í Granda 101 og Crossfit Suðurnes. Hann flutti nýlega til Kaupmannahafnar þar sem hann hefur verið með námskeið í Ólympískum lyftingum í Kraftværk crossfit og nú í Butcher’s Lab crossfit. Eyþór er með B.S í Sálfræði frá HR og hefur nám í klínískri sálfræði í Kaupmannahafnarháskóla haustið 2019. Eyþór hefur tvisvar farið á heimsleikana í CrossFit leikana, annað skiptið sem áhorfandi og síðar sem þjálfari og er því hokinn af reynslu að kenna ólympískar lyftingar og getið sér gott orð á þeim vettvangi og get ég persónulega vottað fyrir færni hans til að kenna einni kortér í fertugt að bæta tækni í clean og snatch. Eyþór er sérstaklega þægilegur drengur og ég vona að þið hafið jafn gaman að garfa og nördast í öllu sem viðkemur Crossfit, ólympískum lyftingum og þjálfun í þessum þætti. Njótið. Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 15% Under Armour: ragganagli = 20% Hverslun.is ragganagli20 = 20% www.goodgoodbrand.net: ragganagli20 24iceland: ragganagli20
Peningaþvætti er útbreidd starfsemi um heiminn. Það fer m.a. fram í gegnum banka sem lögum samkvæmt eiga að gaumgæfa uppruna peninga sem um þá fara. Brotalamir virðast á slíku eftirliti og hafa yfirvöld gert athugasemdir, m.a. í framhaldi af athugasemdum frá alþjóðlegri stofnun sem vinnur gegn peningaþvætti. Von er á nýrri úttekt fyrir Ísland síðar í mánuðinum. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir málið í spjalli um efnahag og samfélag. Staða þýska Jafnaðarmannaflokksins er veik eftir nýliðnar Evrópuþingskosningar og fylkiskosningar í Brimum. Andrea Nahles hefur sagt af sér formennsku og eftirmaður ekki í augnsýn. Stjórnarsamstarfið er að sama skapi veikt og þar kemur líka til óeining milli Merkel kanslara og Kramp-Karrenbauer formanns Kristilegra demókrata. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir þetta og fleira í Þýskalandsspjalli dagsins. Kosið er til danska þingsins á morgun og af því tilefni var fjallað um Danmörku, Dani og dönskuna. Brynja Stefánsdóttir, dönskukennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og formaður Félags dönskukennara, sagði frá en hún bjó í tvígang í Danmörku, fyrst sem stelpa og unglingur og seinna sem námsmaður við Kaupmannahafnarháskóla. Hún sagði Dani almennt slakari en Íslendinga, þeir færu sér hægar en við í lífsgæðakapphlaupinu. Tónlist: A string of pearls - Glenn Miller Kiss me, honey honey, kiss me - Shirley Bassey De förste kæreseter pa manen - TV-2
Víðsjá 31.1.2018 Í Víðsjá dagsins verður rætt við myndlistarmanninn Ragnar Kjartansson um myndbandsinnsetningu hans Fígúrur í landslagi. Verkið vann Ragnar fyrir heilbrigðissvið Kaupmannahafnarháskóla en það verður sýnt næstu vikur í i8 galleríi við Tryggvagötu á sýningu sem opnuð verður í dag. Víðsjá forvitnast einnig um verkefnið Krakkar skrifa í Borgarleikhúsinu þar sem börn spreyta sig á leikritun en þar er á ferðinni samstarf leikhússins og RÚV og KrakkaRÚV, en verk Iðunnar Ólafar Berndsen og Sunnu Stellu Stefánsdóttur verða sýnd á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu um komandi helgi. Halla Þórlaug Óskarsdóttir ræðir við Anders Björklund, fyrrverandi safnstjóra Etnógrafíska safnsins í Stokkhólmi um forvitnilega sögu tótemsúlu frumbyggja í Kanada sem áður var í eigu sænska safnsins. Að lokum verður rætt við Sigtrygg Baldursson, framkvæmdastjóra Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, um kynningu á íslenskri tónlist erlendis. Umsjón: Guðni Tómasson
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Sverrir Arnórsson stundar nám í sellóleik við Menntaskóla í tónlist. Hér les hann úr bréfi sem Lárus Jóhannesson skrifaði foreldrum sínum, Jóhannesi Jóhannessyni og Jósefínu Antoníu Lárusdóttur. Lárus lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1917 og lærði lögfræði í Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla. Hann var þingmaður Seyðfirðinga fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin 1942-1956. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.