Podcasts about Valdimar

  • 62PODCASTS
  • 320EPISODES
  • 1h 23mAVG DURATION
  • 5WEEKLY NEW EPISODES
  • Jun 11, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about Valdimar

Latest podcast episodes about Valdimar

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - fimmtudagur 11. júní 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Jun 11, 2026 65:00


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður um HM í knattspyrnu sem hefst í dag Agnes Ósk Marzellíusardóttir lögreglufulltrúi í fjármunabrotadeild um netsvik Símatími Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar um brottfararstöð Már Wolfgang Mixa dósent við Viðskiptafræðideild HÍ um vexti og verðbólgu hér heima og í Bandaríkjunum Valdimar Óskarsson netöryggisfræðingur og framkvæmdastjóri Keystrike um stafrænt fullveldi Íslands Andri Snær Magnason rithöfundur um myndina Time and Water

time water hm reykjav bandar magnason valdimar samfylkingarinnar andri thorsson gunnar birgisson fimmtudagur
The Allusionist
228. Draculae part 2: Surprises in the Vaults

The Allusionist

Play Episode Listen Later May 25, 2026 36:00


Happy World Dracula Day to all who celebrate! Visit theallusionist.org/draculae2 for more information about the topics in this episode plus a transcript.This is the second episode of the Draculae miniseries, about a literary mystery which came to me via a meme: “Someone translated Dracula into Icelandic, and it took over 100 years for anyone to point out he just made a fanfic rewrite of what he wanted the story to be.”In Draculae part 2, Ásgeir Jónsson explains how he got that Icelandic adaptation of Dracula back into print, to little fanfare - but then Dutch scholar Hans Corneel de Roos set about making an English translation. Following that: like me, Will Trimble also got meme-struck, and that propelled him to get a translation of the Swedish version that begat the Icelandic one.Before listening to this, check out the first episode of the Draculae miniseries explaining the three versions of Dracula: Dracula published by Bram Stoker in 1897; the Icelandic version Makt Myrkranna by newspaper editor Valdimar Ásmundsson, serialised in his newspaper Fyallkonan in 1900-1901; and the Swedish version Mörkrets makter by an author known only as A—e, and serialised in a couple of Swedish newspapers 1899-1900.Sign up at theallusionist.org/donate to fund the continuing existence of this independent podcast. In return, you can join me for regular livestreams where I read relaxingly from my ever-expanding collection of vintage dictionaries, plus behind the scenes info about every episode, membership of the Allusioverse Discord community, and watchalong parties for films and TV shows.Find the Allusionist at youtube.com/allusionistshow, instagram.com/allusionistshow, facebook.com/allusionistshow, @allusionistshow.bsky.social… If I'm there, I'm there as @allusionistshow. Our ad partner is Multitude. If you want me to talk compellingly about your product, sponsor an episode: contact Multitude at multitudeshows.com/ads.This episode is sponsored by: Squarespace, your one-stop shop for building and running your online forever home. Go to squarespace.com/allusionist for a free trial, and get 10 percent off your first purchase of a website or domain with the code allusionist.See Privacy Policy at https://art19.com/privacy and California Privacy Notice at https://art19.com/privacy#do-not-sell-my-info.

The Allusionist
227. Draculae part 1: Enter the Castle

The Allusionist

Play Episode Listen Later May 11, 2026 22:33


A literary mystery came to me via a meme: “Someone translated Dracula into Icelandic, and it took over 100 years for anyone to point out he just made a fanfic rewrite of what he wanted the story to be.” In this first instalment of a short series about three versions of Dracula, we familiarise ourselves with the plots of Dracula published by Bram Stoker in 1897; the Icelandic version Makt Myrkranna by newspaper editor Valdimar Ásmundsson, serialised in his newspaper Fyallkonan in 1900-1901; and the Swedish version Mörkrets makter by an author known only as A—e, and serialised in a couple of Swedish newspapers 1899-1900. Visit theallusionist.org/draculae1 for more information about the topics in this episode plus a transcript.Sign up at theallusionist.org/donate to fund the continuing existence of this independent podcast. In return, you can join me for regular livestreams where I read relaxingly from my ever-expanding collection of vintage dictionaries, plus behind the scenes info about every episode, membership of the Allusioverse Discord community, and watchalong parties for films and TV shows.Find the Allusionist at youtube.com/allusionistshow, instagram.com/allusionistshow, facebook.com/allusionistshow, @allusionistshow.bsky.social… If I'm there, I'm there as @allusionistshow. Our ad partner is Multitude. If you want me to talk compellingly about your product, sponsor an episode: contact Multitude at multitudeshows.com/ads.This episode is sponsored by:• Squarespace, your one-stop shop for building and running your online forever home. Go to squarespace.com/allusionist for a free trial, and get 10 percent off your first purchase of a website or domain with the code allusionist.See Privacy Policy at https://art19.com/privacy and California Privacy Notice at https://art19.com/privacy#do-not-sell-my-info.

Mannlegi þátturinn
kynferðisofbeldi í samböndum ungmenna, Hrafnhildur Reykjalín um gildi og lokakafli mannlegra samskipta

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 53:43


Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því að miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stöðum á landinu þar sem rætt var um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna og það sem þar kom fram á þessum þingum er vægast sagt sláandi. Hrafnhildur Reykjalín er starfandi heilsuráðgjafi á Akureyri, hún er kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Í jákvæðri sálfræði og markþjálfun er unnið markvisst með gildi sem grunn að vellíðan og stefnu í lífinu. Hrafnhildur sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Svo var komið að síðasta skiptinu í bili sem Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar til að ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til að brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki að þjóna okkur. Tónlist í þættinum í dag: Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason Mig dreymir / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Kastað á glæ / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason) Þér við hlið / Regína Ósk Óskarsdóttir (Magnús Þór Sigmundsson, texti Trausti Bjarnason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj gu sj reg magn mig hann halld samb kasta svo akureyri kolbr valdimar markmi hrafnhildur gylfason sigmundsson undanfarna
Mannlegi þátturinn
33. Góð ráð í lokakafla mannlegra samskipta (í bili)

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 16:49


Valdimar Þór Svavarsson kom í síðasta skipti í bili í Mannlega þáttinn til að ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til að brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki að þjóna okkur.

Mannlegi þátturinn
32. Valdimar fer yfir efni vetrarins

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 23, 2026 18:11


Valdimar Þór Svavarsson kom í Mannlega þáttinn í dag í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur.

Mannlegi þátturinn
Ónæmisgallar, upprifjun í mannlegum samskiptum og býflugur í vísindaspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 22, 2026 54:44


Þessa vikuna er vitunarvakning hjá Lind, félagi fólks með ónæmisgalla. En markmið félagsins er að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla. Hrefna Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á ónæmisdeild Landspítalans kom í hljóðver og Guðrún Jóna Hreggviðsdóttir var á línunni frá Ítalíu, en sonur hennar fæddist með ónæmisgalla. Hún deildi með okkur þeirra sögu og Hrefna fræddi okkur um ónæmisgalla, vitundarvakningavikuna og félagið Lind. Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar, í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá ákveðnu afbrigði af býflugum sem eru þrautseigari gegn sníkjudýrum og sýklum og gætu því verið með lausnina til að bjarga býflugnastofninum sem hefur verið í hnignun. Tónlist í þættinum í dag: Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason) Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison) Okkar ástarvor / Björgvin Halldórsson og Sigurjón Brink (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj brink gu halld ekki svo sigurj valdimar landsp hrefna sveitin hreggvi
Mannlegi þátturinn
Minningarsteinninn Eilífð, enn um höfnunarótta og Hrólfur Sæmundsson

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 16, 2026 53:43


Við fræddumst um svokallaðan minningarstein í þættinum, en fjórir ungir menn tóku þátt í frumkvöðlakeppni þar sem þeirra vara var minningarsteinninn Eilífð. Á hverjum og einum steini er QR kóði sem leiðir inn á vefsíðu þar hægt verður að sjá myndir og myndbönd af þeim sem hefur fallið frá. Baldur Orrason Gröndal og Jóel Þeyr Kárason komu í þáttinn og útskýrðu betur fyrir okkur hvernig þetta virkar. Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar á fimmtudögum og fræðir okkur um mannleg samskipti. Síðustu tvo fimmtudaga var hann að tala um höfnunaróttann sem herjar á marga og getur verið snúið að glíma við. Hann hélt áfram á þeim nótum og fýr dýpra í þær í dag. Það eru spennandi verkefni framundan hjá Hrólfi Sæmundssyni óperusöngvara. Hann er að fara að syngja sjálfan Óðinn, í fyrstu heildaruppfærslu Eistlendinga á Niflungahringnum. Æfingar byrja í maí en fáir Íslendingar hafa sungið það hlutverk en það þykir eitt mest krefjandi hlutverk óperubókmenntanna.Við heyrðum í Hrólfi í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Þó líði ár og öld / Björgvin Halldórsson (erlend lag, texti Hrafn Gunnlaugsson) Mamma / Björgvin Halldórsson (Þórunn Franz, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Ég fann þig/Björgvin Halldórsson (Amerískt þjóðlag, texti Jón Sigurðsson) Selja litla / Björgvin Halldórsson (Jón Jónsson frá Hvanná, texti Guðmundur Ingi Kristjánsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Þriðji í höfnunarótta

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 16, 2026 13:55


Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar á fimmtudögum og fræðir okkur um mannleg samskipti. Síðustu tvo fimmtudaga var hann að tala um höfnunaróttann sem herjar á marga og getur verið snúið að glíma við. Hann hélt áfram á þeim nótum og fór dýpra í þær í dag.

Bylgjan
Bítið - þriðjudagur 14. apríl 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 14, 2026 95:14


Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni, ræddi við okkur um ráðstefnu á morgun á vegum Vegagerðarinnar. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ræddi íþróttaiðkun barna og kostnað við hana. Guðmundur Árni, oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði og Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði, ræddu um það sem brennur á íbúum í aðdraganda kosninga. Ragnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð og formaður bæjarráðs, var á línunni og ræddi gjaldskrárlækkanir í Fjarðabyggð. Valdimar Óskarsson frá Keystrike ræddi nýjustu vendingar í gervigreindinni. Kamilla Mía Briem, Stefán Snær Sigurðsson Kaldalóns, Halldóra Mjöll Snorradóttir, Patrekur Sigurðsson og Sunna Björg Sigurðardóttir, ungir frumkvöðlar úr Menntaskólanum við Sund, ræddu um Sjávardjásn, sjávardjásn.is.

mj gu sj stef sn sigur sund halld hafnarfir valdimar briem menntask heimi snorrad fjar vegager
Mannlegi þátturinn
30. Meira um höfnunarótta

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 9, 2026 14:54


Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hélt áfram að fræða okkur í Mannlega þættinum um mannlegu samskiptin. Í dag tók Valdimar upp þráðinn frá því síðast og hélt áfram að tala um höfnunarótta.

Mannlegi þátturinn
Formlegur og óformlegur stuðningur mikilvægur, Barnadjass og enn um höfnunarótta

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 9, 2026 50:32


Við fræddumst í dag um rannsókn sem Þóra Katrín Erlendsdóttir, meistaranemi við í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri vann. En tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun ungmenna af stuðningi í kjölfar sjálfsvígs vinar. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu misst vin í sjálfsvígi. Þóra Katrín var hjá okkur í dag og sagði okkur frá rannsókninni og niðurstöðunum, þar sem til dæmis kom fram mikilvægi formlegs og óformlegs stuðnings. Félagasamtökin Barnadjass standa að hátíðinni Barnadjass í Mosó sem verður haldin í 4. sinn í júní. Þetta er alþjóðleg hátíð þar sem börn á aldrinum 8-16 ára koma fram og spila djass eftir eyranu og spinna. Hátíðin er stofnuð eftir norskri fyrirmynd en listrænn stjórnandi beggja hátíða er Odd André Elveland, norskur djasstónlistarmaður og frumkvöðull í kennslu ungra barna í að spila djass eftir eyranu og spinna. Guðrún Rútsdóttir er formaður félagasamtakanna Barnadjass og hún kom í þáttinn í dag. Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi og stjórnandi Meðvirknipodcastsins kom svo til okkar og hélt áfram að fræða okkur um mannlegu samskiptin. Í dag hélt Valdimar áfram að tala um höfnunarótta. Tónlist í þættinum í dag: Ráðahagur / Moses Hightower (Moses Hightower (Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen & Steingrímur Karl Teague)Texti, Andri Ólafsson & Steingrímur Karl Teague) Pain / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson) Það jafnast ekkert á við jazz / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Er það satt sem þau segja um landann / HLH flokkurinn (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Chess After Dark
#292 Valdimar Víðisson

Chess After Dark

Play Episode Listen Later Apr 1, 2026 93:45


Gestur okkar í kvöld er Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar fyrir Framsóknarflokkinn.Umræðuefni í þættinum:Kosningabaráttan framundanSamstarfið í bæjarstjórnFramsókn í Hafnarfirði og landsmálinFramsókn á landsvísuUppbyggingin í HafnarfirðiStóru áskoranirnarSamgöngumálÁrangur og næstu skrefMenninginÍþróttalífiðBæjarstjórinn og maðurinnRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:KaldiÍslandssjóðirSmáríkiðGrillmarkaðurinnHeimaformKrónanBad MickeyOrka NátturunnarGIGGÓELKOECITLengjanDave&JonsFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.

umr gestur kaldi hafnarfir valdimar frams hafnarfjar
Mannlegi þátturinn
Hugarafl, Guðríður Helgadóttir og garðurinn,Mannlegu Samskiptin

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 26, 2026 53:10


Og þótt veðrið sé með versta móti og viðvaranir eins appelsínugular og þær verða, þá erum við í Mannlega þættinum farin að huga að vorinu sem er rétt handan við hornið. Það er nefnilega kominn tími til að byrja undirbúning fyrir garðyrkjustörf vorsins. Nú er til dæmis gráupplagt að byrja að sá fyrir alls kyns matjurtum og jafnvel sumarblómum. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur hugsar um fátt annað þessa dagana. Við heyrðum í henni. Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum og alla þá sem hafa gengið í gegnum andlegar áskoranir og einnig aðstandendur þeirra. Notendur í Hugarafli móta eigin endurhæfingu og veita öðrum stuðning sem eru í svipuðu ferli. Kjarni starfsins er þekking og reynsla notenda og fagfólks. Við kíktum við hjá samtökunum sem eru staðsett í Síðumúla 6 og ræddum við Auði Axelsdóttur framkvæmdastjóra. Og svo voru það Mannlegu samskiptin með Valdimar Þór Svavarssyni ráðgjafa hjá Fyrsta skrefinu og stjórnandi Meðvirknipodcastsins, í óveðrinu í dag töluðum við um nokkuð sem kallast höfnunarótti. Tónlist í þættinum í dag: Haglél / Mugison (Mugison) Þitt bros / GDRN og Tómas R. Einarsson (GDRN og Tómas R. Einarsson) Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Mannlegi þátturinn
Tannvernd og munnheilsa, samverustundir með gamlar sorgir og meðvirkni og barnauppeldi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 19, 2026 50:00


Tannverndarvikan 2026 er einmitt þessa vikuna, Góð munnheilsa alla ævi er yfirskrift vikunnar í ár. Þó munnheilsa sé auðvitað mikilvæg á öllum stigum lífsins þá er í ár lögð sérstök áhersla á börn og ungmenni og áhrif nikótíns og koffíns á tennur og munnheilsu. Íris Þórsdóttir, tannlæknir í Vestmannaeyjum og nefndarmaður í Fræðslunefnd Tannlæknafélags Íslands kom í þáttinn í dag og sagði betur frá þessu og talaði einnig um munnþurrk hjá eldra fólki, sem getur komið til af margvíslegum orsökum en getur ýtt undir tannskemmdir. Gleym mér ei styrktarfélag var stofnað árið 2013 af þremur konum, Önnu Lísu Björnsdóttur, Þórunni Pálsdóttur og Hrafnhildi Hafsteinsdóttur, en sameiginleg reynsla þeirra af missi á meðgöngu færði þær saman með það að markmiði að styðja betur við foreldra sem missa barn á meðgöngu, í fæðingu og fljótlega eftir hana. Félagið hefur stækkað á þessum árum sem eru liðin síðan en tilgangurinn er enn sá sami. Sigrún Kristínar Valsdóttir kom til okkar í dag og sagði okkur betur frá félaginu, áherslu á gamlar sorgir í samverustundum sem félagið hefur staðið fyrir, hópastarfið og fleira. Svo voru það Mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í dag talaði Valdimar um meðvirkni og barnauppeldi. Þar var af nógu að taka. Tónlist í þættinum í dag: Lover Girl / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) Eitt af blómunum / Benni Hemm Hemm og Páll Óskar (Benedikt Hermann Hermannsson og Páll Óskar Hjálmtýsson) Cairo vibe / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson) Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Andrea Gylfadóttir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj hj krist svo sigr bjarni valdimar vestmannaeyjum valsd andrea gylfad gleym
Mannlegi þátturinn
28. Meðvirkni og barnauppeldi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 19, 2026 14:19


Í mannlegu samskiptunum með Valdimari Þór Svavarssyni í Mannlega þættinum í dag talaði Valdimar um meðvirkni og barnauppeldi. Þar var af nógu að taka.

Mannlegi þátturinn
27. Að loka á foreldri

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 12, 2026 13:31


Valdimar Þór Svavarsson var með mannlegu samskiptiní Mannlega þættinum í dag. Í þetta sinn fjallaði hann um samskipti innan fjölskyldna og það þegar fólk tekur þá ákvörðun að loka á foreldra sína. Hann fór yfir þessi flóknu mál og benti á hversu erfitt það getur verið að dæma annað fólk þegar kemur að til dæmis svona ákvarðana.

Mannlegi þátturinn
26. Nánar um þrjár leiðir sem meðvirkni getur orsakað

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 5, 2026 13:15


Valdimar Þór Svavarssson ráðgjafi kom, eins og alla fimmtudaga í vetur í Mannlega þáttinn í dag og fræddi okkur um mannleg samskipti. Hann náði ekki að klára í síðustu viku þegar hann var að tala um þær þrjár leiðir sem meðvirkni getur leitt fólk inn á. Við munum því aðeins rifja þær upp og hann fer betur yfir þær og hvað er hægt að gera til þess að lenda ekki í öngstræti.

Mannlegi þátturinn
Lausa skrúfan, Karlar í skúrum og mannlegu samskiptin með Valdimari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 26, 2026 53:12


Lausa Skrúfan er vitundarvakning á vegum Grófarinnar Geðræktar á Akureyri. Markmið hennar er að auka meðvitund fólks um að gæta vel að andlegri heilsu sinni, efla forvarnir í geðheilbriðismálum og minnka fordóma gagnvart andlegum veikindum. Enn fremur, að hvetja fólk til þess að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og veita upplýsingar um hvar stuðning er að finna í samfélaginu okkar. Inga Bryndís Árnadóttir og Sonja Rún Sigríðardóttir frá Grófinni sögðu okkur betur frá í þættinum. Við brugðum okkur svo í Helluhraunið í Hafnarfirðinum og kynntumst áhugaverðum félagsskap sem kallar sig Karlar í skúrum. Þetta verkefni er starfrækt á nokkrum stöðum á landinu og er opið fyrir alla karlmenn og gefur þeim stað og stund itl að hittast, spjalla og vinna að ýmsum sameiginlegum verkefnum sem þeir sjálfir ákveða. Þar er unnið í ýmis konar handverki, smíðum, útskurði, járnsmíði, leðurvinnslu og mörgu fleiru. Við fengum að skoða aðstöðuna og ræddum í kaffistofunni þar við Þórarinn Klemensson, Sigurjón Elíasson og Hallgrím Guðmundsson. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í framhaldi af spjallinu síðasta fimmtudag þá tókum við nú upp þráðinn og Valdimar sagði okkur frá þremur leiðum sem meðvirkir einstaklingar nota oft til að bregðast við erfiðleikum í lífinu. Tónlist í þættinum í dag Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Vor við flóann / GÓSS (Leon René, texti Jón Sigurðsson) Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason) Í stóru húsi / Hildur Vala (Halldór Gylfason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
25. Þrjár leiðir sem meðvirkir gjarnan nota

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 26, 2026 13:56


Í dag eins og aðra fimmtudaga í vetur voru mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa í Mannlega þættinum á Rás 1. Í framhaldi af spjallinu síðasta fimmtudag þá tókum við nú upp þráðinn og Valdimar sagði okkur frá þremur leiðum sem meðvirkir einstaklingar nota oft til að bregðast við erfiðleikum í lífinu.

Vikulokin
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Valdimar Víðisson og Helga Þórðardóttir

Vikulokin

Play Episode Listen Later Feb 21, 2026 57:59


Gestir Vikulokanna voru Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, Valdimar Víðisson bæjarstjóri í Hafnarfirði og Helga Þórðardóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins í Reykjavík. Til umræðu voru leikskólamál, barnavernd og veikindaréttur opinberra starfsmanna.

Mannlegi þátturinn
3. Meðvirkni t.d í uppeldi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 13:17


Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var í Mannlega þættinum í dag með það sem við köllum Mannleg samskipti, en þau geta einmitt verið talsvert flókin. Hann hefur fjallað undanfarna fimmtudaga um áföll og afleiðingar þeirra, sem til dæmis hafa áhrif á samskipti. Svo talaði hann um meðvirkni, og í dag ræddi hann meðvirkni til dæmis í uppeldi og þau áhrif sem geta fylgt. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 18. sept. '25

Mannlegi þátturinn
1. Kynning á Mannlegum samskiptum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 12:20


Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi mun vera með okkur í Mannlega þættinum á fimmtudögum í vetur með það sem við köllum Mannleg samskipti. Við kynntumst Valdimari í dag og hvar hans reynsla liggur og fórum með honum yfir það sem hann mun taka fyrir næstu fimmtudaga, til dæmis margar hliðar meðvirkni og í rauninni hvað meðvirkni er. Áföll og afleiðingar áfalla og margt fleira, sem einmitt getur haft áhrif á samskipti okkar við annað fólk, innan fjölskyldna, í ástarsamböndum, á vinnustaðnum og í rauninni út um allt. Mynstur sem við þróum, af ýmsum ástæðum, í æsku fylgja okkur í gegnum lífið og litar öll okkar samskipti við annað fólk. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 4. sept. '25

Mannlegi þátturinn
2. Áföll

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 13:27


Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins, kom í Mannlega þáttinn í dag með það sem við köllum Mannleg samskipti, þar sem við skoðum með honum ýmislegt sem viðkemur mannlegum samskiptum og hvað getur haft áhrif á þau og gert þau flókin. Í dag talaði Valdimar um áföll, sem geta verið gríðarlega margvísleg og fjölbreytt, og áhrif þeirra á okkur, til dæmis í samskiptum okkar við annað fólk, ef við fáum ekki hjálp til að takast á við afleiðingar þeirra. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 11. sept. '25

Mannlegi þátturinn
4. Innra og ytra virði

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 13:33


Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var í Mannlega þættinum í dag það sem við köllum Mannleg samskipti. Hann hefur fjallað undanfarna fimmtudaga um áföll og afleiðingar þeirra, sem til dæmis hafa áhrif á samskipti. Svo talaði hann um meðvirkni, til dæmis í uppeldi og þau áhrif sem geta fylgt. Í dag talaði hann svo um innra og ytra virði okkar og hvernig getur verið misræmi þar á milli. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 25. sept. '25

Mannlegi þátturinn
16. Mannleg samskipti um jól og hátíðirnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 13:12


Mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa voru í dag í Mannlega þættinum og í þetta sinn ræddi hann við okkur um tilfinningalífið í aðdraganda jóla. Jólin eiga auðvitað að vera tími ljóss og friðar og er það vonandi hjá sem flestum. En það er ekki fram hjá því litið að þau geta líka reynst öðrum erfið, af ýmsum ástæðum. Valdimar Þór fór með okkur yfir þetta í dag. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 18.des '25

Mannlegi þátturinn
12. Samskipti við narsissíska einstaklinga

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 12:52


Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi kom í Mannlega þáttinn í dag eins og undanfarna fimmtudaga og hélt áfram að fræða okkur um mannleg samskipti. Í síðustu viku töluðum við um narsissisma og við héldum því áfram í dag, meðal annars hvað er hægt að gera þegar kemur að samskiptum við narsissíska einstaklinga. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 20. nóv. '25

fyrst valdimar samskipti
Mannlegi þátturinn
24. Örmögnun, meðvirkni og öndun

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 13:00


Valdimar Þór Svavarsson kom í Mannlega þáttinn í dag og fræddi okkur um mannlegu samskiptin eins og alla fimmtudaga í vetur. Það í dag talaði hann um örmögnun, meðvirkni og öndun. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 19.feb. '26

Mannlegi þátturinn
17. Mannleg samskipti á áramótum og öðrum tímamótum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 14:25


Svo fengum við Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafa, sem hefur leitt okkur í gegnum mannlegu samskiptin á fimmtudögum í þættinum, enda geta samskipti verið afar flókin. Nú eru að koma áramót og því skoðaði Valdimar ýmislegt sem kemur upp á slíkum tímamótum og hvernig getur verið gott að snúa sér. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 29.des '25

Mannlegi þátturinn
5. Hlutverk í fjölskyldum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 12:48


Valdimar Þór Svavarsson kom í Mannlega þáttinn í dag til að ræða mannleg samskipti, sem geta verið talsvert snúin eins og hefur komið fram í spjalli okkar við hann undanfarna fimmtudaga. Í dag sagði hann okkur frá hlutverkum sem fjölskyldumeðlimir gjarnan raðast í, sérstaklega ef einhvers konar vanvirkni er til staðar. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 2. okt. '25

Mannlegi þátturinn
14. Enn um mörk og markaleysi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 14:45


Valdimar Þór Svavarsson kom í Mannlega þáttinn eins og undanfarna fimmtudaga og við héldum áfram að ræða margbreytileika mannlegra samskipta með honum. Við tókum upp þráðinn frá því í síðustu viku þar sem Valdimar fór yfir mörk og markaleysi og það að setja mörk. Það er um nóg að ræða þegar kemur að því og mannlegum samskiptum. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 4. des. '25

Mannlegi þátturinn
13. Mörk og markaleysi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 13:34


Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi kom í Mannlega þáttinn í dag og hélt áfram að fræða okkur um mannleg samskipti eins og undanfarna fimmtudaga. Síðustu tvær vikurnar var það narsissisminn, nú ræddi hann um mörk og markaleysi. Hvað það er að setja sér mörk, innri og ytri mörk og ýmislegt fleira. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 27. nóv. '25

Mannlegi þátturinn
15. Að setja upp „vegg“

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 11:53


Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi kom í Mannlega þáttinn í dag til að fræða okkur um mannleg samskipti, eins og aðra fimmtudaga í vetur. Í dag hélt hann áfram að tala um mörk og markaleysi. Hvað þýðir það til dæmis að setja upp „vegg“? Fyrst flutt í Mannlega þættinum 11. des. '25

Mannlegi þátturinn
11. Narsissismi og níu leiðir til að greina hann

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 14:07


Valdimar Þór Svavarsson hélt í dag áfram að fara með okkur yfir mannleg samskipti sem geta verið svo flókin. Undanfarna fimmtudaga hefur hann til dæmis frætt okkur um hlutverkin sem fjölskyldumeðlimir falla gjarnan í, samskiptin í ástarsamböndum, af hverju eru sum sambönd langlíf en önnur ekki og margt margt fleira. Í dag fór hann með okkur yfir í narsissisma og níu leiðir til að greina narsissisma. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 13. nóv. '25

Mannlegi þátturinn
9. Áfram um ástarsambönd og grunnur langlífra sambanda

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 13:01


Valdimar Svavarsson ráðgjafi kom í Mannlega þáttinn í dag og við héldum áfram að tala um mannlegi samskipti. Valdimar tók upp þráðinn þar sem hann endaði síðasta fimmtudag, með ástarsambönd, mismunandi þarfir og væntingar og hlutverk sem við göngum í í samböndum. Hann fór svo yfir grunn langlífra sambanda, hvað þarf til að samband verði langlíft og hverjar eru viðvörunarbjöllurnar sem geta komið því úr jafnvægi. yrst flutt í Mannlega þættinum 30. okt. '25

Mannlegi þátturinn
8. Samskipti í ástarsamböndum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 13:16


Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins kom í Mannlega þáttinn í dag og hélt áfram að fræða okkur um mannleg samskipti því þau geta verið flókin. Hann fór með okkur undanfarna fimmtudaga yfir samskipti og hlutverk innan fjölskyldna. En nú var komið að ástarsamböndum, samskiptin geta ekki síður verið flókin þar. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 23. okt. '25

Mannlegi þátturinn
7. Enn um hlutverk innan fjölskyldna

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 12:14


Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi kom í Mannlega þáttinn í dag, eins og aðra fimmtudaga í vetur, með það sem við köllum mannleg samskipti. Í dag hélt hann aðeins áfram að tala um hlutverk í fjölskyldum. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 16. okt. '25

Mannlegi þátturinn
6. Áfram um hlutverk innan fjölskyldna

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 20, 2026 16:23


Eins og aðra fimmtudaga í Mannlega þættinum þá vorum við með mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa í dag. Samskiptin geta verið flókin og Valdimar var að segja okkur síðasta fimmtudag frá hlutverkum sem fjölskyldumeðlimir gjarnan raðast í, sérstaklega ef einhvers konar vanvirkni er til staðar. En hann náði ekki að klára þá umræðu þannig að hann hélt áfram með hlutverkin innan fjölskyldna í þættinum í dag. Fyrst flutt í Mannlega þættinum 9. okt. '25

Mannlegi þátturinn
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins, hvað er sagnfræði og örmögnun og öndun í mannlegu samskiptum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 19, 2026 52:33


Í haust unnu Kópavogsbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins greiningu á áfangastaðnum Kópavogi með það að markmiði að vinna hugmyndir um hvernig hægt sé að efla áfangastaðinn. Verkefnið mun nýtast fyrir framtíðarsýn Kópavogsbæjar í tengslum við ferðaþjónustu og einnig í tenglsum við þróun og markaðassetningu á höfuðborgarsvæðinu. Og það er ekki bara Kópavogur sem Markaðsstofa Höfuðborgarsvæðisins er að skoða heldur hefur hún einnig unnið með Hafnarfjarðarbæ og Seltjarnarnesi. Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn í dag. Hvað er sagnfræði? Þessi spurning er heiti málþings sem Sagnfræðingafélag Íslands og Sagnfræðistofnun stendur fyrir á laugardaginn. Þar munu fimm fyrirlesarar leitast við að svara þessari spurningu sem Sagnfræðingafélagið bar upp fyrir um 20 árum í fyrirlestraröð þar sem sagnfræðingar, listafólk, fjölmiðlafólk og stjórnmálafólk spreyttu sig á spurningunni. Ragnhildur Anna Kjartansdóttir, formaður Sagnfræðingafélags Íslands og Súsanna Margrét Gestsdóttir sagnfræðingur komu til okkar í dag og sögðu frá málþinginu og spreyttu sig á að svara spurningunni, hvað er sagnfræði? Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar í mannlegu samskiptin eins og alla fimmtudaga í vetur. Það í dag talaði hann um örmögnun, meðvirkni og öndun. Tónlist í þættinum í dag Gleðin með þér / Þuríður Sigurðardóttir (lagahöfundur ókunnur, texti Helgi Pétursson) Ég gef þér allt mitt líf / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Jóhann Helgason, texti Jón Sigurðsson) She's Done it Again / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason) Rúllukragapeysan mín / Bítlavinafélagið (Jón Ólafsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

bj hva hva er marka sigur halld svo gle margr helgason valdimar verkefni hafnarfjar gestsd seltjarnarnesi ragnhildur g
Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Valdimar Ingimundarson á leið til Svíþjóðar

Dr. Football

Play Episode Listen Later Feb 6, 2026 86:49


Vikulok Dr. Football með Hjálmari og Gunnari Birgissyni

Mannlegi þátturinn
Haukur Gröndal fimmtugur, jólabók Blekfjelagsins og mannleg samskipti um áramót

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 29, 2025 50:00


Saxófón- og klarínettleikarinn, tónskáldið og útsetjarinn Haukur Gröndal fagnar 50 ára afmæli með stórtónleikum í Norðurljósasal Hörpu annað kvöld. Haukur á að baki yfir þrjátíu ára feril í íslensku og alþjóðlegu tónlistarlífi, þar sem hann hefur skapað sér einstakan sess fyrir frumlega rödd. Við fórum aðeins með honum yfir ferilinn í dag og hann sagði okkur frá tónleikunum. Blekfjelagið er félag meistaranema í ritlist og árlega kemur út bók fyrir jólin sem heitir einfaldlega jólabókin. Þetta er í fjórtanda sinn sem jólabókin kemur út, sú fyrsta kom árið 2012 og þá máttu sögurnar einungis innihalda 100 orð auk titils. Á hverju ári fækkar orðunum um eitt og fyrir vikið mega sögurnar í ár einungis innihalda 87 orð. Í ár er þemað "Kyngja", og samanstendur bókin af örsögum og ljóðum eftir 17 höfunda. Undanfarin ár hafa þau komið í Mannlega þáttinn og lesið upp verkin sín og svo er einnig í ár. Við heyrðum fyrri hluta örsagnanna í dag og svo verður seinni hlutinn á dagskrá í þættinum á morgun. Höfundar í fyrri hluta: Móeiður Helgadóttir, Sigurlína Hermannsdóttir, Sturla Óskarsson, Ásta H. Ólafsdóttir, Jóhannes Árnason, Áslaug Ýr Hjartardóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Vala Hauks. Svo fengum við Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafa, sem hefur leitt okkur í gegnum mannlegu samskiptin á fimmtudögum í þættinum, enda geta samskipti verið afar flókin. Nú eru að koma áramót og því skoðaði Valdimar ýmislegt sem kemur upp á slíkum tímamótum og hvernig getur verið gott að snúa sér. Tónlist í þættinum: Þá komu jólin / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Roy Orbison og Joe Melson, texti Bragi Valdimar Skúlason) A Trip to Florina / Byzantine Silhouette (Byzantine Silhouette) Better Than Snow / Laufey og Norah Jones (Laufey & Norah Jones) Fairytale of New York / The Pogues & Kirsty McColl (Jem Finer & Shane MacGowan) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

trip gu roy orbison sax lov sigur svo sturla haukur helgad valdimar hermannsd samskipti undanfarin sigurl hjartard new york the pogues memfismaf rut kristj haukur gr
Mannlegi þátturinn
Hinrik Örn og hátíðarmaturinn og tilfinningalífið í aðdraganda jóla með Valdimari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 18, 2025 50:00


Við helltum okkur í sælkera- og hátíðarmatarspjall í dag með sérfræðingi. Hinrik Örn Lárusson er einn færasti matreiðslumaður landsins. Hann er nánast alinn upp í atvinnueldhúsi, en fjölskylda hans rak Hótel Heklu og hann tók sínar fyrstu kokkavaktir sem nemi 15 ára á Hótel Sögu. Hann hefur keppt fyrir hönd Íslands var matreiðslumaður ársins á íslandi 2024 og vann evrópukeppnina 2025. Í dag rekur hann með félögum sínum Sælkerabúðina, Lux veitingar og nýja veitingastaðinn Brasa í Turninum á Smáratorgi. Við ræddum við Hinrik um hátíðarmatinn, hvernig á að hantera hinar ýmsu tegundir kjöts, sósurnar og bara ýmislegt sem viðkemur hátíðarmatnum. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í dag ræddi hann við okkur um tilfinningalífið í aðdraganda jóla. Jólin eiga auðvitað að vera tími ljóss og friðar og er það vonandi hjá sem flestum. En það er ekki fram hjá því litið að þau geta líka reynst öðrum erfið, af ýmsum ástæðum. Valdimar Þór fór með okkur yfir þetta í dag. Tónlist í þættinum í dag: Jólin með þér / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Himnasending / Eivör Pálsdóttir og Stefán Hilmarsson (Odd Norstoga, texti Kristján Hreinsson) Aðfangadagskvöld / Helga Möller (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Mannréttindi í geðheilbrigðismálum, ný talsetning á fyrstu íslensku talmyndinni og mannleg samskipti

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 11, 2025 50:00


Í gær var Alþjóðlegi mannréttindadagurinn og af því tilefni stóð Geðhjálp fyrir opnu samtali á Facebook síðu samtakanna þar sem Oddur Ástráðsson lögmaður svaraði spurningum er snúa að mannréttindum í geðheilbrigðisþjónustu. Oddur kom til okkar í dag og sagði okkur frá því helsta sem þar var rætt, hvað hafi brunnið mest á þeim sem sendu inn spurningar, en þar voru frelis- og sjálfræðissviptingar fyrirferðamiklar. Svo komu hingað hjónin Þórhildur Þorleifsdóttir og Arnar Jónsson en þau koma bæði að því að nýrri raddsetningu á fyrstu íslensku leiknu talmyndina í fullri lengd, Milli fjalls og fjöru, eftir Loft Guðmundsson frá 1949. Kvikmyndasafn Íslands hefur gert kvikmyndina upp og endurhljóðsett hana í samstarfi við RÚV. Þórhildur leikstýrir talsetningunni og Arnar er einn þeirra leikara sem ljá raddir sínar. Myndin verður frumsýnd á sunnudaginn í Bíó Paradís undir merkjum Bíóteks Kvikmyndasafnsins. Að lokum voru það mannlegu samskiptin, Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var hjá okkur í dag og hélt áfram að tala um mörk og markaleysi. Hvað þýðir það til dæmis að setja upp „vegg“? Tónlist í þættinum í dag: Hvít jól / Rúnar Júlíusson (Irving Berlin, texti Stefán Jónsson) Wonderful Christmastime / Paul McCartney (Paul McCartney) Happy Xmas (War is Over) / John Lennon og Plastic Ono Band (John Lennon) Christmas Time is Here Again / Ringo Starr (Paul McCartney, John Lennon, George Harrison & Ringo Starr) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Leikstjórar Skaupsins, Anna Sigga og Soffía og enn um mörk og markaleysi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 4, 2025 54:15


Tíminn flýgur, jólin nálgast óðfluga og eftir þau eru áramótin handan hornsins. Upptökur á Skaupinu hafa staðið yfir og klárast fljótlega og við ákváðum að taka aðeins púlsinn á því hvernig gengur. Allan Sigurðsson og Hannes Þór Arason eru leikstjórar Skaupsins í ár. Þeir hafa báðir talsverða reynslu úr leikstjórn og framleiðslu grínefnis fyrir sjónvarp. Við kynntumst þeim aðeins betur í dag og heyrðum hvernig gengur með Skaupið í ár. Tvíeykið Soffía og Anna Sigga voru víðfrægar í kringum 1960 og skipuðu sér þá í hóp skemmtikrafta dúetta eins og Baldur og Konni ofl. Þær voru jafnframt meðal allra fyrstu barnastjarna Íslandssögunnar. Þær Soffía Árnadóttir og Sigríður Anna Þorgrímsdóttir voru ungar að árum þegar þær urðu stjörnur í íslenskri dægurlagamenningu. Við fundum viðtal við þær stöllur frá áttunda áratuginum og þá vorru þær orðnar ungar mæður og voru þarna að hittast í fyrsta skipti í 15 ár þar sem þær minntust þessara tíma. Valdimar Þór Svavarsson var svo hjá okkur eins og undanfarna fimmtudaga og við héldum áfram að ræða margbreytileika mannlegra samskipta með honum. Við tókum upp þráðinn frá því í síðustu viku þar sem Valdimar fór yfir mörk og markaleysi og það að setja mörk. Það er um nóg að ræða þegar kemur að því og mannlegum samskiptum. Tónlist í þættinum í dag: Ég hlakka svo til / Lón (Gianni Bella, texti Jónas Friðrik Guðnason) Rudolph the Red-nosed Reindeer / Ella Fitzgerald (Johnny Marks) Órabelgur / Soffía og Anna Sigga (Árni Ísleifsson, texti Númi Þorbergsson) Komdu niður / Soffía og Anna Sigga (Jón Sigurðsson) Santa Claus is Coming to Town / Dolly Parton (Fred J. Coots & Haven Gillespie) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Sesselía, Ester og Nína fyrir norðan, íslensk máltækni og mörk og markaleysi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 27, 2025 52:20


Við fengum heimsókn frá þremur rithöfundum í hljóðver RÚV á Akureyri, ungar konur sem eiga það sameiginlegt að vera allar að gefa út sínar fyrstu bækur og þær hafa þann háttinn á að vera saman í því að kynna þær. Þær sögðu okkur frá ferlinu að skrifa bækurnar og lásu svo allar stutta kafla úr bókum sínum, þ.e. Sesselía Ólafs úr bók sinni Silfurberg, Ester Hilmarsdóttir úr bók sinni Sjáandi og Nína Ólafsdóttir úr bók sinni Þú sem ert á jörðu. Við töluðum svo við Irisi Eddu Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni við HÍ og talmeinafræðing við Landspítalann. Hún og samstarfsfólk hennar vinna í mörgu áhugaverðu, meðal annars með því að nýta nýjustu tækni sem við ætlum að fengum hana til að segja okkur frá í dag. Hvernig talgreiningarforrit nýtast, hvernig raddupptökur geta nýst til að skima eftir röskunum og sjúkdómum og meta ávinning meðferðar. Auk þess fræddi hún okkur um íslenskar tölvuraddir, risamállíkön og átak sem er framundan í að safna röddum til að nútímatæknin skilji betur íslensku og þar af leiðandi nýtist betur sem greiningartæki. Svo voru það Mannlegu samskiptin, Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var aftur hjá okkur, eins og undanfarna fimmtudaga. Síðustu tvær vikurnar var það narsissisminn, nú ræddi hann um mörk og markaleysi. Hvað það er að setja sér mörk, innri og ytri mörk og ýmislegt fleira. Tónlist í þættinum í dag: Á Akureyri / Óðinn Valdimarsson (Óðinn Valdimarsson) Út á stoppustöð / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) Handle With Care / Traveling Wilburys (Travelin Wilburys) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Krabbameinsfélagið Framför, kynbundinn tekjumunur lífeyris og narsisísk samskipti

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 20, 2025 50:00


Það er blár nóvember, þ.e.a.s. í þessum mánuði er vitundarvakning um blöðruhálskirtilskrabbamein hjá körlum. Við kynntum okkur helstu upplýsingar um það og krabbameinsfélagið Framför í þættinum í dag, en Guðmundur Páll Ásgeirsson formaður og Hólmfríður Sigurðardóttir varaformaður komu í þáttinn og sögðu okkur frá starfi félagsins, Makafélaginu Traustir makar og fleiru. Hvað tekur við þegar starfsævinni lýkur og eftirlaunaaldri er náð? Tekjumunur milli kvenna og karla helst ævina á enda og konur fá ekki bara lægri laun en karlar á vinnumarkaði heldur einnig lægri lífeyri. Á málstofu fyrr í morgun fóru sérfræðingar yfir tölulegar upplýsingar um stöðu kynjanna, þar var fjallað um lífeyriskerfið út frá jafnréttissjónarmiðum og velt upp möguleikum til að jafna leikinn. Steinunn Bragadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ, kom í þáttinn og sagði okkur frá erindi sem hún hélt á málstofunni þar sem teknar voru saman tölur um tekjur kvenna og karla á ellilífeyrisaldri. Hrafn Úlfarsson, sérfræðingur frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna, kom með Steinunni í þáttinn og fór yfir mun á lífeyrisgreiðslum til karla og kvenna hjá sjóðnum, hver þróunin hefur verið og framtíðarhorfur. Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi var svo hjá okkur í dag eins og undanfarna fimmtudaga og hélt áfram að fræða okkur um mannleg samskipti. Í síðustu viku töluðum við um narsissisma og við héldum því áfram í dag, meðal annars hvað er hægt að gera þegar kemur að samskiptum við narsissíska einstaklinga. Tónlist í þættinum i dag: Eingetið ljóð / Bjartmar Guðlaugsson (Bjartmar Guðlaugsson) I Would Run Away With You / Bambaló (Kristjana Stefánsdóttir) Landleguvalsinn / Haukur Morthens (Jónatan Ólafsson, texti Númi Þorbergsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

gu hva lagi framf sigur valdimar hrafn samskipti steinunni bjartmar gu krabbameinsf
Mannlegi þátturinn
Nýtt meðferðarúrræði fyrir kvíðaraskanir, Brauðtertudagurinn og narsissismi í mannlegum samskiptum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 13, 2025 50:00


FLIKK er nýtt meðferðarúrræði fyrir börn með kvíðaraskanir og foreldra þeirra. Úrræðinu er ætlað að veita börnum aðstoð mun fyrr en ella, stytta biðtíma og sömuleiðis minnka kostnað fyrir heilbrigðiskerfið. Um er að ræða internetmeðferð fyrir foreldra barna með kvíðaraskanir. Meðferðin byggir á hugrænni atferlismeðferð (HAM) þar sem foreldrar fá aðstoð frá sálfræðingi í gegnum meðferðina með það að markmiði að þeir læri aðferðir HAM til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíðavanda. Brynjar Halldórsson, dósent við sálfræðideild HR og Anna Sigríður Islind, prófessor við tölvunarfræðideild HR, komu í þáttinn og sögðu frá. Við erum nýbúin að fagna degi kleinunnar en í dag er komið að degi brauðtertunnar. Brauðtertan heldur velli og hefur eiginlega verið á uppleið síðasta áratuginn. Friðrik V Hraunfjörð, eða Friðrik fimmti, eins og hann er oft kallaður, kom í þáttinn í dag og með honum kom Erla Hlynsdóttir frá Brauðtertufélaginu Erlu og Erlu, sem er félag áhugafólks um brauðtertur á Facebook. Valdimar Þór Svavarsson hélt í dag áfram að fara með okkur yfir mannleg samskipti sem geta verið svo flókin. Undanfarna fimmtudaga hefur hann til dæmis frætt okkur um hlutverkin sem fjölskyldumeðlimir falla gjarnan í, samskiptin í ástarsamböndum, af hverju eru sum sambönd langlíf en önnur ekki og margt margt fleira. Í dag fór hann með okkur yfir í narsissisma og níu leiðir til að greina narsissisma. Tónlist í þættinum í dag: Staldraðu við / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) Hann gat ekki setið kyrr / Rakel Sif Sigurðardóttir(Karl Olgeirsson og Karl Frid, texti Olgeir Kristjónsson) Sykur rjómi / Baggalútur(Bragi Valdimar Skúlason, texti Káinn) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

ham hann fyrir brau egill valdimar anna sigr baggal erlu sykur undanfarna valgeir gu
Mannlegi þátturinn
Ofbeldi gegn eldri borgurum, rannsóknir á barnamat og mannleg samskipti með Valdimari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2025 53:34


Við fræddumst um ofbeldi gegn eldri borgurum í dag í kjölfar málþings sem Landsamband eldri borgara stóð fyrir um hvernig hægt er að tryggja öryggi eldri borgara og þar sem varpað var ljósi á algengi ofbeldis gegn eldri borgurum á Íslandi. Þeir Björn Snæbjörnsson og Sigurður Ágúst Sigurðsson skrifuðu grein á visir.is þar sem þeir fóru yfir það sem kom fram á þinginu og þeir komu einmitt til okkar í dag og sögðu okkur frá því. Í nýjasta tölublaði af Neytendablaðinu er sjónum beint að yngstu neytendunum. Eðli máls samkvæmt njóta börn og unglingar meiri neytendaverndar en þau sem eldri eru en því miður er þó víða pottur brotinn. Systursamtök Neytendasamtakanna í Noregi og Bretlandi birtu nýlega rannsóknir sem sýna að barnamatur í verslunum er ekki alltaf eins hollur og fólk heldur og þetta kemur mörgum foreldrum í opna skjöldu því þeir treysta því að strangar reglur gildi um barnamat. Maukaður matur í skvísum telur nú um þriðjung alls barnamatar í verslunum og fingramatur, sem svo er kallaður, nýtur einnig vaxandi vinsælda. Sérfræðingar í næringu ungbarna, erlendis sem hérlendis, hafa áhyggjur af þróuninni, Brynhildur Pétursdóttir er ritstjóri Neytendablaðsins og hún sagði okkur betur frá þessum rannsóknum á barnamat í þættinum í dag. Valdimar Svavarsson ráðgjafi kom til okkar í dag og við héldum áfram að tala um mannlegi samskipti. Valdimar tók upp þráðinn þar sem hann endaði síðasta fimmtudag, með ástarsambönd, mismunandi þarfir og væntingar og hlutverk sem við göngum í í samböndum. Hann fór svo yfir grunn langlífra sambanda, hvað þarf til að samband verði langlíft og hverjar eru viðvörunarbjöllurnar sem geta komið því úr jafnvægi. Tónlist í þættinum: Það þarf fólk eins og þig / Rúnar Júlíusson (Buck Owens, texti Rúnar Júlíusson) Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) It's a Good Day / Peggy Lee (Peggy Lee & Dave Barbour) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Dr. Football
Doc án landamæra - Þú verður bara áfram hjá okkur Valdimar

Dr. Football

Play Episode Listen Later Sep 30, 2025 75:01


Doc, Ragnar Bragi og Sigurður Bond á þriðjudegi.

Stuff You Missed in History Class
The Skaftáreldar, or Laki Fissure Eruption

Stuff You Missed in History Class

Play Episode Listen Later Jul 17, 2024 46:06 Transcription Available


The Laki Fissure Eruption was a volcanic event in Iceland in 1783 lasted for months, leading to the deaths of thousands of people and affecting the climate in a lot of the world. Research: “Laki Fissure Eruption, 1783.” URI Graduate School of Oceanography. https://volcano.uri.edu/lava/LakiEruption/Lakierupt.html Barone, Jennifer. “World Versus the Volcano.” Discover. Mar 2007, Vol. 28 Issue 3, p20-20. Brahic, Catherine. “Giant eruptions in Iceland led to Nile famine.” New Scientist. 11/23/2006. https://www.newscientist.com/article/dn10649-giant-eruptions-in-iceland-led-to-nile-famine/ Britannica, The Editors of Encyclopaedia. "Laki". Encyclopedia Britannica, 16 Oct. 2023, https://www.britannica.com/place/Laki. Accessed 2 July 2024. Casey, Joan A. et al. “Sun smoke in Sweden: Perinatal implications of the Laki volcanic eruptions, 1783–1784.” Epidemiology. 2019 May ; 30(3): 330–333. doi:10.1097/EDE.0000000000000977. Grattan, John and Mark Brayshay. “An Amazing and Portentous Summer: Environmental and Social Responses in Britain to the 1783 Eruption of an Iceland Volcano.” The Geographical Journal , Jul., 1995, Vol. 161, No. 2 (Jul., 1995). Via JSTOR. https://www.jstor.org/stable/3059970 Grattan, John et al. “Modelling the distal impacts of past volcanic gas emissions. Evidence of Europe-wide environmental impacts from gases emitted during the eruption of Italian and Icelandic volcanoes in 1783.” Quaternaire Année 1998  9-1  25-35. https://www.persee.fr/doc/quate_1142-2904_1998_num_9_1_2103 Gunnarsdóttir, Margrét. “Facing natural extremes: The catastrophe of the Laki eruption in Iceland, 1783–84.” 1700-tal: Nordic Journal for Eighteenth-Century Studies, 19 (2022). 72–93. https://doi.org/10.7557/4.6611 Harvard Map Collection. “Laki, 1783-1784.” A Exhibition in Pusey Library from 14 Dec 2016 to 19 April 2017. https://archive.blogs.harvard.edu/wheredisasterstrikes/volcano/laki-1783-1784/ Jackson, E.L. “The Laki Eruption of 1783: impacts on population and settlement in Iceland.” Geography , January 1982, Vol. 67, No. 1 (January 1982). https://www.jstor.org/stable/40570468 Karlsson, Gunnar; Kristinsson, Valdimar and Matthíasson, Björn. "Iceland". Encyclopedia Britannica, 3 Jul. 2024, https://www.britannica.com/place/Iceland. Accessed 3 July 2024. Kleeman, Katrin. “A Mist Connection: An Environmental History of the Laki Eruption of 1783 and Its Legacy.” Historical Catastrophe Studies. Walter de Gruyter GmbH. 2023. Kleemann, Katrin. “Telling Stories of a Changed Climate.” RCC Perspectives , No. 4, COMMUNICATING THE CLIMATE: From Knowing Change to Changing Knowledge (2019) Via JSTOR. https://www.jstor.org/stable/10.2307/26760163. Kleemann, Katrin. “The Laki Fissure eruption, 1783-1784.” Encyclopedia of the Environment. 1/14/2020. https://www.encyclopedie-environnement.org/en/society/laki-fissure-eruption-1783-1784/ Klemetti, Erik. “Local and Global Impacts of the 1783-84 Laki Eruption in Iceland.” Wired. 6/7/2013. https://www.wired.com/2013/06/local-and-global-impacts-1793-laki-eruption-iceland/ Najork, Daniel. “Jón versus the Volcano: Reading an Eighteenth-Century Icelandic Priest's Account of a Moment of Crisis in the midst of the COVID-19 Pandemic.” Medievalist.com. https://www.medievalist.com/articles/strongjn-versus-the-volcano-an-eighteenth-century-icelandic-priests-account-of-a-moment-of-crisisstrong National Science Foundation. “Tree rings and Iceland's Laki volcano eruption: A closer look at climate.” 2/3/2021. https://new.nsf.gov/news/tree-rings-icelands-laki-volcano-eruption-closer Oman, Luke. “High-latitude eruptions cast shadow over the African monsoon and the flow of the Nile.” Geophysical Research Letters. 9/30/2006. https://doi.org/10.1029/2006GL027665 Penn State. “Benjamin Franklin: Politician, Inventor, Climatologist.” https://www.e-education.psu.edu/rocco/node/1990 The Economist. “The summer of acid rain.” 12/19/2007. https://www.economist.com/christmas-specials/2007/12/19/the-summer-of-acid-rain White, Gilbert. “The Natural History of Selborne.” January 1st, 1788. https://www.gutenberg.org/cache/epub/1408/pg1408-images.html Wieners, Claudia E. “Haze, Hunger, Hesitation: Disaster aid after the 1783 Laki eruption.” Journal of Volcanology and Geothermal Research. Volume 406, 15 November 2020. https://www.sciencedirect.com/science/article/abs/pii/S0377027319305220 Witze, Alexandra. “Island on Fire: Societal Lessons From Iceland's Volcanoes.” Natural Hazards Observer Volume XL - Number 1 Island on Fire. 9/28/2015. https://hazards.colorado.edu/article/island-on-fire-societal-lessons-from-iceland-s-volcanoes See omnystudio.com/listener for privacy information.