Hlaðvarpið Trú og Líf snýst um að ræða áhrif trúarinnar á lífið í heild sinni og hvernig Jesús Kristur, Biblían og kirkjan hans umturnar hugsunarhætti og lifnaðarhætti á praktískan hátt. Við leitumst við að vaxa í þekkingu á Guði með því að glíma við spurningar, vaxa í því að elska Guð, og að líkjast honum í okkar daglega lífi. Ef þú ert Kristinn einstaklingur sem hefur áhuga á því að vaxa í trú þinni þá er þetta hlaðvarp fyrir þig, og líka ef þú ert efasemdarmanneskja með miklar spurningar og efasemdir en ert tilbúin(n) að taka tíma til að skilja trú okkar betur þá ertu meira en velkominn.
Oft ertu með kristið fólk með mjög mismunandi skoðanir á hvað það þýðir að dæma og hvenær eða hvort það eigi að vera að dæma yfir höfuð sem kristið fólk, Gunnar og Svava taka þetta mikilvæga umræðuefni fyrir í seinasta þættinum af 5 seríu.
Séra Sindri hefur verið vinsæll á TikTok en það var sent á okkur myndband frá honum fyrir um ári núna þar sem var mælt með að gera svar við þessu, svo hér kemur það, betra seint en aldrei! :)
Það er nóg af lögum í Gamla Testamentinu, en afhverju fylgjum við bara sumum lögmálum þar og ekki öðrum? Og nú einblýnum við sérstaklega á hvíldardaginn.
Oft notum við orð án þess að skilgreina það mikið, hvernig lítur það út fyrir okkur að stíga út í trú? Hebreabréfið 11 og 12 er með fullt af svörum og dæmum fyrir okkur :)
Eru spámenn ennþá til í dag? Ef svo er afhverju er ekkert bætt við ritninguna síðustu 2000 ár, og hvað er eiginlega spámaður eða spákona samkvæmt Biblíunni? Gunni og Svava demba sér í þetta skemmtilega umræðuefni.
Þessa vikuna er spurning sem margir hafa mögulega ekki velt fyrir sér, en Gunnar og Svava demba sér í að pæla í því hvort kristin manneskja geti tapað hjálpræði sínu, sem krefst þess meðal annars að við ræðum almennilega um hvað það er að vera kristinn.
Spurning sem hefur vakið fyrir mörgum sem finna sig í Kristinni trú, Gunni og Svava demba sér í Biblíuna.
Samhengi breytir ótrúlega hvernig við skiljum og bregðumst við aðstæðum, Gunnar og Svava ræða hvernig samhengi Biblían mælir með að við höfum á okkar líf í heild sinni og hvernig það hefur áhrif á okkar daglega líf.
Margir með mjög mismunandi skoðanir á þessu, Gunni og Svava reyna sitt besta að gefa þér góð og Biblíuleg ráð :)
Við skulum ræða eitt sem er eiginlega aldrei rætt um í kristnum kirkjum.
Gunni og Svava spjalla um Guð og alheiminn.
Oft er mikill fókus á að koma fólki inn í trúnna, en hvað á að gera eftir að það skref er tekið?
Enn meira sem við lærum af Jesú um heilbrigð mörk! Ef þú ert með spurningar þá er hægt að senda þær inn hér: https://www.loftstofan.church/tru-og-lif
Hvað getum við lært af Jesú um heilbrigð mörk? Fullt.
Mér var bennt á þær hræðilegu fréttir að boðorðunum fer fækkandi, hvað er í gangi!? Gunni er einn í dag að tala um þessa hluti, en greinin sem við vitnum í er hér: https://www.visir.is/g/20222323874d/ekki-lengur-strangt-til-tekid-bannad-ad-girnast-konu-naungans
Ertu með efasemdir, hættu því! Hefuru heyrt það? Það er ekki gott, við ræðum hvar er gott að ræða efasemdirnar þinar í þættinum í dag! Sendu inn spurningar á www.loftstofan.church/tru-og-lif
Hveru eru einkenni sem þú leitar að í kirkju? Gunni og Svava demba sér í þetta.
Er eitthvað sérstakt sem að maður ætti að hafa í huga þegar maður er að leita sér að kirkju? Er það tónlistin sem skiptir mestu máli? Prédikanir? Barnastarf? Svava kemur með svörin.
Hver eru einkenni trúarofbeldi og hver eru bestu viðbrögðin við því? Gunni fer í málið einn og einsamall á ferð.
Þarf að mæta í kirkju? Er það synd að mæta ekki á samkomur? Hvað hefur Biblían að segja um þessa hluti?
Er munur á gleði og hamingju eins og margir hafa sagt, og ef svo er, hver er sá munur? Hvað hefur Biblían að segja um gleði og hefur hún öðruvísi viðhorf heldur en önnur trúarbrögð og heimsviðhorf? Gunnar og Svava demba sér í þetta.
Hvað er skírn? Afhverju ætti fólk að skíra sig? Hver ætti að láta skírast? Hvenær ætti einstaklingur að skírast? Hvar ætti einstaklingur að skírast og hvernig? Er það með því að skvetta vatni á ungbörn, eða eitthvað öðruvísi? Gunnar og Svava leitast eftir því að gefa svör við þessum spurningum :)
Stundum koma vers sem er erfitt að skilja, stundum eru þau notuð og túlkuð á rosalega skrítinn hátt af mörgum útaf því að það er erfitt að skilja þau. Gunni og Svava demba sér í þessa skemmtilegu pælingu.
Hver er munurinn á persónulegum skoðunum og Biblíulegum sannfæringum? Hvernig er hægt að greina muninn þar á, og hvernig eigum við eiginlega að nálgast aðra kristna sem deila ekki okkar persónulegum skoðunum sem spretta upp frá Biblíulegum sannfæringum?
Er Guð egóisti eða sjálfhverfur fyrir það að heimta lofgjörð og ást okkar? Gunni og Svava hafa velt þessu eitthvað fyrir sér og gera sitt besta að veita svör.
Jæja... Áður en maður giftir sig gerist margt, en hvernig á maður að hafa kristið viðhorf á samband sitt við kærustu eða kærasta? Er eitthvað sem Biblían hefur um þetta að segja og er eitthvað sem gerir Kristna viðhorfið á sambönd frábrugðið öðrum viðhorfum?
Þetta er pæling sem hefur verið frá frumkirkjunni, hvernig getur verið að Guð Gamla Testamentisins getur verið Jesús þegar það lítur allt út fyrir það að Guð er fullur af Náð í NT en fullur af reiði og dóm í GT. Gunni og Svava demba sér í þessa mikilvægu spurningu.
Afhverju skrifar Guð ekki bara á himininn að hann sé til? Afhverju talar hann ekki bara við mig með bókstaflegri röddu eins og hann gerði stundum í Biblíunni? Þetta er spurning sem margir pæla í og Svava og Gunni reyna að einhverju leiti að hjálpa þeim sem gætu verið að pæla í þessu.
Við erum umkringd slæmum fréttum allan daginn út og inn, hvernig getur þá verið að við búum í heimi sem er skapaður af góðum og almáttugum Guði? Þetta er pælingin sem að Svava og Gunnar demba sér út í þessa vikuna.
Hefur þú velt fyrir þér afhverju kristnir eru svona öruggir með að segja að það sé bara einn réttur Guð þrátt fyrir fjölda annarra trúarbragða í heiminum? Ef þú vilt vita svarið, komdu þá og hlustaðu á Trú og Líf á meðan þú sötrar morgunbollann :)
Eru það bara forstöðumenn, prestar eða lofgjörðarbandið sem fær að þjóna Guði, eða getum við lofað hann og þjónað honum í hversdagsleikanum líka?
Var það Konstantín Keisari sem ákvarðaði hvað er í Biblíunni og hvað ekki? Ef ekki hann, hver þá!? (DÚRUMM)
Í þættinum ræða Gunnar og Svava um helvíti og erfiðar spurningar sem koma upp í hugann þegar rætt um þetta alvarlega viðfangsefni.
Margir sérfræðingar, heimspekingar og guðfræðingar hafa velt þessari spurningu fyrir sér í mörg hundruð ár, örvæntið eigi, Gunni og Svava koma loksins með loka svarið!
Hversu góður þarftu að vera til að vinna þér inn fyrir himnaríki!? Gunni og Svava ræða um náðina, hvað hún kennir okkur um synd, um von okkar og um heilagleika Guðs.
Hvað er synd!? Eigum við að tala um hana? Er það bara fyrir fólk sem dílar við sjálfshatur eða þunglyndi? Erum við Farísear ef við spjöllum of mikið um synd? Og afhverju erum við svo lítið að tala um synd þegar Biblían talar mjög mikið um hana? Gunnar og Svava demba sér í djúpu spurningar lífsins!
Kirkja, hvað er það, hvaðan kom orðið, hvernig hefur hugtakið breyst og hvernig var hugsað um kirkju í byrjun? Gunnar og Svava svara stóru spurningum lífsins.
Gunnar, Svava og Inga María (SURPRISEEEEE) tala um Biblíulestur, einbeitingarleysi, afhverju við ættum að leitast í að þekkja Ritningarnar og leiðir til þess að gerast betri í því.
Í þættinum ræða Gunnar og Svava um bók mánaðarins Parenting eftir Paul David Tripp. Farið er í gegnum nokkur biblíuvers sem að Paul nefnir í bókinni sinni til þess að hjálpa foreldrum að horfa á uppeldið í ljósi fagnaðarerindisins.
Kynlíf hefur verið mikið í umræðunni í vikunni bæði innan kirkjunnar og einnig í samfélaginu, en við vildum taka fyrir hvert Biblíulega viðhorfið er gagnvart kynlífi, og bregðast við spjalli úr kirkjucastinu varðandi kynlíf.
Gunni og Svava taka fyrir Tactics bókina sem þau ákvaðu að lesa yfir mánuðinn. Bókin fjallar hvað helst um skipun allra kristinna manna að vera reiðubúin að gefa rök fyrir voninni sem í þeim er. Hvernig lítur það út, og þá sérstaklega fyrir þá einstaklinga sem hafa ekki öll svörin og vita ekki hvar eigi að byrja.
Fellur kærleikurinn nokkuð úr gildi? Þú getur komist að því með því að hlusta á þáttinn. Eða með því að lesa Biblíuna. Best að gera bæði.
Biblían talar rosalega mikið um peninga, og oft eru margir prédikarar og kennarar sem annaðhvort vilja lítið tala um það eða tala um þetta málefni á mjög undarlegan hátt, en loksins kemur hér fullkomin umræða um peninga frá Biblíulegu sjónarmiði.
Matteus 28:18-20 segir okkur að gera lærisveina, en hvernig lítur það út, hvernig stöndum við okkur í því sem nútíma kirkjan og hvað gætum við gert öðruvísi?
Er einhver munur á kristilegum hjónaböndum og öðrum? Og ef svo er, hver er hann?
Bók mánaðarins var "A Praying Life" eftir meistarann Paul Miller, en hún fjallaði auðvitað um bænina, og dílar í raun mikið við trú í heimi sem er fullur af tortryggni, Gunnar er því miður einn í þessum þætti en gerir sitt besta að reyna að ræða þetta á skemmtilegan og uppbyggjandi máta.
Það eru mörg mismunandi viðhorf á raunir í dag, og ekki bara á milli trúarbragða heldur jafnvel innan kristinnar trúar, Gunnar og Svava demba sér í hvað þau hafa lært í gegnum raunirnar sem þau hafa gengið í gegnum og hvað Biblían segir um raunir.
Ef Guð er kærleikur afhverju eru svona mörg stríð í Gamla Testamentinu? Við fengum e-mail á gunnar@loftstofan.is sem við tökum fyrir í dag, vonandi hjálpar þetta að auka skilning og efla trú :)
Hvernig á hin kristna trú að líta út? Á hún að snúast um staðsetningar, hugmyndafræðilega vitneskju eða hefðir, eða hafði Jesús eitthvað meira í huga þegar hann kenndi, lifði sínu lífi, dó og veitti okkur eilífa von með sinni upprisu? Hvernig getum við leitast eftir því að elska Guð, ekki bara með hjarta okkar, sál okkar og huga okkar, heldur líka styrk, okkar von er að þetta hlaðvarp hjálpi þér í því.