village in Kermanshah, Iran
POPULARITY
Garðyrkjubændur geta fengið allt að 15 milljóna króna styrk úr loftslags- og orkusjóði vegna fjárfestinga í orkusparandi tækni, LED-ljósum, tölvu- og stýribúnaði og gardínukerfum. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð um styrkina sem geta numið allt að 40% af heildarkostnaði við fjárfestingu, en þó að hámarki 15 milljónir. Axel Sæland er formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands og hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá stöðunni. Margir hafa horft á þáttaröðina um söngvaskáldið Leonard Cohen sem sýnd var nýlega í sjónvarpinu og er enn aðgengileg í spilaranum á ruv.is. Þar er rifjað upp tímabil í lífi söngvarans þegar hann var við það að slá í gegn og sambúð hans með hinni norsku Marianne. Söngvarinn og lagasmiðurinn Daníel Hjálmtýsson hefur sungið lög Leonard Cohen og vakið athygli fyrir góða túlkun. Daniel og hljómsveit hans voru til dæmis þau fyrstu til að flytja síðustu plötu Leonard Cohen, You Want it Darker, í heild sinni í IÐNÓ árið 2019. Nú ætlar Daníel að syngja lög Leonard Cohen í Hvalsneskirkju, Akraneskirkju og í Djúpinu í Reykjavík í lok maímánaðar og hann kom í þáttinn og fræddi okkur um Cohen. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Védís Eva Guðmundsdóttir, hún er menntaður lögfræðingur og hefur starfað sem slíkur erlendis og hér á landi, en í dag rekur hún frönsku sælkeraverslunina Hyalin á Skólavörðustíg, ásamt eiginmanni sínum og er sest aftur á skólabekk, í þetta sinn í ritlist við Háskóla Íslands. En hún var auðvitað komin í þáttinn til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Védís Eva talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Orbital e. Samantha Harvey Matrenescence e. Lucy Jones Heyrnalaut lýðveldi e. Ilya Kaminski Kafka á ströndinni, 1Q84 og fleiri bækur eftir Haruki Murakami Himnaríki og helvíti og Fiskarnir hafa enga fætur e. Jón Kalmann Tónlist í þættinum í dag: Það er svo ótal margt / Ellý Vilhjálms (Smith & Lindsey, texti Jóhanna G. Erlingsson) All kinds of everything Ég vil bara beat músík / Ríó tríó (Dixon & Mason, texti Ómar Ragnarsson) So Long Marianne / Leonard Cohen (Leonard Cohen) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Með skipulegum hætti hafa andstæðingar viðskiptafrelsis reynt að grafa undan athafnamönnum með ágætum árangri, ekki aðeins í sjávarútvegi heldur einnig í öðrum greinum. Þeir hafa sáð fræjum tortryggni gagnvart þeim sem stunda atvinnurekstur, gert þá sem hagnast á viðskiptum að skotspæni og táknmyndum hins illa. Skiptir engu hvort um er að ræða dugnaðarforka sem byggt hafa upp glæsileg fyrirtæki í sjávarútvegi eða iðnaðarmenn sem hafa byrjað með tvær hendur tómar en með elju og útsjónarsemi komið á fót traustum og arðsömum fyrirtækjum. Ekki einu sinni litlir sjálfstæðir atvinnurekendur – bakbein frjálsra viðskipta – fá að vera í friði líkt og Samfylkingin hefur sérstaklega hótað. Tilraun ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, 2009 til 2013, til að knésetja íslenskan sjávarútveg var þáttur í áralangri baráttu vinstri manna gegn frjálsu viðskiptalífi. Margir atorkusamir atvinnurekendur skildu ekki og skilja ekki enn að þegar búið er að koma böndum á „sægreifana“ kemur röðin næst að þeim. Í barnslegu sakleysi sátu þeir þegjandi hjá og nokkrir glöddust yfir því að nú skyldi útgerðin látin „borga“. Nú ætlar vinstri stjórn Kristrúnar Frostadóttur að leggja aftur til atlögðu við atvinnulífið. Nú er ferðaþjónustan í skotlínunni ásamt sjávarútvegi. Sú hætta er raunveruleg að dregið verði úr samkeppnishæfni tveggja mikilvægustu útflutningsgreina okkar, sem eru í harðri alþjóðlegri samkeppni, með ofursköttum. Til skamms tíma munu tekjur ríkisins líklega aukast en til lengri tíma lækka vegna minni umsvifa, lakari afkomu og fækkun starfa. Afleiðingin verður lakari lífskjör okkar allra.
Fyrir næstum því fjórum áratugum, þann 24 febrúar árið 1986 átti sér stað dularfullt morð í úthverfi norður af Los Angeles borg. Morð númer 136 árið 1986 sem áttu því miður eftir að verða töluvert fleiri. Á þessum tíma gengu einnig mikið af alræmdustu rað morðingjum fyrr og síðar lausir sem átti eftir að trufla rannsókn málsins töluvert og það hjálpaði heldur ekki að DNA rannsóknartækni var á grunn stigi. Margir mismunandi þættir leiddu til þess að þetta dularfulla morðmál kólnaði ofan í skúffu lögreglunnar í Los Angeles í rúm 20 ár. Nokkrum sinnum yfir þessa tvo áratugi var málið tekið upp aftur og gögn þess skoðuð en alltaf kom eitthvað uppá sem varð til þess að því var hent aftur ofan í skúffu. Í ferlinu glötuðust mikilvæg sönnunargögn, lögregla fór á mis við einstaklinga sem hefðu getað varpað ljósi á málið og ég skil með öllu hjarta að fjölskylda og nánustu aðstandendur hafi misst alla von. Það er óréttlátt að vita til þess að morðinginn fái að halda áfram með líf sitt eftir að hafa tekið líf saklausrar manneskju sem átti framtíðina fyrir sér ... og það sem gerir þetta enn óréttlátara er að morðinginn hélt ekki bara áfram að lifa og ganga um frjáls, heldur byggði hann upp frábært líf sem mörgum gæti aðeins dreymt um. En óréttlætið lifði blessunarlega ekki að eilífu og átti karma eftir að banka uppá að lokum. Afhverju það tók svona langan tíma og hverjir áttu raunverulega í hlut er svo önnur saga, sem er alveg jafn mikilvæg að mínu mati ... og í dag ætlum við að skoða þessa sögu, kynnast öllum sem koma fyrir í henni og virkilega skoða hvað og afhverju hin 29 ára Sherri Rasmussen var myrt. Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • ᴋ
Sjötti maðurinn var að vanda að taka upp á sunnudagskvöldi. Farið var yfir leiki sunnudagsins en sömuleiðis var farið yfir leikina á fimmtudags og föstudags. Margir fastir liðir, margar pælingar og útlendingamál rædd í lok þáttarins. Fyrsta deildin fékk áframhaldandi sviðsljós, topp 5 listi og margt, margt fleira. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Sérfræðingurinn fékk besta handboltamann sögunnar til sín og farið var yfir boltann. Stöðu íslenska landsliðsins, hvað þarf að gerast til að landsliðið nái árangri og allt þar á milli. Í lok þáttar fengu hlustendur að spyrja Óla misáhugaverðar spurningar.
Tæknibransinn í Bandaríkjunum hefur flykkt sér á bakvið við Donald Trump að undanförnu. Margir áhrifamenn í Kísildalnum lýstu yfir stuðningi við hann í aðdraganda kosninganna en þeir sem ekki þorðu að veðja á Trump hafa reynt að bæta honum það upp eftir að hann var kosinn með fjárframlögum og yfirlýsingum sem ættu að gleðja forsetann verðandi og vini hans. Forstjóri Meta, Mark Zuckerberg, hefur kannski gengið hvað lengst í slíku daðri. Hann ætlar að hætta ritstkoðun á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum sínum, leyfa fólki að segja hvað það vill um innflytjenda- og kynjamál. Hann ætlar hætta meðvituðum aðgerðum til að stuðla að fjölbreytileika í ráðningum fyrirtækisins og hefur fengið góðvin Trumps, UFC slagsmála-íþróttamógúlinn Dana White inn í stjórn fyrirtækisins. Um helgina mætti hann í 3 tíma langt viðtal til Joe Rogan þar sem hann teiknaði sig upp sem fórnarlamb ríkisstjórnar Joe Biden. Tryggvi Freyr Elínarson, hjá Datera, fer yfir stöðuna. Það er fullt tungl. Við fáum til okkar tvo stjörnuspekina, þau Kristínu Önnu Valtýsdóttur og Öldu Villiljós, til þess að rýna nánar í núverandi tungl. Þau segja okkur einnig frá breytingum á himintunglum þetta árið, stórar og miklar breytingar sem stjörnuspekingar telja munu hafa töluverð samfélagsleg áhrif. Samtalið fer að um víðan völl og endar í óvæntri átt. Eða kannski ekki svo óvæntri, hugleiðingum um tilgang lífsins. Tungl og tilgangur, tvö náskyld fyrirbæri. Meira um það í lok þáttar. Didda Flygenring reynir svo að ímynda sér áþreifanleika internetsins.
Eru endurskoðendur leiðinlegir? Almenningur virðist að minnsta kosti vera þeirrar skoðunar, ef marka má nýja rannsókn Valdimars Sigurðssonar, prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. Og þessi ímyndarkrísa endurskoðenda gæti haft alvarleg áhrif, þar sem nýliðun í faginu er lítil og of fáir endurskoðendur eru útskrifaðir til að anna eftirspurn. Við ræðum við Valdimar Sigurðsson og Unnar Friðrik Pálsson, endurskoðanda og framkvæmdastjóra félags löggiltra endurskoðenda, um ímynd endurskoðenda, hvað sé til ráða, og hvort innistæða sé fyrir því að endurskoðendur séu taldir leiðinlegir. En næstu vikur verðum við í samfélaginu með hugann við framtíðina. Í dag kynnum við viðtalsröð þar sem við fáum til okkar alls konar fólk til að ræða um þeirra sýn á framtíðina. Þetta gerum við í samvinnu við Borgarbókasafnið, sem halda svokallað framtíðarfestival í lok mánaðar. Við fáum til okkar Dögg Sigmarsdóttur og Martynu Karólínu Daniel frá Borgarbókasafninu til að ræða þetta. Um fjórðungur barna er með einhvers konar matvendi eða takmarkað fæðuval. Margir foreldrar hafa talsverðar áhyggjur af matvendni barna sinna, enda fylgir matvendni oft mikil streita og álag. En af hverju eru sum börn matvönd og hvers vegna eldist það oftast af þeim. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Sigrúnu Þorsteinsdóttur, kínískan barna- og heilsusálfræðing og Önnu Sigríði Ólafsdóttur, prófessor í næringafræði um matvendni.
Í gær var veisla hér í Útvarpshúsinu þegar Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar að viðstöddum viðurkenningarhöfum og gestum. Veittar voru tvær viðurkenningar úr Rithöfundasjóði og tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu. Mugison fékk Krókinn, verðlaun fyrir framúrskarandi lifandi flutning, og tilkynnt var um valið á orði ársins 2024, sem er hraunkælingarstjóri, eins og komið hefur fram í fréttum. Birnir Jón Sigurðsson hlaut hvatningarverðlaun Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, en þetta árið er það Áslaug Jónsdóttir sem er handhafi viðurkenningar Rithöfundasjóðs RÚV. Ásdís segir sjálf að hún sé bókverkakona, en frá 1990 hefur hún ritað og myndlýst fjölda barnabóka, skrifað ljóð og leikrit, auk þess að taka þátt í myndlistar- og bókverkasýningum. Hennar nýjustu sköpunarverk eru ljóðabókin Til minnis og limrubókin Allt annar handleggur, sem komu út árið 2023 og Skrímslaveisla sem kom út í fyrra, en Ásdís er sennilega þekktust fyrir bækurnar um skrímslin sem eru orðnar 11 talsins. Ásdís verður gestur okkar í þætti dagsins. Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fara fram í Eldborg Hörpu í kvöld og næstu tvo daga. Sambærilegir viðburðir fara fram í öllum helstu borgum Evrópu í upphafi árs og tónleikum Vínarfílharmóníunnar er sjónvarpað um heim allan á nýársdag. Vinsældir vínartónleika eru gífurlegar og áheyrendur flykkjast í tónleikasalina til fagna hefðinni og nýju ári í lakkskóm og pallíettukjólum. Margir gætu haldið að rætur slíkra hátíðahalda lægju í menningarblóma 19. aldar. En sagan er talsvert styttri en svo og á sér raunar nokkuð dökkar hliðar. Við heyrum einnig leikhúsrýni í þætti dagsins. Að þessu sinni rýnir Katla Ársælsdóttir í jólasýningu Þjóðleikhússins, Yermu eftir ástralska leikskáldið Simon Stone. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Margt er aðdáunarvert í sögu mannkynsins. Stórkostlegar uppgötvanir í vísindum, glæst listaverk og félagslegar umbætur. Því miður hafa átök og blóðsúthellingar einnig spilað stórt hlutverk. „Stríð er helsta hreyfiafl sögunnar“ - sagði rússneski byltingarleiðtoginn Leon Trotsky eitt sinn. Margir frægustu einstaklingar sögunnar voru herforingjar. Má nefna t.d. Napóleon og Alexander mikla. Að hafa stjórn á herjum og samræma aðgerðir á vígvelli er þó ekki hæfileiki sem öllum er gefinn. Í þessum þætti hefur Flosi tekið saman fimm einstaklinga sem hann telur langverstu herforingja sögunnar. Slakir leiðtogahæfileikar þeirra höfðu oft afdrifaríkar afleiðingar. Má telja fullvíst að þúsundir, jafnvel milljónir hafi glatað lífinu vegna vanhæfni þeirra. Miðar hér á ferðalag okkar um landið í janúar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Margir sem komnir eru á efri ár muna vel eftir rauðu eplunum sem komu til landsins fyrir jólin og hægt var að kaupa í búðunum. Fyrir nokkrum árum var rifjuð upp í Landanum saga um siglingu skips sem flutti eplin til Íslendinga fyrir jólin og lenti í miklum sjávarháska. Við heyrðum söguna af eplaskipinu svokallaða en þau komu í þáttinn, Gísli Einarsson og Þórdís Claessen úr Landanum, og sögðu okkur frá Jóla Landanum sem verður bæði í útvarpi og sjónvarpi þessi jólin. Í innslaginu um eplaskipið tóku þau viðtal við Egil Kristjánsson. Kvartettinn Barbari hefur komið áður í Mannlega þáttinn í desember og sungið fyrir okkur og nú komu þeir aftur og sungu fyrir okkur í beinni útsendingu tvö lög án undirleiks eins og rakarakvartettar gera. Kvartetinn Barbara skipa þeir Gunnar Thor Örnólfsson, Karl Friðrik Hjaltason, Páll Sólmundur H. Eydal og Ragnar Pétur Jóhannsson. Jólatónleikar þeirra eru á föstudaginn í Háteigskirkju. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í þessu korti, þegar líður að áramótum, sagði Magnús frá hugsunum sínum um óttann, frumstæðastu og máttugustu mannlega tilfinninguna að margra mati. Hann sagði frá kenningu ítalska höfundarins Macchiavelli um óttann, sem máttugra afl en kærleikann. Óttinn við náttúruna hefur dvalið með manninum frá upphafi og minnkar síður en svo með aukinni þekkingu. Í lokin sagði Magnús svo frá sjóslysum og baráttunni við hafið. Tónlist í þættinum: Klukkur klingja / Ragga Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Úti er alltaf að snjóa / Jón Múli og Jónas Árnasynir (Jón Múli Árnason og texti Jónas Árnason) 2 lög með Barbara kvartettnum: Let it Snow / Barbari Jólalalag / Barbari Hátíð í bæ / Borgardætur (Smith, Smith & Bernard, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Jóhannes Kr. Kristjánsson rannsóknarblaðamaður hefur varið yfir fjögur hundruð klukkustundum á Bráðamóttöku Landspítalans síðustu mánuði við gerð hlaðvarpsþáttanna Á vettvangi sem hann vinnur í samstarfi við Heimildina. Með þáttunum gefur hann hlustendum innsýn í raunverulega stöðu Bráðamóttökunnar sem er þröng og erfið, þar sem plássleysi fyrir sjúklinga er viðvarandi vandamál. Hann ræðir við starfsfólk á gólfinu sem vinnur undir miklu álagi við mögulega erfiðari aðstæður en hægt er að ímynda sér. Jóhannes kom til okkar og sagði okkur frá þáttunum og stærstu málunum sem Bráðamóttakan glímir við um þessar mundir. Emilía Benedikta Gísladóttir dansari kom svo til okkar. Hún var sólódansari hjá Compania Nacional de Danza í Madrid og svo undir stjórn Katrínar Hall í dansflokki Óperunnar í Gautaborg. Á báðum stöðum dansaði hún í verkum margra frægustu danshöfunda heims, en nú dansar hún aftur hjá Íslenska dansflokknum meðal annars í Jóladraumum sem var frumsýndur í síðustu viku. Emilía sagði okkur frá sinni reynslu í þessum stóru dansflokkum og hvernig það er að dansa aftur á Íslandi. Er mikilvægara að börn eigi jól með nýju stjúpforeldri en foreldrinu á hinu heimilinu? Jólin geta reynt á marga og sérstaklega stjúpfjölskyldur. Margir eru óvissir um hver á að gefa og þá hverjum hvað? Hverjum á að bjóða og hverjum ekki? Og með hverjum eiga börnin að eiga jólin? Félags- og fjölskylduráðgjafinn Valgerður Halldórsdóttir segir þetta algengt áhyggjuefni hjá mörgum fyrir jólin og hélt erindi um þetta á Bókasafni Kópavogs fyrir stundu. Hún ræddi þetta við okkur í dag. Tónlist í þættinum: Ryðgaður dans / Valdimar (Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson) Í eigin vanmætti / KK (Kristján Kristjánsson) Léttur í lundu / Bítlavinafélagið (Karl Hermannsson) Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigðurðu Bjóla Garðarsson) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Margir þjást af bakverkjum í stuttan eða langan tíma og brjósklos er frekar algengur kvilli svo maður tali ekki um þursabit eða hekseskudd. Oft er erfitt að finna útúr bakverkjum því þeir geta verið margvíslegir og einstaklingsbundir. Jósep Ó. Blöndal skurðlæknir einn af stofnendum háls- og bakdeildar Franciskuspítala, kom í þáttinn og fræddi okkur um bakverki, greiningu þeirra og meðhöndlun í ljósi reynslu aldanna og vísindanna. Hann fræddi okkur um algengustu orsakir bakverkja, nýjustu rannsóknir og fyrirbyggjandi æfingar. Þáttaröðin Læsi sem er á dagskrá á sunnudögum hér á Rás 1 í umsjón Guðrúnar Hálfdánardóttur hefur vakið mikla athygli og næsta á sunnudag fer í loftið fjórði þáttur þar sem fjallað verður um aðgerðir í skólamálum og mikilvægi þess að beita gagnreyndum aðferðum. Í þáttunum er rætt við skólastjórnendur, kennara, sérfræðinga í læsi, foreldra o.fl. á Höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi, Akranesi og Reykjanesi. Guðrún kom í þáttinn og sagði okkur frá þáttaröðinni og við heyrðum brot úr næsta þætti þar sem Guðrún talaði við Freyju Birgisdóttur, sviðsstjóra matssviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþróunar. Tónlist í þættinum Núna / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson) Er of seint að fá sér kaffi núna? / Prins Póló (Svavar Pétur Eysteinsson) Marsbúa chacha / Bogomil Font og Milljónamæringarnir (Sigtryggur Baldursson og Sigurður Jónsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Heil og sæl og velkomin í þennan aukaþátt þar sem viðtal er við Edvard Börk Edvardsson eða bara Börk í Val. Hann hefur nú ákveðið að láta gott heita sem formaður og er frá og með 21.október hættur eftir 21 ár. Margir titlar, mikil vinna, breyttir tímar, brottrekstrar þjálfara, laun leikmanna, umhverfið í dag og margt fleira er það sem við tölum um. Njótið og takk Börkur. Og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur í þessum þætti.
Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð, stendur fyrir málþingi í næstu viku undir yfirskriftinni: Dánaraðstoð - reynsla annarra landa. Á málþinginu munu fulltrúar, Sviss, Hollands og Kanada, landa sem hafa lögleitt dánaraðstoð deila reynslu sinni. Bjarni Jónsson, stofnandi, gjaldkeri og stjórnarmaður í félaginu kom í þáttinn og sagði okkur frá málþinginu og stöðu mála í þessum málaflokki hér á landi. Gigtarsjúkdómar hafa áhrif á um fjórðung Íslendinga á lífsleiðinni. Margir þjást í hljóði þar sem sjúkdómurinn getur verið ósýnilegur almenningi. Um 200 mismunandi gigtarsjúkdómar eru þekktir, þar á meðal sumir sem geta verið lífshættulegir. Þrátt fyrir algengi og alvarleika sjúkdómana hefur stuðningur oft verið ófullnægjandi innan heilbrigðiskerfisins. Hér gegnir Gigtarfélag Íslands lykilhlutverki en félagið á einmitt afmæli í dag 9. október. Opið hús verður í nýju húsnæði Gigtarfélags Íslands, í Brekkuhúsum 1, og nýjungar í þjónustu verða kynntar í tilefni af alþjóðlega gigtardeginum 12. október. Hrönn Stefánsdóttir varaformaður Gigtarfélagsins kom í þáttinn og sagði okkur meðal annars sýna sögu, en hún greindist með lupus eftir langa og erfiða vegferð. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Eyjan Malta er í Miðjarðarhafinu milli Sikileyjar og Túnis. Magnús er nýkominn frá Möltu og varð hrifinn af landi og þjóð. Hann segir frá umsátrinu mikla árið 1565, hann sagði frá höfuðborginni og þjóðlagahátíð þar sem hann marseraði með sikileyskri lúðrasveit. Undir lokin talaði hann aðeins um síma sem eru minnst notaðir sem símar. Tónlist í þættinum: Láttu þér líða vel / Stjórnin (Grétar Örvarsson, texti Aðalsteinn Ásberg) Hvernig líður þér í dag / Stefán Hilmarsson (Rafn Jónsson) Serendipity / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Viðmælandi þáttarins er Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect, sem tengir saman starfsmenn fyrirtækja við ólíka sérfræðinga í velferð og geðheilbrigðisþjónustu. Í dag býður Kara Connect upp á nýja vöru, velferðartorg fyrirtækja, sem getur nýst stjórnendum vel til að styðja starfsfólk við ólíkar áskoranir í lífi og starfi. Margir kannast við Þorbjörgu úr pólitík og borgarstjórn en frumkvöðlastörf hafa átt hug hennar allan síðastliðin ár. Þorbjörg gekk í Verzlunarskóla Ísland og lauk síðan B.A. í uppeldis og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og síðar Master í námssálfræði frá University of Washington. Þorbjörg er fædd 1972, ólst upp í smáíbúðahverfinu í Reykjavík og gekk í Verslunarskóla Íslands og kláraði síðan BA gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og master í námssálfræði frá University of Washington í Seattle þar sem hún einbeitti sér að heilaþroska barna og ungmenna. Þorbjörg hefur búið í Bandaríkjunum, Frakklandi, á Spáni og í Kaupmannahöfn en líður alltaf best á Íslandi. Þátturinn er kostaður af Skaga og Indó.
Í Heimsglugga dagsins fjallaði Bogi Ágústsson um hneykslismál í Bretlandi, svo nefnt Póstþjónustuhneykslið. Frá 1999 og nokkuð fram á þessa öld voru yfir 700 póstafgreiðslumeistarar vítt og breitt um Bretland saksóttir og dæmdir fyrir fjárdrátt og þjófnað. Síðar kom í ljós að um var að ræða galla í bókhaldskerfi. Margir fóru mjög illa út úr aðförinni. Yfirvöld hafa reynt að vinda ofan af málinu en bætur sem boðnar hafa verið eru fjarri því að bæta skaða og miska fólks. Golfklúbbur Sandgerðis berst gegn verðbólgunni. Klúbburinn dró til baka áður boðaða átta prósenta hækkun félagsgjalda og hækkar um þrjú prósent og skorar á aðra í þjóðfélaginu að gera slíkt hið sama. Lárus Óskarsson, formaður klúbbsins, spjallaði um þessa ákvörðun. Ísland leikur fyrsta leikinn á EM í handbolta á morgun. Guðjón Guðmundsson, Gaupi, hefur fylgst með mörgum stórmótum í gegnum áratugina, hann var aðstoðarmaður Bogdans Kowalczyk á sínum tíma, íþróttafréttamaður árum saman og nú faðir þjálfarans. Gaupi spjallaði um mótið og fyrri mót. Hann er bjartsýnn á gott gengi. Tónlist: On the evening train - Johnny Cash, Vorið og tómið - Stína Ágústsdóttir, Para mukuyenda - Katawa Singers, All of me - Lester Young, Please mister Postman - The Beatles, Bræðralag - Björgvin Halldórsson og Diddú.
Stefán Einar Stefánsson og Friðjón Friðjónsson ræða um þá óvæntu ákvörðun Hr. Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, að gefa ekki kost á sér á ný. Rætt er um hvaða ástæður kunna að liggja þar að baki, aðdragandann að því hvernig Guðni varð forseti, sögulegan fróðleik um forsetaembættið og þá sem setið hafa á Bessastöðum, hvaða kandídatar eru líklegir til að bjóða sig fram og það sem meira máli skiptir – hverjir eigi yfir höfuð erindi í þetta embætti.
Á fyrri öldum reyndu Íslendingar að ferðast sem minnst um vetrartímann, enda samgöngur eriðar og veður válynd. Margir sem voru fjarri heimilum sínum við störf lögðu þó ýmislegt á sig til að komast heim til sín um jólin til þess að fagna hátíðinni með nánustu fjölskyldu og vinum. Í þættinum segir af tveim slíkum ferðum sem farnar voru í Breiðafirði og nærsveitum á fyrri hluta 19. aldar. Tveir bændur urðu strandaglópar á smáhólma yfir sjálfa hátíðina. Einn maður hvarf gjörsamlega - eða hvað?

Höfuðkúpubrot sem fundust í Ráðherrabústaðnum í september eru af líklega af danskri konu sem ekki virðist eiga afkomendur og skyldmenni hér á landi. Erfðaefni úr íslenskum karlmanni eða karlmönnum fundust líka á höfuðkúpubeinunum. Yfir 80 þúsund manns voru á loftslagsráðstefnu sameinuðu þjóðanna í Dubai, tvöfalt fleiri en í Eygptalandi í fyrra. Margir furða sig á umfanginu. Theódóra Matthíasdóttirsérfræðingur á sviði loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands, var í þeim hópi. Hún segir að margt til í þessari gagnrýni en að stórviðburðir eins og COP hafi líka sína kosti. Hvað gerist hjá Embætti ríkislögreglustjóra upp á Íslandi þegar menn eru gripnir í nágrannaríki, Danmörku, grunaðir um að ætla að fremja hryðjuverk. Runólfur Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í greiningardeild ríkislögreglustjóra segir að verið sé að greina gögn sem þau fengu send frá grannríkjum en ekkert bendi til þess að það séu tengsl við Ísland. Hann bendir þó að tveir úr hópi grunaðra gangi lausir og það sé alltaf möguleiki á að fólk reyni að komast á milli landa. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred.

Kína er að verða öflugasta heimsveldið og átök þeirra við Bandaríkin um völd eiga sér margar birtingarmyndir, stríðsátökin á Gaza og spennan þar í kring gæti hæglega verið ein þeirra. Margir óttast líka sókn Kínverja á Norðurslóðum, sérstaklega Bandaríkjamenn. Við ræðum þær ógnir við Lisu Murkowski, öldungadeildarþingmann frá Alaska, og skoðum fleiri birtingarmyndir átaka Bandaríkjanna og Kína með Hilmari Hilmarssyni, prófessor við háskólann á Akureyri. Og hvort það sé ástæða til að óttast uppgang Kínverja eins og Bandaríkjamenn gera. Kína hefur vaxið á ógnarhraða og er eitt mesta, ef ekki mesta efnahagsveldi heims. Vöxturinn hefur verið hraður síðustu ár og teygt sig til margra heimsálfa og ekkert lát virðist á vextinum. Bjarni Pétur fer með okkur til Kína. Dönsk stjórnvöld komu getnaðarvarnarlykkjunni fyrir í líkömum kvenna og stúlkna á Grænlandi, án vitundar þeirra, til að hægja á fólksfjölgun og var tilrauninni lýst sem vel heppnaðri. Formaður mannréttindaráðs Grænlands segir mikilvægt að rannsaka málið ofan í kjölinn og skera úr um hvort þessi mannréttindabrot beri að skilgreina sem þjóðarmorð. Sumar stúlknanna hafi aðeins verið ellefu ára gamlar. Dagný Hulda Erlendsdóttir kynnti sér málið og ræddi meðal annars við formann mannréttindaráðs Grænlands. Umsjónarmenn Heimskviða eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Af öllum þeim kosningum sem fara fram í Evrópu í ár - og þær eru þó nokkrar - eru kosningarnar í Slóvakíu í dag með þeim áhugaverðustu. Skoðanakannanir benda til þess að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Robert Fico sem hrökklaðist úr embætti fyrir fimm árum, geti núna komist aftur til valda, og jafnvel tekið með sér öfgahægriflokka í samsteypustjórn. Í kosningabaráttunni hefur Fico ítrekað tekið upp málstað Rússa gagnvart Úkraínu og margt bendir til þess að utanríkisstefna Slóvaíku gæti tekið afdrifaríkum breytingum og jafnvel rofið skarð í samstöðu aðildarríkja Evrópusambandsins gagnvart innrás Rússa í Úkraínu. Kosningabaráttan í Slóvakíu hefur einnig markast af því sem kallað hefur verið upplýsingaóreiða - hundruð netmiðla í landinu pumpa út fölskum upplýsingum, og upplognum sögum og samsæriskenningum sem til dæmis styðja málstað Rússa. Margir leiðtogar stjórnmálaflokka hafa gripið þessar sögur á lofti og blásið þær upp - ekki síst vegna þess að stór hluti kjósenda er móttækilegur. Björn Malmquist hefur verið að fylgjast með kosningabaráttunni í Slóvakíu. Í vikunni voru frumsýndir í Bretlandi nýjir þættir sem fjalla um leit af raðmorðingja á áttunda áratugnum, leit sem er ein sú tímafrekasta og dýrasta í sögu lögreglunnar í Bretlandi. Þrátt fyrir ómælda vinnu lögreglunnar hefur hún verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu sína í þessu máli, að hafa ekki tekið raðmorðingjann úr umferð fyrr. Hann var kallaður til yfirheyrslu níu sinnum á þeim fimm árum sem rannsóknin stóð yfir. Og það er ekki það eina sem lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir í þessu máli eins og við heyrum hér á eftir og rannsóknaraðferðum í Bretlandi var breytt eftir niðurstöðu skýrslu sem rannsakaði vinnubrögð lögreglu í þessu máli. Birta kynnti sér málið. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Spegillinn 30. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Júlía Margrét Ingimarsdóttir Óvenju mikið er af laxi við Ósá í Patreksfirði þar sem göt fundust á eldiskví í síðustu viku. Hvorki er þó hægt að fullyrða hve margir fiskar sluppu né hvort fiskar sem veiðst hafa í ám á norðvesturhorninu eru úr kvínni. Lögreglunni bárust tilkynningar um 79 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins. Börn voru næstum helmingur þolenda kynferðisbrota á tímabilinu. Stærstur hluti þeirra sem leita meðferðar við óæskilegum kynferðislegum hugsunum og hegðun í kringum börn, eru karlmenn á aldrinum 18-60 ára, segir Jóhanna Dagbjartsdóttir sálfræðingur. Karitas M. Bjarkadóttir talaði við hana. Stærð og umgjörð bankakerfisins er ástæða þess að vaxtamunur er meiri á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum, að mati Benedikts Gíslasonar formanns stjórnar Félags fjármálafyrirtækja. Hann segir að metarður bankanna skili sér til neytenda. Pétur Magnússon tók saman. Rekja má tvö hundruð og þrettán andlát í fyrra til covid-19, samkvæmt ársskýrslu sóttvarnalæknis. Alls smituðust hundrað sjötíu og níu þúsund af kórónuveirunni í fyrra. Ekki hafa fleiri smitast af lekanda á einu ári í meira en þrjátíu ár. Valgerður Greta G. Gröndal sagði frá. Íslenska óperan hefur sótt um einkaleyfi á vörumerkinu Íslenska þjóðaróperan á sama tíma og verið er að undirbúa stofnun þjóðaróperu í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri segir þetta ekki gert til að trufla það starf. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman. ------------ Aðeins eitt af hverjum þremur skólabörnum í Úkraínu fær fulla kennslu í vetur. Meira en hálf milljón barna á flótta er ekki skráð í skóla. Ásgeir Tómasson sagði frá og heyrist í Reginu de Dominics, svæðisstjóra barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, Margir hafa reynt við tungllendingar undanfarin misseri: Japanir, Ísraelar, Rússar og í síðustu viku lentu Indverjar ómönnuðu könnunarfari á suðurpóli tunglsins. Þar hefur enginn lent áður. Ragnhildur Thorlacius sagði frá kapphlaupinu til tungslins, heyrist í John. F. Kennedy. Núgildandi byggingarreglugerð var sett fyrir ellefu árum. Hún er um 150 síður og hefur verið breytt árlega. Ingveldur Sæmundsdóttir leiðir stýrihóp sem settur var á fót í vor og vinnur að heildarendurskoðun og einföldun á byggingarreglugerðinni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ingveldi.

Spegillinn 18. ágúst 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stj?+orn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Öllum 27 starfsmönnum Skagans 3X á Ísafirði hefur verið sagt upp og starfsstöðinni verður lokað. Þungbærar fréttir, segir Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri á Ísafirði, í viðtali við Alexander Kristjánsson Jóhannes Sævar Rúnarsson, forstjóri Strætó, er sannfærður um að innleiða þurfi gjaldtöku fyrir akstur í miðborg Reykjavíkur til að draga úr mengun og jafnvel banna umferð bíla sem menga mikið. Ævar Örn Jósepsson talaði við hann. Akurnesingar kvarta yfir óbragði af neysluvatni. Fyrstu niðurstöður úr sýnum sem tekin voru í dreifikerfi Veitna í gær benda til þess að óhætt sé að drekka vatnið. Ísak Regal ræddi við Jón Trausta Kárason, forstöðumann vatns- og fráveitu hjá fyrirtækinu, og Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, íbúa á Skaganum. Slökkviliði tókst aðeins að vinna á bálinu á Tenerife á Spáni í dag. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í borginni Kelowna í Kanada og öllum íbúum bæjarins Yellowknife gert að flýja skógarelda sem brenna á yfir þúsund stöðum í landinu. Ásgeir Tómasson sagði frá. Breski hjúkrunarfræðingurinn Lucy Letby hefur verið sakfelld fyrir að myrða sjö ungabörn og fyrir að reyna að myrða sex til viðbótar. Ísak Regal tók saman. Ákvörðun alþjóðaskáksambandsins, FIDE, um að meina trans konum þátttöku í kvennamótum er skrítin og röng, að mati Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambands Íslands. Ari Páll Karlsson ræddi við hann. Það er mikil áskorun að ná utan um notkun og misnotkun á gervigreind í skólastarfi. Það gildir um allan heim en ekkert þýðir að banna segir Katrín Regína Frímannsdóttir, gæðastjóri Háskóla Íslands. Kötturinn er sloppinn úr sekknum. Um ellefu þúsund hafa skráð sig til leiks í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun, á Menningarnótt. Margir hlaupa til góðs og safna áheitum fyrir málstað sem stendur þeim nærri. Hlauparar hafa nú þegar safnað yfir hundrað fimmtíu og fjórum milljónum króna.

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson fara yfir málefni líðandi stundar á helgarvakt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt er um tiltrú á aðgerðir Seðlabankans og stjórnvalda í baráttu við verðbólgu og hvort að það sé rétt að tala um verðbólgu sem gróðabólgu, hvort það sé góð hugmynd að stofna þjóðarsjóð, það hvernig stjórnvöld nota Samkeppniseftirlitið eins og svissneskan vasahníf, um hluthafafund í Íslandsbanka, hvort að ferðaþjónustan sé að draga niður kaupmátt heimilanna og það hvort að heimurinn sé að stikna eða hvort það eigi bara við um gufubaðið hjá Stefáni Einari.
Vissir þú að á upphafsárum sínum var einn ástsælasti tölvuleikjaframleiðandi heims bendlaður við japönsku mafíuna? Í þætti vikunnar kafa Arnór Steinn og Gunnar í sögu Nintendo. Fyrirtækið var stofnað í Japan árið 1889 og hefur heldur betur tekið breytingum síðan þá. Þessi fyrsti þáttur okkar um japanska risann fjallar um fyrstu sirka hundrað árin, frá stofnun alveg þangað til áhrifamesta leikjatölva sögunnar kom út - Nintendo Entertainment System - árið 1985. Það eru MARGIR skemmtilegir punktar að fara yfir, þá helst áhugaverð tengsl fyrirtækisins við japönsku mafíuna og skringileg þráhyggja þeirra fyrir því að gefa út leikfangabyssur. Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano. --- Hjálpaðu okkur að ráða inn almennilegt markaðsteymi sem gleymir ekki að setja á instagram! Farðu á https://www.buymeacoffee.com/tleikjaspjall og hjálpaðu til við að stækka tölvuleikjahlaðvarp Íslands! --- Ef þú fílar umfjallanir okkar um tölvuleikjaframleiðendur þá erum við heldur betur með uppástungur fyrir þig. Við gerðum svipaða seríu um Electronic Arts, sú er í þrem hlutum og algjörlega þrælskemmtileg! 106. Electronic Arts hluti I - skrýmsli fæðist: https://open.spotify.com/episode/4r4OlTc71823UxPXP07pB3?si=90fdd3ab44494dfc Fylgdu Tölvuleikjaspjallinu á Facebook og Instagram!
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd árið 2011, grínmyndinni Á annan veg. Það var listræn ákvörðun hjá leikstjóranum að hafa enga kvikmyndatónlist eða svo kallað score í myndinni, aðra en þá tónlist sem ómaði úr kasettutæki sögupersónanna. President Bongo, Stephan Stephensen, sá myndina í bíó og bauðst til þess að gera score sem varð síðan aukaefni á DVD-myndinni. Nú á miðvikudaginn, rúmum áratug eftir frumsýninguna, verður myndin sýnd í Bíó Paradís, með þessari eftir-á-gerðu kvikmyndatónlist. Þeir Stephan og Hafsteinn Gunnar eru gestir okkar í Lestinni í dag. Pálmi Freyr Hauksson, hefur verið að flytja pistla hér í Lestinni um sjónvarp frá ýmsum hliðum. Í dag heyrum við hugleiðingar hans um Apple TV þættina Severance, sem eru í leikstjórn Ben Stiller og tengingu þáttanna við bókina Homo Deus. Við gerum upp Eurovision-helgina. Það fór eins og spáð hafði verið, hin sænska Loreen bar sigur úr býtum og það voru atkvæði dómnefndar sem tryggðu henni sigurinn. Margir hafa tjáð skoðun sína á niðurstöðunum, rýnt í allskyns Eurovision tölfræði. Við heyrum í Viktori Orra Valgarðssyni sem bar saman atkvæði dómnefnda og símakosninga í Eurovision keppnum frá 1999-2019.

Ólafur Ingi Skúlason ræddi um U19 ára landsliðið sem tryggði sér sæti í lokakeppni EM í vikunni. Ólafur er þjálfari liðsins og fór yfir milliriðilinn, umgjörðina, uppleggið, hárlitinn og allt mögulegt í kringum afrekið magnaða. „Ég held að enginn fyrir fram hafi búist við því að við stæðum uppi sem sigurvegarar í riðlinum. Þetta er miklu stærra en margir átta sig á," sagði Ólafur m.a. í þættinum. Til þess að komast í lokakeppnina þurfti að enda í efsta sæti í riðlinum sem haldinn var á Englandi. England er ríkjandi meistari í U19 og hinir andstæðingarnir voru Tyrkir og Ungverjar. Framundan er lokakeppni á Möltu í júlí og verður dregið í riðlana þar í apríl.
Margir eiga í mjög flóknu sambandi við markmiðasetningu og hafa jafnvel gefist upp á að setja sér markmið. Sagan er orðin of löng af óuppfylltum markmiðum og vantrúin og sjálfsefinn hafa náð yfirhöndinni. Stundum viljum við ekki setja okkur markmið af ótta við vonbrigðin sem við upplifum þegar við náum þeim ekki. Þetta kalla ég að upplifa vonbrigðin fyrir fram og ég mæli aldrei með því. Í þessum þætti ætla ég að kenna þér betri leið til að setja þér markmið og framfylgja þeim. Viltu setja þér spennandi markmið fyrir 2023? Markmiðavikan í LMLP prógramminu hjálpar þér að setja markmiðin sem færa þér lífið sem þú sækist eftir. Láttu þig hlakka til að gera spennandi sjálfsvinnu, setja þér markmið og læra aðferð til að ná þeim. Gerðu þetta með mér og þú munt lifa draumalífinu þínu árið 2023! Markmiðavika hefst 16. janúar 2023 og er innifalin í LMLP prógramminu. Þú hefur til 15. janúar að skrá þig. Skráðu þig með því að smella hér https://www.lindape.com/skramig Aðgangsgluggi LMLP lokar 15. janúar kl.23.59. Hingað til hefur verið hægt að skrá sig í LMLP prógrammið allt árið en nú hefur fyrirkomulagið breyst. Aðgangsglugginn er opinn núna frá 1.-15.janúar Þá er hægt að skrá sig í prógrammið. Eftir það lokast glugginn og opnast ekki fyrr en síðar á árinu. https://www.lindape.com/skramig
Margir með mjög mismunandi skoðanir á þessu, Gunni og Svava reyna sitt besta að gefa þér góð og Biblíuleg ráð :)
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans hefur sett kjaraviðræður í uppnám. Forseti Alþýðusambands Íslands segir hækkunina vonbrigði. Hún leggist þungt á fólk og geri kjaraviðræður enn erfiðari. Formaður VR segir allt stefna í að viðræðum verði slitið og gripið verði til aðgerða. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna skriðuhættu á Austfjörðum. Mikið hefur rignt þar að undanförnu. Lunginn af starfsfólki lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu hafði aðgang að myndskeiðum sem sýna hnífaárás á Bankastræti Club og fóru í dreifingu í gær. Yfirlögregluþjónn óttast að dreifingin rýri traust almennings til lögreglunnar. Tölvukerfi Evrópuþingsins liggur niðri eftir netárás. Rússneskir hakkarar hafa lýst yfir ábyrgð. Fleira flóttafólk hefur komið hingað til lands en spáð var. Verkefnisstjóri móttöku flóttafólks segir ganga vonum framar að útvega húsnæði fyrir fólkið. ----- Kristján Þórður Snæbjarnarson forseti Alþýðusambands Íslands segir hækkun stýrivaxta í morgun mikil vonbrigði. Hækkunin leggist þyngst á þá sem síst megi við því. Hún geri kjaraviðræður erfiðari, en þar geti launafólk sótt rétt sinn. Margir eru uggandi eftir stórfellda hnífaárás á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur seinasta fimmtudag. Árásin hefur haft eftirmála þar sem sprengjum var til að mynda kastað að heimilum aðstandenda sakborninga í Reykjavík í nótt. Hnífaárásir hafa færst í aukana samkvæmt lögreglu sem hefur verið með aukinn viðbúnað eftir árásina og ætlar að gera það áfram um helgina. Bandaríska sendiráðið í Reykjavík hvetur landa sína til að vera á varðbergi í miðborg Reykjavíkur næstu helgi, forðast mannmergð og fylgjast vel með íslenskum fjölmiðlum áður en haldið er í bæinn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sendiráðsins, sem jafnframt er birt á Facebook-síðu þess. Tilefni varnaðarorðanna er orðrómur um yfirvofandi hefndarárás í miðborg Reykjavíkur næstu helgi, sem svar við hnífaárás í Bankastræti í síðustu viku. Vísað er í fullyrðingar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að aukinn viðbúnaður verði í miðbænum vegna árásarinnar og að orðrómurinn sé til skoðunar. Eigendur skemmtistaða í Reykjavík segja það tilviljun að árásin hafi orðið á þessum stað, hún hefði getað orðið hvar og hvenær sem er. Þórir Jóhannsson eigandi skemmtistaðanna Sólon og Kiki queer bar segist hafa áhyggjur af að hnífaárásir séu orðnar hluti af daglegum veruleika í samfélaginu. Mette Frederiksen, starfandi forsætisráðherra í Danmörku og leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, vonast til þess að geta myndað nýja ríkisstjórn á næstu vikum. Á fréttamannafundi sem hún

Spegillinn 15.nóvember 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Íslandsbankaskýrslan staðfestir að margt hafi farið úrskeiðis í sölunni segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Umræður um skýrsluna hafa staðið yfir í allan dag á Alþingi. Rússar gerðu í dag einhverjar mestu loftárásir á Úkraínu frá því innrásin hófst. Sprengjur féllu á íbúðahverfi í höfuðborginni og rafveitur víða í landinu. Íslendingar hafa ekki sjálfstæða getu til að meta ógnir og varnarþörf, segir prófessor í stjórnmálafræði. Jarðarbúar eru orðnir átta milljarðar. Stöðugt dregur úr fæðingartíðninni en fólk lifir sífellt lengur en áður. Byggingakrani féll á þak Akraneshallarinnar í dag. Börn voru við íþróttaæfingar í húsinu en engan sakaði. Mikil úrkoma hefur verið á austanverðu landinu í dag. Úrkoman á Eskifirði mældist 93 millimetrar síðasta sólarhring og spáð er rigningu þar til morguns. EFTA-dómstóllinn tekur á næstunni afstöðu til þess hvort lánaskilmálar Landsbankans teljist löglegir. Niðurstaðan gæti haft fordæmi fyrir tugþúsundir lána. Lengri umfjöllun: Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Íslandsbankasöluna var tilefni sérstakrar umræðu á Alþingi í dag. Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis og þingmaður Samfylkingarinnar fór í upphafi yfir skýrsluna og Bjarni Benediktsson brást við í andsvari. Það heyrist í þeim og þingmönnunum Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Sigmari Guðmundssyni, Kristrúnu Frostadóttur og Sigmundi Davíð Gunnlaugsyni. Bjarni Rúnarsson tók saman. Nærri níu mánuðir eru nú liðnir frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Margir héldu að Rússar myndu fljótlega ná öllum völdum vegna hernaðarlegra yfirburða, en reyndin hefur orðið önnur. Mótspyrna Úkraínumanna hefur verið miklu öflugri en flestir gerðu ráð fyrir og í ljós hefur komið að rússneski herinn glímir við mikinn innri vanda, spillingu, agaleysi og úrsérgengin vopn. Kristján Sigurjónsson ræddi við Albert Jónsson fyrrverandi sendiherra í Moskvu og sérfræðing í öryggismálum. Áttundi milljarðasti jarðarbúinn kom að líkindum í heiminn í dag. Útlit er fyrir að það dragi úr fjölguninni á næstu áratugum. Eftir að sá tíundi milljarðasti fæðist einhvern tíma á níunda áratug aldarinnar má reikna með að jarðarbúum taki að fækka. Ásgeir Tómasson segir frá.

Júlíana Sara er ein skemmtilegasta manneskja sem við höfum hitt. Hún er mesta hæfileikabúnt: Leikkona, handritshöfundur og leikstýra með meiru. Margir þekkja hana úr þáttaseríunum Venjulegt Fólk og Þær Tvær. Viðtalið er virkilega innihaldsríkt, létt og djúpt í senn. Njótið kæru hlustendur!
Spegillinn 8. nóvember 2022 Þingkosningar í Bandaríkjunum standa nú yfir. Repúblikönum er spáð góðu gengi í kosningum til fulltrúadeildar en spennan er mikil í kosningum til öldungadeildar. Óvíst er hvort fatlaður maður sem vísað var úr landi í síðustu viku kemur aftur til landsins til að gefa skýrslu. Lögmaður hans fór fram á það í dag að hann verði kallaður fyrir héraðsdóm. Erfitt er að nálgast málefni flóttafólks af yfirvegun, segir lektor í lögfræði við Háskóla Íslands. Fólk má auðvitað sýna tilfinningar, en gera verði þá kröfu að talað sé út frá staðreyndum og bestu þekkingu. Ekkert bendir til þess að efnahagsástandið í löndunum í kringum okkur hafi áhrif á jólaverslunina hér á landi. Hún er ekki hafin en viðbúið að hún fari í gang tuttugasta og fimmta nóvember, en þá er svokallaður svartur föstudagur. Er Ísland að drukkna í flóttafólki? Þetta var yfirskrift hádegisfundar sem Alþjóðamálstofnun Háskóla Íslands og fleiri boðuðu til í í dag. Kári Hólmar Ragnarsson lektor við lagadeild Háskóla Íslands fór þar yfir ýmis atriði í innlendu og alþjóðlegu regluverki í málefnum flóttafólks, málaflokki sem vekur tíðum upp heitar og tilfinningaríkar umræður. Spegillinn ræddi við Kára Hólmar eftir fundinn í dag. Margir kaupa föt langt umfram þarfir, og fjöldaframleiðsla á fatnaði er stórt umhverfisvandamál. Fyrir skemmstu tók Rauði Krossinn föt frá kínverska fataframleiðandanum SHEIN úr umferð vegna mögulegra eiturefna í fötunum. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir fréttamaður ræddi við Magneu Einarsdóttur fatahönnuð um fjöldaframleiðslu á fatnaði. Þær skoðuðu kápu sem kostar í vefverslun 35 evrur, eða um fimm þúsund íslenskar krónur. Hvernig er kápa sem þessi framleidd? Stjórnvöld á Ítalíu meina nokkur hundruð hælisleitendum að stíga í land úr björgunarskipum sem komu til hafnar í Sikiley um síðustu helgi. Þriðja skipið bættist við í dag og nokkur eru á leið til eyjarinnar. Umsjón: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir
Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl væru á milli bólusetninga og einhverfu. Margir vilja meina að þetta sé stærsta fölsun í sögu vísindanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vísindamanna til að endurtaka tilraunina og sýna fram á tengsl bólusetninga og einhverfu var aldrei hægt að sanna þessa tilgátu en mýtan um bólusetningu og einhverfu hefur enn ekki náð að deyja út. Þetta er gamall áskriftarþáttur en birtist hér í fullri lengd.
Það eru fá, eða jafnvel engin, atvinnutækifæri fyrir fólk sem hefst við í flóttamannabúðum í norðvesturhluta Sýrlands. En fólk hefur fundið leið til þess að afla tekna í gegnum samfélagsmiðilinn TikTok. Margir notendur miðilsins hafa tekið eftir sýrlenskum fjölskyldum biðja um gjafir í beinu streymi á TikTok sem þau geta svo leyst út í peningum. En breska ríkisútvarpið afhjúpaði á dögunum að aðeins lítill hluti fjárhæðarinnar skilar sér til fólksins. TikTok tekur nefnilega um 70 prósent af því sem fólk telur sig vera gefa til flóttafólksins. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við einn af fréttamönnum BBC sem vörpuðu ljósi á þessa svikamyllu samfélagsmiðilsins. Rússar hóta því að beita kjarnorkuvopnum í stríðinu í Úkraínu en á sama tíma eru þeir sakaðir um hryðjuverk og stríðsglæpi. Svo virðist sem stríðið stigmagnist í viku hverri, en eru einhverjar líkur á því að kjarnorkuvopnum verði beitt, eða er því aðeins hótað í pólitískum tilgangi? Nú eru sextíu ár frá Kúbudeilunni, þegar heimsbyggðin er talin hafa komist næst kjarnorkustríði, í það minnsta þar til nú. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið. Í Heimskviðum er fjallað um það sem gerist ekki á Íslandi. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Mál sænsku tvíbura systranna Ursulu og Sabinu vakti heimsathygli á sínum tíma, enda verulega óhugnalegt og furðulegt. Margir hafa velt því fyrir sér hvort þær búi yfir yfirnáttúrulegum kröftum þar sem þær lifðu það af að verða fyrir bíl á einni umferðaþyngstu hraðbraut Bretlands. Heimurinn veltir því fyrir sér enn í dag, hver var á eftir þeim - Afhverju voru þær svona hræddar? Hver er ykkar kenning? Í BOÐI: SLEEPY Á ÍSLANDI & SIXT LANGTÍMALEIGU
Kosningar verða á Ítalíu á sunnudag og kannanir benda til sigurs hægri flokka. Fari svo verður Giorgia Meloni næsti forsætisráðherra. Hún er leiðtogi Fratelli d'Italia, flokks sem á ættir að rekja til fasistahreyfingarinnar á Ítalíu. Fratelli d'Italia, Bræður Ítalíu eða Bræðralag Ítalíu, er í bandalagi með tveimur öðrum hægriflokkum, Lega og Forza Italia. Leiðtogar þeirra eru Matteo Salvini og Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra. Þetta ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar. Víðtæk mótmæli í Íran voru einnig til umræðu. Þau hófust eftir að lát ungrar konu spurðist í síðustu viku. Hún var í haldi ,,siðgæðislögreglu" klerkastjórnarinnar í landinu. Yfirvöld segja að konan, Mahsa Amini, hafi fengið hjartaáfall en allt bendir til þess að hún hafi verið barin til bana. Guardian segir sneiðmyndir af höfði Amini sýna beinbrot, blæðingu inn á heila og heilabjúg. Amini var handtekin fyrir meint brot á ströngum lögum klerkastjórnarinnar um klæðaburð kvenna, slæða hennar hafi ekki verið í samræmi við reglurnar að mati ,,siðgæðislögreglunnar". Mótmælt hefur verið í flestum borgum og bæjum landsins og samstaða kvenna virðist mikil. Margir óttast að klerkastjórnin eigi eftir að bregðast við af mikilli grimmd eins og hún hefur gert áður. Þannig voru víðtæk mótmæli 2009 brotin á bak aftur með mikilli hörku þar sem tugir manna féllu og þúsundir voru hnepptar í fangelsi.

Jói Skúli stýrði skútunni og fékk til sín Köttinn Kela og þann írska, Orra Eiríksson með sér í The Last Dance áður en doktorinn mætir aftur.