Podcasts about einn

  • 132PODCASTS
  • 678EPISODES
  • 1h 12mAVG DURATION
  • 1WEEKLY EPISODE
  • Feb 18, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about einn

Show all podcasts related to einn

Latest podcast episodes about einn

Morðskúrinn
Steven Clark

Morðskúrinn

Play Episode Listen Later Feb 18, 2026 47:12


Einn dag fór hinn 23 ára Steven með móður sinni út að ganga, og stoppuðu þau á almenningssalerni sem þau bæði nýttu sér. Hinsvegar kom móðir hans ekki til með að sjá Steven koma aftur út af klósettinu, og hefur það verið ráðgáta síðan hvað varð um hann.    - DEFINE THE LINE - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt - ELDABUSKAN - kóðinn Morðskúrinn10 veitir 10% afslátt - HEIMASKIPULAG - kóðinn Morðskúrinn veitir 15% afslátt  

Hi, Baby! Der Mama-Podcast
Trockenwerden mit Autismus & ADHS – Warum ist das so schwer?

Hi, Baby! Der Mama-Podcast

Play Episode Listen Later Feb 18, 2026 23:47


In dieser AHA! Moment – kurz erklärt, tief entlastet-Folge schauen wir genau hin: Warum ist es bei vielen Kindern mit ADHS und/ oder Autismus so langwierig und mit so vielen Rückschlägen verbunden, bis sie trocken werden? Du erfährst kurz & klar:✔ ab welchem Alter Fachleute Tag- und Nacht-Trockenheit überhaupt erwarten – und was noch völlig normal ist ✔ warum Kinder mit Autismus und ADHS nachweislich häufiger Probleme mit Einnässen & Toilettentraining haben ✔ den Unterschied zwischen tagsüber trocken und nachts trocken – und warum das zwei völlig verschiedene Baustellen im Körper sind ✔ welche Rolle Nervensystem, Körperwahrnehmung, Sensorik (Licht, Geräusche, Klo-Umgebung) und Verstopfung spielen ✔ warum Rückschläge beim Trockenwerden bei neurodivergenten Kids eher die Regel sind als die Ausnahme ✔ konkrete Ideen, wie du euren Alltag entstressen kannst: von festen Pipi-Routinen bis „badfreundlich für Reizhirne“Diese Folge ist ideal für dich, wenn du…ein neurodivergentes Kind hast (oder es vermutest) und das Thema Trockenwerden bei euch Dauerbaustelle istdich schämst, weil „alle anderen Kinder in der Gruppe“ gefühlt schon viel weiter sindendlich verstehen willst, was im Körper deines Kindes passiert – statt dich selbst für „versautes Toilettentraining“ verantwortlich zu machen

Rauða borðið
Rauða borðið 16. feb - Rósin, fjölmiðlar, eitruð karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 17, 2026 305:47


Mánudagur 16. febrúar Rósin, fjölmiðlar, eitruð karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður landsfélagsins Rósarinnar, aðildarfélags Samfylkingarinnar og formaður Afstöðu ræðir mögulegt klofningsframboð í Reykjavík en fulltrúum Rósarinnar var hafnað í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þórhallur Gunnarsson blaðamaður hefur verið gagnrýninn á fyrirkomulag styrkja til fjölmiðla. Hann segir alls ekki tryggt að fjölmiðlastyrkir fari í blaðamennskuna sjálfa. Þórhallur ræðir veika stöðu einkarekinna fjölmiðla í samtali við Björn Þorláks. Þórhallur Gunnarsson blaðamaður hefur verið gagnrýninn á fyrirkomulag styrkja til fjölmiðla. Hann segir alls ekki tryggt að fjölmiðlastyrkir fari í blaðamennskuna sjálfa. Þórhallur ræðir veika stöðu einkarekinna fjölmiðla í samtali við Björn Þorláks. Katrín Pálma Þorgerðardóttir, doktorsnemi ræðir við Maríu Lilju um doktorsverkefni um heimspeki og kynlífssiðfræði út frá metoo byltingunni. Hefur samfélaginu orðið eitthvað ágengt með baráttunni eða hefur orðið bakslag? Erum við á villigötum með tilraunir til að pakka mannlegum samskiptum inn í sömu tvíhyggju og ríkir í lagaumhverfinu, hvað er samþykki? Reglulega blossar upp umræða um veikindi og veikindarétt sem sumpart er ójafn á einkamarkaði og hjá hinu opinbera. Einn fyrirlesara á þingi um þessi mál verður Gunnar Ármannsson lögmaður sem ræðir misnotkun réttarins í samtali við Björn Þorláks. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Helgi einn á palli, er lokið kynsvalli?” -#647

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Feb 16, 2026 54:54


Strákarnir voru gagnrýndir fyrir að vera áhugaverðari í öðru podcasti en þessu. Núna er ár snáksins að klárast og eru strákarnir farnir að taka hýðið af. Helgi ræddi hvernig fólk raðar í uppþvottavélar. Hjálmar sagði hvaða matur er að detta aftur inn hjá honum eftir að hann hætti að borða óhollt.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!

Mannlegi þátturinn
Andri Snær og nýja myndin og Dr. Gunni lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 16, 2026 50:00


Andri Snær Magnason er nýkominn til landsins eftir að hafa fylgt eftir heimildarmyndinni Time and Water, sem gerð er upp úr bók hans Um tímann og vatnið. Myndin hefur verið sýnd til dæmis á Sundance kvikmyndahátíðinni og vakti mikla athygli. Við fengum Andra til að segja okkur frá myndinni og hvernig hún kom til og hver væri munurinn á henni og bókinni. Svo tókum við aðeins með honum stöðuna í loftslagsmálum, því það er auðvitað það sem Andri skrifaði um í bókinni, sem kom út árið 2019, þar sem hann notaði sögur af forfeðrum sínum og ættingjum til þess að fjalla um loftslagsvísindin og þær breytingar sem eru að verða sem hafa áhrif á allt líf á jörðinni. Við ræddum hvernig umræðan hefur breyst undanfarnið, til dæmis þegar Bandaríkjastjórn hefur afturkallað ákvaraðnir um hættu vegna gróðurhúsalofttegunda. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Einn, tveir þrír, fjór... Bítlarnir í tímanna rás e. Craig Brown (Þýð. Helgi Ingólfsson) Tune in e. Mark Lewisohn Ævisögur Charles Mingus, Thelonious Monk og Chet Baker Bækur Braga Ólafssonar, Braga Páls Sigurðsson og Ólaf Gunnarsson Kokkáll e. Dóra DNA Bjarmalönd e. Val Gunnarsson Reyndu aftur, ævisaga Magnúsar Eiríkssonar e. Tómas Hermannsson Boy on Fire um Nick Cave e. Matt Mordue The Big Midwwk, Life inside the Fall e. Steve Hanley Tónlist í þættinum í dag: Frost / Pálmi Gunnarsson og Ragnheiður Gröndal (Pálmi Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Stefán Örn Gunnlaugsson) Frostrósir / Haukur Morthens (Freymóður Jóhannsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Videospielgeschichten | Podcast
VSG Meta: Games und Behinderungen

Videospielgeschichten | Podcast

Play Episode Listen Later Feb 14, 2026 13:41


Von Schnupfen bis Einnässen - Wie ist das mit Spielen und uns, euch, Gehandicapten? Ein Versuch, das Außen zu skizzieren und das Innen zu erklären. Mensch ist Mensch, quoi?Teile uns gern deine Gedanken per Mail an podcast@videospielgeschichten.de mit, oder gebe uns Feedback im Forum bei VideospielgeschichtenUnser Podcast ist verschwistert mit unserer Webseite Videospielgeschichten.de

Víðsjá
Á milli mála í Skáldu, Sumé- fyrsta grænlenska heimildamyndin, Minnisblöð veiðimanns /rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 12, 2026 54:30


Við heimsækjum bókabúðina Skáldu þar sem útgáfu nýs bókverks var fagnað um síðustu helgi. Bókverkið kallast Á milli mála: fiður, fingur, fálmarar og höfundar eru þær Agnes Ársælsdóttir og Anna Andrea Winther. Bókin er hluti af listrannsókn sem hófst með kexi fyrir bæði hunda og menn. Einn hluti verksins voru keramíkskúlptúrar sem settir voru upp við Tjörnina í Reykjavík í tengslum við Listahátíð 2024. Víðsjá ræddi við þær um skúlptúrana á sínum tíma þar sem þær sögðust vera dáldið hræddar um, svona í ljósi listasögunnar við Tjörnina. Og það vildi einmitt til að í miðju samtali sáum við unga drengi reyna að stela hluta af verkinu, en það er sennilega í eina skiptið sem listrán hefur átt sér stað í beinni útsendingu á Rás1. Við rifjum ránið upp í þætti dagsins og heyrum af nýju bókinni. Einnig rifjum við að gefnu tilefni upp umfjöllun um fyrstu grænlensku heimildamyndina, Sumé-The sound of Revolution og Gauti Kritsmannsson rýnir í Minnisblöð veiðimanns eftir Túrgenev.

Þjóðmál
#392 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Brynjari Níelssyni – Einn Kaldi í nesti jafnvel tveir

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Feb 6, 2026 79:50


Brynjar Níelsson og Jens Garðar Helgason fara glaðir með okkur inn í helgina. Við ræðum um stöðu Seðlabankans sem hélt vöxtum óbreyttum í vikunni, stöðu ríkisstjórnarinnar sem er búin að missa tökin á verðbólgunni og ríkisfjármálunum, stöðuna í hagkerfinu, hvað er framundan í stjórnmálunum og margt fleira.

Lestin
Ízleifur og 100&einn, Hljómsveitin Eva

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 22, 2026 54:19


Kosmískt skítamix er nýjasta afurð vináttu og listræns samstarfs Hljómsveitarinnar Evu. Hana skipa þær Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasdóttir. Þær hlutu í fyrsta sinn styrk úr sviðslistasjóði fyrir einhverjum árum og sökum veikinda og væntinga um að bjarga heiminum með sviðslistaverki dróst á langinn að búa verkið til. En nú er það tilbúið, og er í sýningu í Tjarnarbíó og hefur hlotið frábærar viðtökur. Rapparinn og pródúsentinn Ízleifur er við það að gefa út sína þriðju plötu sem ber titilinn 100&einn. Jóhannes Bjarki ræðir við hann um skapandi ferlið og við fáum að heyra forsmekk af því sem koma skal.

Spegillinn
Setti hljóða er hún las dóminn, og framleiðsla kynferðislegra mynd á Grok

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 15, 2026 20:00


Einn helsta sérfræðing í kynferðisbrotamálum setti hljóða þegar hún las dóm um skilorðsbundna refsingu sem karlmaður á fertugsaldri hlaut fyrir langvarandi ofbeldi gagnvart sambýliskonu sinni. Maðurinn hefur nú verið ákærður fyrir gróf kynferðisbrot gegn dóttur konunnar. Umræðan um framleiðslu á kynferðislegu efni með aðstoð gervigreindar fer vaxandi, gervigreindarfyrirtækið Grok, hyggst takmarka framleiðslu og dreifingu á kynferðislegum myndum á samfélagsmiðlinum X í kjölfar harðrar gagnrýni en óljóst er hvort áfram verði hægt að framleiða slíka myndir á vefsíðu Grok.

Bylgjan
Bítið - þriðjudagur 23. desember

Bylgjan

Play Episode Listen Later Dec 23, 2025 84:16


Bítið á Bylgjunni með Lilju, Sigmari og Ómari. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, var á línunni. Ingibjörg Einarsdóttir, á barn í meðferð í Suður-Afríku og hóf söfnun fyrir vinkonu sína sem á einnig barn þar í meðferð og missti dóttur sína í bílslysi, settist niður með okkur. Séra Guðni Már Harðarson í Lindakirkju ræddi við okkur um jólin og jólaboðskapinn. Tolli Morthens ræddi við okkur um friðarverðlaun Gusi á Filippseyjum, jólin og rjúpuna. Einn besti matreiðslumaður landsins, Viktor Örn, ræddi um jólamatinn. Anna Fríða Gísladóttir frá Nóa Siríus ræddi konfekt og jólin.

Spegillinn
Búið að vinna hættumat fyrir alla íbúabyggð, makríll og leiðtogafundur ESB

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 16, 2025 20:00


Efnismikil skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík fyrir þrjátíu árum leit dagsins ljós í gær; hún varpar meðal annars ljósi á hvernig sveitarfélög á þessum tíma voru mörg hver vanbúin til að verjast stórhættulegum ofanflóðum. Það var til að mynda vitað að á tíu stöðum, þar sem snjóflóðahætta var viðvarandi, var aðeins á einum stað þar sem eftirlit var fullnægjandi; Ísafirði. Hættumöt sem voru gerð gátu oft og tíðum orðið að pólitísku þrætuepli og fámennustu sveitarfélögin höfðu ekki fjárhagslegt bolmagn til að reisa varnarmannvirki. En hvernig er staðan í dag? Sögulegt segir á vef utanríkisráðuneytisins um samkomulag sem Ísland, Noregur, Bretland og Færeyjar hafa gert um skiptingu og stjórn á veiðum á makríl. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir tvennt við það að athuga að segja samkomulagið sögulegt. Áður hafi verið gert hlutasamkomulag þótt Ísland eigi nú í fyrsta sinn þátt í slíku. Í annan stað þá hafi það verið viðurkennt frá 2010 að Ísland sé strandríki í makríl og það tekið þátt í viðræðum um hvernig beri að skipta þessum deilistofni. Einn afdrifaríkasti leiðtogafundur Evrópusambandsins í langan tíma hefst á fimmtudaginn, þar sem tekin verður ákvörðun um fjárhagslegan stuðning við Úkraínu næstu árin. Enn er verið að semja um skilyrði þess að nýta frysta fjármuni rússneska seðlabankans til að setja saman risastórt lán - og það er nánast útilokað að öll aðildarríki bandalagsins samþykki þennan ráðahag.

hei enn vinna fyrir evr einn makr samtaka bretland
Dr. Football
Einn á móti markmanni - Ásgeir Sigurvinsson segir Maradona besta fótboltamann sögunnar

Dr. Football

Play Episode Listen Later Dec 10, 2025 35:58


Einn besti knattspyrnumaður Íslands fyrr og síðar Ásgeir Sigurvinsson mætti til Dr. Football að ræða Diego Maradona sem hann segir þann besta fyrr og síðar. Ásgeir var sjálfur götu fótboltamaður sem lærði að spila fótbolta úti að leika sér en ekki á skipulögðum æfingum.

Lestin
Knackered, Wicked2 (rýni), Echoes of the end

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 27, 2025 55:12


Einn hápunkturinn á nýafstaðinni Iceland Airwaves hátíð voru tónleikar Knackered á Gauknum. Þetta er raftónlist með brotnum töktum og ýmiskonar takt-útúrdúrum, gáskafulla hljóðræna áferð. Það var svo smitandi gleði í framkomu listakonunnar Idu Schuften Jushl sem dansaði um sviðið um leið og hún sneri tökkunum - og brást við af stóískri ró þegar tæknin stöðvaði flæði tónlistarnnar tvisvar. Sömu helgi kom fyrsta plata hennar, fjögurra laga stuttskífan FYI. Við fáum Idu í heimsókn í Lestina. Það er komið ár frá því að litríka norna-söngvamyndin Wicked sló í gegn, hún var byggð á söngleik sem var byggður á skáldsögu sem var byggð á bíómynd sem var byggð á skáldsögu. Og nú er komin framhaldsmynd Wicked: for good í leikstjórn Jon M. Chu með þeim Ariönu Grande og Cynthiu Erivo í aðalhlutverkum. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina. Ævintýraleikurinn Echoes of the end kom út í ágúst, en íslenska tölvuleikjafyrirtækið Myrkur games hafa unnið að honum frá árinu 2016. Við ræðum við Halldór Snæ Kristjánsson framkvæmdastjóra fyrirtækisins um leikinn, dómana og viðbrögðin.

Morðskúrinn
Diamond og Tionda Bradley

Morðskúrinn

Play Episode Listen Later Nov 26, 2025 41:50


Einn föstudag átti Tionda að vera heima með litlu systur sína Diamond á meðan mamma þeirra var að vinna. Stuttu eftir að hún kom til vinnu reyndi hún að hafa uppi á stelpunum en fékk engin svör. Áhyggjur voru ekki miklar enda hafði hún kennt stelpunum að opna ekki fyrir neinum og sagt að þær ættu ekki að fara neitt, aðeins bíða eftir að hún kæmi heim. Þegar hún kom svo heim þá voru stelpurnar hvergi að finna.   

Lestin
Rosalia krufin til mergjar, groddalegur Larfur Lauks

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 18, 2025 54:27


Á dögunum kom út fjórða breiðskífa spænsku tónlistarkonunnar Rosalia. 14 tungumál, sinfóníuhljómsveit, tólftu aldar nunna, óperusöngur, flamengó og Björk koma öll við sögu. Með plötunni LUX er Rosalia að stimpla sig rækilega inn sem einhvern merkilegasta popptónlistarmann samtímans. Friðrik Margrétar Guðmundsson mætir í Lestina til að kryfja til mergjar versta lag plötunnar (að mati Friðriks), fyrstu smáskífuna, Berghain. Við flettum svo í glænýrri íslenskri myndasögu, Larfur Lauks: lifandi og deyandi í Reykjavík. Myndasagan rekur ævintýri Larfs og vinahóps hans, sem er fjölskrúðugur hópur furðufugla og djammara. Einn þeirra er brauðsneið, enn er skjaldbaka sem selur hass og spilar Counter strike, sá þriðji missir óvart typpið í skyndikynnum á klósettinu á skemmtistað. Mennirnir á bakvið söguna eru teiknarinn og myndlistarmaðurinn Björn Heimir Önundarson og Tumi Björnsson, sem hefur gert garðinn frægan með myndböndum og stuttmyndum undir merkjum Kaupa Dót.

Tölvuleikjaspjallið
265. Skyrim 14 ára!

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Nov 12, 2025 56:04


Ég var einu sinni ævintýramaður eins og þú ...Einn merkasti leikur okkar tíma er 14 ára. Arnór Steinn og Gunnar hafa vissulega eytt tíma og púðri í að drulla yfir hann í gegnum árin, en í þetta skiptið ætlum við að reyna að fagna.Hvers vegna er þessi leikur svona mikilvægur? Hvernig stenst hann tímans tönn?Förum yfir innsendar minningar fólks og ræðum aðeins þetta þrekvirki.Þátturinn er í boði Elko Gaming og ybba.is.

Spegillinn
Skautun og pólitískt ofbeldi vestan hafs og þýskur þingmaður sviptur þinghelgi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 11, 2025 20:00


Charlie Kirk, sem var myrtur á fundi í Háskóla í Utah var kosningahvíslari Donalds Trumps hjá unga fólkinu en fyrst og fremst kristinn aðgerðasinni. Pólitískt ofbeldi er órjúfandi þáttur af bandarískri stjórnmálasögu og nú rís bylgja þess sem sér ekki fyrir endann á. Einn af þingmönnum þýska hægriflokksins AfD, Alternative fur Deutschland, var í dag sviptur þinghelgi, vegna gruns um að hafa þegið mútur frá fyrirtækjum með tengsl við Kína. Ákvörðunin var samþykkt samhljóða á þýska þjóðþinginu í morgun.

Morðskúrinn
Erin Patterson

Morðskúrinn

Play Episode Listen Later Sep 3, 2025 61:38


Einn sunnudag í júlí 2023 bauð Erin Patterson fyrrum tengdaforeldrum sínum sem og fleiri ættingjum í hádegisverð í Ástralíu. Eftir máltíðina veiktust allir gestirnir, og að lokum komu þrjú þeirra til með að láta lífið. Var þetta heiftarleg matareitrun eða hafði einhver eitrað fyrir fjölskyldunni.  Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum.  Þá er 10% afsláttur af Lash Lift og Brow Lamination hjá Steinunni á Kosmetik snyrtistofunni með kóðanum morðskúrinn í athugasemd þegar bókað er í gegnum Noona appið.  Nokkrir miðar eru eftir á Live Show sem fer fram 9. október nk. - tryggið ykkur miða sem fyrst! 

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Ég er einn vinsælasti maðurinn á Akureyri” -#593

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jul 31, 2025 10:39


Hjálmar er kominn heim eftir frí í Danmörku og Svíþjóð með fjölskyldunni. Helgi sagði góða sögu af mömmu vinar hans. Það er enginn jafn fljótur að læra á danska gatnakerfið og Hjálmar. Helgi hjólaði á dönskum hraðbrautum til að heimsækja kærustuna sína.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!

Spegillinn
Vændismansal á Íslandi og í Evrópu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 15, 2025 10:00


Lögregla og tollgæsla á Íslandi tóku á dögunum þátt í umfangsmiklum, alþjóðlegum aðgerðum gegn mansali á vegum Interpol. Europol og Frontex. Í þessum aðgerðum fór lögregla inn í á þriðja tug húsa og heimila og kannaði aðstæður um það bil 250 manns. Af þeim telur lögregla sig vita að 36 séu þolendur mansals, þar af þrjátíu og fjögur þolendur mansals í kynferðislegum tilgangi - það er að segja neydd til vændis. Langflest voru frá Rúmeníu og mikill meirihluti þeirra konur. Einn maður - vændiskaupandi - var handtekinn og gert að greiða sekt. Úti í hinum stóra heimi er mansal, ekki síst í kynferðislegum tilgangi, risastór iðnaður, þar sem fólk gengur bókstaflega kaupum og sölum. Drífa Snædal, talskona Stígamóta, þekkir vel til í þessum málaflokki. Ævar Örn Jósepsson spurði hana, hverju aðgerðir eins og þessar skiluðu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson.

Samfélagið
Gervigreind og matarsóun, hand-, fóta- og munnsjúkdómur, verkjameðferðir

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 4, 2025 60:10


Tæknin hjálpar okkur við margt í daglegu lífi, en mun gervigreind hjálpa til við að leysa stór vandamál sem steðja að heiminum, eins og matarsóun. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, ætlar að koma til okkar og fjalla um það hvernig gervigreind og matarsóun tengjast. Reglulega berast foreldrum leikskólabarna tölvupóstar um að hinn eða þessi sjúkdómur hafi skotið sér niður í skólanum. Einn þessara sjúkdóma er hand-, fóta- og munnsjúkdómur, líka kallaður blöðrumunnbólga með útbrotum. Við ætlum að ræða við Valtý Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalækni á Landspítalanum, um barnasmitsjúkdóma, hvernig sjúkdómaflóran hefur breyst í áranna rás og hvers vegna sumt eldra fólk kváir þegar barnasjúkdóma dagsins í dag ber á góma. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins og fastur miðvikudagsgestur, ætlar svo að spjalla við okkur um nýjar rannsóknir á verkjameðferðum.

Spegillinn
Samskipti Víðis og snjómokstur í júní

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 3, 2025 20:00


Forstjóri Útlendingastofnunar taldi sig þurfa skýr svör frá formanni allsherjar- og menntamálanefndar um hvort Alþingi ætlaði sér að veita sautján ára kólumbískum dreng íslenskan ríkisborgararétt. Til að gæta jafnræðis yrði annars að fresta brottflutningi átján annarra umsækjenda sem hafa sótt um ríkisborgararétt en á að flytja úr landi. Formaður nefndarinnar var í samskiptum við ríkislögreglustjóra um málið sem áframsendi tölvupóst frá honum til forstjóra Útlendingastofnunar Íbúar á Norður- og Austurlandi vöknuðu við hvíta jörð í morgun og norðan vonskuveður hefur gengið yfir landið í dag. Snjómokstursverktakar Vegagerðarinnar voru kallaðir út því moka þurfti snjó af mörgum fjallvegum. Einn bíll var ennþá tilbúinn í snjómokstur hjá Nesbræðrum á Akureyri og Gunnar Helgi Gunnarsson framkvæmdastjóri ætlar að hafa bílinn til taks allvega út vikuna til öryggis. Sum flugfélög telja að sér hafi ekki verið heimilt að skila farþegaupplýsingum til yfirvalda þó að lunginn geri það. Með breytingum á lögum sem hafa verið lagðar til eru líkur á að fullar heimtur fáist að mati lögreglu. Farþegaupplýsingar er safnað til að sporna við skipulagðri glæpastarfsemi þær til dæmis keyrðar saman við gagnagrunna um skráða brotamenn hjá Interpol.

forma sum interpol akureyri einn snj austurlandi samskipti forstj vegager
90 mínútur
Íþróttavikan: Þorkell Máni - Einn á einn

90 mínútur

Play Episode Listen Later May 16, 2025 69:59


Þorkell Máni Pétursson, stjórnarmaður í KSÍ og umboðsmaður er gestur Helga í þættinum.

Fotbolti.net
Frábær þrenna, tvö stig og einn rosalega skrítinn leikur

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025


Íslenska kvennalandsliðið tók tvö stig í leikjum sínum gegn Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni. Stelpurnar fara í eiginlegan úrslitaleik við Noreg um annað sætið í riðlinum í næsta mánuði. Það var margt jákvætt í þessum tveimur leikjum en líka heilmargt sem hefði mátt fara betur. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Sverrir Örn fóru yfir það helsta þegar Ísland á núna þrjá leiki fram að Evrópumóti.

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Einn svefn til viðbótar

Dr. Football

Play Episode Listen Later Apr 4, 2025 62:26


Doc, G. Birgis og Keli þegar aðeins 24 tímar eru í fyrsta leikdag Bestu deildarinnar.

Dr. Football
Einn á móti markmanni - Bjarki Gunnlaugsson um ferilinn og umboðsmennsku

Dr. Football

Play Episode Listen Later Apr 2, 2025 81:24


Þessa dagana eru þættirnir A-B um bræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugsson á Stöð 2. Bjarki kom til Dr. Football og ræddi ferilinn og umboðsmennskuna.

Mannlegi þátturinn
Þættir um Arnar og Bjarka, gengið til Rómar og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 49:32


Við forvitnuðumst í dag um nýja sjónvarpsþáttaröð sem kallast A&B og er saga tvíburanna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona. Þeir vöktu fljótt mikla athygli fyrir mikla hæfileika á knattspyrnuvellinum á Skaganum. Þeir fóru ungir í atvinnumennskuna, léku með landsliðinu og saga þeirra þar er rakin í þáttunum. Þeim er svo fylgt eftir í gegnum viðskiptaævintýri eftir atvinnumennskuna og hvernig þeir fundu báðir aftur fótboltann og nú er til dæmis Arnar orðinn landsliðsþjálfari hjá karlalandsliðinu. Þetta er saga drengja sem upplifa drauma sína, en lenda líka í hremmingum innan sem utan vallar. Gunnlaugur Jónsson, umsjónarmaður, handritshöfundur og framleiðandi þáttanna, kom í þáttinn ásamt Arnari, öðrum bróðurnum. Steinunn Harðardóttir leiðsögukona hefur í 12 ár farið í pílagrímsgöngur áleiðis til Rómar en á miðöldum gengu fjölmargir íslenskir pílagrímar til Rómar. Einn þeirra var Nikulás ábóti á Munkaþverá í Eyjafirði en hann fór til Noregs og Danmerkur og gekk þaðan til Rómar og svo alla leið til Jerúsalem. Hann skrifaði leiðarvísi fyrir aðra pílagríma árið 1153-4, „Leiðarvísir og borgarskipan“ er sá eini sinnar tegundar frá þessum tíma sem hefur varðveist í Evrópu. Þegar Steinunn kom til Rómar síðasta haust stóðu yfir miklar viðgerðir á borginni vegna Heilags árs hátíðarhöldum sem hófust á jólum 2024 og standa út allt þetta ár. Heilög ár eru haldin af kaþólsku kirkjunni á 25 ára fresti. Steinunn kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það er hafið nýtt eldgos suðaustur af Þorbirni við Grindavík, því fór Einar aðeins yfir stöðuna, til dæmis hvað varðar gasdreifingu. Svo gerði hann aðeins upp veturinn, en með mars lauk veðurstofuvetrinum. Einar talaði svo að lokum um mikla hita sem nú geysa á fjarlægum slóðum, s.s. sunnarlega í Bandaríkjunum, í Kákasus og á Tælandi og merkilegt marsveður sem Madrídingar og Spánverjar hafa upplifað. Tónlist í þættinum í dag: Ég skal bíða þín / Helgi Björnsson (Michel Legrande, texti Hjördís Morthens) April in Paris / Count Basie orchestra (Vernon Duke) Creepin' in / Dolly Parton og Norah Jones (Lee Alexander) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

dolly parton lei jer hj heil hann einar bandar svo evr munka arnar einn noregs madr steinunn grindav einari danmerkur arnars gengi nikul gunnlaugur j helgi bj bjarka eyjafir
Spegillinn
Nær ómögulegt fyrir ráðherra að skilja persónu sína frá embættinu, ofbeldi í skólum og rángeitungar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 14, 2025 20:21


Það er mjög erfitt, allt að því ómögulegt fyrir ráðherra að aðskilja sig og sína persónu frá embættinu segir Kári Hólmar Ragnarsson dósent við lagadeild HÍ. Rætt við hann um orð mennta-og barnamálaráðherra sem sagðist ekki gera ráð fyrir réttlæti hjá dómstólum. Þó að ráðherra hafi beðist afsökunar á þessu er ekki víst að það dugi til. Ofbeldi meðal barna er ekki nýtilkomið en tilfelli koma upp hjá sífellt yngri börnum, segir Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands. Einn asískur rángeitungur drepur allt að fimmtíu býflugur á dag og þeir tortíma iðulega heilu býflugnabúunum, því evrópska býflugan illa í stakk búin að verjast árásum þessara aðkomukvikinda.

Stundin
Á vettvangi: Bráðamóttakan #4: Einn og hálfur tími um nótt

Stundin

Play Episode Listen Later Feb 21, 2025


Nánast um leið og Jón Ragnar Jónsson bráðalæknir hefur orð á að það sé óvenju rólegt á næturvakt eina helgina dynja áföllin á. Hann hefur rétt komið manni til lífs þegar neyðarbjallan hringir á deildinni.... Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitin hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.

kr hann og h einn ragnar j landsp fossvogi
Spegillinn
Deilt um rafmagnslínur, gervigreind og ritskoðun, grisjun sjóða og sjálfseignarstofnana

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 29, 2025 20:00


Síðan 2024 hefur verið heimild í lögum til að skipa raflínunefndir sem eiga að einfalda skipulagsmál í tengslum við flutningskerfi rafmagns. Nú vill Landsnet að fyrsta nefndin af þessu tagi verði skipuð um Holtavörðuheiðarlínu eitt. Þrjú af fjórum sveitarfélögum sem línan á að liggja um leggjast gegn skipun nefndarinnar. Gréta Sigríður Einarsdóttir kynnti sér málið. Þær fréttir bárust á dögunum að nýtt gervigreindarforrit, DeepSeek, frá Kína, væri að setja gervigreindarheiminn á annan endann. Því er haldið fram að þessi nýja gervigreind standist þeirri fullkomnustu sem fyrir var, hinni bandarísku ChatGPT 4, fyllilega snúning, þrátt fyrir að hafa verið hönnuð, þróuð og sett út í sýndarheiminn með aðeins brotabroti af þeim ógnarmiklu fjármunum sem fóru í þróun bandarísku fyrirmyndarinnar. Hún er þó ekki gallalaus. Einn galli - og sá sem hér er til umfjöllunar - er ritskoðunin sem DeepSeek stundar. Ævar Örn Jósepsson fékk Árna Matthíasson til að ræða við sig um þetta. Sjálfseignarstofnanir og sjóðir sem eru með skipulagsskrá verða sektaðar um sex hundruð þúsund skili forsvarsmenn þeirra ekki ársreikningi á tilsettum tíma. Sjóður sem Halldór Laxness stofnaði til að mótmæla launalækkun er meðal þeirra sem brátt gætu heyrt sögunni til. Freyr Gígja Gunnarsson fékk Jónas B. Guðmundsson sýslumann til viðtals um málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason.

Lestin
Nosferatu, draugalistamennirnir snúa aftur, grænlenskur trommudans

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 6, 2025 56:53


Á jóladag var nýjasta kvikmynd leikstjórans Robert Eggers frumsýnd í Bandaríkjunum. Hryllingsmyndin Nosferatu með Lily Rose Depp í aðalhlutverki. Nú er hún líka komin í bíó á Íslandi og hægt að fara og láta sér líða illa og ónotalega. Myndin er endurgerð á samnefndri mynd þýska leikstjórans Murnau frá 1922 - sem var síðan endurgerð af samlanda hans Werner Herzog árið 1979 - og allt er þetta byggt á skáldsögu Bram Stoker um drakúla greifa. Eggers er þekktur fyrir að leggja mikla áherslu á sögulega nákvæmni í myndum sínum en myndin gerist um vetur í skáldaða bænum Wisburg í þýskalandi, árið 1838. Á morgun kemur út bókin Mood machine, Stemningsvélin - uppgangur Spotify og verð hins fullkomna spilunarlista eftir blaðakonuna Liz Pelly. Einn kafli úr bókinni birtist í tímaritinu Harpers fyrir jól og varpaði nýju ljósi á eina lífseigustu samsæriskenninguna um skítlega viðskiptahætti streymisrisans Spotify, draugalistamennina svokölluðu. Við höfum fjallað um þetta fyrirbæri nokkrum sinnum í Lestinni undanfarin 5 ár en nú viðrðast komnar sannanir fyrir því að Spotify græði á gervilistamönnum sem fylla marga spilunarlista streymisþjónustunnar. Við ræðum við Árna Matthíasson tónlistarblaðamann. Við fáum líka sendingu frá Katrínu Helgu Ólafsdóttur, tónlistarkonu. Hún ræðir við grænlensku tónlistarkonuna og trommudansarann Nuka Alice.

Dr. Football
Einn á móti markmanni - Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR

Dr. Football

Play Episode Listen Later Dec 18, 2024 102:43


Óskar Hrafn Þorvaldsson mætti til Dr. Football og hann fór yfir tíma sinn hjá Breiðabliki, Haugesund, Gróttu og það sem er framundan hjá KR

Dr. Football
Einn á móti markamanni - Gylfi Sigurðsson

Dr. Football

Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 84:43


Gylfi Sigurðsson er með Tækniskóla Gylfa Sig. Gaflarinn mætti til Dr. Football og ræddi þetta nýja ævintýri og tæpan 20 ára feril í enska boltanum.

Heimsglugginn
Erfið prófraun lýðræðis

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Oct 24, 2024 22:16


Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson um stöðu lýðræðis og kosningar á árinu 2024. Talað hefur verið um árið sem „kosningaárið mikla“ og þegar hafa kjósendur í 67 löndum greitt atkvæði í þing- eða forsetakosningum. Í þessum löndum búa 3,4 milljarðar fólks. Áður en 2024 verður liðið verður einnig gengið til kosninga í löndum þar sem 440 milljónir búa. Þar eru forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 5. nóvember langmikilvægastar. Lýðræðið á víða undir högg að sækja, bandaríska hugvekjan Freedom House segir að þegar horft sé á kosningarétt, frelsi fjölmiðla og kúgun minnihlutahópa hafi frelsi minnkað í fleiri ríkjum en þar sem það hefur aukist undanfarin 18 ár. Einn af hverjum þremur sem kjósa árið 2024 búi í landi þar sem gæði kosninga hafa mælanlega versnað á síðustu fimm árum.

Dr. Football
Einn á móti markmanni - Börkur Edvardsson

Dr. Football

Play Episode Listen Later Oct 17, 2024 79:42


Börkur Edvardsson hættir sem formaður knattspyrnudeildar Vals eftir 20 ára setu á mánudag. Börkur var einn á móti markmanni.

Fotbolti.net
Risarnir tveir slást og annar þeirra stendur uppi sem meistari

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024


Einn stærsti leikur síðari ára í íslenska fótboltanum fer fram á laugardaginn þegar Valur tekur á móti Breiðabliki. Risarnir tveir í kvennaboltanum eigast þarna við í einum leik sem mun skera úr um það hvaða lið verður Íslandsmeistari. Breiðablik er með einu stigi meira fyrir leikinn. Það er óhætt að gera kröfu á áhorfendamet en leikurinn fer fram á Hlíðarenda á laugardaginn klukkan 16:15. Fótboltaþjálfararnir Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson mættu í heimsókn í dag og fóru vel yfir leikinn sem er framundan.

Fotbolti.net
Einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Sep 12, 2024


Pablo Punyed er einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta. Hann lenti hér á landi aðeins 21 árs gamall og hefur fest hér rætur. Hann lítur núna á sig sem Íslending. Pablo spilar í dag með Íslands- og bikarmeisturum Víkings en hann er staðráðinn í að snúa aftur á fótboltavöllinn eftir að hafa slitið krossband á dögunum. Í þessum hlaðvarpsþætti ræðir hann um meiðslin, ferilinn til þessa og lífið á Íslandi.

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Þegar einn gluggi lokast opnast annar

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 31, 2024


Davíð Snorri Jónasson aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands er gestur vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það er landsleikjagluggi framundan og Ísland mætir Svartfjallalandi og Tyrklandi í Þjóðadeildinni. Áður en spjallað er við Davíð er farið yfir helstu fótboltafréttirnar. Orri Steinn fór til Real Sociedad á gluggadeginum, ljóst er hverjum Víkingur mætir í Sambandsdeildinni, það er heil umferð framundan í Bestu deildinni og toppbaráttan í Lengjudeildinni er galopin. Enski boltinn kemur að sjálfsögðu einnig við sögu í þættinum.

Skoðanabræður
#328 Allt um einn mikilvægasta höfund samtímans (II. þáttur um Nassim Nicholas Taleb)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Aug 23, 2024 19:58


Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri manni. Viltu til dæmis hætta að vera viðkvæmur og verða beinlínis andviðkvæmur? Engrar þekkingar á neinu krafist til þess að ýta bara á play!

Skoðanabræður
#327 Allt um einn mikilvægasta höfund samtímans (I. þáttur um Nassim Nicholas Taleb)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Aug 16, 2024 20:07


Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri manni. Viltu til dæmis hætta að vera viðkvæmur og verða beinlínis andviðkvæmur? Engrar þekkingar á neinu krafist til þess að ýta bara á play!

Dr. Football
Doc Xtra - einn svefn til viðbótar í ensku deildina

Dr. Football

Play Episode Listen Later Aug 15, 2024 60:33


Dr. Football með Tómasi Þór frá Símanum fyrir tímabilið sem hefst á morgun.

Spegillinn
Kaldur blettur í hitnandi heimi, Puigdemont snýr aftur til Barcelona

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 8, 2024 10:08


Samkvæmt evrópsku loftslagsþjónustunni Kópernikus var 22. júlí síðastliðinn heitasti dagur á Jörðinni frá upphafi mælinga, og sló þar með fyrra hitamet - sem var frá deginum áður. Hlýnun Jarðar er staðreynd, og það á jafnt við um andrúmsloftið sem hafið - nema á stöku stað. Einn þessara stöku staða er heljarinnar kuldapollur eða blár blettur í hafinu suðvestur af Íslandi, sem hefur mikil áhrif á veðurfar hér, enda voru engin hitamet slegin hér á þessum heitasta degi Jarðar, eins og segir á vef Veðurstofunnar. Til að hér sé þægilega hlýtt þarf varmaflutning til landsins, segir Halldór Björnsson fagstjóri veðurs og loftslags á veðurstofunni, og þessi varmaflutningur fer annars vegar um loftið og hins vegar um hafið, sem loftið ber svo áfram. Linda Blöndal ræðir við Halldór. Lengi lifi frjáls Katalónía, sagði Carles Puigdemont, fyrrverandi leiðtogi héraðsins - á katalónsku að sjálfsögðu - þegar hann ávarpaði um 3.500 stuðningsmenn í Barcelona í morgun. Puigdemont var á Spáni í fyrsta sinn frá því hann flýði handtökuskipan spænskra stjórnvalda fyrir sjö árum. Hann hraðaði sér svo af sviðinu í fylgd félaga sinna og hugðist mæta á héraðsþingið. Það fór ekki alveg þannig. Ástæða handtökuskipunarinnar er að Puigdemont boðaði sem leiðtogi Katalóníu til atkvæðagreiðslu árið 2017 um sjálfstæði þrátt fyrir að spænskur dómstóll hefði bannað það. Að kosningu lokinni lýsti Puigdemont yfir sjálfstæði en dró það til baka í sömu ræðu. Hallgrímur Indriðason segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Fotbolti.net
Leiðin á Laugardalsvöll - Einn leikur í viðbót og töfrar á Króknum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 7, 2024


Í gær voru átta-liða úrslitin í Fótbolti.net bikarnum, þeirri yngstu og sprækustu, spiluð í heild sinni og er núna ljóst hvaða lið spila í undanúrslitum. Nú þarf bara að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. Liðin sem eru komin í undanúrslit: Selfoss (2. deild) KFA (2. deild) Árbær (3. deild) Tindastóll (4. deild) Það verður dregið í undanúrslitin á morgun en Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, og Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, mættu í stúdíó í dag og fóru aðeins yfir málin. Arnar Ólafsson, hetja Tindastóls, er einnig á línunni og fer yfir ævintýrið á Sauðárkróki.

Þjóðmál
#232 – Hlýjan í vaxtasloppi ríkisins – Einar einn í parísarhjólinu – Biden pakkar saman

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Jul 22, 2024 82:26


Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um nýjar vendingar í bandarískum stjórnmálum, auknar skuldir ríkisins og hvaða áhrif þær hafa á hegðun fjárfesta, tillögu um nýjan varaseðlabankastjóra, hvaða áhrif háir vextir eru farnir að hafa í hagkerfinu, stöðuna á hlutabréfamarkaði, hugmyndir Viðskiptaráðs í menntamálum, húsnæðismarkaðinn, skógarhögg í Öskjuhlíð og margt fleira.

Fotbolti.net
Einn stærsti sigur í fótboltasögu Íslands og leiðin liggur til Sviss

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jul 18, 2024


Íslenska kvennalandsliðið er komið á EM eftir frábæran landsliðsglugga. Stelpurnar unnu magnaðan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli og unnu í kjölfarið 0-1 sigur gegn Póllandi. Þær lentu í öðru sæti sínum og fara beint á EM. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, og Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis, komu við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um stöðu kvennalandsliðsins og Evrópumótið sem er framundan.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Ég borða einn ís á 5 ára fresti” -#462

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Apr 4, 2024 11:38


Þetta er stóri samsæriskenningar þátturinn. Eva Ruza hringir inn og segir frá The Bachelor samsæriskenningum. Strákarnir ræða um risaeðlur og hvenær sé best að fara í sturtu. Hjálmar fattaði það að hann má ekki fatta heiminn svo auglýsum við eftir milljarðarmæringi. IG: helgijean & hjalmarorn110Hægt er að sjá þáttinn í mynd á pardus.is! Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Morðskúrinn
Fjöldamorð: Easter Sunday Massacre

Morðskúrinn

Play Episode Listen Later Apr 3, 2024 31:49


Páskarnir árið 1975 áttu að vera hátíðlegir og skemmtilegir fyrir alla Ruppert fjölskylduna en það var aldeilis ekki raunin. Einn meðlimur fjölskyldunnar tók afdrifaríka ákvörðun klukkan 16:00 á páskadag og í kjölfarið enduðu 11 einstaklingar látnir þar á meðal 8 börn.  Í kjölfarið var gerandinn dreginn til saka en það var ferli sem átti eftir að taka lengri tíma og var töluvert flóknara en fólk gat ímyndað sér.    Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kíkið á úrvalið af gæðavörum inn á www.definethelinesport.com    Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn   www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn   

Dr. Football
Einn á móti markmanni - Jörundur Áki Sveinsson yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ

Dr. Football

Play Episode Listen Later Feb 8, 2024 73:10


Jörundur Áki mætti til Dr. Football. Hann gegnir starfi yfirmanns knattspyrnumamála hjá KSÍ. Hann fór yfir deilur Toppfótbolta og knattspyrnusambandsins, hvernig við fórum að búa til markmenn, glæsilegan árangur yngri landsliða og hvernig fáum við konur í þjálfun.

Draugar fortíðar
#169 Pólitík og fótbolti: Lutz Eigendorf, Matthias Sindelar o.fl.

Draugar fortíðar

Play Episode Listen Later Dec 6, 2023 143:15


Við heyrum oft fólk segja að pólitík eigi ekki heima í listum og íþróttum. En er það rétt? Hafa listamenn í gegnum tíðina ekki bara verið mjög pólitískir heldur hreinlega haft áhrif á því sviði? Hafa Bob Dylan og Bubbi Morthens ekki verið pólitískir. Í þessum þætti ætlum við að skoða hvernig fótbolti og stjórnmál hafa rekist á hvort annað. Við tökum fyrir þá Lutz Eigendorf og Matthias Sindelar. Frábæra fótboltamenn sem margir telja að hafi verið ráðinn bani af tveimur illræmdustu leyniþjónustum sögunnar: Stasi og Gestapo. Einnig kíkjum við á aðra fótboltamenn sem hafa mikið skipt sér af stjórnmálum. Einn þeirra er meira að segja forseti síns heimalands í dag. Við skoðum einnig aðra sem aldrei hafa farið dult með sínar stjórnmálaskoðanir. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

lutz gestapo stasi einnig einn hafa matthias sindelar bubbi morthens