Heppni og Hetjudáðir

Follow Heppni og Hetjudáðir
Share on
Copy link to clipboard

Fjögurra manna hópur sem spilar Dreka & Dýflissur, fimmtu útgáfu. Spilið er hlutverkaspil sem byggir á spuna. Saman búum við til ævintýri með hjálp teninga. Hlaðvarpið er á íslensku, eða við reynum eftir fremsta megni að þýða það sem er á ensku. Aðal markmiðið er að hafa gaman og hlægja saman.

Jóhann, Svandís, Ívar og Kristín


    • Apr 10, 2023 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h 7m AVG DURATION
    • 72 EPISODES
    • 1 SEASONS


    Search for episodes from Heppni og Hetjudáðir with a specific topic:

    Latest episodes from Heppni og Hetjudáðir

    69 - Torgið

    Play Episode Listen Later Apr 10, 2023 48:38


    Hetjurnar í Týrunni reyna að ná áttum á torginu, þar sem faðir Nuk hefur losnað úr haldi og gengur berserksgang. Þau kljást við orka og risa, en sjá að lokum dularfullan mann í frakka í húsasundi. Ívar spilar Egor, firbolg drúíða á níunda stigi. Kristín spilar Gyu, hálf-álf og útvörð á áttunda stigi og laumupúka á fyrsta stigi.Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara Eldath á níunda stigi. Jói er leikja-, spuna-, og dýflissumeistarinn.

    krist nuk egor svand gyu
    68 - Líkaminn er hof

    Play Episode Listen Later Mar 23, 2023 58:43


    Hetjurnar okkar eru staðsettar í Tauriu, að leita uppi föður og fjölskyldu Nuk. Þau rekast á gamlan vin, og komast að örlögum fjölskyldumeðlima Nuk. Ívar spilar Egor, firbolg drúíða á níunda stigi. Kristín spilar Gyu, hálf-álf og útvörð á áttunda stigi og laumupúka á fyrsta stigi.Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara Eldath á níunda stigi. Jói er leikja-, spuna-, og dýflissumeistarinn.

    krist nuk egor svand gyu
    67 - Hversu margir orkar?

    Play Episode Listen Later Jun 15, 2022 86:30


    Hetjurnar okkar leggja af stað í leit að skyldmennum Nuk. Þau lenda í orrustu við mjög óskilgreindan fjölda af orkum. Svandís slær íslandsmet í teningakasti.Ívar spilar Egor, firbolg drúíða á níunda stigi. Kristín spilar Gyu, hálf-álf og útvörð á áttunda stigi og laumupúka á fyrsta stigi. Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara Eldath á níunda stigi. Jói er leika-, spuna-, og dýflissumeistarinn. 

    66 - Heima er best

    Play Episode Listen Later May 28, 2022 61:02


    Nuk snýr aftur heim á slóðir, á æskuheimili sitt í Tauriu. Móðir hans segir honum frá leyndarmáli sem haldið hefur verið milli minotaura í hundruðir ára, og tengist honum jafnvel á einhvern hátt. Ívar spilar Egor, firbolg drúíða á níunda stigi. Kristín spilar Gyu, hálf-álf og útvörð á áttunda stigi og laumupúka á fyrsta stigi. Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara Eldath á níunda stigi. Jói er leika-, spuna-, og dýflissumeistarinn. 

    65 - Til Tauriu

    Play Episode Listen Later Mar 20, 2022 60:55


    Í þessum þætti kveðja hetjurnar okkar Doctra, og halda til æskuslóða Nomanuk.Þau ferðast syðst til Alandriu, og vinna í því að reyna að lauma sér innfyrir veggi Tauriu, sem er hersetin af ýmsum verum...Svandís spilar Nomanuk sem er minotaur musterisriddari á 9. stigi. Ívar spilar Egor, sem  er firbolg drúíði á 8. stigi. Kristín spilar Gya, sem er skógarálfur og útvörður á 7. stigi, og laumupúki á 1. stigi. Jói er leikja-, spuna- og dýflissumeistarinn.

    egor gya svand
    64 - Kjallaraklandur

    Play Episode Listen Later Feb 27, 2022 58:23


    Í þessum þætti halda hetjurnar okkar með Mikka, að rannsaka áfram virkni Drekaköltsins í Doctra. Einhver ódauð virkni er byrjuð að birtast með komu þokkunar innfyrir verndarhjúp Doctra, og þau rannsaka yfirgefið hús. Svandís spilar Nomanuk sem er minotaur musterisriddari á 9. stigi. Ívar spilar Egor, sem  er firbolg drúíði á 8. stigi. Kristín spilar Gya, sem er skógarálfur og útvörður á 7. stigi, og laumupúki á 1. stigi. Jói er leika-, spuna- og dýflissumeistarinn.

    63 - Endurfundir

    Play Episode Listen Later Feb 13, 2022 66:29


    Í þessum þætti nær Nuk að flýja Metra, sem hefur fallið. Hann fær aðstoð úr óvæntri átt og gömlu hetjurnar okkar hittast aftur. Nuk, nýsloppinn úr helvíti, kemst þó að því að ástandið í Alandriu er ekki jafn gott og hann hefði vonað...Svandís spilar Nomanuk sem er minotaur musterisriddari á 9. stigi. Ívar spilar Egor, sem  er firbolg drúíði á 8. stigi. Kristín spilar Gya, sem er skógarálfur og útvörður á 7. stigi, og laumupúki á 1. stigi. Jói er leika-, spuna- og dýflissumeistarinn.

    62 - Metra fellur

    Play Episode Listen Later May 2, 2021 54:51


    Þeir Nomanuk, Joy og Emir jafna sig eftir bardagann við hvíta drekann, og halda aftur til Metra. Joy finnur á leiðinni gamlan vin, sem Nuk og Emir taka ekki jafn vel í. Í Metra hitta þeir Cavidin, sem hjálpar Emir að setja saman aftur Nonagoninn, en áður en þeir vita af, fara viðvörunarbjöllur að klingja í Metra...Þetta er síðasti þátturinn fyrir hlé, en við munum snúa aftur um leið og aðstæður leyfa!Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigiKristján spilar Emir, vedalken völund eða artificer á níunda stigi.Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi. Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari og snúrunagari.

    61 - Í köldum klóm

    Play Episode Listen Later Apr 25, 2021 93:56


    Rimlarnir leggja af stað upp í fjöllin fyrir austan Metra, á slóðir Antorax, fullorðins hvíts dreka. Vonin er að ná að endurhlaða nonagoninn hans Emirs, til að endurnýja kalda samrunann. Finna þeir það sem þeir leita að, eða bíður þeirra kaldur dauði?Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigiKristján spilar Emir, vedalken völund eða artificer á níunda stigi.Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi. Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari.

    ing emir metra emirs svand
    60 - Cavidin

    Play Episode Listen Later Apr 18, 2021 85:55


    Emir segir félögum sínum frá verkefni sem hann er með. Gangandi borgin, þaðan sem hann er, er á síðustu metrunum nema hann nái að laga tækið sem knýr hana áfram. Hann leitar ráða hjá Cavidin, einum umdeildasta uppfinningamanni Alandriu, og örlitlir tungumálaörðugleikar há hópnum. Cavidin lánar þeim vélmenni til að aðstoða við næsta verkefni. Nuk heimsækir gróf Eldath, niðri í Hvelfingunni neðan Metra. Joy á ágætis dag, þar sem hann telur að hann sé loksins laus við nýja vin sinn, dúkkuna. Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigiKristján spilar Emir, vedalken völund eða artificer á níunda stigi.Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi. Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari.

    59 - Metra

    Play Episode Listen Later Apr 12, 2021 66:28


    Rimlarnir koma til Metra, og Joy sem að fékk bakþanka um veru sína í klaustrinu nær þeim aftur. Þau skoða borgina, Emir virðist eiga þarna eitthvað erindi og Joy eignast nýjan vin í formi lítillar postulínsdúkku sem er alls ekki óhugguleg á neinn hátt....Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigiKristján spilar Emir, vedalkne völund eða artificer á níunda stigi.Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi. Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari.

    58 - Fjallageitur

    Play Episode Listen Later Mar 28, 2021 55:52


    Rimlarnir kynnast betur Lobsang klaustrinu, og Joy er búinn að finna sig í kyrrðinni sem þarna er. Þeir kynnast fararskjótum klaustursins, og halda af stað til Metra, en þessi fjallagarður er alræmdur fyrir frostrisa...Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigiKristján spilar Emir, vedalkne völund eða artificer á níunda stigi.Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi. Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari.

    ing emir metra lobsang svand
    57 - Lobsang

    Play Episode Listen Later Mar 21, 2021 55:38


    Hetjurnar okkar ljúka síðasta verkefni sínu fyrir Azra, og eru send aftur í sína vídd en kannski ekki alveg á réttan stað. Þau hitta loks dularfulla sópandi munkinn hann Lu-Tze, tímamunk og eina þekkta meistarann í bardagalistinni Dejá-Fu. Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigiKristján spilar Emir, vedalkne völund eða artificer á níunda stigi.Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi. Jói er leikjameistarinn. 

    56 - Rest af hest

    Play Episode Listen Later Mar 14, 2021 82:35


    Rimlarnir eru staddir á Phlegethos, fjórða lagi helvítis. Verkefni þeirra er að stela reiðtygjum af Náttmeri, sem er logandi helvítishestur, í eigu Narzugon sem er djöfull og musterisriddari ills. Þeir byrja vel, en eins og þeim einum er lagið fer ýmislegt úrskeðis...ATH foreldrar, í hita leiksins þá sleppur kannski f-orðið út fyrir varir leikmanna stöku sinni...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara eða paladin, á níunda stigi. Kristján leikur Emir, völund eða artificer, á níunda stigi.Ingolfur leikur Joy, ljóskáld eða bard, á níunda stigi. Jói er spunameistarinn.

    ath emir kristj hest verkefni svand
    55 - Phlegethos

    Play Episode Listen Later Feb 28, 2021 63:12


    Rimlarnir snúa til baka með bróður Azra, og verða fagnaðarfundir á milli bræðra... mögulega...Fjársjóð síðustu ferðar er skipt upp, og fær Nomanuk að vita að útsendarar Drekadrottningarinnar séu líklega að leita að sér. Þeir halda af stað í næsta verkefni, sem leiðir þá á fjórða stig helvítis, Phlegethos, sem er vídd fjalla, elds og brennisteins...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara eða paladin, á níunda stigi. Kristján leikur Emir, völund eða artificer, á níunda stigi.Ingolfur leikur Joy, ljóskáld eða bard, á níunda stigi. Jói er spunameistarinn.

    54 - Nárasnigill

    Play Episode Listen Later Feb 22, 2021 64:31


    Í þessum þætt þá eiga Rimlarnir við stóran keðjudjöful og stela eigum hans. Þeir bjarga Azra og leggja af stað aftur út í mýrina. Emir eignast tímabundið gæludýr. Svandís leikur Nomanuk, minotaur musterisriddara Eldath á áttunda stigi. Ingolfur leikur Joy, tiefling ljóðskáld og skemmtikraft á áttunda stigi.Kristján leikur Emir, vedalken völund á áttunda stigi. Jói er leikjameistarinn.

    53 - Keðjuborgin

    Play Episode Listen Later Feb 14, 2021 66:02


    ATH! Lýsingar í þessum þætti eru kannski ekki fyrir þá yngstu sem hlusta. Foreldrar, vinsamlegast "forhlustið". Rimlarnir fá í hendurnar næsta verkefni, sem leiðir þá í gegnum þriðja lag Helvítis, Minauria sem stýrt er af erkidjöflinum Mammon, og inn í Keðjuborgina. Þeim er falið að bjarga þar manni, og brjótast aftur inn í híbýli einhvers...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara á áttunda stigiIngolfur leikur Joy Malleus, bard og ljóðskáld á áttunda stigi. Kristján leikur Emir, artificer eða þúsundþjalasmið á áttunda stigi. Jói er leikjameistarinn.

    52 - Á flótta

    Play Episode Listen Later Feb 7, 2021 65:17


    Rimlarnir takast á við þennan hálf-guðlega djöful, en reynist vera þrautin þyngri og sérstaklega þegar hún fer að kalla eftir hjálp. Upp hefst flótti upp á líf og dauða úr borginni Dis. Þeir félagar trufla einnig Azra við lestur...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara á áttunda stigiIngolfur leikur Joy Malleus, bard og ljóðskáld á áttunda stigi. Kristján leikur Emir, artificer eða þúsundþjalasmið á áttunda stigi. Jói er leikjameistarinn.

    51 - Ástaróður

    Play Episode Listen Later Jan 31, 2021 86:14


    Hetjurnar okkar, með vinnutitilinn "Rimlarnir" fara í sitt fyrsta verkefni fyrir Azra. Förin tekur þá til borgarinnar Dis, á öðru stigi Helvítis. Joy syngur ástaróð til djöfuls á fjölfarinni götu, og félagarnir brjótast inn í hús.Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara á áttunda stigiIngolfur leikur Joy Malleus, bard og ljóðskáld á áttunda stigi. Kristján leikur Emir, artificer eða þúsundþjalasmið á áttunda stigi. Jói er leikjameistarinn.

    50 - Samningur í Helvíti

    Play Episode Listen Later Jan 24, 2021 70:49


    Nuk rankar við sér í búri, á þrælamarkaði í helvíti. Þar er hann Joy, sem einhvernveginn kom sér aftur í klandur og endaði þarna. Einning er með þeim blá vera, sem þeir hafa aldrei séð áður. Hetjurnar okkar eru keyptar, og boðin möguleg leið aftur upp í veraldlegu víddina, þaðan sem þeir komu, gefið að þeir skrifi undir samning...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara á áttunda stigiIngolfur leikur Joy Malleus, bard og ljóðskáld á áttunda stigi. Kristján leikur Emir, artificer eða þúsundþjalasmið á áttunda stigi. Jói er leikjameistarinn.

    49 - Tekin

    Play Episode Listen Later Jan 17, 2021 86:53


    Bardaginn við hyrnda djöfulinn hefst, en ná þau að bjarga Fjólu áður en það er of seint? Eftir atburðina, þá halda þau á leið úr skóginum, en það virðist vera að drekinn Viridia sé komin á slóð þeirra, að leita hefnda eftir morðið á afkvæmi sínu...Svandís leikur Nomanuk, sem er minotaur paladin á áttunda stigi. Ívar leikur Egor, firbolg drúíða á áttunda stigi. Kristín leikur Gyu, sem er útvörður á sjöunda stigi, og fyrsta stigs laumupúki. Jói er leikja-, spuna-, og dýflissumeistari þáttarins.

    48 - Lífstréð

    Play Episode Listen Later Jan 10, 2021 56:12


    Hetjurnar okkar fara á gamla heimili Egor og taka þar stöðuna. Þangað liggur ein af rótum lífstrésins og komast að því að það er eitthvað búið að eiga við þessa rót. Egor á einlægt spjall við Lífstréð. Þau halda loks heim til Greni, til að reyna að komast til botns í þessu máli. Svandís leikur Nomanuk, sem er minotaur paladin á áttunda stigi. Ívar leikur Egor, firbolg drúíða á áttunda stigi. Kristín leikur Gyu, sem er útvörður á sjöunda stigi, og fyrsta stigs laumupúki. Jói er leikja-, spuna-, og dýflissumeistari þáttarins.

    krist egor greni svand gyu
    47 - Lífið finnur leið

    Play Episode Listen Later Dec 20, 2020 79:54


    Þáttur 47. (Ég segi af einhverjum ástæðum 46 í byrjun ...)Týran er í Grófinni og kemst nær því sem er að gerast í heimaskógi Egors. Þau fara að leita að Tzarov, en ekki án þess að einhverj reyni að koma í veg fyrir það og stendur tæpt. Fimm lúðastig í boði fyrir að þekkja tilvitnunina á heiti þáttarins!Svandís leikur Nomanuk, sem er minotaur paladin á áttunda stigi. Ívar leikur Egor, firbolg drúíða á áttunda stigi. Kristín leikur Gyu, sem er útvörður á sjöunda stigi, og fyrsta stigs laumupúki. Jói er leikja-, spuna-, dýflissu- og jólameistari þáttarins.

    46 - Grófin

    Play Episode Listen Later Dec 13, 2020 58:15


    Týran hitti föður hans Egor. Eftir umhugsun halda þau til baka í bæinn Miðskóg, og fara á fund ráðsins. Þau heimsækja grófina en verða þau dæmd þess virði til að kíkja þangað inn?

    45 - Frímslið

    Play Episode Listen Later Dec 6, 2020 79:04


    Týran leitar föðurs han Egors, þar sem pabbi hans var sendur af skógar-ráðinu til að kanna með líklegt Frímsli sem var að valda usla. Svandís leikur Nomanuk, sem er minotaur paladin á áttunda stigi. Ívar leikur Egor, firbolg drúíða á áttunda stigi. Kristín leikur Gyu, sem er útvörður á sjöunda stigi, og fyrsta stigs laumupúki.

    krist egor svand gyu
    44 - Fjóla hittir Fjólu

    Play Episode Listen Later Nov 29, 2020 76:09


    Týran kemur inn í skóginn hans Egor, og þau hitta æsku-ástina hans Egor, hana Fjólu. Þau kynnast bænum, Nuk fer í teboð með birni, og þau hitta mömmu hans Egor. Þau tala um viðkvæma hluti og mögulega spillingu, en komast að því að íkornar hafa eyru víða...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara/paladin áttunda stigi. Kristín leikur Gyu, útvörð/ranger á sjöunda stigi, og laumupúka/rogue á fyrsta stigi. Ívar leikur Egor, Drúíða/Druid á áttunda stigi.

    43 - Kynlegir kvistir

    Play Episode Listen Later Nov 22, 2020 63:33


    Týran leggur af stað til Gren-Nahele. Egor er afar spenntur þegar nálgast bæinn Ferial, sem liggur fyrir utan skóginn. En eins og hefðin er, þá er ekki allt með felldu í þessum bæ, og sum tré eru ekki öll þar sem þau eru séð...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara/paladin áttunda stigi. Kristín leikur Gyu, útvörð/ranger á sjöunda stigi, og laumupúka/rogue á fyrsta stigi. Ívar leikur Egor, Drúíða/Druid á áttunda stigi.

    druid krist egor ferial svand gyu
    42 - Nuk og dýragarðurinn

    Play Episode Listen Later Nov 15, 2020 77:17


    Týran kemst í bæinn með 12 grunsamleg börn með sér, og móttökurnar eru aðeins öðruvísi en þau bjuggust við. Á hælum þeirra er eiginleg uppeldismóðir þessara barna, sem er enganveginn sátt að þau hafi verið tekið frá sér...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara/paladin á sjöunda stigi. Kristín leikur Gyu, útvörð/ranger á sjötta stigi, og laumupúka/rogue á fyrsta stigi. Ívar leikur Egor, Drúíða/Druid á sjöunda stigi.

    41 - Yrðlingar

    Play Episode Listen Later Nov 8, 2020 52:16


    Týran fær að sjá raunverulegt andlit konunnar í skóginum, og finnur eitthvað í kjallaranum sem þau áttu ekki von á. Þau reyna að komast hratt en laumulega í bæinn sem liggur nær miðjum skógi, en það er eitthvað á eftir þeim...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara/paladin á sjöunda stigi. Kristín leikur Gyu, útvörð/ranger á sjötta stigi, og laumupúka/rogue á fyrsta stigi. Ívar leikur Egor, Drúíða/Druid á sjöunda stigi.

    40 - Kofinn í skóginum

    Play Episode Listen Later Nov 1, 2020 61:24


    Týran kveður Fidem þar sem Egor er farinn að hafa áhyggjur af Gren-nahele. Gya fær verkefni frá Selune, þar sem grunur er um að frumúlfur sé að reyna og umbreyta börnum í varúlfa, í nálægum skógi. Þau hitta vinalega konu í skóginum sem býður þeim í kaffi og með því...Svandís leikur Nomanuk, musterisriddara/paladin á sjöunda stigi. Kristín leikur Gyu, útvörð/ranger á sjötta stigi, og laumupúka/rogue á fyrsta stigi. Ívar leikur Egor, Drúíða/Druid á sjöunda stigi.

    druid krist gren egor selune gya svand gyu
    39 - Beinadjöfullinn

    Play Episode Listen Later Oct 25, 2020 87:52


    Týran, ásamt Joy eru stödd í vagnakirkjugarði þar sem hundruðir uppvakninga og annara vandauðra eru að fara að streyma inn í borgina Fidem. Þau standa loks augliti til auglitis við það sem þau hafa verið að elta, frá því þau voru rétt komin burt frá Zebron... beinadjöfulinn. Ingolfur leikur Joy, söngvaskáld/bard á sjöunda stigiSvandís leikur Nomanuk, musterisriddara/paladin á sjöunda stigi. Kristín leikur Gyu, útvörð/ranger á sjötta stigi, og laumupúka/rogue á fyrsta stigi. Ívar leikur Egor, Drúíða/Druid á sjöunda stigi.

    38 - Söfnuður hins Innri Guðs

    Play Episode Listen Later Oct 19, 2020 91:18


    Í þættinum í dag fáum við til okkar í spil, hann Ingolf Grétarsson, fjölmiðlunarfrumkvöðul og hlaðvarpara úr "Þarf allt að vera grín".Hetjurnar okkar hitta prédikara á götunni, hvítan Tiefling, sem býður þeim á fund í nýja söfnuðinum sínum, söfnuður hins innri guðs. Hann hefur ekki miklar áhyggjur af því, en hann hefur verið að sjá keðjur sem hreyfast af sjálfu sér, og stórt svæði af tómun vögnum...Ingolfur leikur Joy, söngvaskáld/bard á sjöunda stigiSvandís leikur Nomanuk, musterisriddara/paladin á sjöunda stigi. Kristín leikur Gyu, útvörð/ranger á sjötta stigi, og laumupúka/rogue á fyrsta stigi. Ívar leikur Egor, Drúíða/Druid á sjöunda stigi.

    37 - Leyndarmál Úlfsins

    Play Episode Listen Later Oct 11, 2020 74:01


    Týran klárar verkefni, og tóku vel á vanhæfum verktaka. Gya mætir í athöfnina til að reyna að bjarga Hilönu, og tekur stórar ákvarðanir varðandi áframhaldið...

    hil leyndarm gya
    36 - Sleginn til riddara

    Play Episode Listen Later Oct 4, 2020 59:27


    Týran er áfram stödd í Fidem. Nuk heimsækir hof Eldath, og staðfestir braut sína til musterisriddara í hennar nafni. Hann hefur þá heimsótt hina fyrstu gróf Eldath, og þarf að heimsækja aðrar sex grófir til að ljúka þessari vegferð. Hann fær einnig aðeins meiri upplýsingar um þennan ófrið sem virðist vera í uppsiglingu í Alandriu. Þau hitta Töshu, yfirborgarvörð Fidem, og Gya eignast í leiðinni vinkonu. Nuk er sjöunda stigs musterisriddari. Egor er sjöunda stigs drúiði.Gya er sjötta stigs útvörður, og fyrsta stigs laumupúki (rogue).

    35 - Leynifundur

    Play Episode Listen Later Sep 27, 2020 68:16


    Eftir að hafa skilið Hilönu eftir í hofi Selune, þá halda hetjurnar á... mögulegan... fund við drúíða. Gya loksins notar afréttarann sinn. Þau brjóta útivistarbann borgarinnar, rekast á húðflúraða álfa, og hrafn skoðar Gyu aðeins betur...

    eftir hil selune gya gyu
    34 - Athöfnin

    Play Episode Listen Later Sep 20, 2020 52:52


    Týran fer með Hilönu aftur á Vindlaufssetrið. Þau reyna það sem þau geta til að bjarga henni, en það þarf eitthvað meira til. Þau halda því áfram til Fidem, í hof Selune. Gya tekur eftir einhverri dularfullri athygli sem henni er veitt...Nuk er Minotaur musterisriddari (paladin), á sjöunda stigi.Egor er Firbolg drúiði, á sjöunda stigiGya er sjötta stigs útvörður (ranger) og fyrsta stigs laumupúki/einfari (rogue... betri þýðing er í bið) ;o)

    minotaur hil nuk egor firbolg selune gya
    33 - Trúnó og gamlir óvinir

    Play Episode Listen Later Sep 13, 2020 88:31


    Týran heldur af stað, og finnur hellinn þar sem þau telja Olocan halda Hilönu. Upphefst mikil orrusta sem stendur tæpt... ná þau að lifa af og bjarga Hilönu?

    32 - Vindlaufssetrið

    Play Episode Listen Later Sep 6, 2020 62:54


    Gya kemur aftur á heimaslóðir að Vindlaufssetrinu, og hetjurnar okkar kynnast þar fjölskyldunni. Egor kynnist heimilishundunum, og Nomanuk kynnist honum Halldóri, yfirþjón...

    Við Varðeldinn 3

    Play Episode Listen Later Sep 1, 2020 16:37


    Förum yfir söguna hingað til, eða eins og Supernatural aðdáendur þekkja það: "The Story So Far". (Þið verðið bara að ímynda ykkur Carry on wayward son í bakgrunninum). Þessi þáttur er tekinn upp á milli þáttar 30 og 31.

    31 - Vetrarfeldur

    Play Episode Listen Later Aug 31, 2020 77:28


    Týran heldur af stað frá hafnarbænum, í átt að fyrrum heimili Gyu. Sem áður, eiga óvenjulegir hlutir sér stað. Þau rekast á skepnur, sem virðist búið að vera að eiga eitthvað við...

    sem gyu
    30 - Á sjó

    Play Episode Listen Later Aug 23, 2020 70:54


    Týran, ásamt Gordon Mystra, halda leið sinni áfram. Þau lenda í sjávarháska, og hugsa upp leiðir til að fjármagna sig með sölu nátturulegra bætiefna.

    29 - Gordon Mystra

    Play Episode Listen Later Aug 16, 2020 53:14


    Týran heldur aftur til Antora, á leið sinni vestur með veggnum í átt að Occidia, þar sem skip bíður þeirra til að komast suður. Gya fékk áður skilaboð frá fyrrum vinnuveitanda, og mætti kalla fósturfjölskyldu, um að dóttur hjónanna hefði verið rænt og þurf þau að komast þangað. Með þeim slæst í för Gordon Mystra, hálf-álfur. Við fáum til okkar gest, hann Matthías T. Haraldsson, leikskáld, leikstjóra, Eurovisionfara og söngvara hljómsveitarinnar Hatari.

    28 - Þetta mjakast

    Play Episode Listen Later Jun 28, 2020 79:15


    Hetjurnar okkar berjast við Al'Tiem í Entem, einu af virkjunum við vegginn. Þetta stendur ansi tæpt, og berst eltingarleikurinn út að fjörunni við fljótið, sem aðskilur Dauðalöndin frá restinni af Alandriu.

    27 - Entem

    Play Episode Listen Later Jun 21, 2020 55:14


    Eftir að hafa tilkynnt komu sína innfyrir gáttir Entem, þá kemst Týran skrefi nær að komast að því hvað er þarna á seyði. Kolkrabbi, eða tveir, koma við sögu. Eru þau mögulega að taka stærri bita en þau ráða við?

    26 - Kunnugir staðháttum

    Play Episode Listen Later Jun 8, 2020 57:59


    Týran leggur af stað til Entem, að kanna málið fyrir Magna.

    25 - Írela

    Play Episode Listen Later Jun 1, 2020 68:31


    Gya segir vinum sínum frá skilaboðunum sem hún fékk. Þau ákveða að hjálpa henni, og leggja af stað suður, en óvæntur fundur í fjörunni við vegginn tefur þau aðeins. Þau fyllast grunsemdum um hana Írelu og ákveða að kanna hana aðeins nánar.

    rela gya
    24 - Hvar sefur Sunni?

    Play Episode Listen Later May 24, 2020 65:56


    Týran lendir í orrustu við verur í kirkjugarði Antora. Komast þau eitthvað nær því hvað er á seyði?

    23 - Partý í kirkjugarði

    Play Episode Listen Later May 17, 2020 60:03


    Síðasta þætti lauk með því að Týran var að skoða kirkjugarð við Antora og eitthvað grípur í fót Nomanuk..

    22 - Antora

    Play Episode Listen Later May 10, 2020 63:38


    Týran kemur sér fyrir í Antora. Þau skoða borgina, hitta nýja vini, og Mubbi vinnur í því að semja lag.

    21 - Þurrir ódauðir

    Play Episode Listen Later May 4, 2020 56:40


    Hetjurnar okkar færast nær Antora, og Mubbi hefur slegist í för með þeim. Þau nálgast virkið, en sveitirnar um kring er alsettar þoku, og moldin ansi líflaus á bragðið...

    20 - Stál og hnífur

    Play Episode Listen Later Apr 26, 2020 76:12


    Hetjurnar okkar leggja af stað frá Bellum, í átt að Antora, veggnum sem liggur til norðurs. Þau komast í hann krapann, og fá hjálp úr óvæntri átt.

    Claim Heppni og Hetjudáðir

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel