Jólaþættir Rásar 1

Follow Jólaþættir Rásar 1
Share on
Copy link to clipboard

Útvarpsþættir sem gerðir voru fyrir jóladagskrá Rásar 1 árið 2018.

RÚV


    • Dec 24, 2018 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 14 EPISODES


    More podcasts from RÚV

    Search for episodes from Jólaþættir Rásar 1 with a specific topic:

    Latest episodes from Jólaþættir Rásar 1

    Sögur af mönnum, siðum og siðrofi

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.

    Jól með Arethu Franklin

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Umsjón: Guðni Tómasson.

    gu umsj arethu franklin
    Heims um ból

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Á þessu ári eru 200 ár síðan jólasöngurinn „Heims um ból" var frumfluttur árið 1818 í Oberndorf í Austurríki. Organistinn Franz Xaver Gruber samdi lagið við ljóð sem presturinn Joseph Mohr orti tveimur árum fyrr. Afmælinu er fagnað með því að söngurinn er fluttur á þýsku í sinni upprunalegu gerð frá 1818: tveir einsöngvarar, kór og gítar, eins og við frumflutninginn. Þá verður „Heims um ból" flutt á ýmsum öðrum tungumálum svo sem spænsku, búlgörsku, japönsku - og auðvitað íslensku. Lesari: Pétur Grétarsson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

    Með jákvæðni og umburðarlyndi að vopni

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Handhafi verðlauna Jónasar Hallgrímssonar. Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor, hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi í íslenskrar tungu 16. nóvember 2018. Eiríkur er óþreytandi talsmaður íslenskrar tungu og hefur unnið ötullega að því að vekja athygli ráðamanna á nauðsyn þess að efla máltækni á íslensku. Hann hefur jafnframt bent á hve mikilvægt er að vekja áhuga ungs fólks á málinu og að sjá til þess að það verði nothæft á öllum sviðum samfélagsins um ókomna tíð. Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Kristur, guð eða maður eða bæði?

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Ævar Kjartansson reifar hugmyndina um Krist og ræðir við Sverri Jakobsson, sagnfræðing og guðfræðingana Arnfríði Guðmundsdóttur og Rúnar M. Þorsteinsson.

    Engill dauðans: spænska veikin á Íslandi nr. 2

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Spænska veikin varð fimmtíu til hundrað milljónum að bana þegar hún reið yfir heimsbyggðina fyrir hundrað árum. Saga veikinnar á Íslandi er rakin í tveimur þáttum. Seinni þátturinn fjallar um hörmungarnar á mörgum þéttbýlisstöðum þegar meirihluti íbúa veiktist og margir dóu. Sagðar eru sögur af fólki sem lifði og fólki sem dó og hvernig landsmenn brugðust við. Umsjón: Brynjólfur Þór Guðmundsson. Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir.

    Engill dauðans: spænska veikin á Íslandi nr. 1

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Spænska veikin varð fimmtíu til hundrað milljónum að bana þegar hún reið yfir heimsbyggðina fyrir hundrað árum. Saga veikinnar á Íslandi er rakin í tveimur þáttum. Fyrri þátturinn fjallar um það hvernig faraldur spænska veikin var, hvers vegna hún varð svona mannskæð, hvers vegna hún fékk þetta nafn og hvernig Íslendingar brugðust við þegar fóru að berast fréttir frá útlöndum af fjölda dauðsfalla. Þáttagerð: Brynjólfur Þór Guðmundsson. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

    Jólin - Með okkar augum

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Óvenjulegur hátíðarþáttur fyrir venjulegt fólk. Fólkið úr hinum vinsælu sjónvarpsþáttum „Með okkar augum" skoðar ýmsar hliðar jólahátíðarinnar. Yfirumsjón: Elín Sveinsdóttir.

    Hér er Grýla nr. 2

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Tveir þættir um Grýlu og hyski hennar. Í seinni þættinum er fjallað um Grýlu sem móður, uppalanda og uppeldisaðferð. Grýla á sér mörg andlit - eða marga hausa öllu heldur - og er hér fjallað hvorutveggja, um hana sem eyðandi afl, sársvanga flökkukonu en einnig sem krafmikla kerlingu sem er öllum tröllum fremst og mest - best og verst. Viðmælendur: Ragnhildur Gísladóttir, Zarko Linetti, Lalli töframaður, Eva Þórdís Ebenezardóttir, Kristín Einarsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Dagrún Jónsdóttir. Einnig eru spilaðir hljóðbútar af vefnum ismus.is sem haldið er úti af Árnastofnun. Lesari: Bergsteinn Sigurðsson. Umsjón: Bryndís Björgvinsdóttir.

    Hér er Grýla nr. 1

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Tveir þættir um Grýlu og hyski hennar. Í fyrri þættinum er þessi óvætt skoðuð meðal annars í gegnum mat og matarsiði, bæði hennar og okkar mannfólksins. Fjallað verður um Grýlukvæði, þjóðsögur um tröll og fleira, sem lýsa Grýlu og hennar hyski sem hvorutveggja í senn: jólavætti og innrásarliði sem sækist í mat. Umsjón: Bryndís Björgvinsdóttir. Lesari: Bergsteinn Sigurðsson. Viðmælendur: Kristín Einarsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir og Kormákur Karl Gunnarsson. Einnig verða spilaðir hljóðbútar af vefnum ismus.is sem haldið er úti af Árnastofnun.

    Eplailmur og sotulyng nr. 3

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Þriðji og síðasti þáttur. Í þáttunum er rætt við nokkra íbúa á Hrafnistu í Hafnarfirði og Reykjavík, sem fæddir eru á fyrri hluta síðustu aldar. Þau rifja upp bernskuminningar frá æskustöðvunum og segja einnig frá því hvernig jólahaldi var háttað á þeirra heimilum. Í þessum þætti er rætt við Valgarð Briem og Báru Jónsdóttur. Við heyrum meðal annars frásagnir um unga manninn sem dreymdi um að verða bóndi en varð lögmaður og hvernig heimilislífið var í stóru húsi í miðbænum. Við heyrum líka um lífið úti á landi þegar hermennirnir léku við krakkana og skemmtilegast var að fara í berjamó í sólskininu. Og af hverju létu foreldrar eitt barnið úr barnahópnum sínum yfir á næsta bæ? Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir.

    Eplailmur og sortulyng nr. 2

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Annar þáttur af þremur. Í þáttunum er rætt við nokkra íbúa á Hrafnistu í Hafnarfirði og Reykjavík, sem fæddir eru á fyrri hluta síðustu aldar. Þau rifja upp bernskuminningar frá æskustöðvunum og segja einnig frá því hvernig jólahaldi var háttað á þeirra heimilum. Í öðrum þætti er rætt við þau Sesselju Níelsdóttur og Ársæl Egilsson. Við heyrum meðal annars frásagnir um hversu miklu máli selir og rekaviður skiptu í sveitinni hjá Sesselju, allt var nýtt og ekkert fór til spillis. Heimilið var þvegið hátt og lágt á laugardögum og gólfið skúrað með sandi og sápu. Á Bíldudal gerðist Ársæll mjólkurpóstur 12 ára gamall og fór svo á sjóinn strax eftir fermingu. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir.

    Eplailmur og sortulyng nr. 1

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018


    Fyrsti þáttur af þremur. Í þáttunum er rætt við nokkra íbúa á Hrafnistu í Hafnarfirði og Reykjavík, sem fæddir á fyrri hluta síðustu aldar. Þau rifja upp bernskuminningar frá æskustöðvunum og segja einnig frá hvernig jólahaldi var háttað á þeirra heimilinum. Í fyrsta þætti er rætt við Guðbjörgu Svövu Eysteinsdóttur og Sigurð S. Waage. Við heyrum meðal annars um harða lífsbaráttu í afskekktri sveit og hvernig upplifun það var fyrir 10 ára dreng þegar breski herinn kom til Reykjavíkur. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir.

    Karlar prjóna

    Play Episode Listen Later Dec 14, 2018


    Rætt er við karlmenn á öllum aldri sem stunda prjónaskap og ýmsa fagaðila sem koma að ullarframleiðslu og framgangi prjónamennsku á Íslandi. Viðmælendur eru Ásdís Jóelsdóttir, Sigurbjörn Hjartarson, Sigurður Sævar Gunnarsson, Sunna Jökulsdóttir, Þuríður Einarsdóttir , Ármann Eggertsson, Kristján Atli Sævarsson, Ólafur Benediktsson, Hallbjörn Rúnarsson, Karen Ósk Sigurðardóttir, Elís Bergmann Valgeirsson, Bergþór Pálsson, Gísli Víkingsson, Sigmundur Grétar Hermannsson og Eldar Arnarsson. Í þættinum heyrist frumsamin tónlist eftir Helga Rafn Ingvarsson. Jafnframt hljómar tónlist eftir My Bubba, Bill Oddie og Helga Björnsson. Umsjónarmaður: Pétur Oddbergur Heimisson.

    Claim Jólaþættir Rásar 1

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel