Podcasts about hallbj

  • 17PODCASTS
  • 112EPISODES
  • 1hAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Jun 24, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about hallbj

Latest podcast episodes about hallbj

Víðsjá
Læknar og borgarskipulag, Hallbjörg Bjarnadóttir og afmæliskort frá Hildigunni Birgisdóttur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 24, 2024 50:52

Í þættinum kíkjum við inn á Mokkakaffi við Skólavörðustíg. Þar var opnuð á dögunum sýning á pínupínu litlum vatnslitamyndum í stórum álrömmum. Og myndefnið á myndunum kemur allt úr einu og sama afmæliskortinu. Það er Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarmaður sem nú sýnir líka verk sín fyrir Íslands hönd á tvíæringnum í Feneyjum, sem hefur sett þessar litlu dularfullu myndir upp á veggina á Mokka í sýningu sem hún kallar Innilegar hamingjuóskir með afmælisdaginn. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, heldur áfram umfjöllun sinni um félagsleg húsnæði hér á landi. Í dag er hún með hugan við þátt lækna í uppbyggingu Reykjavíkurborgar. Að lokum hugum við að söngkonunni og skemmtikraftinum Hallbjörgu Bjarnadóttur og kynnum okkur menningarólgu við landnám djasstónlistar á Íslandi.

Mannlegi þátturinn
Fjölmenningarþing, vinkill og Sveinn Sampsted lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 6, 2024 51:33

Fjölmenningarþing var haldið á vegum Reykjavíkurborgar nú um helgina en þingið er mikilvægur vettvangur virkrar umræðu sem snertir á málefnum innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg er fjölmenningarborg og eru um fjórðungur íbúa hennar af erlendum uppruna. Á þinginu var til dæmis varpað fram spurningunum: Fjölmenningarfærni - sitjum við öll við sama borð? Ert þú fjölmenningarfær? Getur góð þýðing á bókmenntum falið í sér inngildingu? Hvernig þróum við samfélagstúlkun í breyttu samfélagi? Íslenska töluð með hreim - hefur það áhrif á samskipti í daglegu lífi? Guðný Bára Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem kom fram á þinginu. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og vinkill dagsins var lagður við komandi forsetakosningar, frá nokkrum hliðum. Til dæmis hvernig sameiginlegur kynningarþáttur getur haft áhrif á skoðanir þeirra sem hafa kosningarétt, en líka hvaða forsendur við gefum okkur áður en uppáhaldsframbjóðandi er valinn og hvort við séum tilbúin til að breyta um skoðun ef okkar manneskja stendur sig síður en aðrir í kynningu, eða hvort við höldum tryggð við fyrsta val. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Sveinn Sampsted íþróttafræðingur. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Sveinn sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum: Uppruni (Origin á ensku) e. Dan Brown Iron Widow e. Xiran Jay Zhao Eldarnir e. Sigríði Hagalín Björnsdóttur Barn að Eilífu e. Sigmund Erni Rúnarsson Andrés Önd Syrpurbækurnar frá Disney Tónlist í þættinum í dag: Ef ég hefði vængi / Halli Reynis og Elínrós Ben (Haraldur Reynisson) Velkomin / Bubbi (Bubbi Morthens) Vorið er komið / Gísli Rúnar Jónsson (Hallbjörg Bjarnadóttir, texti Jón Thoroddsen) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Gísli Örn föstudagsgestur og matarspjall um dýrasta krydd í heimi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 3, 2024 50:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri. Hann útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2001. Hann hefur sett upp fjölda leiksýninga á Íslandi og erlendis, sem höfundur og leikstjóri og hefur leikið á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hann hefur starfað við fjölda virtra leikhúsa á Íslandi, í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og víðar. Hann leikstýrir Frosti í Þjóðleikhúsinu í vetur og í haust verður sýningin vinsæla Ellý tekin aftur til sýninga í Borgarleikhúsinu. Meðal leikstjórnarverkefna hans eru einminn Ellý, Jólaboðið, Fólk, staðir og hlutir, Ofviðrið, Óþelló, Í hjarta Hróa hattar, Hamskiptin, Faust, Woyzeck og Rómeó og Júlía. Hann er einn af stofnendum Vesturports. Hann hefur tvívegis hlotið Edduverðlaunin sem leikari og hefur unnið til alþjóðlegra leiklistarverðlauna fyrir leikstjórn. Hann er einn af leikstjórum sjónvarpsþáttaraðarinnar Verbúðarinnar, auk þess sem hann er einn af leikurum, handritshöfundum og framleiðendum þáttanna og nú standa yfir tökur á sjónvarpsþáttum um Vigdísi Finnbogadóttur sem verða sýndir á næsta ári í sjónvarpinu. Við fórum með Gísla á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag með viðkomu í Noregi, Hlíðunum, fimleikum og miklu víðar. Og í matarspjalli dagsins var saffran, kryddið dýra, í aðalhlutverki og við fengum dýrindisuppskrift af risarækjum í saffrankryddi og tagliatelle. Og sú uppskrift kom ekki frá Sigurlaugu heldur úr smiðju Gunnars Hanssonar. Tónlist í þættinum í dag: Vorið er komið / Gísli Rúnar Jónsson (Hallbjörg Bjarnadóttir, texti Jón Thoroddsen) Allt mitt líf / Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Umberto Bindi, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Summer / Greg Hildreth (Kristen Anderson, Lopez & Robert Lopez) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Góðan morgun Føroyar
Góðan morgun Føroyar

Góðan morgun Føroyar

Play Episode Listen Later Apr 18, 2024 133:30

Veðrið, tema um trygd á arbeiðsplássinum, tannrøktarin Við í sendingini eru: Hanus Kjølbro, Rógvi Holm, Hallbjørg Lamhauge, Anna Dam, Mai-Britt Kjærbo

ve holm hallbj
Morgunvaktin
Óstöðugleiki snúinn aftur í íslensk stjórnmál

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 28, 2023 130:00

Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, kom á Morgunvaktina og ræddi um stjórnmálaárið sem er að líða. Hann sagði árið hafa einkennst af því að óstöðugleiki hafi snúið aftur í íslensk stjórnmál. Mikil verðbólga og háir vextir, auk erfiðleika í stjórnarsamstarfinu, valdi því. Á næsta ári verða kjarasamningar eitt stærsta viðfangsefni stjórnvalda, auk þess sem líklegt er að orkumál, útlendingamál og sjávarútvegsmál verði stór. Við héldum líka áfram að líta yfir farinn veg í aðdraganda áramóta. Þó jarðhræringar á Reykjanesi hafi verið í brennidepli undanfarið var þess minnst fyrr á árinu að 50 ár voru liðin frá því að gaus í Vestmannaeyjum. Þá ræddum við hér á Morgunvaktinni við Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra í Eyjum, en hún var eins árs þegar fjölskylda hennar, eins og aðrar, þurftu að fara upp á land. Og í síðasta hluta þáttarins rifjuðum við upp viðtal við Ársæl Arnarson prófessor við Háskóla Íslands um húmor. Tónlist: Hljómsveit Ole Höyer, Hallbjörg Bjarnadóttir - Ennþá man ég hvar. Mannakorn - Samferða Mannakorn - Óralangt í burtu Helena Eyjólfsdóttir - Gamla gatan.

Morgunvaktin
Óstöðugleiki snúinn aftur í íslensk stjórnmál

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 28, 2023

Drinking Horn Meadcast
#36 - Throwback YULE episode!

Drinking Horn Meadcast

Play Episode Listen Later Dec 15, 2023 41:02

A re-release of one of our most popular episodes! Get excited for this year's Yule celebrations with this throwback.It's December 2021 and our resident Mead Hall viking, Hallbjörn, joins us once again at the Long Table. This episode is a celebration of all things YULE. Grab a mead, stoke the fire, and maybe learn a little bit more about the origins of this holiday season. Skal!

Víðsjá
Athugasemdir, Tunglóður, Jerúsalem

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 8, 2023

Ljóðverkið Tunglóður er óðs manns óður segir í kynningartexta um nýja ljóðabók, fyrstu ljóðabók Karls Ólafs Hallbjörnssonar. Karl Ólafur er heimspekimenntaður og innblásinn af skáldskap fornaldar, íslenskri náttúru og reynir gjarnan að hafa brag á ljóðunum án þess að hafa hátt eins og hann kemst sjálfur að orði. Þetta er óður til hverfulla tunglhvarfa tilfinninganna og óður til hversdagslegu fegurðarinnar sem dvelur í náttúrunni og tungumálinu. Við ræðum allt þetta betur við Karl Ólaf Hallbjörnsson í þættinum. Við erum öll með tengingu, segir listakonan Hildigunnur Birgisdóttir um fjórmenningana sem hafa undanfarin ár rekið gallerí Open við Grandagarð og listakonuna sem þar sýnir um þessar mundir; Ingibjörgu Sigurjónsdóttur. Sýning Ingibjargar, Athugasemdir, mun vera sú allra síðasta sem þetta smáa en knáa rými gefur af sér en það hefur verið starfrækt í fimm gjöful ár. Við lítum inn í Open í þætti dagsins og ræðum við þær Hildigunni og Ingibjörgu, um augnablik sem gerast, geymslurými listamanna, auðmeltanlega eilífð, listafimleika og hina örfinu línu milli listaverks og rusls. Og við fáum bókarýni í þætti dagsins. Nýverið gaf Una útgáfuhús út skáldsöguna Jerusalém eftir Gonçalo M. Tavares í þýðingu Pedro Gunnlaugs García. Gauti Kristmannsson rýnir í Jerúsalem hér um miðbik þáttar.

open salem jer jerusal tavares gon lj karls sigurj ingibj hallbj ingibjargar gauti kristmannsson
Víðsjá
Athugasemdir, Tunglóður, Jerúsalem

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 8, 2023 55:00

Sögusýning í Garðabæ, veðurspár í þjóðsögum og Karl lesandi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 30, 2023

Í Garðabænum er verið að opna nýja margmiðlunarsýningu um sögu Garðabæjar allt frá landnámi til dagsins í dag. Sýningin þykir glæsileg þó hún sé staðsett í fyrrum ruslageymslu á Garðatorgi. Hringur Hafsteinsson hjá Gagarín er einn höfunda sýningarinnar og hann hefur haft mikla ánægju af þessu verkefni enda alinn upp í Garðabænum og hann sagði okkur í dag frá endurbættri sýningu í rústum næststærsta landnámsskála á Íslandi sem er í Garðabæ en þar munum verður hægt að horfa í í gegnum sýndarveruleikakíkja aftur landnámstímans. Við töluðum við Hring í þættinum í dag. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn bar hann vinkilinn að veðurspám, eða hvernig veðurspár koma fram í þjóðsögum og ævintýrum Jóns Árnasonar. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Karl Ólafur Hallbjörnsson heimspekingur. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Hann talaði um eftirtaldar bækur og höfunda: Book of the New Sun e. Gene Wolfe Cloud Cuckoo Land e. Anthony Doerr Being and Time e. Martin Heidegger Verufræði e. Björn Þorsteinsson Wheel of Time e. Robert Jordan Greifinn af Monte Cristo e. Alexander Dumas Percy Jackson bækurnar e. Rick Riordan Gyllti áttavitinn, Lúmski hnífurinn og Skuggasjónaukinn e. Philip Pullman Tónlist í þættinum í dag: Ó borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens og Vilhjálmur frá Skáholti) Það er svo skrýtið / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson og Vilhjálmur Vilhjálmsson) Hálftómt glas / Brek (Jóhann Ingi Benediktsson, Sigmar Þór Mattíasson, Guðmundur Atli Pétursson og Harpa Þorvaldsdóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Sögusýning í Garðabæ, veðurspár í þjóðsögum og Karl lesandi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 30, 2023 50:00

Gamlar ljósmyndir, gæludýramissir og veðurspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 10, 2023

Leifur Reynisson sagnfræðingur kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá verkefni sem hann hefur unnið með eldri borgurum síðastliðin tvö ár til að rjúfa félagslega einangrun þeirra eftir Covid. Hann hefur farið á milli félagsmiðstöðva eldri borgara í Reykjavík og sýnt ljósmyndir á breiðtjaldi. Myndirnar eru frá tímabilinu 1940-1960 og voru fengnar hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Leifur efnir svo til umræðna um myndirnar, því þær til dæmis varpa ljósi á æsku og æskuumhverfi eldri borgaranna og rifja upp persónulegar minningar. Leifur sagði okkur betur frá þessu áhugaverða verkefni í þættinum. Gæludýr verða oft dýrmætir fjölskyldumeðlimir en þau lifa yfirleitt skemur en eigendurnir. Því getur fylgt mikil sorg að missa gæludýrin sín og Sólrún Barbara Friðriksdóttir dýralæknir sem starfar hjá Dýraspítalanum Garðabæ kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um praktíska hliðarnar sem þarf að huga þegar gæludýr fellur frá. Svo ræddum við líka aðeins hvernig áramótin og flugeldarnir geta farið í gæludýrin. Svo kom Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur til okkar í veðurspjall. Nú var hún komin með formlegar tölur um veðrið í fyrra og samanburð við fyrri ár. Sem sagt hvernig veðurárið 2022 var bæði hér á landi og um allan heim og hvað er hægt að lesa úr því öllu saman. Tónlist í þættinum í dag: Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Jackie Smith, Derry Lindsay og Jóhanna Erlings Gissurardóttir) Ennþá man ég hvar / Hallbjörg Bjarnadóttir (Mogens Dam, Kaj Andersen og Bjarni Guðmundsson) Tipp topp / Prins Póló (Svavar Pétur Eysteinsson) Sönn ást / Björgvin Halldórsson (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Gamlar ljósmyndir, gæludýramissir og veðurspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 10, 2023 50:00

Gefandi þriðjudagur, ljósadalurinn og saga veðurspáa

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 29, 2022

Svartur föstudagur, stafrænn mánudagur, eða Cyber Monday, og fleiri slíkir verslunardagar hafa dunið á okkur í aðdraganda jólanna í ár eins og undanfarin ár. Þetta eru verslunardagar sem eiga uppruna sinn í Bandaríkjunum og fleiri löndum og markmið þeirra er að auka verslun í búðum og á netinu. En það sem færri vita er að á eftir Cyber Monday kemur Giving Tuesday, eða gefandi þriðjudagur. En hvað er það? Andri Árnason, framkvæmdastjóri Takk kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá þessum degi sem er einmitt í dag. Jólaljós hafa verið sett upp um allan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og aðkomuna að honum. Fjölskyldur geta rölt um garðinn og skoðað ljósadýrðina, útigrillin verða opin og settir verða upp matarvagnar. Ljósadalurinn opnar á fimmtudaginn. Við heyrðum í Inga Þór Jónssyni, verkefnastjóra viðburða í garðinum í þættinum. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom í sitt vikulega veðurspjall í dag. Hún kann einstaklega vel að fræða okkur um hin ýmsu veðurfyrirbrigði og hugtök og í dag ætlar hún að fræða okkur um sögu veðurspáa í heiminum, sem er ekki svo löng. Það er ekki svo langt síðan að farið var að spá fyrir um veðrið framundan. Tónlist í þættinum í dag: Ennþá man ég hvar / Hallbjörg Bjarnadóttir (Kai Normann Andersen, Dam Mogens og Bjarni Guðmundsson) Sólarsamban / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, Stefán Örn Gunnlaugsson og Rebekka Blöndal) My Sweet Lord / George Harrison (George Harrison) Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Gefandi þriðjudagur, ljósadalurinn og saga veðurspáa

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 29, 2022 50:00

Sala Íslandsbanka, Berlínarspjall og konur í iðnnámi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 15, 2022 130:00

Í byrjun þáttar var leikið upphafið úr atriði Réttarholtsskóla sem er sigurvegari Skress, hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík, en úrslit voru í gærkvöldi. Fjallað var um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka fyrr á árinu. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir skýrsluna og viðbrögð við henni. Í Berlínarspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason m.a. frá því að Pútín Rússlandsforseti á sér fylgismenn meðal almennings í austurhluta Þýskalands. Þeir hafa veifað rússneska fánanum við mótmælaaðgerðir að undanförnu. Hann sagði mikinn mun á austur- og vestur Þjóðverum sem á sér skýringar í sögunni. Konum í iðnnámi hefur fjölgað á síðustu árum þótt enn séu mun færri konur en karlar í hefðbundum karlagreinum. Átak Tækniskólans í samvinnu við aðra verkmenntaskóla sem miðaði m.a. að því að opna augu stelpna fyrir iðnnámi var verðlaunað á Íslensku menntaverðlaununum í byrjun mánaðar. Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans, sagði frá. Tónlist: Vorvísa - Hallbjörg Bjarnadóttir, Stayin? alive - Bee Gees, Það vantar spýtur - Olga Guðrún Árnadóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Morgunvaktin
Sala Íslandsbanka, Berlínarspjall og konur í iðnnámi

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 15, 2022

Rauða borðið
Kvennasamstaða með Erlu, útigangsmenn í uppreisn og útigangsmenn í uppreisn

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 14, 2022 98:47

Við ræðum við Sigrúnu Sif Jóelsdóttur um samstöðu með Erlu Bolladóttur. Við Karl Ólaf Hallbjörnsson um kosningarétt kvenna. Við Davíð Þór Jónsson og Ragnar Erling Hermannsson um setuverkfall útigangsmanna. Og við Jónas Atla Gunnarsson um verðbólgu, skatta og ríkisfjármála. Og svo förum við yfir fréttir dagsins og segjum líka feminískar fréttir.

sigr erlu hallbj
Morgunvaktin
Vikan á Alþingi, horfur í ferðaþjónustu og kynhlutlaust tungumál

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 29, 2022

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, þingfréttaritari RÚV um vikuna á Alþingi. Rætt um söluna á hlutabréfum í Íslandsbanka, fylgistap ríkisstjórnarinnar og önnur mál sem rædd voru á þingi í vikunni. Vikulegt ferðaspjall við Kristján Sigurjónsson, ritstjóra Túrista.is. Rætt um horfur í ferðaþjónustu en Ísland er eitt af þeim löndum þar sem batinn í ferðaþjónustu ætlar að verða hvað hraðastur. Þó eru uppi raddir umað ófriður og verðbólga muni hafa kælandi áhrif á ferðaþjónustu í heiminum. Sagt frá Medoc-maraþoninu þar, sem er ef til vill meira fyrir sælkera heldur en hlaupara. Kynhlutlaust mál. Umræða um það hvernig kyn og félagslegar hugmyndi rum kyn endurspeglast í tungumálinu hefur orðið háværari á undanförnum árum. Guðrún Þórhallsdóttir, dósent í íslenskri málfræði og Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslensku ræddu kynhlutlaust mál í tilefni af málþingi sem haldið verður í Veröld á morgun. Tónlist: Bye Bye Blackbird, Etta Jones. Sunny Road, Emilíana Torrini. Vorvísa, Hallbjörg Bjarnadóttir. Someone New, Laufey Umsjón: Þórunn Elísabet Bogadóttir Sigríður Halldórsdóttir

Morgunvaktin
Vikan á Alþingi, horfur í ferðaþjónustu og kynhlutlaust tungumál

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 29, 2022 130:00

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, þingfréttaritari RÚV um vikuna á Alþingi. Rætt um söluna á hlutabréfum í Íslandsbanka, fylgistap ríkisstjórnarinnar og önnur mál sem rædd voru á þingi í vikunni. Vikulegt ferðaspjall við Kristján Sigurjónsson, ritstjóra Túrista.is. Rætt um horfur í ferðaþjónustu en Ísland er eitt af þeim löndum þar sem batinn í ferðaþjónustu ætlar að verða hvað hraðastur. Þó eru uppi raddir umað ófriður og verðbólga muni hafa kælandi áhrif á ferðaþjónustu í heiminum. Sagt frá Medoc-maraþoninu þar, sem er ef til vill meira fyrir sælkera heldur en hlaupara. Kynhlutlaust mál. Umræða um það hvernig kyn og félagslegar hugmyndi rum kyn endurspeglast í tungumálinu hefur orðið háværari á undanförnum árum. Guðrún Þórhallsdóttir, dósent í íslenskri málfræði og Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslensku ræddu kynhlutlaust mál í tilefni af málþingi sem haldið verður í Veröld á morgun. Tónlist: Bye Bye Blackbird, Etta Jones. Sunny Road, Emilíana Torrini. Vorvísa, Hallbjörg Bjarnadóttir. Someone New, Laufey Umsjón: Þórunn Elísabet Bogadóttir Sigríður Halldórsdóttir

Lestin
Mannveran og ástin, mistök á Hönnunarmars, Og hverra manna ert þú?

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 22, 2020 55:00

Spurningin kann að virðast hversdagsleg en undirniðri er hún eitt af tækjunum sem Íslendingar nota til að kortleggja samfélagið, okkur sjálf og náungann. Við köfum ofan í þessa spurningu með mannfræðingnum Dr. Hallfríði Þórarinsdóttur. Manneskjan er nafli alheimsins. Að minnsta kosti hefur slík mannmiðjukenning verið undirliggjandi forsenda í allri hugmyndasögu vesturlanda undanfarnar aldir. Í þriðja pistli sínum af fjórum um stöðu mannsins í heiminum veltir Karl Ólafur Hallbjörnsson, heimspekinemi við Háskólann í Warwick, fyrir sér einum helsta drifkrafti mannverunnar, ástinni. Hönnunarmars fer fram á óvenjulegum tíma vegna heimsfaraldursins, hefst seinna í þessari viku. Hönnunarsamfélagið iðar því að lífi, undirbúningur í fullum gangi. Í Lestinni í dag tökum við púlsinn á hönnunarteyminu Are we studio? sem frumsýnir ný verk á hátíðinni, verk sem eru innblásin af mistökum.

mist manna warwick stin hallbj hallfr manneskjan
Lestin
Rappferill George Floyd, Spurningar mannverunnar, Grímuverðlaunin, og

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 15, 2020 55:00

Um þessar mundir eru 40 ár frá skotárásinniá J.R. Ewing Junior í sjónvarpsþáttaröðinni Dallas. Áhorfendur um allan heim sátu eftir með stærstu ráðgátu sjónvarpssögunnar: Hver skaut J.R? Við köfum ofan í þessa spurningu og áhrif hennar í Lestinni í dag með aðstoð Dallas-sérfræðingsins Karls Ferdinands Thorarensen. Nú á dögunum var George Floyd borinn til grafar í heimabæ sínum Houston í Texas. Dauði hans af hendi hvíts lögreglumanns í Minneapolis hefur kveikt mótmælaöldu gegn kynþáttahatri og lögregluofbeldi í Bandaríkjunum og víðar. Á sínum tíma tók Floyd virkan þátt í rappsenu Houston ásamt einum frægasta plötusnúði allra tíma, DJ Screw. Við könnum í dag stuttan rappferil Big Floyd eins og hann var kallaður. Manneskjan er nafli alheimsins. Að minnsta kosti hefur slík mannmiðjukenning verið undirliggjandi forsenda í allri hugmyndasögu vesturlanda undanfarnar aldir. Í öðrum pistli sínum af fjórum um stöðu mannsins í heiminum veltir Karl Ólafur Hallbjörnsson, heimspekinemi við Háskólann í Warwick, fyrir sér spurningum mannverunnar. Við fylgjumst líka með kapphlaupi ungs sviðslistamanns við tímann þar sem hann flýtir sér heim frá Svíþjóð, í gegnum sóttvarnarsvæði og skimanir, til að mæta á Grímuverðlaunahátíðina í kvöld þar sem hann er tilnefndur.

Morgunvaktin
Skólastarfið gekk að mestu vel í faraldrinum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 11, 2020 130:00

Það er samdráttur í samfélaginu - það á við um allan heim - dregið hefur úr umsvifum á flestum sviðum vegna covid-19. Eftirspurn eftir vöru og þjónustu hefur minnkað; mest auðvitað í ferðaþjónustu en líka í ýmsum öðrum greinum. Atvinnuleysi er hér meira en í mjög langan tíma og þótt gert sé ráð fyrir að allt jafni sig með tíð og tíma er mikilvægt að leita leiða til að spyrna við og skapa ný tækifæri og störf. Horft er til nýsköpunar: Að breyta hugmyndum í framkvæmd svo úr verði eitthvað nýtt. Salóme Guðmundsdóttir og Freyr Friðfinnsson frá Icelandic Startups komu á Morgunvaktina til að ræða um nýsköpun og nýjan hraðal sem hefst í haust og snýr að landbúnaði og sjávarútvegi. Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og ræddi um niðurstöðu rannsóknar á morðinu á Olof Palme fyrir 34 árum síðan. Þá talaði Bogi við Ingu Dóru Guðmundsdóttur Markussen, nýkjörinn formann jafnaðarmannaflokksins Siumut í höfuðstaðnum Nuuk. Inga Dóra á grænlenska móður og íslenska föður og var til skamms tíma framkvæmdastjóri Vest-norræna ráðsins og bjó þá á Íslandi. Síðastliðin tvö ár hefur hún búið í Nuuk og starfað fyrir Royal Greenland, langstærsta sjávarútvegsfyrirtæki Grænlands. Nú er lokið löngum vetri, sem reyndi á samfélagið með ýmsum hætti. Það á ekki síst við um skólakerfið, og bæði börnin og starfsfólkið sem eru miðja þess. Í höfuðborginni, og í sumum nágrannasveitarfélögum, voru langvinn verkföll Eflingarfólks sem höfðu veruleg áhrif . Þau hófust í Reykjavík í byrjun febrúar og stóðu fram í mars, og nánast um það leyti var kórónuveirufaraldurinn að fara á flug með tilheyrandi takmörkunum á skólastarfi langt fram á vor. Þetta setti svip sinn á skólastarfið, eins og við ætlum að ræða við Guðlaugu Sturlaugsdóttur, skólastjóra Árbæjarskóla, sem er komin hingað á Morgunvaktina. Tónlist: Björt mey og hrein - Hallbjörg Bjarnadóttir, Vorvísa - Hallbjörg Bjarnadóttir

bj gu vest reykjav olof palme bogi nuuk bjarnad mestu vorv gekk hallbj siumut horft icelandic startups atvinnuleysi
Lestin
Nýir rithöfundar, mannmiðjukenningin, áróðursgildi lögguþátta

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 8, 2020 55:00

Kröfur mótmælenda í Bandaríkjunum eru allt í senn einfaldar og flóknar. Barist er fyrir jafnrétti, því að svört líf séu metin til jafns við hvít, en uppi eru ýmsar róttækar hugmyndir um leiðina að þessu markmiði. Ein vinsælasta hugmyndin snýr að því að skera niður hjá lögreglunni. Önnur, snýr að því að skera niður lögregluþætti. Við rýnum í síðarnefndu kröfuna. Manneskjan er nafli alheimsins. Að minnsta kosti hefur slík mannmiðjukenning verið undirliggjandi forsenda í allri hugmyndasögu vesturlanda undanfarnar aldir. Loftslagsbreytingar, kjarnorkuvopn og verksmiðjubúskapur á dýrum væri hægt að taka sem dæmi um þessa mannmiðjuhugsun. Í lestinni í dag veltir Karl Ólafur Hallbjörnsson, heimspekinemi við Háskólann í Warwick, fyrir sér stöðu mannsins og lífum annarra vera. Það eru ekki margir styrkir sem bjóðast nýjum rithöfundum sem eru að stíga sín fyrstu skref í útgáfu. Nýræktarstyrkir Miðstöðvar Íslenskra bókmennta, sem voru afhentir í síðustu viku, gegna því mikilvægu hlutverki í að rækta nýjabrumið í ritlistarsenunni. Við fáum tvo nýbakaða nýræktarstyrkþega í heimsókn í Lestinni í dag og ræðum um bækur og líf ungskáldsins.

Lestin
Dystópíur, rafíþróttir og lægstu mörk vitundarinnar

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 26, 2019 55:00

Manneskjan býr yfir þeim eiginleika að geta ímyndað og séð fyrir sér allt það sem mögulega gæti gerst í framtíðinni, hún getur skapað mögulegar framtíðir. Á undanförnum árum hafa slíkar framtíðarpælingar verið áberandi í skáldskap og poppmenningu. Oftar en ekki er það svartsýnin sem ræður för og sá framtíðarheimur sem við sjáum fyrir okkur er ógnvekjandi og hryllilegur. Slík dystópísk framtíðarsýn einkennir meðal annars tvær nýjar seríur sjónvarpsþáttanna Black Mirror og Handmaid's Tale sem komu út í byrjun júní. Í Lestinni í dag veltum við því fyrir okkur af hverju við erum sérstaklega móttækileg fyrir dystópíum í dag með Eyju Margréti Brynjarsdóttur, heimspekingi. Í kvöld mætast FH og Dusty í úrslitum Lenovo deildarinnar í tölvuleiknum League of Legends. Lið FH er raunar eiginlega nýtt af nálinni en það hét áður Frozty og var sjálfstætt starfandi. Ákvörðun FH að taka svokallaðar rafíþróttir upp á arma sína er umdeild enda er hreinlega umdeilt hvort tölvuleikir geti eða eigi að taljast sem íþróttir yfirhöfuð. Hallsteinn Arnarsson verkefnastjóri hjá FH eSports segir nálgun félagsins á fyrirbærið þó eiga augljósa rót í íþróttum. Rætt verður við Hallstein og Counterstrike leikmanninn Gísla Geir Gíslason í Lestinni í dag. Í pistli sínum í dag fjallar Karl Ólafur Hallbjörnsson um minnið og lægstu mörk vitundarinnar.

Lestin
Djúpvefurinn, kláði, kynlífsatriði og framtíð skáldskaparins

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 19, 2019 52:30

Við greiðum fyrir góða veðrið með blóði okkar. Lúsmýið ætlar að éta Íslendinga lifandi og því seljast flugnafælur, ofnæmispillur og sterakrem eins og heitar lummur víða um land, seljast jafnvel upp. Bitum flugnanna fylgir nefnilega kláði, óbærilegur, sársaukafullur kláði og hann er í ofanálag smitandi. Við fjöllum um félagslegan og líkamlegan kláða í lestinni í dag. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um framtíð skáldskaparins, vísindi og fantasíu, í pistli sínum í dag. Djúpvefurinn er sá hluti veraldarvefsins sem er óaðgengilegur almennum leitarvélum. Þórður Ingi Jónsson hefur sökkt sér ofan í djúpvefinn að undanförnu. Í pistli sínum í dag heyrir hann í kerfisfræðingi og nafnlausum viðmælanda sem þekkir til verslunar með vímuefni á dökkvefnum - þeim hluta djúpvefsins sem falinn er almenningi. Við beinum sjónum okkar að kynlífsatriðum í bíómyndum og skoðum nýlega grein eftir kvikmyndagagnrýnanda Washington Post þar sem hann spyr hvort kynlífssenur séu á undanhaldi í Hollywood. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Anna Marsibil Clausen

Lestin
Ágætis byrjun, undirskriftir, afrískar kasettur, Immanuel Kant

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 12, 2019 55:00

Í dag eru 20 ár frá því að önnur breiðskífa Sigur Rósar Ágætis Byrjun kom út. Plata sem var meðal annars valin besta plata Íslandssögunnar árið 2009. Í tilefni af afmælinu ræðum við um áhrif þessarar merkilegu plötu. Ingi Vífill rekur líklega einu alvöru “skrif“stofuna á stórreykjavíkur svæðinu en hann kennir fólki að skrautskrifa á efri hæð Eiðistorgs. Ingi tekur að sér ýmis störf tengd þessari iðn en meðal annars hefur hann hjálpað fólki að hanna undirskriftir, og svo verða stundum veggir fyrir barðinu á honum enda stundar hann einnig caligraphiti. Við heinsækjum Inga á Eiðistorg í lestinni í dag. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson tónlistarbloggsíðuna Awesome Tapes from Africa, en þar má hlusta á ógrynnin öll af gömlum afrískum kasettum sem hafa verið færðar yfir á stafrænt form. Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur okkur heimspekilega vangaveltu um skynjun og hugmyndir þýska heimspekingsins. Immanuel Kant Umsjón: Kristján Guðjónsson og Anna Marsibili Clausen

Lestin
Dauði iTunes, Edouard Louis, trú og átrúnaður

Lestin

Play Episode Listen Later Jun 5, 2019 55:00

Apple forritið iTunes mun deyja drottni sínum með nýjustu uppfærslu Apple á stýrikerfi sýnu fyrir Mac tölvur, MacOS Catalinu, sem verður gefin út í haust. iTunes kom fyrst út árið 2001 og var í upphafi einöld tónlistarveita en óx svo fiskur um hrygg og þykir hafa haft gríðarleg áhrif á hvernig við neytum tónlistar. Í dag þykir það engu að síður eitt versta forrit Apple - hvað kom fyrir? Við förum yfir málið með hjálp Gunnlaugs Reynis Sverrissonar. Við kynnum okkur líka eina hraðast rísandi stjörnu í bókmenntaheimi Evrópu, hinn 26 ára gamla Edouard Louis. Í bókum sínum skrifar hann á opinskáan hátt um uppeldi sitt sem samkynhneigður drengur í harkalegu umhverfi fátæktar í smábæ í Norður-Frakklandi. Í kjölfarið er hann orðinn að einum helsta málsvara hinna undirokuðu í Frakklandi. En við byrjum á trúnni, þeirri hversdagslegu og þeirri hátíðlegu. Karl Ólafur Hallbjörnsson dýfir sér í hringiðuna.

Lestin
Skjaldborg, Útlendingurinn, David Hume

Lestin

Play Episode Listen Later May 29, 2019 55:00

Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin í þrettánda sinn dagana 7. til 10. júní. Skjaldborg sýnir heimildamyndir sem annars kæmu varla fyrir augu almennings og ber jafnan virðingu fyrir hinu smáa, stóra, skrýtna og fokdýra. Helga Rakel Rafnsdóttir og Janus Bragi Jakobsson, skipuleggjendur hátíðarinnar, taka sér far með Lestinni í dag. Spurt verður: Hver er staða íslenskrar heimildarmyndagerðar árið 2019? Kirkjulistahátíð verður haldin í Hallgrímskirkju dagana fyrsta til tíunda júní. Listvinafélag kirkjunnar stendur fyrir hátíðinni, þetta er í fimmtánda sinn sem hún er haldin og þar verður metnaðarfull og fjölbreytt dagskrá í boði. Á mánudag verður þar flutt verkið Útlendingurinn: Verk í hljóðum, tali og tónum, eftir Halldór Hauksson. Halldór heimsækir Lestina í dag og segir nánar frá verkinu. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um skoska heimspekinginn David Hume, hugtak orsakarinnar og mannlegan vana.

Lestin
Skandali, ljósmyndir af látnum, Borges, Textasy

Lestin

Play Episode Listen Later May 22, 2019 55:00

Eftirlífsljósmyndun eða sorgarportrett, þar sem látinn einstaklingur er ljósmyndaður, hófst sennilega með tilkomu ljósmyndatækninnar, í kringum 1850. Hefðin fjaraði víða út fyrir miðja síðust öld en í Litháen lifði hún hins vegar mun lengur. Leifur Wilberg Orrason, ljósmyndari og grafískur hönnuður, hefur í nokkur ár safnað eftirlífsljósmyndum frá Litháen. Leifur Wilberg verður gestur Lestarinnar í dag. Hann fræðir hlustendur nánar um jarðarfaraljósmyndir. Tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Textasy frá Dallas í Texas er eitt heitasta nafnið í raftónlistarheiminum um þessar mundir en hann er þekktur fyrir að blanda Suðurríkja-rappi saman við danstónlist úr ýmsum áttum. Textasy er nú búsettur í Berlín, þar sem hann gefur meðal annars út tónlist eftir íslenska raftónlistarmenn. Rætt verður í þættinum í dag við Textasy um tónlistarsenuna í Dallas boðið verður upp á tóndæmi. Einnig verður í Lestinni í dag sagt frá nýju menningartímariti, Skandala. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um argentínska rithöfundinn Jorge Luis Borges, Júdas Ískaríot og kristindóminn.

Lestin
Tinder, Hatari, Hátíðni, Loftslagsmál

Lestin

Play Episode Listen Later May 15, 2019 55:00

Tilhugalífið hefur breyst töluvert á síðustu árum en stefnumótasmáforritið Tinder spilar stóran þátt í þeirri þróun. Fyrirbærið verður skoðað nánar í þættinum í dag. Heimildarmaður Lestarinnar verður Fanney Svansdóttir en hún skrifaði nýverið meistararitgerð í menningarfræði um framsetningu sjálfsins á Tinder. Atli Bollason fjallar í dag að gefnu tilefni um Hatara og Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og hugað verður að nýrri kvikmynd. Sagt verður frá athyglisverðri tónlistarhátíð sem haldin verður á Borðeyri við Hrútafjörð, af öllum stöðum, í sumar. Hátíðin nefnist HÁTÍÐNI og það er listasamlagið og útgáfufélagið POST - DREIFING sem stendur að henni, þar koma fram fjölmargar hljómsveitir og tónlistarmenn sem eru að hasla sér völl á íslensku tónlistarsenunni um þessar mundir. Gestur þáttarins verður Bjarni Daníel Þorvaldsson tónlistarmaður og einn af forsprökkum POST - DREIFINGAR, og raunar meðlimur í einni af skemmtilegustu hljómsveit landsins um þessar mundir. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um vitundarvakningu og loftslagsbreytingar.

Lestin
Eurovision, Converse, Nietzsche, Avengers

Lestin

Play Episode Listen Later May 8, 2019 55:00

Connie Converse er bandarísk tónlistarkoma sem samdi hugljúfa, háðslega og afar persónulega tónlist fyrir miðbik síðustu aldar. Tónlist hennar leit þó ekki dagsins ljós fyrr en rúmum fimmtíu árum eftir upptökur. Er áhugi óx á lífi hennar og list kom í ljós að tónlistarkonan hafi látið sig hverfa árið 1974. Ekkert hefur til hennar spurst síðan. Við skoðum málið nánar hér í þætti dagsins. Eurovision á Þjóðminjasafninu, hvernig hljómar það ágætu hlustendur? Það er ekki fjarstæða heldur staðreynd, Þjóðminjasafnið kemur víða við, það safnar ekki aðeins gömlum munum, heldur líka siðum og hefðum, og horfir í þeim efnum til samtímans. Þjóðminjasafn Íslands leitar nú eftir aðstoð almennings við að safna upplýsingum um Eurovision hefðir. Ágúst Ó. Georgsson sérfræðingur þjóðháttasafns Þjóðminjasafnsins segir frá í Lestinni í dag. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um bandrísku ofurhetjumyndina Avengers: Endgame eftir Anthony Russo og Joe Russo sem slegið hefur rækilega í gegn, en um er að ræða eina dýrustu kvikmynd sem nokkurn tímann hefur verið gerð. Og þýski heimspekingurinn Friedrich Nietzsche og kenning hans um eilífa endurtekningu hins sama er viðfangsefni Karls Ólafs Hallbjörnssonar í pistli dagsins.

Lestin
Mjallhvít, heilagt rými, Netflix, hverfulleiki

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 17, 2019 55:00

Í Lestinni í dag er meðal annars rætt við séra Gunnar Kristjánsson um heilagt rými, og samspil listar og trúarbragða, tilefnið er bruninn í Notre Dame í fyrradag. Myndlistarkonan Anna Margrét Ólafsdóttir klæddist Mjallhvítarbúningi í 100 daga en gjörningurinn er hluti af útskriftarverki hennar úr Listaháskóla Íslands. Anna segir nánar frá verkinu í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndaúrvalið á Netflix með áherslu á þær myndir sem eru einungis í dreifingu á streymisveitunni Netflix og/eða eru framleiddar af Netflix. Marta fjallar einnig um bresku kvikmyndina The Boy Who Harnessed the Wind sem var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni fyrr á þessu ári og fór svo beint í sýningar á Netflix. Kvikmyndin er leikstjórnarfrumraun breska leikarans Chiwetel Ejiofor sem leikur annað aðalhlutverkið í þessari hugljúfu kvikmynd sem gerist í Malaví og byggir á sönnum atburðum, þegar hinn ungi og snjalli William Kamkwamba byggði vindmyllu fyrir þorpið sitt upp á eigin spýtur. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag að gefnu tilefni um það sem varir.

netflix wind notre dame sundance chiwetel ejiofor malav william kamkwamba boy who harnessed listah hallbj mjallhv
Lestin
Girl, Wikithons, prentlist, fjölmiðlar

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 10, 2019 55:00

Samtökin '78 efna til Wikithons annað kvöld en skipuleggjendur kvöldsins segja að nánast engar Wikipedia-síður finnist um hinsegintengd málefni á Íslandi. Í Lestinni í dag verður fjallað nánar um viðburðinn sem og fyrirbærið Wikithons að gefnu tilefni. Í gær var opnuð í Þjóðarbókhlöðunni sýningin Sjónarfur en hún er helguð prentlistamanninum Sigmundi Guðmundssyni sem var talinn listfengsti og smekkvísasti prentari landsins undir lok 19. aldar, og átti mikinn þátt í þeim endurbótum sem urðu á prentiðn hér á landi fyrir aldamótin 1900. Á sýningunni má sjá sýnishorn af prentlist Sigmundar sem Unnar Örn myndlistarmaður og Guðmundur Oddur Magnússon rannsóknaprófessor við Listaháskóla Íslands hafa tekið saman. Guðmundur Oddur verður gestur Lestarinnar í dag. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um belgísku kvikmyndina Girl sem er frumraun leikstjórans Lukasar Dhont. Myndin byggir á sannri sögu og fjallar um unglingsstúlkuna Láru sem er hæfileikaríkur ballettdansari en einnig trans. Myndin, sem var frumsýnd á Cannes í fyrra, hefur hlotið marga lofsamlega dóma en þó sætt harðri gagnrýni frá transfólki. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um siðferðilega ábyrgð blaðamanna og fjölmiðla.

Lestin
Hamur, Todos lo saben, kvenfyrirlitning

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 3, 2019 55:00

Hamur er heitið á fimmtu einkasýningu listakonunnar Hildar Ásu Henrýsdóttur. Sýningin var opnuð um helgina í Listasal Mosfellsbæjar, en hún er uppgjör listakonunnar við feðraveldið og tilraun til þess að endurheimta og endurskapa viðteknar hugmyndir okkar um kvenlíkamann. Hildur Ása verður gestur Lestarinnar í dag. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um kvikmyndina Todos lo saben eða Everybody knows (Allir vita), nýjustu kvikmynd hins margverðlaunaða íranska leikstjóra Asghar Farhadi. Spænsku stórstjörnurnar Javier Bardem og Penélope Cruz fara með aðalhlutverk í þessum sálfræðitrylli sem fjallar um mannrán og djúpt grafin leyndarmál í spænskum smábæ. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um kvenfyrirlitningu.

Lestin
Svikaskáld, Renée Vivien, Capernaum

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 20, 2019 55:00

Í tilefni af alþjóðlegum degi ljóðsins á morgun, fimmtudaginn 21. mars, efna Svikaskáld til ljóðastundar þar sem verður ort, lesið, ruplað og rænt, í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. Svikaskáldin bjóða til ljóðaviðburðar sem fram fer á Slippbarnum annað kvöld, þar sem þátttakendur yrkja saman að hætti Svikaskálda. Kvöldið byrjar með stuttum ljóðalestri, úr ljóðum þekktra skálda frá öllum heimshornum. Síðan er skrifað í 10 mínútur og þátttakendur eru loks hvattir til að stela línum og/eða hugmyndum úr því sem lesið var á undan. Tvö svikaskáld taka sér far með Lestinni í dag, þær Sunna Dís Másdóttir og Þóra Hjörleifsdóttir. Fleiri skáldkonur koma við sögu í Lestinni í dag, þeirra á meðal skáldið Renée Vivien, og Karl Ólafur Hallbjörnsson ræðir í þættinum í dag við heimspekinginn Finn Ulf Dellsén, dósent við Háskóla Íslands, sem hlaut hin virtu norrænu Nils Klim fræðaverðlaun á dögunum. Verðlaunin hlýtur Finnur fyrir rannsóknir sínar á þekkingarfræði og vísindaheimspeki, en hann er fyrstur Íslendinga til að hljóta verðlaunin sem eru veitt árlega norrænum fræðimanni yngri en 35 ára. Og Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um tvær kvikmyndir, Capernaum eftir líbanska kvikmyndaleikstjórann Nadine Labaki sem fjallar um 12 ára dreng sem lögsækir foreldra sína fyrir vanrækslu. Myndin hefur slegið í gegn á kvikmyndahátíðum út um allan heim, en aðalhlutverk myndarinnar er í höndum hins unga leikara, Zain Al Rafeea, sem var sjálfur flóttamaður frá Sýrlandi í Líbanon. Marta fjallar einnig um kvikmyndina Taka 5 sem er ný íslensk gamanmynd eftir Magnús Jónsson.

Lestin
Istan, Los Angeles, The Wife

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 13, 2019 55:00

Pálmi Freyr Hauksson, sviðshöfundur og spunaleikari, flytur verk sitt Istan í Tjarnabíói um helgina. Verkið fjallar um Istam, lítinn bæ á Bretlandseyjum. Pálmi verður gestur Lestarinnar í dag og segir frá. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um tvær kvikmyndir í þættinum í dag. The Wife eftir sænska leikstjórann Björn Runge, drama sem fjallar um rithöfund sem vinnur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum og eiginkonu hans sem leikin er af Glenn Close. Og Óskarsverðlaunamyndina Free Solo, heimildarmynd sem fjallar um ofurhugann Alex Honnold sem kleif fyrstur manna klettavegginn El Capitan í Yosemite-þjóðagarðinum í Kaliforníu, án öryggisbúnaðar. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um líkamlega hugsun og lýðræði, og rætt verður við Þorbjörgu Jónsdóttur kvikmyndaleikstjóra um kvikmyndina Communion Los Angeles sem kvikmyndaklúbburinn Í myrkri sýnir í Kling og Bang við Grandagarð á morgun, en myndin fjallar hraðbraut 110 í Los Angeles, sem er elsta hraðbrautin í Kaliforníu. Brautin liggur frá San Gabríel-fjallgarðinum að Kyrrahafinu, og fer í gegnum hin ýmsu hverfi þar sem fólk af ólíkum stéttum býr og starfar.

Lestin
Michael Jackson, íslenska rappsenan, Burning og Star Trek

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 6, 2019 55:00

Heimildarmyndin Leaving Neverland eftir breska kvikmyndagerðarmanninn Dan Reed hefur vakið mikla athygli en í henni er fjallað um meint kynferðislegt ofbeldi bandaríska tónlistarmannsins Michaels Jackson gegn ungum drengjum. Myndin, sem var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni í lok janúar, hefur vakið mikið umtal og neytt aðdáendur til að horfast í augu við arfleifð poppgoðsins. Í Lestinni verður þetta mál skoðað út frá ýmsum sjónarhornum, gestir þáttarins verða tónlistarkonan Berglind María Tómasdóttir, Jón Proppé listfræðingur og Davíð Kjartan Gestsson, ritstjóri Mennningarvefs RUV. Helga Þórey Jónsdóttir er ein þeirra fyrirlesara sem halda erindi á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands í ár. Í erindi sínu beinir hún sjónum að íslensku rappsenunni og fjallar um uppgjör og andóf í fagurfræði aldamótakynslóðarinnar. Hlustendur fræðast nánar um vangaveltur hennar í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndarýnir fjallar um kvikmyndina Burning eftir Suður-kóreanska leikstjórann Lee Chang-dong sem byggð er á smásögu eftir japanska rithöfundinn Haruki Murakami. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um Star Trek og vandamál mennskunnar.

Lestin
Mark Hollis, Green Book, tilvist, mannleiki og hið ómannlega

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 27, 2019 55:00

Lestin minnist í dag enska tónlistarmannsins Marks Hollis sem andaðist á mánudag, 64ra ára að aldri. Hollis var forsprakki hljómsveitarinnar Talk Talk sem naut mikilla vinsælda en ekki síður virðingar á níunda áratug síðustu aldar. Hljómsveitin var starfrækt í tíu ár og gaf á ferli sínum út fimm plötur, á þeim tíma þróaðist tónlistin frá aðgengilegu synta-poppi til tilraunakenndrar tónlistar þar sem saman komu áhrif úr ýmsum áttum, meðal annars frá jazztónlist og klassískri tónlist. Síðustu tvær plötur hljómsveitarinnar hafa löngum þótt marka upphaf tónlistarstefnu sem kennd er við post-rokk, plöturnar voru lítt til vinsælda fallnar á sínum tíma, en hafa í seinni tíð verið hafnar til skýjanna af tónlistaráhugafólki út um allan heim. Mark Hollis gaf út eina sólóplötu árið 1998, plötu sem margir hafa miklar mætur á, en yfirgaf síðan sviðsljósið. Í Lestinni í dag verður fjallað um feril Marks Hollis og hljómsveitarinnar Talk Talk, gestir þáttarins verða tónlistarmennirnir Borgar Magnason og Úlfur Eldjárn. Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndarýnir fjallar um kvikmyndina Green Book eftir bandaríska kvikmyndaleikstjórann Peter Farrelly, en myndin var valin besta mynd ársins á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór um helgina. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um tilvistina, mannleika og hið ómannlega. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson.

Lestin
Derek Jarman, Alita, Ken Nordine, stórsagnig og frásagnir

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 20, 2019 55:00

Efni Lestarinnar í dag: Í gær voru 25 ár liðin síðan breski kvikmyndagerðarmaðurinn Derek Jarman lést af völdum HIV. Í þættinum í dag verður rifjuð upp áhrifarík bók eftir þennan merka listamann. Marta Sigríður Péturdóttir fjallar um bandarísku kvikmyndina Alita: Battle Angel sem er byggð á vinsælli Manga-teiknimyndasögu eftir japanska listamanninn Yukito Kishiro. Um er að ræða cyber-pönk vísindaskáldsögutrylli úr smiðju kanadíska leikstjórans James Cameron, sem framleiðir myndina og skrifar handritið en leikstjórnin er hins vegar í höndum bandaríska kvikmyndaleikstjórans Roberts Rodriguez. Bandaríska ljóðskáldið, þulurinn og djasstónlistarmaðurinn Ken Nordine er látinn, hann andaðist á laugardaginn, 98 ára gamall. Nordine er talinn einn besti þulur frá upphafi í útvarpi og sjónvarpi. Hann var frægur fyrir auðþekkjanlega og djúpa bassarödd sína sem margir þekktu í gegnum auglýsingar og stiklur, sem og djasstónlist hans, sem kennd var við orðadjass. Þórður Ingi Jónsson fjallar um líf og störf þessa merka manns í þættinum dag. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um frásagnir, stórsagnir og póstmódernisma. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson.

Lestin
Floni, Le Grand Bain, Vice, J Dilla, lýðræðishugtakið

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 13, 2019 55:00

Tónlistarmaðurinn Floni vakti fyrst athygli innan hiphop og rappsenunnar með útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar árið 2017. Í síðustu viku gaf hann út aðra breiðskífu sína, Floni 2. Lestin kynnir sér plötuna nánar í þætti dagsins - Floni tekur sér far með Lestinni og leyfir hlustendum að skyggnast inn í hugarheim sinn og tónlistarsköpun. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um opnunarmynd Franskrar kvikmyndahátíðar, Le Grand Bain, Að synda eða sökkva, gamanmynd sem fjallar um átta miðaldra karlmenn í tilvistarkreppu sem stunda samhæfða sundfimi og stefna á heimsmeistaramót. Marta fjallar einnig um kvikmyndina Vice eftir leikstjóra kvikmyndarinnar The Big Short, Adam McKay, mynd sem fjallar um ævi og störf valdamesta varaforseta Bandaríkjanna, Dick Cheney. Bandaríski upptökustjórinn, taktsmiðurinn og rapparinn J Dilla hefði orðið 45 ára á dögunum en hann lést árið 2006. Dilla hefur verið kallaður Mozart rappsins en aðdáendur hans og fylgjendur fagna svokölluðum Dilla degi þann 6. febrúar. Stiklað verður á stóru um feril J Dilla og rætt við Magnús Tryggvason Eliassen, trommara í Dillalude, íslenskri hljómsveit sem tileinkuð er meistaranum. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um mörk lýðræðishugtaksins og hvort unnt sé að víkka þau út og gera hið efnahagslega að hinu pólitíska. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Lestin
Hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, USEE STUDIO, Simone de Beauvoir

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 6, 2019 55:00

Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, bónda á Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp. Sigurjón hóf hljómplötusöfnun um miðja síðustu öld, hann andaðist árið 2017 og skildi eftir sig merkilegt safn hljómplatna, alls um það bil 7000 plötur, sem nú hefur verið afhent Landsbókasafni Íslands. Af því tilefni verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í dag sýning sem helguð er safni Sigurjóns, komið verður við í Þjóðarbókhlöðunni í þætti dagsins og rætt við Ólaf Engilbertsson og Bryndísi Vilbergsdóttur. Halla Hákonardóttir og Helga Björg Kjerúlf eru hönnuðirnir á bakvið USEE STUDIO en hönnunarstofan sendi nýverið frá sér fatalínuna Egaleo. Línan er þróuð og unnin út frá róttækum sjálfbærum sjónarmiðum, til að mynda er megin efniviður flíkanna gamlir efnalagerar og rekjanlegur lífrænn bómull. Þær Halla og Helga framleiddu línuna í Grikklandi, en Aþena hefur að geyma ríka textíl- og fata- framleiðslusögu sem hefur orðð undir eftir að evrópsk framleiðsla fluttist að mestu til Suðaustur-Asíu, vegna ódýrs vinnuafls þar. Þær Halla og Helga segja hlustendum Lestarinnar nánar frá fatalínunni Egaleo í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í þættinum í dag um kvikmyndirnar Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttir, þýsku nornamyndina Hakazussa eftir Lukas Feigelfeld, og Transit eftir Christian Petzold, en tvær síðarnefndu myndirnar eru sýndar á Þýskum kvikmyndadögum sem nú standa yfir í BíóParadís. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum um franska heimspekinginn Simone de Beauvoir og bók hennar, Pyrrhos og Kíneas, sem var hennar fyrsta heimspekiverk, kom út árið 1944, Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýddi ritið á íslensku, og kom þýðing hennar út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags á síðasta ári. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Lestin
Búsáhaldabyltingin, popúlismi, Munstur, Shoplifters

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 23, 2019 55:00

Efni Lestarinnar í dag: Hljómsveitin og fjöllista-tvíeykið Munstur gaf út sína fyrstu breiðskífu 15. janúar. Platan ber heitið MMMM og er nú aðgengileg á Spotify, liðsmenn bandsins, Kristinn Arnar Sigurðsson og Atli Arnarsson, fræða hlustendur nánar um plötuna í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndina Shoplifters, eða Búðaþjófa, eftir japanska leikstjórann Hirokazu Kore-eda. Einnig verður þess minnst í Lestinni í dag að um þessa dagana eru tíu ár liðin frá búsáhaldabyltingunni, í janúar árið 2009. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um popúlisma, eða lýðskrum. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Lestin
Hræðsla við myndavélina, Tommasi, heimspekilegt sjónarhorn kvikmynda

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 16, 2019 55:00

Efni Lestarinnar í dag: Honoré de Balzac, einn merkasti rithöfundur 19.aldar, var logandi hræddur við ljósmyndavélina. Hann taldi líkamann samsettan úr lögum draugalegra smásæja himna sem myndavélin gæti lagt hald á, aðskilið og fjarlægt. Hann óttaðist sumsé að ljósmyndin gæti rænt hann hluta af sjálfinu. Ljósmyndun hefur breyst töluvert á síðustu tveimur öldum - með hliðsjón af Instagram og sjálfu-kúltúr samtímans verður spurt í Lestinni í dag hvort hræðsla skáldsins hafi kannski ekki verið alveg ástæðulaus. Tómas Stankiewicz hefur verið að gera það gott bæði hér heima og erlendis en hann gerir tónlist undir nafninu Tommasi. Ásamt því að vinna með tónlistarfólki frá þekktum plötuútgáfum eins og Brainfeeder og Stones Throw er hann með sinn eiginn útvarpsþátt á tónlistarstöðinni virtu, NTS Radio, sem starfrækt er í Lundúnum, Los Angeles, Shanghai og Manchester. Tómas er mikill áhugamaður um svokallaða safnatónlist, sem hann segir frá í þættinum í dag. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um heimspekilegt sjónarhorn kvikmyndarinnar. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Lestin
Pete Shelley, Spiderman, First Reformed, ferðalög og útþrá

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 9, 2019 55:00

Efni Lestarinnar í dag: Pete Shelley, höfuðpaur bresku hljómsveitarinnar Buzzcocks andaðist í byrjun desembermánaðar, 63ja ára að aldri. Buzzcocks var ein aðal pönksveitin á gullöld stefnunnar í Bretlandi en sveitin var þekkt fyrir einlæga og skemmtilega tónlist. Stiklað verður á stóru í þættinum dag um feril þessa merka söngvara, Pete Shelley, og rætt við Einar Örn Benediktsson tónlistarmann, sem þekkti vel til Shelley og ólst upp við tónlist hans. Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í kvikmyndirnar Spiderman: Into the Spiderverse, nýjustu aðlögunina á ævintýrum köngulóarmannsins, og First Reformed, sálfræðitrylli eftir leikstjórann og handritshöfundinn Paul Schrader með Ethan Hawke í aðalhlutverki. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um ferðalög og útþrá íslensku þjóðarinnar. Og tunglið kemur við sögu í þættinum í dag, að gefnu tilefni. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson

Lestin
Áramót, Tími til að segja bless, Mortal Engines

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 2, 2019 52:24

Á meðal efnis í Lestinni í dag: Sýningin Tími til að segja bless verður sett á svið í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 4. janúar. Verkið á að vera einhvers konar mótsvar við kapítalísku þunglyndi. Höfundur verksins, Lóa Björk Björnsdóttir, verður gestur Lestarinnar í dag. Spurt er á nýju ári: Hvað er kapítalískt þunglyndi? Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um kvikmyndina Mortal Engines eftir nýsjálenska leikstjórann Christian Rivers. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í fyrsta pistli sínum á nýju ári um áramót, endurtekningu og hugsun hins nýja. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Lestin
Roma, ROK, tölvuleikir og íþróttir

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 19, 2018 55:00

Efni Lestarinnar í dag: Íslendingar eru ekki þeir einu sem fagna stórafmæli í ár. Á meðan þjóðin fagnar 100 ára fullveldi fagna Pólverjar 100 ára sjálfstæði. Að gefnu tilefni hafa þær Marta Magdalena og Justyna, pólskar konur sem eru búsettar hér á landi, gefið út tímaritið ROK með það að markmiði að brúa bilið milli Íslendinga og Pólverja enda nú um 10% landsmanna af pólskum uppruna. Lestin kynnir sér tímaritið ROK nánar í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndina Roma eftir mexíkóska leikstjórann Alfonso Cuarón. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um tölvuleiki og íþróttir í pistli dagsins. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Lestin
Sindri Freysson, jólagjafainnpökkun, hátíðarofngóttir, The Ballad of B

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 5, 2018 55:00

Efni Lestarinnar í dag: Borgarbókasafnið hefur opnað innpökkunarstöðvar fyrir jólagjafir í Grófinni og Kringlunni. Þar er að finna gamlar bækur og afskrifuð blöð sem gestir geta endurnýtt sem gjafapappír. Rætt verður við Esther Ýr Þorvaldsdóttur, verkefnastjóra kynningar- og markaðsmála hjá Borgarbókasafninu. Og að gefnu tilefni fá hlustendur að heyra af skapandi jólagjafainnpökkun frá tónlistarmanninum Óskari Guðjónssyni. Rætt verður við Sindra Freysson rithöfund um nýja ljóðabók hans, sem nefnist Skuggaveiði. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um nýjustu mynd Coen bræðra, The Ballad of Buster Scruggs, sex stuttmyndir um grimman heim villta vestursins sem mynda eitt heildstætt verk. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um hátíðarofgnóttir. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Lestin
Kynhlutlaus barnafatalína Celine Dion, Arnbjörg María Danielsen, Widow

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 28, 2018 55:00

Tónlistarkonan Celine Dion kynnti nýlega kynhlutlausa barnafatalínu. Herferðin þaut eins og eldur í sinu um internetið. Fatalínan verður skoðuð nánar í þætti dagsins. Rætt verður við Jóhönnu Guðrúnu, söngkonu og sérlegan Celine Dion aðdáanda. Einnig verður í þætti dagsins rætt við Arnbjörgu Maríu Danielsen, listrænan stjórnanda viðburðar sem fram fer á laugardag, 1. desember, í tilefni af hundrað ára afmæli fullveldisins. Viðburðurinn ber yfirskriftina Íslendingasögur en um er að ræða nýstárlega sýningu í tali og tónum sem byggð er á sögum Íslendinga fyrr og nú. Arngunnur segir nánar frá viðburðinum í Lestinni í dag. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um nýjustu kvikmynd leikstjórans Steve McQueen, Ekkjur, sem fjallar um eiginkonur glæpamanna sem láta lífið í misheppnuðu ráni og skilja eftir stóra skuld. Einnig tekur hún fyrir kvikmyndina Erfingjana sem gerist í Paragvæ og fjallar um líf yfirstéttarinnar þar í landi og roskið lesbíupar sem einnig þarf að horfast í augu við skuldir. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil um að sjá það sem koma skal, eða lesa framtíðina úr fortíðinni. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Veistu hvað?

Veistu hvað lagið All Star með Smashmouth passar vel við Glaðasti hundur í heimi? Umræðuefni þáttarins er fyrirbærið „meme“ (ísl. mem, jarm, farandbrandari, mím) í öllu sínu veldi! Nei kannski í hálfu sínu veldi. Eða jafnvel bara einum nítugasta. Þetta er flókið dæmi. Á meðan Vigdís segir Gumma frá uppruna orðsins, upphafi meme-sins og reynir að rekja söguna hatar Gummi internetið. Karl Ólafur Hallbjörnsson meme-nörður kemur með heimspekilegar vangaveltur um fyrirbærið, greinir frá myrkum hliðum þess og lætur Gumma hata internetið enn meira. EN. Svo er sungið!