POPULARITY
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðum þjóðmálin. Í þessum þætti: Árni Þór Sigurðsson fyrrverandi sendiherra um Evrópumál. Teitur Atlason opinber starfsmaður, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og María Rut Kristinsdóttir alþingismaður um málfrelsi og rétttrúnað. Jón Gunnarsson og Sigurjón Þórðarson alþingismenn um sjávarútvegsmál. Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ um stefnu sína í íþróttamálum.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þórarinn Hjartarson er hlaðvarpssjórnandi sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum misserum fyrir að tala tæpitungulaust um hin ýmsu mál. Í þættinum ræða Sölvi og Þórarinn um það sem er helst á baugi í samfélagsmálum, rétttrúnað, hugrekki og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Biofit - https://biofit.is/ Exoquad - https://www.exoquad.is
Hjónin og tónlistarfólki Hilmar Örn og Björg ræða Strandakirkju, Grænland og segja frá flutningurinn á Carmina Burana núna á föstudagskvöldið með að hluta til nýrri þýðingu eftir Hjörleif Hjartarson, sem er félagi í Söngfjelaginu.
Við ræðum við stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, Þórarinn Hjartarson. Hlaðvörp skipta æ meira máli í þjóðfélagsumræðunni og við ætlum að ræða við stjórnendur hlaðvarpa í Lestinni næstu vikurnar.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, ræddi við okkur um stuðningsaðgerðir vegna slæms tíðarfars. Guðmundur Felix Grétarsson, handhafi var á línunni frá Frakklandi. Arna Magnea Danks, leikkona og aktivisti og Þórarinn Hjartarson, hlaðvarpsstjórnandi Einnar pælingar, ræddu um Woke-ið. Margrét Lilja Guðmundsdóttir hjá Planet Youth ræddi við okkur um stöðu barna og ungmenna. Auður I. Ottesen, garðyrkjufræðingur ræddi við okkur um æt blóm Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju, settist niður með okkur.
Þórarinn Hjartarson er þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling og stjórnmálafræðingur. Í þættinum förum við um víðan völl og snertum meðal annars á upprisu Indlands, lýðfræðivandamálum Kína, persónulegum hindrunum, ágæti kapítalisma og framtíð Íslands.
Rauða borðið 12. mars Grænland, spilling, reynsluboltar, neytendamál, sjálfsskrif, fræ framfara og Akureyrarfréttir Við hefjum leik á umfjöllun um stjórnmál en aldrei hafa kosningar í Grænlandi vakið meiri athygli en nú. Það skýrist ekki síst af áhuga Bandaríkjaforseta á að sölsa Grænland undir sig og ræðir María Lilja við Ingu Dóru Guðmundsdóttur um niðurstöður kosninganna. Atli Þór Fanndal, sem starfaði við spillingarvarnir um árabil, ræðir spillingu, fjölmiða, siðferðisleg álitamál og neikvæða umræðu gagnvart eftirlitsstofnunum í samtali við Björn Þorláks. Þátturinn Reynsluboltar verður á dagskrá undir stjórn Sigurjóns Egilssonar. SME ræðir við Árna Hjartarson jarðfræðing, Kristínu Ástgeirsdóttur fyrrverandi þingmann með meiru og Viðar Eggertsson leikara. Umræðuefnið er sótt í daginn og veginn. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræðir heimilin í landinu og fjárhag almennings. Við spyrjum hvort Neytendasamtökin séu bjartsýn á áframhaldandi vaxtalækkun og fjöllum um óskalista Neytendasamtakanna. Við fjöllum einnig um sjálfsskrif: Róbert Hilmar Haraldsson heimspekingur, Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur og Davíð Ólafsson menningarfræðingur ræða við Gunnar Smára Egilsson. Jón Einar Kristjánsson, sagnfræðingur kemur og fjallar um fræ framfara, það er að segja akuryrkju og framfarahugsun á átjandu öld og hvernig megi læra af þeim jarðvegi i dag. Og við endum þáttinn með því að hringja norður til Akureyrar, við heyrum í Skapta Hallgrímssyni ritstjóra sem segir okkur tíðindi úr höfuðstað norðurlands þar sem einna hæst ber að mörg flug eru nú í boði fyrir Norðlendinga beint út í heim.
https://solvitryggva.is/ Þórarinn Hjartarson er hlaðvarpsstjórnandi og pistlahöfundur sem vakið hefur verðskuldaða athygli á undanförnum misserum. Í þættinum fara Sölvi og Þórarinn yfir samfélagsmál, ritskoðun, fórnarlambavæðingu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/Þórarinn
https://solvitryggva.is/ Sölvi og Þórarinn Hjartarson setjast niður og fara yfir helstu mál samfélagsins. Allt á tandurhreinu mannamáli án minnstu tilrauna til ritskoðunar á neinu. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/
Föstudagur 22. nóvember Vikuskammtur: Vika 47 Kosningabaráttan, lög sem brjóta stjórnarskrá, framferði formanns Miðflokksins fyrir norðan og margt fleira skemmtilegt og óskemmtilegt verður til umræðu í Vikuskammti. Fréttir vikunnar og tíðandi líðandi stundar verður krufinn. Til þess mæta í beina útsendingu til Björns Þ:orlákssonar þau Kári Jónsson, Hjörtur Hjartarson, Magnea Marínós og Atli Fanndal.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sigmar Vilhjálmsson formaður Atvinnufjelagsins. Hanna Katrín Friðriksson, alþingismaður og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins um stjórnmál og kosningar. Vilhjálmur Þorsteinsson framkvæmdastjóri, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Eva H. Önnudóttir stjórnmálafræðingur um kosningabaráttuna. Finnur Beck framkvæmdastjóri Samorku um orkuskiptin.
Sporðdrekar birtast á ýmsum stöðum í nýútkominni skáldsögu Dags Hjartarssonar með sama titil. Þeir eru eins og lím, endurtekið tema, tákn sem gæti verið tilviljun, eða vitnisburður um eitthvað óumflýjanlegt. Skáldsagan er umfangsmesta verk höfundar til þessa, og að baki útgáfunni er 7 ára meðganga. Ljóðrænn stíll Dags er skammt undan en Sporðdrekar er saga þrungin spennu, pælingum um dauðann og drauma, áföll, afskiptaleysi, vináttu og ytri og innri öfl sem móta manneskjuna. Sagan hverfist um örlagaríkan sólarhring, þann 28. október, og gerist að hluta til í miðborg Reykjavíkur. Við mæltum okkur mót við Dag á Prikinu í morgun. Pétur Thomsen hefur verið heillaður af landslagi og áhrifum mannsins á landslag frá því að hann útskrifaðist úr framhaldsnámi í ljósmyndun í Frakklandi árið 2004. Hann hefur beint linsunni að landslagi borga, sveita og hálendis og skrásett þannig samband manns og náttúru. Síðustu ár hefur hann einbeitt sér að sínu nánasta umhverfi í Grímsnesinu og myndað þar námur, tún, skurði, víði, birki og móabörð og afraksturinn verður til sýnis á sýningunni Landám sem opnar á morgun, 8.nóvember, í Hafnarborg. Ljósmyndirnar eru teknar að næturlægi en ljósmyndarinn lýsir landið upp með flassi til að afmarka sviðið. Við það fá myndirnar á sig vissan eftir-heimsendablæ, þar sem svartur himininn gefur til kynna yfirvofandi vá. Pétur segist vonast til að verkin á sýningunni fái fólk til að velta þessum málum fyrir sér, en ekki síður vonist hann til að áhorfendur fái fagurfræðilega upplifun. Nýverið kom út skáldsagan Tokýó-Montana hraðlestin eftir Richard Brautigan í þýðingur Þórðar Sævars Jónssonar. Þetta er safn hundrað og þrjátíu örsagna sem tengjast persónulegri reynslu höfundar þegar hann dvaldi í Japan og Montana-ríki í Bandaríkjunum. Gauti Kristmannsson rýnir í verkið í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Miðvikudagur 6. nóvember Trump, efnahagur, stjórnarskrá, neytendur, rödd almennings, verkfallsvakt. Við Rauða borðið í kvöld verður tekið á grundvallarmálunum og nýjustu fréttum. Sigurjón Magnús Egilsson tekur á móti góðum gestum í beina útsendingu til að ræða meðal annars um úrslit kosninganna í Bandaríkjunum; Eva Bergþóra Þorbergsdóttir, samskiptastjóri Reykjavíkurborgar, Gunnnar Hólmsteinn Ársælsson, kennari, Hallfríður Þórarinsdóttir, mannfræðingur, Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í sagnfræði í Háskóla Íslands. Efnahagsstjórnin hér hefur gengið frekar illa, ríkissjóður er rekinn með halla ár eftir ár. Hvers vegna er það og hvað er unnt að gera til að snúa þessu við? Við fáum fjóra góða hagfræðinga til að greina stöðuna. Þeir eru: Þórólfur Matthíasson, prófessor emeritus, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur hjá BSRB, Ólafur Garðar Halldórsson, hagfræðingur hjá SA og Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá ASÍ. Hjörtur Hjartarson og Katrín Oddsdóttir Stjórnarskrárfélaginu setja nýja stjórnarskrá á dagskrá og útskýra hvers vegna það er kosningamál sem liggur til grundvallar öllum helstu kröfum okkur og draumum um betra líf og réttlátara. Benjamín Julian fer yfir neytendafréttir og fólk á förnum vegi svarar spurningum um stjórnarskrá sem kosningamál og hvað þurfi til að gera til að bjarga ríkissjóði úr halla. Á Verkfallsvakt Rauða borðsins ræðir Haukur Hilmarsson, smíðakennari í Reykjanesbæ um kennara sem blóraböggla en hann skrifaði samninganefndunum skeyti í formi dagbókar kennara sem varpar ljósi á umfang starfsins sem er vanmetið.
Fimmtudagurinn 24. október Kosningar, átök, hækkun matarverð, hernaðarandstæðingar, Gaza og vond leikrit Við ræðum pólitík í aðdraganda kosninga. Karen Halldórsdóttir fyrrum bæjarfulltrúi, Marinó G. Njálsson ráðgjafi, Guðríður Arnardóttir fyrrverandi form Félags framhaldsskólakennara og fyrrum bæjarfulltrúi og Hákon Gunnarsson varabæjarfulltrúi, allt Kópavogsbúar, koma fyrst og svo blaðamennirnir Jakob Bjarnar Grétarsson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Frosti Logason og Karen Kjartansdóttir. Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fjallar um hækkun matvælaverðs og önnur neytendamál. Árni Hjartarson, sem var ritstjóri veglegar bókar um baráttu hernaðarandstæðinga, segir okkur frá bókinni og baráttunni. Árni segir enn: Ísland úr Nató og herinn burt. María Lilja fær til sín ungliða til að ræða þjóðarmorðið í Gaza: Gunnar Ásgrímsson kemur frá Ung Framsókn, Ármann Leifsson frá Ungum jafnaðarmönnum í Samfylkingunni, Karl Héðinn Kristjánsson frá Roða í Sósíalistaflokknum og Sverrir Páll frá Uppreisn í Viðreisn. Og Lára Magnúsardóttir ræðir um tvö leikrit á fjölum leikhúsanna og þær leiðir sem hægt er að fara til að virkja menningarstofnanir okkar til að styrkja íslensku og fólk sem vill læra íslensku.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þórarinn Hjartarson er hlaðvarpsstjórnandi og pistlahöfundur sem vakið hefur verðskuldaða athygli á undanförnum misserum. Í þættinum fara Sölvi og Þórarinn yfir samfélagsmál, ritskoðun, fórnarlambavæðingu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/
Josie tells Taylor about the Icelandic Phallological Museum, which contains the world's largest display of phalluses, and curator Sigurður Hjartarson's quest for the collection's crown jewel: a human penis. Plus: listen to "Amelia's Song," the mysterious melody that reunited a family across cultures, continents, and centuries.
Gestur minn þessa vikuna er Magnús Jóhann Hjartarson. Magnús er margfaldur Íslandsmeistari í borðtennis, einkaþjálfari, styrktarþjálfari, með BS gráðu í sálfræði og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Það var gott, gaman, yndislegt, áhugavert og fræðandi að spjalla við Magnús. Þú ert frábær! Ást og friður.
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur, Lóa Björk Björnsdóttir útvarpskona, Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson verkefnastjóri við HÍ og Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjóri og ræða fréttir vikunnar sem voru markaðar af baráttunni um Bessastaði, af þjóðarmorði á Gaza, háum vöxtum og deilum um frammistöðu fjölmiðla og stjórnmálafólks.
Fimmtudagurinn 14. mars Vondir samningar, baráttuleiðir, hnignun Bretlands og fíklar Ragnar Þór Ingólfsson kemur að Rauða borðinu og segir hvers vegna hann er óánægður með samningana sem hann var að undirrita. Hjörtur Hjartarson frá Stjórnarskrárfélaginu, Salvör Gullbrá Þórarinsson frá Félaginu Ísland-Palestína og Guðmundur Hrafn Arngrímsson frá Leigjendasamtökunum ræða um baráttuleiðir sem samtök þeirra nota. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur segir okkur frá hrörnun Bretlands. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir og Jón K Jacobsen aka Nonni Lobo frá samtök aðstandenda og fíknisjúkra og Gunnar Ingi Valgeirsson, sem heldur úti þáttunum Lífið á biðlista, koma í lokin og ræða stöðu fíkla í samfélaginu.
Dagur Hjartarson rithöfundur er gestur Víðsjár í Svipmynd vikunnar. Dagur hóf ritferil sinn á birtingu ljóða í Lesbók Morgunblaðsins og örfáum árum síðar hlaut hann Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir sína fyrstu ljóðabók, Þar sem vindarnir hvílast. Síðan þá hefur Dagur gefið út smásagnasafn, skáldsögur og fleiri ljóðabækur. Hann hefur hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör og verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins. Á ferli sínum hefur Dagur fengist við pistlaskrif og hann er einn af stofnendum Tungls forlags. Við ræðum skáldskapinn og allt þar á milli við Dag. Um gleðina í ljóðinu og glímuna við skáldsöguna, upptendrun í ritlistarnámi og æskuna í Gravarvogi þar Dagur svaf innan um bækur og lét sig dreyma um atvinnumennsku í golfi. Hann þakkar fyrir að hafa alist upp fyrir tíma algóritmans, að hafa fengið að leiðast og vera á valdi örlaganna en ekki stórfyrirtækjanna. Við ræðum líka myndhverfingar og hvernig ráðamenn nýta þær sér í hag, bæði til góðs og ills.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þórarinn Hjartarson er hlaðvarpsstjórnandi og pistlahöfundur sem vakið hefur athygli á undanförnum misserum. Í þættinum fara Sölvi og Þórarinn yfir rétttrúnað, ritskoðun, fórnarlambavæðingu og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Þórarinn Hjartarson talar við Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri um málefni Úkraínu, Kína og breytinga valdhafa í alþjóðamálum.
1. Fréttir dagsins. 2. Varða, rannsóknarmiðstöð verkalýðsins, birti í dag ömurleg tíðindi, æ fleiri fjölskyldur ná ekki endum saman, æ fleiri falla í fátækt og þetta er fólk úr sömu hópunum og höfðu það skítt fyrir: Fjölskyldur einstæðra foreldra, leigjenda, innflytjenda og öryrkja. Kristín Heba Gísladóttir í Vörðu segir okkur frá stöðunni. 3. Í gegnum hlaðvörp er dregin mikil umræða, æ meiri í takt við veikingu fjölmiðla. Hlaðvarpsstjórarnir Gísli Freyr Valdórsson, Þórarinn Hjartarson og Guðmundur Hörður ræða við okkur um hlaðvörp. 4. Ólafur Margeirsson hagfræðingur segir að bankarnir kyndi undir verðbólgu með vitlausum lánveitingum. Hann skýrir hvers vegna og hvernig megi stoppa þetta. 5. Rannsóknir sýna að tilfinning fólks fyrir óréttlæti fari vaxandi meðal landsmanna. Jón Gunnar Bernburg hefur rannsakað afstöðu almennings og ræðir vaxandi tilfinningu fyrir óréttlæti og metur viljann til mótmæla. 6. María Pétursdóttir, Þórdís Bjarnleifsdóttir og Sara Stef. Hildar ræða fréttirnar út frá feminísku sjónarhorni.
www.pardus.is/einpaelingÞórarinn Hjartarson ræðir við Dóra DNA um grín, kynferðisafbrot, slaufanir og stjórnmál.
Þriðjudagurinn 25. apríl 1. Fréttir dagsins. 2. Ragnar Þór Ingólfsson. kallaði eftir mótmælum í gær, sagði þörf á annarri og árangursríkari Búsáhaldabyltingu. Við ræðum stöðuna við virka þátttakendur úr Búsáhaldabyltingunni, Árna Daníel Júlíusson, Hjört Hjartarson og Hallfríði Þórarinsdóttur. 3. Finnbjörn Hermannsson fyrrum formaður Byggiðnar býður sig fram sem forseta Alþýðusambandsins. Við spyrjum hann um átökin innan hreyfingarinnar og hvert hún eigi að stefna. 4. Súdan logar. Við fáum Helen Ólafsdóttir öryggisfulltrúa til að lýsa ástandinu. 5. Geðhjálp stendur fyrir ráðstefnu þar sem þekkt andófsfólk gegn meginstraums-geðlækningum mætir. Við spjöllum við Elínu Ebbu Ásmundsdóttur varaformann Geðhjálpar um erindi ráðstefnunnar, auka vanlíðan í samfélaginu og oftrú á lyfjum.
Fimmtudagurinn 9. mars Kókaínsmygl, Bandaríkin, Nató og sjúkrasaga Við reynum að skilja stóra kókaínmálið og fáum til þess tvær blaðakonur sem hafa setið yfir réttarhöldunum, þær Helenu Rós Sturludóttur á Fréttablaðinu og Margréti Björk Jónsdóttur á Vísi. Magnús Helgason kemur til okkar og reynir að skýra út stöðuna á Bandaríkjunum. Þórarinn Hjartarson er herstöðvaandstæðingur og vill Íslands úr Nató. Hann segir okkur frá sinni sín á stríðsvæðingu Nató út frá innrásinni í Úkraínu. Við heyrum síðan sjúkrasögu Kolbrúnar Ernu Pétursdóttur, kynnumst heilbrigðiskerfinu og samfélaginu út frá sjónarhóli hennar veikrar. Og við segjum fréttir dagsins.
Þórarinn Hjartarson stjórnmálafræðingur og nemi í MPA í opinberri stjornsýslu, hnefaleikaþjálfari og starfsmaður á sambýli heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling og sendir reglulega frá sér skoðanapistla sem hafa verið birtir á Vísi. Það má líklega segja að skoðanir, fullyrðingar og afstaða Þórarins í þessum pistlum séu í andstöðu við femíníska hugmyndafræði enda er hann oft að hæðast að málefnum jaðarsettra eða því sem hann kallar „woke-isma”. Ég tel að sjónarmið Þórarins endurspegli viðhorf ansi margra sem eru orðnir þreyttir á byltingum og baráttum sl ára, sem telja sig geta valið hlutleysi gagnvart samfélagsmálum í skjóli eigin forréttindafirringar og langar því að fá að forvitnast nánar um sjónarhorn og afstöðu manns sem er að mörgu leiti á skjön við mitt eigið. Tilgangurinn með þættinum er að varpa ljósi á viðhorf einstaklings sem er gagnrýninn á femíníska baráttu og bjóða upp á samtal tveggja einstaklinga sem eru ósammála í flestum málum, þrátt fyrir líka félagslega stöðu. Ætli megi ekki segja að hér séu tveir bergmálshellar að mætast og eiga samtal um völd, fjármögnun hins opinbera, Woke-isma, jafnrétti, femínisma, tjáningarfrelsi, forréttindi og skoðanir. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ og BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar bjóða upp á þáttinn.
Dagur Hjartarson er kennari og rithöfundur sem hefur meðal annars fengið hin virtu bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Ljóðstaf Jóns úr Vör. Þá hefur Dagur einnig verið tilnefndur til bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins og er einn af þeim útvöldu sem hafa fengið listamannalaun til að sinna ritstörfunum. Við Dagur ræddum um fyrirmyndir ungra drengja, hvað þurfi til svo skáld og rithöfundar taki við af fótbolta- og poppstjörnum sem fyrirmyndir, fjarveru drengja og karla í umræðu um samfélagslega knýjandi málefni, karlmennsku, karlrembu, prumpulykt og listina. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þáttur tekinn upp 6. september 2022. Þátturinn er í boði: Veganbúðin Anamma Bakhjarlar Karlmennskunnar

Í þetta sinn fengum við til okkar í viðtal hann Magnús Jóhann Hjartarson, Íslandsmeistara í borðtennis. Þar ræddu nafnarnir Magnús og Magnús um æfingaferð sem annar þeirra fór í til Kína og um borðtennis þar í landi sem er jú, þjóðaríþrótt Kínverja. Einnig ræddum við borðtennis hér á landi en það eru fjölmargir iðkendur um heim allan sem spila borðtennis daglega. Þetta er einstaklega skemmtilegt viðtal við Magnús enda íþróttamaður af Guðs náð.
www.patreon.com/einpaelingNafnarnir Þórarinn Hjartarson og Þórarinn Ingi Pétursson ræða um fæðuöryggi Íslendinga. Þórarinn Ingi er þingmaður Framsóknar og telur hann að fæðuöryggi á Íslandi sé verulega ábótavant, sérstaklega nú í breyttum heimi.Rætt er um ESB, hækkun hrávöruverðs, stöðu Íslands, þróunarlönd og fleira.
Við Rauða borðið í kvöld ræðum við bók mannfræðinmgsins David Graeber og fornleifafræðingsins David Wengrow The Dawn of Everything: A New History of Humanity þar sem þeir reyna að færa rök fyrir því að samkennd hafi fært mannkyninu meiri blessun en samkeppni, samstaða og samvinna fremur en vilji einstaklingsins til að bæta sinn persónulega hag. Til að ræða þetta kemur hópur lærðra og leika að Rauða borðinu: Héðinn Unnsteinsson stefnumótunarfræðingur, Kristján Þór Sigurðsson mannfræðingur, Halldór Armand Ásgeirsson lögfræðingur og rithöfundur, Lárus Ýmir Óskarsson leikstjóri, Tjörvi Schiöth háskólanemi og Þórarinn Hjartarson podcastari.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!
Berglind María Tómasdóttir tónlistarkona verður gestur Víðsjár í dag, en hún hefur staðið í stórræðum undanfarnar vikur, bæði sent frá sér bók sem heitir Tvísöngur, kvikmynd og tónlist á geisladiski og kasettu. Í heild hverfist verkefnið um tvö hljóðfæri sem Berglind hefur þróað á undanförnum árum sem heita Hrokkur og Lokkur. Berglind segir frá þessari nýsköpun og ræðir einnig tilbúinn og ekta menningararf, ef eitthvað slíkt er þá til. Út er komið 28. Bindi í sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar, en það kallast Þættir af sérkennilegu fólki. Bókin fjallar um fólk sem var á einhvern hátt hornreka íslensku samfélagi fyrri tíðar. Hvernig þetta fólk náði að lifa af og hvernig það hafði áhrif á samtíma fólk sitt. Í greinum bókarinnar er að finna texta sem tengjast mannlýsingum á eftirlýstu fólki, fátæku fólki, einstaklingum með andlegar eða líkamlegar skerðingar, auk úrskurða og meðferð yfirvalda á jaðarsettu fólki. Sólveig Ólafsdóttir og Atli Þór Kristinsson, tveir greinahöfundanna í bókinni koma í þátt dagsins og segja frá menningu fátækar á Íslandi. Og Dagur Hjartarson flytur hlustendum pistil í þættinum, sinn síðasta að sinni og er Dagur í dag með hugann við aðgengi almennings að textum í fjölbreyttu formi. Og loks er Gréta Sigríður Einarsdóttir, einn bókarýna Víðsjár, búin að lesa eina af sjóðheitum skáldsögum sem leynast í einhverjum jólapökkum landsmanna. Gréta fjallar í dag um nýja skáldsögu Friðgeirs Einarssonar sem heitir Stórfiskur.

Í fertugasta og fyrsta þætti er rætt við Gísla Hjartarson um líf hans og störf. Gilli eins og hann er oftast kallaður ræðir við okkur um fjölskylduna, prentsmiðjuna, crossfit og heilsurækt, ferðalög, pólitík og margt fleira.Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra sögu sem Lilja Guðmundsdóttir ritaði í Blik 1939. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.isÞetta sögubrot er í boði Bókasafns VestmannaeyjaEndilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.
Njála í höndunum á hundunum Njála hræðir tungurnar meira en flest annað, nema ef vera skyldi að hitta Án hrísmaga í dimmu húsasundi. Þáttastjórnendur liggur við yfirliði þegar drottningu Íslendingasagnanna svo mikið sem ber á góma. Þá er gott að viðmælandinn að þessu sinni er vanur að blása í ýmsa heimagerða lúðra og flautur og gæti blásið í tungurnar lífi ef illa skyldi fara. Tónmenntakennarinn, leikritaskáldið og lífskúnstnerinn Hjörleifur Hjartarson fór yfir fræðin og sagði frá Njálusýningu Hunds í óskilum og skyld mál. Hlustið, hlýðið og njótið.
Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í guðfræði- og trúarbragðafræðum við Háskóla Íslands, stýrir málþinginu Öll á sama báti - Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðarinnar, sem verður haldið í dag á vegum Stofnunar Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Hún segir að loftslagsváin sé eitthvað sem skipti alla máli, þar á meðal trúarhreyfingar, en líkt og fram hefur komið hefði sú sátt sem náðist í París fyrir sex árum sennilega ekki orðið að veruleika ef fulltrúa ríkja hefðu einir komið að verki. Þarna skipti miklu máli að trúarleiðtogar komu að samningaborðinu. Arnfríður segir að grípa verði til aðgerða fyrir komandi kynslóðir, ábyrgðin sé okkar enda hægt að rekja þessar hamfarir til gjörða mannsins. Þetta áhafi sennilega mest og um leið verst áhrif á þá sem minna mega sín. Vestfirðir eru efst á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 í árlegu vali ferðabókaútgefandans Lonely Planet yfir staði til að heimsækja árið 2022 og fjallaði Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, meðal annars um valið í ferðapistli sínum. Jón Hjartarson, leikari og ljóðskáld kom á Morgunvaktina en hann hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir sína fyrstu ljóðabók, Troðninga. Jón Hjartarson var um árabil leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur og hefur leikið ótal hlutverk á sviði, í sjónvarpi, útvarpi og kvikmyndum. Jón er höfundur fjölmargra leikrita og leikgerða fyrir börn og fullorðna, auk barna- og unglingabóka. Hann hefur einnig skrifað samtalsbækur og samið fjölda skemmtiþátta, pistla og söngtexta. Jón las meðal annars tvö ljóð úr bókinni fyrir hlustendur Rásar 1. Tónlist: American pie og Vincent með Don McLean. Forsjá með Agnari Má Magnússyni. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Starfsfólk Hótels Borgarness sagði í vitnaskýrslu hjá lögreglu að það hefði aldrei átt við kjörgögn úr alþingiskosningunum í Norðvesturkjördæmi. Eini umgangurinn sem sést við talningarsalinn eftir að yfirkjörstjórn er farin eru starfsmenn hótelsins að ganga frá. Karl Gauti Hjaltason, sem kærði endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi til lögreglu, segir að ákvörðun um að sekta yfirkjörstjórnina staðfesti að fyrsta talningin eigi að gilda. Allt starfsfólk New York borgar verður að láta bólusetja sig að fullu gegn kórónuveirunni á næstu dögum. Ella verður það sent heim án launa. Miðstjórn ASÍ varar við sölu á Mílu og krefst þess að stjórnvöld grípi til aðgerða til að tryggja almannahagsmuni. Jón Hjartarson hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Troðningar. --- Karl Gauti Hjaltason, sem kærði endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi, segir að ákvörðun lögreglustjórans á Vesturlandi að bjóða kjörstjórnarmönnum að greiða sekt staðfesti að fyrri talningin eigi að standa. Frambjóðandi Pírata sem ekki náði kjöri segir að staðan í málinu kalli á að uppkosning fari fram í kjördæminu. Svo virðist sem kjörstjórnarmenn ætli ekki að þiggja boð um að greiða sekt. Það gæti varðað 12 daga fangelsi. Arnar Páll Hauksson talar við Karl Gauta Hjaltason og Davíð Norðdhal. Öllum þjóðum var boðið að skila og kynna sína framtíðarsýn í loftslagsmálum fyrir loftslagsráðstefnuna í Glasgow. Íslensk stjórnvöld hafa ekki gert það og skila því auðu, sem eru mikil vonbrigði að sögn Halldórs Þorgeirssonar formanns Loftslagsráðs. Ragnhildur Thorlacius talaði við Halldór. Eftir að vera í fararbroddi í að bólusetja gegn Covid-19 hafa Bretar nú tapað þeirri forystu. Ensk heilbrigðisyfirvöld felldu niður varnir í sumar, aðrir landshlutar hafa farið sér hægar. Vonir um að víðtæk bólusetning myndi ein og sér ráða niðurlögum veirufaraldursins hafa ekki gengið eftir. Nýjum tilfellum fjölgar mjög, nýtt breskt Delta-afbrigði komið upp. Vetrarhorfurnar eru því heldur kvíðvænlegar þó vísindamenn búist ekki að það verði þörf á lokunum líkt og í fyrravetur. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.

Guðrún Ólafsdóttir stýrir nokkrum námskeiðum hjá Endurmenntun Háskóla Íslands sem vöktu áhuga okkar, Að ferðast ein um heiminn, Að ferðast með lest, svo er hún með námskeið um kóreska menningu, þar sem hún kennir fólki að njóta svokallaðs Kdrama og Kpops og við fengum Guðrúnu í þáttinn til að segja okkur frá ferðalögum sínum, kóreskri menningu og já, gæðastjórnunarkerfi (ISO 9001), því hún kennir líka inn á það hjá Endurmenntun. Eftir að hafa farið á hundavaði um sögu íslensku þjóðarinnar í þremur sýningum, Sögu þjóðar, Öldinni okkar og Kvenfólki, snýr dúettinn Hundur í óskilum aftur á svið og fer nú á hundavaði í gegnum sjálfa Njálu. Í sýningunni hlaupa þeir Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen í gegnum skrautlegt persónugallerí Njálu. Við sögu koma taðskegglingar, hornkerlingar, kinnhestar, kartneglur og þjófsaugu svo fátt eitt sé nefnt. Þeir félagar komu í þáttinn í dag. Sigvalda Kaldalóns þekkja líklega flestir Íslendingar vegna laganna sem hann samdi og lifa enn með þjóðinni. En færri þekkja til átakanna milli hans og læknafélagsins, en þá sögu hefur Óttar Guðmundsson kynnt sér. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum fékk Óttar til að segja sér þessa sögu. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Víðsjá í dag verður að stórum hluta helgur göldrum. En nú á dögunum kom út bókin Galdrar og guðlast á 17. öld eftir Má Jónsson. Í bókinni eru teknir saman og gefnir út allir tilteknir dómar sem komu fyrir rétt og vörðuðu ákæru eða orðróm um galdra á árabilinu 1546-1772. Í þætti dagsins fáum við að ferðast með bókinni aftur á 17. öld og heyra lesin brot úr dómsmáli Klemusar Bjarnasonar en einnig ræðum við við Má Jónsson höfund verksins. Rithöfundurinn Dagur Hjartarson tekur einnig til máls hér í þætti dagsins, en í Víðsjá ætlar Dagur að mæta aðra hverja viku næstu mánuði til að ræða hér vítt og breytt um listþörfina og ímyndunaraflið. Við sláum á þráðinn til Sigrúnar Sævarsdóttur Griffiths en hún er að undirbúa námskeið í skapandi tónlistarstjórnun við Nýja Tónlistarskólann næstu helgi. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson

Jón Hjartarsson leikari og rithöfundur segir frá lífi sínu.
Í þessum tuttugasta þætti, og jafnframt síðasta í þessari fyrstu þáttaröð, ræða Gyða og Anna Margrét um ljóðabækur og bókina Hesta eftir Rán Flyering og Hjörleif Hjartarson. Bækurnar eru allar upplagðar í sumarlesturinn og myndu sóma sér vel í ferðalagi eða á teppi í lautarferð.Ljóðabækurnar sem þær ræða um eru bækurnar Spegilsjónir eftir Guðrúnu Hannesdóttur, Les birki eftir Kari Ósk Grétudóttur, Havana eftir Maríu Ramos og loks ljóðasafn Kristínar Ómarsdóttur. Skúffuskáld á Instagram og FacebookLubbi PeaceSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.
326.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins er nóg um að vera. Tippari vikunnar er Hjörtur Hjartarson sem afrekaði það í vikunni að setja nýtt markamet í íslenska boltanum, 222 mörk. Við spjöllum um allt milli himins og jarðar ásamt því að tippa á 5 leiki á Lengjunni. Andri Steinn Birgisson er sérfræðingur minn í Lengjudeild karla og hann er á línunni. Þá heyri ég í Þórhalli Dan og við tölum um landsliðsval á U21, fréttamola, Dominsodeild karla og kvenna, PepsiMax kvenna og förum svo aðeins í slúður og aðrar fréttir. Njótið helgarinnar.
Reglulega berast fréttir af því að svo og svo margt fólk bíði eftir að komast í liðskiptaaðgerð; að fá nýjan lið í hné eða mjöðm og jafnvel öxl. Lúnum liðum fylgja verkir og það snardregur úr möguleikum fólks á að sinna vinnu eða tómstundum og almennt njóta lífsins. En hvers vegna endast þessir mikilvægu liðir, að því er virðist, talsvert verr en margt annað í líkamanum? Þurfum við að hugsa betur um liðina en við gerum? Já, getum við styrkt þá með einhverjum hætti og dregið úr líkum á að þurfa í liðskiptaaðgerð? Við ræddum þessi mál við Hjört Fr. Hjartarson yfirlækni á Landspítalanum. Þrjátíu ár eru í dag síðan Lech Walesa var kjörinn forseti Póllands. Það var 9. desember 1990 sem fyrstu almennu forsetakosningarnar í sögu landsins voru haldnar og Walesa fór með sigur af hólmi. Hann vann sem rafvirki í Lenín-skipasmíðastöðinni í Gdansk og leiddi verkalýðsfélagið og andspyrnuhreyfinguna Solidarnosc eða Samstöðu sem barðist gegn stjórn kommúnista í Póllandi á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Vera Illugadótir sagði frá friðarverðlaunahafanum og forsetanum fyrrverandi. Skógræktarfélag Eyfirðinga er elsta starfandi skógræktarfélag landsins, það varð nírætt fyrr á árinu. Bækistöðvarnar eru í Kjarnaskógi, enn hann skemmdist talsvert í snjó og vondu veðri í fyrravetur. Helstu verkefni félagsins þessar vikurnar er sala á jólatrjám, en félagið er stórtækt í þeim efnum. Ágúst Ólafsson ræddi við Ingólf Jóhannsson, framkvæmdastjóra félagsins. Tónlist: Make you feel my love - Bob Dylan Z kopyta kulig rwie - Skaldowie Just like a woman - Bob Dylan

Í tilefni dags íslenskrar tungu var rætt við Hjörleif Hjartarson, rithöfund og tónlistarmann. Nýverið sendu hann og Rán Flygenring frá sér bókina Hestar og sagði Hjörleifur frá henni. Rabbað var jöfnum höndum um íslenska tungu og íslenska hestinn. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir stöðu covid-19 í Bretlandi og aðgerðir stjórnvalda við að ná tökum á óværunni. Það hefur gengið illa til þessa. Hún sagði einnig frá breytingum á starfsliði Johnsons forsætisráðherra en sambýliskona hans mun hafa komið í veg fyrir ráðningu nýs ráðgjafa forsætisráðherrans. Þá var spjallað um fótbolta og fornleifarannsóknir. Undir lok þáttar sagði Vera Illugadóttir frá öllum þeim fjölmörgu gæludýrum sem búið hafa í Hvíta húsinu í Washington síðustu 150 ár. Ekkert gæludýr hefur búið í húsinu í forsetatíð Trumps en það er undantekning. Með Biden flytjast þangað tveir þýskir hundar í janúar. Tónlist: Litla flugan - Sigfús Halldórsson, Ágústnótt - Alfreð Clausen, Gunnarshólmi - Hundur í óskilum, Valdi skafari - Spilverk þjóðanna, Nei sko - Spilverk þjóðanna.

In this episode your host Eric van Reem does not only talk about chess, but also about music with the Icelandic musician Hjörtur Ingvi Jóhannsson. He is the keyboard player of the band Hjaltalín, and he is active in the country's music scene as an independent songwriter and arranger. Hjörtur wrote songs for the movie Autumn Lights, and one of those songs, "Seconds", was shortlisted for nomination to the Oscars 2017. Eric also talks to his father, legendary Grandmaster Jóhan Hjartarson about chess, music and Bobby Fischer.
Aron Hjartarson originally dreamed of being a rockstar — but he became more fascinated with CG and 3D. After founding a studio in his native Iceland he created commercials for Visa and Coca-Cola, but his understanding of software propelled him on a career path that took in Italy, London, New York, Iceland (again) and now Los Angeles, where he works as Executive Creative Director at Framestore. In this upbeat podcast, Aron delves into the history, culture and politics that have made Iceland a literal hotbed of creativity. He also talks about working on Gravity and Contraband, the difference the lockdown has made to where we work, and his positive philosophy for the future.
Í þessum þætti af Sögum af landi verður flakkað um Svarfaðardalinn og íbúar þar teknir tali. Þetta er seinni þátturinn af tveimur þar sem flakkað er um sveitir Svarfaðardals og Skíðadals. Í þessum seinni þætti verður farið í heimsókn á bílaverkstæðið á Bakka, þar sem forvitnast verður um starfsemi verkstæðisins, um vinsæla kaffistofu sem þar er til húsa auk þess sem einn af starfsmönnum verkstæðisins fræðir okkur um Matarhornið, gamansöm Facebook-myndbönd þar sem matur og mannlíf sveitarinnar er í forgrunni. Í þættinum er einnig skroppið í kaffi á bæinn Tjörn, þar sem rætt verður um náttúru og mannlífið á svæðinu. Að lokum verður farið í heimsókn til ungra bænda sem nýlega festu kaup á jörðinni Hrafnsstöðum og létu þar með gamlan draum um að búa í sveit rætast. Viðmælendur í þættinum eru Alfreð Viktor Þórólfsson, Þór Ingvason, Kristján Eldjárn Hjartarson, Berglind Stefánsdóttir og Magnús Helgi Jónson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Bók vikunnar er Ína, söguleg skáldsaga eftir Skúla Thoroddsen sem kom út hjá Smundi 2019. Í þættinum heyrist í Skúla en viðmælendur umsjónarmanns um bókina eru Árni Hjartarson jarðfræðingur og Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknarprófessor hjá Stofnun Árna Magnússonar. Umsjón hefur Jórunn Sigurðardóttir.

Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UNWomen á Íslandi: Hjón sem vísa átti úr landi til Pakistan óskuðu alþjóðlegrar verndar hér óttuðust um líf sitt því þau höfðu gifst þrátt fyrir að fjölskylda konunnar hefði samið um brúðkaup hennar og annars manns. Rætt er við Stellu um þvínguð hjónabönd og stöðu Íslands í þeim efnum. Berlind Svavarsdóttir formaður Lögmannafélags Íslands: Berglind ræðir um endurskoðun á siðareglum lögmanna og breytt umhverfi eftir mikla fjölgun í stéttinni undanfarin ár og áratugi. Árni Hjartarson jarðfræðingur: Réttvísin gegn Rúv nefnist leikþáttur sem saminn var og leiklesinn í kjölfar Tangenmálsins svokallaða árið 1989. Upptaka af honum verður sýnd á Safnanótt.

Gestir þáttarins eru Polina Shepherd, Hjörtur Bergþór Hjartarson og Jón Björnsson, sem undirbúa tónleika Söngfélagsins sem fara fram í Langholtskirku um næstu helgi og eru helgaðir klezmer tónlist. Einnig er rætt við Kristófer Rodriguez Svönuson, sem var að gefa út sína fyrstu plötu - Primo - hjá Lucky Records. Rætt er við Kristófer um tónlistina, kólumbísku áhrifinu, kongatrommurnar og margt fleira.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Hörpu Rún Kristjánsdóttur sem tók fyrr í vikunni við Bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Eddu. Björn Þór Vilhjálmsson, einn af bókmenntagagnrýnendum Víðsjár, fjallar um skáldsöguna Við erum ekki morðingjar eftir Dag Hjartarson. María Kristjánsdóttir leikhúsrýnir fjallar um leikritið Stórskáldið eftir Björn Leó Brynjarsson sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu á föstudag. Og tónlistarkonan Berglind María Tómasdóttir heldur áfram að kanna geisladiskasafnið sitt og grisja, og sér nú fyrir endann á verkinu. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
Dagur Hjartarson rithöfundur og ljóðskáld er fyrsti viðmælandi Skaparans. Hann segir okkur frá hvernig hann sér hugmyndir, hvaðan hann fær innblástur, hvort hann vinni betur einn eða með öðrum og gefur ýmis góð sköpunarráð. Skaparinn er nýr hlaðvarpsþáttur í umsjón tónlistarkonunnar Hildar þar sem hún talar við skapandi fólk úr öllum geirum og spyr spurningar um það hvernig það skapi, hvernig það vinni hugmyndir og hvað það gerir við hugmyndastíflu. Skaparinn er fyrir alla skapara og forvitið fólk sem kann að meta góðar hugmyndir.
Örn Ævar Hjartarson kom í viðtal til okkar og ræddi við okkur um öll þessi Evrópumót sem hann fór á, fræga hringinn í Skotlandi og margt margt fleira.
Sigurður Hjartarson er ungur sagnamaður frá Stóra-Kambi í Breiðuvík. Foreldrar hans reka hestaleigu á bænum og undanfarin tvö sumur hefur Sigurður boðið ferðafólki upp á söguferðir. Þá er riðið niður á fjöruna og Sigurður segir frá Íslendingasögunum og þá sérstaklega sögu Björns Breiðvíkingakappa, sem er talinn hafa verið fyrsti Evrópumaðurinn í Ameríku samkvæmt heimildum Eyrbyggju. Við hringdum í Sigurð og fengum hann til að segja okkur frá þessum kappa. Hagstofan hefur starfað í rúm hundrað ár við að safna tölulegum upplýsingum um íslenska þjóð. Á vefsíðu Hagstofunnar er hægt að nálgast megnið af þeim upplýsingum sem Hagstofan hefur safnað og þar geta menn nú aldeilis fengið útrás fyrir tölfræðinördinn í sér. Þeir Þorsteinn Þorsteinsson og Ólafur Arnar Þórðarson komu í þáttinn og sögðu frá hinni umfangsmiklu starfsemi Hagstofunnar og þeim miklu breytingum sem hefur orðið á starfseminni sérstaklega með tilkomu internetsins. Anna Björg Þórarinsdóttir er nýráðinn framkvæmdastjori Galdrasýningarinnar á Ströndum eftir sviplegt fráfall hins mikla frumkvöðuls Sigurðar Atlasonar sem verið hafði framkvæmastjóri sýningarinnar frá upphafi. Anna Björg kemur þó ekki ókunnug til safnsins - hún hafði unnið þar áður og þeim Sigurði hafði orðið vel til vina. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Önnu Björg á hinni merku galdrasýningu. UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG MAGNÚS R. EINARSSON
Rætt er við karlmenn á öllum aldri sem stunda prjónaskap og ýmsa fagaðila sem koma að ullarframleiðslu og framgangi prjónamennsku á Íslandi. Viðmælendur eru Ásdís Jóelsdóttir, Sigurbjörn Hjartarson, Sigurður Sævar Gunnarsson, Sunna Jökulsdóttir, Þuríður Einarsdóttir , Ármann Eggertsson, Kristján Atli Sævarsson, Ólafur Benediktsson, Hallbjörn Rúnarsson, Karen Ósk Sigurðardóttir, Elís Bergmann Valgeirsson, Bergþór Pálsson, Gísli Víkingsson, Sigmundur Grétar Hermannsson og Eldar Arnarsson. Í þættinum heyrist frumsamin tónlist eftir Helga Rafn Ingvarsson. Jafnframt hljómar tónlist eftir My Bubba, Bill Oddie og Helga Björnsson. Umsjónarmaður: Pétur Oddbergur Heimisson.
Pétur Ármannson arkitekt er gestur Víðsjár í dag en hann er nýkominn heim frá París þar sem merkilegar teikningar eftir Högnu Sigurðardóttur arkitekt fundust nýverið. Pétur segir frá ferðalaginu og verkum Högnu í þættinum. Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygering eru einnig gestir þáttarins en þau voru nýverið tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir söguna af Skarphéðni Dungal, flugunni sem setti fram nýjar kenningar um eðli alheimsins. Blekfjélagið, félag ritlistarnema við Háskóla Íslands verður einnig á sínum stað með aðventuörsögu, eins og í hverjum þætti fram að jólum. Og í þættinum berast einnig fréttir frá Svíþjóð en í vikunni lengdi áfrýjunardómstóll Svíþjóðar dóm kúltúrprófílsins svokallaða. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
GM Jóhann Hjartarson is a legend of Icelandic Chess and has a firm place in the chess history books. He is best known for defeating GM Viktor Korchnoi in a match during the 1988 Candidates Cycle (before succumbing to Anatoly Karpov), but he is also the 6 time champion of Iceland, and the 2 time Nordic Champion. Jóhann took some time out from his duties at the World Championship in London, and we discussed the following: His impressions of the World Championship, and what his responsibilities were as a member of the Appeals Committee for the match. Perspective and stories from the height of his chess career, when he was among the top players in the world and crossed swords with all time greats like Kasparov, Karpov and Korchnoi. What led him to decide, at a time when he was near the peak of his chess powers, to transition from playing chess full time to working as a lawyer? Does he regret this decision? Has he kept up with the changes in study habits among world elites? What are his favorite chess books? This interview was quite a treat for me as a fan of chess history, and I think that you will enjoy it too. Thanks so much to Johann for sharing his experiences! This episode is brought to you in part by Chessable.comGM Hjartarson's favorite game of his own, Game 1 of his match vs. Korchnoi is here. His favorite game by any player, Spassky vs. Fischer, Game 13, is here. If you would like to donate to support the podcast, go here.
Þátturinn í dag var tileinkaður Kambsmálinu svokallaða. Atburðir sem áttu sér stað í júnímánuði 1953 norður í Árneshreppi urðu kveikjan að bókinni Kambsmálið, engu gleymt, ekkert fyrirgefið. Kristín Einarsdóttir hitti höfund bókarinnar Jón Hjartarson og ræddi við hann um bókina og þessa aðför að fátæku fólki sem við tengjum frekar við fyrri aldir en ekki miðja síðustu öld. Bjóða átti upp býlið Kamb, tvístra systkinunum átta og setja þau á bæi í sveitinni. Heimilisfaðirinn var nýlátin og móðirin lá fársjúk á sjúkrahúsi í Reykjavík. Seinna í þættinum heyrðum við svo viðtal við tvær elstu systurnar frá Kambi, þær Pálínu 83 ára og Jónu 82 ára, sem rifjuðu upp þennan örlagaríka uppboðsdag, og hvernig þau komust af í kjölfarið, í eldhúsinu heima hjá Jónu í Safamýrinni. Þær sögðu frá þessum erfiða tíma, mánuðunum fyrir uppboðið, uppboðið sjálft og svo mánuðina eftir. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Franskur kennari mætti nýlega lögræðingum Facebook í réttarsal vegna ritskoðunar samfélagsmiðlarisans. Málið snýst um verkið Uppruna heimsins frá árinu 1886. Rætt er við Maríu Ramos hjá útgáfufélaginu Partus. María segir okkur frá bókinni og les úr henni. Gauti Kristmannsson rýnir í Doru Bruder eftir franska rithöfundinn Patrick Modiano í þýðingu Sigurðar Pálssonar. Árni Hjartarson jarðfræðingur segir frá ferðum Vigfúsar Sigurðssonar grænlandsfara sem fór í fræga leiðangra til Grænlands 1912 og 1930 en nú hafa dagbækur Vigfúsar verið gefnar út. Umsjón Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
#vBrownBag EMEA - VCAP6-DVC Objective 2.7 - Build Security Requirements into a vSphere 6.x Logical Design with Larus Hjartarson