Podcasts about einarsd

  • 85PODCASTS
  • 894EPISODES
  • 1h 3mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Apr 30, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about einarsd

Latest podcast episodes about einarsd

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - miðvikudagur 30. apríl 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 30, 2025 70:03


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Valgeir Magnússon stjórnarformaður PiparTBWA og framkvæmdastjóri SDG TBWA í Osló um Justin Bieber áhrifin Margrét Einarsdóttir formaður nefndar um eftirlit með störfum lögreglu Símatími Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar um njósnamálið og persónuvernd Jónas Páll Jónasson fiskifræðingur og sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun um íslenska humarinn Ómar Guðjónsson gítarleikari og listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Jazzþorpið

Þjóðmál
#312 – Birna Ósk fjallar um stöðuna í alþjóðaflutningum

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Apr 28, 2025 48:37


Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá APM Terminals, ræðir um starfsemi félagsins sem rekur hafnir út um allan heim, stöðuna í alþjóðlega flutningakerfinu og alþjóðaviðskiptum, hvaða áhrif mögulegt tollastríð getur haft til skemmri og lengri tíma, hvaða áhrif truflum á siglingaleiðum getur haft og fleira þessu tengt. Þá er einnig rætt um stöðuna á Mílu og Skel, en Birna Ósk situr í stjórn beggja fyrirtækja. Rætt er um aðkomu franska innviðafjárfestingasjóðsins að Mílu og uppbyggingu hér á landi, mikilvægi þess að laða að erlenda fjárfestingu, hvernig starfsemi Skeljar gæti þróast með ólíkum fjárfestingum og margt fleira.

Ein Pæling
#411 Jakob Birgisson og Diljá Mist Einarsdóttir - Valkyrjuelskendur: þáttur 2

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Apr 21, 2025 66:21


Þórarinn, Jakob Birgisson og Diljá Mist Einarsdóttir fara um víðan völl og ræða stjórnmálin, bakslagið, vókið, uppeldismál, stemninguna í samfélaginu, fjármál og margt fleira.Til að styðja við þetta framtak má fara inn á:www.pardus.is/einpaelingeðaLeggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270Samstarfsaðilar:PoulsenHappy HydrateBæjarins Beztu PylsurLjárdalur.isAlvörubón

Samfélagið
Breiðholt, endurheimt og bréf af vígvellinum

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 14, 2025 59:09


Sumum þykir orðræða um Breiðholtið oft vera frekar neikvæð. Kristín Dögg Kristinsdóttir, þjóðfræðingur og Breiðhyltingur, er alin upp í Fellahverfi í Breiðholtinu. Í BA ritgerð sinni í þjóðfræðináminu rannsakaði hún upplifun nokkurra einstaklinga af því að alast upp í hverfinu. Hún kallar eftir jákvæðara umtali um hverfið. 2020-2030 er áratugur endurheimtar hjá Sameinuðu þjóðunum. Endurheimt vistkerfa gengur bæði út á að vernda vistkerfi en líka að færa röskuð vistkerfi í fyrra horf. Gréta Sigríður Einarsdóttir var í Stykkishólmi og ræddi við Jakob Johan Stakowski, starfsmann Breiðafjarðarnefndarnefndar um hvort hægt sé að endurheimta fjörð á Snæfellsnesi. Slíkt hefur aldrei verið gert áður á Íslandi. Og svo heimsækir Samfélagið Þjóðskjalasafnið og þar fáum við að heyra brot úr bréfum Vestur-Íslendings sem skrifaði móður sinni af vígstöðvunum í heimstyrjöldinni fyrri. Lög í þættinum í dag: PRINS PÓLÓ - Niðri á strönd (Remix by Jack Schidt &Sexy Lazer). NELLY FURTADO - I'm Like A Bird.

Víðsjá
Stöngin inn á Hönnunarmars, Illgresin í Tjarnarbíói, Í skugga trjánna/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 3, 2025 50:30


Í dag hefst Hönnunarmars með pompi og prakt og á þriðja tug sýninga af mjög fjölbreyttu tagi. Meðal þeirra er sýningin Stöngin inn, í Hegningarhúsinu, þar sem áhugasamir geta kynnt sér umbreytingar sem framundan eru á Stangarbænum í Þjórsárdal. Verkefnið markar að sögn aðstandenda ákveðin þáttaskil í opinberum byggingum hér á landi og setur Stangarbæinn í sérstöðu sem fyrsta minjastaðinn á Íslandi sem er hannaður heildrænt með áherslu á umhverfislega og félagslega sjálfbærni. Við rifjum upp merkilega sögu Stangarbæjarins í Þjórsárdal og af sýningunni hjá arkitektinum Karli Kvaran í þætti dagsins. Gréta Sigríður Einarsdóttir vinnur líka úr eftirstöðvum jólabókaflóðsins með rýni í skáldsögu Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Í skugga trjánna, og við kynnum okkur nýja danssýningu í Tjarnarbíói sem ber yfirskriftina Illgresin hjá danshöfundinum Gígju Jónsdóttur og dansaranum og fulltrúa danshópsins Forward, Diljá Þorbjargardóttur. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Samfélagið
Samfélagið í Andrými

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 28, 2025 58:18


Í dag förum við í heimsókn í Andrými, svokallað róttækt félagsrými við Bergþórugötu í miðborg Reykjavíkur. Í gær var boðið upp á ókeypis kvöldverð í rýminu, eldaðan úr afgöngum, gefins og rusluðum mat – eins og gert er tvisvar í mánuði, og Samfélagið leit við, hitti Elí Hörpu- og Önundarbur sem sagði okkur frá starfseminni og veitti okkur innsýn í undirbúning kvöldverðarins. Og svo rifjum við upp gamalt viðtal um framtíðina. Meira um það seinna í þessum þætti. Tónlist: Iðunn Einarsdóttir - Sameinast. Gillian Welch - Scarlet Town.

Spegillinn
Málefni barna í vanda, Ísraelar rjúfa vopnahlé og grásleppukvóti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 19, 2025 19:52


Spegillinn fjallaði í gær ítarlega um meðferðarheimili fyrir börn sem til stóð að reisa í Garðabæ. Þar kom meðal annars fram að Barna- og fjölskyldustofa hefði gefist upp á biðinni og viljað að húsið yrði reist í Mosfellsbæ. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, sem hefur mikla reynslu af þessum málum, segir umfjöllunina í gær hafa eiginlega staðfest tilfinningu sem hún hafi haft lengi. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. „Stríðið 'um frið fyrir Netanyahu' er byrjað,“ sagði Tamir Pardo, fyrrverandi yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad á fjölmennum mótmælafundi í Tel Aviv í gær. Með þessu vísar Pardo í útbreidda skoðun pólitískra andstæðinga forsætisráðherrans Benjamíns Netanyahus, sem saka hann um að skeyta í engu um líf þeirra gísla sem enn eru í haldi Hamas, heldur hugsa bara um eigin pólitísku framtíð með því að rjúfa vopnahléið og hefja aftur mannskæðar loftárásir á Gaza. Pardo er ekki einn um þessa skoðun, eins og Ævar Örn Jósepsson fjallar um. Í upphafi árs var gefinn út grásleppukvóti í fyrsta sinn. Lögin sem samþykkt voru í fyrra áttu að auka hagræði í greininni og tryggja öryggi sjómanna, en líka að koma í veg fyrir samþjöppun aflaheimilda á fárra hendur. Sjávarútvegurinn hefur enn ýmsar spurningar um framkvæmdina og hver hagnast á nýja kvótanum. Gréta Sigríður Einarsdóttir kannaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Umræðan
Lilja Björk Einarsdóttir

Umræðan

Play Episode Listen Later Mar 14, 2025 11:07


Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviðaFundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

Samfélagið
Námsmenn gagnrýna námslánakerfið, tilraunabúið á Hesti, gangverk náttúrunnar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 13, 2025 58:12


Í dag tökum við snúning á hagsmunabaráttu stúdenta. Á dögunum birtist frumvarp um breytingu á lögum um menntasjóð námsmanna. Markmið frumvarpsins er að skýra lögin, þá sérstaklega fyrirkomulag um námsstyrki og endurgreiðslur, en hagsmunasamtök stúdenta hafa gagnrýnt hluta frumvarpsins og segja að breytingarnar geti, í einhverjum tilfellum, gert illt verra fyrir stúdenta. Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssambands íslenskra stúdenta, kíkir við og ræðir þessi mál við okkur. Og síðan fáum við umfjöllun frá Grétu Sigríði Einarsdóttur, fréttamanni RÚV á Vesturlandi. Hún kom við á Tilraunabúinu Hesti á dögunum og við fáum að heyra allt um það um miðbik þáttar. Og að lokum fáum við pistil frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Tónlist úr þættinum: TOM PETTY - Learning To Fly. ROBERT PLANT & STRANGE SENSATION - All The Kings Horses. LOLA YOUNG - Messy.

Spegillinn
Deilt um rafmagnslínur, gervigreind og ritskoðun, grisjun sjóða og sjálfseignarstofnana

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 29, 2025 20:00


Síðan 2024 hefur verið heimild í lögum til að skipa raflínunefndir sem eiga að einfalda skipulagsmál í tengslum við flutningskerfi rafmagns. Nú vill Landsnet að fyrsta nefndin af þessu tagi verði skipuð um Holtavörðuheiðarlínu eitt. Þrjú af fjórum sveitarfélögum sem línan á að liggja um leggjast gegn skipun nefndarinnar. Gréta Sigríður Einarsdóttir kynnti sér málið. Þær fréttir bárust á dögunum að nýtt gervigreindarforrit, DeepSeek, frá Kína, væri að setja gervigreindarheiminn á annan endann. Því er haldið fram að þessi nýja gervigreind standist þeirri fullkomnustu sem fyrir var, hinni bandarísku ChatGPT 4, fyllilega snúning, þrátt fyrir að hafa verið hönnuð, þróuð og sett út í sýndarheiminn með aðeins brotabroti af þeim ógnarmiklu fjármunum sem fóru í þróun bandarísku fyrirmyndarinnar. Hún er þó ekki gallalaus. Einn galli - og sá sem hér er til umfjöllunar - er ritskoðunin sem DeepSeek stundar. Ævar Örn Jósepsson fékk Árna Matthíasson til að ræða við sig um þetta. Sjálfseignarstofnanir og sjóðir sem eru með skipulagsskrá verða sektaðar um sex hundruð þúsund skili forsvarsmenn þeirra ekki ársreikningi á tilsettum tíma. Sjóður sem Halldór Laxness stofnaði til að mótmæla launalækkun er meðal þeirra sem brátt gætu heyrt sögunni til. Freyr Gígja Gunnarsson fékk Jónas B. Guðmundsson sýslumann til viðtals um málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason.

Víðsjá
Innviðir í Árnastofnun, Árið án sumars, Ferðalok

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 28, 2025 55:00


Húsnæði Árnastofnunnar í Árnagarði hefur verið táknmynd eða hulstur utan um efnismenningu handritasafns Árna Magnússonar í rúm 50 ár. Nú hefur stofnunin verið flutt yfir Suðurgötuna og í Eddu en um liðna helgi stóð hópur listamanna, fræðimanna, hönnuða og arkitekta að sýningu í yfirgefnu húsnæði Árnastofnunnar sem þau kölluðu Innviði. Um sýningarstjórn sáu þeir Marteinn Sindri Jónsson og Unnar Örn Auðarson. Við ræðum við Martein Sindra og fleiri þátttakendur í þætti dagsins. Hópur ungskálda bíður af sér óvenjulegan sumarstorm í sveitasetri við Genfarvatn. Þau drepa tímann með ýmsum óhugnaði en þetta kvöld er eitthvað annað og meira sem ásækir þau en bara skáldskapur. Þannig hefst lýsingin á nýjasta leikverki leikhópsins Marmarabarna, sem kallast Árið án sumars. Við lítum inn í Borgarleikhúsið og kynnum okkur verkið. Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Ferðalok eftir Arnald Indriðason.

Mannlegi þátturinn
Hjartastuðtæki á vinnustöðum, fjármál á mannamáli og Guðmundur Einar lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 27, 2025 52:17


Hjartastuðtæki á vinnustöðum hafa fyrir löngu sannað gildi sitt og bjargað mannlífum. Tíminn í slíkum atburðum skiptir öllu máli og . Ef hjartastopp á sér stað þá er mikilvægt að gefa rafstuð eins fljótt og auðið er og ef það næst að gefa rafstuð innan einni mínútu frá hjartastoppi þá aukast lífslíkur um 90%. Ef það næst að gefa rafstuð innan þriggja mínútna frá hjartastoppi þá aukast lífslíkur um 70%. Um 200 hjartastopp eiga sér stað árlega á Íslandi en talið er að einungis 20% lifa það af. Með fjölgun hjartastuðtækja er hægt að bjarga fleiri mannslífum. Meira um hjartastuðtæki hér á eftir. Sigríður Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Fastus og hjúkrunarfræðingur, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu. Við höfum verið með það sem við köllum Fjármálin á mannamáli á mánudögum eftir áramót og Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í fjármálum heimilanna, kom því til okkar í dag og í dag fjallaði um hvernig hægt er að greiða hraðar niður lán og stefna að skuldleysi, auk þess sem hann svaraði spurningu sem hann fékk frá hlustanda. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Guðmundur Einar Láru Sigurðsson, leikstjóri og grínisti. Hann er í grínhópnum Kanarí og leikstýrt sjónvarpsþáttum hópsins, hann er meðlimur í Improv Ísland og er nú að undirbúa uppistandssýningu, þar sem hann verður einn á sviðinu heilt kvöld. En Guðmundur Einar sagði okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Guðmundur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Bernska og Gift e. Tove Ditlevsen Svartfugl e. Gunnar Gunnarsson The New Comedy Bible e. Judy Carter Astrid Lindgren, t.d. Bróðir minn Ljónshjarta Halldór Laxness, t.d. Barn náttúrunnar og Sjálfstætt fólk Tónlist í þættinum: Mánudagur / KK band (Kristján Kristjánsson og Kormákur Geirharðsson) Monday, Monday / Mamas and Papas (John Philips) Suddenly Monday / Melanie C. (Matt Rowe, Richard Frederick Stannard, Melanie Chisholm & Julian Gallagher) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Poppland
Söngvakeppnin, Nýdönsk og hip hop

Poppland

Play Episode Listen Later Jan 27, 2025 195:00


Siggi og Lovísa á sínum stað í Popplandi þennan mánudaginn. Ný plata vikunnar kynnt til leiks, Í Raunheimum, ný plata frá hljómsveitinni Nýdönsk. Upphitun fyrir Söngvakeppnina sem fer að rúlla af stað, allskonar tónlist, nýtt og gamalt í bland. NÝDÖNSK - Verðbólgin augu. BILLY PAUL - Let the Dollar Circulate. SANTANA & ROB THOMAS - Smooth. Matchbox 20 - Unwell. CHICAGO, CHICAGO - 25 Or 6 To 4. TRÚBROT - Hlustaðu á regnið. Fender, Sam - People Watching. Fontaines D.C. - Favourite. Una Torfadóttir, Leikhópur úr sýningunni Stormur - Málum miðbæinn rauðan. Nýdönsk, Nýdönsk - Málum bæinn rauðan. Nýdönsk - Ég veit hvað kemur næst. RADIOHEAD - Fake Plastic Trees. BIRGO - Ég flýg í storminn. JUNGLE - Busy earnin'. Lumineers, The, Bay, James, Kahan, Noah - Up All Night. Karl Olgeirsson - Janúar. VELVET UNDERGROUND - Rock & Roll (Full-length Version). Amor Vincit Omnia - 100.000 km/klst. ÁSDÍS - Angel Eyes. Ágúst Þór Brynjarsson - Með þig á heilanum. Ágúst Þór Brynjarsson - Eins og þú. Logi Pedro Stefánsson, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Bríet - Íslenski draumurinn. Gladys Knight and The Pips - Midnight Train To Georgia. Salka Sól Eyfeld - Tímaglas. Rogers, Maggie - In The Living Room. Crockett, Charley - Solitary Road. ARCADE FIRE - The Suburbs. Iðunn Einarsdóttir - Sameinast. GDRN - Hvað er ástin. Herra Hnetusmjör - Elli Egils. Saint Pete, Herra Hnetusmjör - Tala minn skít. Geto Boys - Mind playing tricks on me [radio]. Thee Sacred Souls - Live for You. DINA ÖGON - Mellam slagen. PAUL MCCARTNEY & WINGS - Silly Love Songs. THE STROKES - Last Nite. NÝDÖNSK - Raunheimar. GRACIE ABRAMS - That's So True. HAPPY MONDAYS - Step On. LANA DEL REY - Take Me Home, Country Roads. MORGAN WALLEN - Love Somebody.

Samfélagið
Samfélagið í Borgarnesi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 24, 2025 59:12


Í dag heilsum við ykkur frá Borgarnesi, nánar tiltekið frá hljóðveri Ríkisútvarpsins í Menntaskóla Borgarfjarðar. Við verðum með hugann við þetta svæði í dag. Við ætlum að ræða rekstur sveitarfélaga, aukaíbúðir sem standa auðar um allt land og byggðabrag við Vífil Karlsson, prófessor í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst og ráðgjafi hjá samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Inga Dóra Halldórsdóttir, forstöðumaður hjúkrunarheimilisins Brákarhlíð og Bragi Þór Svavarsson, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar ræða við okkur um líf sitt og störf hér í Borgarnesi og um sameiginlegt verkefni sem snýr að því að auka samskipti þvert á kynslóðir. Ræðum við þau sem starfa hér dagsdaglega, þau Gísla Einarsson, dagskrárgerðarmann og veislustjóra í hjáverkum og Gréta Sigríður Einarsdóttir fréttamann á Vesturlandi.

Poppland
Danskotið kuldapopp, David Lynch og stóridómur

Poppland

Play Episode Listen Later Jan 23, 2025 195:00


Siggi og Lovísa á sínum stað í Popplandi og nóg um að vera. Arnar Eggert og Andrea Jóns gerðu upp plötu vikunnar, Í hennar heimi með Iðunni Einars. Ruddinn sendi póstkort og sagði frá nýju lagi sem hann gerði með Bigga Maus, leikstjórans og tónlistarmannsins David Lynch minnst og sitthvað fleira. Hreimur - Þú birtist mér aftur. STEPHEN SANCHEZ - Until I Found You. Withers, Bill - Ain't no sunshine. FLEETWOOD MAC - Dreams. Árný Margrét - Day Old Thoughts. NOISETTES - Never Forget You. VANCE JOY - Riptide. LONDON GRAMMAR - How Does It Feel. Ellen Kristjánsdóttir - Engin önnur en ég er. JÓNFRÍ - Andalúsía. Kingfishr - I Cried I Wept. Auður - Peningar, peningar, peningar. Iðunn Einarsdóttir - Prelúdía. Iðunn Einarsdóttir - Getum við talað?. Iðunn Einarsdóttir - Kastalinn. Iðunn Einarsdóttir - Verur eins og ég. Iðunn Einarsdóttir - Ef ég dey á morgun. Iðunn Einarsdóttir - Sameinast. Daniil, Frumburður - Bráðna. Kári Egilsson - Midnight Sky. Steely Dan - Dirty work. DEACON BLUE - Real Gone Kid. Spilverk þjóðanna - Plant no trees. Pétur Ben - The great big warehouse in the sky. DannyLux, Black Keys, The - Mi Tormenta. Fríða Dís Guðmundsdóttir - Must take this road. NICK CAVE & THE BAD SEEDS - Red Right Hand. Fontaines D.C. - Favourite. Strings, Billy - Gild the Lily. Taylor Swift - Wildest Dreams. Biggi Maus, Ruddinn, Biggi Maus - Blokkaðu mig. WOMACK & WOMACK - Teardrops. Ruddinn, Ruddinn, Biggi Maus - Blokkaðu mig. BLOODGROUP - My Arms. Júlí Heiðar, GDRN - Milljón tár. Logi Pedro Stefánsson, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Bríet - Íslenski draumurinn. TOM ODELL - Another Love. THE PRETENDERS - Back On The Chain Gang. Rúnar Þórisson - Þær klingja. FRATELLIS - Chelsea Dagger. Moses Hightower - Stutt skref. ELVIS PRESLEY - Love Me. DAVID LYNCH - Just You. DAVID BOWIE - I'm Deranged. DAVID LYNCH - Good Day Today. KIASMOS - Sisteron. SAM FENDER - People Watching. MORGAN WALLEN - Love Somebody.

Poppland
Nýtt og notað

Poppland

Play Episode Listen Later Jan 22, 2025 195:00


Siggi og Lovísa stýrðu Popplandi þennan miðvikudaginn, allskonar tónlist, nýtt og gamalt í bland, upphitun fyrir HM í kvöld og plata vikunnar á sínum stað, Í hennar heimi með Iðunni Einars. Snorri Helgason - Gerum okkar besta. Strings, Billy - Gild the Lily. BJÖRGVIN & HJARTAGOSARNIR - Þetta reddast allt. SOGGY BOTTOM BOYS - Man Of Constant Sorrow. Salka Sól Eyfeld - Tímaglas. Thee Sacred Souls - Live for You. Marvin Gaye - Mercy Mercy Me (The Ecology). Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius - Ekkert blóð. Fontaines D.C. - Favourite. CAT STEVENS - Peace Train. LOU REED - Satellite Of Love. pale moon - I confess. Iðunn Einarsdóttir - Aftur og aftur. Hozier - Too Sweet. Bubbi Morthens - Serbinn. GEORGE MICHAEL - Praying For Time. Oyama hljómsveit - Silhouettes. Fat Dog - Peace Song. Logi Pedro Stefánsson, Bríet, Unnsteinn Manuel Stefánsson - Íslenski draumurinn. Young, Lola - Messy. Coldplay - ALL MY LOVE. ALANIS MORISSETTE - Ironic. Karl Olgeirsson - Janúar. Crockett, Charley - Solitary Road. Rogers, Maggie - In The Living Room. LOVELYTHEBAND - Broken. PLAN B - She Said. Milkywhale - Breathe In. BILLY IDOL - Dancing With Myself. EDWARD SHARPE & THE MAGNETIC ZEROS - Home. TODMOBILE - Brúðkaupslagið. THE BAMBOOS - Ex-Files. Shaboozey - A Bar Song (Tipsy). Abrams, Gracie - That's So True. Ferreira, Sky - Leash. Hjálmar - Vor. KHRUANGBIN - Time (You and I). TALKING HEADS - Psycho Killer. IÐUNN EINARS - Sameinast. HANNES - Stockolmsvy (feat. Waterbaby) KRASSASIG - Hlýtt í hjartanu (feat. JóiPé) ÍSADÓRA BJARKARDÓTTIR BARNEY - Stærra.

Poppland
Poppað útum allt

Poppland

Play Episode Listen Later Jan 21, 2025 195:00


Siggi og Lovísa Popplandsverðir á sínum stað í þætti dagsins, fjölbreytt tónlist úr öllum áttum að vanda. Plata vikunnar á sínum stað, Í hennar heimi með Iðunni Einars, póstkort frá Rúnari Þóris, og allskonar fleira nýtt m.a. Frá Fríðu Dís, Ísadóru Bjarkardóttur Barney og Sölku Sól. Bríet - Takk fyrir allt. HARRY STYLES - Adore You. GEORGE MICHAEL - Father Figure (80). JEFF BECK - People Get Ready. Curtis Mayfield - Move on Up. CALEB KUNLE - All in your head. Coldplay - ALL MY LOVE. Bon Iver - THINGS BEHIND THINGS BEHIND THINGS. LORDE - Royals. Salka Sól Eyfeld - Tímaglas. Júlí Heiðar, GDRN - Milljón tár. LED ZEPPELIN, LED ZEPPELIN, LED ZEPPELIN - Good Times Bad Times. Iðunn Einarsdóttir - Ef ég dey á morgun. Rogers, Maggie - In The Living Room. Ágúst Þór Brynjarsson - Með þig á heilanum. Bob Marley - Buffalo soldier. Irglová, Markéta - Vegurinn heim. Soffía Björg - Draumur að fara í bæinn. Bryan, Zach - This World's A Giant. Fríða Dís Guðmundsdóttir - Must take this road. SUPERSPORT! - Hring Eftir Hring. Isadóra Bjarkardóttir Barney, Örn Gauti Jóhannsson, Matthews, Tom Hannay, Vilberg Andri Pálsson - Stærra. WET LEG - Wet Dream. TAME IMPALA - No Choice. Young, Lola - Messy. Jade - Fantasy. DAÐI FREYR - Thank You. Fender, Sam - People Watching. Elín Ey - Ekkert mál (Hljómskálinn). Árný Margrét - Day Old Thoughts. Lana Del Rey - Video Games. GWEN STEFANI - True Babe. NÝDÖNSK - Apaspil. Dr. Gunni - Öll slökkvitækin. Fontaines D.C. - Favourite. DAVID BOWIE - Breaking Glass. BON IVER - Skinny Love. IÐUNN EINARS - Verur eins og ég. EMILÍANA TORRINI - Serenade. MICHAEL KIWANUKA - The Rest of Me. SAYA GRAY - Shell (Of A Man)

Samfélagið
Barátta um persónuupplýsingar, Myndarsögur, framtíðarborgir og höfundaverkstæði Eiríks Arnar Norðdahl

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 16, 2025 55:00


Um árabil hefur írska persónuverndarstofnunin háð harða baráttu við voldugustu tæknirisa heims. Reglulega berast fréttir af stórum sektum, upp á allt að tugi milljarða evra, sem eru tilraunir til að fá risana til að fara eftir evrópskum lögum sem gilda meðal annars hér á Íslandi. Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar verður gestur okkar í dag. Við spyrjum hana út í þessa baráttu, samspil persónuverndar og taugavísinda og ýmislegt fleira úr heimi persónuverndar. Svo bregðum við vestur á firði, þar sem Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi, ræðir við Eirík Örn Norðdahl um rithöfundastarfið, bókmenntir á landsbyggðinni, menningarmiðjur og ýmislegt fleira. Og svo höldum við áfram viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir - í samstarfi við framtíðarfestival Borgarbókasafnsins. Í dag pælum við um gervigreind, myndasögur og borgir framtíðarinnar, ásamt Aroni Daða Þórissyni, forsvarsmanni hópsins myndarsögur. Tónlist úr þættinum: THE BEATLES - Norwegian Wood (This Bird Has Flown).

Spegillinn
Andlát ungrar konu á Skeggjagötu, nýr orkumálaráðherra um orkumál, öfgahægristjórn í kortunum í Austurríki

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 20:00


Tveir dómkvaddir matsmenn telja að læknisfræðileg rannsókn vegna andláts ungrar konu eftir handtöku lögreglu hafi verið ófullkomin. Lögmaður fjölskyldu hennar segir ríkið verða að bera hallann af því. Andlát hennar megi að líkindum rekja til samspils tveggja þátta; ástands ungu konunnar og aðgerða lögreglu - en ómögulegt sé að segja til um umfang áhrifa hvors orsakaþáttar fyrir sig. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Orkuframleiðsla og orkunýting standa á krossgötum. Orkuframleiðendur anna ekki eftirspurn eftir orku og hart er deilt um nýja orkukosti. Í upphafi ráðherratíðar sinnar leggur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra áherslu á þrjú atriði: Forgang almennings og minni fyrirtækja að raforku án samkeppni við stórnotendur; liðka fyrir aukinni orkuöflun með einfölduðu leyfisveitingakerfi, og að rjúfa kyrrstöðuna í tengslum við rammaáætlun. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman og ræddi við Jóhann Pál. Austurríski Frelsisflokkurinn eygir nú í fyrsta sinn möguleikann á að leiða ríkisstjórn í landinu. Flokkurinn er lengst til hægri í stjórnmálum í Austurríki og vann stóran sigur í kosningunum þar í september. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Spegillinn
Trump og Grænland, rafeldsneyti og fjármál fangelsismálastofnunar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 8, 2025 20:00


Í gær átti Donald Trump yngri stutt stopp í Nuuk á Grænlandi. Þessi litla heimsókn hefur aðallega vakið athygli vegna yfirlýsinga föðurins, Donalds Trumps verðandi Bandaríkjaforseta fyrir nokkrum vikum um að það væri alveg nauðsynlegt fyrir öryggi Bandaríkjanna og frið í heiminum að Grænland tilheyrði Bandaríkjunum. Slíkar hugmyndir hafði Trump viðrað áður 2019 og ekki voru undirtektir jákvæðar í Danmörku þá frekar en nú. Hinn verðandi forseti sagðist í gær tilbúinn að beita afli gegn Dönum ef þeir mögluðu, og útilokaði reyndar ekki þegar blaðamaður spurði hvort til greina kæmi að beita hervaldi. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta og ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðastjórnmálum, sem segir að þótt ekki beri að taka orð Trumps bókstaflega, þá sé fyllsta ástæða til að taka þau alvarlega. Í raforkuspá fyrir næstu 25 ár gerir Landsnet ráð fyrir stóraukinni þörf á orku til framleiðslu rafeldsneytis. Tvö stór verkefni eru í undirbúningi ár sem ætlunin er að nota vindorku til að framleiða vetni og ammoníak. Gnýr Guðmundsson, forstjóri kerfisþróunar hjá Landsneti, segir þróun rafeldsneytis ganga hægt, eftirspurnina vera óvissa og mörgum spurningum enn ósvarað. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman. Það vakti nokkra athygli í haust þegar starfandi fangelsismálastjóri boðaði nokkuð umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir hjá stofnuninni. Ástæðan var 8 milljóna króna gat í fjármögnun á rekstri stofnunarinnar. Í greinargerð sem sviðsstjóri reksturs og fjármála hjá Fangelsismálastofnun sendi dómsmálaráðuneytinu kemur fram að rekstraráætlunin sem skilað var hafi sýnt ágæta niðurstöðu innan fjárveitingaramma - en að . þegar fjárlagafrumvarpið hafði verið samþykkt hafi komið í ljós, „talsverður misskilningur“. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Víðsjá
Ifigenía í Ásbrú, Unnar Örn í Óminnissafni, Moldin heit/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 7, 2025 53:34


Í Glerhúsinu stendur nú yfir sýning sem ber titilinn Óminnissafnið - varðveislu- og rannsóknardeild. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Unnar Örn Auðarson afrakstur vangaveltna um tilraunir okkar til að skjalfesta tímann með söfnun og skrásetningu á upplýsingum úr umhverfi og samfélagi. Við hittum Unnar Örn í þætti dagsins. Við heyrum einnig bókarýni en að þessu sinni rýnir Gréta Sigríður EInarsdóttir í skáldsöguna Moldin heit, eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, en sú bók hefur verið tilnefnd bæði til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna. En við hefjum þáttinn á því að kynna okkur leikverkið Ifigenía í Ásbrú sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói í næstu viku. Verkið er einleikur og upprunalegur titill þess er Iphigenia in Splott en þær Anna María Tómasdòttir leikstjóri og Þórey Birgisdóttir leikkona þýddu og staðfærðu verkið fyrir íslenska sviðið.

Samfélagið
Sálarlíf fiska, kvenfélag á Patreksfirði, ofbeldisforvarnarkvikmyndin Geltu

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 19, 2024 55:00


Um helgina verður frumsýnd kvikmynd sem ætlað er að fræða ungt fólk um hatorsorðræðu. Kvikmyndin heitir Geltu sprettur upp úr starfsemi ofbeldisforvarnarskólans Ofsa og í dag ræðum við við Bennu Sörensen, stofnanda skólans, og Sigríði Lárettu, leikara og höfund. Sjálfboðaliðastarf í þágu samfélagsins er óvíða jafn öflugt og á Patreksfirði. Þar starfar Lionsklúbbur og tvö félög sem eingöngu eru skipuð konum, slysavarnardeildin Unnur og Kvenfélagið Sif. Gréta Sigríður Einarsdóttir kom við á Patreksfirði á dögunum og ræddi við nýjan formann kvenfélagsins, sem er reyndar líka meðlimur í Slysavarnardeildinni. Í lok þáttar kíkir Edda Olgudóttir vísindamiðlari í heimsókn og segir okkur frá ýmislegu um veiðistjórnunarkerfi og tilfinningalíf fiska. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-12-19 The National & Phoebe Bridgers - Laugh Track. LIANNE LA HAVES - Lost & Found. SUPERSPORT! - Húsið mitt (í sjálfu sér)

Mannlegi þátturinn
Jólaálagið, írskur vinkill og örsögur ritlistarnema

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 17, 2024 51:16


Þegar líður fer að jólum er ekki laust við að álagið verður meira og meira, jafn vel of mikið fyrir marga. Það á að njóta og njóta svo margs. Í rauninni hlöðum við afskaplega miklu, auk gríðarlegra væntinga, ofan á vinnuna, fjölskylduna og allt hitt í lífinu og svo geta peningaáhyggjur komið ofan á það allt saman. Hrund Þrándardóttir sálfræðingur var hjá okkur í dag og við minntum okkur á að fara ekki fram úr okkur í aðdraganda jólanna og að við náum raunverulega að njóta, frekar en kannski bara að þjóta. Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni og vinkill dagsins var að þessu sinni lagður við líkindi milli okkar Íslendinga og frændþjóðarinnar Íra. Guðjón gerði tilraun til að varpa ljósi á þau og síðan, hann lagði svo leið sína á nokkrar írskar krár og velti því fyrir sér sem þar fer fram, auk þess sem tölulegar staðreyndir er varða stærsta brugghús borgarinn voru fram bornar. Út er komin árlega Jólabók Blekfjelagsins, örsagnasafn meistaranema í ritlist við Háskóla Íslands. Yfirskriftin þetta árið er Ómerkt. Sögurnar eru 28 og allar telja þær nákvæmlega 88 orð, auk titils. Blekfjelagið hefur gefið út jólabók samfellt í 13 ár. Sú fyrsta kom árið 2012 og þá töldu sögurnar stranglega 100 orð auk titils. Á hverju ári fækkar orðunum um eitt og fyrir vikið eru þau núna 88. Við heyrðum fyrri hluta örsagnanna í dag og svo verður seinni hlutinn á dagskrá í þættinum á fimmtudaginn. Höfundar sagnanna í þessum fyrri hluta voru: Elín Elísabet Einarsdóttir, Védís Eva Guðmundsdóttir, Sólveig Auðar, Áslaug, Karólína Rós Ólafsdóttir, Aron Martin Ásgerðarson, Hera Fjörd, Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir, Guðmundur Erlingsson, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Katrín Mixa, Ingunn Eyþórsdóttir, Guðrún Friðriks og Kolfinna Nikulásdóttir. Tónlistin í þættinum Léttur yfir jólin / Ríó Tríó (írskt þjóðlag, texti Jónas Friðrik) Þorláksmessukvöld / Ragnheiður Gísladóttir og Brunaliðið (Mel Tormé & Robert Wells, texti Þorsteinn Eggertsson) Jingle bells / Frank Sinatra (James Lord Pierpont) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Fram og til baka
Jóhanna Jónas og örlagavefur lífsins

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Dec 14, 2024 114:00


Bókin Frá Hollywood til heilunar segir sögu Jóhönnu Jónasdóttur orkuþerapista og leikkonu. Jóhanna kom í fimmu og sagði af fimm, ja eða sex áhrifavöldum í örlagavef lífsins. Í siðari hluta þáttarins rýndi stjórnandi í jólamyndirnar með þeim Júlíu Margréti Einarsdóttur og Ragnari Eyþórssyni sérfræðingum.

Víðsjá
Parabóla Finnboga Péturssonar, jól í 12 tónum, Kul / rýni, Innanríkið Alexíus /rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 12, 2024 53:15


Parabóla nefnist ný sýning eftir Finnboga Pétursson, myndlistarmann, sem opnuð var í Gerðarsafni í október. Tómas Ævar lagði leið sína í safnið og ræðir í þættinum við Finnboga. Við lítum einnig inn til Lárusar Jóhannessonar í 12 tónum og heyrum af jólatónlist. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Kul eftir Sunnu Dís Másdóttur en við hefjum þáttinn á rýni Sölva Halldórssonar í Innanríkið Alexíus eftir Braga Ólafsson.

Rauða borðið
Rauða borðið 12. des - Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 12, 2024 200:47


Fimmtudagur 12. desember Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands ræðir við okkur um eftirleikinn eftir fall Assads í sýrlandi. Mögulegar hættur vegna uppgangs öfgahópa á svæðinu, innrásir Ísraela á nágranna sína og skýrir áhrif þessa alls á fólkið sem enn situr fast á Gaza í miðju þjóðarmorðs. Til að ræða nýútkomna þýðingu á verðlaunabókinni Þessir helvítis karlmenn mætir þýðandinn sjálfur, Þórdís Gísladóttir rithöfundur og Valgerður Ólafsdóttir, skólasálfræðingur og rithöfundur og ræða bókina. Til að ræða nýjar samtímabókmenntir sem koma nú út í þýðingum mæta Snæfríð Þorsteins, Helga Soffía Einarsdóttir, Einar Kári Jóhannsson og María Rán Guðjónsdóttir og segja okkur frá nýjum þýðingum og stöðu þýðinga í íslenskum samtímabókmenntum. Peter Maté er Íslendingum að góðu kunnur, hann hefur reynt mikill áhrifavaldur í íslensku listalífi og kenndi bæði Laufeyju og Víkingi Heiðari að leika á hljóðfæri. Peter ræðir við Björn Þorláks.

Víðsjá
Auður Lóa Í rósrauðum bjarma, Múffa / rýni, jazzperlur í Múlanum

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 10, 2024 50:26


Hakk og spagetti af blendnum tilfinningum, segir Auður Lóa Guðnadóttir um sýninguna Í rósrauðum bjarma / In watermelon sugar sem nú stendur yfir í gallerí Þulu í Marshallhúsinu. Auður Lóa sækir fanga víða þegar kemur að innblæstri, en í verkunum má sjá þekkt minni úr dægurmenningunni. Vinnuaðferðir hennar vísa í keramikhefð og það sem hefur löngum verið kallað kvennalist, og segist Auður Lóa að einhverju leyti vinna gagngert á móti eigin fyrirframgefnu hugmyndum um hvað sé merkileg myndlist. Það er ekki á hverjum degi, og raunar mjög sjaldgæft, að jazzband sem eingöngu er skipað konum treður upp á Múlanum, en það gerist annað kvöld. Þá munu þær Helga Margrét Clarke og Vigdís Þóra Másdóttir, ásamt hljómsveit, bera á borð íslenskar jazzperlur úr eigin smiðju og annarra. Við ræðum við þær stöllur í þætti dagsins. Gréta Sigríður Einarsdóttir verður einnig með okkur í þætti dagsins, að þessu sinni rýnir hún í skáldsöguna Múffu eftir Jónas Reyni Gunnarsson.

Samfélagið
Leyndardómar bókhlöðunnar og hraðasektir um jól

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 6, 2024 59:56


Samfélagið sendir út frá Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík, kynnir sér Kvennasögusafnið og fleira á fyrstu hæð byggingarinnar en fær líka að sjá vistarverur drauga og rannsaka harðlæsta hvelfingu í kjallaranum. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður, ræðir umferðaröryggi, hraðasektir og jólin við Ásmund Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Tónlist: BOB DYLAN & THE BAND - Odds and Ends (Take 2).

Ein Pæling
#371 Diljá Mist Einarsdóttir (D) - Alþingiskosningar 2024

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Nov 27, 2024 72:18


Diljá Mist Einarsdóttir mætir í settið til þess að ræða áherslur Sjálfstæðisflokksins. Fjallað er um jafnlaunavottun, sem að Diljá kallar "láglaunavottun", Viðreisn, Samfylkinguna, vinstrið, fjölmenningu, útlendingamál, efnahagsmál og margt fleira.

Víðsjá
Eldri konur, Jarðljós/rýni, Nordic Affect og Norðuróp/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 26, 2024 54:56


Við lítum í heimsókn til Evu Rúnar Snorradóttur, rithöfundar og sviðslistakonu, í þætti dagsins. Eva Rún var að gefa út Eldri konur, sína fyrstu skáldsögu, en áður hefur Eva Rún gefið skáldverkið Óskilamuni og þrjár ljóðabækur. Eldri konur fjallar um konu með þráhyggju fyrir eldri konum. Aðalpersónan rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsáranna gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana. Bókina byggir Eva Rún að einhverju leyti á eigin reynslu. Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í tónleika Nordic Affect sem fóru fram í Mengi þann 18.nóvember, og óperugalatónleika Norðuróps sem fóru fram þann 16.nóvember í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Jarðljós, tíundu ljóðabók Gerðar Kristnýjar.

Mannlegi þátturinn
Tau frá Tógó, Eyrún kórstjóri og húmor og grimmd

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 14, 2024 53:39


Tau frá Togó er nafn á nýrri netverslun þar sem allur ágóði rennur til heimilis í Togó fyrir munaðarlaus börn. Þau sem standa að þessu verkefni selja vörur sem búnar eru til á heimilinu og seldar til að fjármagna reksturinn og hafa með þessu fjármagnað skólagöngu barnanna á heimilinu og auk þess greitt fyrir einstaka eldri nemendur í framhaldsnám. Þetta samstarf byrjaði fyrir 10 árum þegar Guðný Einarsdóttir ættleiddi son sinn frá þessu heimili. Guðný kom í þáttinn í dag. Það eru ekki margir kórstjórar sem eru með fjóra kóra á sínum snærum en Eyrún Jónasdóttir er ein af þeim og einn af þessum kórum er kór Menntaskólans við Laugarvatn. Það er merkilegt að meirihluti nemenda við skólann er í kórnum. En hvernig tekst henni að halda úti kórastarfinu þegar þróunin virðist því miður vera sú að kórastarf við framhaldsskóla hefur sumstaðar lagst af? Við ræddum við Eyrúnu í þættinum í dag. Flestir líta húmor jákvæðum augum, hann léttir lífið og gerir samskipti skemmtilegri. Það er hins vegar erfitt að útskýra húmor og hann er auðvitað ekki alltaf jákvæður, getur verið dökkur, meiðandi og grimmur. Hvað er fyndið og hvers vegna erum við að reyna vera fyndin? Og hvað er grimmd og hvers vegna sýnum við hana? Ársæll Már Arnarson, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, hefur skoðað þessi tvö hugtök og hann kom og ræddi húmor og grimmd í dag. Tónlist í þættinum Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Lazy Sunday / Small Faces (Marriott Lane) Forðum / Tómas R Einarsson og Óskar Guðjónsson (Tómas R Einarsson) Aguas de Marco / Antonio Carlos Jobim & Elis Regina (Antonio Carlos Jobim) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Samfélagið
Þjóðarspegillinn 2024

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 1, 2024 59:32


Samfélagið sendir út frá Þjóðarspeglinum, ráðstefnu í Háskóla Íslands þar sem helstu rannsóknir á sviði félagsvísinda eru kynntar. Sannkölluð uppskeruhátíð félagsvísindafólks. Tónlist: Iðunn Einarsdóttir - Sameinast. Önnu Jónu Son - Almost over you.

Samfélagið
Eiga ömmur og afar að fara á námskeið? Töfrar fráveitunnar, pistill um gloppuskýrslu í loftslagsmálum

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 31, 2024 55:00


Verðandi eða nýbakaðir foreldrar fara stundum á ýmis námskeið; tengslanámskeið, svefnnámskeið, brjóstagjafarnámskeið og svo framvegis - en hvað með ömmur og afa? Þurfa þau að fara á námskeið? Við ræðum við Sveindísi Önnu Jóhannsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa, sem hefur haldið sérstök námskeið fyrir ömmur og afa. Í þessu kristallast líka samskipti kynslóðanna sem hafa verið til umræðu í Samfélaginu undanfarið. Síðan ætlum við að komast að því hvað verðum um skólp eftir að það fer niður um niðurfallið eða klósettrörið. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi, fékk Þorstein Narfason, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlists Vesturlands, í heimsókn í hljóðver RÚV á Borgarnesi, til að fræðast um fráveitukerfi sveitarfélaga og náttúrulegar lausnir á hreinsun skólps. Í síðustu vika gaf umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna út hina árlegu gloppuskýrslu, sem fjallar um árangur ríkja heims í baráttunni gegn loftslagsbeytingum - eða kannski öllu heldur árangursleysi. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, rýnir í skýrsluna í pistli dagsins og setur hana í samhengi við komandi kosningar. Tónlist og stef: Teitur Magnússon - Orna. STEREOLAB - Captain Easychord. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). ÁSGEIR TRAUSTI - Afterglow.

Mannlegi þátturinn
Slagdagurinn okkar, fræðsla ekki hræðsla og kaffi og kólestról

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 31, 2024 54:25


Hár blóðþrýstingur getur farið leynt og afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Á laugardaginn er Slagdagurinn okkar og af því tilefni verður boðið uppá ókeypis blóðþrýstingsmælingu og ráðgjöf í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri. Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla og Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, taugasérfræðingur, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans, komu í þáttinn og fræddu okkur um til dæmis merkin sem við verðum að vera vakandi um, sem gætu bent til þess að slag sé hafið, en þau eru S.L.A.G.: Sjóntruflanir, Lömun útlima, Andlitslömun og Glatað mál. Ef þessi merki eiga við hjá okkur skiptir öllu máli að hringja strax í 112 því hver mínúta er mikilvæg í að lágmarka afleiðingar heilablóðfalls. Ofbeldi virðist vera að færast í aukana hjá ungu fólki og veldur áhyggjum, hverjar eru orsakirnar og hvernig getum við brugðist við? Við fengum Soffíu Ámundadóttur, verkefnastjóra Menntafléttunnar og kennara, og Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, leikskólakennara í þáttinn í dag. En þær fræddu okkur um málstofu á vegum Menntafléttunnar sem ber yfirskriftina Ræðum um ofbeldi og lausnir.Soffía hefur rannsakað og fjallað um ofbeldi nemenda í meistararitgerð sinni og Arnrún María rekur eigið fyrirtæki, Samtalið fræðsla ekki hræðsla þar sem hún leggur áherslu á samtalið við börn, sem sagt að fræða en ekki hræða. Í lok þáttar glugguðum við í grein í norska ríkisútvarisins NRK, sem fjallar um hvernig kaffidrykkja getur haft áhrif á kólestrólmagn eða blóðfitu. Það er ekki sama hvernig kaffi við drekkum og hversu mikið af því. En olía í kaffi getur leitt til hækkaðs kólestrólmagns í líkamanum. Tónlist í þættinum Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) Kaffi til Brasilíu / Stephan Hilmarz og Milljónamæringarnir (Hillard & Miles, texti Stefán Hilmarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Spegillinn
Alvarleg ecoli-hópsýking, læknisþjónusta á landsbyggðinni, væringar innan norsku ríkisstjórnarinnar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 24, 2024 20:12


27 börn hafa greinst með eiturmyndandi Ecoli í hópsýkingu á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Verið er að rannsaka hvernig börnin veiktust en grunurinn hefur einna helst beinst að nautahakki. Þetta er alvarlegasta hópsýking af þessu tagi frá því fyrir fimm árum, og þá sem nú voru það börn sem veiktust. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið og ræddi við Vigdísi Tryggvadóttur sérgreinadýralækni hjá Matvælastofnun. Starf eða embætti héraðslæknis er ekki jafn eftirsótt og það eitt sinn var. Í vikunni bárust fréttir af því að sveitarfélög á Vesturlandi vilji leggja heilbrigðisstofnunum lið við að manna lítt eftirsóttar stöður og vinnuálagið er til umræðu í kjarabaráttu lækna. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Sigurð Einar Sigurðsson framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Steinunni Þórðardóttur formann Læknafélagsins. Ásakanir um pólitískt vændi fjúka milli stjórnarflokkanna. Forsætisráðherra skammar dómsmálaráðherrann fyrir ljótt orðbragð. Þannig er staðan við ríkisstjórnarborðið í Ósló. En dugar þetta til að stjórnin falli ári áður en kjörtímabili lýkur rétt eins og gerðist á Íslandi? Gísli Kristjánsson, fréttaritari í Ósló, er með meira um ástandið í konungsríki frænda okkar austan Atlantsála. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Víðsjá
Usli Hallgríms Helgasonar, Límonaði frá Díafani-rýni, Blómljóð

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 22, 2024 54:45


Uslavaldið er eina valdið sem listin hefur, segir Hallgrímur Helgason en yfirlitssýning á verkum hans opnaði um liðna helgi á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni, sem nefnist Usli, má sjá hvernig Hallgrímur þroskast sem listamaður í Reykjavík, Munchen, New York og París. Verk Hallgríms eru pólitísk, kaldhæðin og fyndin en líka leitandi og persónuleg, bæði hvað varðar viðfangsefni og stíl. Mörg hver eru úrvinnsla áfalla og sjálfur segist Hallgrímur greina umbreytingu á stílbrögðum eftir að hafa sagt opinberlega frá kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir sem ungur maður. Við hittum Hallgrím við verkin í þætti dagsins. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Límonaði frá Díafani eftir Elísabetu Jökulsdóttur og Sigurður Bragason segir okkur frá hljómplötunni Blómljóð.

Víðsjá
Tarotspil norrænna goðsagna, Ólöf Arnalds-Teens, Voðaverk í Vesturbænum-rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 1, 2024 51:42


Á dögunum komu út hjá Bókabeitunni eftirtektarverð tarotspil. Spilin eru eftir hefðbundinni forskrift en höfundur þeirra, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, hefur endurhugsað þau út frá norrænni goðafræði, sér í lagi sögnum úr Snorra-Eddu og Eddukvæðum. Kristín Ragna er höfundur myndanna en hefur líka skrifað ítarlega skýringarbók með spilunum, sem inniheldur bæði leiðbeiningar fyrir lagnir og túlkun og mikinn fróðleik um goðin og sögurnar. Melkorka settist niður með Kristínu Rögnu og fékk hana til þess að spá í spilin fyrir sig. Um næstu helgi verður tónverkið Teens - Questions for Teenagers, flutt í Salnum í Kópavogi, en það er innblásið af röddum unglinga og viðtölum sem tekin voru við ungmenni frá Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi í fyrravetur. Verkið er eftir færeyska tónlistarmannin Teit en samið í samstarfi við kammersveitina Ensemble MidtVest, grænlenska söngvaskáldið Nive Nielsen og Ólöfu Arnalds, sem segir frá verkefninu í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á bókarýni. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýútkomna glæpasögu Jónínu Leósdóttur, Voðaverk í Vesturbænum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Sigurhæðir, snjallhljóðfæri, Hildur-rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 17, 2024 55:51


,,Gaman að kynnast þér" er yfirskrift tónleika sem fara fram í Mengi í kvöld. Þar mætast sex tónlistarmenn með mjög ólíkan bakgrunn og ólík hljóðfæri; barokkhljóðfæri, víetnömsk hljóðfæri og gervigreindarhljóðfæri. Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokkfiðluleikari Nordic Affect, og Nicola Privato, sem leikur á snjallhljóðfærið Stacco segja okkur frá tilraunaverkefninu, sem unnið er í samstarfi við Intelligent Instruments Lab í Reykjavík og víetnamsk-sænska tónlistarhópinn Six Tones. Einnig heyrum við ritdóm frá Grétu Sigríði Einarsdóttur. Hún var að lesa Hildi, skáldsögu eftir Satu Remö, sem kom út í Finnlandi 2022 en kom nýverið út í íslenskri þýðingu Erlu Elíasdóttur Völudóttur. En við byrjum á Akureyri, í menningarhúsinu Flóru í Sigurhæðum. Þetta er undurfagurt og einstakt hús sem er í eigu Akureyrarbæjar og hýsir ótrúlega fjölbreytta menningarstarfi. Halla hitti Kristínu Þóru Kjartansdóttur, verkefnastjóra og staðarhaldara í Sigurhæðum, sem leiddi hana um húsið. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Spegillinn
Fjárlagafrumvarp, sameiningarmál Skorrdælinga, ofsóknir á hendur rússneskum vísindamönnum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 9, 2024 20:02


Sigurður Ingi Jóhannsson kynnir á morgun , klukkan níu, sitt fyrsta fjárlagafrumvarp. Þetta verður söguleg stund í íslenskri stjórnmálasögu því Sigurður Ingi er fyrsti Framsóknarmaðurinn í nærri hálfa öld til að vera fjármálaráðherra. Freyr Gígja Gunnarsson reifar það helsta sem búast má við í frumvarpinu og ræðir það við Finnbjörn Hermannsson, formann ASÍ. Skorradalshreppur er eitt af fámennustu sveitarfélögum landsins og hefur ítrekað hafnað sameiningu við stærri sveitarfélög. Meirihluti hreppsnefndar samþykkti að hefja formlegar sameiningarviðræður við Borgarbyggð í júlí en stjórnsýslukæra og undirskriftasöfnun íbúa gætu sett þær í uppnám. Gréta Sigríður Einarsdóttir fjallar um málið og ræðir við Jón Eirík Einarsson, oddvita Skorradalshrepps. Rússnesk yfirvöld, með leyniþjónustuna FSB í broddi fylkingar, hafa á síðustu árum handtekið, ákært og dæmt á annan tug vísindamanna í margra ára fangelsi vegna meintra landráða. Vísindamennirnir eru sakaðir um að hafa deilt háleynilegum vísindagögnum með útsendurum erlendra ríkja. Þeir - og verjendur þeirra - benda á að þeir komi hvergi nærri hönnun þeirra hátæknvopna sem þeir eru sakaðir um að tala óvarlega um í annarra eyru, og hafi einungis starfað við grunnrannsóknir og fræðastörf á sínu sviði. Þeir hafi einungis rætt viðtekin vísindi og alþekktar kenningar á ráðstefnum erlendis, en engin ríkisleyndarmál. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred.

Þjóðmál
#240 – Gjöf til þjóðarinnar – Annar maraþonþáttur Þjóðmála á Uppi bar

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Aug 23, 2024 231:12


Annað árið í röð hlaða Þjóðmál í um fjögurra klukkustunda þátt fyrir þá sem hlaupa maraþon – og alla aðra sem vilja alvöru umræðu og upplýsingar um stöðu mála. Það færðum Þjóðmálastofuna á Uppi bar af þessu tilefni, þar sem margir gestir litu við. Gestir þáttarins eru; Sigurjón Ernir Sturluson, ofurhlaupari og framkvæmdastjóri Ultraform, Bjarney Anna Bjarnadóttir, fjárfestatengill hjá Íslandsbanka, Þórður Pálsson, yfirmaður fjárfestinga hjá Sjóvá, Heiðar Guðjónsson fjárfestir, Andrea Sigurðardóttir, viðskiptablaðamaður á Morgunblaðsins, Hermann Guðmundsson, forstjóri og eigandi Kemi, María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri Eimskips og brátt forstjóri Símans, Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, og Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi. Auk þeirra kíktu nokkrir af helstu sonum Þjóðmála, þeir Hörður Ægisson, Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson.

Vikulokin
Halla Hrund Logadóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Edvarð Júlíus Sólnes

Vikulokin

Play Episode Listen Later Aug 17, 2024 57:37


Gestir þáttarins voru Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri, Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Edvarð Júlíus Sólnes, prófessor Emeritus á umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands og fyrrum umhverfisráðherra. Þau ræddu meðal annars orku- og umhverfismál, og nýtingu vindorku. Usmjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Podcast með Sölva Tryggva
#272 Laufey Karítas með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jul 17, 2024 94:31


Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Laufey Karítas Einarsdóttir er yogakennari, margföld móðir og fyrrverandi yfirmaður á framabraut, sem skipti algjörlega um takt eftir að lífið tók í taumana. Hún fékk heilablóðfall eftir áraraðir af streitu og kapphlaupi við að þóknast öðrum en sjálfri sér. Á einu augabragði sá hún hvað var mikilvægt í lífinu og gjörbreytti öllu. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/

Víðsjá
Margrét Blöndal i8, Kúmbíu tónlist, Herdís Anna Við Djúpið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 20, 2024 51:52


„Það eru undur allt í kringum okkur, við þurfum bara að gefa þeim gaum,“ segir myndlistarmaðurinn Margrét Blöndal sem sýnir um þessar mundir í i8 galleríi. Þetta er fjórða einkasýning Margrétar í i8, en hún er löngu þekkt fyrir sín fíngerðu og ljóðrænu verk sem unnin eru þvert á miðla, og sem hafa verið sýnd víða, hér heima og erlendis. Þín er vænst / Do not go roughly into that good night, kallast innsetningin þar sem teikningar á pappír eiga í samtali við gallerís rýmið. Í teikningum ráða eiginleikar efnisins útkomunni, en um leið samband listamannsins við efnið. Við lítum inn í i8 með Margréti í þætti dagsins. Þorleifur Sigurlásson verður einnig með okkur í dag, og að þessu sinni fjallar hann um tónlist frá Kólumbíu. En við byrjum á annarskonar tónlist, sem nú ómar á Ísafirði, þar sem tónlistarhátíðin Við Djúpið stendur nú yfir. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður Rúv á Vesturlandi, og bókmenntarýnir okkar hér í Víðsjá, er stödd á hátíðinni og hún fór í göngutúr um bæinn með Herdísi Önnu Jónasdóttur söngkonu.

herd sigr margr einarsd sigurl vesturlandi
Víðsjá
Vaxtaverkir, Orðabók hinna týndu orða, sjósund í Gufunesi

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 16, 2024 51:58


Á sýningunni Vaxtaverkir í Árbæjarsafni setur hönnunarhópurinn ÞYKJÓ fram skólasögu Reykjavíkur á frumlegan hátt. Þróun námsgreina og kennsluaðferða er miðlað á óvæntan hátt með dýrmætum safngripum, ljósmyndum og frásögnum frá fyrri tíð. Við hittum Sigríði Sunnu Reynisdóttur, listrænan stjórnanda Þykjó, í Árbæjarsafni í þætti dagsins og ræðum um sýninguna. Við bryggjuna í Gufunesi hafa vaskir nemar í arkitektúr hannað og smíðað aðstöðu til sjósundsiðkunar undanfarnar vikur. Aðstaðan var formlega opnuð um síðustu helgi svo nú gefst sundfólki kostur á að komast í sundfötin í skjóli og komast út í sjó án þess að klöngrast yfir varnargarðinn. Við höldum í Gufunesið í þætti dagsins og hittum fyrir nokkra nema og Birtu Fróðadóttur, lektor og fagstjóri yfir BA arkitektúr við LHÍ. Og Gréta Sigríður Einarsdóttir fjallar um Orðabók hinna týndu orða eftir Pip Williams, sem kom nýverið út í þýðingu Ugga Jónssonar.

Podcast með Sölva Tryggva
#272 Laufey Karítas með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later May 8, 2024 20:01


Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Laufey Karítas Einarsdóttir er yogakennari, margföld móðir og fyrrverandi yfirmaður á framabraut, sem skipti algjörlega um takt eftir að lífið tók í taumana. Hún fékk heilablóðfall eftir áraraðir af streitu og kapphlaupi við að þóknast öðrum en sjálfri sér. Á einu augabragði sá hún hvað var mikilvægt í lífinu og gjörbreytti öllu.  Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/

Spegillinn
Lög um fiskeldi, mótmæli í Bandaríkjunum og nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 2, 2024 20:13


2. maí 2024 Frumvarp að nýjum lögum um lagareldi styrkir sjókvíaeldi í sessi en herðir kröfur til fyrirtækja í geiranum. Eftirlitsaðilar segja nýju lögin bragarbót en náttúruverndarsinnar mótmæla frumvarpinu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í lögin og ræðir við Hafstein Dan Kristjánsson lektor við lagadeild HR, Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Jón Kaldal, talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins. Á annað þúsund manns hafa verið handtekin í mikilli mótmælaöldu sem riðið hefur yfir bandaríska háskóla síðustu tvær vikur. Öll tengjast mótmælin stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gaza og koma í framhaldi af svipuðum aðgerðum sem staðið hafa með hléum allt frá upphafi stríðsins 7. október. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor við Williams-háskóla í Massachusetts og sérfræðing í málefnum Miðausturlanda. Nýlegar tölur sýna að gistinætur voru fleiri í mars en á sama tíma í fyrra og ferðamönnum fjölgaði fyrstu mánuði ársins en útlit er fyrir að þeim fækki í sumar. Pétur Óskarsson, nýkjörinn formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að jafnvel þó að fjöldinn verði svipaður þá staldri ferðamenn skemur við en áður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Pétur um ástand og horfur í greininni. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Víðsjá
Þjóðarópera, Halla Einarsdóttir og D-vítamín, La nueva cancion Chilena

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 2, 2024 53:30


Fyrir rétt rúmri viku var mælt fyrir breytingu á lögum um sviðslistir þar sem stofnað er til nýrrar Þjóðaróperu. Gestur Víðsjár í dag verður Finnur Bjarnason, óperusöngvari og verkefnisstjóri um stofnun Þjóðaróperu sem unnið hefur að málinu á síðustu mánuðum. Hann segir okkur frá þessari þróun í þættinum. D-vítamín í Hafnarhúsi líkur á sunnudag svo það fer hver að verða síðastur að sjá hvað listamenn af yngri kynslóðinni eru að hugsa, en ákveðna þræði má greina í verkunum. Fókus á mennskuna, handverkið og söguna eru áberandi þræðir á sýningunni og Halla Einarsdóttir kafar einmitt ofan í sögu kvenna frá fyrri öldum og setur fram í áhugaverðu verki. Hún mun flytja gjörning í verkinu í kvöld og verður gestur Víðsjár í dag. Þorleifur Sigurlásson fjallar um tónlistarstefnu sem varð til í Chile og breyddist út um alla Suður-Ameríku.

Sunnudagssögur
Dagur B. Eggertsson

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Mar 31, 2024 75:00


Þema Júlíu Margrétar Einarsdóttur í Sunnudagssögum í mars er heppni. Hún fær til sín ólíka viðmælendur sem öll hafa orðið fyrir láni í lífinu sem hefur haft áhrif á þau. Dagur B. Eggertsson, læknir og núverandi formaður Borgarráðs, hefur nú stigið úr stóli borgarstjóra í Reykjavík. Hann segir frá æskunni, félagsmálaáhuganum sem hefur lengi brunnið innra með honum og frá því þegar misheppnuð hárlitun mágkonu hans varð hans mesta lán því í kjölfar hennar kynntist Dagur eiginkonu sinni. Hann lítur stoltur um öxl en borgarstjóratíðin hefur líka einkennst af erfiðleikum. Hann rifjar upp áfallið sem fjölskyldan varð fyrir þegar skotið var að húsi hans og óvissuna sem fylgdi veikindunum þegar hann greindist með gigt.

Spegillinn
Gaza, Palestína og Persaflóaríki, raforka á Vestfjörðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 31, 2024 20:04


31. janúar 2024 Meira en helmingur bygginga á Gaza hafa skemmst eða verið jafnaðar við jörðu frá því að stríðið milli Ísraelsmanna og Hamas braust út í haust. Nákvæmur samanburður á gervihnattarmyndum af landshlutanum 12. október til 29. janúar leiðir þetta í ljós, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá á fréttavef sínum. Ásgeir Tómasson tók saman. Algjört þrot blasir við UNRWA, flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna í Palestínu, ef nokkur lykilríki á Vesturlöndum frysta framlög sín til stofnunarinnar til langframa. Og þá spyrja margir: Hvar eru hin vellríku og öflugu Arabaríki við Persaflóann þegar á reynir? Rætt við Magnús Þorkel Bernharðsson. Lítil orkuframleiðsla, takmörkuð flutningsgeta og annmarkar á dreifikerfi rafmagns gera Vestfirðingum erfitt fyrir að taka þátt í boðuðum orkuskiptum landsins. Einn virkjanakostur sem gæti leyst stóran hluta vandans ylli jafnframt miklu raski í Vatnsfirði, þar sem hefur verið friðland í fimmtíu ár. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson umhverfis- og orkumálaráðherra, Elías Jónatansson, orkubússtjóra og Gísla Má Gíslason prófessor í vatnalíffræði. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Vikulokin
Jóhann Páll Jóhannsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Dec 2, 2023


Gestir Vikulokanna eru Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar, Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata. Þau ræddu framsal íslenskra ríkisborgara til útlanda, siðareglur þingmanna, efnahagsmál og þjóðarpúls Gallup um fylgi stjórnmálaflokka. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Marteinn Marteinsson