Konur í nýsköpun

Follow Konur í nýsköpun
Share on
Copy link to clipboard

Alma Dóra Ríkarðsdóttir ræðir við konur í nýsköpun um nýsköpunarumhverfið á Íslandi, jöfn tækifæri, fjölbreytni og valdeflingu kvenna til nýsköpunar. Verkefnið er hýst af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.


    • Apr 13, 2022 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 25m AVG DURATION
    • 21 EPISODES


    Search for episodes from Konur í nýsköpun with a specific topic:

    Latest episodes from Konur í nýsköpun

    20. VÍSISFJÁRFESTINGAR SNÚAST MEIRA UM EQ EN IQ - Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, vísisfjárfestir hjá Brunni Ventures

    Play Episode Listen Later Apr 13, 2022 34:20


    Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir er vísisfjárfestir hjá Brunni Ventures sem fjárfestir í fjölbreyttum sprotafyrirtækjum. Margrét sagði mér frá sinni vegferð, hvernig hún hefur fengið frábær atvinnutækifæri, hverju þau eru að leita að hjá Brunni og hvaða ráð hún gefur frumkvöðlum.   Frekari upplýsingar um Brunn má finna á www.brunnurventures.com

    19. ÞAÐ ER ROSA GAMAN AÐ VINNA FYRIR SJÁLFA SIG - Bára Atladóttir, eigandi BRÁ verslunar

    Play Episode Listen Later Feb 2, 2022 22:55


    Bára Atladóttir er stofnandi og eigandi BRÁ verslunar, sem selur kjóla, kimono-a og ýmsan kvenfatnað í fjölbreyttum stærðum. BRÁ verslun byrjaði á eldhúsborðinu heima hjá mömmu Báru þar sem hún saumaði flíkur og seldi þær svo á Facebook en í dag er verslunin hýst í 600 fm húsnæði í Mörkinni. BRÁ verslun má finna á www.braverslun.is

    18. ÞAÐ ÞARF AÐ SETJA KONUR Á DAGSKRÁ - Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA

    Play Episode Listen Later Jan 19, 2022 35:30


    Andrea Róbertsdóttir er framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA. Hún hefur trölla trú á íslenskri kvenorku og konum sem hvetja hvora aðra til góðra verka. Andrea ræddi við mig um sína vegferð, mikilvægi tengslanetsins, konur í nýsköpun og fjölbreytileika atvinnulífsins.

    17. HVERGI Í HEIMINUM ER JAFN MIKIÐ AF NÝSKÖPUNARSJÓÐUM STÝRT AF KONUM - Helga Valfells, framkvæmdastjóri Crowberry Capital

    Play Episode Listen Later Jan 5, 2022 33:20


    Helga Valfells er stofnandi og framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Crowberry Capital, sem er öflugur íslenskur vísissjóður sem hefur fjárfest í framúrskarandi nýsköpunar fyrirtækjum. Helga býr að fjölbreyttri reynslu sem spannar yfir heimsálfur og fjölbreyttar atvinnugreinar, en hún sagði mér frá sinni vegferð og Crowberry capital í live upptöku sumarið 2021. Stuttu eftir að viðtalið var tilkynnt um stofnun Crowberry tvö, 11,5 milljarða króna vísissjóð, sem er sá stærsti sem settur hefur verið saman á Íslandi. ⁠ Þetta er þátturinn „Hvergi í heiminum er jafn mikið af nýsköpunarsjóðum stýrt af konum“ með Helgu Valfells.

    16. TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐUR - Kolbrún Bjargmundsdóttir - Sérfræðingur hjá Rannís

    Play Episode Listen Later Mar 8, 2021 24:56


    Tækniþróunarsjóður er stærsti nýsköpunarsjóðurinn á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem styrkir fjölda nýsköpunarverkefna á ári hverju. Alma Dóra fékk því til sín Kollu, Kolbrúnu Bjargmundsdóttur, verkefnastjóra hjá Rannís, til að ræða upplag sjóðsins og hvað skal hafa í huga þegar skrifa á umsókn. Bent er á að viðtalið var tekið upp sumarið 2020 en þátturinn kemur út í mars 2021 og bendum við því á heimasíðu sjóðsins fyrir nákvæmar upplýsingar: https://www.rannis.is/sjodir/rannsoknir/taeknithrounarsjodur/

    15. SVARIÐ VERÐUR ALLTAF NEI EF ÞÚ SÆKIST EKKI EFTIR ÞVÍ SEM ÞÚ VILLT - Ásta Kristín Sigurjónsdóttir - Framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans

    Play Episode Listen Later Feb 9, 2021 29:00


    Gestur Ölmu Dóru í þætti dagsins er Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans. Ásta hefur starfað náið með frumkvöðlum víða um land á sínum starfsferli og deilir í þættinum fjölmörgum góðum ráðum sem koma sér vel í verkfærakassanum þegar byggja á fyrirtæki. Í þættinum ræðir hún einnig sína eigin vegferð, klasastarfsemina á Íslandi og framtíðina fyrir ferðaþjónustuna, í COVID lausum heimi. Hægt er að kynna sér starfsemi Íslenska ferðaklasans og það sem hann hefur upp á að bjóða á www.icelandtourism.is/

    14. EKKI GEFAST UPP – Hulda Birna Baldursdóttir Kjærnested

    Play Episode Listen Later Jan 26, 2021 27:32


    Hulda Birna Baldursdóttir Kjærnested er ein þeirra fræknu verkefnastjóra sem hafa veitt frumkvöðlum aðstoð og tækifæri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.   Viðtalið var tekið upp sumarið 2020, og eins og flestir vita þá stóð til að leggja niður stofnunina um áramótin. Alma Dóra ræddi við Huldu um starfið sem Nýsköpunarmiðstöð hefur hýst í gegnum árin, lærdóminn sem við getum dregið af starfi hennar og hvað mun taka við, bæði hjá henni sjálfri og í stuðningskerfi frumkvöðla á Íslandi.   Hægt er að skoða ýmis tæki og tól sem geta aðstoðað við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi á www.nyskopunarmidstod.is

    13. VIÐ ÞURFUM AÐ HVETJA KONUR MEIRA ÁFRAM – Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir - Verkefnastjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands

    Play Episode Listen Later Jan 18, 2021 0:24


    Gestur þáttarins í dag er Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands. Ólöf er lögfræðingur að mennt og hefur borið marga mismunandi hatta innan nýsköpunarsenunnar á Íslandi. Í þættinum segir hún okkur frá sinni vegferð og öllu því helsta sem er að gerast í nýsköpunarmálum hjá Háskóla Íslands.

    12. JAFNRÉTTI OG FJÖLBREYTNI ERU MANNRÉTTINDI – Birna Bragadóttir – Stjórnarformaður Hönnunarsjóðs

    Play Episode Listen Later Jan 11, 2021 0:33


    Gestur tólfta þáttar af konum í nýsköpun er Birna Bragadóttir, stjórnarformaður Hönnunarsjóðs. Auk þess að gefa góð ráð fyrir umsækjendur í sjóðinn ræðir Birna sína eigin vegferð og fjölmörgu verkefni í þættinum. Birna er ötul talskona jafnréttismála og kemur með frábæra punkta um það hvernig er hægt að stuðla að jafnrétti í styrkjaúthlutunum, starfsauglýsingum og viðskiptalífinu öllu.   Hægt er að fræðast meira um Hönnunarsjóð inn á heimasíðu sjóðsins, www.sjodur.honnunarmidstod.is   Þetta er þátturinn „Jafnrétti og fjölbreytni eru mannréttindi“ með Birnu Bragadóttur.

    11. VIÐ ERUM ALLAR ROSALEGA ÓLÍKAR, EN SAMT ERUM VIÐ OFT AÐ DÍLA VIÐ SÖMU HLUTINA - Andrea og Kristjana - Stjórnarkonur UAK

    Play Episode Listen Later Nov 13, 2020 28:29


    Í þættinum í dag ræðir Alma Dóra við Andreu Gunnarsdóttur og Kristjönu Björk Barðdal, stjórnarkonur Ungra athafnakvenna, eða UAK. Þær ræddu um starfsemi félagsins, tengingu þess við nýsköpun og hvernig komandi kynslóðir ungra athafnakvenna munu hrista upp í íslensku atvinnulífi. Hægt er að kynna sér starfsemi og dagskrá félagsins betur á heimasíðu þeirra, www.uak.is

    10. STOFNENDAVEGFERÐIN ER SVAKALEGUR RÚSSÍBANI – Stefanía Bjarney – Meðstofnandi og framkvæmdastjóri Avo

    Play Episode Listen Later Nov 6, 2020 34:00


    Í þættinum ræðir Alma Dóra við eina af sínum helstu fyrirmyndum úr nýsköpunarheiminum, Stefaníu Bjarneyju Ólafsdóttur. Stefanía er meðstofnandi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Avo sem hefur verið að gera frábæra hluti undanfarið og er, meðal annars, fyrsta íslenska fyrirtækið til að vera valið til þáttöku í Y Combinator. Stefanía sagði frá sinni vegferð og upplifuninni af Y Combinator. Auk þess ræddu þær hvernig er að skipta um stefnu í miðri sprotavegferð, mikilvægi þess að forðast hlutdrægni við ráðningar og rússíbanann sem það er að koma sprotafyrirtæki á laggirnar. Hægt er að fræðast um Avo á vefsíðu þeirra, www.avo.app

    9. ÞAÐ SKORTIR VISSULEGA EKKI HÆFILEIKARÍKAR KONUR - Salóme Guðmundsdóttir - Framkvæmdastjóri Icelandic Startups

    Play Episode Listen Later Oct 26, 2020 26:00


    Í þættinum ræðir Alma Dóra við Salóme Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Startups. Hún sagði henni frá því hvernig þau styðja við fjölbreytta frumkvöðla á fjölbreytta vegu, og þá sérstaklega í gegnum að tengja og hraða sprotafyrirtækjum. Einnig ræddu þær viðskiptahraðlana sem þau bjóða upp á og frumkvöðlakeppnina Gulleggið. Ölmu Dóru grunaði að sjálfsögðu ekki í sumar þegar viðtalið var tekið upp, að þegar það kæmi út væri hennar eigið teymi, HEIMA, ný búið að sigra Gulleggið 2020. Hægt er að hafa samband við Icelandic Startups og nýta sér þjónustu þeirra á vefsíðunni www.icelandicstartups.is

    8. ÞÚ SANNFÆRIR FÓLK EKKERT Á EINU BRETTI UM NÝJA HUGMYND - Þorbjörg Helga - Stofnandi Kara Connect

    Play Episode Listen Later Oct 19, 2020 31:20


    Í þætti dagsins kemur hún Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Kara Connect, og ræðir við Ölmu Dóru. Margir kannast við Þorbjörgu úr pólitík og borgarstjórn en frumkvöðlastörf hafa átt hug hennar allan síðastliðin ár. Í þættinum ræðir Þorbjörg sína vegferð, uppbyggingu og fjármögnun Köru og áskoranir sem margir kvenfrumkvöðlar ættu að kannast við.   Hægt er að fræðast meira um Kara Connect á vefsíðu þeirra, https://www.karaconnect.com/

    7. ÞAÐ SKIPTIR MÁLI AÐ HAFA FYRIRMYNDIR - Huld Magnúsdóttir - Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins

    Play Episode Listen Later Oct 13, 2020 27:30


    Huld Magnúsdóttir hefur átt í áralöngu sambandi við nýsköpun og starfar nú sem framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins. Hún kom í viðtal til Ölmu Dóru og ræddi sína vegferð, starf sjóðsins og hverju þau leitast eftir í fjárfestingartækifærum. Einnig spjölluðu þær um mikilvægi fjölbreytni, fyrirmynda og jafnvægisins þegar man sinnir krefjandi störfum.   Hægt er að fræðast um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins á www.nyskopun.is og lesa skýrslu Nordic Innovation um konur í nýsköpun sem Huld minnist á hér: https://www.nordicinnovation.org/2020/female-entrepreneurship-nordics-2020 

    6. AF HVERJU EKKI? - Edda og Melkorka - Stofnendur Nýsköpunarvikunnar

    Play Episode Listen Later Oct 5, 2020 26:43


    Gleðilega nýsköpunarviku!  Edda og Melkorka eru stofnendur Nýsköpunarvikunnar sem haldin er í fyrsta skiptið haustið 2020. Þær mættu í stúdíóið til Ölmu Dóru og deildu með henni sögum úr sinni vegferð, hvernig Nýsköpunarvikan kom til, hvað sé á dagskránni og hvaða væntingar þær hafa til næstu ára. Einnig eru þær báðar vel sjóaðar úr nýsköpunarumhverfinu á Íslandi og deildu sínum bestu ráðum til frumkvöðla. Ég mæli með að kíkja á www.nýsköpunarvikan.is fyrir streymi af þeim fjölmörgu viðburðum sem eru á dagskránni. Einnig má nálgast frekari upplýsingar á FB síðu hátíðarinnar.

    5. HAFIÐ MEIRI TRÚ Á HUGMYNDINNI OG YKKUR - Guðrún Tinna - Stjórnarformaður Svanna

    Play Episode Listen Later Oct 4, 2020 32:44


    Í þættinum í dag ræðir Alma Dóra við Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, stjórnarformann Svanna lánasjóðs. Svanni lánar fyrirtækjum sem stofnuð og leidd eru af konum án þess að frumkvöðlarnir þurfi að gefa veð, til dæmis í fasteign eða öðrum eignum heimilisins. Tinna segir okkur frá sinni eigin frumkvöðlavegferð, starfsemi og framtíðaráherslum Svanna og deilir sínum helstu lyklum í frumkvöðlastörfum. Hægt er að kynna sér starfsemi Svanna betur á www.atvinnumalkvenna.is

    4. ATVINNUMÁL KVENNA - Ásdís - Verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun

    Play Episode Listen Later Sep 28, 2020 29:54


    Ásdís Guðmundsdóttir er gestur Ölmu Dóru í þessum þætti, en hún er verkefnastýra Atvinnumála kvenna. Ásdís sagði frá styrkjunum sem þau veita, lýsti ferlinu og gaf ráð til þeirra sem hafa hug á að sækja um styrki. Ásdís hefur unnið með fjölda frumkvöðla í gegnum árin og hefur margar góðar sögur sem gaman er að. Hægt er að lesa sér til um Atvinnumál kvenna á www.atvinnumalkvenna.is 

    3. KONUR ÞURFA LÍKA AÐ STÝRA FJÁRMAGNINU - Jenný Ruth – Fjárfestir og meðstofnandi Crowberry Capital

    Play Episode Listen Later Sep 21, 2020 32:00


    Í þessum þætti spjallar Alma Dóra við Jenný Ruth Hrafnsdóttur, meðstofnanda Crowberry Capital. Crowberry er íslenskur vísissjóður sem fjárfestir í tæknidrifnum nýsköpunarfyrirtækjum sem eru snemma á sínum lífsferli. Jenný sagði frá sínu starfi hjá Crowberry, vegferðinni sem leiddi hana þangað og sínum hugleiðingum um nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Frekari upplýsingar um Crowberry er hægt að finna á www.crowberrycapital.com

    2. RÆDDU HUGMYNDINA - Gréta María - Stjórnarformaður Matvælasjóðs

    Play Episode Listen Later Sep 17, 2020 28:00


    Viðmælandi Ölmu Dóru í þessum þætti er Gréta María, stjórnarformaður Matvælasjóðs sem er einn af nýjustu sjóðum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Gréta ræddi sína vegferð og þá reynslu sem hún tekur með sér inn í starf sjóðsins og deildi sínum bestu ráðum til frumkvöðla og þeirra sem hyggjast sækja um í Matvælasjóð. Auk þess sagði hún frá upplagi sjóðsins og þeim markmiðum og aðgerðum sem stjórnin hefur sett af stað til að stuðla að jöfnum tækifærum kynjanna.    Hægt er að finna frekari upplýsingar um Matvælasjóð á www.matvaelasjodur.is Umsóknarfrestur er 21. september 2020

    1. NÝSKÖPUNARLANDIÐ ÍSLAND – Þórdís Kolbrún – Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

    Play Episode Listen Later Sep 14, 2020 32:00


    Í byrjun sumars sat Alma fyrir Þórdísi Kolbrúnu, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra til að gulltryggja sér viðtal við hana fyrir þinglok. Það reyndist þó vera algjör óþarfi þar sem hún var meira en til í að vera með. Í þættinum ræða þær hvernig Þórdís varð næstyngsti ráðherra Íslandssögunnar, áhrifafólkið í hennar vegferð og nýsköpunarlandið Ísland 2030.

    0. KYNNING – Alma Dóra – Konur í nýsköpun

    Play Episode Listen Later Sep 9, 2020 2:54


    Sumarið 2020 fékk Alma Dóra Ríkarðsdóttir (að eigin sögn) besta sumarstarf sem nokkur viðskiptafræðingur og meistaranemi í kynjafræði gæti óskað sér. Á styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna rannsakaði hún stöðu og valdeflingu kvenna til nýsköpunar hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ásamt því að uppfæra kynjuðu tölfræðina hjá nýsköpunarsjóðum ráðuneytisins tók hún viðtöl við áhrifakonur úr nýsköpunarumhverfinu á Íslandi. Í þessu hlaðvarpi verður hægt að hlusta á þessi viðtöl og fræðast um hvað er að gerast í nýsköpun á Íslandi með jafnréttissjónarmið að leiðarljósi.  Þetta eru konur í nýsköpun.

    Claim Konur í nýsköpun

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel