Podcasts about melkorka

  • 17PODCASTS
  • 226EPISODES
  • 51mAVG DURATION
  • 5WEEKLY NEW EPISODES
  • Apr 28, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about melkorka

Latest podcast episodes about melkorka

Víðsjá
Ný íslensk ópera í Berlín, Adrianne Lenker og Stefán sigrar atvinnulífið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 28, 2025 50:48


Í gærkvöldi var ný íslensk ópera frumflutt í Berlín. Óperan ber heitið Cave, og kemur úr smiðju tónskáldsins Hauks Þórs Harðarsonar, sem var einn þriggja vinningshafa í keppni sem ber yfirskriftina Neue Szenen, og er ætlað að vekja athygli á nýjum og áhugaverðum röddum í heimi klassískrar tónlistar og óperu. Við sláum á þráðinn hjá Hauki Þór í upphafi þáttar. Kalta Ársælsdóttir rýnir í einleikinn Stefán sigrar atvinnulífið, sem grínistinn og sviðshöfundurinn Stefán Ingvar Vigfússon sýnir í Sykursalnum og í síðari hluta þáttar setur Tómas Ævar upp greiningargleraugun í umfjöllun sinni um nýja tónleikaplötu bandarísku tónlistarkonunnar Adrianne Lenker Live at Revolution Hall sem kom út í síðustu viku. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Víðsjá
Stöngin inn á Hönnunarmars, Illgresin í Tjarnarbíói, Í skugga trjánna/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 3, 2025 50:30


Í dag hefst Hönnunarmars með pompi og prakt og á þriðja tug sýninga af mjög fjölbreyttu tagi. Meðal þeirra er sýningin Stöngin inn, í Hegningarhúsinu, þar sem áhugasamir geta kynnt sér umbreytingar sem framundan eru á Stangarbænum í Þjórsárdal. Verkefnið markar að sögn aðstandenda ákveðin þáttaskil í opinberum byggingum hér á landi og setur Stangarbæinn í sérstöðu sem fyrsta minjastaðinn á Íslandi sem er hannaður heildrænt með áherslu á umhverfislega og félagslega sjálfbærni. Við rifjum upp merkilega sögu Stangarbæjarins í Þjórsárdal og af sýningunni hjá arkitektinum Karli Kvaran í þætti dagsins. Gréta Sigríður Einarsdóttir vinnur líka úr eftirstöðvum jólabókaflóðsins með rýni í skáldsögu Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Í skugga trjánna, og við kynnum okkur nýja danssýningu í Tjarnarbíói sem ber yfirskriftina Illgresin hjá danshöfundinum Gígju Jónsdóttur og dansaranum og fulltrúa danshópsins Forward, Diljá Þorbjargardóttur. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Svipmynd - Kristinn Sigmundsson

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 2, 2025 51:31


Kristinn Sigmundsson ætlaði sér lengi vel alls ekki að verða söngvari. Faðir hans var lengst af á sjó, mamma hans líka útivinnandi og sem strákur gerði hann mikið af því að passa bróður sinn og dorga niðri á höfn. Foreldrar þeirra lögðu áherslu á að bræðurnir fengju góða menntun og leið Kristins lá í Menntaskólann við Hamrahlíð, þar sem hann var plataður í kórinn hjá Þorgerði Ingólfsdóttur, en hélt svo í háskólanám í líffræði. Þrítugur lauk hann prófi frá Söngskólanum en eftir að hann tók skrefið út í heim fékk hann fljótlega fastráðningu við óperuna í Wiesbaden í Þýskalandi. Þaðan lá leiðin sífellt hærra, og áður en langt um leið var Kristinn farinn að syngja í velflestum stærstu óperu- og tónlistarhúsum heims. Líklega gera margir sér ekki grein fyrir hversu tilkomumikill ferill Kristins er. Sjálfur er hann lítillætið og hógværðin uppmáluð, rólyndismaður sem elskar fátt meira en ljóðsöng og fluguveiði og leitar í íslenska náttúru í huganum, mitt í skarkala erlendra stórborga. Stórsöngvarinn Kristinn Sigmundsson er gestur Svipmyndar í Víðsjá dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Dauðadjúpar sprungur, heimspekihugleiðing Freyju Þórsdóttur, slavenskur söngur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 31, 2025 55:20


Ljósmyndarinn Hallgerður Hallgrímsdóttir segir að það eina sem henni hafi dottið í hug að gera þegar hún kom tómhent heim af fæðingardeildinni hafi verið að taka sjálfsmynd. Nokkrum mánuðum síðar opnaði hún skáp sem áður hafði geymt svarthvítar filmur og áttaði sig á því, án þess að muna almennilega eftir því, að hún hafði tekið á þær allar. Dóttir hennar, Dýrleif, fæddist og dó sama daginn, í lok september árið 2015. Ljósmyndabókin Dauðadjúpar sprungur er tileinkuð henni og Hallgerður segir okkur frá bókinni í þætti dagsins. Þá færir Freyja Þórsdóttir okkur fyrstu heimspekilegu hugleiðinguna í nýrri pistlaröð og fjallar um undrun, ólíkar birtingarmyndir fegurðar og forréttindi. Við kynnum okkur líka slavneskan þjóðlagasöng og söngtækni hjá slóvensku söngkonunni Zvezdönu Novakovich. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Myndlistarmaður ársins, ECHO LIMA og örvæntingarpistill #4

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 24, 2025 52:36


Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent í áttunda sinn síðastliðinn fimmtudag en þar var Pétur Thomsen valinn myndlistarmaður ársins, fyrir sýninguna Landnám í Hafnarborg. Samband manns og náttúru hefur lengi verið megininntakið í ljósmyndaverkum Péturs og er sýningin Landnám engin undantekning. Pétur lítur við í hljóðstofu, en við höldum líka niður í miðbæ, í Gallerí Berg, þar sem einkasýning Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur, ECHO LIMA, stendur yfir. Þá flytur Birnir Jón Sigurðsson sinn fjórða og síðasta pistil í örvæntingarpistlaseríu sinni. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Svipmynd af tónlistarnema í Georgíu: Ólína Ákadóttir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 19, 2025 54:43


Píanóleikarinn Ólína Ákadóttir segist vera bæði forvitin og hvatvís. Þeir dýrmætu eiginleikar urðu til þess að hún ákvað að fara til Georgíu í skiptinám og dvelja þar í eitt ár, en hún stundar annars framhaldsnám í píanóleik við tónlistarháskólann í Osló. Georgía er um margt ólík Noregi, og Íslandi, og áherslurnar í tónlistarnáminu sömuleiðis. Víðsjá skoraði á Ólínu að mæta í stúdíó 12 og segja hlustendum ferðasöguna í tali og tónum. Hún rúllaði því verkefni upp með glans og afraksturinn er þáttur dagsins; svipmynd af tónlistarnema í Georgíu. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Innkaupapokinn, kynbundið ofbeldi í þjóðsögum og örvæntingarpistill #3

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 17, 2025 52:55


Innkaupapokinn eftir leikhópinn Kriðpleir og Elísabetu Jökulsdóttur, sem nú er í sýningu í Borgarleikhúsinu, byggir á 30 ára gömlu verki Elísabetar, Mundu töfrana. Verkið hefur fylgt Elísabetu í meira en þrjá áratugi og líka skotið rótum í öðrum verkum hennar. Hún reyndi að koma verkinu á fjalirnar en fékk oftast þau svör að það væri of ljóðrænt og vantaði allan strúktúr. En nú hefur leikhópnum Kriðpleir tekist að móta um það strúktúr og afraksturinn er Innkaupapokinn. Við ræðum við tvo meðlimi Kriðpleirs í þætti dagsins, þau Ragnar Ísleif Bragason og Ragnheiði Maísól Sturludóttur. Við fáum líka til okkar í hljóðstofu þjóðfræðinginn Dagrúnu Ósk Jónsdóttur, sem hefur rannsakað birtingarmyndir kynbundins ofbeldis í íslenskum þjóðsögum og Birnir Jón Sigurðsson flytur sinn þriðja pistil sinn í örvæntingarpistlaröðinni Hvað varð um gæskuna? Pistill dagsins er tileinkaður stjórn, glundroða og mönnum sem reyna bókstaflega að sigrast á dauðanum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Tónlist og sjálfstæðisbarátta Grænlands, Þetta er Laddi/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 13, 2025 51:02


Fyrir ofan Nuuk stendur stytta af trúboðanum Hanse Egede, en koma hans til Vestur-Grænlands árið 1721 markar upphaf nýlendutímans í sögu landsins. Styttan hefur margsinnis verið skemmd, hausinn jafnvel fengið að fjúka og á hana krotað; DECOLONIZE. Við skoðum samvirkni grænlensku sjálfstæðisbaráttunnar og tónlistarsögu landsins í þætti dagsins. Nína Hjálmarsdóttir rýnir líka í leiksýninguna Þetta er Laddi, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi, og Halla leitar að meðmælum fyrir menningarefni hjá starfsfólki verslana í Kringlunni. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Stefán Ragnar Höskuldsson, grænlenska rokksveitin Sumé og Örvæntingarpistill Birnis Jóns#2

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 10, 2025 51:28


,,Ég vissi að ég vildi verða flautuleikari um leið og ég prófaði fyrst að spila á flautu 8 ára gamall. Frá þeim tíma varð flautan það eina sem komst að í mínu lífi," segir flautuleikarinn Stefán Ragnar Höskuldsson. Hann hreppti fyrir helgi stöðu 1. flautuleikara við Berlínarfílharmóníuna, sem að margra mati er fremsta sinfóníuhljómsveit heims. Við hringjum til Chicago í upphafi þáttar og heyrum hljóðið í Stefáni Ragnari.  Sviðshöfundurinn Birnir Jón Sigurðsson flytur okkur í dag annan pistil sinn í Örvæntingarpistlaröðinni Hvað varð um gæskuna? og við rifjum líka upp stórmerkilega heimildamynd um goðsagnakenndu grænlensku hljómsveit Sumé. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Darraðarljóð á 75 ára afmæli, 60 kílóa þríleikurinn, bókamarkaðurinn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 6, 2025 55:12


Í kvöld og annað kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 75 ára afmæli sitt með stapp-uppseldum tónleikum í Eldborg, þar sem öllu verður tjaldað til. Meðal verka á efnisskránni er 60 ára gamalt tónverk Jóns Leifs, Darraðarljóð. Verkið er skrifað fyrir nokkuð stóra hljómsveit og kór, er gífurlega krefjandi og hefur aldrei verið flutt áður. Víðsjá leit við á lokaæfingu í Hörpu í morgun og hitti þar framkvæmdastjóra SÍ, okkar góða Guðna Tómasson, Hildi Ploder Vigfúsdóttur, forvörð á Landsbókasafni og Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, til að forvitnast um verkið og tilefnið. Við lítum líka inn á bókamarkaðinn í Holtagörðum og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um sextíu kílóa þríleik Hallgríms Helgasonar. En Víðsjá hefst á tilnefningum til Myndlistarverðlaunanna fyrir árið 2024. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Bækur og brjáluð fræði, tónlistarpistill Jelenu Ciric og Stífluhringurinn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 27, 2025 55:18


Þegar vísindasagnfræðingurinn og rithöfundurinn Steindór J Erlingsson hlustaði á nýja hljómplötu Inga Bjarna Skúlasonar fylltist hann skyndilega fítonskrafti og lagði í að lesa óhreyft ljóðahandrit sem hann hafði skrifað á myrkum tíma í lífi sínu. Steindór er meðal fjögurra fyrirlesara á málþingi undir yfirskriftinni Bækur og brjáluð fræði, sem fer fram í Norræna húsinu á laugardag. Gunnhildur Una Jónsdóttir, meistaranemi í fötlunarfræði er ein þeirra sem halda utan um málþingið, en hún vinnur að rannsóknum á sviði svokallaðra brjálaðra fræða, fræðasviðs sem er í mótun og fjallar um sögu, menningu, pólitík og baráttumál þeirra sem glíma við andlegar áskoranir. Við tökum á móti þeim Gunnhildi og Steindóri hér rétt á eftir og heyrum nánar af þessu nýja fræðasviði, málþinginu og skrifunum. Í lok þáttar fáum við líka innsýn inn í líf tveggja tónlistarkvenna sem áttu það sömuleiðis sameiginlegt að glíma við ytri og innri mótstöðu. Tilfinninganæmið gerði tónlistarkonurnar Mary Margaret O'Hara og Lauryn Hill berskjaldaðar fyrir hörku tónlistarbransans, sem mögulega varð til þess að tónlistarferill þeirra varð ekki langur. Í síðasta pistli sínum af fjórum fjallar Jelena Ciric um þær Hill og O´Hara, sem eiga það sameiginlegt að hafa aðeins gefið út eina plötu. Og um miðbik þáttar rifjum við upp umfjöllun um allt annars konar hljómplötu. Sú er glæný og tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna í ár. Halla Harðardóttir hitti tónskáldið Guðmund Stein Gunnarsson síðasta haust og ræddi við hann um geislaplötuna Stífluhringurinn, og við rifjum upp þá umfjöllun í þætti dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir og Halla Harðardóttir

Víðsjá
Svipmynd af vinnustofu í Varanasi

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 19, 2025 53:56


Síðustu ár hefur hópur íslenskra listamanna heimsótt Varanasi á Indlandi og dvalið þar á vinnustofum Kriti gallerísins, sótt sér næringu og innblástur. Afrakstur dvalarinnar má sjá á sýningu sem nú stendur yfir í Listasafni Árnesinga og hefur yfirskriftina Meðal guða og manna. Um sýningarstjórn sér Pari Stave, en hópurinn telur sex mótaða og margreynda íslenska listamenn, þau Margréti H. Blöndal, Guðjón Ketilsson, Eygló Harðardóttur, Sólveigu Aðalsteinsdóttur, Sigurð Árna Sigurðsson og Einar Fal Ingólfsson, sem er forsprakkinn að þessu viðamikla verkefni. Það finnast varla ólíkari lönd og menningarheimar en Ísland og Indland og íslensku listamennirnir sem héldu til Varanasi fetuðu í fótspor margra annarra listamanna og hugsuða sem hafa farið þangað í leit að áhrifum og upplifunum. Varanasi er borg öfga, lita og fjölskrúðugs mannlífs, þar sem dauðinn er alltaf nálægur við hið helga Gangesfljót. Við heyrum af upplifunum listamannnanna sex, ásamt stofnanda gallerísins og vinnustofunnar, Navneet Raman. Svipmynd dagsins er af vinnustofu í Varanasi. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Stara í Gerðarsafni, Dietrich/rýni og tónlistarpistill Jelenu Ciric

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 17, 2025 53:48


Um miðjan janúar var Ljósmyndahátíð Reykjavíkur haldin hátíðleg á höfuðborgarsvæðinu. Meðal sýninga sem þá opnaði, og stendur enn, er samsýning í Gerðarsafni sem ber yfirskriftina Stara. Sýningin er með verkum 8 listamanna, og þar af fimm ljósmyndara, sem mynda sjálft sig og fólkið nærri sér, í tilraun til að skilja eigið sjálf. Þau velta fyrir sér stöðu sinni í samfélaginu og hvernig flokkar og hlutverk sem við höfum skapað, eins og kyngervi og sambönd, marka tilveruna. Um sýningarstjórn sjá þær Brynja Sveinsdóttir og Hallgerður Hallgrímsdóttir og við hittum þær í síðari hluta þáttar, ásamt listakvárinu Sadie Cook, sem á tvö verk á sýningunni. Trausti Ólafsson fjallar um Dietrich, glænýja leiksýningu sem frumsýnd var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll fyrir helgi. Höfundur og söngkona sýningarinnar er Sigríður Ásta Olgeirsdóttir en með henni leikur Jóhann Axel Ingólfsson. Jelena Ciric kynnir fyrir okkur tónlistarfólk sem var talsvert minna fyrir sviðsljósið. Í þriðja tónlistarpistli sínum fjallar hún um fágætar upptökur tónlistarkonunnar Elisabeth Eton Converse og tónlistarmannsins og eðlisfræðingsins Eysteins Péturssonar. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Grátur steinanna, ástarbréf og List í ljósi

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 13, 2025 55:26


Ástin mun svífa yfir vötnum í þætti dagsins. Á morgun er dagur heilags Valentínusar og af því tilefni hefur Kvennasögusafnið boðað Dag ástarbréfsins, í Landsbókasafninu á degi ástarinnar, í samstarfi við Ástarsögufélagið, Ástarrannsóknarfélagið og fleiri. Þar mun fara fram fjölbreytt dagskrá, þar sem meðal annars verða sýnd ástarbréf úr safnkosti og flutt örerindi um ástarbréf. Meðal þeirra sem flytja erindi er Guðrún Friðriksdóttir, þjóðfræðingur og meðlimur í ástarsögufélaginu og hún verður gestur okkar í dag. Segir okkur frá sínum hugmyndum um ástarbréf og les eitt slíkt fyrir okkur. Einnig munu Lóa Björk Björnsdóttir og Baldur Örlygsson. starfsmenn hér í Ríkisútvarpinu segja okkur sína skoðun á þessu fyrirbæri, ástarbréfinu. Það er ekki til rómantískari byrjun á febrúarmorgni í Reykjavík en að bjóða sér í heimsókn hjá ungu pari sem sérhæfir sig í flutningi á barokktónlist frá Ítalíu. "Sólveig er ástin mín, en svo kemur lútan", sagði lútuleikarinn Sergio Coto Blanco, sem undirbýr ásamt hörpuleikaranum Sólveigu Thoroddsen og sópransöngkonunni Ievu Sumeja tónleika sem þau flytja í Einarssafni á sunnudag og nefna Grátandi steinar. Við fáum útskýringu á nafngiftinni hér síðar, en á efnisskránni eru meðal annars sönglög eftir tvær stórmerkilegar konur, þær Barböru Strozzi og Fransescu Caccini, sem voru meðal mikilvægustu barokktónskálda á Ítalíu upp úr aldamótunum 1600. En við hefjum þáttinn á fréttum frá menningarvígi Austurlands, Seyðisfirði. Víðsjá sló á þráðinn til Sesselíu Hlínar Jónasardóttur, en hún var í mörg ár ein af hvatamanneskjunum á bak við Lunga, Listahátíð ungs fólks á Austfjörðum, en stendur líka að baki annari menningarveislu sem hefst á morgun og kallast List í ljósi. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Sally Mann, Skeljar og Kristín Þorvaldsdóttir, huldukona í íslenskri myndlist

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 10, 2025 53:43


Á Listasafni Ísafjarðar stendur nú yfir merkileg myndlistarsýning. Um er að ræða sögusýningu, og að öllum líkindum fyrstu einkasýningu, myndlistarkonunnar Kristínar Þorvaldsdóttur. Kristín var fædd á Ísafirði árið 1870 og fór 12 ára gömul til Kaupmannahafnar í myndlistarnám. Hún lærði líka í Þýskalandi og hugði á framhaldsnám í Róm þegar hún var kölluð heim til að annast börn systur sinnar, sem hafði látist af barnsförum. Kristín var hæfileikarík og vel menntuð og hefði vel getað orðið fyrsta íslenska konan til þess að helga sig myndlist. En eftir þennan örlagaríka atburð hætti hún alfarið að mála og lokaði verk sín ofan í læstum skúffum. Hún er því sannkölluð huldukona í íslenskri myndlist, en þær Rannveig Jónsdóttir og Guðfinna Hreiðarsdóttir, á Listasafni Ísafjarðar, hafa nú haft upp á úrvali verka hennar og sett saman sýningu Kristínu til heiðurs. Nýverið voru fjórar ljósmyndir eftir Sally Mann teknar niður af veggjum nýlistasafnsins í bænum Forth Worth í Texas, og í síðustu viku var staðfest að ljósmyndirnar væru í haldi lögreglu. Yfirtaka lögreglunnar á listaverkunum kom i kjölfar mikillar gagnrýni íhaldsafla í bænum sem segja verkin vera barnaklám. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ljósmyndir Sally Mann vekja umtal og gagnrýni. Verk hennar vöktu heitar umræður þegar þær komu fyrst fyrir sjónir almennings og hafa gert það reglulega síðan. Mann er einn virtasti ljósmyndari Bandaríkjanna, hefur sýnt verk sín í öllum helstu söfnum landsins og miklu víðar, gefið út verðlaunaðar bækur og hlotið fjölda viðurkenninga. Viðfangsefni verka hennar eru fjölbreytt en, líkamar, umbreytingaferli og landslag eru rauður þráður í verkum hennar, sem og fagurfræði ljósmyndatækni síðustu og þar síðustu aldar. Og það vill svo skemmtilega til að verk hennar eru nú til sýnis á Listasafni Íslands, á samsýningunni Nánd hversdagsins þar sem fimm alþjóðlegir ljósmyndarar eiga verk. Við hittum Einar Fal Ingólfsson við verk Mann í þætti dagsins. Við heyrum einnig leikhúsrýni, að þessu sinni rýnir Katla Ársælsdóttir í Skeljar, nýtt íslenskt verk eftir Magnús Thorlacius sem sýnt er í Ásmundarsal. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Lífið- leiksýning, Brúðkaup Fígarós/rýni, Jelena Ciric/tónlistarpistill

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 6, 2025 53:41


Í dag flytur tónlistarkonana Jelena Ciric sinn annan pistil um tónlistarmenn sem gáfu aðeins út eina hljómplötu á ferlinum en sem höfðu samt sem áður mikil áhrif á söguna. Pistill dagsins fjallar um þau Jeff Buckley og Sophie, en bæði létust langt fyrir aldur fram. Stjarna beggja skín enn skært, og stjarna Buckley sérstaklega síðustu daga því nýverið var frumsýnt heimildamynd um hann á Sundance kvikmyndahátíðinni sem hefur hlotið lofsamlega dóma. Trausti Ólafsson verður einnig með okkur í dag, að þessu sinni rýnir hann í uppfærslu Kammeróperunnar á Brúðkaupi Fígarós í Borgarleikhúsinu. Og við fjöllum einnig um leiksýningu sem hlýtur að vera ein sú langlífasta og víðförulasta sem íslenska sviðið hefur getið af sér. Leiksýningin Lífið, sem leikhúsið 10 fingur setti upp árið 2014 dansar á mörkum leikhúss og myndlistar þar sem leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson og Sólveig Guðmundsdóttir standa á sviðinu í mold og drullumalla Lífið fyrir áhorfendur. Leiksýningin hlaut tvenn grímuverðlaun árið 2015 sem barnasýning ársins og sproti ársins. Þó að það séu rúm tíu ár frá frumsýningu leiksýningarinnar þá lifir hún enn góðu lífi og hefur verið sýnd víða um heiminn. Við setjumst niður með þeim Sveini og Sólveigu og heyrum af þessu óvenjulega ferðalagi. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Stefán Máni - Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 5, 2025 54:49


Margverðlaunaði metsöluhöfundurinn Stefán Máni er einhver afkastamesti rithöfundur landsins og heldur á næsta ári upp á 30 ára rithöfundaafmæli sitt með fleiri en 30 bækur útgefnar. Hann er fæddur í Reykjavík en ólst upp í Ólafsvík og bjó þar fram yfir tvítugt. Stefán Máni hefur gefið út skáldsögur frá árinu 1996 en sló í gegn með glæpasögunni Svartur á leik árið 2004, sem kvikmynduð var nokkrum árum síðar. Söguna vann hann upp úr úrklippusafni sem hann hafði byggt upp frá því að hann var barn, úrklippum um glæpi, mannshvörf og fleiri skyld áhugamál. Hann segist hafa verið algjör introvert, og að á þeim tíma hafi upplestur á eigin verkum verið algjört kvalræði í hans huga. En hann neyddist til að vinna sig út úr sjálfsefanum því allt í einu var komin eftirspurn eftir því sem hann var að gera. Nokkru síðar kynnti Stefán Máni lögreglumanninn Hörð Grímsson fyrir lesendum sínum, og síðan hafa komið út 12 bækur um Hörð, sem er einhver vinsælasta sögupersóna íslenskrar bókmenntasögu. Stefán Máni hefur hlotið Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, fjórum sinnum, nú síðast fyrir skáldsöguna Dauðinn einn var vitni, en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í síðustu viku. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Skógarhögg Thomas Berhard, karókílög Alter-Eyglóar á Ölveri, Ungfrú Ísland/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 27, 2025 57:48


Við lítum inn á eina elstu krá bæjarins, Ölver sportbar, en þar stendur tónskáldið og sviðslistakonan Eygló Höskuldsdóttir Viborg fyrir viðburðum í vikunni í nafni hliðarsjálfsins Alter-Eyglóar. Í tilraun til þess að snúa á alræði streymisveitanna og finna leið til að lifa á tónlistinni ákvað Eygló, sem stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Berklee og NYU, að skella í nokkur poppkennd karókílög. Á Ölveri gefst gestum viðburðarins kostur á að spreyta sig á þessum glænýju karókílögum og fylgja Alter Eygló inn í hugleiðingar um neyslu á tónlist og vinnuna sem liggur að baki. Leikverkið Ungfrú Ísland var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 17.janúar síðastliðinn. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur en það eru þau Gréta Kristín Ómarsdóttir og Bjarni Jónsson sem unnu leikgerðina, og Gréta Kristín leikstýrir jafnframt verkinu. Við heyrum hvað einum af leikhúsrýnum þáttarins fannst um þessa leikgerð, en að þessu sinni er það Katla Ársælsdóttir sem rýnir. En við byrjum þáttinn á því að kynna okkur splunkunýja þýðingu á verki sem kom fyrst út í Austurríki árið 1984. Skógarhögg-geðshræring, eftir Thomas Bernhard, olli mikilli ólgu í menningarlífi Vínarborgar þegar hún kom út og var fjarlægð úr bókabúðum vegna átaka um ærumeiðingar. Bókina þýddi Hjálmar Sveinsson, sem segir bókina eiga einstaklega vel við okkar tíma. Tíma sem einkennist af leit okkar, hér í velmegunarþjóðfélögunum, að sannleika, með ýmsum leiðum, því það sé einhver kjarni sem við söknum úr lífinu. Þrá í sannleika, en einnig fegurð, sé að hans mati kjarni bókarinnar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Hjálmar H Ragnarsson / Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 22, 2025 50:38


Hjálmar H Ragnarsson er fæddur og uppalinn á Ísafirði, sonur Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H Ragnar. Faðir hans var skólastjóri tónlistarskólans á Ísafirði, sem þá var hýstur að stórum hluta á heimili þeirra, svo Hjálmar ólst bókstaflega upp umkringdur tónlist. Hann segir þó að ýmislegt annað hafi komið til greina, þegar hann velti fyrir sér framtíðinni, því á heimilinu voru hin ýmsu mál rædd og krufin og áhugasviðin mörg og djúp. Baráttuandi, ástríða og forvitni hafa leitt Hjálmar áfram og hugur hans ekki síst leitað á jaðarinn, til þess smæsta og hins stærsta. Hann hefur alla tíð tekið virkan og leiðandi þátt í félagsstarfi listamanna og menningarpólitík og var fyrsti rektor Listaháskóla Íslands. Hjálmar hlaut námsstyrk til að stunda háskólanám í tónlist í Brandais háskólanum í Boston snemma á áttunda áratugnum. Þar kynntist hann raftónlist, sem átti hug hans allan á þeim árum þegar ein tölva fyllti heilt herbergi og tónskáld og áhugafólk um hljóðgjafa voru að taka fyrstu tunglskrefin á sviði raftónlistar. Eftir námsdvöl í sónólógíu í Utrecht í Hollandi snéri hann þó aftur til Bandaríkjanna, þar sem hann lauk námi í tónfræði og tónsmíðum við Cornell háskólann og vann mikilvægt frumkvöðlastarf með rannsóknum sínum á tónlist Jóns Leifs. Hjálmar H Ragnarsson hefur verið atkvæðamikill sem tónskáld hér á landi allt frá námslokum og verkaskrá hans er gífurlega fjölbreytt. Á sunnudaginn flytur Cantoque ensemble úrval kórverka Hjálmars á tónleikum Myrkra músíkdaga í Hallgrímskirkju og frumflytur þar glænýtt verk úr smiðju Hjálmars, sem hann samdi við ljóð Snorra Hjartarsonar, Vakir, vakir þrá mín. Hjálmar H Ragnarsson er gestur svipmyndar í Víðsjá dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 21, 2025 54:13


,,Ég treysti sjálfri mér og hef trú á þessu tæki sem listmeðferðin er. Hún er tæki til að tjá tilfinningar sínar og vinna með og losa sig við erfiðar tilfinningar. Myndsköpunin er þá notuð til að vinna með sig persónulega og til að þroskast í gegnum." - er meðal þess sem haft er eftir myndlistarkonunni og listþerapistanum Sigríði Björnsdóttur í bók þeirra Ágústu Oddsdóttur og Egils Sæbjörnssonar um ævistarf Sigríðar, Art can Heal. Á fimmtudag verður blásið til málþings um listmeðferð til heiðurs Sigríði, á vegum Listasafns Íslands og Myndlistarmiðstöðvar. Þau Ágústa og Egill koma við í hljóðstofu og segja okkur frá eiginleikum listmeðferðar og starfi Sigríðar. Við fáum líka pistil frá Gauta Kristmannssyni, sem að þessu sinni fjallar um ljóðasafn norska stórskáldsins Olav Hauge, Undir eplatrénu. Ljóðasafnið er að mestu fengið úr síðustu þremur bókum Hauges en Gyrðir Elíasson íslenskaði og ritaði formála. Við höldum líka áfram umfjöllun um kvikmyndaleikstjórann David Lynch. Lynch málaði heiminn í sterkum, dulúðugum og súrrealískum litum, sem virðast á stundum koma úr annari vídd, og bjó til andrúmsloft sem hefur einfaldlega verið kallað lynchían. Við ætlum að velta þessari lynchian tilfinningu fyrir okkur í þætti dagsins með Rúnari Rúnarssyni kvikmyndaleikstjóra, Ásgrími Sverrissyni kvikmyndagerðamanni, Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastýru bíó paradís og Evu Rún Snorradóttur rithöfundi og sviðslistakonu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Hallgrímur Árnason/Ró og Æði, David Lynch og árið 2024 í arkitektúr/Magnea Guðmundsdóttir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 20, 2025 54:53


David Lynch sótti Ísland heim árið 2009 og þá tók kvikmyndafræðingurinn Sigríður Pétursdóttir viðtal við hann í útvarpsþættinum Kviku. Þau ræddu meðal annars innhverfa íhugun, en David Lynch hefur verið mikill talsmaður hugleiðslu í sinni nálgun. Hann líkti hugmyndum við fiska; Ef þú vilt veiða litla fiska, haltu þig í grunnu vatni. En ef þú vilt ná stórum fiskum þarftu að fara á dýpið, sagði hann meðal annars. Við heyrum brot úr viðtali Sigríðar Pétursdóttur og David Lynch í síðari hluta þáttar og bendum áhugasömum á það að í kvöld, kl 20 á íslenskum tíma, fer fram hóphugleiðsla í nafni afmælisbarnsins um heim allan. Tilvalið tækifæri fyrir lærða og leikna að opna hugann og veiða stóra fiska. Við heyrum einnig hugleiðingar Magneu Guðmundsdóttir arkitekts um það sem árið 2024 færði okkur í arkitektúr. Þar ber græna vegginn við Álfabakka auðvitað einna hæst en ef það er eitthvað sem við getum lært af því klúðri, segir Magnea, þá er það að mannvirkjagerð snýst ekki bara um að reisa veggi. Það þarf að gera betur og mennskan og umhverfið ættu alltaf að vera samhengið og forsendan. En við byrjum á því að fara vestur á Granda, í Listval, þar sem Hallgrímur Árnason opnaði um liðna helgi sýninguna Ró og æði. Hallgrímur flutti til Vínar fyrir rúmum áratug til þess að læra arkitektúr. Fyrir röð tilviljana, í bland við ást og kórónaveirufaraldur, starfar hann í dag sem myndlistarmaður og er á kafi í málverkinu. Það má þó segja að hann hafi ekki alveg sagt skilið við arkitektúrinn þvi efniskennd og rými eru honum hugleikin á striganum. Sem og áferð og tími. Hann sér endapunkt verkanna aldrei fyrir og segir tilhlökkunina eftir óvæntri útkomunni vera drifkraftinn að baki sköpuninni. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Tóma rýmið, Molly Drake og Kundera: Vesturlönd í gíslingu/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 13, 2025 54:08


Í yfirgefnu bílaverkstæði við Skeljanes í Reykjavík hefur hópur sviðslistafólks komið sér fyrir með starfsemi undir yfirskriftinni Tóma rýmið. Þar hafa þau æfingaaðstöðu og rými til þess að prófa áfram og sýna verk á mismunandi stigum í undirbúningsferlinu. Hluti af starfsemi Tóma rýmisins felst í mánaðarlegum tilraunakvöldum, þar sem meðlimir hópsins bera á borð verk í vinnslu eða gera tilraunir í samtali við áhorfendur. Tilraunakvöld janúarmánaðar fer fram í Tóma rýminu í kvöld. Þar verður áhorfendum meðal annars boðið upp á brot úr leikverkinu Skeljar, eftir Magnús Thorlacius, og lifandi tónlistarmyndband úr smiðju systkinana Snæfríðar Sólar og Kormáks Jarls, en gestum býðst líka að skella sér í sánu við sjóinn eftir viðburðinn. Við hittum þau Snæfríði og Magnús og heyrum nánar af starfsemi Tóma rýmisins. Við ætlum líka að kynna okkur tónlistarkonuna Molly Drake sem var algjörlega óþekkt sem listakona á meðan hún lifði. Molly var bresk millistéttarhúsmóðir í litlu sveitaþorpi nálægt Birmingham þegar hún samdi nær alla sína tónlist. Hún skrifaði ljóð og lagatexta og samdi melódíur á heimilispíanóið, fyrst og fremst fyrir sjálfa sig. Molly datt aldrei í hug að gefa tónlistina sína út en þökk sé eiginmanni hennar eru til upptökur sem hann tók upp á heimili þeirra. Þessar upptökur voru gefnar út löngu eftir dauða Mollyar, þegar sonur hennar, Nick Drake, var orðinn heimsfrægur tónlistarmaður. Gauti Kristmannsson verður líka með okkur í dag og fjallar að þessu sinni um Vesturlönd í gíslingu - eða harmleik um Mið-Evrópu, tvær ritgerðir tékkneska rithöfundarins Milan Kundera, í þýðingu Friðriks Rafnssonar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Vínartónleikar, Áslaug Jónsdóttir og Yerma/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 9, 2025 54:30


Í gær var veisla hér í Útvarpshúsinu þegar Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar að viðstöddum viðurkenningarhöfum og gestum. Veittar voru tvær viðurkenningar úr Rithöfundasjóði og tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu. Mugison fékk Krókinn, verðlaun fyrir framúrskarandi lifandi flutning, og tilkynnt var um valið á orði ársins 2024, sem er hraunkælingarstjóri, eins og komið hefur fram í fréttum. Birnir Jón Sigurðsson hlaut hvatningarverðlaun Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, en þetta árið er það Áslaug Jónsdóttir sem er handhafi viðurkenningar Rithöfundasjóðs RÚV. Ásdís segir sjálf að hún sé bókverkakona, en frá 1990 hefur hún ritað og myndlýst fjölda barnabóka, skrifað ljóð og leikrit, auk þess að taka þátt í myndlistar- og bókverkasýningum. Hennar nýjustu sköpunarverk eru ljóðabókin Til minnis og limrubókin Allt annar handleggur, sem komu út árið 2023 og Skrímslaveisla sem kom út í fyrra, en Ásdís er sennilega þekktust fyrir bækurnar um skrímslin sem eru orðnar 11 talsins. Ásdís verður gestur okkar í þætti dagsins. Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fara fram í Eldborg Hörpu í kvöld og næstu tvo daga. Sambærilegir viðburðir fara fram í öllum helstu borgum Evrópu í upphafi árs og tónleikum Vínarfílharmóníunnar er sjónvarpað um heim allan á nýársdag. Vinsældir vínartónleika eru gífurlegar og áheyrendur flykkjast í tónleikasalina til fagna hefðinni og nýju ári í lakkskóm og pallíettukjólum. Margir gætu haldið að rætur slíkra hátíðahalda lægju í menningarblóma 19. aldar. En sagan er talsvert styttri en svo og á sér raunar nokkuð dökkar hliðar. Við heyrum einnig leikhúsrýni í þætti dagsins. Að þessu sinni rýnir Katla Ársælsdóttir í jólasýningu Þjóðleikhússins, Yermu eftir ástralska leikskáldið Simon Stone. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Víðsjá og Lestin líta yfir farinn veg og til framtíðar - Fyrri hluti

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 2, 2025 50:41


Sameiginlegur þáttur Víðsjár og Lestarinnar í upphafi ársins 2025. Í þáttum dagsins höldum við úr húsi, förum inn í lágvöruverslunina Prís í Kópavogi, verslunarmiðstöðina Eiðistorg á Seltjarnarnesi, vöðum slabbið út í strætóskýli og tökum líka upp tólið og hringjum út á land: austur, vestur, norður og suður. Hvað var fólk í Prís að hugsa rétt eftir jólin og hvað finnst unglingum á Eiðistorgi um bækur? Hvaða áhrif hefur risa myndlistarsýning á verkum Roni Horn í strætóskýlum á gangandi vegfarendur, nú eða akandi strætóbílstjóra? Hvað er low taper fade, hvað er best að gera á Benidorm og hvernig leggst þetta nýja ár í okkur? Umsjón: Kristján Guðjónsson, Halla Harðardóttir, Lóa Björk Björnsdóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Jólalag ríkisútvarpsins 2024, Guðrún Hannesdóttir - Kallfæri, Sporðdrekar/rýni, Himintungl yfir heimsins ystu brún/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 19, 2024 47:53


Í lok Víðsjár verður jólalag ríkisútvarpsins árið 2024 frumflutt, ásamt kynningu höfundar á laginu. Frá því í október hafa umfjallanir um bækur raðast inn í vikurnar í Víðsjá, eins og jólaskraut á tré. Bókarýnarnir okkar þrír hafa tínt upp úr jólakistlinum fjölbreyttar gjafir flóðsins og fært í samhengi og í dag veljum við úr kistlinum dýrindis gripi. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um skáldsögu Jóns Kalman, Himintungl yfir heimsins ystu brún og Sölvi Halldórsson fjallar um skáldsögu Dags Hjartarsonar, Sporðdreka. Þessa vikuna höfum við fjallað um ljóðabækur, sem eru eins og fíngerðasta og fallegasta skrautið, gripirnir sem raðast efst á tréð. Og í þessum síðasta þætti fyrir jól fær undurfögur og lítillát ljóðabók að bregða sér í hlutverk stjörnunnar á toppi trésins, það er ljóðabókin Kallfæri, eftir Guðrúnu Hannesdóttur. Bókin er tíunda ljóðabók Guðrúnar, sem hélt upp á áttræðisafmæli sitt í sumar, en gaf út sína fyrstu ljóðabók árið 2007. Guðrún heimsótti hljóðstofu Víðsjár í morgun. Með frumflutningi jólalags ríkisútvarpsins 2024 í lok þáttar óskar Víðsjá hlustendum sínum bjartra og gleðilegra jóla og þakkar samfylgdina á árinu sem er að líða. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Æskuteikningar Alfreðs Flóka, Veður í Æðum og Þegar sannleikurinn sefur/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 16, 2024 51:50


Ragnheiður Lárusdóttir steig fram á ritvöllinn 2020 með ljóðabókina 1900 og eitthvað og hlaut í kjölfarið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og tilnefningu til Maístjörnunnar. Þessi fyrsta ljóðabók hennar byggði á bernskuminningum að vestan, en sú næsta, Glerflísakliður, fjallaði meðal annars um veikindi móður Ragnheiðar og erfiðan skilnað. Í síðustu bók sinni, Kona/Spendýr sem kom út 2022 beindi hún sjónum sínum almennt að hlutverki kvenna, sem lifa í heimi hönnuðum af körlum. Í sinni nýjustu ljóðabók, Veður í æðum, er Ragnheiður einnig persónuleg og yrkir um þá lífsreynslu að missa dóttur sína í heim fíkninnar, en líka um fegurðina og lífið sem gengur sinn vanagang þrátt fyrir allt. Halla ræðir við Ragnheiði í þætti dagsins. Við fáum líka bókarýni frá Sölva Halldórssyni, sem að þessu sinni rýnir í nýútkomna glæpasögu Nönnu Rögnvaldsdóttur, Þegar sannleikurinn sefur. En við hefjum þáttinn á því að grúska aðeins í gömlum teikningum. Nú eru til sýnis og sölu í Gallerí Fold æskuteikningar Alfreðs Flóka sem flestar eru frá árunum 1948-1952. Teikningarnar varðveittust innan fjölskyldunnar og þar má sjá inn í hugarheim hins unga Flóka og þekkja kunnugleg stef sem birtust í listaverkum hans ferilinn allan. Framan af voru hugðarefnin dæmigerð fyrir 11 og 12 ára gamlan strák, löggur og bófar, indjánar og kúrekar, þjóðsögur og ævintýri, Charlie Chaplin og Mikki mús, táfýla og yfirburðir KR svo eitthvað sé nefnt. Mikill húmor er í mörgum teikningunum, en einnig ber á ádeilu. Við lítum við á Rauðarárstígnum og ræðum um sýninguna við sýningarstjórann, Iðunni Vignisdóttur. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Þórarinn Eldjárn - Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 11, 2024 51:04


Þórarinn Eldjárn fæddist í Reykjavík árið 1949. Megnið af uppvaxtarárunum bjó hann í Þjóðminjasafninu, eða þar til að faðir hans, Kristján Eldjárn, varð forseti Íslands og fjölskyldan flutti á Bessastaði. Heimilislífið einkenndist af húmor og unun af skáldskap og bestu tilsvörin voru í bundnu máli. Þórarinn lærði bókmenntafræði og heimspeki í Lundi í Svíþjóð og segist kannski meðvitað hafa reynt að læra eitthvað sem gerði hann lítt hæfan á almennum vinnumarkaði. Þórarinn var heimavinnandi húsfaðir í Svíþjóð þegar hann gaf út sína fyrstu bók, ljóðabókina Kvæði árið 1974. Bókin vakti mikla athygli og með henni skapaði Þórarinn sér strax sína sérstöðu; að yrkja háttbundin ljóð utan um hversdagsleg viðfangsefni, þar sem kímnin er aldrei langt undan. Þessi einkenni hafa fylgt skáldskap Þórarins alla tíð síðan þó hann hafi fljótlega afsannað það fyrir sjálfum sér og öðrum að hann þyrfti á bragarháttunum að halda til þess að koma frá sér góðum texta. Það er óhætt að segja að Þórarinn sé afkastamikill höfundur. Á 50 ára starfsævi hefur hann sent frá sér fjöldan allan af ljóðabókum, skáldsögum og smásagnasöfnum auk þess að vera ötull þýðandi. Hann hefur auk þess samið fjölda ljóðabóka fyrir börn í samstarfi við systur sína Sigrúnu Eldjárn og hlotið fyrir þær fjölmargar viðurkenninar. Þórarinn var borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2008 og hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu árið 1998. Auk þessa hafa bækur hans hlotið Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana. Skáldsaga hans Brotahöfuð var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 1999 og 2013 hlaut hann Viðurkenningu Sænsku akademíunnar fyrir kynningu á sænskri menningu erlendis. Þórarinn Eldjárn er gestur okkar í svipmynd dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Gluggagallerí, Stargate og Leiðin í hundana

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 9, 2024 49:48


Við höfum aðeins spilað og rætt um jólalög og jólatónlist, sem er sérstaklega til þess fallin að koma okkur í jólaskapið á aðventunni. Og við höfum vissulega rætt um bækur og hið svokallaða jólabókaflóð, þó þar séu fáar bækur sem beinlínis teljast jólasögur. En það leynist samt amk ein slík í flóðinu, norska skáldsagan Stargate, eftir Ingvild Rishøi. Sagan minnir um margt á eina þekktustu jólasögu hins norræna heims, Litlu stúlkuna með eldspýturnar eftir HC Andersen, en Stargate er sögð frá sjónarhorni 10 ára stúlku sem býr í fjölmenningarhverfinu Tøyen í Osló. Við hringjum í Kari Ósk Grétudóttur, íslenskan þýðanda Stargate. Gluggagalleríið STÉTT er nýtt sýningarrými í Reykjavík, staðsett í glugga í Bolholti 6 í Reykjavík. Umsjón með þessu nýja rými eru listamennirnir Steinunn Gunnlaugsdóttir og Snorri Páll Jónsson. Glugginn er í sama húsi og Sósíalistaflokkurinn en galleríið er ekki flokkpólitískt, umsjónarmenn segjast vera einhverskonar stjórnleysingjar í glugga stjórnmálaflokks. Fyrsta sýning Stéttar var samsýning nokkurra listamanna sem opnaði í mars, en héðan í frá verða þar einkasýningar þar sem listamönnum býðst að taka gluggann yfir og umbreyta honum. Nú sýnir listeindin sadbois þar listaverkleysuna Málvernd. Sadbois koma ekki fram undir nafni, en segjast vera „ómannlegur andlitslaus skjöldur almennra borgara sem leggja stund á neikvæða starfsemi fjármagnaða með opinberum styrkjum“. Gauti Kristmannsson verður einnig með okkur í þætti dagsins. Að þessu sinni fjallar hann um eitt af höfuðverkum þýskra bókmennta á tuttugustu öld, Leiðin í hundana eftir Erich Kästner. Kästner var einn þeirra höfunda sem lentu í ónáð nasista, Hann var viðstaddur þegar hans eigin bækur voru brenndar á báli í Berlín árið 1933 og sat um tíma í fangelsi fyrir skoðanir sínar. Leiðin í hundana kom nýverið út í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Óli K, píanóhátíðin Slagharpan syngur og handhafi The Booker Awards

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 28, 2024 52:17


Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans voru kynntar við hátíðlega athöfn í Eddu í gær. Ein þeirra bóka sem tilnefnd er í flokki fræðibóka og rita almenns efnis er Óli K, en hún fjallar um Óla K. fyrsta fastráðna blaðaljósmyndara Íslands. Óli K. fór til Bandaríkjanna í nám á stríðsárunum og hóf svo störf Morgunblaðinu árið 1947 þar sem hann vann í 49 ár. Hann var einn þeirra sem skrásetti sögu landsins og var viðstaddur fjölda mikilvægra atburða í sögu þjóðarinnar, Natómótmælin á Austurvelli, Vestmannaeyjagosið, Kvennafrídaginn, komu handritanna og heimsókn Ellu Fitzgerald til landsins, svo eitthvað sé nefnt. Það er sagnfræðingurinn Anna Dröfn Ágústsdóttir sem ritaði sögu Óla K. og við ræðum við hana í þætti dagsins. Við hugum einnig að erlendum bókmenntum, nánar tiltekið bandarískum bókmenntum. Í síðustu viku fór fram verðlaunaafhending The National Book Award vestanhafs. Verðlaun voru veitt í fimm flokkum en skáldsagnaverðlaunin sem fara gjarnan hæst hlaut höfundurinn Percival Everett fyrir bókina James, sem er endursögn á heimsbókmenntinni Huckleberry Finn eða Stikkilsberja Finni, eftir Mark Twain. Tómas Ævar segir frá bókinni í þætti dagsins. Og við kynnum okkur nýja tónlistarhátíð, Slagharpan syngur. Á hátíðinni er íslensk píanótónlist frá hinum ýmsu tímabilum í forgrunni og flutt. Hátíðin samanstendur af fjöbreyttum viðburðum s.s. tónleikum, fyrirlestrum og kynningum og er opin öllum áhugasömum. Píanóleikararnir Erna Vala Arnardóttir, Peter Mate og Nína Margrét Grímsdóttir standa að hátíðinni og þau Peter og Erna Vala líta við í hljóðstofu til að segja nánar frá henni. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Á okkar máli, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, Reykjavík Dance Festival/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 21, 2024 52:04


Fyrir nokkrum árum síðan varð myndlistarkonan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir vör við fjölgun flóttamanna í heimabæ sínum, Hafnarfirði. Hún tók líka eftir því að þar var fátt sem greip fólkið og ákvað að hafa frumkvæði að því að búa til vettvang þar sem fólk með ólíkan bakgrunn hefði tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í samfélaginu. Úr varð fjölbreytt starf með reglulegum listasmiðjum, viðburðum og samverustundum og stofnun hjálparsamtakanna GETU, sem styður við flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Hafnarfirði, Kópavogi og nágrenni. Hafnarborg er meðal samstarfsaðila GETU og þar verður á laugardag boðið upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem arabísk leturtákn verða innblástur fyrir listræna sköpun, undir leiðsögn listamannanna Yöru Zein og Ingunnar Fjólu. Við lítum við á vinnustofu þeirra í hafnarfirði og heyrum af viðburðinum og samstarfinu. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð fyrir 20 árum og heldur upp á það með tvennum tónleikum í Langholtskirkju um helgina. Sveitin var stofnuð um það leyti sem sett var tónlistardeild við Listaháskóla Íslands því það vantaði vettvang fyrir nemendur Gunnsteinn Ólafsson hljómsveitarstjóri er einn stofnenda hljómsveitarinnar og verður gestur okkar í þætti dagsins. Reykjavík Dance Festival lauk eftir nokkurra daga veislu síðastliðinn sunnudag. Katla Ársælsdóttir og Nína Hjálmarsdóttir fóru á nokkrar sýningar sem þær munu rýna í, í þætti dagsins og í næsta þætti. Katla ríður á vaðið í dag með umfjöllun um Konukroppa og When a duck turns 18 a boy will eat her. En við hefjum þáttinn á símtali við semballeikarann Halldór Bjarka Arnarson, sem búsettur er í Sviss, en heldur tónleika undir yfirskriftinni Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, í Breiðholtskirkju á laugardag. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Hallveig Rúnarsdóttir - Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 20, 2024 53:33


Hallveig Rúnarsdóttir kemur úr mikilli tónlistarfjölskyldu og vissi snemma að hún myndi syngja mikið alla ævi. Hún ætlaði samt ekki endilega að verða söngkona, langaði frekar að verða leikkona og dreymdi um að komast í Guildhall School of Music and Drama í London sem slík. En söngurinn tók yfir og Hallveig endaði í óperudeild skólans. Hún er oft spurð að því hvort alþjóðlega óperusviðið hafi ekki heillað hana en dreymdi miklu frekar um að verða alhliða söngvari. Það hefur sannarlega orðið úr, og verkefnalistinn er orðinn langur og fjölbreyttur, á um 33 ára ferli. Hallveig hefur sungið þó nokkur óperuhlutverk og kemur reglulega fram með Sinfóníuhljómsveit íslands. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins í sígildri- og samtímatónlist árið 2013 fyrir hlutverk sitt sem Michaëla í Carmen hjá Íslensku óperunni, og aftur árið 2018 fyrir hlutverk sitt sem Gilitrutt og söng sinn á Klassíkinni okkar með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún hefur verið sérstaklega virk í flutningi nýrrar tónlistar og er listrænn stjórnandi og stofnandi tónlistarhópsins Cantoque Ensemble, sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir flutning sinn. Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir er gestur Svipmyndar í Víðsjá dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Börn í Reykjavík, prjónaiðnaður og sellóverk Veronique Vöku

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 18, 2024 55:03


Við hefjum þátt dagsins á nýju tónverki af plötu sem kom út í síðustu viku, Neige éternelle, five pieces for solo cello, eftir tónskáldið Veronique Vöku, í flutningi Sæunnar Þorsteinsdóttur. Veronique Vaka hefur búið hér á landi frá því að hún útskrifaðist með meistarpróf í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og eru verk hennar innblásin af íslenskri náttúru. Á þessari nýju plötu er að finna fimm verk en hvert og eitt þeirra túlkar eitt skeið í myndun jökuls. Þær Sæunn hafa starfað saman í nokkurn tíma en þessi plata sprettur úr sellókonstertinum Gemæltan sem Veronique samdi sérstaklega fyrir Sæunni og sem var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna í fyrra. Við kynnum okkur nýútkomið stórvirki, Börn í Reykjavík, eftir Guðjón Friðriksson. Bókin er stór og vegleg, vandlega upp sett og hana prýða hátt í sex hundruð ljósmyndir. Börn í Reykjavík var skrifuð að beiðni Barnavinafélagsins Sumargjafar, í tilefni af 100 ára afmæli félagsins, og er skrásett saga barna í Reykjavík frá því seint á 19. öld og fram til okkar daga. Þar er sagt umhverfi barna, námi þeirra og skyldum, leikjum, skemmtunum og félagsstarfi, auk þess sem fjallað er um þróun í barnaverndar-, uppeldis- og skólamálum. Guðjón lítur við í hljóðstofu og segir okkur aðeins af bókinni. Prjónavetur í Lista­safni Sigur­jóns í Laugar­nesi er röð sýn­inga og við­burða sem hófust um liðna helgi um munu standa fram á vor. Þær Brynhildur Pálsdóttir, hönnuður og ein af stofnendum Vík Prjónsdóttur, og Andrea Fanney Jónsdóttir, klæðskeri og prjónahönnuður, standa að baki verkefninu en markmiðið er að varpa ljósi á þá prjónahönnun sem hefur verið framleidd á Íslandi síðustu ár og einnig velta upp stöðu prjónaiðnaðarins, sem þær telja að standi höllum fæti. Prjónaveturinn hefst með sýningunni För, þar sem Andrea Fanney sýnir flíkur sem hún hefur hannað og framleitt síðustu ár. Flíkurnar eru innblásnar af fuglalífi höfuðborgarinnar en hver flík er sprottin úr minningum af fuglum og manneskjum sem þeim tengdust. Staðsetning sýninga og viðburða í Listasafni Sigurjóns er engin tilviljun því Andrea tengist Laugarnesinu sterkum böndum og er ein þeirra sem berst gegn uppbyggingu Faxaflóahafn og Veitna á svæðinu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Veður fyrir Veðurstofuna, Heimur í orðum, Rúmmálsreikningur/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 14, 2024 53:24


Á laugardaginn opnar samsýningin Veður fyrir veður í húsnæði Veðurstofu Íslands og í undirgöngunum þar sunnan við. Sýningarstjórn er í höndum þeirra Söru Riel og Eddu Ýrar Garðarsdóttur en markmið sýningarinnar er, að sögn Söru, að gefa sálarfæði inn í hversdaginn, fyrir starfsfólk Veðurstofunnar. Sýningin samanstendur af úrvali verka íslenskra listamanna, sem eiga það sameiginlegt að hverfast um veðrið. Hún fær að standa í sex mánuði fyrir starfsfólk Veðurstofunnar, en verður opin almenningi þessa einu helgi. Hluti sýningarinnar er þó kominn til að vera, útilistaverk Söru Riel, í undirgöngunum undir Bústaðaveginn. Raunar spratt hugmyndin að samsýningunni út frá útilistaverkinu, sem varð að nokkurs konar samfélagsverkefni síðasta sumar, þegar íbúar Suðurhlíðar tóku þátt í að mála sólskinið inn í göngin. Við könnum veðrabrigðin í göngunum milli lífs og dauða í síðari hluta þáttar. Gauti Kristmannsson verður einnig með okkur í dag. Að þessu sinni rýnir hann í fyrsta og annað bindi af Rúmmálsreikningi Solvej Balle, í þýðingu Steinunnar Stefánsdóttur. En við hefjum þáttinn á því að fara í Eddu þar sem fyrsta handritasýning hússins opnar um helgina. Það var stór stund í vikunni þegar fyrstu handritin voru flutt úr Árnagarði og yfir í nýtt öryggisrými í Eddu. Handritin hafa verið geymd í í Árnagarði síðan í byrjun áttunda áratugarins en 20 ár eru síðan hætt var að sýna handritin þar, vegna lélegrar aðstöðu og ótryggs sýningarrýmis. Handritasýn­ing­ Árnastofnunar var í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu á árunum 2002 til 2013 en var einnig lokað vegna ör­ygg­is­mála. Sýningin Heimur í orðum verður opnuð í Eddu á degi íslenskrar tungu, laugardaginn 16. nóvember, og þá gefst í fyrsta sinn í langan tíma kostur á að sjá þennan ómetanlega menningararf, en meðal handrita á sýningunni eru frægustu íslensku miðaldahandritin, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

ve gar riel fyrir umsj eddu hverfisg melkorka gauti kristmannsson
Víðsjá
Emiliana Torrini - Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 13, 2024 50:24


Emilíana Torrini fór snemma að syngja og spinna upp sögur og segist drifin áfram af forvitni um fólk og fínni blæbrigði í lífinu. Hún ólst upp hjá iðnum foreldrum í Kópavoginum en dvaldi stóran hluta af barnæskunni hjá ömmu á Borgarfirði Eystri og frændfólki í Þýskalandi. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu sextán ára en síðan eru þær orðnar átta og verkefnin fjölmörg og fjölbreytt, meðal annars í samstarfi við nokkrar stórstjörnur tónlistariðnaðarins. Emilíana segir fullkomnunaráráttuna hafa minnkað með aldrinum, og að eftir fertugt hafi hún lært að njóta betur og að vera bara drullusama. Hún er nýkomin heim úr fimm vikna tónleikaferðalagi, þar sem hún fylgdi eftir nýjustu plötu sinni Miss Flower. Og hún er er gestur Svipmyndar í dag. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Reykjavík Dance Festival /Ólöf Ingólfsdóttir, Birta Ásmundsdóttir, Listdans á Íslandi/Ingibjörg Björnsdóttir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 12, 2024 51:50


Reykjavík Dans Festival hefst með pompi og prakt á morgun, miðvikudag, og stendur yfir fram á sunnudag. Hátíðin var stofnuð árið 2002 og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af hápunktum menningarársins. Síðastliðin ár hefur reykjavík dance festival tengt sig við Lókal svo úr hefur orðið ein allsherjar sviðlistahátíð. Við tökum forsmekk á sæluna í þætti dagsins sem verður undirlagður undir dans. Listdans á sér rúmlega hundrað ára sögu á Íslandi, og nú gefst unnendum og áhugasömum tækifæri til að lesa um sögu danslistarinnar í glænýrri og veglegri bók sem ber titilinn Listdans á Íslandi. Þar rekur Ingibjörg Björnsdóttir, dansari, danshöfundur og sagnfræðingur, sögu þeirra sem ruddu braut listdansins hér á landi á síðustu öld og segir frá stofnun og starfsemi Listdansskóla Þjóðleikhússins. Saga Íslenska dansflokksins, barátta hans, andstreymi og sigrar, er síðan meginefni bókarinnar. Ingibjörg segir söguna af innsæi og þekkingu, enda sjálf þátttakandi í sögu danslistar á Íslandi í sjötíu ár, og hún lítur við í hljóðstofu í lok þáttar. Við hugum líka að tveimur nýjum dansverkum sem frumsýnd verða á hátíðinni, When a duck turns 18 a boy will eat her, eftir Birtu Ásmundsdóttur og Eitthvað um skýin, eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Birta rannsakar mörk kvenleikans með hjálp anda. Hugmyndin kviknaði í París, þar sem Birta, á ferð sinni ein um götur borgarinnar, upplifði hvernig karlmenn horfðu á hana á annan hátt en á Íslandi, og hvað það gat verið þreytandi. Í verkinu Eitthvað um skýin veltir Ólöf Ingólfsdóttir fyrir sér eðli og fjölbreytileika tilfinninga, sem svífa um vitundina og eins og ský yfir himininn. Verkið fléttar saman barokksöng og samtímadansi og markmiðið er að sögn höfundar að heiðra tilfinningar í öllum sínum myndum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Strá fyrir straumi, Flothetta og Skálds saga/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 11, 2024 53:10


„Ég stend svona eins og strá fyrir straum og segi með Gretti, ber er hvur að baki nema bróður eigi" - Þetta skrifar Sigríður Pálsdóttir bróður sínum, Páli Pálssyni, skrifara á Stapa, árið 1865. Í bréfasafni Páls hafa varðveist um 250 bréf frá Sigríði á yfir 50 ára tímabili og bréfin eru grunnurinn að nýrri ævisögu Sigríðar, Strá fyrir straumi, sem kemur út á morgun. Bókina skrifar sagnfræðingurinn Erla Hulda Halldórsdóttir og um er að ræða tímamótaverk, þar sem ævisagan veitir heildstæða mynd af hinni söguríku 19. öld, en frá sjónarhorni konu. Þar er staldrað við aðra hluti en í ævisögum karla og fjallað um hið stóra og smáa: Ást, börn og bónorð, líf og dauða, bækur og sjúkdóma, hunda og hordauðar kindur, svo fátt eitt sé nefnt. Erla Hulda segir okkur nánar af bókinni í þætti dagsins. Við höldum okkur á tengdum miðum, en þó af allt öðrum meiði, í síðari hluta þáttar, þegar við kynnum okkur íslenska hönnunarverkefnið Flothettu. Vöruhönnuðurinn Unnur Valdís Kristjánsdóttir er hugmyndasmiðurinn á bak við Flothettu en flotmeðferðin var tilnefnd til hönnunarverðlauna Íslands árið 2020. Kolbrún Vaka Helgadóttir mælti sér mót við Unni Valdísi í Vesturbæjarlauginni til að fá að vita meira um Flothettu og uppruna hugmyndarinnar. Sölvi Halldórsson rýnir í nýútkomna bók Steinunnar Sigurðardóttur, Skálds sögu, þar sem höfundurinn veitir innsýn í eigin hugarheim, ytri og innri aðstæður og aðferðir við skriftir með 74 köflum úr höfundarlífinu. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Dagur Hjartarson/Sporðdrekar, Pétur Thomsen og Tókýó-Montana hraðlestin/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 7, 2024 53:39


Sporðdrekar birtast á ýmsum stöðum í nýútkominni skáldsögu Dags Hjartarssonar með sama titil. Þeir eru eins og lím, endurtekið tema, tákn sem gæti verið tilviljun, eða vitnisburður um eitthvað óumflýjanlegt. Skáldsagan er umfangsmesta verk höfundar til þessa, og að baki útgáfunni er 7 ára meðganga. Ljóðrænn stíll Dags er skammt undan en Sporðdrekar er saga þrungin spennu, pælingum um dauðann og drauma, áföll, afskiptaleysi, vináttu og ytri og innri öfl sem móta manneskjuna. Sagan hverfist um örlagaríkan sólarhring, þann 28. október, og gerist að hluta til í miðborg Reykjavíkur. Við mæltum okkur mót við Dag á Prikinu í morgun. Pétur Thomsen hefur verið heillaður af landslagi og áhrifum mannsins á landslag frá því að hann útskrifaðist úr framhaldsnámi í ljósmyndun í Frakklandi árið 2004. Hann hefur beint linsunni að landslagi borga, sveita og hálendis og skrásett þannig samband manns og náttúru. Síðustu ár hefur hann einbeitt sér að sínu nánasta umhverfi í Grímsnesinu og myndað þar námur, tún, skurði, víði, birki og móabörð og afraksturinn verður til sýnis á sýningunni Landám sem opnar á morgun, 8.nóvember, í Hafnarborg. Ljósmyndirnar eru teknar að næturlægi en ljósmyndarinn lýsir landið upp með flassi til að afmarka sviðið. Við það fá myndirnar á sig vissan eftir-heimsendablæ, þar sem svartur himininn gefur til kynna yfirvofandi vá. Pétur segist vonast til að verkin á sýningunni fái fólk til að velta þessum málum fyrir sér, en ekki síður vonist hann til að áhorfendur fái fagurfræðilega upplifun. Nýverið kom út skáldsagan Tokýó-Montana hraðlestin eftir Richard Brautigan í þýðingur Þórðar Sævars Jónssonar. Þetta er safn hundrað og þrjátíu örsagna sem tengjast persónulegri reynslu höfundar þegar hann dvaldi í Japan og Montana-ríki í Bandaríkjunum. Gauti Kristmannsson rýnir í verkið í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Rúnar Guðbrandsson / Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 6, 2024 52:33


Rúnar Guðbrandsson hafði ekki þolinmæði fyrir einsleitninni á Íslandi á kaldastríðsárunum, ákvað strax eftir menntaskóla að fara eins langt og hann kæmist, og endaði á því að fara að mestu gangandi frá Danmörku, til Indlands og upp í Himalya fjöllin. Útrásin og forvitnin fyrir því því sem er handan hornsins, handan götunnar, hafa verið leiðarstef í lífi hans og hann varð snemma spenntur fyrir leiklist. Sýn Rúnars á leikhús umbreyttist þegar hann 17 ára sá tvær óhefðbundnar leiksýningar í Danmörku. Eftir nám og störf á því sviði þar í landi bættist við margvísleg þjálfun í leiktækni í Póllandi, Ítalíu, Bretlandi, Rússlandi og víðar. Rúnar hefur áralanga reynslu sem leikhúslistamaður bæði á Íslandi og erlendis. Auk þess að starfa sem leikari, höfundur og leikstjóri hefur Rúnar kennt leiktúlkun og fengist við ýmis konar tilraunstarfsemi á vettvangi sviðslista og kvikmynda. Hann stofnaði leikhópinn Lab -Loka árið 1992, sem hefur undir stjórn Rúnars hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna, og Heimilislausa leikhúsið 2015, sem leiddi af sér ýmis leikhúsverkefni á jaðrinum í Evrópu, m.a. með föngum og kynlífsverkafólki. Rúnar lítur á leikhúsið sem orkustöð. Hann segir aðferðafræðina skipta höfuðmáli því það vanti aldrei hugmyndir; leikhúsið sé farvegur til að nema ný lönd. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Halla Þórðardóttir, Sif Margrét Tulinius og Íslenski dansflokkurinn/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 5, 2024 53:03


Við kynnum okkur nýútkomna hljómplötu sem ber titilinn De Lumine, eða varðandi ljósið. Fiðluleikarinn Sif Margrét Tulinius segir titilinn einkennandi fyrir verkin sem hún leikur á plötunni, sem innihalda meira ljós en myrkur þrátt fyrir sterkar andstæður í tónlistinni. Um er að ræða þrjú einleiksverk fyrir fiðlu, eftir jafn mörg íslensk tónskáld, þá Hjálmar H Ragnarsson, Huga Guðmundsson og Viktor Orra Árnason. Sif Margrét kemur til okkar í lok þáttar og segir okkur nánar af verkefninu. Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, en hann fór á frumsýningu hjá Íslenska dansflokknum síðastliðinn föstudag. Flokkurinn sýndi tvö ný verk: Órætt algleymi eftir Margréti Söru Guðjónsdóttur og Hverfa eftir Melkorku Sigríði Magnúsdóttur. En við byrjum á því að heyra af nýrri ljóðabók sem kallast Sólin er hringur. Höfundur bókarinnar Halla Þórðardóttir er atvinnudansari, starfaði með Íslenska dansflokknum í áratug en Sólin er hringur er hennar fyrsta útgefna skáldverk. Það er taktur og töluverður dans í ljóðum Höllu og tengsl líkama og náttúru eru þar rauður þráður. Hún segir þessi tvö listform, dansinn og ljóðið ansi tengd, og stefnir á að virkja þau tengsl áfram. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

gu hj magn halla margr umsj trausti tulinius melkorka flokkurinn
Víðsjá
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir / svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 52:04


Mel­korka Sig­ríður Magnús­dótt­ir, danshöfundur, nýsköpunarfræðingur og tónlistarkona var bara fimm ára þegar hún fór að sjá Þrjár systur Tchekhovs og fannst það alveg jafn skemmtilegt og að sjá Skógarlíf. Hún varð snemma heilluð af leikhúsinu svo það var í raun rökrétt skref að fara í dansnám þó röð tilviljana hafi líka átt þar hlut að máli. Sautján ára gömul flutti hún til Amsterdam til að læra danssmíði og síðar til Brussel í framhaldsnám í samtímadansi við P.A.R.T.S skólann. Í verkum sínum hefur Melkorka gjarnan kannað samband og mörk tónlistar og danslistar og oftar en ekki unnið í samstarfi við aðra listamenn. Hún myndar ásamt Árna Rúnari Hlöðverssyni dúóið Milkywhale en hann kemur einmitt að sýningunni Hverfa sem Melkorka er höfundur að og frumsýnir í samstarfi við Íslenska dansflokkinn um næstu helgi. Melkorka er gestur okkar í svipmynd dagsins.

Víðsjá
Kristín Ómarsdóttir/Móðurást:Draumþing, Óperudagar/Örlagasögur kvenna, Við erum hér/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 29, 2024 57:56


Við lítum við í bláu húsi í gamla vesturbænum og ræðum við Kristínu Ómarsdóttur um nýútkomna bók, Móðurást: Draumþing. Þar segir hún skáldaða sögu langömmu sinnar á ofanverðri nítjándu öld í Biskupstungum, en að sögn Kristínar er bókin líka óður til vatnsins. Draumþing er annar hluti frásagnarinnar sem hófst með Móðurást: Oddnýju fyrir ári síðan, en fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin. Trausti Ólafsson verður einnig með okkur í dag, og að þessu sinni rýnir hann í glymskrattasöngleikinn Við erum hér, sem leikhópurinn Viðlag sýnir um þessar mundir í Tjarnarbíói. En við hefjum þáttinn á því að taka á móti Margréti Hrafnsdóttur söngkonu. Margrét tekur þátt í óperudögum með viðburði sem kallast Örlagasögur kvenna, ásamt rússneska píanóleikaranum Polinu Fradkina. Báðar hafa þær brennandi áhuga á því að segja sögur, og þá sérstaklega sögur af örlögum kvenna. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Ófeigur Sigurðsson um Skrípið, Magnea Guðmundsdóttir-pistill, ljóðabækur Skriðu

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 21, 2024 51:34


Í skáldsögunni Skrípinu, eftir Ófeig Sigurð, segir frá ónefndu og ástríðufullu tónskáldi sem ætlar sér að endurskapa sögulega tónleika píanóleikarans Vladimirs Horowitz með heilmyndarflutningi á Eldborgarsviði Hörpu. Tónskáldið dreymir um endurreisn evrópskrar menningar og finnst að allt hafi verið betra árið 1986, þegar fólkið var ekki eins sjúkt í deyfð og flatneskju og stjórnmálamenn hlustuðu á tónlist og lásu bókmenntir. Víðsjá mælti sér mót við rithöfundinn Ófeig Sigurðsson á koníakstofunni á Hótel Holti í morgun. Magnea Guðmundsdóttir arkitekt fjallar um arkitektúr í fortíð og framtíð, skjái, gler, vindhviður og táknmyndir í módernískum arkitektúr. Á dögunum komu út tvær ljóðabækur hjá Skriðu bókaútgáfu sem staðsett er á Patreksfirði. Það eru bækurnar Svefnhof eftir Svövu Þorsteinsdóttur og Heimkynni eftir Þórð Sævar Jónsson. Báðar bækur eru afar fallegir gripir sem prentaðir eru á prentverkstæði Skriðu fyrir vestan. Tómas Ævar tekur höfunda bókanna tali í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

sv skr sigur umsj skri melkorka patreksfir
Víðsjá
Svipmynd / Linda Vilhjálmsdóttir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 16, 2024 50:14


Linda Vilhjálmsdóttir er fædd árið 1958 og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hún fann ung að hún væri góð í að setja saman orð, hóf að skrifa ljóð í barnaskóla og las allt sem hún komst í á bókasafni Seltjarnarness. Hún var líka ung þegar hún fór að vinna fyrir sér, fyrst með barnapössun og síðar í fiski. Þegar hún hóf nám við Menntaskólann í Reykjavík upplifði hún í fyrsta sinn stéttarvitund en uppgötvaði svo síðar á lífsleiðinni að það sem hafði mótað hana mest var að alast upp sem stúlka í feðraveldi. Linda lærði til sjúkraliða og starfaði lengi við fagið og segir það einnig hafa opnað augu sín fyrir nýjum veruleika. Linda hefur hlotið mikið lof fyrir ljóð sín og ýmis verðlaun og viðurkenningar hafa fallið henni í skaut. Það er óhætt að segja að rödd Lindu sé einstök í landslagi íslenskra bókmennta og það er mikill fengur að nú sé komið út heildarsafn allra ljóðabókanna níu. Við ætlum að ræða þetta splunkunýja heildarsafn við Lindu í þætti dagsins, og auðvitað margt fleira. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

reykjav vilhj umsj menntask lindu seltjarnarnesi melkorka seltjarnarness
Víðsjá
Nóbelsverðlaun í bókmenntum, Listasafn Íslands 140 ára, Miguel Atwood-Ferguson, Undir-rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 10, 2024 53:21


Við hefjum þáttinn að sjálfsögðu á stórfréttum dagsins, Nóbelsverðlaununum í bókmenntum. Rétt fyrir hádegi var tilkynnt um handhafa verðlaunanna við hátíðlega athöfn og í beinu streymi Sænsku akademíunnar. Nóbelinn í ár hlýtur Suður-kóreski rithöfundurinn Han Kang. Kang, sem fæddist árið 1970, er þekkt fyrir ljóðrænan prósa, sem dregur fram söguleg áföll og afhjúpar viðkvæmni mannlífsins. Hún vakti fyrst alþjóðlega athygli með skáldsögunni Grænmetisætunni, sem kom út árið 2007, og er eina verk Kang sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. Jóhannes Ólafsson tók þýðanda hennar, Ingunni Snædal, tali. Annað kvöld leikur Kammersveitin Elja ásamt þverfaglega listamanninum Miguel Atwood-Ferguson á tónleikum í Fríkirkjunni. Tónleikarnir eru hluti af listahátíðinni State of the Art sem haldin er í þessari viku á höfuðborgarsvæðinu, en henni er ætlað að skapa nýjan vettvang til aukins samstarfs milli listamanna og blöndun strauma og stefna. Tómas Ævar ræðir við Miguel Atwood-Ferguson í lok þáttar. Við hlið Fríkirkjunnar stendur Listasafn Íslands og þar stendur líka mikið til, því á laugardaginn opnar þar viðamikil sýning í tilefni af 140 ára afmæli safnsins. Á sýningunni, sem hefur yfirskriftina Innsýn -Útsýn, gefst gestum tækifæri á að berja augum verk eftir hátt í 100 listamenn, mikilsverðar gjafir sem safninu hafa borist og verk sem það hefur keypt í tímans rás. Samhliða kemur út vegleg bók þar sem fjallað er um valin listaverk úr safneigninni, 140 talsins. Við hittum fyrir Ingibjörgu Jóhannsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, sem segir okkur nánar af bókinni og sýningunni. Þá fáum við rýni frá Kötlu Ársælsdóttur, sem fjallar að þessu sinni um leikverkið Undir, eftir Adolf Smára Unnarsson. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Ummælagreining, Magga Eddudóttir og Herbergi Giovanni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 8, 2024 52:25


Við kynnum okkur viðamikið verkefni, Ummælagreiningu, sem gefur almenningi tækifæri til að móta færni íslenskrar gervigreindar og stuðla að því að gagnasöfn íslenskra gervigreindarforrita endurspegli íslenskt gildismat og menningu. Verkefnið felst í því að skoða ummæli af internetinu og meta ýmsa þætti eins og tilfinningalegt innihald, kurteisi og það hvað telst óviðeigandi eða særandi orðræða. Þau Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, og Hafsteinn Einarsson, dósent við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands, segja okkur frá verkefninu. Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsögu James Baldwin, Herbergi Giovannis. Bók Baldwin vakti mikla athygli og braut blað í bókmenntasögunni með sterkum og einlægum lýsingum á ást tveggja karlmanna. Herbergi Giovannis kom nýverið út í þýðingu Þorvalds Kirstinssonar. En við hefjum þáttinn í Listasal Mosfellsbæjar, þar sem myndlistarkonan Magga Eddudóttir sýnir ný verk. Sýninguna kallar hún Please revolt, eða Vinsamlegast gerðu uppreisn. Verkin eru unnin í ólíka miðla; textíl, vatnsliti, kermik og frauðplast. Magga hefur í sinni myndlist unnið mikið með mannslíkamann og tilfinningar sem tengjast frelsi, og hafa mjúkar línur og pastel litapalleta verið einkennandi í verkum hennar, en þau hafa breyst töluvert síðastliðið ár. Undanfarið hefur málstaður Palestínu átt hug hennar allan og segist hún hafa átt erfitt með að bregðast ekki við þjóðarmorðinu í Palestínu í myndlistinni. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Svipmynd - Lilja Ingólfsdóttir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 2, 2024 53:04


Kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir var komin með nóg af klisjukenndum kvenpersónum þegar hún hófst handa við að skrifa Elskling. Aðalpersóna Elskling er ófullkomin og þreytt fjögurra barna móðir sem reynir að sinna starfsframanum um leið og hún reynir að halda hjónabandinu gangandi. Elskling hefur sópað að sér verðlaunum og góðri gagnrýni frá því að hún var frumsýnd í sumar, en hún er er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem Lilja bæði skrifar og leikstýrir. Hún á að baki fjölda stuttmynda og einnig fjórar kvikmyndir sem hún var handritshöfundur að, og segir Lilja sjálf að hún líti fyrst og fremst á sig sem handritshöfund, hún sé leikstýrandi handritshöfundur. Lilja er dóttir norska þýðandans Tone Myklebost, sem er margverðlaunuð fyrir þýðingar úr íslensku yfir á norsku, og Ingólfs heitins Margeirssonar, blaðamanns og rithöfundar sem lést vorið 2011. Hún ólst upp bæði á Íslandi og í Noregi en lærði kvikmyndagerð í London og Prag. Hún bjó um tíma í París þar sem hún gerði yfir 20 stuttmyndir en býr í dag í Osló þar sem hún kennir við kvikmyndaháskólann og elur upp börnin sín fjögur auk þess að starfa við kvikmyndagerðina. Lilja Ingólfsdóttir, handritshöfundur og kvikmyndaleikstjóri, er gestur okkar í svipmynd dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

ing prag lilja osl umsj noregi melkorka kvikmyndager
Víðsjá
Tarotspil norrænna goðsagna, Ólöf Arnalds-Teens, Voðaverk í Vesturbænum-rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 1, 2024 51:42


Á dögunum komu út hjá Bókabeitunni eftirtektarverð tarotspil. Spilin eru eftir hefðbundinni forskrift en höfundur þeirra, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, hefur endurhugsað þau út frá norrænni goðafræði, sér í lagi sögnum úr Snorra-Eddu og Eddukvæðum. Kristín Ragna er höfundur myndanna en hefur líka skrifað ítarlega skýringarbók með spilunum, sem inniheldur bæði leiðbeiningar fyrir lagnir og túlkun og mikinn fróðleik um goðin og sögurnar. Melkorka settist niður með Kristínu Rögnu og fékk hana til þess að spá í spilin fyrir sig. Um næstu helgi verður tónverkið Teens - Questions for Teenagers, flutt í Salnum í Kópavogi, en það er innblásið af röddum unglinga og viðtölum sem tekin voru við ungmenni frá Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi í fyrravetur. Verkið er eftir færeyska tónlistarmannin Teit en samið í samstarfi við kammersveitina Ensemble MidtVest, grænlenska söngvaskáldið Nive Nielsen og Ólöfu Arnalds, sem segir frá verkefninu í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á bókarýni. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýútkomna glæpasögu Jónínu Leósdóttur, Voðaverk í Vesturbænum. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Herdís Egilsdóttir - Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 25, 2024 52:27


Gestur Svipmyndar í dag er engin önnur en Herdís Egilsdóttir, kennari og rithöfundur. Herdís fæddist á Húsavík þann 18. júlí árið 1934 og fagnaði því níræðisafmæli sínu í sumar. Hún hóf kennslu í Ísaksskóla árið 1953 og starfaði þar í 45 ár, eða fram til ársins 1998. Herdís hefur skrifað fjölda bóka, leikrit, sjónvarpsefni og námsefni fyrir börn. Þar á meðal eru bækurnar um Pappírs-Pésa og Siggu og skessuna og kennsluhandbók í lestri sem nefnist Það kemur saga út úr mér. Herdís hefur þróað merkilegar kennsluaðferðir, á borð við Landnámsaðferðina, sem vakið hafa mikla athygli. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir framlag sitt til barnamenningar og segist hvergi nærri hætt. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Örverur á heimilinu, Dagbók frá Gaza-rýni, Cauda Collective

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 24, 2024 55:41


Um næstu helgi opnar á Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ sýning sem beinir kastljósinu að sambandi manna og örvera. Þrátt fyrir að þetta samband sé okkur alla jafna dulið þá er það í meira lagi margslungið, á sér til að mynda stað innan og utan líkamans, innan og utan heimilis, og innan og utan á matnum okkar. Örverur á heimilinu er ein af afurðum þverfaglega rannsóknarverkefnisins Samlífi manna og örvera í daglega lífinu undir stjórn dr. Valdimars Tr. Hafstein. Ragnheiður Maísól Sturludóttir, tók þátt í rannsókninni og er jafnframst sýningarstýra sýningarinnar. Við hittum hana og nokkrar örverur í þætti dagsins. Rithöfundurinn Atef Abu Saif hefur starfað sem menningarmálaráðherra palestínskra stjórnvalda og skrifað skáldsögur, smásögur og bók um stjórnmál. Þegar sprengjum tók að rigna yfir Gaza síðastliðið haust ákvað hann og sonur hans að halda kyrru fyrir, í stað þess að flýja, og Abu Saif tók að skrásetja lífið á Gaza. Brot úr Dagbók frá Gaza birtust reglulega í vestrænum fjölmiðlum frá upphafi árása Ísraelshers og eru meðal mikilvægustu vitnisburða sem þaðan hafa borist. Síðastliðið vor voru skrif hans frá fyrstu fjórum mánuðum árásanna gefin út á bók í 11 löndum og hér á landi kom hún út hjá Angústúru, í þýðingu Bjarna Jónssonar. Gauti Kristmannsson rýnir í Dagbók frá Gaza í þætti dagsins. En við hefjum þáttinn á innliti frá einum virkasta kammerhóp landsins, Cauda Collective. Hópurinn tekur á sig ýmsar myndir, er breytilegur að stærð og tekst á við verkefni sem tilheyra hinum ýmsu stílum og tegundum tónlistar. Listrænir stjórnendur Cauda Collective eru þær Sigrún Harðardóttir, Björk Níelsdóttir, Þórdís Gerður Jónsdóttir og Þóra Margrét Sveinsdóttir og þær Sigrún og Björk litu við í Efstaleiti til þess að segja okkur aðeins af verkefnum vetrarins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Hafnarfest, Listasafn Árnesinga, Taktu flugið beibí-rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 23, 2024 50:50


Í Hafnarhúsi við Tryggvagötu hafa hátt í 300 listamenn, hönnuðir, forritarar, frumkvöðlar og annað skapandi fólk aðsetur í um 90 vinnustofum og samstarfsrýmum undir hatti Hafnar haus. Verkefnið hófst að frumkvæði hóps sem leiddur var af Haraldi Þorleifssyni, frumkvöðli, en á aðeins tveimur árum hefur í hafnarhaus orðið til suðupottur hugmynda og samsköpunar, samfélag forvitni og sköpunargleði, sem leitt er af notendunum sjálfum. Víðsjá kom við á opnu húsi í Hafnarhúsi á laugardag og kynnti sér þá gríðarlegu grósku sem þar fer fram. Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, en hann fór að sjá sýninguna taktu flugið, beibí, sem frumsýnd var í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 12 september síðastliðinn. En við hefjum þáttinn á því að fara austur fyrir fjall. Í Listasafni Árnesinga í Hveragerði standa nú yfir tvær einkasýningar og fjórar samsýningar. Sigurður Guðjónsson sýnir verkið Hljóðrof í sal eitt, þar sem strúktúr baðaður ljósi og hljóði verður alltumlykjandi í rökkvuðu rýminu. Í næsta sal sýnir sýnir Þórdís Jóhannesdóttir verk sem hún byggir á ljósmyndatækninni, en sýninguna kallar hún Millibil. Í öðrum rýmum safnsins er að samsýningar á verkum eftir íslenska og erlenda listamenn sem allir eiga það sameiginlegt að tengja saman á einhvern hátt listir og vísindi. Safnstjórinn Kristín Scheving er sýningarstjóri sýningarinnar Lífrænar hringrásir í samstarfi við Jennifer Heliu DeFelice og hún tók á móti Víðsjá í safninu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir