POPULARITY
Ráðskonur, eldsmíði og ungir á uppleið eru til umfjöllunar í þætti dagsins. Við hefjum ferðalag á heimsókn til Dalrúnar Kaldkvísl Eygerðardóttur sagnfræðings og forvitnumst um rannsóknir hennar á ráðskonum í sveit á síðari hluta 20. aldar. Því næst rifjum við upp viðtal Dags Gunnarssonar frá árinu 2018 þar sem rætt var við Hall Karl Hinriksson myndlistarmann og eldsmið sem var við störf í eldsmiðju Eldsmíðafélags Suðurlands. Að lokum kíkjum við í ræktina á Dalvík, þar sem hópurinn Ungt fólk á uppleið hittist reglulega og æfir saman. Þar er rætt við þau Sigrúnu Friðriksdóttur, Jóhann Hreiðarsson, Hlín Torfadóttur, Ásu Harðardóttur og Sigurð Ásgeirsson. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Dagur Gunnarsson og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Þátturinn í dag er tileinkaður furðusögum, skrímslum og fyrirbærum sem erfitt er að festa hendur á. Hvernig verða draugasögur til? Er líklegt að slíkar sögur verði til með sama hætti í dag? Rætt verður við sálarrannsakendur, næmt fólk og skrímslafræðing. Þátturinn var áður á dagskrá 6. nóvember 2016. Innslög gerðu Halla Ólafsdóttir, Rögnvaldur Már Helgason og Dagur Gunnarsson. Umsjón hafði Dagur Gunnarsson.

Flestir Íslendingar notast við samfélagsmiðla. Fjallað er um þá umræðu sem gjarnan á þar stað og hvernig samspil samfélagsmiðla og hefðbundinna miðla er um þessar mundir. Þeir sem rætt er við í þættinum eru: Snæbjörn Ragnarsson samfélagsmiðlafulltrú á Pipar TBWA auglýsingastofu Guðni Elísson prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjóri Stundarinnar, Frank Hall dagskrárstjóri á Rás Tvö. Umsjón: Dagur Gunnarsson. (Frá 2016)
Í Grindavík stendur hnarreist háhýsi upp úr lágreistri byggð. Í mörg ár bjó þar ein kona, Birna í blokkinni. Vorið 2014 fylltist blokkin á skömmum tíma af fólki sem neyddist til að flytja til Grindavíkur þegar fiskvinnslan Vísir lagði niður starfsemi sína á Djúpavogi, Húsavík og Þingeyri. Umsjón: Dagur Gunnarsson. (Frá 2015)
Raktir eru nokkrir þræðir í lífi Samúels Jóns Samúelssonar básúnuleikara og hljómsveitarstjóra. Samúel stýrir sinni stórsveit, semur tónlist og ferðast um heiminn í leit að púslubitum í heimsmynd sína. Umsjón: Dagur Gunnarsson. (Frá 2015)
Fjallað er um tónlistarmanninn Tómas R. Einarsson og rætt við hann um listina og lífið. Hvað það er hreyfir við honum og veitir honum innblástur. Tómas er margverðlaunaður kontrabassaleikari sem hefur gefið út fjölda diska. Hann hefur ferðast víða um heim, þýtt skáldverk úr spænsku og látið mið- og suður Ameríska tónlist hafa áhrif á eigin tónsmíðar. Umsjón: Dagur Gunnarsson. (Frá 2016)
Fjallað er um umræðuna á samfélagsmiðlum í íslensku samfélagi og þróun þeirra. Rætt er við Ingólf Bjarna Sigfússon fréttamann, Berglindi Pétursdóttur bloggara, Hallgrím Helgason rithöfun og Þórunni Elísabetu Bogadóttur blaðamann. Tónlistin sem ómar er lagið Iced World með Brian Eno. Umsjón: Dagur Gunnarsson. (Frá 2016)

Vitasaga Íslands verður til umfjöllunar í þessum þætti. Við ferðumst til Hafnarfjarðar, til Keflavíkur á Vestfjörðum og austur á Dalatanga og fræðumst um mannlíf og sögu þriggja vita við strendur landsins. Efni í þáttinn unnu Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Innslögin voru áður á dagskrá Sagna af landi þann 24. mars 2019. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Þemað í þessum þætti er heilbrigði. Geðheilsa jafnt sem líkamleg heilsa er viðfangsefni þáttarins að þessu sinni. Efni í þáttinn unnu Dagur Gunnarsson, Gígja Hólmgeirsdóttir og Jón Þór Kristjánsson. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Við hófum þáttinn á smá ferðalagi. Við reimuðum á okkur gönguskóna, smelltum okkur í léttan stakk og gengum í huganum út í guðsgræna náttúruna, a.m.k. í huganum.Útivist er áhugamál margra Íslendinga enda hæg heimatökin hér á þessu mikið til ósnortna landi. Við tókum tali hann Reyni Traustason, verkefnastjóra hjá Ferðafélagi Íslands um útivist og fleira, en annað kvöld verður boðið upp á fjölskylduskemmtun á Úlfarsfelli. Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli á sér tvö mjog ólík áhugamál sem eiga allan hans huga í frítímanum, knattpyrnuáhugi og skrautfiskaræktun. Hann ræktar mörg hundruð fiska af tugum tegunda í um tuttugu fiskabúrum sem eru af ýmsum stærðum og gerðum. Sum þeirra smíðaði hann jafnvel sjálfur. Við hringdum í Óskar og fengum hann til að segja okkur frá fiskunum, búrunum og fleiru. Þrír heimsfaraldrar standa nú yfir sem allir eiga uppruna sinn í lífstíl fólks. Þetta er offita, vannæring og loftslagsvá. Allir þrír ógna heilsu fólks. Þeir sem vilja komast í meðferð við offitu hér á landi þurfa að bíða í heilt ár. Þetta segir Hildur Thors sérfræðingur í heimilislækningum og læknir offituteymis Reykjalundar. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hana á Heilsuvaktinni í dag. Umsjónarfólk: Dagur Gunnarsson og Gunnar Hansson
Allir eiga afmæli um það bil einu sinni á ári og því ber að fagna. Við rannsökum nokkur afmæli í Íslandssögunni í þessum þætti. Afmæli löglegrar bjórsölu og ýmissa afmæla í bæði flug- og siglingasögu á Íslandi. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir og Úlla Árdal. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Menn deila um langa strengi til annarra landa. Í Sögum af landi eru engar deilur, við skoðum hins vegar strengi, strengi í slaghörpu, strengi sem draga net og strengi sem liggja víða um netheima. Innslög í þáttinn unnu Dagur Gunnarsson, Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Höggin dynja kannski ekki lengur í skóginum en eigi að síður ætlum við að forvitnast um skógarhögg, og ekki nóg með það við bætum nokkrum höggum á listann, höfuðhögg og högg á húðir eru þar efst á blaði. Högg eru þema þáttarins og innslög unnu þau Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Úlla Árdal. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Við erum öll neytendur. Við búum í neyslusamfélagi. Í þessum þætti er þemað neysla og við skoðum nokkrar hliðar á neyslunni. Á Ísafirði hittist fólk vikulega og ræðir nýjar leiðir til vistvænnni neyslu, á Akureyri eiga unglingarnir íslandsmet í neyslu orkudrykkja og hvert stefnir neyslan í rafrænum netheimum? Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir og Þórgunnur Oddsdóttir. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Óttinn er ónotaleg tilfinning. Við óttumst öll eitthvað, en við sviðsetjum líka óttalega hluti okkur til skemmtunar. Í þessum þætti könnum við fyrirbærið ótta og fáum innslög að norðan, austan og sunnan þar sem óttinn er skoðaður frá ólíkum sjónarhornum. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Rúnar Snær Reynisson og Úlla Árdal. Umsjón: Dagur Gunnarsson.

Myndir eru þema þáttarins enda eru myndir allstaðar í okkar umhverfi, bæði í raf- og raunheimum. Við ræðum við kvikmyndagerðarkonu, ljósmyndara og myndlistamann. Viðmælendurnir segja frá myndunum sem þeir vinna að og hvernig kenna má myndlæsi og nota myndir í sköpun. Innslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Jón Þór Kristjánsson. Umsjón: Dagur Gunnarsson.

Í sögum af landi að þessu sinni verður fjallað um skop og glens, kannski er það gert til að minna fólk á að hlaupa ekki apríl á morgun. Rætt verður við skopverkakonu í Reykjavík, fjallað um menntaskólahúmor á Akureyri og rýnt í gamla fyndni og nýja á Amtsbókasafninu. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Þórgunnur Oddsdóttir. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Vitar eru sérhönnuð og sérstök mannvirki sem látin voru lýsa sæfarendum leið áður en tæknin gerði þá úrelta. Þessi háhýsi sem oftar en ekki standa berskjölduð úti í náttúrunni þurftu á sínum verndurum og gæslumönnum að halda. Hvernig fólk tók að sér að búa í mikilli einangrun við vitavörslu? Við rannsökum vita víðsvegar um landið í þessum þætti og fáum að klappa einum sem dregur til sín ferðamenn í óþökk nágranna í miðjum Hafnarfirði. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Dagur Gunnarsson.

Ástin er þemað í þessum þætti sem og víðar um land allt. Við ræðum um ástarsögur á bókasafninu á Ísafirði, móðurástina sem kviknar á fæðingadeildinni á Akureyri og tölum við söngvaskáld sem þolir ekki væmna ástarsöngva. Ástin er altumlykjandi og getur veitt mönnum byltu, hún er líka græðandi hreyfiafl sem við verðum að trúa á. Ástin hefur verið umfjöllunarefni í öllum listgreinum sem maðurinn hefur lagt fyrir sig og því er hún verðugt þema í Sögum af landi. Innslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Við fetum þessa slóð hvort sem okkur líkar betur eða verr. Slóðirnar eru jafnmargar og mannfólkið og slóð er þemað í þessum þætti. Við förum á norðurslóð, við fikrum okkur eftir slóð í snjónum norður á Akureyri og við eltum vel troðna slóð pílagríma um Jakobsveginn í för með Hljómeyki og tónskáldinu Joby Talbot. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Þórgunnur Oddsdóttir.+ Umsjón: Dagur Gunnarsson

Þema þessa þáttar er rannsókn. Án rannsókna væri lífið fremur litlaust. Við skulum kynna okkur þrjár mismunandi aðferðir við rannsóknir sem stundaðar eru hér á landi um þessar mundir. Í þættinum er bæði rætt við rannsóknarlögreglumann, vísindamann og listamenn sem allir stunda rannsóknir á sínum sviðum hér á landi. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Rúnar Snær Reynisson og Þórgunnur Oddsdóttir. Umsjón: Dagur Gunnarsson.

Frelsi er stórt hugtak sem margskonar spekingar hafa velt fyrir sér í gegnum aldirnar. Þetta háleita hugtak er þema þáttarins og við tökum hversdaginn fyrir og setjum undir smásjána, tölum við fólk sem finnur frelsisþrá sinni farveg með ýmsu móti. Innslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Tónar flæða víða. ,,Án tónlistar væri þessi jarðvist lítils virði" segir einn viðmælandi í þessum þætti af Sögum af landi þar sem þemað er ,,Tónar". Við fáum tóna víða að í þættinum, þeir flæða frá Jakútíu til Andalúsíu og ýmislegt ber á góma þar á milli. Spilað er á kaktus jafnt sem spænskan gítar. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Rúnar Snær Reynisson.
Það er víða gert út á víkingaarfleiðina. Sögur af landi leggjast í víking og skoða hugtakið útfrá þremur mismunandi sjónarhornum. Hverjir voru víkingar og hvað skilgreindi þá? Hvernig er fyrir þriggja barna móður að leggjast í ,,víking" núdtildags og reka heimili í þremur mismunandi löndum? Eru víkingar nútildags kannski á skautum að elta pökk? Allt þetta og meira til í Sögum af landi. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Rúnar Snær Reynisson og Þórgunnur Oddsdóttir. Umsjón: Dagur Gunnarsson.

Kerrurnar í lífi okkar eru margvíslegar og nytsamlegar. Það er niðurstaða óvísindalegrar rannsóknar teymisins sem stendur að þáttunum Sögur af landi. Kerrur eru til margra hluta nytsamlegar og þær er víða að finna í okkar samfélagi. Við fjöllum um gamlar glæsikerrur, splunkunýjar íslenskar kerrur sem hannaðar eru á Akureyri og svo eru það vinir okkar í stórmörkuðunum, innkaupakerrurnar. Er nema von að fólk kunni vel að meta þessi þarfaþing? Innslög unnu: Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir. Umsjón: Dagur Gunnarsson.

Flakk og flandur er ekki fyrir alla en í þessum þætti af Sögum af landi er rætt við fólk sem hefur atvinnu, ánægju og yndi af því að flakka um heiminn. Það eru ævintýrin sem heilla að sjálfsögðu og svo tækifærið til að kynnast nýjum sjónarmiðum og jafnvel sínum innri manni. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Þórgunnur Oddsdóttir. Umsjón: Dagur Gunnarsson

Hávaði er stundum jafn nauðsynlegur og hann getur á öðrum stundum verið skaðlegur. Hávaði er þema þáttarins að þessu sinni og við ræðum við fólk sem hefur hátt og fólk sem tekst á við þann skaða sem hávaði getur haft. Innslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Þórgunnur Oddsdóttir. Umsjón: Dagur Gunnarsson