Podcasts about hrei

  • 67PODCASTS
  • 209EPISODES
  • 50mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Mar 21, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about hrei

Latest podcast episodes about hrei

90 mínútur
Íþróttavikan: Frumraun Arnars gerð upp og rýnt í Bestu deildina með Bjössa Hreiðars

90 mínútur

Play Episode Listen Later Mar 21, 2025 68:24

Sigurbjörn Hreiðarsson er gestur Helga og Kela í Íþróttavikunni.

Fotbolti.net
Tveggja Turna Tal - Hermann Hreiðarsson

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 3, 2025

Gestur vikunnar er enginn annnar en Hermann Hreiðarsson. Hermann er eini Íslendingurinn sem hefur unnið FA cup bikarinn og hefur spilað 332 leiki í Premier League á 15 árum í ensku deildinum. Í þessum fyrri hluta þáttarins fórum við yfir árin í Eyjum og í ensku úrvalsdeildinni. Við ræddum Harry Redknapp, Atla Eðvalds, Joe Royle, Alan Curbishley og fleiri góða menn. Njótið vel!Styrktaraðilar þáttarinns eru: Visitor FerðaskrifstofaHafið FiskverslunBudweiser BudvarWorld ClassLengjan

Víðsjá
Sally Mann, Skeljar og Kristín Þorvaldsdóttir, huldukona í íslenskri myndlist

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 10, 2025 53:43

Á Listasafni Ísafjarðar stendur nú yfir merkileg myndlistarsýning. Um er að ræða sögusýningu, og að öllum líkindum fyrstu einkasýningu, myndlistarkonunnar Kristínar Þorvaldsdóttur. Kristín var fædd á Ísafirði árið 1870 og fór 12 ára gömul til Kaupmannahafnar í myndlistarnám. Hún lærði líka í Þýskalandi og hugði á framhaldsnám í Róm þegar hún var kölluð heim til að annast börn systur sinnar, sem hafði látist af barnsförum. Kristín var hæfileikarík og vel menntuð og hefði vel getað orðið fyrsta íslenska konan til þess að helga sig myndlist. En eftir þennan örlagaríka atburð hætti hún alfarið að mála og lokaði verk sín ofan í læstum skúffum. Hún er því sannkölluð huldukona í íslenskri myndlist, en þær Rannveig Jónsdóttir og Guðfinna Hreiðarsdóttir, á Listasafni Ísafjarðar, hafa nú haft upp á úrvali verka hennar og sett saman sýningu Kristínu til heiðurs. Nýverið voru fjórar ljósmyndir eftir Sally Mann teknar niður af veggjum nýlistasafnsins í bænum Forth Worth í Texas, og í síðustu viku var staðfest að ljósmyndirnar væru í haldi lögreglu. Yfirtaka lögreglunnar á listaverkunum kom i kjölfar mikillar gagnrýni íhaldsafla í bænum sem segja verkin vera barnaklám. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ljósmyndir Sally Mann vekja umtal og gagnrýni. Verk hennar vöktu heitar umræður þegar þær komu fyrst fyrir sjónir almennings og hafa gert það reglulega síðan. Mann er einn virtasti ljósmyndari Bandaríkjanna, hefur sýnt verk sín í öllum helstu söfnum landsins og miklu víðar, gefið út verðlaunaðar bækur og hlotið fjölda viðurkenninga. Viðfangsefni verka hennar eru fjölbreytt en, líkamar, umbreytingaferli og landslag eru rauður þráður í verkum hennar, sem og fagurfræði ljósmyndatækni síðustu og þar síðustu aldar. Og það vill svo skemmtilega til að verk hennar eru nú til sýnis á Listasafni Íslands, á samsýningunni Nánd hversdagsins þar sem fimm alþjóðlegir ljósmyndarar eiga verk. Við hittum Einar Fal Ingólfsson við verk Mann í þætti dagsins. Við heyrum einnig leikhúsrýni, að þessu sinni rýnir Katla Ársælsdóttir í Skeljar, nýtt íslenskt verk eftir Magnús Thorlacius sem sýnt er í Ásmundarsal. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Fotbolti.net
Tveggja Turna Tal - Óli Jóh & Sigurbjörn Hreiðars

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 25, 2024

Jólaspjall Tveggja Turna Tals var við tvo af skemmtilegri mönnum Íslands og þótt víðar væri leitað. Óli Jóh og Bjössi Hreiðars gáfu sér tíma í jóla amstrinu og fóru yfir allt sviðið. Það bar ekki á miklu jólastressi á þeim félögum. Það var ekki rædd vitleysan í stúdíó í þetta skiptið - allavega ekki allan tímann. Þeir félagar ræddu hvað er gaman við þjálfun, hvað traust skiptir miklu máli þegar kemur að liðsheild og svo sagði Óli frá því hvernig Guðný, eiginkona hans, fékk Arnar og Bjarka í FH. Njótið vel og gleðileg jól

Gullkastið á Kop.is
Gullkastið – Þáttur 500

Gullkastið á Kop.is

Play Episode Listen Later Dec 10, 2024 61:58

Hlaðvarpsþættir Kop.is hófu göngu sína 25.maí árið 2011 og hafa síðan þá verið stór partur af starfsemi síðunnar. Þátturinn í þessari viku er númer 500 og er Gullkastið elsta starfandi hlaðvarp landsins og reyndar þó víðar væri leitað. Til að fagna þessum tímamótum fengum við tvær kempur með okkur í þáttinn í þessari viku sem vart þarf að kynna frekar, meistara Bjössa Hreiðars og Hödda Magg. Liverpool leik helgarinnar var reyndar frestað en staðan á toppnum vænkaðist eiginlega engu að síður, hressandi yfirferð yfir það helsta í þessari viku og það sem er framundan. Ögurverk liðið er á sínum stað og það var lítil samkeppni fagmann vikunnar í boði Húsasmiðjunnar að þessu sinni. Minnum áfram á Happatreyjur.is eru auðvitað jólagjöfin í ár, lesendur Kop.is geta notað afsláttakóðan KOP10 Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn, Maggi, Bjössi Hreiðars og Höddi Magg. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Ögurverk ehf / Done

Lífið með Lindu Pé
207. Flogið úr hreiðrinu

Lífið með Lindu Pé

Play Episode Listen Later Nov 20, 2024 18:32

Í þessum þætti deili ég persónulegum hugleiðingum um nýjan kafla í lífi mínu sem „empty nester" eftir að dóttir mín fór út í nám, ásamt sorginni yfir því að missa hundinn minn Stjörnu. Ég tala um hvernig þessar krossgötur hafa vakið mig til umhugsunar um glænýjan kafla lífsins. Þátturinn fjallar líka um mikilvægi þess að endurskapa sjálfan sig reglulega og nýta breytingar sem tækifæri til persónulegs vaxtar og þroska. LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU Í LMLP-BIÐLISTIAðgangsglugginn fyrir LMLP Prógrammið m/Lindu Pé er nú lokaður. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA   NÁNARI UPPLÝSINGAR: L Í F S Þ J Á L F A S K Ó L I N N  Viltu verða lífsþjálfi? Smelltu hér fyrir upplýsingar. 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  Lífsspilin Dragðu spil daglega og hannaðu draumalífið þitt meðvitað með Lífsspilunum. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Magasínið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök eru meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift.  Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP Prógrammið með Lindu Pé LOKAÐ er fyrir skráningar. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!  

Chapel Fürth
06.10.2024 - En Christo #2 - Frühstücksbuffet mit Fokus auf Rührei (Tim Stegbauer)

Chapel Fürth

Play Episode Listen Later Oct 6, 2024 44:13

#chapel #fürth #gott #jesus #epheser #enchristo #christo #rührei Chapel Fürth - eine dynamische Kirche in der Fürther Südstadt. Wir träumen von einer Gemeinde, in der wir Gott begegnen, Menschen begeistern und alles bewegen,  um Menschen in eine leidenschaftliche Beziehung mit Jesus zu führen.  Wir setzen uns durch attraktive Gottesdienste, Kinder- und  Jugendarbeit sowie soziale Projekte durch unser Sozialwerk für Menschen  in Fürth und der Region ein.

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Hermann Hreiðarsson gestur. Hættur með ÍBV og fer yfir sviðið.

Dr. Football

Play Episode Listen Later Sep 27, 2024 62:48

Hermann Hreiðarsson mætti til Dr. Football í morgun og tilkynnti okkur að hann væri hættur með ÍBV. Gunnar Birgisson var með honum.

Pyngjan
Föstudagskaffið: Arnór Hreiðarsson kíkir í kaffi

Pyngjan

Play Episode Listen Later Aug 2, 2024 74:45

Sendu okkur skilaboð!Í dag mætti til okkar afar sjaldgæfur blendingur launþega og frumkvöðuls. Svokallaður launkvöðull eða frumþegi - þið ráðið. Arnór starfar sem söluráðgjafi Business central hjá Origo á daginn en á kvöldin og um helgar sinnir hann sölu víns og kaffivéla. Stórskemmtilegur þáttur þó við segjum sjálfir frá og hellingur af fróðleiksmolum um business central fyrir ykkur braskarana.

Iss klüger, nicht weniger - Gesunde Ernährung & Abnehmen
Rührei für einen schnellen Stoffwechsel? Frauenzeitschrift-Tipps analysiert – Brunch für die Ohren #31

Iss klüger, nicht weniger - Gesunde Ernährung & Abnehmen

Play Episode Listen Later Apr 4, 2024 48:17

Können wir unsere Schlemmereien der Osterfeiertage wieder ausgleichen? Eine Frauenzeitschrift ist sich sicher: Rührei ist das Geheimnis! So soll es Heißhunger reduzieren, den Stoffwechsel auf Hochtouren bringen und sogar Fatburner-Eigenschaften haben. Aber das ist noch nicht alles, denn ein paar Bauch-weg-Extras kommen auch hinzu. Daniel und ich stöbern durch den (amüsanten) Artikel und klären auf, was an den Aussagen dran ist – und was nicht.

Mín skoðun
902.þáttur. Mín skoðun.03042024

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Apr 3, 2024 98:08

Heil og sæl. Í þætti dagsins spá þrír spekingar í spilin fyrir komandi leiktíð í Bestu deild karla. Böðvar Bergsson, Kristinn Kærnested og Sigurbjörn Hreiðarsson. Kapparnir raða liðunum í sæti og koma með marga athyglisverða mola um leikmenn og liðin. Njótið og takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is.

Gullkastið á Kop.is
Gullkastið - Súper Sunnudagur

Gullkastið á Kop.is

Play Episode Listen Later Apr 1, 2024 67:20

Súper Sunnudagur og Liverpool einir á toppnum eftir þessa viku. Stórar fréttir af þjálfaraleit Liverpool og tveir hrikalega mikilvægir leikir framundan. Fengum meistara Bjössa Hreiðars til að spá í spilin með okkur að þessu sinni. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn. Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.   Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done MP3: Þáttur 469

Podcast með Sölva Tryggva
#174 Hemmi Hreiðars með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Mar 12, 2024 101:43

Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Hermann Hreiðarsson er einn þekktasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar. Í áður óbirtum þætti fara Sölvi og Hemmi yfir magnaðan feril Hermanns, sögur úr bransanum og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/

Samfélagið
Heimsókn í flokkunarstöð Sorpu, hvað er úrvalsmjólk og hvernig er hún framleidd, málfar og vísindaspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Mar 6, 2024 55:00

Frauðplastsdemantar, villt dýr og ást íslendinga á VHS-spólum koma við sögu í Samfélaginu í dag. Við fjöllum á næstunni um plast og plastumbúðir - og ætlum að hafa spakmælið: Í upphafi skyldi endinn skoða, sem leiðarljós. Vegferðin byrjar því í Mótttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi. Sjö mjólkurframleiðendur í Þingeyjarsveit náðu þeim frábæra árangri að framleiða og fá greitt fyrir úrvalsmjólk alla mánuði ársins 2023. Frá þessu er sagt í umfjöllun á vef Þingeyjarsveitar. Við í Samfélaginu urðum forvitin um þessa úrvalsmjólk og hvernig hún er frábrugðin annarri mjólk sem íslenskir kúabændur framleiða í milljónum lítra á hverju ári. Samvinnufélagið Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Og veitir viðurkenningar þeim sem ná að framleiða úrvalsmjólk alla mánuði ársins. Jóhannes Hreiðar Símonarson framkvæmdastjóri Auðhumlu segir okkur allt um úrvalsmjólk, gæði mjólkur og hvernig henni er safnað frá kúabúum landsins. Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í sitt vikulega vísindaspjall.

Guð og menn
Hjálpaðu mér

Guð og menn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2023 55:34

Hjálpaðu mér by Rögnvaldur Hreiðarsson

Límónutréð
Anna Elísa Hreiðarsdóttir

Límónutréð

Play Episode Listen Later Sep 16, 2023 42:49

Samtal við Önnu Elísu Hreiðarsdóttur, lektor við Kennaradeild Háskólans á Akureyri

Betri helmingurinn með Ása
#120 - Katla Hreiðars & Haukur Unnar

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 86:22

Fatahönnuðurinn, frumkvöðullinn og verslunareigandinn Katla Hreiðarsdóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi alt muligt manninum Hauki Unnari Þorkelssyni.Katla hefur undanfarin ár verið að slá í gegn í fatahönnunnar heiminum en árið 2008 stofnaði hún vörulínuna Volcano design sem vatt upp á sig og er hún nú að sjá um rekstur á búðinni Systur og Makar, rekur sumarhúsaleigu og sér um rekstur á veislusal.Haukur hefur brallað ýmislegt í gegnum tíðina en starfar þessa stundina með Kötlu í öllum þessum rekstri ásamt því að reka verktakafyrirtæki með bróður Kötlu.Katla og Haukur hittust fyrst þegar Haukur mætti til hennar í búðina með blómvönd, kakó og hálsbrjóstsykur þar sem Katla hafði talað um að hún væri eitthvað slöpp. Katla var efins um að haukur væri mögulega aðeins of væminn fyrir sig. Það virtist þó ekki hafa áhrif og voru hlutirnir fljótir að gerast hjá þeim en eru þau í dag gift með fjögur börn en fylgdu tvö af þeim fylgdu Hauki úr fyrra sambandi.Í þættinum ræddum við meðal annars um búðina þeirra og hvernig það ævintýri hófst allt saman, hvar áhugi Kötlu kviknaði á fatahönnun, hvernig það var að sameina fjölskylduna, brúðkaupið, rómantíkina húmorinn og margt fleira, ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar það varð ansi óheppilegt slys á ferðalagi þeirra um England nú fyrir skemmstuÞátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Leiklistar Akademían - https://www.sportabler.com/shop/tonlistarfelagarbaejarSmitten  - https://smittendating.com/

Guð og menn
Jesús minn

Guð og menn

Play Episode Listen Later Sep 6, 2023 45:34

Jesús minn by Rögnvaldur Hreiðarsson

Guð og menn
Guð gleðinnar

Guð og menn

Play Episode Listen Later Aug 31, 2023 48:14

Guð gleðinnar by Rögnvaldur Hreiðarsson

Guð og menn
Allt eða ekkert.....?

Guð og menn

Play Episode Listen Later Aug 24, 2023 52:32

Allt eða ekkert.....? by Rögnvaldur Hreiðarsson

Verprügelt mit Drachen
VMD S3#48 – „Das Rührei der Wiederauferstehung“

Verprügelt mit Drachen

Play Episode Listen Later Jul 10, 2023 83:19

Üüüüüüberraaaaaaaaschung! Damit habt ihr nicht gerechnet, oder? Sagt ehrlich jetzt! Neee wirklich jetzt! Haha, wusste ich es doch, aus der

Eigentlich Alles
Folge 43 - Kaltes Rührei mit einer Scheibe Brot

Eigentlich Alles

Play Episode Listen Later Jun 16, 2023 68:30

Wählt keine Nazis!

Guð og menn
Guð og erfiðleikar

Guð og menn

Play Episode Listen Later Jun 10, 2023 40:17

Guð og erfiðleikar by Rögnvaldur Hreiðarsson

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Þeir bestu, verstu og skemmtilegustu á HM

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Dec 3, 2022

Elvar Geir og Tómas Þór gera upp riðlakeppni HM í útvarpsþætti vikunnar, velja úrvalsliðið til þessa, mestu vonbrigðin og skemmtilegustu karakterana. Sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli Ragnarsson, spáir í viðureignir 16-liða úrslitanna. Fjallað er um vonbrigði Þýskalands. Sæbjörn Steinke ræðir við Guðmund Hreiðarsson, markvarðaþjálfara Jamaíku og sérfræðing um þýska fótboltann. Í lok þáttarins er svo farið yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum.

Sögur af landi
Ráðskonur í sveit, eldsmiður og ungt fólk á uppleið

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Nov 4, 2022

Ráðskonur, eldsmíði og ungir á uppleið eru til umfjöllunar í þætti dagsins. Við hefjum ferðalag á heimsókn til Dalrúnar Kaldkvísl Eygerðardóttur sagnfræðings og forvitnumst um rannsóknir hennar á ráðskonum í sveit á síðari hluta 20. aldar. Því næst rifjum við upp viðtal Dags Gunnarssonar frá árinu 2018 þar sem rætt var við Hall Karl Hinriksson myndlistarmann og eldsmið sem var við störf í eldsmiðju Eldsmíðafélags Suðurlands. Að lokum kíkjum við í ræktina á Dalvík, þar sem hópurinn Ungt fólk á uppleið hittist reglulega og æfir saman. Þar er rætt við þau Sigrúnu Friðriksdóttur, Jóhann Hreiðarsson, Hlín Torfadóttur, Ásu Harðardóttur og Sigurð Ásgeirsson. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Dagur Gunnarsson og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

NFL frei Schnauze! - Footballerei Podcast Deutschland
Das Frühstücksei - Hail Mary , Football Royal Flush und Rührei im Kopf - NFL Woche 8

NFL frei Schnauze! - Footballerei Podcast Deutschland

Play Episode Listen Later Oct 31, 2022 55:19

Guten Morgen. Flo und Daniel servieren euch heute das Frühstück. CMC zerlegt die Rams im Alleingang , Kicker Drama bei den Panthers, Raiders legen ein Ei , die Eagles fliegen weiter und New York verliert mal wieder. Guten Appetit .

Tag für Tag Beiträge - Deutschlandfunk
Rührei und Spinat für wenig Geld - der Kindermittagstisch der Caritas

Tag für Tag Beiträge - Deutschlandfunk

Play Episode Listen Later Oct 5, 2022 5:43

Bertsch, Matthiaswww.deutschlandfunk.de, Tag für TagDirekter Link zur Audiodatei

Mannlegi þátturinn
Margrét Sigfúsdóttir snýr aftur og PCOS

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 29, 2022

Fyrir tveimur vikum var Margrét Sigfúsdóttir, fyrrverandi skólastýra Hússtjórnarskólans, sérfræðingur þáttarins þar sem hún svaraði spurningum sem hlustendur höfðu sent inn um allt sem viðkom heimilishaldi. Innkaup, þrif, matseld og svo framvegis. Spurningarnar voru svo margar að hún náði ekki að komast í gegnum þær allar, því var hún hjá okkur aftur í dag. Hún tók upp þráðinn frá því síðast og kláraði þær spurningar sem eftir voru og svo svaraði hún fleiri spurningum sem hlustendur höfðu sent okkur. Svo fengum við þær Ragnhildi Gunnarsdóttur og Guðrúnu Rútsdóttur til að segja okkur frá PCOS, eða fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, sem ekki margir vita hvað er, en er einn algengasti innkirtlasjúkdómur hjá konum. PCOS samtökin standa fyrir fræðslufundi í kvöld og þær sögðu okkur frá fundinum og fræddu okkur um þetta heilkenni í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Saumakonuvalsinn / Pálmi Gunnarsson (Jón Jónsson og Hreiðar E. Geirdal) Lene Májjá / Mari Boine (Mari Boine, Svein Schultz, Ole Jörn Myklebust) Like an angel passing through my room / Svavar Knútur og Kristjana Stefáns(Benny Andersson og Björn Ulvaeus) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG ÞORGERÐUR ÁSA AÐALSTEINSD.

Play Episode Listen Later Sep 29, 2022 50:00

648.þáttur. Mín skoðun. Aukaþáttur um Olísdeildina 08092022

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Sep 8, 2022 41:53

648.þáttur. Mín skoðun. Aukaþáttur um Olísdeildina. Heil og sæl. Í dag hefst keppni í Olísdeild karla í handbolta. Ég hringdi í tvo sérfærðinga, þá Björgvin Þór Rúnarsson og Hreiðar Leví Guðmundsson, og bað þá að spá fyrir um deildina í vetur. Þeir raða niður liðunum og spá í spilin með mér. Njótið. 

Sögur af landi
Sumar: Hekla Sólveig, Hanin og Yaqeen og Anton Líni

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Jul 22, 2022

Í þessum þriðja sumarþætti Sagna af landi rifjum við upp sögur af ungu fólki. Anna Þorbjörg Jónasdóttir fór í göngutúr með Heklu Sólveigu Magnúsdóttur, unglingi á Akureyri, sem er í hljómsveitinni Brenndu bananarnir. Þá höldum við vestur á Ísafjörð þar sem systurnar Hanin og Yaqeen Al-Saedi sækja nám við menntaskólann. Þær eru frá Írak og fluttu til landsins í hópi flóttafólks eftir að pabba þeirra hafði verið rænt. Og að lokum rifjum við upp viðtal Óðins Svans Óðinssonar við Anton Lína Hreiðarsson, tónlistarmann, sem hefur þrátt fyrir ungan aldur orðið fyrir fleiri áföllum en margir verða fyrir á allri sinni ævi. Efni í þáttinn unnu: Anna Þorbjörg Jónasdóttir, Halla Ólafsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

Morgunútvarpið
25. mars - Íþróttamannvirki, barnafátækt, húsnæðismál, Valdimar o.fl.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 25, 2022 130:00

Ísafjarðarbær og íþróttafélagið Vestri hafa undirritað viljayfirlýsingu vegna byggingar fjölnota íþróttahúss á Ísafirði, en gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við verkið verði á bilinu 550 til 650 milljónir króna. Í yfirlýsingunni kemur fram að bygging knatthúss muni skipta íþróttahreyfingunni á svæðinu gríðarlega miklu máli og að öllum sé ljóst að núverandi aðstaða sé ekki viðunandi. Við hringdum vestur og ræddum þessi áform við Guðfinnu Hreiðarsdóttur, formann Vestra. Hvað myndi kosta að losa öll börn á Íslandi undan fjárhagsáhyggjum? Af hverju eru börn rukkuð fyrir leikskóla, skólamáltíðir, tónlistarnám og frístundir? Þessum stóru spurningum verður velt upp á málþingi Velferðarsjóðs barna á morgun undir yfirskriftinni Höfum við efni á barnafátækt? Þar verður m.a. kynnt skýrsla um ójöfnuð meðal íslenskra barna og boðið upp á pallborðsumræður þar sem m.a. forsætisráðherra og borgarstjóri taka þátt. Til okkar komu þau Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor og Kári Stefánsson stjórnarformaður Velferðarsjóðs barna. Í nýrri úttekt Alþýðusambands Íslands kemur fram að stjórnvöld hafi á síðustu árum gripið til ráðstafana sem fært hafa beinan húsnæðisstuðning til hinna tekjuhæstu í samfélaginu. Þar segir að tilfærslan hafi meðal annars átt sér stað í gegnum skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar til niðurgreiðslu húsnæðislána - á sama tíma og markvisst hefur verið dregið úr stuðningi í gegnum vaxtabótakerfið. Við töluðum við Arnald Sölva Kristjánsson, hagfræðing ASÍ, um niðurstöður úttektarinnar. Við fórum yfir fréttir vikunnar með Guðmundi Steingrímssyni, fyrrverandi Alþingismanni og Elísabetu Ingu Sigurðardóttur, fréttakonu á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi. Söngvarinn góðkunni Valdimar Guðmundsson kíkti til okkar í morgunkaffi, en hann hefur í nógu að snúast í tónlistinni nú þegar hjól listalífsins eru farin að snúast á ný. Við röbbuðum um lífið og tilveruna og það sem framundan er í tónleikahaldi. Og við héldum áfram í tónlistinni undir lok þáttar og heyrum af Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni sem ætlunin er að keyra í gang að nýju í haust. Sindri Ástmarsson dagskrárstjóri Airwaves kom til okkar, en nú þegar hafa fyrstu listamennirnir verið kynntir til leiks. Tónlist: Gus Gus og Vök - Is it true? Elvis Costello - Dont let me be misunderstood. Jón Jónsson - When youre around. Ásgeir Trausti - Sunday drive. Reykjavíkurdætur - Tökum af stað. Valdimar - Sýn. Arlo Parks - Caroline. Start - Seinna meir.

Morgunútvarpið
25. mars - Íþróttamannvirki, barnafátækt, húsnæðismál, Valdimar o.fl.

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 25, 2022

Lestin
Kanye-fréttir, markaðsvæðing reiðinnar, Berlinale og Berdreymi

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 22, 2022 55:09

Kvikmyndahátíðin í Berlín, Berlinale er ein stærsta og virtasta kvikmyndahátíð heims, en henni lauk nú um helgina. Nokkrar íslenskar myndir og þættir voru sýndar á hátíðinni og Lestin var með útsendara á svæðinu. Ásgeir H. Ingólfsson sendir okkur berlínarpistil meðal annars um íslensku myndirnar Hreiðrið, Against the Ice og Berdreymi. Rósa María Hjörvar flytur annan pistil sinn af þremur um tilfinninguna reiði, að þessu sinni veltir hún fyrir sér reiðifantasíum millistéttarinnar og markaðsvæðingu reiðinnar. Og við heyrum hvað er að frétta í hinum klikkaða heimi Kanye West. Það er ekki bara ný plata sem kemur út í dag og nýir heimildaþættir á Netflix heldur einnig drama í einkalífinu og alvarlega ásakanir um ógnandi hegðun gagnvart fyrrum eiginkonu og kærasta hennar. GIssur Ari Kristinsson er einn af fjölmargra íslenskra aðdáenda sem fylgist með hverri hreyfingu rapparans.

Lestin
Kanye-fréttir, markaðsvæðing reiðinnar, Berlinale og Berdreymi

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 22, 2022

490.þáttur. Mín skoðun. 20012022

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Jan 20, 2022 66:25

490.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Það er fjör í dag. Siggi Sveins kemur tvisvar sinnum í viðtal í þætti dagsins í ljósi nýrra upplýsinga af handboltalandsliðinu. Hreiðar Leví Guðmundsson fyrrum landsliðsmarkvörður er á línunni úr Leifsstöð og Þórhallur Dan er að sjálfsögðu á sínum stað. ÁFRAM ÍSLAND.

Samfélagið
Bjöllurnar klingja, dýraþjónusta Reykjavíkur og strompar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 17, 2021 55:00

Karen Jane Sturlaugsson, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans Reykjanesbæjar, kennari og stjórnandi Bjöllukórsins: Að öllum öðrum hljóðfærum ólöstuðum þá er ekkert eins jólalegt og bjalla, enda klingja jólabjöllurnar ótt og títt þessa dagana, á jólatónleikum og í jólalögum og hvaðeina. Karen leiddi hlustendur Samfélagsins inn í töfraheim bjöllunnar sem hljóðfæris og klingdi í nokkrum fyrir okkur. Þorkell Hreiðarsson, deildarstjóri húsdýragarðsins og yfirmaður Dýraþjónustu Reykjavíkur: Dýraþjónusta Reykjavíkur sem er í húsdýragarðinum tekur við fjölda kvartanna vegna hunda á hverju ári. En hún veitir líka ýmsa þjónstu vegna dýrahalds í borginni og fer í útköll. Hún þurfti t.d. um daginn að sækja álft sem ekki vildi yfirgefa leikskólalóð. Dýraþjónustan er ný og er í þróun. Magnús Heiðar Þorgeirsson blikksmiður: það er brjálað að gera í strompunum í desember. Magnús er ekki jólasveinn samt. En fólk vill kveikja upp í kamínu, arin, eldstæðum á jólunum og þá er eins gott að allt virki. Og Magnús sér til þess.

Samfélagið
Netöryggi ógnað, kolefnismarkaðir, málfar og menningarhlutverk sunds

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 13, 2021 55:00

Valdimar Óskarsson framkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisisn Syndis: Alvarlegur veikleiki hefur komið upp í tölvukóða sem getur orðið til þess að skemmdarvargar komist í stýrikerfi fyrirtækja. Varað var við þessu í öllum fréttatímum í gær. Hafið er kapphlaup milli hugbúnaðarsérfræðinga og tölvuþrjóta og er spurning hvort hægt sé að gera við villuna áður en tölvuþrjótar ná að skemma mikið. Guðmundur Sigbergsson, framkvæmdastjóri Loftslagsskrár Íslands og Gunnar S. Magnússon meðeigandi og sviðsstjóri sjálfbærni hjá EY ehf: Kolefnismarkaðir, hvað eru þeir, hvernig virka þeir og hvaða tækifæri felast í þeim fyrir Ísland Málfarsmínúta Elín Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur: Heitir pottar og sundlaugar hafa gengt stóru hlutverki í íslenskri menningu frá upphafi byggðar, stærra hlutverki en ætla mætti því þær hafa oft verið samkomuhúss hreppanna. Fornleifastofnun Íslands er að rannsaka sundlaugar á Íslandi bæði fornar og nýjar og svo virðist sem fyrstu íbúar landsins hafi áttað sig fljótt á því hve gott það er að liggja í heitum potti.

Betri helmingurinn með Ása
#31 - Hermann Hreiðars & Alexandra Fanney

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Nov 17, 2021 89:16

Það er óhætt að segja að Hermann Hreiðarsson sé sannkölluð fótbolta goðsögn en hann spilaði með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í 15 ár frá árunum 1996- 2011 og hefur hann spilað flesta leiki í ensku úrvalsdeildinni af öllum Íslendingum þar sem hann gerði garðinn frægann meðal annars í Crystal Palace, Charlton og Portsmouth. Undanfarin ár hefur hann snúið sér að þjálfun og er hann um þessar mundir að undirbúa flutninga til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann hefur tekið við liði ÍBV. Hermann kynntist sínum betri helmingi, Alexöndru Fanneyju Jóhannsdóttur snemma árs 2017 en hún var þá flugfreyja hjá Icelandair. Þetta var virkilega skemmtilegt spjall og er greinilegt að þeirra samband hefur verið fullt af ævintýrum, ferðalögum og skemmtilegum uppákomum eins og heyra má í viðtalinu og eiga þau í dag saman tvo stráka en fyrir átti Alexandra einn son og Hermann tvær dætur. Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars upphaf þeirra sambands og að Alexandra hafi í raun haldið að það væri verið að gera símaat í sér þegar Hermann hringdi í hana í fyrsta skipti til þess að bjóða henni út, matarástina og keppnisskap þeirra beggja, atvinnumennskuna og tímann í ensku úrvalsdeildinni, mómentið þegar Hermann hélt að Alexöndru hefði verið rænt, matareitrun á bifvélaverkstæði í Queens, flutningana til Vestmannaeyja og margt fleira en þátturinn er stútfullur af geggjuðum sögum úr þeirra sambandstíð.  Njótið vel!Aha.is -  https://aha.isBlush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Ajax

90 mínútur
19. október 2021, Hermann Hreiðarsson og Benedikt Bóas

90 mínútur

Play Episode Listen Later Oct 19, 2021 25:59

Gestir þáttarins eru Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður.

Morgunútvarpið
15. okt - HA, lögbrot, ofbeldi barna, fréttir vikunnar og hégómi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 15, 2021 130:00

Morgunútvarpið 15.10.21 Umsjón: Rúnar Róbertsson og Gígja Hólmgeirsdóttir Undanfarna daga hefur skapast töluverð umræða um framboð á fjarnámi hjá íslenskum háskólum. Í gær kom til okkar aðstoðarrektor Háskóla Íslands og svaraði þeirri gagnrýni um að HÍ sé ekki í takt við tímann þegar kemur að fjarnámi. Í dag slógum við á þráðinn til Eyjólfs Guðmundssonar, rektors Háskólans á Akureyri, og fengum hans viðbrögð við umræðunni. Sóttvarnarlæknir hefur lagt áherslu á að ekki yrði opið fram á nótt á skemmtistöðum ef slakað verður á samkomutakmörkunum. Sagði hann ljóst að þær bylgjur sem mest vandræði hafi skapað hafi tengst skemmtanalífinu. Þetta væri hægt að sjá í raðgreiningargögnum. Kolbrún Garðarsdóttir lögmaður segir að þetta sé brot á stjórnarskrárvörðum rétti til eignaréttar og atvinnufrelsis. Við heyrðum í Kolbrúnu. Um síðustu helgi fjallaði Morgunblaðið um að óvenju mörg mál hefðu borist í haust til Barnaverndar Hafnarfjarðar, þar sem hópur barna hefur beitt annað barn ofbeldi. En þýðir þetta að ofbeldi meðal barna sé almennt að aukast? Til þess að svara þessu fengum við til okkar Mörtu Kristínu Hreiðarsdóttur, deildarstjóra Áætlana- og upplýsingadeildar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en hún hefur lengi fylgst með þróun ofbeldishegðunar meðal íslenskra barna og ungmenna. Fréttir vikunnar voru á sínum stað eins og vanalega hér á föstudögum. Í þetta skiptið kom til okkar Karítas Ríkharðsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu. Og fréttamaðurinn knái, Freyr Gígja Gunnarsson, kom til okkar í Hégómavísindahornið í lok þáttar. Hann sagði okkur fréttir af Coldplay, Stones og Cher. Tónlist: Júníus Meyvant - Color decay Moses hightower - Lífsgleði Abba - Don't shut me down U2 - Sweetest thing GDRN - Næsta líf Flott - Mér er drull Madness - It must be love Tómas Welding - Here they come The Rolling stones - Under my thumb Adele - Easy on me

Mannlegi þátturinn
Sérfræðingurinn Ingibjörg yfirljósmóðir og Sverrir klippari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 7, 2021 50:00

Í dag hófst aftur dagskrárliðurinn Sérfræðingurinn í Mannlega þættinum og verður hann á dagskrá á fimmtudögum í vetur. Sérfræðingur dagsins var Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir yfirljósmóðir ? meðgönguvernd, fósturgreining og bráðaþjónusta kvennadeildar á Landspítalanum. Hennar sérgrein er sykursýki á meðgöngu en hún er sjálf móðir tæplega 18 ára stúlku sem greindist 20 mánaða með týpu 1 sykursýki. og við byrjuðum einmitt á því að ræða um það og svo hennar starf sem ljósmóðir. Sem sagt í fyrri hlutanum sagði hún okkur frá sínu starfi og í seinni hlutanum svaraði hún spurningum sem hlustendur sendu inn á netfang þáttarins mannlegi@ruv.is. Svo heyrðum við í Sverri Kristjánssyni, klippara, þ.e. hann býr í Noregi og klippir þar kvikmyndir og sjónvarpsefni. Hann klippti nú síðast stórmyndina Margrét fyrsta, en hún er stærsta og dýrasta kvikmynd sem framleidd hefur verið á Norðurlöndunum. Myndin fjallar um ofurkonuna, Margréti fyrstu, sem barðist fyrir Kalmarsáttmálanum en hann var upphafið að Skandinavíu eins og við þekkjum hana í dag. Myndinn er leikstýrt af Charlotte Siegling og titilhlutverkið er í höndum dönsku leikkonunnar Trine Dyrholm sem margir ættu að þekkja. Halldóra Geirharðsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir fara til dæmis með hlutverk í myndinni og myndin er meðframleidd af íslenska framleiðslufyrirtækinu True North. Við fengum Sverri til að segja okkur frá sínu starfi, verkefnum og hvað er næst á döfinni hjá honum. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Sögur af landi
Anton Líni. Minningar úr Elliðaey. Heimagrafreitir á Íslandi.

Sögur af landi

Play Episode Listen Later Oct 1, 2021

Í þættinum er rætt við tónlistarmanninn Anton Lína Hreiðarsson. Anton Líni stundar nú háskólanám í Berlín. Hann hefur getið sér gott orð sem tónlistarmaður undanfarin ár en þrátt fyrir ungan aldur hefur Anton orið fyrir fleiri áföllum en margir verða fyrir á allri sinni ævi. Við heyrum líka endurminningar Unnar Láru Jónasdóttur sem fæddist árið 1935 og ólst upp í Elliðaey á Breiðafirði til 12 ára aldurs. Viðtalið var tekið árið 2011 af Pétri Halldórssyni og var fyrst flutt í þættinum Við sjávarsíðuna á Rás 1. Að lokum er fjallað um heimagrafreiti á Íslandi. Þar segir Hjalti Hugason, prófessor í kirkjusögu við Háskóla Íslands, frá rannsóknum sínum. Efni í þáttinn unnu Óðinn Svan Óðinsson og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.

90 mínútur
433, 29. júní 2021: Sigurbjörn Hreiðarsson og Benedikt Bóas

90 mínútur

Play Episode Listen Later Jun 30, 2021 27:02

Gestir þáttarins eru Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Lengjudeildarliðs Grindavíkur og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður.

Segðu mér
Ólafur Arnarson og Sólveig Sif Hreiðarsdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Dec 8, 2020 40:00

Heiðurshjónin Ólafur og Sólveig ræða ástina, lífið eins og það leggur sig Roald Dahl og eru sammála því sem Roald sagði að þeir sem trúa ekki á töfra finna þá aldrei. Þau eru bæði hagfræðingar en í dag vinna þau saman við bókaútgáfu og þýða bæði danska krimma og Roald Dahl.