POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Tryggvi Hjaltason, framkvæmdastjóri Andvara, ræddi við okkur um menntamál. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar um stöðuna. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra settist niður með okkur og fór yfir víðan völl. Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands og Dagný Heiðdal, listfræðingur og skráningarstjóri safnsins, ræddu við okkur um fölsuð listaverk og sýningar í safninu. Andrea Björk Hannesdóttir, dýralæknir Dýrheima og Ólafur Einir Birgisson, sölustjóri Dýrheima, ræddu við okkur um blessuð gæludýrin okkar. Græjuhornið Aftanfrá.
Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar hefur fæðingartíðni aldrei mælst lægri hér á landi. Árið 2025 fæddust að meðaltali 1,56 börn á hverja konu. Fyrir aðeins rúmum áratug hafði sú tala aldrei farið niður fyrir 1,93 börn. Að óbreyttu þýðir þessi fæðingartíðni fólksfækkun. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og talar við Ara Klæng Jónsson ogSigríði Ingibjörgu Ingadóttur. Blikur eru á lofti í heimi fjölmiðla og fréttamennsku í henni veröld, þar sem valdhafar, glæpagengi, stórfyrirtæki, dóms- og löggæslustofnanir vinna leynt og ljóst að því að skerða tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Góðu fréttirnar fyrir okkur eru þær að Ísland færist upp um 5 sæti á nýútgefnum lista yfir fjölmiðlafrelsi í ríkjum heims. Það eru góðar fréttir, sem segja þó ekki alla söguna. Ævar Örn Jósepsson talar við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Mánudagur 18. maí Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn Blaðamennirnir Jón Trausti Reynisson á Heimildinni og Atli Þór Fanndal, sem starfar sjálfstætt, rýna í helstu atriði kosningaúrslita um helgina og spá fyrir um framhaldið. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Umtalaðasta íslenska bókin þessa dagana er lífsreynslusaga Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti. Þar lýsir Gyrðir eigin baráttu við geðveiki og einkum þeim stökkbreytingum sem urðu til hins verra fyrir nokkrum og leiðir að því líkum að lyfjagjöf sé um að kenna. Guðmundur Andi Thorsson rithöfundur og Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður ræða bókina með Birni Þorláks. “Vöruhús tilfinninganna” er dáleiðsluaðferð með nálgun jákvæðrar sálfræði sem Ingibjörg Bernhöft hefur þróað, sem vakti mikla athygli á alþjóðlegri dáleiðsluráðstefnu í Orlando í síðustu viku. Í þættinum dáleiðir hún Ásdísi Olsen til að hætta á nikótíntyggjói. Í dag greindi Morgunblaðið frá því að Árni Tómas Ragnarsson læknir er látinn fyrir aldur fram. Gunnar Smári Egilsson tók viðtal við hann eftir að landlæknir hafði svipt hann lækningaleyfi fyrir nokkrum misserum, þar sem Árni gaf út lyfseðla á morfín til fólks sem háð er ópíóðum. Árni var læknir fíkla. Við endurbirtum viðtalið.
Sunnudagurinn 3. maí Synir Egils: Fréttamaður, formaður, framkvæmdastjóri og forsætisráðherra Þrjár konur mæta í Vettvang dagsins að þessu sinni. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB. Af nógu er að taka. Til að mynda fagnar Rósa Björk því að VG, flokkurinn hennar, mælist loks með þingmenn. Það kom fram í nýjustu skoðanakönnunum. Annars er farið vítt yfir sviðið. Núna þegar pólitíkin er að ná athygli nánast allra. Enda er kosið eftir tær vikur. Kristrún Frostadóttir er sannarlega upptekin þessi dægrin. Hún sá af tíma sínum til að koma til okkar. Því ber að fagna. Margt ber á góma. Ríkisstjórnin, efnahagsmálin, þjóðaratkvæðagreiðslan, þingið, breyttur heimur, og það til hins verra, utanríkismál og fleira og fleira.
Fórum yfir sviðið, rammpólitískir, fjölmiðlarýni og spurðum stóru spurninganna þegar kemur að knattspyrnu.
Stakløgini, "Sig mær" við Tøgn, "Suffer In Silence" við Ingibjørg Hansen og "Pápi" við Anton Liljedahl verða ummæld av Ára Rouch og Holgar Johannesen. Eyðfinn Jensen er vertur
For our latest installment in the ”revisiting” series, Nigel and Earlonne time-travel back to Season 4 and the uncertain futures of men who were living on San Quentin's now-shuttered death row. Big thanks to everyone who shared their stories with us for this episode: Al aka Watson Allison, Abu Qadir Al-Amin, Lt. Sam Robinson, and Lonnie Morris.This episode was scored with music by Antwan Williams, David Jassy, and Rhashiyd Zinnamon, and a remix of our theme music from listener Ingibjörg Friðriksdóttir.Thanks to Lt. Sam Robinson and Warden Ron Davis for their support of this episode.Big thanks to Warden Andes, Lt. Berry, and Sgt. Graves at San Quentin Rehabilitation Center; Acting Warden Parker, Associate Warden Lewis, and Lt. Avina at the California Institution for Women; and Warden De La Cruz at the Central California Women's Facility for their support of the show. Ear Hustle is coming to the East Coast! Get your tickets at earhustlesq.com/tour. Support our team and get even more Ear Hustle by subscribing to Ear Hustle Plus today. Sign up at earhustlesq.com/plus or directly in Apple Podcasts. Ear Hustle is a proud member of Radiotopia, from PRX. Learn about your ad choices: dovetail.prx.org/ad-choices
Það er kjördagur í Ungverjalandi á morgun en þá fara fram einar mest spennandi kosningar í Evrópu í langan tíma. Viktor Orban, sem hefur verið við völd í 16 ár, mælist með minna fylgi samkvæmt könnunum, og Peter Magyar, sem býður sig fram gegn honum gæti orðið næsti forsætisráðherra. Við heyrum frá Birni Malmquist sem er í Búdapest. Hann segir að þar sé mikil bjartsýni fyrir sigri Peters Magyar, sem er kannski ekkert skrítið, hann mælist með meira fylgi í könnunum en meirihluti Ungverja býr í sveitum og smærri borgum og þar nýtur Orban mikillar hylli. En Magyar í borgunum. Og hann þarf að vinna stóran sigur til þess að leggja Orban og ná meirihluta í þinginu, og það er svo sem líklegt núna að hann vinni kosningarnar, en Orban hefur gert miklar breytingar á kosningakerfinu og vægi atkvæða, og það verður því að teljast ólíklegt að fleiri atkvæði dugi til þess að vinna kosningarnar og koma Orban frá. Sigurinn þarf að vera svo stór. Eitt flóknasta og umfangsmesta manntal sögunnar hófst á dögunum. Nú á að telja indversku þjóðina. Þrjár milljónir starfa við framkvæmdina, þetta eru 33 spurningar sem verða lagðar fyrir rúman milljarð landsmanna. Í fyrsta sinn í heila öld er fólk einnig skráð eftir stétt í hinu mjög svo stéttskipta Indlandi. Birta kynnti sér málið. Heimsbyggðin virðist enn vera hugfangin af Kennedy-fjölskyldunni, þrátt fyrir að rúmlega sextíu ár séu síðan John F. Kennedy Bandaríkjaforseti var skotinn til bana. Til marks um áhrif Kennedy-fjölskyldunnar innan bandarískra stjórnmála má geta þess að frá 1947, þegar John F. Kennedy var fyrst kjörinn á þing, og þar til 2011 gengdi að minnsta kosti einn meðlimur Kennedy-fjölskyldunnar kjörnu embætti á alríkisstigi á ári hverju. Nú eru þættir um örlög sonar hans og nafna mikið í umræðunni. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir hellti sér í sögu Kennedy-fjölskyldunnar.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor og ráðstefnustjóri Vísinda á vordögum, ræddi við okkur um ráðstefnuna. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræddi við okkur um skýrslu samtakanna um vátryggingamarkaðinn. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans og Pétur Óskarsson, formaður SAF, ræddu fyrirhugaðar skattahækkanir á baðlón og ferðaþjónustuna almennt. Þorgerður Elíasdóttir er á leið til Kenýa í hjálparstarf. Hún ræddi við okkur um ferðina og með henni kom Ingveldur Ýr, formaður Íslensku barnahjálparinnar. Andri Már Kristinsson og Arnar Gísli Hinriksson, stofnendur Digido, ræddu við okkur um auglýsingapeningana sem renna út úr landi. Guðmundur Atli Hlynsson leikstjóri heimildarmyndarinnar 1949 ræddi við okkur um myndina.
Þriðjudagur 17. mars Öfgahreyfingar, kjaramál, Bretland, fjölmiðlar og Íslensk menning Ef íslenskir stjórnmálaflokkar eru að taka við fé frá erlendum öfgahreyfingum til að bjaga og rugla upplýsingar, ætti það nánast að kalla á lögreglurannsókn. Þetta segir Atli Þór Fanndal blaðamaður. Björn Þorláks ræðir við hann. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, nýr framkvæmdastjóri BSRB, ræðir kjaramál og helstu verkefni. Hún gagnrýnir styttingu atvinnubótatímabils svo nokkuð sé nefnt og segir samráð úr sögunni. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur ræðir um stöðu Keir Starmer og bresk stjórnmál. Kolbeinn Tumi Daðason fréttastjóri Stöðvar tvö, Bylgjunnar og Vísis, ræðir stöðu sjónvarpsfrétta Sýnar. Blikur eru á lofti. Björn Þorláks ræðir við hann. Eiríkur Örn Norðdahl skáld og rithöfundur, Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður, Árni Matthíasson blaðamaður og gagnrýnandi og Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona ræða við Gunnar Smára um íslenska menningu, Laufey, hálendið, söguna og söguleysið og margt annað.
Við fórum á Þjóðskjalasafnið og hittum Indriða Svavar Sigurðsson skjalavörð og hann sagði okkur afar merkilega sögu. Hann hafði heyrt að langafi hans hafi veirð einn 9 manna sem urðu fyrir eldingu við bæinn Auðnar á Vatnsleysuströnd 16. mars árið 1865. Þessi viðburður hafði vakið mikla athygli á sínum tíma og Indriði, verandi skjalavörður, hóf að leita að heimildum á safninu. Hann fann nokkrar frumheimildir um þetta undarlega og voðalega slys, þar á meðal skýrslu sem Jón Hjaltalín landlæknir skrifaði og sendi heilbrigðisyfirvöldum í Danmörku. Við heyrðum meira um þessa ótrúlegu sögu í þættinum í dag. Rabbarbarinn á uppruna sinn í Kína og hefur því ferðast langa leið áður en hann festi rætur í íslenskum görðum sem fjölært nytjagrænmeti. En getum við hugsanlega nýtt þessa áhugaverðu plöntu betur? Við veltum því fyrir okkur í dag með Björk Bjarnadóttur, umhverfis- þjóðfræðingi, en hún heldur einmitt erindi um það í Fróðleikskaffi á Borgarbókasafninu Árbæ í dag. Lesandi vikunnar var Dóra Lena Christians verslunarstjóri í Bóksölu stúdenta og meistaranámsnemi í almennri bókmenntafræði. Hún er nýkomin aftur til landsins eftir að hafa sótt stóru bókamessuna í London. Við fengum hana til að segja okkur aðeins frá því en svo auðvitað líka þeim bókum sem hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum: Meiriháttar / Rósa Guðrún Sveinsdóttir (Rósa Guðrún Sveinsdóttir) Í dansi með þér / Ingibjörg Þorbergs, Marzbræður og Kvartett Jans Morávek (Pablo Beltran Ruiz, texti Þorsteinn Sveinsson) And I love her / The Beatles (Lennon & McCartney) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
https://solvitryggva.is/ Ingibjörg Stefánsdóttir er yogakennari og athafnakona sem hefur átt og rekið YogaShala í meira en 20 ár. Í þættinum fara Sölvi og Ingibjörg yfir magnaða sögu Ingibjargar, Eurovision, bíómyndir, yoga, ferðirnar til Indlands og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
Íran er nú daglega í fréttum eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á landið fyrir viku síðan. Írönsk kona sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár segist vona að Íranar í Íran öðlist frelsi og frið og að þeir geti gengið til frjálsra kosninga. Fólk óski þess eftir harðstjórn klerkastjórnarinnar síðustu tæplega 40 ár. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir heyrði sögu hennar. Það eru tíu ár um þessar mundir frá því bylgja flóttafólks skall á ströndum og landamærum ríkja Evrópu; hundruð þúsunda voru þá á flótta frá borgarastríðinu í Sýrlandi og ógnarstjórn í öðrum ríkjum í leit að öryggi og betra lífi í Evrópu. Í mörgum ríkjum Evrópu hefur dregið úr samúð almennings með flóttafólki. Koma þeirra er talin vera ein af höfuðástæðum þess að vinsældir harðlínuflokka til hægri hafa aukist á undanförnum árum. Björn Malmquist skoðar þessa sögu með atburði vikunnar til hliðsjónar.
Átök í Miðausturlöndum hafa breiðst út frá því Bandaríkin og Ísrael gerðu árás á Íran á laugardag og drápu erkiklerkinn Ali Khameni. Ísraelar gerðu árásir á Teheran höfuðborg Írans aftur í dag og Íranar hafa gert árásir víða og til átaka hefur komið í Líbanon milli Hezbolla og Ísraela. Oft hefur verið talað um Miðausturlönd sem púðurtunnu, kveiktu árásirnar um helgina í tundrinu, rætt við Kjartan Orra Þórsson sérfróðan um málefni Írans og Svanhildi Þorvaldsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og dósent við HÍ. einn áhrifamesti og umdeildasti stjórnmálamaður Íslands, Davíð Oddsson lést í gær, Fáir hafa sett jafn mikið mark á íslensk stjórnmál. Rætt við Illuga Gunnarsson og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Ingibjörg er móðir sem hefur gengið í gegnum margt. Hún fer ekki fögrum orðum um kerfið sem hefur brugðist henni og fimmtán ára syni hennar illa.
Endalok verða rauður þráður í Heimskviðum í dag. Það eru vægast sagt umdeild endalok þáttaraðarinnar Stranger things, en óhætt að segja að það séu margir ósáttir við þau. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það sé ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Við tölum við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún segir umræðuna um að ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra. Svo er það eitt helsta flaggskip Netflix-streymisveitunnar - Stranger Things. Aðdáendur þáttanna eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar samsæriskenningar meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Duffer-bræður, skaparar þáttanna, eru sagðir hafa misst boltann í blálokin - eða er þetta kannski bara snilldar markaðssetning? Það hlýtur alla vega að vera ákveðin snilld að fá fólk til þess að vera enn að tala um þættina og jafnvel að horfa á þá aftur og aftur, til að finna vísbendingar og lesa milli línanna.
Við kynntumst Ingibjörgu Eiríksdóttur ljósmóður, sérfræðingur í ljósmóðurfræðum og brjóstagjafaráðgjafa í þættinum í dag. Landspítalinn stóð fyrir heiðursmálþingi vegna starfsloka hennar sem sérfræðiljósmóður við spítalann og miðað við erindin sem þar voru flutt þá er óhætt að segja að hún hafi markað djúp spor í faginu og verið fyrirmynd og áhrifavaldur. Ingibjörg er brautryðjandi í umönnun og fræðslu í fjölburameðgöngum, fæðingum og brjóstagjöf á Landspítalanum. Við töluðum við Ingibjörgu á þessum tímamótum, fengum hana til að rifja aðeins upp ferilinn og þróunina í faginu í þættinum. Kjarakönnun sem Gallup framkvæmdi undir lok síðasta árs fyrir norðlenska stéttarfélagið Einingu Iðju sýnir að vaxandi hlutfall félagsmanna hefur þurft að neita sér um læknis- og tannlæknisþjónustu vegna kostnaðar og stór hluti þeirra sem eru með börn á leikskóla er ósáttur við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá þeirra og hafa neyðst til að breyta vinnutíma sínum. Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast eiga erfitt með að greiða af lánum sínum ekki verið hærra síðan 2019 og yngra fólkið á sífellt erfiðara með að búa sér mannsæmandi líf. Við ræddum við Tryggva Jóhannsson varaformann Einingar Iðju í dag. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að sykurneysla fyrstu 1000 daga ævinnar (þ.m.t. á skeiði fósturþroska) getur haft neikvæð áhrif á hjarta og æðaheilsu. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum. Tónlist í þættinum í dag Dag eftir dag / Múgsefjun (Eva Hafsteinsdóttir og Hjalti Þorkelsson) Ævintýri / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson) Just Breathe / Willie Nelson & Lukas Nelson (Eddie Vedder) Á rauðum sandi / Ylja (Guðný Gígja Skjaldardóttir, Bjartey Sveinsdóttir og Smári Tarfur Jósepsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ingibjörg Ísaksen, þingflokksformaður Framsóknar, ræddi við okkur um stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri. Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir krabbameinslækninga við Landspítalann og dósent við læknadeild Háskóla Íslands, ræddi við okkur um ristilkrabbamein. Einar Bárðarson og Jógvan Hansen fóru yfir fréttir vikunnar. Júlíana Sara Gunnarsdóttir, leikkona og þáttarstjórnandi í Bakaríinu, ræddi óhugnalega reynslu sem dóttir hennar og vinkonur lentu í. Guðný Ósk Laxdal, The Royal Icelander, ræddi við okkur um handtöku Andrew Mountbatten-Windsor. Jón Erik Sigurðsson, skíðakappi settist niður með okkur nýkominn af Ólympíuleikunum.
Árið 2024 tóku 48 einstaklingar líf sitt á Íslandi og voru 35 þeirra karlar. Þessi háa tala er ástæða þess að augum er beint að körlum í meistaraprófsrannsókn sem Kristjana Atladóttir geðheilbrigðisfræðingur gerði í geðheilbrigðisfræði við Háskólann á Akureyri og kynnti nýlega niðurstöður úr. Rannsóknin er sú fyrsta hér á landi sem skoðar sérstaklega reynslu ungra karla sem hafa reynt að taka líf sitt en mun færri karlar en konur leita til heilbrigðiskerfisins eftir sjálfsvígstilraun. Sameiginlegur þráður karlana sem rætt var við, var sú upplifun að hafa ekki stjórn á eigin lífi, vera lítils virði og hafa viðvarandi sjálfsásakanir. Þessar upplifanir samræmast kenningum um áhrif áfalla á sjálfsmynd einstaklinga. Kristjana Atladóttir sagði okkur betur frá rannsókninni í þættinum í dag. Verkefnið Léttir er leiklistarsmiðjur og námskeið fyrir börn foreldra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi. Markmiðið er að efla sjálfstraust, félagsfærni og leikgleði barnanna og notast er við áfallamiðaða nálgun því börnin hafa oft upplifað áföll eins og stríð, aðskilnað frá fjölskyldu og fleira. Þetta er samstarfsverkefni Barnaheilla og Borgarleikhússins og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla og Eva Halldóra Guðmundsdóttir, yfirkennari í Leiklistarskóla Borgarleikhússins komu til okkar í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í þetta sinn sagði hún frá rannsókn sem sýnir að það eru ekki tengsl milli covid bólusetningar og taugaþroskaskerðingar, né einhverfu. Tónlist í þættinum í dag Eitt af blómunum / Páll Óskar (Benni Hemm Hemm og Páll Óskar) Heimahöfn / Fjallabræður (Hákon Guðni Hjartarson Halldór Gunnar Pálsson) Bolludagur! Sprengidagur! Öskudagur! / Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs) Leyndarmál / Bubbi (Bubbi Morthens) (Hvert er hægt að leita? Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfskaðandi hegðun má alltaf hafa samband við Píeta-samtökin, pieta.is og í síma 552-2218. Þá er hjálparsími Rauða krossins opinn allan sólarhringinn í síma 1717 og netspjall á heimasíðunni 1717.is) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins sem situr í velferðarnefnd um stöðu Landspítalans Símatími Helga Vala Helgadóttir varaformaður Evrópuhreyfingarinnar og Hjörtur J Guðmundsson sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur um ástandið á götum borgarinnar Hulda Bjarnadóttir varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins Magnús Andri Ólafsson eða "Slakur barber" hárskeri hjá studio 220 og harður United maður um hárið á Frank Illett
Bítíð á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ingibjörg Kjartansdóttir, verkefnisstjóri Menntavísindasviðs og Menntavísindastofnunar HÍ og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís – Fjölmiðlanefnd, ræddu við okkur um niðurstöður úr landskönnuninni Börn og netmiðlar. Skúli Ólafsson, sérfræðingur í leiðtogafræðum og sóknarprestur í Neskirkju og Sirrý Arnardóttir, stjórnendaþjálfari og fjölmiðlakona, fóru yfir þjónandi forystu. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, ræddu um misvægi atkvæða á landinu. Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi svaraði alls kyns spurningum um starfslok og lífeyri á mannamáli.
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Ingibjörg Stefánsdóttir er yogakennari og athafnakona sem hefur átt og rekið YogaShala í meira en 20 ár. Í þættinum fara Sölvi og Ingibjörg yfir magnaða sögu Ingibjargar, Eurovision, bíómyndir, yoga, ferðirnar til Indlands og margt fleira. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Mamma veit best - https://mammaveitbest.is/ Mama Reykjavík - https://mama.is/ Smáríkið - https://smarikid.is/ Ingling - https://ingling.is/
Það er ekki skortur á umfjöllun um Bandaríkin og bandaríska ráðamenn í fréttum þessi misserin. Mest ber á ákvörðunum Bandaríkjastjórnar á alþjóðasviðinu en minna er fjallað um það sem er að gerast innanlands. Það hefur stundum verið talað um að ráðamenn í Bandaríkjunum séu flinkir í því að snúa athyglinni annað þegar erfið mál koma upp - hefja árásir eða stríð einhvers staðar til að draga athyglina frá þeim. Og við ætlum að fjalla um mál sem hafa kannski fallið í skuggann af stærstu fréttamálunum: bólusetningar barna, stríð gegn háskólum og krafa ríkisstjórnar Trumps um aðgang að upplýsingum um kjósendur. Ólöf Ragnarsdóttir fer með okkur til Bandaríkjanna. Einir vinsælustu og mest umtöluðu sjónvarpsþættir samtímans heita Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex hefur borgað sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra verður gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Og þeir voru meðal kyndilbera fyrir Ólympíuleikana, sem hófust einmitt í gær. En þeir leika í þáttunum elskendur, sem eru tveir bestu íshokkíspilarar heimsins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir okkur allt um þættina vinsælu og áhrifin sem þeir hafa haft.
Sagan um Galdrakarlinn í OZ byggir á samnefndri bók Frank Baums sem öðlaðist nýtt líf með frægri kvikmynd frá 1939 þar sem Judy Garland fór með hlutverk Dóróteu. Síðan þá hafa óteljandi útgáfur litið dagsins ljós, bæði á sviði og á hvíta tjaldinu og ekkert lát virðist vera á vinsældum söngleiksins. Þar spillir ekki fyrir tónlistin með ógleymanlegum lögum á borð við Somewhere Over the Rainbow. Sýningin Galdrakarlinn í Oz verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Hlutverk Dóróteu í þetta sinn er í höndum Þóreyjar Birgisdóttur. Þórey kom í þáttinn ásamt Björgvini Franz Gíslasyni, en hann leikur Tinkarlinn. Um helgina fer fram árleg talning á garðfuglum á vegum Fuglaverndar. Tilgangurinn er að safna langtímaupplýsingum til þess að m.a. að fylgjast með hugsanlegum breytingum í fjölda og tegundasamsetningu. Vala Friðriksdóttir líffræðingur og félagi í Fuglavernd kom til okkar í dag og sagði okkur frá því hvernig þetta fer fram og gaf góð ráð fyrir þau sem vilja taka þátt í talningunni og fyrir þau sem vilja fóðra fugla í sínum görðum. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa, í þetta sinn talaði hann um samskipti á vinnustað, en þau geta svo sannarlega verið flókin og ýmislegt sem hafa má í huga. Tónlist í þættinum: Söknuður / Roof Tops (Oldham & Penn, texti Stefán G. Stefánsson) Somewhere Over the Rainbow / Judy Garland (Harold Arlen, texti E.Y. Harburg) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) You've Lost That Loving Feeling / Righteous Brothers (Barry Mann, Cynthia Weil & Phil Spector) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ágústa Þorbergsdóttir málfræðingur hjá Árnastofnun um aldur og áratugi Inga Dóra Guðmundsdóttir fyrrverandi fjölmiðlakona búsett á Grænlandi um Trump og áhuga hans á Grænlandi Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur Símatími Karl Andersen hjartalæknir um áfengið og hjartað Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins um stöðu barna og ungmenna Ásta Logadóttir Teymisstjóri og Lýsingarsérfræðingur hjá Lotu ráðgjöf um breytingu á byggingarreglugerð með tilliti til ljósvistar Stefán Máni á 30 ára rithöfundarafmæli í ár og ætlar að bjóða lesendum sínum að hitta Hörð Grímsson söguhetju sína á hóteli úti á landi og fara í morðgátu
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Sigmari og Ómari. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, var á línunni. Ingibjörg Einarsdóttir, á barn í meðferð í Suður-Afríku og hóf söfnun fyrir vinkonu sína sem á einnig barn þar í meðferð og missti dóttur sína í bílslysi, settist niður með okkur. Séra Guðni Már Harðarson í Lindakirkju ræddi við okkur um jólin og jólaboðskapinn. Tolli Morthens ræddi við okkur um friðarverðlaun Gusi á Filippseyjum, jólin og rjúpuna. Einn besti matreiðslumaður landsins, Viktor Örn, ræddi um jólamatinn. Anna Fríða Gísladóttir frá Nóa Siríus ræddi konfekt og jólin.
Tíu nýir þættir af Þjóðsögukistunni koma út fyrir jólin. Upp úr kistunni koma tíu jóla- og vetrarsögur, sprottnar upp úr þjóðtrú og sagnaarfi ólíkra landa. Í kistunni leynist meðal annars saga af köngulóm sem skreyta jólatré og norskum tröllum sem troða sér inn í mannahús á aðfangadag og stela jólamatnum. Ingibjörg Fríða Helgadóttir, sem stýrir Þjóðsögukistunni, kíkir til okkar og segir okkur allt um þessa nýju jólaþætti en Þjóðsögukistan er eitt vinsælasta barnaefni sem Rás eitt gefur út. Aðfaranótt aðfangadags 1956 komu 52 ungverskir flóttamenn til Íslands. Þá höfðu Sovétmenn brotið á bak aftur uppreisnina í Ungverjalandi – en þetta var fyrsti hópur flóttamanna sem fékk hæli hér á landi fyrir tilstuðlan stjórnvalda. Í nýjum þáttum, sem frumfluttir verða um hátíðirnar, fjallar Ingvar Þór Björnsson, fréttamaður hjá RÚV, um undirbúning og framkvæmd þessara aðgerða og varpar ljósi á sögu og afdrif Ungverjanna. Ingvar sest hjá okkur í þætti dagsins og segir okkur meira. Í lok þáttar kemur hljómsveitin Austurpóllinn til okkar en sú hljómsveit er sérstök fyrir þær sakir að hún er skipuð þremur tólf ára stúlkum. Hljómsveitin hefur verið að syngja fyrir gesti í miðbænum nú á aðventunni og þær eru hvergi nærri hættar. Þær segja okkur allt um hljómsveitina og ætla að spila fyrir okkur jólalög. Tónlist úr þættinum: Ellis, Dove - Heaven Has No Wings. Stereolab - Melodie Is A Wound [Edit]. GDRN, Magnús Jóhann Ragnarsson - Þín hvíta mynd.
Máni Svavarsson er höfundur tónlistarinnar í Latabæ og nú loks eru öll 100 lögin sem hann samdi fyrir hin ýmsu Latabæjarverkefni komin á tónlistarveitur. Við fórum aðeins með Mána yfir þessa sögu ásamt því að heyra af öðrum verkefnum eins og leiksýningu um Gurru Grís (Peppa Pig) sem sýnd hefur verið til dæmis á West End í átta ár fyrir jólin en Máni samdi tónlistina við þessa sýninguna. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo í veðurspjall til okkar í dag. Í þetta sinn var það jólaspáin og jólaveður í löndunum í kring um okkur. Rennur upp hlýjasti aðfangadagur í manna minnum á Íslandi? Og svo fræddi Einar okkur um ástæður landbrotsins við Vík og horfur á sjógangi þar næstu daga. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Kristrún Halla Helgadóttir, sagnfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Kristrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Dagur þjóðar. Þróun 17. júní hátíðarhalda á 19. og 20 öld e. Pál Björnsson. Ósmann e. Joachim B. Schmidt. Persepólís e. Marjane Satrapi. Mzungu e. Þórunni Rakel Gylfadóttur og Simon Okoth Aora Svo á jörðu, e. Nínu Ólafsdóttur. Strá fyrir straumi e. Erlu Huldu Halldórsdóttur Afleggjarinn e. Auði Övu Ólafsdóttur Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar & nýrra tíma e. Ófeig Sigurðsson Tónlist í þættinum: Þorláksmessukvöld / Ragnhildur Gísladóttir (Mel Tormé & Robert Wells, texti Þorsteinn Eggertsson) Litla Jólabarn / Elly Vilhjálms (Elith Worsing, Ludvig Brandstrup og Axel Andreasen, texti Ómar Ragnarsson) Jólin eru hér / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Sigurður Halldór Guðmundsson texti Bragi Valdimar Skúlason) Hin fyrstu jól / Hljómeyki (Ingibjörg Þorbergs, texti Kristján frá Djúpalæk) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB og Steinunn Bragadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ hafa reglulega skrifað greinar í fjölmiðla á kvennaárinu 2025 og í nýjustu grein þeirra, sem birtist á vísi.is undir fyrirsögninni Ólaunuð vinna kvenna, tala þær um könnun sem Varða, Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, gerði í sumar meðal félagsfólks stéttarfélaga innan ASÍ og BSRB. Þar voru kynntar niðurstöður um skiptingu ólaunaðrar vinnu á heimilum sambúðarfólks, bæði svokallaðrar annarrar vaktar og þriðju vaktar. Það sé áhyggjuefni að karlar taki hlutfallslega miklu styttra fæðingarorlof en konur, og að konur dragi oftar úr vinnu til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Sigríður og Steinunn komu í þáttinn í dag. Sölufélag garðyrkjumanna hefur undanfarin ár valið ræktendur ársins innan sinna raða. Hjónin Inga Sigríður Snorradóttir og Óli Finnsson á garðyrkjustöðinni Heiðmörk í Laugarási hlutu þennan heiður árið 2023 og í ár fengu þau hvatningarverðlaun sölufélagsins. Fjölskyldan flutti árið 2021 úr Grafarvogi í Laugarás í Bláskógarbyggð eftir að hafa fest kaup á garðyrkjustöðinni Heiðmörk. Við slógum á þráðinn austur fyrir fjall og ræddum við hjónin í dag. Er ekki allt í lagi heima hjá þér er heimildaleikhúsverk um fjórar manneskjur sem allar ólust upp hjá móður með alvarlegan geðsjúkdóm. Verkið verður flutt í útvarpinu á Rás 1 annan í jólum kl.17. Við fengum Evu Rún Snorradóttur, leikstjóra og handritshöfund og Ragnar Ísleif Bragason, einn fjögurra þáttakenda í verkinu, til að segja okkur betur frá verkinu. Tónlist í þættinum í dag: Af álfum / Friðrik Ómar og Margrét Eir (Karl Olgeirsson) Undrastjarnan / Hljómar (lagahöfundur ókunnur, texti Rúnar Júlíusson) Den store stjerna / Sissel Kyrkebö og Bergen Fílharmóníusveit (Svein Gundersen & Trygve Hoff) It's Beginning to Look a lot Like Christmas / Björgvin Halldórsson (Meredith Wilson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður sem hefur sérhæft sig í að leita að börnum, settist niður með okkur. Ingibjörg Ísaksen, þingflokksformaður Framsóknar, gagnrýnir áætlarnir barna- og menntamálaráðherra þegar kemur að framhaldsskólunum. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og Elliði Vignisson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Ölfuss, ræddu við okkur um samgöngubætur í Þorlákshöfn. Heiða Ingimarsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar og vinnur í upplýsinga- og kynningarmálum fyrir sveitarfélagið Múlaþing, ræddi við okkur um samgönguáætlun. Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson var á línunni og ræddi framtíð Íslands í Eurovision. Símatími.
Í nóvember voru 10 ár síðan fyrsta sérsniðna dagskráin fyrir fólk með alzheimer var búin til fyrir Listasafn Íslands undir merkjum rannsóknarverkefnisins „Listir og menning sem meðferð“. Halldóra Arnardóttir listfræðingur er nýkomin frá heimsókn í MoMA safnið í New York þangað sem hún var boðin í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá stofnun dagskrár fyrir fólk með Alzheimer og aðstandendur þeirra. Við ræddum við Halldóru, Jón Snædal öldrunarlækni og Ingibjörgu Jóhannsdóttur forstöðukonu hjá Listasafni Íslands í þættinum í dag. Svo fræddumst við um Öðruvísi jóladagatal sem SOS Barnaþorpin bjóða upp á þar sem íslensk börn eru frædd um jafnaldra þeirra í öðrum löndum og hvernig aðstæður þeirra eru frábrugðnar okkar. Við fengum Hjördísi Rós Jónsdóttur, fræðslufulltrúa SOS Barnaþorpa til að segja okkur betur frá dagatalinu í dag. Og svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni en í dag fjallaði hann um þræsing og bakflæði í veðrinu. Svo var það langtímaspáin og jólaveðrið, er of snemmt að segja eitthvað um það? Og að lokum var það spurningin um endanlegan árshita í Stykkishólmi, þar sem er yfir 180 ára mælingasaga, munu hitamet falla? Einar sagði okkur allt um þetta í dag. Tónlist í þættinum í dag: Snjókorn falla / Laddi (Bob Heatlie, texti Jónatan Garðarsson) Meiri snjó / KK & Ellen (Jule Styne, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Jól / Þú og ég (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Sleðaferð / Skapti Ólafsson (Leroy Anderson, texti Jólakettir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði jafnframt langdýrasta framkvæmd í sögu Færeyja. En þessar áætlanir er umdeildar, bæði efnahagslega og pólitískt. Hallgrímur Indriðason fer með okkur til Færeyja en við svo ætla þær Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir og Iðunn Andrésdóttir með okkur til Hollywood og skoða lýtaaðgerðir stjarnanna en þeim virðist vera að fjölga mikið og stjörnurnar bíða í röðum eftir nýjum lýtalækni til að freista þess að fegra og yngja andlitin um tugi árangri, með misjöfnum árangri. Við kynnum okkur síbreytilegan heim lýtalækninga og komumst að því hvort slíkar aðgerðir njóti aukinna vinsælda hér heima. Þær Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir og Iðunn Andrésdóttir ætla með okkur til Hollywood
Gestir Vikulokanna eru Víðir Reynisson, Margrét Tryggvadóttir og Ingibjörg Isaksen. Þau ræddu stöðu íslenskunnar, minni bóklestur barna, innflytjendamá, sterka stöðu Miðflokksins og vaxtalækkun Seðlabanka Íslands. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um móttökuskóla. Benjamín Júlían hjá Verðlagseftirliti ASÍ ræddi matvöruverð við okkur. Ingibjörg Einarsdóttir, Jóhanna Eivinsdóttir og María Ericsdóttir, mæður barna sem hafa farið til Suður-Afríku í meðferð kíktu til okkar. Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins og Sigurjón Þórðarson, formaður atvinnuveganefndar, ræddu um hlutleysi fjölmiðla. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi starfslok Ríkislögreglustjóra. Þorsteinn Jakobsson, Fjalla-Steini og Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Ljóssins, settust niður með okkur. Tónlistarmaðurinn Már Gunnarsson kíkti í spjall.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir gekk á fund dómsmálaráðherra í ráðuneytinu við Skúlagötu 4 klukkan eitt í gær. Niðurstaða fundarins var að hún myndi hætta sem ríkislögreglustjóri en yrði í staðinn sérfræðingur í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi hjá ráðuneytinu. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra. Mikill styr stendur um breska ríkisútvarpið BBC, en um helgina hættu bæði útvarpsstjórinn Tim Davie og fréttastjórinn Deborah Turness og vísuðu til umfjöllunar um fréttaskýringarþáttinn Panorama sem væri farinn að skaða BBC. Stjórnarformaðurinn baðst afsökunar á vinnubrögðunum. Ingibjörg Þórðardóttir fyrrverandi ritstjóri hjá BBC trúir ekki á að þar ríki kerfislæg hlutdrægni en oft sé brugðist seint og illa við þegar mistök eru gerð.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Friðbjörn Sigurðsson, læknir og Steinunn Gestsdóttir, prófessor í sálfræði fóru yfir fund sem fer fram á morgun um langvinn einkenni Covid. Símatími. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræddi fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Guðný Björk Eydal, prófessor í félagsráðgjöf og Ragnheiður Hergeirsdóttir, lektor í sömu grein, fóru yfir áhugaverða rannsókn sem þær hafa framkvæmt síðustu ár. Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju og Ingibjörg Thors, einn eigandi og sálfræðingur hjá sálfræðiþjónustunni Mín líðan, ræddu nýja þjónustu í Lyfju appinu. Örn Árnason, leikari og Bragi Þór Hinriksson, leikstjóri og handritshöfundur, ræddu nýju bíómyndina Víkina. Greipur Ásmundarson og Birkir Fannar Snævarsson mættu og ræddu klifur. Aftanfrá.
Nánast allir fjölmiðlar sem voru með aðstöðu í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og aðgang að fréttafundum þess rýmdu skrifstofur sínar og yfirgáfu ráðuneytið í vikunni. Þannig brugðust þeir við nýjum fjölmiðlareglum ráðuneytisins, sem þeim var gert að samþykkja en hverfa á brott ella. Bubbi skrifaði grein í Morgunblaðið í morgun þar sem hann húðskammaði íslenska stjórnmálamenn fyrir hvernig komið væri fyrir íslenskri tungu og þegar þjóðskáldið byrstir sig leggur þjóðin við hlustir. María Rut Kristinsdóttir og Ingibjörg Isaksen svara fyrir stjórnmálastéttina.
Annað kvöld verður sýnd heimildarmynd á RÚV eftir Bjarney Lúðvíksdóttur um heilatengda sjónskerðingu eða CVI, myndin heitir á íslensku Fyrir allra augum og er eina heimildarmyndin í heiminum í fullri lengd um heilatengda sjónskerðingu. Myndin fjallar um Dagbjörtu Andrésdóttur, metnaðarfullan söngnema sem les ekki nótur heldur lærir þær með eyranu en það dugar ekki til að útskrifast. Í leit að svörum uppgötvar hún, 26 ára, að hún hefur verið blind frá fæðingu með heilatengda sjónskerðingu, eða CVI. Dagbjört kom í þáttinn í dag ásamt Elínu Sigurðardóttur, vinkonu sinni, sem fylgir Dagbjörtu í myndinni. Við töluðum svo við Sæunni Öldudóttur, hún ber þann flotta titil að vera súrdeigsráðgjafi. Hún hefur haldið fjölda námskeiða þar sem hún hjálpar fólki að ná tökum á súrdeiginu. Hún stefnir á að opna lítið bakarí, en hún hefur selt brauð lengi og búið til deig fyrir verslanir. Sæunn fræddi okkur um grunnatriðin í súrdeigi og ýmsu súrdeigstengdu hér á eftir. Þær Guðfinna Eydal sálfræðingur og Anna Ingólfsdóttir, rithöfundur og jógakennari, gáfu út bókina MAKAMISSIR fyrir nokkrum árum sem fékk góðar viðtökur og sýndi að þörf er fyrir stuðning við fólk sem hefur misst maka. Nú bjóða þær stöllur uppá rafrænt námskeið þar sem þær fara dýpra og ítarlegar í málefnið en námskeiðið veitir fræðslu, samkennd og stuðning sem hjálpar til við úrvinnslu sorgar og að ná sálrænni endurheimt. Anna kom í þáttinn í dag og sagði frá. Tónlist í þættinum í dag: Og co / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Ítalskur calypso / Erla Þorsteinsdóttir (L. Monte & W. Merrell) Dansað á dekki / Fjörefni (P. Nicholas, texti Ellert Borgar Þorvaldsson) Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Friðrik Jónsson, texti Valdimar Hólm Hallstað) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ragný Þóra Guðjohnsen, lögfræðingur, uppeldis- og menntunarfræðingur og Lóa Guðrún Gísladóttir, doktorsnemi ræddu sjálfsskaða. Dagrún Ósk Jónsdóttir, aðjunkt í þjóðfræði og Þórunn Valdís Þórsdóttir, þjóðfræðinemi fór yfir áhugaverða rannsókn sem þær standa fyrir. Mæðurnar Ingibjörg Einarsdóttir og Jóhanna Eivinsdóttir settust niður með okkur og fóru yfir hræðilega reynslu sína af barnaverndarkerfinu. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, fór yfir veður og vind. Auður Halldórsdóttir er forstöðumaður bókasafns og menningarmála í Mosfellsbæ og Valgerður Óskarsdóttir, skjalavörður Héraðsskjalasafns Mosfellsbæjar, ræddu við okkur um námskeið í grúski. Tom Gaebel, söngvari og Sigurður Kolbeinsson, ferðafrömuður hjá Kolumbus ævintýraferðum, ræddi við okkur um tónleika á sviðinu í kvöld.
Þjóðsögukista heimsins er opnuð í hlaðvarpsþáttum í umsjón Ingibjargar Fríðu Helgadóttur. Sögurnar eru alls konar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögurnar eru frá ýmsum heimshornum og Ingibjörg Fríða ætlar að setjast hjá okkur og segja okkur allt um Þjóðsögukistuna. Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, fjallar um rannsóknir í umhverfissálfræði og hvernig fólk skynjar og túlkar umhverfi sitt í sínum vikulega pistli. Í lok þáttar heyrum við viðtal við Daníel Sæberg. Daníel missti son sinn, Jökul Frosta, af slysförum þegar hann var fjögurra ára. Daníel hefur heiðrað minningu Jökuls Frosta með því að halda Grænan dag og tilgangurinn er að safna fjármagni fyrir börn og unglinga í sorg. Tónlist þáttarins: Ævilangt / GDRN A Horse With No Name / America High heels / Júníus Meyvant Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ingibjörg Magnúsdóttir viðskiptastjóri hjá Lotu ráðgjöf um slæma og góða innivist Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Símatími Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands um Vítisengla Svala Jóhannesdóttir formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og Lilja Sif Þorsteinsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði hjá Heilshugar Þorsteinn Hermannsson aðstoðarframkvæmdastjóri Betri samgangna um Fossvogsbrú Auðunn Blöndal um nýja seríu af Bannað að hlæja
Hearing Voices eru Landssamtök fyrir öll sem heyra raddir, sjá sýnir eða hafa aðrar óhefðbundar upplifanir og áhugafólk. Grétar Björnsson félagsfræðingur og starfsmaður hjá Hugarafli og Rakel Björk Haraldsdóttir sem hefur reynslu af því að heyra raddir - koma til okkar og segja okkur nánar frá samtökunum. og hvað það er að heyra raddir? Eitt af hverjum fimm börnum elst upp hjá foreldri með geðrænan vanda og það skiptir miklu máli fyrir barn, sem á foreldri með geðsjúkdóm, að hafa einhvern í nærumhverfi sem styður við það. Samfélagið hitti Sigríði Gísladóttur, framkvæmdastjóra samtakanna Okkar heimur, og fékk að fræðast um samtökin og stöðu þeirra barna sem alast upp við þessar aðstæður. Matarvenjur sem myndast í æsku fylgja oft einstaklingum út lífið og geta haft á langtímaheilsu. Hvað vitum við t.d. um áhrif koffíns á heilsu ungmenna? Fyrsti fundur í fundaröðinni Heilsan okkar fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins á föstudaginn klukkan hálf tólf. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands ætlar að segja okkur frá Koffín neyslu, fæðuvali og svefni unglinga. Tónlist þáttarins: LAUFEY - Street by street. KK OG MAGNÚS EIRÍKSSON - Sestu Hérna Hjá Mér Ástin Mín.
Við lítum inn í tvö gallerí í þætti dagsins, fyrst í Gallerý Port, þar sem sýningin Augnlokin þyngjast stendur yfir en á henni má sjá ný verk úr smiðju Baldvins Einarssonar, og svo í Gallerí Hakk við Óðinsgötu, nýtt gallerí sem sérhæfir sig í hönnun. Við ræðum við forsprakka þess, Brynhildi Pálsdóttur og Gunnar Pétursson, um galleríið og sýninguna sem opnar á morgun, þar sem hönnuðurinn Johanna Seelemann sýnir muni sem hún býr til úr afgangs gleri. Tumi Árnason fer yfir það sem helst vekur athygli hans í íslensku tónlistarsenunni í sínum hálfsmánaðarlega pistli. En við byrjum á að kynna okkur málþing sem fer fram í samkomuhúsinu í Sandgerði á sunnudag, um metsöluhöfundinn Ingibjörgu Sigurðardóttur. Ingibjörg fæddist árið 1925 og var einn vinsælasti ástarsöguhöfundur á Íslandi á sjötta og sjöunda áratugnum. Við ræðum um Ingibjörgu við bókmenntafræðinginn Vilborgu Rós Eckard, og grípum örstutt niður í viðtal frá árinu 1987, við Ingibjörgu sjálfa.
Hróðmar Sigurðsson og Ingibjörg Elsa Turchi eru tónlistarmenn og tónskáld sem eiga áralangt samstarf að baki og hafa spilað inn á fjöldann allan af plötum og staðið í miklu tónleikahaldi. Bassaleikarinn Ingibjörg Turchi hefur komið fram með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar, svo sem Emilíönu Torrini, Bubba Morthens, Stuðmönnum og Teiti Magnússyni. Hún hefur einnig samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stórsveit Reykjavíkur og tekið þátt í verki Ragnars Kjartanssonar, Kona í e-moll, í Listasafni Reykjavíkur. Gítarleikarinn Hróðmar Sigurðsson lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla FÍH 2017 og fjórum árum síðar gaf hann út plötuna ,,Hróðmar Sigurðsson” og hlaut mikið lof fyrir. Hann skrifaði tónverkið Vík fyrir Stórsveit Reykjavíkur og var það frumflutt af sveitinni nú í vor í Hörpu. Tvíeykið hefur undanfarin 2 ár unnið saman að plötu sem kom út á vegum Reykjavík Record Shop þann 23. júlí síðastliðinn og nefnist hún plús 1 og einkennist af afar lífrænni blöndu djass, rokk, spuna og ambient tónlistar þar sem nokkuð hreinn og einfaldur hljómur rafgítars og rafbassa fær að njóta sín.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er á leið í heimsókn til Kína. Hernaðarsagnfræðingur telur að það yrði sérstakt ef forsetinn kæmi þar ekki á framfæri afdráttarlausri stefnu Íslands gagnvart innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Endurómur af erlendum íhaldssömum viðhorfum að konur eigi að draga sig úr skarkala hins opinbera lífs og helga sig heimilisstörfum og barneignum, hljómar sífellt hærra hér á landi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að þarna þurfi að spyrna við fótum. Þær raddir verða sífellt háværari sem gagnrýna Sameinuðu þjóðirnar og telja þær magnvana andspænis stríði og ófriði í heiminum. Sameinuðu þjóðirnar setja ekki lög og fastaþjóðir í öryggisráðinu beita neitunarvaldi.
157 máli eru á þingmálaskránni, rúmlega þriðjungur þeirra er endurfluttur - sumum hefur verið lítillega breytt. Viðbúið er að fæst þessara mála verði að lögum. Þingflokksformennirnir Ragnar Þór Ingólfsson Flokki fólksins og Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki ræddu um komandi þing og skrána.
Við fjöllum um bjargvætti í Sumarheimskviðum í dag en þetta er síðasti þáttur sumarsins. Í næstu viku hefjast Heimskviður að nýju. Og í síðasta þættinum ætlum við að fjalla um þá sem gera sitt besta til að gagnast góðum málefnum, það er annars vegar að bjarga flækingshundum í Taílandi og hins vegar írska tungumálinu. Hip-hop tríóið Kneekap frá Norður-Írlandi rappar bara á írsku og helsta markmiðið er að gera írskuna aðgengilegri fyrir ungt fólk. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fjallaði um Kneekap í lok mars, og hvað gerir sveitina og írska tungumálið svona sérstakt. Svo fjallar Ólöf Ragnarsdóttir um írskan athafnamann sem ákvað að helga líf sitt því að bjarga flækingshundum í Taílandi? Og af hverju hefur starf hans vakið athygli víða um heim?
Stríðið á milli Íran og Ísrael hefur staðið yfir í níu daga. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað inngrip í stríðið, mögulega hernaðarlegt. Diplótmatísk lausn er líka möguleg með aðkomu Bandaríkjanna. Á meðan geisar stríðið á Gaza og berst Ísraelsher nú á tveimur vígstöðvum. Átök hafa einnig geisað hér heima fyrir, það er að segja pólitísk átök á Alþingi. Stjórnarandstaðan berst gegn nokkrum málum ríkisstjórnarinnar af fullri hörku, sérstaklega veiðigjöldunum og bókun 35, og liggja þinglok ekki fyrir. Um hvað er deilt? Þingmennirnir Pawel Bartozek úr Viðreisn, sem er formaður utanríkismálanefndar, og Diljá Mist Einarsdóttir úr Sjálfstæðisflokknum, sem er nefndarmaður í utanríkismálanefnd og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi þingmaður og fyrrverandi utanríkisráðherra, ræða þessi mál í Vikulokunum . Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Hvað gerist þegar fangar fá að koma saman til að búa til tónlist. Getur það jafnvel stuðlað að jákvæðum breytingum og hjálpað föngum að aðlagast aftur að samfélaginu? Þetta eru vísindamenn við háskólann í Osló í Noregi að rannsaka í þremur löndum, meðal annars á Íslandi. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir ræddi við tvo þeirra og fékk að vita allt um þetta áhugaverða verkefni. Hvað verður til þess að írskur athafnamaður ákveður að helga lífi sínu því að bjarga flækingshundum í Taílandi? Og af hverju hefur starf hans vakið athygli víða um heim? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar að segja okkur sögu þessa manns og hunda sem sumir voru nær dauða en lífi en hafa eignast ný heimili víða um heim.
Aðeins eitt mál komst að í Speglinum að þessu sinni. Hleranir eftirhrunsáranna og gagnastuldur frá sérstökum saksóknara. Rætt er við Sigurð G. Guðjónsson lögmann, sem var verjandi Sigurjóns Árnasonar fyrrverandi bankastjóra og þingmennina Víði Reynisson og Ingibjörgu Isakesen.