POPULARITY
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon. Hann er einn þeirra sem lýsir leikjunum á HM sem hófst í gærkvöldi. Hann var sjálfur mikill markaskorari fyrir FH á löngum ferli og spilaði einnig með A landsliðinu. Hann hefur verið íþróttafréttamaður í um það bil þrjátíu ár og lýsir íþróttakappleikjum af mikilli innlifun. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hafnarfirðinum, upphaf knattspyrnuferilsins, hvernig það kom til að hann fór að vinna í íþróttafréttamennskunni, ást hans á tónlist og margt fleira. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Köld spænsk tómatsúpa er kælandi í sumarhitanum , við kíktum á uppskrift að einni slíkri og flettum svo í Eldhúsbókinni góðu einu sinni sem oftar. Tónlistin í þættinum: Eitt lag enn / Brimkló og Björgvin Halldórsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ripples / Genesis (Mike Rutherford, Phil Collins, Steve Hackett & Tony Banks) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Mánudagur 8. júní Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM Ofurlaun nokkurra sveitarstjóra hafa verið til umræðu að loknum kosningum. Þá gekk meirihluti í Hafnarfirði úr skaftinu vegna trúnaðarbrests. Þorsteinn Gunnarsson hefur skrifað ritgerð sem kann að varpa ljósi á álitamál í íslenskri sveitarstjórnarpólitík. Björn Þorláks ræðir við hann. Að finna sína eiginlegu rödd fæst með því að tengja við sálina sína segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona og raddþjálfi sem kennir fólki að nota röddina, finna sinn eigin styrk í tjáningunni og ná athygli fólks í viðtali við Ásdís Olsen. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfó, Freyja Gunnlaugsdóttir, skólastjóri Menntaskóla í tónlist og Ingveldur G. Ólafsdóttir, móðir Hildar Guðnadóttur, ræða skilyrði árangurs í tónlist og hvort þeim er sinnt sem stendur. Hinrik Ólafsson leikari, leiðsögumaður, framleiðandi og leikstjóri ræðir við Gunnar Smára um túrisma á Íslandi. HM með Víði Sigurðssyni. Gestur þáttarins að þessu sinni er einn reyndasti íþróttafréttamaður landsins. Heimsmeistarakeppnin er við það að hefjast. Svo er mikið gaman að fylgjast með íslenska boltanum.
Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp vikuna á föstudögum yfir sumartímann. Sara Björk farin í Hauka, FH gæti farið á gervigras, Freyr Alexandersson látinn fara, félagaskiptafréttir og miklu fleira.
Fimmtudagur 14. maí Vinstrið Aukaþáttur á uppstigningardag: Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, Finnur Ricart Andrason, María Hjálmtýsdóttir og Svenný Kristins koma að Rauða borðinu og ræða Vinstrið, framboð í Reykjavík og Hafnarfirði. Hvað vill Vinstrið og hvert stefnir það?
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Gervigreind Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands Umræðan um Mythos gervigreindarlíkan Anthropic fyrirtækisins var engu lík, líkanið var tekið af markaði af hálfu skapara síns vegna þess að það bjó yfir eiginleikum sem enginn sá fyrir. Hvað er á seyði og hvert stefnir í þessu eina stærsta máli samtímans, gerð gervigreindarlíkana sem eiga sér sjálfstætt líf. Sveitarstjórnarmál, Hafnarfjörður Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingu Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks Oddvitar helstu fylkinga í Hafnarfirði takast á. Helstu mál, ólíkar áherslur, hvernig lítur framtíðin út í þeirra augum, hvað breytist ef Samfylkingin kemst í lykilstöðu? Stjórnmál Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Halla Gunnarsdóttir, formaður VR Halla hvatti til samstöðu verkalýðshreyfingarinnar 1. maí, en Björn taldi félögin tímaskekkju og rétt að leggja þau niður. Undirliggjandi er djúpstæður ágreiningur um uppbyggingu samfélags. Landeyjarhöfn Ása Berglind Hjálmarsdóttir, alþingismaður Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmanneyjum Landeyjahöfn hefur nú verið rekin í 16 ár en enn og aftur sannast hversu erfið starfræksla hennar, hvað er til ráða? Hvað vilja Eyjamenn, hvað getur samgöngunefnd þingsins lagt til? Hvernig verða samgöngur tryggðar til Eyja?
Önnur umferð Bestu deildar kvenna er að baki og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Það eru tvö lið með fullt hús stiga, Grindavík/Njarðvík vann heldur betur sögulegan sigur en í Hafnarfirðinum eru viðvörunarbjöllur farnar að hringja. Magnús Haukur Harðarson og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir allt það helsta. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Þór Sigfússon hjá Íslenska sjávarklasanum settist niður í spjall. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, var á línunni og ræddi útspil yfirvalda í húsnæðismálum. Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði og oddviti Framsóknar og Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar, fóru yfir helstu málin sem brenna á Hafnfirðingum. Paul Hourican talar á Iceland Innovation Week og ræddi við okkur um tónlistarsköpun og sköpun yfir höfuð. Sindri Bergmann, þróunarstjóri Abler, ræddi við okkur um fyrirtækið og uppgang þess. Gummi Ben ræddi við okkur um leikinn í gær þar sem Bayern Munchen heimsótti PSG.
Viðmælendur í Vikulokununm 25. apríl voru: Ágúst Bjarni Garðarsson, ráðgjafi og fyrrverandi þingmaður og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum og fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ Pétur Markan, bæjarstjóri í Hveragerði Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Valur mættur í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Snorri Steinn og Arnór Atlason gerðu samning við HSÍ til 2032. Stelpurnar Okkar eru á leiðinni á fjórða stórmótið í röð. Valsmenn sópuðu meiðslahrjáðum KA mönnum út Heimaliðin vinna ennþá í einvígi FH og Hauka. Heldur Stjarnan sæti sínu í deildinni í kvöld? Stelpurnar Fara loksins aftur af stað eftir stuttan undirbúning. Þetta og svo miklu miklum meira í nýjasta þætti Handkastins.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni, ræddi við okkur um ráðstefnu á morgun á vegum Vegagerðarinnar. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ræddi íþróttaiðkun barna og kostnað við hana. Guðmundur Árni, oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði og Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði, ræddu um það sem brennur á íbúum í aðdraganda kosninga. Ragnar Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð og formaður bæjarráðs, var á línunni og ræddi gjaldskrárlækkanir í Fjarðabyggð. Valdimar Óskarsson frá Keystrike ræddi nýjustu vendingar í gervigreindinni. Kamilla Mía Briem, Stefán Snær Sigurðsson Kaldalóns, Halldóra Mjöll Snorradóttir, Patrekur Sigurðsson og Sunna Björg Sigurðardóttir, ungir frumkvöðlar úr Menntaskólanum við Sund, ræddu um Sjávardjásn, sjávardjásn.is.
Mánudagur 13. apríl Íransstríðið, vinstrið, fíkn, húsbyggingar og sjálfsvinna Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, ræðir fall Orban í Ungverjalandi og fíaskóið sem Íransstríðið virðist vera fyrir Trump. Björn Þorláks ræðir við hann. Svenný Kristins, Davíð Arnar Stefánsson og Esther Bíbí Ásgeirsdóttir ræða við Maríu Lilju sem fulltrúar nýs framboðslista vinstrisins í Hafnarfirði. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Áslaugu Einarsdóttur, móður sem hefur glímt við fíknisjúkdóm og misst bæði forsjá og umgengni við barn sitt. Ingvar Jónsson byggingameistari ræðir við Björn Þorláks í tengslum við breytt landslag húsbygginga hér á landi og ber aumingjaskap landsmanna á góma. Ásdís Olsen ræðir við Helgu Snjólfsdóttur verkfræðing sem opinberaðist sjálfri sér eftir að hafa keyrt á vegg.
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp handbolta vikuna. Stelpurnar Okkar fengu skell í Færeyjum og eru í úrslitaleik gegn Portúgölum á sunnudaginn. Markmennirnir eru að ráða úrslitum í einvígi FH og Hauka. Valsmenn höfðu reynsluna þegar þeir kláruðu spennutrylli á Akureyri. Stjarnan alltof stór biti fyrir Hörð. 8 liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu eru klár og það eru sömu lið þar og í fyrra. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fram og til baka er víðförull þáttur og í þessari sérstöku páskaútgáfu tyllum við niður fæti í höfuðborg Tævan, Taipei. Felix Bergsson segir okkur af upplifun sinni af þessari mögnuðu eyju og fólkinu sem þar býr. Gestur þáttarins, Þorsteinn Kristinsson stjórnmálafræðingur, býr einmitt í Taipei ásamt eiginkonu og nýfæddum syni. Þorsteinn, eða Stenni eins og hann er yfirleitt kallaður, segir okkur af sjálfum sér, uppvextinum í Hafnarfirði og lífinu í Taiwan en víkur einnig að áhugaverðri sögu landsins, sambandinu við Kína og stjórnmálunum. Komið með þegar við flökkum í orðsins fyllstu merkingu fram og til baka
Gestur okkar í kvöld er Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar fyrir Framsóknarflokkinn.Umræðuefni í þættinum:Kosningabaráttan framundanSamstarfið í bæjarstjórnFramsókn í Hafnarfirði og landsmálinFramsókn á landsvísuUppbyggingin í HafnarfirðiStóru áskoranirnarSamgöngumálÁrangur og næstu skrefMenninginÍþróttalífiðBæjarstjórinn og maðurinnRiddaraspurningarÞessi þáttur er í boði:KaldiÍslandssjóðirSmáríkiðGrillmarkaðurinnHeimaformKrónanBad MickeyOrka NátturunnarGIGGÓELKOECITLengjanDave&JonsFrumherjiNjótið vel kæru hlustendur.
Gestir Vikulokanna voru Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, Valdimar Víðisson bæjarstjóri í Hafnarfirði og Helga Þórðardóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins í Reykjavík. Til umræðu voru leikskólamál, barnavernd og veikindaréttur opinberra starfsmanna.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Beta Reynis segir offitu ekki vera tilviljun heldur kerfisvandi Atli Björn Levy samgönguverkfræðingur og forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum um endurbætur á Suðurlandsbraut Símatími Ásdís Ósk Valsdóttir fasteignasali hjá Húsaskjól fasteignasölu um verktakalán. Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður menningar og ferðamálanefndar og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði Andri Ólafsson sérfræðingur í Ameriskum fótbolta ræddi við okkur um Super Bowl sem er á sunnudaginn
Vetrarhátíð hefst í Hafnarfirði á fimmtudaginn og meðal viðburða er sundbíó þar sem hægt er að horfa á bíómyndina When Harry Met Sally í Sundhöll Hafnarfjarðar og þetta er ekki bara bíó því ungir og upprennandi leikarar fara á kreik í hlutverkum Harry og Sally, og djassband sér um að setja gesti í réttu stemninguna fyrir sýningu með því að leika djasslögin úr myndinni. Jón Agnar Ólason hjá RIFF og Iðunn Gígja Kristjánsdóttir, listrænn stjórnandi sundbíósins, komu í þáttinn í dag. Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá því nokkrir íslenskir skíðakappar fóru á Ólympíuleikana í Innsbruch og kepptu í svigi og stórsvigi fyrir Íslands hönd. Þrír frá Akureyri og einn frá Ísafirði. Fjórmenningarnir urði miklir vinir og héldu sambandi alla tíð og í dag eru þeir tveir eftir, Árni Óðinsson og Tómas Leifsson og þeir félagar ætla að halda uppá tímamótin með því að fara á Ólympíuleikana á Ítalíu. Við spjölluðum við Árna og Tómas í þættinum í dag. Svo var að það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni, en í dag ræddi Einar fyrst aðeins um óvenjulegu tíðina undanfarið og einkum snjóleysið sunnan og vestanlands. En svo rifjaði Einar upp með okkur svakalegt óveður sem gekk yfir landið fyrir réttum 35 árum, s.s. 3.febrúar 1991. Það hefur til dæmis ekki orðið svona hvasst á höfuðborgarsvæðinu síðan og vantar bara talsvert upp á það. Við heyrðum brot af fréttaauka sem var í útvarpinu vegna óveðursins og Einar fór betur yfir þetta ofsaveður og afleiðingar þess. Í fréttaaukanum frá 1991 heyrðum við í Atla Rúnari Halldórssyni fréttamanni, Guðmundi Hafsteinssyni veðurfræðingi og fréttamönnunum Jóni Guðna Kristjánssyniog Karli Eskil Pálssyni. Tónlist í þættinum: Bíldudals grænar baunir / Jolli og Kóla (Valgeir Guðjónsson) Hoppsa bomm (á skíðum skemmti ég mér) / Helena Eyjólfs og Hljómsveit Ingimars Eydal (H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir) It Had To Be You / Harry Connick Jr. ( I. Jones & Gus Kahn) Veðurglöggur / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Una Björk Kjerúlf hlaut í gær Ljóðstaf Jóns úr Vör, en verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2001 í minningu skáldsins Jóns úr Vör. Ljóð Unu Bjarkar kallast Framlag mitt í minningabanka nærri útdauðra ljóðaen í rökstuðningi dómnefndar segir að það sé listilega lipurt og leikandi en efni þess sé nokkuð kvíðablandið þegar betur er að gáð. Við ræðum við Unu Björk Kjerúlf í þætti dagsins. Einnig minnumst við fyrstu útvarpssendingarinnar á Íslandi sem fór fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirði fyrir 100 árum síðan. Þetta var fyrir daga ríkisútvarpsins en Ottó B. Arnar símfræðingur hafði fengið leyfi til að stofna og starfrækja útvarpsfélag og stóð að þessari útsendingu. Til að minnast þessa stórviðburðar höfðu þeir Sigurður Harðarson, rafeindavirki og formaður Hollvina um sögu útvarps á Íslandi og Birgir Arnar, sonur Ottós B Arnar, frumkvæði að því að útvarpsguðsþjónustu frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði verður útvarpað beint hér á Rás 1 á 100 ára afmælinu næstkomandi sunnudag. Þeir verða gestir okkar í dag. Einnig flytur Tumi Árnason pistil þar sem meðal annars ný plata Sölva Kolbeinssonar kemur við sögu.
Sóley Kaldal ræðir mögulegar sviðsmyndir í málefnum Grænlands, en í gær fór fram fundur í Hvíta Húsinu, þar sem ráðherrar frá Danmörku og Grænlandi hittu bandaríska ráðamenn. Jóhannes Bjarki heimsækir sögufrægt hljóðver í Hafnarfirði, Hljóðrita, og ræðir við Jónatan Garðarsson, fyrrum útvarpsmann, Kolbeinn Rastrick rýnir í nýja suður-kóreska bíómynd, No Other Choice.
Árið 2023 kom Siggi Bond og ræddi tímana í FH, hitt gettóið í Hafnarfirði - Norðurbærinn. Ökumaðurinn Siggi og hver skeit í pennaveskin í Víðó?
Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði, mæti í kaffispjall. Við ræðum um samskiptin milli stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðunnar, hvort og þá hvernig reynslan úr bæjarstjórn nýtist í landsmálunum, hvernig það kom til að hún ákvað að reyna fyrir sér í stjórnmálum á sínum tíma, um reynslu hennar af móttöku hælisleitenda í Hafnarfirði, fylgislækkun Sjálfstæðisflokksins og margt fleira.
Í dag heimsækjum við Gerðuberg í Breiðholti – þar er rekin áhugaverð verslun þar sem allt er ókeypis. Hver sem er getur komið við og tekið hluti úr hillum eða skilið eftir hluti sem aðrir geta tekið með sér heim. Ég heimsótti verslunina í vikunni og ræddi við verslunarstjórann og nokkra viðskiptavini. Við fáum líka þriðja pistilinn í örpistlaröð Þorgerðar Maríu Þorbjarnardóttur og Láru Sólveigar Lefort Scheefer – sem eru í Belem í Brasilíu á COP-loftslagsráðstefnunni. Í dag segir Lára okkur frá brösugri Brasilíuferð sinni og fyrstu dögum ráðstefnunnar. En við byrjum á Jólaþorpinu í Hafnafriði, sem opnar á Thorsplani í dag. Hluti miðbæjarins breytist í göngugötu á meðan jólaþorpið er opið, en þorpið hefur vaxið ár frá ári og nýtur vinsælda bæði meðal Hafnfirðinga og annarra. Þær Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri og Sunna Magnúsdóttir verkefnastjóri, báðar hjá Hafnarfjarðarbæ, kíkja til okkar. Tónlist frá útsendingarlogg 2025-11-14 JFDR - White sun. Maria Somerville - Garden. Artur Verocai - Na Boca do Sol. Cole Davis - I Want You Gone (ásamt Bon Iver).
Fimmtudagur 23. október Kvennaverkfall, réttur, konur, bræður og piparmeyjar Það er kvennaverkfall á morgun en ekki allar konur hafa kost á því að taka þátt. Oft er rætt um konur af erlendum uppruna í þessu samhengi. Jasmina Vasjovic, stjórnmálafræðingur ræðir við Maríu Lilju um málið. Vaxtamálið, Ný stjórnarskrá, áfengi og börn, mál Steinþórs Gunnarssonar, þvingunarfækkun sveitarfélaga og sigur blaðamanns gegn sveitarfélagi verða til umræðu í þættinum Réttur er settur. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir þessi mál í samtali við Björn Þorláks. Hlín Agnarsdóttir höfundur og leikkonurnar Rósa Guðný Þórsdóttir og Guðbjörg Thoroddsen segja Gunnari Smára frá leiklestri á Allt er um okkur, leikriti um eldri konur í bókaklúbb og ræða um aldur, konur, kvennabaráttu, feminisma og kvennaverkfall. Bræðurnir Ólafur Þ. prófessor í stjórnmálafræði og Tryggvi Harðarson fyrrverandi námsmaður í Kína og fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði og víðar segja frá ferð sinni til Kína og þeim stórkostlegu samfélagsumbreytingum sem þar hafa átt sér stað frá þeim tíma að Tryggvi fór til náms í Peking fyrir hálfri öld. Saga einhleypra kvenna á Íslandi hefur verið kortlögð og kemur út á bók eftir nokkra daga. Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir ræðir piparmeyjar og viðhorf til þeirra í samtali við Björn Þorláks.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sigurður Sigurjónsson leikari og leikstjóri. Hann fór mjög ungur í leiklistarskólann og vakti fljótt athygli eftir útskrift. Auðvitað hefur grínið, Spaugstofan, Skaupin og margt fleira, verið fyrirferðamikið í hans ferli, en hann er einnig frábær í alvarlegri hlutverkum og í seinni tíð hefur hann einnig verið fantagóður í hlutverki skúrka. Það var virkilega gaman að spjalla við Sigurð, einn ástsælasta leikara þjóðarinnar, fara með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hafnarfirðinum og svo fengum að vita hvað hann er að bardúsa þessa dagana. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti sem var auðvitað á sínum stað. Veðurspáin var ekki góð því var um að gera að hafa það huggulegt og búa til góðan mat og Sigurlaug var á herragarðsslóðum í matarboðshugleiðingum. Tónlist í þættinum í dag: Ég lifi í draumi / Björgvin Halldórsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Teach Your Children / Crosby, Stills, Nash & Young (Graham Nash) Father and son / Cat Stevens (Cat Stevens) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Hvað vitum við um lífríkið á hafsbotninum umhverfis Ísland? Þekking vísindamanna er gloppótt og sömuleiðis vitneskja um áhrif botnvörpuveiða á þetta lífríki. Í sumar hitti Samfélagið Steinunni Hilmu Ólafsdóttur, sjávarlíffræðing, um borð í nýja hafrannsóknaskipinu, Þórunni Þórðardóttur. Steinunn Hilma var á leið í nokkurra vikna siglingu til að rannsaka lífríki hafsbotnsins við Ísland og sagði okkur frá rannsóknaraðferðunum, stöðu þekkingar og hvað henni finnst um þá útreið sem botnvörpuveiðar fá í nýjustu mynd Davids Attenborough, Ocean. Skólar landsins eru fullir af lífi á ný eftir sumarfrí og í þættinum ætlum við að fá innsýn inn í vinnudag kennara. Atli Rafnsson er umsjónarkennari við Setbergsskóla í Hafnarfirði. Við fylgdum honum eftir einn vinnudag, frá því hann mætti hjólandi til vinnu að morgni og þar til hann gekk inn í síðustu kennslustund dagsins. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, kom í þáttinn og sagði okkur frá nýrri rannsókn á Parkinson sjúkdómnum. RÚNAR JÚLÍUSSON - Hamingjulagið. Mitchell, Joni - Little Green. FRIÐRIK DÓR - Ekki stinga mig af.
Rætt er við Ásgeir Bjarna Lárusson framkvæmdastjóra CAE Icelandair training í Hafnarfirði um breytingar á starfseminni í tengslum við nýjan flughermi af gerðinni Airbus 320. Nýi hermirinn hefur nú hlotið alla formlega vottun frá eftirlitsaðilum og er tilbúinn til notkunar. Ásgeir Bjarni fer yfir þetta ferli og segir frá öflugri starfsemi í þjálfunarsetrinu sem hann hefur stýrt síðustu árin, en hann hefur áralanga reynslu í ýmsum störfum innan Icelandair.
Guðrún Jóhnana er nýr skólastjóri Söngskólans í Reykjavík og hún segir frá því sem og sönghátíðiinni Hafnarfirði .
Samantha Smith afrekaði það að vera valinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar og vera valin í lið ársins í Bestu deildinni í fyrra, það er afrek!Samantha kom til mín á Ölhúsið í Hafnarfirði og við ræddum uppvaxtarárin, tímann í Texas, hvernig hún svo endaði á Reyðarfirði og í kjölfarið á Breiðablik. Sammy svarar því svo til hvort hún hafi áhuga á að spila fyrir Íslands hönd ef einhver á þingi mætir í vinnuna og græjar vegabréf fyrir hana. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Budvar, Keilir Golf Club, Lengjunnar, Fiskverslunarinnar Hafið og WC!Góða skemmtun.
Við heilsum frá Íshúsinu í Hafnarfirði – þar eru vinnustofur listamanna, hönnuða, handverksmanna og fleiri og hér verðum við í dag. Íshús Hafnarfjarðarer viðeigandi staður á sjálfum Hönnunarmars, sem hófst á miðvikudag og lýkur á sunnudag. Hér í Íshúsinu við smábátahöfnina í Hafnarfirði er sannarlega nóg af hönnun og ýmsu öðru sem við ætlum að kynna okkur í dag. Tónlist úr þættinum: ARETHA FRANKLIN - Rescue Me. THE BEATLES - From Me to You. Sylvan Esso - Ferris Wheel.
Við erum að nálgast miðjan Mottumars, slagorð þessa árlega átaks Krabbameinsfélagsins, gegn krabbameinum hjá körlum, þetta árið er: Ertu að grínast með þinn lífsstíl? Þar er vakin athygli á óheilbrigðum og heilbrigðum lífsvenjum sem við getum haft. Guðni Gíslason, ritstjóri Fjarðarfrétta, kom til okkar í dag og deildi sögu sinni, en hann greindist með blöðruhálskrabbamein nánast fyrir tilviljun fyrir rúmu ári. Með Guðna kom Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Í Hafnarfirði hefur börnum og ungmennum með margvíslegan vanda staðið til boða að fara í músíkmeðferð hjá Ingu Björk Ingadóttur músíkmeðferðarfræðingi. En hvað er músíkmeðferð? Inga segir að hver og einn hafi sinn eigin grunntón, takt, flæði og hraða og þegar unnið sé markvisst með tónlistina sé hún ótrúlega öflug. Meðferðin hentar vel þeim sem eigi erfitt með hefðbundna tjáningu og henti einmitt þar sem samtalsmeðferð geri það ekki. Við ræddum við Ingu Björk í þættinum og sungum með henni lag, sem hún hafði sérstaklega samið texta fyrir okkur og þáttinn. Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja sýnir um þessar mundir í Árnesi gleðileikinn Sex í sveit í leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Fyrstu sýningum hefur verið mjög vel tekið enda fjörmikil sýning og hlutverkin eru auðvitað í höndum fólks úr sveitinni, fólk sem leggur á sig að æfa hvert einasta kvöld í margar vikur eftir fullan vinnudag. Oddrún Ýr Sigurðardóttir er ein þeirra sem leikur í sýningunni, hún er líka garðyrkjubóndi í Garðyrkjustöðinni í Hrunamannahreppi, þroskaþjálfi og reiðkennari. Við heyrðum í Oddrúnu í dag. Tónlist í þættinum í dag: Við viljum lifa / Ríó Tríó (L. Alberto, texti Helgi Pétursson) Lífið er lotterí / Þrjú á palli (höf lags ókunnur, texti Jónas Árnason) Í ró / Inga Björk Ingadóttir (Inga Björk Ingadóttir) Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Fjölmennasta skátafélag landsins Hraunbúar Hafnarfirði fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir og félagsforinginn Bjarni Freyr Þórðarsson segir að aðalatriðið í skátastarfinu snúist um að undirbúa fólk fyrir lífið. Skátastarfið snúist ekki um bikara og medalíur heldur veganesti út í lífið, sjálfsbjargarviðleitni og að efla sjálfstæða einstaklinga og leiðtoga. Við ræddum við Bjarna og Hörpu Hrönn Grétarsdóttur sveitaforingi, í dag. Það er ríkt í okkur að vilja láta gott af okkur leiða, en það eru ekki allir sem vita hvernig á að snúa sér þegar að því kemur. Eins getur verið snúið að ganga ekki of nærri sér á þeirri vegferð. Sigurborg Kr. Hannesdóttir sagði okkur í dag frá sinni reynslu, en hún hefur sjálf upplifað að ganga of nærri sér á slíkri vegferð og nú vill hún leiðbeina fólki í svipuðum sporum með því að nota þeirra eigin sögu, á netnámskeiði sem hún kallar Sagan af þér að breyta heiminum. Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni og kort dagsins barst nú frá Vestmannaeyjum því Magnús er kominn heim frá Grænhöfðaeyjum. Hann sagði frá ýmsu því sem við er að eiga í Eyjum þessa dagana. Þar er tekist á um samgöngur, sem hafa verið í nokkru lamasessi vegna óveðurs í febrúar, sem og sandburðar í Landeyjahöfn. Hann sagði líka frá deilum sem hafa skapast vegna minnismerkis um gosið 1973, en um það verður haldin íbúafundur næsta föstudag. Tónlist í þættinum í dag Miðvikudagur / Þokkabót (Ingólfur Steinsson, texti Steinn Steinarr) Breaking up is Hard to Do / Neil Sedaka og Sissel Kyrkjebö (Neil Sedaka & Greenfield) Lazy Sunday / Small faces (Marriott Lane) Girl From Before / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Um helgina fór fram fundur á vegum Umboðsmanns barna í samvinnu við ungmennaráðin á höuðborgarsvæðinu og UNICEF þar sem málefni Strætó voru rædd. Markmið fundarins var að koma á formlegum umræðum milli barna og ungmenna, Strætó og sveitastjórnum um umbætur á strætókerfinu með hag barna að leiðarljósi. Þau Dagur Jónsson og Júlíanna Rós Skúladóttir voru tveir af fulltrúum ungmenna á fundinum, þau voru hjá okkar í dag og sögðu okkur frá því helsta sem ungmennin komu á framfæri á fundinum, til dæmis öryggismál og samskipti við vagnstjóra og hvernig var tekið í tillögurnar. 64 ára gamall húsasmiður og innanhúsarkitekt úr Hafnarfirði var að gefa út sína fyrstu bók, ljóðabók sem heitir Þú ert engill. Hans Unnþór Ólason heitir höfundurinn og hefur fengist við að raða saman orðum í rúmlega hálfa öld og yrkisefnið í þessari ljóðabók er konan hans Helena Mjöll en hann segir að hún sé engill í mannsmynd. Við töluðum við Hans í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í Veðurspjallið í dag. Hann talaði um ótíðina að undanförnu og djúpar lægðir á Atlantshafinu. Svo sagði hann okkur frá veðurspám sem verða sífellt nákvæmari og hvernig verkefni veðurfræðinga hefur því breyst frá því að spá í veðrið yfir í að túlka og vara við á réttum tíma og stöðum og þar mun gervigreindin, eða hermigreindin, gegna miklu hlutverki í túlkun veðurspárinnar. Svo ræddi hann um vetrarvertíð til forna sem hófst eftir Kyndilmessu (2.feb) og erfiða sjósókn um hávetur. Einar horfði svo til verstöðvarinnar í Dritvík og við enduðum á lestri Jóns Helgasonar á Áföngum, 3. erindi um Dritvík. Tónlist í þættinum í dag: Önnur sjónarmið / Edda Heiðrún Bachman (Hilmar Oddsson) Dagný / Eivör Pálsdóttir og Egill Ólafsson (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson) Ást / Orri Harðarson (Orri Harðarson) Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Kristján Kristjánsson og Magnús Eiríksson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við fræddumst í dag um foreldrafærninámskeið sem haldið hefur verið í Hafnarfirði í næstum aldafjórðung, frá árinu 2000. Í fyrra sóttu 100 foreldrar námskeiðið þar sem þau fá kennslu og eru þjálfuð í styðjandi leiðum í uppeldishlutverkinu og læra meðal annars að setja börnum sínum skýr mörk á mildan máta. Kolbrún Sigþórsdóttir, verkefnisstjóri PMTO - foreldrafærni í Hafnarfirði, sagði okkur frá þessu námskeiði og þessari PMTO leið í þættinum í dag. HM í handbolta hefst í dag. Þorkell Sigurbjörnsson kom til okkar í dag ásamt Vigni Stefánssyni, en það muna kannski margir eftir því að Vigni var flogið út á miðju EM móti 2022 af því Bjarki Már Elísson fékk Covid. Vignir spilaði í ótrúlegum sigri á móti Frökkum, en fékk svo sjálfur Covid í mælingu eftir leikinn og spilaði ekki meira á mótinu heldur sat í einangrun á hótelherbergi í Búdapest. Vignir er farinn að lýsa landsleikjum á RÚV og mun verða áberandi í lýsingum okkar á þessu móti. Þeir fóru með okkur yfir mótið og leiki Íslands í þættinum. Jóhannes Kr. Kristjánssson, rannsóknar- og heimildamyndagerðarmaður sem nú stýrir hinu vinsæla hlaðvarpi Á VETTVANGI, greindist með sykursýki tvö þegar hann var í miklum önnum að vinna heimildarþættina Storm, sem fjallaði um Covid faraldurinn á Íslandi og áhrif hans á samfélagið. Ótal einkenni voru komin fram sem hann hafði ekki gert sér grein fyrir, eins og tíð þvaglát, fótaóeirð og svitaköst við minnstu áreynslu. Það var ekki fyrr en hann var kominn inn á bráðamóttöku með hjartsláttatruflanir að hann greindist með sjúkdóminn og ákvað í kjölfarið að taka málin í sínar hendur. Hann tók smá skref í einu, minnkaði matarskammtana og byrjaði að hreyfa sig rólega og hefur nú létt sig um um það bil tuttugu og fimm kíló. Helga Arnardóttir ræddi við Jóhannes á Heilsuvaktinni í dag um það hvernig hann snéri við blaðinu. Tónlist í þættinum í dag: Enginn veit / Sigrún Harðardóttir og Oríon (Lennon & McCartney, texti Eysteinn Jónasson) Blackbird / The Beatles (Lennon & McCartney) Tico tico / Les Baxter (Les Baxter) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Doc, Gunni Birgis, Hjálmar Örn og Jói Már fór yfir peningana í Hafnarfirði.
Fjölskyldu mál tekið fyrir í þættinum. Fyrirtæki að negla upp leikskóla fyrir starfsfólk, maður sagðist hafa fengið klamýdíu í ræktinni og hver eru helstu leitarorð þín á Pornhub árið 2024? Við dustuðum rykið af lögregludagbókinni og fórum í gegnum sannar sögur. Síðasti þáttur fyrir jól. Góða skemmtun!
Gestur dagsins er Kristján Ómar Björnsson. Kristján Ómar er einn leikjahæsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu með skráða 531 mótsleiki hjá KSI auk þess sem hann spilaði í Svíþjóð, geri aðrir betur! Kristján Ómar stofnaði Nú skólann í Hafnarfirði þar sem hann er Heilsustjóri. Við fórum yfir víðan völl! Kristján valdi bestu leikmenn sem hann hefur spilaði með, besta þjálfarann, fór yfir um 30 ára meistaraflokksferil og kynnti mig fyrir stefnu skólans sem hann stofnaði.Við þökkum Nettó, Hafinu fiskverslun, Netgíró, Visitor, Fitness sport, Netgíró og Budvar fyrir samstarfið góða og vonum að þið hafið jafn gaman að og ég við hlustunina. Njótið!
Fyrir nokkrum árum síðan varð myndlistarkonan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir vör við fjölgun flóttamanna í heimabæ sínum, Hafnarfirði. Hún tók líka eftir því að þar var fátt sem greip fólkið og ákvað að hafa frumkvæði að því að búa til vettvang þar sem fólk með ólíkan bakgrunn hefði tækifæri til þess að kynnast og taka þátt í samfélaginu. Úr varð fjölbreytt starf með reglulegum listasmiðjum, viðburðum og samverustundum og stofnun hjálparsamtakanna GETU, sem styður við flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Hafnarfirði, Kópavogi og nágrenni. Hafnarborg er meðal samstarfsaðila GETU og þar verður á laugardag boðið upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem arabísk leturtákn verða innblástur fyrir listræna sköpun, undir leiðsögn listamannanna Yöru Zein og Ingunnar Fjólu. Við lítum við á vinnustofu þeirra í hafnarfirði og heyrum af viðburðinum og samstarfinu. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var stofnuð fyrir 20 árum og heldur upp á það með tvennum tónleikum í Langholtskirkju um helgina. Sveitin var stofnuð um það leyti sem sett var tónlistardeild við Listaháskóla Íslands því það vantaði vettvang fyrir nemendur Gunnsteinn Ólafsson hljómsveitarstjóri er einn stofnenda hljómsveitarinnar og verður gestur okkar í þætti dagsins. Reykjavík Dance Festival lauk eftir nokkurra daga veislu síðastliðinn sunnudag. Katla Ársælsdóttir og Nína Hjálmarsdóttir fóru á nokkrar sýningar sem þær munu rýna í, í þætti dagsins og í næsta þætti. Katla ríður á vaðið í dag með umfjöllun um Konukroppa og When a duck turns 18 a boy will eat her. En við hefjum þáttinn á símtali við semballeikarann Halldór Bjarka Arnarson, sem búsettur er í Sviss, en heldur tónleika undir yfirskriftinni Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma, í Breiðholtskirkju á laugardag. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Í dag fjöllum við um umdeilt mál í Hafnarfirði. Mikill hitafundur var haldinn í Bæjarbíói í Hafnarfirði í gær, þar sem kynntar voru breytingar á aðalskipulagi sem tengjast Coda Terminal-verkefninu, svokallaða. Verkefnið hefur mætt talsverðri andstöðu íbúa, og það kom bersýnilega í ljós á fundinum í gær Samfélagið var á fundinum í gær og ræddi við kjörna fulltrúa, talsmenn Carbfix, og íbúa Hafnarfjarðar. Króknum við eða stiknum í framtíðinni? Við fáum Halldór Björnsson, loftslagsfræðing á Veðurstofunni til okkar í loftslagsspjall. Styrkur koltvísýrings í andrúmsloftinu stendur nú í 422 milljónahlutum, er á niðurleið eftir sumar á norðurhvelinu. Það er árssveiflan - en grafið fyrir síðustu áratugi sýnir skarpa og stöðuga hækkun og samhliða hækkar meðalhiti á jörðinni. Við ræðum við Halldór um hitamet nýliðins sumars, fellibylji, veltihringrás atlantshafsins og hættuna á kólnun á Íslandi. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall um orðmyndanir og slettur, meðal annars. Tónlist í þættinum: Joplin, Janis - Mercedes Benz.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastjóri Carbfix um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði. Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra um efnahagsmál, húsnæðismál og samgöngumál. Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur og Jón Ólafsson, prófessor við HÍ um alþjóðamál.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin: Í þessum þætti: Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar um umhverfismál. Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Þorkell Máni Pétursson útvarpsmaður um veðmálastarfsemi og fjárhættuspil. Ragnar Þór Reynisson stofnandi mótmælasíðu og Geir Guðmundsson verkfræðingur um Carbfix verkefnið í Hafnarfirði. Alexandra Briem borgarfulltrúi og Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður um Reykjarvíkurflugvöll.
AB VARAHLUTIR - BÍLJÖFUR - BÍLAPUNKTURINN - Á FERÐ OG FLUGI Bragi, Jakob C og Sævar Jóns fara yfir aðra umferð Íslandsmótsins í torfæru sem fór fram í Hafnarfirði.
Í nafnaveislu í Hafnarfirði um helgina, yfir kaffibolla, aspasbrauðrétt og marengstertu, vakna hugleiðingar um nöfn og nafngiftir. Hvað á barnið að heita - og af hverju? Við heyrum alls konar sögur af alls konar nöfnum. Við ræðum við kántrí tónlistarmanninn Axel O sem hefur náð langt í kántrí senunni í Texas, Axel O, og Önnu Marsibil Clausen, um nýútkomna plötu Beyoncé, Cowboy Carter. Fyrsti singúll plötunnar, Texas Hold'em er kántrílag, en hvað með restina af plötunni? Lagalisti: Tyler, The Creator, YoungBoy Never Broke Again, Ty Dolla $ign - WUSYANAME Milkhouse - Say My Name Eminem - My Name Is Spilverk þjóðanna - Hvað á barnið að heita? Beyoncé - Jolene Beyoncé - 16 Carriages Beyoncé - Amen Beyoncé - Texas Hold'em
19. febrúar 2024 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tilkynnti í dag að Grindvíkingar mættu frá og með morgundeginum dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn. En þó að aðgangur hafi verið rýmkaður er varla hægt að segja að lögreglustjórinn telji fýsilegt að dvelja í bænum; segir reyndar í tilkynningu að aðstæður sé ekki boðlegar fyrir búsetu í húsum, hann býst ekki við að margir kjósi að dvelja þar næturlangt þó að það sé heimilt. Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ásrúnu Helgu Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur. Tveir nemendur og tveir starfsmenn Hraunavallaskóla í Hafnarfirði greindust með hettusótt á dögunum. Nemendurnir voru bólusettir en starfsmennirnir ekki.* Grunur er um fleiri smit, sem öll tengjast þessum skóla og þeim einstaklingi sem fyrst greindist. Um 200 nemendur og flestir starfsmenn skólans hafa nú verið bólusett og verið er að bólusetja starfsfólk og nemendur í öðrum skólum Hafnarfjarðar. Ævar Örn Jósepsson ræðir farsóttir og bólusetningar við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni bólusetninga við Landlæknisembættið. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins síðastliðin fimm ár, tilkynnti að hún hefði að vandlega athuguðu máli ákveðið að sækjast eftir að fá að gegna embættinu fimm ár til viðbótar. Hún hefur þegar tryggt sér stuðning flokks síns, Kristilegra demókrata og vonast til að Evrópski þjóðarflokkurinn, EPP, bandalag evrópskra mið- og hægriflokka, fallist einnig á að tefla henni fram. Ásgeir Tómasson segir frá. *Í upprunalegri færslu stóð að öll fjögur sem smituðust hafi verið óbólusett. Hið rétta er að aðeins starfsmennirnir voru óbólusettir, en börnin voru bólusett.
Viðmælandi þáttarins er Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns, fasteignafélags sem er skráð á íslenska aðalmarkaðinn. Jón er fæddur árið 1985 og ólst upp í Hafnarfirðinum. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í byggingaverkfræði frá DTU háskólanum í Danmörku. Jón hefur starfað sem verkfræðingur hjá Mannviti, sérfræðingur í eignastýringu hjá Kviku og forstöðumaður hjá GAMMA, þangað til hann tók við forstjórastarfi Kaldalóns. Þátturinn er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
7.umferðin fór af stað með látum og það eru svakalegir leikir framundan. Það var allt svart í Hafnarfirðinum og hjá HSÍ í dag. 30 leikmenn hættu í handbolta í sumar og það var til umræðu í þættinum. Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Íslands var í viðtali í lok þáttar.
Gestir Vikulokanna voru Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, Mars M. Proppé, stærðfræðikennari og meðstjórnandi í Samtökunum 78, og Valdimar Víðisson, skólastjóri í Öldutúnsskóla og formaður bæjarráðs í Hafnarfirði. Rætt var um Hinsegin daga og Gleðigönguna, réttindabaráttu hinsegin fólks og bakslag í henni, símanotkun í grunnskólum, erlend heiti á íslenskum vörumerkjum, útlendingalög og umdeilda framkvæmd þeirra og umræðu um bólusetningu sem skaut aftur upp kollinum í vikunni. Tæknimaður er Úlfhildur Eysteinsdóttir
Ingó og Bondarinn í gír.
Viðmælandi þáttarins er Björn Hólmþórsson, stofnandi og forstjóri Five Degrees. Björn er fæddur árið 1975 og er alinn upp á Suðurnesjunum og Hafnarfirði. Hann útskrifaðist á eðlisfræðibraut við Menntaskólann í Hamrahlíð og kláraði próf í tölvunarfræði frá HR, áður TVÍ. Hann hefur unnið við forritun hjá Fjarvangi, forritari og verkefnastjóri í hugbúnaðargerð hjá Mens Mentis en þar vann hann við gerð eignastýringakerfis og lánakerfis. Síðar fór hann til Englands og vann við hugbúnaðargerð hjá Raft International en þaðan flutti hann til Lúxemborg árið 2003 þar sem hann byrjaði í hugbúnaðargerð og varð síðar framkvæmdastjóri tæknimála (CIO) hjá Landsbankanum í Lúxemborg. Björn stofnaði fjártæknifyrirtækið Five Degrees árið 2009 sem er með skrifstofur á Íslandi, Portúgal og í Hollandi og þróar hugbúnaðarlausnir í skýið fyrir banka víðsvegar um heiminn. Árið 2018 keypti Five Degrees, íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Libra og er þ.a.l. með mikil umsvif á Íslandi. Five Degrees hefur safnað um 4,5 ma. kr. frá erlendum fjárfestum til að fjármagna vöxt félagsins á síðustu árum. Five Degrees var selt til alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækisins Topicus nú í mars 2023. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Icelandair og Arion banka.