Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.
Það má segja að sjálfbærni sé rauður þráður í gegnum efni þáttarins. Við heimsækjum Safnahúsið á Egilsstöðum og forvitnumst um sýninguna Sjálfbær eining sem er ein af fastasýningum Minjasafns Austurlands. Það er Elsa Guðný Björgvinsdóttir safnstjóri Minjasafnsins sem segir frá. Því næst höldum við í heimsókn í Hallormsstaðaskóla og ræðum þar við Bryndísi Fionu Ford skólameistara og Dagrúnu Drótt Valgarðsdóttir, en Dagrún er ein af nemendum skólans og hefur í gegnum nám sitt þróað ýmsar drykkjarvörur og vinnur núna að því að nýta köngla úr skóginum til að gerja drykkina. Öll viðtölin í þættinum voru tekin þegar umsjónarmaður Sagna af landi fór í ferðalag um Austurland í janúar 2023. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Í janúar 2023 fór umsjónarmaður Sagna af landi í ferðalag um nokkra firði Austurlands. Við hefjum ferðalagið á Djúpavogi þar sem við lítum í kaffi til þeirra Willam Óðins Lefever og Grétu Mjallar Samúelsdóttur, sem reka þar fyrirtæki sem býr til sterkar sósur. Því næst er ferðinni heitið á Breiðdalsvík þar sem við hittum hjónin Helgu Hrönn Melsteð og Ingólf Finnsson, sem reka bifreiðaverkstæði og ferðaþjónustu auk þess að sinna sjúkraflutningum. Já það eru margir hattar á þeim hjónum. Að lokum förum við til Stöðvarfjarðar og fræðumst um Sköpunarmiðstöðina, listamiðstöð sem byggðist upp í gamla frystihúsinu niðri við höfnina og laðar núna að skapandi fólk úr öllum áttum og öllum heimshornum. Við ræðum við Unu Sigurðardóttur og Lukasz Stencel. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Borðeyri er eitt fámennasta þorp landsins en þar búa um 10 íbúar. Í þættinum er flakkað um þetta litla þorp sem er eins og gluggi inn í liðna tíð. Við ræðum meðal annars við sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson sem hefur kynnt sér náið sögu Borðeyrar, ræðum einnig við Kristínu Árnadóttur íbúa á Borðeyri um elsta hús plássins, svokallað Riis-hús. Sláum svo á þráðinn til tónlistarkonunnar Ásbjargar Jónsdóttur en fjölskylda hennar hefur undanfarið unnið að endurbótum á einu hússanna á staðnum. Að lokum flökkum við um gistiheimilið Tangahús í fylgd með gestgjafanum Ingibjörgu Rósu Auðunsdóttur. Þátturinn var fyrst á dagskrá 18. nóvember 2022. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Við rifjum upp sjóslysið þegar Krossnes SH-308 frá Grundarfirði fórst á Halamiðum en þann 23. febrúar 2022 voru þrjátíu ár síðan togarinn fórst. Níu menn komust lífs af en þrír fórust í slysinu. Hafsteinn Garðarsson var skipstjóri á Krossnesi þegar skipið fórst. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir settist niður með Hafsteini, sem starfar nú sem hafnarstjóri í Grundarfirði, sem rifjaði upp þessa örlagaríku ferð. Þátturinn var áður á dagskrá 22. apríl 2022. Efni í þáttinn vann Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Halla Ólafsdóttir setti saman. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Við verðum að mestu á Vestfjörðum í þætti dagsins. Heyrum af framtíðarsýn ungmenna í Reykhólahreppi, það eru þau Kristján Steinn Guðmundsson fulltrúi í ungmennaráðinu og Jóhanna Ösp Einarsdóttir tómstundafulltrúi sem segja frá. Við fræðumst líka um starfsemi Edinborgarhússins á Ísafirði þegar Ingi Björn Guðnason leiðir okkur um húsið. En við byrjum hins vegar á Austurlandi. Þar fræðumst við um verkefni sem Rótarýklúbbur Héraðsbúa hefur staðið að, sem er að setja upp söguskilti nærri búsetustöðum Jóns lærða á Austurlandi, til minningar um sögu hans og verk. Það er Stefán Þórarinsson fyrrverandi læknir á Egilsstöðum sem segir frá. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur dagsins er helgaður útsýnisskífum, eða hringsjám eins og þær eru líka kallaðar, og gerð þeirra. Í byrjun september fóru nokkrir félagar í Ferðafélagi Borgarfjarðarhéraðs í leiðangur upp á topp Hafnarfjalls. Tilgangurinn var að gera mælingar og skyssur fyrir útsýnisskífu sem stendur til að koma fyrir efst á fjallinu. Með í leiðangrinum var Jakob Hálfdanarson og aðstoðarmaður hans en Jakob hefur komið að gerð ótal útsýnisskífa sem finna má um allt land. Í þættinum er rætt við Jakob um þá vinnu sem liggur að baki einni útsýnisskífu. Einnig segir Jakob frá áratugalöngum ferli sínum hjá Vegagerðinni. Þátturinn var frumfluttur 25. nóvember 2022. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Við verðum á Vestfjörðum og Austurlandi í þætti dagsins. Ágúst Ólafsson brá sér á Patreksfjörð og forvitnaðist þar um Skjaldborgarhúsið, þar sem rekið er kvikmyndahús og er Lionsklúbburinn á staðnum helsti bakhjarlinn. Það er Davíð Rúnar Gunnarsson sem segir frá húsinu. Því næst er ferðinni heitið í Fljótsdalinn þar sem við fáum að kynnast rekstri ólíkra fyrirtækja. Rúnar Snær Reynisson heimsækir fyrirtækið Skógarafurðir og forvitnast um starfsemi þess hjá Bjarka M. Jónssyni. Að lokum skoðum við starfsemi Holts og heiða, sem framleiðir ýmiss konar matvöru. Það er Bergrún Arna Þorsteinsdóttir sem segir frá. Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson, Rúnar Snær Reynisson og Gígja Hólmgeirsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Við sláumst í för með Hólmfríði Völu Svavarsdóttur í átta manna leiðangur yfir Grænlandsjökul sem tók 31 dag. Við heyrum ferðasöguna og heyrum brot úr dagbókarfærslum Hólmfríðar Völu á jöklinum en hún tók upp á símann sinn það sem á daga hennar dreif. Þátturinn var fyrst á dagskrá 3. júní 2022. Tónlistin í þættinum er með grænlensku hljómsveitinni Nanook og tæknimaður þáttarins var Lydía Grétarsdóttir. Efni í þáttinn vann Halla Ólafsdóttir og Hólmfríður Vala Svavarsdóttir. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
Í þættinum rifjum við upp sprenginguna við Miðkvíslarstíflu, heimsækjum veitingastaðinn Teni á Blönduósi og heyrum ástarsögu að austan. Þátturinn var áður á dagskrá 9. júlí 2021. Efni í þáttinn unnu Úlla Árdal, Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur dagsins er helgaður alþýðuhetjunni Moniku Helgadóttur og heimaslóðum hennar, Merkigili í Austurdal í Skagafirði. Sögu Moniku þekkja margir. Bóndinn, ekkjan, íslenska sveitakonan sem bjó ásamt átta börnum sínum, sjö dætrum og einum syni, á afskekktum bæ í innsveitum Skagafjarðar, í Austurdal, þar sem Austari-Jökulsá rennur straumþung niður. Hrikaleg gljúfur og gil einkenna landslagið og samgöngur að bænum voru erfiðar, jafnvel lífshættulegar, sérstaklega þegar farið var um hið hrikalega Merkigil, gilið sem bærinn er kenndur við. Á þessum afskekkta stað byggði Monika upp myndarlegt bú og varð landsþekkt og dáð, sérstaklega eftir að ævisaga hennar, Konan í dalnum og dæturnar sjö, eftir Guðmund G. Hagalín kom út árið 1954, þegar Monika var aðeins 53 ára gömul. Þátturinn var áður á dagskrá 2. september 2022. Viðmælandi er Ingibjörg Elín Jónasdóttir, leiðsögumaður. Í þættinum hljóma brot úr: Kona er nefnd, viðtal Indriða G. Þorsteinssonar við Moniku frá árinu 1973. Konan í dalnum, viðtal Guðrúnar Guðlaugsdóttur við Moniku frá árinu 1981. Konan í dalnum og dæturnar sjö eftir Guðmund G. Hagalín, útvarpssaga í flutningi Sigríðar Hagalín leikkonu frá árinu 1988. Í lok þáttar er lesið stutt brot úr eftirmála ævisögu Moniku frá árinu 2017. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Í þætti dagsins fjöllum við um Eiðabrunann 1960, skoðum merkilega ljósmynd á Síldarminjasafninu á Siglufirði og forvitnumst um starfsemi sauðfjárverndarinnar. Þátturinn var áður á dagskrá í Sögum af landi 9. apríl. 2021. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Minningar af aðventu og stríðsárum: Í þessum þætti ætlum við að ferðast aftur í tímann og til Þýskalands stríðsáranna. Við förum í fylgd með Helgu Ruth Alfreðsdóttur en hún býr á Egilsstöðum þar sem hún starfaði lengi sem íþróttakennari. Rúnar Snær Reynisson hitti Helgu þar sem hún var við sína uppáhaldsiðju; að baka hið þýska Stollen-brauð fyrir jólin. Þátturinn var frumfluttur í Sögum af landi 13. desember 2019. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Í þættinum í dag heyrum við sögu tveggja kvenna. Þuríður Helga Kristjánsdóttir segir frá stefnubreytingu í sínu lífi þegar hún ákvað að segja upp starfi sínu sem framkvæmdarstjóri Menningarfélags Akureyrar til að sinna öðrum hugðarefnum. Síðan heyrum við Ágústu Oddsdóttur segja frá bókinni Þegar Kjósin ómaði af söng þar sem fjallað er um samfélagið í Kjósinni og öflugt söngkórastarf sem starfrækt var þar á síðustu öld. Í lok þáttar rifjum við upp viðal frá árinu 2017 þar sem Magnús Pálsson frá Veturhúsum segir frá leiðangri breskra hermanna árið 1942 og hetjulegum björgunaraðgerðum fjölskyldunnar í Veturhúsum. Efni í þáttinn unnu Þórgunnur Oddsdóttir, Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Við endurflytjum viðtal við einn efnilegasta listskautara landsins, Ísold Fönn Vilhjálmsdóttur frá Möðrudal á Fjöllum. Við heyrum af skautaferli Ísoldar Fannar og bataferli hennar eftir að hafa gengist undir umfangsmikla aðgerð fyrir um einu ári. Óðinn Svan Óðinsson ræddi við Ísold Fönn á Akureyri í maí á þessu ári. Halla Ólafsdóttir setti saman. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Fáskrúðsfjörður, unglingamenning og uppistand eru umfjöllunarefni þáttarins. Við byrjum á að forvitnast um nýja bók Smára Geirssonar um sögu Fáskrúðsfjarðar frá landnámi, því næst endurflytjum við viðtal við Heklu Sólveigu Magnúsdóttur um hvernig er að vera unglingur á Akureyri. Að lokum er rætt við Bjarna Hafþór Helgason um sögustundina Hristur ekki hrærður, þar sem hann segir persónulegar og húmorískar sögur í sínu lífi. Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Ágúst Ólafsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur dagsins er helgaður útsýnisskífum, eða hringsjám eins og þær eru líka kallaðar, og gerð þeirra. Í byrjun september fóru nokkrir félagar í Ferðafélagi Borgarfjarðarhéraðs í leiðangur upp á topp Hafnarfjalls. Tilgangurinn var að gera mælingar og skyssur fyrir útsýnisskífu sem stendur til að koma fyrir efst á fjallinu. Með í leiðangrinum var Jakob Hálfdanarson og aðstoðarmaður hans en Jakob hefur komið að gerð ótal útsýnisskífa sem finna má um allt land. Í þættinum er rætt við Jakob um þá vinnu sem liggur að baki einni útsýnisskífu. Einnig segir Jakob frá áratugalöngum ferli sínum hjá Vegagerðinni. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Borðeyri er eitt fámennasta þorp landsins en þar búa um 10 íbúar. Í þættinum er flakkað um þetta litla þorp sem er eins og gluggi inn í liðna tíð. Við ræðum meðal annars við sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson sem hefur kynnt sér náið sögu Borðeyrar, ræðum einnig við Kristínu Árnadóttur íbúa á Borðeyri um elsta hús plássins, svokallað Riis-hús. Sláum svo á þráðinn til tónlistarkonunnar Ásbjargar Jónsdóttur en fjölskylda hennar hefur undanfarið unnið að endurbótum á einu hússanna á staðnum. Að lokum flökkum við um gistiheimilið Tangahús í fylgd með gestgjafanum Ingibjörgu Rósu Auðunsdóttur. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Við skreppum í fjós, forvitnumst um frumkvöðlafyrirtæki á Ísafirði og heimsækjum eina minnstu ritstjórnarskrifstofu landsins í þætti dagsins. Við byrjum á að heimsækja blaðamanninn Skapta Hallgrímsson og fræðast um svæðismiðilinn Akureyri.net, sem fagnar um þessar mundir tveggja ára afmæli. Því næst endurflytjum við viðtal Höllu Ólafsdóttur við Dóru Hlín Gísladóttur þróunarstjóra frumkvöðlafyrirtækisins Keracis á Ísafirði. Viðtalið var fyrst flutt hér í Sögum af landi í febrúar 2022. Að lokum skreppum við í fjós á Egilsstaðabýlinu og ræðum við kúabóndann Herdísi Mögnu Gunnarsdóttur um landbúnaðarstörfin og nýja tækni í kynbótastarfi. Efni í þáttinn unnu Þórgunnur Oddsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Ráðskonur, eldsmíði og ungir á uppleið eru til umfjöllunar í þætti dagsins. Við hefjum ferðalag á heimsókn til Dalrúnar Kaldkvísl Eygerðardóttur sagnfræðings og forvitnumst um rannsóknir hennar á ráðskonum í sveit á síðari hluta 20. aldar. Því næst rifjum við upp viðtal Dags Gunnarssonar frá árinu 2018 þar sem rætt var við Hall Karl Hinriksson myndlistarmann og eldsmið sem var við störf í eldsmiðju Eldsmíðafélags Suðurlands. Að lokum kíkjum við í ræktina á Dalvík, þar sem hópurinn Ungt fólk á uppleið hittist reglulega og æfir saman. Þar er rætt við þau Sigrúnu Friðriksdóttur, Jóhann Hreiðarsson, Hlín Torfadóttur, Ásu Harðardóttur og Sigurð Ásgeirsson. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Dagur Gunnarsson og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Í þættinum verður fjallað um kennslu og verslunarsögu. Við hefjum þáttinn á spjalli við stærðfræðikennarann Hilmar Friðjónsson, sem lagt hefur áherslu á að þróa nýjar og óhefðbundnar leiðir til að auðvelda nemendum stærðfræðinámið. Í lok þáttar er svo ferðinni heitið á Hvammstanga þar sem við fræðumst um Verslunarminjasafnið þar í bæ. Það er Þuríður Þorleifsdóttir staðarhaldari sem leiðir okkur um safnið en þar er fjallað um verslunarsögu Hvammstanga og hægt að versla handverk af heimafólki. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Í þætti dagsins er endurflutt efni frá 2020 og 2011. Rætt var við Ólafíu Herborg Jóhannsdóttur sem eignaðist bréfabunka ömmu sinnar þegar hún var ung og hefur árum saman grúskað í þeim og skrifað sögu hennar, Herborgarsögu. Þá hefur hún safnað heimildum um tilraunir afa síns, Valdórs Bóassonar, til að ná togaranum Clyne Castle á flot, en sá togari strandaði í apríl árið 1919 á Bakkafjörum í Öræfum. Auk þess verður rifjað upp viðtal Péturs Halldórssonar við Skúla Alexandersson, sem fæddist í Kjós í Reykjarfirði á Ströndum 1926. Skúli rifjar upp þegar síldarverksmiðjan reis í Djúpuvík og þegar hún var starfandi. Viðtalið var upphaflega flutt í þættinum Við sjávarsíðuna í desember 2011. Að lokum heyrum við í Inga Hans Jónsson í Grundarfirði á Snæfellsnesi en hann er einn upphafsmanna Sögumiðstöðvarinnar þar í bæ, sem er allt í senn sögusafn, bókasafn, upplýsingamiðstöð og bíósalur. Ingi Hans segir frá þeim örlagadegi, þegar hann fann á fullorðinsárum draumabíl æsku sinnar á ferðalagi í Kanada. Það var fyrsta skrefið að því að hann hóf að sanka að sér leikföngum úr æsku sinni og endurbyggði hina sögufrægu Þórðarbúð í Grundarfirði. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Við hefjum þáttinn á ferðalagi um Oddeyrin á Akureyri og forvitnumst um fyrirhugaða bók um hús og fólk á Eyrinni. Þau Kristín Aðalsteinsdóttir og Arnór Bliki Hallmundsson standa að verkefninu. Því næst er ferðinni heitið til handavinnukennarans og leiðsögumannsins Ragnheiðar S. Jóhannsdóttur á Hvammstanga sem býður upp á handverksferðir og námskeið fyrir erlenda ferðmenn. Að lokum verður flutt brot úr þættinum Sunnan jökla frá 1979 í umsjón Magnúsar Finnbogasonar þar sem rætt er við þá Sigurð Eggertsson á Efri Þverá í Fljótshlíð og Þráinn Þorvaldsson í Oddakoti um ungmennafélög á svæðinu. Efni í þáttinn unnu Þórgunnur Oddsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Við hefjum þáttinn á ferðalagi um Oddeyrin á Akureyri og forvitnumst um fyrirhugaða bók um hús og fólk á Eyrinni. Þau Kristín Aðalsteinsdóttir og Arnór Bliki Hallmundsson standa að verkefninu. Því næst er ferðinni heitið til handavinnukennarans og leiðsögumannsins Ragnheiðar S. Jóhannsdóttur á Hvammstanga sem býður upp á handverksferðir og námskeið fyrir erlenda ferðmenn. Að lokum verður flutt brot úr þættinum Sunnan jökla í umsjón Magnúsar Finnbogasonar þar sem rætt er við þá Sigurð Eggertsson á Efri Þverá í Fljótshlíð og Þráinn Þorvaldsson í Oddakoti um ungmennafélög á svæðinu. Efni í þáttinn unnu Þórgunnur Oddsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Ýmiskonar grúsk verður til umfjöllunar í þætti dagsins. Við byrjum á að slá á þráðinn til kvenfélagskonunnar Margrétar Tryggvadóttur á Hvolsvelli og hún segir frá handverkssýningunni Margt verður til í kvennahöndum sem Kvenfélagið Eining setti upp í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð. Við ferðumst einnig aftur í tímann og heyrum viðtal frá árinu 1979. Þar ræðir Magnús Finnbogason við Kristínu Guðmundsdóttur um starfsemi Kvenfélagsins Einingar en þá var Kristín formaður félagsins. Því næst er ferðinni heitið á Mótorhjólasafn Íslands. Þar segir Tómas Ingi Jónsson frá tilurð safnsins og nokkrum vel völdum safngripum. Að lokum er rætt við Ásgeir Hvítaskáld, rithöfund á Egilsstöðum, sem skrifað hefur skáldsögu um örlög ungs pilts sem var hálshöggvin árið 1786 og var það síðasta aftakan á Austurlandi. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Ágúst Ólafsson og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Við veltum fyrir okkur búsetu í þessum þætti. Við byrjum á að heimsækja söngvaskáldið Svavar Knút sem nýlega flutti ásamt fjölskyldunni til Akureyrar. Því næst er ferðinni heitið á Laugarbakka þar sem við hittum hjónin Ólínu Sófusdóttur og Einþór Skúlason sem nýlega fluttu á Laugarbakka og byggðu þar hús. Við heyrum líka í dóttur þeirra hjóna, Dagbjörtu Diljá Einþórsdóttur, sem var sú fyrsta úr fjölskyldunni að flytja á svæðið. Að lokum höldum við til Grímseyjar þar sem við hittum fyrir útgerðarmanninn Bjarna Reykjalín Magnússon sem ólst upp í Grímsey og vill búa þar áfram. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Í þættinum verður forvitnast um starfsemi þriggja menntastofnana. Við heimsækjum fyrst Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Raghildur Helga Jónsdóttir aðjúnkt og safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands segir okkur frá staðnum og starfsemi safnsins. Því næst er ferðinni heitið í Tónlistarskóla Borgarfjarðar og ræðum þar við Árna Frey Jónsson tónlistarkennara en hann fer fyrir nýjum áfanga við skólann sem nýtir hljóðver sem hljóðfæri. Að lokum er ferðinni heitið á Hóla í Hjaltadal þar sem Hólmfríður Sveinsdóttir nýr rektor skólans segir okkur frá sjálfri sér og skólanum. Umsjón: Gígja Hólmgeirsóttir

Ævistarf tengir saman efni þáttarins, auk þess sem Noregur tengir viðmælendur þáttarins sterkt saman. Við byrjum í heimsókn hjá skógarbóndanum Hrefnu Jóhannesdóttur á Silfrastöðum í Skagafirði, en Hrefna ákvað snemma að gera skógræktina að sínu ævistarfi. Því næst kynnumst við organistanum og kórstjórnandanum Torvald Gjerde sem stendur nú á tímamótum eftir að hafa starfað sem organisti við Egilsstaðakirkju í rúm 20 ár. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Við förum í þrjár heimsóknir í þættinum. Byrjum á að banka upp á hjá tónlistarkonunni Fanneyju Kristjáns Snjólaugardóttur sem nýverið gaf út sína aðra hljómplötu, því næst er ferðinni heitið á bæinn Arnarnes við utanverðan Eyjafjörð þar sem við hittum á Eygló Jóhannesdóttur en hún starfrækir þar gistiheimili og álfasetur. Að lokum bregðum við okkur að orlofsbyggðinni á Illugastöðum í Fnjóskadal og ræðum þar við hjónin Jón Þóri Óskarsson og Hlíf Guðmundsdóttir en þau hafa haft umsjón með orlofsbyggðinni frá því þau voru aðeins 19 ára gömul. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Ágúst Ólafsson og Þórgunnur Oddsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þáttur dagsins er helgaður alþýðuhetjunni Moniku Helgadóttur og heimaslóðum hennar, Merkigili í Austurdal í Skagafirði. Sögu Moniku þekkja margir. Bóndinn, ekkjan, íslenska sveitakonan sem bjó ásamt átta börnum sínum, sjö dætrum og einum syni, á afskekktum bæ í innsveitum Skagafjarðar, í Austurdal, þar sem Austari-Jökulsá rennur straumþung niður. Hrikaleg gljúfur og gil einkenna landslagið og samgöngur að bænum voru erfiðar, jafnvel lífshættulegar, sérstaklega þegar farið var um hið hrikalega Merkigil, gilið sem bærinn er kenndur við. Á þessum afskekkta stað byggði Monika upp myndarlegt bú og varð landsþekkt og dáð, sérstaklega eftir að ævisaga hennar, Konan í dalnum og dæturnar sjö, eftir Guðmund G. Hagalín kom út árið 1954, þegar Monika var aðeins 53 ára gömul. Viðmælandi er Ingibjörg Elín Jónasdóttir, leiðsögumaður. Í þættinum hljóma brot úr: Kona er nefnd, viðtal Indriða G. Þorsteinssonar við Moniku frá árinu 1973. Konan í dalnum, viðtal Guðrúnar Guðlaugsdóttur við Moniku frá árinu 1981. Konan í dalnum og dæturnar sjö eftir Guðmund G. Hagalín, útvarpssaga í flutningi Sigríðar Hagalín leikkonu frá árinu 1988. Í lok þáttar er lesið stutt brot úr eftirmála ævisögu Moniku frá árinu 2017. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Í þessum áttunda og síðasta sumarþætti Sagna af landi þetta sumarið ætlum við skyggnast aðeins aftur í tímann. Við höldum vestur á Ísafjörð því að í Tónlistarskóla Ísafjarðar hefur verið sett upp sýning um fyrra hlutverk hússins, um Húsmæðraskólann Ósk. Við hittum Albert Eiríksson sem vann að sýningunni og fyrrverandi nemanda skólans, Geirþrúði Charlesdóttur. Við höldum svo á flakk um Hveragerði. Síðasta vetur hitti Gígja Hólmgeirsdóttir sagnfræðinginn Njörð Sigurðsson sem segir meðal annars frá Hveragerðisskáldunum og öðru listafólki sem býr og hefur búið í Hveragerði. Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

Þessi sjöundi sumarþáttur Sagna af landi er helgaður einu viðfangsefni en við rifjum upp för Hólmfríðar Völu Svavarsdóttur yfir Grænlandsjökul. Hólmfríður Vala var í hópi átta leiðangursfara og gekk frá vesturströnd Grænlands yfir á Austurströndina á vormánuðum og hélt rafræna dagbók á leiðinni. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.