POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Freyja Jónsdóttir, dósent við lyfjafræðideild Háskóla Íslands og Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands og doktorsnemi, ræddu við okkur um ópíóða og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi. Símatími Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir veltu vöngum yfir nýjum meirihluta í Reykjavík. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er á hringferð um landið.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Læsi á Íslandi Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands Sigríður hefur rannsakað þróun læsis á Íslandi um margra ára skeið. Rannsóknir sýna ótvírætt að læsi hefur hrakað gífurlega á síðustu árum, hvaða áhrif hefur það og hvað er til ráða? Stjórnmál/Evrópumál Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar alþingis Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Stjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um að hafa átt fullkomlega óviðeigandi samráð við ESB um tímasetningar og fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna, kallar það leynimakk og undanbrögð. Hvað er satt og rétt? Landeyjahöfn Fannar Gíslason, forstöðumaður Hafnadeildar Vegagerðarinnar Eitt umdeildasta mannvirki Íslandssögunnar er enn ekki í fullri notkun, 16 árum eftir að það var opnað. Hvað þarf í raun að gera til þess að tryggja snurðulausu starfsemi Landeyjahafnar, er það í raun og veru hægt? Atvinnulíf/skattamál Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Ný úttekt leiðir í ljós að fasteignaskattar sveitarfélaga á atvinnuhúsnæði hafa hækkað um 50% að raungildi síðustu tíu árin. Hafa stjórnmálaflokkar lagt fram raunhæfar tillögur til úrbóta í húsnæðismálum í yfirstandandi kosningabaráttu?
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Erna Björnsdóttir, fagstjóri hugvits og tækni hjá Íslandsstofu, ræddi tækni með tvíþætt notagildi. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknasetri í byggða- og sveitarstjórnarmálum við háskólann á Bifröst, ræddi við okkur um áhugaverða könnun. Arna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags og viðskiptanefndar og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, varaformaður efnahags og viðskiptanefndar, ræddu gervigreindina. Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands og Ragna Þorsteinsdóttir, ritari Villikatta, ræddu hræðilegt dýraníð. Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna, fór yfir húsaleigupakka Ragnar Þórs. Katrín Ósk Sigurðardóttir, Silvía Sigþórsdóttir, Ísak Leó Freysson, Emilía Þóra Ólafsdóttir, fólkið á bak við drykkinn Eazy, ræddu drykkinn. Benedikt S. Lafleur þýddi bókina Við dauðans dyr ég fann mig.
Leifur Geir Hafsteinsson, forsprakki alþýðutónlistarhópsins Vinir og vandamenn og dóttursonur Oddgeirs Kristjánssonar, kíkti í heimsókn til okkar í dag en hópurinn vinnur að gerð hljómplötu þar sem finna má áður óútgefin eða sjaldheyrð gömul Eyjalög. Leifur sagði okkur frá hljómplötunni og lögunum og við heyrðum tvö laganna, þar á meðal Setjumst að sumbli en það er fyrsta Þjóðhátíðarlagið, frá árinu 1933 og hefur aldrei verið gefið út áður og var því frumflutt í útvarpi í Mannlega þættinum í dag. Í Heilsuvakt dagsins kom Helga Arnardóttir til okkar í beina útsendingu og ræddi um prótein æðið sem hefur riðið yfir á samfélagsmiðlum og trefjaæðið sem nú er að taka við. Rannsóknir sýna nefnilega að fæstir ná lágmarksskammti af trefjainntöku á dag en trefjar hafa veruleg góð áhrif á meltinguna og næra bakteríur í þarmaflórunni en ekki bara það því dagleg og góð trefjainntaka getur spornað gegn sykursýki 2, ristilkrabba, hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og alzheimer svo eitthvað sé nefnt. Helga ræddi þetta við okkur á Heilsuvaktinni og fór yfir helstu fæðuflokka sem innihalda góðar trefjar. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Kári Sævarsson einn af eigendum vörumerkjastofunnar Tvist. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Kári talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Smásögur eftir Hauk Ingvarsson (sem eiga að koma út í heildarsafni og ekki enn kominn titill) Tímabundin e. Kristján Hrafn Guðmundsson Alistair McClean og Hammond Innes Fávitinn e. Dostojevski Tónlist í þættinum í dag: Í bíl / Vinir og vandamenn (Oddgeir Kristjánsson, ljóð Örn Arnarson) Setjumst að sumbli / Vinir og vandamenn (Oddgeir Kristjánsson,texti Árni úr eyjum) And I love her / The Beatles (Lennon & McCartney) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Fjármálaáætlun til fimm ára var kynnt síðdegis, áfram er stefnt á hallalausum ríkisrekstri eða afgangi og aðhaldi sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra þegar áætlunin var kynnt. Sama dag birtust tölur sem sýna að verðbólga heldur áfram að hækka. Rætt við Örnu Láru Jónsdóttur, Samfylkingu og Guðlaug Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki um efnahagsmálin og ríkisrekstur. Ekkert hefur komið fram í rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hingað til sem bendir til þess að sakborningar í Höfðatorgsmálinu svokallaða hafi tengsl við Hamas eða hryðjuverkasamtök. Þröngur hópur rannsakenda hjá lögreglu hefur aðgang að þeim rafrænum gögnum sem lagt hefur verið hald á.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Eyjólfur Eyvindarson, Sesar A, formaður VÍK, Vináttufélags Íslands og Kúbu, er í Kúbu og tekur þátt í loftbrú með hjálpargögn. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, ræddi við okkur um virkjanamál. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra ræddi við okkur um erlenda glæpamenn. Hvað getum við bætt í krabbameinsmeðferðum? Sigríður Gunnarsdóttir, prófessor í krabbameinshjúkrun við Háskóla Íslands og forstöðumaður Rannsóknaseturs Krabbameinsskrár hjá Krabbameinsfélagi Íslands og Sigurdís Haraldsdóttir, yfirlæknir krabbameinslækninga á Landspítala og prófessor við læknadeild HÍ, ræddu við okkur um árangur í krabbameinsmeðferðum. Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna, ræddi ástandið á leigumarkaði.
Árið 2024 tóku 48 einstaklingar líf sitt á Íslandi og voru 35 þeirra karlar. Þessi háa tala er ástæða þess að augum er beint að körlum í meistaraprófsrannsókn sem Kristjana Atladóttir geðheilbrigðisfræðingur gerði í geðheilbrigðisfræði við Háskólann á Akureyri og kynnti nýlega niðurstöður úr. Rannsóknin er sú fyrsta hér á landi sem skoðar sérstaklega reynslu ungra karla sem hafa reynt að taka líf sitt en mun færri karlar en konur leita til heilbrigðiskerfisins eftir sjálfsvígstilraun. Sameiginlegur þráður karlana sem rætt var við, var sú upplifun að hafa ekki stjórn á eigin lífi, vera lítils virði og hafa viðvarandi sjálfsásakanir. Þessar upplifanir samræmast kenningum um áhrif áfalla á sjálfsmynd einstaklinga. Kristjana Atladóttir sagði okkur betur frá rannsókninni í þættinum í dag. Verkefnið Léttir er leiklistarsmiðjur og námskeið fyrir börn foreldra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi. Markmiðið er að efla sjálfstraust, félagsfærni og leikgleði barnanna og notast er við áfallamiðaða nálgun því börnin hafa oft upplifað áföll eins og stríð, aðskilnað frá fjölskyldu og fleira. Þetta er samstarfsverkefni Barnaheilla og Borgarleikhússins og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla og Eva Halldóra Guðmundsdóttir, yfirkennari í Leiklistarskóla Borgarleikhússins komu til okkar í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í þetta sinn sagði hún frá rannsókn sem sýnir að það eru ekki tengsl milli covid bólusetningar og taugaþroskaskerðingar, né einhverfu. Tónlist í þættinum í dag Eitt af blómunum / Páll Óskar (Benni Hemm Hemm og Páll Óskar) Heimahöfn / Fjallabræður (Hákon Guðni Hjartarson Halldór Gunnar Pálsson) Bolludagur! Sprengidagur! Öskudagur! / Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs) Leyndarmál / Bubbi (Bubbi Morthens) (Hvert er hægt að leita? Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfskaðandi hegðun má alltaf hafa samband við Píeta-samtökin, pieta.is og í síma 552-2218. Þá er hjálparsími Rauða krossins opinn allan sólarhringinn í síma 1717 og netspjall á heimasíðunni 1717.is) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina? Á viðburði sem haldinn var í síðustu viku af Rannsóknarsetri skapandi greina var leitast við að svara þessari spurningu. Og hvort hægt sé að rýna í hvernig skapandi starfsemi mótar samfélagslegar breytingar og hvort þær séu mælanlegar og hvert er gildi þeirra í samtímanum? Þorbjörg Daphne Hall, prófessor í tónlistarfræðum við LHÍ, og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina komu í þáttinn og sögðu okkur frá. Hvernig vinnum við á fordómum? Það var yfirskriftin á hádegisfundi sem var í gær á vegum Geðhjálpar þar sem fjallað var um fordóma gagnvart andlegum áskorunum og niðurstöður úr nýrri rannsókn voru kynntar. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, var með erindi á hádegisfundinum kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem þar kom fram. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá hlutverki Epstein-Barr veirunnar í myndun MS sjúkdómsins. Það var vissulega flókið en hún útskýrði það betur fyrir okkur í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Vorkvöld í Reykjavík / Ragnar Bjarnason (Evert Taube, texti Sigurður Þórarinsson) Bíólagið / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jó Fel um myndlistarsýningu í Sundlauginni á Selfossi Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins um gjalskrárhækkanir ríkisins og afleiðingar af því á verðbólgu og kjarasamninga Símatími Matthildur Sveinsdóttir yfirlögfræðingur hjá Neytendsastofu um hilluverð og kassaverð Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknasetri um norðurslóðir Ragnheiður Bjarnadóttir formaður samninganefndar sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga um að á sama tíma og biðlistar lengjast íhuga 40% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga að hætta störfum
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB og Steinunn Bragadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ hafa reglulega skrifað greinar í fjölmiðla á kvennaárinu 2025 og í nýjustu grein þeirra, sem birtist á vísi.is undir fyrirsögninni Ólaunuð vinna kvenna, tala þær um könnun sem Varða, Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, gerði í sumar meðal félagsfólks stéttarfélaga innan ASÍ og BSRB. Þar voru kynntar niðurstöður um skiptingu ólaunaðrar vinnu á heimilum sambúðarfólks, bæði svokallaðrar annarrar vaktar og þriðju vaktar. Það sé áhyggjuefni að karlar taki hlutfallslega miklu styttra fæðingarorlof en konur, og að konur dragi oftar úr vinnu til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Sigríður og Steinunn komu í þáttinn í dag. Sölufélag garðyrkjumanna hefur undanfarin ár valið ræktendur ársins innan sinna raða. Hjónin Inga Sigríður Snorradóttir og Óli Finnsson á garðyrkjustöðinni Heiðmörk í Laugarási hlutu þennan heiður árið 2023 og í ár fengu þau hvatningarverðlaun sölufélagsins. Fjölskyldan flutti árið 2021 úr Grafarvogi í Laugarás í Bláskógarbyggð eftir að hafa fest kaup á garðyrkjustöðinni Heiðmörk. Við slógum á þráðinn austur fyrir fjall og ræddum við hjónin í dag. Er ekki allt í lagi heima hjá þér er heimildaleikhúsverk um fjórar manneskjur sem allar ólust upp hjá móður með alvarlegan geðsjúkdóm. Verkið verður flutt í útvarpinu á Rás 1 annan í jólum kl.17. Við fengum Evu Rún Snorradóttur, leikstjóra og handritshöfund og Ragnar Ísleif Bragason, einn fjögurra þáttakenda í verkinu, til að segja okkur betur frá verkinu. Tónlist í þættinum í dag: Af álfum / Friðrik Ómar og Margrét Eir (Karl Olgeirsson) Undrastjarnan / Hljómar (lagahöfundur ókunnur, texti Rúnar Júlíusson) Den store stjerna / Sissel Kyrkebö og Bergen Fílharmóníusveit (Svein Gundersen & Trygve Hoff) It's Beginning to Look a lot Like Christmas / Björgvin Halldórsson (Meredith Wilson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík fyrir þrjátíu árum leit dagsins ljós í dag. Þar kom í ljós að sveitarfélögum á landinu var lítt gefið um hættumöt vegna snjóflóðahættu, þeim var mætt með efasemdum og menn vildu ekki horfast í augu við hættuna af snjóflóðum. Samskiptaörðugleikar voru í almannavarnarnefnd Súðavíkuhrepps nóttina sem flóðið féll og nefndarmenn vissu ekki hver ætti að taka af skarið í fjarveru lögreglustjórans.
Þórarinn ræðir við Jóhann Pál Jóhannsson, orku-, umhverfis- og loftslagsráðherra um orkumál, Drekasvæðið og útlendingamál.Í upphafi er rætt um efnahagsmál og hvernig ríkisstjórnin hyggst takast á við kólnandi hagkerfi. Rætt er um virkjanakosti og hvernig Jóhann sér fyrir sér að takast á við flókið regluverk í virkjanakostum.Í kjölfarið er rætt um loftslagsaðgerðir og fyrirhugaða olíuleit Heiðars Guðjónssonar á Drekasvæðinu. Rætt er um samkeppnisstöðu Evrópu vegna loftslagsaðgerða, hagvaxtarýrnun á Íslandi, raunhæfi loftslagsaðgerða og margt fleira.Í seinni hluta hlaðvarpsins er svo rætt um stjórnmálin, vinnumarkaðinn og útlendingamál.- Hver er afstaða Jóhanns Páls til olíuleitar á Drekasvæðinu?- Afhverju breyttist afstaða Jóhanns Páls í útlendingamálum?- Hvað verður um samkeppnisstöðu Íslands ef haldið verður áfram með loftslagsaðgerðir?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið á Hrafnadalur@proton.me
Forsvarsmenn HS Veitna og Bláa lónsins komu af fjöllum þegar þeim barst matsbeiðni frá lögmanni fjármálaráðuneytisins, um kostnað af björgunaraðgerðum í Grindavík og mögulega þátttöku þeirra í þeim. Beiðninni er beint að HS Orku, HS Veitum, Náttúruhamfaratryggingum og Bláa lóninu. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, segist ekki vera að rjúfa neina þjóðarsátt um almannavarnir. Afar mikilvægt væri að meta ábatann af aðgerðum gegn eldgosavá þegar kæmi að því að verja hagsmuni Íslands í endurtryggingum á mögulegum tjónum. Ofbeldisbrotum gegn öldruðum hefur fjölgað síðustu ár. Í um helmingi tilfella, þar sem eru náin tengsl milli gerenda og brotaþola, eru það börn sem brjóta gegn foreldri. Þá eru kynjahlutföll í þessum málum nokkuð önnur en almennt gerist í brotum í nánum samböndum. Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir fjölgun ofbeldisbrota að vissu leyti í takt við aldurssamsetningu þjóðarinnar. Aukinn ágangur rússneskra úlfa í Noregi og Finnlandi er dæmi um áhrif af innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Í Lapplandi hafa á bilinu 30 til 50 úlfar verið skotnir á ári, nærri rússnesku landamærunum, þessa þrjá vetur sem stríðið hefur geisað. Margfalt fleiri en fyrir stríð. Rannsókn á erfðaefni úlfanna sannar að þeir koma frá Rússlandi. Og í Noregi skutu menn um eða yfir 60 úlfa síðastliðinn vetur. Þeir eru reyndar langflestir norskir að ætt og uppruna, en ekki allir.
Rætt er við Ragnar Guðmundsson flugvélaverkfræðing og rannsakanda hjá flugsviði Rannsóknarnefndar samgönguslysa um fjölgun alvarlegra flugatvika á síðustu árum. Þá hefur fjölgun alvarlegra flugumferðaratvika á síðustu misserum orðið tilefni til sérstakrar umræðu á fundum RNSA og Samgöngustofu og ýmsar tillögur í öryggisátt eru þegar komnar til framkvæmda. Ragnar hefur starfað í yfir 25 ár í fluginu hérlendis og þar af í 21 ár við rannsóknir flugslysa og alvarlegra flugatvika. Hann miðlar hér stuttlega af sinni áratuga reynslu og rýnt er sérstaklega í skýrslu RNSA um alvarlegt flugatvik sem varð á breiðþotu yfir Íslandi í febrúar 2023. Draga má mikinn lærdóm af því sem þar gerðist og atvikið hefur þegar stuðlað að ýmsum breytingum til hins betra.
Nýlega voru birt fyrstu áfangagögn verkefnisins, Landsskýrsla INTERACT. Hún veitir innsýn í það hvernig sex Evrópuríki, Þýskaland, Grikkland, Ítalía, Portúgal og Rúmenía, auk Íslands, nálgast málefni heimilislausra kvenna. Niðurstöðurnar sýna að víða skortir á samþættingu jafnréttis- og kynjasjónarmiða, þjónusta við heimilislausar konur er að stórum hluta brotakennd og ósamþætt og tekur of lítið mið af áhrifum áfalla á líf kvenna. Íslensku samstarfaðilarnir RIKK, rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands og Rótin félagasamtök bera ábyrgð á því að niðurstöðurnar nýtist til að innleiða nýja nálgun. Þær Kristín Hjálmarsdóttir frá RIKK og Kristín Pálsdóttir frá Rótinni kíkja til okkar. Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur, flytur okkur hugvekju um kauphegðun, nú þegar margir afsláttardagar eru framundan. Hann veltir því upp hvað séu góð kaup og gefur góð ráð. Í lok þáttar kemur Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarsérfræðingur, svo til okkar og segir okkur allt um hvernig gervigreind færir sig sífellt meira yfir í hlutverk blaða- og fréttamanna. En ný rannsókn Breska ríkisútvarpsins, BBC, bendir til þess að gervigreindinni sé ekki treystandi til að segja okkur fréttir. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon. Tónlist þáttar: BON IVER - There's is a rhythmn ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - Lilju rós THE NEW EVES - Red brick
Demókrötum gekk vel í kosningum í Bandaríkjunum í gær. Zohran Mamdami sigraði í borgarstjórakosningum í New York, í Virgíníu vann Abigail Spanberger ríkisstjóraefni þeirra sannfærandi sigur og í New Jersey fékk Mikie Sheriill frambjóðandi demókrata álíka niðurstöðu. Tillaga demókrata um að draga ný kjördæmamörk sem eru talin þeim hagstæð var samþykkt og allt er þetta talið merki um að tæplega einu ári eftir að Donald Trump tók við embætti forseta sé pendúllinn að sveiflast. Er þetta til marks um vinstrisveiflu eða bara óánægju með störf forsetans, Donalds Trump? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Guðmund Hálfdánarson prófessor. Varað hefur verið við því að líkurnar á röskun svokallaðrar veltihringrásar hafstrauma í Atlantshafi, skammstöfuð AMOC, hafi verið vanmetnar. Sú röskun er rakin til hlýnunar hvorutveggja sjávar og loftslags og bent á að hrun veltihringrásarinnar myndi líklega leiða til mikillar kólnunar á norðurslóðum, þótt áfram hitni annars staðar. Niðurstöður nýlegrar rannsóknar á áhrifum yfirstandandi hlýnunar á djúpsjávarmyndun í norðurhöfum og þar með veltihringrásina, benda hins vegar til að hættan sé mögulega orðum aukin. Rannsóknin var til umfjöllunar á ráðstefnu vísindamanna í Helsinki í október og þar var Halldór Björnsson, fagstjóri loftslagsmála á Veðurstofunni. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hann. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Við fræddumst um ofbeldi gegn eldri borgurum í dag í kjölfar málþings sem Landsamband eldri borgara stóð fyrir um hvernig hægt er að tryggja öryggi eldri borgara og þar sem varpað var ljósi á algengi ofbeldis gegn eldri borgurum á Íslandi. Þeir Björn Snæbjörnsson og Sigurður Ágúst Sigurðsson skrifuðu grein á visir.is þar sem þeir fóru yfir það sem kom fram á þinginu og þeir komu einmitt til okkar í dag og sögðu okkur frá því. Í nýjasta tölublaði af Neytendablaðinu er sjónum beint að yngstu neytendunum. Eðli máls samkvæmt njóta börn og unglingar meiri neytendaverndar en þau sem eldri eru en því miður er þó víða pottur brotinn. Systursamtök Neytendasamtakanna í Noregi og Bretlandi birtu nýlega rannsóknir sem sýna að barnamatur í verslunum er ekki alltaf eins hollur og fólk heldur og þetta kemur mörgum foreldrum í opna skjöldu því þeir treysta því að strangar reglur gildi um barnamat. Maukaður matur í skvísum telur nú um þriðjung alls barnamatar í verslunum og fingramatur, sem svo er kallaður, nýtur einnig vaxandi vinsælda. Sérfræðingar í næringu ungbarna, erlendis sem hérlendis, hafa áhyggjur af þróuninni, Brynhildur Pétursdóttir er ritstjóri Neytendablaðsins og hún sagði okkur betur frá þessum rannsóknum á barnamat í þættinum í dag. Valdimar Svavarsson ráðgjafi kom til okkar í dag og við héldum áfram að tala um mannlegi samskipti. Valdimar tók upp þráðinn þar sem hann endaði síðasta fimmtudag, með ástarsambönd, mismunandi þarfir og væntingar og hlutverk sem við göngum í í samböndum. Hann fór svo yfir grunn langlífra sambanda, hvað þarf til að samband verði langlíft og hverjar eru viðvörunarbjöllurnar sem geta komið því úr jafnvægi. Tónlist í þættinum: Það þarf fólk eins og þig / Rúnar Júlíusson (Buck Owens, texti Rúnar Júlíusson) Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) It's a Good Day / Peggy Lee (Peggy Lee & Dave Barbour) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Gagnagíslatökur, álagsárásir og svikapóstar eru meðal þeirra áskoranna sem netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, þarf að eiga við í sínum störfum. Starfsmönnum þar hefur fjölgað úr tveimur í fjórtán á fimm árum, sem er til marks um aukið álag og áherslu á netöryggi hér á landi. Magni Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, fræðir okkur um störf sveitarinnar í þættinum í dag. Happy Hour kórinn hefur verið starfræktur í húsnæði Domus Vox í sex ár. Sigríður Soffía Hafliðadóttir, kórstjóri, segir markmiðið með kórnum að fá konur til að hittast og njóta þess að syngja saman. Við kíktum á kóræfingu í gærkvöldi og nutum þess að hlýða á fallegan söng. Edda Olgudóttir kemur til okkar í sitt reglulega vísindaspjall. Í dag ætlar hún að segja okkur frá rannsóknum á þunglyndi. En þunglyndi er algeng geðröskun sem lýsir sér þannig að depurð eða leiði varir í lengri tíma. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Tónlist þáttarins: GDRN - Af og til
Óttar Guðbjörn Birgisson varði doktorsritgerð sína, í íþrótta-og heilsufræði við Háskóla Íslands, á dögunum. Rannsókn hans snéri að netsamskipum og heilsu ungmenna. Óttar Guðbjörn sagði okkur frá helstu niðurstöðum. Margir upplifa sig einmana í nútíma samfélagi. Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika. Hvað getum við gert til þess að draga úr einmanaleika og þarf mikið til? Þær Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir hjúkrunarfræðingur og Jenný Jóakimsdóttir frá Kvenfélagssambandi Íslands komu til okkar á til þess að ræða um þetta. Aldin, gegn loftslagsvá, er hreyfing fólks sem er komið á þriðja aldursskeiðið. Á fáeinum árum hefur hópurinn orðið áberandi meðal umhverfishreyfinga í landinu. Aldin er tilnefnt til umhverfisverðlauna Norðurlandarás í ár og þau ætla að deila með okkur hugleiðingum sínum og markmiðum.
Sýn og reynsla barna af vináttu og lausn ágreiningsmála er efni nýrrar rannsóknar Maritar Davíðsdóttur, aðjúnkts við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og annars eiganda Gleðiskruddunnar, og Eyrúnar Maríu Rúnarsdóttur dósents. Styðjandi og traust vinatengsl barna draga úr einmanaleika og ýta undir félagsfærni. Aðstoð foreldra, og eldri systkina, við að leysa úr ágreiningsmálum er mikilvæg. Samfélagið hitti þær Marit og Eyrúnu og fékk að heyra um þessa áhugaverðu rannsókn og niðurstöður hennar. Páll Líndal sagði okkur frá því hvernig sýndarveruleiki nýtist í rannsóknum á tengslum fólks við umhverfi sitt. Í lok þáttar ræddi Samfélagið við Ólaf Ögmundarson, dósent við matvæla-og næringafræðideild Háskóla Íslands, um stóra rannsókn á umhverfisáhrifum íslenskra fæðukerfa. Íslensk fæðukerfi og íslensk neyslumynstur voru skoðuð út frá umhverfislegri, efnahagslegri og samfélagslegri sjálfbærni. Tónlist þáttarins: LAY LOW - Gleðileg blóm
Í heimildarmynd Davids Attenboroughs um hafið er mikið fjallað um möguleika þess til að milda áhrif loftslagsvandans - en slæm meðferð á hafinu og einkum hafsbotninum getur aukið á vandann. Botnvörpuveiðar valda raski á hafsbotni og þetta rask veldur losun gróðurhúsalofttegunda. En hversu mikil er þessi losun? Er fiskur kannski ekki jafn loftslagsvæn fæða og talið var? Þessu eiga vísindamenn erfitt með að svara. Matarvenjur fólks eru margbreytilegar eftir heimsálfum, menningu og siðum í landi hverju. Mismunandi er hvaða matar kröfur eru gerðar til barna eftir því hvar þau búa í heiminum og hvað foreldrar ætlast til að þau borði. Margir uppalendur hafa áhyggjur af matarvenjum barna sinna, hvort einhverjar fæðutegundir skorti í mataræðið eða ef börnin eiga erfitt með að samþykkja nýjar fæðutegundir. Samfélagið kíkti í heimsókn til Sigrúnar Þorsteinsdóttur, barnasálfræðings og fræddist um matvendni. Í lok þáttar kom Edda Olgudóttir til okkar og segja okkur frá nýrri rannsókn á krabbameinsstofnfrumum. Tónlist í þættinum: EYÞÓR INGI & LAY LOW - Aftur Heim Til Þín. THE RONETTES - Be My Baby. SÍÐAN SKEIN SÓL - Ég Stend Á Skýi.
Fyrir árið 2030 hyggjast íslensk stjórnvöld tryggja vernd 30% hafsvæða við Ísland. Þetta er stórt stökk því í dag er bara örlítið brot af hafinu við Ísland verndað. Snjólaug Árnadóttir, dósent við Lagadeild HR og forstöðumaður Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík, ætlar að ræða við okkur um hafréttarmál en það er allur gangur á því hvort alþjóðasáttmálar um vernd hafsins eru bindandi eða ekki og misjafnt hversu skýrar kröfur þeir gera til aðildarlanda. Þjóðskjalasafn Íslands varðveitir heimildir um sögu landsins og þróun byggðar og mannlífs. Þar má meðal annars finna heimildir um fjalir sem varðveittar eru á Þjóðminjasafni Íslands. Fjalirnar komu til safnsins 1924 og voru lengi sveipaðar dulúð vegna myndefnisins sem var á þeim. Fjórir af hverjum tíu í heiminum segjast forðast að neyta frétta, stundum eða oft, samkvæmt árlegri könnun á fjölmiðlanotkun sem nær til 48 landa. Þetta hlutfall hefur hækkað um ellefu prósentustig frá árinu 2017. Þátttakendur í könnuninni segjast jafnvel úrvinda yfir miklu magni frétta og umfjöllun oft of neikvæð. Við ræddum þessar niðurstöður við Skúla Braga Geirdal fjölmiðlafræðing.
Hvað vitum við um lífríkið á hafsbotninum umhverfis Ísland? Þekking vísindamanna er gloppótt og sömuleiðis vitneskja um áhrif botnvörpuveiða á þetta lífríki. Í sumar hitti Samfélagið Steinunni Hilmu Ólafsdóttur, sjávarlíffræðing, um borð í nýja hafrannsóknaskipinu, Þórunni Þórðardóttur. Steinunn Hilma var á leið í nokkurra vikna siglingu til að rannsaka lífríki hafsbotnsins við Ísland og sagði okkur frá rannsóknaraðferðunum, stöðu þekkingar og hvað henni finnst um þá útreið sem botnvörpuveiðar fá í nýjustu mynd Davids Attenborough, Ocean. Skólar landsins eru fullir af lífi á ný eftir sumarfrí og í þættinum ætlum við að fá innsýn inn í vinnudag kennara. Atli Rafnsson er umsjónarkennari við Setbergsskóla í Hafnarfirði. Við fylgdum honum eftir einn vinnudag, frá því hann mætti hjólandi til vinnu að morgni og þar til hann gekk inn í síðustu kennslustund dagsins. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, kom í þáttinn og sagði okkur frá nýrri rannsókn á Parkinson sjúkdómnum. RÚNAR JÚLÍUSSON - Hamingjulagið. Mitchell, Joni - Little Green. FRIÐRIK DÓR - Ekki stinga mig af.
Í þættinum er rætt við Skúla Jón Sigurðarson sem var brautryðjandi í flugslysarannsóknum á Íslandi um áratuga skeið. Hann vann ötullega að flugöryggismálum í gegnum störf sín hjá Flugmálastjórn Íslands þar sem hann hóf störf árið 1965 og tók síðar þátt í að setja á fót Rannsóknarnefnd flugslysa. Í um 35 ár vann Skúli Jón fórnfúst starf í að rannsaka orsakir næstum allra flugslysa sem urðu hérlendis og naut alla tíð mikillar virðingar fyrir störf sín. Skúli Jón fer stuttlega í þættinum yfir sinn feril og segir meðal annars frá áhugaverðum og erfiðum slysum þar sem hann kom að og lýsir um leið nokkrum samferðamönnum sínum í störfum hjá Flugmálastjórn eins og Agnari Kofoed-Hansen og Sigurði Jónssyni, sem ætíð var kallaður Siggi flug.
Ýmsir þættir hafa áhrif á hvar við ákveðum að búa til lengdar og hversu vel okkur líður í heimahögunum. Nýleg rannsókn sýnir til að mynda að einstaklingar sem búsettir eru í fáumennum byggðarlögum hérlendis og upplifa slúður um sitt ástarlíf eru tvöfalt líklegri til þess að ætla að flytjast búferlum en aðrir sem ekki upplifa slíkt. Til að færa okkur í allan sannleika um áhrif slúðurs á búsetu og búsetuánægju og margt fleira er í þessum þætti rætt við Dr. Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sérfræðing við Rannsóknasetur byggða- og sveitarstjórnarmála við Háskólann á Bifröst. Gréta lauk doktorsgráðu í félagsfræði frá Háskólanum á Akureyri á síðasta ári en titill ritgerðarinnar er „Ein af þessum sögum: Félagslegt taumhald, fólksflutningar og slúður: ungar konur í litlum byggðarlögum á Íslandi.“ Guðmundur Oddsson prófessor í félagsfræði við HA ræddi við Grétu en í spjalli þeirra kennir ýmissa grasa.
Snædís Malmquist Einarsdóttir er umsjónarhönnuður og listakona hjá Hvíta húsinu, þar sem hún vinnur að skapandi verkefnum fyrir stór fyrirtæki eins og Icelandair. Hún hefur sterkann bakgrunn í myndlist og hefur unnið mikið stafrænt samhliða því. Snædís leggur áherslu á hugmyndavinnu og rannsóknir í starfi sínu, þar sem hún vinnur náið með hönnuðum, viðskiptastjórum og ráðgjöfum. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum eins og ljósmyndasýningum og herferðum. Mikilvæg atriði fyrir fyrirtæki varðandi vörumerki og markaðssetningu: Skýr samskipti: Mikilvægt er að vörumerki hafi skýr og samræmd samskipti við viðskiptavini, bæði sjónrænt og í texta. Hugmyndavinna: Skapandi hugmyndavinna er nauðsynleg til að koma vörum og skilaboðum á framfæri á áhugaverðan hátt. Rannsóknir: Góð rannsóknarvinna stuðlar að betri skilningi á markaðnum og viðskiptavinum. Samvinna: Náin samvinna við aðra hönnuði og viðskiptastjóra er lykillinn að árangursríkum markaðsherferðum. Fjölbreytni í verkefnum: Að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum getur styrkt vörumerkið og aukið sýnileika þess. Aðlögunarhæfni: Mikilvægt er að geta aðlagað sig að mismunandi verkefnum og viðskiptavinum. Sérstaða: Að sýna einstaka hliðar á vörumerkinu eða landinu (í tilfelli Icelandair) getur skapað áhuga og tengingu við viðskiptavini.
Leiðtogafundur Nato í Haag hefst með formlegum hætti á morgun en í kvöld snæða leiðtogarnir saman kvöldverð. Björn Malmquist er í Haag og hefur fylgst með því sem þar hefur gerst og ræddi líka við forsætisráðherra. Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á manndrápsmálinu á Edition - hótelinu fyrir tíu dögum er flókin og mörgum mikilvægum spurningum er enn ósvarað. Maðurinn sem var myrtur ásamt dóttur sinni glímdi við alvarlega nýrnabilun og var illa farinn sökum veikinda sinna. Umdeilt þynningarsvæði mengunar umhverfis álverið og málmblendiverksmiðjuna á Grundartanga í Hvalfirði heyrir brátt sögunni til. Það er þó allsendis óvíst hvort kvaðir á jörðum kringum verksmiðjurnar sem banna búsetu, skepnuhald og matvælaframleiðslu falli niður.
Rannsókn lögreglu á fjölskylduharmleik á fimm stjörnu lúxushóteli við Austurbakka í Reykjavík teygir sig bæði til Frakklands og Írlands. Henni miðar vel en er á byrjunarstigi. Ekki er útilokað að frönsk yfirvöld sendi hingað lögreglumenn til að fylgjast með rannsókn málsins. Flokkshollusta virðist ekki lengur hafa áhrif á val kjósenda eins og hún gerði, um helmingur kjósenda kaus ekki sama flokk í fyrra og hann gerði í alþingiskosningum 2021. Dettifoss komst nýlega í fréttirnar þegar skriða féll þar og frekara jarðrask uppgötvaðist í kjölfarið. Til að gæta öryggis ferðamanna var leiðum við fossinn lokað tímabundið. Þess utan eru þarna næg verkefni en þrjú til fjögur þúsund gestir skoða Dettifoss á dag.
Um 120 kennarar í grunn- og framhaldsskólum komu saman fyrir helgi til að læra nýstárlega aðferð til að kenna stærðfræði. Aðferðin er kölluð upp á íslensku hugsandi kennslustofur og er tíunduð í samnefndri bók eftir hinn sænska Peter Liljeberg – prófessor í stærðfræðimenntun við Simon Fraser-háskólann í Kanada, og það var einmitt hann sem stóð fyrir þessu námskeiði ásamt Bjarnheiði Kristinsdóttur, lektor í stærðfræði við Háskóla Íslands - og Samfélagið kíkti við til að heyra meira. Hitabylgjan sem reið yfir Ísland og Grænland í maí var öfgafull og hefði aldrei orðið ef ekki væri fyrir loftslagsbreytingar af mannavöldum. Veðurmet féllu á langflestum veðurstöðvum hér á landi. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, segir aukna tíðni öfgaveðurs sem á einungis að geta skollið á á hundrað ára fresti benda til þess að veðurtölfræðin sé öll að breytast. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, kemur svo til okkar í lok þáttar - og rifjar upp glæsilegan aðbúnað í hinu sögufræga millilandaskipi Gullfossi. Tónlist í þættinum: Berry Chuck - School day (Ring Ring Goes the BellI) Reverend and the makers - Heatwave in the cold north
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri Jáverks um húsnæðismál. Gylfi hefur byggt íbúðir á Íslandi í meira en 30 ár hann ræðir húsnæðismarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu og sína sýn á framtíð markaðar þar sem eftirspurn er langt umfram framboð, verð hækkar stöðugt og lítil merki um breytingar á þessari stöðu. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um dómsmál. Þorbjörg ræðir sín verkefni, málefni saksóknara í kjölfar gagnalekamálsins, lögreglustjórans fyrrverandi á Suðurnesjum, lögreglumál, landamæramál, útlendingamála og fleira. Sigríður Á. Andersen, Halla Hrund Logadóttir og Pawel Bartoszek alþingismenn um utanríksimál. Sigríður, Halla Hrund, og Pawel ræða utanríkismál, stöðu Íslands á óvissutímum, afstöðuna til Ísraels og aðgerðir Íslands vegna ástandsins á Gaza m.a. Anna Hildur Hildibrandsdóttir fagstjóri um skapandi greinar. Anna Hildur sem er fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst og formaður Rannsóknaseturs skapandi greina ræðir nýjar rannsóknir á efnahagslegu mikilvægi skapandi greina fyrir Ísland og landsbyggðina sérstaklega.
Sonya hafði farið út með vinkonu sinni eitt kvöld, en skilaði sér aldrei heim. Hún var tilkynnt týnd, og ekki leið á löngu þar til vitni kom auga á lík hennar. Rannsókn var hafin og nokkrir einstaklingar komu til greina, en það kom öllum í opna skjöldu þegar kona steig fram sem vitni með þær upplýsingar sem hún sá þetta örlagaríka kvöld. Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum og það var glæný lína að droppa!
Ekki er mikill ágreiningur um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka á þingi en menn eru ekki alveg á einu máli um tímasetningu og hvað sé ásættanlegt verð. Verð á laxveiðileyfum vekur á stundum furðu og hneykslan en eftirspurnin er mikil og auðlindin takmörkuð segja þeir sem selja. Fyrir fjórum árum færðust hrygningarstöðvar norsk-íslenska síldarstofnsins skyndilega 800 kílómetra norður með ströndum Noregs. Rannsókn norrænna vísindamanna sýnir að ofveiði á elstu síldinni úr stofninum er ástæðan. Þar með vantaði eldri síld til að sýna ungviðinu hvar ætti að hrygna.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Valdimar Hafsteinsson framkvæmdastjóri Kjöríss ræddi við okkur um ásakanir um magnskerðingu Fjölnir Sæmundsson formaður Landssambands lögreglumanna ræddi við okkur um njósnamálið Símatími Atli Stefán Yngvason hjá Tæknivarpinu Svava Þórhildur Hjaltalín læsisfræðingur grunnskólakennari og verkefnastjóri kveikjum neistann við Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar Benjamín Julian verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ um hækkun matvöruverðs Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fjölmiðlakona og dagskrárgerðarmaður um þættina „Stóra stundin“ sem sýndir eru á Stöð 2 á sunnudögum
Rannsókn héraðssaksóknara á samkeppnislagabrotum fjögurra starfsmanna Samskipa og Eimskips var hætt í desember þar sem of langt hlé hafði verið gert á rannsókninni og hún taldist því fyrnd. Fjórir voru með réttarstöðu sakbornings í nærri sjö ár. Héraðssaksóknari og Samkeppniseftirlitið ætla að ræða stöðuna við dómsmálaráðherra. Formaður Neytendasamtakana segir samkeppnislagabrot hafa lítinn fælingarmátt ef engin sætir ábyrgð. Freyr Gígja Gunnarsson rýndi í málið og ræddi við Ólaf Þór Hauksson og Breka Karlsson. Sveitarstjórnir víða um land hafa lýst efasemdum um þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur boðað á strandveiðum svo tryggja megi 48 daga samfellda vertíð. Ekki hafi verið sýnt fram á hvert eigi að sækja veiðiheimildir fyrir aukna strandveiði. Það megi ekki skerða kvóta til annarra útgerða. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Gylfa Ólafsson og Jón Björn Hákonarson. Í dag lýkur alþjóðlegri, tveggja daga ráðstefnu í Jerúsalem, um gyðingahatur og hvernig skuli takast á við það. Ráðstefnan er haldin á vegum ráðuneytis um málefni gyðinga utan Ísraels og baráttu gegn gyðingahatri, undir yfirskriftinni: Hver eru helstu öflin á bak við gyðingahatur nútímans? Umræðuefnið er aðkallandi, því andúð og hatur í garð gyðinga hefur sannarlega farið vaxandi í hinum vestræna heimi undanfarin misseri. Þátttaka fjölda evrópskra öfga-hægrimanna hefur hins vegar vakið mikla gagnrýni og margir hættu við þátttöku. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson
Sæunn segir frá lífi sínu, flakkinu, hvernig það gengur að gera langtímaplön. Hún býr ásamt fjölskyldu sinni á Siglufirði og var að skrifa sína fyrstu skáldsögðu, þar sem fléttast saman líf og örlög tveggja kvenna á ólíkum tímum.
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar andlát manns sem var saknað í Þorlákshöfn fyrir viku og fannst þungt haldinn í Reykjavík morguninn eftir. Grunur eru um manndráp, fjárkúgun og frelsissviptingu. Sex eru í gæsluvarðhaldi. Prófessor í afbrotafræði segir málið um margt óvenjulegt ekki síst sá miklu fjöldi sem tengist því. Krafa Bandaríkjaforseta um aðgengi að auðlindum Úkraínu í skiptum fyrir hernaðaraðstoð hefur verið gagnrýnd víða um heim, en Bandaríkjunum hefur verið boðið að fjárfesta í ríkulegum auðlindum Lýðstjórnarlýðveldisins Kongós í skiptum fyrir aðstoð. Umboðsmðaur Alþings gerði í fyrra athugasemdir við notkun og gerð lögreglustjörnunnar og minnti á að stjórnsýslan væri bundin af lögum - líka um lögreglustjörnur.
Notkun svefnlyfja getur haft ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér og skert lífsgæði, sérstaklega eldra fólks, en í þeim hópi er notkun svefnlyfja mest. Rannsóknir sýna að langtímanotkun svefnlyfja sé gagnslaus, en þau geta haft alvarlegar hættur í för með sér og neikvæð áhrif á heilsuna. Hildur Þórarinsdóttir formaður Félags íslenskra öldrunarlækna og Drífa Sigfúsdóttir varaformaður Landssambands eldri borgara komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá mikilvægi þess að minnka svefnlyfjanotkun og herferðinni „Sofðu vel“. Við skruppum svo út með hljóðnemann og spurðum fólk á förnum vegi hvort það þekkti ráðherrana í ríkisstjórninni og í hvaða ráðuneyti þau eru. Svörin voru áhugaverð og ljóst að ekki allir eru með þetta á hreinu, ríkisstjórnin er þó auðvitað ekki búin að starfa mjög lengi. Gjörunnin matvæli eru að öllu jöfnu orkurík vegna mikils magns sykurs og/eða fitu en þetta mikla magn lækkar hlutfall mikilvægra næringarefna á móti. Þetta eru matvæli sem oft eru kölluð skyndifæða og ýmis efni eins og litarefni og sætuefni eru notuð til að gera matvælin girnileg. Við heyrðum í dag viðtal sem Helga Arnardóttir tók við Kristján Þór Gunnarsson heimilislækni á Selfossi um gjörunnin matvæli. Viðtalið var áður í þættinum í júní í fyrra. Tónlist í þættinum í dag: Riddarar kærleikans / GDRN (Dagmar Helga Helgadóttir og Valgerður Rakel Rúnarsdóttir) Serendpity / Laufey (Laufey & Spencer Stewart) I'm a believer / The Monkees (Neil Diamond) All I Have to do is Dream / The Everly Brothers (Boudleaux Bryant) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Fæðingartíðni hefur lækkað víðast hvar í heiminum á síðustu áratugum. Ari Klængur Jónsson, nýdoktor og verkefnastjóri við Félagsvísindastofnun, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá nýrri rannsókn þar sem rýnt er í fæðingartíðni á Íslandi út frá ýmsum þáttum, þar á meðal tekjum og uppruna. Í rannsókninni er lesið í mögulegar ástæður fyrir fallandi fæðingartíðni á Íslandi og í fyrsta sinn skoðuð fæðingatíðni innflytjenda á Íslandi. Ari Klængur sagði okkur frá þessari merkilegu rannsókn og hversu flókið það er að lesa í niðurstöðurnar. Skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi er nú að hefjast og hópur landsmanna mun á næstu dögum fá boð um að taka þátt í skimun. Til að byrja með verður um 200 manns boðin þátttaka í prufuhópi en almennar skimanir munu hefjast um leið og prófunum lýkur. Ristil- og endaþarmskrabbamein er þriðja algengasta krabbameinið sem greinist á Íslandi, um tíu prósent allra krabbameina sem greinast. Ólíkt öðrum skimununum þarf fólk ekki að fara úr húsi, heldur fær það sent sjálfspróf heim og einfaldar leiðbeiningar um hvernig á að taka sýni. Sýnið er sett í póst eða skilað á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu. Við ræddum við Ágúst Inga Ágústsson, yfirlækni Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Síminn / Halli og Laddi (Scharfenberger, texti Haraldur Sigurðsson) Bara rólegan æsing / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Where Do You Go to My Lovely / Peter Sarstedt (Peter Sarstedt)
Hvernig tökumst við á við breytta heimsmynd vegna loftslagsbreytinga, hnignunar líffræðilegs fjölbreytileika og annarra umhverfisógna. Á dögunum kom út samnorrænt greinasafn sem fjallar um hlutverk lista, bókmennta og skapandi athafna í að bregðast við þessum breytingum. Auður Aðalsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, er annar ritstjóra safnsins og hún ætlar að kíkja til okkar til að ræða þetta áhugaverða safn, ásamt Önu Stanicevic, doktor í menningarfræðum frá Háskóla Íslands og lektor við Háskólann í Helsinki. Svokallaðar básabúðir þar sem fólk getur leigt bás undir notaðar flíkur skjóta víða upp kollinum þessa dagana. Bræðurnir Hlynur Snær Jóhannesson og Styrmir Jarl Rafnsson opnuðu eina slíka á Selfossi í ársbyrjun, alveg við þjóðveginn í miðju iðnaðarhverfi. Arnhildur hitti Hlyn á ferð Samfélagsins um Suðurlandið í síðustu viku og ræddi við hann um reksturinn og hringrásarhugsunina á bak við hana. Og síðan ætlum við að heyra áður óflutt viðtal við Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði við HÍ. Við ræddum við hana í kringum alþingiskosningarnar síðasta nóvember um listabókstafi og ýmislegt fleira sem tengist pólitík. Viðtalið var aldrei flutt vegna óviðráðanlegra aðstæðna, en í lok þáttar fær það loksins að líta dagsins ljós.
Í Bandaríkjunum situr nú forseti sem lætur sér ekkert óviðkomandi, hvort sem það eru örnefni, fjöldi kynja eða stjórn og dagskrá einnar helstu menningarstofnunar landsins. Spegillinn ræðir málið við Silju Báru Ómarasdóttur prófessor í stjórnmálafræði. Quang Le sem handtekinn var í umfangsmiklum aðgerðum í mars í fyrra freistaði þess síðasta sumar að fá leyfi hjá yfirvöldum til að fara í brúðkaup dóttur sinnar. Hann bauðst til að leggja fram tryggingu og sagðist ekki hafa nein tengsl við Víetnam því þangað hefði hann ekki komið í tólf ár. Beiðninni var hafnað. Rannsókn málsins er ekki lokið, nærri ári eftir að hún hófst og Quang sætir enn farbanni. Spegillinn reifar málið.
Við kveðjum skáldið, gagnrýnandann og menningarblaðamanninn Ásgeir H. Ingólfsson sem lést eftir snörp veikindi 25. janúar síðastliðinn, aðeins 48 ára gamall. Ásgeir var reglulegur gestur í Lestinni með pistla um kvikmyndir og kvikmyndahátíðir. Við heyrum brot úr nokkrum pistlum og ljóðalestri Ásgeirs. Við veltum fyrir okkur stöðu leikhússins á Íslandi árið 2025. Á næstu vikum ætlar Lóa að ræða við viðmælendur sem koma sviðslistum við - um framtíð sviðslista - Hvernig lítur framtíð leikhússins út? Hvernig getur leikhús farið inn í þá framtíð? Hvað er listrænt spennandi? Hvert er hlutverk gagnrýnenda? Hvernig náum við ungu fólki í leikhús? Og af hverju ætti ungt fólk að fara í leikhús? Af hverju að fara í leikhús yfirhöfuð? Rannsóknin hefst á samtali við sviðslistamann sem hætti í sviðslistum, Karl Ágúst Þorbergsson. Við ræðum svo við japanska tónlistarmanninn Masaya Ozaki sem býr og starfar í Reykjavík. Þórður Ingi Jónsson spjallaði við hann eftir tónleika í kjallara Hörpu á Myrkum músíkdögum.
Forsetaskrifstofan veitti óskýr svör við fyrirspurnum um hvar Halla Tómasdóttir, forseti íslands, hefði verið þegar minningarathöfn um helförina í Auschwitz fór fram á mánudag. Freyr Gígja Gunnarsson fann svarið í Stjórnartíðindum. „Þetta er ekki niðurstaðan sem ég hefði óskað mér,“ sagði Jónas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, á fréttafundi eftir að ljóst var að stjórn hans var sprungin. Hann sagði samvinnu og vináttu flokkanna sem að henni stóðu - og þeirra Trygve Slagsvold Vedum, formanns Miðflokksins - hafa verið traust og honum mikils virði - og væri það enn. Það breytti því þó ekki að stjórnin sprakk eins og spáð hafði verið. Støre situr þó áfram á stóli forsætisráðherra. Við tekur líf í minnihlutastjórn Verkamannaflokksins og löng kosningabarátta því ekki má rjúfa þing. Kosið verður til nýs Stórþings 8. september í haust. Gísli Kristjánsson segir frá. Aftökur dauðadæmdra fanga voru teknar upp að nýju í Bandaríkjunum 1976, eftir nokkurra ára hlé vegna réttaróvissu. Frá þeim tíma hafa um 8.500 manns verið dæmdir til dauða þar í landi og rúmlega 1.600 þeirra verið teknir af lífi. Rannsóknir hafa sýnt að fælingarmáttur dauðarefsingar er enginn. Vitað er að kostnaðurinn er svimandi hár. Og það sem líka er vitað er, að um það bil einn af hverjum átta föngum sem dæmdir hafa verið til dauða í Bandaríkjunum frá 1973 hafa verið hreinsaðir af sök. Ekkert af þessu kom þó í veg fyrir það, að Donald Trump, nýskipaður Bandaríkjaforseti, gerði það að einu sínu fyrsta embættisverki að skipa fyrir um að auka skuli áherslu á að dæma fólk til dauða hvenær sem lög leyfa - og að fullnusta skuli þá dóma, svikalaust. Ævar Örn Jósepsson ræddi þetta við Evu Einarsdóttur, formann Íslandsdeildar Amnesty International. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Árið 1996 hvarf hin 18 ára Sarah Spiers úr miðbæ Claremont en hún hafði verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim. Ekkert bólaði á rannsókninni og um sex mánuðum síðar hvarf önnur stelpa frá sama svæði, og voru bæjarbúar að upplifa sama áfallið aftur. Rannsókn var á fullu þar sem þeir báðar áttu það sameiginlegt að hafa verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim, og lögreglan fór að velta því fyrir sér hvernig einstaklingurinn væri að nálgast fórnarlömbin sín. Ári seinna, hvarf svo þriðja stelpan sem setti samfélagið á hliðina. Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com
Donna Scrivo hafði nýverið misst eiginmann sinn, en eftir það ákvað hún að taka að sér umönnun á 29 ára syni sínum þar sem hún taldi hann ekki hæfan til að sjá um sig sjálfur. Það var svo árið 2014 sem Ramsay, sonur hennar, hvarf sporlaust og leitaði áhyggjufull Donna til lögreglunnar. Rannsókn átti eftir að leiða í ljós hræðilegan atburð sem reynt var að hylma yfir. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Áskriftin okkar inniheldur yfir 150 þætti og kostar aðeins 1.390kr.- á mánuði, en hægt er að nálgast hana á www.pardus.is/mordskurinn Samfélagsmiðlar @mordskurinn
Meira en helmingur þeirra um 7.200 sem voru á atvinnuleysisskrá í júlí voru erlendir ríkisborgarar. Hlutfallið var þá 53% og hefur sigið upp á við undanfarið - var 48% fyrir ári. Atvinnuþátttaka útlendinga er mikil hérlendis en þetta háa hlutfall þeirra sem eru atvinnulausir var meðal þess sem til var tekið í nýlegri úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD sem kynnt var í vikunni. Rætt verður við Unni Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar. Landsmenn eru áfram almennt jákvæðir og ánægðir með erlenda ferðamenn og ferðaþjónustu í heimabyggð. Þetta sýnir ný könnun Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála sem gerð var í vikunni. Ferðaþjónustan er hins vegar ekki einkamál atvinnugreinarinnar og hún má ekki ganga að gestrisni Íslendinga sem vísum hlut. Eyrún Jenný Bjarnadóttir frá Rannsóknarmiðstöð ferðamála fer yfir helstu niðurstöður. Dominique Pelico hefur játað að hafa í rúman áratug mulið svefntöflur og kvíðalyf út í vínglas eða kvöldmat eiginkonu sinnar. Þegar hún missti meðvitund nauðgaði hann henni og bauð ókunnugum mönnum með auglýsingu á vefsíðu að gera slíkt hið sama; þetta voru trukkabílstjóri, smiður, fangavörður, hjúkrunarfræðingur og blaðamaður frá staðarmiðli í franska smábænum Mazan þar sem hjónin bjuggu, svo dæmi séu tekin. Menn á aldrinum 26 til 74 ára, feður og eiginmenn. Rætt verður við Láru Samira Benjnouh
Fyrir sex árum 2018 létust 15 i umferðinni árið allt, sá fjöldi er þegar kominn í 11 í ár og slíkt vekur spurningar um orsakir slysanna. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kannar þær og leggur til úrbætur til að reyna að koma í veg fyrir að slys endurtaki sig. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Helga Þorkel Kristjánsson og Björgvin Þór Guðnason frá rannsóknarnefndinni um starf hennar.
Óformlegt framhald Íslandsögunnar. Í þetta skipti þræðum við 20. öldina. Að sjálfsögðu er frásögnin ekki línuleg, rétt eins og Íslandssaagan. Önnur umræðuefni eru kynjuð loftslagsmál í samhengi við afnýlenduvæðingu og svo veðmálafyrirtæki á Íslandi. Rannsóknarspurning er sett fram í byrjun þáttar: Hver er merkilegasti Íslendingur allra tíma? Svör í lokin.
Nokkrir úr hópi tékkneskra ferðalanga sem lentu í alvarlegu bílslysi í Öxnadal í síðustu viku hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi, en tveir eru enn á gjörgæslu. Bílstjórinn hefur réttarstöðu sakbornings, umfangsmikil rannsókn er þó skammt á veg komin. Hlekkirnir þurfa ekki að vera áþreifanlegar til að það sé mansal, segir sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust, og mansal þrífst ekki aðeins hjá skipulögðum brotahópum. Erfingjar rúmlega fimm þúsund listmuna og gersema sem stjórnvöld á Spáni gerðu upptæk á tímum borgarastyrjaldarinnar á síðustu öld geta loks fengið þá aftur.
Hundblautur í hellirigningu fyrir utan Downing-stræti 10 boðaði Rishi Sunak forsætisráðherra til nýrra þingkosninga í Bretlandi 4. júlí. Fram að tilkynningu Sunaks höfðu breskir miðlar verið undirlagðir af vitnisburði Paulu Vennells, fyrrverandi forstjóra póstsins. Rannsóknarnefnd kannar það sem kallað hefur verið stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins þegar tæplega eitt þúsund útibússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus. Sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til fyrir breska póstinn. Ný gögn benda til þess að Vennells hafi vitað um gallana í bókhaldskerfinu og að málsóknir væru vafasamar þegar hún fullyrti í þingnefnd 2015 að ekkert væri athugavert við tölvukerfið eða málareksturinn gegn útibússtjórunum.
Rannsóknir benda til að stór hluti allra heimsókna á spítala séu tengt stress tengdum lífsstílssjúkdómum. Því er virkilega mikilvægt að minnka stress í lífi okkar og í þættinum deili ég með þér ráðum til þess að temja þér hugleiðslu, slökun og bættan svefn. NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar! HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. 7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Magasínið með Lindu Pé Ókeypis áskrift! Í vikulega rafræna magasíninu mínu ætla ég að fjalla um hvernig ÞÚ getur lifað draumalífinu þínu. Efnistök eru meðal annars; Lífsstíll, heilsa, uppskriftir, fegurð, ferðalög, stíll, viðtöl og svo auðvitað innsýn inn í lífið mitt. Þetta vefrit verður hvatning til þeirra sem það lesa til að bæta eigin lífstíl og gera þær breytingar sem þarf til að lifa draumalífinu. Magasínið með Lindu Pé á netfangið þitt, alla sunnudaga. Smelltu hér til að skrá þig í ókeypis áskrift. Heimasíða Lindu Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. Prógrammið með Lindu Pé LOKAÐ er fyrir skráningar. Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. Skrá mig á BIÐLISTA InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!