More podcasts from RÚV

Search for episodes from Fríhöfnin with a specific topic:

Latest episodes from Fríhöfnin

Hafa trúarbrögðin runnið sitt skeið?

Play Episode Listen Later Mar 11, 2021

Heiminum hefur verið hægt að skipta niður í misstór og misfjölmenn svæði eftir trúarbrögðum. Þau eru voldug menningarfyrirbæri eða stofnanir sem í árþúsundir hafa verið burðargrind í heimsmynd manna. En er hlutverk trúarbragðanna að breytast, eru önnur burðarvirki að taka við? Vésteinn Lúðvíksson rithöfundur, hefur um langt árabil búið í austur Asíu og hefur lagt sig eftir að kynna sér andlega farvegi vítt um heim, hann er á því að stóru trúarbrögðin séu að renna sitt skeið á enda, en leitin að trúartrausti heldur áfram. Ævar Kjartansson ræðir við Véstein Lúðvíksson um stöðu hinna formföstu trúarbragða. (Frá 2016)

Áður fyrr á árum - Um jarðskjálftana á Suðurlandi 1896

Play Episode Listen Later Mar 4, 2021

1. Viðtal við Ágúst Sveinsson í Ásum (frá 1972). Úr viðtali Lofts Guðmundssonar blaðamanns við Ágúst bónda Sveinsson í Ásum, Gnúpverjahreppi um jarðskjálfana 1896. 2. Úr greinargerð um jarðskjálfana eftir séra Valdimar Briem. Gils Guðmundsson les. Þorvaldur Thoroddsen: Landskjálftar á Íslandi. Um jarðskjálftana 1896 í Gnúpverjahreppi. Umsjón: Ágústa Björnsdóttir. (Áður á dagskrá 8. sseptember 1981)

Grasótin í myndlist, þriðji þáttur

Play Episode Listen Later Feb 9, 2021

Hvað er grasrótin í myndlist að hugsa? Ikea, pólýester, dagsbirta, snjalltæki og miklu miklu fleira eru efniviður ungra myndlistarmanna í dag. Í þáttunum kynnumst við hugarheimi ungra myndlistarmanna sem starfa í Reykjavík. Viðmælendur í þriðja þætti eru myndlistarmennirnir Árni Jónsson og Freyja Eilíf. Auk þess er rætt við Sigrúnu Hrólfsdóttur, deildarforseta myndlistardeildar Listaháskóla Íslands. Umsjón Halla Harðardóttir. (Frá 9. júní 2018)

Gasrótin í myndlist, annar þáttur

Play Episode Listen Later Feb 9, 2021

Hvað er grasrótin í myndlist að hugsa? Ikea, pólýester, dagsbirta, snjalltæki og miklu miklu fleira eru efniviður myndlistarmanna í dag. Í þáttunum kynnumst við hugarheimi ungra myndlistarmanna sem starfa í Reykjavík. Viðmælendur eru myndlistarmennirnir Árni Jónsson, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Freyja Eilíf, Fritz Hendrik Berndsen, Ívar Glói og Margrét Helga Sesseljudóttir. Auk þess er rætt við Björn Þorsteinsson heimspeking, Sigrúnu Hrólfsdóttur deildarstjóra myndlistardeildar LHÍ, Þorgerði Ólafsdóttir safnstjóra Nýlistasafnsins og Bjarka Bragason lektor við LHÍ. Umsjón: Halla Harðardóttir. (Frá 2. júní 2018)

Grasrótin í myndlist, fyrsti þáttur

Play Episode Listen Later Feb 9, 2021

Hvað er grasrótin í myndlist að hugsa? Ikea, pólýester, dagsbirta, snjalltæki og miklu miklu fleira eru efniviður myndlistarmanna í dag. Í þáttunum kynnumst við hugarheimi ungra myndlistarmanna sem starfa í Reykjavík. Viðmælendur eru myndlistarmennirnir Árni Jónsson, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Freyja Eilíf, Fritz Hendrik Berndsen, Ívar Glói og Margrét Helga Sesseljudóttir. Auk þess er rætt við Björn Þorsteinsson heimspeking, Sigrúnu Hrólfsdóttur deildarstjóra myndlistardeildar LHÍ, Þorgerði Ólafsdóttir safnstjóra Nýlistasafnsins og Bjarka Bragason lektor við LHÍ. Umsjón: Halla Harðardóttir. (Frá 26. maí 2018)

Mannsröddin - heillandi fyrirbæri

Play Episode Listen Later Jan 18, 2021

Röddin er og hefur verið bráðnauðsynlegt tæki til að hvetja, hafa áhrif og fullvissa - vopn til að sannfæra fjöldann. ,,Hver einstaklingur hefur sína einstöku rödd sem eyrað greinir auðveldlega eins og augað greinir andlitsdrætti." (Quintilian) Hvað getum við lesið í mannsröddina? ,,Því að öll hughrif hafa í eðli sínu sérstakan . . . blæ . . . og tilbrigði raddarinnar . . . hljóma eins og strengir á hljóðfæri, rétt eins og þau hrífist af hlýju hugans" (Cicero) Í þættinum verður farið yfir þetta magnaða fyrirbæri sem mannsröddin er út frá hinum ýmsu kenningum. Þórey Sigþórsdóttir leikkona og raddþjálfari ræðir við okkur um fjölbreytileika raddarinnar og hvernig hún getur verið notuð til að ná völdum. Umsjón: Sigyn Blöndal. (Frá 21. nóvembe 2015)

Örlagaþræðir

Play Episode Listen Later Jan 7, 2021

Það reyndist Annie Leifs örlagarík ákvörðun að ganga í hjónaband með ungum fátækum listamanni frá Íslandi. Þessi ákvörðun mótaði erfitt líf hennar og varð til þess að hún flutti á endanum til Íslands þar sem hún barðist fyrir því að reist yrði klaustur í minningu dóttur sinnar. Við kynnum okkur líf píanóleikarans Annie Leifs, sem var fyrsta eiginkona tónskáldsins Jóns Leifs. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.

Lífið og skólinn

Play Episode Listen Later Dec 31, 2020

Ágúst Þór Árnason ræðir við skólafrömuðinn Wolfgang Edelstein um líf hans og störf. Í árslok 2018 hittust þeir í Berlín Ágúst Þór Árnason og Wolfgang Edelstein. Ágúst hafði upptökutæki meðferðis og hljóðritaði samtal þeirra þar sem Wolfgang segir frá uppvexti sínum á Íslandi og störfum sínum að skólamálum í Þýskalandi og á Íslandi. Ágúst Þór andaðist nokkrum vikum síðar og Wolfgang snemma árs 2020. Brot af samræðu þeirra varðveittist á upptökutækinu. Umsjón Ævar Kjartansson.

Í nærveru jarðar

Play Episode Listen Later Dec 31, 2020

Stiklað á stóru í ævi og verkum bandaríska ljóðskáldsins Louise Glück, sem á síðasta ári hlotnuðust bókmenntaverðlaun Nóbels fyrir „einstaka, ljóðræna rödd sem á íburðarlausan hátt umbreytir persónulegri reynslu í almenna“. Óhætt er að segja að ýmislegt í ævi Glück hafi ekki verið neinn dans á rósum. En í stað þess að vísa með beinum hætti til einstakra voðaatburða eða tiltekinna áfalla, byggir hún trúnaðarsamtal sitt og lesanda fremur á því sem slíkar þrautir hafa kennt henni. Umsjón: Magnús Sigurðsson.

Móðurmálið mitt er útlenska

Play Episode Listen Later Dec 31, 2020

Á fyrsta vinnudegi Juliusar Pollux á frístundaheimili, varla viku eftir komuna til Íslands, kom til hans ljóshært barn. Það horfði stóreygt á hann og spurði „Ertu útlendingur?“, og svo „talar þú útlensku?“ Þessi spurning, um það hvar Julius tilheyrir - hér eða ekki hér - varð innblástur hans að tónverkinu Vestur í bláinn, sem byggði á röddum innflytjenda. Hann og viðmælendur hans íhuga hlutverk móðurmála í samhengi við sjálfið og samfélagið. Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Julius Pollux.

Þú mátt heita Ósk

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020

Lög um mannanöfn hafa löngum valdið heitum umræðum hér á landi. Nöfn skipta okkur máli, eins og sést bæði í löggjöf og hefðum, og sitt sýnist hverjum um mannanafnanefnd. En mannanafnalögin hafa líka tengst innflytjendamálum þar sem íslenskt nafn var forsenda fyrir ríkisborgararétti frá 1952 til 1996. Rætt er við fólk af ólíkum toga sem allt á það sameiginlegt að hafa tekið upp íslenskt nafn, bæði með og gegn sínum vilja. Umsjón: Halla Harðardóttir.

Helmingi dekkra en nóttin 2/2

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020

Tveir þættir um skáldkonuna Ástu Sigurðardóttur þar sem fjallað er um líf hennar og ótímabæran dauða. Árið 1957 tók Ásta Sigurðardóttir saman við skáldið Þorstein frá Hamri og þau eignuðust fimm börn, þrjá drengi og tvær stúlkur. Fyrir átti Ásta einn son með Jóhannesi Geir listmálara. Ásta Sigurðardóttir andaðist í Reykjavík, langt fyrir aldur fram, 21. desember árið 1971, aðeins 41 árs að aldri eftir að hafa átt við áfengisvanda að stríða um langa hríð. Vera Sölvadóttir fjallar um skáldið og listakonuna Ástu Sigurðardóttur.

Helmingi dekkra en nóttin 1/2

Grjónagrautur er eins og soðin ýsa

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020

Grjónagrautur er einfaldur matur, bara hrísgrjón soðin í mjólk, samt sem áður flækist þetta ferli fyrir svo mörgum. Hann tengir okkur við jólin, grenjandi svöng börn, fjölskyldur, mömmur, ömmur, hefðir og hatur. Í þættinum er rætt um fyrirbrigðið grjónagraut og skoðuð eru áhrif hans á tilfinningar og tengsl manna. Umsjón hefur Aðalbjörg Árnadóttir Viðmælendur eru: Sólveig Ólafsdóttir, sagnfræðingur, Saga Sólrún Hannesdóttir, Hannes Óli Ágústsson, Jón Gunnar Ólafsson, Oddný Helgadóttir, Kristín Ólína Kristjánsdóttir, Unnur Skúladóttir, Ástbjörg Rut Jónsdóttir, Þóra Árnadóttir, Beinta K. Clothier, Baerbel Schwarz og Gunvor Reynberg.

Í gleði og angist

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020

Þáttur um listmálarann og rithöfundinn Tove Jansson og glimu hennar við Múmíndal og myndlistina. Umsjón: Gerður Kristný.

Týndur í miðri Reykjavík í 40 ár

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020

Leitin að gröf Páls Ólafssonar skálds sem fannst nýlega í Hólavallakikjugarði. Umsjón: Bergljót Baldursdóttir.

Sloppar og inniskór

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020

Í þættinum verður hugað að tveimur fyrirbærum sem þurfa að vera til staðar á jólum, sloppum og inniskóm. Grafist verður fyrir um sögu þessara fyrirbæra og haldið í Þjóðminjasafn Íslands til að skoða stórmerkan slopp. Umsjón: Guðni Tómasson.

Bönnuð jól

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020

Una Margrét Jónsdóttir fjallar um nokkur tímabil þegar jól hafa verið bönnuð í tilteknum löndum. Á valdatíma púrítana í Englandi 1644-1660 var bannað að halda jól þar sem púrítanar töldu að þau væru ekki kristileg. Í Sovétríkjunum og á Kúbu á 20. öld voru jólin bönnuð af því að þau þóttu ekki samrýmast kommúnískum lífsskoðunum, auk þess sem þessi frídagur minnkaði vinnuframlag borgaranna. Lesið verður úr dagbók Johns Evelyn sem var uppi á valdatíma púrítana í Englandi á 17. öld, en hann var handtekinn fyrir að vera viðstaddur ólöglega jólamessu. Einnig verður lesin frásögn Raisu Trushevsku um upplifun hennar af jólabanninu í Sovétríkjunum, en Raisa fæddist í Úsbekistan 1948. Þá verður rætt við Tamilu Gamez Garcell, en hún er fædd á Kúbu 1974 og kynntist ekki jólum fyrr en hún fluttist til Íslands. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Baldur Trausti Hreinsson, Jórunn Sigurðardóttir og Bozhena Zemova.

Jólin - Með okkar augum 2020

Play Episode Listen Later Dec 24, 2020

Óvenjulegur hátíðarþáttur fyrir venjulegt fólk. Fólkið úr hinum vinsælu sjónvarpsþáttum „Með okkar augum" skoðar ýmsar hliðar jólahátíðarinnar. Yfirumsjón: Elín Sveinsdóttir.

Steinólfur Lárusson í Fagradal

Play Episode Listen Later Oct 15, 2020

Finnbogi Hermannsson ræðir við Steinólf Lárusson bónda í Ytri Fagradal á Skarðsströnd í Dalasýslu. Steinólfur hefur fengist við margt um dagana. Hann hefur gert tilraunir með veiðar á trjónukrabba, beitukóngi og fleiri sjávardýrum og skrifar merkileg bréf til stjórnvalda um þau mál. Þá hefur hann fengist við tilraunir í fiskirækt. Steinólfur er þúsundþjalasmiður og á gnótt vinnuvéla og verkfæra. (Áður á dagskrá 1989)

Grund

Play Episode Listen Later Oct 8, 2020

Flakkað um Dvalar-og elliheimilið Grund, heilsað upp á starfsfólk og heimilismenn og pælt í því hvernig er að verða gamall, er það tilhlökkunarefni eða er það kvíðvænlegt. Rætt við Guðmund Jónsson yfirkokk, Guðrúnu Birnu Gísladóttur forstjóra á Grund, Örnólf Thorlacius fyrrverandi skólameistara, Guðrúnu Bjarnadóttur 94 ára íbúa á Grund og Jón Björnsson sálfræðing og rithöfund. Umsjónarmaður: Lísa Pálsdóttir . Þáttur frá árinu 2006.

Claim Fríhöfnin

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel