Þegar ég verð stór

Follow Þegar ég verð stór
Share on
Copy link to clipboard

Viðtalsþáttur í umsjón Völu Rúnar Magnúsdóttur og Vöku Njálsdóttur þar sem lögð er áhersla á reynsluheim kvenna sem skarað hafa fram úr á sínu sviði.

Útvarp 101


    • Feb 22, 2021 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h 14m AVG DURATION
    • 28 EPISODES
    • 2 SEASONS


    Latest episodes from Þegar ég verð stór

    Sigurlína Ingvarsdóttir - Framleiðandi

    Play Episode Listen Later Feb 22, 2021 105:53


    Við snúum aftur með sérstakan þátt fyrir UAK, Ungar Athafnakonur. Sigurlína mun flytja lokaerindi á UAK ráðstefnunni Frá aðgerðum til áhrifa – Vertu breytingin þann 27.febrúar nk. Viðmælandinn að þessu sinni er Sigurlína Ingvarsdóttir, oftast kölluð Lína, en hún starfaði í þróun tölvuleikja hjá EA DICE, og vann að Star Wars Battlefront og varð síðar yfirframleiðandi FIFA, sem allir ættu að þekkja. Hún er verkfræðingur og lauk prófi í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands en í þessum þætti fáum við að skyggnast inn í hennar vegferð og hvernig það kom til að hún fór að vinna fyrir stærstu tölvuleikjarisa heims án þess að hafa nokkra þekkingu hvernig tölvuleikir yrðu að veruleika. Í þættinum fer hún yfir hin ýmsu ævintýri sem hafa orðið á hennar vegferð, æskuárin og árin í MR, hvernig það var að losna úr þægindarammanum og flytja alla fjölskylduna til Svíþjóðar og vinna hjá tölvuleikjarisa og allt sem hún hefur fyrir stafni í dag.

    Bára Hólmgeirsdóttir - Eigandi og stofnandi Aftur

    Play Episode Listen Later Nov 20, 2019 44:48


    Við fengum Báru Hólmgeirsdóttur, eiganda og stofnanda Aftur. Við spjölluðum um umhverfismál, mikilvægi endurnýtingar á efnum, hugmyndina á bakvið Aftur, hvernig það var að stofna sjálfbæran rekstur þegar fólk vissi varla hvað sjálfbærni var og mikilvægi þess að taka umhverfismál alvarleg. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 20.nóvember

    Gréta María Grétarsdóttir - Framkvæmdastjóri Krónunnar

    Play Episode Listen Later Nov 6, 2019 60:45


    Gestur þáttarins að þessu sinni er Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. Hún kíkti til okkar og spjallaði við okkur um hennar feril sem körfuboltakona, hennar fyrstu skref í ferlinum, umhverfismál, ábyrgð fyrirtækja og margt fleira skemmtilegt. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 6.nóvember.

    Ragna Árnadóttir - Skrifstofustjóri Alþingis

    Play Episode Listen Later Oct 30, 2019 70:44


    Ragna Árnadóttir er fyrsta konan til þess að gegna embtætti skrifstofustjóra Alþingis. Áður var hún forstjóri Landsvirkjunar, og þar áður dómsmálaráðherra. Við spjölluðum um hennar æsku, hvernig það er að vinna í stjórnsýslu, hversu karllægur orkugeirinn er, um ofurkonuna sem er ekki til og fæðingarþunglyndi. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 30.október.

    Ásta S. Fjeldsted - Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

    Play Episode Listen Later Oct 23, 2019 71:30


    Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Ásta S. Fjeldsted, kom til okkar í yndislegt spjall. Ásta hefur farið víða, hún ólst upp hér heima, fór í verkfræði í DTU í Kaupmannahöfn, vann fyrir Össur í Frakklandi, McKinsey í Danmörku og Japan og er tiltölulega ný flutt heim. Hún ræddi hennar frábæra árangur sem hún hefur náð í atvinnulífinu, hvernig best er að tækla erfið verkefni, að búa erlendis og margt fleira. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 23. október.

    Salóme Guðmundsdóttir - Framkvæmdastjóri Icelandic Startups

    Play Episode Listen Later Oct 16, 2019 61:13


    Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups, kíkti til okkar í frábært spjall. Hún ólst upp í Hlíðunum, eins og fáránlega margir viðmælenda okkar, fór í Versló og síðar í viðskiptafræði í HR. Þegar hún var einungis 27 ára var hún orðin stjórnandi í HR. Við töluðum um ábyrgð ungra stjórnenda, konur í nýsköpun, nýsköpunarumhverfið á Íslandi, hvernig maður undirbýr sig fyrir atvinnuviðtal og hvernig hugmynd verður að veruleika.

    Sigríður Margrét Oddsdóttir - Framkvæmdastjóri Lyfju

    Play Episode Listen Later Oct 9, 2019 70:50


    Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, kíkti til okkar í frábært spjall. Hún ólst mest megnis upp út á landi, fór í Verzló og ákvað síðan að fara í Háskólann á Akureyri. Við spurðum hana útí fyrstu skrefin eftir nám, hvernig hún vann sig upp sem forstjóri Já.is eftir að hafa umbreytt rekstri fyrirtækisins, afhverju hún fór yfir til Lyfju og hver framtíð lyfja og apóteka verður. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 9.október.

    Unnur Arna Jónsdóttir - Stofnandi og eigandi Hugarfrelsis

    Play Episode Listen Later Oct 2, 2019 58:52


    Við fengum til okkar Unni Örnu Jónsdóttur, stofnanda og eiganda Hugarfrelsis. Unnur sagði okkur frá hennar æskuárum í Garðarbænum, áfalli sem hún lenti í snemma í lífinu, afhverju hún ákvað að hætta í viðskiptafræði og fara yfir í hugleiðslu, starfsemi Hugarfrelsis og endar þáttinn með því að leiða okkur í gegnum stutta hugleiðslu.

    Hafdís Jónsdóttir - Eigandi World Class og Laugar Spa

    Play Episode Listen Later Sep 25, 2019 68:26


    Hafdís Jónsdóttir, eigandi World Class og Laugar Spa, eða betur þekkt sem Dísa í World Class kíkti til okkar í spjall. Hún sagði okkur frá dansævintýrum sínum í Bandaríkjunum, þegar hún stofnaði sitt eigið dansstúdíó hér heima, frá sögu WorldClass og stofnun LaugarSpa og snyrtivörulínunnar. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 25.september

    Hildur Yeoman - Fatahönnuður

    Play Episode Listen Later Sep 18, 2019 75:04


    Hildur Yeoman, fatahönnuður og verslunareigandi, kíkti til okkar í spjall. Hún sagði okkur frá æskunni sinni, menntaskólaárunum í MR og síðar FB, afhverju hún fór í LHÍ, hvernig ein flík verður til, kosti og galla við að reka verslun á Íslandi og hvernig hún hefur byggt upp sitt eigið brand. Þátturinn var fluttur 18.september á Útvarp101

    Tanya Zharov - Aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar

    Play Episode Listen Later Sep 11, 2019 67:32


    Season tvö byrjar með trompi, fyrsti viðmælandi er Tanya Zharov lögfræðingur og aðstoðarforstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar. Tanya fæddist í Rússlandi og spjallar við okkur um það hvernig var að flytja hingað aðeins 6 ára gömul, afhverju hún fór í lögfræði, hvernig hún varð partur af Auður Capital og margt fleira. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 11.september.

    Halldóra Geirharðsdóttir og Steiney Skúladóttir

    Play Episode Listen Later Jul 10, 2019 109:03


    Við fengum mæðgurnar Halldóru Geirharðsdóttur og Steineyju Skúladóttur til okkar og ræddum um þeirra feril, hvernig líf Halldóru breyttist eftir að hún eignaðist barn, hvernig Steiney fór úr því að undirbúa sig fyrir læknisfræði yfir í að rappa með Reykjavíkurdætrum á einu ári, konur í gríni og viðhorfsbreytingar, ásamt fullt af skemmtilegum sögum af þeim mæðgum. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 10.júlí

    Margrét Erla Maack - Fjöllistakona

    Play Episode Listen Later Jun 13, 2019 92:43


    Margrét Erla Maack kom til okkar í frábært spjall. Hún hefur brallað ýmislegt á sínum ferli, stofnaði ásamt fleirum Sirkus Íslands, kom með kabarett og burlesque hingað til landsins ásamt því að vera plötusnúður og fjölmiðlakona. Við fórum yfir þetta og margt margt fleira. Þátturinn var í beinni útsendingu þann 12.júní 2019, á Útvarp 101.

    Magga Pála - Stofnandi Hjallastefnu

    Play Episode Listen Later Jun 5, 2019 72:57


    Gestur þáttarins er snillingurinn Margrét Pála Ólafsdottir, betur þekkt sem Magga Pála. Hún stofnaði Hjallastefnu og er frumkvöðull í uppeldis- og menntunarmálum. Við áttum gott spjall um hennar feril, hvernig tekið var við kynjaskiptingu í Hjallastefnu og stöðu ungra drengja í skólakerfinu. Þátturinn var spilaður á Útvarp101 þann 5.júní.

    Rakel Tómasdóttir - Grafískur hönnuður og listakona

    Play Episode Listen Later May 29, 2019 77:41


    Rakel Tómasdóttir, grafískur hönnður og listakona, er næsti viðmælandi okkar. Hún var nýverið að opna sína eigin myndlistarsýningu sem bar nafnið Vatn þar sem þemað var vatn og kvenlíkamar. Við spjölluðum um æskuna, ferilinn, mínimalisma, tímastjórnun og hvernig það er að vera sjálfsætt starfandi listakona á Íslandi. Þátturinn var spilaður á Útvarp101 þann 29.maí.

    Frú Vigdís Finnbogadóttir - Fyrrum forseti

    Play Episode Listen Later May 22, 2019 56:07


    Næsti gestur hjá okkur að þessu sinni ber þann titil að vera fyrsti kvenkyns forseti í heiminum, Frú Vigdís Finnbogadóttir. Í þessum þætti fáum við að kynnast Vigdísi betur, hennar framboði til forseta og því hlutverki sem hún fékk. Við reynum að skyggnast betur í hugarheim hennar og fáum betri tilfinningu fyrir þeirri vegferð sem hún hefur skapað, ekki bara fyrir sig sjálfa heldur Ísland og allar aðrar þjóðir heimsins. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 22.maí.

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - Þingmaður

    Play Episode Listen Later May 15, 2019 77:29


    Viðmælandi okkar að þessu sinni er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður. Hún var kosin inn á þing árið 2016, þá aðeins 26 ára. Áslaug er yngsti núverandi þingmaður og algjör negla. Við förum í gegnum hennar feril, hvernig það er að vera ung kona í pólitík, frumvarpið um þungunarrof og margt fleira!

    Guðrún Ýr Eyfjörð (GDRN) - Söngkona

    Play Episode Listen Later Mar 22, 2019 139:02


    Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem söngkonan GDRN kom til okkar í spjall. Rætt var hennar feril, tónlistarnám, íslensku tónlistarsenuna og margt fleira. Þátturinn var í beinni útsendingu á Útvarp101 þann 20.mars.

    Katrín Olga Jóhannesdóttir - Formaður Viðskiptaráðs Íslands

    Play Episode Listen Later Mar 13, 2019 88:25


    Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs Íslands og athafnakona kom í viðtal til okkar og ræddi sinn frábæra feril í viðskiptalífinu og stjórnarsetum, stöðu kvenna í viðskiptum, mikilvægi fjölbreytileika hjá stjórnendum og margt fleira. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 13.mars.

    Edda Hermannsdóttir - Yfirmaður markaðsmála, samskipta og greiningar hjá Íslandsbanka

    Play Episode Listen Later Mar 6, 2019 76:24


    Hin frábæra Edda Hermannsdóttir, markaðs-,samskipta- og greiningastjóri hjá Íslandsbanka kíkti til okkar í spjall. Við ræddum um æskuna á Akureyri, föðurkynnin á unglingsárum, jafnrétti kynja á vinnumarkaði, markaðsmál og margt fleira. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 6.mars

    Elín Metta Jensen - Fótboltakona og læknisfræðinemi

    Play Episode Listen Later Feb 13, 2019 55:20


    Landsliðskonan og læknisfræðineminn, Elín Metta Jensen, segir okkur frá æskunni, fótboltanum, föðurmissinum og læknisfræðinni.

    Kristín Þóra Haraldsdóttir - Leikkona

    Play Episode Listen Later Feb 6, 2019 79:08


    Leikkonan, Kristín Þóra Haraldsdóttir, kom til okkar og sagði frá æskunni, leiklistinni og þeim verkefnum sem hún hefur unnið að undanfarið t.d. Lof mér að falla og Andið eðlilega. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 6.febrúar

    Yrsa Sigurðardóttir - Rithöfundur og byggingaverkfræðingur

    Play Episode Listen Later Jan 30, 2019 83:12


    Yrsa Sigurðardóttir, verðlaunarithöfundur og byggingaverkfræðingur, segir okkur frá því hvernig hún blandar þessum störfum saman, ferlið sem hún fer í gegnum til þess að skrifa bók og segir skemmtilegar sögur. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 30.janúar.

    Fida Abu Libdeh - Stofnandi og eigandi GeoSilica

    Play Episode Listen Later Jan 23, 2019 79:03


    Fida Abu Libdeh, frumkvöðull og eigandi GeoSilica segir okkur ótrúlega sögu sína þar sem við förum yfir árin í Palestínu, lífið á Íslandi, frumkvöðlaheiminn hérlendis og hvernig maður á að stofna fyrirtæki. Þátturinn var fluttur á Útvarp 101 þann 23.janúar

    Saga Sigurðardóttir - Ljósmyndari og myndlistarkona

    Play Episode Listen Later Jan 9, 2019 69:39


    Saga Sigurðardóttir, ljósmyndari og myndlistarkona kíkti til okkar og sagði okkur frá nýjasta Apple verkefni sínu, æskunni á Þingvöllum og lífinu í London. Þátturinn var fluttur á Útvarp 101 þann 9.janúar.

    Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir - Framkvæmdastjóri Marel á Íslandi

    Play Episode Listen Later Jan 2, 2019 60:56


    Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi, segir okkur frá sinni vegferð og hvernig það er að stjórna einu stærsta fyrirtæki landsins. Þátturinn var fluttur á Útvarp101, 2.janúar.

    Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir - Aðstoðardagskrástjóri RÚV

    Play Episode Listen Later Dec 26, 2018 55:13


    Okkar annar viðmælandi er fjölmiðlakonan og aðstoðardagskrástjóri RÚV Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Þátturinn er unnin í samstarfi við Útvarp101.

    Hrefna Sætran - Matreiðslumeistari og athafnakona

    Play Episode Listen Later Dec 21, 2018 65:36


    Okkar fyrsti viðmælandi er matreiðslumeistarinn Hrefna Rósa Sætran. Við fáum að kynnast henni og hvernig hún lét æskudraum sinn rætast. Í dag rekur hún þrjá vinsælustu staði landsins, Fisk-, Grill- og Skelfiskmarkaðinn. Þátturinn var frumfluttur á Útvarp101 þann 19.desember.

    Claim Þegar ég verð stór

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel