Podcasts about Unnur

  • 54PODCASTS
  • 247EPISODES
  • 1h 1mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 30, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about Unnur

Latest podcast episodes about Unnur

Rauða borðið
Rauða borðið 30. apríl: Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 30, 2025 224:53

Miðvikudagur 30. apríl Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur Vilhjálmur Bjarnason ræðir við Sigurjón M. um mál málanna þennan miðvikudaginn, afhjúpun Kveiks en Vilhjálmur er einn þeirra sem voru óafvitandi um nokkurt skeið undir vökulu auga njósateymis á vegum Björgólfs Thors. Reynsluboltar Sigurjóns M. að þessu sinni eru þau Þórunn Sigurðardóttir, Margrét Saunders, og Páll Magnússon. Þau ræða hitamálin í samfélaginu, útgerðina og margt fleira. Una Torfa og Unnur Ösp Stefánsdóttir sömdu söngleikinn Storm sem Þjóðleikhúsið sýnir. Gunnar Smári og Sóley Lóa Smáradóttir ræða við þær um sýninguna, en ekki ungu kynslóðina sem verkið fjallar um. Aðalsteinn Árni Baldursson verkalýðsforingi á Húsavík ræðir við Björn Þorláks á zoom um stöðu atvinnumála, verkalýðshátíðina á morgun og fleira. Hjónin Mahdya Malik og Mansoor Malik mæta til Maríu Lilju og halda áfram samtalinu um útlendingaandúð og aukna hatursorðræðu í garð múslima eftir mikla dreifingu falsfréttar af kynferðisbroti á dögunum.

Segðu mér
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir fjöllistakona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Mar 19, 2025 39:36

Unnur Elísabet hefur verið skíthrædd í 40, hrædd við myrkirð, vindkviður og stundum eplabita. En nú er komið gott. Hún segir frá sýningunni Skíthrædd í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem hún fer yfir það sem hefur hamlað henni mest í lífinu.

Bylgjan
Bítið - þriðjudagur 18. mars

Bylgjan

Play Episode Listen Later Mar 18, 2025 114:13

Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari   Karl Arnar Arnarsson, framkvæmdastjóri Loftmynda um kort af landinu Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, ræddi við okkur um ofbeldi og alvarlegar líkamsárásir.   Atli Björn Levy, forstöðumaður Verkefnastofu Borgarlínunnar, fór yfir samgöngur í höfuðborgarsvæðinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, var á línunni beint frá Þýskalandi.   Unnur Ársælsdóttir, markaðsfulltrúi Smitten og Lena Rún Daðadóttir, sér um samfélagsmiðla Smitten, ræddu við okkur um stefnumót. Hvítlauksbændurnir Þórunn og Haraldur kíktu í heimsókn.   Nöldurhornið. Heimir fékk óvæntar afmæliskveðjur

Segðu mér
Unnur Helga Gunnarsdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Feb 18, 2025 38:59

Unnur Gunnarsdóttir ræðir hugvíkkandi efni, en eftir að hún prófaði það hefur líf hennar gjörbreyst, Hún segir frá þessu ferðalagi sínu eins og hún kýs að kalla það.

Jákastið
#200 Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Jákastið

Play Episode Listen Later Feb 15, 2025 62:50

Gestur minn þessa vikuna er Unnur Elísabet Gunnarsdóttir. Unnur er leikstjóri, sviðshöfundur, danshöfundur, leikkona og tónlistarkona. Hún er gjörsamlega frábær og mögnuð. Það var gott, gaman, yndislegt, áhugavert og fræðandi að spjalla við Unni. Þú ert frábær! Ást og friður. Jákastið er í boði: - Egils Kristall - Sjóvá - Pizza Popolare - KS Protect

Samfélagið
Sálarlíf fiska, kvenfélag á Patreksfirði, ofbeldisforvarnarkvikmyndin Geltu

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 19, 2024 55:00

Um helgina verður frumsýnd kvikmynd sem ætlað er að fræða ungt fólk um hatorsorðræðu. Kvikmyndin heitir Geltu sprettur upp úr starfsemi ofbeldisforvarnarskólans Ofsa og í dag ræðum við við Bennu Sörensen, stofnanda skólans, og Sigríði Lárettu, leikara og höfund. Sjálfboðaliðastarf í þágu samfélagsins er óvíða jafn öflugt og á Patreksfirði. Þar starfar Lionsklúbbur og tvö félög sem eingöngu eru skipuð konum, slysavarnardeildin Unnur og Kvenfélagið Sif. Gréta Sigríður Einarsdóttir kom við á Patreksfirði á dögunum og ræddi við nýjan formann kvenfélagsins, sem er reyndar líka meðlimur í Slysavarnardeildinni. Í lok þáttar kíkir Edda Olgudóttir vísindamiðlari í heimsókn og segir okkur frá ýmislegu um veiðistjórnunarkerfi og tilfinningalíf fiska. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-12-19 The National & Phoebe Bridgers - Laugh Track. LIANNE LA HAVES - Lost & Found. SUPERSPORT! - Húsið mitt (í sjálfu sér)

Lestin
Notuð merkjavara, tékknesk dægurmenning, einlægni á tæknitímum

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 24, 2024 57:29

Margrét Unnur lærði að leita uppi gersemar á nytjamörkuðum í Berlín. Nú hefur hún opnað vefverslunina Brot, þar sem hún selur merkjavörur sem hún hefur sjálf fundið í búðum eða á netinu. Við ræðum tísku og flíkur með sál. Við hringjum til Prag og forvitnumst um tékkneskt bíó, tónlist og skemmtanalíf. Nikulás Tumi Hlynsdóttir nemi í kvikmyndagerð við FAMU er leiðsögumaður okkar. Hvað eiga Charli XCX og Radiohead sameiginlegt? Nína Þorbjörg Árnadóttir setur fram kenningu um einlægt popp á tæknitímum.

Ekkert að frétta
169 - Þunnur í flugvél

Ekkert að frétta

Play Episode Listen Later Sep 9, 2024 99:32

Við hjálpum þér að takast á við erfiðleikana í þínu lífi. Einn þátt í einu, ein mínúta í senn.

Heilsuvarpid
#105 Unnur Borgþórs- Heilsudagar Nettó

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Sep 8, 2024 45:05

Unnur Borgþórsdóttir úr Morðcastinu kíkti í spjall um Heilsudaga en þessi þáttur er síðasti þáttur í Heilsudagaseríu Nettó. Við töluðum um sameiginlegan áhuga á sönnum sakamálum, og um allskonar heilsustöff, vegan gúrmeti og Heilsudagagleði. @mordcastid Heilsuvarpið er einnig í boði NOW á Íslandi @nowiceland @netto.is

Mannlegi þátturinn
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar, Alfreð Clausen og póstkort

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 8, 2024 53:35

Mæðradagurinn er á sunnudaginn og í gær var hleypt af stokkunum söfnunarátaki Menntunarsjóðs mæðrastyrksnefndar, þar sem tilgangurinn er að styrkja efnalitlar konur til náms og þannig veita þeim tækifæri til að bæta lífskjör sín og sinna. Sjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt um 500 konur til náms og Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikari og leikstjóri kom í þáttinn í dag, en það var tilkynnt í gær að hún, ásamt Elísabetu Jökulsdóttur, eru verndarar menntunarsjóðsins. Með Unni kom Lilja Kristjánsdóttir, sem hefur þegið styrk til náms úr sjóðnum. Þær sögðu okkur frá menntsjóðinum og Lilja sagði okkur sína sögu. Jónatan Garðarsson kom svo aftur í þáttinn í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í síðustu viku sagði Jónatan okkur frá Soffíu Karlsdóttur söng- og leikkonu og í dag fræddi Jónatan okkur um Alfreð Clausen, einn af frumkvöðlum í íslenskum dægurlagasöngi. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins segir frá víðavangshlaupinu Puffin Run sem fram fór um liðna helgi á Heimaey. Þar hlupu næstum ellefu hundruð manns í blíðskaparveðri. Magnús veltir fyrir sér af hverju hlaupið er kallað Puffin Run en ekki „bieg maskonurów“ uppá pólsku því töluvert fleiri pólverjar en bandaríkjamenn tóku þátt í hlaupinu. Hann segir líka frá heimsókn sinni til Víkur í Mýrdal þar sem fleiri tala ensku en íslensku, en hann endar á Ítalíu þar sem bæir og borgir eru að taka til á heiðursborgaralistum sínum. Tónlist í þættinum í dag: Þú og ég / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Ólafur Gaukur Þórhallsson) Æskuminning / Alfreð Clausen (Ágúst Pétursson og Jenni Jóns) I Can't Give You Anything But Love / Alfreð Clausen (Dorothy Fields og Jimmy McHugh) On the Road Again / Canned Heat (Alan Wilson & Floyd Jones) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Helgaspjallið
Þáttur 174 - Unnur & Bylgja Borgþórsdætur frá Morðcastinu, bakvið tjöldin -

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Mar 22, 2024 84:44

Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Ég er einn af gríðarlega stórum hóp landsmanna sem elskar Morðcastið, og af stórri ástæðu vegna systrana Unnar og Bylgju Borgþórsdætra, sem ekki aðeins koma manni til að hlægja í grillaðari hlustun morða, heldur líka vegna öflugra skoðuna, réttlætiskennd og hversu ótrúlega autentískar þær eru sem persónur. Loksins mættu þær saman í borgina, og náði ég að setjast niður með þeim báðum og skyggnast á bakvið tjöldin í Morðcastinu, og jú lífinu þeirra. Algjörlega bestar, njótið vel! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar

Segðu mér
Unnur Ösp Stefánsdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Mar 18, 2024 38:57

Unnur Ösp ræðir töfrana og Elísabetu Jökulsdóttur

Grænvarpið
Vindorka - Unnur María Þorvaldsdóttir

Grænvarpið

Play Episode Listen Later Feb 22, 2024 27:06

Unnur María Þorvaldsdóttir, forstöðumaður þróunar vindorku, segir okkur frá áformum Landsvirkjunar um að reisa vindorkuver og öllu sem því fylgir.

Nordic Talks
COP28-special: Collaborating for climate justice

Nordic Talks

Play Episode Listen Later Jan 17, 2024 26:11

Last year Agustín Ocaña from Ecuador quit his job to become a full-time advocator for the education of the world's youth as a way of fighting for the climate. Today, Agustín is head of the Global Youth Coalition – facilitating the collaboration between thousands of young people in the global North and South, teaching them to be changemakers. Listen as Agustín sits down with Icelandic Youth Delegates, Finnur Ricart Andrason and Unnur Þórdís Kristinsdóttir, to talk about North-South collaboration on climate justice and how youth should use technology and storytelling to combat climate change. This Nordic Talks episode is the first of five special episodes recorded at COP28 in Dubai.

Virðing í uppeldi
94. Hugarfrelsi

Virðing í uppeldi

Play Episode Listen Later Dec 6, 2023 82:50

Vinkonurnar til margra ára sem stofnuðu Hugarfrelsi og hafa í um tíu ár eða meira starfað við að heimsækja leik- og grunnskóla og kenna börnum að hugleiða, sem og foreldrum á ótal námskeiðum, heimsóttu þær Dagnýju Hróbjartsdóttur og Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Þetta eru þær Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir, sem saman hafa búið til auð af efni, alls konar spjöld, hugleiðslur og bækur en ekki síst kennt í eigin persónu í bekkjum vítt og breitt um landið. Í þættinum leyfðu þær Dagný og Guðrún sér að vera ákafar (styrkleiki, fróðleiksfýsi) og spyrja út í alls konar og tala mikið (styrkleiki, tjáning og samskipti). Hrafnhildur og Unnur (styrkleiki, rósemd) biðu rólegar á meðan og svöruðu svo sem lýsti djúpri reynslu þeirra af málefnunum (styrkleiki, drifkraftur og seigla). Við tæptum sem sagt á ýmsu í þættinum, allt frá umfjöllun um starf þeirra, meðhöndlun kvíða, svefn barna, sjálfstal, styrkleikaeflingu og foreldrahlutverkið í víðum skilningi. Sjá hugarfrelsi.is ef þú vilt vita meira.

Ormstungur
2. Íslendingasögurnar á mannamáli - Feðraveldi

Ormstungur

Play Episode Listen Later Nov 2, 2023 7:12

Hugtak þáttarins er feðraveldi. Hjalti og Oddur útskýra hugtakið með því að taka dæmi úr Laxdælu. Hverjar voru Unnur djúpúðga og Melkorka Mýrkjartansdóttir og hvernig notaði hún reglur feðraveldisins ser í hag?

Segðu mér
Unnur Elva Arnardóttir nýr formaður félags kvenna í atvinnulífinu

Segðu mér

Play Episode Listen Later May 24, 2023 40:00

Unnur ELva segir frá lífi sínu en hún var t.d. fyrsta konan sem ráðin var í lögguna á AKureyri. n Í dag vinnur hún hjá Skeljungi og sér um skemmtiferðaskipin sem legg hér að landi. Hún var að taka við sem nýr formðaur FKA og segir frá því starfi öllu.

Segðu mér
Unnur Elva Arnardóttir nýr formaður félags kvenna í atvinnulífinu

Segðu mér

Play Episode Listen Later May 24, 2023

Unnur ELva segir frá lífi sínu en hún var t.d. fyrsta konan sem ráðin var í lögguna á AKureyri. n Í dag vinnur hún hjá Skeljungi og sér um skemmtiferðaskipin sem legg hér að landi. Hún var að taka við sem nýr formðaur FKA og segir frá því starfi öllu.

Segðu mér
Unnur Arndísardóttir jógakennari og seiðkona

Segðu mér

Play Episode Listen Later May 22, 2023

Unnur segir frá bók sinni Perlumóður - kona á barna. Þetta er reynslusaga um ófrjósemi og hvernig henni tókst að komast yfir sorgina. Unnur er jógakennari og seiðkona og segir frá því

Segðu mér
Unnur Arndísardóttir jógakennari og seiðkona

Segðu mér

Play Episode Listen Later May 22, 2023 37:05

Unnur segir frá bók sinni Perlumóður - kona á barna. Þetta er reynslusaga um ófrjósemi og hvernig henni tókst að komast yfir sorgina. Unnur er jógakennari og seiðkona og segir frá því

Mannlegi þátturinn
Listmeðferðarfræði, Vatnajökulsvinkill og Pedro Gunnlaugur lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 22, 2023 50:00

Kerfisbundin, markviss rannsókn á samanburði á áhrifum teikningar og skrifaðra orða á minni var framkvæmd í fyrsta sinn, eftir því sem best er vitað, í heiminum árið 2000 og stóð Unnur Óttarsdóttir, doktor í Listmeðferðarfræði, fyrir henni. Í stuttu máli voru niðurstöður þær að níu vikum seinna mundu börnin að jafnaði fimm sinnum fleiri teikningar en orð sem þau höfðu skrifað. Þetta kallast minnisteikning. Nú í maí hélt Unnur námskeið á Ítaliu fyrir listmeðferðarfræðinga sem starfa í skólum. Málefnin sem voru þar á dagskrá voru til dæmis minnisteikning, skrifmyndir, mikilvægi listrænnar tjáningar í námi og einnig var henni boðið að flytja fyrirlestur þar. Unnur kom í þáttinn í dag. Eins og flesta mánudaga fengum við svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, skúffuskáldi og þjóðfræðiáhugamanni úr Flóanum. Í þetta sinn lagði Guðjón vinkilinn að sjálfum Vatnajökli. Svo er það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Pedro Gunnlaugur Garcia rithöfundur. Hann skaust fram á sjónvarsviðið með fyrstu bók sinni Málleysingjarnir árið 2019 og hlaut svo íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir sína aðra bók, Lungu, sem kom út í fyrra. Við fengum að vita hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Pedro Gunnlaugur nefndi eftirfarandi bækur: Jerúsalem e. Goncalo M. Tavares Læknir verður til e. Henrik Geir Garcia Sápufuglinn e. Maríu Elísabetu Bragadóttur Obbuló í Kósímó - Snyrtistofan e. Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Halldór Baldursson Hamskiptin e. Franz Kafka The Sound and the Fury e. William Faulkner Tónlist í þættinum í dag: Guð og ég / South River Band (Ólafur Þórðarsson og Kormákur Bragason) Vesturgata / Björgvin Halldórsson (Gunnar Þórðarsson og Ólafur Haukur Símonarson) The list / Gordon Lightfood (Gordon Lightfood) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Þáttur 140 - Unnur Eggerts leikkona um fæðingarþunglyndi, flugslysið og Ameríku

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later May 13, 2023 89:36

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Unnur Eggerts leikkona þekkjum við flest, hún skemmti útum allar trissur fyrir börn og fullorðna sem Solla Stirða, ásamt því að hafa komið með sumarsmelli og eftirminninga í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Unnur er sérstaklega sjarmerandi og einlæg en hún opnar sig um upplifun sína um fæðingarþunglyndi, áfallastreyturöskunina sem hún greindist með eftir að hún lenti í þeirri óraunverulegu reynslu að lenda í flugslysi þegar hún ferðaðist milli skemmtana sem Solla Stirða. Við fáum einnig innblik inní lífið hennar og starf sem leikkona í Ameríku ásamt því að fá smá "te" um bransann eins og hann leggur sig. Hægt er að fylgjast með Unni á samfélagsmiðlum undir notendanafninu unnureggerts - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar Njótið vel -

Morðcastið
180. Orð dagsins er: Vatnslás

Morðcastið

Play Episode Listen Later Dec 8, 2022 58:35

Góðan daginn, fimmtudaginn. Aftur fer Unnur með okkur til Svíþjóðar í kjölfar þess að ungur einstaklingur finnst látinn í baði. Mjög áhugavert mál með mörgum vinklum, en mjög hræðilegt og ógeðslegt vissulega líka. Í boði Nettó, Bjarts og Veraldar, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
178. Orð dagsins er: Íslendingasögur

Morðcastið

Play Episode Listen Later Nov 24, 2022 58:16

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag fer Unnur með okkur í ferðalag til Noregs þar sem enn á ný einhver tekur þá skelfilegu ákvörðun að sveifla öxi, ekki í tré. Svakalega margar axir uppá síðkastið, því miður, en áhugavert er það nú alltaf. Í boði Prentsmiðs, Bjarts og Veraldar, Nettó, Ristorante, Orville og 1104byMar. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
176. Orð dagsins er: Ungabarn

Morðcastið

Play Episode Listen Later Nov 10, 2022 49:00

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til til Brooklyn í New York hvar ungum hjónum fæðist nýr fjölskyldumeðlimur. 3 dögum síðar á sér síðan stað eitthvað sem verður að teljast óútskýranlegur atburður, eða svona. Í boði Prentsmiðs, Bjarts og Veraldar, 1104byMar, Nettó, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Spegillinn
Landsfundur Samfylkingarinnar, þungur dómur, heimilialausir, einelti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 28, 2022

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn Útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Það stefnir í að sjálfkjörið verði í tvö æðstu embætti Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins á Grand Hotel í Reykjavík. Höskuldur Kári Schram var í beinni útsendingu frá fundinum. Sýknudómi þriggja samverkamanna var snúið í 14 ára fangelsisdóm þegar Landsréttur kvað upp dóm í Rauðagerðismálinu í dag. Morðinginn fær tuttugu ára dóm. Alexander Kristjánsson tók saman og talaði við Geir Gestsson, lögmann eins sakborninganna sem segir að leitað verði áfrýjunarleyfis hjá Hæstarétti og telja verður líklegt að fallist verði á það. Unnur Þorsteinsdóttir, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu. Unnur er áhrifamesta vísindakona Evrópu samkvæmt vefnum Research.com og sú fimmta áhrifamesta í heiminum. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hana. Neyðarskýlin í Reykjavík ráða ekki við þann mikla fjölda sem nýtir þjónustuna, segir Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, deildarstjóri málaflokks heimilislausra hjá borginni. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hana. Flest bendir til að Landgræðslan og Skógræktin gangi í eina sæng á næstunni. Árni Bragason Landgræðslustjóri og Þröstur Eysteinsson Skógræktarstjóri ræddu við Bjarna Rúnarsson. Samskipti barna og unglinga hafa breyst á undanförnum árum með tilkomu samfélagsmiðla og breytingarnar eru örar. Það er auðvelt að missa sjónar á samskiptamynstri unga fólksins ef foreldrar sofna á verðinum og fylgjast ekki með. Kristján Sigurjónsson ræddi samskiptamynstur ungmenna og foreldra við Katrínu Mjöll Halldórsdóttur og Sturlu Brynjólfsson, sálfræðinga hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni í Reykjavík og umsjónarmenn podcastsins Kvíðakastsins. Búist er við hryllilegri stemningu í Skautahöll Akureyrar í kvöld. þar sem verður boðið upp á hrekkjavöku-skautadiskó. Amanda Guðrún Bjarnadóttir sagði frá og talaði við Svölu Vigfúsdóttur. Ný og endurbætt útgáfa Bítlaplötunnar Revolver kom út í dag, Revolver (Super Deluxe). Í kassanum eru fjórar breiðskífur, EP plata og hundrað síðna bók um plötuna og tilurð hennar. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Spegillinn
Landsfundur Samfylkingarinnar, þungur dómur, heimilialausir, einelti

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 28, 2022 30:00

Heilsugæslustöð á Akureyri. Kosningar í Brasilíu. Andleg líðan barna.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 27, 2022

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn Útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Allt útlit er fyrir að framkvæmdir við nýja heilsugæslustöð á Akureyri á gamla tjaldsvæðisreitnum geti loksins hafist. Deilur bæjaryfirvalda og ríkisins um fjármögnun bílakjallara hafa tafið framkvæmdir. Óðinn Svan Óðinsson sagði frá og talaði við Jón Helga Björnsson. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir að Guðrún Hafsteinsdóttir verði komin í ríkisstjórnina þegar 18 mánuðir verða liðnir af kjörtímabilinu og Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fari út að þeim tíma liðnum. Ekkert hafi breyst í þeim áformum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við Bjarna. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir málefni Alþýðusambands Íslands ekki á dagskrá félagsins. Öll vinna og orka fari í undirbúning kjaraviðræðna. Fulltrúar VR - Landsambands íslenskra verslunarmanna og Starfsgreinasambandsins hafa fundað með Samtökum atvinnulífsins, fulltrúum ríkisstjórnarinnar og seðlabankastjóra í dag og gær að hans sögn. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við Ragnar. Unnur Þorsteinsdóttir er áhrifamesta vísindakona Evrópu samkvæmt nýjum lista sem vefurinn Research.com tekur saman. Listinn byggist á greiningu á rannsóknaframlagi yfir 160 þúsund vísindakvenna. Unnur er forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu. Það stefnir í spennandi forsetakosningar í Brasilíu á sunnudag. Sitjandi forseti er undir í skoðanakönnunum en treystir á að þær gefi ranga mynd af fylginu. Ásgeir Tómasson sagði frá. Langtímarannsókn leiðir í ljós að breyting hefur orðið á andlegri líðan barna og ungmenna hér á landi síðustu tíu ár. Þetta kemur fram í langtímarannsóknum "Rannsóknar og greiningar". Kristján Sigurjónsson ræddi við Ingibjörgu Evu Þórisdóttur, doktor í sálfræði og sérfræðing hjá Planet Youth, íslensku fyrirtæki sem vinnur að því að innleiða hið íslenska forvarnarmódel "Rannsónar og greiningar" erlendis. Síhækkandi hlutfall fólks með erlent ríkisfang á íslenskum vinnumarkaði endurspeglast ekki í stjórnum íslenskra hlutafélaga. . Innan við 5 prósent íslenskra hlutfélaga eru með erlendan stjórnarmann en hlutfall útlendinga á vinnumarkaði er um 20 prósent. Uppruni stjórnarmanna hefur lítið verið rannsakaður, segir Gylfi Magnússon, prófessor í viðskiptafræði í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Ekki er hægt að fullyrða að sjálfstæðir stofnar laxfiska séu í Sunndalsá og Norðdalsá í Trostansfirði. Því var Matvælastofnun ekki stætt á að neita Arctic Sea Farm um eldisleyfi í firðinu

Spegillinn
Heilsugæslustöð á Akureyri. Kosningar í Brasilíu. Andleg líðan barna.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 27, 2022 30:00

173. Orð dagsins er: Eldiviður

Morðcastið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2022 52:43

Góðan daginn þennan ferlega fína fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur til Svíþjóðar þar sem hún segir frá hrikalega sorglegu máli sem átti sér stað árið 2017 þar sem lögregluhundurinn Dennis vann stórsigur fyrir sænsku lögregluna. Þáttur dagsins er í boði Ekils ökuskóla, Nettó, Ristorante, Orville, Sjóvá og Prentsmiðs. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
171. Orð dagsins er: Svínastía

Morðcastið

Play Episode Listen Later Sep 29, 2022 42:01

Góðan daginn kæru vinir! Þáttur dagsins á sér stað í Bandaríkjunum þar sem Unnur segir okkur frá aldraðri konu sem er heldur illa við fólk. Því miður ákvað hún að taka málin í eigin hendur og leggja í hendur (?) svínanna.  Sorglegt og hræðilegt! Í boði Sjóvá, Ekils ökuskóla, Ristorante, Orville og Netverslana S4S Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
169. Orð dagsins er: Svalir

Morðcastið

Play Episode Listen Later Sep 15, 2022 51:17

Góðan og blessaðan fimmtudaginn. Í þætti dagsins ferðumst við til Södertalje í Svíþjóð og Unnur segir okkur frá vægast sagt áhugaverðri atburðarás sem gerðist fyrir nokkrum árum síðan. Hræðilegt vissulega, eins og venjulega. Í boði Netverslana S4S, Sjóvá, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Science In-Between
Episode 104: Joys to the World, Vol. 2

Science In-Between

Play Episode Listen Later Aug 31, 2022 50:53

This week we did only joys. We chose one thing that brought us joy from a group of different categories. Things that bring us joy this week: Podcast Blank Check with Griffin and David (https://audioboom.com/channel/Blank-Check) Phase Zero (https://chartable.com/podcasts/phase-zero) Phone App DuoLingo (https://www.duolingo.com) SleepWatch (https://www.sleepwatchapp.com) Game Knotwords (https://playknotwords.com) by Zach Gage (https://stfj.net) Wordhunt (https://apps.apple.com/us/app/word-hunt/id1357352041) Spelling Bee (https://www.nytimes.com/puzzles/spelling-bee) from NYT TV Show Reservationi Dogs (https://www.fxnetworks.com/shows/reservation-dogs) The Bear (https://www.hulu.com/series/the-bear-05eb6a8e-90ed-4947-8c0b-e6536cbddd5f) Movie Everything, Everwhere, All at Once (https://a24films.com/films/everything-everywhere-all-at-once) UNNUR (https://www.outsideonline.com/culture/active-families/chris-burkard-film-unnur/) Book The Seven Husbands of Evelyn Hugo (https://www.goodreads.com/book/show/32620332-the-seven-husbands-of-evelyn-hugo) by Taylor Jenkins Reid The Broken Earth Trilogy (https://nkjemisin.com/series/the-broken-earth/)by N.K. Jemisin Album Tyler, the Creator (https://en.wikipedia.org/wiki/Tyler,_the_Creator) Brandi Carlile (https://www.brandicarlile.com) In These Silent Days Intro/Outro Music: Notice of Eviction by Legally Blind (https://freemusicarchive.org/music/Legally_Blind)

Dagens dikt
Ur ”Ljus utan veke” av Unnur Sólrun Bragadóttir

Dagens dikt

Play Episode Listen Later Aug 30, 2022 1:39

Uppläsare: Harald Leander DIKTSAMLING: Ljus utan veke (Kulturbolaget Odukat, 2018)MUSIK Sinikka Langeland: SölvEXEKUTÖR Sinikka Langeland, kantele, Anders Jormin, kontrabas

Morðcastið
163. Orð dagsins er: Apple

Morðcastið

Play Episode Listen Later Aug 4, 2022 43:05

Góðan daginn, fimmtudaginn! Þáttur dagur er með sama sniði og venjulega, Unnur segir frá máli sem gerist í Bandaríkjunum þar sem ungur maður er afbrýðissamari, gráðugri og ósanngjarnari en góðu hófi gegnir. Alveg ógeðslega sorglegt.  Í boði Sjóvá, Orville, Ristorante, Geosilica og Netverslana S4S. Óklipptur þáttur er inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
160. Orð dagsins er: Flipparar

Morðcastið

Play Episode Listen Later Jul 14, 2022 46:11

Júllijúhú, góðan og gleðilegan fimmtudag. Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur í leiðangur til Ástralíu, landsins sem gaf okkur Nágranna, Nicole Kidman, Margot Robbie og því miður þetta hörmulega mál sem hún segir frá. Ungur maður er hrottalega myrtur að því er virðist algjörlega af handahófi og þetta er bara alltaf jafn ömurlegt. Í boði Ristorante, Orville, Sjóvá, Grönt, Geosilica og Netverslana S4S. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is

Morðcastið
158. Orð dagsins er: Freknur

Morðcastið

Play Episode Listen Later Jun 30, 2022 46:57

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna þar sem hún segir frá svakalega sorglegu máli þar sem fíkn og reiði tóku því miður yfirhöndina með hræðilegum endalokum. Sko mjög mikil reiði. Í boði Ristorante, Orville, Sjóvá og Grönt. Óklipptan vikuþátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Karlmennskan
#96 Jordan Peterson í femínísku ljósi - Unnur Gísladóttir

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Jun 27, 2022

„Það er erfitt fyrir mig að kjarna gagnrýni á Jordan Peterson því hún er marglaga en ef ég ætti að gera það þá er það vanhæfni hans til að setja sig í spor jaðarsettra hópa eða kvenna.“ segir Unnur Gísladóttir mannfræðingur og framhaldsskólakennari. Unnur hefur lesið allar bækur Jordan Peterson og líklega innbyrt meira magn af efni eftir hann heldur en margur aðdáandinn. Unnur er hins vegar lítill aðdáandi og færir okkur gagnrýni sína þar sem hún varpar femínísku ljósi á málflutning Jordan Peterson. Fyrir þau sem ekki kannast við manninn þá er hann afar umdeildur prófessor í sálfræði sem virðist ná sérstaklega vel til karlmanna og er vinsæll fyrirlesari um heim allan og kom m.a. fram í Háskólabíó um liðna helgi. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Þátturinn er í boði bakhjarla Karlmennskunnar, Dominos, Veganbúðarinnar og The Body Shop.

157. Orð dagsins er: Innmatur

Morðcastið

Play Episode Listen Later Jun 23, 2022 44:28

Hæ! Í þætti dagsins segir Unnur ykkur rosalega vel frá gömlum raunveruleikasjónvarpsþætti sem mjög óvænt blandast inní morð. Í fleirtölu. Þetta er illskiljanlegt frá upphafi til enda, það eina sem við vitum er að þetta er mjög sorglegt eins og venjulega. Í boði Sjóvá, Grönt, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
156. Orð dagsins er: HDMI snúra

Morðcastið

Play Episode Listen Later Jun 16, 2022 50:40

Góðan daginn, fimmtudaginn! Vitiði hvað er hræðilegt combo? Unglingar og satanísk cult. Í dag fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og segir frá ungri konu sem hafði gengið í gegnum allskonar og átti aðeins öðruvísi bucket lista en við flest. Í boði Sjóvá, Grönt, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
154. Orð dagsins er: Frystiklefi

Morðcastið

Play Episode Listen Later Jun 2, 2022 47:41

Vá. 154 þættir, það eru rosalega margir þættir! Í þætti dagsins fer Unnur yfir mál sem hefur tryllt mörg í gegnum tíðina. Ung kona hverfur á hóteli og mörgum spurningum er ósvarað. Er það samt? Í boði Grönt, Sjóvá, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
152. Orð dagsins er: Smart

Morðcastið

Play Episode Listen Later May 19, 2022 48:15

Góðan daginn fimmtudaginn! Í þætti dagsins erum við staðsett í Bandaríkjunum en Unnur segir frá konu sem nýtir sér aldursmun og valdastöðu, og tekur vægast sagt hræðilegar ákvarðanir.  Í boði Sjóvá, Grönt, Smitten, Ristorante og Orville. Óklipptan og auglýsingalítinn þátt má finna inná www.pardus.is

Morðcastið
150. Orð dagsins: Kvittun

Morðcastið

Play Episode Listen Later May 5, 2022 51:20

Góðan daginn þennan stórgóða 18 fimmtudag ársins. Í þætti dagsins segir Unnur frá máli sem gerist í Bandaríkjunum þegar öfundsýki tekur yfirhendina og saklaus kona tapar lífi sínu. Hræðilegt í öllu falli. Í boði Sjóvá, Grönt, Ristorante, Orville og Smitten. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
148. Orð dagsins er: Vegareiði

Morðcastið

Play Episode Listen Later Apr 21, 2022 41:24

Góðan og gleðilegan sumardaginn fyrsta! Í þætti dagsins segir Unnur frá máli sem gerist í Englandi árið 1996 þegar vegareiði varð ástæðan fyrir hræðilegum atburði. Hélt fólk amk, þetta var allt frekar skrítið. Í boði Ristorante, Orville, Smitten og Hraust þjálfun. Óklipptan þátt finniði á www.pardus.is/mordcastid Gerandi: Tracie Andrews

Morðcastið
145. Orð dagsins er: Jansen

Morðcastið

Play Episode Listen Later Mar 31, 2022 50:46

Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Unnur í mjög mörgum orðum hvernig kona á besta aldri var myrt vegna öfundsýki. Allt mjög hræðilegt að venju en engu að síður áhugavert. Í boði Smitten, Orville og Ristorante. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid

Morðcastið
142. Orð dagsins er: Gervifótur

Morðcastið

Play Episode Listen Later Mar 10, 2022 41:16

Heil og sæl öll sem eitt. Fimmtudagur í dag og það þýðir bara eitt, enn eitt hræðilega málið í Morðcastinu! Unnur segir frá ástralskri ungri stelpu sem gengur í gegnum gjörsamlega hræðilega hluti á sinni stuttu lífsleið. Í boði Smitten, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt er að finna á www.pardus.is/mordcastid

Segðu mér
Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Mar 10, 2022 40:00

Leikonurnar Unnur Ösp og Vigdís Hrefna segja frá Napolí sögu Elenu Ferrante, en verkið var frumsýnt í ÞJóðleikhúsinu fyrir stuttu.

Segðu mér
Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir

Segðu mér

Play Episode Listen Later Mar 10, 2022

Leikonurnar Unnur Ösp og Vigdís Hrefna segja frá Napolí sögu Elenu Ferrante, en verkið var frumsýnt í ÞJóðleikhúsinu fyrir stuttu.