POPULARITY
Miðvikudagur 5. mars Brim, reynsluboltar, auðlindir, siðareglur, rektor, hin sagan, öryrkjar, þjóðmenning Haraldur Sigurðsson prófessor og doktor í jarðefnafræði ræðir frá Bandaríkjunum við Björn Þorláksson um hækkun yfirborð sjávar sem getur valdið stórskaða í skaðabrimi eins og síðustu daga. Fyrrum þingmennirrnir Ásmundur Friðriksson, Mörður Árnason og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir eru reynsluboltarnir að þessu sinni. Kristín Vala Ragnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni við Háskóla Íslands, prófessor emerita, segir okkur frá raunverulegum kostnaði hins blóðuga auðlindastríðs sem háð er í heiminum. Friðrik Þór Guðmundsson, blaðamaður til langs tíma, kennari og fræðimaður, ræðir siðareglur Blaðamannafélags Íslands og hvort eða að hve miklu leyti starfsreglur blaðamanna hafa áhrif á efnistök og áherslur fjölmiðla. Gunnar Smári heldur áfram að ræða við frambjóðendur til rektors Háskóla Íslands. Það er komið að Ingibjörgu Gunnarsdóttur, aðstoðarrektor vísinda og samfélags og prófessor í næringarfræði. Rakel Adolphsdóttir, fagstjóri hjá Kvennasögusafni Íslands segir okkur frá afmælishátíð þessa safns, sem geymir hina söguna. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ ræðir landsáætlun í málefnum fatlaðra, lögfestingu réttindasamnings SÞ, inngildingu og átakið "fyrir okkur öll”. Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur fer yfir uppruna íslenskrar þjóðmenningar og ræðir hefðir á Öskudegi við Maríu Lilju.
Þriðjudagur 14. janúar Brottvísun barns, leigjendur, stjórnarskráin, kennaranámið og veikindadagar Lítil stúlka og fjölskylda hennar standa nú frammi fyrir brottvísun til Venesúela eftir tvo daga þrátt fyrir að stúlkan sem er þriggja ára þurfi á flókinni læknisaðgerð að halda sem framkvæma á hér á landi í febrúar. Jón Sigurðsson, lögmaður fjölskyldunnar og formaður Félags talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, spjallar við Maríu Lilju um málefni flóttafólks. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Leigjendasamtaka Íslands tekur stöðuna í málefnum leigjenda við stjórnarskipti og ræðir um sérlega ósanngjarna skattheimtu sem á sér enga líka. Þór Martinsson, sagnfræðingur og verkefnisstjóri ráðstefnu um stjórnarskrána segir okkur frá dagskrá ráðstefnunnar sem haldin verður um helgina og af hverju mikilvægt er að ræða stjórnarskrána í þessu samhengi núna. Jón Pétur Zimsen, skólamaður og þingmaður, vill stytta kennaranám úr fimm árum í þrjú. Hann telur unnt að bæta gæði kennara og greiða þeim hærri laun fyrir skemmri námstíma.Veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar er 8,7% að meðaltali hvern einasta vinnudag ársins á sama tíma og veikindahlutfall er 2,5 prósent á mannauðs- og umhverfissviði borgarinnar. Fyrrum þingmaður og borgarfulltrúi, Vigdís Hauksdóttir, vill rannsókn.
Fyrrum landsliðsmaðurinn og núverandi yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, Kári Árnason er gestur þáttarins. Umsjón hafa Hörður Snævar og Keli.
Eli Junior Kroupi (2006) er einn efnilegasti leikmaður Frakklands um þessar mundir og hefur verið líkt við engan annan en Kylian Mbappe. Hann hefur farið frábærlega af stað með aðalliði Lorient í Ligue 1 með frábærum mörkum. Sverre Halseth Nypan (2006) er lykilleikmaður á miðjunni í liði Rosenborg í Noregi. Manchester Utd, Manchester City, Barcelona og Real Madrid eru með augastað á þessum efnilega leikmanni. Góðir gestir koma í heimsókn en þeir Arnar Daníel og Tómas Johannessen leikmenn Gróttu komu í afar áhugavert og skemmtilegt spjall, tveir frábærir en afar ólíkir persónuleikar. Bjarni Co-host spilaði golf með fyrrum leikmanni Liverpool í Houston, þrumuræða um ömurlegt gervigras á Seltjarnarnesi, Tommi Jó á leið i Breiðablik? Kristian og Orri að gera vel og Skandinavíuhornið á sinum stað.
Fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og núverandi forstjóri Skeljungs.
"Þetta er bara eitthvað sem þú gerir og er bara sjálfsagt mál" segir Þórhallur en hann hefur í þrígang bjargað mannslífum og starfaði í 23 ára sem framvkæmdastjóri Neyðarlínunnar.
"Þetta er bara eitthvað sem þú gerir og er bara sjálfsagt mál" segir Þórhallur en hann hefur í þrígang bjargað mannslífum og starfaði í 23 ára sem framvkæmdastjóri Neyðarlínunnar.
Hjammi kom í heimsókn og fór yfir stöðuna í efnahagsmálum.
Heimavöllurinn er hokinn af reynslu að þessu sinni og teiknar upp ótímabæra Lengjudeildarspá þegar 40 dagar eru í mót. Fyrrum landsliðskonurnar og þjálfararnir Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Rakel Logadóttir eru gestir þáttarins að þessu sinni og fara yfir spánna ásamt Mist Rúnarsdóttur.
FH-konur hafa verið á flugi og leika í Bestu deildinni að ári. Valskonur svífa vængjum þöndum og eru á leið til Prag. Eru stelpurnar okkar á leiðinni á HM? Það gæti skýrst á næstu dögum. Fyrrum landsliðskonurnar og legendin, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir, fara yfir allt saman á Heimavellinum. Auðvitað í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.
Viðmælandi þáttarins er Grímur Lund en hann er stofnandi danska tæknifyrirtækisins Logimatic og sat seinna í framkvæmdastjórn hjá breska tæknifyrirtækinu AVEVA. Grímur er fæddur árið 1961 og er alinn upp á Melrakkasléttunni. Hann gekk í Tækniskólann og þaðan lá leið hans til Danmerkur þar sem hann lauk mastersnámi í rafmagnsfræði við Álaborgarháskóla og hefur hann búið í Danmörku síðan. Árið 1987 stofnaði Grímur ásamt meðstofnanda sínum, Logimatic sem er ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki. Ein af aðallausnum fyrirtækisins var vörustýringarkerfi fyrir skipasmíðastöðvar. Grímur starfaði sem forstjóri Logimatic þangað til hugbúnaðarkerfið var selt til breska fyrirtækisins AVEVA árið 2010. Grímur fylgdi í kjölfarið með og var í framkvæmdastjórn AVEVA sem er eitt stærsta tæknifyrirtæki á sviði hugbúnaðar i Bretlandi og skráð í kauphöllina í London. Grímur vann í tólf ár hjá AVEVA þar af síðustu ár, sem framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs með 1100 starfsmenn og velti sviðið um 20 milljarða króna. Grímur hefur nú nýlega sagt starfi sínu lausu og vinnur nú með sprotafyrirtækjum á vaxtarstigi og situr í stjórnum nokkurra fyrirtækja. Grímur hefur alla tíð haldið mikilli rækt við Ísland og dvelur jafnan á sínum bernsku slóðum, þar sem hann á jörð og hús. Þessi þáttur er í boði Icelandair.
Á þessu ári eru liðin 70 ár frá stofnun Listdansskóla Íslands, elsta slíka skóla hér á landi en hann var stofnaður haustið 1952 í Þjóðleikhúsinu. Í Borgarleikhúsinu í kvöld verður litið um öxl á sérstakri hátíðarsýningu skólans þar sem ýmsir hápunktar frá danssýningum í gegnum tíðina, verk sem skólinn setti upp á eigin sýningum auk verka sem nemendur tóku þátt í með Íslenska dansflokknum og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Fyrrum nemendur dansa líka á þessum tímamótum en einnig verður horft fram á veginn og spurningum velt upp um danskennslu framtíðar. Guðmundur Helgason skólastjóri Listdansskólans kemur í heimsókn hér rétt á eftir. ?Útjaðarinn er ekki bara geymslustaður fyrir óæskilegar hugsanir heldur er þar líka að finna fegurð og ró ef við drögum okkur aðeins út úr hringiðu lífsins og látum - þó ekki nema andartak - eins og amstrið komi okkur ekki við.? Sýningin Útjaðar opnaði nú á dögunum í gallerí Portfolio við Hverfisgötu 71. Þar sýnir Sigga Björg Sigurðardóttir myndlistarkona ný verk, teikningar á pappír og vegg, auk stop motion vídeóverks. Útjaðarinn vísar til þess sem er alltaf á mörkunum og við sjáum aldrei skýrt heldur bara eins og útundan okkur eða í svip - kannski bara missýning. Við heimsækjum Siggu Björg í Porfolio í Víðsjá í dag og spyrjum hana út í þetta ferðalag sitt með blýant og vatnsliti. Og við fáum hér líka hugleiðingar Snorra Rafns Hallssonar, pistlahöfundar og dagskrárgerðarmanns í Vín. Kafka, skrifræði og draumaland reglnanna er honum hugleikið í pistli í dag þar sem hann grípur niður í Réttarhöldin og gluggar í bók anarkistans David Graeber. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Viðmælandi þessa þáttar er Ágúst Einarsson, sem starfar nú sem ráðgjafi en er fyrrum framkvæmdasjóri Tempo, sem er tímastjórnunarkerfi, sem byrjaði sem nýsköpunarvara hjá TM Software og svo Origo. Ágúst er fæddur árið 1962 og ólst upp í Mosfellsveit. Hann gekk í Vélskólann og Tækniskólann en þaðan lá leið hans í BS nám í vélaverkfræði við Háskólann í Álaborg þar sem hann kláraði einnig MS gráðu í iðnaðarverkfræði. Ágúst starfaði meðal annars sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknifyrirtækjanna Trackwell og Skyggnir og síðan sem framkvæmdastjóri TM Software sem rann inn í Origo þar sem Tempo varð síðan til. Ágúst starfaði síðan sem framkvæmdastjóri Tempo í 11 ár þangað til árið 2017 þegar fyrirtækið var selt að hluta til Diversis Captial árið 2017. Ágúst starfar núna sem ráðgjafi hjá fyrirtækjum á vaxtastigi og situr einnig í stjórnum nokkurra fyrirtækja. Þátturinn er kostaður af VÍS og Kaffitár.
Viðmælandi þessa þáttar er Vilborg Einarsdóttir, meðstofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Mentor og stofnandi BraveEarth. Vilborg er fædd árið 1967 og ólst upp í Þórisholti í Mýrdal. Hún gekk í Samvinnuskólann á Bifröst og þaðan lá leið hennar í Kennaraháskóla Íslands þar sem hún lauk gráðu í kennslufræðum (B.Ed). Vilborg kláraði síðan master í Stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og Verslunarháskólanum í Árósum. Mentor sem hét áður Menn og Mýs, var skipt upp í tvö fyrirtæki árið 2000, þá Mentor annars vegar og hins vegar Men and Mice. Mentor eða InfoMentor eins og kerfið heitir á erlendum markaði er náms- og upplýsingakerfi sem skólar og sveitarfélög nota og eflaust margir foreldrar kannast við. Vilborg starfaði sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins þangað til árið 2018 eða þangað til hún stofnaði nýtt fyrirtæki sem ber heitið BraveEarth sem er hugbúnaður til að búa til og halda utan um sjálfbærnistefnu fyrirtækja. Þátturinn er kostaður af VÍS og Kaffitár.
Fjórði þáttur af nú segi ég stopp átti alltaf að fjalla um toxic things! Kris Jenner works hard en the UNIVERSE works harder.. Hafiði heyrt um Íslenskan gaur sem deitar að minnsta kosti 2 Íslenskar gellur og heldur að það komist ekki upp á endanum? Kara Kristel og Klara Sif the onlyfans QUEEN og bitrustu gellur forritsins tiktok ( samkvæmt Sölva Santos ) tala um all things toxic- hver á ömmuspennurnar? Hvað fékk hin gellan í jólagjöf? Elska allar gellur berjaboozt? Haha mjög gott gat nú verið!!!! Svaf Kara hjá fyrrverandi kærasta Klöru? Hvað er málið með fyrrverandi kærasta? Fyrrum vinnustaði? Red flags? Afhverju eru sumir main characters og aðrir ekki? Toxic fjölskylduhefðir og ástar þríhyrningar??? Eitt er á hreinu, gellur elska ömmuspennur og Kara Kristel notar gullitaðar á meðan hin gellan notar svartar!
Fyrrum unglingalandsliðsmaðurinn, Íslandsmeistarinn, forseti leikmannasamtakanna og pistlahöfundurinn Arnar Sveinn Geirsson gerði upp meistaraflokksferilinn sem hófst árið 2008 þegar Óskar Bjarni og Willum háðu hatramma deilu um örlög hans í íþróttum. Tveir klukkutímar af tandurhreinni íslensku.
Dómarinn, Eftirlitsmaðurinn, Fyrrum stjórnarmaður KKÍ og formaður dómaranefndar en umfram allt körfubolta áhugamaðurinn Rúnar Birgir Gíslason var gestur vikunnar á Endalínunni. Rúnar Birgir er Skagfirðingur sem er flestum kunnugur í körfuboltaheiminum hér á landi þó svo að hans tími sem leikmaður í körfubolta sé ekki viðamikill. Hann hefur verið viðloðinn dómgæslu frá árinu 1994 og verið í mörgum störfum innan körfuboltahreyfingarinnar síðustu 25 árin. Rúnar fer með okkur í gegnum þetta ferðalag og talar við okkur um dómgæsluna , fyrsta leikinn í flauelsbuxunum , gráu gallana, framfarirnar, ritaraborðin og hvernig það er að vera dómari og hvaða vinna liggur þar að baki. Einnig er Rúnar hafsjór af fróðleik um íslenskan körfubolta og er mikill grúskari sem á tölfræði yfir ótrúlegustu hluti sem við förum aðeins yfir , sem dæmi tölfræði um tæknivillur og U-Villur sem er virkilega áhugaverð og svo hvaða leikmaður hefur fallið oftast úr úrvalsdeild karla. Við fáum hann svo að lokum til að segja okkur frá bókinni sem hann er að vinna að ásamt félaga sínum Gunnari Frey Steinssyni, en þeir eru að kryfja sögu íslensks körfubolta og við fáum smá innsýn inní þessa vinnu. Allt þetta og meira til í frábæru spjalli beint úr WhiteFox stofunni í boði Podcast Stöðvarinnar , BudLight og WhiteFox.
Tengsl Íslands og Namibíu ná langt aftur. Spegillinn ræddi við Íslendinga sem störfuðu fyrir Þróunarsamvinnustofnun Íslands á tíunda áratug síðustu aldar og fyrsta áratug þessarar. Sjöfn Vilhelmsdóttur, Guðbjart Gunnarsson og Ingu Fanneyju Egilsdóttur.
Heilbrigðismálin komu við sögu í þættinum svo og barátta eldri borgara fyrir kjörum sínum. Varaborgarfulltrúi leggur til að þeir fái forgang sem fjölmenni í bíla. Fyrrum ráðherra ræddi EES samninginn sem á 25 ára afmæli og svo á Alþýðulýðveldið Kína líka afmæli.
Í þætti kvöldsins hittum við Ívar Ingimarsson, fyrrum atvinnumann og leikmann íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu. Við byrjum söguna á Stöðvarfirði þar sem Ívar lék sinn fyrsta meistaraflokksleik aðeins 13 ára gamall, en þaðan átti leiðin eftir að liggja alla leið í ensku úrvalsdeildina! Hér kynnumst við Ívari á persónulegu nótunum og fáum að heyra hvað hann gerði til þess að ná langt í sinni íþrótt.
Siggi Hlö er einn ástsælasti fjölmiðlamaður og partýkóngur landsins. Fyrrum auglýsingafrömuður og nú ferðafrömuður ásamt því að stjórna stuði þjóðarinnar alla laugardagseftirmiðdaga. Það er partý hjá Spekingum þessa vikuna.
Fyrrum andlit Nike í Keflavík og Innri-Njarðvík, Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, mætti og stillti upp draumaliði sínu eftir 25 ár af meistaraflokksfótbolta.
Fyrrum Íslands- og Inkassomeistarinn Albert Brynjar Ingason mætti og stillti upp fyrir okkur strangheiðarlegu 4-3-3 leikkerfi skipað af bestu leikmönnum sem hann hefur spilað með á ferlinum.
Fyrrum útvarpsfólkið Freyr Eyjólfsson og Margrét Marteinsdóttur voru gestir Morgunkaffisins á Rás 2. Þau fóru yfir feril sinn í fjölmiðlum, mikilvægustu úrlausnarefni nútímans, búsetu erlendis og ýmislegt fleira. Auk þess spiluðu Gísli Marteinn og Björg góða músík og komu landanum í hressilegan sumargír á þessum fallega degi.

Næsti gestur hjá okkur að þessu sinni ber þann titil að vera fyrsti kvenkyns forseti í heiminum, Frú Vigdís Finnbogadóttir. Í þessum þætti fáum við að kynnast Vigdísi betur, hennar framboði til forseta og því hlutverki sem hún fékk. Við reynum að skyggnast betur í hugarheim hennar og fáum betri tilfinningu fyrir þeirri vegferð sem hún hefur skapað, ekki bara fyrir sig sjálfa heldur Ísland og allar aðrar þjóðir heimsins. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 22.maí.
Spegillinn mánudaginn 13.maí 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Davíð Berndsen Atkvæðagreiðsla um þungunarrofsfrumvarp heilbrigðisráðherra stendur nú yfir á Alþingi og er hart tekist á. Tillaga formanns Miðflokksins um að fresta afgreiðslu málsins var felld. Forsætisráðherra segir frumvarpið gríðarlegt framfaraskref fyrir frelsi einstaklingsins. Þingmaður Viðreisnar óttast að Krabbameinsfélagið þurfi að óbreyttu að segja upp starfsfólki frá og með næstu mánaðamótum vegna stefnuleysis í krabbameinsleit. Settar hafa verið upp eftirlitsmyndavélar á sex stöðum í Kópavogi og fleiri myndavélar bætast við á næstunni. Bæjarstjóri segir að þær hafi nýst við að upplýsa innbrot og hafi fælingarmátt fyrir glæpamenn. Kennsla í Seljaskóla fer að hluta fram í Seljakirkju og félagsmiðstöðinni Hólmaseli á næstu dögum, eftir eldsvoða í skólanum um helgina. Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks gagnrýnir þá ákvörðun ríkissaksóknaraembættisins í Svíþjóð að hefja í þriðja skipti rannsókn á meintum kynferðisbrotum Julians Assange, stofnanda Wikileaks. Hann býst ekki við að Assange verði ákærður. Fyrrum ritari enska fótboltaliðsins Sheffield Wednesday var í dag dæmdur til þess að greiða 6500 punda sekt vegna vanrækslu í tengslum við slysið á Hillsborough-vellinum í Sheffield fyrir þrjátíu árum. Þetta er fyrsta sakfellingin í málaferlum vegna slyssins þar sem 96 létu lífið. Lengri umfjallanir: Óhætt er að segja að nemendum, foreldrum og starfsfólki Seljaskóla í Reykjavík hafi brugðið við fréttirnar af eldsvoða í skólanum aðfaranótt sunnudags. Ekki er enn vitað um eldsupptök, en ljóst er að tjón er mikið. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir að byggingarlag skólans og steypt plata undir þaki hússins hafi komið í veg fyrir enn meira tjón. Hann segist skilja vel áhyggjur fólks af öryggi nemenda og starfsfólks skólans. Kristján Sigurjónsson ræðir við Jón Viðar. Guðrún Theódórsdóttir, doktor í annarsmálsfræðum við Háskóla Íslands, segir að ekki sé til nægilega mikið námsefni, og ekki nógu fjölbreytt, í íslenskennslu fyrir fullorðna innflytjendur. Mikilvægt sé að vanda til verka og sjá til þess þeir sem stjórni kennslunni hafi nægilega þekkingu á málaflokknum. Í spurningakönnun, sem yfir 2200 innflytjendur á Íslandi tóku þátt í, kemur fram að um 60 prósent þeirra eru óánægð með þau íslenskunámskeið sem þeim stendur til boða. Könnunin er liður í rannsóknarverkefninu - Samfélög án aðgreiningar? Aðlögun innflytjenda á Íslandi sem hleypt var af stokkunum í ársbyrjun 2018. Auk Háskólans á Ak
Fyrrum stjórnendur Fríkastsins, þeir Ingvar Örn Ákason og Baldvin Fróði Hauksson, voru mættir í New Balance stúdíóið ásamt Ponzunni. Rætt var um landsliðið og leikina gegn Norður-Makdóníu. Hitað upp fyrir úrslitakeppnina karla- og kvennamegin og rýnt í umspilið um sæti í Olísdeildunum. Í lok þáttar völdum við sameiginlegt úrvalslið Olísdeildar karla og kvenna. Þátturinn er í boði BK-kjúklings
Þingmönnum leið ekki vel með skyndilega endurkomu þingmanna úr Klausturmálinu í morgun og sögðu erfitt að halda áfram eins og ekkert hefði í skorist. Heilbrigðisráðherra segir fjórtán hjúkrunarheimili í uppbyggingu til að mæta uppsöfnuðum vanda innan heilbrigðiskerfisins. Á höfuðborgarsvæðinu bíða 28 manns undir 67 ára aldri eftir sérhæfðu hjúkrunarrými. Aðstandendur konu sem fórst í eldsvoðanum á Selfossi í lok október krefja karlmann, sem ákærður er fyrir að hafa orðið henni og karlmanni að bana, um samtals 25 milljónir króna í bætur. Þeir sem rændu Anne-Elísabet Hagen, eiginkonu eins ríkasta manns Noregs, hafa haft samband við fjölskylduna. Lögmaður fjölskyldunnar greindi frá þessu í dag. _____________________ Í tugi ára hefur því verið velt upp hvort heróín fari að ryðja sér til rúms á íslenskum fíkniefnamarkaði. Nú telur lögreglan það líklegt. Fyrrum yfirlæknir á Vogi segir að átak í að fækka ávísunum sterkra verkalyfja geti greitt götu heróíns inn á íslenskan fíkniefnamarkað. Öryrkjar gætu þurft að bíða í allt átta mánuði eftir endurgreiðslum frá Tryggingastofnun vegna skerðingar á búsetuhlutfalli. Þetta kom fram á Alþingi í dag. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.
Í þættinum í dag heyrum við sögu konu sem var vændiskona í Kaupmannahöfn. Eva Dís Þórðardóttir á að baki átakanlegar lífsreynslur sem hafa mótað hana. Í mörg ár vissi enginn af því að hún hefði stundað vændi og hún óttaðist ekkert frekar en að það kæmist upp. Eftir að hún sagði frá því opinberlega hefur hún upplifað algjört frelsi, nú getur enginn notað leyndarmálið gegn henni. Hún segir vændi vera ofbeldi ekki starfsgrein og eftir mikla sjálfsvinnu hefur hún nýtt sína reynslu öðrum til hjálpar. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir Viðmælandi: Eva Dís Þórðardóttir

Russell Osman lék á sínum tíma ellefu landsleiki fyrir England en þessi fyrrum leikmaður Ipswich, Leicester og Southampton starfar nú sem sparkspekingur í indverska sjónvarpinu. Þar fjallar hann um indversku Ofurdeildina og allt sem að henni snýr. Rætt var við Osman í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Augu íslenskra fótboltaáhugamanna hafa beinst frekar að indverska boltanum eftir að Guðjón Baldvinsson var lánaður í Kerala Blasters en þar leikur hann með Dimitar Berbatov.
Fyrrum barnfóstra Ben Affleck og Jennifer Garner er komin aftur í fréttirnar, hún vill nefnilega verða stjarna Gott hjá henni. Barnfóstran er að fylgja hinu fullkomna bissness plani. Eins færa vinkonurnar hræðilegar fréttir frá Hollywood og hlæja aðeins af Terrence “babywipes” Howard.