Podcasts about ragnhildur

  • 35PODCASTS
  • 89EPISODES
  • 1h 15mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 5, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about ragnhildur

Latest podcast episodes about ragnhildur

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - föstudagur 2. maí 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 5, 2025 60:23

Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur, Ragga Nagli, um sjálfsefa, kvíða, samanburð og samfélagsmiðla Nichole Leigh Mosty fyrrverandi alþingiskona og doktorsnemi í deild menntunar og margbreytileika um íslensku og leigubílalögin Símatími Páll Óskar Hjálmtýsson umn mótmælin í morgun og mál hins kólumbíska Oscar Andre Bocanegra Florez María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttakona hjá RÚV um fjallaskíðaslysið sem hún lenti í á Snæfellsjökli um páskana Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður á Stöð 2 og garðyrkjufræðingur um lífið og tilveruna

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - fimmtudagur 10. apríl 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 10, 2025 64:00

Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Ragnhildur Þórðardóttir Ragga nagli sálfræðingur um vorhreingerningu á fólki Finnbogi Jónasson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningadeild ríkislögreglustjóra Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir hjá Mast um blóðmerahald Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins Björgmundur Örn Guðmundsson ráðgjafi í nýsköpun um nútíð og framtíð gervigreindar Örlygur Hnefill Örlygsson safnstjóri Eurovisionsafnsins á Húsavík

Mannlegi þátturinn
Lífið er núna og slúður á vinnustöðum og í litlum samfélögum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 30, 2025 54:06

Lífið er núna dagurinn er haldin í dag, en þessi vitundarvakning Krafts er árleg og er ein stærsta fjáröflun félagsins og stendur til 12.febrúar. Kraftur hvetur vinnustaði til að brjóta upp hversdagsleikann með því t.d. að bjóða upp á appelsínugular veitingar og jafnvel að klæðast í appelsínugul föt og einhverjar byggingar eru lýstar upp með appelsínugulri lýsingu sem er litur Krafts. Við ræddum við þær Ragnhildi Þóru Hafsteinsdóttur og Katrínu Petersen í dag. Ragnhildur sagði okkur frá þeirri lífsreynslu að greinast með bráðahvítblæði þegar hún var í mastersnámi og á 30. viku í meðgöngu af þriðja barni. Ragnhildur var greind á fimmtudegi og var líf hennar og ófædda drengsins hennar í húfi. Lyfjameðferð hófst strax tveimur dögum eftir greiningu og að auki kom í ljós hjartabilun sem gerði það að verkum að það yrði ekki öruggt fyrir hana að fara inn í fæðingu. Kraftur selur húfur til styrktar í tilefni vitundarvakningarinnar og ágóðinn af sölunni fer allur í styrktarsjóð Krafts. Hvernig er talað á þínum vinnustað? Er mikið slúðrað þar? Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, doktor í félagsfræði, sem kallar sig líka Doktor slúður, fer á vinnustaði, hittir hópa, félagasamtök og jafnvel bæjarfélög þar sem hún talar um slúður sem valdatæki og stjórnun, en í doktorsrannsókn sinni rannsakaði hún slúður í minni samfélögum um allt land. Gréta Bergrún útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum í dag. Tónlist í þættinum: Heima er hjá þér / Magni Ásgeirsson (Vignir Snær og Magni Ásgeirsson) Hér á ég heima / Fjallabræður og Sverrir Bergmann (Tómas Jónsson og Magnús Þór Sigmundsson) Heima / Haukur Morthens og hljómsveit Jörns Grauengaards (Oddgeir Kristjáns, texti Ási í Bæ) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Vikulokin
Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Stefán Pálsson og Davíð Stefánsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jan 11, 2025 57:47

Gestir Vikulokanna eru Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi VG og Davíð Stefánsson formaður Varðbergs. Þau ræddu meðal annars um Trump og Grænland, komandi formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og Álfabakkamálið. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stundin
Móðursýkiskastið #6: Varð skugginn af sjálfri sér

Stundin

Play Episode Listen Later Jan 4, 2025

Í þessum lokaþætti Móðursýkiskastsins fáum við að heyra frá konu sem var sett á lyf sem gætu hafa haft mjög neikvæð áhrif á heilsu hennar. Lyf sem henni voru gefin við sjúkdómi sem svo kom í ljós að hún var ekki með. Hún gekk á milli lækna í aldarfjórðung áður en hún fékk rétta greiningu. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna. Þátturinn í heild sinni er aðeins aðgengilegur áskrifendum Heimildarinnar. Áskrift má nálgast á heimildin.is/askrift.

Stundin
Móðursýkiskastið #5: „Barn­ið bara kvald­ist og kvald­ist“

Stundin

Play Episode Listen Later Dec 28, 2024

Í hvert sinn sem Hrund Ólafsdóttir heyrir frásagnir mæðra rifjast upp fyrir henni sárar minningar af því þegar dóttir hennar veiktist og Hrund þurfti að grátbiðja lækni mánuðum saman um að senda hana í myndatöku á höfði. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna. Þátturinn í heild sinni er aðeins aðgengilegur áskrifendum Heimildarinnar. Áskrift má nálgast á heimildin.is/askrift.

Stundin
Móðursýkiskastið #4: „Ég var ekk­ert til­bú­in í að verða mamma“

Stundin

Play Episode Listen Later Dec 21, 2024

Elísa Ósk Lína­dótt­ir, formaður PCOS samtakanna, var 19 ára þeg­ar kven­sjúk­dóma­lækn­ir greindi hana með PCOS og sagði henni að drífa í barneign­um. Eng­ar ráð­legg­ing­ar um henn­ar eig­in heilsu fylgdu og Elísa fór af stað í frjó­sem­is­með­ferð­ir. „Ég óska engum að ganga í gegnum þetta svona,“ segir Elísa sem er viðmælandi í fjórða þætti Móðursýkiskastsins. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna. Þátturinn í heild sinni er aðeins aðgengilegur áskrifendum Heimildarinnar. Áskrift má nálgast á heimildin.is/askrift.

Stundin
Móðursýkiskastið #3: Sárkvalin og sökuð um verkjalyfjafíkn

Stundin

Play Episode Listen Later Dec 14, 2024

Þegar Karen Ösp Friðriksdóttir lá sárkvalin á kvennadeild Landspítala árið 2019 var hún sökuð um verkjalyfjafíkn. Hún hafði þá verið verkjuð síðan hún var níu ára. Geðlæknir leiddi að því líkum að verkir hennar tengdust gervióléttu. Tveimur árum síðar fékk hún loks staðfestingu á því að hún væri með líkamlegan sjúkdóm. Hún vonar að heilbrigðiskerfið og samfélagið læri af hennar sögu. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna. Þátturinn í heild sinni er aðeins aðgengilegur áskrifendum Heimildarinnar. Áskrift má nálgast á heimildin.is/askrift.

Stundin
Móðursýkiskastið #2: „Það var ekki hlustað á mig“

Stundin

Play Episode Listen Later Dec 8, 2024

„Það erf­ið­asta var að það var ekki hlustað á mig þeg­ar ég sagði: Það er eitt­hvað óeðli­legt í gangi,“ seg­ir Sigrún Lilja Guð­jóns­dótt­ir, sem gekk í gegn­um mjög erf­iða fæð­ingu með eft­ir­mál­um á borð við lífs­hættu­leg­an blóð­missi, sýk­ingu, að­gerð og fæð­ing­ar­þung­lyndi. Hún kall­ar eft­ir því að bet­ur sé hlustað á kon­ur sem segja frá óeðli­leg­um sárs­auka og að neyð­ar­þjón­ustu sé kom­ið á fyr­ir þær sem lenda í al­var­legu fæð­ing­ar­þung­lyndi. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna.

Stundin
Móðursýkiskastið #1: Kallaðar ímyndunarveikar og áhyggjurófur

Stundin

Play Episode Listen Later Dec 7, 2024

Ein var kölluð fíkill þegar hún lýsti óbærilegum líkamlegum kvölum. Síðar voru verkir hennar útskýrðir með kvíða. Önnur var sögð ímyndunarveik. Sú þriðja áhyggjurófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heilaæxli, fékk sama viðurnefni. Sögur þessara kvenna, kvenna sem hafa mætt daufum eyrum innan heilbrigðiskerfisins, eru sagðar í nýjum hlaðvarpsþáttum Heimildarinnar: Móðursýkiskastinu. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttaröðinni. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna.

Stundin
Móðursýkiskastið: Sýnishorn: Móðursýkiskastið

Stundin

Play Episode Listen Later Dec 4, 2024

Ein var kölluð fíkill þegar hún lýsti óbærilegum líkamlegum kvölum. Síðar voru verkir hennar útskýrðir með kvíða. Önnur var sögð ímyndunarveik. Sú þriðja áhyggjurófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heilaæxli, fékk sama viðurnefni. Sögur þessara kvenna, kvenna sem hafa mætt daufum eyrum innan heilbrigðiskerfisins þegar þær glímdu við alvarlegan heilsubrest, eru sagðar í nýjum hlaðvarpsþáttum Heimildarinnar: Móðursýkiskastinu. Þar birtast einnig viðtöl við lækna og aðra sérfræðinga. Þættirnir verða sex talsins en Heimildin hefur síðan í aprílmánuði tekið á móti sögum kvenna sem hafa verið hundsaðar innan kerfisins, stundum með þeim afleiðingum að þær hafa hlotið varanlegan skaða af. Sögurnar sem bárust voru á þriðja tug og voru margar á sömu leið: „Það var ekki hlustað.“ Fyrstu tveir þættirnir birtast á hlaðvarpsveitum um helgina. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttunum. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna.

Jákastið
#160 Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Jákastið

Play Episode Listen Later May 30, 2024 77:05

Gestur minn þessa vikuna er Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Ragnhildur Alda er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og margt fleira. Hún er gjörsamlega frábær og mögnuð. Það var gott, gaman, yndislegt, áhugavert og fræðandi að spjalla við Ragnhildi Öldu. Þú ert frábær! Ást og friður. 

Frjálsar hendur
Undir fönn

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Apr 14, 2024 49:59

Fyrir nokkrum mánuðum var í Frjálsum höndum fjallað um hinn svonefnda Jósef Axfirðing sem bjó um tíma í Ameríku en endaði austur á fjörðum, nánar tiltekið í Norðfirði. Þar hafði hann ráðskonu til áratuga sem Ragnhildur Jónsdóttir hét og fyrir 60 árum skrifaði Jónas Árnason rithöfundur bók með samtölum við hana, þar sem hún segir ekki síst frá sambúð sinni við dýr og náttúru. Bókin nefnist Undir fönn og þar fjallar Ragnhildur af samúð og næmni um jafnt mýs og rottur sem hunda og sauðfé. Á myndinni má sjá þau Ragnhildi og Jónas.

Mannlegi þátturinn
ADHD í samböndum, Beothuk vinkill og Ragnhildur lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 15, 2023 50:00

Á fræðslufundi ADHD samtakanna í síðustu viku var yfirskriftin ADHD og náin sambönd og var athyglinni beint að pörum þar sem annar aðilinn er með ADHD en hinn ekki. Á fundinum töluðu Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og eiginmaður hennar Arnór Heiðarsson aðstoðarskólastjóri. Þau deildu reynslu sinni af ADHD í þeirra sambandi, hverjar helstu áskoranirnar, í samskiptum og verkaskiptingu heimilisins, eru og hvernig hægt er að takast á við þær áskoranir. Þau hjónin komu í þáttinn í dag. Svo fengum við vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, skúffuskáldi og þjóðfræðiáhugamanni úr Flóanum. Í þetta sinn bar Guðjón vinkilinn að örlögum Beothuk þjóðarinnar í Austur- Kanada. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ragnhildur Vigfúsdóttir markþjálfi og fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Veru. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ragnhildur sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum: Pensilskrift e. Gyrði Elíasson Ósýnilegar konur e. Caroline Criado Perez Hamingjugildran e. Hugrún Sigurjónsdóttir Heimurinn eins og hann er e. Stefán Jón Hafstein Portrait of a Marriage, Hamnet og The Vanishing Act of Esme Lennox e. Maggie O'Farel Tónlist í þættinum í dag: Tempó prímó / Uppáhellingarnir (Jón Múli og Jónas Árnasynir) Undir dalanna sól / Karlakórinn heimir (Björgvin Þ. Valdimarsson og Hallgrímur Jónsson) Sommerkjoledyr / Kari Bremnes (Kari Bremnes) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
ADHD í samböndum, Beothuk vinkill og Ragnhildur lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 15, 2023

Helgaspjallið
Þáttur 137 - Ragnhildur Steinunn um móðurmissi, móðurhlutverkið og ferilinn

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Apr 24, 2023 100:34

Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Ragnhildi Steinunni þarf varla að kynna en hún hefur prýtt skjáinn okkar síðustu ár og hefur vakið sérstaklega mikla athygli þessa dagana fyrir nýja þáttaröð á Rúv sem heitir Tvíburar. Hún er sjálf tvíbura-mamma og hefur Ragnhildur yfirleitt haldið einkalífinu sínu í lágmarki fyrir almenning svo ég var sérstaklega þakklátur að hafa fengið hana til mín í einlægt spjall þar sem við förum yfir ferilinn hennar, við ræðum móðurhlutverkið, móðurmissinn sem hún upplifði aðeins sjö ára að aldri. Það var mesta ánægja að hlusta á hana og lífsgildin hennar, reynslu og starfsferil og fjölskyldulífið. Njótið vel - Hægt er að horfa á Tvíburar á mánudagskvöldum kl 20:05 á Rúv - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Segðu mér
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Apr 4, 2023 40:00

Ragnhildur eignaðist tvíburasyni fyrir fáeinum árum. Fyrstu vikurnar hafi verið erfiðar og var hún ekki með sjálfri sér Í kjölfarið fékk hún brennandi áhuga á tvíburum og gerði um þá þáttaröðina Tvíburar.

Segðu mér
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona

Segðu mér

Play Episode Listen Later Apr 4, 2023

Ragnhildur eignaðist tvíburasyni fyrir fáeinum árum. Fyrstu vikurnar hafi verið erfiðar og var hún ekki með sjálfri sér Í kjölfarið fékk hún brennandi áhuga á tvíburum og gerði um þá þáttaröðina Tvíburar.

FM957
VEISLAN - Ragnhildur Steinunn (+ Prettyboitjokkos)

FM957

Play Episode Listen Later Mar 8, 2023 86:01

Ragnhildur Steinunn, Patrik Atla og AP. Hvað meira viltu?

Mannlegi þátturinn
Kambey hlýjuhof, Svæðisgarðurinn Snæfellsnes og póstkort

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023 50:00

Við fræddumst í dag um Kambey hlýjuhof í Ölfusi. Parið Andrea Eyland og Þorleifur Kamban standa á bak við Kambey, sem þau kalla andrými fyrir foreldra. Þau eiga hrúgu af börnum, eins og þau orða það sjálf, og hafa gert bók, sjónvarpsþætti og hlaðvarp um barneignir frá flestum hliðum, en eins og þau segja þá er það markmið þeirra að gera heiminn örlítið betri fyrir foreldra og börn. Ólöf Þóra Sverrisdóttir kom í þáttinn ásamt Andreu Eyland og þær sögðu okkur betur frá Kambey. Hvað er Svæðisgarður? Hvaða tilgangi þjónar hann og hvert er markmiðið? Svæðisgarðurinn Snæfellsnes var stofnaður 2014 að evrópskri fyrirmynd og er sá eini sinnar tegundar á Íslandi. Framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins er Ragnhildur Sigurðardóttir og hún sagði okkur í dag frá leyndardómum garðsins og Snæfellsness og fræðslukvöldi Vitafélagsins í kvöld í Sjóminjasafninu Grandagarði, þar sem Ragnhildur mun segja frá Svæðisgarðinum. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins sagði hann frá Alicante og nokkrum dögum þar og svo heimferðinni til Vestmannaeyja. Magnús er einn af sófaspesíalistum sem pæla í samgöngum milli Eyja og lands og setur fram hugleiðingar sínar í þeim efnum. Þar á eftir segir hann frá minnkandi fiskneyslu landsmanna sömuleiðis tilraunum til að draga úr kjötneyslu í Evrópusambandinu, en hún er þar tvöföld á við heimsmeðaltal. Tónlist í þættinum í dag: Verðbólgan / Brimkló (Björgvin Halldórsson og Kjartan Heiðberg) Bewitched, bothered and bewildered / Cher og Rod Stewart (Hart & Rodgers) New Blue Moon / Traveling Wilburys Paris In the Spring / Jo Basile og félagar (Revel & Kern) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Kambey hlýjuhof, Svæðisgarðurinn Snæfellsnes og póstkort

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 1, 2023

#62 Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir

Jákastið

Play Episode Listen Later Feb 2, 2023 57:11

Gestur dagsins er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Ragnhildur er dagskrárgerðarmaður á RÚV, fyrrum aðstoðardagskrárstjóri RÚV og er hún magnaður og frábær fjölmiðlamaður. Það var yndislegt, gott, gaman, áhugavert, fræðandi og frábært að spjalla við Ragnhildi. Þú ert frábær! Ást og friður.

Fram og til baka
Áskoranir Ragnhildar

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Nov 5, 2022

Gestur Felix í fimmunni er Ragnhildur Ágústsdóttir, markaðsstjóri Controlant, ferðamálafrömuður og einn af eigendum Lava Show. Hún talar um áskoranir lífsins í skemmtilegri fimmu. Síðari gestur þáttarins er Karl Ágúst Ipsen en hann getur sagt okkur ýmislegt sem við vissum ekki um stórstjörnuna dularfullu Dolly Parton

Fram og til baka
Áskoranir Ragnhildar

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Nov 5, 2022 114:00

Gestur Felix í fimmunni er Ragnhildur Ágústsdóttir, markaðsstjóri Controlant, ferðamálafrömuður og einn af eigendum Lava Show. Hún talar um áskoranir lífsins í skemmtilegri fimmu. Síðari gestur þáttarins er Karl Ágúst Ipsen en hann getur sagt okkur ýmislegt sem við vissum ekki um stórstjörnuna dularfullu Dolly Parton

Lestin
Landnámsmenn árið 2022, endalok sápuóperunnar, bíórýni

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 26, 2022

LungA skólinn hefur verið starfræktur á Seyðisfirði í tíu ár. Lýðskólanum fylgir líf og fjör og nemar við skólann kærkomin viðbót við bæjarlífið, enda fá ungmenni búsett þar yfir veturinn. Signý Jónsdóttir er í hópi fólks sem hefur unnið að þróun nýrrar námsleiðar við skólann sem verður prófuð í fyrsta sinn í Janúar. Þar munu nemendur fá kennslu í því að kynnast landinu, eins og þeir væru landnámsmenn á Seyðisfirði árið 2022. Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í tvær kvikmyndir, Triangle of sadness, þríhyrning sorgar, í leikstjórn Ruben Östlund og nýja íslenska kvikmynd, Sumarljós og svo kemur nóttin, mynd í leikstjórn Elfars Aðalsteinssonar. Guðni Tómasson menningarsagnfræðingur skoðar endalok sápuóperunnar, sem sumir segja yfirvofandi. Við byrjum þáttinn á því að hringja austur á Egilsstaði og heyra um residensíu pólskra tónlistamanna, Ragnhildur Ásvalsdóttir, Sláturhússtjóri, segir frá.

Lestin
Landnámsmenn árið 2022, endalok sápuóperunnar, bíórýni

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 26, 2022 55:00

LungA skólinn hefur verið starfræktur á Seyðisfirði í tíu ár. Lýðskólanum fylgir líf og fjör og nemar við skólann kærkomin viðbót við bæjarlífið, enda fá ungmenni búsett þar yfir veturinn. Signý Jónsdóttir er í hópi fólks sem hefur unnið að þróun nýrrar námsleiðar við skólann sem verður prófuð í fyrsta sinn í Janúar. Þar munu nemendur fá kennslu í því að kynnast landinu, eins og þeir væru landnámsmenn á Seyðisfirði árið 2022. Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í tvær kvikmyndir, Triangle of sadness, þríhyrning sorgar, í leikstjórn Ruben Östlund og nýja íslenska kvikmynd, Sumarljós og svo kemur nóttin, mynd í leikstjórn Elfars Aðalsteinssonar. Guðni Tómasson menningarsagnfræðingur skoðar endalok sápuóperunnar, sem sumir segja yfirvofandi. Við byrjum þáttinn á því að hringja austur á Egilsstaði og heyra um residensíu pólskra tónlistamanna, Ragnhildur Ásvalsdóttir, Sláturhússtjóri, segir frá.

Morgunvaktin
Þingmannaspjall, ferðasaga Idu Pfeiffer, menningarlífið fyrir austan

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 7, 2022

Nú er kjördæmadögum nýlokið á Alþingi þar sem þingmenn halda til sinna kjördæma og taka stöðuna, hitta kjósendur, sveitastjórnarfólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri. Og hér á Morgunvaktinni héldum við föstudagsvenju okkar áfram og fengum til okkar þingmann í spjall um þeirra hugðarefni og sýn. Gestur okkar í dag hefur einmitt verið á þönum um sitt kjördæmi undanfarna daga en það er Ingibjörg Isaksen þingmaður Framsóknarflokksins. Fjallað var um Idu Pheiffer og ferðasögu hennar. Ida var frá Austurríki, hún var landkönnuður og ferðabókahöfundur. Ida kom til Íslands 1845 og kynnti sér land og þjóð. Hún hreifst af náttúrunni en síður af fólkinu. Sagan af Íslandsferðinni er nú komin út á íslensku; þýðandinn, Guðmundur J. Guðmundsson sagnfræðingur, kom í þáttinn og sagði frá Idu og sýn hennar á Ísland og Íslendinga. Að lokum hringdum við austur á land og heyrðum af menningarlífi á svæðinu. Á hinum enda línunnar verður Ragnhildur Ásvaldsdóttir forstöðumaður Sláturhússins menningarmiðstöðvar á Egilsstöðum. Við forvitnuðumst um starfsemi Sláturhússins, sögu þess og hvað væri helst að frétta úr menningunni fyrir austan. Tónlist: Yellow River - Christie Keep on the Sunny Side - Loretta Lynn Perla - Guðmundur R ásamt Bubba. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.

Play Episode Listen Later Oct 7, 2022 98:07

#33 Ragnhildur Þórðardóttir (Ragga Nagli)

Jákastið

Play Episode Listen Later Oct 7, 2022 87:57

Gestur dagsins er Ragnhildur Þórðardóttir oft þekkt sem Ragga Nagli. Ragga er gjörsamlega frábær og mögnuð. Það var hrikalega gaman, gott, áhugavert, fræðandi og frábært að spjalla við Röggu. Þú ert frábær! Ást og friður. 

Á mannauðsmáli
38. Ragnhildur Bjarkadóttir - Auðnast

Á mannauðsmáli

Play Episode Listen Later Oct 6, 2022 52:57

Ragnhildur er annar eigandi og stofnandi Auðnast. Hún er mjög mikið menntuð og ég ætla bara að leyfa henni að segja ykkur frá því. Við fórum auðvitað yfir það hvað Auðnast stendur fyrir og hver þeirra sýn er. Félagslega umhverfið í heild sinni er þeirra nálgun og þar hefur safnast mikil reynsla og þekking seinustu ár. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, Moodup og Alfreð.

Hjjj
25. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna

Hjjj

Play Episode Listen Later Jun 22, 2022 67:04

Viðmælandi þáttarins er Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna eða RB. RB er fyrirtæki í eign Seðlabankans og íslensku bankanna sem vinnur að innviðum íslensks fjármálakerfis. Ragnhildur er fædd árið 1971 og ólst upp á Hlíðunum. Hún gekk í Menntaskólann í Hamrahlíð en þaðan lá leið hennar í Háskóla Íslands þar sem hún lauk prófi í véla- og iðnaðarverkfræði. Ragnhildur lauk síðan MS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskólanum í Wisconsin og MS prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 1998. Eftir útskrift hóf Ragnhildur störf hjá Fjárfestingabanka Atvinnulífsins og síðan Flugleiðum/Icelandair þar sem hún tók síðar við sem framkvæmdastjóri rekstrastýringar Icelandair og síðar sem forstjóri FL Group. Eftir að Ragnhildur sagði starfi sínu lausu hjá FL Group, tók hún við sem forstjóri Promens, sem var alþjóðlegt plastfyrirtæki sem velti um 20 ma. kr. með um 6000 starfsmenn þegar best lét. Ragnhildur vann síðar sem framkvæmdastjóri rekstrar- og upplýsingasviðs hjá Landsbankanum og stutt sem aðstoðarforstjóri hjá Wow Air flugfélagi þangað til hún tók við forstjórastólnum hjá RB. Þátturinn er kostaður af Icelandair.

Morgunútvarpið
29.apríl - leiðtogar, Þjóðhátíð, kokkakeppni, líkamstjáning og fréttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 29, 2022

Umsjón: Rúnar Róberts og Snærós Kjarkur til forystu er á meðal eftirsóttustu færniþátta hjá stjórnendum í dag. Leitað er að leiðtogum sem þora að vera þeir sjálfir, eru heiðarlegir og geta tekið erfið samtöl á vinnustað. Á vegum Háskólans á Bifröst er í maí haldið vefnámskeið þar sem sjónum er sérstaklega beint að kvenleiðtogum. Ragnhildur Vigfúsdóttir er viðurkenndur Dare to lead leiðbeinandi og önnur þeirra sem segja frá rannsóknum Bréné Brown um kjark til forystu og Ragnhildur var á línunni til að segja okkur nánar frá þessu. Hefur þú velt fyrir þér hvort líkamstjáning og raddbeiting þín hafi jákvæð eða neikvæð áhrif á hvernig aðrir skilja þig? Hvað ert þú e.t.v. að gera rétt og hvað mætti bæta? Margrét Reynisdóttir hjá Gerum betur ætlar að hjálpa okkur að læra að meta eigin líkamstjáningu og raddbeitingu og að vera flinkari í að lesa aðra eins og opna bók. Hún var gestur okkur. Miðasala á Þjóðhátíð í eyjum hófst í gær með algjörri sprengingu en miðasölukerfið hrundi skömmu eftir að tilkynnt var að Bubbi Morthens, Reykjavíkurdætur, Bríet, Emmsjé Gauti og fleiri myndu trylla dalinn um verslunarmannahelgina. Við heyrðum í Herði Orra Grétarssyni formanni Þjóðhátíðarnefndar um fyrstu þjóðhátíðina sem haldin verður síðan 2019 - enda eflaust margir orðnir óþreyjufullir að skella sér út í eyjar. Já og fréttir vikunnar voru krufnar með þeim Snorra Mássyni fréttamanni á Stöð 2 og Lindu Blöndal fréttakonu á Hringbraut. Nú stendur yfir keppnin um að verða Kokkur ársins 2022 en að henni stendur klúbbur matreiðslumeistara sem er félag fagfólks í matreiðslu sem meðal annars sér um rekstur Kokkalandsliðsins sem er fulltrúi Íslands á stærstu alþjóðlegu matreiðslukeppnum kokkalandsliða HM & Ólympíuleikum. Í gær fór fram forkeppnin en úrslitin eru á morgun. Þórir Erlingsson kom til okkar og matreiðir ofaní okkur hvaða aðferðir tryggja sigur í svona keppni.

Play Episode Listen Later Apr 29, 2022 130:00

24/7
Ragnhildur Alda - Varaborgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins

24/7

Play Episode Listen Later Mar 17, 2022 56:37

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir er að gefa sér kost í oddvitasætið á lista sjálfstæðisflokki fyrir borgarstjórakostningar. Í þættinum ræðir Alda Reykjavík, húsnæðismarkaðinn, að hjálpa kerfunum og framlínufólki að vinna saman, að maður getur ekki verið 100% á öllum sviðum lífsins, að hafa hafa húmor fyrir sjálfum sér, lifa lífinu eftir eigin höfði, að þjónusta aðra og margt margt fleira. Your Super - https://tropic.is/voruflokkur/ofurfaedur/your-super/ Sumac - https://sumac.is/ Kristall - https://www.olgerdin.is/ Sportvörur - https://sportvorur.is/

Ein Pæling
Prófkjörsþáttur - Sjálfstæðisflokkurinn (Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir)

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Mar 15, 2022 59:20

Dagana 18-19 mars næstkomandi munu Ragnhildur Alda vilhjálmsdóttir og Hildur Björnsdóttir etja kappi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sigurvegarinn mun síðan leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara þann 14. maí.Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Öldu um hennar áherslur og afhverju hún telur sig betur í stakk búna til þess að leiða flokkinn í þessum kosningum.

Segðu mér
Ragnhildur Gísladóttir og Tómas R Einarsson

Segðu mér

Play Episode Listen Later Dec 22, 2021

Ragnhildur og Tómas segja frá ávarpi undan sænginni, en nýlega kom út geisladiskur þar sem Ragnhildur syngur lög Tómasar.

ragnhildur r einarsson ragnhildur g
Segðu mér
Ragnhildur Gísladóttir og Tómas R Einarsson

Segðu mér

Play Episode Listen Later Dec 22, 2021 40:00

Ragnhildur og Tómas segja frá ávarpi undan sænginni, en nýlega kom út geisladiskur þar sem Ragnhildur syngur lög Tómasar.

ragnhildur r einarsson ragnhildur g
Helgaspjallið
Þáttur 73 - Ragga Nagli um streytu, meðvirkni og að setja mörk

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Oct 24, 2021 88:57

Þátturinn er í boði: Finn Crisps Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Dominos - www.dominos.is - Fitness Sport - www.fitnesssport.is IceHerbs - www.iceherbs.is Heimsins besta Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli er loksins komin á klakann eftir alltof langa Covid pásu svo ég að sjálfssögðu dróg hana inn í stúdíó. Viðfangsefnið er einfalt, streyta, meðvirkni og að setja mörk. Svo hreinlega - must hlustun! Ragga er án efa en klárasta manneskja sem ég þekki svo njótið vel! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -

Morgunútvarpið
20. okt. - Míuverðlaun, efni, aldurstakmörk, nektarmyndir og Naglinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021 130:00

Míuverðlaunin eru verðlaun sem heiðra þau sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Þær Þórunn Eva G. Pálsdóttir og Fríða Björk Arnardóttir komu til okkar í morgunkaffi til að segja okkur meira, en þær vita allt um málið. Talið er að um 10 milljónir efna bætist við á hverju ári í hóp efna sem skaðleg eru fólki og rannsóknir taka sinn tíma, svo niðurstöður liggja ekki alltaf strax fyrir. Það leiðir til þess að stjórnvöld ná ekki að setja reglur til að takmarka eða banna framleiðslu og notkun þeirra nógu tímalega. Í hádeginu í dag er opinn fyrirlestur um skaðleg efni á heimilinu á vegum Umhverfisstofnunar og við fengum Bergdísi Björk Bæringsdóttur, sérfræðing á sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar til að segja okkur aðeins af þessu. Við veltum fyrir okkur aldurstakmörkunum á kvikmyndum, en athygli vekur að íslenska kvikmyndin Leynilögga sem frumsýnd er í þessari viku, er í boði annars vegar fyrir 12 ára og eldri og hins vegar 16 ára og eldri. Í hverju liggur munurinn og hverjar eru reglurnar? Er regluverkið hér það sama og erlendis eða annað? Hallgrímur Kristinsson formaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kom til okkar og fræddi okkur um þetta. Í sjónvarpþættinum Kveik í gærkvöldi á RÚV kom fram að nærri 60 prósent stelpna í 10. bekk hafa verið beðnar um að senda af sér nektarmynd eða ögrandi mynd og rúm 30 prósent hafa þegar gert það. Í þættinum var talað við tvær grunnskólastúlkur sem seldu af sér kynferðislegar myndir og notaðar nærbuxur í fyrrasumar, þá 13 ára. Mörgum er brugðið eftir umfjöllunina og foreldar vilja vita hvernig bregðast á við og fræða börn sín, af öllum kynjum. Foreldrar hafa verndarskyldu gagnvart börnum, en vankunnátta og skortur á þekkingu kemur oft í veg fyrir að hún skili sér. Til að ræða þessi mál kom til okkar Margrét K. Magnúsdóttir forstöðumaður Barnahúss. Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, einnig þekkt sem Ragga Nagli, er einn þekktasti heilsu ráðgjafi landsins. Hún er þó ekki búsett á Íslandi, heldur í Danmörku, en er stödd á landinu um þessar mundir og við gripum því tækifærið og fengum hana í heimsókn í smá heilsuspjall að hausti. Tónlist: Geiri Sæm og Hunangstunglið - Er ást í tunglinu? GDRN - Næsta líf. Lorde - Mood ring. Adele - Easy on me. Gugusar - Röddin í klettunum. U2 - Pride in the name of love. Dua Lipa - Love again. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Lenny Kravitz - Let love rule. Lón - Earthquake.

Morgunútvarpið
20. okt. - Míuverðlaun, efni, aldurstakmörk, nektarmyndir og Naglinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021

Samfélagið
Hvítt heilaefni, rafíþróttir og vísindaspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 13, 2021 55:00

Mikilvægi hvíta efnisins í heilanum: Ragnhildur Þóra Káradóttir prófessor í taugalífeðlisfræði segir frá rannsóknum sínum og nýjum uppgötvunum. Rafíþróttir og tölvuleikir velta gríðarlegum fjárhæðum. Heimsmeistaramótið í töluvuleiknum League of Legends fer nú fram í Laugardalshöll og þar er spilað um hundruð milljóna króna í verðlaunafé: Björn Berg Gunnarsson hjá Íslandsbanka hefur skoðað þessi mál í kjölinn. Við fáum líka eina málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir í sitt reglulega vísindaspjall. Að þessu sinni talar hún um tengsl næringar og geðheilbrigðis barna.

Samfélagið
Hvítt heilaefni, rafíþróttir og vísindaspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 13, 2021

Mikilvægi hvíta efnisins í heilanum: Ragnhildur Þóra Káradóttir prófessor í taugalífeðlisfræði segir frá rannsóknum sínum og nýjum uppgötvunum. Rafíþróttir og tölvuleikir velta gríðarlegum fjárhæðum. Heimsmeistaramótið í töluvuleiknum League of Legends fer nú fram í Laugardalshöll og þar er spilað um hundruð milljóna króna í verðlaunafé: Björn Berg Gunnarsson hjá Íslandsbanka hefur skoðað þessi mál í kjölinn. Við fáum líka eina málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir í sitt reglulega vísindaspjall. Að þessu sinni talar hún um tengsl næringar og geðheilbrigðis barna.

Normið
106. Ragnhildur Steinunn – “Ég vil ekki halda ímynd ofurkonunnar á lofti”

Normið

Play Episode Listen Later Apr 2, 2021

Ragnhildur Steinunn er löngu orðin ein sterkasta kvenfyrirmynd Íslands, sem er ekkert skrítið. Hún framkvæmir verkefni sem hafa fallegan tilgang og það einfaldlega geislar af henni styrkurinn. Það var virkilega gaman að spjalla við hana og fá að heyra hvernig hún gengur í gegnum lífið. Við getum öll glósað þennan þátt og lært helling af!

Normið
106. Ragnhildur Steinunn – “Ég vil ekki halda ímynd ofurkonunnar á lofti”

Normið

Play Episode Listen Later Apr 2, 2021 65:20

Ragnhildur Steinunn er löngu orðin ein sterkasta kvenfyrirmynd Íslands, sem er ekkert skrítið. Hún framkvæmir verkefni sem hafa fallegan tilgang og það einfaldlega geislar af henni styrkurinn. Það var virkilega gaman að spjalla við hana og fá að heyra hvernig hún gengur í gegnum lífið. Við getum öll glósað þennan þátt og lært helling af!

Virðing í uppeldi
49. Auðnast: Um sambönd og uppeldi

Virðing í uppeldi

Play Episode Listen Later Feb 24, 2021 71:38

Þær Hrefna Hugosdóttir og Ragnhildur Bjarkadóttir frá Auðnast spjölluðu í þessum þætti við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Hrefna er hjúkrunarfræðingur og Ragnhildur sálfræðingur. Báðar eru þær með framhaldsmenntun í fjölskyldumeðferð en nefna sig aðallega mæður. Saman stofnuðu þær fyrirtækið með miklar hugsjónir um að huga að öllum þáttum heilsunnar til að ná jafnvægi í einkalífi og starfi. Í spjallinu, sem fór um víðan völl með þessum tveimur snillingum, bar það helst á góma hvernig þær höndla hlutina þegar dagarnir eru erfiðir bæði gagnvart sjálfum sér og börnum sínum, hvernig foreldrar geta stuðlað að heilbrigðu sambandi sín á milli, hvernig sé að vinna saman í eigin rekstri og vera bestu vinkonur á sama tíma og vera því lítið samfélag út af fyrir sig, hvernig foreldrahlutverkið er fyrir þeim og um mikilvægi heildrænnar heilsu þegar kemur að foreldrahlutverkinu. Frábært spjall og við hlökkum til þegar Auðnast fer af stað með eigið hlaðvarp. Engin pressa samt!

Morgunútvarpið
22. feb. - Gatnamót, sjálfstyrking, Hlíðarfjall, Covid lyf og íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 22, 2021 130:00

Ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af hættulegum gatnamótum nýja og gamla Álftanesvegar, m.a. Ragnhildur Ágústsdóttir sem er íbúi á svæðinu. Hún segir breytingar sem gerðar hafi verið stórhættulegar og þegar hafi slys orðið. Hún hefur nú sett af stað undirskriftarsöfnun þar sem bæjaryfirvöld í Garðabæ eru hvött til að endurskoða lokun við Prýðahverfi. Við heyrðum aðeins í Ragnhildi. Við forvitnuðumst um sjálfstyrkingarnámskeið stúlkna þar sem unnið er í gegnum rafíþróttir, með sálfræðilegri íhlutun til að auka félagsfærni og sjálfsmynd. Einnig er farið í slökun, núvitund og hreyfingu á þessum nýstárlegu námskeiðum. Þau Soffía Elín Sigurðardóttir, sálfræðingur, og Arnar Hólm Einarsson rafíþrótta sérfræðingur hjá XY esports komu til okkar og sögðu okkur meira. Vetrarfrí eru í skólum landsins og fjölskyldur hafa nýtt tækifærið og farið í frí, þar á meðal á skíði. Á Akureyri var víst erfitt að fá gistingu og borð á veitingastöðum í bænum. Þá var uppselt í Hlíðarfjall. Við tókum stöðuna eftir helgina og á línunni hjá okkur var forstöðumaður skíðasvæðisins, Brynjar Helgi Ásgeirsson. Á fréttamannafundi fyrir stuttu sagði Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels við grískan starfsbróður sinn að ef hann yrði einhvern tímann alvarlega veikur af Covid-19 þá ættu Ísraelar tilraunalyf sem gæfi góða raun gegn veikindunum. Lyfið nefnist EXO-CD24 og hefur verið í þróun. Á síðustu vikum hafa 30 sjúklingar fengið lyfið og náðu 29 þeirra sér að fullu á þremur til fimm dögum. Það tók lyfið aðeins lengri tíma að vinna á veirunni hjá þeim eina sem eftir var, en hann náði sér líka að fullu. Við leituðum til Björns Rúnars Lúðvíkssonar, yfirlæknis ónæmisfræðideildar Landsspítalans, og spurðum nánar út í þetta kraftaverkalyf, eins og það er kallað í ísraelskum fjölmiðlum. Við fórum yfir íþróttir helgarinnar með Hauki Harðarsyni íþróttafréttamanni og þar komu skíði, tennis, handbolti, körfubolti og píla m.a. við sögu. Tónlist: Teitur og Hildur - Mónika. Auður - Fljúgðu burt dúfa. Sam Smith - Diamonds. Baggalútur - Hlægifíflin. Duran Duran - Ordinary world. Alicia Keys - Fallin. Vök - Erase you. ABC - The look of love. Foo Fighters - Big me. Stefán Hilmarsson - Heimur allur hlær. Birnir og Páll Óskar - Spurningar.

Morgunútvarpið
22. feb. - Gatnamót, sjálfstyrking, Hlíðarfjall, Covid lyf og íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 22, 2021

Kokkaflakk í eyrun
#18 Ragga Nagli - Að borða í núvitund

Kokkaflakk í eyrun

Play Episode Listen Later Jan 5, 2021 76:34

Hér er fyrsti þátturinn á nýju ári og í honum kveður við dáldið annan tón en áður, þó umræðuefnið sé auðvitað ennþá matartengt. Gestur þáttarins í þetta sinn er Ragnhildur Þórðardóttir sem er betur þekkt sem Ragga Nagli. Hún heldur úti hlaðvarpinu Heilsuvarpið og heimasíðunni ragganagli.com þar sem hún fjallar um allskonar heilsutengd málefni. Þetta var geysilega gott spjall þar sem við fórum yfir hvað það er að borða í núvitund, hvað það getur gert fólki að skammast sín sífellt fyrir hvað það borðar og hvað það er mikilvægt að borða það sem þér finnst bragðgott. Við fórum líka yfir það hvernig best er að ná árangri ef meiningin er að taka til í mataræðinu sem algengt er um áramót. 

Gestaboð
Vinkonurnar Björg Árnadóttir og Ragnhildur Vigfúsdóttir

Gestaboð

Play Episode Listen Later Sep 26, 2020

Vikulokin
Andrés, Árni og Ragnhildur

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 25, 2020 55:00

Umsjón: Höskuldur Kári Schram Gestir: Andrés Magnússon, fulltrúi ritsjóra á Morgunblaðinu, Árni Snævarr starfsmaður Sameinuðu þjóðanna í Brussel og Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar.

Vikulokin
Andrés, Árni og Ragnhildur

Vikulokin

Play Episode Listen Later Jul 25, 2020

Snæbjörn talar við fólk
#0007 Ragnhildur Steinunn

Snæbjörn talar við fólk

Play Episode Listen Later Jul 2, 2020 108:13

S01E07  – Ragnhildur Steinunn er ein af þessum manneskjum sem maður gæti haldið að væri fullkomin og sennilega er hún nær því en mörg okkar hinna. En hún er líka manneskjan sem er gersamlega óhrædd við að viðurkenna að hún er einmitt ekki fullkomin. Hennar líf fór öðruvísi af stað en hjá okkur flestum og æskan mótaði hana fyrir lífstíð, góðu hlutirnir og slæmu. Og síðan virðist hún bara hafa gert góða hluti og allt á sínum forsendum. Inspírerandi spjall. – Fáðu 5% afslátt af ÖLLU í vefverslun Hljóðfærahússins – www.hljodfaerahusid.is – með afsláttarkóðanum STVF í heila viku frá því að þessi þáttur fer í loftið.

Mannlegi þátturinn
Skordýraborgarar, flökkutaugin og Ragnhildur lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 15, 2020 55:00

Sjálfbærni er hugtak sem mikið er í umræðunni þessa dagana og er það í fullu samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna fyrir allar þjóðir heims fyrir árið 2030. Eitt af því sem þarf að vinna að er endurhugsun fæðukerfisins, þar sem matvælatækni og matvælavísindi eru lykill í því að finna leiðir til að nýta betur, á sjálfbæran hátt, vannýttar en ríkulegar auðlindir jarðarinnar. Um þetta snýst Evrópuverkefni sem Matís stýrir og starfar að í samstarfi við framsækin fyrirtæki, stofnanir og háskóla í Evrópu. Til dæmis er lögð áhersla á sjálfbæra ræktun smáþörunga og ræktun skordýra til fæðu, fyrir til dæmis skordýraborgara Rakel Halldórsdóttir, ráðgjafi hjá Matís, kom í þáttinn og sagði okkur meira af þessu áhugaverða verkefni. Flökkutaug er annað nafn yfir stóra og mikilvæga taug sem heitir Vagustaugin. Orðið „vagus“ þýðir í raun „ráfandi“ á Latínu - Vagustaugin er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans og heilans en hún vinnur við að stýra öndun, hjartslætti, vöðvum, meltingu, koki, raddböndum og fleira. Í fullorðnum er þessi taug um það bil 60 cm löng. Góð virkni í VAGUS taug er nauðsynleg til að hægt sé að njóta góðrar heilsu segir Guðrún Bergmann sem kom í þáttinn í dag. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar og stjórnarmeðlimur Hinsegin daga. Við fengum að vita hvernig Hinsegin dagar verða í ár og svo auðvitað hvaða bækur eru á náttborðinu hjá henni, hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Skordýraborgarar, flökkutaugin og Ragnhildur lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 15, 2020

12. júní - Kvennahlaup, rafeldsneyti, ferðaþjónusta, fréttaspjall og t

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 12, 2020 130:00

Kvennahlaup ÍSÍ fer fram víða um land á morgun og er þetta í 31.sinn sem það er haldið. Í ár er markmið hlaupsins að hvetja konur til að gera hutina á eigin forsendum. Hrönn Guðmundsdóttir Sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, sagði okkur frá hlaupinu og ýmsum breytingum sem gerðar hafa verið í takt við tímann. Í vikunni undirrituðu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ólafur Adolfsson stjórnarformaður Þróunarfélags Grundartanga samstarfssamning um þróun á framleiðslu rafeldsneytis á Grundartanga. Samningurinn hljóðar upp á 50 milljóna kr. styrk ríkisins við verkefnið sem unnið verður undir stjórn Þróunarfélagsins. Verkefnið er sagt falla vel að loftslagsmarkmiðum Íslands sem og þróun í orkumálum og atvinnusköpun og vonir standa til að verkefnið geti skapað umtalsverð verðmæti á komandi árum. Ólafur kom til okkar og sagði okkur meira af þessu. Fyrirtæki í ferðaþjónustu berjast í bökkum og sum svæði hafa farið verr en önnur. Ástandið í Vík í Mýrdal er t.d. erfitt en þar hefur orðið algert hrun í ferðaþjónustunni. Meðal þeirra fyrirtækja sem þurftu að loka í langan tíma var Icelandic Lava Show, en vel hafði gengið hjá því unga fyrirtæki fram að heimsfaraldri. Ragnhildur Ágústsdóttir eigandi Icelandic Lava Show var á línunni en fyrirtækið freistar þess að opna á ný um helgina í von um að Íslendingar komi í heimsókn og reksturinn gangi þar til ferðamenn fylla landið á ný. Það voru ansi mörg eftirtektarverð fréttamál í vikunni. Til að ræða helstu fréttir vikunnar komu til okkar Erla Hlynsdóttir, fréttastjóri DV, og Björn Þorfinnsson, blaðamaður á Fréttablaðinu. Hégómavísindahorn Freys Gígju var ekki á dagskrá í dag en þess í stað kom Marta María Jónasdóttir, forseti Smartlands, og fór yfir sumartískuna með okkur. Hvernig á að vera smart í útilegunni, bústaðnum og brúðkaupinu t.d.? Tónlist: Raggi Bjarna og Lay Low - Þannig týnist tíminn. Daði - Family man. Warmland - Superstar minimal. David Bowie - Ashes to ashes. Magnús Þór - Jörðin sem ég ann. Jón Jónsson - Dýrka mest. Lenny Kravitz - Ride. Lizzo - Juice. Jónas Sig - Dansiði.

family bj gu dv magn svi hvernig lay low kolbr adolfsson verkefni fyrirt gylfad ragnhildur lizzo juice david bowie ashes reykfj raggi bjarna smartlands
Morgunútvarpið
12. júní - Kvennahlaup, rafeldsneyti, ferðaþjónusta, fréttaspjall og t

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 12, 2020

Grandi101
#14: Ragga Nagli - Matarhegðun

Grandi101

Play Episode Listen Later Mar 16, 2020 63:36

Ragnhildur Þórðardóttir býr í Kaupmannahöfn og starfar sem sálfræðingur. Hún er með gráðu í klíníski sálfræði og í heilsusálfræði og hefur sérhæft sig sérstaklega í hegðun sem tengist mat. Ragga er vinsæll fyrirlesari og gefur út hlaðvarpið Heilsuvarpið þar sem hún fær til sín gesti og fjallar um málefni sem tengist heilsu. Í þessum þætti talar Ragga um ýmislegt sem tengist matarhegðun. Heimasíða: https://ragganagli.com/ Instagram: @ragganagli Þáttastjórnandi: Eyþór Ingi Einarsson Hljóðmaður: Eiríkur Sigurðarson

Mannlegi þátturinn
Stockfish, á skíðum yfir Sprengisand og ættfræðigrúsk

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 12, 2020 50:00

Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival & Industry Days verður haldin í sjötta sinn dagana 12. til 22. mars 2020 í Bíó ParadíS. Hátíðin er kvikmynda- og ráðstefnuhátíð fagfólks í kvikmyndabransanum og er haldin í Bíó Paradís í samvinnu við öll fagfélög í kvikmyndagreinum á Íslandi og stendur yfir í 11 daga. Með hátíðinni var Kvikmyndahátíð Reykjavíkur endurvakin undir nýju nafni en hún var síðast haldin árið 2001 og var upphaflega sett á laggirnar árið 1978. Við töluðum við dagskrárstjórann Rósu Ásgeirsdóttur í þættinum í dag. Þann 15.mars fyrir 95 árum var langafi Ragnhildar Birgisdóttur, L.H.Muller ásamt þremur öðrum á leiðinni norður á Akureyri með gufuskipi. Framundan hjá þeim var ferð á skíðum suður Sprengisand. Ferð sem þeir kláruðu. Þeir lentu í misjöfnu veðri og voru oft í hættulegum aðstæðum en einnig upplifðu þeir hálendið í sínu fegursta skarti við mjög góð skilyrði. Ragnhildur sagði okkur frá þessu merkilega ferðalagi og hver tilgangurinn hafi verið. Ættfræðigrúsk - fjölskyldusaga þín á netinu heitir námskeið á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands undir stjórn Stefáns Halldórssonar, rekstrarhagfræðings og félagsfræðings. Á námskeiðinu verður þeim sem það sækja kennt hvernig hægt er að nýta sér gagnagrunna og skjalasöfn á netinu til að afla upplýsinga um sögu fjölskyldna þeirra allt að 200 ár aftur í tímann. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig tölvan er notuð við gagnaleitina og gefin eru hagnýt ráð til að bregðast við villum og veikleikum í gagnasöfnunum. Við heyrðum í Stefáni í þættinum í dag. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Stockfish, á skíðum yfir Sprengisand og ættfræðigrúsk

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 12, 2020

Fríhöfnin
Eftir afplánun 2/4

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Mar 11, 2020

Í hvaða stöðu eru fangar þegar þeir fara að taka fyrstu skrefin út í samfélagið eftir betrunarvist? Yfirleitt fá þeir fyrstu tækifærin á Vernd eða í samfélagsþjónustu. Viðmælendur í þættinum eru Þorlákur Ari Ágústsson, fyrrverandi fangi, María Jónsdóttir og Ragnhildur Ólafsdóttir, náms- og starfsráðgjafar hjá Vinnumálastofnun, Silja Ingólfsdóttir og Aðalheiður Jónsdóttir, starfsmenn Rauða krossins í Kópavogi, og Örn Ragnarsson, verkefnisstjóri Fatasöfnunar Rauða krossins. Umsjón: Aðalsteinn Kjartansson.

Jóns
78. Ragnhildur Ágústsdóttir

Jóns

Play Episode Listen Later Feb 26, 2020 51:52

Í þessu þætti spjallar Óli Jóns við Ragnhildi Ágústsdóttir sem er með þann skemmtilega titil Sölustjóri samstarfsaðila og SMB fyrirtækja hjá Microsoft á Íslandi. Ragnhildur hefur hjá Microsoft í að verða 4 ár og hefur líkað mjög vel. Hún vinnur mest með samstarfsaðilum Microsoft á Íslandi, sem eru rétt ríflega 100 talsins ef allt er talið með. Starfið gengur í raun út á að ráðleggja samstarfsaðilunum í sölu á Microsoft lausnum, hvaða virði felst í lausnunum fyrir viðskiptavini og reyni eftir fremsta megni að aðstoða samstarfsaðilarnir í því að koma þessu virði á framfæri til viðskiptavina með skýrum og kraftmiklum hætti. Ragnhildur er stofnandi að Icelandic Lava Show ásamt manninum sínum. Hann er framkvæmdastjóri og sér um allan daglegan rekstur og hún er stjórnarformaður og er einnig að “vasast í ýmsum málum þessu tengdu á kvöldin og um helgar þegar tími gefst”. Ragnhildur segir okkur frá tilkomu þess að hún stofnaði á sínum tíma (2013) BLÁAN APRIL - styrktarfélag barna með einhverfu og var formaður þess í 6 ár. Það gerði hún að stórum hluta vegna þess að hún tók eftir því - verandi móðir tveggja drengja á einhverfu rófinu - að það skorti verulega á almennan skilning á einhverfu og það voru ofsalega miklir fordómar við lýði þegar fjölskyldan flutti heim frá Danmörku þar sem strákarnir hennar voru greindir.

Hvað er að gerast
Land og Synir

Hvað er að gerast

Play Episode Listen Later Jan 30, 2020 14:46

Aníta, Ragnhildur, Eyþór, Guðmundur og Máli

Daemoncast: His Dark Materials Podcast
Betrayal (His Dark Materials TV series Ep.8)

Daemoncast: His Dark Materials Podcast

Play Episode Listen Later Dec 23, 2019 99:55

The grand finale is here... and they killed Roger! Our take on the final episode, the series as a whole, the origins of Asriel and the future of His Dark Materials adaptations. Treat yourself, it's Christmas! Discuss: https://www.facebook.com/groups/DiscussDaemoncast/ patreon: https://www.patreon.com/daemoncast insta: daemoncast_hdm email: daemoncasthdm@gmail.com Our wonderful supporters: Melanie, Heather, Jonathan W, Mauricio, Caroline, Natasha C, Kit, Corey, Emil Z, Male, Stacie PA, Kobi, Diletta, Jessica, Fiona C, Paul D, Lina, Fiona P, Mateus, Nampeung, Natalie P, Syna, Jacob B, Cara, Hannah, Paul K, Liam, Charlotte R, Alaric, Maichelle M, Anna S, Juan, Libby, Deriel, Bobby, Ben C, Kerstin, Guilherme, Kelly P, Emma D, Jeanette, Rodrigo, Raouia, Nicole H-P, Mathilde, Brian W, Deepali, Catarina, Xenia, Lily P, Kathryn M, Xandra, Thazin, Lori, Rebecca R, Ruby Ward, Eliza B, Jenny G, Lela, Bets, Jennifer D, Katherine H, Davey, Alistair, Philip RM, Elizabeth G, Angie R, Kari, Judith W, Ahmend BM, Katie H, Linn, Jackie P, Alix, Mikayela, Paul G, Bailey G, Skye T, Beatriz, Fingal, Margriet, Amy E-I, Aurora C, Frnacesca B, Chris W, Richard A, Havalah, Tori, Becki O, CarlaS, Nicholas S, Amber DR, Andrew K, Amanda M, Kate M, Ebba, Laura H, Lucy D, Kat W, Kenneth, Misja, Kenyatta, Sarah B, Zsigmond, Jane EG, Miles, Dianna G, Holly B, Ryan L, Gregory SM, Sam B, Raouia B, Daniel DC, Aidan P, Syakila, Christina JS, Jessica C, Rachel L, Ragnhildur, Ryan M, Michael W, Tom S, Benjamin A, Mary T, Elton, Joshua GJ, Adam F, Irfan F --- Send in a voice message: https://anchor.fm/daemoncast/message Support this podcast: https://anchor.fm/daemoncast/support

Segðu mér
Ragga Nagli

Segðu mér

Play Episode Listen Later Oct 17, 2019 40:00

Ragnhildur Þórðardóttir er landsþekkt sem Ragga nagli og er virk á samfélagsmiðlum undir því nafni þar sem hún skrifar um heilsu á mannamáli. Ragga er búsett í Kaupmannahöfn, en heldur tryggð við Ísland, kemur reglulega hingað og heldur fyrirlestra um heilsu. Hún segir frá lífi sínu, og ástinni og lýsir því þegar hún sá tilvonandi eiginmann sinn í fyrsta skipti.

Segðu mér
Ragga Nagli

Segðu mér

Play Episode Listen Later Oct 17, 2019

Ragnhildur Þórðardóttir er landsþekkt sem Ragga nagli og er virk á samfélagsmiðlum undir því nafni þar sem hún skrifar um heilsu á mannamáli. Ragga er búsett í Kaupmannahöfn, en heldur tryggð við Ísland, kemur reglulega hingað og heldur fyrirlestra um heilsu. Hún segir frá lífi sínu, og ástinni og lýsir því þegar hún sá tilvonandi eiginmann sinn í fyrsta skipti.

Morgunútvarpið
14. okt. - Ragga nagli, fjölmenning, ljósmyndir, vellíðan og íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 14, 2019 130:00

Ragnhildur Þórðardóttir, eða Ragga Nagli, eins og við þekkjum hana flest lætur sig flest varða er snýr að andlegri og líkamlegri heilsu, enda starfar hún sem sálfræðingur og einkaþjálfari m.a. Ragga kíkir stundum til okkar þegar hún er á landinu og hún er hér núna og settist hjá okkur og spjallaði um filterlífið á Facebook eins og hún kallar það og áhrif þess á sjálfsmynd, kvíða og depurð sem virðist aukast í takt við aukna notkun á samfélagsmiðlum. Sveitastjórn Skútustaðahrepps hefur sett sér fjölmenningarstefnu, en fjórðungur íbúa eru eru erlendir ríkisborgarar. Þar segir að allir íbúar skuli njóta sömu þjónustu óháð þjóðerni þeirra og uppruna. Skútustaðahreppur komst einnig í fréttir fyrir helgi þegar leyfi sem hreppurinn veitti Neyðarlínunni við lítilli heimarafstöð var afturkallað en stöðin var þá orðin margfallt stærri en stefnt var að. Þorsteinn Gunnarsson sveitarstjóri var á línunni. Fyrirtækið IMS ehf. skannar inn þúsundir ljósmynda á dag til varðveislu og sölu og hefur fram til þessa skannað inn um tvær milljónir mynda. Arnaldur Gauti Johnson er framkvæmdastjóri IMS, sem hyggur á enn frekari landvinninga en ekkert annað slíkt fyrirtæki er að finna í Evrópu. Arnaldur Gauti kom til okkar og sagði okkur meira af þessum rekstri og þeim möguleikum sem hann býður upp á. Anna Valdimarsdóttir, prófessor í lýðheilsuvísindum og Magnús Karl Magnússon, prófessor við læknadeild, komu til okkar og sögðu okkur frá því hvernig hægt er að auka heilsu og vellíðan fólks með bættu heilbrigðiskerfi, en slík vinna er nú í gangi og tengist innleiðingu heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna sem á að ljúka 2030. Þarna undir er til að mynda bætt geðheilbrigðisþjónusta, stofnfrumtækni, þjónusta við heilabilaða, fjölónæmar bakteríur og margt fleira. Við fórum yfir íþróttir helgarinnar með Kristjönu Arnarsdóttur íþróttafréttamanni sem m.a. fjallaði um hina umdeildu hermannakveðju tyrkneska landsliðsins en með henni lýstu þeir yfir stuðningi við tyrkneskar hersveitir sem ráðast nú gegn Kúrdum í norður Sýrlandi. Sú kveðja gæti haft einhver eftirmál í för með sér. Tónlist: Mannakorn og Ellen - Elska þig. Thin Jim and the Castaways - Brotnar myndir. John Mayer - Carry me away. Sváfnir Sig - Fer sem fer. Retro Stefson - Glow. Richard Hawley - Midnight train. Miley Cyrus - Slide away. Beck - Dreams. Ariana Grande - Boyfriend (ft. Social House).

Morgunútvarpið
14. okt. - Ragga nagli, fjölmenning, ljósmyndir, vellíðan og íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 14, 2019

Hinseginleikinn
Hinsegin barneignir - Hanna Katrín Friðriksson og Ragnhildur Sverrisdó

Hinseginleikinn

Play Episode Listen Later Sep 3, 2019

Með miklum breytingum á löggjöf undanfarna áratugi hefur það orðið mun auðveldara fyrir hinsegin fólk að eignast börn. Fyrir þessar miklu breytingar gat samkynja par hins vegar ekki eignast barn saman hér á landi. Þetta þekkja hjónin Hanna Katrín Friðriksson og Ragnhildur Sverrisdóttir sem fluttu af landi brott fyrir um 20 árum til að freista þess að búa til barn. Í þættinum spjallar Ingileif við þær hjón um ferðalag þeirra í þá átt að búa til fjölskyldu, sem ekki var alltaf auðvelt. Þátturinn er sá sjötti og síðasti í sex þátta hlaðvarpsseríu um hinseginleikann, sem gefin er út í tilefni 50 ára afmælis Stonewall-uppþotanna í New York og 20 ára afmælis Hinsegin daga á Íslandi. Þáttastjórnandi: Ingileif Friðriksdóttir

Segðu mér
Ragnhildur Sverrisdóttir stjórnarmaður í hinsegin dögum

Segðu mér

Play Episode Listen Later Aug 12, 2019 40:00

Ragnhildur segist hafa verið bólusett fyrir pólitík fyrir lífstíð, en faðir hennar Sverrir Hermannsson var þingmaður og ráðherra. Hún segir frá heimilislífinu á æskuheimili sínu, en segir brosandi frá því að í dag er hún gift þingmanni, en kona hennar Hanna Katrín Friðriksdóttir situr á þingi. Ragnhildur rifjar upp þann tíma þegar hún kom út úr skápnum og segir brosandi að hún hafi haldið að hún væri eina lesbían á landinu. Hún talar um mikilvægi þess að hafa góðar fyrirmyndir í tengslum við baráttu hinsegin fólks.

Segðu mér
Ragnhildur Sverrisdóttir stjórnarmaður í hinsegin dögum

Segðu mér

Play Episode Listen Later Aug 12, 2019

Ragnhildur segist hafa verið bólusett fyrir pólitík fyrir lífstíð, en faðir hennar Sverrir Hermannsson var þingmaður og ráðherra. Hún segir frá heimilislífinu á æskuheimili sínu, en segir brosandi frá því að í dag er hún gift þingmanni, en kona hennar Hanna Katrín Friðriksdóttir situr á þingi. Ragnhildur rifjar upp þann tíma þegar hún kom út úr skápnum og segir brosandi að hún hafi haldið að hún væri eina lesbían á landinu. Hún talar um mikilvægi þess að hafa góðar fyrirmyndir í tengslum við baráttu hinsegin fólks.

Fram og til baka
Fram og til baka 23. júní 2019

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jun 23, 2019

Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - Sumar og sól með Ómari Ragnarssyni Fimman - Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi. Ragnhildur rifjaði upp fimm skemmtileg atvik frá tímanum sem hún var blaðamaður á Morgunblaðinu Felix hringdi í Áskel Heiðar Ásgeirsson á Sauðárkróki og heyrði af Sögusetrinu nýja Meðmæli með sumarbókum.

Fram og til baka
Fram og til baka 23. júní 2019

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jun 23, 2019 114:00

Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - Sumar og sól með Ómari Ragnarssyni Fimman - Ragnhildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi. Ragnhildur rifjaði upp fimm skemmtileg atvik frá tímanum sem hún var blaðamaður á Morgunblaðinu Felix hringdi í Áskel Heiðar Ásgeirsson á Sauðárkróki og heyrði af Sögusetrinu nýja Meðmæli með sumarbókum.

Lifum lengur
#5 Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur (Ragga nagli)- Óheilbrigðar matarvenjur og skammtastærðir.

Lifum lengur

Play Episode Listen Later May 10, 2019 67:59

Vissir þú að ef fólk borðar af minni diski þá borðar það 25% minna samkvæmt rannsóknum? Getur verið að við borðum of stóra matarskammta í hugsunarleysi? Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur eða Ragga nagli eins og flestir þekkja hana hefur mikið talað fyrir næringu í núvitund (mindful eating)og unnið með fjölda einstaklinga sem eru með óheilbrigðar matarvenjur. Hún hefur sérhæft sig í þessum fræðum og segir mikilvægt að við lærum að borða mat á meðvitaðan hátt og að við gefum okkur góðan tíma til að borða í stað þess að gleypa í okkur matinn á methraða. Hún segir líka að uppeldið geti mótað matarvenjur okkar og valdið því að við eigum í óeðlilegu sambandi við mat á fullorðinsárum. Ragnhildur ræðir við Helgu Arnardóttur þáttastjórnanda Lifum lengur og gefur hlustendum góð ráð um heilbrigðari matarvenjur og bendir á öðruvísi leiðir til að njóta matarins á meðvitaðan og eðlilegan hátt. Eldum rétt styður gerð hlaðvarpsins Lifum lengur. Hægt er að panta matarpakka á www.eldumrett.is Netfang: eldumrett@eldumrett.is Afgreiðsla: Nýbýlavegur 16, 200 Kópavogur Sími: 571-1855

Mannlegi þátturinn
Ragnhildur álfkona,Rækjuvinnslan á Hólmavík og Erla Skúladóttir í New

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 23, 2019 55:36

MANNLEGI ÞÁTTURINN ÞRIÐJUDAGUR 23.APRÍL 2019 UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG MARGRÉT BLÖNDAL Undanfarnar vikur hafa verið annasamar hjá Ragnhildi Jónsdóttur myndlistarkonu - sem kannski er betra að titla sem álfakonu eða jafnvel bara álfkonu. Ragnhildur er nýkomin heim af kvikmyndahátíð í San Francisco þar sem hún tók á móti Golden Gate verðlaunum fyrir bestu heimildarmyndina. Mynd sem heitir the Seer and the unseen sem mætti kannski þýða sem Sjáandinn og hið óséða. Ragnhildur kemur til okkar eftir nokkrar mínútur og segir okkur frekar frá myndinni, ævintýralegu ferðalagi til Bandaríkjanna og ef til vill fáeinar fréttir af stöðu mála í hulduheimum. Rækjuvinnslan Hólmadrangur á Hólmavík er ein fullkomnasta rækjuvinnsla á landinu. Sigurbjörn Úlfarson er nýtekinn við framkvæmdastjórastöðu þar og þótt nokkrir erfiðleikar hafi verið í rekstrinum lítur Sigurbjörn framtíðina björtum augum. KE hitti Sigurbjörn og ræddi við hann um verksmiðjuna og fékk að fylgjast með vinnslunni Erla Skúladóttir leikkona og kvikmyndagerðarkona hefur búið í New York í 30 ár og haslað sér völl þar sem og hér á landi, í kvikmyndagerðinni og hún er einnig ein af handritshöfundum að nýrri sjónvarpsþáttaröð sem fer í loftið í haust. Mannlegi þátturinn hitti Erlu á kaffihúsi á Manhattan í New York og spurði út í verkefnin og einnig útí lífið í stórborginni.

Vikulokin
Ármann, Drífa, Jón og Ragnhildur

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 30, 2019 55:00

Gestir þáttarins voru Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, Drífa Snædal, forseti ASÍ, Jón Kaldal blaðamaður og Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Novator. Rætt var um gjaldþrot Wow, afleiðingar þess og viðbrögð við því, fjármálaáætlun og kjarasamninga.

Vikulokin
Ármann, Drífa, Jón og Ragnhildur

Vikulokin

Play Episode Listen Later Mar 30, 2019

Gestir þáttarins voru Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, Drífa Snædal, forseti ASÍ, Jón Kaldal blaðamaður og Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Novator. Rætt var um gjaldþrot Wow, afleiðingar þess og viðbrögð við því, fjármálaáætlun og kjarasamninga.

Morgunútvarpið
Ragga nagli, Breiðdalsvík, fréttaspjall og hégómavísindni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 25, 2019 130:00

Ragnhildur Þórðardóttir, Ragga nagli, er þekkt fyrir fræðslu sína um heilsu og hún virkar orkan uppmáluð. En jafnvel Ragga nagli lendir stundum á vegg og fyrir skemmstu ritaði hún pistil þar sem hún sagði frá síþreytu, kvíða og streitu sem herjað hefur á hana. Ragga er á landinu um þessar mundir og hún kíkti til okkar í morgunkaffi og ræddi m.a. streitustjórnun. Breiðdalsvík útskrifaðist nýverið úr verkefninu Brothættar byggðir sem er átaksverkefni Byggðastofnunar fyrir samfélög á landsbyggðinni sem orðið hafa fyrir áföllum í atvinnulífi og fólksfækkun. Verkefnið hófst árið 2013 og síðan þá hefur ýmislegt gerst á Breiðdalsvík. Hvort heldur sem er útgerð, fiskvinnsla, brugghús, ferðaþjónusta eða sú staðreynd að í fyrsta skipti í langan tíma hafi börnum í fyrstu árgangum grunnskóla fjölgað. Íbúar virðast ánægðir með hvernig til hefur tekist og við slógum á þráðinn til eins þeirra, Elíss Péturs Elísson, sem er uppalinn Breiðdælingur sem flutti aftur heim fyrir fimm árum og hefur ásamt sveitungum sínum farið á fullt í að snúa vörn í sókn. Við ræddum fréttir vikunnar og helstu atburði við þau Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans og Eyrúnu Magnúsdóttur, ritstjóra SunnudagsMoggans. Freyr Gígja Gunnarsson mætti svo ferskur með fréttir frá Hollywood í hégómavísindahorninu. Tónlist: Ragnhildur Gísladóttir - Velkomin þorri. Kalli Tomm - Auðnuspor. Madness - Never knew your name. Ian Brown - First world problems. Vök - Spend the love. U2 - I still haven't found what I'm looking for. Bee Gees - You should be dancing.

Segðu mér
Ragnhildur Vigfúsdóttir markþjálfi

Segðu mér

Play Episode Listen Later Jan 15, 2019 40:00

Ragnhildir vinnur sem markþjálfi í dag og segir í þættinum frá því hvernig hægt sé að hanna lífið sitt upp á nýtt.

Þegar ég verð stór
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir - Aðstoðardagskrástjóri RÚV

Þegar ég verð stór

Play Episode Listen Later Dec 26, 2018 55:13

Okkar annar viðmælandi er fjölmiðlakonan og aðstoðardagskrástjóri RÚV Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Þátturinn er unnin í samstarfi við Útvarp101.

Sunnudagssögur
Kristján Gíslason og Ragnhildur Ágústsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Nov 4, 2018 135:00

Kristján Gíslason sagði frá uppvextinum í Reykjavík, árunum í MH, skiptinemaárinu í Bandaríkjunum og því þegar hann kynntist konunni sinni. Hann starfaði hjá SÍS um árabil í tölvuþjónustu og rak síðan fjölskyldufyrirtæki um árabil en ákvað að selja fyrirtækið 2006 til þess að einfalda lífið og njóta meira. Hann hefur ferðast víða og nú hefur hann sent frá sér bók um mótorhjólaævintýri en hann fór í heimsreisu einn síns liðs og ný heimildarmynd um ferðalagið verður sýnd á ruv í lok mánaðar og bókin Hringfarinn er nýkomin út. Allur ágóði bókarinnar rennur í sérstakan stjóð sem stofnaður hefur verið til að styrkja forvarnir í fíknefnamálefnum. Ragnhildur Ágústsdóttir sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði og Danmörku, árunum í Versló og spennandi störfum í fjarskiptageiranum. Hann sagði frá strákunum sínum en tveir eldri drengirnir eru báðir með einhverfu en Ragnhildur hefur verið í forsvari samtaka sem vinna að aukinni umræðu um einhverfu til að upplýsa og fræða. Hún sagði frá nýjasta verkefni fjölskyldunnar en það er lítill drengur 6 mánaða og sýningin the icelandic lava show í Vík í Mýrdal sem er eldgosasýning af bestu gerð.

Sunnudagssögur
Kristján Gíslason og Ragnhildur Ágústsdóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later Nov 4, 2018

Mundial Quesadilla
Grupo D - Islândia (por Midnight)

Mundial Quesadilla

Play Episode Listen Later Jun 7, 2018

Mundial QuesadillaA copa do mundo musical do DJ QuesadillaConvidado: MidnightGrupo D - IslândiaOlga Guðrún Árnadóttir - Drullum SullMegas - BjörgÞú Ég - Í ReykjavíkurborgBjörgvin og Ragnhildur - Ég gef þér allt mitt lífJakob Magnusson - Meet Me After Midnight

R1918
Skrifaðu nú meira sjálf

R1918

Play Episode Listen Later Mar 5, 2018

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Björg Kristjana Sigurðardóttir stjórnmálafræðingur starfar sem þjónustufulltrúi í Reykjavík. Í þessum þætti les hún úr bréfi Ragnhildar Pétursdóttur til Halldóru Bjarnadóttur. Ragnhildur var þjóðkunn húsfreyja og kvenskörungur og hafði um áratugaskeið mikil afskipti af menningarmálum kvenna. Hún var meðal stofnenda Húsmæðraskóla Reykjavíkur og var í stjórn hans í mörg ár. Einnig var hún formaður Kvenfélagasambands Íslands og Hins íslenska kvenfélags sem og ein af stofnendum Bandalags kvenna í Reykjavík og varamaður í bæjarstjórn Reykjavíkur á árunum 1934-1942. Hún hélt einnig um árabil kúabú í Háteigi sem þá var fyrir utan bæinn. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Morgunútvarpið
Morgunútvarpið 29.janúar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jan 29, 2018 190:00

Háskólanemar eru, eins og allir vita, oftar en ekki undir miklu álagi. Nú hefur verið gerð stór rannsókn á geðheilsu háskólanema hér á landi en niðurstöður hennar verða kynntar síðar í dag á Geðheilbrigðisdögum Háskólans í Reykjavík. Hingað koma Andri Hauksteinn Oddsson og Halldóra Björg Rafnsdóttir, sálfræðingar, og segja okkur frá helstu niðurstöðum rannsóknarinnar. Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur og þjálfari, sem þekktust er sem Ragga nagli, hefur vakið athygli með skororðum pistlum sínum um þjálfun og mataræði. Hún talar gegn boðum og bönnum og hvetur fólk til þess að neyta matar í núvitund. Hún kemur í heimsókn. Við þreytumst auðvitað aldrei á því að ræða það þegar Íslendingum gengur vel í Hollywood. Eggert Ketilsson, leikmynda- og tæknibrelluhönnuður er tilnefndur til Óskarsins fyrir leikmyndina í Dunkirk, stríðsmyndinni sem fær hvorki meira né minna en 8 tilnefningar í ár. Eggert sá meðal annars um listræna stjórnun kvikmyndarinnar og framkvæmd við gerð flókinnar leikmyndar. Við hringjum vestur til Los Angeles og spjöllum smá við Eggert um tilnefninguna til þessara risastóru verðlauna. Grunur leikur á að fimm hafi látist hér á landi það sem af er árinu vegna ofneyslu fíkniefna. Í fyrra létust 32 undir fertugu, 14 þeirra voru undir þrítugu. Þessi aukna dánartíðni er rakin til aukinnar notkunar sterkra ópíóíða lyfja, líkt og Oxycontin, Contalgin og Fentanyl. Birgir Örn Guðjónsson, sem betur er þekktur sem Biggi lögga, vakti athygli á þessu þjóðarmeini í pistli á Facebook um helgina. Hann kemur til okkar. Íþróttafréttamaður fer yfir viðburði helgarinnar. Anna Sigríður Þráinsdóttir fjallar um íslenskt mál