POPULARITY
Afmælisdagur Vigdísar Finnbogadóttur, frumflutningur á nýju lagiu frá Daða Frey. Amor Vincit Omnia á plötu vikunnar. Lagalisti: GDRN - Þú sagðir. BAGGALÚTUR - Vigdís Finnbogadóttir. DAVID BOWIE - Modern Love. Dacus, Lucy - Ankles. PROPELLERHEADS & SHIRLEY BASSEY - History Repeating. Amor Vincit Omnia - Eina. KENNY LOGGINS - Footloose. UNUN - Lög Unga Fólsins. TAME IMPALA - No Choice. Suede - Beautiful ones. Young, Lola - Conceited. EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON - Norðurljós. PRINS PÓLÓ - Bragðarefur. CeaseTone - Only Getting Started. MACY GRAY - I Try. Bridges, Leon - Laredo. TODMOBILE - Tryllt. Ásdís - Touch Me. MARK RONSON feat. ALEX GREENWALD - Just. BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Dagar Og Nætur. Daði Freyr Pétursson - I don't wanna talk. JAIN - Makeba. MIRIAM MAKEBA - Pata Pata. Combs, Luke - Fast car. Womack, Bobby - Across 110th street. Retro Stefson - Velvakandasveinn. RAKEL OG KÁRI - I don't know who you are. XXX ROTTWEILER HUNDAR - Negla. Haim hljómsveit - Relationships. Vinir vors og blóma - Frjáls. Self Esteem - If Not Now, It's Soon. My Morning Jacket - Time Waited. ENSÍMI - Atari. JÓNAS SIG - Hamingjan er hér. HJALTALÍN - Love from 99. JóiPé & Króli - Í átt að tunglinu. Amor Vincit Omnia - Do You. Empire of the sun - Walking On A Dream. ROSE ROYCE - Car Wash. Þórhallur Sigurðsson, Edda Björgvinsdóttir - Vesturbæjarlaugin. AZEALIA BANKS - 212. Mono Town - The Wolf. Shaboozey - A Bar Song (Tipsy). GNARLS BARKELY - Going On. FAT BOY SLIM - Praise You. NÝDÖNSK & SVANHILDUR JAKOBSDÓTTIR - Á sama tíma að ári.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri, leikkona handritshöfundur og framleiðandi. Hún er annar leikstjóra sjónvarpsþáttanna um Vigdísi Finnbogadóttur, hún gerði kvikmyndina Skjálfta upp úr bók Auðar Jónsdóttur, hún leikstýrði sjónvarpsþáttunum Heima er best auk þess að skrifa handritið ásamt tveimur öðrum og hún hefur leikið í fjölda verkefna á sviði og fyrir framan myndavélina. Við fórum með Tinnu aftur í tímann, á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, sem auðvitað var á sínum stað í dag eins og aðra föstudaga. Í dag er bóndadagur, fyrsti dagur í þorra, og það er þorramaturinn sem verður umræðuefnið í dag. Íslenski þorramaturinn komst á alþjóðlegan lista sem er ekki endilega listinn til að vera á, sem við skoðuðum aðeins. Sviðakjammi, sviðasulta, rófustappa, súrir hrútspungar og allt þetta góðgæti sem við elskum en vekja jafnvel furðu hjá öðrum þjóðum. Tónlist í þættinum: Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundsson og Memfismafían (Helgi Svavar Helgason, texti Bragi Valdimar Skúlason) Af því að pabbi vildi það / Jonee Jonee (Jonee Jonee) Morning has Broken / Cat Stevens (Cat Stevens & Eleanor Farjeon) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við minnumst eins áhrifamesta kvikmyndaleikstjóra samtímans David Lynch í þætti dagsins, en hannlést í lok síðustu viku, rétt fyrir 79 ára afmælisdaginn sinn - sem er í dag. Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, sest um borð í Lestina og segir frá vini sínum og samstarfsmanni. Í gær fór í loftið síðasti þáttur af nýrri leikinni sjónvarpsþáttaröð frá Vesturporti sem byggir á ævi Vigdísar Finnbogadóttur. Eins og allir aðrir horfði Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, og flytur okkur pistil um Vigdísarþættina. Í dag leikur Ísland sinn þriðja leik á heimsmeistaramótinu í handbolta karla, við Slóveníu. Ísland vann tvo fyrstu leikina örugglega og ríkir því mikil bjartsýni um gengi liðsins á mótinu. Fyrir þrjátíu árum síðan ríkti líka mikil bjartsýni og stórhugur meðal íslenskra handboltaunnenda, en þá, árið 1995 hélt Ísland einmitt heimsmeistaramótið í handbolta - fyrsta og eina skiptið sem Ísland hefur haldið stórmót í boltaíþrótt. Að þessu tilefni ætlum við að endurflytja örseriuna “Þegar Ísland hélt stórmót” sem við Kristján og Anna Marsibil Clausen gerðum í Lestinni fyrir nokkrum árum um þetta sögulega mót - mót sem var mjög umdeilt á sínum tima, og er það kannski enn.
Í dag fjöllum við um vatn eina dýrmætustu auðlind Íslands. Þekking okkar á ástandi vatns er takmörkuð og ásókn í það eykst stöðugt. Umhverfis- og orkustofnun hlaut á dögunum 3,5 milljarða styrk frá Evrópusambandinu til að koma betra skikki á vatnamál á Íslandi, fráveitukerfi Ísafjarðarbæjar og tjörnin í Reykjavík eru á meðal þess sem nýtur góðs af. Við ræðum þetta við Hólmfríði Þorsteinsdóttur sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun. Hvernig höldum við ráðherrum ábyrgum ef þeir brjóta af sér í starfi? Tilheyra ráðherra elítuhópi sem verður aldrei sóttur til saka vegna brota í embætti? Að mati Hauks Loga Karlssonar, dósents í lögfræði við Háskólann á Birföst, er núverandi kerfi til að halda ráðherrum ábyrgum ómarkvisst, og jafnvel ógagnlegt. Aðeins einu sinni hefur ráðherra verið sóttur til saka vegna meintra brota í embætti, sem endaði ekki betur en svo að ferlið var kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Pétur Magnússon ræddi við Hauk Loga um refsiábyrgð ráðherra og hinn sérkennilega Landsdóm. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, færir okkur gersemar úr safninu. Að þessu sinni rifjar hún leiðsögumannastörf Vigdísar Finnbogadóttur. Tónlist í þættinum: ÁSGEIR TRAUSTI - Lifandi Vatnið. Bright Eyes - Shell games
In this thought-provoking episode of The Chris Abraham Show, Chris and co-host ChatGPT delve into the multifaceted themes of identity, leadership, and cultural belonging. The conversation examines the paths women take to leadership across different political systems, the challenges minority communities face in the U.S., and the broader implications of self-segregation, assimilation, and cultural pride. Chris brings his unique perspective to a dynamic dialogue that blends historical insights, theoretical scenarios, and personal reflections. This episode explores the intersection of leadership, identity, and cultural preservation. Starting with an analysis of how women rise to power in U.S. presidential and parliamentary systems, Chris and ChatGPT discuss the implications of cultural biases and systemic barriers. The discussion transitions into an alternate history where the U.S. adopts a parliamentary system, imagining which women might have risen to power under such a framework. Finally, the conversation shifts to a fictional scenario exploring self-contained communities, the challenges of cultural preservation, and the dynamics of respect, integration, and identity. Listeners are invited to reflect on how these themes shape modern society and their implications for the future. Women Leaders and Leadership Systems: How political systems influence the paths women take to leadership. Examples like Angela Merkel (Germany) and Vigdís Finnbogadóttir (Iceland). Speculation on whether the first U.S. woman president will be conservative. Alternate History and Imagined Leadership: Hypothetical U.S. parliamentary system and potential female leaders: Abigail Adams, Eleanor Roosevelt, Shirley Chisholm, Condoleezza Rice, and Hillary Clinton. Examination of cultural biases in direct elections. Cultural Separation and Community Dynamics: The concept of self-segregation and its parallels to apartheid. Examples of thriving insular communities like the Amish and Hasidic Jews. The challenges of maintaining economic independence and intellectual sustainability. Language, Identity, and Opportunity: The impact of code-switching and patois on ADOS (American Descendants of Slavery) communities. Potential barriers created by cultural distinctiveness. Wakanda as a limited role model for ADOS people. Respect and Validation: The risks of mandated respect and the importance of genuine connection. How cultural pride and internal validation can mitigate external prejudice. Q: What inspired the discussion about women leaders? A: Chris's interest in contrasting U.S. presidential systems with parliamentary systems prompted a discussion about systemic barriers and cultural biases that affect women's paths to leadership. Q: What is ADOS, and why is it significant to the discussion? A: ADOS stands for American Descendants of Slavery. It's significant because the episode explores how this distinct cultural group navigates identity, community, and systemic challenges in the U.S. Q: Why was Wakanda mentioned? A: Wakanda was analyzed as a cultural symbol that, while inspiring, doesn't fully represent the lived experience of ADOS people in America. Q: What is the significance of code-switching in this discussion? A: Code-switching was discussed as a skill that enables cultural adaptability but can also create barriers for those unable to navigate between different cultural norms. ADOS: American Descendants of Slavery, a term used to describe Black Americans who are descendants of enslaved Africans in the United States. Code-Switching: The practice of alternating between different languages, dialects, or cultural behaviors depending on the social context. Self-Segregation: The voluntary separation of a community from the dominant culture to preserve identity and autonomy. Cultural Patois: A dialect or language variation that is distinct to a particular cultural group. Brain Drain: The emigration of highly skilled or educated individuals from a community or country. --- Support this podcast: https://podcasters.spotify.com/pod/show/chrisabraham/support
On an expedition to Madagascar, Matjaž Gregorič and his research team came upon a damaged termite nest that had a few other invertebrate visitors. When they experimentally damaged the nest again, they found two unexpected things: spiders ballooning in to prey on the termites as they rebuilt, and hopeful ants standing by to steal termites from those spiders. It created what the authors called “a perilous Malagasy triad”, a three-way predator-prey-kleptoparasite interaction that tells a very interesting story about chemical signaling and arthropod behavior. As a bonus, they identified the spider involved as a brand new genus and species, named Vigdisia praesidens to honor Vigdís Finnbogadóttir, Iceland's first female president. Listen in as researcher Matjaž Gregorič gives us the full story, as well as his thoughts on why it's important to pursue science for science's sake. Matjaž Gregorič's paper “A perilous Malagasy triad: a spider (Vigdisia praesidens, gen. and sp. nov.) and an ant compete for termite food” is in the July 14th issue of New Zealand Journal of Zoology. It can be found here: https://doi.org/10.1080/03014223.2024.2373185 A transcript of this episode can be found here: Matjaž Gregorič - Transcript New Species: Vigdisia praesidens More on Vigdís Finnbogadóttir, the world's first democratically-elected female president (Iceland, 1980-1996): https://www.councilwomenworldleaders.org/vigdiacutes-finnbogadoacutettir.html An article about this paper: https://www.icelandreview.com/news/new-spider-species-named-after-icelandic-president/ Videos of the kleptoparasitic behavior: https://www.youtube.com/@ezlab7631/videos Episode image credit: Matjaž Gregorič Be sure to follow New Species on Twitter (@PodcastSpecies) and Instagram (@NewSpeciesPodcast) and like the podcast page on Facebook (www.facebook.com/NewSpeciesPodcast) Music in this podcast is "No More (Instrumental)," by HaTom (https://fanlink.to/HaTom) If you have questions or feedback about this podcast, please e-mail us at NewSpeciesPodcast@gmail.com If you would like to support this podcast, please consider doing so at https://www.patreon.com/NewSpeciesPod
Bonnie continues Scandinavian Gal Month with the first woman in the world to be democratically elected as president. Learn about Vigdís Finnbogadóttir the president of Iceland from 1980-1996.
Ísland er stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu, hér fara fram heræfingar og íslenskir ríkisstarfsmenn starfrækja loftvarnarkerfi. Ísland telst engu að síður herlaust land - og fólk stærir sig oft af því á alþjóðavettvangi - en stenst það? Bjarni Már Magnússon, prófessor og deildarforseti lagadeildar háskólans á Bifröst, hefur undanfarið velt því fyrir sér hvort þetta sé allt saman nógu gagnsætt. Hefur ungt fólk aðgang að lýðræðislegri umræðu? Skiptir lýðræðisleg þátttaka ungs fólk bara máli í aðdraganda kosninga, þegar stjórnmálaflokkar vilja tékka í box og sækja atkvæði til að endurnýja umboð sitt? Við ræðum við Söru Þöll Finnbogadóttur, stjórnmálafræðing, sem var að gefa út handbók fyrir ungt fólk sem hefur meðal annars það markmið að skapa umræðu meðal ungs fólk um lýðræði og kosningar og hvernig ungt fólk getur haft áhrif í lýðræðissamfélagi. Edda Olgudóttir, vísindamiðlari, kemur til okkar í Vísindaspjall og verður á genafræðilegum nótum. Tónlist og stef: DOPAMINE MACHINE - Hanagal.
Við förum á Hverfisgötu þar sem Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar sýnir veggverk í Gallerí Undirgöngum. Verkið,sem hún kallar Eftirlits- og hagsmunaaðilar, varpar fram spurningum um opinbera fagurfræði, valdajafnvægi og manngerð kerfi með aðstoð tákna og lógóa. Við komum einnig við í Eddu og hittum þar fyrir þær Margréti Eggertsdóttur og Þórunni Sigurðardóttur, en þær unnu að útgáfu bókar sem kom út í sumar, Söngbók Séra Ólafs Jónssonar á Söndum. Ólafur var meðal vinsælustu skálda í sinni tíð, en hann var prestur í Dýrafirði um aldamótin 1600 og safnaði kveðskap sínum í eina bók sem kölluð er Kvæðabók. Í gærkvöldi hlaut íslenska messósópransöngkonan Arnheiður Eiríksdóttir verðlaun á stærstu óperuverðlaunahátíð heims, í flokknum "Rising Star" - eða rísandi stjarna. Við heyrum í Arnheiði í þætti dagsins.
Slovakia Today, English Language Current Affairs Programme from Slovak Radio
In this edition of the Slovakia Today programme, we introduce Sofia Zahova from the Vigdís Finnbogadóttir Institute of Foreign Languages at the University of Iceland. Sofia explains the intricacies of Romani literature not only on the Slovak literary scene, but abroad as well. A great part of Romani literature consists of "paramisa" - fairy tales. We invite you to listen to Melalo and Death, a fairy tale written by a famous Slovak-Romani writer and activist Elena Lacková.

Það er aldrei of seint að skella sér í nám og láta draumana rætast. Þetta eru skilaboð Andreu Margrétar Þorvaldsdóttur, sem er nýútskrifaður rafvirki frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Andrea er nýorðin fimmtug og er þessa vikuna að klára sveinspróf en hún er búin með þrjú próf af fimm. Á unglingsárum ýjaði kennari að því að hún gæti einfaldlega ekki lært stærðfræði og það kom í veg fyrir að hún færi í frekara nám á yngri árum. Við töluðum við Andreu í þættinum í dag. Móðurmál – samtök um tvítyngi á þrjátíu ára afmæli í ár. Móðurmál er hagsmuna- og regnhlífasamtök sem styðja við og halda utan um móðurmálskennslu á höfuðborgarsvæðinu. Markmið samtakanna er að styðja við móðurmálshópa og móðurmálskennara, að vinna með foreldrum fjöltyngdra barna að því að skapa börnunum tækifæri til að læra móðurmál sín og þannig styðja við virkt fjöltyngi í samfélaginu. Frú Vigdís Finnbogadóttir er verndari samtakanna. Oksana Shabatura, stjórnarkona og Þórður Arnar Árnason, verkefnastjóri hjá Móðurmáli, komu í þáttinn í dag og sögðu okkur frá samtökunum, starfseminni og afmælinu. Við fengum svo að lokum póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús segist vera kominn með opinbera staðfestingu á því að vera nú orðinn eyjamaður. Vandi fylgir vegsemd hverri og hann lenti strax í deilum við fólk af fasta landinu um ýmislegt sem gengur á í Vestmannaeyjum. Hann segir líka frá þeirri sektarkennd sem fylgir því að horfa á hnefaleika í sjónvarpinu. Í lokin fjallar hann aðeins um hvernig Saudi Arabía er að reyna að laga vonda ímynd sína í veröldinni með því að kaupa viðburði og afburða íþróttamenn. Tónlist í þættinum í dag: Nýfallið regn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Sjóddu frekar egg / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Danska lagið / Bítlavinafélagið (Eyjólfur Kristjánsson) Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Hvað varð til þess að Vigdís Finnbogadóttir varð fyrsta konan í heiminum til að verða kjörin þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum? Þessari spurningu leitast sýningin Ljáðu mér vængi í Loftskeytastöðinni við að svara, auk þess að varpa ljósi á ævi og störf Vigdísar. Við sækjum sýninguna heim og ræðum við Maríu Theódóru Ólafsdóttur forstöðumann Loftskeitastöðvarinnar. Auk þess verður rætt við Snædísi Björnsdóttur en hún birti á dögunum grein í Tímariti máls og menningar þar sem hún skoðar helstu stef og stefnur innan danskra samtímabókmennta, en þar eru nornir og sögulegur skáldskapur í brennidepli.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri. Hann útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2001. Hann hefur sett upp fjölda leiksýninga á Íslandi og erlendis, sem höfundur og leikstjóri og hefur leikið á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hann hefur starfað við fjölda virtra leikhúsa á Íslandi, í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og víðar. Hann leikstýrir Frosti í Þjóðleikhúsinu í vetur og í haust verður sýningin vinsæla Ellý tekin aftur til sýninga í Borgarleikhúsinu. Meðal leikstjórnarverkefna hans eru einminn Ellý, Jólaboðið, Fólk, staðir og hlutir, Ofviðrið, Óþelló, Í hjarta Hróa hattar, Hamskiptin, Faust, Woyzeck og Rómeó og Júlía. Hann er einn af stofnendum Vesturports. Hann hefur tvívegis hlotið Edduverðlaunin sem leikari og hefur unnið til alþjóðlegra leiklistarverðlauna fyrir leikstjórn. Hann er einn af leikstjórum sjónvarpsþáttaraðarinnar Verbúðarinnar, auk þess sem hann er einn af leikurum, handritshöfundum og framleiðendum þáttanna og nú standa yfir tökur á sjónvarpsþáttum um Vigdísi Finnbogadóttur sem verða sýndir á næsta ári í sjónvarpinu. Við fórum með Gísla á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag með viðkomu í Noregi, Hlíðunum, fimleikum og miklu víðar. Og í matarspjalli dagsins var saffran, kryddið dýra, í aðalhlutverki og við fengum dýrindisuppskrift af risarækjum í saffrankryddi og tagliatelle. Og sú uppskrift kom ekki frá Sigurlaugu heldur úr smiðju Gunnars Hanssonar. Tónlist í þættinum í dag: Vorið er komið / Gísli Rúnar Jónsson (Hallbjörg Bjarnadóttir, texti Jón Thoroddsen) Allt mitt líf / Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Umberto Bindi, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Summer / Greg Hildreth (Kristen Anderson, Lopez & Robert Lopez) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Á dögunum kom út bókin Parísardepurð; stutt ljóð í lausu máli eftir Charles Baudelaire í fyrsta sinn í íslenskri þýðingu. Þýðandi er Ásdís Rósa Magnúsdóttir Prófessor í frönsku máli og bókmenntum en ritstjóri er Kristín Guðrún Jónsdóttir og er bókin hluti af ritröð þýðinga sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir. Við ræðu við Ásdísi Rósu um bókina í þættinum. Þorleifur Sigurlásson, tónlistarmaður, hefur verið að skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif, bæði á stöðum sem þær spretta fram sem og annarsstaðar í heiminum. Að þessu sinni ferðast hann til Zambíu ársins 1964. Við höldum áfram að rifja upp umfjallanir Jóhannesar Ólafssonar um fugla frá árinu 2018. Að þessu sinni sest hann niður með Ragnari Helga Ólafssyni, rithöfundi og skáldi og ræðir við hann, meðal annars, um fugla-athuganir í Flatey.
Heiða Björg Hilmisdóttir og Íris Róbertsdóttir voru gestir Morgunvaktinnar í dag. Þær sátu í allan gærdag Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga og halda áfram fundarsetum í dag því þá munu sveitarfélög á köldum svæðum á landinu funda um orkumálin. Þó hart hafi verið tekist á um kjarasamningsmál í gær var líka rætt um hamfarir og viðbrögð sveitarfélaganna við þeim. Við ræddum málefni sveitarfélaganna upp úr klukkan hálf átta. Ferðamálin voru líka til umræðu í þætti dagsins. Hugmyndir um að selja flugstöðina í Keflavík koma reglulega upp, eins og Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, ræddi. Hann fór líka yfir breytingar í bókunum á gististöðum og um breytingar á ferðaþjónustu í Kína. Gamla loftskeytastöðin við Suðurgötu í Reykjavík hefur fengið nýtt hlutverk, því síðar í dag opnar þar sýning um ævi og áhrif Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Sigrún Alba Sigurðardóttir sýningarstjóri og sýningarhönnuður, kemur til okkar í síðasta hluta þáttarins og segir okkur frá. Tónlist: Cooke, Sam - Bring it on home to me. Cooke, Sam - Forever. Merrill, Helen, Clark, Jean-Francois Jenny, Humair, Daniel, Kuhn, Joachim, Getz, Stan - Yesterdays. Dickow, Tina - Lykken er....
Artist and project manager of the Icelandic Art Prize Tinna Guðmundsdóttir joins us to discuss the nominations for the 2024 Icelandic Art Prize. In this overview episode, we detour from our usual format, and take some time to review the artists, and the exhibitions, that are nominated for the Prize's two main award categories; Artist of the Year & Motivational Award. The Icelandic Art Prize awards, including the Artist of the Year award, the Motivational Award, Publication of the Year, Group exhibition of the Year and Honorary Artist of the Year, annually award outstanding visual artists, as well as encouraging new artistic creations, and recognizing significant contributions made to the field of contemporary art over the year. The award ceremony will be held on March 14 at Iðnó, where the Icelandic Love Corporation and artist Pola Sutryck will contribute to the evening's festivities. The nominees for the two award categories are: Artist of the Year Nominations Amanda Riffo - House of Purkinje at the Living Art Museum Arnar Ásgeirsson - Cleaning Methods at the Neskirkja Church Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar - Index at Ásmundarsalur Ólöf Nordal - Blird at Ásmundarsalur @olof_nordal Motivational Award Nominations Almar Steinn Almarsson - Almar in the Tent at Svavar Guðnason Art Museum Brák Jónsdóttir - Possible Oddkin at the Nordic House Sara Björg Bjarnadóttir - Two infinities betwen 1 and 3 at Akureyri Art Museum // Created and produced by the Icelandic Art Center, Out There brings co-hosts Becky Forsythe @beforsythe and Þórhildur Tinna Sigurðardóttir @tindilfaetta in conversation with artists, curators and art professionals.
In October 1975, 90% of women in Iceland took part in a nationwide protest over inequality.Factories and banks were forced to close and men were left holding the children as 25,000 women took to the streets.In 2015, Vigdís Finnbogadóttir, later Iceland's first female president, told Kirstie Brewer about the impact of that day.(Photo: Women take to the streets. Credit: The Icelandic Women's History Archives)
Í mars byrja upptökur á nýrri sjónvarpsþáttaröð um Vigdísi Finnbogadóttur. Rakel Garðarsdóttir, einn framleiðenda þáttanna, kom í þáttinn í dag og við forvitnuðumst um þættina og líka það að þau eru nú að auglýsa eftir gömlum fötum, hlutum og munum frá tímabilinu 1948 til 1980. Þau eru sem sagt að biðja fólkið í landinu um að kíkja í geymslurnar sínar og ef þau eiga föt eða muni sem eru einkennandi fyrir það tímabil sem þættirnir gerast á og eru tilbúin að lána eða gefa í framleiðsluna. Rakel útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum. Útivistarkonan Valgerður Húnbogadóttir ákvað í haust ásamt fjölskyldu sinni að venda kvæði sínu í kross, segja bless við stressið í Reykjavík og prófa að búa í eitt ár á Akureyri. Eftir flutningana segir Valgerður að fjölskyldan hafi grætt nokkra klukkutíma á dag og komist á skíði nánast daglega. Valgerður sagði okkur betur frá þessum breytingum hér á eftir. Svo heyrðum við í Jóhönnu Vilhjálmsdóttur í heilsuspjallinu í dag. Hún talaði í dag um þær hugsanir sem koma upp t.d. um áramót og á tímamótum, þegar við ætlum mögulega að snúa taflinu við og gera átak í heilsunni og mataræði, að við gerum þær ekki í of miklum gassagangi, heldur stöldrum við og hlustum á líkama okkar. Jóhann útskýrði þetta betur fyrir okkur í spjallinu. Tónlist í þættinum í dag: Litla sæta ljúfan góða / Hljómsveit Ingimars Eydal (lag Thore Skogman, texti Valgeir Sigurðsson) Gling gló / Björk Guðmundsdóttir og tríó Guðmundar Ingólfssonar (Alfreð Clausen og Kristín Engilbertsdóttir) Theme From A Summer Place / Percy Faith Orchestra (Max Steiner) Days of Wine and Roses / Henry Mancini og hljómsveit (Johnny Mercer & Henri Mancini) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
Það styttist í leiðtogafund Evrópuráðsins - hann fer fram í Hörpu 16. til 17. maí næstkomandi og þá koma hingað um 900 erlendir gestir. Leiðtogum 46 ríkja er boðið og auk þeirra hefur fulltrúum frá áheyrnarríkjunum fimm, Bandaríkjunum, Páfagarði, Japan, Kanada og Mexíkó, verið boðið að taka þátt á fundinum. Þá hefur leiðtogum Sameinuðu Þjóðanna, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og Evrópusambandsins verið boðið, auk þess sem æðstu stjórnendur allra helstu stofnana Evrópuráðsins sækja fundinn. Öllu þessu fólki fylgir fjölmennt lið. Nokkur hundruð fjölmiðlamenn verða hér líka til að flytja fréttir af fundinum. Þessum fundi fylgir gríðarleg öryggisgæsla á skala sem við þekkjum ekki hér í okkar fámenna samfélagi. Undirbúningurinn er viðamikill og hvílir að stórum hluta á herðum Ríkislögreglustjóra, Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur. Hún verður gestur okkar rétt á eftir. Við ætlum svo að ræða um kolefnishlutleysi Íslands og þýðingu þeirrar vegferðar fyrir islenska náttúru - þetta er vandrataður stígur þar sem eitt má helst ekki vera á kostnað annars. Hingað kemur forstjóri Náttúrufræðistofnunar Eydís Líndal Finnbogadóttir og Snorri Sigurðsson sviðstjóri náttúruverndar hjá Náttúrufræðistofnun. Ruslarabb um límmiða, plástra og límband. Svo fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.

The new episode of Out There features the exhibition series The Wheel I - V, represented by Kristín Dagmar Jóhannesdóttir curator of “THE WHEEL V: All is Well”, the last and final iteration of the annual series, and Haraldur Jónsson visual artist and chairman of the exhibition committee of the Reykjavík Association of Sculptors. Becky and Tinna get to know the Association's origin story and past projects. More recently “All is Well” was selected as the Group Show of the Year at the Icelandic Art Prize. The final edition of The Wheel took place in postcodes 101, 102 and 107 in Reykjavík. Eight artists exhibited works in public space, all of whom are members of the Sculpture Association, and Swedish artist Ulrika Sparre, the exhibition's honorary international artist. Artists in The Wheel V included: Emma Heiðarsdóttir, Finnur Arnar, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Ragnheiður Gestsdóttir, Sean Patrick O'Brien, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Ulrika Sparre and Wiola Ujazdowska.
Ólöf Arnalds vinnur að gerð nýrrar plötu þessi dægrin, og er komin vel á veg með hana. Þetta verður fimmta plata Ólafar og mun hún hljóta titillinn Tár í morgunsárið. Síðustu tvær plötur Ólafar, sú síðasta kom út fyrir nær áratug, voru sungnar á ensku en nú, líkt og á hennar fyrstu plötum, syngur hún á íslensku og röddin verður í aðalhlutverki, ásamt gítar. Ólöf er komin vel á veg með plötuna en nú stendur yfir söfnun á Karolina fund til að klára hana, og hún verður með tónleika í vikunni. Meira um það í samtali við Ólöfu í þætti dagsins. Við ræðum einnig við Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur stundakennara við Háskóla Íslands. Hún tekur þátt í málþingi sem fram fer á morgun í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur vestur á svæði Háskóla Íslands. Yfirskriftin er Tráma - áhrif stríðs á menningu og samfélag en málþingið er haldið á vegum svokallaðs Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands. Sigrún segir okkur frá sögulegu rofi og úrvinnslu trámatískrar reynslu í listum og menningu. Ragnheiður Gyða Jónsdóttir heldur áfram að fjalla um forn verkföll í þætti dagsins. Í dag er hún með hugann við borgina eilífu Róm og fornar verkalýðs deilur þar fyrir margt löngu. En við byrjum á rödd úr safni Ríkisútvarpsins, mikilvægri rödd í íslensku tónlistarlífi sem nú er fallin frá. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir

Meg Matich is a poet and translator in Reykjavik. She earned her Master's of Fine Arts from Columbia University and has received support for her work from the Banff Centre, PEN America, and the Fulbright Commission, and she is a frequent collaborator with Reykjavik UNESCO and a friend of UNESCO Lviv. Meg is the author of the poetry chapbook COLD (2022 Eulalia Books). Among other projects, Meg has collaborated with poet Magnús Sigurðsson on an anthology of Icelandic poetry, translated a book of essays in honor of former President Vigdís Finnbogadóttir, and translated the 2021 novel Magma. Meg is one of a few immigrants in the Icelandic Writers' Union and considers that membership quintessential to her life in Iceland. Meg's Most Recent Book She Translated If you haven't already, I highly recommend listening to the podcast episode I did with the Auður Jónsdóttir, author of Quake. Questions I Asked Meg Matich During the Interview You were born and raised in the US, what inspired you to move to Iceland? What has your experience been like living in Iceland? You are poet, which is awesome. Where do you get ideas for your poetry? You have translated many poems, a book of essays in honor of the former president Vigdís Finnbgadóttir, and the book Magma, just to name a few. What is your process when you are translating? You are one of the few immigrants in the Icelandic Writer's Union. Was it difficult to get into? What advice do you have for people that want to be translators? What advice do you have for people who want to move to another country? What is your favorite Icelandic word or phrase? Meg Matich mentioned meeting Kári Stefánsson, an Icelandic pioneer in human genetics that I interviewed some years ago. Click here to listen to that fascinating interview with him. Share This Post Facebook Email Twitter Þakka þér kærlega fyrir að hlusta og sjáumst fljótlega Let's Be Social Youtube Tiktok Instagram Facebook
Við kynntum okkur Qigong fræðunum í dag. Það er eflaust mörgum í fersku minni hversu mikill talsmaður Qigongfræðanna Gunnar Eyjólfsson leikari var og frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, hefur stundað þessar æfingar í áratugi. Þorvaldur Ingi Jónsson, einn helsti kennari Qigong hér á landi, segir að æfingarnar hjálpi okkur að vera jákvæðari og glaðari. Þorvaldur kom í þáttinn í dag og við spurðum hann meðal annars um það hvort það væri einfalt að stunda Qigong. Við fengum í dag nýjan vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, skúffuskáldi og þjóðfræðiáhugamanni úr Flóanum. Vinkill dagsins fjallar um kartöflur í blíðu og stríðu. Og svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ragnar Jónasson rithöfundur, lögfræðingur og bankastarfsmaður. Hann hefur verið fastagestur á metsölulistum frá því hann gaf út sína fyrstu glæpasögu árið 2009. Síðan hafa bækur hans verið þýddar á 27 tungumál, gefnar út í 40 löndum og selst í næstum tveimur milljónum eintaka. Við fengum hann samt í dag til að segja okkur hvað hann sjálfur er að sjálfur og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum í dag: Það jafnast ekkert á við jazz / Stuðmenn (Jakob Frímann og Valgeir Guðjónsson) Lífið yrði dans / HLH flokkurinn (erl. lag - Þórhallur Sigurðsson) Stakir jakar á reki / Hljómsveit Ingimars Eydal (Finnur Eydal) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

In Episode 83, Laura Liswood, Secretary General of the Council of Women World Leaders, joins Melinda in a thoughtful discussion about how we can improve workplace diversity faster. They discuss tactics that help leaders address the roadblocks brought by the 'Elephant-Mouse' dynamic between dominant and non-dominant groups in organizations. Laura also addresses some of the key topics from her latest book, The Elephant and the Mouse: Moving Beyond the Illusion of Inclusion to Create a Truly Diverse and Equitable Workplace, such as the meritocracy myth, code-switching, the risks posed by a homogeneous workforce, and the rewards of allyship. Bonus: Laura shares her research findings on what it would take for the US to have a woman President.About Laura (she/her)In August 1996, Laura Liswood co-founded the Council of Women World Leaders with President Vigdís Finnbogadóttir of Iceland located at the UN Foundation in Washington, DC. Ms. Liswood is the Secretary General of the Council, which is composed of women presidents, prime ministers, and heads of government. It is the only organization of its kind globally.From 2001 to 2016, Liswood was also named Managing Director, Global Leadership and Diversity for Goldman Sachs, and later became a senior advisor. She continues to speak to audiences globally on diversity, equity, and inclusion.Liswood holds an M.B.A. from Harvard Business School and a B.A. from California State University, San Diego. She holds a J.D. degree from the University of California, Davis, School of Law, and is admitted to practice law in California and Massachusetts. After the events of 9/11, she became a reserve police officer in the Washington DC Metropolitan Police Department and retired as a sergeant.Liswood is the author of four books The Loudest Duck-Moving beyond Diversity, The Elephant and the Mouse, Women World Leaders, and Serving Them Right. She is a long time participant in the World Economic Forum and is a Steward of the Forum's Education, Gender, and Work Initiative.She is a commissioner for the New Mexico State Personnel Review Board, a board advisor for EDGE, and a member of the Washington DC Metro Transit Police Investigative Review Panel.To join us for our monthly live event or find educational resources from this episode, visit https://ally.cc.Connect With Laura On SocialLinkedIn: linkedin.com/in/laura-liswood-60451924/ Connect With Us On SocialYouTube: youtube.com/c/changecatalystTwitter: twitter.com/changecatalystsFacebook: facebook.com/changecatalystsInstagram: instagram.com/techinclusionLinkedIn: linkedin.com/company/changecatalystsProduction TeamCreator & Host: Melinda Briana EplerCo-Producers: Renzo Santos & Christina Swindlehurst ChanCreative Director @ Podcast Rocket: Rob Scheerbarth[Image description: LEA promo and photos of Laura, a White woman with short blonde/brown hair, glasses, pearl earrings, and a white/black polka dot suit; beside her is the book cover of The Elephant and the Mouse; and host Melinda Briana Epler, a White woman with red hair, glasses, and orange shirt holding a white mug behind a laptop.]Support the show
Hjálmar segir hluti sem engin trúir að geri hann reiðan. Hann sagði sérstaka sögu af Vigdísi Finnbogadóttur á meðan sagði Helgi frá furðulegri hefnd sem hann var vitni af í umferðinni.IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Tvívegis á síðustu vikum hafa þyrlur Landhelgisgæslunnar ekki getað flogið út fyrir tuttugu sjómílur til að sækja veika eða slasaða sjófarendur. Í nokkra klukkutíma á fimmtudag var engin þyrla tiltæk og ekki hægt að sinna útkalli sem barst. Við ræddum stöðuna á flota Landhelgisgæslunnar við Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúa hennar. Kjarninn greindi nýlega frá því að fyrirtækið Eden Mining áformi að vinna 15 milljónir rúmmetra af jarðefni úr Litla-Sandfelli við Þrengslaveg í Ölfusi sem verður að hluta nýtt í framkvæmdir á svæðinu og að hluta sem íblöndunarefni í sement. Miðað við matsáætlun myndi fjallið hverfa á þrjátíu árum. Við ræddum við Eydísi Líndal Finnbogadóttur, forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, um þessi áform, en í umsögn stofnunarinnar kemur fram að skoða þurfi frá ýmsum hliðum og þá staðreynd að fyrirhugað sé að fjarlægja heilt fjall úr náttúru Íslands og flytja úr landi. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt til að getnaðarvarnir verði ókeypis fyrir einstaklinga sem eru yngri en 25 ára. Peningaskortur geti komið í veg fyrir að ungt fólk noti slíkar varnir. Á morgun fer fram ráðstefna á vegum evrópska samstarfsvettvangsins FASA sem snýst um að efla færni fagaðila sem sinna þolendum heimilisofbeldis sem eiga við vímuefnavanda að etja. Þetta er ákaflega viðkvæmur hópur en oftar en ekki hefur fólk, og þá sérstaklega konur, með fíknivanda orðið fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Við fengum til okkar tvær fagkonur sem verða í pallborði á ráðstefnunni, þær Rögnu Björgu Guðbrandsdóttur sem var verkefnastjóri í Bjarkarhlíð og Soffíu Hjördísi Ólafsdóttur en hún er yfir VOR teymi Reykjavíkurborgar sem aðstoðar heimilislaust fólk með fíknivanda. Heimsmeistarakeppni osta fór fram á dögunum í Wisconsin í Bandaríkjunum. Í fyrsta sinn var íslenskur ostur meðal keppenda, Feykir 24 plús, sem framleiddur er af Kaupfélagi Skagfirðinga. Osturinn lenti í áttunda sæti í sínum flokki sem þykir stórgóður árangur og við ræddum við Jón Þór Jósepsson, framleiðslustjóra hjá KS og mjólkurfræðing, um Feyki og ostagerð hér á landi. Í lok þáttar fór Guðmundur Jóhannsson yfir tíðindi úr heimi tækninnar, eins og alltaf annan hvern þriðjudag. Tónlist: Friður - Sóldögg Akureyri - Árný Margrét Need Your Tonight -INXS Is it true - Gusgus og Vök Running up that hill - Kate Bush Bad Guy - Billie Eilish Bleikur og blár - Friðrik Dór Put Your Records on - Corinne Bailey Rae Big Jumps - Emilíana Torrini Boys don't cry - Cure

Fyrir gamla súrrealista var covid-tíminn áhugaverður, sagði Sjón þegar Víðsjá mælti sér mót við hann í Hólavallakrikjugarði í nótt. Við hittumst til að ræða Næturverk, þrettándu ljóðabók skáldsins, marglaga og draumkennda bók sem hefur verið nokkurn tíma í smíðum eins og margar aðrar ljóðabækur Sjóns. Ljóðin takast á við hið innra og hið ytra, ljós og myrkur. Eftir stórkostlegar breytingar á heimsmyndinni, tvö ár af heimsplágu hefur það meðal annars leitt til þess að fólk dreymir meira. Við erum verur sem höfum innri og ytri sýn segir skáldið, og í þessari bók mætast þessar sýnir einhversstaðar í nóttinni. Og það var ekkert annað í stöðunni en að ræða Næturverk við Sjón um miðja nótt. Smárit Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er ný ritröð sem gefin er út af Háskólaútgáfunni, en ritstjórar hennar eru Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Kristín Guðrún Jónsdóttir. Í fyrstu þremur smáritunum er að finna þýddar ritgerðir eftir þrjá höfunda. Fyrsta ritið er eftir Kínafræðinginn Simon Leys, annað ritið er eftir danska heimspekinginn og guðfræðinginn Dorthe Jørgensen og það þriðja eftir fransk-marokkóska rithöfundinn og blaðakonuna Leïlu Slimani. Hér er á ferðinni einstaklega áhugaverð ritröð sem miðlar til okkar ólíkum menningarheimum á aðgengilegan hátt. Við ætlum að kynna okkur fyrsta ritið í þætti dagsins, greinasafn SImon Leys, The hall of Uselessness, eða Úr Gagnleysisskálanum í þýðingu Kínafræðingsins Geirs Sigurðssonar. Geir verður gestur okkar í þætti dagsins. En við byrjum í leikhúsinu. Barnasýningin Þoka var frumsýnd á Litla sviði Borgarleihússins um helgina. Þoka er íslensk/færeysk leiksýning fyrir börn sem leikur á mörkum vísinda og þjóðsagna. Heyrum hvað Nínu Hjálmarsdóttur fannst um verkið. Umsjón: Halla Harðardóttir og Jóhannes Ólafsson

Það er mikil fjölbreytni í hlaðvörpum eða podköstum og eitt nýtt fór í loftið í desember en það ber heitið Kvíðakastið og í þessum þáttum spjalla Sálfræðingar saman um málefni tengd geðheilsu.Kvíði getur haft ótal birtingarmyndir og við ætlum að tala um kvíða, jaðarpersónuleikaröskun og um Díalektíska atferlismeðferð eða DAM og sú aðferð er td gagnreynd meðferð við jaðarpersónuleikaröskun. Hingað komu þær Katrín Mjöll Halldórsdóttir og Nína Björg Arnarsdóttir en þær sjá um Kvíðakastið ásamt Sturlu Böðvarssyni. Í tilefni þess að í dag er alþjóðlegur dagur móðurmálsins og við fengum til okkar hana Renötu Emilson Peskovu, sem er ein af aðstandendum Móðurmáls. Móðurmál eru samtök um tvítyngi, sem hafa í næstum 30 ár sérhæft sig í móðurmálskennslu fyrir börn á Íslandi sem hafa annað móðurmál en íslensku. Samtökin sinna móðurmálskennslu á þriðja tug tungumála, t.d. tékknesku, serbnesku, japönsku, spænsku, nepalísku, ungversku og arabísku. Vigdís Finnbogadóttir er verndari Móðurmáls, en samtökin hafa fengið ýmsar viðurkenningar fyrir sitt starf síðustu ár. Og lesandi vikunnar er Roberta Soparaite bókavörður á Bókasafni Ísafjarðar. Hún er með háskólagráður í sálfræði frá Háskólanum í Vilinius, Litháen, og frá Háskóla Íslands, þar sem hún lærði íslensku sem annað mál og skrifaði lokaritgerð um skáldsöguna Punktur, punktur, komma, strik, eftir Pétur Gunnarsson. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG MELKORKA ÓLAFSDÓTTIR

Krabbameinsfélagið vil í tilefni af alþjóðlega krabbameinsdeginum vekja athygli á ójöfnuði sem tengist krabbameini - Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fjallaði á málþingi fyrr í vikunni um samísku og menningu Sama. Ann-Sofie Nielsen Gremaud stjórnarformaður Vigdísarstofnunar segir frá því og alþjóðlegum áratugi frumbyggjatungamála. Hússtjórnarskólinn í Reykjavík á 80 ára afmæli 7. febrúar. Við heimsækjum skólann og ræðum við Margréti Dórótheu Sigfúsdóttur skólameistara, sem lætur af störfum í vor. Málfarsmínútan er líka á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur málfarsráðunautar.

Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, kynfræðikennari á Kleppjárnsreykjum, Grunnaskóla Borgarfjarðar: Það hafa verið fjörugar umræður á samfélagsmiðlum, í greinaskrifum og svo í gær í Kastljósi, þar sem fjallað er um kynfræðslu ungmenna. Er kynfræðsla almennt kennd í skólum, hverjir kenna hana og hvernig. Þóra þekkir stöðuna og fagið vel enda hefur hún kennt öðrum að kenna. Arndís Bergsdóttir, doktor í safnafræði: ROCS-rannsóknarsetrið er rannsóknarsetur um haf, loftslag og samfélag sem kennt er við Margréti danadrottingu og Vigdísi Finnbogadóttur. Þverfræðilegur hópur vísindafólks á þeirra vegum hélt síðasta sumar í leiðangur um borð í Árna Friðrikssyni, rannsóknarskipi Hafrannsóknarstofnunar, þar sem safnað var sýnum úr setlögum sjávarbotnsins. Með nýrri tækni er nú hægt að greina veðurfar þúsund ár aftur í tímann með nákvæmari hætti. Málfarsmínúta Nú þegar hætt er að gjósa og ferðamennirnir eru færri en ella heyrum við í augnablikinu aðeins minna af störfum björgunarsveitanna. Tíðindi bárust þó nýlega að vestan af frækilegu hundabjörgunarafreki sem krafðist meðal annars ísklifurs. Þessar fréttir kveiktu þá hugmynd að kynna okkur betur inntökuferlið og þjálfunina sem krefst til þess að verða gjaldgengur í björgunarsveit. Við fáum til okkar Kristjönu Ósk Birgisdóttur og Rögnu Láru Ellertsdóttur, nýliðaþjálfara hjá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík til að fræða okkur um þetta.

Rætt við Sigurborgu Stefánsdóttur myndlistarkonu en hún heldur úti sýningunni 'Hjáleiðir' á því góða og gamalgróna kaffihúsi Mokka á Skólavörðustíg. Út er komin frá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur ritið Fríða og Dýrið - franskar sögur og ævintýuri fyrri alda. Safnið, þýtt af Ásdísi Rósu Magnúsdóttur, hefur að geyma stuttar sögur sem gefa góða mynd af smásögum og ævintýrum Frakklands frá síðari hluta 12. aldar og fram á 18. öld. Við ræðum við Ásdísi í þættinum. Fyrir hálfum mánuði hóf sagnfræðingurinn Dalrún Kaldavísl að velta fyrir sér sambandi íslenskra kvenna fyrri alda við náttúruna. Í dag veltir hún upp áhugaverðum hliðum á sambandi íslenskra föru- og einsetu kvenna við blessuð dýrin í gamla bændasamfélaginu.

Víðsjá 19. október 2021: Í Víðsjá í dag verður hugað að óperunni Góðan daginn, frú forseti sem frumsýnd verður í Grafarvogskrikju á laugardagskvöld. Eins og nafn verksins gefur til kynna þá fjallar óperan um Frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta. Höfundur verksins, söngkonan Alexandra Chernyshova verður gestur Víðsjár í dag. Snorri Rafn Hallsson, dagskrárgerðarmaður og textasmiður í Vín heldur áfram pistlaröð sinni um möguleika og ómöguleika tækninnar. Í þetta skiptið skoðar hann sjálfvirk ráðningarferli og hvernig tækni sem átti að auðvelda fyrirtækjum að fá til sín hæft starfsfólk flækist nú fyrir okkur. Og loks kveður nýr bókmenntagagnrýnandi Víðsjár sér hljóðs í þættinum en það er Gréta Sigríður Einarsdóttir sem segir hlustendum skoðun sína á lestri skáldsögunnar Kynslóð eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Og Víðsjá gluggar líka í ljóðabækur skáldkvennanna Undínu og Maríu Bjarnadóttur í Tófu-innslagi dagsins þegar hún brá sér aftur í heimsókn til Magneu Þuríðar Ingvarsdóttur sem heldur úti Facebook síðunni Tófan, ljóða- og fræðasetur, þar sem ljóð skáldkvenna eru dregin fram í dagsljósið. Umsjón: Guðni Tómasson
Eftir því sem tölvuleikjaiðnaðurinn hefur stækkað hafa áhrif hans orðið víðtækari, efnahagslega, menningarlega og ekki síst á persónuleg samskipti fólks. Einstaklingar spjalla, þeir kynnast, verða vinir, fella hugi saman í gegnum stafræna hliðarheima tölvuleikjanna. Tölvuleikir geta á vissan hátt virkað eins og vináttuvélar. Það er að minnsta kosti kenningin sem liggur að baki nýju netnámskeiði Háskóla Íslands sem er unnið í samstarfi við tölvuleikjaframleiðandann CCP. Annar kennara námskeiðsins, Ársæll Arnarson, heimsækir Lestina í dag og ræðir vináttuna. Við rýnum í tvær nýjar kvikmyndir í þætti dagsins, hryllingsmyndina A Quiet Place 2 eða Þöglavík, eins og Ásgeir H. Ingólfsson kvikmyndagagnrýnandi þýðir það, og nýja íslenska kvikmynd á ensku, Shadow Town, Skuggahverfið. Við gerum okkur ferð á Borgarbókasafnið í grófinni þar sem innsetningin Koddahjal - Endurhlaða eftir Sonju Kova?evi? var opnuð á dögunum. Framsetningin er einföld ; hátalarar hafa verið settir á samanbrjótanlega bedda, eins og notaðir eru sem rúm fyrir hælisleitendur og úr hátölurum heyrast síðan frásagnir flóttamanna á Íslandi. Í tilefni kvenréttindadagsins 19. júní veltum við fyrir okkur staðhæfingu Vigdísar Finnbogadóttur frá 1980 að þjóðin ætti ekki að kjósa hana vegna þess að hún væri kona heldur af því að hún væri maður.
Oftast hefur verið auðvelt fyrir fólk að fá kettlinga því þeir hafa gjarnan verið auglýstir gefins á netinu. Fram kom hinsvegar í fréttum hér á Ruv í gær að nú bregður svo við að erfitt er að fá kettlinga, eftirspurnin er mun meiri en framboðið. En hver er skýringin á þessu? Við ræðum við Hönnu Evensen, rekstrarstjóra Kattholts um þetta. Það vakti athygli í gær þegar Vodafone tilkynnti að fyrirtækið hyggðist bjóða enska boltann, sem Síminn á sýningarréttinn á, á 1000 krónur. Forstjóri Símans segir að gjörðin sé ólögleg. Við fáum Heiðar Guðjónsson forstjóra Vodafone til okkar til að ræða þetta mál. Við sláum á þráðinn til Guðrúnar Önnu Finnbogadóttir, verkefnastjóra hjá vestfjarðarstofu, en sjávarútvegsklasi vestfjarða stendur fyrir nýsköpunarkeppninni Hafsjór af hugmyndum. en að henni standa 8 sjávarútvegsfyrirtæki. Markmiðið er að sjálfsögðu að efla atvinnugreinina á vestfjörðum. Guðrún segir okkur frá þessu. Sólborg Guðbrandsdóttir hefur vakið athygli fyrir baráttu sína gegn áreitni á samfélagsmiðlum, en Instagram síðan hennar Fávitar hefur um árabil birt skjáskot af vondri framkomu, sérstaklega í garð ungra kvenna og unglingsstúlkna, á netinu - en einnig staðið fyrir fræðslu um mörk í samskiptum kynjanna. Sólborg safnar nú fyrir bók um málefnið auk þess sem Akureyrarbær kemur til með að kenna áfanga byggða á hennar vinnu á unglingastigi í vetur. Sólborg kíkir í spjall. Guðmundur Jóhannsson verður með tæknihornið á sínum stað. Það er aldrei að vita hvað hann dregur upp úr pokahorninu þessa vikuna.
Spegillinn 15. apríl 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Aðeins sjö COVID-19 smit greindust síðasta sólarhring. Forstjóri íslenskrar erfðagreiningar er vongóður um að bóluefni finnist innan árs. Sóttvarnalæknir segir enga ástæðu til að ætla að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hafi gert einhver mistök í viðbrögðum við kórónuveirufaraldrinum. Trump Bandaríkjaforseti gagnrýnir stofnunina og hefur skrúfað fyrir fjárframlag Bandaríkjanna til hennar. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir að það hafi ekki átt að koma stjórnmálamönnum á óvart að sjö útgerðir væru með mál í gangi gegn stjórnvöldum vegna makríls, sem endaði með að Hæstiréttur dæmdi að ríkið væri bótaskylt. Þær hafa krafist rúmlega tíu milljarða króna í skaðabætur Eigandi lítils fyrirtækis í ferðaþjónustu segist ekki gera ráð fyrir neinum viðskiptum að ráði fyrr en eftir eitt ár. Allt sé stopp og engar bókanir berist. Þjóðverjar ætla að slaka lítillega á samkomubanninu í næsta mánuði, hefja skólahald að nýju og heimila með skilyrðum að verslanir upp að ákveðinni stærð verði opnaðar. Íslensk stjórnvöld og Carlsbergsjóðurinn, sem er danskur styrktarsjóður, gefa Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, og Margréti Þórhildi Danadrottningu sameiginlega afmælisgjöf. Vigdís er níræð í dag en Margrét verður áttræð á morgun. Ný frétt: Fimm sjávarútvegsfyrirtæki, Eskja, Gjögur, Ísfélag Vestmannaeyja, Loðnuvinnslan og Skinney-Þinganes, hafa ákveðið að falla frá kröfum á hendur íslenska ríkinu vegna ágreinings um úthlutun aflaheimilda í makríl. Alls höfðu sjö fyrirtæki stefnt ríkinu og kröfðust rúmlega tíu milljarða króna í skaðabætur en nú hafa fimm fallið frá málssókn, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá þeim. Vinnslustöðin og Huginn hafa ekki tilkynnt um að þau falli frá málssókn. (Frétt sem barst í miðjum Spegli) Lengri umfjallanir Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands er níræð í dag. Vígdís gegndi embætti forseta í fjögur kjörtímabil, frá 1980 til 1996. Hún var fyrsta konan í heiminum sem kosin var þjóðarleiðtogi í frjálsum lýðræðislegum kosningum. Páll Valsson rithöfundur skrifaði ævisögu Vigdísar - Vigdís - kona verður forseti - fyrir rúmum tíu árum. Kristján Sigurjónsson talar við Pál og flutt er brot úr fyrsta nýársávarpi Vigdísar Finnbogadóttur frá 1. janúar 1981. Það tók lögregluna nokkra daga að læra á Covid, en nú hafa störfin verið aðlöguð að farsóttinni. Þetta segir aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kópavogi. Lögreglustjórinn á Akureyri missti á tímabili fi
Næsti gestur hjá okkur að þessu sinni ber þann titil að vera fyrsti kvenkyns forseti í heiminum, Frú Vigdís Finnbogadóttir. Í þessum þætti fáum við að kynnast Vigdísi betur, hennar framboði til forseta og því hlutverki sem hún fékk. Við reynum að skyggnast betur í hugarheim hennar og fáum betri tilfinningu fyrir þeirri vegferð sem hún hefur skapað, ekki bara fyrir sig sjálfa heldur Ísland og allar aðrar þjóðir heimsins. Þátturinn var fluttur á Útvarp101 þann 22.maí.