POPULARITY
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Iðnaðarmál/álframleiðsla Guðríður Eldey Arnardóttir, framkvæmdastjóri Samáls Guðríður ræðir stöðu áliðnaðar á Íslandi en framleiðendur geta nú andað léttar eftir að nýr umhverfisráðherra lýsti eindregnum stuðningi við framleiðslu áls á Íslandi. En þessi iðnaður býr við óvissu á alþjóðamörkuðum, sérstaklega í tollamálum en ekki síður vegna harðnandi samkeppni við niðurgreidda framleiðslu í Kína og víðar. Efnahagsmál/skattamál Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins Daði og Jón Ólafur rökræða skattastefnu stjórnvalda. Skattar eru of háir, nú er rétti tíminn til að staldra við og endurskoða þá að mati SA. Hvernig bregst fjármálaráðherrann sem þarf að leiðrétta hallarekstur ríkisins við þessu? Stjórnmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, form. Miðflokksins Dagbjört Hákonardóttir alþ. maður Samfylkingar Bryndís Haraldsdóttir, alþm. Sjálfstæðisflokksins Alþingismenn ræða þingveturinn, þinglokin, helstu mál þ.m.t. bókun 35. Utanríkismál hafa verið mjög í deiglunni og ekki síst aukning útgjalda til varnarmála - þangað eiga að renna háar fjárhæðir sem fjármagna verður með einhverjum hætti. Alþjóðamál Erlingur Erlingsson, sérfræðingur í alþjóðamálum Erlingur ræðir stöðuna í stríði Ísraels og Írans. Hvert er markmið þessara þjóða með stríðsrekstri, hversu nálægt eru Íranir því að koma sér upp kjarnavopnum, munu Bandaríkin dragast beint inn í þessi átök og hver yrðu áhrifin af því?
Miðvikudagur 4. júní Aþena, líf og dauði, rasismi, mótmæli, kvóti, samfélagssöknuður, skák og bridge Darina Andreys, Tanja Ósk Brynjarsdóttir og Anna Margrét Lucec Jónsdóttir spila körfubolta með Aþenu í Efra-Breiðholti og berjast fyrir framtíð félagsins gegn borgaryfirvöldum, sem vilja ekki gefa félaginu aðgang að íþróttahúsi. Þær útskýra stöðuna fyrir Gunnari Smára. Sigurjón Magnús ræðir við reynslubolta um samfélagið, líf og dauða, í bókstaflegri merkingu. Bogi Ágústsson fréttamaður, Helga Jónsdóttir bæjarfulltrúi og Ágúst Ólafur Ágústsson hagfræðingur spjalla um samfélagið og okkur sjálf. María Pétursdóttir, listakona og aktívisti, ræðir við Oddnýju Eir um mátt mótmæla gegn undirliggjandi andúð og um háværa kröfu um að loka landamærunum fyrir hælisleitendum. Ásgeir Daníelsson hagfræðingur hefur tekið saman miklar upplýsingar og samanburð á stöðu sjávarútvegs og svo annarskonar atvinnurekstur. Hann ræðir þetta við Sigurjón. Kristín Amalía Atladóttir lífsnautnakona, segir Oddnýju Eir frá lífi sínu úti í sveit og utanlands og veltir fyrir sér söknuði eftir samfélagi. Tveir fulltrúar kvennalandsliðsins í bridge, Guðrún Óskarsdóttir og María Haraldsdóttir Bender, ræða NM sem hefst á Laugarvatni á morgun. Gunnar Björn Helgason fyrirliði kvennaliðsins mætir einnig í briddsþátt Björns Þorlákssonar. Vignir Vatnar, besti skákmaður Íslendinga nú um stundir, gerði sér lítið fyrir og vann sjálfan Magnus Carslen í netskák fyrir nokkrum dögum. Björn Þorláks ræðir við Vigni Vatnar um þetta mikla afrek.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Halldór Kr. Þorsteinsson, lögmaður hjá Lögmönnum um félagafrelsi Ingibjörg Isaksen formaður þingflokks Framsóknarflokksins um njósnamálið og Úlfar Lúðvíksson Símatími Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir og yfirlæknir á Landspítala Bjarki Sigurðsson í Basel í Sviss talar við VÆB bræður Svandís Edda Jónudóttir vörustjóri korta hjá Arion banka
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari Kjartan Þór Ingason, verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtaka, ræddi við okkur um málþing á vegum samtakanna csem fer fram í dag. Halldór S. Guðmundsson, dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, ræddi við okkur um rannsókn sem hann er að vinna að. Guðmundur Ingi Kristinsson, barna- og menntamálaráðherra, kíkti í heimsókn. Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, ræddi við okkur um ÁTVR og ohf fyrirkomulagið. Anna Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og situr í stjórn Menntunarsjóðs nefndarinnar, fór yfir fjáröflunina um helgina. Nöldurhornið
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona. Síðan hún útskrifaðist sem leikkona hefur hún leikið fjölda hlutverka bæði á sviði og fyrir framan myndavélina og ávallt hefur hennar frammistaða vakið eftirtekt. En svo er það sýningin sem hún bjó til, Á rauðu ljósi, þar sem hún er ein á sviðinu í Þjóðleikhúskjallaranum og fjallar um eigin reynslu, af stressi, streitu og því að keyra sig í þrot. Þar fjallar hún á bráðfyndinn hátt um þessa erfiðu reynslu, en einnig af slíkri einlægni að það snertir virkilega við áhorfendum og nú er hún farin að flytja einnig erindi um þessa reynslu. Við fengum Kristínu auðvitað til að segja okkur aðeins frá því hvernig þessi sýning hefur sprungið út og svo fórum við auðvitað með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar, í Skotlandi, Englandi og Hlíðunum og röktum okkur svo í gegnum lífið til dagsins í dag. Sigurlaug Margrét var svo með okkur í matarspjallinu í beinni útsendingu frá suður Evrópu. Hún sagði okkur frá litlum sveitamörkuðum og frönskum kartöflum í þetta sinn. Tónlist í þættinum í dag: Vor í Vaglaskógi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk) Freedom / Wham (George Michael) I Wanna Dance With Somebody / Whitney Houston (George Merrill & Shannon Rubicam) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rauða borðið 3. apríl Flóttafólk, bridge, fréttagagnrýni, dómsdagsmálmur og loftslagsmál Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Fida Abu Libdeh varaþingmaður Framsóknarflokksins, Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi Garðarbæjarlistans og verkefnisstjóri S78 og Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum ASÍ fóru yfir málefni flóttafólks og kerfislegar hindranir með Maríu Lilju í mjög heitum umræðum við borðið. Björn Þorláks fær góða gesti til sín til að ræða bridge, eitthvað sem Bjössi hyggst bjóða uppá reglulega næstu vikur. Þetta eru þau Matthías Imsland, Sigurpáll Ingibergsson, María Haraldsdóttir Bender, Anna Guðlaug Nielsen og Hallveig Karlsdóttur. Finnur G Olguson, leikmyndasmiður mætir til Oddnýjar með harðorða gagnrýni i garð fréttastofu RÚV í tengslum við þjóðarmorðið á Gaza. Reykjadoom er nýleg tónlistar og menningarhátíð af harðari gerðinni sem fer fram núna um helgina. Hörður Jónsson, einn skipuleggjenda leiðir okkur í allan sannleikann um Doom metal og fara yfir dagskránna með Maríu Lilju. Frosti Sigurjónsson, fyrrum alþingismaður ræðir um efasemdir sínar um loftslagsbreytingar af mannavöldum.
Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn í dag og við ræddum við hann um brunaforvarnir og í því fór hann samhengi yfir brunann sem varð í Kringlunni í júní í fyrra og hvað má læra af honum. Með honum kom Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VíS, en hún fræddi okkur um vinnuslys, öryggismál og forvarnir á vinnustöðum. Kristjana Dröfn Haraldsdóttir jógakennari fór í þrot árið 2017 og ákvað í kjölfarið að taka heilsuna í gegn. Í dag vinnur hún sem heilsumarkþjálfi, jógakennari og nuddari og rekur fyrirtækið Nærandi líf þar sem hún hjálpar öðrum að losa sig við streitu og ná tökum á djúpri slökun. Við heyrðum hvernig hún náði að endurstilla hugsanamynstur sem hún var föst í og öðlast betra líf. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í þessu póstkorti segir Magnús af áhyggjum heimsins vegna bananaræktar sem nú er í hættu vegna þess að ósigrandi sveppur leggst á bananaplöntuna og drepur hana. Þetta er hægfara þróun en óstöðvandi hingað til. Bananinn er einn vinsælasti ávöxtur heims fyrir utan mango og epli og ef ekkert verður við ráðið þá munu bananar hverfa úr verslunum innan aldarfjórðungs. Tónlist í þættinum í dag: Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson) Dansað á dekki / Fjörefni (P. Nicholas, texti Ellert Borgar Þorvaldsson) Vor í Reykjavík / Uppáhellingarnir (Andri Ólafsson, texti Þórarinn Már Baldursson) Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Gestir Vikulokanna eru: Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar, Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingarinnar. Þau ræddu meðal annars um rýmingar í Neskaupstað og á Seyðisfirði, samgöngumál, Donald Trump bandaríkjaforseta, vopnahlé á Gaza, kjaradeilu kennara og komandi formannskjör í Sjálfstæðisflokknum. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
A Rebelião Saudável nasceu da união de diversos profissionais de saúde que pensam diferente e cujo foco é promover saúde e bem estar, com comida de verdade e sem medicamentos. Semanalmente a Rebelião se reune no app Telegram para discussão de tópicos importantes relacionados a Nutrição Humana e Qualidade de vida. Nessa semana, conversamos sobre Hormese. Referências citadas na transmissão: - Møller, P., Vogel, U., Pedersen, A., Dragsted, L. O., Sandström, B., & Loft, S. (2003). No effect of 600 grams fruit and vegetables per day on oxidative dna damage and repair in healthy nonsmokers. Cancer Epidemiology, Biomarkers & Prevention, 12, 1016-1022. - Peluso, I., Raguzzini, A., Catasta, G., Cammisotto, V., Perrone, A., Tomino, C., … Serafini, M. (2018). Effects of high consumption of vegetables on clinical, immunological, and antioxidant markers in subjects at risk of cardiovascular diseases. Oxidative Medicine and Cellular Longevity, 2018, 1-9. doi:10.1155/2018/5417165 - Young, J., Dragsted L.O.*, Haraldsdóttir, J., Daneshvar, B., Kall, M., Loft, S., … Sandström, B. (2002). Green tea extract only affects markers of oxidative status postprandially: lasting antioxidant effect of flavonoid-free diet. British Journal of Nutrition, 87(4), 343-355. doi:10.1079/bjnbjn2002523 - Siems WG, van Kuijk FJ, Maass R, Brenke R. Uric acid and glutathione levels during short-term whole body cold exposure. Free Radic Biol Med. 1994 Mar;16(3):299-305. doi: 10.1016/0891-5849(94)90030-2. PMID: 8063192. Ajude a rebelião saudável! Seja um apoiador do nosso movimento e garanta que as informações transmitidas continuarão gratuitas para todos! Além de ajudar, você terá acesso a um post mensal exclusivo para apoiadores! Acesse https://apoia.se/rebeliaosaudavel e contribua com a quantia que puder! Ajude a manter esse conteúdo vivo! #facapartedarebeliao Você também pode participar da discussão e da Rebelião. Toda quarta feira, às 7:00, estaremos ao vivo no Telegram, basta acessar o nosso canal: https://t.me/RebeliaoSaudavel. Se você gosta de nosso trabalho, deixe um review 5 estrelas e faça um comentário no seu app de podcast. Essa atitude é muito importante para a Rebelião saudável e vai ajudar nosso movimento a chegar a cada vez mais pessoas. Você também pode nos acompanhar no instagram, http://www.instagram.com/henriqueautran. E em nosso canal do YouTube: https://youtube.com/c/henriqueautran.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál. Jón Steindór Valdimarsson formaður Evrópuhreyfingarinnar og Hjörtur J. Guðmundsson stjórnmálafræðingur um stjórnmál og Evrópumál. Sigríður Andersen alþingismaður, Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi alþingismaður og Helga Vala Helgadóttir lögmaður um stjórnmál og þjóðmál.
Miðvikudagur 18. desember Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun Myndlistamaðurinn og Öryrkinn Georg Jónasson ræðir við Maríu Lilju um fátækt frá fyrstu hendi, myndlistina og allt þar á milli. Þá mæta til leiks Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, forstýra Kvennaathvarfsins og ræða um ofbeldi í nánum samböndum. Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir halda áfram með ítarlegt bókaspjall. Fyrstur að borði er Bragi Ólafsson með nýja bók Innanríkið Alexíus. Þar strax í kjölfarið verður staða ljóðsins krufin mtt. Tveggja nýútkominna verka skáldkvennanna Guðrúnar Hannesdóttur, Sigurbjargar Þrastardóttur. Sigurjón M. fær til sín álitsgjafa úr ólíkum áttum til að spá fyrir um framhaldið í samfélaginu þetta eru þau Valur Grettisson, Bryndís Haraldsdóttir og Auður Alfa Ólafsdóttir. Í lokin kemur Svala Jóhannesardóttir formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun, og ræðir um velsæld áfengis- og vímuefnasjúklinga.
Fimmtudagur 7. nóv. Heilbrigðiskerfi, fjársvelti, fötlun, harka, list Það er tekið á mörgum ólíkum grundvallarmálum við Rauða borðið í dag og gestir úr öllum áttum. Í beina útsendingu mætir fólk sem hefur þekkingu og reynslu af uppbyggingu og niðurbroti heilbrigðiskerfisins, en það eru þau Jósep Blöndal, læknir, Sigurður Ingibergur Björnsson, stjórnarformaður Eyris Venture Management og fyrrum framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, María Pétursdóttir listakona og frambjóðandi og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir heilsuhagfræðingur, prófessor við Háskóla Íslands. Því næst tökum við fyrir fjársveltar samfélagsstofanir í samræðu við Hilmar Malmquist forstjóra Náttúruminjastofnunar Íslands, Andrés Skúlason formann Fornminjanefndar, Svanhildi Bogadóttur fyrrum Borgarskjalavörð og Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóra Tjarnarbíós. Þá er komið að spurningu dagsins þar sem almenningur á strætum borgarinnar svarar spurningunni: Skiptir viðhorf stjórnmálaflokka til menningarmála þig máli? Í Radíó Gaza er rætt um hörkuna sem færst hefur í hælisleitendamál undanfarin misseri, þær Arndís Anna fráfarandi þingmaður Pírata og lögfræðingur, Margrét Baldursdóttir, túlkur og Áslaug Ýr Hjartardóttir, ritlistarnemi sem er með samhæfða sjón og heyrnarskerðingu koma og ræða meðal annars um mál fimm manna fjölskyldu frá Írak en hluti þeirra er haldinn sömu fötlun og Áslaug Ýr. Að lokum segir Lára Zulima Ómarsdóttir okkur frá gleymdri myndlistarkonu, Höllu Haraldsdóttur.
Gestir Vikulokanna eru Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vinstri grænna, Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu stjórnarslit, þingstörfin og komandi kosningar. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Það er farið að bera á kosningaskjálfta ; talað um að kjósa í vor frekar en næsta haust þegar og að áhugaverður vetur og átök séu framundan í pólitíkinn. Spegillinn ræddi við Bergþór Ólason, þingmann Miðflokks og Bryndísi Haraldsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokks um veturinn framundan. Spegillinn spurði alþingismenn hvort þeir ætluðu að gefa kost á sér á fyrir næstu þinkosningar. Og það er bara einn ákveðinn í að hætta. 34 ætla sér að halda áfram. Hallgrímur Indriðason segir frá því helsta sem gerst hefur í dag í opinberri heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta Íslands til Danmerkur.
Sunnudagurinn 6 . október: Synir Egils: Pólitískur hræringar og Hrun Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Bryndís Haraldsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins, Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri hjá Eflingu og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata og ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni, veika stöðu ríkisstjórnar og flokkanna sem að henni standa. Þeir bræður fara yfir pólitíkina og ræða síðan um arfleið Hrunsins. Guðrún Johnsen hagfræðingur, Jón Þórisson arkitekt og Þorvaldur Logason sagnfræðingur ræða hvað hrundi og hvort nokkuð hafi verið reist við.
In this episode, we will further examine and discuss the implications of geopolitics on Arctic governance and cooperation.Our panelists include:Rt. Hon. Mark Pritchard MP: Vice-President and Special Representative on the Arctic and High North of the OSCE Parliamentary AssemblyHon. Bryndís Haraldsdóttir MP: President of the Nordic CouncilMichael Paul: Senior Fellow at the German Institute for International and Security Affairs (SWP)Rasmus Bertelsen: Professor at UiT - The Arctic University of NorwayThe discussion and following Q&A with the audience are moderated by Malgorzata Smieszek-Rice, Postdoctoral Researcher at UiT - The Arctic University of Norway.This panel originally took place at the 2024 Arctic Circle Berlin Forum.Arctic Circle is the largest network of international dialogue and cooperation on the future of the Arctic. It is an open democratic platform with participation from governments, organizations, corporations, universities, think tanks, environmental associations, Indigenous communities, concerned citizens, and others interested in the development of the Arctic and its consequences for the future of the globe. It is a nonprofit and nonpartisan organization. Learn more about Arctic Circle at www.ArcticCircle.org or contact us at secretariat@arcticcircle.orgTWITTER:@_Arctic_CircleFACEBOOK:The Arctic CircleINSTAGRAM:arctic_circle_org
Laugrdagur 14. september Helgi-spjall: María Bender María Haraldsdóttir Bender er gestur Björns Þorlákssonar sem sér um Helgispjallið þessa vikuna. María átti veigamikinn þátt í að koma upp um barnaníðing á sínum tíma og ræðir mikilvægi þess að við stöndum sem sjálfum okkur.
Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með stjórnmálum að það hafa verið skeytasendingar milli stjórnarflokkanna síðustu daga og vikur; þær hófust með umræðu um ókeypis skólagögn, fóru svo yfir í umræðuna um orkumál og þá sérstaklega vindorkuna, síðan útlendingamálin og náðu eiginlega hámarki þegar flokksráð VG ákvað að samþykkja ályktun þar sem ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að frysta tímabundið greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna var fordæmd. Jóhann Páll Jóhannsson og Bryndís Haraldsdóttir, þingmenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, komu í hljóðstofu. Eflaust hafa einhverjir, sem komnir eru á miðjan fimmtugsaldurinn, vaknað einn daginn og hugsað; getur verið að ég hafi virkilega elst um mörg ár á einni nóttu? Já er svarið, ef marka má nýja rannsókn vísindamanna við Stanford-háskóla, rannsókn sem öldrunarlæknir segir að sé gott innlegg í umræðuna en beri að taka með ákveðnum fyrirvara.
Kristjan Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttir alþingismenn um stjórnmál og Norðurlandaráð. Ingrid Kuhlman ráðgjafi og Steinunn Þórðardóttir læknir um dánaraðstoð. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra um utanríkismál og Atlanshafsbandalagið. Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Hjörtur J. Guðmundsson stjórnmálafræðingur um forsetakosningar.
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og fyrrverandi menntamálaráðherra, eru gestir Sunnu Valgerðardóttur. Þær ræða menntamál, fjársvelt og úrelt menntakerfi, endurskoðun á styttingu framhaldsskólanámsins, áhrif stríðanna í heiminum á samfélagið, stöðuna í Rússlandi og varnarmál á Íslandi. Tæknimaður þáttarins er Jón Þór Helgason.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðum um þjóðmálin. Í þessum þætti: Þórdís Ingadóttir prófessor við HR um alþjóðalög. Bryndís Haraldsdóttir og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir alþingismenn um innflytjendamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar um efnahagsmál. Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðamálum um alþjóðamál.
Við fjölluðum um bókina Geðhvörf fyrir byrjendur sem kom út í dag. Í henni er farið í gegnum greiningu geðhvarfa, líf með geðhvörfum, meðferð og bata. Guðmunda Sirrý Arnardóttir kennari er ein fjögurra höfunda bókarinnar kom til okkar í dag og sagði okkur betur frá bókinni sem hún segir að miðli nýjustu þekkingu í bæði læknisfræðilegri og batamiðaðri fræði. Læknadagar voru haldnir í síðustu viku og þar var víða komið við. Meðal annars var málþing um hormónameðferð kvenna en hormónameðferð er beitt í miklum mæli við tíðahvarfaeinkennum. Slík meðferð getur aukið áhættuna á kvenkrabbameinum þar með talið brjóstakrabbameinum og legbolskrabbameinum. Á málþinginu var leitast við að skýra þá áhættu og við fengum þær í spjall, Sigurdísi Haraldsdóttur krabbameinslæknir og yfirlækni á Landspítalanum og dósent við Háskóla Íslands og Kolbrúnu Pálsdóttur kvensjúkdómalækni, yfirlækni kvenlækningateymis á Landspítalanum og sérfræðing í krabbameinslækningum kvenna. Tónlist í þættinum í dag: Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson og Ólafur Haukur Símonarson) Quiet Nights of Quiet Stars / Henri Mancini og hljómsveit Rewrite / Paul Simon (Paul Simon)
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Þórdís Sigurðardóttir forstjóri Mennamálastofnunar um menntamál. Sigurður G. Guðjónsson lögmaður um dómsmál. Bryndís Haraldsdóttir, Sigmar Guðmundsson, og Þórdís Sveinbjarnardóttir alþingismenn. Bryndís Hallsdóttir formaður SAF um verkfall flugumferðarstjóra.
Við heyrðum sögu Einars Guttormssonar í dag. Hann greindist með parkinson fyrir um 5 árum og hafði fundið einkenni í u.þ.b. fimm ár þar á undan. Við greiningu tók Einar þá ákvörðun að hreyfa sig til að vinna á móti einkennunum og hann stóð heldur betur við það, hann hjólar um það bil heilt maraþon á hverjum degi, stundum allt upp í 200 kílómetra á dag. Hann hefur toppað sig á hverju ári og hefur hjólað yfir 11 þúsund kílómetra í ár og ætlar ekki að hætta fyrr en hann nær takmarkinu tólf þúsund kílómetrum. Einar kom til okkar í dag og deildi með okkur sinni sögu. Svo kynntumst Fúsa í dag. En sýningin Fúsi: Aldur og fyrri störf var frumsýnd um helgina í Borgarleikhúsinu. Leikritið er heimildaleiksýning um Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson, Fúsa, þar sem Fúsi fer yfir ævi sína með hjálp góðra leikara. Agnar Jón Egilsson, leikstjóri og leikari og frændi Fúsa tók viðtöl við Fúsa á meðan á Covid faraldrinum stóð og upp úr þeim er sýningin unnin. Sýningin markar tímamót í íslensku leikhúsi því þetta er í fyrsta sinn sem leikrit um, eftir og leikin af leikara með þroskaskerðingu er sett á svið hér á landi. Þeir frændur, Fúsi og Aggi, komu til okkar í dag og sögðu okkur frekar frá sýningunni, sem hefur fengið afskaplega jákvæða gagnrýni og hlaut Múrbrjótinn, viðurkenningu Landssamtakanna Þroskahjálpar. Við fræddumst svo að lokum um söngstund í Hannesarholti þar sem kynslóðirnar geta komið saman og sungið af hjartans lyst á laugardaginn kemur. Syngjum saman er heiti á viðburði sem oft hefur verið boðið uppá í Hannesarholti og í vetur verður stundin tileinkuð Marinellu Ragnheiði Haraldsdóttur, sem var fædd 1933 og hefði því orðið níræð 14.september sl.en hún lést í sumar. Dóttir Marinellu, Ragnheiður J. Jónsdóttir sagði okkur frá móður sinni og því að Hannesarholt er í rauninni til í þeirri mynd sem það er í í dag vegna hennar og hún mætti á alla Syngjum saman viðburðina þar til heimsfaraldurinn truflaði taktinn. Tónlist í þættinum í dag: Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Presley / Katrín Halldóra (Grafík-Rúnar Þórisson) Lítill drengur / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Vilhjálmsson) Fram í heiðanna ró / KK og Maggi Eiríks (erl.lag, texti Friðrik A. Friðriksson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Kristín segir frá sýningu sinni Á rauðu ljósi . Sýningin er einnar konu sýning sem er blanda af uppistandi, einleik og einlægni. Hún leggur áherslu á stress, streitu, seiglu, auminngjaskap og dugnað.

Tónlistardúóið Ingibjargir samanstendur af so?ngkonunni Ingibjo?rgu Fríðu Helgadóttur og tónskáldinu Ingibjo?rgu Y?ri Skarphe?ðinsdóttur. Þær kynntust í Listaháskóla I?slands og hófu fljótlega að vinna saman að tónlist við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur. Þær hafa nú gefið út sína fyrstu plötu sem kallast Konan í speglinum, en þar er að finna 15 ný lög sem öll eru samin við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur. Við ræðum við Ingibjargir í þætti dagsins. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í skáldsöguna Men eftir Sigrúnu Pálsdóttur og Snorri Rafn Hallsson heldur áfram að rannsaka fyrirbærið nostalgíu. Í dag beinir hann linsunni að fortíðarþránni sem leiðarstefi í dægumenningu samtímans. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

27. október 2023 Landsvirkjun stefnir enn að því að byggja Hvammsvirkjun þótt framkvæmdaleyfi fyrir henni hafi verið ógilt, segir Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur boðað til sín alla hlutaðeigandi til að fara yfir verklag vegna lögregluaðgerðar í Grafarvogi í fyrrakvöld í tengslum við forsjármál. Nánast allt netsamband hefur verið rofið á Gazasvæðinu. Af þrjátíu og sjö dómum sem kveðnir voru upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra í fyrra, voru aðeins fimm birtir opinberlega. Birgir Guðmundsson, prófessor í fjölmiðlafræði, segir gagnsæi skorta í störfum dómstólanna. Kristín Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri dómstólasýslunnar, segir almennu regluna þá að dómar séu birtir á vefnum. Danska stjórnin hefur gert breytingar á frumvarpi um bann við að brenna Kóraninn og önnur helgirit. Þjóðaröryggi er í húfi að hennar sögn. Heimsbikarkeppnin á skíðum hefst á ný um helgina. Snjóleysi vegna hækkandi hitastigs gerir það að verkum að sífellt flóknara verður að hefja skíðavertíðina svona snemma þótt gífurlegir efnahagshagsmunir séu í húfi. Dómari á Ítalíu hefur gert tveimur bræðrum á fimmtugsaldri að flytja að heiman. Móðir þeirra á áttræðisaldri var búin að fá nóg af þeim. Flugfreyjufélag Íslands segir fullyrðingar forstjóra PLAY í Silfrinu á mánudaginn hafa verið rangar. Hann hafi gefið í skyn að félagið væri gult stéttarfélag; sem gengur frekar erinda atvinnurekenda heldur en starfsmanna. Heyrðist í Birgi Jónssyni, forstjóra Playt, og Berglindi Kristófersdóttur, formann Flugfreyjufélagsins. Heimsbikarkeppnin á skíðum hefst á ný um helgina. En snjóleysi vegna hækkandi hitastigs gerir það að verkum að sífellt flóknara verður að hefja skíðavertíðina svona snemma þótt gífurlegir efnahagshagsmunir séu í húfi. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Gestir Vikulokanna eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir formaður þingflokks Pírata og Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Þau ræddu afsögn Bjarna Benediktssonar, breytingar á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar, hryðjuverkaárásirnar í Ísrael og átökin í Gaza. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Davíð Berndsen

Briskrabbamein eru erfið viðureignar og þrátt fyrir að vera um einungis 2% af þeim krabbameinum sem greinast á hverju ári hér á landi eru þau fjórða algengasta orsök dauðsfalla af völdum krabbameina. Afar brýnt er að finna leiðir til að auka lifun þeirra sem fá briskrabbamein, meðal annars með því að greina meinin snemma, þegar skurðaðgerð er enn líkleg til árangurs. Ein leiðin til þess er að bæta eftirlit með einstaklingum sem vitað er að eru í hárri áhættu á að fá briskrabbamein út frá erfðaþáttum. Á Landspítalanum er hafinn undirbúningur að slíku eftirliti. Við töluðum við Sigurdísi Haraldsdóttur yfirlækni krabbameinslækninga á Landspítalanum og dósent við Háskóla Íslands í þættinum í dag. Lýðræðið og samfélagsmál verða rauður þráður Lýðræðishátíðarinnar Fundur fólksins verður haldinn á morgun og hinn í við Norræna húsið. Hátíðin er sú áttunda í röðinni og á henni verða fjölbreyttar umræður um fjölbreytt málefni, allt frá ull til dánaraðstoðar. Tilgangur hennar er að skapa vettvang til samtals milli almennings, stjórnmálafólks og frjálsra félagasamtaka. Ingibjörg Gréta Gísladóttir, verkefnastjóri Fundar fólksins sagði okkur meira um fundinn og hvað þar fer fram og með henni kom Ingrid Kuhlman, formaður Lífsvirðingar félags um dánaraðstoð, hún sagði okkur frá tveimur viðburðum sem félagið verður með á fundinum. Við fræddumst svo um ráðstefnuna Eldri og betri, á vegum Sóltúns heilbrigðisþjónustu, sem stóð einmitt yfir í Norðurljósasal Hörpu á sama tíma og þátturinn var í loftinu. Þar var rætt um mögulegar lausnir á áskorunum framundan til þess að geta mætt og sinnt þörfum ört stækkandi hóps aldraðra hér á landi. Sérfræðingar í öldrunarþjónustu fóru yfir stöðuna ásamt því sem erlendir sérfræðingar deildu reynslu af því hvernig önnur lönd gera í þessum málaflokki. Við fengum Höllu Thoroddsen, forstjóra Sóltúns heilbrigðisþjónustu, til að segja okkur frekar frá því helsta sem er rætt um á ráðstefnunni. Tónlist í þættinum Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir) From The Start / Laufey (Laufey & Spencer Stewart) Something Better / Kári (Kári Egilsson) Árstíðirnar þrjár / Karl Olgeirsson og Kristjana Stefánsdóttir (Karl Olgeir Olgeirsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Sigríður Pétursdóttur Kvikmyndafræðingur og Margrét Elísabet Ólafsdóttir prófessor við Listaháskóla Íslands um menningarpólitíkina í Barbie myndinni. Helga Vala Helgadóttir alþingismaður og Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður um hælisleitendamál. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku- og loftslagsráðherra um orkumál og stjórnmál. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri um alþjóðamál.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Vilhjálmur Árnason alþingismaður og Alexandra Briem borgarfulltrúi um Reykjavíkurflugvöll. Ágúst Bjarni Garðarsson alþingismaður og Björt Ólafsdóttir framkvæmdastjóri um fasteignamarkaðinn. Teitur Björn Einarsson alþingismaður og Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands um hvalveiðar. Logi Einarsson alþingismaður og Bryndís Haraldsdóttr alþingismaður um Evrópuráðið/stjórnmál.
Spegillinn 3. maí 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Leiðtogar Norðurlandanna hvika hvergi í stuðningi sínum við Úkraínu í stríði við Rússa. Framlag Íslands verður helst að hjálpa til að skrá það tjón sem Rússar hafa valdið í Úkraínu. Hallgrímur Indriðason ræddi við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra á fundi leiðtogann með Selenskí í Finnlandi. Örvunarbólusetningar gegn barnaveiki, kíghósta, mænusótt og stífkrampa liggja niðri, þar sem bóluefnið er ófáanlegt. Valtýr Stefánsson, barnasmitsjúkdómalæknir segir að ef of lengi dregst að bólusetja, geti kíghóstafaraldur brotist út. Alma Ómarsdóttir talaði við hann. Kaupmáttur ellífeyrisþega hefur ekki haldið í við almenna launaþróun á undanförnum árum og staða þeirra versnað verulega. Þetta kom fram í máli þingmanna stjórnarandstöðunnar á Alþingi í dag. Höskuldur Kári Schram tók saman. Brot úr ræðum Viðars Eggertssonar (S), Halldóru Mogensen (P), Ingu Sæland (F) og Bjarna Benediktssyni (D). Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segja stjórnvöld verða að bregðast tafarlaust við ófremdarástandi á vinnumarkaði. Ekki þurfi að bíða eftir næstu kjarasamningum. ---- Fundur norrænna leiðtoga um Úkraínu er skýrt merki um aukið vægi varnar- og öryggismála í Norðurlandasamstarfi. Hallgrímur Indriðason ræddi við Katrínu Jakobsdóttur eftir fundinn í Helsinki. Öryggis- og varnarmál voru varla rædd á norrænum vettvangi en hafa verið fyrirferðarmikil þar síðustu misseri. Innganga Finna og Svía í NATO og ógnin af Rússlandi hefur haft mikil áhrif. Það verður að nýta til að styrkja samstarfið enn frekar en draga ekki úr því á öðrum sviðum segir Hrannar B. Arnarsson formaður Norræna félagsins. Bryndís Haraldsdóttir (D) formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs telur þetta tækifæri til styrkingar og líka til að tengja Eystrasaltslöndin betur. Norsk stjórnvöld ætla að tvöfalda framlag til hermála, ekki síst til að lappa upp á norska flotann .Gísli Kristjánsson segir frá.

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Haraldur Þór Ólafsson Sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps um orkumál. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnðarins um iðnað framtíðar. Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir alþingismaður um útlendingamál. Andrés Magnússon framkvæmdastjóri SVÞ um verslunarrekstur framtíðarinnar.
Spegillinn 24. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Davíð Torfi Ólafsson framkvæmdastjóri Íslandshótela telur að starfsmenn þar samþykki ekki verkfallsboðun Eflingar.Bjarni Pétur Jónsson talaði við hann. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra harma bæði að verkfall þurfi til að lausnar kjaradeilu. Þau vona að deila Eflingar og SA leysist fljótt en eru ekki bjartsýnir á að svo verði. Kristín Sigurðardóttir ræddi við þau. Víða er snjó sem skafinn er af götum sturtað beint í hafnir. Í höfuðborginni er það bannað og Umhverfisstofnun telur að skerpa þurfi á verklagi um hvenær og hvar sé öruggt að fara með snjó útí sjó. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Andri Teitsson formann umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrar og Katrínu Sóleyju Bjarnadóttur frá Umhverfisstofnun. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur miklar áhyggjur af aukningu á notkun unglinga á nikótínpúðum, það hafi verið ákvörðun Alþingis að seinka gildistöku reglna sem draga úr sýnileika nikótínpúða á sölustöðum. Kristín Sigurðardóttir talaði við hann. Hafíss hefur orðið vart undan Vestfjörðum síðustu daga. Þó er nokkuð minna af honum en búist var við, að sögn Ásgríms L. Ásgrímssonar framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar. Stjórnarandstæðingar í Svíþjóð krefjast afsagnar nánasta samstarfsmanns Ulfs Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar. Ráðuneytisstjórinn í forsætisráðuneytinu er sakaður um ólöglegar álaveiðar. Pétur Magnúson sagði frá. Leikstjórinn Sara Gunnarsdóttir fékk í dag tilnefningu til Óskarsverðlauna. Þórdís Arnljótsdóttir talaði við hana. -------------- Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er umdeilt. Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar og menntamálanefndar segir frumvarpið til bóta, en Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata segir það fara gegn stjórnarskrárvörðum réttindum fólks. Bjarni Rúnarsson talaði við þær. Það bjátar sitthvað á í Bretlandi um þessar mundir. Efnahagsvandi, verkföll opinberra starfsmanna, róstusamt á stjórnarheimilinu, umhleypingar í veðri og öðru hvoru berast fregnir af hrakningum ólöglegra innflytjenda á Ermarsundi. Ásgeir Tómasson sagði frá, heyrist í Töru Pownall, húsmóður í Doncaster og Söruh Chambers sem báðar spara rafmagnið.

Spegillinn 12. desember 2022. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var sett á dagskrá Alþingis í dag þrátt fyrir mótmæli stjórnarandstöðuþingmanna sem vilja fresta umræðunni fram á næsta ár. Þeir óttast að þetta tefji afgreiðslu annarra mála fyrir jól eins og til dæmis eingreiðslu til öryrkja. Höskuldur Kári Schram tók saman og talaði við Bryndísi Haraldsdóttur (D). Samninganefndir hafa setið við lengi dags hjá ríkissáttasemjara og lending ekki enn í sjónmáli hjá Samtökum atvinnulífsins og samfloti iðnaðar og verslunarmanna. Mönnunum tveimur sem setið hafa í gæsluvarðhaldi frá því í september hefur verið kynnt ákæra í hryðjuverkamálinu. Sveini Andra Sveinssyni, lögmanni annars þeirra finnst ákæran sérkennileg og óljós. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við hann. Rússlandsforseti segir að stríðinu í Úkraínu ljúki ekki nema með samkomulagi en traustið milli Rússa og Úkraínumanna sé ekkert. Bjarni Pétur Jónsson tók saman. Hámarkshraði verður víða lækkaður á götum hollensku borgarinnar Amsterdam um áramótin. Aðeins verður leyfilegt að aka á 30 kílómetra hraða víðast hvar í borginni, eða á 80% gatna. Oddur Þórðarson sagði frá. Brasilíumenn eru úr leik á HM karla í fótbolta eftir tap gegn Króötum í vítaspyrnukeppni. Það ræðst í síðari leik dagsins klukkan sjö hvort Króatar mæta Argentínu eða Hollandi í undanúrslitunum. ----------- Sakborningar í hryðjuverkamálinu hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því í september og var kynnt ákæra í dag. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir ákæra fyrir brot á hryðjuverkaákvæði hegningarlaga marka þáttaskil. Hún segir lengd gæsluvarðhaldsins vekja athygli en grundvöllur ákærunnar á eftir að skýrast. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Fulltrúar þriggja stjórnmálaflokka í Danmörku, Jafnaðarmanna, Venstre og Moderaterne, miðflokks Lars Løkke Rasmussens, fyrrverandi forsætisráðherra hafa í dag setið á rökstólum og rætt stjórnarmyndun. Ásgeir Tómasson sagði frá. Heyrist í René Christensen varaformanni Danska þjóðarflokksins, Francisku Rosenkilde, pólitískum leiðtoga Valkostsins eða Alternativet og Lars Løkke Rasmussen, formanni Moderaterne, fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Venstre. Spjallmennið ChatGPT hefur vakið athygli fyrir gervigreind á heimsmælikvarða. Það svarar prófspurningum, veitir sambandsráðgjöf, greinir heimsmálin og yrkir ljóð. Þessu töfratóli fylgja fyrirsjáanlegar vangaveltur um framtíð mannsins á ýmsum sviðum. Alexan

Gestir þáttarins eru: Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins Magnús Már Guðmundsson framkvæmdastjóri BSRB Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks Umsjón: Höskuldur Kári Schram

Eiginkona mannsins sem var stungin til bana í Ólafsfirði á mánudag var látin laus úr haldi í dag, að því er lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynnti undir kvöld. Einn er enn í gæsluvarðhaldi Bilun í spennistöð við Barónstíg í Reykjavík varð til þess að rafmagnslaust varð í borginni vestanverðri síðdegis. Búist var við að viðgerð lyki ekki fyrr en um eða eftir miðnætti, en betur gekk en á horfðist í fyrstu. Oddur Þórðarson ræddi við Breka Logason, upplýsingafulltrúa Veitna. Jón Svanberg Hjartarson, fagstjóri hjá almannavörnum, segir að taka verði alvarlega norðanstorminn sem í aðsigi er á sunnudag. Veðurstofa hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir vegna óveðursins. Íbúar og eigendur fyrirtækja á Oddeyri á Akureyri eru hvattir til að vera vel á verði vegna flóðahættu á sunnudag. Hólmfríður Dagný Kristjánsdóttir ræddi við Jón Svanberg. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur til aðgerða svo að óstöðugleiki á fjármálamörkuðum verði ekki viðvarandi ástand. Pétur Magnússon sagði frá. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur tilkynnt forvera sinn til Persónuverndar fyrir að hafa farið inn á tölvupóstfang Sólveigar eftir að hún hætti störfum á síðasta ári. Mál af þessum toga eru algeng hjá Persónuvernd, en ekki er sama hvernig yfirmenn bera sig að við þessar aðstæður. Alexander Kristjánsson fór yfir málið með Helgu Sigríði Þórhallsdóttur, sviðsstjóra eftirlits hjá Persónuvernd. Íslendingar fóru alls um sextíu þúsund flugferðir frá landinu í september, og hafa aldrei verið á viðlíka faraldsfæti í þessum mánuði. Kristján Sigurjónsson ræddi við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Bryndísi Haraldsdóttur um kynnisför þingmanna í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis til Noregs og Danmerkur á dögunum til að glöggva sig á stefnu nágrannaþjóðanna um mótttöku flóttafólks og þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd. Fram kom m.a. að umsóknum um alþjóðlega vernd hér á landi hefur fjölgað undanfarin ár. Hlutfallslega fleiri umsóknir eru um alþjóðlega vernd á Íslandi en á annars staðar á Norðurlöndum. Friðarverðlaun Nóbels voru kynnt í Ósló í dag. Þau eru að þessu sinni þrískipt og helguð mannréttindum. Minnt er á hvernig mannréttindabrot og virðingarleysi fyrir alþjóðalögum leiðir til stríðs eins og í Úkraínu. Verðlaunin hlutu hvítrússneski lögmaðurinn og baráttumaðurinn Ales Bialitski; rússnesku mannréttindasamtökin Memorial; og úkraínsku samtökin Miðstöð borgaralegra réttinda. Gísli Kristjánsson sagði frá. Sjö ára drengur, Tariq að nafni. hefur öðlast mikla frægð á samfélagsmiðlum síðustu vikur vegna