Endalaus Óviska er vikulegt hlaðvarp um lífið og tilveruna þar sem kvikmyndagerðamennirnir Elfar og Dagur öðlast ávalt meiri visku með því að fá áhugaverða gesti í fróðlegt spjall. Þið getið haft samband: https://www.facebook.com/EndalausOviska/ elfar@xxcheck.net
Grínistinn og sælkerinn Eggert Smári kíkti til okkar á Sunnudagsmorgni og eldaði handa okkur kjúklingavængi(hot wings) með nýju sósunum sínum. Við ræddum COVID-19 á meðan við smökkuðum bestu "hot souce" sósu sem hægt er að fá á Íslandi. Sósurnar eru með mismunandi styrkleika og áttu þeir Endalausu Óvitar í miklum erfiðleikum með að borða sterkustu vængina. Þið getið nálgast sósurnar hanns Eggerts hér.. https://www.smarisvolcanosauce.com/
Dagur og Elfar tóku stutt hlaðvarp til að hita sig upp fyrir aðra þáttaröð af Endalausri Óvisku. Farið var yfir við hverju má búast í komandi framtíð og hvað þeir Endalausu Óvitar eru búnir að vera að bralla uppá síðkastið.
Arnór Daði seigir okkur hvað er á döfinni hjá sér í uppistandinu ásamt því að gefa okkur smá innsýn í fjölskyldulífið þar sem hann á von á barni. Þeir Elfar fara líka aftur í tímann og tala um uppeldisárin um Jólin.
Úlfur er listamaður sem hefur sýnt verkin sín víða.
Logi kom til okkar og spjallaði um stuttmyndina sína Krepptur Hnefi sem er paródía af 80's-lögguhasar. Svo fór hann með Elfar Þór í djúpar umræður um þáttaröðina Breaking Bad.
Andrew er magnaður grínisti frá Skotlandi og elskar að koma til Íslands meðal annars til að halda uppistönd. Farið er yfir hvernig Íslenska uppistandssenan er öðruvísi en annarstaðar og við fáum að kynnast Andrew nánar og hvað dróg hann út í að vera grínisti.
Grínistinn Stefnir seigir okkur frá ýmsum erfiðleikum sem hann hefur glímt við í gegnum tíðina og hvernig hann notar slæma fortíð sína til að gera magnaða uppistandssýningar. Stefnir er í uppistandsgrúbbu sem heitir My Voices Have Tourettes og er oft með sýningar á The Secret Cellar. Hveðja Dagur og Elfar
Snjólaug er uppistandari sem hefur búið og haldið uppistönd sín víða um heim. Hún hóf uppistandsferil sinn í London þegar hún vann uppistandskepni og hefur verið að gera góða hluti síðan sem grínisti. Ásamt því að seigja brandara er hún líka handritshöfundur og hefur tekið að sér mörg áhugaverð og skemmtileg verkefni.
Dan Zerin is co-creator ot the award winning standup comedy show My Voices have Tourettes and you can find him doing amazing standups at The Secret Cellar in Reykjavík Iceland. Having tourettes syndrome does not stop Dan when it comes to performing comedy in front of a crowd or giving us amazing interview in this podcast.
Hans Birgisson seigir okkur frá för sinni frá því að vera stamandi eineltisbarn frá Spáni yfir í að vera frábær grínisti í Reykjavík. Hans er reglulega með mögnuð uppistönd á The Secret Cellar.
York Underwood er grínisti frá Kanada! Hann settist að hér fyrir nokkrum árum og hefur verið stór þáttur í því að stækka uppistand senuna hér á landi! York Underwood is a Canadian comedian that moved to Iceland and has been a big part of the Standup comedy movement here.
Huw er grínist frá Wales sem hefur ferðast víða um heiminn og settist svo að hér á Íslandi og er partur af Goldengang Comedy hópnum sem kemur fram flest kvöld vikunnar á The Secret Cellar! Huw er með einstakan stíl af gríni sem hann ræðir við Elfar um, hvernig það myndaðist út frá því að vera óhamingjusamur þó hann sé nú mun hamingjusamari maður í dag. Ekki missa af þessu ótrúlega áhugaverða karakter! Kv. Elfar & Dagur
Gestur okkar í þetta skipti er reynslumikill hljóðmaður frá kvikmyndaskóla í Vancouver og hefur mikla reynslu af kvikmyndagerð ásamt hljóðvinnslu við tölvuleikjagerð. Gísli fer yfir ferðalag sitt frá því að vera smiður yfir í að gera bíómyndir og hvernig hann ákvað síðan að sérhæfa sig í hljóði.
Gísli Jóhann grínisti er frumkvöðull í þeim iðnað hér á landi sem stofnandi Goldengang comedy. Gísli og Elfar tala saman um allt á milli himins og jarðar, Gísli segir okkur frá hvernig þessi draumur hans þróaðist frá því að vera open mic einu sinni í viku í það að núna er sýning á hverju einasta kvöld á The Secret Cellar.
Eggert Smári er snjall grínisti sem er reglulega með uppistand á The Secret Cellar. Elfar og Eggert ræða saman um hvernig ferðir Eggerts um heiminn leiddu hann á síðar á þá braut að verða grínisti. Kv. Elfar & Dagur
Arnór Daði grínisti og uppistandari talar um sýningarnar sínar sem hann ætlar að halda út um land allt ásamt því að spjalla og hafa gaman með Elfari. Maður er manns gaman.
Vilhjálmur Ólafsson handritshöfundur, leikstjóri & nýr kjörinn formaður stúdentaleikhúsins kemur að ræða leikstjórann Quentin Tarantino. Villi og Elfar ræða myndir Tarantinos í ljósi þess að níunda og næst síðasta mynd hans Once upon a time in hollywood var að koma í bíó. Strákarnir fara í gegnum helstu myndir hans ásamt því að ræða nokkrar sem Tarantino skrifaði bara.
Aníta og Kristján frá Minningasjóði Einars Darra, Ég á bara eitt líf fræddu okkur um mikilvægt forvarnarstarf þeirra. Minningarsjóður Einars Darra stendur fyrir þjóðarátakinu „Ég á bara eitt líf“ sem berst gegn fíkniefnum, með áherslu á misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja, sérstaklega á meðal ungmenna á Íslandi. Við eigum öll bara eitt líf Hv Dagur og Elfar
Mauricio frá Dómíníska Lýðveldinu hefur verið að gera góða hluti á Secret Cellar sem grínisti. Gaman var að heyra sögu hanns, hvernig hann kom til Íslands og afhverju hann kaus að byrja með uppistand. Þetta er fyrsti þáttur okkar sem er á ensku þar sem hlátur er eins á öllum tungumálum.
Bára Halldórsdóttir aktavisti fyrir öryrkja kíkir á Elfar & Dag að spjalla um hvernig líf hennar umturnaðist eftir eina kvöldstund á Klaustur Bar. Bára er yndisleg, góð kona sem hefur verið öryrki síðan hún greindist með ólæknandi sjúkdóm behcet, í hlaðvarpinu ræðir hún æsku sína, þessa örlaga nótt og hvernig hún ákvað að taka jákvæða stefnu út frá því. Kv. Elfar & Dagur
Helgi Steinar er grínisti & tungumálasnillingur sem var að gefa út comedy album-ið Cold as Icelandic sem hægt er að nálgast á spotify & itunes. Helgi og Elfar ræða auðvitað albumið hans Helga sem er spreng hlægilegt ásamt því að ræða daginn og veginn, hvernig var að byrja í uppistandi í kína með settið sitt í kínversku og margt fleirra.
Greipur Hjaltasson er einn einstakasti og fyndnasti grínisti landsins. Hann hefur sagt brandara í yfir 4 ár hjá Golden Gang Comedy.
Arnór Daði er Grínisti í Golden Gang comedy og kemur fram nánast öll kvöld vikunnar á Secret Cellar! Elfar og Arnór ræða saman um lífið og tilveruna en auðvitað er alltaf stutt í grínið hjá þeim.
Logi mætir til Elfars að ræða THE THING! Í þessum þætti er farið ítarlega í 3 myndir Við ræðum The thing from another world 1951, The Thing 1982 og The Thing 2011. Okkur finnst fátt skemmtilegra en að fá svona meistara í heimsókn til að ræða við okkur um einhverjar sérstakar myndir og ekki verra þegar svona meistaraverk eru tekin fyrir. Kv. Elfar og Dagur.
Villi snýr aftur og þeir Elfar tala ítarlega um leikarann Nicolas Cage. Farið er í ferilinn hans og kvikmyndirnar Vampire's Kiss, The Rock, Snake Eyes og Leaving Las Vegas eru krufnar til mergjar. Þetta hlaðvarp inniheldur marga spilla ef þið hafið ekki séð umræddar myndir. Takk fyrir okkur Elfar Þór og Dagur
Við kíktum á einn aðalleikara Eden, Hansel Eagle sem hefur farið á kostum sem leikari. Hansel hefur mikla ástríðu fyrir leiklist og öllu sem tengist kvikmyndagerð.
Við fengum þann heiður að fá Snævar Sölva Sölvason í heimsókn en hann er einmitt handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar Eden sem var frumsýnd föstudaginn 10. maí síðastliðinn. Við mælum með að þið farið á sjá þessu æðislegu mynd í bíó en hún er sýnd í smárabíó og háskólabío. Við fengum að kynnast þessum ótrúlega áhugaverða manni og fengum smá innsýn í hugarheim kvikmyndagerðamannsins á bakvið myndirnar Albatross og Eden. Bkv. Elfar & Dagur
Þórhallur Þóhrallsson er búinn að vera lengi í bransanum sem uppistandari ásamt því að vera leikari. Spekulerað var um hvernig grín getur hjálpað manni andlega og hvar persónuleg mörk liggja varðandi húmor.
Snillingurinn og Frumkvöðullinn Jonni Ragnarsson kíkti við í skemmtilegt spjall. Ekki láta þetta fram hjá þér fara og hentu í eitt like til að fylgjast með komandi tímum og skemmtilegum gestum. með ást og kærleik. Kv. Elfar & Dagur
Daði Einarsson bauð okkur í heimsókn í tölvuleikjafyrirtækið sitt Myrkur Games. Daði er mikill frumkvöðull í tölvuleikjagerð sem og kvikmyndagerð.
Við fengum Sólborgu Guðbrandsdóttur í fróðlegt og skemmtilegt spjall. Ásamt því að vera frábær söngkona og leikkona er Sólborg mikil barráttukona gegn kynferðisofbeldi.
Knútur Haukstein kvikmyndagerðamaður kemur í heimsókn og ræðir við Elfar um kvikmyndir ásamt mörgu öðru eins og t.d afhverju þeir urðu hugfangnir að leiklistinni.
Vilhjálmur Ólafsson kíkti í heimsókn og rætt var um kvikmyndaheiminn, hvað dróg Vilhjálm og Elfar inní kvikmyndagerð, afhverju Nicolas Cage er snillingur ..og afhverju maður á ekki að horfa á Woody Allen myndir.
Logi Sigursveinsson kom í gott spjall þar sem rætt var ítarlega um Oldboy. Eins og sést þá deila Elfar og Logi mikilli ástríðu fyrir Kóreiska meistaraverkinu frá 2003.
Við fengum frumkvöðulinn og snillinginn Bjarna í skemmtilegt viðtal. Bjarni er búin að gera marga frábæra hluti eins og að leika í hryllingsmyndum, gera heimildarefni og er núna kominn út í myndasögur.
Hérna er þáttur tvö af Endalaus Óviska! Árnór Daði grínisti kíkti á Elfar í spjall þar sem var rætt allt á milli himins og jarðar. Endilega smellið á áskriftar hnappinn til að fá þættina beint í æð.
Hérna er fyrsti þáttur af Endalaus Óviska! Þið getið haft samband við okkur á elfar@xxcheck.net ef þið eruð með einhverjar fyrir spurningar eða eitthvað sem þið hafið áhuga á að verði rætt í þættinum, vonandi njótið þið þáttarins. Takk fyrir stuðninginn