Podcasts about skotlandi

  • 31PODCASTS
  • 140EPISODES
  • 1h 1mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Jun 2, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about skotlandi

Latest podcast episodes about skotlandi

Samfélagið
Reykjavík Fringe Festival og hitamótmæli á Austurvelli

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jun 2, 2025 57:38

Hátíðin Reykjavík Fringe Festival fer fram í áttunda sinn þessa vikuna, þar verða margs konar listform og gjörningar ráðandi; uppistand, ljóð, ljósmynda- og leiksýningar - meira að segja burlesque-danssýning þar sem kettir koma við sögu. Við fáum tæknistjóra hátíðarinnar, Juliette Louste, til að ræða við okkur um þessa hátíð sem á rætur sínar að rekja til grasrótarhreyfingar listamanna í Skotlandi fyrir hartnær áttatíu árum síðan. Um helgina var boðað til tveggja mótmæla í miðborg Reykjavíkur – önnur voru á Austurvelli vegum hóps sem heitir Ísland, þvert á flokka, þar sem stefnu stjórnvalda í útlendingamálum var mótmælt – og hin voru eiginleg gagnmótmæli á Ingólfstorgi, þar sem hópur kom saman til að taka afstöðu gegn mótmælunum á Austurvelli og með jaðarsettum hópum. Samfélagið mætti á þau bæði – ræddi við fólkið sem þar var og fylgdist með því sem fór fram. Tónlist í þættinum: AIR - All I Need.

Dr. Football
Sagan með Stefáni Pálssyni - Fótbolti í Skotlandi 1/2

Dr. Football

Play Episode Listen Later May 15, 2025 69:25

Stefán Pálsson og Páll Kristjánsson elska skoska knattspyrnu. Í þessum fyrri þætti förum við yfir stórliðin í Skotlandi og hvað það er sem gerir fótboltann þarna svona aðlagandi.

Mannlegi þátturinn
Kristín Þóra föstudagsgestur og litlir matarmarkaðir í matarspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 11, 2025 52:08

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona. Síðan hún útskrifaðist sem leikkona hefur hún leikið fjölda hlutverka bæði á sviði og fyrir framan myndavélina og ávallt hefur hennar frammistaða vakið eftirtekt. En svo er það sýningin sem hún bjó til, Á rauðu ljósi, þar sem hún er ein á sviðinu í Þjóðleikhúskjallaranum og fjallar um eigin reynslu, af stressi, streitu og því að keyra sig í þrot. Þar fjallar hún á bráðfyndinn hátt um þessa erfiðu reynslu, en einnig af slíkri einlægni að það snertir virkilega við áhorfendum og nú er hún farin að flytja einnig erindi um þessa reynslu. Við fengum Kristínu auðvitað til að segja okkur aðeins frá því hvernig þessi sýning hefur sprungið út og svo fórum við auðvitað með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar, í Skotlandi, Englandi og Hlíðunum og röktum okkur svo í gegnum lífið til dagsins í dag. Sigurlaug Margrét var svo með okkur í matarspjallinu í beinni útsendingu frá suður Evrópu. Hún sagði okkur frá litlum sveitamörkuðum og frönskum kartöflum í þetta sinn. Tónlist í þættinum í dag: Vor í Vaglaskógi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk) Freedom / Wham (George Michael) I Wanna Dance With Somebody / Whitney Houston (George Merrill & Shannon Rubicam) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Norðurhjálp, Snorri golfvallahönnuður og veðurspjallið með Einari Sveinbjörnss

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 15, 2024 52:49

Norðurhjálp tekur við og selur allskyns notaðar vörur; fatnað, heimilisbúnað, húsgögn, bækur, smádót, listaverk og margt fleira. Allur ágóði fer í að styrkja einstaklinga og fjölskyldur á svæðinu sem ekki hafa mikið á milli handanna. Fjórar konur sem hafa starfað lengi við sjálfboðavinnu tóku höndum saman og vinna nú 6 daga vikunnar við að taka á móti vörum og við afgreiðslu. Við heimsóttum Norðurhjálp í rúmlega 400 fm. skemmu sem þær leigja undir starfsemina rétt hjá Glerártorgi. Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir tók á móti okkur. Svo heyrðum við í Snorra Vilhjálmssyni í Austurríki, en hann starfar þar við golfvallahönnun hjá fyrirtæki sem kennt er við einn frægasta kylfing heims. Snorri lærði golfvallahönnun í Skotlandi og vinnur nú að hönnun og byggingu glæsilegra golfvalla um nánast allan heim. Það er ekki víst að margir viti hvað felst í starfi golfvallahönnuðar. Við fengum Snorra til að segja okkur í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo í veðurspjallið í dag. Í þetta sinn sagði hann okkur frá kaldri tungu sjávar undan Vestfjörðum og Húnaflóa um þessar mundir og hvernig hún mótar hitafarið. Svo talaði Einar um veðurstöðina Grímsstaði á Fjöllum. Þar er ríkir hálfgert meginlandsloftslag og hann ætlar að skoða kuldana undanfarna daga einmitt þar. Og að lokum veltum við því fyrir okkur hvort fellibyljatímanum á Atlantshafi sé lokið. Tónlist í þættinum í dag: Pínulítið lengur / Stefán Hilmarsson (D. Gates, texti Stefán Hilmarsson) Litli tónlistarmaðurinn / Elly Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson eða Tólfti September) Build Me Up Buttercup / The Foundation (A. G. Instone, M. D'Abo og T. Macaulay) Veðurglöggur / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Samfélagið
Vanlíðan barna, víkingar og umhverfismál

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 4, 2024 59:11

Hvernig tökum við á vanlíðan barna og ungmenna og hvað er raunverulega að hrjá börn sem sýna ofbeldishegðun? Eru það fjölskylduáföll, heimilisofbeldi, vanræksla og óregla á heimilum eða hreinlega áhrif samfélagslegra áfalla á borð við heimsfaraldur og efnahagshrunið? Í Skotlandi tókst yfirvöldum að draga úr vopnaburði meðal ungmenna með því að huga að geðheilbrigði þeirra í samvinnu við lögreglu. Við ætlum að ræða við Sigrúnu Sigurðardóttur prófessor í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri en hún er einnig stjórnarmaður í Berginu og Geðhjálp og fyrrverandi lögreglukona. Þar næst fáum við pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag fjallar hann um samband umhverfis- og heilbrigðismála. Að lokum kíkjum við í heimsókn í Þjóðminjasafnið með safnafræðingnum Guðrúnu Dröfn Whitehead, sem var að gefa út bók um víkinga og birtingarmynd þeirra í samtímanum. Við ræðum meðal annars hvað það þýðir að vera víkingur í dag, árið 2024. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-04 K.ÓLA - Dansa meira. Bon Iver - For Emma. Ted Gardestad - Viking.

Heimsglugginn
Fíkniefni í Skotlandi, gengjastríð, konunglegur skandall í Noregi og Robert Kennedy yngri

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Aug 22, 2024 24:28

Fleiri deyja vegna neyslu fíkniefna í Skotlandi en nokkru öðru landi í Evrópu. Skotar hafa miklar áhyggjur, vonir eru að neyslurými geti fækkað dauðsföllum. Stjórnvöld í Danmörku og Svíþjóð hafa ákveðið að auka mjög samstarf í baráttu gegn glæpagengjum. Dómsmálaráðherrar landanna og ríkislögreglustjórar hittust og ákváðu aðgerir sem eiga að stoppa að samfélagsmiðlar séu notaðir til að lokka börn og unglinga í Svíþjóð til óhæfuverka í Danmörku, stórauka samstarf dönsku og sænsku lögreglunnar með til dæmis auðveldara aðgengi að upplýsingum og skipti á efni úr eftirlitsmyndavélum. Fíkniefnaneysla á að hluta sök á hneyksli í norsku konungsfjölskyldunni. Marius Borg Höiby, stjúpsonur Hákons krónprins, er sakaður um heimilisofbeldi, var handtekinn fyrr í ágúst. Hann virðist hafa gengið í skrokk á sambýliskonu sinni undir áhrifum kókaíns og áfengis. Fyrri kærustur hans komið með svipaðar ásakanir. Flokksþingi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum er að ljúka og hefur verið aðal umfjöllunarefni fjölmiðla. Þeir hafa þó einnig fjallað um Robert F. Kennedy yngri sem hefur boðið sig fram til forsetaembættisins. Hann er sonur Roberts Kennedy, sem var myrtur árið 1968 og bróðursonur Johns F. Kennedy forseta sem var myrtur fimm árum áður. Kennedy yngri er þekktur sem harður andstæðingur bólusetninga og fyrir að trúa á alls kyns samsæriskenningar, meðal annars að flúor í vatni lækki greindarvísitölu fólks og sé krabbameinsvaldandi, að þráðlaus net leiði til „leka úr heilanum“, eins og hann hefur orðað það. Robert Kennedy virðist ætla að hætta við framboð og styðja Donald Trump gegn loforði um embætti ef Trump nær kjör.

Fotbolti.net
Túfa tekur aftur til starfa á Hlíðarenda: Þetta gerðist allt mjög hratt

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Aug 2, 2024

Það var tilkynnt seint í gærkvöldi að Arnar Grétarsson hefði verið látinn taka pokann sinn hjá Val. Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, tekur við og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Haukur Páll Sigurðsson verður aðstoðarmaður Túfa. Tíðindin komu nokkrum klukkutímum eftir að Valur hafði tapað gegn St. Mirren frá Skotlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Túfa hefur síðustu árin þjálfað Öster og Skövde í B-deild Svíþjóðar. Áður en hann hélt út, þá var hann aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá Val og aðalþjálfari KA og Grindavíkur. Túfa ræddi við Fótbolta.net í dag um nýja starfið sitt. „Ég er bara góður og mjög spenntur fyrir verkefninu. Ég er mjög þakklátur fyrir tækifærið. Ég er byrjaður að vinna. Ég mætti á Hlíðarenda snemma í dag og byrjaði vinnuna mína," sagði hann.

Spegillinn
Hvað er í gangi í gosinu? Vandræði í Skotlandi. Höll og kastali í Gufunesi.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 30, 2024 20:40

Hvað er í gangi í Sundhnúksgígaröðinni? Þrýstingur eykst og augu jarðvísindamanna eru á mælitækjunum. Rætt var við jarðeðlisfræðinginn Halldór Geirsson. Fyrsti ráðherra Skotlands boðaði afsögn sína í gær, eftir afdrifarík, pólitísk mistök. Við segjum frá áframhaldandi vandræðum Skoska þjóðarflokksins. Við heimsækjum Westminster-höll Játvarðs konungs og kastala Vilhjálms sigursæla, í Normandi - en samt í Gufunesi.

Mannlegi þátturinn
Þórhildur Örvarsd. föstudagsgestur, matarspjall um bixímat

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 12, 2024 51:35

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Þórhildur Örvarsdóttir. Þórhildur er fædd og uppalin á Akureyri og hóf snemma feril sinn sem söngkona enda sannarlega fædd inn í mikla tónlistarfjölskyldu. Á ferlinum hefur hún tekist á við ólíka stíla í tónlistinni, til dæmis óperur og söngleiki, heimstónlist, popp, jazz og kvikmyndatónlist. Þórhildur hefur í mörg ár kennt söng og raddþjálfun víða. Þórhildur sagði okkur betur frá sjálfri sér, æskunni á Akureyri, námsárum í Reykjavík, Danmörku og nú síðast í Skotlandi og svo fengum við að vita hvað hún er að fást við þessa dagana. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, en í spjallinu í dag tókum við fyrir svokallaðan bíxímat, sem er matur sem fólk hefur mjög misjafnar skoðanir á. Tónlist í þættinum í dag: California / Joni Mitchell (Joni Mitchell) Syngur lóa / Torrek (þjóðlag) Willie Stewart/Molly Rankin / Eddi Reader (af plötunni The Songs of Robert Burns) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Jólaminningar Villa og Kára og Þríburar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 28, 2023 52:22

Við fengum í dag jóla- og áramótaminningar frá þeim bræðrum Vilhelmi Antoni og Kára Jónssonum. Þeir voru saman í hljómsveitinni 200 þúsund naglbítum og hafa þar að auki brallað ýmislegt saman í gegnum tíðina, til dæmis í sjónvarpinu. Við fengum skemmtilegar sögur af jólagjöfum, vonbrigðum, jólum í Skotlandi, áramótum, tilraunum með flugelda, misgóðar matarminningar og margt fleira í skemmtilegu spjalli við þá bræður. Heimildarmyndin Þríburar verður sýnd hér á RÚV á Nýárskvöld. Í henni er meðal annars fylgst með lítilli fjölskyldu sem á von á þríburum, fyrir eru þau þrjú, foreldrarnir og rúmlega ársgamall drengur. Við fáum að vera fluga á vegg í lífi fjölskyldunnar sem tekst á við margvíslegar áskoranir og fær óvæntan bónusglaðning í miðri á. Í myndinni er líka skyggnst inn í líf þríbura á öllum aldri og því velt fyrir sér hvernig sé að alast upp sem þríburi. Ragnhildur Steinunn, sem stendur að myndinni ásamt Eiríki Inga Böðvarssyni, kom í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum í dag: Í fjarska loga lítil ljós/200.000 naglbítar (200.000 naglbítar, texti Vilhelm Anton Jónsson) Walking in the Air / Peter Auty (Howard Blake) Lítill Fugl / Elly Vilhjálms (Sigfús Halldórsson og Örn Arnarsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Jólaminningar Villa og Kára og Þríburar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Dec 28, 2023

Hjálpargögn komast ekki til Gaza og áhrif loftslagsbreytinga í hafinu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 20, 2023 10:29

20. október 2023 Skortur er farinn að sverfa að á Gaza og enn hefur flutningabílum sem bíða með hjálpargögn við landamæri Egyptalands ekki verið hleypt í gegn. Hamas sagðist hafa sleppt tveimur bandarískum gíslum af mannúðarástæðum síðdegis. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í morgun við undirskriftum meira en tvö þúsund manns sem hvetja stjórnvöld til að fordæma stríðsglæpi Ísraelshers og fjöldamorð á Gaza. Heilbrigðisráðherra segir brýnt að auka forvarnir og fræðslu um skaðsemi ljósabekkja, sé notkun þeirra að aukast hjá ungmennum. Tveir hafa farist í flóðum í Skotlandi þar sem rauð veðurviðvörun er í gildi. Fárviðri og flóð hrella Dani og ekki er búist við að veðrið gangi niður fyrr en á sunnudag. Starfsfólk heilsugæslunnar á Akureyri er uggandi vegna uppsagna og skipulagsbreytinga sem kynntar voru á dögunum. Stjórnendur segja breytingarnar til bóta og þjónusta við bæjarbúa skerðist ekki. Bleiki dagurinn, hápunktur árvekniátaks Krabbameinsfélagsins vegna krabbameina hjá konum er í dag. Árlega greinast 916 konur með krabbamein. Fastagestir í Laugardalslauginni kættust þegar hún var opnuð í dag eftir þriggja vikna lokun og viðgerðir. ----------- Áratuga átök milli Ísraels- og Palestínumanna eru blóðugri en nokkru sinni og engin lausn möguleg önnur en viðurkenning á báðum ríkjum segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir en hún er ekki í augsýn í bráð. Síðustu 20 ár hefur sjávarhitinn verið hár hér við land, sérstaklega fyrir norðan land og líklegt að svo verði áfram, breytingar á sjávarhita og straumum eiga eftir að verða miklar á næstu tíu árum og svo gæti farið að loðna til dæmis hverfi frá Íslandi til Grænlands. Sjónum beint að sjónum í umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga. Í dag er glatt í gömlum hjörtum, - allnokkrum að minnsta kosti því brýnin í Rolling stones gáfu út plötu í dag, þá fyrstu með frumsömdu efni í átján ár. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Spegillinn
Hjálpargögn komast ekki til Gaza og áhrif loftslagsbreytinga í hafinu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 20, 2023

Flugvarpið
#64 – RFSS – Flugnám, fíkniefnaskimanir og kulnun – Högni Björn Ómarsson

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Oct 7, 2023 39:36

Rætt er við Högna Björn Ómarsson flugstjóra og ritara FÍA í tilefni af Reykjavík Flight Safety Symposium, ráðstefnu ÖFÍA sem haldin verður í sjöunda sinn nú október. Á dagskrá ráðstefnunnar í ár verða margir áhugaverðir fyrirlesarar sem fjalla munu um fjarturna, flugnám og flugkennslu, streitu og kulnun, fíkniefnaskimanir og losunarheimildir. Högni gerir hér lítillega grein fyrir fyrirlesurum og segir frá efni fundarins. Högni Björn segir einnig aðeins frá sínum ferli í fluginu, flugnámi í Skotlandi og ræðir m.a. breytingar á vinnuumhverfi flugmanna á síðustu árum, félagsstarfið í FÍA og fleiri mál.

Jóns
Inga Hlín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

Jóns

Play Episode Listen Later Aug 8, 2023 44:50

Inga Hlín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Inga Hlín kom einnig í viðtal janúar 2021 þar sem við ræddum meðal annars áskoranir ferðaþjónustu fyrirtækja í Covid. Inga Hlín hefur undanfarin ár starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi og fyrirlesari. Helstu verkefni hafa snúið að samstarfi fyrirtækja og opinberra aðila, stefnumótun, markaðssetningu, breytingastjórnun og sjálfbærni í tengslum við svæði og borgir. Hún hefur starfað með ýmsum aðilum í tengslum við ráðgjöf og má þar helst nefna Austurbrú, Reykjavíkurborg og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða starfaði Inga Hlín hjá norrænu ráðgjafarfyrirtæki á sviði þróunar, nýsköpunar og markaðssetningar svæða. Inga Hlín er með B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og M.Sc. próf í alþjóðamarkaðsfræði frá The University of Strathclyde í Skotlandi. Hún starfaði áður í yfir áratug hjá Íslandsstofu og Útflutningsráði, lengst sem forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina. Þar stýrði hún meðal annars kynningar- og markaðsstarfi á áfangastaðnum Íslandi í samstarfi við hagaðila og fór allt markaðsstarf fram undir merkjum Inspired by Iceland. Þá stýrði hún samstarfsverkefnunum Ísland allt árið og Iceland Naturally auk þess sem hún sat í stjórn NATA ferðamálasamstarfsins. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins ses. var stofnuð 3. apríl 2023. Stofnendur stofunnar eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Að undirbúningi stofunnar komu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og atvinnulífið í gegnum Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðinu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu, auk þess sem stjórnvöld studdu við verkefnið. Eitt af hlutverkum Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er að vera áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið. Skilgreining stjórnvalda á áfangastaðastofu er eftirfarandi: „Áfangastaðastofa (e. Destination Management Organisation) [er] svæðisbundin þjónustueining á vegum opinberra aðila og einkaaðila sem hefur það meginhlutverk að styðja við ferðaþjónustu í viðkomandi landshluta og tryggja að hún þróist í takt við vilja heimamanna þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi“.

Heimsglugginn
NATO, Skotland og Orkneyjar

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 6, 2023 23:47

Jens Stoltenberg verður áfram framkvæmdastjóri NATO í ár í viðbót og ljóst að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, tekur ekki við því embætti fyrr en í fyrsta lagi eftir rúmt ár. Raunar herma fréttir að Bandaríkjastjórn vilji að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, verði þá eftirmaður Stoltenbergs. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Vera Illugadóttir ræddu þetta við Boga Ágústsson í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu einnig stöðu mála í Skotlandi. Karl konungur III tók í gær formlega við skosku krúnudjásnunum við hátíðlega athöfn í St. Giles-dómkirkjunni í Edinborg. Talsverður hópur lýðveldissinna mótmælti í grennd við kirkjuna. Kannanir benda til þess að um þriðjungur Skota sé andvígur konungdæminu en tæpur helmingur styður það. Þá vill um helmingur Skota að landið verði sjálfstætt ríki og það hefur ekki breyst þó að Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, eigi í margvíslegum vandræðum um þessar mundir. Nýjasta áfallið er að Mhairi Black, ein helsta vonarstjarna flokksins, tilkynnti í gær að hún ætlaði að hætta þingmennsku, hún hefði fengið sig fullsadda af stjórnmálum. Black lenti í orðaskaki við Oliver Dowden varaforsætisráðherra í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í neðri málstofu breska þingsins. Dowden minnti á að þau hefðu bæði verið kjörin á þing 2015 og hann væri viss um að hún tæki undir árnaðaróskir til konungs. Dowden vildi með þessu stríða Black sem er lýðveldissinni. Hún svaraði með því að þakka Dowden fyrir að minnast þess að þau hefðu komið á þing á sama tíma og hún væri þess fullviss að þau hættu á sama tíma. Þingheimur hló hátt og lengi. Undir lok Heimsgluggans var rætt um óskir Orkneyinga um aukið sjálfræði og breytingar á tengslum þeirra við Bretland. Ýmsir hafa rætt um möguleika á að endurvekja tengsl eyjanna við Noreg og Norðurlönd.

Heimsglugginn
NATO, Skotland og Orkneyjar

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jul 6, 2023

25 frá friðarsamningum á Norður-Írlandi

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 30, 2023 22:12

Þáttaskil urðu í sögu Norður-Írlands þegar friðarsamkomulag var undirritað á föstudaginn langa 1998. Það er jafnan kennt við daginn þegar það var undirritað og kallað Good Friday Agreement. Friðarsamkomulagið batt að langmestu leyti enda á áratuga blóðug átök sambandssinna og lýðveldissinna, eða mótmælenda og kaþólikka. Átökin, sem hófust rétt fyrir 1970, kostuðu þúsundir mannslífa. Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, þekkir vel til á Norður-Írlandi. Hún bjó á Írlandi um skeið, lauk meistaranámi í þjóðernishyggju og þjóðernisátökum frá Edinborgarháskóla í Skotlandi og hefur starfað sem blaðamaður og pistlahöfundur. Sólveig gerði tvo útvarpsþætti í fyrra ásamt Gunnari Hanssyni um blóðuga sunnudaginn í Derry eða Londonderry. Þá voru fimmtíu ár frá einum afdrifaríkasta atburði The Troubles, óaldarinnar. Þann 30. janúar 1972 efndu kaþólikkar til friðsamlegrar mannréttindagöngu í borginni þar sem þeir kröfðust aukinna borgaralegra réttinda og andmæltu lögum sem höfðu tekið gildi hálfu ári áður og heimiluðu yfirvöldum að fangelsa fólk um óákveðinn tíma, án réttarhalda. Við ræddum við Sólveigu í Heimsglugganum um hvernig til hefði tekist á Norður-Írlandi, ástandið þar nú, stjórnmál, trúarbrögð, mannleg samskipti og framtíðina.

Heimsglugginn
25 frá friðarsamningum á Norður-Írlandi

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 30, 2023

Ekki bara hálsbólga, vinkill og Fríða lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 13, 2023 50:00

Færsla á Facebook síðasta föstudag vakti athygli okkar, en þar rekur Helga Maren Pálsdóttir atburðarás frá því 4ra gömul dóttir hennar vaknar með hálsbólgu laugardaginn 14.janúar. Það sem gerðist í kjölfarið er martöð allra foreldra; sjúkrahúsvist, gjörgæsla, öndunarvél, bakslag, aftur gjörgæsla og sem betur fer bati eftir þrjár langar vikur. Helga Maren rakti söguna og þessa erfiðu reynslu fyrir okkur í þættinum í dag. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í dag bar hann vinkilinn að Skotlandi, Orkneyjum, Hjaltlandseyjum og Íslandi. Lesandi vikunnar í þetta sinn er Fríða Kolbrún Þorkelsdóttir bóksali og nemi í almennri bókmenntafræði. Hún ætlar að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Hún talaði um eftirfarandi bækur: Lungu e. Pedro Gunnlaugur Garcia, American Psycho e. Brett Easton Ellis, Dracula e. Bram Stoker, svo nefndi hún höfundana Milan Kundera og Andri Snær Magnason og Kristínu Eiriksdóttir. Tónlist í þættinum í dag Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) Desafinado / Stan Getz (Antonio Carlos Jobim, Newton Ferreira de Menonca) Smooth Operator / Sade (Sade Adu & R. St. John) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Mannlegi þátturinn
Ekki bara hálsbólga, vinkill og Fríða lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 13, 2023

Sparnaður hjá Reykjavíkurborg, hestapest og loftslagsráðstefna

Spegillinn

Play Episode Listen Later Dec 2, 2022 8:51

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Minnilhutinn í borgarstjórn Reykjavíkur segir að hugrekki vanti í hagræðingartillögur meirihlutans. Niðurskurðurinn bitni mest á þeim sem síst skyldi. Listasafn Reykjavíkur ætlar að fækka sýningum. Ekki sé hægt að fækka starfsfólki. Sólveig Klara Ragnarsdóttir sagði frá og talaði við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Hildi Björnsdóttur. Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur sagði frá viðbrögðum safnsins við niðurskurðarkröfum borgarinnar. Andinn á loftslagsráðstefnu sameinuðu þjóðanna í Eygyptalandi var annar og ekki eins bjartsýnn og í Skotlandi í fyrra segir Helga Barðadóttir, aðalsamningamaður Íslands. Umhverfið er allt annað og stríðsrekstur í heiminum hefur áhrif á orkumálin. Í Egyptalandi vannst þó varnarsigur að hennar sögn. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Helgu. Landsréttur sneri í dag við sýknudómi yfir Jóni Baldvini Hannibalssyni, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, og dæmdi hann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni. Þingið í Suður-Afríku ræðir hvort svipta beri Cyril Ramaphosa forseta embætti fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína. Hallgrímur Indriðason sagði frá. Á þriðja hundrað börn á flótta verða á Íslandi yfir jólin og hafa aldrei verið fleiri. Hjálparsamtök sem gefa börnunum jólagjafir þiggja viljugar hjálparhendur í verkefnið sem er stórt í ár. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Semu Erlu Serdar um verkefnið. Joe Biden Bandaríkjaforseti hvatti í dag bandaríska stjórnmálamenn til þess að taka skýra afstöðu gegn gyðingahatri. Nokkrir dagar eru síðan forveri hans í embætti, Donald Trump, bauð þekktum afneitara helfararinnar í heimsókn á heimili sitt í Flórída og það vakti mikla reiði. Alvarlegur sjúkdómur er kominn upp í hrossum. Hann er óþekktur en einkennin eru býsna svæsin. Veikin greindist í 13 hrossum í 30 hrossa útigangsstóði á Suðurlandi, og þar af drápust sex þeirra sem sýktust. Bjarni Rúnarsson ræddi við Sigríði Björnsdóttur dýralækni hjá MAST um sjúkdóminn Poppstjarnan Elton John heldur sína síðustu tónleika á ferlinum næsta sumar. Ásgeir Tómasson leit yfir feril hans í lok Spegilsins.

Spegillinn
ÍL-sjóður, kosningar í DK og áhrif kelta á menningu og tungu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 25, 2022

Spegillinn 25. október 2022. Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust þess á Alþingi í dag að umræðu um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra yrði frestað. Ráðherra sakaði þingmennina um málþóf. Ekkert samráð var haft við bæjarstjórn þegar ríkið ákvað að leigja Kumbaravog á Stokkseyri fyrir móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Íbúum fjölgar þar með um rúm 10% og bæjarstjóri segir staðsetninguna ekki hentuga. Stjórn Símans leggur til ríflega þrjátíu og eins og milljarðs arðgreiðslu á hluthafafundi á morgun eftir mikinn hagnað vegna sölu dótturfélagsins Mílu. Mjótt er á munum milli flokkablokkanna í Danmörku fyrir þingkosningar að viku liðinni. Í síðustu viku kynnti fjármálaráðherra skýrslu um stöðu ÍL sjóðs. Sjóðurinn er stórskuldugur og staða hans versnar um einn og hálfan milljarð á mánuði. Fjármálaráðherra, skyldi engan undra, vill nú grípa þar inn í og reyna að lágmarka þann kostnað sem ríkið fyrirsjáanlega ber vegna stöðunnar. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Kristrúnu Frostadóttur þingmann Samfylkingarinnar og Guðrúnu Hafsteinsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokksins. Danir ganga að kjörborðinu að viku liðinni. Mette Frederiksen forsætisráðherra tilkynnti fyrir þremur vikum um kosningar fyrsta nóvember. Kosningabaráttan hefur því verið stutt, en ekkert tiltakanlega snörp að sumra mati. Tvær flokkablokkir berjast um völdin í Danmörku, sú rauða þar sem mið- og vinstriflokkar fylkja sér saman og bláa blokkin með mið- og hægriflokkum. Skoðanakannanir að undanförnu sýna að hvorug blokkin nær meirihluta á þingi, en fylgið við þá rauðu er þó sjónarmun meira. Sú nýjasta frá Epinion sem danska ríkisútvarpið DR og Altinget birtu um helgina sýnir að rauða blokkin fær 82 þingsæti og sú bláa fær 75. Vera kann að keltnesk áhrif séu mun meiri í menningu okkar Íslendinga en við höfum haldið. Örnefni og orð í tungumálinu eiga gjarnan meira skylt við keltnesku en norræn tungumál. Erfðarannsóknir benda til þess að meira en helmingur landnámskvenna hafi verið Keltar. Keltar námu land víða um Vestur- Evrópu, í Skotlandi, Írlandi, Frakklandi og Spáni. Júlíus Sesar barðist við Kelta á fyrstu öld fyrir krist og þá voru þeir drepnir þúsundum saman. Hér á landi gætu áhrif þeirra verið meiri en okkur grunar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýútkominni bók eftir Þorvald Friðriksson fornleifafræðing sem nefnist Keltar, áhrif á íslenska tungu og menningu. Umsjón: Bjarni Rúnarsson. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Spegillinn
ÍL-sjóður, kosningar í DK og áhrif kelta á menningu og tungu

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 25, 2022 30:00

Sérstakur hafragrautur, jarðhiti, málfar og stofnlíffræði

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 21, 2022

Nú stendur fyrir dyrum að kanna möguleikana á að bora eftir heitu vatni á Kjalarnesi. Við ætlum að tala um heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu við tvo sérfræðinga sem koma að kortlagningu svæða í og við höfuðborgina þar sem jarðhita er að finna. (Egill Maron Þorbergsson Veitur og Þráinn Friðriksson OR) Björk Bjarnadóttir kom til okkar fyrir skemmstu, þá var hún á leið í alþjóðlega hafragrautskeppni í Skotlandi. Hún er búin að keppa, við fáum að vita hvernig gekk - og fáum líka að vita uppskriftina af sérstaka hafragrautnum hennar - sem er getum við staðfest verulega gómsætur. Það munu allir sem hlusta á þetta samtal vilja prófa sig áfram í hafragrautsgerð, sannið til. Málfarsmínúta Svo fáum við dýraspjall í lok þáttar, við leitum gjarnan til okkar besta náttúruvísindafólks og gefum þeim lausan tauminn, að þessu sinni er það Snæbjörn Pálsson sem er prófessor í stofnlíffræði við Háskóla Íslands sem kemur og segir okkur meðal annars af breytileika dýrategunda hér á Íslandi og rannsóknir á þeim.

Heimskviður
116 | Bill Browder og Elísabet Englandsdrottning

Heimskviður

Play Episode Listen Later Sep 17, 2022

Það eru næstum sjö mánuðir liðnir síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og það eru allskonar afleiðingar að koma betur og betur í ljós. Orkukreppan og verðbólgan í mörgum ríkjum Evrópu er til dæmis bein og óbein afleiðing af þessum átökum, orkukreppan vegna þeirra viðskiptaþvingana og refsiaðgerða sem Evrópusambandið og önnur vestræn ríki, Ísland þar með talið, hafa sett, bæði á stjórnvöld í Rússlandi og líka á ákveðna einstaklinga sem taldir eru sekir um mannréttindabrot og spillingu. Slíkar aðgerðir, gegn einstaklingum, eru margar hverjar byggðar á löggjöf sem kennd eru við rússneskan lögfræðing sem hét Sergei Magnitsky og maðurinn sem barist hefur fyrir því óslitið síðan 2009 við að koma þessari löggjöf á koppinn víða um heim, heitir Bill Browder. Hann er orðinn heimsþekktur fyrir þessa baráttu sína. Björn Malmquist ræddi við Browder. Þegar kistu Elísabetar Englandsdrottningar var flogið frá Skotlandi yfir til Lundúna á miðvikudag var fóru sex milljónir inn á vefsíðuna Flightradar24 til að fylgjast með ferðalaginu. Aldrei í sögu vefsíðunnar hafa fleiri fylgst jafn grannt með ferðalagi einnar flugvéla. Áhorfið á sjónvarpsþættina The Crown gegnum streymisveituna Netflix hefur aukist um 800 prósent frá því að Elísabet lést. Þá hafa verið fluttar óteljandi fréttir af öllu sem tengist andláti Elísabetar og valdaskiptum í Bretlandi, fréttir um allt frá nýlendustefnu til samloka með marmelaði. Birta Björnsdóttir fjallar um andlát Elísabetar. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur um allt sem gerist ekki á Íslandi. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Play Episode Listen Later Sep 17, 2022 37:37

Morgunútvarpið
15. ágúst - Sund, maraþon, orkuverð, tíðavörur, nýsköpun, íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 15, 2022 130:00

Hið árlega Sæunnarsund er framundan þar sem sjósundfólk stingur sér í klauffar kýrinnar Sæunnar sem varð fræg fyrir að bjarga sér frá slátrun með því að steypa sér í sjóinn og leggjast til sunds. Bryndís Sigurðardóttir er manneskjan sem alltaf veit allt um þennan skemmtilega viðburð og við heyrðum í henni. Nú eru bara örfáir dagar í Reykjavíkurmaraþon og mikil stemming í kringum það. Við fengum Silju Úlfarsdóttur hjá ÍBR, sem jafnframt er sjálf hlaupaþjálfari og hlaupari, til að heimsækja okkur og fara yfir það sem framundan er og hvernig er best að haga undirbúningi þessa síðustu daga fyrir hlaup. Bretar hafa áhyggjur af því að orkuverð hækki enn frekar í vetur, um 100.000 manns hafa lýst stuðningi við áform um að hætta að borga reikninga í byrjun október, þegar næsta verðhækkun tekur gildi, og Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, ætlar í dag að leggja til að orkuverð verði fryst í haust. Við ræddum þetta og fleira sem tengist efnahagslífinu í Evrópu og Bandaríkjunum við Hafstein Hauksson, hagfræðing hjá Kviku banka í Lundúnum. Frá og með deginum í dag eru tíðavörur aðgengilegar öllum endurgjaldslaust í Skotlandi. Skotland er fyrsta landið í heiminum sem fer þessa leið, en í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að sveitarstjórnum, heilbrigðis- og menntastofnunum á öllum skólastigum sé nú skylt að gera tíðavörur aðgengilegar, ókeypis öllum þeim sem þær þurfa. Við ræddum þessa nálgun skoskra stjórnvalda, hvort fari eigi sömu leið hér á landi og bleika skattinn við Finnborgu Salome Steinþórsdóttur, doktor í kynjafræði og sérfræðing í kynjuðum fjármálum, en hún situr einnig í stjórn Femínískra fjármála. Hug­mynda­smiðir er heiti á verk­efn­i sem er ætlað að efla sköp­un­ar­gleði og frum­kvöðla­kraft barna á skemmti­legan hátt. Umræða um nýsköpun og frumkvöðla er aldeilis ekki ný af nálinni hér á landi, en sjaldnast tengjum við hana við börn, frekar viðskiptalífið. Svava Björk Ólafsdóttir, sérfræðingur í nýsköpun er ein þeirra sem standa að baki Hugmyndasmiðum og hún kom til okkar og sagði okkur af þessu forvitnilega verkefni. Svo hringdum við í Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamann í Róm og heyrðum af Evrópumeistaramótum í ýmsum greinum íþrótta. Tónlist: Una Torfadóttir - En. Eagles - Best of my love. Phil Collins - Against all odds. Friðrik Dór - Bleikur og blár. Aldous Harding - The barrel. Ásgeir - Snowblind. Junior Senior - Move your feet. Grafík - Presley. U2 - Beautiful day. Stebbi og Eyfi - Helga. Lenny Kravitz - Stillness of heart.

Morgunútvarpið
15. ágúst - Sund, maraþon, orkuverð, tíðavörur, nýsköpun, íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 15, 2022

Hjjj
27. Hermann Kristjánsson, stofnandi Vaka sem selt var til Pentair

Hjjj

Play Episode Listen Later Jun 27, 2022 67:54

Viðmælandi þáttarins er Hermann Kristjánsson, stofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Vaka, sem er 30 ára gamalt hátæknifyrirtæki sem býr til búnað fyrir fiskeldi. Hermann er fæddur árið 1962 og ólst upp í Kópavogi og Garðabæ. Hann gekk í Fjölbrautarskólann í Garðabæ og Flensborg og síðan lá leið hans í Háskóla Íslands í rafmagnsverkfræði. Hermann stofnaði Vaka árið 1986 þegar hann var enn í háskólanámi með það að markmiði að tæknivæða fiskeldi. Fyrirtækið starfaði í 30 ár og bjó til 40 mismunandi vörur, m.a. til að telja, stærðarmæla, dæla og flokka lifandi fiska í fiskeldi og laxveiðiám. Fyrirtækið velti tæplega 2 milljörðum króna á ári undir lokin og var með dótturfélög í Noregi, Skotlandi, Chile og Kanada. Árið 2016 var Vaki selt til bandaríska stórfyrirtækisins, Pentair Aquatic Systems og starfaði Hermann þar í tvö ár þangað til það var síðan selt áfram til fyrirtækisins, Merck, þar sem Hermann starfaði sem ráðgjafi þar til hann sagði skilið við við fyrirtækið eftir 32 ár. Í dag situr Hermann í stjórnum ýmissa nýsköpunarfyrirtækja og sinnir hestamennsku af miklu kappi þess í milli. Þátturinn er kostaður af Icelandair.

Heimsglugginn
Norður-Írland, Skotland og Hans-eyja

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 16, 2022 20:24

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu erlend málefni í Heimsglugganum við Boga Ágústsson. Umræðuefni dagsins voru deilur um viðauka við Brexit-samning um Norður-Írland, tilraunir skosku stjórnarinnar til að efna til nýrrar þjóðaratkvæðagreiðslu um Skotland og friðarsamningar Dana og Grænlendinga við Kanadamenn um Hans-eyju, sem liggur milli Grænlands og Kanada. Breska stjórnin kynnti á mánudaginn frumvarp um einhliða breytingar á Norður-Írlandsákvæði útgöngusamnings Breta úr Evrópusambandinu. Ráðamenn ESB segja ákvæði frumvarpsins brot á samningnum og þar með alþjóðalögum. Sambandið hefur því ákveðið að draga Breta fyrir dóm. Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, hefur hrundið af stað nýrri tilraun til að efna til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands. Skotar samþykktu með 55-45 atkvæðum árið 2014 að vera áfram hluti af Stóra-Bretlandi, United Kingdom. Verulegur meirihluti Skota var andvígur Brexit og Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, segir að með útgöngunni úr ESB hafi forsendur breyst og því sé réttlætanlegt að kjósa að nýju um sjálfstæði. Ian Blackford, leiðtogi SNP í breska þinginu, tók þetta mál upp í gær og sagði: ?Ef þið horfið á lönd eins og Ísland, Írland, Noreg og Danmörku sjáið þið að þau standa sig mun betur en Bretland, þar er meiri jöfnuður, minni fátækt, meiri framleiðni, félagsleg tækifæri, meiri fjárfesting. Listinn er miklu lengri, það er óyggjandi að Bretland heldur aftur af Skotlandi, þessi lönd geta í krafti sjálfstæðis búið til ríkari, jafnari og grænni samfélög, af hverju mega Skotar það ekki líka?? Í vikunni var skrifað undir samning á milli Kanada og Dana og Grænlendinga um landamæri en áratugadeilur höfðu verið um hvar þau eiga að liggja um Hans-eyju, sem heitir Tartupaluk á máli ínúíta. Eyjan er óbyggð og óbyggileg, aðeins 1,2 ferkílómetrar að flatarmáli. Deilurnar, sem sumir nefndu kumpánlegt stríð, höfðu staðið áratugum saman, eins og segir í frétt sem Ævar Örn Jósepsson skrifaði á vef RÚV: ?Það byrjaði þegar þáverandi Grænlandsmálaráðherra Dana gaf fyrirmæli um að reisa danska fánann á eyjunni árið 1984, ellefu árum eftir að deila ríkjanna hófst og ?bardagarnir? sem fylgdu voru alltaf eins: Kanadískir dátar stigu á land, fjarlægðu danska fánann, reistu þann kanadíska í staðinn og skildu eftir flösku af kanadísku viskíi. Nokkru síðar stigu danskir dátar á land, fjarlægðu kanadíska fánann, reistu þann danska, og skildu eftir flösku af dönsku ákavíti. Og svo koll af kolli.?

Heimsglugginn
Norður-Írland, Skotland og Hans-eyja

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jun 16, 2022

2. mars-Vetrarhátíð, vegalokun, lífeyrir, Kauphöll, forngripir,Úkraína

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 2, 2022 130:00

Vetrarhátíð við Mývatn hefst á föstudag og að venju verður boðið upp á alls kyns vetraríþróttir í stórbrotinni náttúrufegurð Mývatnssveitar. Við slógum á þráðinn norður og heyrðum í Ásdísi Erlu Jóhannesdóttur hjá Sel hótel sem er á fullu að undirbúa sig fyrir gestaganginn. Íslendingar eru eins og aðrar þjóðir að eldast og sú staðreynd felur í sér ýmsar áskoranir fyrir samfélagið. Úlf Níelsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, kannar nú hvort fólk safni nægilega miklum fjármunum til að viðhalda lífsgæðum sínum á eftirlaunaárunum. Við ræddum við hann um rannsóknina, sparnað til elliáranna og áhrif misíþyngjandi skyldusparnaðar. Vegir um Hellisheiðina og Þrengsli hafa ítrekað verið lokaðir fyrir umferð síðustu daga og Hvergerðingar eru margir hverjir orðnir ansi þreyttir á ástandinu. Við heyrðum í Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra í Hveragerði, sem segir nauðsynlegt að að finna lausn á málinu. Kauphöllin hefur verið eldrauð síðustu daga eftir innrás Rússa í Úkraínu, en átökin hafa mikil áhrif á hlutabréfaverð, enda t.d. ákveðin óvissa nú með flugsamgöngur og útflutning sjávarafurða. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar var gestur okkar og ræddi markaðinn þessa dagana. Heimildir hafa fundist um hátt í 500 forngripi frá Íslandi sem varðveittir eru á þrettán söfnum víðsvegar í Englandi og Skotlandi. Við fengum Guðrúnu Sveinbjarnardóttur, fornleifafræðing í heimsókn, en hún hefur um nokkurt skeið unnið að því að hafa uppi á og skrásetja muni af íslenskum uppruna sem hafa lent á söfnum í Bretlandseyjum. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir Vladimir Putin, Rússlandsforseta, hafa rústað friði í Evrópu og bandalagið muni vernda hverja tommu af þeirra yfirráðasvæði. Við ræddum við Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðing í málefnum Rússlands, um átökin og líkleg næstu skref Rússlandsforseta. Tónlist: Tasko tosdada - Hljómar. GDRN - Vorið. Ed Sheeran og Taylor Swift - The Joker and the queen. Prefab Sprout - Appetite. Red Hot Chili Peppers - Black summer. KK Band - Besti vinur. U2 - Angel of Harlem. Sting - Rushing water. Guðmundur Pétursson - Stay the ride.

Morgunútvarpið
2. mars-Vetrarhátíð, vegalokun, lífeyrir, Kauphöll, forngripir,Úkraína

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 2, 2022

Spegillinn 31.janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 31, 2022

Spegillinn 31.janúar 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Fjármálaráðherra segist hafa áhyggjur af vaxandi verðbólgu, en ekki sé auðséð til hvaða ráða sé hægt að grípa. Staðan kalli hins vegar á viðbrögð. Bólusetning 5 til 11 ára gamalla barna nýtur stuðnings mikils meirihluta landsmanna. Herforingjastjórnin í Mjanmar ákærði í dag Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtoga landsins, fyrir kosningasvik. Búnaður í nýrri skólphreinsistöð á Akureyri kom í veg fyrir að tæplega 20 tonn af rusli sem sturtað var niður í klósettum á Akureyri endaði í Eyjafirði. Yfir 30 eftirlegukindur, sem leitað hefur verið að á Norður- og Austurlandi síðan í haust, skiluðu sér af fjalli í síðustu viku og um helgina. Helmingur ráðherra ríkisstjórnarinnar ber annað starfsheiti í lok dags heldur en þegar þeir vöknuðu í morgun. Ný nöfn ráðuneyta eftir uppskiptingu stjórnarráðsins voru staðfest með forsetaúrskurði í dag. Lengri umfjöllun: Skipulags- og húsnæðismál eru meðal stóru verkefna sveitarfélaganna og þar eru líka stórir snertifletir við ríkið. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir gott að þessi mál séu nú í einu og sama ráðuneytinu. Hann telur að sé ágreiningur milli sveitarfélaga um framkvæmdir á borð við byggðalínur eða veglagningu væri heppilegra að til væri svæðisskipulag sem þau yrðu þá að laga sig að. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurð Inga. Þess var minnst á Norður Írlandi í gær að 50 ár voru liðin frá Blóðuga sunnudeginum í borginni Derry eða Londonderry. Fjallað var ítarlega um blóðuga sunnudaginn í tveimur útvarpsþáttum Gunnars Hanssonar og Sólveigar Jónsdóttur á Rás 1 um helgina . Þau fóru til Derry fyrr í þessum mánuði og ræddu meðal annars við fólk sem tók þátt í göngunni og varð vitni að drápunum. Sólveig er stjórnmálafræðingur frá Edinborgarháskóla í Skotlandi og kynnti sér vel málefni Norður Írlands í námi sínu. Kristján Sigurjónsson talar við Sólveigu um ástandið á N-Írlandi í dag og framtíðarhorfur. Mark úr vítakasti eftir að venjulegur leiktími var liðinn tryggði Svíum eins marks sigur á Spánverjum, 27-26, í úrslitaleik Evrópumótsins í gær. En handbolti er langt frá því að vera einn um hituna þegar íþróttir eru annars vegar í Svíþjóð. Kári Gylfason segir frá.

Spegillinn
Spegillinn 31.janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 31, 2022 9:56

1. nóvember 2021, Loftfslagsráðstefna, afsögn formanns Eflingar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 1, 2021 10:55

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að heimsbyggðin gangi um náttúruna eins og klósett, knúin áfram af kolefnisfíkn. Ekki sé seinna vænna að stinga niður fæti. Ásgeir Tómasson sagði frá. Það segir sitt að margir leiðtogar heims mæta ekki á loftlagsráðstefnuna í Skotlandi. En það er skýr krafa ungu kynslóðarinnar að ná árangri, segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Arnar Björnsson talaði við hana. Átök í verkalýðshreyfingunni eru ekki ný af nálinni en afsögn formanns Eflingar er einsdæmi í sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar, segir Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur sem ritað hefur sögu Alþýðusambands Íslands. Hjördís Rut Sigurjónsdóttir talaði við hann. Á um þriðjungi sveitabæja á Norðurlandi vestra er farsímasamband lélegt. Unnur Valborg Hilmarsdóttir er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem skorar á stjórnvöld að aftengja ekki síma í gegnum koparlínur fyrr en ráðin hefur verið bót á farsímasambandinu. Ágúst?Ólafsson talaði við hana. Enn liggur ekki fyrir niðurstaða undirbúningsnefndar Alþingis um hvort vafaatriði við talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi kalli á breytingar. Þingmenn fengu greidd laun í dag og halda þeim hver sem niðurstaðan verður. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá. --- Loftslagsráðstefnan í Glasgow er formlega farin af stað. Óreiða einkenndi ráðstefnuvettvanginn í morgun og eftir hádegi fóru ráðamenn að viðra stefnumálin. Arnhildur Hálfdánardóttir rýndi í hina margslungnu COP-ráðstefnu og ræddi við Tinnu Hallgrímsdóttur, umhverfissinna sem er á ráðstefnunni. Morðið á sænska rapparanum Einár hefur vakið hörð viðbrögð í Svíþjóð en það er þó enda tónlistarmaðurinn rétt nýlega orðinn nítján ára gamall. Morðið er þó aðeins eitt af tuttugu og einu morði í skotárásum í Stokkhólmi það sem af er ári. Kári Gylfason segir frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Útsending fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Spegillinn
19. október 2021 Sóttkvíarreglur endurskoðaðar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 19, 2021 10:43

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir til skoðunar að slaka á reglum um sóttkví á næstunni, en segist vera eins og hrópandinn í eyðimörkinni boðandi að baráttunni við farsóttina sé ekki lokið Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra segir að ástand á bráðamóttöku Landspítalans tengist ekki COVID-19 - hann sjái ekkert ástand á spítalanum sjálfum. Hómfríður Dagný Friðjónsdóttir ræddi við Bjarna. Markús Þórhallsson tók saman. Fundi undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa í Borgarnesi var að ljúka. Í morgun fylgdust nefndarmenn með þegar ónotaðir kjörseðlar voru taldir á lögreglustöðinni og stemmdi sú talning við kjörgögn. Elsa María Guðlaugs- Drífudóttir fréttamaður hefur fylgst með fundinum. Stjórnvöld í Rússlandi leggja til að landsmenn verði sendir í átta daga frí til að draga úr fjölda kórónuveirusmita. Yfir eitt þúsund Rússar létust í gær af völdum COVID-19. Ásgeir Tómasson sagði frá. Samkomulag sem utanríkisráðherra gerði við bresk stjórnvöld í sumar eykur möguleika íslenskra námsmanna á að fá styrki til náms þar í landi. Markús Þórhallsson sagði frá. Heiðdís Austfjörð hárgreiðslumeistari fagnar því að grímuskyldan verði afnumin með breyttum sóttvarnareglum. Óðinn Svan Óðinsson talaði við hana. ---- Hafið er kapphlaup á milli þjóða um hverjir verða fremstir í lágkolefnis- og kolefnishlutlausu hagkerfi framtíðarinnar: Það er eina hagkerfið sem er í boði, segir Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst um mánaðamótin í Skotlandi. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann. Vaxandi ógn frá Rússlandi hefur leitt til stóraukinna útgjalda til varnarmála í Noregi og Svíþjóð. Rússnesk herskip héldu sig innan tvöhundruð mílna markanna við Ísland um níu daga skeið í sumar. Ingólfur Bjarni Sigfússon tók saman ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og Katarzynu Zysk sérfræðing í alþjoðamálum. Margt bendir til þess að falskt öryggi felist í því að taka símtal í gegnum handfrjálsan búnað eða hljóðkerfi bílsins á meðan setið er undir stýri. Einbeitingin við aksturinn er jafnfjarri og ef símtæki er haldið upp að eyranu segir Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri hjá samgöngustofu við Kristján Sigurjónsson. Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar frétttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Morgunútvarpið
19. okt - Sjávarútvegur, COP26, kynlíf, geðveikur mannauður og vísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 19, 2021 130:00

Sjávarútvegsdagurinn er haldinn í Hörpu í dag. Yfirskrift dagsins í ár er: Vel í stakk búinn og vísar til þess að sjávarútvegur og fiskeldi komust nokkuð klakklaust í gegnum erfitt ár í fyrra og eru þess albúin að takast á við framtíðina. Meðal ræðumanna er Herra Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands. Við hringdum í Jónas Gest Jónasson meðeiganda Deloitte, sem er einn þeirra sem heldur ræðu, til að fá að vita það helsta og hvað á að ræða. Það styttist í 26. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst nú í lok október í Glasgow, Skotlandi. Sagt hefur verið að ráðstefnan verði úrslitastund fyrir heiminn og nauðsynlegt sé að árangur náist. Við hér í Morgun- og Síðdegisútvarpinu á Rás 2 ætlum því að nota tímann fram að ráðstefnunni til að draga fram hinar ýmsu hliðar á loftslagsumræðunni. Við byrjuðum á að fá til okkar Rafn Helgason, sérfræðing á sviði loftslagsmála hjá Umhverfisstofnun, og Árna Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands en Árni er reynslubolti þegar kemur að Loftslagsráðstefnum en Rafn er að fara í fyrsta skiptið. Kynfræðingurinn Sigga Dögg hefur undanfarin ár opnað umræðuna um kynlíf upp á gátt en hún setur unað, jafnrétti, húmor og jákvæðni í aðalhlutverk þegar kemur að kynlífi. Sigga Dögg kom til okkar og fór yfir þessi mál eins og henni einni er lagið. Ert þú með geðveikan mannauð, spyr Silja Björk Björnsdóttir í grein sem birtist bæði á Vísi og kaffið.is. Þar veltir hún því fyrir sér hvort starfsmaður með geðveikindi eigi ekki að fá sömu meðferð og t.d. starfsmaður með sykursýki eða frjókornaofnæmi. Hún segir sig ekki vera verri starfskraft þó hún sé þunglynd. Við fengum Silju Björk til okkar í hljóðverið fyrir norðan til þess að segja okkur betur frá þessu. Og Sævar Helgi Bragason kom til okkar í Vísindahornið í lok þáttar. Tónlist: Ásgeir Trausti - Leyndarmál The Eagles - Tequila sunrise Thin Jim & the Castaways - Confession Friðrik Dór - Hvílíkur dagur Land og synir - Von mín er sú A-ha - Crying in the rain Bjartmar og Bergrisarnir - Velkomin á bísann The Beatles - Lucy in the sky with diamonds Big country - Chance

The Snorri Björns Podcast Show
#102 Ragnar Jónasson - Milljóna bóka rithöfundurinn í bankageiranum

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Sep 22, 2021 88:45

Ragnar Jónasson labbaði inn í bókaforlag 17 ára gamall bauðst til að þýða Agöthu Christie bækurnar vinsælu. Næstu 15 ár, í gegnum lögfræðinám, störf sem fréttamaður og lögræðingur Kaupþings þýddi hann bækur á hliðarlínunni en það var ekki fyrr en í fjármálahruninu 2008 sem Ragnar, bankastarfsmaðurinn, staldraði við og ákvað að reyna á bókakskrifin. Sú ákvörðun bar ávöxt: 1. sæti í Frakklandi, 1. sæti í Bretlandi, 1. sæti í Þýskalandi, 3 bækur samtímis á top 10 listanum í Þýskalandi og 2 milljónir eintaka seld. Ekki eins og hann hafi hætt aðalstarfi sínu í Arion banka heldur gefur hann sér tíma á hverjum einasta degi til að skrifa bækur eftir vinnu. Við ræðum leiðina að skrifunum, störfin hans áður, núverandi störf og m.a. vinnu hans með Controlant, viðskiptamódelið á bakvið bókasölu og hvernig fótboltaleikur í Skotlandi kom Ragnari á kortið.

Heimsglugginn
Skotar kjósa til þings, 200 ára ártíð Napóleons

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later May 6, 2021 19:33

Spennandi kosningar eru á Bretlandi í dag þar sem kosið er til þings í Skotlandi og Wales og til fjölmargra bæjar- og sveitarstjórna. Þá eru aukakosningar um þingsæti í Hartlepool í norðausturhluta Englands. Því er spáð að Íhaldsflokkurinn vinni það sæti, en Verkamannaflokkurinn hefur átt þingmann kjördæmisins frá 1964. Spennan er mest í Skotlandi þar sem Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, gæti unnið hreinan meirihluta á skoska þinginu. Undir lok Heimsgluggans ræddu Þórhildur Þorkelsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir við Boga Ágústsson um 200 ára ártíð Napóleons Frakkakeisara. Hann lést í útlegð á smáeyjunni Sankti Helenu sem er útnári í miðju Suður-Atlantshafi. Arfleifð hans er afar umdeild í Frakklandi. Napóleon gerbreytti stjórnskipan Frakklands, vann mikla hernaðarsigra en var að lokum borinn ofurliði í orrustunni við Waterloo í Belgíu 1815. Frakkland nútímans ber enn svip af þeim breytingum sem Napóleon gerði. En hann skerti einnig réttindi kvenna og kom þrælahaldi á að nýju í nýlendum Frakka og þess vegna finnst mörgum ótilhlýðilegt að halda upp á ártíð hans. Emmanuel Macron Frakklandsforseti reyndi að skauta fram hjá deilunum í ræðu í gær en sagði að ekki væri hægt að þurrka út fortíðina vegna þess að hún passaði ekki við hugmyndir samtímans. Nei, Napóleon Bonaparte er hluti af okkur, sagði Macron.

Heimsglugginn
Skotar kjósa til þings, 200 ára ártíð Napóleons

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later May 6, 2021

Johnson í vandræðum og Arlene Foster segir af sér

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Apr 29, 2021

Stjórnmál á Bretlandseyjum eru lífleg þessa dagana, kosningar verða eftir viku og þar beinist athyglin helst að Skotlandi. Hugsanlegt er að Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, fái hreinan meirihluta á skoska þinginu. Á Norður-Írlandi hefur Arlene Foster sagt af sér sem fyrsti ráðherra og leiðtogi DUP, Lýðræðislega sambandsflokksins. DUP er stærsti flokkur mótmælenda og að mörgu leyti afar íhaldssamur í félagsmálum, á móti hjónaböndum samkynhneigða og réttindum trans fólks og algjörlega andvígur þungunarrofi. Margir stuðningsmenn flokksins eru afar reiðir vegna þess að þeir töldu Foster ekki hafa staðið gegn lögum á þessum sviðum sem breska þingið samþykkti meðan þing Norður-Írlands sat ekki. Mest er óánægjan með Brexit-samningana, þar sem Norður-Írland er de facto enn hluti af innri markaði Evrópusambandsins, öfugt við aðra hluta Stóra-Bretlands. Líta margir svo á að Boris Johnson, forsætisráðaherra Breta, hafi svikið loforð um að Norður-Írland yrði áfram órjúfanlegur hluti Stóra-Bretlands. Sjálfur er Boris Johnson í verulegum vandræðum vegna efasemda um hver borgaði fyrir endurnýjun íbúðar Johnsons í Downing-stræti og vegna meintra ummæla í haust um að honum væri sama þó líkin hrönnuðust upp, hann myndi ekki loka Bretlandi aftur. Þetta var meginumræðuefni Þórunnar Elísabetar og Boga Ágústssonar í Heimsglugga vikunnar.

Heimsglugginn
Johnson í vandræðum og Arlene Foster segir af sér

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Apr 29, 2021 21:06

Sturgeon í kröppum dansi, Frederiksen leggur land undir fót

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2021

Íhaldsflokkurinn í Skotlandi hefur lagt fram vantrauststillögu á Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands og leiðtoga Skoska þjóðarflokksins, SNP, vegna meintra ósanninda hennar um meðferð kærumála kvenna á Alex Salmond, fyrrverandi leiðtoga SNP. Sturgeon bar vitni fyrir þingnefnd í allan gærdag. Fréttaskýrendur telja hana hafa staðið af sér atlögu Íhaldsmanna sem þó segja spurningum ósvarað og ætla að halda vantrauststillögunni til streitu. Nicola Sturgeon og Alex Salmond voru nánir vinir og samstarfsmenn uns Salmond var ákærður fyrir kynferðislega áreitni árið 2018 en sú vinátta er fyrir bí og Salmond segir nú að Skoski þjóðarflokkurinn, undir forystu Sturgeon, standi að baki ofsóknum gegn sér. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu skosk stjórnmál við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar og einnig ferð Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, til Ísraels í dag, ásamt Sebastian Kurz, kanslara Austurríkis,. Þar leita þau samstarfs við Ísraelsmenn í bólusetningum. Hærra hlutfall Ísraelsmanna hefur verið bólusett en gengur og gerist í öðrum löndum vegna samnings sem ríkisstjórn landsins gerði við Pfizer um bólusetningar í landinu. Nú vill Frederiksen vita hvort Danir geti fengið bóluefni hjá Ísraelsmönnum gangi eitthvað af. Hún er gagnrýnd af fólki á vinstri kanti stjórnmálanna heima fyrir sem segir að Palestínumenn eigi að fá bóluefnið. Mai Villadsen, nýr leiðtogi Einingarlistans, segist hafa áhyggjur af samstarfi við ísraelsku stjórnina sem klárlega brjóti alþjóðarétt með því að bólusetja ekki íbúa hersetnu svæðanna.

Heimsglugginn
Sturgeon í kröppum dansi, Frederiksen leggur land undir fót

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 4, 2021 19:24