POPULARITY
Categories
Mottumars, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins er í fullum gangi, þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum og um leið safnað fyrir starfsemi félagsins. Nýju sokkarnir eru komnir í sölu um allt land og nýr matarvefur er kominn í loftið þar sem hollar uppskriftir eru aðgengilegar öllum. Ása Sigríður Þórisdóttir, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins, og Hólmfríður Sigurðardóttir, formaður félags maka karla með blöðruhálskrabbamein, komu í þáttinní dag. Í dag, 3.mars, er Dagur heyrnar árlegur viðburður sem Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) kom á fót og er haldið á lofti hér af Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) í samvinnu við ýmis hagsmunasamtök heyrnaskertra og fatlaðra á Íslandi. Í ár eru skilaboðin - Heyrnavernd fyrir öll börn - þar sem skorað er á heilbrigðisyfirvöld að koma á reglulegri skimun á heyrn barna við upphaf skólagöngu. Hildur Heimisdóttir, kennsluráðgjafi hjá Hlíðaskóla og HTÍ og Telma Sigtryggsdóttir formaður Heyrnahjálpar komu í dag og sögðu okkur betur frá viðburðinum og átakinu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag sagði hann okkur frá sendibréfi sem honum barst þar sem greint er frá merkingu veðurorða og hugtaka í Árneshreppi á Ströndum. Svo sagði Einar okkur frá bók sem hann fann á Bókamarkaðinum eftir Þorvald Friðriksson um áhrif Kelta m.a. á íslenska tungu. Þar er farið yfir uppruna orða eins og úrkoma, mugga, fönn og hret, sem upprunin eru úr keltnesku. Svo var það auðvitað veðurspáin næstu daga og veðurbreytingarnar sem urðu í síðustu viku. Tónlist í þættinum í dag: Þrjú tonn af sandi / Haukar (Blackwell and Vinfield, texti Þorsteinn Eggertsson) Impossible / Hraun (Hraun og Svavar Knútur) Half a minute / Matt Bianco (Mark Reilly, Danny White, and Kito Poncioni) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Fimmtudagur 5. febrúar Rifist í þinginu, lagareldi, reynsluboltar og borgin þvert á flokka Alþingismennirnir Bryndís Haraldsdóttir og Dagur B. Eggertsson tókust á um Evrópusambandið og Nató og öryggismál fyrir Ísland. Dagur telur að öryggi Íslands myndi aukast við aðild að Evrópusambandinu meðan Bryndís telur það fjarri lagi. Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur og Þorgerður María Þorbjarnardóttir hjá Landvernd ræða frumvarpsdrög Hönnu Katrínar um lagareldi. Þau eru gagnrýnin á stöðu mála út frá umhverfisvernd og fleiri þáttum. Björn Þorláks ræðir við þau. Lárus Guðmundsson Miðflokksmaður og atvinnurekandi, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Viðreisn og Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor emerita ræða fréttir líðandi stundar og þjóðmál með Birni Þorláks. Barnavernd, háskólakrísu, heimsöryggi, efnahags- og umhverfismál ber á góma. Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali og Baldur Borgþórsson ráðgjafi eru í tveimur efstu sætum á lista Borgarinnar okkar, flokks sem enn hefur ekki mælst með fylgi. Þeir ætla samt að bjóða sig fram og segja Gunnari Smára hvers vegna.
In dieser Folge des Wandelwerker Podcasts spricht Anna Ganzke mit Dagur Sigurdsson, Handballtrainer, Unternehmer und ehemaliger Nationalcoach, über Teamkultur, Vertrauen und Führung unter Leistungsdruck Gemeinsam diskutieren die beiden, welche Rolle Vertrauen, Konkurrenz und unterschiedliche Charaktere in erfolgreichen Teams spielen, warum Angst vor dem Verlieren zu Fokus führen kann und weshalb es keine Standardlösungen für Teamentwicklung gibt. Dagur erklärt, was Unternehmen vom Profisport lernen können, wo die Unterschiede liegen und warum Führungskräfte den Mut haben sollten, individuelle Wege statt Copy-Paste-Konzepte zu gehen.
Fræðimenn á ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands vinna nú að umfangsmikilli rannsókn sem ber heitið Eyðibyggðir miðalda á Íslandi. Þar mætast sagnfræðin og fornleifafræðin meðal annars og varpa nýju ljósi á hvernig samfélag og byggð þróuðust á Íslandi á tímabilinu 1100-1400 (ellefu hundruð og fjórtánhunduð). Árni Daníel Júlíusson rannsóknarsérfræðingur við Sagnfræðistofnun háskólans ræðir við Fanneyju Birnu Jónsdóttur og leiðir okkur í allan sannleika um þessa yfirgripsmiklu rannsókn og hvernig ólíkum aðferðafræðingum tekst að vinna saman og komast að niðurstöðum. Við ætlum að heyra um dag í lífi stelpu í 9. bekk. Karólína Orradóttir er Akureyringur sem ætlar að lýsa fyrir okkur hefðbundnum degi hjá sér, en hún er námsmaður, félagsmálatröll, tónlistarnemi og ansi upptekin. Gígja Hólmgeirsdóttir talaði við Karólínu fyrir norðan. Og í lok þáttar ætlum við að líta um öxl og flytja brot úr áhugaverðum þáttum frá 1976 sem fjölluðum um Grænland. Tónlist úr þættinum: Nick Drake - Pink moon. Sume - Upernaaq