Podcasts about bjarna

  • 56PODCASTS
  • 197EPISODES
  • 1h 16mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 25, 2025LATEST
bjarna

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about bjarna

Show all podcasts related to bjarna

Latest podcast episodes about bjarna

Mín skoðun
1005.þáttur. Mín skoðun. 25042025

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Apr 25, 2025 101:20

Í þætti dagsins heyri ég í Bjarna Fritzsyni og við tölum um úrslitakeppnina í handbolta ásamt því að við spjöllum um evrópuboltann og aðeins um rithöfundarstarfið hjá Bjarna. Svanhvít er svo á línunni um úrslitakeppnina í körfubolta, bæði karla og kvenna og svo um leikina í enska boltanum um helgina og einnig Bestu deild kvenna. Kristinn Kærnested er í spjalli um Bestu deild karla og spáir í næstu umferð. Enski boltinn og Liverpool koma við sögu ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

Mannlegi þátturinn
Bjarni Arason föstudagsgestur og bollu- og saltkjötsmatarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 28, 2025 50:00

Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var enginn annar en Bjarni Arason söngvari sem tók þátt í Söngvakeppninni um síðustu helgi og stóð sig glimrandi vel. Bjarni va elsti þáttakandinn í ár og lagið sem hann söng, Aðeins lengur, mun hann sennilega syngja aðeins lengur því síminn hefur varla stoppað hjá Bjarna eftir keppnina. Bjarni hóf feril sinn mjög ungur, söng 16 ára Elvis lög í sjónvarpi og vann ári síðar söngvakeppnina Látúnsbarkann og varð landsfrægur á augabragði. Við fórum með Bjarna yfir söngvasviðið og lífið í þættinum. Matarspjallið var svo að helgað bolludeginum og sprengideginum sem eru eftir helgi. Það skoðuðum við eilífðarspurninguna; hvort ertu vatnsdeigs- eða gerbollur betri? Og eru allir spenntir fyrir saltkjöti og baunum? Bollur, saltkjöt og túkall í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti. Tónlist í þættinum í dag: Hringur og Bítlagæslumennirnir / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Aðeins lengur / Bjarni Arason (Jóhann Helgason, texti Björn Björnsson) Beautiful Maria / Bjarni Arason (Robert Kraft, texti Arne Glimcher) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Rauða borðið 27. febrúar Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 27, 2025 348:33

Fimmtudagur 27. febrúar Öryggi, her, hugvíkkun, skipulag, bækur og ljóð Helen Ólafsdóttir ráðgjafi í öryggismálum ræðir við Gunnar Smára um öryggismál Evrópu og Íslands eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump. Bjarni Már Magnússon prófessor í lögfræði við Bifröst og Kristján Þór Sigurðsson, doktor í mannfræði takast á undir stjórn Maríu Lilju um hugmynd Bjarna um að kominn sé tími til að Íslendingar stofni her vegna víðsjár í heimsmálum. Mikið er rætt um sveppatripp þessa dagana og hvort lækning gegn áföllum leynist í þeim. Borið hefur á því að þjóðþekkt fólk flíki sveppum og sumir segjast hafa orðið edrú af þeim, þurfi ekki meðferð hjá SÁÁ. Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ ræðir málin við Björn Þorláks. Hilmar Þór Björnsson arkitekt og Ásta Logadóttir ljósvistarsérfræðingur eru hluti hóps sem stendur fyrir ákalli um breytt viðhorf til skipulagsmála. Þau útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna borgin er að þróast eftir hagsmunum fjármagnsins en ekki almennings. Vigdís Grímsdóttir og Oddný Eir ræða við skáld og bókafólk. Að þessu sinni kemur ritstjórinn Guðrún Steinþórsdóttir og ræðir um skynsvið bókmennta. Hvernig bækur geta aukið samlíðan og bætt bæði okkur og heiminn. Síðan kemur Eiríkur Örn Norðdahl að borðinu, nýtilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir bók sína Náttúrulögmálin.

Mannlegi þátturinn
Skátafélagið Hraunbúar 100 ára, Sagan af þér að breyta heiminum og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 26, 2025 53:20

Fjölmennasta skátafélag landsins Hraunbúar Hafnarfirði fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir og félagsforinginn Bjarni Freyr Þórðarsson segir að aðalatriðið í skátastarfinu snúist um að undirbúa fólk fyrir lífið. Skátastarfið snúist ekki um bikara og medalíur heldur veganesti út í lífið, sjálfsbjargarviðleitni og að efla sjálfstæða einstaklinga og leiðtoga. Við ræddum við Bjarna og Hörpu Hrönn Grétarsdóttur sveitaforingi, í dag. Það er ríkt í okkur að vilja láta gott af okkur leiða, en það eru ekki allir sem vita hvernig á að snúa sér þegar að því kemur. Eins getur verið snúið að ganga ekki of nærri sér á þeirri vegferð. Sigurborg Kr. Hannesdóttir sagði okkur í dag frá sinni reynslu, en hún hefur sjálf upplifað að ganga of nærri sér á slíkri vegferð og nú vill hún leiðbeina fólki í svipuðum sporum með því að nota þeirra eigin sögu, á netnámskeiði sem hún kallar Sagan af þér að breyta heiminum. Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni og kort dagsins barst nú frá Vestmannaeyjum því Magnús er kominn heim frá Grænhöfðaeyjum. Hann sagði frá ýmsu því sem við er að eiga í Eyjum þessa dagana. Þar er tekist á um samgöngur, sem hafa verið í nokkru lamasessi vegna óveðurs í febrúar, sem og sandburðar í Landeyjahöfn. Hann sagði líka frá deilum sem hafa skapast vegna minnismerkis um gosið 1973, en um það verður haldin íbúafundur næsta föstudag. Tónlist í þættinum í dag Miðvikudagur / Þokkabót (Ingólfur Steinsson, texti Steinn Steinarr) Breaking up is Hard to Do / Neil Sedaka og Sissel Kyrkjebö (Neil Sedaka & Greenfield) Lazy Sunday / Small faces (Marriott Lane) Girl From Before / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Víðsjá
Hope Inga Bjarna Skúlasonar, Sally Mann og ritskoðun í Texas, Heim/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 11, 2025 50:15

Hope nefnist nýútkomin plata píanóleikarans Inga Bjarna Skúlasonar en á henni leikur hann ný lög úr eigin smiðju ásamt Hilmari Jenssyni, Anders Jormin og Magnúsi Tryggvasyni Eliassen. Við ræðum við Inga Bjarna um plötuna í þætti dagsins og heyrum nokkur vel valin brot af henni. Trausti Ólafsson rýnir í Heim eftir Hrafnhildi Hagalín sem er sýnt um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu. Og við veltum fyrir okkur ritskoðun á verkum Sally Mann í Texas.

Mannlegi þátturinn
Sjálfsdáleiðsla, tilfinningar tengdar peningum og Bjarni lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 13, 2025 50:00

Það er talið að í dáleiðsluástandi getum við leyst úr ýmsum vandamálum og heilað okkur. Dáleiðararnir og mæðgurnar Ásdís Olsen og Brynhildur Karlsdóttir kenna einfalda sjálfsdáleiðsluaðferð, Simpson Protocol. Á námskeiði hjá þeim læra þátttakendur að komast í dáleiðsluástand þegar þeim hentar, hvort sem er hjá tannlækninum eða á sófanum heima. Ásdís og Brynhildur sögðu okkur meira frá þessu í þættinum í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum, var í annað sinn hjá okkur í dag með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Á mánudögum mun Georg fræða okkur um ýmsar hliðar á fjármálunum og í dag talaði hann um tilfinningar okkar tengdar peningum og samband okkar við peninga. Svo var það lesandi vikunnar, sem í þetta sinn var Bjarni Fritzson rithöfundur og eigandi Út fyrir kassann. Bækur Bjarna um Orra óstöðvandi hafa verið gríðarlega vinsælar og nýjasta bókin um Orra var mest selda barnabókin á landinu á síðasta ári. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bjarni talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Dauðinn einn var vitni e. Stefán Mána Marrið í stiganum, Strákar sem meiða og Stelpur sem ljúga e. Evu Björgu Ægisdóttur Ég læt sem ég sofi e. Yrsu Sigurðardóttur Kvíðakynslóðin e. Jonathan Haidt Grafarþögn og Mýrin e. Arnald Indriðason Show Dog e. Phil Knight Paulo Coelho (The Zahír, Veronika verður að deyja, Alkemistinn) Why we sleep e. Matthew Walker Raunvitund e. Hans Rosling Villtir svanir e. Jung Chang. Tónlist í þættinum í dag: Gullvagninn / Björgvin Halldórsson (lagahöfundur ókunnur, texti Jónas Friðrik Guðnason) Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig / Ragnar Bjarnason (Monaco, McCarthy & Johnson, texti Jón Sigurðsson) Litla flugan / Sigfús Halldórsson (Sigfús Halldórsson, texti Sigurður Elíasson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Rauða borðið 8. jan - Arfleið Bjarna Benediktssonar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 8, 2025 154:49

Miðvikudagur 8. janúar Arfleið Bjarna Benediktssonar Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilsson fá gesti til að ræða arfleið Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem sagði af sér þingmennsku á mánudaginn. Fyrst koma Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Marinó G. Njálsson tölvunarfræðingur og Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og ræða Sjálfstæðisflokkinn undir Bjarna, hvernig flokk tók hann við og hver er flokkurinn í dag. Gunnar Smári ræðir síðan við Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóra Vísbendingar um ríkisfjármálin og efnahagsmálin undir Bjarna. Í lokin fær Sigurjón gesti til að ræða um spillingu á tíma Bjarna; Atli Þór Fanndal upplýsingafulltrúi, Þór Saari fyrrverandi þingmaður, Birgitta Jónsdóttir og Björn Þorláksson blaðamaður meta áhrif Bjarna á siðferði í stjórnmálum.

Þjóðmál
#280 – Bjarni sprengir stóru tertuna á þrettándanum – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Jan 6, 2025 69:56

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að sækjast ekki eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins, formannstíð Bjarna, stöðu flokksins og almennt yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum. Þá er einnig rætt um stöðuna í alþjóðastjórnmálum, valdatöku Trump síðar í þessum mánuði, veikleika ESB-ríkjanna, stöðuna í Úkraínu og margt fleira.

Stundin
Pod blessi Ísland #2: Kappræðugreining: Innblásinn Sigurður Ingi, Kristrúnarplanið á xS.is og tilhugalíf Sigmundar og Bjarna

Stundin

Play Episode Listen Later Nov 2, 2024

Gleðilegan kosningamánuð. Í öðrum þætti Pod blessi Ísland fara Aðalsteinn og Arnar Þór yfir kappræður gærkvöldsins. Þáttarstjórnendurnir sjálfir íhuga framboð eins lista í NV-kjördæmi í næstu kosningum til að fá vettvang til að viðra skoðanir sínar í kappræðum ríkismiðilsins. Farið yfir frammistöðu Jóhannesar Loftssonar og allra hinna leiðtoganna í íslenskri pólitík, það sem kom á óvart og það sem gerði það ekki. Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins Póló.

Mannlegi þátturinn
Ólöf og Ljósið, Kallaspjall Bjarna og þjóðlistahátíð

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 12, 2024 52:05

Við fræddumst um átak hjá Ljósinu endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Átakið snýst um að safna nýjum Ljósavinum og að virkja hóp aðstandenda sem standa að einstaklingi með krabbamein gerist Ljósavinur. Þegar einhver úr hópnum greinist með krabbamein er Ljósið til staðar til að grípa og veita stuðning sem hópurinn hefur mögulega ekki ráð eða burði til. Ólöf Erla Einarsdóttir greindist með krabbamein á Covid tíma fyrir nokkrum árum og við heyrðum hennar sögu og hvernig hún upplifði stuðning vinkvenna og Ljóssins. Átakið í ár kallast „Hópar landsins láta ljósið skína“. Við ræddum svo um freka kallinn, seka kallinn, lúxuskallinn, staka kallinn og spaka kallinn, en Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur er að fara í gang með röð erinda sem fjalla um eðli og forsendur friðar undir heitinu Kallaspjall með Bjarna Karls - Fimm fyndnar hugmyndir sem valda ófriði. Vaka - Þjóðlistahátíð fer fram í Reykjavík um helgina og meðal viðburða eru tónleikar, matarveisla, dans, þjóðlagasamspil. Einnig verða vinnustofur í íslenskum rímnasöng, langspilsleik og evrópskum þjóðdönsum. Við heyrðum í Bjarna Karlssyni þrítugum Akureyringi sem heldur utan um dagskrána. Tónlist í þættinum: Heimþrá / Erla Þorsteinsdóttir (Freymóður Jóhannsson (Tólfti september, dulnefni) Litli tónlistarmaðurinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ellý Vilhjálms (Freymóður Jóhannsson (Tólfti september, dulnefni)) Vikivaki / Valgeir Guðjónsson og Joel Christopher Durksen á píanó (Valgeir Guðjónsson-Jóhannes úr Kötlum) Brúðkaupsvísur / Hinn íslenski Þursaflokkur (Egill Ólafsson, texti Vigfús frá Leirulæk) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Ein Pæling
#334 Ágúst Bjarni Garðarsson - Staða Framsóknar, húsnæði og útlendingar

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Aug 26, 2024 20:32

Þórarinn ræðir við Ágúst Bjarna, þingmann Framsóknarflokksins um húsnæðismál, útlendingamál, stöðu ríkisstjórnarinnar og stöðu skólamála. - Er eyðsla stjórnvalda áhyggjuefni ríkisstjórnarinnar? - Heldur ríkisstjórnin? - Hvað er hægt að gera í húsnæðismálum? Þessum spurningum er svarað í þættinum. Sjá þátt í heild á www.pardus.is/einpaeling

Valur - Hljóðvarp
Óskar Bjarni í hetjuviðtali um Evrópudrauma Valsara, SE07 - EP02

Valur - Hljóðvarp

Play Episode Listen Later Aug 21, 2024 35:29

Daníel Franz og Benni Bó fá Evrópumeistarann Óskar Bjarna í heimsókn og kryfja Evrópudrauminn okkar í smáeindir. Þetta var sko enginn venjulegur draumur.

Podcast með Sölva Tryggva
#298 Bjarni Ben með Sölva Tryggva (áskriftarþáttur)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Aug 19, 2024 20:01

Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Bjarni Benediktsson er forsætisráðherra Íslands. Hann hefur um árabil verið formaður Sjálfstæðisflokksins og einn umdeildasti stjórnmálamaður Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Bjarni um samfélagsmál, feril Bjarna, gagnrýnisraddir og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/

Jákastið
#157 Bjarni Snæbjörnsson

Jákastið

Play Episode Listen Later May 21, 2024 70:02

Gestur minn þessa vikuna er Bjarni Snæbjörnsson. Bjarni er leikari, söngvari, rithöfundur, hlaðvarpsstjórnandi og margt fleira. Hann er gjörsamlega frábær og magnaður. Það var gott, gaman, yndislegt, áhugavert og fræðandi að spjalla við Bjarna. Þú ert frábær! Ást og friður. 

Mannlegi þátturinn
Bjarni Snæbjörnsson föstudagsgestur og matarspjall um sumar og salt

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 17, 2024 53:11

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Bjarni Snæbjörnsson. Hann hefur leikið og sungið víða á sviði frá útskrift úr leiklistarnámi, en svo vakti hann sérstaka athygli þegar hann samdi söngleikinn Góðan daginn faggi, sem sýndur var í Þjóðleikhúskjallaranum. Í sýningingunni rifjaði Bjarni upp æskuna og glímu sína við að koma út úr skápnum og horfast í augu við það hver hann var, baráttu við fordóma, ekki síst sína eigin. Sýningin varð gríðarlega vinsæl, var sýnd næstum 150 sinnum, ekki bara í Þjóðleikhúsinu heldur víða um landið. Og nú er nýkomin út bókin Mennska eftir Bjarna og hann hefur hleypt af stokkunum samnefndu hlaðvarpi. Við fórum auðvitað aftur í tímann með honum, eins og við gerum alltaf með föstudagsgestinum, enda er æska hans nátengd því sem hann hefur verið að fjalla um í sínum verkum. Bjarni sagði okkur meðal annars frá dvöl sinni í Ástralíu, námsárunum í leiklistarskólanum og því hvernig hann sættist að lokum við sjálfan sig. Svo kom Sigurlaug Margrét í matarspjallið. Við skoðuðum með henni sænska matreiðslubók sem heitir Salt og sumar og svo tökum við aðeins upp þráðinn frá síðasta matarspjalli, eftir viðbrögð frá hlustendum við því sem þar kom fram. Fiskisúpa, saffran og birkirúnstykki komu við sögu. Tónlist í þættinum í dag: Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) To Be Free / Emilíana Torrini (E.G. White og Emilíana Torrini) Hello / Adele (Adele Adkins & Greg Kurstin) UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Eerie Iceland
Episode 17: Bjarna Disa the Frozen Woman

Eerie Iceland

Play Episode Listen Later Apr 29, 2024 35:08

Come with us to East Iceland where we uncover the Icelandic ghost story of the frozen woman named, Bjarna Disa.  It's such an intriguing story that there is a book written about her, a song, and a monument!  Some say the area of Seyðisfjörður is still haunted by her too... Like what you hear?  Give us 5 Stars!  And follow us for more...  Checkout our website: Eerie Iceland  Follow us on: Instagram  Find our page on: Facebook  Email us: hello@eerieiceland.com Sources & Extras: Source 1 Source 2 Book about Bjarna Disa by Kristín Steinsdóttir Song about Bjarna Disa Hiking Details to see the Memorial  Episode By: Vanessa Terrazas Editing By: James Ede (Be Heard | Podcast Production)

Legvarpið
Ljósmæður líta um öxl: Magga Bjarna og Gunna Bö

Legvarpið

Play Episode Listen Later Mar 22, 2024 79:34

Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna. Ljósmæðraáhugi þeirra beggja kviknaði í sauðburði, enda sveitastúlkur að vestan. Þær segja frá námsárunum þar sem þær rétt náðu í skottið á heimavistinni með tilheyrandi sjarma, útivistarreglum og stífuðum köppum. Magga og Gunna hafa í gegnum tíðina upplifað allskyns strauma og stefnur í fræðum og starfsháttum og lýsa vel þeim tækniframförum og breytingum sem orðið hafa á starfsumhverfi fæðingarþjónustunnar. Komið með inní fjölmargar skemmtilegar sögur af ævintýrum þessara einstöku vinkvenna innan vinnu sem utan, en þeir heimar hafa aldeilis skarast þegar þær tóku á mótu börnum hvor annarrar og aðstoðuðu við fæðingar barnabarnanna.

Spegillinn
Ísland og NATO, eldgosataktur og kreppa í Bretlandi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 15, 2024 19:54

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir það slæm - og röng skilaboð, sem Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna sendi um helgina, þegar hann sagði að undir sinni stjórn myndu Bandaríkin ekki koma þeim NATO-ríkjum til varnar, sem ekki hefðu varið nægu fé til varnarmála. Þessi umræða var í bakgrunni tveggja daga fundar varnarmálaráðherra NATO sem Bjarni sat fyrir hönd Íslands. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi við Bjarna eftir fundinn. Ef kvika heldur áfram að safnast saman undir Svartsengi með sama hraða og nú má gera ráð fyrir að í lok febrúar eða í byrjun mars aukist líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi verulega, samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar fyrr í dag. Stöndum við mögulega frammi fyrir því að það gæti gosið á þessum slóðum á þriggja vikna fresti mánuðum saman? Ragnhildur Thorlacius fréttamaður spurði Halldór Geirsson dósent við Jarðvísindadeild HÍ að því. Efnahagskreppa er skollin á í Bretlandi. Enginn hagvöxtur mældist þar í níu mánuði í fyrra og raunar samdráttur á síðari hluta ársins. Hann var núll komma þrjú prósent síðustu þrjá mánuði ársins, núll komma eitt prósent næstu þrjá mánuðina þar á undan og stóð á núlli í apríl, maí og júní. Ásgeir Tómasson fjallar um málið.

Spegillinn
Íslenskur hjúkrunarfræðingur á Gaza, Imran Khan dæmdur í fangelsi á ný

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 30, 2024 19:32

Fjölmargir þeirra sem leita á sjúkrahús í Rafah missa útlim, að sögn Elínar Oddsdóttur skurðhjúkrunarfræðings sem er nýkomin frá Gaza. Hún hefur starfað þar á vegum Alþjóðaráðs Rauða krossins. Alvarleg brunasár eru algeng. Allir sjúkrahúsgangar eru fullir af fólki sem hreinlega býr þar því það hefur á engan stað að fara, segir hún. Rætt er við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra um ákvörðun Bjarna um að frysta greiðslur til UNRAW á meðan rannsakað er hvort nokkrir starfsmenn hjálparsamtakanna hafi átt þátt í hryðjuverkaárás á Ísrael í október. Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa ljóstrað upp um ríkisleyndarmál. Hann afplánar þegar þriggja ára dóm fyrir spillingu og á á annað hundrað ákærur yfir höfði sér.

The Snorri Björns Podcast Show
#152 - Bjarni Ármannsson

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Dec 1, 2023 210:27

Bjarni Ármanns er tölvunarfræðingur að mennt og starfar sem fjárfestir í dag. Hann rekur æskuárin á Akranesi en þrálát heilahimnubólga varð til þess að hann dró sig í hlé frá sjósókn, félagslífi og fótbolta en lærði í stað þess útsaum og las bókmenntir. Í örlagaríkri útskriftarferð nokkrum árum seinna sást til Bjarna prútta á götumörkuðum í Tælandi sem varð til þess að honum var boðin staða í bankageiranum en hann vann sig hratt upp á þeim vígvelli og var orðinn bankastjóri Íslandsbanka fyrir þrítugt.   Við köfum í þennan persónulega og þjóðfélagslega uppgang sem átti sér stað um aldamótin en Bjarni gerir vel grein fyrir aðstæðum sem Íslendingar bjuggu við í stöðnunarhagkerfinu hér á árum áður. Bjarni á sér viðburðarríkt líf utan vinnu en hann er fjögurra barna faðir, hefur m.a. klifið Everest, hlaupið maraþon undir þremur tímum margsinnis (54 ára!), klifið 100 hæstu tinda Íslands, 7 hæstu tinda hverrar heimsálfu og aldrei ýtt á snooze takkann.

Handkastið
Jón Batman með næringu í æð og gulu spjöldin á lofti

Handkastið

Play Episode Listen Later Nov 11, 2023 71:19

Yfirferð yfir þá fimm leiki sem búnir eru í 9.umferð Olís-deildar karla. Nocco leikmaður umferðarinnar og Skita umferðarinnar i boði Skolphreinsun Ásgeirs. Þorsteinn Leó er farinn í Porto og Atli Steinn er mættur í Olís. Erfiður dagur hjá Björgvini Páli á meðan Aron Pálmarsson dældi boltunum á Jón Bjarna.

Samfélagið
Virkjanaviðhorf, ný skip og gömul, málfar og ræktun líffæra

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 25, 2023 55:00

Helmingur landsmanna telur að íslenskt samfélag þurfi að nýta sem flesta virkjunarkosti en ekki hvaða kosti sem er og ekki í hvaða tilgangi sem er. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar þar sem aðaláherslan var á vindorkuver og alveg skýrt að fólk vill fáa stóra vindorkugarða í stað margra lítilla - ef það vill virkja vindinn yfirleitt. Við ræðum við Kjartan Ólafsson, félagsfræðing hjá stofnuninni, um könnunina. Nýtt hafrannsóknaskip er nú í smíðum í Vigo á Spáni. Nýja skipið, sem mun heita Þórunn Þórðardóttir, tekur við af elsta skipi stofnunarinnar; Bjarna Sæmundssyni. Við heimsækjum Bjarna í Hafnarfjarðarhöfn í Samfélaginu í dag og ræðum við forstjóra Hafrannsóknastofnunar, Þorstein Sigurðsson um þau Þórunni og Bjarna. Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að velta fyrir sér ræktun á líffærum.

Samfélagið
Virkjanaviðhorf, ný skip og gömul, málfar og ræktun líffæra

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 25, 2023

Helmingur landsmanna telur að íslenskt samfélag þurfi að nýta sem flesta virkjunarkosti en ekki hvaða kosti sem er og ekki í hvaða tilgangi sem er. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar þar sem aðaláherslan var á vindorkuver og alveg skýrt að fólk vill fáa stóra vindorkugarða í stað margra lítilla - ef það vill virkja vindinn yfirleitt. Við ræðum við Kjartan Ólafsson, félagsfræðing hjá stofnuninni, um könnunina. Nýtt hafrannsóknaskip er nú í smíðum í Vigo á Spáni. Nýja skipið, sem mun heita Þórunn Þórðardóttir, tekur við af elsta skipi stofnunarinnar; Bjarna Sæmundssyni. Við heimsækjum Bjarna í Hafnarfjarðarhöfn í Samfélaginu í dag og ræðum við forstjóra Hafrannsóknastofnunar, Þorstein Sigurðsson um þau Þórunni og Bjarna. Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að velta fyrir sér ræktun á líffærum.

Þjóðmál
#167 – Aukaþáttur – Bjarni segir óvænt af sér

Þjóðmál

Play Episode Listen Later Oct 11, 2023 45:40

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða í sérstökum aukaþætti um aðdraganda og ástæður fyrir óvæntri afsögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Rætt er um álit umboðsmanns Alþingis og þá þau atriði sem þar koma fram, hvaða pólitísku afleiðingar afsögn Bjarna hefur, hvort að andstæðingar Bjarna hafi borið sigur úr býtum og margt annað sem þessu tengist.

Morgunvaktin
Afsögn Bjarna Benediktssonar og afleiðingar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 11, 2023

Við fjölluðum í dag um afsögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Hann upplýsti um ákvörðun sína í gærmorgun, um það bil klukkustund eftir að álit Umboðsmanns alþingis um hæfi hans við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, var birt opinberlega. Bjarni hafði þá haft nokkra daga til að velta málinu fyrir sér. Álit Umboðsmanns er á köflum á nokkuð flóknu lagamáli - við reyndum að útskýra það á mannamáli hér eftir stutta stund með Trausta Fannari Valssyni, dósent í stjórnsýslurétti við lagadeild Háskóla Íslands. Við ræddum ákvörðun Bjarna út frá pólitísku siðferði með Henry Alexander Henryssyni heimspekingi. Hér voru líka formenn þingflokka Framsóknarflokksins og VG, samstarfsflokka Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn; þau Ingibjörg Ísaksen og Orri Páll Jóhannsson. Við ræddum þessa nýju stöðu í ríkisstjórninni við þau. Þær Hildur Sverrisdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, komu líka til okkar. Í síðasta hluta þáttarins var rætt um dönsk málefni með Borgþóri Arngrímssyni. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Hvert örstutt spor - Einar Scheving kvartett. Jeg elsker kun dig - Bamses venner.

Morgunvaktin
Afsögn Bjarna Benediktssonar og afleiðingar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 11, 2023 130:00

Afsögn Bjarna Benediktssonar og áhrif á ríkisstjórn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023 8:55

10. október 2023 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að afsögn fjármálaráðherra sé virðingarverð. Hún hafi óhjákvæmilega áhrif á ríkisstjórnina en milli þeirra ríki traust. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur lýsir ánægju með að fjármálaráðherra hafi ekki látið reyna á hæfi sitt í embætti fyrir dómstólum heldur frekar vikið. Ráðherrar sem yfirmenn framkvæmdavaldsins þurfi að fylgja flóknu regluverki í sínum verkefnu og megi ekki hygla einni atvinnugrein eða frændfólki. Hólmganga Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins segir formaður miðflokksins um afsögn fjármálaráðherra. Stjórnvöld í Finnlandi segja einsýnt að skemmdarverk hafi verið unnin á gasleiðslu sem liggur yfir Finnska flóa til Eistlands. Þau neita að tjá sig um um hver hafi verið að verki. Í stríði milli Ísraels og Hamas, eins og í öðrum stríðum, eru það börn sem þjást mest, segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Rafmagns- og vatnsleysi á Gaza sé lífshættulegt. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Spegillinn
Afsögn Bjarna Benediktssonar og áhrif á ríkisstjórn

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023

Lestin
Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023

Risafréttir úr íslenskum stjórnmálum. Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér sem fjármálaráðherra. Snemma í morgun birtist álit umboðsmanns Alþingis á sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka í fyrra. Pabbi Bjarna var meðal þeirra sem keyptu hlut í bankanum. Umboðsmaður segir Bjarna hafa verið vanhæfan. Og Bjarni bregst við með að segja af sér. Sumir hafa túlkað þetta sem snjallan pólitískan leik hjá teflon-Bjarna sem sé núna að setja pressu á Svandísi Svavarsdóttur og ætli svo bara að verða utanríkisráðherra, en margir aðrir hafa hrósað honum fyrir að axla ábyrgð, og fyrir virða lýðræðislegar stofnanir - þó hann sé ósammála þeim. Við ætlum hins vegar að rýna í sjálfa afsagnarræðuna, orðin. Árið 1983 voru haldnir þrennir tónleikar í Mojave eyðimörkinni í Kaliforníu þar sem margar af framsæknustu rokksveitum þess tíma komu fram: Sonic Youth, Einstürzende Neubauten og Minuteman. Þessi goðsagnalegu tónleikar, Mojave Exodus, eru oft sagðir hafa lagt grunninn að tónlistarhátíðum á borð við Burning Man og Coachella. Maðurinn á bakvið tónleikana var Stuart Swezey, en hann er viðfangsefni nýrrar heimildamyndar sem nefnist Desolation Center. Þórður Ingi Jónsson útsendari Lestarinnar í Los Angeles ræddi við Stuart um tónleikahald á pönkárunum. Hildur Maral Hamíðsdóttir fjallar um nýja plötu bandarísku indí-kassagítarsöngkonunnar Julie Byrne, The Greatest Wing. Plötu sem er kláruð í skugga fráfalls hennar helsta samstarfsmanns og kærasta Erics Littman.

Lestin
Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 10, 2023 55:00

Besta stuttmyndin, Supersport selja út? og stóri hvalurinn

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 9, 2023 55:00

Ásdís Sól Ágústsdóttir fór að bera kennsl á rauðan þráð Í bókmenntum, bíómyndum og myndlist, hvalinn, hann virtist vera alls staðar. Hún ákvað að lesa Moby Dick eftir Herman Melville og varð stórhrifin, og prófar að setja hana í samhengi við umræðurnar um hvalveiðar á Íslandi. Bergur Árnason kvikmyndagerðarmaður hlaut verðlaun fyrir bestu íslensku stuttmyndina á RIFF, fyrir myndina Bókaskipti, síðsumar í Reykjavík, en hátíðinni lauk formlega í gær. Hann nefnir Hlyn Pálmason og Rúnar Rúnarsson sem áhrifavalda sína, en langar að gera myndir sem gerast í Reykjavík, frekar en í sveitinni Hljómsveitin Supersport! hefur undanfarin fjögur ár verið einhver mest áberandi sveitin í reykvísku indí-grasrótinni. Síðasta föstudag kom út önnur breiðskífa sveitarinnar, Húsið mitt, hjá Öldu Music. Platan er lágstemmdari en sú síðasta, Tveir Dagar frá 2021. og stuttskífan Dog Run sem kom út ári áður. Þetta er hin fullkomna haustplata, tónlistin melódísk og ljúfsár popptónlist, með þétt ofnum kassagítarfléttum og einkennandi falsettu söngvarans Bjarna Daníels sem syngur íslenska hversdagsljóðrænu um það að vökva blóm, kvöldmat hjá ömmu og hryggð vinnunnar. Við ræðum við Huga, Bjarna og Dag (Þóra var veik) um manifestó, sannleikann í söng, og útgáfusamninginn við Öldu Music

Lestin
Besta stuttmyndin, Supersport selja út? og stóri hvalurinn

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 9, 2023

Tóm Laugardalslaug, Dofri, Seðlabanka mótmælt 1973 og málfar

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 9, 2023 55:00

Laugardalslaugin er tóm. Þar er hvorki vatn né fólk þessa dagana vegna endurbóta. Árni Jónsson er forstöðumaður laugarinnar og hann tók á móti Samfélaginu þar í morgun og sagði frá því sem þar stendur til. Og það er margt. Svo ætlum við að rifja upp viðtal sem við áttum við Bjarna Bjarnason snemma á þessu ári. Hann var þá við það að hætta störfum sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. En hann sagði okkur þá allt um gufuborinn Dofra sem var verið að gera upp. Þessa afkastamiklu og mikilvægu vinnuvél sem hefur borað ófáar holurnar í leit að heitu vatni og gufu - og þar áður olíu, eins og Bjarni segir okkur frá. Þegar við ræddum við Bjarna var borinn í skemmu í Hafnarfirði en nú eru fram­kvæmd­ir hafn­ar við að koma Gufu­born­um Dof­ra fyr­ir á nýju fræðslu-, upp­lif­un­ar- og úti­vist­ar­svæði við Elliðaár­stöð. Svo rifjum við upp 50 ára gamla upptöku úr safni RÚV með Helgu Láru Þorsteinsdóttur. Málfarsmínútan er líka á sínum stað.

Hvalur 8 kyrrsettur, bæjarráð mótfallið sameiningu MA og VMA

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 14, 2023

Hvalveiðiskipið Hvalur átta hefur verið kyrrsett eftir að veiðimönnum mistókst að aflífa langreyð í fyrsta skoti. Samkvæmt verulega hertum reglum matvælaráðherra þarf að skjóta hval tafarlaust aftur ef fyrsta skot geigar. Forstjóri Matvælastofnunar, Hrönn Ólína Jörundsdóttir segir að töluvert hafi liðið á milli skota. Bæjarráð Akureyrar er mótfallið sameiningu Menntaskólans og Verkmenntaskólans í bænum. Seðlabanki Evrópu hækkaði í dag stýrivexti á evrusvæðinu í tíunda skipti í röð. Bjarni Felixson fyrrverandi íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins er látinn. Hann varð áttatíu og sex ára. Bjarna var minnst í fréttatímanum. Pál Winkel fangelsismálastjóri skilur að fangar á Litla-Hrauni mótmæli bágum kjörum. Föngunum verði ekki refsað fyrir. Hunter Biden sonur Bandaríkjaforseta hefur verið ákærður fyrir vopnalagabrot. Borgin Derna í austurhluta landsins varð verst úti í óveðri í Líbíu á dögunum. Áætlað er að um 18-20.000 hafi látið lífið þegar tvær stíflur í nánd við borgina brustu og vatn fossaði um hana. 15% Íslendinga eru andvíg því að fólk ráði því sjálft hvernig það skilgreinir kyn sitt. Karlar eru mun andsnúari því en konur. Þetta sýnir könnun Fjölmiðlanefndar. Fjöldi aldraðra kemur til með að tvöfaldast á næstu tuttugu og fimm árum, og fólki í aldurshópnum áttatíu til áttatíu og níu ára gæti fjölgað um áttatíu og fimm prósent á næsta áratug. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Magnús Þorsteinn Magnússon. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Spegillinn
Hvalur 8 kyrrsettur, bæjarráð mótfallið sameiningu MA og VMA

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 14, 2023 30:00

Kringlan 36 ára, þvottavélavinkill og Margrét lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 14, 2023 50:00

Verslunarmiðstöðin Kringlan var opnuð í Reykjavík þann 13.ágúst 1987 og við rifjuðum upp hvernig þessir fyrstu dagar í Kringlunni gengu fyrir sig með fyrsta framkvæmdastjóra Kringlunnar Ragnari Atla Guðmundssyni viðskiptafræðingi sem var lokkaður í starfið frá Hampiðjunni hvar hann starfaði áður. Þetta stóð í Helgarpóstinum árið 1987 þann 27.ágúst: Kringlan er verslunarmiðstöð af þeirri gerð sem kallast MALL á ensku. Skipulagið er þannig að tvær stórar verslanir, sem fullvíst er að muni laða til sín mikinn fjölda viðskiptavina, eru settar í sitt hvorn enda. Í þessu tilfelli er um að ræða Hagkaup sem leggur undir sig norðurendann og BYKO sem fyllir þann syðri. Við hittum Ragnar í Kringlunni á 36 ára afmæli Kringlunnar. Guðjón Helgi Ólafsson sendi okkur fyrsta vinkil eftir sumarfrí í dag. Í þetta sinn bar hann vinkilinn að því sem hann kallar þvælingi og þvottavél. Guðjón útskýrði það betur í vinklinum í dag. Svo var það lesandi vikunnar, sem hóf aftur göngu sína á mánudögum í þættinum. Í dag var það Margrét Kjartansdóttir, lögfræðingur og samskiptastjóri hjá Úrvinnslusjóði, sem sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Margrét talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: In Memoriam e. Alice Winn, Tengdadóttirin e. Guðrúnu frá Lundi, Damon Copperhead e. Barbara Kingsolver Jón Odd og Jón Bjarna e. Guðrúnu Helgdóttur, Bróðir Minn Ljónshjarta e. Astrid Lindgren, Austan Eden e. Steinbeck og Frankenstein e. Mary Shelley Tónlist í þætti dagsins: Einu sinni á ágústkvöldi / Magnús Eiríksson og KK (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason) It's Only a Paper Moon / Nat King Cole (Billy Rose, E.Y.Harburg & Harold Arlen) For Once in my Life / Stevie Wonder (Orlando Murden & Ron Miller) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Kringlan 36 ára, þvottavélavinkill og Margrét lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 14, 2023

SE5 - EP04 - Farið yfir sviðið og Arnar Grétars í spjalli

Valur - Hljóðvarp

Play Episode Listen Later Mar 20, 2023 38:31

Við settumst niður í Toggastofu í dag og reyndum að fara yfir allt það helsta sem snýr að okkar ástkæra félagi þessa dagana og þar er að nógu af taka! Líkt og flestir hafa áttað sig á þá er marsmánuður senn á enda sem þýðir yfirvinna á Valsara og útsjónarsemi með dagatalið. Við fórum aðeins yfir bikarúrslit kvenna í handbolta nú um helgina, undanúrslitin í Lengjubikarnum, og stöðuna hjá meistarflokkunum í körfunni nú þegar stutt er í úrslitakeppnina. Og svo er það morgundagurinn! Framundan er sannkallað stríð gegn þýska stórliðinu Göppingen hjá strákunum í handboltanum og ljóst að Evrópuhöllin okkar mun skartasta sínu fegursta annað kvöld. Þetta verður geggjað! Óskari Bjarna fékk sérstakar hamingjuóskir með stórafmælið á dögununum og í seinni hluta þáttar kom svo Arnar Grétarsson í heimsókn. Það er alltaf gaman að hlusta á Arnar. Strákarnir hans unnu Víking í vikunni og eru að fara til Tene að tana og æfa en nú er komið að lokahnykknum á undirbúningstímabilinu fyrir alvöruna sem hefst 10. apríl Þeir stefna hátt – eins og alltaf. Sjáumst hress á morgun á Evrópukvöldi með gleðina að vopni!

The Snorri Björns Podcast Show
#146 - Lárus Welding

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Dec 14, 2022 94:28

Lárus Welding setti sér það markmið að gerast bankastjóri fyrir þrítugt eftir að hafa séð Bjarna Ármannsson gera slíkt hið sama 10 árum áður. “Það reyndust stór mistök," enda hvarflaði ekki að honum að í kjölfar 17 mánaða sem bankastjóri myndu fylgja 17 ár af málaferlum. Lárus segir á einlægan hátt frá vegferðinni í átt að bankastjóratitlinum; svarta beltinu í karate, ofsakvíðakasti eftir samningaviðræður í London, glímuna við áfengi og að gefa það upp á bátinn eftir atvik degi fyrir afmæli dóttur hans, AA samtökunum, hvað starfsfólki bankanna gekk til í hruninu, heimsóknir til sálfræðings og geðlæknis og hvernig hreyfing, nám og að biðja fyrir þeim sem sóttu að honum voru mikilvæg vopn í baráttunni við vonleysið sem herjaði á hann árin eftir hrun.

Spegillinn
COP-27, formannsslagur Sjálfstæðisflokks og kosningar í Ísrael

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 1, 2022

Spegillinn 1. nóvember 2022 Kjörstöðum í Danmörku verður lokað klukkan sjö og þá verður birt útgönguspá. Niðurstöðum þingkosninganna er beðið með mikilli eftirvæntingu. Formaður borgarráðs segir að Reykvíkingar muni ekki finna fyrir mestu aðhaldsaðgerðum borgarinnar frá hruni, þar sem aðhaldið komi innan frá. Það stefnir í fimmtán milljarða króna halla og fulltrúar minnihlutans hafa miklar áhyggjur af stöðunni. Matvælastofnun segir að orðræða í garð starfsfólks hafi verið óvægin í tengslum við dýravelferðarmál. Stofnunin hafi farið að lögum í slíkum málum. Ekkert dýr innbyrðir meira örplast en steypireyðurin - stærsta dýr í heimi, eða um tíu milljónir plasteinda á dag. Formaður Loftslagsráðs segir að orkukrísa í Evrópu sé til komin vegna aðgerðaleysis í loftslagsmálum. Spenna í alþjóðasamfélaginu komi til með að lita umræður á komandi loftslagsþingi. ----- Loftslagsráðstefnan COP-27 hverfist að stórum hluta um að framfylgja áður útgefnum loforðum og skuldbindingum þjóða. Parísarsamkomulagið er orðið sjö ára gamalt og enn er langt í land að allar þær þjóðir sem kvittuðu undir það standi við sinn hluta. Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs segir að þjóðir heims verði að koma sér saman um aðgerðir þrátt fyrir sundrung í alþjóðastjórnmálum. Orkukrísan sem ríki víða um heim sé birtingarmynd aðgerðaleysis í loftslagsmálum. Spegillinn ræddi við Halldór og við spurðum fyrst við hverju mætti búast á COP 27. Á sunnudaginn er formannskjör á dagskrá landsfundar Sjálfstæðisflokksins. Sitjandi formaður er Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Bjarni hefur verið formaður frá 2009 og gefur kost á sér áfram. Aðeins Ólafur Thors sem var formaður í 27 ár og Davíð Oddsson sem gegndi formennsku í fjórtán ár hafa setið lengur á þeim stóli. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra tilkynnti um helgina að hann sæktist eftir að verða formaður, fólk hefði áhyggjur af stöðu flokksins. Mörgum hefur reynst erfitt að greina stefnuágreining milli Bjarna og Guðlaugs sem hafa báðir starfað í Sjálfstæðisflokknum um áratugaskeið. Fundurinn um helgina verður haldinn í Laugardalshöll og þar eiga um tvö þúsund fulltrúar setu- og kosningarétt. Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðiprófessor segir ekkert einfalt svar við því hvort formannsslagur sé góður eða vondur fyrir stjórnmálaflokk. Nýlokið er æsispennandi forsetakosningum í Brasilíu þar sem munurinn á fylgi frambjóðenda hefði vart getað verið minni. Í Danmörku eru þingkosningar í dag þar sem útilokað er að spá fyrir um hvort mið- og vinstri eða mið- og hægristjórn verður við v

Spegillinn
COP-27, formannsslagur Sjálfstæðisflokks og kosningar í Ísrael

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 1, 2022 30:00

Heilsugæslustöð á Akureyri. Kosningar í Brasilíu. Andleg líðan barna.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 27, 2022

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn Útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Allt útlit er fyrir að framkvæmdir við nýja heilsugæslustöð á Akureyri á gamla tjaldsvæðisreitnum geti loksins hafist. Deilur bæjaryfirvalda og ríkisins um fjármögnun bílakjallara hafa tafið framkvæmdir. Óðinn Svan Óðinsson sagði frá og talaði við Jón Helga Björnsson. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir að Guðrún Hafsteinsdóttir verði komin í ríkisstjórnina þegar 18 mánuðir verða liðnir af kjörtímabilinu og Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fari út að þeim tíma liðnum. Ekkert hafi breyst í þeim áformum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við Bjarna. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir málefni Alþýðusambands Íslands ekki á dagskrá félagsins. Öll vinna og orka fari í undirbúning kjaraviðræðna. Fulltrúar VR - Landsambands íslenskra verslunarmanna og Starfsgreinasambandsins hafa fundað með Samtökum atvinnulífsins, fulltrúum ríkisstjórnarinnar og seðlabankastjóra í dag og gær að hans sögn. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við Ragnar. Unnur Þorsteinsdóttir er áhrifamesta vísindakona Evrópu samkvæmt nýjum lista sem vefurinn Research.com tekur saman. Listinn byggist á greiningu á rannsóknaframlagi yfir 160 þúsund vísindakvenna. Unnur er forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu. Það stefnir í spennandi forsetakosningar í Brasilíu á sunnudag. Sitjandi forseti er undir í skoðanakönnunum en treystir á að þær gefi ranga mynd af fylginu. Ásgeir Tómasson sagði frá. Langtímarannsókn leiðir í ljós að breyting hefur orðið á andlegri líðan barna og ungmenna hér á landi síðustu tíu ár. Þetta kemur fram í langtímarannsóknum "Rannsóknar og greiningar". Kristján Sigurjónsson ræddi við Ingibjörgu Evu Þórisdóttur, doktor í sálfræði og sérfræðing hjá Planet Youth, íslensku fyrirtæki sem vinnur að því að innleiða hið íslenska forvarnarmódel "Rannsónar og greiningar" erlendis. Síhækkandi hlutfall fólks með erlent ríkisfang á íslenskum vinnumarkaði endurspeglast ekki í stjórnum íslenskra hlutafélaga. . Innan við 5 prósent íslenskra hlutfélaga eru með erlendan stjórnarmann en hlutfall útlendinga á vinnumarkaði er um 20 prósent. Uppruni stjórnarmanna hefur lítið verið rannsakaður, segir Gylfi Magnússon, prófessor í viðskiptafræði í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Ekki er hægt að fullyrða að sjálfstæðir stofnar laxfiska séu í Sunndalsá og Norðdalsá í Trostansfirði. Því var Matvælastofnun ekki stætt á að neita Arctic Sea Farm um eldisleyfi í firðinu

Spegillinn
Heilsugæslustöð á Akureyri. Kosningar í Brasilíu. Andleg líðan barna.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 27, 2022 30:00

Óli Björn - Alltaf til hægri
Eiginleikar stjórnmálamanna

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Oct 23, 2022 12:30

Bjarni Benediktsson var einhver áhrifamesti stjórnmálamaður Íslendinga á liðinnni öld. Hann var formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra, utanríkisráðherra, dómsmálaráðherra og borgarstjóri. Bjarni markaði stefnu landsins í varnar- og öryggismálum - stefnu sem fylgt hefur verið eftir allar götur síðan.  Í tilefni af því að senn líður að landsfundi Sjálfstæðisflokksins leitaði ég í fræðakistur Bjarna og staldraði við hugmyndir hans um hvaða eiginleika stjórnmálamaður þurfi að búa yfir. Kjörnir fulltrúar á þingi og sveitarstjórnum gætu margt lært.

Morgunútvarpið
1. júlí - landsmót, NATO, klám, goslokahátíð, EM í knattspyrnu

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 1, 2022

Landsmót hestamanna er einn stærsti útiviðburður ársins, en mótið hefst á sunnudaginn kemur og stendur í heila viku á Gaddstaðaflötum við Hellu. Þar er loka undirbúningur á fullu og Hulda leit við og hitti þar Magnús Benediktsson framkvæmdastjóra Landsmóts og Huldu Gústafsdóttur knapa og hrossaræktanda, sem sögðu frá því sem búast má við og stemmingunni sem er að myndast. Sögulegum leiðtogafundi NATO ríkjanna í Madrid á Spáni lauk í gær. Í venjulegu árferði myndu fjölmiðlar heims kannski ekki keppast við að greina frá helstu tíðindum slíks fundar en ástandið í Evrópu hefur snarlega breytt heimsmyndinni. Brynja Huld Óskarsdóttir öryggis- og varnarmálasérfræðingur, kom til okkar til að fara yfir helstu tíðindi af fundinum og kryfja það sem þar fór fram. Fréttablaðið fjallaði um það í gær að klámnotkun væri farin úr böndunum hjá tíunda hluta íslenskra háskólanema. 11,6 prósent háskólanema horfa of mikið á klám og 7 prósent telja sig eiga við vanda að stríða, samkvæmt niðurstöðum könnunar meðal nemenda í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík, sem unnin var fyrir BS-ritgerð Egils Gylfasonar í sálfræði, um klámvanda. Egill kom til okkar og ræðir niðurstöðurnar. Við renndum lauflétt yfir fréttir vikunnar eins og alla föstudaga með rithöfundunum Auði Jónsdóttur og Gunnari Helgasyni. Goslokahátíð stendur yfir í Vestmannaeyjum en alla jafna er hátíðin mikið húllumhæ með sneysafullri dagskrá. Við heyrðum í Írisi Róbertsdóttur bæjarstýru. Dætur Íslands, þáttaröð á mbl.is um íslenskar atvinnukonur í fótbolta í tilefni af EM 2022, hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarið. Í þáttunum heimsækir Bjarni Helgason, íþróttafréttamaður, landsliðskonurnar við æfingar hjá félagsliðum sínum og ræðir við þær um boltann - og veitir um leið einstaka innsýn inn í líf þeirra. Við ræddum við Bjarna í lok þáttar um gerð þáttanna og EM. Tónlist: Verum í sambandi - Sprengjuhöllin Go Your Own Way - Fleetwood Mac Þarfasti þjónninn - Hilmir og Humlarnir Flott - Flott A Driver Saved My Night - Sigrid Halo - Beyonce She Moves in Her Own Way - The Kooks Highe Love (ft. Kygo) - Whitney Houston

Fotbolti.net
Númer sex eins og Tinna Mark og LeBron

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later May 2, 2022

Bjarni Mark Duffield er staddur á Íslandi í stuttu fríi þar sem ekki var spilað í norsku B-deildinni um helgina. Sæbjörn Steinke fékk Bjarna í spjall sem hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan og í öllum hlaðvarpsveitum. Bjarni er leikmaður Start í Noregi en hann söðlaði um og gekk í raðir félagsins eftir nokkur í ár í Svíþjóð þar á undan. Hann er Siglfirðingur sem skipti yfir í KA þegar hann komst nálægt meistaraflokksaldri og lék með KA í efstu deild tímabilið 2018. Síðan hafði hann verið í Svíþjóð þangað til á þessu ári þegar hann fékk símtalið frá Start. Bjarni fer yfir skiptin í Start, nýja leikstöðu, fyrstu mánuðina í Start, spjallið sem hann átti við Túfa, landsliðið og ýmislegt fleira á rúmum tuttugu mínútum.

Frjálsar hendur
Annar þáttur um Bjarna Brandsson sjómann

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Feb 20, 2022 52:00

Umsjónarmaður les úr æviþætti sem skrifaður var af Vilhjálmi Vilhjálmssyni um Bjarna Brandsson sjómann. Hér segir frá því þegar togari Bjarna sigldi á tundurdufl 1914, þegar þýskur kafbátur stöðvaði annan togara hans 1918 og þegar hann upplifði bæði frostaveturinn mikla og spænsku veikina sama ár. Lýsingin á spænsku veikinni í Reykjavík er mögnuð. Og loks er átakanleg lýsing á því þegar togarinn Jón forseti fórst með Bjarna innanborðs. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Frjálsar hendur
Annar þáttur um Bjarna Brandsson sjómann

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Feb 20, 2022

Umsjónarmaður les úr æviþætti sem skrifaður var af Vilhjálmi Vilhjálmssyni um Bjarna Brandsson sjómann. Hér segir frá því þegar togari Bjarna sigldi á tundurdufl 1914, þegar þýskur kafbátur stöðvaði annan togara hans 1918 og þegar hann upplifði bæði frostaveturinn mikla og spænsku veikina sama ár. Lýsingin á spænsku veikinni í Reykjavík er mögnuð. Og loks er átakanleg lýsing á því þegar togarinn Jón forseti fórst með Bjarna innanborðs. Umsjón: Illugi Jökulsson.

The Snorri Björns Podcast Show
#101 - Bjarni Benediktsson

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Sep 15, 2021 100:31

Í þættinum ræðum við feril Bjarna fyrir pólitíkina, fótboltann, lögfræðina, námið í þýskalandi og Ameríku, að verða faðir 21 árs gamall, maraþonhlaup og hvernig stjórnarslit komu í veg fyrir Berlínarmaraþonið, hvernig annasamasti maður landsins - áreittur úr öllum áttum - finnur tíma fyrir fjölmörg áhugamálin sín (veiði, skíði, ljósmyndun, blómarækt, kökuskreytingar ofl.) og hleður batterýin í baðkarinu heima bæði morgna og kvölds.