Sölkuvarpið

Follow Sölkuvarpið
Share on
Copy link to clipboard

Salka is a publishing house and a bookstore with great variety of books on Iceland and Icelandic culture.

Sölkurnar

  • Dec 14, 2020 LATEST EPISODE
  • monthly NEW EPISODES
  • 24m AVG DURATION
  • 17 EPISODES

Search for episodes from Sölkuvarpið with a specific topic:

Latest episodes from Sölkuvarpið

Vertu þú

Play Episode Listen Later Dec 14, 2020 28:41

Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir höfundar Vertu þú spjalla við Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttir um bókina og hvernig hún hvetur til víðsýni og fordómaleysis í Sölkuvarpinu. Hvað er það sem gerir mig að mér? Hvað er það sem gerir þig að þér? Öll erum við einstök á okkar hátt. Við eigum öll rétt á að vera nákvæmlega eins og við erum. Það skiptir ekki máli hverju við klæðumst, hverjum við verðum skotin í, hvaða kyni við upplifum okkur í, hvaðan við erum eða hverju við höfum áhuga á. Við megum öll vera eins og okkur langar til. Ingileif og María Rut halda úti fræðsluvettvanginum Hinseginleikinn. Hér má lesa nánar um bókina: https://www.salka.is/products/vertu-thu

Samskipti

Play Episode Listen Later Dec 14, 2020 28:11

Pálmar Ragnarsson, fyrirlesari og höfundur Samskipta leiðir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur í allan sannleikann um hvað skiptir mestu máli í Samskiptum í Sölkuvarpinu. Góð samskipti eru lykillinn að velgengni og þau opna fjölmargar dyr. Þau eru það mikilvægasta sem við getum tileinkað okkur og hafa áhrif á alla þætti lífs okkar. Með færni í samskiptum gerum við lífið einfaldara og skemmtilegra, fækkum árekstrum og auðveldum okkur að kynnast fólki og ná markmiðum okkar. Samskipti er leiðarvísir að jákvæðum samskiptum á mörgum sviðum, hvort sem er í einkalífinu, á vinnustað eða í félagslífinu. Farið er ítarlega yfir alls kyns samskipti milli einstaklinga, samskipti í hópum, hagnýtar aðferðir í samskiptum við börn, samskipti við ókunnuga og samskipti á netinu. Í bókinni má finna ótal góð ráð, æfingar, hugleiðingar og dæmisögur til að auka færni okkar á sviði samskipta. Samskipti á erindi við alla því með góðum aðferðum í samskiptum getum við gert okkar eigið líf betra á sama tíma og við bætum líf fólksins í kringum okkur. Í bókinni koma einnig fram niðurstöður úr stærstu rannsókn sem gerð hefur verið á samskiptum Íslendinga. Rannsóknin var framkvæmd sérstaklega fyrir bókina og tóku yfir 1300 manns þátt í henni. Um höfundinn Pálmar Ragnarsson er þjóðþekktur fyrirlesari en hann hefur haldið yfir 500 fyrirlestra um samskipti um allt land. Pálmar er með BS gráðu í sálfræði og MS gráðu í viðskiptafræði með áherslu á samskipti á vinnustöðum. Fyrirlestra sína hefur Pálmar haldið í flestum af stærstu fyrirtækjum landsins, fjölda ráðuneyta og stofnana, fyrir starfsfólk og nemendur skóla á öllum stigum, fjölda íþróttaliða og fleiri. Hér má lesa nánar um Samskipti: https://www.salka.is/products/samskipti

Jólabókaflóðið beint í bílinn

Play Episode Listen Later Dec 11, 2020 80:22

Bókaflóðið beint í bílinn var kynning á bókum Sölku. Þar kynntu höfundar Sölku bækurnar sínar og lásu upp úr þeim í glugganum á verslun Sölku. Dagskránni var útvarpað samhliða líkt og um bílabíó væri að ræða. Freyr Eyjólfsson, hinn landskunni útvarpsmaður, stjórnaði útsendingunni. Höfundar Sölku sem kynntu bækurnar sínar voru Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir með Vertu þú, Pálmar Ragnarsson með Samskipti, Sólveig Pálsdóttir með Klettaborgina, Lóa Hjálmtýsdóttir með Grísafjörð, Nína Björk Jónsdóttir með Íslandsdætur, Edda Hermannsdóttir með Framkomu og Erla Björnsdóttir með Svefnfiðrildin.

Klettaborgin

Play Episode Listen Later Dec 8, 2020 31:10

Sólveig Pálsdóttir segir frá endurminningum sínum í Klettaborginni. Hér ræðir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir fjölmiðlakona við Sólveig um tilurð bókarinnar og efni hennar. Sólveig var ung send í sveit austur í Skaftafellsýslu og dvaldi í mörg ár sumarlangt á bænum Hraunkoti í Lóni. Segja má að tveir heimar hafi búið í Sólveigu alla tíð. Á veturna bjó hún í Vesturbænum en dvaldi einnig löngum á Bessastöðum þar sem afi hennar var forseti Íslands. Klettaborgin byggir á minningum Sólveigar frá æsku og fram undir tvítugt og persónugalleríið er fjölbreytt. Hún skrifar um fólk og atburði, sem hafa haft áhrif á líf hennar, og lýsir horfnum heimi og annars konar lífsgildum en við þekkjum í dag. Sólveig hefur hingað til skrifað glæpasögur við góðan orðstír. Hún hefur sent frá sér bækurnar Leikarinn, Hinir réttlátu, Flekklaus, Refurinn og Fjötrar en fyrir þá síðastnefndu hlaut hún Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu glæpasögu ársins 2019. Nú leitar hún á ný mið og rifjar með hrífandi og kærleiksríkum hætti upp atburði frá uppvaxtarárum sínum. Klettaborgin geymir fallegar sögur og dýrmætar minningar um dýrmætar manneskjur. Myndir, bréf og margt fleira prýðir síður bókarinnar. Hér má lesa nánar um bókina: https://www.salka.is/products/klettaborgin

Íslandsdætur

Play Episode Listen Later Dec 7, 2020 22:14

Nína Björk Jónsdóttir, höfundur Íslandsdætra segir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur frá tilurð bókarinnar í Sölkuvarpinu. Íslandsdætur er barnabók sem segir sögu rúmlega fjörutíu framúrskarandi kvenna sem spanna tímann allt frá upphafi byggðar á Íslandi til dagsins í dag. Konurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Sumar eru þekktar fyrir hugrekki og staðfestu eða fyrir að hafa upplifað ótrúlegar þrekraunir og tekist á við þær af seiglu og áræðni. Aðrar voru brautryðjendur, landkönnuðir, menntakonur, sjómenn eða þekktar fyrir vísindastörf, íþróttaafrek, ritstörf, tónsmíðar eða aðrar listir. Hér er einnig sögð saga kvenna sem börðust fyrir jafnrétti kynjanna og gáfu kost á sér til forystu til að bæta samfélagið. Yngstu konurnar í bókinni eru rétt að byrja að láta til sín taka. Á síðum Íslandsdætra er fjallað um stórmerkilegar konur sem höfðu áhrif á samtíma sinn og skildu eftir sig merkilega arfleifð. Kvenskörungar sem létu til sín taka, ruddu brautina, voru frumkvöðlar og létu ekki mótlæti, erfiðar aðstæður, fátækt eða hneykslan samborgaranna á sig fá. Þær eru Íslandsdætur. Nánar hér: https://www.salka.is/products/islandsdaetur

1. kafli

Play Episode Listen Later Dec 4, 2019 8:50

Fjötrar segir frá konu sem finnst látin í klefa sínum í fangelsinu á Hólmsheiði. Guðgeir og félagar hans rannsaka málið sem reynist hafa ótal þræði og teygja anga sína víða, alla leið til stóra skjálftans um aldamótin þar sem ungur maður hvarf sporlaust. Lögreglan stendur frammi fyrir stórum spurningum og kynnist hversu langt fólk er tilbúið að ganga til að viðhalda ákveðinni mynd af sér út á við og hvers fjölskyldur eru megnugar til að vernda leyndarmál sín. Fjötrar er eftir Sólveigu Pálsdóttur sem er leikkona og starfaði lengi við leiklist og kennslu í framhaldsskóla áður en hún sneri sér alfarið að ritstörfum. Fjötrar er fimmta bók Sólveigar en bækur hennar hafa verið tilnefndar til Blóðdropans, þýddar á þýsku og sem stendur vinna bresk framleiðslufyrirtæki að gerð sjónvarpsþátta eftir síðustu bók hennar, Refnum. Sólveig er bæjarlistamaður Seltjarnarness 2019, fyrst rithöfunda.

2. kafli

Play Episode Listen Later Dec 4, 2019 20:30

3. kafli

Play Episode Listen Later Dec 4, 2019 15:13

4. kafli

Play Episode Listen Later Dec 4, 2019 12:13

5. kafli

Play Episode Listen Later Dec 4, 2019 1:07

Kraftbjór

Play Episode Listen Later Jan 31, 2019 23:47

Besti bjórinn sem þú drekkur er sá sem þú bruggar sjálf/ur. Viðaðu að þér örfáum hráefnum og einföldum brugggræjum, gefðu þér smá tíma og njóttu þess síðan að drekka helhumlaðan IPA eða dásamlega dökkan porter. Ekki er verra að geta sótt í viskubrunn bestu kraftbruggara dagsins í dag, sem byrjuðu að brugga með hugsjón og löngun í betri bjór að vopni. Í Sölkuvarpinu fjallar Helga Arnardóttir um bjór og ræðir við Ástu Ósk Hlöðversdóttur, bruggmeistara Ölvisholts um galdurinn á bakvið góðan bjór og vel heppnaða bruggun. Umsjón og handrit: Helga Arnardóttir Nánar um bókina Kraftbjór: https://www.salka.is/products/kraftbjor

Sous vide

Play Episode Listen Later Oct 22, 2018 27:59

Stóra bókin um sous vide hefur slegið í gegn sem og eldunaraðferðin sjálf. Í Sölkuvarpinu fjallar Helga Arnardóttir um eldunaraðferðina og hversu auðvelt það er í raun og veru að elda með sous vide. Einnig fá hlustendur góðar hugmyndir að því hvaða réttir klikka aldrei með sous vide. Viðmælendur Helgu eru Viktor Örn Andrésson, einn fremsti matreiðslumaður landsins og brons verðlaunahafi í virtustu matreiðslukeppni heims, Bocuse d'Or og Elísabet Árnadóttir, áhugamanneskja um sous vide en hún er komin á sitt annað sous vide tæki og er búin að fullkomna cremé brulée. Umsjón og handrit: Helga Arnardóttir Nánar um Stóru bókina um sous vide: https://www.salka.is/products/stora-bokin-um-sous-vide

Bakað úr súrdeigi

Play Episode Listen Later Oct 4, 2018 20:53

Helga Arnardóttir ræðir hér við ástríðusúrdeigsbakarana Ragnheiði Maísól og Ágúst Fannar Einþórsson, betur þekktan sem Gústa í Brauð & co. Hvort sem þú ert að hugsa um að stíga þín fyrstu skref sem súrdeigsbakari eða hefur gert ótal tilraunir að hinu fullkomna súrdeigsbrauði þarftu að hlusta á þennan þátt! Hér má kaupa Bakað úr súrdeigi: https://www.salka.is/products/bakad-ur-surdeigi

Fjallvegahlaup - allt sem þú vilt vita um hlaup í náttúrunni

Play Episode Listen Later Jul 2, 2018 25:34

Í Sölkuvarpinu fjallar Helga Arnardóttir um fjallvegahlaup frá öllum hliðum. Hún fer yfir hvað ber að hafa í huga fyrir byrjendur og einnig fyrir lengra komna, hvað þurfi að gera áður en lagt er að af stað og hvaða leiðir henta best hverjum og einum. Viðmælendur Helgu eru Stefán Gíslason, þaulreyndur hlaupari og höfundur bókarinnar Fjallvegahlaup og Dalla Ólafsdóttir, sem byrjaði fyrir nokkru að hlaupa úti í náttúrunni og kolféll fyrir þessari útivist. Umsjón og handrit: Helga Arnardóttir Nánar um Fjallvegahlaup eftir Stefán Gíslason: https://www.salka.is/products/fjallvegahlaup

Sólveig Pálsdóttir um Refinn

Play Episode Listen Later Nov 9, 2017 17:15

Sólveig Pálsdóttir segir frá og les upp úr nýjustu bók sinni Refnum á Safnahátíð í Vestmannaeyjum í nóvember 2017.

Tómas Guðmundsson - Sölvi Björn Sigurðsson fjallar um Reykjavíkurskáldið

Play Episode Listen Later Nov 9, 2017 18:22

Sölvi Björn Sigurðsson, sem ritar formála í Ljóðasafn Tómasar Guðmundssonar fjallar um Tómas á Safnahátíð í Vestmannaeyjum.

Framúrskarandi dætur - Staða ungra kvenna í Mið-Austurlöndum

Play Episode Listen Later Jun 16, 2017 27:33

Staða ungra kvenna í Mið-Austurlöndum var umræðuefni málþings sem haldið var í tengslum við útkomu bókinnar Framúrskarandi dætra hjá Sölku. Frummælendur voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir og Þórir Jónsson Hraundal en þau hafa öll yfirgripsmikla þekkingu á málefnum Mið-Austurlanda og hér má heyra hluta af fyrirlestrum þeirra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fyrrverandi umdæmisstjóri UN Women fyrir Evrópu og Mið Asíu. Áður var Ingibjörg yfirmaður UN Women í Afganistan. Ingibjörg átti stóran þátt í auknum hlut kvenna í stjórnmálum á Íslandi og tók hún sæti í borgarstjórn 1982 fyrir kvennaframboðið og var síðar þingkona Kvennalistans á árunum 1991 til 1995. Ingibjörg Sólrún tók aftur sæti á þingi á árunum 2005 til 2009 og var hún utanríkisráðherra á árunum 2007 til 2009. Ingibjörg Sólrún var borgarstjóri Reykjavíkur 1994 til 2003. Þórir Jónsson Hraundal er umsjónarmaður Mið-Austurlandafræða og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Rannsóknir hans beinast helst að arabískum miðaldatextum og vitnisburði þeirra um víkingaöldina. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir hefur sterk tengsl við Mið-Austurlönd og nú síðast dvaldi hún í Kaíró í Egyptalandi þar sem hún starfaði í sex mánuði hjá Friðgæslunni hjá World Food Program sem kynjaráðgjafi. Guðrún hóf doktorsnám í mannfræði til að rannsaka kvennabaráttuna í Katar þar sem hún bjó sem unglingur og ung kona. Guðrún bjó einnig í Sameinuðu furstadæmunum, Kuwait og Yemen frá 15 ára til 25 ára og gifti sig og eignaðist börn þar. Guðrún hefur bæði BA og MA próf í mannfræði og talar arabísku.

Claim Sölkuvarpið

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel