POPULARITY
Linda Vilhjálmsdóttir er fædd árið 1958 og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hún fann ung að hún væri góð í að setja saman orð, hóf að skrifa ljóð í barnaskóla og las allt sem hún komst í á bókasafni Seltjarnarness. Hún var líka ung þegar hún fór að vinna fyrir sér, fyrst með barnapössun og síðar í fiski. Þegar hún hóf nám við Menntaskólann í Reykjavík upplifði hún í fyrsta sinn stéttarvitund en uppgötvaði svo síðar á lífsleiðinni að það sem hafði mótað hana mest var að alast upp sem stúlka í feðraveldi. Linda lærði til sjúkraliða og starfaði lengi við fagið og segir það einnig hafa opnað augu sín fyrir nýjum veruleika. Linda hefur hlotið mikið lof fyrir ljóð sín og ýmis verðlaun og viðurkenningar hafa fallið henni í skaut. Það er óhætt að segja að rödd Lindu sé einstök í landslagi íslenskra bókmennta og það er mikill fengur að nú sé komið út heildarsafn allra ljóðabókanna níu. Við ætlum að ræða þetta splunkunýja heildarsafn við Lindu í þætti dagsins, og auðvitað margt fleira. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Það hefur lengi verið beðið eftir að Náttúruminjasafn Íslands komist í sómasamlegt húsnæði og ýmis áform verið uppi. Núna er sýning safnsins Vatnið í náttúru Íslands hýst í Perlunni. Undanfarið hafa svo verið lögð drög að því að safnið fái hús á Seltjarnarnesi sem var byggt undir lækningaminjasafn með möguleika á stækkun og vonast var til að húsið væri tilbúið seinna á þessu ári. Í Morgunblaðinu í gær var svo sagt frá því að í bæjarstjórn Seltjarnarness hefði komið fram að það myndi ekki gerast fyrr en vorið 2026. Hilmar Malmquist forstöðumaður Náttúruminjasafnsins virtist yfir sig hissa á þessum tíðindum í viðtali um málið. Hann ræðir við okkur. Sálmabók, salur, áletraðar servíettur, fermingarföt, fermingargreiðsla, fermingarterta, jafnvel nammibar og myndakassi til að taka sjálfur - og ekki má gleyma fermingargjöfinni. Kostnaður við fermingar hleypur á mörg hundruð þúsundum - hvernig tekst tekjulágt fólk á við það? Við ræðum ferminguna sem stöðutákn við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur, formann Pepp sem er grasrót fólks í fátækt á Íslandi. Páskar eru handan við hornið og hillur verslana svigna undan páskaeggjum af ýmsum stærðum og gerðum. Og í flestum þeirra leynast málshættir - sem mörgum finnst reyndar vera meira spennandi en nammið í eggjunum. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur ræðir við okkur um málshætti. Tónlist: Hljómsveit Ingimars Eydal - Bara að hann hangi þurr. MUGISON - Góðan dag.
Gunnar Kvaran sellóleikari var átta ára gamall þegar foreldrar hans sendu hann til náms í þá nýstofnaðan Barnamúsíkskóla Reykjavíkur. Þar lærði hann undir handleiðslu Doktor Heinz Edelstein sem ákvað að sellóið yrði hans hljóðfæri. Eftir brottfararpróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hélt Gunnar út til náms, fyrst til Kaupmannahafnar, þar sem hann hóf líka að kenna við Konunglega tónlistarháskólann, og svo til Basel og Parísar. Eftir 17 ár erlendis flutti Gunnar aftur heim og hefur síðan verið einn af okkar ástsælustu einleikurum auk þess að hafa jöfnum höndum kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskólann. Gunnar hefur haldið einleikstónleika víða um heim auk þess að leika einleik með hinum ýmsu Sinfóníuhljómsveitum. Hann hefur einnig átt í farsælu samstarfi við eiginkonu sína, Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara í Tríói Reykjavíkur. Honum hafa fallið ýmis verðlaun í skaut, verið bæjarlistamaður Seltjarnarness og hann er líka handhafi fálkaorðunnar. Gunnar sinnir ekki aðeins tónlistinni af innri köllun, heldur hefur hann eytt drjúgum tíma í að miðla henni til þeirra sem annars fengju hennar ekki notið. Því hann trúir því einlæglega að tónlistin sé mannbætandi afl sem næri og jafnvel lækni sálina. Meira um það í samtali okkar við Gunnar, sem setur hér fyrsta verkið á fóninn. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson
Við fjölluðum um fjármál og rekstur hins opinbera. Það gengur ágætlega hjá ríkinu; afkoman er betri en ráð var fyrir gert í fjárlagafrumvarpinu. Aðra sögu er að segja af sveitarfélögunum, mörgum hverjum, þar er reksturinn verri en fjárhagsáætlun sagði til um. Hvernig stendur á því? Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, ræddi þetta. Við fjölluðum um sögu alheimsins, hvorki meira né minna; eins og hún blasir við í gegnum sjónauka á Suðurskautslandinu. Þar eru aðstæður þannig að betra er að fylgjast með því sem er á seyði í órafjarlægð úti í geimi en annars staðar. Sigríður Kristjánsdóttir hjá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness og Jón Emil Guðmundsson, formaður Stjarnvísindafélags Íslands, komu til okkar. Arthúr Björgvin Bollason ræddi við okkur um þýsk stjórnmál, þéranir í þýsku máli og Selfoss í þýsku stórblaði í Berlínarspjallinu. Tónlist: Cash, Johnny, Cash, Johnny - Don't take your guns to town. Ragnhildur Gísladóttir, Tómas R. Einarsson - Þrennt. Mannakorn - Stjörnur.

Ástand mála á götum Frakklands virðist vera að róast, eftir margra daga mótmæli og óeirðir með miklu eignatjóni þar sem fjölmargir slösuðust. Ástæðurnar fyrir uppþotinu eru margar, ekki síst er talað um misskiptingu og kynþáttafordóma sem ekki sé vilji til að taka almennilega á í frönsku samfélagi. Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingmaður var á línunni frá París og ræddi stöðu mála. Breytingar á háskólanámi í Danmörku vekja takmarkaða hrifingu. Borgþór Arngrímsson í Kaupmannahöfn sagði frá því. Borgþór fjallaði líka um dóm hæstaréttar Danmerkur um erlenda þjóðfána á danskri grundu og fleira sem dregið hefur til tíðinda í Danaveldi að undanförnu. Stjarneðlisfræðingar hafa í fyrsta sinn fundið merki um þyngdarbylgjuklið í alheiminum. Talið er að þyngdarbylgjurnar eigi að mestu rætur að rekja til samruna eða árekstra risasvarthola í miðju vetrabrauta. Þetta var ekki það eina merkilega sem gerðist í stjarnvísindaheiminum í síðustu viku, Sigríður Kristjánsdóttir, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, sagði frá. Tónlist: Kamelgult - Teitur Magnússon Mae pa fidje - Cesaria Evora Paris sera toujours Paris - Zaz Midsommarsangen - Shu-bi-dua Mónika - Teitur Magnússon og Hildur Kristín Stefánsdóttir Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Við fjölluðum um laun í dag, og virði og mikilvægi ólíkra starfa. Hvort er mikilvægara að hjúkra sjúkum á gjörgæsludeild eða sýsla með verðbréf? Í tilviki hjúkrunarinnar getur verið um líf eða dauða að tefla en verðbréfamiðlun er tilfærsla á peningum. Ég held ég geti fullyrt að almennt séu verðbréfamiðlarar betur launaðir en hjúkrunarfræðingar. Og hvernig ætli standi á því? Hvaða skýringar kann hagfræðin? Við spáðum og spegúleruðum með Þórólfi Matthíassyni, prófessor í hagfræði. Síðasta áratuginn hefur þeim fjölda stjarna sem hægt er að sjá með berum augum á himninum fækkað verulega. Þetta sýnir ný rannsókn, þar sem fólk um allan heim var beðið um að telja stjörnurnar sem það sá á himninum. Ástæðan fyrir þessu er mengun - ljósmengun. Við spjölluðum um stjörnurnar, birtuna og himininn við Sigríði Kristjánsdóttur formann Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Svo var það sagan. Í gær voru liðin 175 ár síðan trésmiðurinn James Marshall kom auga á glitrandi steinvölur í árfarvegi í Coloma í El Dorado-sýslu í Kaliforníu. Það var gull. Fundurinn varð upphafið að fordæmalausu gullæði, sem umbreytti Kaliforníu og lífi tugþúsunda vongóðra gullgrafara, sem streymdu þangað frá öllum heimshornum. Gullið varð þó Marshall sjálfum ekki til mikillar gæfu, líkt og Vera Illugadóttir sagði frá. Tónlist: Brúnaljósin brúnu - Einar Júlíusson 18 yellow roses - Hljómar Viltu dansa ? Einar Júlíusson og Pónik Man of constant sorrow ? Ralph Stanley Ég teikna stjörnu - Hjálmar

Pólitíkin 66. þáttur Umsjón: Ingvar P. Guðbjörnsson. Viðmælandi: Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarness Lýsing: Pólitíkin er umræðuþáttur um stjórnmál og helstu samfélagsmál á hverjum tíma. Þátturinn er á vegum Sjálfstæðisflokksins og leitar eftir sjónarmiðum sjálfstæðisfólks en við leitum líka fanga utan flokksins, eins og málefnið býður upp á hverju sinni. Þáttur frá 4. ágúst 2022.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, ræddi meðal annars samþjöppun í sjávarútvegi í spjalli efnahag og samfélag. Síldarvinnslan ætlar að kaupa Vísi - kaupverðið er 31 milljarður króna og ef kaupin verða samþykkt verður til félag sem sennilega fer yfir leyfilegt hlutfall heildarkvótans. Þórður Snær fór líka yfir stöðu mála hjá Festi en hluthafafundur verður haldinn hjá félaginu á fimmtudag. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá skorti á fagmenntuðu fólki til starfa í Þýskalandi í Berlínarspjalli. Eins er staða Græningja flókin en flokkurinn hefur þurft að draga í land varðandi kolavinnslu og útgjöld til varnarmála. Fyrsta myndin úr James Webb geimsjónaukanum var birt í gærkvöldi og það var Joe Biden Bandaríkjaforseti sem birti hana og fleiri myndir verða svo birtar í dag. Myndirnar marka tímamót í stjarnvísindum. Sigríður Kristjánsdóttir, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, fór yfir myndirnar og mikilvægi þeirra fyrir stjörnufræðinga um allan heim. Tónlist: Prelude and Fugue in E minor BWV 855 : Prelude - Víkingur Heiðar Ólafsson, Open Heart - Stína Ágústsdóttir, Come On - Rolling Stones, Mother's little helper- Rolling Stones, Starman - David Bowie. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fór yfir viðskiptaþvinganir og aðrar refsiaðgerðir sem beitt er gagnvart bæði ríkjum og samtökum. Yfirleitt eru þessar viðskiptaþvinganir í samstarfi aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna eða Evrópusambandsins. Ísland á meðal annars aðild að viðskiptabanni gagnvart Rússum frá árinu 2014 sem eitt EES-ríkjanna. Ári síðar settu Rússar viðskiptaþvinganir á móti, þar á meðal gagnvart Íslandi. Það hafði mikil áhrif á íslenskan sjávarútveg á þeim tíma. Viðskiptaþvinganir hafa mest áhrif ef þær eru settar á gagnvart vinveittum ríkjum sem eiga í viðskiptum sín á milli. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá stöðu Breta gagnvart Rússlandi og tengsl Íhaldsflokksins og rússneskra auðmanna. Sóttvarnareglur voru einnig ræddar og leikhúslífið en það er óðum að vakna til lífsins. Beðið er eftir skýrslu um partígate í Downingstræti og bresk orðræða og skaplyndi Breta bar einnig á góma í Lundúnaspjalli. Sigríður Kristjánsdóttir, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, fræddi hlustendur um Webb-geimsjónaukann og væntingar til hans. Von er á fyrstu myndunum úr sjónaukanum næsta sumar og er þeirra beðið með mikilli eftirvæntingu. Hún sagði frá nýrri uppgötvun háskólastúdents í Ástralíu sem kom auga á dularfullt fyrirbrigði í Vetrarbrautinni. Stjarneðlisfræðingur segir það frábrugðið öllu öðru því sem vísindamenn þekkja í himingeimnum. Að lokum mælti Sigríður með því að fólk beindi sjónum sínum að Óríon á næstunni ef það á stjörnusjónauka. Tónlist: Kveðja - Agnar Már Magnússon Don't explain - Kristjana Stefánsdóttir Who Loves the Sun - Velvet Underground Starman - David Bowie. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir gleðst yfir að nýtt Alzheimer-lyf er komið í notkun í Bandaríkjunum. Gangi allt að óskum má búast við að það verði notað hér eftir u.þ.b. tvö ár. Þekkingu á Alzheimer hefur fleygt fram á undanförnum árum en sjúkdómurinn er enn mikil ráðgáta að sögn Steinunnar. Deildarmyrkvi verður í fyrramálið en þá fer tunglið fyrir sólina. Sigríður Kristjánsdóttir, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, sagði frá deildarmyrkvanum og gangi himintunglanna. Sameining Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar var samþykkt í kosningu um síðustu helgi. Helgi Héðinsson, formaður nefndar um sameingingu, sagði frá verkefnunum fram undan í spjalli við Ágúst Ólafsson. Tónlist: A foggy day - Judy Garland, Ower the rainbow - Judi Garland, Tunglið mitt - Possibillies, Tunglið tunglið taktu mig - Ljósin í bænum. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson

Í byrjun þáttar var leikið viðtal Ágústs Ólafssonar fréttamanns við Vilhjálm Vernharðsson, ferða- og sauðfjárbónda á Möðrudal en Ágúst var á ferð milli landshluta í gær. Vilhjálmur var brattur og bjartsýnn á að sumarið verði gott. Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar, sagði frá aðstæðum fólks með þroskaskerðingar í kófinu. Hún gagnrýnir að skjólstæðingar samtakanna, aðstandendur þeirra og fólk sem starfar með þeim hafi verið aftarlega í bólusetningaröð stjórnvalda en loks hillir undir þessir hópar verði bólusettir. Almennt hafi fólk með þroskahamlanir og langveikt gleymst í faraldrinum og fyrir vikið hafi þeir hópar og aðstendur verið undir miklu álagi. Í Heimsglugganum fjallaði Bogi Ágústsson um Norðurskautsráðið, sögu þess, hlutverk og þýðingu en fundur utanríkisráðherra aðildarríkjanna stendur nú í Reykjavík. Þá fór hann hratt yfir sögu átaka og búsetu Palestínumanna og gyðinga og hóf leikinn á tímum Rómarveldis. Plánetan Mars er í hundrað milljón kílómetra fjarlægð frá Jörðinni en vísindamenn víða um heim sinna rannsóknum af ýmsum toga á þessum dularfulla hnetti. Jarðskjálftafræðingur í Sviss, John Clinton að nafni, fylgist sérstaklega með jarðhræringum á Mars en þar skelfur jörð líkt á Jörðinni. Sigrún Kristjánsdóttir, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, spjallaði um Mars, þekkingu okkar á staðháttum þar og jarðskjálftana en Clinton flytur fyrirlestur á vegum félagsins í kvöld. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórhildur Þorkelsdóttir. Tónlist: Don?t think twice its all right - Bob Dylan, Knockin?on heaven?s door - Bob Dylan.

Stefnt er að því að búið verði að gefa öllum eldri en 60 ára fyrri Covid-sprautuna í næstu viku. Yfir 26 þúsund verða bólusett í vikunni. Tilkynningum til barnaverndarnefnda hefur fjölgað um 20% síðan kórónuveirufaraldurinn hófst. Enginn skipverja á fiskiskipinu Þórsnesi SH reyndist með Covid-19. Sýni voru tekin í morgun. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG sem tapaði oddvitasæti sínu í Norðvesturkjördæmi, segir leikreglurnar sem viðhafðar voru í prófkjörinu hvorki hafa verið heiðarlegar né lýðræðislegar. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sendir þúsundir heilbrigðissérfræðinga til Indlands til að hjálpa heimamönnum að takast á við COVID-19 faraldurinn. Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda dróst saman um 2% árið 2019 miðað við árið áður. Miðað við árið 2005 nemur samdrátturinn 8%. Þetta kemur fram í landsskýrslu sem Umhverfisstofnun hefur skilað til Evrópusambandsins og loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Rafn Helgason, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir að samdrátturinn 2019 sá mesti frá árinu 2012. Birgir Harðarson talaði við hann. Það hefur tekist að vinna súrefni á Mars, sem er forsenda þess að senda fólk til starfa á plánetunni í framtíðinni. Og nú hefur lítilli þyrlu verið flogið þar í þrígang. Fíngert ryk veldur aftur á móti vandræðum við jarðskjálftamælingar. Spegillinn forvitnast um vísindastarf á plánetunni rauðu. Ragnhildur Thorlacius talaði við Sigríði Kristjánsdóttur jarðeðlisfræðing og formann Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Í ár bar dag jarðar upp á sumardaginn fyrsta. Joe Biden Bandaríkjaforseti efndi þá til leiðtogafundar um umhverfismál, á netinu auðvitað. Í Bretlandi var líka töluvert gert úr deginum enda eru loftslagsmál orðin ofarlega í hugum Breta. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.

Kristín Bergljótar og Arnþórsdóttir, menningarmiðlari á bókasafni Seltjarnarness: dagur íslenskrar tungu og útlán í covid Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu: Jólaverslun, biðraðir og frjáls opnunartími Magnea Guðlaugsdótt: kíkt í heimsókn til Magneu sem hefur ræktað garðinn sinn í 30 ár og gefur byrjendum góð ráð. Páll Líndal umhverfissálfræðingur: pistill um umhverfi, skipulag og áhrif þess á fólk.

Soffía Guðmundsdóttir leikskólastjóri: Rætt við hana í leikskóla Seltjarnarness þar sem börn eru mætt í skólann eftir langa fjarveru vegna lokunar. Örn Pálsson framkv.stj. Landssamb. smábátaeigenda: Grásleppuveiðar voru stöðvaðar með mjög stuttum fyrirvara 2.maí og voru margir ósáttir með hvernig að því var staðið . Einnig er rætt við Örn um strandveiðar sem hefjast í dag og mikilvægi þeirra. Jóhannes Rúnarsson frmkv.stj. Strætó: Talað við jóhannes í umferðinni við Hlemm um aðlögun Strætós að samkomutakmörkunum og hvort það hilli undir að þær komist í samt lag bráðlega. Edda Olgudóttir: Í vísindaspjalli er fjallað um rannsókn á því hversu raunhæft það sé að borða bara fæðu úr héraði, sé hún úr jurtaríkinu.

Fjötrar segir frá konu sem finnst látin í klefa sínum í fangelsinu á Hólmsheiði. Guðgeir og félagar hans rannsaka málið sem reynist hafa ótal þræði og teygja anga sína víða, alla leið til stóra skjálftans um aldamótin þar sem ungur maður hvarf sporlaust. Lögreglan stendur frammi fyrir stórum spurningum og kynnist hversu langt fólk er tilbúið að ganga til að viðhalda ákveðinni mynd af sér út á við og hvers fjölskyldur eru megnugar til að vernda leyndarmál sín. Fjötrar er eftir Sólveigu Pálsdóttur sem er leikkona og starfaði lengi við leiklist og kennslu í framhaldsskóla áður en hún sneri sér alfarið að ritstörfum. Fjötrar er fimmta bók Sólveigar en bækur hennar hafa verið tilnefndar til Blóðdropans, þýddar á þýsku og sem stendur vinna bresk framleiðslufyrirtæki að gerð sjónvarpsþátta eftir síðustu bók hennar, Refnum. Sólveig er bæjarlistamaður Seltjarnarness 2019, fyrst rithöfunda.

Hugi Garðarson keypti hjólbörur fyrir tveimur árum á Akureyri og gekk með þær til Reykjavíkur. Hann ákvað svo að rölta með þær yfir 3.000 kílómetra í sumar og hefur þegar gengið frá Ísafirði til Sauðárkróks og stefnir á Siglufjörð. Við hringdum í Huga. Hvergi í Evrópu var dýrara að lifa á síðasta ári en á Íslandi. Verðlag hér var að meðaltali 56 prósentum hærra en í öðrum ríkjum Evrópu samkvæmt tölum evrópsku hagstofunnar og AFP fréttastofan vitnaði í í gær. Á tölum stofnunarinnar fyrir árið 2017 má þó sjá að neyslumynstur Íslendinga og hlutfall eyðslu er í grundvallaratriðum sambærilegt því sem meðaltal ESB sýnir. Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ, ræddi við okkur um breytingar á samsetningu neyslu landsmanna. Starfsmenn Umhverfisstofnunar tíndu hátt í eitt þúsund blautklúta á 100 metra kafla í fjörum Seltjarnarness fyrir viku síðan. Ekki hafa áður fundist eins margir blautklútar í einni ferð. Sigríður Kristinsdóttir, sérfræðingur i teymi hafs- og vatns hjá Umhverfisstofnun, var á línunni. Einelti viðgengst í starfi og þjónustumiðstöðvum eldri borgara hér á landi. Karlar verða heldur fyrir eineltinu en konur og oftast er um að ræða andlegt ofbeldi. Þetta er niðurstaða Péturs Kára Olsen sem rýndi í málið fyrir lokaritgerð sína í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Lítið hefur verið um heimildir um samskipti eldri borgara hér á landi og Pétur Kári kom til að ræða málið. Sævar Helgi Bragason snéri aftur úr sumarfríi sem hann nýtti m.a. til stjörnuskoðunar og hann færði okkur fersk tíðindi úr heimi vísindanna, auk þess sem við forvitnuðumst um það sem hann upplifði á ferðalagi sínu. Tónlist: Eivör - Rain. Sváfnir Sig. - Fólk breytist. Beyoncé - Spirit. Radiohead - High and dry. Of monsters and men - Wild Roses. Simply Red - Stars. Emilíana Torrini - Me and Armini. Ásgeir Trausti - I know you know.
Börn í Rangárþingi hafa fengið tækifæri til að kynna sér fornleifar í Odda í svokölluðum Fornleifaskóla barnanna. Verkefnið er að festa sig í sessi og við heyrðum í Kristborgu Þórsdóttur sem veit allt um málið og sagði okkur frá ævintýrum ungra fornleifafræðinga sem og öðrum rannsóknum í Odda. Við heyrðum í Jakobi Bjarnari Grétarssyni, blaðamanni á Vísi, sem er ákaflega óhress út í fjölmiðlanefnd sem komst að þeirri niðurstöðu nýverið að frétt sem hann skrifaði bryti í bága við fjölmiðlalög. Fréttin er um mann sem fær það óþvegið í umræðum á Facebook hóp, meðal annars sagður táldraga fórnarlömb sín með lygum og fagurgala, og fjölmiðlanefnd þótti Jakob hafa birt viðkvæmar persónugreinanlegar persónuupplýsingar um manninn. Það stefnir í áhugaverða deilu á milli Seltjarnarnesbæjar og Reykjavíkur um umferðarljós. Forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness, Magnús Örn Guðmundsson, segir sum ljós í borginni stillt þannig að þau tefji umferð Seltirninga og annara á leið heim úr vinnu. Magnús var á línunni hjá okkur en hann í líka eini bæjarfulltrúinn á Seltjarnarnesi sem greiddi atkvæði gegn borgarlínu á dögunum. Við ræddum við Snorra Einarsson yfirlækni hjá Livio Reykjavík um stöðu ófrjósemislækninga á Íslandi og forvitnilega grein sem birtist á dögunum í New York Times, þar sem fjallað var um vöntun á löggjöf og eftirliti vegna kynfrumugjafa. Útlit er fyrir að Boris Johnson verði næsti formaður breska Íhaldsflokksins en hann hefur þó fengið samkeppni úr óvæntri átt. Ólafur Harðarson prófessor í stjórnmálafræði kom til okkar og spáði í spilin. Tónlist: Helgi Björnsson - Kókos og engifer. R.E.M. - Leaving New York. Passenger - Hell or high water. Sváfnir Sig. - Fólk breytist. Vilhjálmur Vilhjálmsson - Einbúinn. Toto - Rosanna. The Black Crows - Hard to handle. Maroon 5 og Christina Aguilera - Moves like Jagger.
Fyrsta konan til að verða kjörin formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, sem er eina félag áhugamanna um stjörnuskoðun og stjörnufræði á Íslandi, Sigríður Kristjánsdóttir, kíkti til okkar í morgunkaffi. Sú óskrifaða regla að sá sem eldi eigi að vera laus við uppvaskið er við lýði á mörgum heimilum. En þetta er misheppnuð regla, óskilvirk og kokkurinn græðir á kostað uppvaskarans. Eiríkur Ragnarsson, hagfræðingur, útskýrði þetta en hann skrifar stundum stjórskemmtilega pistla um hagræði á Kjarnann. Frá því var greint á dögunum að í Reykjanesbæ hefði risið fyrsta fjölbýlishúsið á Íslandi sem gert er úr forsmíðuðum timbureiningum. Það tók aðeins um hálfan mánuð að setja húsið, sem er fjórar hæðir, saman. Við ræddum við Ingva Jónasson, framkvæmdastjóra Klasa, sem stendur að byggingunni. Samtök iðnaðarins eru meðal þeirra fjölmörgu aðila sem hafa sent frá sér álit vegna orkupakkans þriðja en samtökin eru fylgjandi samþykkt, með fyrirvara um sjálfstæði Orkustofnunar. Það vekur hins vegar athygli að í álitinu er varað við fjórða orkupakkanum, svokölluðum vetrarpakka, og segja samtökin hagsmunagæslu Íslendinga vegna hans verða að hefjast án tafa. Við ræddum þetta við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI. Sævar Helgi Bragason mætti í sitt vikulegt vísindaspjall og þar voru loftslagsmálin efst á baugi. Tónlist: Magni og Ágústa Eva - Þar til að storminn hefur lægt. Blondie - The tide is high. Alice Merton - No roots. Liam Bailey - Hold tight. Valdimar Guðmundsson - Okkar eigin Osló. St. Paul and the broken bones - GotitBad. Skin - Retro Stefson. Tina Turner - Steamy windows. Unperfect - Gots to give the girl.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu sér ekki ástæðu til að íhuga stöðu sína eftir að Hæstiréttur dæmdi í dag embætti hennar til að greiða tveimur starfsmönnum bætur. VR krefst þess eins og Starfsgreinasambandið að lágmarkslaun verði hækkuð í 425 þúsund krónur á þriggja ára samningstíma. Félagið vill að lágmarkslaunin hækki árlega um röskar 40 þúsund krónur á samningstímanum. Hlutabréfavísitölur um allan heim hafa lækkað í dag og búist er við að hlutabréfaverð eigi eftir að falla áfram á næstu vikum. Bæjarstjórn Seltjarnarness vill að stjórn Sambands sveitarfélaga fari í sameiginlegt átak gegn slæmri meðferð á erlendum starfsmönnum og auki eftirlit með framkvæmdum á vegum sveitarfélaganna. Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem BHM höfðaði gegn ríkinu vegna ákvörðunar ríkisins um að skerða laun ljósmæðra sem stóðu vaktir á Landspítalanum í verkfalli. Þegar kemur að því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði eru margar hindranir. Forsvarsmenn bænda sjá ekki fyrir sér stórkostlega uppstokkun í greininni en hafa sett loftslagsgleraugun á nefið. Umsjón Arnar Páll Hauksson Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon
Greinar eftir Þorleif Örn Hvar eru allir karlarnir? Að finnast lífið vera ævintýri Þorleifur Örn er grunnskólakennari í Grunnskóla Seltjarnarness. Umsjónarkennari á unglingastigi og kenni þar 7.-10. bekk samþætt námsefni samfélagsgreina og náttúrufræði. Hann hefur að eigin sögn áhuga öllu milli himins og jarðar, mjög heppilegt að vera kennari þar sem það nýtist vel. Þorleifur […]
Í Víðsjá dagsins er rætt við Ásdísi Jóelsdóttur, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands, um sögu íslensku lopapeysunnar. Ásdís gaf nýlega út bókina Íslenska lopapeysan. Uppruni, saga og hönnun og er það fyrsta ritrýnda fræðiritið um hannyrðir á Íslandi. Litið er við á Læknaminjasafn Seltjarnarness þar sem sjö konur úr Ljósmyndaskólanum sýna útskriftarverk. Sólveig Jónsdóttir segir frá verki sínu sem fjallar um heimabæ hennar, Þórkötlustaðahverfið á Reykjanesi. Þorgerður Ólafsdóttir flytur pistil um Nýlistasafnið. Þetta eru fyrslu "skilaboðin frá Nýló" á 40 ára afmælisári safnsins. Þorgerður Ólafsdóttir flytur pistil um Nýlistasafnið. Þetta eru fyrslu "skilaboðin frá Nýló" á 40 ára afmælisári safnsins. Einnig er fjallað um bandaríska bassasöngvarann Paul Robeson í tilefni að útkomu tveggja nýrra ævisagna um hann. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
Forvitnilegt safn í eigu Lyfjafræðingafélagsins er staðsett í gamla fjósinu við hlið Nesstofu, safnið er í eigu Lyfjafræðingafélagsins og er sjálfseignarstofnun. Það er opið á sumrin, en hægt er að skoða það eftir pöntun. Kristín Einarsdóttir lyfjafræðingur og stjórnarformaður safnsins þekkir nánast hvern hlut í safninu. En þeir koma víða að og frá mörgum tímabilum í sögunni. Endaði ævina 60 ára og geðveikur Björn Jónsson var fyrsti íslenski lyfjafræðngurinn og bjó í Nesi við Seltjörn í sambýli við Bjarna Pálsson landlækni, en Björn kom þangað árið 1768. Sambúðin var erfið og þröngt var í húsinu, en þar bjuggu um 40 manns er talið. Björn reyndi fyrir sér í ýmissi ræktun eftir að landlæknir dó, og jörðinni var skipt upp. En hann lést aðeins sextugur, eftir veikindi sem stóðu yfir í nokkur ár, og þá hafði hann misst lyfsöluleyfið. Urtagarðurinn í Nesi Guðmundur Lúðvíksson efnaverkfræðingur með meiru, er vel fróður um þær urtir sem vaxa í garðinum, sumar eru nytjajurtir, aðrar notaðar til lækninga, og sumar bæði. Húsa- og safnamálin við Nestofu eru í biðstöðu Eftir bankahrunið var nýtt hús sem ætlað var til notkunar á læknaminjum gert fokhelt og því hefur enn ekki verið fundið hlutverk. Málið er hjá Mennta- og menningarmálaráðuneyti segir Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness, en er sannfærð um að málið leystist og það komi safn í húsið, en kannski verður það ekki læknaminjasafn.