POPULARITY
Í gærkvöldi var á dagskrá sjónvarpsins norska heimildarmyndin Drengir á jaðrinum, sem fjallar um reynslu 36 drengja í 10.bekk sem höfðu fundið sig illa í skólakerfinu og lífinu og voru flestir búnir að taka þá ákvörðun að fara ekki í framhaldsskóla. Þeir fengu tilboð um að fara í tveggja vikna skólabúðir, þétt skipulagðar. Símarnir voru teknir af þeim og þeir voru saman allan sólarhringinn í námi, leikjum, samtölum og fleiru. Kennararnir voru með þeim allan tímann líka. Það gekk á ýmsu, upp og niður en til að gera langa sögu stutta gjörbreyttu þessar tvær vikur þeirra viðhorfi til skólans og ekki síst til þeirra sjálfra og þeir allir enduðu með að fara í framhaldsskóla. Margrét Kristín Sigurðardóttir, tónlistarkona og kennari, hefur unnið talsvert með nemendum sem finna sig ekki í skólakerfinu sá myndina áður en hún var sýnd hér í sjónvarpi og hreifst svo mikið af henni að hún fór beint á fund í Menntamálaráðuneytinu og hjá Reykjavíkurborg til þess að kynna þetta úrræði fyrir þeim sem málið varða. Margrét kom í þáttinn í dag. Við heyrðum svo í Birni Pálssyni, en hann rekur ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í ferðum til landa sem eru ekki kannski þessi hefðbundnu sumarleyfisstaðir, en vissulega gríðarlega áhugaverð. Sýrland, Afghanistan, Yemen, Túrkmenistan, Máritanía, Írak, Alsír og fleiri staðir. Björn býr sjálfur á Sri Lanka, en er staddur á Akureyri, hvaðan hann spjallaði við okkur í dag. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði og eigandi Heilaheilsu, sem er þjónusta fyrir fólk með hugrænan vanda og heilaáverka. Ólína lenti í því sjálf sem fótboltakona að fá ítrekaðan heilahristing og fann ekki miklar upplýsingar um hvernig hún gæti náð bata eftir að hafa fundið fyrir sjóntruflunum, heilaþoku, langvarandi úthaldsleysi og þreytu. Hún segir mikilvægasta skrefið að gera allt til að róa taugakerfið og hvíla heilann vel gagnvart öllu áreiti en byrja þó fljótlega að hreyfa sig skynsamlega aftur til að fá blóðið af stað og mælir með stuttum göngutúrum til að byrja með. Huga þurfi að mataræði og forðast þekkta bólguvalda á borð við sykur, unnar matvörur, stýra streituvöldum og passa upp á svefn. Helga Arnardóttir ræddi við Ólínu Guðbjörgu á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Sumarlag / Stjórnin ( Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (Höfundur óþekktur, texti Þorsteinn Eggertsson) Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Kirkjugarðar Reykjavíkur bjóða aðstandendum og umsjónarfólki legstaða upp á fræðsludag á morgun í Fossvogskirkjugarði. Þar munu starfsmenn veita ráðgjöf um umhirðu legstaða og jafnvel einnig ráðleggingar sem gætu nýst í heimagörðum eða við sumarbústaðinn. Heimir Janusarson, garðyrkjufræðingur og starfsmaður Kirkjugarða Reykjavíkur, kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu og göngu sem hann mun leiða um Fossvogsgarð. Fjölmargir Íslendingar hafa notað ýmis öpp til að bæta lífstíl sinn með því til dæmis að auðvelda sér að ná jafnvægi næringarefna, efla hreyfingu og jákvætt hugarfar. Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir heilsu og markþjálfar standa á bak við nýtt íslenskt app á þessum nótum, Lifetrack, og við heyrðum í Inga Torfa í þættinum og fræddumst um það hvernig þetta virkar. Töluverður fjöldi fólks upplifir svokölluð umhverfisveikindi sem koma oft til af myglu í húsnæði. Umhverfisveikindi geta orðið svo alvarleg að fólk getur ekki búið eða unnið í húsnæðinu og verður fárveikt, orkulaust, þjakað af hausverkjum og mikilli vanlíðan. Linda Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari og framkvæmdastjóri Heilsumiðstöðvarinnar Endurheimt er ein þeirra sem varð að umbylta sínum lífstíl til að ná heilsu á ný eftir erfið veikindi. Helga Arnardóttir ræddi við Lindu á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Ég leitaði blárra blóma / Hörður Torfason (Hörður Torfason, texti Tómas Guðmundsson) Átján rauðar rósir / Berti Möller og Lúdó og Stefán (Bobby Darrin, íslenskur texti Iðunn Steinsdóttir) Garðurinn minn / Baggabandið (Magnús Þór Sigmundsson) Matthew and Son / Cat Stevens (Yusuf/Cat Stevens) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagur 25. apríl Vikuskammtur: Vika 17 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Steinar Harðarson, athafnastjóri hjá Siðmennt og gjaldkeri Vg, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona, Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af deilum og átökum um grundvallarþætti samfélagsins, mannréttindi og frelsi.
Grunnskólar í Breiðholti hlutu veglegan nýsköpunar- og starfsþróunarstyrk frá mennta og barnamálaráðuneytinu á síðasta ári fyrir verkefnið Íslenskubrú Breiðholts. ÍSAT stendur fyrir námsgreinina íslenska sem annað tungumál og markmið þess var að útbúa verkefni, leiðbeiningar, áætlanir, námsmat og ýmislegt fleira til að kennarar hefðu fleiri verkfæri og tól til þess að kenna íslensku sem annað mál. Þær Erla Guðrún Gísladóttir verkefnisstjóri verkefnisins og Heiðrún Ólöf Jónsdóttir kennari komu í þáttinn í dag. Hvað er næringarleg streita og hvernig er gott að bregðast við henni? Lítið er fjallað um þetta í öllu tali um streitu og Tekla Hrund Karlsdóttir læknir er að skoða sérstaklega hvernig streitan hefur áhrif á konur. Hún segir líkamskerfi kvenna svara umhverfisáreiti miklu meira og þær séu hreinlega viðkvæmari fyrir flóknari veikindum á borð við langvinnum covid einkennu,, potts, ME, vefjagigt, umhverfisóþoli og kulnun. Konur séu oft undir það miklu álagi að það bitnar á réttri næringarinntöku og vatnsneyslu. Tekla stofnaði sína eigin stofu, sem kallast SoundHealth, ásamt eiginmanni sínum, Kjartani Hrafni Loftssyni lækni, til að verja meiri tíma með sjúklingum sínum og leita lausna við einkennum sem oft fá ekki mikla meðhöndlun og greiningu í heilbrigðiskerfinu. Helga Arnardóttir talaði við Teklu Hrund á Heilsuvaktinni í dag. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í dag var svo Urður Gunnarsdóttir, verkefnastjóri, en hún vinnur að atvinnu- og byggðaþróun, markaðsmálum og öðru tilfallandi og býr austur í Fljótsdal. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Urður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Strá fyrir Straumi – Sigríður Pálsdóttir e. Erlu Huldu Halldórsdóttur Hnífur e. Salman Rushdie Í skugga trjánna e. Guðrún Eva Mínervudóttir Æviminningar Sigfúsar á Austfjarðarútunni e. Vilhjálm Einarsson Vefarinn mikli frá Kasmír e. Halldór Laxness Bone Clocks e. David Mitchell Eyland e. Sigríði Hagalín Tónlist í þættinum í dag: Indæl er æskutíð / Adda Örnólfs og tríó Ólafs Gauks (Erlent lag, texti Eiríkur Karl Eiríksson) Sólbrúnir vangar / Berti Möller (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bítið með Lilju, Ómari og Yngva Eysteins. * Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix, ræddi við okkur um öldrunarþjónustu og hvernig hún mun breytast á næstu árum. * Hlín Jóhannesdóttir, rektor Kvikmyndaskólans Íslands, var á línunni og ræddi um stöðu skólans. * Fjölmiðlamennirnir Frosti Logason og Stefán Einar Stefánsson ræddu um umræðuhefðina og skotgrafirnar. * Sverrir Ingi Ólafsson, deildarstjóri hjá Öryggismiðstöðinni, gaf okkur góð ráð um forvarnir gegn innbrotum. * Helga Arnardóttir, fjölmiðlakona, framleiðandi og handritshöfundur, ræddi við okkur um spennandi verkefni sem hún er með í vinnslu. * Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir, prófessorar og stjórnendur Skuggavaldsins, ræddi við okkur um Kennedy-bölvunina.
Við spjölluðum í dag við Óskar Braga Stefánsson sem kennir fólki íslensku á netinu undir því sem hann kallar Speak Viking. Nemendur hans, sem eru orðnir gríðarlega margir, koma hvaðanæva að úr heiminum og fer kennslan fram í gegnum netið. Óskar Bragi er ekki lærður kennari, en viðlíka námskeið eru til í flestum tungumálum á netinu, til dæmis á youtube og gefa þau áhugasömum tækifæri að læra framandi tungumál. Óskar sagði okkur frá því hvernig þetta kom til og hvernig hefur gengið í þættinum, en hægt er að finna Speak Viking til dæmis á Instagram og Youtube. Barnamenningarhátíð í Reykjavík hófst í dag og fer fram um alla borg þar sem boðið verður upp á stórar og smáar sýningar og viðburði sem unnir eru fyrir börn eða með börnum. Börn sýna verkin sín á virtum menningarstofnunum og taka að miklu leyti yfir menningarlíf borgarinnar þessa sex daga sem hátíðin stendur yfir. Við heyrðum í Björgu Jónsdóttur, verkefnastjóra Barnamenningarhátíðar, þar sem hún var stödd í Hörpu ásamt mörg hundruð krökkum á opnun hátíðarinnar. Svo var það heilsuvaktin í dag, en svokallað gáttatif, sem er hraður óreglulegur hjartsláttur og getur valdið óþægindum og töluverðum ótta hjá fólki, hefur færst í aukana meðal annars með hækkandi aldri fólks en líka í kjölfar aukinnar ofþyngdar og í tengslum við kæfisvefn. Gáttatif er ekki hættulegt eitt og sér en mikilvægt er að greina það snemma og veita meðferð við því. Helga Margrét Skúladóttir hjartalæknir hefur nýlokið við doktorsgráðu sína þar sem hún rannsakaði lífeðlisfræðileg og sálfræðileg áhrif gáttatifs. Hún segir mikilvægt að þeir sem greinist með gáttatif hætti ekki að gera það sem þeir eru vanir að gera, haldi áfram að hreyfa sig og lifa lífinu til fulls. Hún mælir þó alls ekki með að fólk fari á fyllerí, eins og hún orðar það, eða stundi fjallamaraþon. Raunar mælir hún bara alls ekki með að fólk, hvort sem það er með gáttatif eða ekki, stundi hvers kyns ofurhlaup eða bakgarðshlaup sem krefjast svefnlausra nótta og samfelldrar áreynslu í marga klukkutíma. Helga Arnardóttir ræddi við Helgu Margréti á heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Eitt lag enn / GÓSS (Hörður G. Ólafsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Silver Lining / Laufey (Laufey Lín Jónsdóttir og Spencer Stewart) Hlaupasting / Inspector Spacetime (Inspector Spacetime (Egill Gauti Sigurjónsson, Elías Geir Óskarsson og Vaka Agnarsdóttir) og texti byggður á svörum 4.bekkinga í skólum Reykjavíkurborgar) UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Íslenski danflokkurinn frumsýnir á föstudaginn Hringir Orfeusar og annað slúður, nýtt verk eftir Ernu Ómarsdóttur. Ýmis tungumál eru notuð í verkinu, þar á meðal íslenskt táknmál sem er blandað inn í hreyfingar dansanna. Diljá Sveinsdóttir dansari í dansflokknum, missti heyrnina mjög ung og hefur notað táknmál frá barnsaldri og hún dansar alltaf með heyrnatæki, en hún hefur stundað dans nánast allt sitt líf. Diljá kom í þáttinn og sagði okkur sína sögu og frá sýningunni. Kváradagurinn er í dag. Kvár eru þau sem skilgreina sig utan kynjatvíhyggjunnar, eða hvorki sem karl né konu. Flest fólk hugsar lítið sem ekkert út í kynvitund sína því hún samræmist því kyni sem því var úthlutað við fæðingu. Það er kallað að vera sískynja. Annað fólk efast eða er fullvisst um að það kyn sem því var úthlutað við fæðingu sé ekki þess rétta kyn. Það er kallað að vera trans. Það trans fólk sem upplifir kyn sitt hvorki sem karl eða konu heldur utan tvíhyggju kynjakerfisins er kallað kynsegin. Ólöf Bjarki Antons stjórnmálafræðingur kom til okkar í dag í tilefni af Kváradeginum. Ingunn Gubrandsdóttir, jógakennari og heilsuþjálfi, fannst fullt tilefni til að ræða meira um streitu og áhrif hennar og stofnaði hópinn Streitutips á Facebook í því augnamiði að minna fólk á einföld ráð við streitu og hvernig við getum komist hjá henni í amstri dagsins. Hún segir djúpa öndun það allra mikilvægasta þar sem við gleymum hreinlega að anda djúpt í miklum önnum og stressi, en hreyfing og viðvera í náttúrunni og jafnvel með gæludýr draga líka verulega úr áhrifum streitu. Helga Arnardóttir ræddi við Ingunni á dögunum sem við heyrðum á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Ási í Bæ og Oddgeir Kristjánsson) Töfrar / Silfurtónar (Júlíus Heimir Ólafsson) Í fjarlægð / Björgvin Halldórsson (Karl O. Runólfsson, texti Cæsar, eða Valdimar Hólm Hallstað) Puppet on a String / Sandie Shaw (Bill Martin & Phil Coulter) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Notkun svefnlyfja getur haft ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér og skert lífsgæði, sérstaklega eldra fólks, en í þeim hópi er notkun svefnlyfja mest. Rannsóknir sýna að langtímanotkun svefnlyfja sé gagnslaus, en þau geta haft alvarlegar hættur í för með sér og neikvæð áhrif á heilsuna. Hildur Þórarinsdóttir formaður Félags íslenskra öldrunarlækna og Drífa Sigfúsdóttir varaformaður Landssambands eldri borgara komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá mikilvægi þess að minnka svefnlyfjanotkun og herferðinni „Sofðu vel“. Við skruppum svo út með hljóðnemann og spurðum fólk á förnum vegi hvort það þekkti ráðherrana í ríkisstjórninni og í hvaða ráðuneyti þau eru. Svörin voru áhugaverð og ljóst að ekki allir eru með þetta á hreinu, ríkisstjórnin er þó auðvitað ekki búin að starfa mjög lengi. Gjörunnin matvæli eru að öllu jöfnu orkurík vegna mikils magns sykurs og/eða fitu en þetta mikla magn lækkar hlutfall mikilvægra næringarefna á móti. Þetta eru matvæli sem oft eru kölluð skyndifæða og ýmis efni eins og litarefni og sætuefni eru notuð til að gera matvælin girnileg. Við heyrðum í dag viðtal sem Helga Arnardóttir tók við Kristján Þór Gunnarsson heimilislækni á Selfossi um gjörunnin matvæli. Viðtalið var áður í þættinum í júní í fyrra. Tónlist í þættinum í dag: Riddarar kærleikans / GDRN (Dagmar Helga Helgadóttir og Valgerður Rakel Rúnarsdóttir) Serendpity / Laufey (Laufey & Spencer Stewart) I'm a believer / The Monkees (Neil Diamond) All I Have to do is Dream / The Everly Brothers (Boudleaux Bryant) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Mikill fjöldi, hvaðanæva að úr heiminum, hefur áhuga á því að ferðast, hefur bæði tíma og fjármuni til að gera það en heldur sig samt heima vegna þess að aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða er víða ábótavant. Samkvæmt íslenskum lögum og reglugerðum á að gæta þess sérstaklega að aðgangur fólks með fötlun að manngerðu umhverfi sé til jafns við aðra. Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar, Landssambands Hreyfihamlaðra, kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir stöðuna í aðgengismálum í ferðaþjónustu. Það eru liðin 50 ár frá því að konur hér á landi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu í hálfa öld búa konur enn við misrétti og ofbeldi. Metþátttaka var í Kvennaverkfallinu árið 2023 og valdefling, baráttugleði, og skýrt ákall um breytingar einkenndu þessa miklu samstöðu rétt eins og árið 1975. Næsta fimmtudag fer fram fyrsti viðburður kvennaársins í Iðnó og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá. Heilbrigð efnaskipti í líkamanum stuðla ekki eingöngu að góðri líkamlegri heilsu heldur hefur hún einnig veruleg áhrif á andlega heilsu. Rannsóknir sýna nú svo ekki verður um villst að viðvarandi efnaskiptavilla í líkamanum, sem á sér stað þegar viðkomandi neytir of mikils sykraðs og gjörunnins mataræðis til langs tíma, getur haft áhrif á myndun hvers kyns geðsjúkdóma, viðhaldið þeim og hreinlega komið í veg fyrir að fólk nái bata. Guðmundur Freyr Jóhannsson, lyf- og bráðalæknir, hélt erindi um andlega heilsu og efnaskipti á nýafstöðnum Læknadögum í Hörpunni hefur undanfarin ár reynt að vekja athygli almennings á skaðlegum áhrifum gjörunnins og sykraðs mataræðis og rætt um lausnir fyrir fólk til að leiðrétta efnaskiptin. Hann vill nú beina athygli okkar að áhrifum viðvarandi efnaskiptavillu á geðsjúkdóma. Helga Arnardóttir ræddi við Guðmund Frey á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum: Síðan eru liðin mörg ár / Brimkló (Brimkló, Chip Taylor, texti Þorsteinn Eggertsson) Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens) Engin önnur en ég er / Ellen Kristjánsdóttir (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við fræddumst í dag um foreldrafærninámskeið sem haldið hefur verið í Hafnarfirði í næstum aldafjórðung, frá árinu 2000. Í fyrra sóttu 100 foreldrar námskeiðið þar sem þau fá kennslu og eru þjálfuð í styðjandi leiðum í uppeldishlutverkinu og læra meðal annars að setja börnum sínum skýr mörk á mildan máta. Kolbrún Sigþórsdóttir, verkefnisstjóri PMTO - foreldrafærni í Hafnarfirði, sagði okkur frá þessu námskeiði og þessari PMTO leið í þættinum í dag. HM í handbolta hefst í dag. Þorkell Sigurbjörnsson kom til okkar í dag ásamt Vigni Stefánssyni, en það muna kannski margir eftir því að Vigni var flogið út á miðju EM móti 2022 af því Bjarki Már Elísson fékk Covid. Vignir spilaði í ótrúlegum sigri á móti Frökkum, en fékk svo sjálfur Covid í mælingu eftir leikinn og spilaði ekki meira á mótinu heldur sat í einangrun á hótelherbergi í Búdapest. Vignir er farinn að lýsa landsleikjum á RÚV og mun verða áberandi í lýsingum okkar á þessu móti. Þeir fóru með okkur yfir mótið og leiki Íslands í þættinum. Jóhannes Kr. Kristjánssson, rannsóknar- og heimildamyndagerðarmaður sem nú stýrir hinu vinsæla hlaðvarpi Á VETTVANGI, greindist með sykursýki tvö þegar hann var í miklum önnum að vinna heimildarþættina Storm, sem fjallaði um Covid faraldurinn á Íslandi og áhrif hans á samfélagið. Ótal einkenni voru komin fram sem hann hafði ekki gert sér grein fyrir, eins og tíð þvaglát, fótaóeirð og svitaköst við minnstu áreynslu. Það var ekki fyrr en hann var kominn inn á bráðamóttöku með hjartsláttatruflanir að hann greindist með sjúkdóminn og ákvað í kjölfarið að taka málin í sínar hendur. Hann tók smá skref í einu, minnkaði matarskammtana og byrjaði að hreyfa sig rólega og hefur nú létt sig um um það bil tuttugu og fimm kíló. Helga Arnardóttir ræddi við Jóhannes á Heilsuvaktinni í dag um það hvernig hann snéri við blaðinu. Tónlist í þættinum í dag: Enginn veit / Sigrún Harðardóttir og Oríon (Lennon & McCartney, texti Eysteinn Jónasson) Blackbird / The Beatles (Lennon & McCartney) Tico tico / Les Baxter (Les Baxter) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í dag ætlum við að velta okkur upp úr framtíðinni; eða kannski er réttara að segja að við ætlum að velta okkur upp úr framtíðum. Þær eru víst alls konar, mögulegar og ómögulegar. Við heimsækjum Karl Friðriksson og Sævar Kristinsson hjá Framtíðarsetri Íslands, sem nálgast þetta viðfangsefni með aðferðum framtíðarfræðinnar. Íslenskir brauðostar, kotasæla og rifinn ostur innihalda flest rotvarnarefni ólíkt sömu vörum í Danmörku. Rotvarnarefnið Nítrit sem er merkt E-252 er einnig að finna í íslenskum matvörum en minna í dönskum matvörum. Þá eru einnig kekkjavarnarefni, bræðslusölt og önnur rotvarnarefni líka til staðar í nokkrum vöruflokkum svo dæmi sé tekið. Þetta kemur fram í grein Bændablaðsins eftir Önnu Maríu Björnsdóttur kvikmyndagerðarkonu sem er framkvæmdastjóri hjá Lífrænu Íslandi, og Unu Emilsdóttur, sérnámslækni í umhverfislæknisfræði í Danmörku. Þær vilja vekja athygli á skaðsemi þessara efna sem sum hver geta valdið alvarlegum sjúkdómum og nítrit þá sérstaklega. Helga Arnardóttir tók þær tali og ræðir líka sterka neytendavitund Dana og áherslur í Danmörku. Tónlist úr þættinum: THE VELVET UNDERGROUND - All Tomorrows Party's. Pétur Ben - The great big warehouse in the sky.
Nefnd skipuð af fyrrverandi heilbrigðisráðherra birti í samráðsgátt stjórnvalda á dögunum svokallaða Grænbók, þar sem skoðuð er staðan í málum tengdum ADHD á Íslandi. Skoðaðir eru til dæmis langir biðlistar eftir greiningu og algengi lyfjameðferðar. Mat nefndarinnar er að gæðum sé ábótavant, bæði þegar kemur að greiningum og lyfjameðferð. Formaður ADHD samtakanna sagði í síðustu viku að þær ályktanir sem fram koma í Grænbókinni muni valda mikilli ólgu hjá félögum samtakanna og hjá þeim sem bíða greiningar og að þar sé ýmislegt sem þurfi að skoða betur. Hrannar B. Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir niðurstöður Grænbókarinnar og tók undir áhyggjur formannsins, að ef farið yrði eftir þeim ályktunum sem þar koma fram þá gæti það verið skref aftur á bak, eða í það minnsta gæti það kallað á stöðnun í málefnum ADHD á Íslandi. Helga Arnardóttir kom svo til okkar og fór yfir það sem hún hefur fjallað um á Heilsuvaktinni á liðnu ári. Þar kennir margra grasa, t.d. blóðsykur, gjörunnar matvörur, ofþyngd barna, heilbrigði þarmaflórunnar, öndun til að róa taugakerfið, heilaörvunarmeðferð við þunglyndi, mikilvægi þess að fara í krabbameinsskimun, reynslusögur og margt fleira. Við rifjuðm upp það helsta frá Heilsuvaktinni árið 2024 með Helgu í dag og hún fór aðeins yfir það hvað yrði til umfjöllunar á nýju ári og auglýsti eftir hugmyndum og ábendingum frá hlustendum í því tilliti. Þær er hægt að senda á netfang þáttarins: mannlegi@ruv.is Tónlist í þættinum: Hvar er tunglið? / Kristjana Stefánsdóttir (Sigurður Flosason, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Godess / Laufey (Laufey Lin Jónsdóttir) Why can't you behave? / Ella Fitzgerald (Cole Porter) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Mikill munur er á því að fara í kulnun vegna streitu og of mikils vinnuálags en í kjölfar áfalls því þá hefur maður enga stjórn á atburðarás. Þetta segir Sólveig Þorbergsdóttir myndlistarkona enhún er ein þeirra Grindvíkinga sem missti heimilið sitt til næstum þrjátíu ára vegna jarðhræringa en hún hafði ásamt eiginmanni sínum unnið að miklum endurbótum á húsinu í áraraðir. Hún keypti húsið illa farið, þá einstæð móðir með tvíburadrengi. Hún segir að betur hefði mátt hlúa að andlegri heilsu og líðan Grindvíkinga en gert var og hefur sjálf þurft að leita eftir bjargráðum til að takast á við það að missa heimilið sitt varanlega. Helga Arnardóttir ræddi við Sólveigu á Heilsuvaktinni í dag, um það hvernig hægt er að takast á við erfið áföll og eftirmála þeirra og líta á það sem jákvæða umbreytingu sem mögulega leiðir eitthvað gott af sér. Út er komin árlega Jólabók Blekfjelagsins, örsagnasafn meistaranema í ritlist við Háskóla Íslands. Sögurnar eru 28 og allar telja þær nákvæmlega 88 orð, auk titils og yfirskriftin þetta árið er „Ómerkt“. Blekfjelagsið hefur gefið út þess háttar jólabók samfellt í 13 ár. Sú fyrsta kom árið 2012 og þá áttu sögurnar innihalda nákvæmlega 100 orð auk titils. Á hverju ári fækkar orðunum um eitt og fyrir vikið eru þau núna 88. Við heyrðum fyrrihlutann á þriðjudaginn en í dag var seinni hlutinn fluttur í þættinum. Höfundar örsagnanna í dag voru: María Ramos, Jóhannes Árnason, Ösp Eldjárn Kristjánsdóttir, Vala Hauks, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Daníel Daníelsson, Gígja Sara Björnsson, Ásta H. Ólafsdóttir, Margrét Eymundardóttir, Birta Svavarsdóttir, Patricia Anna Þormar, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, Unnar Ingi Sæmundarson og Sturla Óskarsson. Tónlistin í þættinum: Hleyptu ljósi inn / Vigdís Hafliðadóttir og Villi Neto (Tasuro Yamashita, texti Vigdís Hafliðadóttir) It was a very good year / Frank Sinatra (Erwin Drake) It Came Upon a Midnight Clear / Ella Fitzgerald (Edmund Sears, Grace Price & Robert Black Willis) Hvenær koma jólin / Björt Sigfinnsdóttir (Aðalheiður L. Borgþórsdóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ, hlaut Íslensku menntaverðlaunin sem voru veitt á dögunum við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut hún í flokknum framúrskarandi kennsla, en Hrafnhildur var verðlaunuð fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt. Hrafnhildur var hjá okkur í dag og við fengum hana til að segja okkur frá sínum störfum og aðferðum við útikennslu. Nikótín hefur mikil og neikvæð áhrif á taugakerfi ungmenna, veldur kvíða, hjartsláttartruflunum, svefnleysi og er í raun örvandi og ávanabindandi efni sem þau þurfa raunverulega að vara sig á. Í Heilsuvakt dagsins ræddi Helga Arnardóttir við Láru Sigurðardóttur, lækni og lýðheilsufræðing, um sívaxandi nikótín notkun meðal ungmenna, í formi púða og veips, sem eru stundum með margfalt meira magn nikótíns en sígarettur. Lára segir nikótínið rótsterkt efni, sem hafi neikvæð áhrif á svefn og einbeitingu ólíkt því sem margir halda fram. Hún lýsir einnig hvernig líkamleg fráhvörf koma fram þegar neyslu þess er hætt og gefur góð ráð til þeirra sem vilja venja sig af þessum óþverra. Tónlist í þættinum: Ef ég nenni / Helgi Björnsson (Zucchero, texti Jónas Friðrik Guðnason) Þitt fyrsta bros / Pálmi Gunnarsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) Happy Holiday, The Holiday Season / Silva & Steini (Irving Berlin) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Reykjavíkurborg hefur sett sér markmið til næstu ára um að bæta loftgæði í borginni og vill hvetja íbúa til að taka þátt í þeirri vegferð. Eitt af fyrstu og mikilvægustu skrefunum er að draga verulega úr notkun nagladekkja, sem spilar stóran þátt í slæmum loftgæðum, sérstaklega yfir vetrartímann. Fyrir utan við svifryksmyndun og slæm loftgæði, valda nagladekk miklu sliti á götum sem eykur viðhald og kostnað. Svava Svanborg Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar kom í þáttinn og fræddi okkur um sviryk og mikilvægi loftgæða. Hafdís Helgadóttir næringafræðingur kom svo til okkar en hún fræddi okkur um næringu og hvernig við getum aðstoðað börnin okkar og yngri kynslóðirnar að skilja betur næringu og áhrif hennar á líkamann og þá getum við, fullorðna fólkið, einnig lært heilmikið í leiðinni. Hún fékk innblástur í fræðandi barnaefni úr sinni æsku, eins og teiknimyndaþáttunum Einu sinni var sem kenndu börnum til dæmis mannkynssögu á skemmtilegan hátt. Því ákvað hún að búa til barnabók. Hafdís sagði okkur frá því hvernig hún nýtti sér gervigreind og endaði svo sjálf sem bókaútgefandi. Rafsegulmeðferð, eða TMS meðferð eins og hún er kölluð, hefur reynst verulega árangursrík fyrir þá sem glíma við þrálátt þunglyndi og hafa ekki fundið viðunandi úræði við sínum sjúkdómi og eru jafnvel í svo mikilli vanlíðan að hún hefur djúpstæð áhrif á daglegt líf þess. Byrjað var að veita TMS meðferðina hér á landi fyrir tveimur árum og hafa á annað hundrað manns nýtt sér hana. Helga Arnardóttir ræddi á Heilsuvaktinni við Dag Bjarnason geðlækni og yfirlækni á Heilaörvunarmiðstöðinni í Skógarhlíð en þangað geta allir á landinu sótt þjónustu. Tónlist í þættinum Lífsgleði / Pónik (Jean & Vanguard, texti Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson) Allar þínar gjafir / Ragnheiður Gröndal og Finnur Árnason og Co. (Finnur Árnason, texti Árni Grétar Finnsson) Lifðu hægt / Hildur Vala (Svavar Knútur Kristinsson, texti Karl Ágúst Úlfsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Konukot er neyðarskýli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík, þar er grunnþörfum kvenna sem þangað leita sinnt hvað varðar húsnæði, hreinlæti og mat. Halldóra R. Guðmundsdóttir, forstöðukona Konukots, kom í þáttinn ásamt Erlingi Jóhannessyni gullsmiði sem hannaði Glóð nýjan íslenskan hönnunargrip sem seldur er til styrktar Konukoti. Að frumkvæði umboðsmanns barna hafa verið gefin út viðmið um skjánotkun barna og ungmenna til stuðnings foreldrum við að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umgengni við tækni, tölvur og snjalltæki. Það er til dæmis ekki mælt með því að börn fái skjátíma fyrir 18. mánaða aldur. Við ræddum við Unni Örnu Jónsdóttur frá Hugarfrelsi í dag. Stefanía Thors leik- og kvikmyndagerðarkona var næstum því búin að sleppa boðaðri krabbameinsskimun vegna mikilla anna en gaf sér þó sem betur fer tíma til að fara. Skimunin sjálf tók stuttan tíma og hún bjóst alls ekki við að verða greind með illkynja brjóstakrabbamein sem snéri lífi hennar á hvolf. Helga Arnardóttir ræddi við hana á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum Helga / Magnús Kjartansson (Magnús Kjartansson) Heitt Toddý / Ellen Kristjáns (erlent lag, texti Friðrik Erlings) Lítið ljóð / Rebekka Blöndal (Rebekka Blöndal og Ásgeir Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Mánudagurinn 4. nóvember Pólitíkin, flóttafólk, geðheilbrigði, kjósendur, verkfall, landflótti og Gaza Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra, Pétur Tyrfingsson sálfræðingur, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður ræða stöðuna í pólitíkinni í aðdraganda kosninga. Hvernig verður fólki við þegar manneskjur sem dvalið hafa hér misserum saman eru allt í einu fangelsaðar með hótun um brottvísun. Ragnar Magnússon framhaldsskólakennari segir frá. Við tökum fyrir geðheilbrigðismál, verða þau kosningamál? Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi í Hlutverkasetri, Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur, Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar og Sigurþóra Bergsdóttir frá Berginu headspace ræða stöðuna. Við förum í Kringluna og ræðum við kjósendur og tvær unglingsstúlkur sem eru í kennaraverkfalli: Lena Louzir og Þórdís Sigtryggsdóttir. Jack Hrafnkell Danielsson er fluttur til Noregs. Hann er í heimsókn hér á landi en honum líst hvorki á pólitíkina né umferðina. Í lokin verður Radíó Gaza. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir við mótmælendur: Pétur Eggertz, Sigtrygg Ara Jóhannsson, Guðbjörgu Ásu Jóns-Huldudóttur og Möggu Stínu.
Við fræddumst í dag um verkjasjúklinga, sem sagt þegar fólk glímir við langvinnandi verki og stoðkerfisvanda, en um 20% þjóðarinnar býr við hamlandi verki að einhverju leiti. Hrefna Óskarsdóttir er sviðstjóri iðjuþjálfunar á verkjasviði Reykjalundar, auk þess að kenna við Háskólann á Akureyri, hún kom í þáttinn og sagði sína eigin reynslusögu. En hún hefur glímt sjálf við verki og þar sem hún er einmitt sjálf iðjuþjálfi á verkjasviði þá mætti ætla að hún hefði nægilegar upplýsingar og skilning og verkfæri til að takast á við verkina, en staðreyndin var sú að því duglegri sem hún var í því að gera það sem var „rétt“ samkvæmt verkjafræðunum, því verkjaðri varð hún. Þá voru góð ráð dýr. Hrefna sagði okkur sína sögu í þættinum og vonast eftir að umræðan komi meira upp á yfirborðið í framhaldi. Heilbrigðismál voru í brennidepli hjá okkur á þessum þriðjudegi. Iðjuþjálfar er mikilvægt heilbrigðisstarfsfólk og næsti sunnudagur er dagur iðjuþjálfunar. Í Ljósinu starfa 13 iðjuþjálfar sem í þverfaglegum teymum sérsníða endurhæfingu og stuðning við yfir 600 krabbameinsgreinda í mánuði og öll þessi vika er tileinkuð iðjuþjálfun í Ljósinu. Guðrún Friðriksdóttir og Kolbrún Halla Guðjónsdóttir frá Ljósinu komu í þáttinn, en þær eru nýkomnar af fyrstu sameinaða Evrópuráðstefna iðjuþjálfara. Svokölluð háþrýstimeðferð sem fer fram á Landspítalanum hefur hjálpað um 60 langtíma covid sjúklingum að ná bata eftir erfið eftirköst sjúkdómsins á borð við heilaþoku, síþreytu og viðvarandi flensu einkenni. Sumir þeirra hafa jafnvel ekki haft orku svo mánuðum skiptir til að sinna börnum og einföldum húsverkum án þess að örmagnast og hafa þurft að vera frá vinnu vegna veikinda og orkuleysis. Erlendar rannsóknir sýna að háþrýstimeðferð, sem gengur út á súrefnisinntöku í háþrýstiklefa í 90 mín á dag, hjálpar frumum að endurnýja ónýta og bólgna vefi, t.d. af völdum covid, og gerir það að verkum að heilaþoka minnkar og orka fólks eykst. Dæmi eru um að fólk sem var hætt að geta synt stuttar vegalengdir, hreyft sig eða bara leyst Sudoku er farið að geta sinnt því aftur eftir meðferð. Enn aðrir eru farnir að vinna aftur, stunda nám á ný og geta lifað eðlilegu lífi. Helga Arnardóttir hitti tvo starfsmenn háþrýstiklefans á Landspitalanum, Nönnu Ólafsdóttur hjúkrunarfræðing, sem hefur starfað þar lengi, og ítalska háþrýsti-og köfunarlækninn Leonardo Sturlu Giampaoli. Tónlist í þættinum í dag: Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, texti Jón Sigurðsson) Nantes / Beirut (Zach Conlon) Augun þín blá / Óðinn Valdimarsson og Hljómsveit Finns Eydal (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Málþing ADHD samtakanna, Konur - vitund og valdefling, verður haldið á föstudaginn. Markmið þingsins verður að fjalla um ADHD út frá styrkleikum, sjálfsmildi og sigrum. Þar verða fjöldi fyrirlestra um efni sem spurt hefur verið eftir meðal kvenna með ADHD. Við fengum Elínu H. Hinriksdóttur, sérfræðing hjá ADHD Samtökunum, til að segja okkur frá því hver efni fyrirlestranna er og Kristín Þórsdóttir, kynlífsmarkþjálfi kom með henni, en hún verður með fyrirlestur um kynlíf, hvatvísi og heilarugl og hún sagði okkur frá honum og einnig sinni reynslu en hún greindis með ADHD fyrir aðeins tveimur árum í kjölfar þess að dóttir hennar fór í gegnum greiningu. Svo var það heilsuvaktin, sem er komin úr sumarfríi. Helga Arnardóttir talaði í dag við Sigríði Pétursdóttur kvikmyndafræðing, sem þurfti að gera upp við sig hvort hún vildi verða verkjuð til langs tíma og rúmliggjandi vegna liðagigtar og óþols við lyfjagjöf eða umbylta sínu mataræði og lífstíl. Hún valdi seinni kostinn og hefur verið lyfjalaus í fimm ár og aldrei liðið betur. Hún tók út öll gjörunnin matvæli, sykur og gervisykur, mjólkurvörur og hveiti og eldar allt frá grunni. Þótt það sé flókið á köflum þá segir hún það allt á sig leggjandi til að vera verkjalaus og geta stundað daglegt líf. Við heyrðum þeirra spjall á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum: Borgin / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson) Two of Us / The Beatles (Lennon & McCartney) Frostrósir / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Freymóður Jóhannsson, eða 12.september) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Hópur fólks hér á landi sem hefur glímt við alvarleg og langvinn veikindi eftir COVID kallar eftir vitundarvakningu og úrræðum í íslensku heilbrigðiskerfi. Þessi eftirköst og veikindin hafa gert það að verkum að fólk er nánast óvinnufært og glímir við margvíslegan heilsubrest á borð við eilífðar flensueinkenni, mæði, slæma hausverki, ógleði, heilaþoku, máttleysi og margt fleira. Þær Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir og Sigríður Elín Ásgeirsdóttir sem báðar hafa verið heilsuhraustar og miklar íþróttakonur segja líf sitt hafa kollvarpast eftir að þær greindust með Covid fyrir tveimur árum. Þær komu í þáttinn. Hljóðóþol er taugaröskun sem lýsir sér í því, að upplifum tiltekinna hljóða veldur svo mikilli vanlíðan að það truflar allar athafnir daglegs lífs. Mikilvægt er að greina börn með hljóðóþol snemma þannig að hægt sé að gera ráðstafanir sem koma í veg fyrir að hljóðóþolið trufli nám og félagslegan þroska og það þarf að útbúa greiningartól og fræðsluefni fyrir starfólk menntastofnana. Heyrnarhjálp vinnur nú í að undirbúa ráðstefnu um Hljóðóþol og ráðstefnan verður 15.okt. Halla B. Þorkelsson formaður Heyrnarhjálpar og Hjörtur H Jónsson fv. Formaður,komu í þáttinn. Fólk sem greinist með efnaskiptavillu eða hvers kyns lífsstíls kvilla sem geta leitt til alvarlegra sjúkdóma geta nú fengið ráðgjöf um sitt heilsufar, mataræði og lífstíl og leiðrétt það með hjálp tveggja lækna, sem eru reyndar líka hjón en þau stofnuðu nýlega heilsufyrirtækið Sound Health lífstílslækningar í þeim tilgangi að veita fólki ráðgjöf um hvernig það getur sjálft gripið í taumana. Þau Kjartan Hrafn Loftsson og Tekla H. Karlsdóttir ræddu um efnaskiptaheilsu og einnig úrræði fyrir langvinn Covid einkenni. Tónlist í þættinum: Eyjólfur Kristjánsson - Kiddi greifi. Thomas, B.J. - Raindrops keep fallin' on my head. Beatles, The - Blackbird. Umsjón Helga Arnardóttir og Guðrún Gunnarsdóttir
Svavar Knútur er nýkomin úr tónleikaferðalagi um Ástralíu og Evrópu og nú er hann lagður af stað hringinn í kringum landið með tvöfalt nýtt plötualbúm í farteskinu. Þessi tónlist er á vissan hátt 15 ára úrvinnsla sorgar segir Svavar Knútur sem var í hljóðstofu RÚV á Akureyri í beinni útsendingu í dag. Svo komu þær Áslaug Thorlacius og Björg Jóna Birgisdóttir í þáttinn til að segja okkur frá listnámi í Myndlistaskólanum í Reykjavík fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu. Áslaug er skólastjóri Myndlistaskólans og Björg fylgdi systur sinni, Lilju Dögg, í gegnum námið. Björg segir námið hafa verið valdeflandi fyrir systur sína á mörgum sviðum og hafi gríðarlega þýðingu og að það sé mannbætandi að geta boðið upp fólki með þroskaskerðingu listnám. Viðvarandi blóðsykurssveiflur yfir daginn geta verið orsök þreytu og orkuleysis, vakið upp falska svengdartilfinningu, raskað þyngdarstjórnun og valdið alvarlegum sjúkdómum á við sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum, fitulifur og hvers kyns bólgusjúkdómum sem nú þegar herja á samfélagið í auknum mæli. En við þessu geta verið einföld ráð. Ef við neytum fyrst grænmetis og annarra trefja, fitu eða próteina á undan kolvetnum virkar það eins og sía áður en sykurinn kemst út í blóðið og þar með komum við í veg fyrir óhóflega blóðsykurshækkun í líkamanum. Þetta sagði Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir á Selfossi, sem er umfram allt áhugamaður um rót vandans, þegar Helga Arnardóttir ræddi við hann á Heilsuvakt dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Sannaðu til / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur Kristinsson) Joc de doi din Banat / Virgil Muzur (Virgil Muzur) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fimmtudagurinn 23. maí Forsetakjör, smáríki, húsaleigulög og sinfónía Við ræðum forsetakjör við Rauða borðið. Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður, Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og Helga Arnardóttir fjölmiðlakona ræða ýmsar hliðar baráttunnar. Síðan kemur Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi og ræðir um stöðu smáríkis í viðsjárverðum heimi. Steinunn Þóra Árnadóttir formaður velferðarnefndar ræðir frumvarp um húsaleigulög, sem leigjendur segja lítil hænuskref í átt að réttlæti. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur vakið athygli og verið til umræðu í erlendum fréttamiðlum síðustu vikur. Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri kemur og segir okkur hvers vegna.
Við byrjuðum þáttinn í dag á Helgu Arnardóttur og Heilsuvaktinni. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að náttúran hefur góð áhrif á okkur og gott betur því kórtisólið í líkamanum lækkar, blóðþrýstingur lækkar og hjartsláttur líka við það eitt að vera úti í náttúrunni. Kristín Sigurðardóttir, bráða- og slysalæknir sem einblínt hefur á streitu og áhrif hennar síðustu ár, segir okkur þjást af náttúruleysi. Hún á að sjálfsögðu ekki við getuleysi heldur er þetta þýðing hennar á fyrirbæri sem kallast á ensku nature deficit disorder. Með því að verja dágóðum tíma í náttúrunni getum við dregið verulega úr neikvæðum áhrifum streitu í okkar daglega lífi. Helga Arnardóttir ræddi við Kristínu á Heilsuvaktinni í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í vinkli dagsins er komið víða við. Fyrst fjallar Guðjón aðeins um eggjaát, en aðal atriðið er frétt sem Guðjón las í gær um að verið sé að nota nettröll til að ata frambjóðendur auri sem hleypti Guðjóni af stað í að búa til sögu þar sem umboðsmenn nettrölla og frambjóðanda hittast til að hafa samráð um aurkast sem leiðir inn í frásögn úr Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar og endar svo á kurteisisbrýningu. Þetta kom betur í ljós í vinkli dagsins. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Dóra Björg Árnadóttir sérfræðingur hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Við fengum að vita hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafi haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Dóra Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Piranesi e. Susanna Clarke Hamnet e. Maggie O'Farrell Gamache serían e. Louise Penny The Thursday Murder Club e. Richard Osman DaVinci Code e. Dan Brown The Murder of Roger Ackroyd e. Agatha Christie Dóra nefndi einnig Guðrúnu Helgadóttur, Astrid Lindgren, Harry Potter bækurnar og Twilight bókaröðina. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við töluðum aðeins um mannlega þáttinn í Mannlega þættinum í dag, sem sagt mannlega þáttinn á vinnustöðum. Við höfum fjallað talsvert í þættinum um streitu og vanlíðan í vinnunni. Ef stemningin er ekki góð á vinnustaðnum, þar sem starfsfólk jafnvel upplifir sig vanmetið, lítilsvirt og óöruggt, þá eru talsvert meiri líkur á að lenda í kulnun eða að upplifa kulnunareinkenni. Við fengum þær séra Díönu Óskarsdóttur, doktor í handleiðslufræðum og Sigrúnu Harðardóttur doktor í félagsráðgjöf og dósend við Félagsráðgjafardeild HÍ, til að segja okkur frá því hvernig fagleg handleiðsla getur nýst, t.d. sem forvörn og til að styðja að bæta vinnustaðamenninguna og getur jafnvel minnkað starfsmannaveltu og fjarveru vegna veikinda. Þær Díana og Sigrún útskýrðu þetta frekar fyrir okkur í þættinum. Með hækkandi sól og hækkandi hitatölum spretta kylfingar úr hverju horni tilbúnir að arka út á golfvelli landsins til að elta litlu hvítu boltana í sem fæstum höggum ofan í holurnar. Í fyrravor komu golfvellirnir ekki vel undan vetri eftir frosthörkur, en spurningin er hvernig staðan er á þeim núna? Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands kom í þáttinn og fór með okkur yfir stöðuna og hvað er framundan í golfinu í sumar. Heilbrigð þarmaflóra er grunnurinn að góðri heilsu bæði líkamlega og andlega. Þetta hafa rannsóknir sýnt fram á með afgerandi hætti undanfarin ár og gjörunnin matvæli, sykruð, söltuð og reykt vinna gegn góðri flóru. Birna G. Ásbjörnsdóttir doktor í heilbrigðisvísindum og sérfræðingur í þarmaflóru segir lykilatriði að borða eins ólíkar tegundir af grænmeti og ávöxum í viku til að hafa sem öflugasta flóru meltingarkerfinu. Hún nefnir að hátt í 30 tegundir væru langbesta markmiðið, auk þess að borða mikið af hnetum, fræjum og baunum. Sykurlausir gosdrykkir og orkudrykkir séu alslæmir fyrir bakteríubúskap í þörmunum og þá eigi að drekka í algjöru lágmarki. Helga Arnardóttir ræddi við Birnu á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Pólstjarnan / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Ágúst Pétursson, texti Kristján frá Djúpalæk) Oh happy day / The Edwin Hawkins singers (Edwin Hawkins) Im a believer / The Monkees (Neil Diamond) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Bergur Vilhjálmsson starfar sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgasvæðisins. Hann er að fara í gang með styrktarverkefni fyrir Pieta samtökin. Hann ætlar að ganga frá Akranesi, í gegnum Hvalfjörðinn og í Grafarholtið og draga á eftir sér þyngdan sleða eða ýta honum á undan sér. Sleðin er rúm 100 kíló og 100 kíló af lóðum verða á sleðanum og eftir hverja 10 km. mun hann létta af sleðanum 10 kílóum. Þau kíló tákna að hann sé á réttri leið að vinna úr erfiðleikum. Sleðinn táknar erfiðleika sem við erum flest að burðast með í gegnum lífið en það eru til hlutir/verkfæri sem geta gert þessa byrði léttari. Bergur sagði okkur frá aðdraganda göngunnar og svo göngunni sjálfri sem hann hefur á fimmtudaginn kl.14. Sumardagurinn fyrsti er núna á fimmtudaginn og þá verður að venju opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum. Gróðurinn blómstrar í garðskálanum og gróðurhúsunum og fyrsta uppskeran af fersku grænmeti er tilbúin. Hægt verður að skoða skoða verkefni nemenda, forseti Íslands veitir garðyrkjuverðlaun ársins, boðið verður upp á kaffi ræktað á Íslandi og fleira. Björgvin Örn Eggertsson, námsbrautarstjóri skógræktar í Garðyrkjuskólanum, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu í dag. Hvernig getum við komið meira af grænmeti og ávöxtum inn í fæðið okkar? Nýjustu næringarráðleggingar frá Norðurlöndunum mæla með að við borðum um 500-800 grömm af því daglega til að halda góðri heilsu. Draga ætti úr kjötáti og unnum kjötvörum og auka neyslu á fiski, baunum ásamt öðru jurtafæði. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands gefur okkur góð ráð um hvernig við breytum gömlum venjum og innleiðum nýjar. Helga Arnardóttir ræddi við Önnu Sigríði í Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum Yakketi yak smacketty smack / Change (Jóhann Helgason) Útþrá / Kristjana Arngrímsdóttir (Kristjana Arngrímsdóttir og Elísabet Geirmundsdóttir) Sumarvísa / Þorgerður Ása og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Poulson og Iðunn Steinsdóttir) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Alþjóðlegi leiklistardagurinn er á morgun 27. mars. International Theatre Institute, alþjóðasamtök í sviðslistum og aðilar þess, hafa haldið uppá þennan dag í yfir 60 ár. Alþjóðlegt ávarp ársins er ritað af norska leikskáldinu og nóbelsverðlaunahafanum Jon Fosse og í ávarpi sínu segir hann meðal annars: Stríð og list eru andstæður, rétt eins og stríð og friður eru andstæður, svo einfalt er það. List er friður. Sviðslistasamband Ísland fær árlega sviðslistamann hérlendis til að skrifa hugleiðingu og í ár er það Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri, sem skrifar innlenda ávarpið. Gréta kom í þáttinn með henni var Orri Huginn Ágústsson forseti Sviðslistasambands Íslands. Stúdentafélag Reykjavíkur er eitt elsta starfandi félag landsins, stofnað 1871. Tilgangur félagsins er að vinna að blómlegu og þjóðlegu stúdentalífi, eins og það er orðað í lögum félagsins. Í stjórn félagsins er talsverð breidd í aldri, en 62 ár eru á milli elsta og yngsta stjórnarmeðlims. Tvær ályktanir voru samþykktar á aðalfundi félagsins 27.feb. sl. og báðar þeirra sneru að styttum bæjarins, annars vegar að styttunni af Jónasi Hallgrímssyni, sem er í Hljómskálagarðinum, og svo styttan af Sæmundi á selnum sem er við Háskóla Íslands. Björn Jón Bragason, nýkjörinn formaður félagsins kom í þáttinn og sagði okkur meira frá félaginu, sögu og starfsemi þess. Helga Arnardóttir fjölmiðlakona kom svo til okkar í spjall, en annan hvern þriðjudag á næstunni mun hún endurvekja Heilsuvaktina, sem hún byrjaði með í þættinum árið 2016. Hún mun fjalla um heilsuna frá öllum mögulegum hliðum og heimsækja fólk sem getur frætt okkur um völdundarhús heilbrigðis. Hvað er nýtt og hvað er gott og gilt? Helga hefur undanfarin ár fjallað um langlífi og heilsu í sjónvarpi og útvarpi og við hlökkum til að fá pistla í formi Heilsuvaktarinnar á næstu vikum. Tónlist í þætti dagsins: Lífsgleði / Moses Hightower (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir) Signals / Júníus Meyvant (Unnar Gísli Sigurmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagurinn 24. nóvember Vikuskammtur: Vika 47 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Atli Bollason listamaður, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Þóra Karitas Árnadóttir leikstjóri og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af Grindavík, Gaza og öðrum hættusvæðum.
Íslenska fjölskyldumyndin Birta verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi á föstudaginn. Bragi Þór Hinriksson leikstýrir og Helga Arnardóttir kona hans skrifar handrit. Dóttir Helgu, Margrét Júlía Reynisdóttir, leikur í myndinni, þetta er því sannkallað fjölskylduverkefni. Við ræddum við Braga Þór og Margréti Júlíu. Reglugerð um COVID-takmarkanir á landamærunum rennur út í lok vikunnar. Við ræddum við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um takmarkanir og jólavertíðina í ferðaþjónustunni. Á miðvikudögum ætlum við að beina sjónunum út fyrir landsteinana og ræða erlendar fréttir. Í dag beindum við sjónum að ástandinu í Bosníu en landið virðist á barmi styrjaldar vegna hótana serbenskra aðskilnaðarsinna að slíta sig frá þjóðarhernum og stofna sinn eigin. Til okkar kom Davor Purusic, lögfræðingur, sem flutti hingað til lands í kjölfar Bosníustríðsins árið 1993. Kaupmáttur háskólamenntaðra hefur aukist talsvert minna en kaupmáttur annarra hópa frá 2019 samkvæmt nýrri úttekt Bandalags háskólamanna. Við ræddum við Friðrik Jónsson, formann BHM, og Isabel Alejandra Díaz, forseta Stúdentaráðs Háskóla Íslands, um kjör ungs fólks og háskólamenntaðra. Leikarinn Þórir Sæmundsson steig fram í viðtali í Kveik í gær sem vakið hefur gríðarlega athygli. Til að ræða þessi mál kom til okkar Hulda Hrund Sigmundsdóttir, meðlimur í aðgerðahópnum Öfgar. Við ræddum einnig við Viktor Emil Sigtryggsson, sundþjálfara og sundlaugavörð, um landsátakið Syndum.
Íslenska fjölskyldumyndin Birta verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi á föstudaginn. Bragi Þór Hinriksson leikstýrir og Helga Arnardóttir kona hans skrifar handrit. Dóttir Helgu, Margrét Júlía Reynisdóttir, leikur í myndinni, þetta er því sannkallað fjölskylduverkefni. Við ræddum við Braga Þór og Margréti Júlíu. Reglugerð um COVID-takmarkanir á landamærunum rennur út í lok vikunnar. Við ræddum við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um takmarkanir og jólavertíðina í ferðaþjónustunni. Á miðvikudögum ætlum við að beina sjónunum út fyrir landsteinana og ræða erlendar fréttir. Í dag beindum við sjónum að ástandinu í Bosníu en landið virðist á barmi styrjaldar vegna hótana serbenskra aðskilnaðarsinna að slíta sig frá þjóðarhernum og stofna sinn eigin. Til okkar kom Davor Purusic, lögfræðingur, sem flutti hingað til lands í kjölfar Bosníustríðsins árið 1993. Kaupmáttur háskólamenntaðra hefur aukist talsvert minna en kaupmáttur annarra hópa frá 2019 samkvæmt nýrri úttekt Bandalags háskólamanna. Við ræddum við Friðrik Jónsson, formann BHM, og Isabel Alejandra Díaz, forseta Stúdentaráðs Háskóla Íslands, um kjör ungs fólks og háskólamenntaðra. Leikarinn Þórir Sæmundsson steig fram í viðtali í Kveik í gær sem vakið hefur gríðarlega athygli. Til að ræða þessi mál kom til okkar Hulda Hrund Sigmundsdóttir, meðlimur í aðgerðahópnum Öfgar. Við ræddum einnig við Viktor Emil Sigtryggsson, sundþjálfara og sundlaugavörð, um landsátakið Syndum.
Helga og Bragi Þór segja frá sköpunarkraftinum, og samstarfið en þau vinna saman alla daga og tala um nýju kvikmyndina Birtu sem frumsýnd verður á næstunni.
HElga og Bragi Þór segja frá sköpunarkraftinum, og samstarfið en þau vinna saman alla daga og tala um nýju kvikmyndina Birtu sem frumsýnd verður á næstunni.
Gestur þáttarins er sálfræðingurinn Helga Arnardóttir. Helga er sálfræðimenntuð frá Háskóla Íslands. Hún er með mastersgráðu í félags- og heilsusálfræði og diploma á mastersstigi í jákvæðri sálfræði. Helga starfar sjálfstætt við ráðgjöf, námskeið og fræðslu um andlega heilsu og leiðir til að hlúa að henni. Hún heldur einnig uppi facebook síðu þar sem er bæði hægt að fylgjast með henni, bóka hana í ráðgjöf og fyrirlestra á síðunni "Andleg Heilsa". ------------- Samstarfsaðilar þáttarins: www.sportvörur.is - 2XU compression fatnaður www.purenatura.is - 25% afsláttur af purenatura vörum m. kóða "360heilsa" Bionette - Fæst í flestum apótekum
Ástandið á Ítalíu hefur verið skelfilegt vegna Covid-19 og hafa tæplega tuttugu og átta þúsund manns látist af völdum sjúkdómsins þegar þetta er skrifað. Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona hefur búið í Bra á Ítalíu, tæplega þrjátíu þúsund manna bæ um 50 km sunnan við Tórínó undanfarið ár ásamt manni sínum Svavari Halldórssyni og þremur börnum á aldrinum 8,12 og 14 ára. Fjölskyldan hefur verið lokuð inni vegna farsóttarinnar í tæpa tvo mánuði. Þau kæmust ekki heim í dag nema borga fyrir það verulega há fargjöld, mögulega á aðra milljón króna fyrir fimm manns. Þetta er eitt lengsta útgöngubann í sögu Ítalíu og þótt sjúkdómurinn þar í landi virðist í rénun þá létu engu að síður 333 lífið og 2000 nýsmit voru skráð daginn sem viðtalið var tekið við Þóru, þann 26.apríl sl. Helga Arnardóttir ræðir við Þóru fyrrverandi samstarfskonu sína í Kastljósi um þennan skrýtna tíma sem fjölskyldan hefur þurft að vera lokuð inni og upplifun þeirra í landinu. Þá segir Þóra frá því hvað þessi mikla samvera hefur kennt þeim og gert fjölskyldunni gott, hvernig heimaskóli undir hennar stjórn hefur verið starfræktur og hvernig þau hafa varið tímanum í lestur, spilamennsku, bakstur og eldamennsku.
Það versta sem við getum gert þegar okkur líður illa er að einangra okkur því grunnuppspretta öryggis mannskepnunnar er góð tengsl við annað fólk og við fjarlægjum okkur frá þessari grunnuppsprettu ef við einangrum okkur heima. Þetta segir Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur sem segir tækni og samfélagsmiðla geta gert öllum kleift að vera í góðu sambandi við sína nánustu. Hann gefur okkur góð ráð um hvernig við getum hugsað okkur út úr kvíðaástandi vegna yfirstandandi heimsfaraldurs eða annarra ástæðna. Til eru mörg ráð við kvíða og lykilatriði er að þekkja hann og láta hann ekki ná tökum á sér. Helga Arnardóttir ræðir við Guðbrand um heilsukvíða, efnahagskvíða og hvers kyns kvíðaástand sem herjar á fólk á þessum skrýtnu tímum. Sjónvarp Símans styrkir þessa þáttaröð en báðar sjónvarpsþáttaraðir af Lifum lengur eru sýndar hjá Sjónvarpi Símans Premium. Fyrsta þáttaröðin fjallar um fjóra lykilþætti heilsu; næringu, hreyfingu, andlega heilsu og svefn. Sú seinni fjallar um langlífustu þjóðir heims á svokölluðu Bláu svæðunum þar sem Helga Arnardóttir heimsækir langlífa bæði erlendis og hér á landi og kafar ofan í leyndarmál langlífis.
Hvað gerir eldra fólk í sjálfskipaðri sóttkví til að halda sönsum og líkamlegri heilsu? Hvernig getur fólk varið tíma sínum sem hefur nóg af honum um þessar mundir og hvað er hægt að finna jákvætt við þetta ástand? Helga Arnardóttir ræðir við tvær leikkonur á sjötugaldri sem eru báðar í sjálfskipaðri sóttkví. Önnur þeirra er Margrét Ákadóttir móðir hennar sem heldur sig heima vegna undirliggjandi nýrnasjúkdóms og hin þeirra er Edda Björgvinsdóttir sem hefur einangrað sig vegna 97 ára gamals föður síns sem hún getur ekki hugsað sér að vera ekki í sambandi við. Þær eru þó kornungar í anda og gefa hlustendum góð ráð um hvernig hægt er að nýta þennan tíma til góðra verka, notalegheita og heilsudekurs. Sjónvarp Símans styrkir þessa hlaðvarpsþáttaröð en báðar sjónvarpsþáttaraðir af Lifum lengur eru sýndar hjá Sjónvarpi Símans Premium. Fyrsta þáttaröðin fjallar um fjóra lykilþætti heilsu; næringu, hreyfingu, andlega heilsu og svefn. Sú seinni fjallar um langlífustu þjóðir heims á svokölluðu Bláu svæðunum þar sem Helga Arnardóttir heimsækir langlífa bæði erlendis og hér á landi og kafar ofan í leyndarmál langlífis.
Miklu hættulegra er fyrir ungabarn að smitast af RS vírus eða almennri inflúensu en kórónuvírusnum að mati Bryndísar Sigurðardóttur smitsjúkdómalæknis sem segir börn vera með öðruvísi viðtaka í slímhúðinni en fullorðnir eru með og því nái kórónuvírusinn í flestum tilfellum ekki bólfestu í líkama barna. Ungabörn og börn langt frameftir grunnskólaaldri virðast nær einkennalaus þótt þau greinist með Covid-19 smit. Helga Arnardóttir ræðir við Bryndísi um skýringar á því af hverju börn veikjast síður af Covid-19, hvernig ófrískar konur hafa komið út úr Covid-19 veikindum, hvað nýjustu rannsóknir sýna um hegðun vírussins og lyfjaþróun í heiminum við þessum sjúkdómi sem getur ýmist verið nær einkennalaus eða lífshættulegur í sumum tilfellum. Sjónvarp Símans styrkir þessa hlaðvarpsþáttaröð en báðar sjónvarpsþáttaraðir af Lifum lengur eru sýndar hjá Sjónvarpi Símans Premium. Fyrsta þáttaröðin fjallar um fjóra lykilþætti heilsu; næringu, hreyfingu, andlega heilsu og svefn. Sú seinni fjallar um langlífustu þjóðir heims á svokölluðu Bláu svæðunum þar sem Helga Arnardóttir heimsækir langlífa bæði erlendis og hér á landi og kafar ofan í leyndarmál langlífis.
Rifrildi við maka eða einhvern nákominn og fjögurra tíma svefn getur verið nóg til að fella niður varnir ónæmiskerfisins og valdið því að við erum móttækilegri fyrir hvers kyns vírusum þar á meðal kórónuvírusnum. Reykingar og áfengisneysla hafa mikil áhrif á varnir ónæmiskerfisins og meira að segja neysla nikótíns þótt það sé ekki í sígarettum. Helga Arnardóttir ræðir við Björn Rúnar Lúðvíksson yfirlækni á ónæmisfræðideild Landspítalans sem leggur til að landsmenn allir fari í ónæmisdekur eins og hann kýs að kalla það í þessum skæða heimsfaraldri. Hreyfing nokkrum sinnum í viku, hreint og gott mataræði með litskrúðugu grænmeti og ávöxtum, lítil streita og álag eru þættir sem styrkja varnir ónæmiskerfisins til muna. Við getum með þessu móti varið okkur fyrir því að fá kórónuvírusinn og mögulega komist betur út úr veikindunum ef við smitumst. Sjónvarp Símans styrkir þessa hlaðvarpsþáttaseríu en báðar sjónvarpsþáttaseríur af Lifum lengur eru sýndar hjá Sjónvarpi Símans Premium. Fyrsta serían fjallar um fjóra lykilþætti heilsu; næringu, hreyfingu, andlega heilsu og svefn. Seinni þáttaröðin fjallar um langlífustu þjóðir heims á svokölluðu Bláu svæðunum og þar sem Helga Arnardóttir heimsækir langlífa bæði erlendis og hér á landi og og kafar ofan í leyndarmál langlífis.
Tuttugu og fjögurra manna hópur fór í gönguskíðaferð til Mývatns þann 12.mars síðastliðinn, degi áður en tilkynnt var um að samkomubann yrði sett á. Engan í hópnum grunaði hvað væri í vændum en ferðin heppnaðist vel, allir sváfu í sitthvoru herberginu og borðuðu saman í matsalnum en að öðru leyti var ekki mikil nánd í hópnum að frátalinni hópmynd í jarðböðunum. Hópurinn kom heim á sunnudagskvöldi en á þriðjudegi og miðvikudegi fundu nokkrir úr hópnum til flensueinkenna. Áður en vikan var á enda voru 20 af 24 með Covid 19 smit. Hvorki er vitað hvar fólkið smitaðist né hver smitberinn var. Helgi Jóhannesson 56 ára lögmaður og fjallagarpur og Andrea Sigurðardóttir 32 ára viðskiptafræðingur og fjallakona voru í þessum hóp og lögðust þau bæði í flensu 2-3 dögum eftir heimkomu. Helga Arnardóttir ræðir við þau í gegnum allt Covid 19 veikindaferlið sem tók hátt í 20 daga hjá þeim. Þau eru bæði hraust, reykja hvorug og hreyfa sig mjög mikið en þau lýsa veikindunum eins og rússíbanareið með eilífum slappleika og sleni. Sjónvarp Símans styrkir þessa hlaðvarpsþáttaröð og fyrir þá sem ekki vita þá eru tvær sjónvarpsþáttaraðir af Lifum lengur sýndar á Sjónvarpi Símans Premium. Fyrsta þáttaröðin fjallar um fjórar lykilstoðir heilsu; næringu, hreyfingu, andlega heilsu og svefn. Allir eru hvattir til að horfa á hana núna í ljósi aðstæðna því þar er talað um hvernig hægt er að efla ónæmiskerfið og almennt heilsufar. Seinni þáttaröðin fjallar um langlífustu þjóðir heims á Bláu svæðunum þar sem Helga Arnardóttir ræðir við langlíft fólk þar og hér á landi og reynir að finna lykilinn að langlífi.
Helga var að gefa út barnabók um Nínu óskastjörnu. Þetta er fyrsta bók Helgu og hún segir frá þeirri vegferð og einnig talar hún um þætti um langlífi sem hún er að vinna að um þessar mundir.
Helga var að gefa út barnabók um Nínu óskastjörnu. Þetta er fyrsta bók Helgu og hún segir frá þeirri vegferð og einnig talar hún um þætti um langlífi sem hún er að vinna að um þessar mundir.
MANNLEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAG 16.okt 2019 UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON Í kvöld verður Heimspekikaffi í Gerðubergi þar sem Gunnar Hersveinn heimspekingur og Helga Arnardóttir félags- og heilsusálfræðingur ætla að ræða hamingju og andlega heilsu. Hvað þýðir það að vera við góða andlega heilsu? Hvernig má bæta andlega vellíðan og hamingjustundir? Hvaða lífsgildi er gott að styrkja til að finna jafnvægi á milli eirðarleysis og ofmetnaðar? Við fáum Helgu til okkar í spjall í þættinum í dag. Við fáum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni í dag. Í þessu póstkorti greinir meðal annars frá spænskunámi pistlahöfundarins sem hefur gengið misjafnlega hingað til en er að komast í góðan farveg og í framhaldinu veltir hann fyrir sér stöðu spænskunar á alþjóðavísu, en spænskan er næstmest talaða tungumál heims á eftir kínversku. Í lokin segir hann frá vaxandi áhyggjum manna vegna þess hve hlýnun andrúmsloftsins virðist vera hraðari við Miðjarðarhafið en annars staðar á hnettinum. Á laugardaginn var haldin glímuhátíð á Ísafirði í tilefni af 100 ára afmæli knattspyrnufélagsins Harðar. Haldin voru þrjú mót og voru keppendur samtals 30 og keppt var um Vestfirðingabeltið í 15ánda sinn. VIð ræðum við formann Glímudeildar Harðar, Hákon Óli Sigurðsson.
MANNLEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAG 16.okt 2019 UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON Í kvöld verður Heimspekikaffi í Gerðubergi þar sem Gunnar Hersveinn heimspekingur og Helga Arnardóttir félags- og heilsusálfræðingur ætla að ræða hamingju og andlega heilsu. Hvað þýðir það að vera við góða andlega heilsu? Hvernig má bæta andlega vellíðan og hamingjustundir? Hvaða lífsgildi er gott að styrkja til að finna jafnvægi á milli eirðarleysis og ofmetnaðar? Við fáum Helgu til okkar í spjall í þættinum í dag. Við fáum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni í dag. Í þessu póstkorti greinir meðal annars frá spænskunámi pistlahöfundarins sem hefur gengið misjafnlega hingað til en er að komast í góðan farveg og í framhaldinu veltir hann fyrir sér stöðu spænskunar á alþjóðavísu, en spænskan er næstmest talaða tungumál heims á eftir kínversku. Í lokin segir hann frá vaxandi áhyggjum manna vegna þess hve hlýnun andrúmsloftsins virðist vera hraðari við Miðjarðarhafið en annars staðar á hnettinum. Á laugardaginn var haldin glímuhátíð á Ísafirði í tilefni af 100 ára afmæli knattspyrnufélagsins Harðar. Haldin voru þrjú mót og voru keppendur samtals 30 og keppt var um Vestfirðingabeltið í 15ánda sinn. VIð ræðum við formann Glímudeildar Harðar, Hákon Óli Sigurðsson.
Hvernig getum við haft áhrif á okkar andlegu vanlíðan með beinum hætti? Margir eru eflaust ráðalausir við eigin vanlíðan en með því að breyta þankagangi okkar getum við haft bein áhrif á líðan okkar. Helga Arnardóttir ráðgjafi um andlega heilsu hefur starfað fyrir fjölmörg félagasamtök á borð við Geðrækt, Grettistak og Bataskólann svo eitthvað sé nefnt og haldið fjölda fyrirlestra um þetta málefni. Hún er með MSc í félags- og heilsusálfræði og próf í jákvæðri sálfræði. Hún fullyrðir að við getum haft djúpstæð áhrif á okkar andlegu heilsu eins og við hlúum að líkama okkar, hreyfum okkur, nærumst vel og fáum góðan svefn. Hún ræðir við Helgu Arnardóttur alnöfnu sína og umsjónarmann hlaðvarpsins Lifum lengur um hvernig við getum brugðist við eigin vanlíðan með ýmstum leiðum, horfst í augu við hana og líka snúið henni við með því að hlúa að þáttum sem skipta okkur máli en við vanmetum svo oft. Eldum rétt styður gerð hlaðvarpsins Lifum lengur. Hægt er að panta matarpakka á www.eldumrett.is Netfang: eldumrett@eldumrett.is Afgreiðsla: Nýbýlavegur 16, 200 Kópavogur Sími: 571-1855
Hvernig er hægt að snúa við einkennum efnaskiptaheilkennis og sykursýki 2 með breyttu mataræði og lífstíl? Hentar ketó og lágkolvetnamataræði öllum og hvað segja læknar og rannsóknir um áhrif þessara matarkúra? Guðmundur Freyr Jóhannsson lyf-og bráðalæknir hefur talað fyrir breyttu mataræði á Íslandi í nokkur ár og hvatt til þess að fólk endurskoði slæmar matar- og lífstílsvenjur sínar í því augnamiði að ná betri heilsu. Sykursýki 2 sé að verða heimsfaraldur og fæstir þekki einkenni forstigs sjúkdómsins sem geti verið óljós í fyrstu. Helga Arnardóttir ræðir við Guðmund um jákvæð áhrif ketó og lágkolvetnamataræðis á sykursýki 2 og efnaskiptaheilkenni og hvað rannsóknir sýna. Hann talar einnig um allar mýturnar um ketókúrinn og aðra áhrifaþætti en mataræði sem geta aukið insúlínviðnám og leitt til efnaskiptaheilkennis ef slæmt ástand varir lengi. Eldum rétt styður gerð hlaðvarpsins Lifum lengur. Hægt er að panta matarpakka á www.eldumrett.is Netfang: eldumrett@eldumrett.is Afgreiðsla: Nýbýlavegur 16, 200 Kópavogur Sími: 571-1855
Besti bjórinn sem þú drekkur er sá sem þú bruggar sjálf/ur. Viðaðu að þér örfáum hráefnum og einföldum brugggræjum, gefðu þér smá tíma og njóttu þess síðan að drekka helhumlaðan IPA eða dásamlega dökkan porter. Ekki er verra að geta sótt í viskubrunn bestu kraftbruggara dagsins í dag, sem byrjuðu að brugga með hugsjón og löngun í betri bjór að vopni. Í Sölkuvarpinu fjallar Helga Arnardóttir um bjór og ræðir við Ástu Ósk Hlöðversdóttur, bruggmeistara Ölvisholts um galdurinn á bakvið góðan bjór og vel heppnaða bruggun. Umsjón og handrit: Helga Arnardóttir Nánar um bókina Kraftbjór: https://www.salka.is/products/kraftbjor
Kristinn Gauti Gunnarsson er ungur kvikmyndagerðarmaður sem nýtti sér þekkingu sína og nútímatækni til að búa til nokkurs konar ördagbók yfir árið 2018 á kvikmyndaformi. Þar skeytti hann saman 1 sekúndu af hverjum degi ársins í stórskemmtilegu myndbandi. Kristinn kíkti til okkar og sagði okkur betur frá þessu sniðuga verkefni. Sjónvarpsstöðin N4 tók upp um 350 nýja íslenska þætti á síðasta ári, alls um 200 klukkustundir. Við forvitnuðumst aðeins um starfsemi stöðvarinnar hjá Maríu BJörk Ingvadóttur framkvæmdastjóra N4. Nú er dimmt úti og mikilvægi endurskinsmerkja aldrei meira. Þrátt fyrir það virðist notkun þeirra lítil sem skapar hættu í umferðinni. Sigrún A. Þorsteinsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS kom til okkar og ræddi þessi mál, en VÍS gerði nýverið könnun á notkun ungmenna og fullorðinna á endurskinsmerkjum. Við fórum yfir fréttir vikunnar eins og aðra föstudaga. Helga Arnardóttir, dagskrárgerðarmaður, og Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill, renndu yfir það helsta. Freyr Gígja Gunnarsson fór yfir sinn vikulega skammt af hégómavísindum og fjallaði um fræga fólkið og Hollywood. Tónlist: Mannakorn og Ellen - Elska þig. Phlánetan og Björn - Ég vissi það. 200.0000 Naglbítar - Stopp nr. 7. The Cure - Close to me. Morrissey - Spent the day in bed. Valdimar - Yfir borgina.
Stóra bókin um sous vide hefur slegið í gegn sem og eldunaraðferðin sjálf. Í Sölkuvarpinu fjallar Helga Arnardóttir um eldunaraðferðina og hversu auðvelt það er í raun og veru að elda með sous vide. Einnig fá hlustendur góðar hugmyndir að því hvaða réttir klikka aldrei með sous vide. Viðmælendur Helgu eru Viktor Örn Andrésson, einn fremsti matreiðslumaður landsins og brons verðlaunahafi í virtustu matreiðslukeppni heims, Bocuse d'Or og Elísabet Árnadóttir, áhugamanneskja um sous vide en hún er komin á sitt annað sous vide tæki og er búin að fullkomna cremé brulée. Umsjón og handrit: Helga Arnardóttir Nánar um Stóru bókina um sous vide: https://www.salka.is/products/stora-bokin-um-sous-vide
Helga Arnardóttir ræðir hér við ástríðusúrdeigsbakarana Ragnheiði Maísól og Ágúst Fannar Einþórsson, betur þekktan sem Gústa í Brauð & co. Hvort sem þú ert að hugsa um að stíga þín fyrstu skref sem súrdeigsbakari eða hefur gert ótal tilraunir að hinu fullkomna súrdeigsbrauði þarftu að hlusta á þennan þátt! Hér má kaupa Bakað úr súrdeigi: https://www.salka.is/products/bakad-ur-surdeigi
Guðrún Ragnarsdóttir kvikmyndaleikstjóri sagði frá æsku sinni og uppvexti hjá einstæðri móður sem barðist fyrir því að halda heimili með þrjú börn. Guðrún og systkini hennar þurftu að fara á sumardvalarheimili í mörg ár þar á meðal Silungapoll því úrræði fyrir einstæðar mæður voru lítil sem engin. Hún sagði okkur frá fyrstu kvikmynd sinni Sumarbörn sem hlaut Edduverðlaunin fyrir leikið barnaefni en hún er að miklum hluta byggð á hennar æskuupplifun. Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari var seinni gestur þáttarins en hann stendur nú á tímamótum. Hann sótti um stöðu bæjarstjóra á Seyðisfirði í sumar en dró umsókn sína til baka þar sem hann fékk inngöngu í framhaldsnám við Oxford háskóla. Þar ætlar hann að stunda MBA nám með fjölskyldu sinni næstu tvö ár og leggja leiklistina á hilluna í bili. Hann ræddi einnig leiklistarferil sinn sem hefur staðið nær sleitulaust yfir í rúma tvo áratugi eða frá því hann var 12 ára. Þorvaldur vill breytingar í líf sitt og er óhræddur við að stíga inn í ólíkt umhverfi. Hann segist oft hafa fengið ákveðinn leiða í leiklistinni og hún hafi ekki gefið honum mikið síðustu ár eins og hann hefði viljað. Umsjón: Helga Arnardóttir.
Guðrún Ragnarsdóttir kvikmyndaleikstjóri sagði frá æsku sinni og uppvexti hjá einstæðri móður sem barðist fyrir því að halda heimili með þrjú börn. Guðrún og systkini hennar þurftu að fara á sumardvalarheimili í mörg ár þar á meðal Silungapoll því úrræði fyrir einstæðar mæður voru lítil sem engin. Hún sagði okkur frá fyrstu kvikmynd sinni Sumarbörn sem hlaut Edduverðlaunin fyrir leikið barnaefni en hún er að miklum hluta byggð á hennar æskuupplifun. Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari var seinni gestur þáttarins en hann stendur nú á tímamótum. Hann sótti um stöðu bæjarstjóra á Seyðisfirði í sumar en dró umsókn sína til baka þar sem hann fékk inngöngu í framhaldsnám við Oxford háskóla. Þar ætlar hann að stunda MBA nám með fjölskyldu sinni næstu tvö ár og leggja leiklistina á hilluna í bili. Hann ræddi einnig leiklistarferil sinn sem hefur staðið nær sleitulaust yfir í rúma tvo áratugi eða frá því hann var 12 ára. Þorvaldur vill breytingar í líf sitt og er óhræddur við að stíga inn í ólíkt umhverfi. Hann segist oft hafa fengið ákveðinn leiða í leiklistinni og hún hafi ekki gefið honum mikið síðustu ár eins og hann hefði viljað. Umsjón: Helga Arnardóttir.
Halla Tómasdóttir er flutt til New York með fjölskyldu sinni og er orðin forstjóri alþjóðlegu samtakanna B-Team. Hún kom í Sunnudagssögur og ræddi um nýtt starf og markmið þessara merkilegu samtaka. Hún gerði upp forsetakosningarnar árið 2016 og sagði frá því augnabliki þegar hún mældist með 1% fylgi einum og hálfum mánuði fyrir kosningar og endaði með tæplega 28% fylgi, næst mesta fylgið á eftir Guðna Th. Jóhannessyni. Halla ræddi einnig upplifun sína sem móður og athafnkonu í íslensku viðskiptalífi árin fyrir efnahagshrunið. Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og fyrirliði Breiðabliks í Pepsídeildinni var annar gestur þáttarins. Þar ræddi hann æsku sína og uppvöxt, sérkennilegan áhuga sinn fyrir Sovíetríkjunum þegar hann var sjö ára, baráttu sína við brennivínið og þegar hann tók ákvörðun 19 ára að hætta að drekka og hefur ekki drukkið síðan. Hann sagði einnig frá erfiðum foreldra-og bróðurmissi og hvernig hann langaði að verða betri maður. Í kjölfar ítrekaðra áfalla ákvað hann að hætta að blóta og segir það bestu ákvörðun sem hann hafi tekið. Umsjón: Helga Arnardóttir
Halla Tómasdóttir er flutt til New York með fjölskyldu sinni og er orðin forstjóri alþjóðlegu samtakanna B-Team. Hún kom í Sunnudagssögur og ræddi um nýtt starf og markmið þessara merkilegu samtaka. Hún gerði upp forsetakosningarnar árið 2016 og sagði frá því augnabliki þegar hún mældist með 1% fylgi einum og hálfum mánuði fyrir kosningar og endaði með tæplega 28% fylgi, næst mesta fylgið á eftir Guðna Th. Jóhannessyni. Halla ræddi einnig upplifun sína sem móður og athafnkonu í íslensku viðskiptalífi árin fyrir efnahagshrunið. Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og fyrirliði Breiðabliks í Pepsídeildinni var annar gestur þáttarins. Þar ræddi hann æsku sína og uppvöxt, sérkennilegan áhuga sinn fyrir Sovíetríkjunum þegar hann var sjö ára, baráttu sína við brennivínið og þegar hann tók ákvörðun 19 ára að hætta að drekka og hefur ekki drukkið síðan. Hann sagði einnig frá erfiðum foreldra-og bróðurmissi og hvernig hann langaði að verða betri maður. Í kjölfar ítrekaðra áfalla ákvað hann að hætta að blóta og segir það bestu ákvörðun sem hann hafi tekið. Umsjón: Helga Arnardóttir
Í Sölkuvarpinu fjallar Helga Arnardóttir um fjallvegahlaup frá öllum hliðum. Hún fer yfir hvað ber að hafa í huga fyrir byrjendur og einnig fyrir lengra komna, hvað þurfi að gera áður en lagt er að af stað og hvaða leiðir henta best hverjum og einum. Viðmælendur Helgu eru Stefán Gíslason, þaulreyndur hlaupari og höfundur bókarinnar Fjallvegahlaup og Dalla Ólafsdóttir, sem byrjaði fyrir nokkru að hlaupa úti í náttúrunni og kolféll fyrir þessari útivist. Umsjón og handrit: Helga Arnardóttir Nánar um Fjallvegahlaup eftir Stefán Gíslason: https://www.salka.is/products/fjallvegahlaup