Podcasts about freyr eyj

  • 18PODCASTS
  • 160EPISODES
  • 1h 56mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Feb 28, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about freyr eyj

Latest podcast episodes about freyr eyj

Rauða borðið
Vikuskammtur: Vika 09

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 28, 2025 105:08


Föstudagur 28. febrúar Vikuskammtur: Vika 09 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson nemi í mannfræði, Freyr Eyjólfsson öskukarl, Theódóra Björk Guðjónsdóttir nemi í félagsráðgjöf og Halldór Auðar Svansson fyrrverandi borgarfulltrúi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af viðbrögðum við stefnu Donald Trump, nýjum meirihluta í Reykjavík, samningum kennara, hugmyndum um her og mörgu öðru.

Rauða borðið
Rauða borðið 1. okt - Þriðja heimsstyrjöldin, vistkrísa, borgarlína, Elskuleg og karlar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 1, 2024 294:33


Þriðjudagurinn 1. október Þriðja heimstyrjöldin, vistkrísa, borgarlína, Elskuleg og karlar Tjörvi Schiöth doktorsnemi segir okkur frá innrás Ísraelshers í Líbanon og veikri vígstöðu Úkraínuhers, sem hvort tveggja getur leitt til þriðju heimstyrjöldinni. Heldri eldhugar og fulltrúar eldri aðgerðarsinna Aldins, þeir Stefán Jón Hafstein og Árni Bragason koma að Rauða borðinu og varða veg úr vistkrísunni með alvöru aðgerðaráætlun í raunhæfri bjartsýni. Þórarinn Hjaltason samgönguverkfræðingur er í hópi skeptískra er kemur að Borgarlínu. Hann segir að Borgarlínan hafi þegar kostað höfuðborgarbúa mikið. Vera Wonder Sölvadóttir leikstjóri, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Vilborg Halldórsdóttir leikkona og Helga Rakel Rafnsdóttir leikstjóri ræða Elskuleg, mynd Lilju Ingólfsdóttir, sem fjallar um konur og skilnaði. Annar kafli í karlaspjallinu fjallar um seka karlinn. Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur leiðir samtal um karlmennsku. Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur, Reinhold Richter eftirlaunamaður og Freyr Eyjólfsson öskukarl svara og segja frá.

stef hann rau annar bragason hafstein hjaltason borgarl freyr eyj
Sterk saman
#102 Freyr Eyjólfs

Sterk saman

Play Episode Listen Later May 19, 2024 65:36


Freyr er fimmtugur eiginmaður og faðir sem hefur mikið unnið við fjölmiðla í gegnum tíðina. Við ræðum söguna hans og almennt um lífið.

freyr freyr eyj
Rauða borðið
Vikuskammtur - Vika 18

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 3, 2024 92:16


Föstudagur, 3. mai Vikuskammtur - Vika 18 Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Freyr Eyjólfsson tónlistarmaður, Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem voru litaðar af mikilli umfjöllun um forsetakosningar og lítilli um Júróvision, af deilum um hver ætti að eiga firðina, af landrisi á Reykjanesi og pólitísku sigi Vg.

Rokkland
Reggíland

Rokkland

Play Episode Listen Later Feb 25, 2024 107:39


Rokkland verður Reggíland á sunnudaginn kemur, en þátturinn verður tileinkaður gosögninni Bob Marley; tónlist hans og arfleið. Freyr Eyjólfsson leysir Óla Palla af og fer yfir sögu þessa áhrifaríka listamanns og ræðir við Kidda í Hjálmum. Bob Marley í Rokklandi á sunnudag klukkan 16:00.

Rauða borðið
Vikuskammtur: Vika 04

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 28, 2024 88:04


Föstudagurinn 26. janúar Vikuskammtur: Vika 04 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Birgir Þórarinsson aka Biggi veira tónlistamaður, Esther Bíbí Ásgeirsdóttir tónlistarkona, Freyr Eyjólfsson upplýsingafulltrúi og Karen Kjartansdóttir almannatengill og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af jarðhræringum, skjálfta í stjórnmálum, óvæntum tíðindum, deilum, stríði og vonbrigðum.

rau vika biggi birgir esther b freyr eyj
Rauða borðið
Vikuskammtur: Vika 38

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 22, 2023 77:01


Föstudagurinn 22. september Vikuskammtur: Vika 38 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Freyr Eyjólfsson upplýsingafulltrúi, Ingibjörg Magnadóttir myndlistarkona, María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari og Stefán Pálsson sagnfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af menningarstríði og allskyns deilum.

Mannlegi þátturinn
Freyr Eyjólfs föstudagsgestur og matarspjall um afganga

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 19, 2023


Freyr Eyjólfsson er maður margra hatta eins og sagt er. Hann er auðvitað fyrrverandi útvarpsmaður en einnig skemmtikraftur, tónlistarmaður og nú síðari ár kallar hann sig Hringrásarsérfræðing, þ.e.a.s. hann er verkefnastjóri í hringrásarhagkerfi Sorpu. Freyr er tiltölulega nýfluttur aftur heim, hann bjó í Frakklandi og Bandaríkjunum og hann hafði frá mörgu að segja. Við forvitnuðumst um líf og störf Freys í þættinum enda var hann föstudagsgestur þáttarins þessa vikuna. Auk þess sagði Freyr okkur frá nýjum sjónvarpsþáttum í þáttaröðinni Missir þar sem umfjöllunarefnið er dauðinn, sem óumflýjanlega verða líka hugleiðingar um lífið og hvað skiptir mestu máli. Í matarspjallinu fengum við svo föstudagsgestinn Frey til að sitja áfram. Hann ræddi meðal annars um að elda úr afgöngum og hvernig lostæti er hægt að galdra fram úr afgöngum, auk þess sem hann fræddi okkur um franskan mat og uppáhaldsmatinn sinn. Tónlist í þættinum í dag: Flugvélar / Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Jón Ólafsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson) Elmar Hrafn / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason) Lyngbrekkan / Freyjólfur (Freyr Eyjólfsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Freyr Eyjólfs föstudagsgestur og matarspjall um afganga

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 19, 2023 50:00


Freyr Eyjólfsson er maður margra hatta eins og sagt er. Hann er auðvitað fyrrverandi útvarpsmaður en einnig skemmtikraftur, tónlistarmaður og nú síðari ár kallar hann sig Hringrásarsérfræðing, þ.e.a.s. hann er verkefnastjóri í hringrásarhagkerfi Sorpu. Freyr er tiltölulega nýfluttur aftur heim, hann bjó í Frakklandi og Bandaríkjunum og hann hafði frá mörgu að segja. Við forvitnuðumst um líf og störf Freys í þættinum enda var hann föstudagsgestur þáttarins þessa vikuna. Auk þess sagði Freyr okkur frá nýjum sjónvarpsþáttum í þáttaröðinni Missir þar sem umfjöllunarefnið er dauðinn, sem óumflýjanlega verða líka hugleiðingar um lífið og hvað skiptir mestu máli. Í matarspjallinu fengum við svo föstudagsgestinn Frey til að sitja áfram. Hann ræddi meðal annars um að elda úr afgöngum og hvernig lostæti er hægt að galdra fram úr afgöngum, auk þess sem hann fræddi okkur um franskan mat og uppáhaldsmatinn sinn. Tónlist í þættinum í dag: Flugvélar / Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Jón Ólafsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson) Elmar Hrafn / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason) Lyngbrekkan / Freyjólfur (Freyr Eyjólfsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Nei hættu nú alveg
#349 - Freyr Eyjólfsson og Júlía Margrét Einarsdóttir

Nei hættu nú alveg

Play Episode Listen Later Apr 7, 2023 76:09


Undarlegt athæfi á einhjóli, svefnvenjur Breta og matarvenjur Bandaríkjamanna.

Heilahristingur
Tónlistarhérinn - Fyrsti þáttur

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Apr 6, 2023


Þessa páskana verður Tónlistarhérinn í loftinu á Rás 2. Átta lið etja kappi í fjórum skemmtilegum viðureignum og reyna að verða Tónlistarhérinn. Við leggjum ýmsar tónlistarþrautir fyrir liðin, þau geta meðal annars valið sér þemu eða flytjanda úr ýmsum áttum og á 90 sekúndum reyna þau við lagalista úr þemanu þar sem þau eiga að hafa upp á sem flestum titlum eða flytjendum áður en bjallan glymur. Jóhann Alfreð og Lovísa Rut spyrja spurninga og þeim til halds og trausts er Atli Már sem sérlegur bjöllu-, tíma- og stemmningsvörður. Hlustendur geta að sjálfsögðu spreytt sig með og reynt að finna sinn eigin tónlistarhéra! Í þætti dagsins mæta Reiðmenn eldingarinnar, þau Birna Rún Eiríksdóttir og Freyr Eyjólfsson liði Emeraldanna, þeim Villa Nagbít og Völu Eiríksdóttur í stórskemmtilegri viðureign.

Lestin
Kreppukvenhetjur, Á ferð með mömmu, arkitektar að heiman

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 7, 2023 56:32


Við hefjum þáttinn á því að huga að íslenskum arkítektúr en höldum samt út í heim. Fjöldi íslenskra arkitekta hafa getið sér gott orð erlendis fyrir framúrskarandi hönnun og húsagerðarlist. Í nýjum þáttum í sjónvarpi Símans, Að heiman, heimsækir Freyr Eyjólfsson fjölmiðlamaður valda íslenska arkítekta víðsvegar í heiminum, spjallar við þau, virðir fyrir sér byggingar þeirra og þau velta fyrir sér stílum, áherslum og áskorunum, ekki síst áskorunum framtíðar. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndarýnir Lestarinnar fór að sjá myndina Á ferð með mömmu. Á ferð með mömmu er samkvæmt Kolbeini vegamynd með þurran húmor sem heldur í gegn og dregur fram nostalgíu á sannfærandi hátt. Við veltum fyrir okkur íslenskum hrunbókmenntum og kreppukvenhetjum. Á föstudag og laugardag fer fram hugvísindaþing Háskóla Íslands. Dagskráin er fjölbreytt í ár og á föstudaginn verður málstofa haldin í Árnagarði þar sem hetjur í samtímabókmenntum verða skoðaðar. Rósa Hjörvar og Gunnþórunn Guðmundsdóttir flytja þar erindi ásamt Veru Knútsdóttur, bókmenntafræðingi sem sagði okkur frá kreppukvenhetjum.

Lestin
Kreppukvenhetjur, Á ferð með mömmu, arkitektar að heiman

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 7, 2023


Við hefjum þáttinn á því að huga að íslenskum arkítektúr en höldum samt út í heim. Fjöldi íslenskra arkitekta hafa getið sér gott orð erlendis fyrir framúrskarandi hönnun og húsagerðarlist. Í nýjum þáttum í sjónvarpi Símans, Að heiman, heimsækir Freyr Eyjólfsson fjölmiðlamaður valda íslenska arkítekta víðsvegar í heiminum, spjallar við þau, virðir fyrir sér byggingar þeirra og þau velta fyrir sér stílum, áherslum og áskorunum, ekki síst áskorunum framtíðar. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndarýnir Lestarinnar fór að sjá myndina Á ferð með mömmu. Á ferð með mömmu er samkvæmt Kolbeini vegamynd með þurran húmor sem heldur í gegn og dregur fram nostalgíu á sannfærandi hátt. Við veltum fyrir okkur íslenskum hrunbókmenntum og kreppukvenhetjum. Á föstudag og laugardag fer fram hugvísindaþing Háskóla Íslands. Dagskráin er fjölbreytt í ár og á föstudaginn verður málstofa haldin í Árnagarði þar sem hetjur í samtímabókmenntum verða skoðaðar. Rósa Hjörvar og Gunnþórunn Guðmundsdóttir flytja þar erindi ásamt Veru Knútsdóttur, bókmenntafræðingi sem sagði okkur frá kreppukvenhetjum.

Morgunútvarpið
31. ágúst - Mávar, Lilja Alfreðsdóttir og bráðnun jökla

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 31, 2022


Skyndilegur missir ástvina getur haft mikil og langvarandi áhrif á þau sem eftir standa en rætt verður um sorgarviðbrögð og óvæntan missi á ráðstefnu sem fer fram í dag í húsakynnum íslenskrar erfðagreiningar. Þau komu til að segja okkur frá viðfangsefnum sorgarinnar, Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir fagstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni og Freyr Eyjólfsson fjölmiðlamaður sem verður fundarstjóri á ráðstefnunni. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu um að gripið verði til aðgerða til að koma böndum á máva í borginni. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem fór fyrir tillögunni, sagði í kvöldfréttum að mávurinn hafi slæm áhrif á dýralífið í miðborginni - en það eru ekki öll sammála um hvernig eigi að nálgast þetta mál. Við ræddum við Kjartan og Alexöndru Briem, sem fer fyrir skipulags- og samgönguráði borginnar. Stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri ákvað á dögunum að frysta leiguverð á stúdentaíbúðum og herbergjum og koma þannig til móts við stúdenta. Félagsstofnun Stúdenta við Háskóla Íslands ætlar hins vegar ekki að frysta leiguverðið. Við ræddum við Guðrúnu Björnsdóttur, framkvæmdastjóra FS, um þá ákvörðun. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra var gestur okkar upp úr klukkan átta í dag til að svara fyrir þær ráðningar og skipanir sem hún hefur ráðist í að undanförnu og sæta nú mikilli gagnrýni. Nokkuð hefur verið rætt um áhrif þeirra efnahags- og viðskiptaþvingana sem beinast að Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu síðustu vikur. Verðbólga í Rússlandi hefur hjaðnað undanfarna mánuði og gengu rússnesku rúblunnar styrktist verulega í sumar - sem er þó vitaskuld bæði gott og slæmt. Sömuleiðis virðast hinar svokölluðu BRICS-þjóðir, Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka ætla að standa nokkuð þétt saman efnahagslega séð. Við ræddum efnahagsmálin við Daða Má Kristófersson, prófessor í hagfræði. Nýjustu rannsóknir á hopun Grænlandsjökuls bæta gráu ofan á svart við þá sviðsmynd sem áður var talið að rætast myndi úr. Nú segja vísindamenn að bráðnun jökulsins muni óhjákvæmilega hækka sjávarmál um 30 sentimetra - að öllum líkindum fyrir næstu aldamót. Við ræddum þessa spá við Andra Gunnarsson formann jöklarannsóknafélags Íslands.

Morgunútvarpið
31. ágúst - Mávar, Lilja Alfreðsdóttir og bráðnun jökla

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 31, 2022


Skyndilegur missir ástvina getur haft mikil og langvarandi áhrif á þau sem eftir standa en rætt verður um sorgarviðbrögð og óvæntan missi á ráðstefnu sem fer fram í dag í húsakynnum íslenskrar erfðagreiningar. Þau komu til að segja okkur frá viðfangsefnum sorgarinnar, Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir fagstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni og Freyr Eyjólfsson fjölmiðlamaður sem verður fundarstjóri á ráðstefnunni. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu um að gripið verði til aðgerða til að koma böndum á máva í borginni. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem fór fyrir tillögunni, sagði í kvöldfréttum að mávurinn hafi slæm áhrif á dýralífið í miðborginni - en það eru ekki öll sammála um hvernig eigi að nálgast þetta mál. Við ræddum við Kjartan og Alexöndru Briem, sem fer fyrir skipulags- og samgönguráði borginnar. Stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri ákvað á dögunum að frysta leiguverð á stúdentaíbúðum og herbergjum og koma þannig til móts við stúdenta. Félagsstofnun Stúdenta við Háskóla Íslands ætlar hins vegar ekki að frysta leiguverðið. Við ræddum við Guðrúnu Björnsdóttur, framkvæmdastjóra FS, um þá ákvörðun. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra var gestur okkar upp úr klukkan átta í dag til að svara fyrir þær ráðningar og skipanir sem hún hefur ráðist í að undanförnu og sæta nú mikilli gagnrýni. Nokkuð hefur verið rætt um áhrif þeirra efnahags- og viðskiptaþvingana sem beinast að Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu síðustu vikur. Verðbólga í Rússlandi hefur hjaðnað undanfarna mánuði og gengu rússnesku rúblunnar styrktist verulega í sumar - sem er þó vitaskuld bæði gott og slæmt. Sömuleiðis virðast hinar svokölluðu BRICS-þjóðir, Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka ætla að standa nokkuð þétt saman efnahagslega séð. Við ræddum efnahagsmálin við Daða Má Kristófersson, prófessor í hagfræði. Nýjustu rannsóknir á hopun Grænlandsjökuls bæta gráu ofan á svart við þá sviðsmynd sem áður var talið að rætast myndi úr. Nú segja vísindamenn að bráðnun jökulsins muni óhjákvæmilega hækka sjávarmál um 30 sentimetra - að öllum líkindum fyrir næstu aldamót. Við ræddum þessa spá við Andra Gunnarsson formann jöklarannsóknafélags Íslands.

Morgunútvarpið
31. ágúst - Mávar, Lilja Alfreðsdóttir og bráðnun jökla

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 31, 2022 130:00


Skyndilegur missir ástvina getur haft mikil og langvarandi áhrif á þau sem eftir standa en rætt verður um sorgarviðbrögð og óvæntan missi á ráðstefnu sem fer fram í dag í húsakynnum íslenskrar erfðagreiningar. Þau komu til að segja okkur frá viðfangsefnum sorgarinnar, Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir fagstjóri hjá Sorgarmiðstöðinni og Freyr Eyjólfsson fjölmiðlamaður sem verður fundarstjóri á ráðstefnunni. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu um að gripið verði til aðgerða til að koma böndum á máva í borginni. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem fór fyrir tillögunni, sagði í kvöldfréttum að mávurinn hafi slæm áhrif á dýralífið í miðborginni - en það eru ekki öll sammála um hvernig eigi að nálgast þetta mál. Við ræddum við Kjartan og Alexöndru Briem, sem fer fyrir skipulags- og samgönguráði borginnar. Stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri ákvað á dögunum að frysta leiguverð á stúdentaíbúðum og herbergjum og koma þannig til móts við stúdenta. Félagsstofnun Stúdenta við Háskóla Íslands ætlar hins vegar ekki að frysta leiguverðið. Við ræddum við Guðrúnu Björnsdóttur, framkvæmdastjóra FS, um þá ákvörðun. Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra var gestur okkar upp úr klukkan átta í dag til að svara fyrir þær ráðningar og skipanir sem hún hefur ráðist í að undanförnu og sæta nú mikilli gagnrýni. Nokkuð hefur verið rætt um áhrif þeirra efnahags- og viðskiptaþvingana sem beinast að Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu síðustu vikur. Verðbólga í Rússlandi hefur hjaðnað undanfarna mánuði og gengu rússnesku rúblunnar styrktist verulega í sumar - sem er þó vitaskuld bæði gott og slæmt. Sömuleiðis virðast hinar svokölluðu BRICS-þjóðir, Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka ætla að standa nokkuð þétt saman efnahagslega séð. Við ræddum efnahagsmálin við Daða Má Kristófersson, prófessor í hagfræði. Nýjustu rannsóknir á hopun Grænlandsjökuls bæta gráu ofan á svart við þá sviðsmynd sem áður var talið að rætast myndi úr. Nú segja vísindamenn að bráðnun jökulsins muni óhjákvæmilega hækka sjávarmál um 30 sentimetra - að öllum líkindum fyrir næstu aldamót. Við ræddum þessa spá við Andra Gunnarsson formann jöklarannsóknafélags Íslands.

Rokkland
Úlfur Eldjárn

Rokkland

Play Episode Listen Later Aug 14, 2022


Galdurinn á bak við góða kvikmynda- og leikhústónlist, tilraunir og flipp í rokki, orgelnördismi, gleði og sorg. Úlfur Eldjárn er gestur Rokklands og fer með okkur á flakk hingað og þangað. Umsjón: Freyr Eyjólfsson.

umsj eldj freyr eyj
Rokkland
Úlfur Eldjárn

Rokkland

Play Episode Listen Later Aug 14, 2022 115:00


Galdurinn á bak við góða kvikmynda- og leikhústónlist, tilraunir og flipp í rokki, orgelnördismi, gleði og sorg. Úlfur Eldjárn er gestur Rokklands og fer með okkur á flakk hingað og þangað. Umsjón: Freyr Eyjólfsson.

umsj eldj freyr eyj
Rokkland
Úlfur Eldjárn

Rokkland

Play Episode Listen Later Aug 14, 2022


Galdurinn á bak við góða kvikmynda- og leikhústónlist, tilraunir og flipp í rokki, orgelnördismi, gleði og sorg. Úlfur Eldjárn er gestur Rokklands og fer með okkur á flakk hingað og þangað. Umsjón: Freyr Eyjólfsson.

umsj eldj freyr eyj
Rokkland
Brimbrettarokk

Rokkland

Play Episode Listen Later Aug 2, 2022 110:00


Saga brimbrettarokksins og hvernig þessi tónlist fór um heiminn, breytti rokkinu, gíturum og allskonar græjum. Svo gleymdist brimbrettarokkið en reis upp aftur. Umsjón: Freyr Eyjólfsson.

saga svo umsj freyr eyj
Rokkland
Brimbrettarokk

Rokkland

Play Episode Listen Later Aug 2, 2022


Saga brimbrettarokksins og hvernig þessi tónlist fór um heiminn, breytti rokkinu, gíturum og allskonar græjum. Svo gleymdist brimbrettarokkið en reis upp aftur. Umsjón: Freyr Eyjólfsson.

saga svo umsj freyr eyj
Rokkland
Brimbrettarokk

Rokkland

Play Episode Listen Later Aug 2, 2022


Saga brimbrettarokksins og hvernig þessi tónlist fór um heiminn, breytti rokkinu, gíturum og allskonar græjum. Svo gleymdist brimbrettarokkið en reis upp aftur. Umsjón: Freyr Eyjólfsson.

saga svo umsj freyr eyj
Samfélagið
Smáforrit fyrir heimilishald, ófaglærð störf og hringrásarjólahald

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 2, 2021 55:00


Alma Dóra Ríkarðsdóttir og Sigurlaug Guðrún Jóhannesdóttir, stofnuðu fyrirtækið Heima sem vinnur nú að gerð apps sem aðstoðar fólk við að skipuleggja heimilishaldið. Mikill áhugi er forritinu sem meðal annars hjálpar fjölskyldum að jafna ábyrgðina á heimilisstörfum og að deila hugrænni byrði heimilishaldsins. Fimmhundruð manns eru á biðlista hjá nýsköpunarfyrirtækinu sem er að hanna það. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Prófessor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands: Spáð er að ófaglærðum störfum muni fækka mjög á komandi árum. Guðbjörg hefur rannsakaða stöðu ungs fólks sem stundar slík störf og fór yfir niðurstöður rannsóknarinnar með okkur. Guðmundur Tryggvi Ólafsson rekstrarstjóri endurvinnslustöðva SORPU og Freyr Eyjólfsson Þróunarstjóri hringrásarhagkerfisins: Rætt um um hringrásarhagkerfi og enduvinnslu í aðdraganda jólanna, en mikið er unnið að því að skapa vettvang til að auka endurnotkun - og til dæmis verður skiptimarkaður með Jólaskraut um helgina.

Morgunútvarpið
23. sept. - Bálfarafélag, málfar, Dýrið, sóttvarnir og missir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 23, 2021 130:00


Til stendur að endurvekja hið 87 ára gamla Bálfarafélag Íslands til að styðja við opnun óháðrar og umhverfisvænnar bálstofu sem fyrirhugað er að rísi í Garðabæ. Aðeins ein bálstofa er í landinu en Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastdæma reka hana í Fossvogi. Af þessu tilefni verður kynningarfundur í dag, en mikilvægt er að fá aðkomu almennings og stuðning við verkefnið segja aðstandendur. Við fengum Sigríði Bylgju Sigurjónsdóttur formann félagsins til okkar. Við ræðum íslenskt mál við Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunaut í vikulegu málfarsspjalli okkar og þar verða kosningar okkur hugleiknar. Íslenska kvikmyndin Dýrið verður frumsýnd á morgun hér á landi, en hún hefur þegar vakið mikla athygli og hlaut m.a. frumleikaverðlaunin svokölluðu á kvikmyndahátíðinn í Cannes. Myndin var forsýnd í fyrrakvöld og við fengum leikstjórann Valdimar Jóhannsson til okkar og heyrðum af viðtökunum og forvitnuðumst um þessa áhugaverðu kvikmynd sem ku vera einhvers konar blanda af sveitarómantík, hryllingi og þjóðsagnaminnum.... eða hvað? Alþingiskosningar eru fram undan um helgina og flokkarnir keppast við að bjóða kjósendur velkomna á kosningaskrifstofur sínar. Svo eru það kosningavökurnar, jafnt á vegum flokkanna sem annarra. Svo eru fjölmennir íþróttaviðburðir og fögnuðir á dagskrá líka. Við fengum Víði Reynisson yfirlögregluþjón hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra til að fara yfir núgildandi sóttvarnarreglur með okkur og gefa góð ráð um ábyrga hegðun í þessu samhengi. Hvað má og hvað má ekki í kosninga- og knattspyrnugleði helgarinnar? Fæstir fara í gegnum lífið án þess að upplifa sorg af einhverju tagi. Við missum fólk, söknum og syrgjum. Sjónvarpsþættirnir Missir hefjast í Sjónvarpi Símans í kvöld, en þar hittir Freyr Eyjólfsson fyrir fólk sem hefur gengið í gegnum sorg og missi. Lært að lifa með sorginni, unnið sig í gegnum áfallið og eignast gott og hamingjusamt líf. Þær Eva Dís Þórðardóttir, hugmyndasmiður þáttanna, og Ína Lóa Sigurðardóttir frá Sorgarmiðstöðinni komu til okkar og sögðu okkur meira. Tónlist: Sváfnir Sig - Fer sem fer. Dire Straits - Ticket to heaven. Rakel, Ceasetone og JóiPé - Ég var að spá. The Weeknd - Take my breath. Grafík - Presley. Lana Del Ray - Tulsa Jesus Freak. Joe Jackson - Steppin out. Krummi - Frozen teardrops. Lizzo og Cardi B. - Rumors.

Heilahristingur
Tónlistarhristingur - Undanúrslit

Heilahristingur

Play Episode Listen Later Mar 21, 2021


Keppnin fer að að harðna í Tónlistahristingnum. Í dag mætast í undanúrslitum lið Geirfuglanna, sem mynda þeir Freyr Eyjólfsson og Ragnar Helgi Ólafsson, liði heimafólks á Rás 2, þeim Andra Frey Viðarssyni og Huldu Geirsdóttur.

undan freyr eyj ragnar helgi
Morgunútvarpið
13. mars - Heilar, hlaðvarp, söfnun, fréttaspjall og Straumar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Mar 12, 2021 130:00


Karl Ægir Karlsson, prófessor við verkfræðideild HR, kom til okkar en hann er meðal höfunda að alþjóðlegri vísindagrein þar sem reynt er að svara því af hverju hvalir séu með svona stóran heila. Hvalir og höfrungar eru með allt að sex sinnum stærri heila en menn og sumir eru á því að þetta þýði að dýrin búi yfir svipaðri andlegri getu og við mennirnir en í þessari vísindagrein eru færð rök fyrir því að stórir heilar hvala hafi þróast til að mynda hita. Afstaða, félag fanga og annara áhugamanna um bætt fanglesismál og betrun, hafa hafið birtingar á hlaðvarps- og fræðsluþáttum félagsins en þar verður rætt um ýmis málefni sem tengjast föngum, réttindum þeirra og fengelsun. Formaður Afstöðu, Guðmundur Ingi Þóroddsson mætti í hljóðver. Eins og landsmönnum er flestum kunnugt fór Tækniminjasafn Austurlands illa í skriðuföllunum á Seyðisfirði í desember. Meirihluti húsnæðis safnsins er ónýtur og unnið er að því að bjarga þeim minjum sem hægt er. Til að bregðast við þessu hefur hópfjármögnunarátak verið í gangi hjá Karolinafund og aðstandendur safnsins segjast hvergi af baki dottinn. Við hringdum austur og heyrðum í Elfu Hlín Sigrúnar Pétursdóttur sem veit meira. Við fórum yfir fréttir vikunnar með þeim Andrési Jónssyni, almannatengli og Sunnu Kristínu Hilmarsdóttur, blaðamanni. Á laugardag hefja göngu sína nýir tónlistar- og skemmtiþættir í Sjónvarpinu sem bera nafnið Straumar og fjalla um strauma og stefnur í tónlist og tíðaranda hérlendis og erlendis á síðastliðnum áratugum. Umsjónarmenn þáttanna eru þau Björg Magnúsdóttir og Freyr Eyjólfsson og tónlistarstjóri er Guðmundur Óskar Guðmundsson, en í þættinum flytja frambærilegustu söngvarar landsins sínar útgáfur af lögum frá tímabilunum. Fyrsti þáttur Strauma fjallar um Eurovision-keppnirnar í áranna rás og þar verður Eurovisionlag Daða Freys, 10 years flutt. Við fengum þau Björg og Frey til okkar. Tónlist: Emilíana Torrini - Perlur og svín Gugusar og Auður - Frosið sólarlag Rick Springfield - Jessie's girl Stuðmenn - Popplag í G ABC - Be near me Jón Jónsson og GDRN - Ef ástin er hrein

Samfélagið
Hringrásarhagkerfið. Sjávarakademían. Vísindaspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Aug 31, 2020 55:00


Freyr Eyjólfsson, Terra: Innleiðing hringrásarhagkerfisins í Ástralíu. Sara Björk Guðmundsdóttir verkefnisstjóri Húsi sjávarklasans: Sjávarklasinn í samvinnu við Fisktækniskólann býður nú upp á nýtt nám við Sjávarakademíuna. Edda Olgudóttir: Í vísindaspjalli dagsins fjallar Edda um heilraðgreiningu á HIV-veirunni.

Segðu mér
Freyr Eyjólfsson

Segðu mér

Play Episode Listen Later Apr 22, 2020 39:29


„Þetta markar mann alltaf held ég. Mjög djúpur sársauki en dýpkar mann að einhverju leyti,“ segir Freyr Eyjólfsson. Hann og Hólmfríður Anna Baldursdóttir eiginkona hans urðu fyrir þeirri sáru lífsreynslu að missa barn undir lok meðgöngu. Freyr er nýfluttur aftur til Íslands ásamt fjölskyldu sinni eftir margra ára dvöl erlendis. Hann var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í Segðu mér. „Ég held að þú búir til sjálfan þig,“ segir Freyr þegar hann er spurður hvort hann hafi einhvern tímann fundið sig, eða gert tilraun til þess. „Með gjörðum og orðum. Ég er ekkert mikið fyrir svona heimspekiþrugl um að finna sjálfan sig,“ segir Freyr sem hefur meðal annars verið fréttamaður, tónlistarmaður, heimavinnandi húsfaðir og nú endurvinnslutalsmaður svo fátt eitt sé nefnt.

mj hann freyr freyr eyj
Morgunvaktin
Tveir aldnir höfðingjar eftir hjá Demókrötum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 4, 2020 130:00


Útlit er fyrir að baráttan um útnefningu Demókrataflokksins til forseta Bandaríkjanna standi milli Joe Biden og Bernei Sanders. Freyr Eyjólfsson fór yfir stöðu mála. Netanjahú forsætisráðherra lýsti sig sigurvegara í þingkosningunum í Ísrael á mánudag. Þetta voru þriðju kosningarnar í landinu á innan við ári. Netanjahú fer fyrir dóm síðar í mánuðinum, hann er sakaður um mútuþægni og fjársvik. Starfshópur á vegum sjávarútvegsráðherra leggur til nýjar leiðir við úthlutun aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir. Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri fór fyrir starfshópnum. Ágúst Ólafsson fréttamaður ræddi við Þórodd. Tónlist: Massachusetts - BeeGees.

Mannlegi þátturinn
Arfgengi svefntruflana, hringrásarhagkerfið og næring eldri borgara

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 27, 2020 55:00


Ný rannsókn bendir til þess að svefnleysi og svefntruflanir séu arfgengar. Þeir sem eiga erfitt með svefn eru sem sagt líklegri en aðrir til að eiga foreldra sem hafa glímt við sömu svefntruflanir. Meðal tólf höfunda greinar sem birt var í fagtímaritinu Sleep Medicine eru tveir íslenskir læknar, hjónin Þórarinn Gísalson og Bryndís Benediktsdóttir. Þau hafa um árabil veið í forystu í svefnrannsóknum hér á landi og hafa tekið þátt í fjölda alþjóðlegra rannsókna. Bryndís kom í þáttinn í dag og segir okkur frekar frá arfgengi svefntruflana og þessum niðurstöðum. Freyr Eyjólfsson, sem var lengi vel útvarpsmaður hér á RÚV, hefur hafið störf sem samskiptastjóri hjá Terra umhverfisþjónustu hf. Terra hefur starfað við flokkun og endurvinnslu efna frá árinu 1984 og vinnur með fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum í endurvinnslu og umhverfisvænni úrgangsstjórnun með áherslu á að skilja ekkert eftir, að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið. Við fengum Frey til að segja okkur frekar frá þessu nýja starfi sínu og hringrásarhagkerfinu í þættinum. Þegar við eldumst minnkar dagleg þörf okkar fyrir hitaeiningar. Á hverjum áratug eftir miðjan aldur minnkar orkuþörf karla um 160 hitaeiningar, en kvenna um 100 hitaeiningar. Hundrað hitaeiningar er kannski ekki mikið, en ef fólk heldur áfram að borða jafn mikið og áður þyngist það smátt og smátt. Fólk um sjötugt hefur svipaða orkuþörf og 7-11 ára barn. Þetta segir Ingibjörg Gunnarsdóttir næringarfræðingur á LSH, en hún flutti nýlega fyrirlestur um næringu eldra fólks á starfslokanámskeiði spítalans. Ingibjörg kom í þáttinn í dag. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Morgunútvarpið
25. feb. - Hringrásarhagkerfi, veiran, stjórnendur, loðna og vísindi

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Feb 25, 2020 130:00


Freyr Eyjólfsson, samskiptastjóri Terra, kom til okkar og sagði okkur frá því hvernig Íslendingar geti orðið fyrirmyndarríki þegar kemur að umhverfisvænum lausnum og leiðum. En ef það á að innleiða hringrásarhagkerfi þurfi stórátak til. Við slógum á þráðinn til Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnarlæknis, en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir að nú þurfi heimsbyggðin að undirbúa sig undir heimsfaraldur vegna nýju kórónaveirunnar, COVID 19. Veiran er nú farin að breiðast hraðar út til landa utan Kína, t.d. á Ítalíu, Íran og Suður Kóreu þar sem búið er að grípa til umtalsverðra ráðstafana vegna þess. Gjá er á milli þeirra sem teljast meðalgóðir stjórnendur og þeirra sem teljast framúrskarandi. Þetta segir Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri FranklinCovey, sem gerði könnun meðal stjórnenda á viðhorfum og hegðun meðalgóðra stjórnenda og þeirra sem teljast framúrskarandi. Hún heimsótti okkur. Í gær bárust fréttir af því að loðna hefði fundist í þéttum torfum suður af Papey en óvíst er hvort magnið sé nægjanlega mikið til þess að hægt sé að hefja veiðar. Loðnubrestur, annað árið í röð, yrði töluvert högg fyrir samfélagið og ekki síst þau byggðarlög og fyrirtæki sem reiða sig mikið á hana. Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, var á línunni. Sævar Helgi Bragason mætti í vísindahornið sitt.

covid-19 gu gj franklincovey sindi freyr eyj helgi bragason
Morgunvaktin
400 manns á mánuði í endurhæfingu eftir krabbamein

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 22, 2020 130:00


Hvað segir lesefnið um lesandann? Og hvað segir listinn yfir vinsælustu bækurnar á borgarbókasafni New York borgar síðustu 125 ár um íbúa stórborgarinnar? Freyr Eyjólfsson skrapp á bókasafnið við fimmta breiðstræti á Manhattan á dögunum og kannaði hvaða bækur New York-búar hafa helst fengið lánaðar í gegnum árin. Ljósið sinnir endurhæfingar- og stuðningsþjónustu við fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þeirra. Í byrjun janúar var tilkynnt að gerður hefði verið samningur við Sjúkratryggingar Íslands um endurhæfingarþjónustu, sem markar mikil tímamót í starfseminni. Erna Magnúsdóttir, stofnandi og forstöðumaður Ljóssins, ræddi um Ljósið, sem mun fagna fimmtán ára starfsafmæli í haust. „Ríkasta kona Afríku auðgaðist á arðráni og spillingu.“ Nokkurnveginn svona hljóðuðu fyrirsagnir víða um heim um helgina, eftir að alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna birtu greinar byggðar á svonefndum „Lúanda-leka“: gríðarstórum gagnaleka um auðsöfnun Isabel dos Santos, kaupsýslukonu og dóttur fyrrverandi forseta Angóla. Vera Illugadóttir sagði okkur frá viðskiptaveldi hennar. Í ljós hefur komið að raflínur víða um land virðast ekki tilbúnar til að mæta miklum vetrarveðrum, eins og storminum mikla sem gekk yfir landið í desember. Mjög víða varð rafmagnslaust í langan tíma, staurar brotnuðu og línur gáfu sig vegna ísingar og hvassviðris. Sveitarfélög hafa nú mörg hver krafist þess að þessum raflínum verði komið í jörð og gamlar loftlínur verði lagðar af. Ágúst Ólafsson ræddi við Snorra Finnlaugsson, sveitarstjóra í Hörgársveit, en þar varð rafmagnslaust fjóra sólarhringa í desember og krefst sveitarstjórn aðgerða af hálfu RARIK og Landsnets. Tónlist: Somebody to Love - Queen

new york manhattan santos mj sj ang hva lj afr manns eftir freyr eyj vera illugad sveitarf landsnets
Morgunvaktin
Neyðarúrræði fyrir þolendur ofbeldis á Akureyri vantar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 8, 2020 130:00


Íranir hefndu fyrir morðið á hershöfðingjanum Soleimani með flugskeytum á hernaðarmannvirki Bandaríkjanna í Írak. Freyr Eyjólfsson fór yfir stöðuna í Bandaríkjunum í pistli dagsins, en þar kom meðal annars fram að meirihluti Bandaríkjamanna er mótfallinn því að Trump forseti sendi hersveitir inn í Íran. Veðurstofa Íslands fagnar hundrað ára afmæli í ár. Fyrstu árin var starfsemin fremur umfangslítil en langt er síðan hún varð með mikilvægari stofnunum samfélagsins, sem reiðir sig á upplýsingar um veður. Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofunnar ræddi um söguna, starfsemina, veðrið og vatnamælingar. Það verður kosið í Taívan á laugardaginn, bæði til embættis forseta og til þingsins. Það sem helst brennur á kjósendum er sambandið við meginlandið, Alþýðulýðveldið Kína, og hvernig því skuli háttað. Margir Taívanar óttast að landið geti endað eins og Hong Kong, og það hefur aukið stuðning við sitjandi forseta. Vera Illugadóttir fjallaði um Taívan. Úlla Árdal fréttamaður á Akureyri ræddi við Sigurbjörgu Harðardóttur, verkefnisstjóra hjá Aflinu á Akureyri. Aflið eru samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Norðurlandi. Þær fóru yfir stöðu þessara mála á landsbyggðinni, en aðeins einn staður utan höfuðborgarsvæðisins er með fasta starfsemi fyrir þolendur ofbeldis. Tónlist: Suspicious Minds - Elvis Prestley

Morgunvaktin
43 verja áramótunum í Grímsey.

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 31, 2019 130:00


Í byrjun þáttar var m.a. lesið úr bók Þóru Jónsdóttur, Sólardansinn, sem kom út á árinu en í henni eru lágstemmdar örsögur eftir Þóru. Freyr Eyjólfsson flutti pistil um áramót í Bandaríkjunum og sagði m.a. frá samkomunni á Time Square á Manhattan en þar koma um tvær milljónir manna saman og kveðja gamla árið og heilsa því nýja. Anna María Sigvaldadóttir sagði frá áramótunum í Grímey en henni telst til að 43 muni verja þeim í eynni. Á bilinu sex til 30 búa í Grímsey í vetur sem er óvenjufátt og skólinn þar er ekki starfræktur. Anna María er þó bjartsýn á að áfram verði þar búið. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir það helsta í stjórnmálum og menningu í Þýskalandi á árinu í Berlínarspjalli dagsins. Í síðasta hluta þáttarins var lesið úr grein Þorvaldar Thoroddsen jarð- og landfræðings sem birtist í Andvara, tímariti Hins íslenska þjóðvinafélagsins árið 1901. Yfirskrift hennar var: "Hugleiðingar um aldamótin." Tónlist: I get along with you very well (exept sometimes) - Nina Simone. Auld Lang Syne - Guy Lombardo, Á sama tíma að ári - Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson.

Morgunvaktin
Nató gegnir enn mikilvægu hlutverki 70 árum eftir stofnun bandalagsins

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 18, 2019 130:00


Atlantshafsbandalagið gegnir enn mikilvægu hlutverki sem varnarbandalag vestrænna þjóða, segir Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra. Hann var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi stöðu Nató, en bandalagið fagnar 70 ára afmæli sínu á þessu ári. Albert segir engu að síður að Bandaríkin leggi orðið æ meiri áherslu á umsvif sín í Asíu og því hafi dregið úr umsvifum og áherslu bandarískra stjórnvalda á hlutverk Nató. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings greiðir í dag atkvæði um hvort Donald Trump, Bandaríkjaforseti, verði ákærður til embættismissis fyrir embættisglöp; hann er sakaður um tálmun og misbeitingu valds. Demókratar hafa meirihluta í fulltrúadeildinni og því má telja öruggt að ákæra verði samþykkt. Repúblikanar hafa á hinn bóginn traustan meirihluta í öldungadeildinni þar sem málinu verður án efa vísað frá. Sjálfur segir Trump ferlið vera tilraun til valdaráns og með því sé lýðræðið fótum troðið. Freyr Eyjólfsson fór yfir stöðuna á Morgunvaktinni. Veðurofsi liðinnar viku og rafmagnsleysi hafði og hefur enn mikil áhrif á Dalvík og nágrenni. Afleiðingar óveðursins eru margvíslegar og hafa enn ekki komið fram að fullu. Úlla Árdal fréttamaður á Akureyri ræddi við Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar. Tónlist: Don?t know why - Norah Jones Let it snow - Dean Martin A todos um bom natal - Coro de Santo Amaro de Oeiras

Morgunvaktin
Kosið í Bretlandi í dag

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 12, 2019 130:00


Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa fylgst grannt með háhyrningskúnni Shacha sem lifir í hafinu úti fyrir Seattle. Hún er leiðtogi í sínum hópi og heldur vel utan um afkvæmi sín. Framtíð hennar og annarra háhyrninga á þessum slóðum er í óvissu vegna aðgerða mannsins; súrnunar hafsins, mengunar, skipaumferðar og fleiri þátta. Freyr Eyjólfsson sagði frá í pistli. Enn er víða ófært og rafmagnslaust á norðanverðu landinu. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, sagði frá stöðu mála þar. Rauði krossinn kom upp fjöldahjálparstöð á Hvammstanga og þangað leitaði fólk frá köldum bæjum og húsum í sveitarfélaginu. Kosið er til þings í Bretlandi í dag. Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og fór yfir stöðu flokkanna á kjördegi. Fyrir tveimur vikum var útlit fyrir að Íhaldsflokkurinn myndi vinna góðan sigur en dregið hefur saman með flokkunum síðan þá. Enn er þó útlit fyrir að Boris Johnson verði áfram forsætisráðherra. Orðabókanotkun hefur á stuttum tíma færst nánast alveg frá bókum yfir á internetið. Norræna veforðabókin ÍSLEX var opnuð fyrir almenning fyrir átta árum og í dag nota hana um 130 þúsund manns á ári. Halldóra Jónsdóttir, verkefnisstjóri við Árnastofnun, sagði frá þróuninni og möguleikunum. Tónlist: Vikivaki - Jón Páll Bjarnason, Julen ar har - Tommy Körberg og Sissel Kyrkjebö.

Morgunvaktin
Landsvirkjun stefnir að kolefnishlutleysi 2025.

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Dec 4, 2019 130:00


Í dag eru liðin 63 ár síðan stórstjörnurnar Elvis Presley, Carl Perkins, Jerry Lee Lewis og Johnny Cash hittust fyrir tilviljun í Sun-hljóðverinu í Memphis og hljóðrituðu nokkur lög. 25 árum síðar voru þau loks gefin út á plötu. Freyr Eyjólfsson rifjaði upp söguna af þessari dagstund fjórmenninganna 4. desember 1956. Landsvirkjun ætlar að verða kolefnishlutlaus árið 2025. Hörður Arnarson forstjóri sagði frá aðgerðaáætlun fyrirtækisins í þeim efnum en nú þegar hefur náðst mikill árangur í að draga úr losun. Aðgerðirnar eru þríþættar, það á að fyrirbyggja losun, draga úr losun og auka bindingu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra snæddi í gær kvöldverð í Downingstræti 10, bústað forsætisráðherra Bretlands, ásamt leiðtogum annarra Nató-ríkja. Af því tilefni stiklaði Vera Illugadóttir á stóru í langri og merkri sögu þessa kunna húss sem fyrir margt löngu var talið orðið svo táknrænt fyrir Bretland og forsætisráðherraembættið að horfið var frá hugmyndum um að rífa það. Ekki stendur til að ráðast í framkvæmdir á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum á næstu árum. Við það eru margir ósáttir enda illgjörningur að fá erlend flugfélög til að fljúga þangað meðan aðstaðan er ekki betri en raunin er. Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður á Akureyri, ræddi þessi mál við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á Akureyri, þá Steingrím Birgisson, forstjóra Bílaleigu Akureyrar, og Þorvald Lúðvík Sigurjónsson, eiganda útsýnisflugfélagsins Circle Air. Tónlist: Just a Litttle Talk With Jesus - Elvis Presley, Lullaby of birdland - Ted Heath, Dead Flowers - Rolling Stones.

Morgunvaktin
Óþrjótandi tækifæri í nýtingu auðlinda hafsins.

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 27, 2019 130:00


Michael Bloomberg, auðkýfingur og fyrrverandi borgarstjóri í New York, sækist eftir að verða forsetaefni Demókrata í bandarísku forsetakosningunum á næsta ári. Bloomberg var kjörinn borgarstjóri á sínum tíma sem repúblikani en skipti svo um flokk. Freyr Eyjólfsson sagði frá Bloomberg í pistli frá New York. Óþrjótandi tækifæri eru í nýtingu auðlinda hafsins. Þór Sigfússon, stjórnarformaður Sjávarklasans, sagði frá ýmsum leiðum sem færar eru til að auka verðmætasköpun í samfélaginu. Franska lúxusvörufyrirtækið LVMH hefur keypt bandarísku skarpgripakeðjuna Tiffany & Company en hún er að líkindum sú þekktasta í heimi. Vera Illugadóttir sagði frá þessum tveimur fyrirtækjum sem eiga sér langa og merka sögu. Útlit er fyrir mikinn samdrátt hjá mörgum hótelum vítt og breitt um landið í vetur. Sumum hótelum verður lokað en á öðrum er reynt að laða að gesti með sérstökum viðburðum eða námskeiðahaldi. Ágúst Ólafsson fréttamaður ræddi þessi mál og fleiri tengd ferðaþjónustu við Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands. Tónlist: Moon river - Henry Mancini, Moon river - Audrey Hepburn, Via con me - Paolo Conte.

Morgunvaktin
Loftmengun vegna skógarelda veldur verulegri vanlíðan

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 20, 2019 130:00


Ekkert lát er á skógareldunum í Ástralíu. Þeir hafa nú geisað í austurhluta landsins vikum saman og ef eitthvað er þá óttast fólk að eldarnir færist í aukana. Mikill hiti og þurrkar kynda undir eldunum og varla hefur komið dropi úr lofti í nágrenni Sydney í hálft annað ár. Þykkt og heilsuspillandi reykjarmistur liggur yfir stórum hluta borgarinnar þar sem búa rúmar 5 milljónir manna. Erla Guðrún Hafsteinsdóttir umhverfis- og jarðefnafræðingur, sem er nýflutt heim til Íslands eftir 12 ára búsetu í nágrenni Sydney var gestur Morgunvaktarinnar. Hún segir að vinir hennar og tengdafólk finni verulega fyrir loftmengun og öskufalli og reyni að vera sem minnst utandyra. Hong Kong logar í óeirðum. Frá sjálfstjórnarhéraðinu er klukkustundar ferjusigling í annað kínverkst hérað sem lýtur eigin stjórn um margt - Makaó. Það er þekktast fyrir spilavíti og er stundum kallað Las Vegas Asíu. Er allt með kyrrum kjörum þar eða má búast við ámóta ólgu þar og í Hong Kong? Vera Illugadóttir sagði hlustendum frá Makaó og Hong Kong. Hvernig er búið að fólki með fötlun á Akureyri og nágrenni, og hvernig hefur það verið gert í gegnum árin? Nýverið kom út bókin Á réttri leið sem fjallar um uppbyggingu og þróun í málefnum fatlaðs fólks á Norðurlandi eystra á síðustu 60 árum. Úlla Árdal fréttamaður ræddi við Sif Sigurðardóttur, formann Þroskahjálpar Norðurlands eystra. Freyr Eyjólfsson fjallaði um vitnaleiðslur í fulltrúadeild bandaríska þingsins vegna rannsóknar á meintum embættisafglöpum Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Tónlist: Zoo Be Zoo Be Zoo - Sophia Loren & Peter Sellers

Morgunvaktin
Hætta á að byggð leggist af í Grímsey

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 13, 2019 130:00


Svo getur farið að byggð leggist af í Grímsey. Skólinn er ekki starfræktur í vetur og nýverið var helmingur allra aflaheimilda í eynni seldur burt. Af þessu hafa Grímseyingar og fleiri áhyggjur og Akureyrarbær er að meta stöðuna en Eyjan er hluti af Akureyri. Óðinn Svan Óðinsson fréttamaður ræddi við Höllu Björk Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar Akureyrar. Aðskilnaður ríkis og kirkju er kominn á dagskrá og, að því er virðist, af nokkurri alvöru í þetta skiptið. 11 þingmenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að unnið verði að lagafrumvarpi þannig að aðskilnaðurinn verið að veruleika ekki síðar en árið 2034, eftir 15 ár. Kirkjumálaráðherra styður aðskilnaðinn, 55% prósent þjóðarinnar er honum fylgjandi miðað við skoðanakannanir og prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands sagði hér á Morgunvaktinni í síðustu viku að ríkiskirkja væri tímaskekkja. En hvað segja önnur trúfélög? Þeim hefur öllum verið boðið að senda inn umsögn við tillöguna og safnaðarstjórn Fríkirkjunnar í Hafnarfirði hefur sent inn umsögn. Einar Sveinbjörnsson, formaður safnaðarstjórnar Fríkirkjunnar í Hafnarfirði var gestur Morgunvaktarinnar. Einn atkvæðamesti stjórnmálaleiðtogi Suður-Ameríku undanfarin þrettán ár, Evo Morales, hefur hrökklast frá sem forseti Bólivíu og leitað hælis í Mexíkó. Morales, sem er fyrsti forseti Bólivíu af frumbyggjaættum, ræktaði kókaplöntuna eins og fleiri fátækir bólivískir bændur áður en hann fór út í verkalýðsbaráttu og svo í stjórnmál. Vera Illugadóttir fjallaði um ævi og feril Morales. Og svo er það ananas í dós. Já, okkur á Morgunvaktinni er fátt óviðkomandi og í dag fjallaði Freyr Eyjólfsson um sögu ananass í dós. Tónlist: Colquechacamanta - Zelma Yugar

Morgunvaktin
Skipulagsmál þurfa að taka mið af heimsmarkmiðum SÞ

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Nov 6, 2019 130:00


Ekkert samfélag getur þróast eða byggst upp án skipulags. Við þurfum að skipuleggja samgöngur, húsnæðismál, skólamál, hreinlætismál, já við þurfum að skipuleggja allt sem viðkemur því að viðhalda einhverri röð og reglu í samfélaginu. Það er kannski þess vegna ekkert skrýtið að blásið skuli til Skipulagsdags á hverju ári. Og hver skyldi gera það? Jú, auðvitað Skipulagsstofnun. Skipulagsdagurinn er á föstudag og Hlökk Theódórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar, var gestur Morgunvaktarinnar. Forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum 3. nóvember 2020. Donald Trump er umdeildari og um margt óvenjulegri forseti en flestir forverar hans í Hvíta húsinu og nú keppast menn við að greina möguleika hans á að ná endurkjöri. En á meðan Trump siglir beggja skauta byr í lokaslaginn innan Repúblikanaflokksins er barist um framboðsútnefningu innan Demókrataflokksins. Freyr Eyjólfsson rýndi í stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Réttarhöld eru hafin í Noregi yfir ungum manni, einungis 22ja ára, sem taldi svo mikla ógn steðja að norsku samfélagi og norrænni menningu vegna fjölgunar útlendinga í landinu, að hann taldi brýnt að fremja fjöldamorð í mosku í sumar. Honum tókst ekki ætlunarverk sitt, en Philip Manshaus heilsaði með nasistakveðju þegar hann kom fyrir dóm í gær. Manshaus er er ekki einn um að telja norræna menningu í hættu og ýmsir telja að fjöldamorðinginn Anders Breivik hafi haft nokkur áhrif á ungt fólk með ódæði sínu fyrir 8 árum. Gísli Kristjánsson, fréttaritari RÚV í Noregi var á línunni. Í dag verður síðasti haustfundur Landssambands kúabænda haldinn, en á haustfundum sínum í ár hafa kúabændur aðallega rætt um nýlegt samkomulag við stjórnvöld um starfsskilyrði nautgriparæktar. Þetta samkomulag er hluti af endurskoðun búvörusamninga. Viðskipti með mjólkurkvóta og kolefnisjöfnun kúabúskaparins er það sem hæst ber í nýjum samningi. Ágúst Ólafsson fréttamaður ræddi við Arnar Árnason, formann Landssambands kúabænda, um þær breytingar sem nautgriparæktin stendur frammi fyrir næstunni. Tónlist: Freistingar - Sigríður Thorlacius & Sigurður Guðmundsson

Morgunvaktin
Ábyrgð á barnauppeldi og heimilishaldi hvílir á herðum kvenna

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 30, 2019 130:00


Í byrjun þáttar var fjallað stuttlega um Gyðu Valtýsdóttir, handhafa tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, og leik lög af nýjum plötum hennar. Nýsköpunarlandið Ísland er yfirskrift nýsköpunarstefnu til ársins 2030. Sigríður Ingvarsdóttir, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, ræddi um nýsköpun vítt og breitt og dró upp mynd af því umhverfi sem nýsköpun er búin í landinu. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings greiðir á morgun atkvæði um hvort formlegri rannsókn á meintum embættisglöpum Trumps forseta verði framhaldið. Freyr Eyjólfsson fór yfir málið í pistli og rýndi í stöðuna í stjórnmálunum vestanhafs. Ábyrgðin á barnauppeldi og heimilishaldi hvílir á herðum kvenna. Þetta er niðurstaða rannsóknar Andreu Hjálmsdóttur, lektors við Háskólann á Akureyri, á streitu í daglegu lífi fjölskyldufólks. Úlla Árdal fréttamaður ræddi við Andreu um rannsóknina. Tónlist: Ave generosa - Gyða Valtýsdóttir, Moonchild - Gyða Valtýsdóttir, My name is Emmett Till - Emmylou Harris, Við erum með landakort af píanóinu - Múm.

Morgunvaktin
Víða pottur brotinn í réttindamálum fólks með þroskahamlanir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 23, 2019 130:00


Rafíþróttir er íslenska heitið yfir það sem úti í heimi er kallað Esports eða Electronic Sport, sem er ein mest vaxandi íþróttagrein í heiminum. Að keppa í rafíþrótt er í grunninn að spila tölvuleiki. En er þetta virkilega íþrótt að sitja inni herbergi hjá sér og spila tölvuleik? Það er vissulega umdeilt, en hér á landi eru starfrækt Rafíþróttasamtök Íslands sem eru hagsmunasamtök tölvuleikjaspilara og rafíþróttamanna á Íslandi. Margir láta sér hins vegar ekki nægja að spila tölvuleiki, því það er líka töluvert vinsælt að horfa á annað fólk spila tölvuleiki. Um 454 milljón manns, út um allan heim, fylgjast að jafnaði með rafíþróttamönnum spila. Sérstakar keppnisdeildir hafa verið stofnaðar utan um rafíþróttir og það eru miklir peningar í spilunum. Mikil umræða hefur spunnist um þetta mál í Bandaríkjunum - Freyr Eyjólfsson í New York sagði hlustendum frá þessari nýju íþrótt. Fíkni- og geðheilbrigðisvandi fólks með þroskahömlun og einhverfu er yfirskrift ráðstefnu sem Landssamtökin Þroskahjálp halda á laugardag. Ráðstefnan er haldin í tengslum við landsþing samtakanna, en formaður Þroskahjálpar segir að það sé margur potturinn brotinn þegar kemur að réttindamálum félagsmanna, til að mynda í menntamálum, húsnæðismálum og ekki síst fjármálum. Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar, var gestur Morgunvaktarinnar. Skipulagsmál á Akureyri hafa verið fyrirferðamikil í umræðunni undanfarna daga eftir að aðalskipulagsbreytingar fyrir Oddeyrina voru kynnt. Óðinn Svan Óðinsson fréttamaður ræddi við Ragnar Sverrisson, kaupmann og Sóleyju Björk Stefánsdóttur, bæjarfulltrúa um skipulagsmál á Akureyri. Tónlist: Við komum, allir, allir, allir, upp til himna - Sigurður Ólafsson Chances Are - Johnny Mathis

Morgunvaktin
Bretar og ESB eru í kapp við tímann

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 17, 2019 130:00


Bretar og Evrópusambandið vinna nú í kapp við tímann við að ná samningi um útgöngu Breta úr ESB, það eru tvær vikur þar til Bretar eiga að ganga úr Evrópusambandinu, samningur er ekki í höfn þrátt fyrir að þokast hafi í rétta átt á síðustu dögum og leiðtogafundur Evrópusambandsins fer fram í dag. Bogi Ágústsson sagði hlustendum frá gangi mála í samningaviðræðunum. Hann sagði hlustendum líka frá tveimur athyglisverðum málum sem hafa ekki farið hátt í heimsfréttum; í Bretlandi varð bandarísk kona, sem gift er diplómata, 18 ára pilti að bana og flýði til Bandaríkjanna skömmu síðar. Foreldrar piltsins eru nú í Bandaríkjunum að leita réttlætis og Trump Bandaríkjaforseti hitti þá í Hvíta húsinu um helgina. Og í Færeyjum þurfti færeyskt par, búsett í Kaupmannahöfn að greiða hundruð þúsunda fyrir að fæða barn sitt í Færeyjum, þar sem þau teljast ekki vera með færeyska sjúkratryggingu. Á tímum ríkrar meðvitundar fólks um eigin heilsu, mikil umhverfisáhrif kjötframleiðslu og dýravelferð leita vísindamenn leiða til að svala kjötlöngun sem er víðþekkt. Margir geta víst ekki hugsað sér lífið án kjöts. Nú er komin á markað vestanhafs nýjung sem lítur út eins og kjöt og bragðast eins og kjöt en er ekki kjöt - heldur gervikjöt. Freyr Eyjólfsson sagði frá fyrirbærinu í pistli hér í þættinum í síðustu viku. Við fjölluðum nánar um gervikjöt í dag, Sophie Jensen starfsmaður Matís, kom á Morgunvaktina. Bókamessan mikla í Frankfurt hófst í gær. Hana sækja bókaútgefendur úr öllum heiminum og kynna sitt og kynna sér annað. Auk forlaganna hér sækir Miðstöð íslenskra bókmennta messuna og kynnir íslenskar bókmenntir. Við slógum á þráðinn til Hrefnu Haraldsdóttur, framkvæmdastjóra Miðstöðvar íslenskra bókmennta, og heyrðum af áhuga alþjóðlegra útgefenda og umboðsmanna á íslenskri ritlist. Tónlist: Plant no trees - Spilverk þjóðanna Valdi skafari - Spilverk þjóðanna What Do You Want To Make Those Eyes At Me For - Emile Ford

Morgunvaktin
Stjórnmálum og íþróttum hefur oft verið blandað saman

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 16, 2019 130:00


Ákvörðun Bandaríkjaforseta um að draga bandaríska herinn frá norðausturhéruðum Sýrlands hefur hlotið harða gagnrýni enda opnaði hún Tyrkjum greiða leið á svæðið og gerði þeim mögulegt að ráðast á Kúrda sem þar búa. Freyr Eyjólfsson fjallaði um þessa ákvörðun Donalds Trumps í pistli frá New York. Þótt gjarnan sé sagt að ekki eigi að blanda saman íþróttum og pólitík hefur það oft verið gert. Þjóðir hafa sniðgengið Ólympíuleika af pólitískum ástæðum og íþróttamenn margsinnis tjáð pólitísk viðhorf með yfirlýsingum eða táknum. Nú síðast sendu liðsmenn tyrkneska landsliðsins her landsins kveðju eftir leiki í undankeppni EM í fótbolta. Það framferði, sem hefur verið gagnrýnt, var tilefni spjalls við Stefán Pálsson sagnfræðing sem þekkir vel til íþróttasögu heimsins. Vindur hefur blásið hressilega í Vestmannaeyjum síðasta sólarhringinn. Kristín Jóhannssdóttir, forstöðumaður Eldheima, spjallaði um lífið og tilveruna í Eyjum, samgöngur í lofti og legi, ferðamenn og Eldheima. Bæjarfulltrúar á Akureyri hafa samþykkt samskiptasáttmála sem kveður m.a. annars á um að bæjarfulltrúar beri virðingu hver fyrir öðrum og skoðunum annarra. Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi sagði frá þessum nýja sáttmála í spjalli við Bjarna Rúnarsson fréttamann. Þau ræddu líka stuttlega um byggingaráform á Eyrinni og framtíð Sigurhæða. Tónlist: You don?t bring me flowers - Neil Diamond & Barbara Streisand, Nobody knows you when you?re down and out - Bessie Smith.

Morgunvaktin
Norðurslóðir í brennidepli

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 9, 2019 130:00


Gervikjöt er nýjasta nýtt á matseðlum í Bandaríkjunum. Gervikjöt lítur út og bragðast eins og kjöt en er búið til úr próteinum og næringarefnum. Freyr Eyjólfsson brá sér á Burger King-veitingastað í New York og bragðaði á þessari nýjung sem hefur þegar mælst vel fyrir. Alþjóðaráðstefna Hringborðs Norðurslóða hefst í Hörpu á morgun og stendur fram á laugardag. Rúmlega 2000 manns frá yfir 50 þjóðlöndum sækja ráðstefnuna. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Hringborðs Norðurslóða, ræddi vítt og breitt um málefni norðurslóða en að þeim beina flestir þjóðir heims sjónum sínum. Hann segir stórveldin komin í startholurnar fyrir kapphlaup um áhrif og ítök á svæðinu sem er ríkt af auðlindum og styttir siglingaleiðir milli austur- og vesturlanda. Þegar er vart togstreitu milli þjóða, t.d. Bandaríkjanna og Kína vegna norðurslóða og Rússar hafa aukið viðbúnað sinn í norðurhéruðum sínum. Þótt miklir hagsmunir séu í húfi óttast Ólafur ekki að átök brjótist út á næstunni. Einnig var rætt um stöðu Grænlands, loftlagsmál og Gretu Thurnberg. Borgar- og bæjarstjórar á norðurslóðum ætla að eiga með sér samstarf um sameiginleg viðfangsefni og stofna til þess vettvanginn Arctic Mayors. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sagði frá áskorunum og tækifærum samfélaga á norðurslóðum í samtali við Úllu Árdal fréttamann á Akureyri. Tónlist: In my life - Beatles, Keep the promise - Gaia.

Morgunkaffið
Morgunkaffið - Freyr Eyjólfs og Margrét Marteins

Morgunkaffið

Play Episode Listen Later May 25, 2019


Fyrrum útvarpsfólkið Freyr Eyjólfsson og Margrét Marteinsdóttur voru gestir Morgunkaffisins á Rás 2. Þau fóru yfir feril sinn í fjölmiðlum, mikilvægustu úrlausnarefni nútímans, búsetu erlendis og ýmislegt fleira. Auk þess spiluðu Gísli Marteinn og Björg góða músík og komu landanum í hressilegan sumargír á þessum fallega degi.

bj auk margr fyrrum marteinsd freyr eyj marteins
Morgunútvarpið
Loftslagsvá, útvarp, hringormar, Ólafur Í. og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later May 23, 2019 130:00


Auður Anna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir væga orðanotkun meðal þeirra mistaka sem gerð hafa verið í tengslum við loftslagsvána. Breski fjölmiðillinn Guardian tilkynnti á dögunum breytta orðanotkun. Við heyrðum í Auði um þetta. Freyr Eyjólfsson kom til okkar og ræddi um framtíð útvarps en RÚV stendur í dag fyrir málþingi einmitt um það efni. Snorri Karl Birgisson vann meistarverkefni frá matvæla- og næringarfræðideild HÍ á sínum tíma þar sem umfjöllunarefnið voru hringormar. Hann starfar nú við matvælaeftirlit en við rifjuðum upp ritgerðina og forvitnuðumst um það hvernig hreinsun er háttað nú. Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins, kíkti til okkar m.a. til að ræða ummæli sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar, lét falla hér í Morgunútvarpinu en þar talaði hún m.a. um Bannon-umræðu í pólitíkinni. Málfarshorn Önnu Sigríðar var á sínum stað og þar kom svokölluð príla m.a. við sögu. Tónlist: Spoon - Tomorrow. Al Green - Tired of being alone. Robert Plant og Alison Krauss - Gone gone gone. Donna Summers - On the radio. Bubbi Morthens - Ísbjarnarblús. Vök - Spend the love. Miley Cyrus - Malibu. Páll Óskar - Betra líf.

Lestin
Björk, Like-takkinn, Listin og listamaðurinn

Lestin

Play Episode Listen Later May 14, 2019 55:00


Í Lestinni í dag er meðal annars fjallað um Cornucopia-tónleikaröð Bjarkar Guðmundsdóttur sem nú stendur yfir í menningarmiðstöðinni The Shed í New York. Hér er á ferðinni mikið sjónarspil sem vakið hefur mikla athygli, sjálf hefur Björk kallað viðburðinn stafrænt leikhús. Fyrstu tónleikarnir fóru fram fyrir viku en þeir síðustu verða 1. júní. Útsendari Lestarinnar, Freyr Eyjólfsson, var í The Shed á mánudagskvöld, og gefur skýrslu í Lestinni í dag. Í þriðju útgáfa veftímaritsins Flóru er að finna 11 greinar, um brennandi og áleitin málefni, allt frá höfuðklútanotkun yfir í núvitund á tímum loftslagsröskunnar. Er hægt að aðskilja list frá listamanni? heitir ein grein útgáfunnar. Þar skrifar Steinunn Ólína Hafliðadóttir um mörk listaverka og listamanna og veltir því fyrir sér hvort hægt sé að njóta listar án tenginga við bakgrunn og athafnir listamannsins sjálfs. Rætt verður við Steinunni í Lestinni í dag. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar um like-takkann.

Grínland
Freyr Eyjólfsson

Grínland

Play Episode Listen Later Mar 15, 2018


Freyr Eyjólfsson segir ekkert endilega fallegustu sögurnar af sjálfum sér og dregur ekki upp glansmynd af sér. Hann rifjar upp bernskubrek og önnur brek á lífsleiðinni, aðallega til þess að skemmta hlustendum.

hann freyr eyj