POPULARITY
Margverðlaunaði metsöluhöfundurinn Stefán Máni er einhver afkastamesti rithöfundur landsins og heldur á næsta ári upp á 30 ára rithöfundaafmæli sitt með fleiri en 30 bækur útgefnar. Hann er fæddur í Reykjavík en ólst upp í Ólafsvík og bjó þar fram yfir tvítugt. Stefán Máni hefur gefið út skáldsögur frá árinu 1996 en sló í gegn með glæpasögunni Svartur á leik árið 2004, sem kvikmynduð var nokkrum árum síðar. Söguna vann hann upp úr úrklippusafni sem hann hafði byggt upp frá því að hann var barn, úrklippum um glæpi, mannshvörf og fleiri skyld áhugamál. Hann segist hafa verið algjör introvert, og að á þeim tíma hafi upplestur á eigin verkum verið algjört kvalræði í hans huga. En hann neyddist til að vinna sig út úr sjálfsefanum því allt í einu var komin eftirspurn eftir því sem hann var að gera. Nokkru síðar kynnti Stefán Máni lögreglumanninn Hörð Grímsson fyrir lesendum sínum, og síðan hafa komið út 12 bækur um Hörð, sem er einhver vinsælasta sögupersóna íslenskrar bókmenntasögu. Stefán Máni hefur hlotið Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, fjórum sinnum, nú síðast fyrir skáldsöguna Dauðinn einn var vitni, en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í síðustu viku. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Í dag, á aðfangadag jóla, bjóðum við sérlega velkomna í Mannlega þáttinn kærkominn gest, forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur. Við áttum skemmtilegt spjall við hana um jólin, jólahald í bernsku, nútíð og jafnvel framtíð. Jólaminningar, hefðirnar, fyrstu jólin að Bessastöðum, jólahald erlendis, æskujólin í Kópavoginum, riddara kærleikans og margt fleira. Hátíðleg stund með Höllu Tómasdóttur. Tónlist í þættinum: Er líða fer að jólum / Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson) Riddari kærleikans / GDRN (Dagmar Helga Helgadóttir, Valgerður Rakel Rúnarsdóttir) Dansaðu vindur / Ylja (Nanne Grönvall, Peter Grönvall, texti Kristján Hreinsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Ný ríkisstjórn verður kynnt á morgun, ríkisráðsfundur verður á Bessastöðum og lyklaskipti á sunnudag. Fáir vita hins vegar hverjir verða ráðherrar nema kannski leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja. Andrés Ingi Jónsson og Eva H Önnudóttir stóðust ekki freistinguna og rýndu í ráðherrakapal og hvernig stjórnarsáttmálinn kemur til með að líta út. Og svo er það Lúsían í Finnlandi sem hefur kallað fram það versta en líka það besta í Finnum. Hún heitir Daniela Owusu, á ætti að rekja til Ghana og er dökk á húð og hár.
Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ, hlaut Íslensku menntaverðlaunin sem voru veitt á dögunum við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut hún í flokknum framúrskarandi kennsla, en Hrafnhildur var verðlaunuð fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt. Hrafnhildur var hjá okkur í dag og við fengum hana til að segja okkur frá sínum störfum og aðferðum við útikennslu. Nikótín hefur mikil og neikvæð áhrif á taugakerfi ungmenna, veldur kvíða, hjartsláttartruflunum, svefnleysi og er í raun örvandi og ávanabindandi efni sem þau þurfa raunverulega að vara sig á. Í Heilsuvakt dagsins ræddi Helga Arnardóttir við Láru Sigurðardóttur, lækni og lýðheilsufræðing, um sívaxandi nikótín notkun meðal ungmenna, í formi púða og veips, sem eru stundum með margfalt meira magn nikótíns en sígarettur. Lára segir nikótínið rótsterkt efni, sem hafi neikvæð áhrif á svefn og einbeitingu ólíkt því sem margir halda fram. Hún lýsir einnig hvernig líkamleg fráhvörf koma fram þegar neyslu þess er hætt og gefur góð ráð til þeirra sem vilja venja sig af þessum óþverra. Tónlist í þættinum: Ef ég nenni / Helgi Björnsson (Zucchero, texti Jónas Friðrik Guðnason) Þitt fyrsta bros / Pálmi Gunnarsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) Happy Holiday, The Holiday Season / Silva & Steini (Irving Berlin) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Upp var runninn kjördagur, þjóðin kaus sér nýja ábúendur á Bessastöðum og bar þátturinn Fram og til baka þennan morguninn keim af því öllu saman. Gestur þáttarins á milli kl. 08-09 var Tobba Marinós, fyrrum fjölmiðlakona sem söðlaði um á vormánuðum og tók við starfi upplýsingafulltrúa í ráðuneyti menningar og viðskipta. Hún sagði hlustendum frá þeim vistaskiptum og bauð hún svo upp á hressandi frásögn af fimm kosningapartíum í Fimmu dagsins. Við héldum ótrauð áfram út frá frásögn Tobbu í að bjóða upp á kosningapartí í Fram og til baka. Hlaðborð var drekkhlaðið af alls konar kræsingum í öllum litum, fast og fljótandi. Hér má sjá hlaðborðið: Fyrri hluti þáttar: Stuðmenn - Út í veður og vind. Fleetwood Mac - The Chain. Besti flokkurinn - Besta lag í heimi Skakkamanage og Prins Póló - Partýþoka. Magnús Eiríksson - Komdu Í Partý. The Smiths - Heaven knows I'm miserable now. Seinni hluti þáttar: Harry Nilson - Coconut. Nýdönsk - Kirsuber. Haukar - Fiskurinn hennar Stínu. Ríó Tríó - Romm og Kóka Kóla. UB40 - Red Red Wine. Jolli & Kóla - Bíldudals grænar baunir. Stuðmenn - Úfó. Prins Póló - Bragðarefur. Presidents of The United States of America - Peaches. Holmes, Rupert - Escape (The Pina Colada Song). Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Síðasti Móhítótinn. R.E.M. - Orange Crush.
Viðræður standa um sameiningu Háskólanna á Akureyri og Bifröst. Um ágæti sameiningar, námið á Bifröst og háskólamál almennt ræddum við við Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, deildarforseta félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst. Dönsk málefni voru svo á dagskrá. Borgþór Arngrímsson fór yfir það sem er efst á baugi í dönsku þjóðlífi þessa dagana. Íslensku bókmenntaverðlaunin verða afhent í kvöld við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Tilnefndar eru fimmtán bækur í þremur flokkum og glæpasagnaverðlaunin Blóðdropinn verða líka veitt. Þorgeir Tryggvason bókmenntagagnrýnandi í Kiljunni kom til okkar og spjallaði um bækur og bókmenntir og lestur. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Hollies, The - He ain't heavy he's my brother. Naissoo, Tõnu Trio, Melvin, Brian, Krokfors, Ulf, Naissoo, Tõnu - Lay lady lay. Søs Fenger - Vinterdage. Ljótu hálfvitarnir - Landróver.
Stefán Einar Stefánsson og Friðjón Friðjónsson ræða um þá óvæntu ákvörðun Hr. Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, að gefa ekki kost á sér á ný. Rætt er um hvaða ástæður kunna að liggja þar að baki, aðdragandann að því hvernig Guðni varð forseti, sögulegan fróðleik um forsetaembættið og þá sem setið hafa á Bessastöðum, hvaða kandídatar eru líklegir til að bjóða sig fram og það sem meira máli skiptir – hverjir eigi yfir höfuð erindi í þetta embætti.
12. október 2023 Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til Ísraels í dag og ítrekaði skilyrðislausan stuðning Bandaríkjastjórnar við ísraelsku þjóðina. Hlýrra loftslag og hopun jökla hefur aukið framleiðslugetu Landsvirkjunar umtalsvert á undanförnum tíu árum. Nýjum samráðsvettvangi lögreglu, sveitarfélaga, heilbrigðistofnana, skóla og fleiri er ætlað að vaka yfir samfélaginu og skipuleggja átaksverkefni gegn ofbeldi og áhættuhegðun. Stofnað verður til slíks samráðs í öllum landshlutum og er það þegar hafið á Austurlandi. Fólk sem þiggur máltíðir á kaffistofu Samhjálpar þarf nú að skrá sig sérstaklega þannig að unnt sé að meta hvort það þurfi á aðstoðinni að halda. Viðbrögð við neyðarástandi, segir framkvæmdastjóri Samhjálpar. Ekki er vitað hvaða breytingar verða gerðar á ríkisstjórninni en allt mun það skýrast á laugardaginn þegar ríkisráð kemur saman til fundar á Bessastöðum. Mögulega skipta flokkar á ráðuneytum en það gæti líka orðið að ráðherrum Sjálfstæðisflokks verði einfaldlega hrókerað. Kosningar í Póllandi á sunnudaginn snúast ekki síst um hvort stjórnarflokkurinn Lög og réttlæti heldur völdum þriðja kjörtímabilið í röð. Kosningabaráttan hefur verið hörð og spurningar sem bornar eru upp í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða kjöri þingmanna hafa ýtt undir skautun í pólsku samfélagi. Málsmetandi rithöfundur þarf að greiða þúsund evrur í sekt fyrir að hafa farið niðrandi orðum um forsætisráðherra Ítalíu í sjónvarpsþætti. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Loksins!!! Tímabilið rúllaði af stað og það var margt áhugavert í fyrstu umferðinni! Grindavík fóru mikinn í sumar en stóru byssurnar mættu ekki til leiks gegn Hetti sem vann fyrsta leik í fyrsta sinn. Haukar litu vel út gegn arfaslökum Blikum. Sigur var ekki á excel skjalinu hjá Stjörnumönnum gegn Njarðvík. Hamarsmenn náðu ekki að setja kirsuberið á ísinn gegn Keflvíkingum, sem silgdu frammúr í lokinn. Frábær byrjun dugði ekki fyrir Þórsara gegn öflugum Völsurum í Höfninni. Tindastóll krassaði partýið á Bessastöðum og slökkti í Álftnesingum í frumraun þeirra í deild þeirra bestu. Allt þetta og margt annað í þættinum í boði Soho, Cintamani, Viking Lite (Léttöl), Fisk- og kjötbúð Reykjanes, Miðherja og Bónus!
Við fjölluðum um gjaldmiðilinn okkar; krónuna, í dag. Hún hefur veikst blessuð; fyrir þúsund íslenskar krónur fást í dag sjö bandarískir dalir en síðastliðið sumar fengust næstum átta dalir fyrir þúsund kallinn. Og fyrir tæpum fjórum árum fengust næstum níu Bandaríkjadalir fyrir þúsund íslenskar krónur. Krónan sveiflast upp og niður og hún hefur svo sem oft verið enn veikari en í dag. Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar ræddi þetta og fleira. Arthúr Björgvin Bollason var svo á sínum stað og sagði okkur frá því sem er efst á baugi í Þýskalandi. Hann fjallaði um samband nágrannanna Frakka og Þjóðverja, og um skriðdreka sem Þjóðverjar hafa ekki tekið ákvörðun um hvort þeir vilji senda til Úkraínu eða ekki. Góð bók er þyngdar sinnar virði í gulli. Íslensku bókmenntaverðlaunin verða veitt í kvöld við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Af því tilefni kom formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, Heiðar Ingi Svansson, til okkar og rabbaði um bækur vítt og breitt. Tónlist: Við arineld - Erla Stefánsdóttir None of us are free - Solomon Burke D?Allemagne - Patricia Kaas

Ólafur Þ. Harðarson var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Á sunnudaginn tók hann við riddrararkrossi á Bessastöðum fyrir rannsóknir og þekkingarmiðlun á sviði stjórnmálafræði. Við þekkjum hann auðvitað úr ótal útsendingum í kosningasjónvarpinu, þar sem hann og Bogi Ágústsson ræða og rýna í allar tölur sem koma upp úr kjörkössunum, uppbótaþingmennina, flakkarana og allt það. Auk þess sem hann er reglulegur gestur í fréttatímum til að lesa inn í landslag stjórnmálanna. En það er ekki eins víst að landsmenn þekki mikið meira til hans og því notuðum við tækifærið til að kynnast honum betur í dag. Æskunni og uppvextinum í Hafnarfirði, Hjalteyri, Ólafsfirði og í sveit hjá ömmu sinni og afa á Vestfjörðum. Við stikluðum svo á stóru í ferðalaginu í gegnum lífið, námið í Kennaraháskólanum og LSE í London, doktorsritgerðina og starfsferilinn í útvarpi og sjónvarpi til dagsins í dag. Svo í matarspjalli dagsins fengum við Ólaf föstudagsgest til að vera með okkur áfram en hann er mikill áhugamaður um mat frá öllum heimshornum auk þess að skrifa talsvert um mat á facebooksíðu sinni, sérstaklega þegar hann er á ferðalögum erlendis. Ólafur sagði okkur til dæmis frá því þegar hann smakkaði köngulær, maurastöppu og krókódílakjöt í Kambódíu. Tónlist í þættinum í dag: Tunglið, tunglið taktu mig / Sigrún Hjálmtýsdóttir (lag Stefán S. Stefánsson og texti Theodóra Thoroddsen) Werner von Braun / Tom Lehrer (Tom Lehrer) Gin og tónik - Spaðar (Þjóðlag frá Makedóníu - Aðalgeir Arason og Guðmundur Arason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG MELKORKA ÓLAFSDÓTTIR

Hagvöxtur var til umræðu í byrjun þáttar enda eitt lykilhugtaka í umfjöllun um efnahagsmál. Hann er notaður til að meta stöðu þjóðfélaga frá ári til árs og bera saman ríki. Því meiri hagvöxtur, því betra, er matri sumra. En er hagvöxtur besti mælikvarðinn á samfélag mannanna og er hagvöxtur góður fyrir allt og alla? Heiður Margrét Björnsdóttir, hagfræðingur hjá BSRB, er ekki viss enda mælir hagvöxtur ekki velsæld, ágang á auðlindir né svo ótal margt annað sem skiptir máli. Heiður var gestur okkar. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, var líka á sínum stað í dag. Við spjölluðum um fyrirhugaða breytingu Evrópusambandsins á losunarkvóta-fyrirkomulaginu í flugi. Íslensku flugfélögin telja þær breytingar kunna að hafa slæm áhrif hér og mótmæla. Að lokum ræddum við um sex merka sögustaði á Íslandi. Nú fyrir jólin kom út bókin Á sögustöðum eftir sagnfræðinginn Helga Þorláksson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Helgi hefur áður gefið út fjölda greina og bóka um sagnfræðileg efni, fyrst og fremst um sögu Íslands fyrir 1700. Í þessari nýjustu bók sinni beinir Helgi athyglinni sérstaklega að sex sögustöðum á Íslandi: Bessastöðum, Skálholti, Odda á Rangárvöllum, Reykholti, Hólum og Þingvöllum. Rakin er saga staðanna og reynt að grennslast fyrir um það á hverju hlutverk þeirra byggist. Helgi var gestur Morgunvaktarinnar og sagði frá bókinni. Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir. Tónlist: Love - Nat King Cole E.T. Flying - John Williams The Candels Glow - lettneskt jólalag

Óskabarn Napólí fer hér yfir stormasaman feril í stúdentapólitík og stjörnulögfræði: lögreglufylgd af fótboltaleik til að halda ræðu á Bessastöðum, ritgerðarmálið sem þurrkaði atvinnutækifærin út af borðinu og neyddu Villa til að flytja á Skagaströnd, Landsréttarmálið og stærsta málsflutningur ferilsins, dómstól götunnar, tattúin, Napólí, Ítalíu og fjölskyldulífið.
Hart var tekist á um efnavopn í Úkraínu á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í dag. Tvær og hálf milljón hefur flúið Úkraínu eftir að innrás Rússa hófst. Gert er ráð fyrir að allt að fjögur þúsund flóttamenn komi hingað til lands. Bjarni Pétur Jónsson tók saman og heyrist í Joe Biden Bandaríkjaforseta, Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra. Staðan í uppistöðulónum Landsvirkjunar er lægri en spáð var í byrjun árs og vatnsbúskapur með versta móti. Skerðingar á afhendingu orku verða fram á vor. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Hörð Arnarson forstjóra Landsvirkjunar. Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Þorsteins Más Baldvinssonar þar sem Seðlabanka Íslands var gert að greiða honum tæpar 2,7 milljónir í skaða- og miskabætur vegna Samherjamálsins svokallaða. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra telur að landsmenn verði að þrauka faraldurinn, ekki standi til að herða sóttvarnir. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman. Vegurinn um Vattarnesskriður, milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, er ófær vegna skriðufalla. Skriður féllu á veginn í morgun en töluvert hefur rignt fyrir austan. Ólöf Ýr Erlendsdóttir tók saman. Verkefnið Römpum upp Ísland hófst formlega í dag, setja á upp eitt þúsund hjólastólarampa um allt land til að bæta aðgengi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var ekki viðstaddur kynningu verkefnisins í Hveragerði eins og til stóð vegna covid-smita á Bessastöðum, en sendi kveðju þaðan. ------------- Samhliða bardögum í Úkraínu geisar áróðursstríð. Fjölmiðlum hefur verið lokað í Rússlandi og varðar fangelsisvist að segja það sem stjórnvöld þar segja falsfréttir af Úkraínu. mótar afstöðu rússnesks almennings, meirihluti hans styður Pútín. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar. Ávaxtaneysla hefur minnkað, en neysla á sykruðum gosdrykkjum hefur dregist saman. Í gær voru kynntar niðurstöður úr landskönnun á mataræði landsmanna. Þar eru bæði góðar og slæmar fréttir. Þjóðin þarf að borða mun meira af grænmeti og ávöxtum svo að vel sé. Bjarni Rúnarsson ræddi við Hólmfríði Þorgeirsdóttur, Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur og Bryndísi Evu Birgisdóttur. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar frétta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Rætt við Brynju Cortez Andrésdóttur Sælureit agans eftir svissneska rithöfundinn Fleur Jeaggy. Hlustendur heyra ræður verðlaunahafa á íslensku bókmenntaverðlaunum sem afhent voru á Bessastöðum í gærkvöld. Hlustendur heyra jafnfram brot úr þætti þætti Guðbergs Bergssonar um Málfríði Einarsdóttur sem hét "Í þessu herbergi hefur búið doktor" og var sendur út árið 1989 en nú er skáldsaga Málfríðar, Samanstaður í tilverunni, kvöldsaga sem hlustendur geta notið á síðkvöldum á Rás 1. Umsjón: Guðni Tómasson

Hellubúar halda úti facebook hópi og senda þar hverjir öðrum fréttir og gamlar myndir og þess háttar sem fólk gerir á facebook. Í gær birtist þar óvænt frétt en Eskimo er að leita eftir ?fólki í sveitinni til að taka þátt sem aukaleikarar í erlendu verkefni á vegum Neflix.? Síðan segir ?Við leitum að karlmönnum á aldrinum 20-55 ára auk nokkurra annarra um sjötugt, með frekar villimannslegt útlit.? Morgunútvarpið hringdi í mann sem hefur verið þekktur fyrir villimannslegt útlit, sérstaklega á morgnana, en það er Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri í Rangárvallasýslu. Ætlar hann að bjóða sig fram og slá í gegn á Netflix? Í dag hefst bæjarhátíðin Kótilettan á Selfossi. Hátíðin er bæði tónlistarhátíð og mikil grillhátíð enda matarkista landsins á Suðurlandi. Kótilettan er síðar á ferðinni þetta árið vegna faraldursins en þetta er í ellefta sinn sem hún er haldin. Einar Björnsson var á línunni en hann hefur veg og vanda af hátíðinni. Patrekur Jóhannesson handboltamaður tók við silfurmerki Austurríkis við athöfn á Bessastöðum í vikunni en silfurmerkið hlýtur hann fyrir störf að íþróttamálum í Austurríki en þar var hann landsliðsþjálfari um árabil. Það var bróðir Patreks eða Patta eins og hann er kallaður sem vakti athygli á afhendingu silfurmerkisins en hann er auðvitað sjálfur Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands. Við hringdum í Patta og heyrðum um þessa upphefð. Umfjöllun um fréttir vikunnar verða á sínum stað og þau komu í morgunútvarpið Sunna Karen Sigurþórsdóttir fréttamaður á fréttastofu Stöðvar2, Vísis og Bylgjunnar og Stefán Hrafn Hagalín deildarstjóri samskiptadeildar hjá Landsspítalanum. Það var margt að ræða t.d. hina nýju metoo byltingu, greiðslu á hæsta lottóvinningi sögunnar, stöðuna á eldgosinu sem við vitum eiginlega ekki lengur hvort er eldgos, partý og hömluleysi eftir að samkomutakmörkunum var aflétt, brekkusöngur á Þjóðhátíð og svo auðvitað EM fyrir utan allt hitt sem kom við sögu. Tónlistarkonan Klara Elíasdóttir sem þekktust er fyrir veru sína í Nylon og síðar The Charlies var að senda frá sér nýtt lag. Nýja lagið er þjóðhátíðarlag. En ekki eiginlega fyrir Þjóðhátiðina í Eyjum. Klara segir að það sé kominn tími á að kona semji lag fyrir Þjóðhátíð í Eyjum enda aðeins ein kona samið Þjóðhátíðarlag í 84 ár. Með útgáfunni vill hún vekja athygli á kynjahallanum.

Hreinn S. Hákonarson, guðfræðingur: um jarðneskar leifar fyrrum forsetahjóna sem hvíla í kórvegg Bessastaðakirkju. Haraldur Þorleifsson, hönnuður og stofnandi Aðgengissjóðs Reykjavíkur: samtal um átakið Römpum upp Reykjavík og aðgengismál í hinum ýmsu borgum. Edda Olgudóttir, vikulegur gestur í vísindaspjalli: allt um ónæmiskerfið.

Salka Sól Eyfeld, tónlistar- og prjónakona, hefur umsjón með handverkskaffinu sem haldið verður í Borgarbókasafninu Gerðubergi í kvöld. Þar deilir hún prjónasögu sinni með gestum og segir frá fyrstu prjónabókinni sem hún gaf út með Sjöfn Kristjánsdóttur prjónahönnuði fyrir síðustu jól. Sú bók hefur selst í yfir 5000 eintökum og margar ungar konur hafa stigið sín fyrstu skref í prjónaskap í kjölfarið enda vita allir sem hafa prófað að prjóna að það er bæði skemmtilegt og gefandi. Við fengum Sölku Sól til að koma í þáttinn og ræða prjónaskapinn. Árlegri fjáröflun Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur verður hleypt af stokkunum við athöfn að Bessastöðum í dag, í rauninni byrjaði athöfnin klukkan 11 þegar Eliza Reid, forsetafrú og velunnari sjóðsins tók við ?Mæðrablóminu? sem líkt og undanfarin ár er í formi leyniskilaboðakertis. Frá upphafi stofnunar sjóðsins hefur hann veitt rúmlega 300 styrki fyrir tekjulágar konur til mennta. Anna H. Pétursdottir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, kom í þáttinn og sagði frá þessari fjáröflun og starfi sjóðsins. Vorið er komið og grundirnar gróa og um leið vakna alls kyns spurningar varðandi gróður og garðastúss. Margrét Blöndal var á labbinu á Selfossi og bankaði uppá hjá Auði Ottesen garðyrkjufræðingi og ritstjóra Sumarhússins og garðsins og fékk að vita ýmislegt um sáningu, ætar begóníur og músíkalskar plöntur. Við heyrðum spjall þeirra í lok þáttar. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Flestir hafa þá mynd af sagnfræðingum að þeir sitji hoknir á skjalasöfnum og rýni í skruddur sem fjalla um eitthvað sem er löngu liðið. Sú er ekki alltaf raunin. Til er nokkuð sem heitir samtímasaga og spannar yfirleitt tímabilið frá lokum seinni heimsstyrjaldar til dagsins í dag. það getur hreinlega verið varasamt að stunda þá grein sagnfræðinnar. Viðmælandi okkar í þessum aukaþætti veit allt um það. Í fyrsta sinn erum við með gest í hlaðvarpinu og það er sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson. Svo skemmtilega vill til að hann er einnig forseti Íslands. Við settumst niður með honum í Thomsen-stofu á Bessastöðum og ræddum um söguna og sérstaklega nokkuð sem er ástríða bæði Flosa og Guðna: Þorskastríðin.
Í Víðsjá dag verður meðal annars hugað áfram að sýningunni Dýpsta sæla og sorgin þunga í Kling og bang galleríi en þar segja þær Una Björg Magnúsdóttir og Anne Carson frá verkunum á sýningunni. Elísabet Kristín Jökulsdóttir tók við íslensku bókmenntaverðlaununum, í flokki skáldverka, á Bessastöðum í gær fyrir skáldsöguna Aprílsólarkulda: Frásögn um ást og geðveiki og huggun. Hlustendur heyra í Elísabetu í þættinum í dag auk þess sem Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar um verkið. Og bók vikunnar hér á Rás 1 að þessu sinni er skáldsagan Truflunin eftir Steinar Braga sem kom út fyrir síðustu jól. Rætt verður við Steinar í Víðsjá í dag.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Ara Eldjárn, uppistandara og handritshöfund, sem hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin fyrir árið 2020, Ari tók við verðlaununum á Bessastöðum um helgina. Rætt verður við Hannes Helgason og Jóhannes Birgi Pálmason, liðsmenn í sveitinni Dalalæðu, um nýja plötu sveitarinnar Dysjar. Einnig verður farið í tónlistarferðalag með Arnljóti Sigurðssyni undir yfirskriftinni Heyrandi nær, í dag mun Arnljótur rýna í sögu lagsins víðfræga Misirlou, en saga þess nær um það bil hundrað ár aftur í tímann og margt forvitnilegt sem kemur upp úr dúrnum við söguskoðunina. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Sólveig Pálsdóttir segir frá endurminningum sínum í Klettaborginni. Hér ræðir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir fjölmiðlakona við Sólveig um tilurð bókarinnar og efni hennar. Sólveig var ung send í sveit austur í Skaftafellsýslu og dvaldi í mörg ár sumarlangt á bænum Hraunkoti í Lóni. Segja má að tveir heimar hafi búið í Sólveigu alla tíð. Á veturna bjó hún í Vesturbænum en dvaldi einnig löngum á Bessastöðum þar sem afi hennar var forseti Íslands. Klettaborgin byggir á minningum Sólveigar frá æsku og fram undir tvítugt og persónugalleríið er fjölbreytt. Hún skrifar um fólk og atburði, sem hafa haft áhrif á líf hennar, og lýsir horfnum heimi og annars konar lífsgildum en við þekkjum í dag. Sólveig hefur hingað til skrifað glæpasögur við góðan orðstír. Hún hefur sent frá sér bækurnar Leikarinn, Hinir réttlátu, Flekklaus, Refurinn og Fjötrar en fyrir þá síðastnefndu hlaut hún Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu glæpasögu ársins 2019. Nú leitar hún á ný mið og rifjar með hrífandi og kærleiksríkum hætti upp atburði frá uppvaxtarárum sínum. Klettaborgin geymir fallegar sögur og dýrmætar minningar um dýrmætar manneskjur. Myndir, bréf og margt fleira prýðir síður bókarinnar. Hér má lesa nánar um bókina: https://www.salka.is/products/klettaborgin
Þegar Sólveig settist niður til að skrifa nýjust glæpasögu sína, fór hugurinn á flug og áður en hún vissi af var hún búin að setja glæpasöguna ofan í skúffu og skrifaði bókina Klettaborgin sem byggir að mestu leyti á æskuminningum. Í bókinni birtast myndir og minningabrot sem hafa fylgt henni og hvergi vikið. Sólveig var ung send í sveit og segir og dvaldi á bænum Hraunkoti í Lóni. Segja má að tveir heimar hafi búið í Sólveigu alla tíð. Á veturnar bjó hún í Vesturbænum en dvaldi einnig löngum á Bessastöðum þar sem hafi hennar var forseti Íslands.

Enn er útilokað að segja til um hvort Donald Trump eða Joe Biden fór með sigur af hólmi í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Munur á fylgi frambjóðendanna er hverfandi í nokkrum ríkjum þar sem enn er verið að telja atkvæði. Ásgeir Tómasson segir frá. Tuttugu og níu greindust með COVID-19 innanlands í gær, þar af voru átta utan sóttkvíar. Nú eru 798 manns í einangrun með COVID-19 og átján hundruð fimmtíu og einn í sóttkví. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að faraldurinn sé ekki að versna og með góðum vilja megi segja að kúrfan sé að fara niður hjá þeim sem eru utan sóttkvíar. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra segir málefni framhaldsskólanemenda verða í algjörum forgangi þegar hægt verður að létta á sóttvörnum. Komið sé að þolmörkum, þjóðhagslegt tap af brottfalli nemenda sé of mikið. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá. Íbúi og starfsmaður í Foldabæ, heimili fyrir konur með heilabilun í Reykjavík, greindust með COVID-19 í síðustu viku. Allir hinir íbúarnir sjö, og sjö starfsmenn til viðbótar, eru í sóttkví segir Jórunn Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða. Hildur Margrét Jóhannsdóttir tók saman. Sjóprófi vegna hópsýkingar á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hefur verið frestað til 22. nóvember. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir sagði frá. Guðni Jóhannesson, forseti Íslands verður í sóttkví í kjallaranum á Bessastöðum til mánudags. Starfsmaður á Bessastöðum greindist með kórónuveiruna. ---- Kjördagur var í bandarísku forsetakosningunum í gær, nóttin leið og dagurinn langt kominn, menn telja og telja og enn ekki fullljóst hver verður forseti Bandaríkjanna næstu fjögur árin, þó ýmislegt bendi til þess að Joe Biden sé að mjakast fram úr Donald Trump í ríkjum þar sem enn er ekki ljóst hver hreppir kjörmennina. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Höllu Hrund Logadóttur, stjórnmálafræðing sem stýrir miðstöð Norðurslóða við Harvardháskóla og við Þórð Pálsson, íbúa og kjósenda í Kansas. Utanríkisstefna Bandaríkjanna ræðst af hagsmunum þeirra og ýmsum þáttum innanlands vestra jafnvel frekar en því hvort Donald Trump eða Joe Biden verður forseti segir Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Sunna Valgerðardóttir ræðir við hann. Rösklega 200 lítil fyrirtæki og einyrkjar í ferðaþjónustu hafa sent stjórnvöldum ákall um að grípa verði til aðgerða strax til að forða að þeim frá því að lenda í djúpum skuldavanda. Arnar Páll Hauksson ræðir við Jónu Fanneyju Svavarsdóttur, sem rekur Eldhúsferðir. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Markús

Heimildarmyndin Lobster Soup, eða Humarsúpa, fjallar um bræðurna Alla og Krilla, sem stofnuðu og ráku veitingastaðinn Bryggjuna á höfninni í Grindavík. Þar framreiddu þeir eina frægustu humarsúpu landsins og við borðin á staðnum voru málin krufin til mergjar. Við fengum annan bræðranna, Alla, eða Aðalgeir Jóhannsson, ásamt Ólafi Rögnvaldssyni, einum framleiðanda myndarinnar, til þess að segja okkur meira frá þeim bræðrum og humarsúpunni, sem hefur vakið það mikla athygli að hún dregur fjölda ferðamanna frá öllum heimshornum til Grindavíkur og ekki síst tvo spænska kvikmyndagerðamenn sem ákváðu að gera einmitt þessa mynd. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, brá sér yfir í Húnaþing vestra og hitti Guðnýju Helgu Björnsdóttur á Bessastöðum sem þar býr ásamt manni sínum, hinum þekkta hestamanni Jóhanni Magnússyni. Þau búa þar að sjálfsögðu með hesta en líka kýr og Guðný sem er fædd og uppalin á Bessastöðum hefur upplifað miklar breytingar í framleiðslu mjólkur. Buxur eru um margt hentugur klæðnaður, sérstaklega þegar kemur að ákveðnum störfum eða vinnu. Það er þó ekki allra að klæðast buxum og enn þann dag í dag eru fjölmörg ríki sem banna konum að klæðast buxum við hin ýmsu tilefni. Sjókonur í buxum er yfirskrift Föstudagsfléttu Borgarsögusafns á föstudaginn kemur. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur mun þar fjalla um buxnanotkun íslenskra kvenna í sögulegu ljósi. Í fyrirlestrinum verður fjallað um nokkrar konur sem klæddust buxum til sjós og létu reyna á mörk samfélagsins hvað varðar kvenlega hegðun, klæðaburð og framkomu. Hafdís Erla kom í þáttinn í dag. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Hinn sídansandi Jóhann Gunnar starfaði sem bryti á Bessastöðum lengi. Hann hefur alltaf verið óhræddur við að fara eigin leiðir og á eflaust með litríkustu fataskápum landsins.

Verða heimilin sjúkrahús framtíðarinnar? Hvernig gengur baráttan við ólögleg okurlán? Við ræddum um tannvernd og fórum á opið hús á Bessastöðum.
Sölvi Björn Sigurðsson rithöfundur tók við íslensku bókmenntaverðlaununum á Bessastöðum í gær, fyrir skáldsögu sína, Seltu: Apókrýfu úr ævi landlæknis. Rætt verður við Sölva um þetta verk í Víðsjá í dag. Björn Þór Vilhjálmsson bókmenntagagnrýnandi fjallar í dag um bókina Brot: Konur sem þorðu eftir Dóru S. Bjarnason en þar segir af lífshlaupi þriggja kynslóða kvenna sem voru, hver á sinn hátt, frumkvöðlar í baráttu kvenna fyrir frelsi og jafnrétti. Og Auður Jónsdóttir rithöfundur heldur áfram að ávarpa framtíðina í upphaf nýs áratugar, og spyrja: Hvað nú? Í pistlaröð sem hún nefnir Bréf til sonar. Fyrirsögn pistilsins í dag er: Að kunna að lesa veruleikann - ,,Upplýsingamengun er jafn raunveruleg og öll önnur mengun í heiminum," skrifar Auður syni sínum til að undirbúa hann fyrir framtíðina. Þetta er fjórði og síðasti pistill Auðar.
Gestir Víðsjár í dag eru tónlistarfólkið Eyjólfur Eyjólfsson og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir en þau mynda, ásamt Björk Níelsdóttur, tónlistarhópinn Gadus Morhua sem heldur tónleika í kvöld í Salnum í Kópavogi þar sem boðið verður upp á baðstofubarrokk. Íslensku bókmenntaverðlaunin verða afhent á Bessastöðum í kvöld. Í Víðsjá í dag verður spáð í spilin með bókmenntagagnrýnendunum Gauta Kristmannssyni og Kolbrúnu Bergþórsdóttur. Bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni er Glæpur við fæðingu en í henni segir suður-afríski uppistandarinn og sjónvarsþáttastjórnandinn Trevor Noah frá uppvexti sínum í Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Hlustendur heyra í þýðanda bókarinnar, Helgu Soffíu Einarsdóttur, í þætti dagsins. Og Gauti Kristmannsson fjallar um skáldsöguna Hnitmiðuð kínversk-ensk orðabók fyrir elskendur eftir ítalska rithöfundinn Xiaolu Guo en bókin kom út hjá forlaginu Angústúru fyrir jólin, í íslenskri þýðingu Ingunnar Snædal.
Vonda veðrið og áhrif þess var aðalefni Morgunvaktarinnar í dag. Birta Líf Kristinsdóttir veðurfræðingur fór yfir veðurspána í byrjun þáttar. Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri á Skagaströnd, sagði frá ástandi mála þar. Snjó hefur kyngt niður og allt ófært. Öll starfsemi í bænum lagðist af kl. 13 í gær og ekki er reiknað með að allt komist í eðlilegt horf fyrr en á morgun. Guðný Helga Björnsdóttir, bóndi á Bessastöðum í Hrútafirði, hefur ekki getað mjólkað kýrnar síðan í gærmorgun vegna rafmagnsleysis. Þær eru fóðraðar yfir birtu úr vasaljósi. Guðný Helga sagði kýrnar verða pirraðar í svona ástandi. Rúnar Snær Reynisson, fréttamaður á Austurlandi, fór yfir stöðu mála í fjórðungnum en þar tók veðrið að versna í morgun með tilheyrandi áhrifum á samfélagið. Vera Illugadóttir rifjaði upp mál Róhingjanna í Mjanmar en það er til skoðunar í Alþjóðaglæpadómstólnum í Haag. Aung San Suu Kyi, eiginlegur leiðtogi Mjanmar kemur fyrir dómstólinn í dag og segir sína hlið en stjórn hennar er sökuð um þjóðarmorð gegn Róhingjum. Ófært er á Akureyri og björgunarsveitarmenn hafa haft í nægu snúast og eiga enn næstu klukkustundir. Óðinn Svan Óðinsson fréttamaður ræddi við Gunnlaug Búa Ólafsson og Guðmund Guðmundsson í björgunarsveitinni Súlum. Tónlist: Stardust - Jón Páll Bjarnason og Ólafur Gaukur Þórhallsson, Vala - Viðar Alfreðsson og Guðmundur Ingólfsson, En sterjne skinner i natt - Oslo Gospel Choir og Maria Haukaas Mittet.

Allt að fjögur prósent af því plasti sem framleitt er lendir í hafinu en um fimm til þrettán milljónir tonna plasts eru í hafinu á heimsvísu. „Vandamálið auðvitað stækkar ennþá meira þar sem við erum alltaf að framleiða meira og meira af plasti. Því verður þessi tala í magni alltaf hærri,“ sagði Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar á Morgunvaktinni í morgun. Við fjölluðum um plastmengun í hafinu í tilefni þess að Marglytturnar, sex íslenskar afrekskonur, syntu yfir Ermarsund í gær til þess að vekja athygli á plastmengun í hafinu og áhrifum hennar á lífríki sjávar. Forseti Indlands, Ram Nath Kovind, er hér í opinberri heimsókn. Hann hitti starfsbróður sinni á Bessastöðum í gær og flutti erindi í Háskóla Íslands. Í dag heimsækir hann m.a. Þingvelli og fundar með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Í tengslum við heimsóknina er Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra Íslands í Nýju Delí, á landinu, hann var gestur Morgunvaktarinnar og sagði hlustendum frá Indlandi og samskiptum Íslands og Indlands. Fyrr á árinu samþykkti bæjarstjórn Akureyrar aðgerðaáætlun vegna innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Áætlunin er mikilvægur áfangi í því ferli að gera Akureyrarbæ að skilgreindu barnvænu sveitarfélagi. Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður ræddi við Ölfu Dröfn Jóhannsdóttir verkefnastjóra barnvæns sveitarfélags á Akureyri. Í kirkjugarði nokkrum í New Orleans í Louisiana í Bandaríkjunum er grafhýsi leikarans þekkta Nicholas Cage. Það má heita sérkennilegt enda Cage í fullu fjöri. Freyr Eyjólfsson rölti á dögunum um kirkjugarðinn og sagði hlustendum frá þessari furðu. Tónlist: You Are My Sunshine - Jimmie Davis Iko Iko - The Dixie Cups

Héraðið, ný íslensk kvikmynd eftir leikstjórann Grím Hákonarson, verður frumsýnd í bíóhúsum landsins á morgun. Héraðið fjallar um samskipti Ingu, miðaldra kúabónda, við kaupfélagið og kerfið. Arndís Hrönn Egilsdóttir sem fer með hlutverk Ingu í myndinni og Grímur, leikstjóri, komu í viðtal í þáttinn í dag. Alþjóðlegu mannúðarsamtökin Læknar án landamæra var boðið að taka þátt í tónleikaferðalagi Ed Sheeran og voru því á Laugardalsvelli um helgina að kynna störf sín með sýningu sem sett var upp á tónleikasvæðinu. Samtökin Læknar án landamæra voru stofnuð af hópi blaðamanna og lækna árið 1971 í París og eru í dag alþjóðleg samtök sem telja meira en 42 000 meðlimi. Við heyrðum í Helenu Jónsdóttur, hjálparstarfsmanni Lækna án landamæra í þættinum og fengum hana til að segja okkur frekar frá samtökunum og hvernig gekk um helgina. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, lagði leið sína að Bessastöðum í Hrútafirði til að ná í hesta sem hún hafði fest kaup á. Hún hitt þar bóndann og hestamanninn Jóhann Magnússon og dóttur hans hana Fríðu og ræddi við þau um hesta og hestamennsku. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG SIGURLAUG MARGRÉT JÓNASDÓTTIR
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók tímabundið við embætti dómsmálaráðherra á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Ráðstöfunin er til nokkurra vikna, að sögn Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Breskir þingmenn hafa undanfarinn klukkutíma greitt atkvæði um tillögur sem snúa að því að fresta Brexit - útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Tillögu um að halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu var hafnað með miklum meirihluta. Það er um 66 prósentum dýrara að reka heimili á Íslandi en í Evrópusambandinu. Ísland kemur illa út í samanburði við dýrustu löndin í sambandinu þegar litið er á verð á matvælum. Loðnubresturinn er sveitarfélögum sem byggja tilveru sína á vinnslu uppsjávarafla mikið áfall. Mörg þeirra skoða nú hvort ástæða sé til að endurskoða fjárhagsáætlun ársins. Samtök ferðaþjónustunnar lýsa fullum stuðningi við Samtök atvinnulífsins í kjaraviðræðum og hvetja verkalýðsfélög til að fresta verkföllum. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að framtíð greinarinnar hafi aldrei verið eins óljós. Nýjar rannsóknir og uppgötvanir benda til þess að handan Plútó sé pláneta sem sé um það bil 10 sinnum stærri en jörðin. Vísindamenn telja að tilvist hennar verði sönnuð á næstu 10 árum og hún verði 9. reikistjarna sólkerfisins. Jóhann Hlíðar Harðarson. Sumt fólk með þroskahömlun þrífst ekki innan hefðbundinna úrræða, því líður einfaldlega illa. Það átti við um Gísla Björnsson. Líf hans gjörbreyttist til hins betra þegar hann fékk NPA en móðir hans segir nýja fyrirkomulagið þó ekki gallalaust. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Gísla, Gunnhildi móður hans, Bryndísi Snæbjörnsdóttur, formann Þroskahjálpar og Björgvin Björgvinsson.
Systkynin Sigrún og Þórarinn rifja upp æsku sína bæði í ÞJóðminjasafninu og á Bessastöðum og velja nokkur lög í þættinum sem tengjast skemmtilegum minningum

Veðurhvellurinn síðasta sólarhringinn hefur reynt á björgunarsveitir og aðra viðbragðsaðila. Þegar vá ber að höndum eða slys verða treystum við á að net viðbragðsaðila komi til hjálpar. Þar er um að ræða stóran hóp atvinnufólks og sjálfboðaliða. En hvernig er hugað að þjálfun og samhæfingu alls þessa hóps? Málþing slysavarna- og viðbragðsaðila var haldið í gær. Einar Örn Jónsson, slysavarna- og björgunarmaður, sagði að niðurstaða málþingsins hefði verið sú að setja þyrfti á stofn sameiginlega þjálfunarmiðstöð á landinu. - Hvernig var stemmningin í veislu forseta lýðveldisins fyrir alþingismenn og maka á Bessastöðum í gærkvöld? Hverjar verða afleiðingarnar af lágkúrulegri framgöngu nokkurra þingmanna á opinberum stað og af niðrandi ummælum sem féllu þar um fjarstaddar þingkonur sérstaklega? Við spurðum tvo alþingismenn þessara spurninga: Kolbein Óttarsson Proppé og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. Og við ræddum líka stöðu fullveldisins og inntak þess - í tilefni af því að á morgun fagna Íslendingar því að öld er liðin frá því að Ísland varð fullvalda ríki. - Það er stundum sagt að við megum ekki gleyma. Ef við munum eftir mistökum fortíðar geta þau síður endurtekið sig. Með það fyrir augum hafa þau Sif Sigmarsdóttir rit- og pistlahöfundur í samstarfi við Halldór Baldursson skopmyndateiknara, gefið út bókina Sjúklega súr saga, sem er einfaldlega Íslandssagan í nýjum, gamansömum búningi. Tilgangurinn er að glæða söguáhuga hjá yngri kynslóðum. Sif Sigmarsdóttir var á línunni frá Lundúnum. - Já, við fögnum því á morgun að hundrað ár verða liðin frá því fámenn og fátæk þjóð varð fullvalda og sjálfstætt ríki. Við báðum Gunnar Þór Bjarnason, sagnfræðing, að draga upp mynd af þessum mikilvæga degi í sögu þjóðarinnar, 1.desember 1918, aðdragandanum og breytingunum í kjölfarið. Gunnar Þór hefur ritað bókina Hinir útvöldu - Söguna af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918. - Tónlist: Bob Markey - Is this love?; Einar Scheving - Draumalandið.
Heilaheill hefur gefið út nýtt app, eða snjallforrit, sem er ókeypis og virkar í flestum snjallstínum. Þar geta notendur skráð sig inn og fengið upplýsingar og fræðslu um það að fá heilaslag. Það lýsir fyrstu einkennum slags og getur hver og einn fræðst um einkennin. Þegar notandi er fullviss um að hann, eða honum nákominn, sé að fá slag sendist kennitalan sjálfvirkt í SMS (textaskilaboðum) í Neyðarlínuna. Hafi notandinn ekki burði til að tala eða gera grein fyrir hvar hann er, þá getur neyðarlínan sett í gang leitun að snjallsímanum með nokkurri nákvæmni og leiðbeint bráðaliðum. Mjög áhugavert og mikilvægt app, sem Þórir Steingrímsson frá Heilaheill sagði frá í þættinum. Við slógum á þráðinn austur en í gær voru opnaðar þrjár sýningar í Safnahúsinu og Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Sýning með verkum 40 listamanna sem allir eiga það sameiginlegt að tengjast Fljótsdalshéraði á einn eða annan hátt. Önnur sýningin ber nafnið Austfirskt fullveldi - sjálfbært fullveldi? Sýningin er sett upp í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands og er hluti af stærra verkefni sem níu mennta-, menningar-, og rannsóknarstofnanir á Austurlandi hafa tekið höndum saman um. Þriðja sýningin Gull og gersemar er sýning með leikföngum barna á Héraði í gegnum tíðina. Við töluðum við Elsu Guðný Björgvinsdóttur, safnstjóra Minjasafns Austurlands um sýningarnar. Lesandi vikunnar í þetta skiptið var engin önnur en stórleikonan Edda Björgvinsdóttr, sem var útnefnd í gær Borgarlistamaður Reykjavíkur og ekki nóg með það heldur fékk hún líka í gær Riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar. Hún var hjá okkur í dag og sagði okkur frá þessum viðburðarríka gærdegi, móttökunni sem hún fær á Bessastöðum í dag og svo hvaða bækur hún er að lesa og hvaða bækur og höfundar hafi haft áhrif á hana í gegnum tíðina Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Þegar Ásgeir Ásgeirsson var forseti voru Bessastaðir eins og háflgert sveitaheimili, Sólveig Pálsdóttir rithöfundur barnabarn Ásgeirs og Dóru Þórhallsdóttir rifjar upp þegar hún dvaldi á heimilinu og segir frá ævintýralegu lífi á Bessastöðum. Í þættinum verður einnig hringt í Albert Eiríksson sem segir frá Bessastaðakökunum og við heyrum hvernig Umba gékk að fá uppýsingar frá fröken Hnallþóru.

Formaður velferðarnefndar vill að Bragi Guðbrandsson hætti strax við framboð til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Hann njóti ekki lengur trausts. Félgasmálaráðherra vill bíða niðurstöðu óháðrar úttektar á afskiptum Braga af barnaverndarmáli. Fyrri ljósbogaofn kísilvers PCC á Bakka verður settur í gang í kvöld. Tekist hefur að leysa ýmis vandamál sem komið hafa upp síðustu daga og tafið fyrir gangsetningu. Tollar á fjölmargar tegundir matvöru frá Evrópusambandinu verða lækkaðir eða afnumdir á morgun. Formaður Félags atvinnurekenda segir að neytendur muni finna vel fyrir breytingunum. Efling, VR og Verkalýðsfélags Akraness munu krefjast þess í komandi kjarasamningum að lög verði sett til að tryggja réttindi leigjenda. Eftir margra ára þrengingar sjást loksins vísbendingar um efnahagsbata í Grikklandi, að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París. Breskir ráðherrar komast sjaldnast upp með að greina þinginu rangt frá og ,,óvart" er engin afsökun eins og Amber Rudd fyrrum innanríkisráðherra fékk að reyna. Votlendissjóður var formlega stofnaður á Bessastöðum í dag. Fyrsta verkefni sjóðsins verður að endurheimta votlendi í Fjarðabyggð. Ráðherra fyrir velferðarnefnd. Arnhildur Hálfdánardóttir segirf rá og ræðir við Halldóru Mogensen og Ásmund Einar Daðason. Afsögn Amber Rudd innanríkisráðherra Bretlands. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Votlendissjóður stofnaður. Arnar Páll ræðir við Ásbjörn Björgvinsson framkvæmdastjóra sjóðsins.
Illugi Jökulsson fjallar um Brynjólf Jónsson frá Minna Núpi og gluggar í bókina Dulrænar smásögur, sem gefin var út á Bessastöðum árið 1907. Þar má finna frásagnir og sagnaþætti sem Brynjólfur skrásetti eftir óljúgfróðu fólki.