POPULARITY
JútjúbJón mætir loksins aftur eftir jólafrí og kemur inn fyrir Matta sem þurfti að bregða sér af landinu. Fórum yfir það helsta undanfarið, Kendrick Lamar Slúður, Umhverfishorn Jóns, PottCastið og Myndir´ðu Fyrir Smá Aur. Þéttur pakki að vanda.Spekingar taka upp í Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
Þorkell Þorkelsson er eini íslendingurinn sem hefur markvisst ljósmyndað á stríðshrjáðum svæðum. Hann deilir með okkur sinni reynslu af stríðs- og heimildaljósmyndun. Við rýnum í breytta tíma innan fagsins enda hefur það að miklu leyti færst úr höndum fagmanna á vegum stórra miðla yfir til fólksins sem býr sjálft við hörmungar aðstæður. Aðgengi okkar sem heima sitja, að slíkum myndum hefur einnig breyst töluvert. Þjóðarmorðin í Palestínu eru náttúrulega nýlegt dæmi um ástand sem hefur verið myndað í bak og fyrir og birt á miðlum daginn inn og daginn út. Hvaða áhrif hefur það á þá sem heima sitja? Strákasveitin Iceguys hefur algjörega slegið í gegn, tekið íslenskt samfélag með trompi. Lögin er sungin af öllum leik- og grunnskólabörnum landsins, miðar á tónleika þeirra fyrir jól seldust eins og heitar lummur, og leiknir grínþættir um hljómsveitina njóta mikilla vinsælda. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar telur sig ekki vera í markhópi sveitarinnar en ákvað þó að horfa þættina - og hún segir frá í þætti dagsins. Frönsk kvikmyndahátíð hefst í Bíó Paradís um helgina. Kolbeinn Rastrick ætlar að segja frá tveimur myndum sem verða sýndar á hátíðinni, feminíska grínhryllingsræman Konurnar á svölunum, Balconettes, og draumkennda dramamyndin Miskunn, Misericordia.
Hvernig hugsum við um framtíðina? Er hún línuleg? Hringur? Kannski í laginu eins og blóm? Í fyrsta viðtali í framtíðarviðtalsröð Samfélagsins og Borgarbókasafnsins ræðum við við Juan Camilo, fjölmenningarfulltrúa hjá Háskóla Íslands og fræðimann og kennara, í breiðum skilningi þeirra orða, um framtíðina, forvera, menntun og ýmislegt fleira. Síðan fáum við til okkar Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins, sem beinir í dag sjónum sínum að örveraflórunni. Og svo heyrum við viðtal Samfélagsins við Guðrúnu Dröfn Whitehead, safnafræðing, sem tekið var á síðasta ári, um víkingaímyndir, útrásarvíkinga, karlmennsku og pólitískar öfgahreygingar. Tónlist: Lenker, Adrianne - Sadness as a Gift.
Styttist í sumarsólstöður og Spekingar eru hátt á lofti. Viðburðarík vika að baki, Topp 3, Gull Lite Testið, Frægar Línur, Myndirðu Fyrir Smá Aur og Helgin sigldi þessu heim. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
Kosningar að baki og eins og forseti vor sagði orðrétt í viðtali á kosningavökunni á RÚV: "Þetta er fyrir Spekingana að spjalla”. Þeir skorast ekki undan því. Vikan, Slúður, TayTay Hornið, Hvort Myndir Þú Frekar, Myndirðu Fyrir Smá Aur, Topp 3, Kvikmyndaskorið, Snælduvitlausar Staðreyndir og Helgin í lokin.
Full mannað þessa vikuna. Fórum yfir vikuna, Hvort Myndir Þú Frekar, Topp 3 motivational quotes, geggjaðar Frægar Línur, kosninga Kvikmyndaskor og Helgin í lokin. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
Glamúrinn á hinu víðfræga Met Gala-kvöldi í New York í síðustu viku hefur farið öfugt ofan í netverja síðan í síðustu viku. Myndir af stórstjörnum í skrautlegum og íburðarmiklum tískufatnaði fara um miðlana eins og eldur í sinu, og er gjarnan stillt upp andspænis myndum af hryllingi stríðsátaka og hungursneyðar. Nú er kallað eftir því að við blokkerum stjörnur og áhrifavalda á öllum helstu samfélagsmiðlum. Hvers vegna? Baldur og Erla Hlín kynntust í djasshljómfræðitíma í MÍT, og stofnuðu í kjölfarið hljómsveitina Amor Vincit Omnia, sem kemur til með að senda frá sér sitt fyrsta lag á föstudaginn. Við tökum púlsinn á Baldri og Erlu, og frumflytjum lagið. Gervigreindin færist inn á sífellt fleiri svið lífs okkar, það getur bæði vakið spennu og forvitini. Í sumum tilfellum vekur það upp siðferðislegar spurningar eða jafnvel ótta. Í dag er hægt að leita sér hjálpar við andlegum kvillum sínum, sækja meðferð hjá gervigreindarspjallmennum sem hafa þá sérhæfingu að leiða fólk í gegnum allskonar sjálfsvinnu eða þerapíu. Og ein slík þjónusta er á vegum íslendings, Gunnars Jörgens Viggósonar og heitir Heartfelt services.
Vorfríinu lokið og Spekingar eru mættir á færibandið. Sneisafullur þáttur framundan kæru hlustendur. Spekingar taka upp í Podcaststöðinni og eru í boði Gull Lite.
Páskaspecial frá Spekingum. Gleðilega páska kæru vinir. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Rífandi gangur í Spekkuðum um þessar mundir. Fastir liðir en nýr leit þó dagsins ljós. Páskarnir framundan og Spekingar biðja öll um að fara varlega yfir hátíðirnar. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Spekingar eru 3 þessa vikuna og í raun og veru er réttnefni þáttarins Vitringarnir 3. Brakandi Slúður, Gemil Hornið snýr aftur, Topp 3 bestu erlendu þættirnir, Myndir Þú Fyrir Smá Aur snúið að vanda og Party Preference kom ferskur inn. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Dagur fyrstu ástar Matta runninn upp en það er dagur bjórsins. Samband þeirra er enn ótrúlega sterkt og hittast þeir flesta daga. Það er því auðvitað bjór þema. Sérlegur gestur þáttarins er Auðjón Guðmundsson. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Í nógv ár hevur Harald Bjørgvin droymt um at sleppa til Antarktis at taka myndir. Tá hann sá, at kendi myndamaðurin, Nigel Danson, fór at halda eitt skeið í myndatøku í Antarktis, byrjaði hann at spara sær pening saman til ferðina. Hann hevur nú verið 8 dagar í Antarktis. Saman við 84 øðrum myndafólkum lærir hann eina rúgvu um at taka góðar myndir. Tey búgva umborð á skipinum Sylvia Earle, og tvær ferðir um dagin fara tey útferðir við gummibátum. Niðanfyri ber til at síggja nakrar myndir, sum Harald hevur tikið á túrinum.
Cory Barlog spilaði Hades og ákvað að gera sinn eigin ... og hann er geggjaður. Spoiler filled þáttur um GOD OF WAR RAGNARÖK dlc pakkann VALHALLA. Spilið hann og horfið svo á þennan þátt. Myndir þú vilja spila God of War: Betlehem þar sem jésúbarnið er loka boss? Hvernig fannst þér Valhalla? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Þættirnir A dangerous boy sem fjalla um Sigurð Þórðarson, eða Sigga hakkara, fóru nýlega í sýningu á Stöð 2. Ættingjar eins þolanda Sigurðs, sem er dæmdur kynferðisbrotamaður, lýstu yfir mikilli óánægju með þættina og sérstaklega atriði í þeim þar sem Siggi fer að leiði drengsins, sem tók sitt eigið líf árið 2016. Við ræðum þetta og þau álitamál sem tengjast þáttunum við Aðalstein Kjartansson, blaðamann Heimildinnar, og Hrafnhildi Gunnarsdóttur, heimildamyndagerðakonu. Sunnudaginn 28. janúar fer fram fyrsta sýning ársins hjá Bíótekinu, samstarfsverkefni Kvikmyndasafns Íslands og Bíó Paradís, en um er að ræða úrval kvikmynda frá Palestínu; tvær stuttmyndir síðdegis og tvær myndir í fullri lengd þegar líður á kvöld. Við ræðum við Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, verkefnastjóra Kvikmyndasafnsins. The Piper er nýjasta kvikmynd leikstjórans Erlings Thoroddsen, en hún byggir á þýsku þjóðsögunni um rottufangarann frá Hameln. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í myndina. Fairuz - Aloula King Crimson - I Talk To The Wind
Stofnun í Suður-Kóreskum fræðum hefur verið komið á fót í Háskóla Íslands. Hér er ríkur áhugi á Suður-Kóreu, tungumálinu og menningunni að sögn Geirs Sigurðssonar prófessors. Það er ekki síst ungt fólk sem hefur áhuga og er hann að öllum líkindum tilkominn vegna vinsælda popptónlistar og sjónvarpsefnis frá landinu. Himneskt stefnumót Venusar og Mánans í gærmorgun vakti athygli margra. Sævar Helgi Bragason sagði stuttlega frá Venusi. Afkoma flugfélaga og samkeppni þeirra um flugmenn og flugvélar voru m.a. til umfjöllunar í ferðaspjalli með Kristjáni Sigurjónssyni, ritstjóra Túrista. Myndir af lúsétnum laxi í kvíum í Tálknafirði hafa vakið óhug. Veiga Grétarsdóttir, kæjakræðari og náttúruunnandi, sem tók myndirnar sagði frá þeim og spjallaði vítt og breytt um afstöðu sína til laxeldis í opnum sjókvíum og íslenska náttúru. Tónlist: Hugsa til þín - Mugison, Silfurofinn - Hekla Magnúsdóttir, Shavi shashvi - Hamlet Gonashvili, Heimförin - Ásgeir Trausti og Sinfó, Maggie May - Rod Stewart. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.
Stofnun í Suður-Kóreskum fræðum hefur verið komið á fót í Háskóla Íslands. Hér er ríkur áhugi á Suður-Kóreu, tungumálinu og menningunni að sögn Geirs Sigurðssonar prófessors. Það er ekki síst ungt fólk sem hefur áhuga og er hann að öllum líkindum tilkominn vegna vinsælda popptónlistar og sjónvarpsefnis frá landinu. Himneskt stefnumót Venusar og Mánans í gærmorgun vakti athygli margra. Sævar Helgi Bragason sagði stuttlega frá Venusi. Afkoma flugfélaga og samkeppni þeirra um flugmenn og flugvélar voru m.a. til umfjöllunar í ferðaspjalli með Kristjáni Sigurjónssyni, ritstjóra Túrista. Myndir af lúsétnum laxi í kvíum í Tálknafirði hafa vakið óhug. Veiga Grétarsdóttir, kæjakræðari og náttúruunnandi, sem tók myndirnar sagði frá þeim og spjallaði vítt og breytt um afstöðu sína til laxeldis í opnum sjókvíum og íslenska náttúru. Tónlist: Hugsa til þín - Mugison, Silfurofinn - Hekla Magnúsdóttir, Shavi shashvi - Hamlet Gonashvili, Heimförin - Ásgeir Trausti og Sinfó, Maggie May - Rod Stewart. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Eyrún Magnúsdóttir.
Loksins mættir aftur eftir fjarveru en aldrei verið betri. Farið yfir ástæðu fjarveru okkar í vikunni, Topp 3 skemmtilegustu fríin, Létt&Laggot snúið, Hvort myndir þú frekar þægilegt og trúðamyndir í Kvikmyndaskorinu. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Það þurfti bara eitt screenshot af Snap Maps til að vinda ofanaf hrottalegu morði á hjónum í blóma lífsins. Say no more. Myndir á instagram!
Nasubi var tvítugur grínisti frá Japan sem þurfti að þola hræðilega einangrun í 15 mánuði. Hann var nýútskrifaður úr menntaskóla og var að reyna að meika það í skemmtanabransanum, þegar hann fór í prufur fyrir raunveruleikaþátt sem átti eftir að breyta lífi hans. Nasubi þurfti að þola hræðilega kúgun og misrétti, en hinum megin við sjónvarpskjáinn hló og skemmti sér heil þjóð af því að jú, öll Japan fylgdist með honum. Myndir og myndbönd á Instagram!!
Elisabeth Finch var einn af 17 handritshöfundum Greys Anatomy en á meðan hún skrifaði fyrir Greys gekk hún í gegnum mikil veikindi og áföll í persónulega lífinu og notaði þau sem söguþráð í þættina. En var hún dauðvona? Myndir og fleira á instagram!
Við biðjum ykkur góðu hlustendur afsökunar á messufalli síðustu vikur. Mættir aftur og aldrei sterkari. Síðustu vikur viðburðaríkar, Slúðrið sjóðandi, TayTay Hornið góða, Myndir´ðu fyrir Aur, Kvikmyndaskorið um London myndir og Tilfinningaskalinn léttur þessa vikuna. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Við sendum út beint frá Háskólabíói þar sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, er um það bil að hefjast. Þetta er í 20 skipti sem hátíðin er haldin. Hún stendur yfir næstu 11 dagana. Í þættinum í dag fáum við til okkar kvikmyndaunnendur sem hafa stúderað dagskránna og benda okkur á nokkrar áhugaverðar myndir á hátíðinni. Sigríður Regína og Gunnar Theodór ræða um nýja mynd frá Yorgos Lanthimos, um hinsegin heimildarmyndir og Við grípum Ninnu Pálmadóttur leikstjóra opnunarmyndar Riff í ár: Tilverur eða Solitude. Við heyrum hvernig hún undirbýr sig fyrir frumsýningu með farða og Fleetwood Mac. Við munum pæla í tilgangi og áhrifum Riff á 20 ára afmæli hátíðarinnar með góðum gestum. Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndaframleiðandi segir frá erfiðleikunum við að sitja í dómnefnd og dæma listaverk, og Brúsi Ólason lektor við kvikmyndadeild LHÍ segir frá því þegar hann sá tæplega 40 bíómyndir á einni RIFF-hátíð ásamt félaga sínum.
Við sendum út beint frá Háskólabíói þar sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, er um það bil að hefjast. Þetta er í 20 skipti sem hátíðin er haldin. Hún stendur yfir næstu 11 dagana. Í þættinum í dag fáum við til okkar kvikmyndaunnendur sem hafa stúderað dagskránna og benda okkur á nokkrar áhugaverðar myndir á hátíðinni. Sigríður Regína og Gunnar Theodór ræða um nýja mynd frá Yorgos Lanthimos, um hinsegin heimildarmyndir og Við grípum Ninnu Pálmadóttur leikstjóra opnunarmyndar Riff í ár: Tilverur eða Solitude. Við heyrum hvernig hún undirbýr sig fyrir frumsýningu með farða og Fleetwood Mac. Við munum pæla í tilgangi og áhrifum Riff á 20 ára afmæli hátíðarinnar með góðum gestum. Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndaframleiðandi segir frá erfiðleikunum við að sitja í dómnefnd og dæma listaverk, og Brúsi Ólason lektor við kvikmyndadeild LHÍ segir frá því þegar hann sá tæplega 40 bíómyndir á einni RIFF-hátíð ásamt félaga sínum.
Tveir Spekingar uppteknir en Atli Þór mætti í þeirra stað enda tveggja manna maki. Farið yfir vikuna, Topp 3 á sínum stað, Myndir´ðu Fyrir Smá Aur og Helgin er framundan. Frábær skemmtun fyrir ykkur frábæra fólk. Farið varlega og hringið í mömmu ykkar og segið henni hvað ykkur þykir vænt um hana. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Helgi tók þátt í hvalveiði mótmælunum nú á dögunum. Hjálmar væri til í að taka námslán ef það væri í boði. Helgi gerði símaat í Össur með splunkunýju gríni.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Þátturinn er í boði VitHit og Kúmen í Kringlunni
Þátturinn er í boði Bio-kult, VitHit & Kúmen.
Spekingar voru án Sæþórs þessa vikuna en hann fékk heimsókn frá Iðnaðarmanni ársins honum Ella smið, sem er ekkert eðlilega flottur smiður. Spekingar fóru yfir vikuna að vanda, Slúðrið var á sínum stað, Karen sendi inn bréf í TayTay horninu, Frægar línur komu aftur eftir langt hlé, Topp 3 besti grillmaturinn, Tilfinningaskalinn var óþægilegur að venju og Myndirðu fyrir smá Aur setti spekinga í flækju áður en farið var yfir það sem komandi helgi býður uppá. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Það er fullmannað skip þessa vikuna, loksins segir einhver en áfram gakk. Spekingar fóru að venju yfir vikuna, Góðgerðar Matti kíkti í heimsókn, Slúðrið var á sínum stað, frábær úrslit í Topp 3, Tilfinningaskalinn sprakk þegar Spekingar neiðuðu að svara erfiðum þrýsting frá Jútube, Kvikmyndaskorið mætti aftur eftir pásu og Myndirðu fyrir smá Aur. Spekingar enduðu að venju á því helsta sem er að gerast um helgina. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Melissu Highsmith var rænt aðeins 22 mánaðar gamallri. 51 ári síðar eða þann 28. nóvember síðastliðinn fannst hún. Myndir á instagram!
Skytturnar þrjár eru mættar þessa vikuna. Tækni-Slúður á gervihnattaöld, Topp 3 uppáhalds símarnir sem við höfum átt, allir samstíga og sammála í Myndir´ða fyrir Smá Aur og Tilfinningaskalanum og Spekingur vikunnar var krýndur. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Euro Pub-Quiz verður þann 11. Maí kl: 18 í KeiluhöllinniHelgi er núna staddur í Gvatemala að stunda sjálfsrækt, en hann er ekki búinn að bóka flug til baka. Hjálmar spurði Helga hvað hann fengi í arf ef allt færi á versta veg, og svo fór Hjálmar yfir það hvað hann væri með í tímakaup á meðan hann væri að uppfylla lokaósk Helga.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Spekingar söknuðu Sæþórs þessa vikuna, en hann er á fullu í framkvæmdum. Það skipti engu máli þar sem Jón mætti þríefldur til leiks. Matti mætti til landsins í einn dag, eingöngu til þess að taka upp þáttinn og rauk svo aftur til útlanda. Spekingar fóru yfir Slúðrið, Myndirðu fyrir Smá Aur var á sínum stað, Karen skrifaði bréf í TayTay hornið og Tilfinningaskalinn mætti til leiks og var með alvöru vesen fyrir Spekinga. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Sneisafullur þáttur að vanda. Páskar að baki og hversdagsleikinn tekinn við. Við Slúðruðum, áfall fyrir TeyTey samfélagið um páskana, Topp 3 uppfinningar, Létt og Laggott var gott, snúið Myndir´ðu fyrir smá Aur og erfiðar ákvarðanir í Vel eða Kvel. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Lóan mætt á landið og kom með brakandi Spekinga þátt með sér. SlúSlú á sínum stað, Karen las yfir Spekingum í TayTay horninu, ósætti í Myndir´ðu Fyrir Smá Aur, Topp 3 búningar í svefnherberginu (já skrýtið ég veit) og eðal kvikmyndaskor. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Loksins loksins þáttur. Spekingar stórskuldugir þáttalega séð. Stóra skíðaferðin rædd, eða þ.e.a.s. það sem má ræða um, brakandi Slúður beint úr ofninum, Jón með To Eat Or Not To Eat, Topp 3 páskaegg og ljómandi Myndir´ðu fyrir Aur. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Jahérna hér kæru vinir! Movinight svíkur engann nema þá kannski Love Island eyjaskeggja. Ef það kemur ykkur á óvar þá höfðu vinkonurnar sterka skoðanir á þessu öllu saman og láta þær vissulega í ljós hér í þættinum!
Í ólgusjó hækkun stýrivaxta, verkföll daglegt brauð og nú verkbann, þá róa Spekingar á miðin. Mikil óvissa framundan en það eina sem er víst, er að Spekingar eru mættir. Slúðrið var allt mjög óljóst hjá Matta, TayTay hornið vafasamt, Topp 3 skyndibitakeðjur, menn óvissir í Myndir Þú Fyrir Smá Aur og To Eat or Not To Eat kom verulega á óvart. Allt fyrir ykkur kæru hlustendur. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Sumir Spekingar eru hressari en aðrir á þessu fimmtudagskvöldi og Sæþórs var sárt saknað. Á borði Spekinga var Slúðrið, Topp 3, mjög létt lesendabréf sem kom á óvart, TayTay hornið, Myndirðu fyrir smá Aur og Fáránlegar staðreyndir voru fáránlegar að þessu sinni. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Spekingar fáliðaðir í kvöld en það kemur ekki á sök. Á borði Spekinga var Slúðrið, Topp 3, Myndirðu fyri smá Aur, Kvikmyndaskorið, allt eins og það á að vera og meira en það. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
200 þættir í hús. Spekingar eru fullmannaðir þó skipið skríði seint að bryggju þessa vikuna. Slúðrið sjóðandi, TayTay Hornið lét okkur heyra það, Topp 3 uppáhalds Spekinga þættirnir okkar, Myndir´ðu fyrir smá Aur leyndi á sér, Vel eða Kvel verulega óþæginlegt og Fáránlegar Staðreyndir stóður fyrir sínu. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Flottur þáttur hjá strákunum þó svo að Sæþór hafi vantað (útaf dálitlu). Slúðrið er að sjálfsaögðu á sínum stað, TayTay hornið fékk bréf, nýr liður Fáránlegar staðreyndir, Topp iðnaðarjobbið, Myndirðu fyrir smá Aur og Vel eða Kvel var með uppákomu. Við minnum á að það er hægt að senda hlustendabréf á jutjupjon@gmail.com ef þér liggur eitthvað á hjarta hlustandi góður. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Ný vika nýjar áskoranir. Full skipuð vakt hjá Spekingum í dag. Ágreiningur í Slúðrinu, Hlustandi sendi Spekingum bréf, Hocky Hornið aftur eftir hvíld, Vel eða Kvel tengt íslenskum landsliðsmönnum, Topp 3 bestu kvenn uppistandararnir, hversu langt erum við til í að ganga í Myndir´ðu fyrir smá Aur og nýtt tvist í Gull Lite Testinu. Línan er opin fyrir hlustendur og endilega sendið JútjúpJóni allt sem liggur ykkur á hjarta á netfangið jutjupjon@gmail.com. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Spekingar komu saman í Nóa Síríus stúdíóinu án Sæþórs í þetta skiptið. Brakandi ferkst slúður í bland við klassískt gamalt og gott slúður, Nett bréf frá Karen í TayTay, Topp 3 frægar línur í kvikmyndum, Myndirðu Fyrir Smá Aur og Vel eða Kvel þar sem Spekingar voru ekki alveg sammála um hvern skal velja og hvern skal kvelja. Góðar stundir. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Nú líður að jólum og allar seríur komnar upp. Ótrúleg vika hjá Spekingum, fórum yfir vikuna, Taylor Swift klúbburinn tróð sér inn í dagskrána, Topp 3 hrós, Vel eða Kvel fyrir lengra komna, Myndir þú fyrir Aur á gráu svæði og helgin framundan er nokkuð heit þrátt fyrir kulda í kortunum. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Í laufléttum og skemmtilegum jólaþætti fá Dagrún og Vilhelmína til sín góða gesti. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum – þjóðfræðistofu, segir fréttir af starfseminni. Í haust stóð Rannsóknasetrið fyrir athyglisverðu námskeiði fyrir almenning um ritun endurminninga. Námskeiðið var vel sótt og tókst með eindæmum vel. Þá segir Eiríkur frá nýrri bók sem kom út nú í desember og nefnist Myndir og minningar frá Ströndum. Bókin er samstarfsverkefni Rannsóknarsetursins og Sauðfjárseturs. Í bókinni eru 42 frásagnir og myndir, sem eru jafn fjölbreyttar og þær eru margar og koma frá fólki á Ströndum eða sem hefur tengingar við svæðið. Myndirnar og frásagnirnar. Eiríkur ræðir einnig ýmsa þjóðtrú tengda veðri og gefur góð ráð hvernig spá má fyrir um jólaveðrið. Eva Þórdís Ebenezerdóttir doktorsnemi í þjóðfræði segir frá jólasveininum Stekkjastaur út frá nýstárlegu sjónarhorni. Stekkjastaur er þekktur fyrir að vera stirður og með staurfót, en hvað þýðir það í raun? Í rannsóknum sínum blandar Eva Þórdís saman þjóðfræði og fötlunarfræði og í þættinum greinir hún frá niðurstöðum sínum varðandi þennan áhugaverða jólasvein og birtingarmyndir hans. Að lokum ræða Dagrún og Vilhelmína við Margréti Höskuldsdóttur rithöfund. Bók hennar Dalurinn kom út fyrr á þessu ári. Bókin segir frá Sif, ungum þjóðfræðinema sem dvelur í afskekktum dal vestur á fjörðum og skrifar þar lokaritgerð í þjóðfræði. Dularfullir atburðir eiga sér stað og ýmsar þjóðsagnapersónur og vættir koma við sögu. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir í þjóðfræði og fjölbreytta miðlun á þjóðfræðiefni. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Spekingar loksins fjórir. Vikan var mjög áhugaverð, Slúðrið kom á óvart, In a Mood For a Food hélt áfram, Topp 3 besta kvikmynda tvíeykið, ósanngjarnt Myndir þú fyrir smá Aur og helstu lúðar knattspyrnunnar í Gull Lite testinu. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Matti gaf sér smá tíma á milli utanlandsferða og er mættur með Sesa og Sæsa í stúdíóið. Heitt á könnunni í Slúðrinu, dustuðum rykið af gamla dagskrárliðnum In a Mood for a Food, Topp 3 hvaða íþrótt myndir þú vilja vera atvinnumaður í, nýr dagskrárliður, Myndir þú fyrir smá aur og Mattaþema í Kvikmyndaskorinu. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Þann 21.nóvember keyrði Darrell Brooks inn í skrúðgöngu eftir að hafa rifist við fyrrverandi kærustu sína með þeim afleiðingum að 6 létu lífið og tæplega 70 slösuðust alvarlega. Myndir og myndbönd á instagramminu - Já elskan