Podcasts about mi austurl

  • 16PODCASTS
  • 56EPISODES
  • 1h 18mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Apr 1, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about mi austurl

Latest podcast episodes about mi austurl

Ein Pæling
#405 Hermann Nökkvi og Ingvar Smári - Norðurlöndin munu loka hælisleitendakerfunum til að vernda velferðarkerfin

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 55:14

Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður Morgunblaðsins, og Ingvar Smári Birgisson, lögmaður fara yfir helstu málefni líðandi stundar með Þórarni. Sérstök áhersla er lögð á útlendingamál, aðlögun, menningu og gildi. Einnig er rætt um mál Ásthildar Lóu sem nýlega sagði af sér sem barna- og menntamálaráðherra. - Er mismunandi hvaða hópa þarf að aðlaga? - Hvernig geta þeir sem gagnrýna feðraveldið á Íslandi fjallað um kvenréttindi í Mið-Austurlöndum á jákvæðum nótum? - Munu Norðurlöndin hætta að taka á móti hælisleitendum til að verja velferðarkerfin? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270

Rauða borðið
Rauða borðið 12. des - Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 12, 2024 200:47

Fimmtudagur 12. desember Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands ræðir við okkur um eftirleikinn eftir fall Assads í sýrlandi. Mögulegar hættur vegna uppgangs öfgahópa á svæðinu, innrásir Ísraela á nágranna sína og skýrir áhrif þessa alls á fólkið sem enn situr fast á Gaza í miðju þjóðarmorðs. Til að ræða nýútkomna þýðingu á verðlaunabókinni Þessir helvítis karlmenn mætir þýðandinn sjálfur, Þórdís Gísladóttir rithöfundur og Valgerður Ólafsdóttir, skólasálfræðingur og rithöfundur og ræða bókina. Til að ræða nýjar samtímabókmenntir sem koma nú út í þýðingum mæta Snæfríð Þorsteins, Helga Soffía Einarsdóttir, Einar Kári Jóhannsson og María Rán Guðjónsdóttir og segja okkur frá nýjum þýðingum og stöðu þýðinga í íslenskum samtímabókmenntum. Peter Maté er Íslendingum að góðu kunnur, hann hefur reynt mikill áhrifavaldur í íslensku listalífi og kenndi bæði Laufeyju og Víkingi Heiðari að leika á hljóðfæri. Peter ræðir við Björn Þorláks.

Heimskviður
195 - Raddir frá átakasvæðum og Ástralíuferð Karls Bretakonungs

Heimskviður

Play Episode Listen Later Oct 19, 2024 42:19

Við ætlum að fjalla um stríð og frið. Það er víst nóg af því fyrrnefnda sérstaklega eins og við sjáum í fréttum alla daga, bæði í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Við heyrum í þremur viðmælendur sem lýsa því hvernig er að búa við stríð og það þekkja þau vel. Þau eru frá Palestínu, frá Líbanon og frá Úkraínu. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við þau öll, og ekki bara um stríð, heldur líka frið og friðarhorfur. Karl þriðji Bretakonungur er kominn til Ástralíu. Opinber heimsókn hans og Camillu drottningar hófst í gær. Þetta er í sautjánda sinn sem Karl ferðast til Ástralíu en þetta er fyrsta heimsóknin frá því hann varð konungur. Líka í fyrsta sinn sem Bretakonungur kemur til Ástralíu og kannski líka í það síðasta, því þessar heimsóknir kóngafólksins vekja alltaf upp umræðuna í Ástralíu, hvort Ástralar þurfi yfir höfuð að vera undir bresku konungsfjölskyldunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið.

Heimsglugginn
Harmleikur í Mið-Austurlöndum og landsfundur breskra Íhaldsmanna

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 23:01

Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu um hörmuleg átök í Mið-Austurlöndum þar sem veruleg hætta er á frekari útbreiðslu og hörmungum fyrir fólk sem þarna býr. Gyðingahatur hefur aukist mikið síðasta árið eftir árás Hamas á Ísrael og gífurlega mannskæðar árásir Ísraelshers á Gaza. Þá ræddu þau einnig landsfund breska Íhaldsflokksins og þau fjögur sem berjast um að taka við af Rishi Sunak sem leiðtogi flokksins.

Rauða borðið
Rauða borðið 3. okt - Líbanon, hægrið, samkeppni og sagnfræði

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 3, 2024 201:22

Fimmtudagurinn 3. október Líbanon, hægrið, samkeppni og sagnfræði Við byrjum á Radíó Gaza: María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir um ástandið í Mið-Austurlöndum við Margréti Marinósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margréti Guðmundsdóttur mannfræðing sem báðar þekkja þennan heimshluta vel. Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi er búinn að stofna Lýðræðisflokkinn. Hann kemur og segir okkur frá flokknum, hægrinu og samfélaginu. Benjamín Julian verkaefnastjóri í verðlagseftirliti Alþýðusambandsins segir okkur frá verðsamkeppni á matvörumarkaði og hvernig búðir geta haldið uppi verði þar sem samanburður er illframkvæmanlegur. Í lokin koma ungir sagnfræðingar, Unnur Helga Vífilsdóttir, Þórey Einarsdóttir og Kolbeinn Sturla G. Heiðuson, og segja okkar frá rannsóknum sínum og stöðu sögunnar í samtímanum.

Spegillinn
Magnús Þorkell um stöðuna í Miðausturlöndum og íbúðarkaup ungs fólks

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 1, 2024 20:00

Ísraelar hafa gert fjölda loftárása á Líbanon síðustu daga og innrás Ísraelshers á jörðu niðri er hafin. Hátt í þúsund manns hafa fallið í Líbanon á síðustu dögum og hundruð þúsunda eru á flótta. Eins og fram kom í fréttum hefndu Íranir árásanna á Hezbollah og drápsins á leiðtoga samtakanna með eldflaugaárás síðdegis í dag. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson sérfræðing í málefnum Miðausturlanda skömmu áður en þær árásir hófust spurði hvernig hann mæti stöðu mála í Líbanon. Hvorki veður né náttúruvá útiloka að flugvöllur verði gerður í Hvassahrauni. Starfshópur sem hefur verið að störfum frá því sumarið 2020 kynnti í morgun niðurstöður sínar og þar er lagt til að frekari rannsóknir verði gerðar til að mynda á ókyrrð, unnið verði áhættumat vegna fjárfestingar og að tekið verði frá svæði upp af Hvassahrauni fyrir tvær allt að þriggja kílómetra langar flugbrautir og þá þriðju sem yrði einn og hálfur kílómetri. Hlutfall ungs fólks með íslenskt ríkisfang sem á fasteign er með mesta móti miðað við undanfarin 15 ár. Þetta kemur fram í nýlegu minnisblaði fjármálaráðuneytisins. Þetta segir þó aðeins hálfa söguna því meirihluti fyrstu kaupenda virðist njóta fjárhagslegrar aðstoðar og vísbendingar eru um að hún sé meiri en nokkru sinni áður.

hezbollah magn ragnarsd bernhar mi austurl starfsh
Flugvarpið
#86 - Risaflugfélagið RiyadhAir í bígerð – flugmannslíf í miðausturlöndum – Hannes Ingi Guðmundsson

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Aug 8, 2024 78:24

Hannes Ingi Guðmundsson þjálfunarflugstjóri RiyadhAir segir hér frá atriðum á merkilegum ferli sínum og þáttöku í því stóra verkefni við að koma rekstri RiyadhAir af stað á næstu mánuðum. Áætlanir félagsins eru að stækka mjög hratt á allra næstu árum og hefur félagið nú þegar yfir 70 B787 Dreamliner flugvélar í pöntun frá Boeing verksmiðjunum. Hannes Ingi gefur hlustendum innsýn í líf flugmannsins í miðausturlöndum þar sem hann á mörg ár að baki í vinnu fyrir Emirates í Dubai, en Dalvíkingurinn tók sín fyrstu skref í fluginu hér á Íslandi, en hélt síðan af landi brott til að vinna fyrir RyanAir og svo Emirates.

Spegillinn
Stríð og friður í Miðausturlöndum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jul 31, 2024 10:00

Hefndarstríð Ísraela gegn Palestínumönnum vegna mannskæðrar hryðjuverkaárásar vígasveita Hamas í fyrra haust hefur staðið í tæpa tíu mánuði. Á þessum tíma hafa Ísraelar drepið um 40.000 almenna borgara, að meirihluta til konur og börn, og lagt stóran hluta allra mannvirkja á Gaza í rúst. Þrátt fyrir mikinn og vaxandi þrýsting frá alþjóðsamfélaginu eru engin teikn á lofti um að lát verði á þessum stríðsrekstri í bráð heldur benda viðburðir síðasta sólarhrings frekar til þess að ófriðarbálið í austurlöndum nær muni brenna enn heitar og að líkurnar á því að stríðið eigi eftir að breiðast út aukist frekar en hitt, en Ísraelar drápu bæði stjórnmálaleiðtoga Hamas, þar sem hann var staddur í Teheran í Íran, og háttsettan leiðtoga Hezbollah-samtakanna í Beirút, höfuðborg Líbanons. Magnea Marínósdóttir stjórnmálafræðingur hefur lengi fylgst með stöðu og þróun mála í Miðausturlöndum. Hún segir drápið á þessum manni, á þessum tíma og þessum stað bæði stór og slæm tíðindi, sem þó þurfi ekki að koma á óvart, enda hafi Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels og ríkisstjórn hans, lýst alla leiðtoga Hamas réttdræpa og Hanyeh ekki sá fyrsti sem hlýtur þessi örlög. Tímasetningin ljái morðinu á honum þó enn meiri þýðingu en ella , bæði fyrir Ísrael og Hamas. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.

Spegillinn
Fer Katrín fram eða ekki? Spennan í mið-austurlöndum eykst enn, stórhuga hugmyndir um Hóla

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 2, 2024 20:00

Fer hún fram eða ekki? Hrekkur hún eða stekkur? Hvenær segir hún af eða á? Stjórnmálastéttin og ekki síður þeir sem stefna á forsetaframboð bíða þess í ofvæni að forsætisráðherra tilkynni hvort hún ætlar sjálf fram. Spáð var í spilin með Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur. Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda, segir spennuna á svæðinu hafa aukist til muna eftir árás Ísraelshers á ræðismannaskrifstofu Írans í Sýrlandi. Þótt íranskir ráðamenn segi að árásinni verði svarað sé óvíst hvernig það verði gert. Komnar eru fram stórhuga hugmyndir um endurreisn þjóðmenningarseturs á Hólum í Hjaltadal. En til að það gangi eftir vilja heimamenn nyrðra að eigandi Hólastaðar, íslenska ríkið, komi enn frekar að málum. Staðarhald Hólastaðar er í lausu lofti eftir að grein um slíka ábyrgð var tekin út úr starfsreglum Háskólans á Hólum.

sta magn fram fer stj katr ekki hven vigd hugmyndir mi austurl bernhar hjaltad
Heimsglugginn
Hörmungarástandið í Mið-Austurlöndum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 21, 2024 23:28

Magnús Þorkell Bernharðsson var gestur Heimsgluggans og þeir Bogi Ágústsson ræddu hörmungarástandið á Gaza og átökin þar sem hafa kostað meir en 30 þúsund manns lífið á undanförnum mánuðum.

gaza magn bogi bernhar mi austurl
Rauða borðið
Úkraína, bíó, biskupskjör og Gaza

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 26, 2024 268:54

Mánudagurinn 26. febrúar Úkraína, bíó, biskupskjör og Gaza Við byrjum á að slá á þráðinn til Erlings Erlingssonar hernaðarsagnfræðings í tilefni af því að tvö ár eru liðin frá innrás rússneska hersins í Úkraínu. Er einhver að vinna þetta stríð? Eða allir að tapa? The Zone of Interest er sterk mynd um hversdagsleika illskunnar. Anna Sigrún Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur og feðgarnir Árni Óskarsson þýðandi og Bergur Árnason kvikmyndagerðarmaður koma að rauða borðinu og segja okkur frá myndinni og hvers vegna hún hafði svo sterk áhrif á þau. Við höldum kirkjuþing um biskupskjör með þeim Skúli S. Ólafsson presti í Neskirkju og Sigurvin Lárus Jónsson presti í Fríkirkjunni í Reykjavík, spyrjum um stöðuna á kirkjunni og frammistöðu biskupsefna í viðtölum við Rauða borðið. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri og metur stöðuna á Gaza og áhrif ástandsins á Mið-Austurlönd og heimspólitíkina.

Víðsjá
Íslensku bókmenntaverðlaunin, Kannibalen, andrúmsloft og Fairuz

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 1, 2024 51:52

Líbanska söngkonan Fairuz er ekki aðeins í hálfgerðri dýrlingatölu á Mið-Austurlöndum heldur er hún dýrkuð víða um veröld. Á Vetrarhátíð fara fram tónleikar í Salnum í Kópavogi þar sem tónlist Fairuz mun hljóma í flutningi hóps tónlistarfólks og gestasöngvara. Við ræðum við Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur sem er einn af listrænum stjórnendum viðburðar. Viktoría Blöndal, höfundur og leikstjóri, verður einnig með okkur í dag en hún er á höttunum eftir andrúmslofti og í sínum öðrum pistli um fyrirbærið ætlar að reyna að fanga andrúmsloft í netagerð. Nína Hjálmarsdóttir rýnir í Danska verðlaunaleikverkið Kannibalen eftir eftir Johannes Lilleøre sem hefur verið í sýningum í Tjarnabíó um þessar mundir. Og við stiklum einnig á stóru um verðlaunahafa Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir

Spegillinn
Gaza, Miðausturlönd og héraðslækningar

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 29, 2024 20:05

29. janúar 2024 Daginn eftir að Alþjóðaglæpadómstóllinn í Haag ákvað að taka til efnislegrar meðferðar kæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríki fyrir brot á alþjóðalögum um þjóðarmorð sökuðu Ísraelsmenn tólf af um það bil 30.000 starfsmönnum Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna við Palestínu um aðild að hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október síðastliðinn. Í kjölfarið ákváðu nokkur ríki, þar á meðal Ísland, að frysta greiðslur til stofnunarinnar. Rætt er við Svein Rúnar Hauksson, lækni og stjórnarmann í Félaginu Ísland-Palestína, um þessa atburði. Sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda eru margir uggandi yfir því að ástandið eigi eftir að versna enn frekar eftir að þrír bandarískir hermenn féllu í drónaárás á bækistöðvar þeirra í Jórdaníu í gær. Íranar eru sakaðir um að hafa staðið á bak við hana. Þeir segjast hvergi hafa komið nærri. Ásgeir Tómasson segir frá. Stefnt er að innleiðingu nýrrar sérnámsleiðar í læknisfræði, héraðslækninga – það eru lækningar í dreifbýli. Héraðslækningar verða þá undirsérgrein heimilislækninga. Eyjólfur Þorkelsson læknir sem stýrði málstofu um héraðslækningar á læknadögum segir þörfina fyrir þessa sérhæfingu mikla. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræðir við hann. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Rauða borðið
Mið-Austurlönd, dauðalisti fíkla og norræna samningslíkanið

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 9, 2024 159:23

Þriðjudagurinn 9. janúar Mið-Austurlönd, dauðalisti fíkla og norræna samningslíkanið Magnús Bernharðsson prófessor kemur til okkar og skýrir stöðuna í Mið-Austurlöndum og hættuna á að átökin þar breiðist út. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir, Anna Steindórsdóttir og Þröstur Ólafsson eru öll aðstandendur sem taka þátt í aðgerðarhópi til að berjast fyrir rétti fíkla til heilbrigðisþjónustu og mannvirðingu. Þau segja okkur frá baráttunni. Sonur Guðmundu Guðmundsdóttur hefur verið lengi á bið eftir meðferð. Hún segir okkur frá stöðu sonar síns og barnabarn hennar, María Mist Þórs Sigursteinsdóttir, segir okkur frá reynslu sinni sem barn fíkils. Í lokin fer Magnús Norðdahl lögmaður Alþýðusambandsins yfir norræna vinnumarkaðsmódelið, hvað þarf til að það virki og hvers vegna Íslendingar hafa farið aðra leið.

mist gu magn norr kani steind dagbj bernhar mi austurl
Heimsglugginn
Vetrarveður, Mið-Austurlönd og kosningar á árinu

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024 25:02

Í fyrsta Heimsglugga ársins á Morgunvaktinni á Rás 1 ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson við Boga Ágústsson um vetrarveður á Norðurlöndum og í norðanverðri Evrópu, ástandið í Mið-Austurlöndum og kosningar sem verða á árinu.

Morgunvaktin
Heimsglugginn, frumkvöðlaverkefni í Kenía og svefnrannsóknir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024

Bogi Ágústsson talaði um stöðuna í Mið-Austurlöndum og Ísrael. Þar dró til tíðinda á dögunum þegar næstráðandi Hamas-samtakanna var veginn. Að auki var farið yfir kosningar sem efnt verður til á árinu en kosið verður til þjóðþinga og í æðstu embætti í nokkrum af fjölmennstu ríkjum heims. Í þónokkur ár hafa íslenskir háskólakennarar hjálpað krökkum í Kenía að hefja háskólanám. Um fjögur þúsund nemendur í fátækrahverfum og flóttamannabúðum hafa nýtt sér sérstakt kennslukerfi í stærðfræði til að búa sig undir nám í háskóla. Þau Gunnar Stefánsson og Anna Helga Jónsdóttir stærðfræðikennarar við Háskóla Íslands sögðu okkur frá. Og svo fjölluðum við um svefn og svefnrannsóknir. Góður nætursvefn er jú lykill að góðum degi. Erna Sif Arnardóttir hefur stundað og stýrt rannsóknum á svefni um árabil og var á nýársdag sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir þau störf. Hún kom til okkar. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Laufey - Promise. KK, Sálgæslan Hljómsveit - Batnandi mönnum er best að lifa. N'Dour, Youssou - Birima. Nelson, Willie - Georgia on my mind.

Morgunvaktin
Heimsglugginn, frumkvöðlaverkefni í Kenía og svefnrannsóknir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 4, 2024 130:00

#272 Magnús Þorkell Bernharðsson - Hin fullkomna deila - Ísrael og Palestína

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Dec 9, 2023 18:18

Þórarinn ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson um stöðu mála við botni Miðjarðarhafs. Magnús Þorkell er prófessor við Williams College þar sem hann kennir Mið-austurlandafræði. Rætt er um stöðuna í víðu samhengi og hvaða áhrif stríðið mun koma til með að hafa á Mið-Austurlönd í heild sinni.Hlaðvarpið er hægt að finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Andri og Ólafur koma saman í þættinum í dag til að ræða silkiveginn í víðu og þröngu samhengi. Silkivegurinn er nafið sem loðað hefur við leiðina frá Miðjarðarhafinu (Evrópu og Rómarveldi), í gegnum Mið-Austurlönd og Mið-Asíu og til Kína á fornöld og á miðöldum fram til ca. 1500. Á þessu svæði fór fram verslun, m.a. með silki, en einnig fór þar um straumur hugmynda, trúarbragða, menninga, tungumála og sjúkdóma fram og til baka. Á Silkiveginum risu og féllu öll helstu heimsveldi og trúarbrögð fornaldar, en þar var líka að finna hæstu fjallgarða, þrengstu dali og fjallaskörð og mannskæðustu eyðimerkur heims.Tvær nýlegur bækur voru ræddar eftir sagnfræðinga sem hafa látið sér málið varða: The Silk Road: A New History  eftir Valerie Hansen, og The Silk Roads: A New History of the World eftir Peter Frankopan. 

Morgunvaktin
Ofanflóðavarnir, dönsk málefni og Ísrael

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 29, 2023

Kristín Martha Hákonardóttir, sérfræðingur í snjóflóðaverkfræði hjá Verkís, kannaði aðstæður á snjóflóðasvæðunum í Fjarðabyggð og fór yfir stöðuna þar með hlustendum Morgunvaktarinnar. Hún segir að ofanflóðavarnir hafi sannað gildi sitt en afar erfitt hafi verið að sjá hvernig umhorfs er þar sem flóðin féllu á byggð í Neskaupstað. Borgþór Arngrímsson fjallaði um Bodil-kvikmyndaverðlaunin, gengi danska karlalandsliðsins í knattspyrnu, heilsu Margrétar Þórhildar og stöðu Coop. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður þekkir vel aðstæður í Mið-Austurlöndum og fór yfir stöðuna sem nú er uppi í í ísraelskum stjórnmálum. Tónlist: Instant - Angar Már Magnússon , No One knows - Sigurður Flosason Copenhagen Quartet, Quand on n'a que l'amour - Jacques Brel, Talað við gluggann - Hera Hjartardóttir, Mælkebøtten - Clausen og Petersen. Umsjón höfðu Guðrún Hálfdánardóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Morgunvaktin
Ofanflóðavarnir, dönsk málefni og Ísrael

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 29, 2023 130:00

Rauða borðið - 27. mars 2023

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 27, 2023 193:15

Við ræðum við Jónas Atli Gunnarsson hagfræðing um verðbólgu, vexti og efnahagskreppu í Bretlandi. Guðmundur Hrafn Arngrímsson segir okkur fréttir af leigjendum. Magnús Bernharðsson prófessor segir okkur frá ástandinu í Ísrael og Mið-Austurlöndum. Sævar Daníel Kolandavelu segir okkur sjúkrasögu sína. Við ræðum við Ársæll Már Arnarsson prófessor á menntavísindasviði um vanlíðan barna og ungmenni. Og við segjum fréttir dagsins.

Heimsglugginn
Einangraðir Rússar þurfa á Kínverjum að halda

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 23, 2023 19:56

Jón Ormur Halldórsson var gestur Morgunvaktarinnar og ræddi við Boga Ágústsson um breytta stöðu í alþjóðamálum, að heimurinn sé að skiptast með nýjum hætti í óstöðug og takmörkuð bandalög margra stórvelda og að nýjar ógnir séu að birtast. Jón Ormur segir að staða Evrópu hafi breyst eftir Brexit og innrás Rússa í Úkraínu, meiri samstaða sé innan Evrópusambandsins og í löndum þess, fáar raddist heyrist sem berjist fyrir útgöngu úr sambandinu. Jón Ormur segir Rússa einangraða á alþjóðavettvangi eftir innrásina í Úkraínu, listi ríkja sem fylgi þeim að málum sé heldur sorglegur, þetta séu ólýðræðisleg skúrkríki eins og Norður-Kórea, Níkaragúa og Sýrland. Rússar þurfi á Kínverjum að halda en Kínverjum sé engin nauðsyn að halda góðu sambandi við Rússa. Sambúð ríkjanna sé eins og húsbónda og leiguliða og Kínverjar séu hinn sterki. Jón Ormur segir að Xi Jinping sé valdamesti leiðtogi Kína frá Maó. Jón Ormur Halldórsson er einn helsti sérfræðingur landsins á sviði alþjóðastjórnmála. Jón Ormur hefur í áratugi búið og unnið í löndum Asíu og Evrópu, stundað kennslu og fengist við rannsóknir á margvíslegum þáttum alþjóðamála og uppgangi nokkurra af stærstu ríkjum Asíu, átökunum í Mið-Austurlöndum, þróun alþjóðakerfisins og áhrifum heimsvæðingarinnar á atvinnulíf, stjórnmál og menningu í heiminum. Jón Ormur hefur ritað margar bækur um alþjóðamál.

Heimsglugginn
Einangraðir Rússar þurfa á Kínverjum að halda

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 23, 2023

Miðausturlönd, HM í handbolta, síðutogarar og kvikmyndir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 12, 2023 130:00

Magnús Þorkell Bernharðsson prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams-háskólann í Bandaríkjunum ræddi mótmælin í Íran, Katar og fleiri málefni Mið-Austurlanda. Íslendingar hefja keppni á heimsmeistaramóti karla í handbolta klukkan 19:30 í kvöld og fyrsti leikurinn er við Portúgal. Það er ?einu sinni sem oftar- talsverð bjartsýni um gott gengi íslenska liðsins. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður og fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta er í Svíþjóð og ræddi við okkur. Helgi Laxdal, fyrrverandi formaður Vélstjórafélags Íslands og fyrsti formaður sameiginlegs verkalýðsfélags vélstjóra og járniðnaðarmanna sem stofnað var 2006, hefur ritað margar greinar í sjómannablaðið Víking um síðutogara Íslendinga. Við töluðum við hann um þennan merka þátt í sjósóknarsögu Íslendinga, en alls eignuðust Íslendingar 137 síðutogara á 67 árum. Á morgun hefst norræn kvikmyndahátíð í Reykjavík, þar sem aðeins verða sýndar myndir eftir konur. Kolbrún Ýr Einarsdóttir og Lea Ævarsdóttir komu til okkar í lok þáttar. Umsjón: Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: You shook me - Jeff Beck Baraye - Shervin Hajipour Sakta vi går genom stan - Edda Magnason

port sv katar magn einar reykjav bandar bogi umsj kolbr einarsd edda magnason kvikmyndir bernhar mi austurl
Morgunvaktin
Miðausturlönd, HM í handbolta, síðutogarar og kvikmyndir

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 12, 2023

Dr. Football
Góðan Daginn Katar - Enn er Valencia erfiður Í Mið Austurlöndum og Foden á bekkinn

Dr. Football

Play Episode Listen Later Nov 21, 2022 55:21

Dr. Football fékk A.I. og Jóa Má til sín á mánudegi.

Stundin
Flækjusagan #8: „Vaknaðu, Saladín! Við erum komnir!“ - Árið 1920

Stundin

Play Episode Listen Later Sep 29, 2021

Síðari hluta apríl 1920 var haldin ráðstefna í ítalska bænum San Remo þar sem nokkrir vestrænir herramenn hlutuðust til um landamæri og landaskipun í Mið-Austurlöndum, náttúrlega án þess að spyrja íbúa sjálfa. Hinir vestrænu leiðtogar litu sumir að því er virðist á þetta sem framhald krossferðanna.

salad sanremo vakna erum hinir mi austurl

68 | Áratugur af stríði í Sýrlandi og March 4 Justice

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 20, 2021

Í Heimskviðum vikunnar höldum við til Ástralíu og Sýrlands. Fjölmenn mótmæli fóru fram í Ástralíu og á Bretlandi fyrr í vikunni. Þó að sitthvort málið hafi verið mótmælendum innblástur þá eiga þau það sameiginlegt að snúast um ofbeldi gegn konum. réttlæti. Í um 40 borgum vítt og breitt um hina víðfemu Ástralíu komu konur saman og tóku þátt í hinni boðuðu samstöðu. Kveikjan nú eru tvö mál sem mikið hefur verið fjallað um í áströlskum miðlum undanfarið. Birta Björnsdóttir segir frá. Í síðari hluta þáttarins höldum við til Sýrlands. Þar hefur stríð geysað í áratug, en í vikunni voru tíu síðan frá atburðum borginni Deraa í suðurhluta landsins sem oft er talað um sem upphafið af þessari blóðugu styrjöld sem hefur dregið hundruð þúsunda ofan í gröfina og hrakið milljónir manna frá heimilum sínum. Og þessu stríði er hvergi nærri lokið. Guðmundur Björn fjallar nú um átökin í Sýrlandi, hvaða afleiðingar þau hafa haft og hvað framtíðin ber í skauti sér. Ólöf Ragnarsdóttir, sérlegur sérfræðingur okkar um Mið-Austurlönd, lítur við. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

bj gu fj bretlandi ragnarsd mi austurl heimskvi

Play Episode Listen Later Mar 20, 2021 30:00

Búnaðarþing, gula pressan í Bretlandi og stríðið í Jemen

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 15, 2021 130:00

Skipulagi Bændasamtakanna verður breytt samþykki Búnaðarþing tillögu stjórnar þar um. Starfsemi búgreinasambandanna verður færð inn í heildarsamtökin. Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna sagði frá þessu. Hann sagði einnig frá því að 12-14 aðilar hafa sýnt áhuga á að eignast Hótel Sögu og ræddi um andlega heilsu bænda sem margir hafa búið við mikla einangrun í covid. Í Lundúnaspjalli fjallaði Sigrún Davíðsdóttir m.a. um gulu pressuna í Bretlandi, eftirmál viðtals Opruh Winfrey við hjónin Harrý og Megan Markle og nýliðinn bókadag í Englandi. Stríðið í Jemen var til umfjöllunar í reglulegu spjalli Guðrúnar Margrétar Guðmundsdóttur um Mið-Austurlönd. Það hefur staðið í sex ár og ástandið í landinu er hræðilegt. Tónlist: Chelsea Hotel no. 2 - Leonard Cohen, I?m into something good - Herman?s Hermits, Sara - Bob Dylan.

Morgunvaktin
Búnaðarþing, gula pressan í Bretlandi og stríðið í Jemen

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 15, 2021

Skipulagi Bændasamtakanna verður breytt samþykki Búnaðarþing tillögu stjórnar þar um. Starfsemi búgreinasambandanna verður færð inn í heildarsamtökin. Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna sagði frá þessu. Hann sagði einnig frá því að 12-14 aðilar hafa sýnt áhuga á að eignast Hótel Sögu og ræddi um andlega heilsu bænda sem margir hafa búið við mikla einangrun í covid. Í Lundúnaspjalli fjallaði Sigrún Davíðsdóttir m.a. um gulu pressuna í Bretlandi, eftirmál viðtals Opruh Winfrey við hjónin Harrý og Megan Markle og nýliðinn bókadag í Englandi. Stríðið í Jemen var til umfjöllunar í reglulegu spjalli Guðrúnar Margrétar Guðmundsdóttur um Mið-Austurlönd. Það hefur staðið í sex ár og ástandið í landinu er hræðilegt. Tónlist: Chelsea Hotel no. 2 - Leonard Cohen, I?m into something good - Herman?s Hermits, Sara - Bob Dylan.

Heimskviður
66 | Bin Salman, morðið á Khashoggi og eldsvoðinn í Grenfell

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 6, 2021 30:00

Í Heimskviðum vikunnar höldum við Tyrklands, Sádí-Arabíu og Lundúna. Tæp tvo og hálft ár eru síðan Sádí-arabíski blaðamaðurinn Jamal Khashoggi var myrtur í sendiráði Sádí-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi. Khashoggi hafði talað opinskátt fyrir opnara og gagnsærra stjórnkerfi í heimalandinu, og gagnrýnt krónprinsinn Mohammed bin Salman fyrir spillingu og mannréttindabrot. Prinsinn hefur ítrekað þvertekið fyrir að hafa skipulagt, eða vitað, um morðið á Khashoggi. Það verður að teljast ólíklegt að að hæstráðandi landsins hafi ekkert vitað, og því eru bandarísk stjórnvöld sammála. Þetta kemur fram í skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar CIA um morðið á Khashoggi, sem var gerð opinber á dögunum. En hvað hún felur hún í sér? Munu Bandaríkin geta beita refsiaðgerðum gegn einum mikilvægasta bandamanni sínum í Mið-Austurlöndum? Guðmundur Björn kynnti sér málið. Flestum er eldsvoðinn í Grenfell fjölbýlishúsinu í Lundúnum sumarið 2017 enn í fersku minni en sjötíu og tvö létust þegar blokkin varð alelda á skömmum tíma. Tæpum fjórum árum eftir brunann búa um 650 þúsund Lundúnabúar búa enn í húsnæði með samskonar klæðningu og fuðraði upp í eldsvoðanum. Örvænting hefur gripið um sig í stað reiði, því þrátt fyrir fögur fyrirheit stjórnvalda hefur lítið verið gert fyrir þennan hóp. Birta Björnsdóttir fjallan um eldsvoðann í Grenfell og ræðir við Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara RÚV í Lundúnum. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Heimskviður
66 | Bin Salman, morðið á Khashoggi og eldsvoðinn í Grenfell

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 6, 2021

Kemur að því að börn verði bólusett

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 1, 2021 130:00

Tæplega sex þúsund manns fengu bólusetningu við Covid 19 hér á landi í nýliðinni viku. Þrjú bóluefni eru í notkun og þrjú til viðbótar vonandi væntanleg. Við fórum yfir bólusetningarmál á Morgunvaktinni í dag - Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu, kom til okkar. Eitt og annað í þjóðlífinu í Sádí Arabíu hefur færst til vestrænni vegar upp á síðkastið. Krónprins Sádí Arabíu; Mohammend bin Salman hefur aðrar hugmyndir um samfélagið heldur en Ibn Sád, stofnandi ríkisins og eftirmenn hans. Í dag hófst reglubundin umfjöllun á Morgunvaktinni um Mið-Austurlönd. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, mannfræðingur og sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, verður með okkur annan hvern mánudag og fjallar um eitt og annað í og frá þessum fjölmenna heimshluta og í dag sagði hún okkur meðal annars frá bin Salman. Í spjalli um bresk málefni ræddi Sigrún Davíðsdóttir um ástand mála í Skoska þjóðarflokknum en grunnt er á því góða milli Nickolu Sturgeon leiðtoga og forvera hennar Alex Salmond. Sá síðarnefndi var sýknaður af ákærum um nauðgun og kynferðislega áreitni en nú er pólitísk hlið málsins til skoðunar. Niðurstaðan kann að hafa áhrif á framvinduna í sjálfstæðismálum Skotlands en Skoski þjóðarflokkurinn vill fullt sjálfstæði frá stjórninni í London. Tónlist: A fool on the hill - Bítlarnir Here comes the sun - Bítlarnir Litla-Gunna og litli-Jón - Tríó Guðmundar Ingólfssonar

Morgunvaktin
Kemur að því að börn verði bólusett

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 1, 2021

Sumarútgáfa: Mið-Austurlönd

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 7, 2020 50:00

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í áttunda og síðasta sumarþættinum er Mið-Austurlönd. Fjallað er um dauða Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, eða ISIS. Samtökin eru ekki svipur hjá sjón í dag miðað við það sem áður var. Langur vegur er þó frá því að samtökin leggi upp laupanna. Þá voru tveir af hæst settu mönnum konungsfjölskyldunnar í Sádi-Arabíu voru handteknir í vetur, en. báðir eiga þeir tilkall til krúnunnar samkvæmt hefðum og annar þeirra er bróðir sjálfs Salmans konungs. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Heimskviður
Sumarútgáfa: Mið-Austurlönd

Heimskviður

Play Episode Listen Later Aug 7, 2020

Samfélagið
Hópslys - þolmörk LSH. Snjóalög og snjóflóð. Miðausturlönd.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 14, 2020 55:00

Guðrún Lísbet Níelsdóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri fyrir viðbragðsáætlanir LSH: Rannsókn á þolmörkum Landspítalans í hópslysum, eftir alvarleg rútuslys 2016 og 2017. Harpa Grímsdóttir fagstjóri ofanflóðavaktar Veðurstofunnar: Snjósöfnun, snjóflóð og snjóalög. Friðrik Páll Jónsson: Hver er staðan í Miðausturlöndum eftir atburði síðustu vikna, og einkum eftir morð Bandaríkjamanna á Suleimani, hershöfðingja, næstæðsta valdamanni Írans? Íranskir áróðursmiðlar halda því fram að Suleimani verði þeim hættulegri dauður en lifandi?

Samfélagið
Hópslys - þolmörk LSH. Snjóalög og snjóflóð. Miðausturlönd.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Jan 14, 2020

Guðrún Lísbet Níelsdóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri fyrir viðbragðsáætlanir LSH: Rannsókn á þolmörkum Landspítalans í hópslysum, eftir alvarleg rútuslys 2016 og 2017. Harpa Grímsdóttir fagstjóri ofanflóðavaktar Veðurstofunnar: Snjósöfnun, snjóflóð og snjóalög. Friðrik Páll Jónsson: Hver er staðan í Miðausturlöndum eftir atburði síðustu vikna, og einkum eftir morð Bandaríkjamanna á Suleimani, hershöfðingja, næstæðsta valdamanni Írans? Íranskir áróðursmiðlar halda því fram að Suleimani verði þeim hættulegri dauður en lifandi?

Spegillinn
Hefur áhyggjur af ástandinu í Mið-Austurlöndum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 3, 2020 30:00

Þjóðaröryggisráð Írans segir að Bandaríkjamenn megi búast við hefndum fyrir að hafa orðið Qasem Soleimani, einum valdamesta manni landsins, að bana. Hann lét lífið í árás Bandaríkjahers í nótt. Kristján Gunnar Valdimarsson, lögmaður og lektor, gengur laus á meðan lögregla rannsakar mál hans. Landsréttur hafnaði í dag kröfu lögreglunnar um að hann sæti fjögurra vikna gæsluvarðhaldi. Leit hefur staðið yfir í allan dag á Snæfellsnesi að Andirs Kalvan. Ekkert hefur heyrst frá honum frá því fyrir helgi. 150 björgunarsveitarmenn taka þátt í leitinni. Öll börn fædd eftir 2019 verða bólusett við hlaupabólu á árinu. Nokkur fjöldi barna leggst inn á Barnaspítalann eftir að hafa fengið hlaupabólu á hverju ári Þá má búast við blindhríð víða um land á morgun en að það hláni þegar líður á daginn. Þó að margt megi um Donald Trump segja þá er hann ekki herskár og ætlar sér ekki í stríð í Miðausturlöndum og það yrði honum ekki til framdráttar í forsetakosningunum í haust, segir Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðamálum. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Albert. Magnús Þorkell Bernhardsson, prófessor í málum Mið-Austurlanda við Williams háskóla í Bandaríkjunum hefur áhyggjur af því sem kann að gerast í framhaldinu. Hann segir að í Íran sé litið á þetta sem árás á Írani. Fólk byggði ekki hús, það jarðaði ekki ástvini sína, margra alda þekking á bæði gull- og járnsmíði glataðist. Á rúmlega hundrað ára tímabili, frá árinu 536 til 650 virðist sögunni ekkert hafa undið fram í Noregi og Svíþjóð. Það hafa fáar minjar fundist frá þessum tíma en hvers vegna? Þegar vísindamenn fóru, á níunda áratug síðustu aldar, að skoða þetta tímabil í ljósi gamalla goðsagna um fimbulvetur fóru brotin að raðast saman. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.

Spegillinn
Hefur áhyggjur af ástandinu í Mið-Austurlöndum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 3, 2020

Lestin
Ungir mótmælendur, umdeilt tíst, myndasögur og Blautt heitt langt vont

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 3, 2019 58:13

Fyrir nokkrum vikum síðan bauðst 14 ára tvíburasystkinunum Idu og Elís að stroka út allt skróp sem þau hafa safnað í kladdann síðustu mánuði. Þau höfnuðu því með látum. Skrópið, er eitt fárra verkfæra sem unglingar hafa til að beita yfirvöld þrýstingi í loftslagsmálum. Innblásin af Gretu Thunberg hafa systkinin mætt mánuðum saman niður á Austurvöll til að mótmæla. Stundum tekst þeim að draga vini sína með sér, stundum ekki. Viðbrögð stjórnvalda hafa verið enn lítilfjörlegri en í síðustu viku dró til tíðinda, þegar mótmælendur fengu fund með forsætisráðherra. Lestin fylgdist með degi í lífi ungra loftslagsmótmælenda, síðasta föstudag. Davíð Roach Gunnarsson flytur tónlistarpistil að venju á fimmtudegi. Í dag sökkvir hann sér ofan í heim hornfirsku hljómsveitarinnar Kef Lavík og rýnir í nýja plötu þeirra, Blautt heitt langt vont sumar. Við heyrum síðasta hlutann í pistla röð Ásgeirs Ingólfssonar þar sem hann skoðar mannkynssögu síðustu 250 ára út frá því hvernig hún birtist í nokkrum vel völdum myndasögum frá ýmsum heimshornum. Í þessum fjórða pistla Ásgeirs rýnir hann í myndasögurnar Palestine eftir Joe Sacco og Persepolis eftir Marjane Satrapi sem báðar fjalla um bakgrunn átakanna á í Mið-Austurlöndum. Síðast en ekki síst lítum við á umdeilt tíst og spyrjum: hvað hafa komandi kynslóðir gert fyrir okkur?

Lestin
Ungir mótmælendur, umdeilt tíst, myndasögur og Blautt heitt langt vont

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 3, 2019

Spegillinn - Hlaðvarp

Forseti Kína Xi Jinping kynnti 2013 áform Kína sem ganga undir nafninu Belti og braut sem sumir segja að sé stærsta innviða og fjárfestingarverkefni í sögunni. Tilboð Kínverja nær 150 landa og alþjóðlegra stofanna í Asíu, Evrópu, Afríku, Mið- Austurlöndum og Ameríku. Verkefnin lúta að fjölmörgum verkefnum en kannski aðallega að samgöngum á sjó og landi. Arnar Páll Hauksson ræðir við Egil Þór Níelsson og Borgar Þór Einarsson. Krónprinsinn í Venstre er að taka við konungsríkinu. Jakob Ellemann-Jensen hefur tilkynnt að hann sækist eftir því að verða formaður Venstre. Hann tæki þar með við af Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, sem tilkynnti afsögn sína um helgina. Jakob er sonur Uffe Ellemann-Jensen sem leiddi flokkinn í fjórtán ár, frá 1984 til 1998, og var utanríkisráðherra Danmerkur í rúman áratug. Pálmi Jónasson segir frá.

Mannlegi þátturinn
Þórunn Ólafsdóttir, Ný dögun og samtök leigjenda

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 28, 2019 50:00

Það líður vart sá dagur að ekki komi frétt um málefni flóttafólks, bæði innlendar og erlendar. Nú eru átta ár liðin frá upphafi Sýrlandsstríðsins og á þessum átta árum hefur straumur fólks sem hefur leitað skjóls fyrir sig og sína verið í fréttum nánast hvern dag, neyð þessa fólks hefur verið fyrir augum okkar þessi ár. Flest okkar horfa á þetta úr fjarlægð, en Þórunn Ólafsdóttir hefur gert talsvert meira, hún hefur farið í nokkrar ferðir til eyjunnar Lesbos þar sem hún hjálpaði flóttafólki sem kom þangað á bátum við mjög erfiðar aðstæður. Hún hefur líka tjáð sig um málefni Palestínu, meðal annars í samhengi við Eurovision, þar sem hún hvatti til sniðgöngu Íslands á keppninni, þar sem það væri ósk Palestínsku þjóðarinnar. En Þórunn þekkir aðstæður í Palestínu eftir að hafa verið þar árið 2014. Þórunn kom í þáttinn og talaði um Mið-Austurlönd og störf sín með fólki á flótta. Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, býður nú upp á stuðningshóp sem er sérstaklega ætlaður þeim sem hafa misst ástvini beint eða óbeint af völdum fíknar, áfengis- eða vímuefnafíknar, hvort sem það er barn, systkini, maki eða annar nákominn. Úrvinnsla aðstandenda eftir slíkan getur m.a. snúið að langvinnum erfiðum samskiptum við fíkilinn, auk þess að syrgja manneskjuna sem fíknin tók yfir. Þeir Hjalti Jón Sverrisson, prestur í Laugarneskirkju og Hrannar Már Sigrúnarson, sem leiðir stuðningshópinn, komu í þáttinn. Samtök leigjenda bjóða til stjórnarfundar á laugardaginn og er fundurinn opin öllum þeim sem hafa áhuga á málefnum leigjenda. Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína er formaður samtakanna og ræddi við okkur um stöðuna á leigumarkaði og það sem efst verður á baugi á fundinum. UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Morgunvaktin
Hálf öld frá frægustu þaktónleikum sögunnar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 30, 2019 130:00

Tvennt í tilefni dagins, 30.janúar: Í dag er fæðingardagur bassaleikarans Ahmed Abdul-Malik. Hann fæddist 1927 í Brooklyn, í New York, og lést 2. október 1993. Hann er meðal frumkvöðla jazz-sögunnar, sá fyrsti til þess að blanda tónlist frá Mið-Austurlöndum og Norður Afríku við jazz. Nú í seinni tíð hafa menn verið að dusta rykið af plötum Abdul-Malik og enduruppgötvað þennan gleymda snilling frá Brooklyn. Freyr Eyjólfsson í Brooklyn sagði frá Abdul-Malik og lék brot úr lögum hans. - Og í lok þáttar minntumst við þess þegar Bítlarnir léku í síðasta sinn saman opinberlega - á þaki höfuðstöðva Apple-útgáfunnar við Savile Row í Lundúnum fyrir hálfri öld. - Þriðja fjölmennasta stéttarfélag landsins varð til á dögunum þegar Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og SFR, stéttarfélag í almannaþjónustu, sameinuðust. Til varð Sameyki með um ellefu þúsund félagsmenn sem starfa við almannaþjónustu hjá ríki, borg, sveitarfélögum og fyrirtækjum í meirihlutaeigu opinberra aðila. Framundan eru kjaraviðræður en samningar flestra félagsmanna losna í lok mars. Hvaða kröfur setur fólk í almannaþjónustu á oddinn? Forystumenn Sameykis; Árni Stefán Jónsson og Garðar Hilmarsson komu á Morgunvaktina. - Afríkulandið Súdan hefur logað í mótmælum undanfarnar viku, sem sögð eru þau mestu sem sést hafa í landinu í mannsaldur. Markmið mótmælenda er að steypa forseta landsins, Omar al-Bashir, sem setið hefur sem fastast í þrjátíu ár þrátt fyrir að hafa verið ákærður fyrir þjóðarmorð. Vera Illugadóttir sagði frá. - Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að það skipti máli hvernig þolendum er tilkynnt um niðurfellingu kynferðisbrotamála. Lögreglan á Norðurlandi eystra tók upp nýtt verklag í fyrra og fá þolendur nú viðtal með réttargæslumanni í stað ópersónulegs bréfs, ef saksóknari ákveður að fella mál þeirra niður. Þetta er raunar hluti af nokkrum tilraunaverkefnum hjá lögreglunni í þágu kærenda. Og ekki er vanþörf á, enda bendir rannsóknin til þess að kæruferlið einkennist af langri bið og samskiptaleysi. Jón Þór Kristjánsson, fréttamaður á Akureyri, ræddi um þessi mál við Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á Norðurlandi eystra og Karen Birnu Þorvaldsdóttur, frá Háskólanum á Akureyri. - Við enduðum á þaki 3 Savile Row í Lundúnum 30. janúar 1969, þar sem Bítlarnir spiluðu. - Tónlist: Alsarah & Nubatones - Habibi Taal; The Beatles - Don't let me down.

Spegillinn
Spegillinn 8. maí 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 8, 2018 30:00

Donald Trump tilkynnir í kvöld hvort hann standi við kjarnorkusamninginn við Íran. Láti Trump verða af hótunum sínum gæti það þýtt stríð í Mið-Austurlöndum að mati sérfræðinga. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, óskaði í dag eftir því að laun hennar verði lækkuð afturvirkt frá 1. janúar síðastliðinum og verði til samræmis við úrskurð Kjararáðs síðan árið 2017. Fáir nýútskrifaðir lífeindafræðingar fást til starfa hjá ríkinu og meðalaldur þeirra sem þar starfa er 55 ár. Formaður félags lífeindafræðinga segir það áhyggjuefni að ekki verði unnt að manna sérfræðistörf í heilbrigðiskerfinu með fagfólki. Umhverfisráðherra sagði á Alþingi í dag að vilji væri til þess hjá ríkisstjórninni að skoða borgarlínu með Reykjavíkurborg. Donald Trump hefur frest til vikuloka til að draga Bandaríkin út úr kjarnorkusamningi við Íran. Er jafnvel talið að hann kynni ákvörðun sína í kvöld. Láti Trump verða af hótunum sínum gæti það þýtt stríð í Mið-Austurlöndum. Alþjóðasamfélagið hefur reynt allt til að koma í veg fyrir mál þróist á versta veg en vonir til þess fara óðum þverrandi. Pálmi Jónasson fjallar um málið í Speglinum. Eldingum lýstur niður í raflínur og haustlægðir valda usla í uppstöðulónum, jöklarnir bráðna, rennsli í jökulám eykst og þar með getan til að framleiða rafmagn, eins gott kannski ef í hönd fer meiriháttar rafvæðing í samgöngum og iðnaði. Er raforkukerfið búið undir loftslagsbreytingar? Arnhildur Hálfdánardóttir talar í Speglinum við Óla Grétar Blöndal Sveinsson og Guðmund Inga Ásmundsson. Áætlanir Theresu May forsætisráðherra um tollabandalags-fyrirkomulag eru ,,galnar.“ Þessi tæpitungulausa gagnrýni kemur frá Boris Johnson utanríkisráðherra. Theresa May forsætisráðherra er í slæmri Brexit-klípu milli Brexit-sinnaðrar stjórnar og ESB-sinnaðs þings. Sigrún Davíðsdóttir fjallar um málið í Speglinum. Umsjónarmaður: Pálmi Jónasson Tæknimaður: Magnús þorsteinn Magnússon

Morgunvaktin
Rússland í sviðsljósinu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 12, 2018 130:00

Hópur flóttamanna frá stríðshrjáðum ríkjum í Mið Austurlöndum kom til landsins í síðasta mánuði. Hluti hópsins fluttist vestur á firði og annar hluti austur, til Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar. Nína Helgadóttir hjá Rauða krossinum sagði frá námskeiðum se haldin eru til að undirbúa heimafólkið. - Þeir Gregory Porter og Jamie Cullum fluttu lagið Don´t let me be misunderstood. - Bogi Ágústsson ræddi heimsmálin eftir fréttayfirlitið hálfátta. Hann ræddi sérstaklega stríðið í Sýrlandi, boðaðar aðgerðir Vesturlanda vegna meintrar efnavopnaárásar Sýrlandshers, viðbrögð Rússa, og síðan vandræðin heimafyrir hjá Donald Trump. - Rússland verður í sviðsljósinu um allan heim í sumar þegar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fer þar fram. Jón Ólafsson , prófessor, dró upp mynd af rússnesku þjóðinni og þeim áhrifum sem stóratburðir á borð við heimsstyrjaldir, fall kommúnismans og sundurliðun Sovétríkjanna, hafa haft á fólkið í landinu. - Stórfyrirtækið Facebook sætir gagnrýni vegna meðferðar á persónuupplýsingum notenda. Forstjórinn hefur verið yfirheyrður af þingnefndum á Bandaríkjaþingi og hafa nefndarmenn verið gagnrýndir fyrir litla þekkingu á þessum öfluga samskiptamiðli. Ný evrópsk persónuverndarlöggjöf tekur brátt gildi og má búast við að Bandaríkjaþing setji líka skýrari reglur. Fjölmiðlakonan Maríanna Friðjónsdóttir þekkir Facebook vel og ræddi stöðu samskiptamiðilsins og notkun fólks á honum. - Mavis Staples lauk þættinum með laginu Step into the light.

Víðsjá
Dans og nornir, lýsisreiturinn, Mið-Austurlönd og vinnustofuheimsókn.

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 7, 2018 55:00

Við byrjum á bók sem kom út i síðustu viku, Mið-Austurlönd: Fortíð, nútíð og framtíð. Höfundurinn, Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams College í Bandaríkjunum, kemur í spjall um bókina. Guja Dögg Hauksdóttir rýnir í uppbyggingu borgaryfirvalda á hinum svokölluðu þróunarreitum, í pistlaröð sinni um fagurfræði borgarinnar Anna Kolfinna Kuran dansöfundur og Bjartey Elín Hauksdóttir dansari koma í heimsókn og segja frá verkinu Allar mínar systur sem verður frumflutt á danshátíðinni Unglingurinn í Reykjavík, á morgun. Og við lítum inn á vinnustofu Sigurðar Guðjónssonar sem hlaut á dögunum íslensku myndlistarverðlaunin. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Sölkuvarpið
Framúrskarandi dætur - Staða ungra kvenna í Mið-Austurlöndum

Sölkuvarpið

Play Episode Listen Later Jun 16, 2017 27:33

Staða ungra kvenna í Mið-Austurlöndum var umræðuefni málþings sem haldið var í tengslum við útkomu bókinnar Framúrskarandi dætra hjá Sölku. Frummælendur voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir og Þórir Jónsson Hraundal en þau hafa öll yfirgripsmikla þekkingu á málefnum Mið-Austurlanda og hér má heyra hluta af fyrirlestrum þeirra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fyrrverandi umdæmisstjóri UN Women fyrir Evrópu og Mið Asíu. Áður var Ingibjörg yfirmaður UN Women í Afganistan. Ingibjörg átti stóran þátt í auknum hlut kvenna í stjórnmálum á Íslandi og tók hún sæti í borgarstjórn 1982 fyrir kvennaframboðið og var síðar þingkona Kvennalistans á árunum 1991 til 1995. Ingibjörg Sólrún tók aftur sæti á þingi á árunum 2005 til 2009 og var hún utanríkisráðherra á árunum 2007 til 2009. Ingibjörg Sólrún var borgarstjóri Reykjavíkur 1994 til 2003. Þórir Jónsson Hraundal er umsjónarmaður Mið-Austurlandafræða og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Rannsóknir hans beinast helst að arabískum miðaldatextum og vitnisburði þeirra um víkingaöldina. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir hefur sterk tengsl við Mið-Austurlönd og nú síðast dvaldi hún í Kaíró í Egyptalandi þar sem hún starfaði í sex mánuði hjá Friðgæslunni hjá World Food Program sem kynjaráðgjafi. Guðrún hóf doktorsnám í mannfræði til að rannsaka kvennabaráttuna í Katar þar sem hún bjó sem unglingur og ung kona. Guðrún bjó einnig í Sameinuðu furstadæmunum, Kuwait og Yemen frá 15 ára til 25 ára og gifti sig og eignaðist börn þar. Guðrún hefur bæði BA og MA próf í mannfræði og talar arabísku.