POPULARITY
Í Vikulokunum var rætt við Dagbjörtu Hákonardóttiu, þingmann Samfylkingarinnar og nefndarmann í utanríkismálanefnd Alþingis, Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing, og Þóri Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum við Háskóla Íslands, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í síma frá útlöndum. Til umræðu var meðal annars ástandið á Gaza og hvað alþjóðasamfélagið getur gert, og friðarviðræður Rússlands og Úkraínu. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir
Föstudagur 17. janúar Vikuskammtur: Vika 3 Gaza, Hvammsvirkjun, frönsk kvikmyndahátíð, Bárðarbunga og fleira verður til tals í Vikuskammtinum að þessu sinni. Það eru þau Margrét Baldursdóttir, túlkur og Þórir Hraundal, prófessor HÍ, sem ræða fréttir vikunnar við Maríu Lilju.
Fimmtudagur 12. desember Mið-Austurlönd, þessir helvítis karlmenn, þýðendur og örlagavaldur Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands ræðir við okkur um eftirleikinn eftir fall Assads í sýrlandi. Mögulegar hættur vegna uppgangs öfgahópa á svæðinu, innrásir Ísraela á nágranna sína og skýrir áhrif þessa alls á fólkið sem enn situr fast á Gaza í miðju þjóðarmorðs. Til að ræða nýútkomna þýðingu á verðlaunabókinni Þessir helvítis karlmenn mætir þýðandinn sjálfur, Þórdís Gísladóttir rithöfundur og Valgerður Ólafsdóttir, skólasálfræðingur og rithöfundur og ræða bókina. Til að ræða nýjar samtímabókmenntir sem koma nú út í þýðingum mæta Snæfríð Þorsteins, Helga Soffía Einarsdóttir, Einar Kári Jóhannsson og María Rán Guðjónsdóttir og segja okkur frá nýjum þýðingum og stöðu þýðinga í íslenskum samtímabókmenntum. Peter Maté er Íslendingum að góðu kunnur, hann hefur reynt mikill áhrifavaldur í íslensku listalífi og kenndi bæði Laufeyju og Víkingi Heiðari að leika á hljóðfæri. Peter ræðir við Björn Þorláks.
Gestir Vikulokanna voru þau Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum við Háskóla Íslands, og Friðrik Jónsson, sendiherra í Varsjá og fyrrverandi hermálafulltrúi Íslands hjá NATO. Þau ræddu stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs, forsetakosningar í Bandaríkjunum og innrás Rússa í Úkraínu. Umsjónarmaður: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Víkingar vakna - er frasi og jafnvel lífsspeki Guðmundar Emils Jóhannssonar, einkaþjálfara, en hann er betur þekktur sem Gemil. Og þessa lífsspeki boðar hann á samfélagsmiðlum af fullum krafti. Hann er vöðvatröll og brennur heitt fyrir heilsurækt. Og hann vill að víkingar vakni. En hvað eru víkingar og er eftirsóknarvert að líkjast þeim? Við hefjum þá rannsókn á samtali við Þóri Jónsson Hraundal. Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona og pistlahöfundur, er búsett í Kaupmannahöfn. Þar hefur hún verslað þungarokksgítara og húsgögn á sölusíðu á netinu, og haldið stofutónleika heima hjá sér. Bankastræti 12 er eitt af þekktustu húsum miðbæjarins, en þar hefur Prikið verið til húsa síðan um miðja síðustu öld. Á síðasta ári var ráðist í töluverðar breytingar á húsinu, en efri hæð þess hýsir nú nýja hönnunarstofu sem nefnist Strik Studio. Við kynnumst starfsemi Striks og skoðum okkur um á þessari sögufrægu efri hæð. Lagalisti: Gemil - Víkingar Sly & The Family Stone - If It Were Left Up To Me Hand Habits - No Difference Haruomi Hosono, Mac DeMarco - Boku Wa Chotto
Árásir Húta á Rauðahafi og árásir Bandaríkjamanna og Breta á Húta á móti hafa verið talsvert í fréttum það sem af er þessu ári og enginn friður í augsýn þar frekar en annars staðar í þessum heimshluta núna. Tilgangur þeirra árása, að sögn Húta er að hamla hefbundnum vöruflutningum til Ísraels þar til íbúum Gaza verði tryggðar alllar nauðsynjar á borð við mat, drykk og lyf. Hútar nota þessar aðferðir sömuleiðis til að mótmæla aðgerðum Ísraelshers og bandamanna þeirra gegn Palestínumönnum á Gasa. Við vildum kynna okkur betur sögu Hútanna og ástæður þess að þeir blanda sér með jafn afgerandi hætti í átökin. Birta Björnsdóttir fjallar um sögu Hútanna og ástandið í Jemen og ræðir við Þóri Jónsson Hraundal, lektor í Mið-austurlandafræðum við Háskóla Íslands. Það er víðar en á Íslandi sem fólk hefur áhyggjur af áhrifum aukinnar snjalltækjanotkunar barna á móðurmálskunnáttu þeirra. Við ætlum að kynna okkur stöðu mála á Grænlandi. Þar þrengir ekki aðeins að grænlensku vegna áhrifa frá ensku, heldur líka dönsku. Þrátt fyrir að grænlenska hafi í nokkur ár verið opinbert tungumál þar, er danskan enn fyrirferðamikil. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræðir við formann mannréttindaráðs Grænlands sem týndi niður grænlenskukunnáttu sinni á fyrstu árunum í grunnskóla. Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Námsleið í Mið-Austurlandafræðum við Háskóla Íslands býður til kvikmyndasýningar á myndinni 5 Broken Cameras í Auðarsal í Veröld - Húsi Vigdísar í dag. Heimildamyndin er samvinnuverkefni Palestínumannsins Emad Burnat og Guy Davidi frá Ísrael, og fjallar um mótmæli palestínskra bænda gegn landtöku Ísraela á Vesturbakkanum. Myndin kom út árið 2011 og hlaut fjölda verðlauna, var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðaluna. Við ræðum við Þórir Jónsson Hraundal lektor í miðausturlandafræðum og arabísku við Háskóla Íslands og hann heldur utan um viðburðinn. Nú á sunnudag voru hin mikilsvirtu Booker verðlaun veitt við hátíðlega athöfn í London. Verðlaunahafi að þessu sinni var írski rithöfundurinn Paul Lynch en hann hlýtur Bookerinn fyrir bókina Prophet Song sem dregur upp martraðakennda mynd af mögulegri nærframtíð Írlands þar sem öfga hægri öfl hafa komist til valda og borgarastyrjöld vomir yfir landinu. VIð kynnum okkur höfundinn í þætti dagsins. Einnig rýnir Kristín María Kristinsdóttir í Högna, nýja skáldsögu Auðar Jónsdóttur og Snorri Rafn Hallsson flytur pistil um nostalgíu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Fimmtudagurinn 26. október Svigrúm, stríð, vinnandi fátækt, nemandi og Napóleon Við fáum þau Stefán Ólafsson sérfræðing Eflingar og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins um svigrúmið svokallaða, verðbólguna, vextina og kaupmáttinn. Síðan koma til að ræða hið hörmulega ástand á Gaza þau Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Þórir Jónsson Hraundal miðaldafræðingur og Viðar Þorsteinsson heimspekingur. Alexandra Ýr van Erven, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, segir okkur frá efnahagslegri stöðu stúdenta og fátækt meðal þeirra, og Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu segir okkur frá vinnandi fátækt, stöðu fólks sem er í fullri vinnu, jafnvel tveimur, en næst ekki að halda sig frá fátækt. Illugi Jökulsson kemur síðan og segir okkur frá Napóleon Bonaparte.
Landbúnaðarmál Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamta Íslands. Gjaldþrot blasir við fjölda bænda. Kvennaverkfall 24. október Rakel Adolphsdóttir, safnvörður Kvennasögusafni Íslands og Finnborg Salóme Steinþórsdóttir, aðjúnkt við HÍ. Kvennaverkfall vekur heimsathygli. Húsnæðismál Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Seðlabankinn heldur húsnæðismarkaðinum niðri með handafli. Stríð í Ísrael/Gaza Þórdís Ingadóttir, dósent við HR og Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum við HÍ. Enginn vafi um stríðsglæpi í átökum Ísraels og Palestínumanna.
Wir springen ins Jahr 921. Der Kalif von Bagdad hat ein Schreiben erhalten, in dem er um Hilfe gebeten wird. Die daraufhin zusammengestellte Gesandtschaft wird tausende Kilometer reisen, um dem König der Wolgabulgaren diese Hilfe zuteil kommen zu lassen. Die Chronik dieser Reise, verfasst von Ibn Fadlān, liefert uns heute nicht nur außergewöhnliche ethnografische Beobachtungen diverser Turkvölker, sondern vor allem eine der wenigen Beschreibungen der Rus und ihrer Gepflogenheiten. //Literatur Aḥmad Ibn Faḍlān und James E. Montgomery. Mission to the Volga. NYU Press, 2017. Hraundal, Thorir Jonsson. „New Perspectives on Eastern Vikings/Rus in Arabic Sources“. Viking and Medieval Scandinavia 10 (2014): 65–98. Montgomery, James E. „Ibn Faḍlān and the Rūsiyyah“. Journal of Arabic and Islamic Studies 3 (2000): 1–25. Klejn, Leo S. “The Russian Controversy over the Varangians.” In From Goths to Varangians: Communication and Cultural Exchange between the Baltic and the Black Sea, edited by Line Bjerg, John H. Lind, and Søren M. Sindbæk, 15:27–38. Aarhus University Press, 2013. Das Episodenbild zeigt eine fiktive Szene mit Kamel. Tickets für unsere Liveauftritte im Herbst gibt es hier: https://www.contrapromotion.com/ Und wer unser Buch, das am 28.9. erscheinen wird, vorbestellen will, kann das im gut sortierten Buchhandel oder hier tun: https://www.piper.de/buecher/geschichten-aus-der-geschichte-isbn-978-3-492-06363-0 //Aus unserer Werbung Du möchtest mehr über unsere Werbepartner erfahren? Hier findest du alle Infos & Rabatte: https://linktr.ee/GeschichtenausderGeschichte NEU: Wer unsere Folgen lieber ohne Werbung anhören will, kann das über eine kleine Unterstützung auf Steady oder ein Abo des GeschichteFM-Plus Kanals auf Apple Podcasts tun. Wir freuen uns, wenn ihr den Podcast bei Apple Podcasts oder wo auch immer dies möglich ist rezensiert oder bewertet. Wir freuen uns auch immer, wenn ihr euren Freundinnen und Freunden, Kolleginnen und Kollegen oder sogar Nachbarinnen und Nachbarn von uns erzählt!
Þriðjudagurinn 14. mars Sjómenn, kuldi, Tyrkir, leigjendur og fyrsta skáldsagan Hvers vegna felldu sjómenn tíu ára kjarasamning sem forysta þeirra undirritaði? Við spyrjum Inga Þór Hafdísarson sem er á loðnuveiðum. Hvers vegna er svona kalt? Við spyrjum Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing. Mun Erdogan verða endurkjörinn forseti Tyrklands? Við spyrjum Þórir Jónsson Hraundal lektor að því og hverju það breytir fyrir Tyrki ef Erdogan fellur. Hvernig geta leigjendur bætt kjör sín og stöðu? Við spyrjum Guðmund Hrafn Arngrímsson um það. Hver var Eiríkur Laxdal og hversu merkileg er Ólafs saga Þórhallasonar? Við spyrjum Jón Karl Helgason bókmenntafræðing. Og hvað er í fréttum? Við svörum því við Rauða borðið.
Hanna María Arnórsdóttir dýralæknir: evrópskir dýralæknar hafa sent út ákall til fólks um að það kaupi ekki né fái sér flatnefja gæludýr, en hundar og kettir sem eru með flatt eða klesst andlit verða sífellt eftirsóttari. Þetta útlit, sem er vinsælt því það þykir svo krúttlegt, gerir dýrunum hins vegar mjög erfitt fyrir og skerðir lífsgæði þeirra. Guðjón Már Sigurðsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun: Hvernig koma má í veg fyrir að spendýr, eins og hvalir, flækist í net við veiðar á fiski. Þórir Jónsson Hraundal, lektor í mið-austurlandafræðum og arabísku við mála- og menningardeild Háskóla Íslands: Nýlega var haldið málþing um víkinga í austurvegi til heiðurs Sigfúss Blöndal sem árið 1954 gaf út bókina Væringjasögu: sögu norrænna, rússneskra og enskra hersveita í þjónustu Miklagarðskeisara á miðöldum.

Bænahald er nú iðkað í Ægisif í Istanbúl á ný, að ákvörðu Erdogan Tyrklandsforseta. Ægisif var reist sem kirkja fyrir næstum 1500 árum, síðan var henni breitt í mosku, þá safn og nú aftur í mosku. Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Miðausturlandafræðum við Háskóla Íslands, sagði frá langri og merkri sögu Ægisif. Í dag eru 90 ár síðan Neil Armstrong geimfari fæddist. Af því tilefni sagði Örlygur Hnefill Örlygsson á Könnunarsögusafninu á Húsavík frá Armstrong. Á Akureyri eru uppi áform um lagningu hjólastíga vítt og breitt um bæinn. Óðinn Svan Óðinsson fréttamaður ræddi þau mál við Tryggva Má Ingvason, formann skipulagsnefndar Akureyrar og Pétur Inga Haraldsson, sviðsstjóra skipulagssviðs. Tónlist: Yafake - Victor Deme, Der makam-i Uzzal ursules Devr-i kebir - Jordi Savall, Summer night - Miles Davies.

Þórir Jónsson Hraundal, lektor í arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands flutti nýverið fyrirlestur í fyrirlestraröð Vigdísarstofnunar þar sem hann fjallaði um orð af arabískum uppruna sem finna má í íslensku og öðrum Evrópumálum. Hugvarp tók Þóri tali.
Í þessum 12. þætti berst talið að systkinasamböndum. Hvernig getum við búið barn undir komu systkinis og staðið með því í gegnum hegðunarerfiðleika við þau umskipti? Og ólumst við sjálf upp í hlutverkum sem við báðum aldrei um og erum jafnvel að endurtaka leikinn með okkar eigin börn? Það getur loks verið eldfimt ástand þegar systkini rífast og slást og foreldrarnir vita ekki sitt rjúkandi ráð. Allt þetta og fleira til bar á góma.Þær sem mættu í hljóðver að þessu sinni úr hópi Meðvitaðra foreldra voru Eva Rún Guðmundsdóttir, Guðrún Birna le Sage, Kristín Björg Viggósdóttir, Svava Margrét Sigurðardóttir og upptökum stjórnaði Guðrún Inga Torfadóttir. Bókin Siblings Without Rivalry eftir Adele Faber og Elaine Mazlish var m.a. grundvöllur umræðnanna en einnig spurningar sem bárust á Instagram reikningi Meðvitaðra foreldra. En svo var farið að sjálfsögðu yfir eigin reynslusögur og vitnað í m.a. Judy Dunn auk auðvitað okkar eigin Kristínu Maríellu sem er óstöðvandi uppspretta innblásturs í þessum efnum sem öðrum. Þá sendu þær Sigrún Yrja Klörudóttir og Pálína Ósk Hraundal jafnframt inn frásagnir sínar hvað varðar leik og útiveru og að setja upp leiksvæði og verkefni fyrir börnin þeirra. Þær eru annars vegar í Osló og hins vegar á Reyðarfirði og áttu því ekki heimangengt til okkar en spá í leik og útiveru alla daga og eru hafsjór af ýmsum fróðleik þessu tengdu.
Vi får också lyssna till arkeologen Annika Larsson och religionsvetaren Maths Bertell som ger olika perspektiv på hur vi kan tolka de historiska artefakterna av bland annat de arabiska mynten i Sverige och Allah-ringen.Besök gärna vår hemsida: www.koranpodden.se.Följ vårt arbetefacebook.com/koranpoddeninstagram.com/koranpodden/Stöd KoranpoddenOm du finner någon glädje eller värde i vad jag gör, snälla överväg att donera ett valfritt belopp. Alla donationer går till att utveckla och marknadsföra Koranpodden. Swisha ett frivilligt belopp till swish 123 669 10 18 (Support Koranpodden) eller via bankgiro 5271-8053.Bli månadsgivare! Klicka här.
Við ræðum í þættinum um útiveru með börnunum og áhættuleik barna. Áskoranir fyrir okkur foreldra felast í hvoru tveggja, að koma sér út fyrir hússins dyr sem og að leyfa börnum að spreyta sig í hárri hæð, miklum hraða o.s.frv. Ef við getum endurhugsað hvernig við sjáum náttúruna og sett hana inn í daglegt líf okkar, mun líf okkar batna. Rannsóknir sýna að börn verja færri stundum úti við en okkar kynslóð gerði, og áhersla vestrænna samfélaga á að draga úr áhættu á leikvöllum hefur jafnframt þau áhrif að skerða leikgleði barna.Þátttakendur: Elsa Borg Sveinsdóttir, Eva Rún Guðmundsdóttir, Guðrún Birna le Sage, Guðrún Björnsdóttir, Kristín Björg Viggósdóttir, Perla Hafdórsdóttir, Svava Margrét Sigurðardóttir og loks Guðrún Inga Torfadóttir sem stýrði umræðum.Í þættinum var m.a. vísað í eftirfarandi:Teacher Tom, teachertomsblog.blogspot.com.Jen Lumanlan, Your Parenting Mojo. Dr. Screen-Free Mom: "These Photos Explain why People in London Spend More Time at More Natural Playgrounds," af screenfreeparenting.comJon Young: http://jonyoung.org/Scott D. Sampson, How To Raise A Wild ChildEllen Beate Hansen SandseterPálína Ósk Hraundal
Í Víðsjá dagsins verður rætt við þýsku blaðakonuna Söruh Schug en hún hefur skrifað bók um Eyju listarinnar (Isle of Art) sem er ferðalag í gegnum íslenska samtímamyndlist með viðtölum við marga þá sem að henni starfa. Bók vikunnar er skáldsagan Blá eftir norska rithöfundinn Maju Lunde, bók sem skoðar afleiðingar lofstlagsbreytinga í nálægri framtíð. Ingunn Ásdísardóttir, þýðandi, segir frá bókinni í Víðsjá í dag. Hlustendur verða leiddir inn í kraftmikinn heim fiðlunar í myndlistarverki sem var til vitnis um mikla framúrstefnu á sínum tíma og nú er til sýnis í Listasafni Íslands. Einnig verða skoðaðir í þættinum íslamskir munir sem rötuðu til norrænna manna á víkingaöld. Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Miðausturlandafræði við Háskóla Íslands, er gestur þáttarins. Umsjón: Guðni Tómasson og Kristján Guðjónsson.
Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræðum og Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum, fjalla um íslensk-palestínska rithöfundinn Mazen Maarouf sem hefur verið tilnefndur til alþjóðaverðlauna Man Booker verðlaunanna fyrir smásagnasafnið Brandarar handa byssumönnum.
Þátturinn var áður á dagsrkrá í febrúar 2009 Hverju spáðu spámiðlar um hrunið fyrir um framvindu mála árið 2009? Fjórir spámenn heimsóttir og spurt um aðferðir þeirra við að spá, spurt um horfur í fjármálum, atvinnumálum og hvernig kosningar munu mögulega fara í vor hér á landi. Rætt við Ólaf Hraundal spámiðil hjá Sálarrannsóknarfélaginu, hann spáir því að kreppan taki styttri tíma en flestir álíta, að þetta fari að lagast í sumar eða haust. 8.33 Rætt við Evu Hauksdóttur í Nornabúðinni og rýnt í hennar völvuspá fyrir árið og er hún ansi svartsýn á ástandið 10.47 Rætt við Ingibjörgu Magnúsdóttur (Spákonunafnið er Yrsa sem hún gengur undir) Hún spáir í Tarot og segir þetta eiga eftir að lagast hægt og bítandi. 12.34 Rætt við Bjarndísi Arnardóttur stjörnuspekisálfræðing og hún telur þessar miklu breytingar sem íslenska þjóðin er og þarf að ganga í gegnum taki allt að 5 ár. Þátturinn var áður á dagskrá 21. febrúar 2009

Landsmót UMFÍ verður með öðru sniði í ár en hingað til. Áhersla verður lögð á almenningsíþróttir sem allir geta tekið þátt í hinum ýmsu greinum sér til skemmtunar. Fjölmargir skemmtilegir viðburðir verða á mótinu sem ætlað er allri fjölskyldunni því markmið mótshaldara er að hvetja alla til að hreyfa sig sér til heilsubótar. Við ræðum við verkefnastjóra Landsmótsins, Pálínu Ósk Hraundal. Guðmundur Björn Þorbjörnsson fréttamaður stendur vaktina í Volgograd í Rússlandi þessa dagana og fylgist vel með öllu því sem tengist HM og Íslendingum. Hann hefur, ásamt Grími Jóni Sigurðssyni myndatökumanni, meðal annars unnið podcastþætti sem aðgengilegir eru á ruv.is. Við tökum stöðuna á þeim félögum og heyrum í Guðmundi. Það lyftist aldeilis brúnin á íbúum höfuðborgarsvæðisins að minnsta kosti í gær þegar langþráður blíðviðrisdagur rann upp. Fjölmargir drukku í sig sólargeislana enda hefur tíðarfarið undanfarið verið sögulega ömurlegt enda hafa magir kvartað undan talsverðum pirringi vegna þessarar eilífu rigningar. Við sláum á þráðinn til Þórgunnar Ársælsdóttur geðlæknis og spyrjum hvort hægt sé að útskýra hvers vegna veður hafi svona mikil áhrif á lund fólks. Þau tíðindi bárust vestanhafs í gærkvöldi að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi undirritað forsetatilskipun þess efnis að hætt verði að skilja að foreldra og börn innflytjenda og þar með bundið enda á afar umdeilda stefnu ríkisstjórnar sinnar. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stjórnmálafræðingur kemur og ræðir þetta við okkur. Grétar Jónsson og Kristbjörn Hilmir Kjartansson lögðu af stað á forláta Lödu Sport frá Íslandi þann 5. júní á leið sinni á HM í Rússlandi. Þeir sigldu með Norrænu til Danmerkur og keyrðu þaðan til Rússlands. Þeir náðu til Moskvu þar sem Ladan bilaði fyrir fáeinum dögum og hefur verið í viðgerð. Þeir verða þó að leggja af stað í dag ætli þeir að ná á leik íslands gegn Nígeríu í Volgograd á morgun enda tæplega þúsund kílómetra vegalengd þar á milli. VIð sláum á þráðinn til Grétars.
Í Fez-hattinum ræða þau Ólöf Ragnarsdóttir, Þórir Jónsson Hraundal og Guðrún Margrét Guðmundsdóttir málefni Mið-Austurlanda. Þau taka fyrir ýmis viðfangsefni og kafa aðeins dýpra en vanalega gengur og gerist í fjölmiðlum. Þetta er fyrsti þátturinn og fá hlustendur forsmekkinn að því sem koma skal. Þátturinn verður á dagskrá annan hvern miðvikudag í hlaðvarpi Kjarnans.
Staða ungra kvenna í Mið-Austurlöndum var umræðuefni málþings sem haldið var í tengslum við útkomu bókinnar Framúrskarandi dætra hjá Sölku. Frummælendur voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir og Þórir Jónsson Hraundal en þau hafa öll yfirgripsmikla þekkingu á málefnum Mið-Austurlanda og hér má heyra hluta af fyrirlestrum þeirra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fyrrverandi umdæmisstjóri UN Women fyrir Evrópu og Mið Asíu. Áður var Ingibjörg yfirmaður UN Women í Afganistan. Ingibjörg átti stóran þátt í auknum hlut kvenna í stjórnmálum á Íslandi og tók hún sæti í borgarstjórn 1982 fyrir kvennaframboðið og var síðar þingkona Kvennalistans á árunum 1991 til 1995. Ingibjörg Sólrún tók aftur sæti á þingi á árunum 2005 til 2009 og var hún utanríkisráðherra á árunum 2007 til 2009. Ingibjörg Sólrún var borgarstjóri Reykjavíkur 1994 til 2003. Þórir Jónsson Hraundal er umsjónarmaður Mið-Austurlandafræða og aðjúnkt við Háskóla Íslands. Rannsóknir hans beinast helst að arabískum miðaldatextum og vitnisburði þeirra um víkingaöldina. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir hefur sterk tengsl við Mið-Austurlönd og nú síðast dvaldi hún í Kaíró í Egyptalandi þar sem hún starfaði í sex mánuði hjá Friðgæslunni hjá World Food Program sem kynjaráðgjafi. Guðrún hóf doktorsnám í mannfræði til að rannsaka kvennabaráttuna í Katar þar sem hún bjó sem unglingur og ung kona. Guðrún bjó einnig í Sameinuðu furstadæmunum, Kuwait og Yemen frá 15 ára til 25 ára og gifti sig og eignaðist börn þar. Guðrún hefur bæði BA og MA próf í mannfræði og talar arabísku.
Fyrirlestur sem Þórir Jónsson Hraundal flutti á hádegisfundinum "Penninn eða sverðið? - Er tjáningafrelsið í hættu?" þriðjudaginn 20. janúar 2015 í Háskóla Íslands.