POPULARITY
Allir geta lent í því að koma að fólki sem hefur lent í áfalli, slysi, ofbeldi, náttúruhamförum eða einhverjum öðrum alvarlegum atburðum. Þá geta fyrstu viðbrögð verið mikilvæg og ýmislegt sem ber að varast. Auðvitað ætti fagfólk að veita slíka hjálp en alvarlegir atburðir gera oft ekki boð á undan sér, því getur verið gott að kunna einföld viðbrögð sem geta hjálpað þangað til fagfólk getur komið inn í aðstæðurnar. Belinda Karlsdóttir leiðbeinandi hefur kennt sálræna fyrstu hjálp hjá Rauða krossi Íslands og á næstunni ætlar Rauði krossinn að bjóða almenningi upp á netnámskeið í sálrænni fyrstu hjálp. Belinda ræddi um þetta. Barnabarn Helgu Steffensen, Hörður Bent Steffensen hefur tekið við Brúðubílnum af ömmu sinni eftir nokkurra ára hlé og býður upp á fjölda sýninga í sumar ásamt góðu teymi. Hann er leikari að mennt og var mikill aðdáandi Brúðubílsins alla sína æsku og fékk loks að taka þátt í sýningum á unglingsaldri. Hörður sagði frá sýningum sumarsins og hversu vel amma hans hélt upp á brúðurnar, handritin og leikmyndirnar sem fylgja Brúðubílnum sem á um hálfrar aldar sögu. Póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús er nýkominn til Eyja eftir ferðalag erlendis og lentur í norðanbrælu og kulda. Hann rifjaði upp þegar hann kom fyrst til Eyja fyrir fjórum árum þá var honum sagt að það væri þrennt sem ekki mætti krítisera í Eyjum og hann fer yfir það í póstkortinu. Í seinni hlutanum sagði hann aðeins frá brosinu sem er nánast einstakt í dýraríkinu hér á jörð. Tónlist í þættinum í dag: Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason) Dýrin úti í Afríku / Brúðubíllinn (Helga Steffensen) Sveitastúlkan og sveitapilturinn / Marína og Mikael (Charlie Parker, texti Marína Ósk Þórólfsdóttir) Hafið / Egill Ólafsson (Matti Lauri Kallio, texti Egill Ólafsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Rauða borðið, fimmtudaginn 05. júní: Mannúð og stjórnsýsla, Evrópuáhugi vinstri manns, auðmagn, persónuvernd, útlendingahatur og víðerni eru á dagskrá í kvöld Við hefjum leik á samtali Björns Þorlákssonar við Henry Alexander Henrysson heimspeking og sérfræðing í siðferðislegum álitamálum rsem rökæðir mál Oscars hins kólumbíska ásamt Hauki Arnþórssyni stjórnsýslufræðingi. Þeir eru ekki alveg á einu máli þegar þeir ræða inngrip Víðis Reynissonar formanns allsherjarnefndar Alþingis, en allar líkur eru nú á að Oscar fái ríkisborgararétt. Árni Þór Sigurðsson, sendiherra í leyfi og fyrrverandi þingmaður VG, ræður við Gunnar Smára um alþjóðamál og ekki síður Evrópumál, en ríkisstjórnin ætlar að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Jón Gunnar Bernburg prófessor segir Gunnari Smára frá ólíku auðmagni; peningalegu, félagslegu og menningarlegu og hvernig slíkt auðmagn ræður því hverjir heyrast og sjást og hverjir alls ekki. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar ræðir um helstu áskoranir dagsins í dag í tengslum við persónuvernd. Oddný Eir Ævarsdóttir ræddi við Helgu. Ole Anton Bieltvedt, samfélagsrýnir, ræðir um útlendingahatur á Íslandi við Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Og við endum Rauða borðið með samtali við Þorvarð Árnason, forstöðumann Rannsóknaseturs HÍ á Hornafirði og fræðimanns í umhverfishugvísindum. Hann segir okkur frá nýútkominni bók sinni Víðerni sem er grundvallarrit í nýrri nálgun við náttúruna og ræðir tengsl okkar við hana, bókin er skrifuð fyrir almenning og náttúru í harðri viðureign okkar tíma. Oddný Eir ræðir við Þorvarð.
Sjónvarpsþættirnir Adolescence, eða ungdómur, sem sýndir eru á Netflix eru mikið í umræðunni þessa dagana. Þetta eru fjölskyldudrama um stöðu ungra karlmanna í dag, týnda karlmenn sem falla auðveldlega í faðm eitraðra áhrifavalda. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina. Við fáum líka sendingu frá Katrínu Helgu Ólafsdóttir, en hún er útsendari Lestarinnar á Heimildamyndahátíðinni Kaupmannahöfn, CPH DOX. Hún fór og sá nýja heimildarmynd um hinn magnaða japanska teiknimyndagerðarmann Hayao Miyazaki. Katrín segir frá myndinni og ævistarfi Miyazaki. Davíð Roach Gunnarsson segir frá nýrri plötu, Reykjavík Syndrome, og útgáfutónleikum Spacestation sem fóru fram í síðustu viku.
Gervigreindarreglugerð Evrópusambandsins tók gildi í ágúst, en enn á eftir að taka hana upp á Íslandi að fullu þótt innleiðing hennar sé í gangi. Borið hefur á gagnrýni á þessa reglugerð að hún kæfi nýsköpun og uppbyggingu gervigreindarfyrirtækja í Evrópu, og skekki þar með samkeppnishæfni álfunnar í gervigreindarkapphlaupinu við Bandaríkin og Kína. En er eitthvað til í þessari gagnrýni? Við ræðum við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, í dag um gervigreindina, reglugerðina og ýmislegt fleira. Í dag verður haldið útgáfuhóf fyrir fræðirit í fötlunarfræði sem ber titilinn Fötlun, sjálf og samfélag. Í ritinu er meðal annars fjallað um þróun fötlunarfræðinnar síðustu áratugi og ljósi varpað á gagnrýnar nálganir í faginu, sem snúa meðal annars að ableisma (eða fötlunarfordómum), aðgengi, hugarfari og ýmsu fleiru. Við fáum til okkar Snæfríði Þóru Egilson, prófessor í fötlunarfræði og ritstjóra bókarinnar, til að segja okkur frá þessu áhugaverða verki.
Á jóladag var nýjasta kvikmynd leikstjórans Robert Eggers frumsýnd í Bandaríkjunum. Hryllingsmyndin Nosferatu með Lily Rose Depp í aðalhlutverki. Nú er hún líka komin í bíó á Íslandi og hægt að fara og láta sér líða illa og ónotalega. Myndin er endurgerð á samnefndri mynd þýska leikstjórans Murnau frá 1922 - sem var síðan endurgerð af samlanda hans Werner Herzog árið 1979 - og allt er þetta byggt á skáldsögu Bram Stoker um drakúla greifa. Eggers er þekktur fyrir að leggja mikla áherslu á sögulega nákvæmni í myndum sínum en myndin gerist um vetur í skáldaða bænum Wisburg í þýskalandi, árið 1838. Á morgun kemur út bókin Mood machine, Stemningsvélin - uppgangur Spotify og verð hins fullkomna spilunarlista eftir blaðakonuna Liz Pelly. Einn kafli úr bókinni birtist í tímaritinu Harpers fyrir jól og varpaði nýju ljósi á eina lífseigustu samsæriskenninguna um skítlega viðskiptahætti streymisrisans Spotify, draugalistamennina svokölluðu. Við höfum fjallað um þetta fyrirbæri nokkrum sinnum í Lestinni undanfarin 5 ár en nú viðrðast komnar sannanir fyrir því að Spotify græði á gervilistamönnum sem fylla marga spilunarlista streymisþjónustunnar. Við ræðum við Árna Matthíasson tónlistarblaðamann. Við fáum líka sendingu frá Katrínu Helgu Ólafsdóttur, tónlistarkonu. Hún ræðir við grænlensku tónlistarkonuna og trommudansarann Nuka Alice.
Nefnd skipuð af fyrrverandi heilbrigðisráðherra birti í samráðsgátt stjórnvalda á dögunum svokallaða Grænbók, þar sem skoðuð er staðan í málum tengdum ADHD á Íslandi. Skoðaðir eru til dæmis langir biðlistar eftir greiningu og algengi lyfjameðferðar. Mat nefndarinnar er að gæðum sé ábótavant, bæði þegar kemur að greiningum og lyfjameðferð. Formaður ADHD samtakanna sagði í síðustu viku að þær ályktanir sem fram koma í Grænbókinni muni valda mikilli ólgu hjá félögum samtakanna og hjá þeim sem bíða greiningar og að þar sé ýmislegt sem þurfi að skoða betur. Hrannar B. Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir niðurstöður Grænbókarinnar og tók undir áhyggjur formannsins, að ef farið yrði eftir þeim ályktunum sem þar koma fram þá gæti það verið skref aftur á bak, eða í það minnsta gæti það kallað á stöðnun í málefnum ADHD á Íslandi. Helga Arnardóttir kom svo til okkar og fór yfir það sem hún hefur fjallað um á Heilsuvaktinni á liðnu ári. Þar kennir margra grasa, t.d. blóðsykur, gjörunnar matvörur, ofþyngd barna, heilbrigði þarmaflórunnar, öndun til að róa taugakerfið, heilaörvunarmeðferð við þunglyndi, mikilvægi þess að fara í krabbameinsskimun, reynslusögur og margt fleira. Við rifjuðm upp það helsta frá Heilsuvaktinni árið 2024 með Helgu í dag og hún fór aðeins yfir það hvað yrði til umfjöllunar á nýju ári og auglýsti eftir hugmyndum og ábendingum frá hlustendum í því tilliti. Þær er hægt að senda á netfang þáttarins: mannlegi@ruv.is Tónlist í þættinum: Hvar er tunglið? / Kristjana Stefánsdóttir (Sigurður Flosason, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Godess / Laufey (Laufey Lin Jónsdóttir) Why can't you behave? / Ella Fitzgerald (Cole Porter) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir hefur haldið fjölda sýninga um allan heim og var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2005. Hún hefur fyrir löngu skapað sitt einstaka tungumál, sinn eigin myndheim, þar sem ýmsar óræðar kynjaverur eiga heimili og hreyfast á milli teikninga, málverka, skúltúptúra og fleiri miðla. Víðsjá lítur inn á yfirstandandi sýningu á verkum hennar, Zúlógíu, í Listamönnum á Skúlagötu. Við höldum einnig inn í heimili sjálfstæðu sviðslistasenunnar. Leikhópurinn 10 fingur hefur um árabil sérhæft sig í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar og frumsýnir í kvöld nýtt íslenskt leikverk , Líkaminn er skál. Höfundar verksins eru þau Helga Arnalds, Matteo Fargon, Valgerður Rúnarsdóttir og Eva Signý Berger en verkið byggir að stórum hluta til á persónulegri reynslu Helgu af því að verða alvarlega veik. En við hefjum þáttinn á því að líta inn á Þjóðminjasafnið, þar sem Heimilisiðnaðarfélagið, í samstarfi við safnið, hefur skipulagt hátíðardagskrá á laugardag í tilefni af 150 ára ártíð Sigurðar málara og degi íslenska þjóðbúningsins. Terry Gunnell, sem ritstýrði ásamt Karli Aspelund bókinni Málarinn og menningarsköpunin, um Sigurð Málara, segir okkur af þessum merkilega hugsjónamanni.
Nálgast má þáttinn án auglýsinga í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Helga Braga Jónsdóttir hefur um árabil verið einn farsælasti grínisti Íslands. Hún ákvað strax sem ungabarn að ákveða að verða leikkona og það má sannarlega segja að hún hafi látið drauminn rætast. Eftir árin í fóstbræðrum og leikhúsinu vann Helga Braga um árabil sem flugfreyja og hefur ferðast um víða veröld. Í þættinum fara Sölvi og Helga yfir magnaðan feril Helgu, andlega ferðalagið, árin hjá Wow Air og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/
22. maí 2024 Spegillinn heldur áfram viðtölum við forsetaframbjóðendur - að þessu sinni er rætt við Helgu Þórisdóttur, sem Ragnhildur Thorlacius hitti fyrir á göngum Útvarpshússins. Stjórnvöld þriggja Vestur-Evrópuríkja, Noregs, Írlands og Spánar, lýstu því yfir í gær, að þau hygðust viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Hallgrímur Indriðason spurði Jón Orm Halldórsson alþjóðastjórnmálafræðing hvaða þýðingu þessar yfirlýsingar hefðu. Síðustu daga og vikur hafa verið sagðar fréttir upp úr umsögnum lögreglustjóra og lögreglufélaga við fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2025 til 2029. Umsagnirnar eiga það flestar sameiginlegt að draga upp frekar dökka mynd af stöðu lögreglunnar. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um málið og ræðir við Stefán Vagn Stefánsson, formann fjárlaganefndar og fyrrverandi yfirlögregluþjón og Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Þórarinn ræðir við Helgu Þórisdóttur um það hvaða áherslur hún sér fyrir sér að leggja fram fyrir komandi kosningar en hún hefur boðið sig fram til forseta.Rætt er um persónuvernd, gildi, agaleysi í skólum, PISA kannanir hvort að börn séu snillingar og margt fleira.
Fimmtudagurinn 4. apríl Katrín, Nató, forsetakjör og Úkraína Rauða borðið byrjar á vangaveltum Gunnars Smára Egilssonar og Björns Þorlákssonar um stöðu stjórnmála í kjölfar löngunar Katrínar Jakobsdóttur til að verða forseti. Nató á afmæli í dag. Af því tilefni fáum við Ögmund Jónasson til að fara yfir sögu og stöðu þessa hernaðarbandalags. Við höldum áfram að ræða við forsetaframbjóðendur. Röðin er komin að Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar. Í lokin kemur Hilmar Örn Hilmarsson prófessor og fer yfir stríðið í Úkraínu.
Aukasendingin fékk Ólöfu Helgu og Árna Jóhanns í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla, Subway deild kvenna, bikarkeppnina, fyrstu deildir karla og kvenna og margt, margt, margt fleira. Þá er farið yfir minnistæðustu erlendu leikmenn síðustu tíu ára í úrvalsdeild karla og kvenna.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan Helga Braga Jónsdóttir. Hana þarf auðvitað varla að kynna, hún hefur glatt fólkið í landinu með húmor sínum og gamanleik, bæði á sviði, í sjónvarpi og á kvikmyndatjaldinu, í Fóstbræðrum og fjölda Áramótaskaupa svo fátt eitt sé nefnt, auk þess að vera auðvitað líka frábær dramatísk leikkona. Við fórum með henni aftur í tíma, á æskuslóðirnar á Akranesi þar sem hún rifjaði upp fyrstu skrefin á leiksviðinu þar sem hún lék titilhlutverkið í Línu langsokki. Svo fórum við á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag, með viðkomu í leiklistarskólanu, París og svo leikhúsunum. Svo ræddum við að lokum við Helgu um hennar nýjasta hlutverk í gamanmyndinni Fullt hús, sem var frumsýnd var fyrir skemmstu. Svo var auðvitaða matarspjallið á sínum stað. Eftir helgi eru bolludagurinn og sprengidagurinn, það var því ekki úr vegi að ræða þessa daga undir styrkri stjórn Sigurlaugar Margrétar í dag. Tónlist í þættinum í dag: Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Kaupakonan hans Gísla í Gröf / Haukur Morthens (erlent lag, texti e. Loftur Guðmundsson) Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (erlent lag, texti e. Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Aukasendingin fékk Árna Jóhanns og Ólöfu Helgu til þess að ræða fréttir vikunnar, bikardráttinn, stöðuna í Subway deildunum og margt, margt, margt fleira. Sérstaklega er farið yfir Subway deild kvenna, þar sem liðunum er raðað upp í kraftröðun og þá er valið í fimm leikmanna úrvalslið leikmanna sem best væri að hafa með sér inn í úrslitakeppnina. Þá fer Árni undir lokin yfir hvaða fimm hallir landsins gera best í að taka á móti blaðamönnum.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Tactica, Subway og Lengjunnar.
Andrea og Steindór fjalla um mynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur frá 2022, Svar við bréfi Helgu.
Snarpur jarðskjálfti varð í Grímsfjalli í Vatnajökli, snemma í morgun, hlaup er hafið í jöklinum, aukið streymi í Gígjukvísl og auknar líkur á eldgosi. Eyjólfur Magnússon, vísindamaður hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, hefur undanfarið rannsakað fyrri hlaup í þessari virku eldstöð, Grímsvötnum, og hefur fylgst náið með framvindu hlaupsins sem nú stendur yfir. Í fyrra voru gefnar út töluvert færri veðurviðvaranir en árið á undan og árið 2023 var tiltölulega rólegt ef litið er til fjölda viðvarana að mati Veðurstofunnar. Alls voru gefnar út 311 viðvaranir í fyrra en þær voru 380 ári áður. Þetta ár byrjar líka frekar rólega - sem betur fer. Við ræðum við Helgu Ívarsdóttur, fagstjóra veðurþjónustu, um veðurviðvaranir og þau fræði sem þær byggja á. Við fáum svo pistil frá Evlalíu Kolbrúnu Ágústsdóttur hjá Ungum umhverfissinnum, hún ætlar að fjalla um textíliðnaðinn. Tónlist: Brimkló, Björgvin Halldórsson - Ég las það í Samúel. Beatles, The - Something. Jack Johnson - Go On.
Við fræddumst í dag um verkefnið Gott aðgengi í ferðaþjónustu sem Ferðamálastofa stendur fyrir í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands, Sjálfsbjörgu og Mannvirkjastofnun. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni búa 15% mannkyns við einhvers konar fötlun. Og það er auðvitað alls ekki nógu gott ef stór hluti þess fólks getur ekki ferðast og skoðað það sem það vill vegna slæms aðgengis. Ásbjörn Björgvinsson ferðamálafrömuður kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá þessu verkefni. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur kom svo í heimsókn til okkar og við rifjuðum upp með henni jólaminningar frá æsku hennar í Garðahreppi, eins og við ætlum að gera nokkrum sinnum í aðdraganda jólanna. Kristín Helga reið á vaðið en hún er einmitt höfundur barnabókanna um Fíusól og í síðustu viku var leikritið Fíasól frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo á sínum stað í lok þáttar. Miklir kuldar hafa verið víðs vegar norðanlands það sem af er desember. Greinileg umskipti eru framundan í veðrinu og stóra spurningin var auðvitað borin fram: Fá landsmenn jólasnjó? Við töluðum svo að lokum um vonir og væntingar varðandi árangur á loftslagsráðstefnunni, COP28, sem er að ljúka. Tónlist í þættinum í dag: Jólin með mér / Góðu molarnir (Þorgrímur Þorsteinsson og Sæmundur Rögnvaldsson) I?ll Be Home For Christmas / Dean Martin & Scarlett Johansson (Buck Ram, Kim Gannon & Walter Kent) Rudolph, The Red-Nosed Reindeer / Ella Fitzgerald (Johnny Marks) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Lestin er ekki eini þátturinn sem fagnar um þessar mundir. Rauða Borðið, viðtalsþáttur Gunnars Smára Egilssonar á Samstöðinni, hefur núna verið sent út 500 sinnum. Lóa heimsótti Gunnar Smára en hann hafði ekki tíma til að koma í viðtal nema hann mætti taka viðtal við Lóu um leið. Og þannig sameinuðust Lestin og Rauða borðið. Við fáum pistil frá Katrínu Helgu Ólafsdóttur, tónlistarkonunni K.óla, sem heldur áfram að fjalla um tónlistarsenurnar í löndunum í kringum okkur. Hún hefur kynnt okkur fyrir færeysku senunni, en nú færir hún sig til okkar næstu nágranna, Grænlendinga. Þetta er annar pistill af tveimur um grænlenska tónlistarlífið. Við kynnum til leiks nýjan pistlahöfund hér í Lestinni, Sigríður Þóra Flygenring er 24 ára grafiskur hönnuður, og hún er ekki bara með hugan við internetið heldur líka líkamann. Í sínum fyrsta pistli í Lestinni veltir hún fyrir sér hvað verður um líkamann þegar við förum á netið.

Helga Ólafsdóttir var 26 ára og vann sem skrifta á Ríkisútvarpinu í október 2008. Hún fékk það hlutverk að færa hina íkonísku ræðu Geirs Haarde af USB-lykli yfir á textaskjáinn, prompterinn. Var beðin um að lesa hana ekki en sá þó þessi orð nokkrum mínútum áður en við hin heyrðum þau: Guð blessi Ísland. Anna Marsibil Clausen ræðir við Helgu um ræðuna dramatísku. RIFF klárast á sunnudag og gagnrýnendur Lestarinnar halda áfram að segja frá því sem þeir hafa séð á hátíðinni í ár. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um þrjár heimildarmyndir á RIFF: mynd um djasstrommuleikarann Max Roach, mynd eftir Jean Lucet um suðurskautslandið: Segulmagnaða heimsálfan, og Knit?s Island eða Eyja Knits sem fjallar um tölvuleikjaspilara sem lifa og hrærast í leiknum Day-Z. Við heyrum um nýja bók blaðakonunnar Naomi Klein sem nefnist Doppelgänger, en þar skoðar hún heim samfélagsmiðla og nútímastjórnmála út frá tvífara-hugtakinu. Jóhannes Ólafsson úr þættinum Bara Bækur kemur og útskýrir hvernig tvífarahugtakið varpar ljósi á samtímann.

Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Helga Braga Jónsdóttir hefur um árabil verið einn farsælasti grínisti Íslands. Hún ákvað strax sem ungabarn að ákveða að verða leikkona og það má sannarlega segja að hún hafi látið drauminn rætast. Eftir árin í fóstbræðrum og leikhúsinu vann Helga Braga um árabil sem flugfreyja og hefur ferðast um víða veröld. Í þættinum fara Sölvi og Helga yfir magnaðan feril Helgu, andlega ferðalagið, árin hjá Wow Air og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Það fer örugglega ekki framhjá mörgum sem ferðast um miðbæinn að þar eru víða skilti þar sem á stendur "Var James Bond Íslendingur?" Það er vissulega gömul og þekkt saga að Vestur-Íslendingurinn Sir William Stephenson, vinur manna á borð við Winston Churchill og Ian Fleming, er fyrirmyndin að hinum heimsfræga njósnara. Þeir Hugi Hreiðarsson og Bogi Auðarson hafa fengið þessa sögu á heilann og ferðast um söguslóðir Stephenson. Við heimsækjum sögukjallara í Grófinni sem þeir opnuðu í fyrra Stephenson til heiðurs og ræðum við Huga. Á morgun heldur strengjasveit Tónskóla Sigursveins tónleika í Norðurjósasal Hörpu ásamt bandarískri vinahljómsveit, Youth Chamber Orchestra, YCO. Allur ágóði af miðasölu rennur til bílakaupa til handa Helgu Þórarinsdóttur víóluleikara, kennara og stjórnanda Strengjasveitar Tónskóla Sigursveins, en Helga hlaut mænuskaða eftir slys fyrir rúmum áratug síðan. Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir ræðir við Helgu í þætti dagsins. Teitur Magnússon verður líka með okkur í dag og segir frá glötuðum snillingi. Að þessu sinni fer hann yfir feril geimdömunnar, The space lady. Og Gríman var afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Þar var mikið um dýrðir þegar sviðslistafólkið okkar uppskar eftir viðburðarríkan og fjölbreyttan leikhúsvetur. Við förum yfir nokkrar af þeim grímum sem runnu á listamenn í gær.

Helga Ögmundardóttir fæddist í Neskaupstað árið 1965. Hún lauk Fil.kand. prófi 1992 frá Stokkhólmsháskóla, ásamt námi í heimspeki, vísindaheimspeki og -sögu, siðfræði, rökfræði, o.fl. frá sama skóla. Einnig lagði Helga stund á nám í lífvísindum við Háskóla Íslands og í Kaupmannahöfn, sem og garðyrkjufræði við Garðyrkjuskólann í Ölfusi. Helga lauk MA prófi 2002 í mannfræði frá Háskóla Íslands og doktorsprófi í mannfræði 2011 frá Háskólanum í Uppsölum. Megin rannsóknaráherslur Helgu eru umhverfis- og orkumál, auðlindanýting og samskipti manna og náttúru almennt. Helga er dósent í mannfræði við Háskóla Íslands. Í þessum þætti mun vera spjallað um mannfræði og umhverfismál, loftslagsbreytingar og aðra þætti sem tengjast breyttum lífsskilyrðum á plánetunni bláu, og þeim sporum sem maðurinn er að marka á hana. Mögulegar afleiðingar þessara spora eru ræddar, sem og þeir möguleikar sem eru í stöðunni, ef ekki á að fara illa, nokkuð sem kallað hefur verið „djúp aðlögun“. Í því sambandi hefur komið fram nýtt hugtak, „vistmorð“, þar sem litið er á umhverfismál sem mannréttindamál, og þar sem glæpum gegn náttúrunni er stillt upp sem glæpum gegn mannkyni.
Þáttur vikunnar er stórskemmtilegur þó ég segi sjálfur frá en fékk ég til mín listahjónin Friðrik Friðriksson og Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur sem bæði hafa getið sér gott orð sem leikarar & leikstjórar.Friðrik hefur komið víða við innan leiklistargeirans en var hann lengi fastráðinn við Þjóðleikhúsið, þar sem hann lék bæði og leikstýrði. Árið 2016 tók hann svo stöðu framkvæmdastjóra Trjarnarbíós en er hann nú nýfarinn að sinna framkvæmdastjórn fyrir Sviðslistarmiðstöð Íslands.Álfrún kemur úr mikilli leikhúsfjölskyldu og var hún aðeins níu ára þegar hún steig fyrst á svið í þjóðleikhúsinu, lék í bíómyndum og talsetti hún til að mynda Nölu í Lion King á sínum tíma. Í dag er hún sjálfstætt starfandi leikkona og leikstýrði hún sinni fyrstu bíómynd fyrir skemmstu og eru spennandi tímar framundan hjá henni.Það kemur kannski fæstum á óvart að Friðrik og Álfrún kynntust einmitt í leikhúsinu en urðu þau strax góðir vinir. Samband þeirra þróaðist síðan hægt og rólega í ástarsamband og eru þau í dag gift og eiga tvær stelpur.Í þættinum ræddum við meðal annars um leikhúslífið og hvernig það var að sameina vinnu og fjölskyldu, hvar og hvenær áhuginn á leiklistinni kviknaði, fjölskyldulífið, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Álfrún brá sér í gervi Elvis í fertugsafmæli Friðriks.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Minningar af aðventu og stríðsárum: Í þessum þætti ætlum við að ferðast aftur í tímann og til Þýskalands stríðsáranna. Við förum í fylgd með Helgu Ruth Alfreðsdóttur en hún býr á Egilsstöðum þar sem hún starfaði lengi sem íþróttakennari. Rúnar Snær Reynisson hitti Helgu þar sem hún var við sína uppáhaldsiðju; að baka hið þýska Stollen-brauð fyrir jólin. Þátturinn var frumfluttur í Sögum af landi 13. desember 2019. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Íþróttafrétta og Dagskrárgerðarkonan Helga Margrét Höskuldsdóttir mætti til mín ásamt sínum betri helmingi tónlistarmanninum og trommaranum Bergi Einari Dagbjartssyni í stórskemmtilegt spjall.Helga Margrét hefur komið víða við í fjölmiðlum en allt hófst þetta á RÚV-Núll fyrir fimm árum síðan en hefur hún síðan þá tekið að sér fjölbreytt verkefni innan RÚV bæði í útvarpi og sjónvarpi. Undanfarið hefur Helga starfað innan íþróttadeildarinar og var einmitt einn umsjónarmanna umjöllunarþátta í kringum heimsmeistaramótið í fótbolta, HM stofunar.Bergur er einn af eftirsóttustu trommörum landsins en er hann meðal annars trommari hljómsveitarinnar VÖK ásamt því að tromma á tónleikum með mörgum vinsælustu flytjendum landsins.Bergur sá Helgu fyrst þegar hún var að stjórna þriggja sólarhringa útsendingu fyrir Ég á bara eitt líf og heillaðist strax af húmornum hennar og ákvað að senda henni skilaboð. Fljótlega eftir það fóru þau á sitt fyrsta stefnumót og fundu þau strax að þau ættu ansi vel saman og voru hlutirnir fljótir að gerast í kjölfarið. Í dag eiga þau saman íbúð og eru spennandi tímar framundan hjá þeim.Í þættinum ræddum við meðal annars um landsbyggðina og hvernig það var að alast upp í sveit, íþróttirnar og keppnisskapið, fjölmiðlabransann, tónlistarbransann og margt fleira ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar þau fóru í ansi skrautlegt paranudd saman í Búdapest.Þátturinn er í boði:Gott gisk - https://www.gottgisk.is/Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos - https://www.dominos.is/Smitten - https://smittendating.com/
Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Minnilhutinn í borgarstjórn Reykjavíkur segir að hugrekki vanti í hagræðingartillögur meirihlutans. Niðurskurðurinn bitni mest á þeim sem síst skyldi. Listasafn Reykjavíkur ætlar að fækka sýningum. Ekki sé hægt að fækka starfsfólki. Sólveig Klara Ragnarsdóttir sagði frá og talaði við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Hildi Björnsdóttur. Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur sagði frá viðbrögðum safnsins við niðurskurðarkröfum borgarinnar. Andinn á loftslagsráðstefnu sameinuðu þjóðanna í Eygyptalandi var annar og ekki eins bjartsýnn og í Skotlandi í fyrra segir Helga Barðadóttir, aðalsamningamaður Íslands. Umhverfið er allt annað og stríðsrekstur í heiminum hefur áhrif á orkumálin. Í Egyptalandi vannst þó varnarsigur að hennar sögn. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Helgu. Landsréttur sneri í dag við sýknudómi yfir Jóni Baldvini Hannibalssyni, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, og dæmdi hann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni. Þingið í Suður-Afríku ræðir hvort svipta beri Cyril Ramaphosa forseta embætti fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína. Hallgrímur Indriðason sagði frá. Á þriðja hundrað börn á flótta verða á Íslandi yfir jólin og hafa aldrei verið fleiri. Hjálparsamtök sem gefa börnunum jólagjafir þiggja viljugar hjálparhendur í verkefnið sem er stórt í ár. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Semu Erlu Serdar um verkefnið. Joe Biden Bandaríkjaforseti hvatti í dag bandaríska stjórnmálamenn til þess að taka skýra afstöðu gegn gyðingahatri. Nokkrir dagar eru síðan forveri hans í embætti, Donald Trump, bauð þekktum afneitara helfararinnar í heimsókn á heimili sitt í Flórída og það vakti mikla reiði. Alvarlegur sjúkdómur er kominn upp í hrossum. Hann er óþekktur en einkennin eru býsna svæsin. Veikin greindist í 13 hrossum í 30 hrossa útigangsstóði á Suðurlandi, og þar af drápust sex þeirra sem sýktust. Bjarni Rúnarsson ræddi við Sigríði Björnsdóttur dýralækni hjá MAST um sjúkdóminn Poppstjarnan Elton John heldur sína síðustu tónleika á ferlinum næsta sumar. Ásgeir Tómasson leit yfir feril hans í lok Spegilsins.
Spegillinn 29. nóvember 2022 Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Órofa samstaða er meðal Atlantshafsbandalagsþjóðanna að veita Úkraínumönnum þann stuðning sem þarf í baráttunni við rússneska innrásarliðið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra segir að stuðningur geti verið með ýmsum hætti - svo sem að útvega þeim hlý föt í vetrarkuldum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar líktu því við mannréttindabrot á Alþingi í dag að fólk þyrfti að bíða í mörg ár eftir að afplána fangelsisdóm. Helga Vala Helgadóttir (S) var málshefjandi sérstakrar umræðu, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) tók undir áhyggjur Helgu en Jón Gunnarsson (D) dómsmálaráðherra vonar að 250 milljónir sem bætt verður við fjárveitingar til fangelsa dugi til að bregðast við. Höskuldur Kári Schram tók saman. Samninganefndir hafa setið við í allan dag hjá Ríkissáttasemjara en lítið fréttist af gangi viðræðna. Þjóðverjar hafa gert fimmtán ára samning við Katara um kaup á milljónum tonna af jarðgasi. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá. Leikskólabörn á Akureyri fengu ekki að leika sér úti í dag vegna mikillar svifryksmengunar. Bæjaryfirvöld stefna á að fjölga loftgæðamælum í bænum til þess að fá betri mynd af stöðu mála. Ólöf Rún Erlendsdóttir ræddi við Andra Teitsson, formann umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar. Nýr veruleiki blasir við sveitarfélögum, almenningi og fyrirtækjum um áramótin þegar breytingar á lögum um flokkun sorps og endurvinnslu taka gildi. Öryggisverðir hafa verið við gæslu í Rimaskóla í Grafarvogi frá því í síðustu viku. Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segist skilja að brugðið hafi verið á það ráð en hert öryggisgæsla í skólum sé ekki stefna borgarinnar. ----------- Embætti ríkissaksóknara í Úkraínu hefur tekið til rannsóknar ásakanir um að Rússar fremji stríðsglæpi í landinu. Andriy Kostin ríkissaksóknari segir um 49 þúsund ásaknir séu til rannsóknar. Ástandið í Úkraínu var aðalumræðuefnið á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja í Búkarest í Rúmeníu í dag. ?Rætt var við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur eftir fundinn. Ásgeir Tómasson tók saman. Nýr veruleiki blasir við sveitarfélögum, almenningi og fyrirtækjum um áramótin þegar ný lög um flokkun sorps og endurvinnslu taka gildi. Kristján Sigurjónsson ræddi við Eygerði Margrétardóttir, sérfræðing sambands íslenskra sveitarfélaga í umhverfis- og úrgangsmálum. Stærsta eldfjall í heimi gýs nú á Havaí eftir áratuga hlé.

Spegillinn 31. október 2022 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Íslendingur sem flúði innrásina í Úkraínu hefur snúið aftur til Kyiv og ætlar að einangra hús sitt á íslenskan máta, vegna lítils orkuöryggis í landinu. Hann segist vart trúa því að búa í þessum aðstæðum. Danir kjósa til þings á morgun og það stefnir í mest spennandi kosningar í landinu síðan fyrir aldamót. Enn er óvíst hvenær skýrsla Ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka lítur dagsins ljós. Nokkur skjálftavirkni var bæði við Bárðarbungu og Herðubreið í dag. Yfir hundrað tonn af graskerjum hafa selst hér á landi í tilefni af hrekkjavöku sem er í dag. Olaf Scholz kanslari Þýskalands gagnrýndi í dag loftslagsmótmælendur fyrir að gera fræg listaverk að skotmarki sínu í aðdraganda COP27-ráðstefnunnar í Egyptalandi. Á hin rammíslensku jólaborð bætast nú danskir humrar við skosku rjúpurnar. Lengri umfjöllun: Ársverðbólgan í þeim 19 löndum Evrópu þar sem evran er gjaldmiðill mælist núna að meðaltali 10,7 prósent. Hún hefur aldrei áður mælst svo mikil í rúmlega 20 ára sögu evrunnar. Þetta kemur fram í tölum Evrópsku hagstofunnar - Eurostat- sem birtar voru í dag. Það er einkum orku- og matarverð sem hefur hækkað. Orkuverð hefur hækkað um tæp 42 prósent á einu ári í Evruríkjum og sú hækkun kemur verulega við pyngjuna hjá evrópskum almenningi og fyrirtækjum. Kristján Sigurjónsson ræðir við Katrínu Ólafsdóttur hagfræðing og dósent við Háskólann í Reykjavík um efnahagsástandið í Evrópu og áhrif þess hér á landi. Þann sjötta nóvember hefst loftslagsráðstefnan COP 27 í Egyptalandi. Ríki heims koma þar saman til að leggja á ráðin um stöðu loftslagsmála og stilla saman strengi sína í baráttunni við loftslagsvána. Sendinefnd fer frá Íslandi á ráðstefnuna sem formlegur málsvari landsins, en þar verða einnig fleiri fulltrúar. Helga Barðadóttir fer fyrir sendinefnd Íslands á COP-27. Bjarni Rúnarsson talar við Helgu. Í Sao Paulo og víðar í Brasilíu brast á með söng og dansi meðal stuðningsfólks Luiz Inacio Lula da Silva, forsetaframbjóðanda vinstrimanna, þegar hann seig fram úr andstæðingnum Jair Bolsonaro forseta, frambjóðanda hægrimanna, í gærkvöld. Ásgeir Tómasson segir frá forsetakosningunum í Brasilíu.

Sá þéttingarreitur sem hefur hvað oftast verið nefndur hér á Flakkinu er vafalaust Heklureiturinn, en svo nefnist reitur við Laugaveg sem nær frá Nóatúni að gamla Sjónvarpshúsinu. Nú er loks búið að samþykkja deiliskipulagið og hönnuðir húsanna eru byrjaðir á verkinu, það eru þeir Freyr Frostason arkitekt hjá THG og Jóhann Einar Jónsson hjá Teikna. Við heilsum uppá þá á eftir. Einnig er rifjað upp viðtal við Ásdísi Helgu Ágústsdóttur arkitekt hjá Yriki, um deiliskipulagið.
Kvikmyndin Svar við bréfi Helgu í leikstjórn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur var frumsýnd síðastliðin föstudag. Nýr kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar Guðrún Elsa Bragadóttir rýnir í Svarið. Hún fór í bíó, örlítið efins um að hægt væri að gera kvikmynd um bændur í dag, án þess að útkoman yrði klisjukennd. Framtíð tónleika og viðburðahalds í post-húsinu og tóma rýminu, gróskumiklum listarýmum í Skerjafirðinum, er í hættu. Tónleikum hefur verið frestað ótímabundið. Undanfarna daga hafa verið sagðar fréttir af því að kvartanir nágranna yfir hávaða séu ástæðan. Við hringjum í einn aðstandenda póst-hússins, Bjarna Daníel Þorvaldsson. Ný íslensk hrollvekja verður frumsýnd á föstudag. Myndin nefnist Mara á íslensku en á ensku ber hún titilinn It hatched. Við ræðum við leikstjóra myndarinnar Elvar Gunnarsson, um b-myndir, um áhrifin sem skilnaður hefur á eftirvinnslu bíómyndar og af hverju svona margar hrollvekjur fjalla um barnsburð.

Ástarþríhyrningur meðal bænda á Ströndum á stríðsárunum. Þannig væri hægt að lýsa efni nýrrar íslenskrar kvikmyndar sem var frumsýnd á föstudag, Svar við bréfi Helgu, í leikstjórn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur. Myndin er byggð á vinsælli skáldsögu Bergsveins Birgissonar sem kom út árið 2010. Við settumst niður með Bergsveini og Ásu Helgu til að ræða það hvernig bók verður að kvikmynd, um hvort kotbændur hafi verið jafn snoppufríðir og hollywood-leikarar, og af hverju ákveðið var að klippa út úr sögunni alræmt atriði þar sem aðalpersónan leggst með kind Heiða Vigdís Sigfúsdóttir er stödd í Argentínu, á bláa markaðnum , þar sem hún þarf að kaupa sér peninga, gjaldeyrismarkaðir eru lokaðir um helgar. Næstu fjórar vikur flytur Heiða pistla um suður-ameríska menningu og ómenningu hér í Lestinni. Og við kynnum okkur það helsta sem er í boði á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Standandi lófaklapp og endurkoma leikarans Brendans Fraiser er með þess sem hæst bar á opnunarhelgi hátíðarinnar.

Hera leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Svar við bréfu Helgu í leikstjórn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur.

Í næstu viku fer fram stór vísindaráðstefna í Hörpu um afdrif íss og snjós á Íslandi en jöklar hafa undanfarin ár rýrnað um alla jörð og hinar stóru ísbreiður Grænlands og Suðurskautslandsins leggja sífellt meira til hækkunar heimshafanna. Þar talar meðal annars Hrafnhildur Hannesdóttir sérfræðingur í jöklarannsóknum um það hvernig íslensku jöklarnir eru eins og lifandi tilraunastofa um loftslagsbreytingar. Hún var gestur okkar í upphafi þáttar. Landsbankinn spáir því að hámarki verðbólgu sé þegar náð og að í september megi strax sjá hjöðnun. Miklar hækkanir á húsnæðisverði hafa verið megindrifkraftur verðbólgunnar undanfarið, en nú sjáist hins vegar fyrstu merki kólnunar. Við ræddum efnahagshorfurnar við Unu Jónsdóttur, hagfræðing hjá Landsbankanum. Síðustu daga hafa Íslendingar geta forvitnast um laun samlanda sinna eftir að álagningarskrá einstaklinga fyrir síðasta ár var birt af ríkisskattstjóra. Tekjublað Frjálsar verslunar kom út í gær og þar var til að mynda hægt að rýna í hvaða forstjórar, íþróttamenn og áhrifavaldar hafa hæstu og lægstu launin - þó skekkjumörkin séu veruleg í mörgum tilfellum. Við ræddum við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, um birtingu þessara upplýsinga. Já og af því það er föstudagur þá renndum við yfir fréttir vikunnar með góðum gestum. Að þessu sinni settust hjá okkur Atli Fannar Bjarkason samfélagsmiðlastjóri RÚV og María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women. Menningarnótt er á morgun og því fylgir að sjálfsögðu Tónaflóð Rásar 2, stórtónleikar á Arnarhóli þar sem öllu er til tjaldað. Unnsteinn Manúel Stefánsson er einn þeirra tónlistarmanna sem koma fram á hátíðinni en hann var gestur okkar upp úr hálf níu. Borgarráð kynnti í gær sex tillögur til þess að bregðast við leikskólavanda í borginni og telur að það muni skila 553 nýjum leikskólaplássum á þessu ári. Kristín Tómasdóttir, sem staðið hefur fyrir mótmælum í Ráðhúsinu, gaf lítið fyrir tillögurnar í gær - og hélt mikla eldræðu sem vakið hefur mikla athygli. Við ræddum við Kristínu um framhaldið í lok þáttar.

Í nýjasta þætti af Hlaupalíf brugðum við aðeins út af vananum og heimsóttum höfuðborgina á suðausturlandi: Höfn í Hornafirði. Við hittum þar fyrir Helgu Árnadóttur, hlaupafrumkvöðul og hlaupaþjálfara, sem sagði okkur frá Hlaupalífinu á Höfn og skyggðumst aðeins betur inn í heim hlaupara á landsyggðinni og margt margt fleira!
Byggðaráð Skagafjarðar hefur biðlað til Alþingis að færa fjóra virkjanakosti í jökulám úr verndarflokki og í biðflokk í næstu samþykkt rammaáætlunar. Þórarinn Magnússon bóndi á bænum Frostastöðum í Skagafirði er einn þeirra sem vill ekki sjá að árnar verði virkjaðar og hefur beitt sér gegn þessum hugmyndum um margra ára skeið. Hann verður á línunni hjá okkur nú í morgunsárið Fimmti dagur innrásar er nú að renna upp í Úkraínu. Sprengjudrunur kváðu við snemma í morgun í Kænugarði, Kharkiv og öðrum borgum landsins. Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti segir að næsti sólarhringur geti reynst ögurstund í baráttunni við innrásarher Rússa. Við ætlum að heyra í Ingólfi Bjarna Sigfússyni, fréttamanni RÚV, sem var í gær staddur við landamæri Úkraínu og Póllands. Ásmundur Einar Daðason, mennta-og barnamálaráðherra, hefur ákveðið að hætta frekari málarekstri í tengslum við brot Lilju Alfreðsdóttur, forvera hans í starfi, á jafnréttislögum og greiða Hafdís Helgu Ólafsdóttur miskabætur. Þessu máli er nú loks að ljúka með ákvörðun Ásmundar og við ætlum að heyra í Hafdísi sem segir málarekstur Lilju gegn sér hafa verið íþyngjandi. Hlutirnir hafa gerst hratt um helgina varðandi viðbrögð Evrópusambandsins og fleiri þjóða gegn Rússum. En það er þó ekki svo að Rússar sé algjörlega einangraðir á alþjóðavísu. Guðbjörg Rikey Thoroddsen Hauksdóttir doktorsnemi rannsakar um þessar mundir samband Rússlands og Kína á norðurslóðum. Við ræddum við Óskar Hallgrímsson, ljósmyndara, sem er búsettur í Kyiv um stöðuna núna í morgunsárið. Og við renndum yfir íþróttafréttir helgarinnar með Helgu Margréti Höskuldsdóttur í lok þáttar. Tónlist: Stutt skref - Moses Hightower Baby Blue - Sigrún Stella Baltimore - Nina Simone Let it Be - Beatles Supertime - Berndsen Bona Fide - Krummi Vortex - Nick Cave and the Bad Seeds Please don't hate me - Lay Low Smokin' Out the Window - Silk Sonic