Flugucastið

Follow Flugucastið
Share on
Copy link to clipboard

Flugucastið er hlaðvarp um fluguveiði. Umsjónarmenn eru Hafsteinn Már Sigurðsson og Sigþór Steinn Ólafsson. Markmið þáttarins er að auka afþreyingarefni fyrir veiðimenn og miðla þekkingu. Tight lines.

Tight Lines

  • Apr 7, 2020 LATEST EPISODE
  • monthly NEW EPISODES
  • 1h 40m AVG DURATION
  • 40 EPISODES


Search for episodes from Flugucastið with a specific topic:

Latest episodes from Flugucastið

Flugucastið - Bónus þáttur - Sögustund með Árna Baldurssyni

Play Episode Listen Later Apr 7, 2020 47:43


Jæja kæru kastarar. Fyrst við fögnuðum okkar fyrsta starfsári á dögunum og gátum ekkert gert fyrir ykkur og ástandið er eins og það er, reynum við okkar allra besta til að stytta ykkur stundirnar og bjóða ykkur upp á smá nýjung. Sögustund. Ef þið eruð sátt með þetta þætti okkur gaman að heyra frá ykkur með það. Fyrstur ríður á vaðið Hvíti hvalurinn sjálfur, Árni Baldursson. Hann hendir hér í magnaðar sögur. Vonandi njótið þið því við nutum. Holy cow

Flugucastið #37 - Stórlaxarnir og kvíðinn - Nils Folmer Jörgensen

Play Episode Listen Later Apr 2, 2020 120:55


Nils Folmer Jörgensen er fyrir löngu orðinn þekktur meðal veiðimanna fyrir sérstakt lag sitt á því að veiða stóra laxa hvar sem hann kemur. Allt frá barnsaldri hefur Nils verið límdur við flugustöngina og ferðast heimshorna á milli í leit sinni að lónbúanum. Við förum yfir alla söguna og snertum á skuggahliðum sportsins sem Nils hefur því miður fengið að kynnast. Njótið kæru kastara því við nutum og reinum nú að hemja okkur stundum

Flugucastið #36 - Þrákastað með Ragnheiði Thorsteinsson

Play Episode Listen Later Mar 26, 2020 90:21


Ragnheiður Thorsteinsson hefur frá unga aldri verið heilluð af veiði. Hún hefur víða veitt, framleitt veiðiefni fyrir sjónvarp, sitið í skemmtinefnd og stjórn SVFR. Góður veiðimaður, skemmtilegur viðmælandi og sannarlega góð fyrirmynd fyrir konur í sportinu. Njótið, takið upp kampavínið en þó varlega því við tókum það ekki upp varlega.

Flugucastið #35 - Lávarðar Laxár

Play Episode Listen Later Mar 24, 2020 82:10


Pétur og Birgir Steingrímssynir (ekki bræður) hafa helgað stórum hluta ævi sinnar í eltingarleik við þann silfraða í Laxá í Aðaldal. Báðir hafa þeir fylgt veiðimönnum um áratugaskeið og marga fjöruna sopið og ölduna stigið á bökkum Laxár. Við þökkum Veiðitorg.is og Avis bílaleigu sérstaklega fyrir að gera okkur kleift að leggja land undir fót og hitta þessa höfðingja. Njótið því við þið vitið þetta

Flugucastið #34 - Sami gamli þorparinn- Pálmi Gunnarsson

Play Episode Listen Later Mar 12, 2020 102:34


Jæja kæru kastarar þá er það er enginn annar en þjóðargersemin Pálmi Gunnarsson sem er gestur 34. þáttar Flugucastsins. Pálmi hefur víða komið við sínum veiðiferli og ekki gert mikið af því að liggja á skoðunum sínum. Við viljum svo sértaklega þakka AVIS og Veiditorg.is fyrir það að gera okkur kleift að fara norður og taka viðtöl við veiðimenn þar.

Flugucastið #33 - Þá beit helvítið á - Matti Hákonar

Play Episode Listen Later Mar 5, 2020 102:05


Jæja kæru kastarar, við Flugucastarar erum enn fyrir norðan og hittum þar engan annan en Matthías Þór Hákonarson en Matthías Þór rekur fyrirtækið Iceland Fishing Guide og hefur undir sinni regnhlíf þó nokkur veiðisvæði sem við ræðum við hann um. Einnig segir Matti okkur frá ákaflega skrautlegri byrjun hans í veiðibransanum. Vonum að þið hafið jafn gaman af þessum og við.

Flugucastið #32 - Íslenskar bleikjur og Erlendur Steinar

Play Episode Listen Later Feb 27, 2020 102:49


Halló Akureyri og aðrir kastarar. Í þessum þætti tökum við hús á Ella Steinari sem er fyrrum formaður SVAK og eigandi hinnar sívinsælu og góðu sölusíðu Veiðitorg.is. Elli, sem er sjávarútvegsfræðingur og sjálftitlaður letingi sem byrjaði sinn veiðiferil ekki fyrr en 25 ára, fer með okkur í gegnum veiðisögu sína og köfum við djúpt í bleikjur og bleikjuveiði. Hann ætti nú að vita eitt og annað um þau málefni því hann skrifaði mastersritgerð sína um að veiða og sleppa bleikjunni. Við förum einnig örlítið inn á laxeldið í opnum sjókvíum, Eyjafjarðará og auðvitað fær hundurinn Jójó aðeins að koma inn í þáttinn. Þannig þessi vika er spennandi fyrir ykkur. Njótið því við nutum og munið Veiðitorg.is

Flugucastið #31 - Maðurinn sem gjörbreytti veiðinni, Ingimundur Bergsson

Play Episode Listen Later Feb 20, 2020 87:11


Kæru kastarar þá bjóðum við ykkur uppá Ingimund Bergsson í þætti vikunnar. Ingimundur fer með okkur í gegnum sinn veiðiferil og ekki síst hugmyndina af Veiðikortinu og hvernig það hefur breytt veiðinni fyrir margan veiðimanninn. Svo við segjum njótið því jú við nutum.

Flugucastið #30 - Hilmar Hansson og stórlaxaþráhyggjan

Play Episode Listen Later Feb 13, 2020 93:01


Hilmar Hansson, dúkalagningarmeistara, kannast flestir veiðimenn við. Hann hefur snert á ýmsu í gegnum tíðina en rauði þráðurinn í hans dellu er draumurinn um þann stóra.

Flugucastið #29 - Engisprettufaraldur-Haraldur Eiríksson

Play Episode Listen Later Feb 5, 2020 132:54


Haraldur Eiríksson hefur gert veiðina að ævistarfi og er flestum veiðimönnum af góðu kunnur. Einstakur veiðimaður og umfram allt baráttumaður fyrir villtan lax. Njótið kæru kastarar

Flugucastið #28 - Hvíti hvalurinn, Árni Bald

Play Episode Listen Later Jan 29, 2020 125:13


Það er líklega enginn veiðimaður í heiminum sem hefur ferðast jafnvíða og Árni Baldursson. Ótrúlegur karakter sem hefur alls staðar stungið niður fæti. Verði ykkur að góðu!

Flugucastið #27 - Strengir, Jökla og Nürnberg réttarhöldin

Play Episode Listen Later Jan 23, 2020 106:03


Þröst Elliðason og fyrirtæki hans, Strengi, þekkja allir veiðimenn. í 27. þætti Flugucastsins förum við yfir hans mögnuðu sögu, feril hans í veiðinni og lítum til framtíðar.

Flugucastið #26 - Dusty Miller, Harpa og NASF

Play Episode Listen Later Jan 16, 2020 93:19


Kæru kastarar Það var hann Elvar Örn Friðriksson sem mætti til okkar þessa vikuna hann fékk veiðina í vöggugjöf og hefur komið víða við. En hann hefur starfað við leiðsögn, veiðileyfasölu en nú berst hann fyrir verndun villtra laxastofna sem framkvæmdastjóri North Atlantic Salmon Fund á Íslandi. Þannig við komum víða við í þætti vikunnar Svo njótið því við nutum.

Flugucastið #25 - Laxfiskar, Jóhannes Sturlaugsson og vísindin

Play Episode Listen Later Jan 10, 2020 152:34


Jóhannes Sturlaugsson hefur helgað líf sitt laxfiskum. Hann fer vítt og breitt með okkur í þætti vikunnar og dregur ekkert undan í gagnrýni sinni á Hafrannsóknarstofnun. Þessum má enginn missa af!

# - Vörður Marel Jóla-special

Play Episode Listen Later Dec 24, 2019 37:13


Jæja kæru kastarar hér kemur jólagjöfin okkar til ykkar. Heill þáttur með engum öðrum en Verði Marel Einarssyni. Við þökkum ykkur kærlega fyrir stuðninginn og hlustunina á árinu sem er að líða. Vonandi hafið þið jafn gaman að þessum þætti og við höfðum að gera hann. Jóla- og áramóta kveðja til ykkar kastara frá okkur Flugucösturum. Sjúbbí dú

Flugucastið #24 -FOS, hálendið og heiðavötnin

Play Episode Listen Later Dec 20, 2019 107:35


Kæru kastarar. Kristján Friðriksson er mikill grúskari og hefur undanfarin ár haldið úti þeirri frábæru veiðisíðu FOS.is. Hann er einnig formaður Ármanna, þess gamla og rótgróna stangaveiðifélags. Við fengum Kristján í spjall í þessum síðasta þætti Flugucastsins á sínu fyrsta starfsári. Gleðileg jól og takk fyrir samfylgdina á árinu. Því segjum við skál og njótið því við nutum.

Flugucastið #- 23 Þingvellir, Kolaportið og Arnarvatnsheiði

Play Episode Listen Later Dec 12, 2019 127:32


Kæru kastarar Tómas Skúlason er veiðimönnum kunnur sem eigandi Veiðiportsins úti á Granda. Þessi einstaki og skemmtilegur maður lætur allt flakka í Flugucastinu. Njótið og fáið ykkur því við nutum og já fengum okkur

Flugucastið #22 - Setbergsá, keppnisskapið og þessir stóru

Play Episode Listen Later Dec 6, 2019 99:48


Tvíburabræðurnir Ásmundur og Gunnar Helgasynir segja okkur frá sínum oft og tíðum skrautlega veiðiferli. Sumir sigrar eru mjög stórir en ósigrarnir geta verið litríkir. Njótið!

Flugucastið #21 - Svartá, þurrflugur og silungar

Play Episode Listen Later Nov 28, 2019 135:59


Jón Aðalsteinn er frumkvöðull í fluguhnýtingum og fluguveiði. Einn af þeim fyrstu sem virkilega náðu valdi á þurrfluguveiði sem og að veiða á pinku litlar flugur. Einnig byrjaði hann að veiða á bognar nálar og girni. Njótið kæru kastarar við nutum. Sipp og hoj

Flugucastið #20 - Náttúran, rótin og like-in

Play Episode Listen Later Nov 21, 2019 95:51


Howdiddlyho kæru kastarar. Það eru þungarvigtarmenn hjá okkur í þessum þætti. Feðgarnir Atli og Heiðar Bergmann. Þeir fara yfir veiðiferil sinn sem er nú kannski ekki sá lengsti en engu að síður pakkaður. Farið er yfir rót vandans, gæderí, mússó og samningarviðræður um bíla. Já, þeir feðgar hafa frá mörgu að segja. Njótið því við nutum. Sjamón.

Flugucastið #19 - Sumarstrákur, Euronymphing og Kjósin

Play Episode Listen Later Nov 14, 2019 109:04


Ok ok kæru kastarar. Það var nördast í þessum þætti því það er enginn annar en Hrafn H. Hauksson sem mætti í castið og fór yfir sinn stutta en gríðarlega merkilega veiðiferil. Hér er kafað djúpt í misflóknar pælingar í veiðinni. Taumar, Euronymphing, stangir og flest tæknileg afbrigði af fluguveiði. Talað er um Kjósina, Minnivallarlæk og að sjálfsögðu Varmá. Í þessum þætti ættu flestir að læra eitthvað nýtt. Njótið, við nutum. Sæonara.

Flugucastið #18 - Norðurá, Haugurinn og hnýtingarnar

Play Episode Listen Later Nov 7, 2019 91:44


Kæru kastarar Það var enginn annar en Sigurður Héðinn (Siggi Haugur)sem mætti til okkar þessa vikuna. Hann fór yfir sinn feril í leiðsögn, veiði og við fluguhnýtingar. Einnig renndum við yfir nýju bókina hans sem ber nafnið Af flugum, löxum og mönnum. Hún er frábær gripur fyrir alla veiðimenn og kemur út akkúrat í dag. En hér er Haugurinn. Njótið, við nutum.

Flugucastið #17 - Skátinn, Norðurá og puttinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2019 105:48


Jæja kæru kastarar. Þá er komið að ansi merkilegri, fróðlegri og magnaðri sögu. Þorsteinn Stefánsson kom til okkar og fór yfir allan sinn feril. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann náð að þvælast á puttanum um nánast allt land til að veiða, orðinn háttskrifaður gæd og klárað stofn í heilli á. Já þetta er ansi merkileg saga. Njótið. Við nutum.

Flugucastið #16 - Korpa, pólitíkin og Hreggnasi

Play Episode Listen Later Oct 24, 2019 131:57


Kæru kastarar. Jón Þór Júlíusson, framkvæmdastjóri Hreggnasa, mætti til okkar í ham og í HAM-bol í fyrsta þátt vetrarins. Jón fer með okkur um víðan völl, veltir steinum og stingur á kýlum. Hann er yngsti leigutaki að laxveiðiá á Íslandi. Hann er HAM, þið eruð HAM, við erum öll HAM. Njótið! Minnum á live flugucast á Session Craft Bar 31. október kl. 20. Lofum rokkstjörnum í stólana.

Flugucastið - #Bónusþáttur - Urriðinn, húkkið og fósturstellingin

Play Episode Listen Later Jul 18, 2019 74:54


Já kæru kastarar. Hér er live-þátturinn með Dagbók urriða, Ólafi Tómasi Guðbjartssyni. Hér förum við yfir margt og mikið. Allt frá góðu húkki í Blöndu yfir í snappið Dagbók urriða, fyrrum tengdapabba og lífið og tilveruna. Já, þessi þáttur var live og við viljum benda á að hljóðgæðin eru ekki frábær en vonum að þið njótið engu að síður kæru kastarar. Þátturinn endar fremur snögglega en það var út af þessum margfrægu tæknilegu örðugleikum. Það vantar þó bara eina-tvær mínútur. Það var einfaldlega ekki hægt að setja þennan ekki inn! Frá okkur Flugucösturum segjum við TAKK fyrir þetta fyrsta season. Heyrumst í haust.

Flugucastið #15 - Snæfellsnes, SVFR, veiða og sleppa?

Play Episode Listen Later Jul 10, 2019 71:02


Kæru kastarar! Farið er yfir stóru málin í þessum þætti. Allt frá nærri gjaldþrota stangaveiðifélagi til SVFR eins og það stendur í dag. Bjarni Júlíusson veiðimaður og fyrrverandi formaður SVFR fer yfir æskuna á Snæfellsnesi, leiðsögnina, ástina og formennskuna. Svo er það mál málanna. Veiða og sleppa? Vegna tæknilegra örðugleika var ekki hægt að setja veiðilagið sem Bjarni valdi í lok þáttar og biðjum við ykkur, og hann, velvirðingar á því. Við vitum samt að þið þekkið öll lagið og leyfið því að óma í höfði ykkar. Skál!

Flugucastið #14 - Bloggið, Stangaveiðifélagið og bransinn

Play Episode Listen Later Jul 3, 2019 114:44


Jæja kæru kastarar. Eftir smá bið er komið að næsta þætti. Er það? Já. Ok. Það er enginn annar en heljarmennið Stjáni Ben sem er gestur þáttarins. Hann fer yfir sögu sína allt frá dópinu yfir í að ætla að sigra stangveiðiheiminn eða svona næstum því. Bloggið sem startaði öllu, árin í SVFR og fyrirtækin sem hann hefur stofnað eða komið á koppinn. Já, og svo líka krossfittið auðvitað. Þessi þáttur er sprengja, mikið hlegið, mikið talað og margt látið flakka. Búmmsjakalakka.

Flugucastið #13- Kjósin, 100 kallarnir og geimverurnar

Play Episode Listen Later Jun 19, 2019 101:56


Nú jæja þetta er aldeilis þáttur. Í þætti vikunnar er alvöru fræsing. Gestur okkar í þessari viku er einfaldlega frægasti Íslendingur Íslands og þó víða væri leitað. KÓNGURINN Og það er bara einn. Njótið BÚMMMMMM

Flugucastið #12- Urriðafoss, Outfitters og skellinöðruprófið

Play Episode Listen Later Jun 12, 2019 90:06


Kæru Kastarar. Hvar er sósan? Þá er komið að þætti vikunnar og er hann ekki af verri endanum. Gestur vikunnar er Norðlendingurinn, sem er sem betur fer fluttur í Kópavoginn, Stefán Sigurðsson. Hann er einn eiganda Iceland Outfitters og fer yfir sína veiðisögu sem hófst þegar Stefán var þriggja ára. Förum allt frá Akureyri til Kópavox, Lax-Á og Iceland outfitters. Lifi SLAYER

Flugucastið #11 - Bræður, Á og myndastyttan

Play Episode Listen Later Jun 6, 2019 125:26


Já, þáttur vikunnar er með þeim lengri enda í honum tveir gestir. Bræðurnir Oscar og Erik Koberling mættu og sögðu okkur sínar veiðisögur. Þeir hafa veitt á flugu frá átta ára aldri og síðan þá hefur ekki fengið þá stöðvað í veiði og gæderíi. Kæru kastarar, þáttur vikunnar er á ensku enda urðum við fá þessar sleggjur til okkar. Þverá, Kjarrá, Mývatnssveitin og ótal fleiri. Allt þetta og meira til. Njótið!

Flugucastið #10 - Lækurinn, Loop og Húseyjarkvísl

Play Episode Listen Later May 30, 2019 95:01


Jæja, kæru kastarar. Í þætti vikunnar er farið um víðan völl. Við fengum til okkar Valgarð Ragnarsson sem sagði okkur frá sínum afrekum. Allt frá tíma sínum í veiðibúðinni við lækinn og til þróunarvinnu fyrir Loop. Þetta er bingó.

Flugucastið #9 - Hábeinn heppni, SVFR og kampavínsköstin

Play Episode Listen Later May 23, 2019 113:15


Jæja kæru kastarar. Þáttur vikunnar er langur og góður, Við fáum til okkar snilling sem er ekki bara stíflaður veiðimaður heldur er hann einnig formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Þetta er enginn annar en Jón Þór Ólason. Við förum yfir alla hans veiðisögu og komandi tíma hjá SVFR og lofum geggjuðum þætti. BÚMM

Flugucastið #8 - Langskeggur, spilafífl og Veiðivötn

Play Episode Listen Later May 16, 2019 83:29


Já, kæru kastarar. Við biðjumst velvirðingar á töfum á þættinum en hér er hann kominn í allri sinni dýrð og það er ennþá fimmtudagur. Í þætti vikunnar er kafað vel í vatnaveiði. Örn Hjálmarsson leiðir okkur í allan sannleik um dýpstu leyndardóma vatnaveiði og við ræðum meðal annars Hraunsfjörð, Veiðivötn og Skagaheiði. Hin dulmagnaða fluga Langskeggur kemur líka við sögu. Kæru kastarar. Fræðist, njótið og umfram allt - meira pönk.

Flugucastið #7 - Skriðdrekinn, állinn og mambó no 5

Play Episode Listen Later May 9, 2019 94:49


Í þætti vikunnar verður farið allt frá Rússlandi yfir til Argentínu og þaðan til Íslands. Kristján Páll Rafnsson er gestur þáttarins, fer yfir sinn feril og fræðir okkur meðal annars um Fishpartner og auðvitað margt fleira.

Flugucastið #6 - Vorflugur og slysið í Slæðunni

Play Episode Listen Later May 1, 2019 98:05


Jæja kæru kastarar. Þá er komið að sjötta þætti af Flugucastinu. Í þessari viku er kafað djúpt, en samt ekki of djúpt, í silungsveiði og caddis-flugur. Caddis-bræðurnir Hrafn og Ólafur mættu og jusu úr viskubrunni sínum um Þingvallavatn og fóru einnig mjög vel yfir Laxá í Aðaldal. Þar eru þeir bræður á heimavelli og fáir geta skákað þeim þar. Þar hafa þeir lent í stórslysi og líka gríðarlegri veiði. Búið ykkur undir fræðslu, hlátur og kannski grátur.

Flugucastið #5- Bruni, sprenging og leður. BB

Play Episode Listen Later Apr 24, 2019 119:56


Í Flugucasti þessarar viku er kafað djúpt. Kannski of djúpt eða kannski ekki. Lengsti þátturinn til þessa. Einfaldlega höfðum við um of mikið að tala og viðmælandi okkar of mikilvægur. Björn Roth. Já, þið heyrðuð rétt; liðsmaður Bruna BB. Hér er fræsing og hér er drukkið og hér er stuð. Björn Roth gjörið þið svo vel.

Flugucastið #4- Taumar, tökuvari og teikningar

Play Episode Listen Later Apr 17, 2019 92:22


Í Flugucasti vikunnar köfum við djúpt inn í pælingar um silungsveiði. Við fengum til okkar einn af bestu silungsveiðimönnum Íslands. Ingólfur Örn Björgvinsson kom og fræddi okkur um flest öll trikkin í bókinni. Ef þið viljið ná alvöru árangri í þessari veiði þá hvetjum við ykkur til að hlusta af athygli. Góðar stundir

Flugucastið #3 - Snapchat, barðahattar og punghárið

Play Episode Listen Later Apr 11, 2019 93:25


Þriðji þátturinn kominn í loftið! Í honum er farið yfir málin með fulltrúa ungu kynslóðarinnar, Elíasi Pétri Viðfjörð Þórarinssyni, Villimanni og veiðigúrú.

Flugucastið #2 - Attenborough, síldin og fjöldamorðið

Play Episode Listen Later Apr 3, 2019 88:39


Veiðikonur og veiðimenn. Til lukku! Veiðitímabilið er byrjað og ekki nóg með það. Annar þátturinn af Flugucastinu er kominn í loftið og í honum fengum við engan smá gest. Eggert Skúlason. Eggert fer um víðan völl, allt frá stórlöxum niður í smæstu síldir. Við ræðum líka um Sporðaköst og fáum sögur sem gerðust á bakvið tjöldin í þáttunum. Við flugucastarar óskum ykkur góðrar skemmtunar.

Flugucastið #1 - Vatnsdalurinn og hundrað kallarnir

Play Episode Listen Later Mar 28, 2019 85:06


Björn Kr. Rúnarsson mætti til okkar í fyrsta þáttinn af Flugucastinu. Við fórum um víðan völl og ræddum meðal annars Vatnsdalsá og gæderí.

Claim Flugucastið

In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

Claim Cancel