POPULARITY
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Valgeir Magnússon stjórnarformaður PiparTBWA og framkvæmdastjóri SDG TBWA í Osló um Justin Bieber áhrifin Margrét Einarsdóttir formaður nefndar um eftirlit með störfum lögreglu Símatími Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar um njósnamálið og persónuvernd Jónas Páll Jónasson fiskifræðingur og sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun um íslenska humarinn Ómar Guðjónsson gítarleikari og listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Jazzþorpið
Fyrir rúmum áratug var stunduð umfangsmikil bláskeljarækt á Íslandi - síðan hrundi þessi grein - og það sem meira er þörungar sem framleiða taugaeitur hafa gert krækling hættulegan til neyslu. Á greinin sér viðreisnar von? Og hvað er hægt að gera í þessum eiturþörungum? Sara Harðardóttir þörunga- og erfðafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun stýrir nú stórri rannsókn á öryggi og hagkvæmni í bláskeljarækt, rannsóknin hefur hlotið tugmilljóna styrki úr ýmsum áttum. Sara ræðir við okkur um framtíð kræklingaræktar á Íslandi. Og síðan ætlum við að huga að framtíð íslenskunnar, þá sérstaklega framtíð kynhlutlausrar Íslensku. Sumir láta kynhlutleysi í íslensku máli fara í taugarnar á sér, aðrir telja það verðugt verkefni að draga úr karllægni tungumálsins. Eiríkur Rögnvaldsson kemur við og spjallar um kynhlutlaust mál og framtíð íslenskunnar. Við förum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið í lok þáttar og kynnumst þar brotum úr sögu Sigfúsar Sighjartarsonar, alþingismanns, sem lést um miðbik síðustu aldar. Tónlist frá útsendingarlogg 2025-03-31 Lucy Dacus - It's Too Late. KARKWA - Marie tu pleures
Kristján Kristjánssonstýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessim þætti: Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, svarar áleitnum spurningum um æ verri stöðu margra fiskistofna við Ísland, margra ára þróun þar sem afli í hverri tegundinni af annarri dregst saman og sumar hverfa með öllu þrátt fyrir öfluga veiðistjórnun og ráðgjöf. Svandís Svavarsdóttir formaður VG svarar því hvert vinstrið í íslenskum stjórnmálum ætlar sér eftir að hafa fallið af þingi og neyðst til að draga saman seglin m.a. með lokun skrifstofu. Hvert er erindi VG og hvernig verður flokkurinn endurreistur. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Grímur Grímsson og Víðir Reynisson alþingismenn ræða öryggis og varnarmál, njósnir á Íslandi, alþjóðlega glæpahringi, samstarf við bandamenn, yfirgang Bandaríkjanna á Grænlandi og áhrif alls þessa á okkar stöðu. Halla Helgadóttir, forstöðumaður Hönnunarmiðstöðvar, ræðir stöðu Hönnunar og arkitektúrs í upphafi Hönnunarmars hátíðarinnar og andmælir harðlega hugmyndum í hagræðingarskýrslu ríkisstjórnar um sameiningu lista- og hönnunarmiðstöðva í eina Listamiðstöð.
Nýverið var greint frá því að 14 þúsund fræsýnum hefði verið lögð inn í Alþjóðlegu fræhvelfinguna á Svalbarða - dómsdagshvelfinguna eins og hún er stundum kölluð. Árni Bragason fyrrverandi landgræðslustjóri var forstjóri Nordgen, Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar, um árabil, hann kemur til okkar í Samfélagið og við forvitnumst um fræhvelfinguna og starfsemi hennar. Vísindamenn á Hafrannsóknastofnun birtu nýlega fræðigrein í tengslum við rannsóknir sínar á 11 djúpsjávarháfum við Ísland. Þetta eru ævafornar skepnur sem halda til á yfir þúsund metra dýpi í lítt könnuðum vistkerfum og sumar tegundanna á válista. Við ræddum við tvo af höfundum greinarinnar, sjávarlíffræðingana Jón Sólmundsson og Klöru Jakobsdóttur, um þessa dularfullu fiska en auk þeirra kom sjávarvistfræðingurinn Hildur Pétursdóttir að rannsókninni (https://onlinelibrary.wiley.com/doi/10.1111/maec.12854). Vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur á sínum stað i lok þáttar. Edda fjallar um hvernig lungu þroskast.
Aldrei hafa jafn margir strokulaxar af norskum uppruna greinst og árið 2023 og aldrei hafa strokulaxar veiðst í jafn mörgum ám segir í skýrslu Hafrannsóknastofnunar. Tíðni stroka úr sjókvíaeldi og fjöldi fiska var mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir bæði við mat á umhverfisáhrifum laxeldis og áhættumati erfðablöndunar. segir líka. Rætt við Guðna Guðbergsson, sviðsstjór Ferskvatns- og eldissviðs Hafrannsóknastofnunar um niðurstöðurnar.
Julian Assange var leystur úr Belmarsh öryggisfangelsinu í Lundúnum í morgun, þar sem honum hafði verið haldið meira og minna í einangrun í rúm fimm ár án dóms og eiginlegrar málsmeðferðar, með framsal til Bandaríkjanna yfirvofandi. Sigríður Dögg Auðundsdóttir formaður blaðamannafélagsins fagnar frelsun Assange, en segir málalyktir þó ekki geta talist sigur fjölmiðla- og tjáningarfrelsis. Spegillinn óskaði eftir gögnum um ákvörðun matvælaráðherra að leyfa hvalveiðar á þessu ári - þau varpa ljósi á mikla óánægju forstjóra Hvals og efasemdir innan matvælaráðuneytisins um útreikninga Hafrannsóknastofnunar.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umrææðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Auður Jónsdóttir rithöfundur, Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur og Björn Ingi Hrafnsson blaðamaður og ritstjóri um forsetakosningar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við HA um alþjóðamál. Hrönn Egilsdóttir sviðsstjóri Hafrannsóknastofnunar um málefni hafsins.
Við tölum um það sem kallað er verndarlíffræði og niðurstöður stórrar rannsóknar á því efni sem voru birtar nýlega. Ragnhildur Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands, og Áki Jarl Láruson, stofnerfðafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, ræða við okkur um rannsóknina og niðurstöðurnar. Á morgun hefst álfasala SÁÁ þegar hópur sölumanna um allt land býður álfinn til sölu til að afla fjár fyrir meðferðarstarf SÁÁ. Álfurinn dúkkar alltaf upp á vorin og hefur gert í áratugi. Og núna áðan, í hádeginu, var átakið kynnt þegar Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ afhenti heilbrigðisráðherra fyrsta álfinn. Anna Hildur ræðir við okkur um álfinn, fjáröflun SÁÁ og starfið. Og Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur lítur við hjá okkur í það sem við köllum málfarsspjall. Tónlist: JAMES TAYLOR - Fire And Rain. TOM PETTY AND THE HEARTBREAKERS - The Waiting. Ítarefni: Hlekkur á verndarlíffræðirannsókn https://www.cell.com/cell-reports-sustainability/fulltext/S2949-7906(24)00110-1?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTAAAR0ykQVDSA57gLSj9k9Vf-Rzo-9dxL99l3ilc55mVd2-n2XG8873-xFzFhc_aem_Af4Grlf-u-XlPjjPhPMkRu5UiPn9jZLmXdpdLpni01Vl9a65rAgMBo5FoJtlvUXdhNwCT6tb9vT8LQonXY769mUV
Bandaríkin búa yfir langri og djúpri sögu stúdentamótmæla, og nú stendur yfir sérstaklega áberandi mótmælaalda. Stúdentar víða um landið hafa slegið upp tjaldbúðum og krefjast þess að skólayfirvöld rjúfi tengsl við Ísrael. Emil Dagsson er doktorsnemi í hagfræði, og stundar nú rannsóknir við Brown háskóla í Providence í Rhode Island fylki. Hann fór yfir stöðuna með okkur. Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, hefur verið að fylgjast með sjónvarpsþáttunum Skvíz, en um er að ræða nýja örseríu frá Sjónvarpi Símans. Um þessar myndir er myndin Draumar, konur og brauð í sýningu í Bíó Paradís. Myndin fléttar saman viðtölum við leikinn söguþráð; sagan af sýni sem þarf að sækja fyrir Hafrannsóknarstofnun og handrit sem þarf að drífa sig að klára fyrir Sólstöðuhátíð á Arnarstapa, fléttast saman við heimsóknir á kaffihús sem rekin eru af konum víðsvegar um landið.Lóa Björk fór í bíó og ræddi við aðstandendur myndarinnar. Lagalisti: The Beach Boys - Student Demonstration Time Emitt Rhodes - Somebody Made For Me slummi - trsx
Við ætlum að forvitnast um fiskmerkingar við Ísland í Samfélaginu í dag. Slíkar rannsóknir hafa verið stundaðar hér í meira en hundrað ár og tæknin hefur auðvitað þróast í þessum rannsóknum eins og öðrum. Ingibjörg G. Jónsdóttir sjávarvistfræðingur hefur umsjón með þessum verkefnum hjá Hafrannsóknastofnun. Og við höldum okkur við náttúruvísindin, nokkrar dýrategundir hafa þann eiginleika að geta gefið frá sér ljós, eldflugur eru þeirra á meðal, en hvers vegna gera þær það og hvernig fara þær að því? Við ræðum ljósgjafa í lífríkinu við Arnar Pálsson, erfðafræðing við Háskóla Íslands. Við heyrum málfarsmínútu og í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands og tölum um viðbragðsáætlun Almannavarna vegna hugsanlegra náttúruhamfara í Vestmannaeyjum. Áætlun sem var gerð árið 1964, níu árum fyrir gosið í Heimaey. Andrea Ásgeirsdóttir ætlar að segja okkur frá þessu. Tónlist: EURYTHMICS - I Saved The World Today. Valgeir Guðjónsson - Þjóðvegur númer eitt.
Almannavarnir kynntu fyrr í vikunni stöðuna á jarðkönnunarverkefni sem hefur staðið yfir í nokkrar vikur og er hluti af heildaráhættumati fyrir Grindavík. Verkefnið hefur samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum þann tilgang að auka öryggi einstaklinga með því að rannsaka og kortleggja sprunguhættu. Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna segir okkur nánar frá þessu. Má kvenfélagið selja sveitarstjórninni kökur ef það er bakari á staðnum? Hvað finnst fólki um sjálfboðaliðastörf, hvenær finnst því í lagi að gefa vinnu sína og hvaða þýðingu geta þessi störf haft? Eru þau alltaf og alls staðar vinnumarkaðsbrot eða bara stundum og sums staðar? Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði hefur rannsakað þann sið að senda börn í sveit frá ýmsum hliðum, í framhaldinu beindi hún sjónum sínum að sjálfboðastörfum fólks sem kemur hingað erlendis frá og því næst rannsakaði hún viðhorf til sjálfboðaliðastarfa almennt, í sveitum og dreifbýli. Við ræðum við hana. Það var sagt frá því í Morgunblaðinu á dögunum að íslenskir vísindamenn hefðu lýst nýrri tegund kolkrabba í grein í tímaritinu Zoological Letters. Kolkrabbi þessi hefur hlotið heitið Ægir, eða Muusoctopus aegir. Steinunn Hilma Ólafsdóttir sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun er einn höfunda greinarinnar. Hún ætlar að segja okkur frá þessari uppgötvun og ræða við okkur um rannsóknir í undirdjúpunum.
Alþjóðadómstóllinn í Haag féllst í dag á að rannsaka hvort Ísraelsmenn hafi framið þjóðarmorð á Gaza. Hann krafðist þess ekki að hernaðaraðgerðum yrði hætt, heldur að Ísraelsmenn gripu til allra ráðstafana til að koma í veg fyrir þjóðarmorð og tryggja að mannúðaraðstoð berist íbúunum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Hafrannsóknastofnun birti á dögunum skýrslu um niðurstöður viðamikillar langtímarannsóknar á næringu botnfiska við Íslandsstrendur. Í rannsókninni var skoðað í maga nær 600.000 fiska af 36 tegundum á ríflega aldarfjórðungstímabili, frá 1996 - 2023. Ævar Örn Jósepsson sagði frá og ræddi við Jónas Pál Jónasson, sviðsstjóra botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar. Bæjarstjórinn á Akureyri vill sjá ríkið veita meiri fjármunum til menningarmála í bænum en núverandi samningar segja til um. Sveitarfélagið standi fyrir öflugu menningarstarfi sem nýtist fólki víða um land. Sem dæmi fái Akureyri aðeins um fimm prósent af því menningarfé sem Reykjavík fái frá ríkinu. Ágúst Ólafsson sagði frá og talaði við Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra og Hlyn Hallsson, safnstjóra Listasafnsins á Akureyri
Þegar rætt er um kirkjugarða eru nýsköpun, ratleikir og partístand kannski ekki það fyrsta sem kemur upp í huga fólks - en það er heilmikil nýsköpun sem á sér stað í kirkjugörðum um allan heim, straumar og stefnur. Við ræðum við Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóra Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma, meðal annars um þéttingu byggðar í görðunum og QR-kóða sem bráðlega verða settir á grafir í Kópavogi. Niðurstöður nýliðins rannsóknarleiðangurs þar sem þess var freistað að mæla magn loðnu við Ísland gefur ekki tilefni til að breyta fyrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um engar loðnuveiðar á þessari vertíð. Lítið mældist og sterkar líkur eru á því að loðna sé enn undir hafísnum norðvestur af Íslandi. Við ætlum að tala um loðnu við Birki Bárðarson fiskifræðing sem stýrði leiðangrinum. Umhverfispistill frá Stefáni Gíslasyni - Hver á að gera það? Er það Indriði? Tónlist: Dansa på min grav - Bo Kaspers Orkester
24. janúar 2024 Íslenski þorskstofninn er nokkuð sterkur og hefur verið um alllanga hríð, öfugt við flesta þorskstofna aðra í Norður-Atlantshafi. Nýleg rannsókn Hafrannsóknastofnunar leiddi í ljós að honum má skipta gróflega í minnst tvær stofneiningar. Í erlendri rannsókn sem birt var í fyrra kemur fram að þorskstofnar í Norður-Atlantshafi séu um 20 talsins og að af þeim séu aðeins tveir í nógu góðu formi til að óhætt sé talið að veiða úr þeim svo nokkru nemi; sá íslenski og svo stofninn í Barentshafi. Ævar Örn Jósepsson ræddi þessar niðurstöður við Jónas Pál Jónasson, sviðsstjóra botnsjávarsviðs á Hafrannsóknastofnun. Búast má við milljónum skráninga í tjónaskrá vegna stríðsins í Úkraínu, segir Róbert Spanó stjórnarformaður skrárinnar. Almennir borgarar eiga sjálfir að geta skráð tjón sitt á netinu. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Róbert. Stutt er í fomlega opnun nýjasta sendiráðs Íslands, í Freetown, höfuðborg Afríkuríkisins Síerra Leóne. Ásdís bjarnadóttir, forstöðukona sendiráðsins, segir mörg spennandi verkefni fyrir höndum á komandi misserum. Þorgils Jónsson ræddi við hana. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Við fáum góðan gest til okkar sem tengist Samfélaginu sterkum böndum en hélt um mitt ár á vit nýrra ævintýra í rúmlega átta þúsund kílómetra fjarlægð. Þetta er Þórhildur Ólafsdóttir sem var annar umsjónarmaður Samfélagsins svo árum skipti og býr nú tímabundið í Kampala, höfuðborg Úganda. Ýmislegt ber á góma, til dæmis ávexti, sorphirðumál, þróunarstarf og engisprettuát. Málfarsmínúta með áramótaívafi. Endurflutt dýraspjall frá því í janúar á þessu ári. Þar ræddi Þórhildur Ólafsdóttir við Aðalbjörgu Jónsdóttur, líffræðing hjá Hafrannsóknastofnun, um aldursgreiningar á fiskum.

Eldgos hófst norður af Grindavík í gærkvöldi. Og það hófst með miklu meiri krafti en fyrri gos undanfarið á Reykjanesi. Mikið dró úr kraftinum þegar leið á nóttina og virknin afmarkast nú við 300 til 500 metra langa rein um miðbik upphaflegu gossprungunnar. Brennisteinslosun á tímaeiningu var sögð tífalt meiri en var í síðustu þremur gosum á Reykjanesi. Við ætlum að tala um gös, gufur og móðu við Þorstein Jóhannsson sérfræðing í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun og velta fyrir okkur hvort útlit sé fyrir loftmengun vegna gossins. En við tölum ekki bara um eldgos. Við fjöllum líka um DNA-rannsóknir á steingervðum svifþörungum. Sara Harðardóttir, doktor í þörungafræði hjá Hafrannsóknastofnun, ætlar að segja okkur frá rannsóknum sínum, en hún hefur rannsakað plöntu- og dýrasvif á norðurhveli jarðar í um áratug og rannsóknir hennar varpa meðal annars ljósi á áhrif loftslagsbreytinga sem koma hraðast fram á pólunum. Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur pistil - sinn síðasta fyrir jól.

Helmingur landsmanna telur að íslenskt samfélag þurfi að nýta sem flesta virkjunarkosti en ekki hvaða kosti sem er og ekki í hvaða tilgangi sem er. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar þar sem aðaláherslan var á vindorkuver og alveg skýrt að fólk vill fáa stóra vindorkugarða í stað margra lítilla - ef það vill virkja vindinn yfirleitt. Við ræðum við Kjartan Ólafsson, félagsfræðing hjá stofnuninni, um könnunina. Nýtt hafrannsóknaskip er nú í smíðum í Vigo á Spáni. Nýja skipið, sem mun heita Þórunn Þórðardóttir, tekur við af elsta skipi stofnunarinnar; Bjarna Sæmundssyni. Við heimsækjum Bjarna í Hafnarfjarðarhöfn í Samfélaginu í dag og ræðum við forstjóra Hafrannsóknastofnunar, Þorstein Sigurðsson um þau Þórunni og Bjarna. Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að velta fyrir sér ræktun á líffærum.

Samfélagið verður áfram með hugann við kvennaverkfallið og áhrif þess á Samfélagið og lykilstarfsemi. Við ræðum við bæjarstjóra, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítalanum, formann Flugfreyjufélagsins og mannauðsstjóra Ísavía. Hafró og Matís hafa undanfarið staðið í ströngu við að erfðagreina meinta strokulaxa, magnið er svona á við tvær þrjár meðalfrystikistur, og þau eru rúmlega hálfnuð með verkið. Þetta eru tímafrekar rannsóknir sem vonandi segja okkur ýmislegt. Við ræðum þessa vinnu, áhættu af fiskeldi og visst landnámseðli laxa við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatnssviðs hjá Hafrannsóknastofnun. Málfarsmínúta. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV. Rifjar upp dagskrá fyrsta Kvennafrídagsins en dagskráin var metnaðarfull og henni var útvarpað á þessum degi fyrir 48 árum.

Framtíð læknisþjónustu á Íslandi var til umræðu í þætti dagsins. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, situr í nýjum starfshópi um málið og ræddi við okkur um áskoranir og líka tækifæri í heilbrigðisþjónustunni. Laxveiðin í sumar var tregari en veiðimenn óskuðu. Árnar voru margar hverjar vatnslitlar og laxinn almennt lítið spenntur fyrir að taka. Guðni Guðbergsson hjá Hafrannsóknastofnun ræddi um ástand og horfur í laxveiðinni - og þar er ýmislegt fleira undir en vatnsmagn í ám. Hann ræddi líka um laxeldi, lús og hnúðlaxa. Dregið hefur úr hagvexti í heiminum og útlit fyrir að enn dragi úr. Við fórum yfir þetta og ýmislegt fleira með Ásgeiri Brynjari Torfasyni, ritstjóra Vísbendingar. Umsjón höfðu Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Krauss, Alison, Plant, Robert - Your long journey. Batilangandi, Biolo, Kolosoy, Wendo - Yebisa Banganga.

Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar segir fréttirnar ekki koma á óvart. Villti laxastofninn á að njóta vafans gagnvart eldislöxum samkvæmt drögum að stefnu um lagareldi. Heimildir til sjókvíaeldis gætu orðið að engu, hafi reglulegt strok úr kvíum mikil áhrif á villta laxinn. Matvælaráðherra segir stefnt á að hækka auðlindagjöld í sjókvíaeldi nær því sem tíðkast í nágrannalöndunum Noregi og Færeyjum. Formaður tollvarðafélags Svíþjóðar segir glæpaölduna í landinu ekki koma á óvart enda flæði fíkniefni inn í landið vegna niðurskurðar í landamæraeftirliti. Ung kona í breska hernum svipti sig lífi vegna linnulausar kynferðislegrar áreitni frá yfirmanni sínum. ---- Stefnumótun fyrir umgjörð og uppbyggingu lagareldis á og við Ísland til ársins 2040 var kynnt í morgun og sett inn í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Fjallað er um allt í senn landeldi, sjókvíaeldi, úthafseldi og þörungarækt en að vanda er það sjókvíaeldið sem fangar athyglina, enda ýmislegt þar sem betur má fara, samkvæmt nýlegum úttektum þar á. Fólki sem flýr frá Súdan yfir landamærin til Suður-Súdans fjölgar stöðugt. Borgarastríð hefur geisað í landinu frá því um miðjan apríl, kostað á áttunda þúsund lífið og hrakið yfir fimm milljónir á flótta, þar af tvær komma átta milljónir íbúa höfuðborgarinnar Khartoum. Eitt af hverjum tíu börnum sem send voru í sveit á árum áður varð fyrir eða varð vitni að ofbeldi meðan á dvöl stóð. Prófessor við Háskóla Íslands segir erfiðisvinnu, afskiptaleysi og líkamlegar refsingar meðal þess sem sé þessum hópi minnisstætt.

Við fræðumst um nýjan landnema, sæsnigil sem nýlega fannst í fjöru við innanverðan Breiðafjörð og hefur ekki fundist áður í Norður-Atlantshafi. Snigillinn er um margt sérstakur og ýmsar spurningar sem brenna á þeim Svanhildi Egilsdóttur, sérfræðingi hjá Hafrannsóknastofnun sem fyrst uppgötvaði kvikindið og Áka Jarli Lárussyni, stofnerfðafræðingi hjá sömu stofnun. Dómur yfir manni sem mun ekki sæta neinni refsingu fyrir heimilisofbeldi vakti athygli í vikunni. Maðurinn játaði brot sín en er talinn ósakhæfur þegar hann framdi þau. Hann var þó ekki dæmdur í neins konar geðræna meðferð og þolandinn gengur um með öryggishnapp. María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra kemur til okkar til að ræða þennan málaflokk í aðeins víðara samhengi. Vera Illugadóttir kemur svo til okkar, eins og oft á föstudögum að vísu ekki að ræða um dýr, heldur rannsóknir sem unnið hafa til verðlauna.

Samskip krefjast bóta frá Eimskipi fyrir að hafa borið á félagið rangar sakargiftir í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitið. Ráðist var á ráðstefnugest sem bar hinsegin tákn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Lögregla rannsakar hvort árásin hafi verið hatursglæpur. Fimmtíu þúsund hafa flúið Nagorno-Karabakh í vikunni. Hafrannsóknastofnun ætlar að endurskoða áhættumat erfðablöndunar laxa. Í ágúst sluppu um 3500 laxar úr einni kví Arctic Fish í Patreksfirði. Storytel hyggst nota gervigreind við þýðingar á erlendum bókum - yfir á íslensku. Dómsmálaráðherra New York ríkis krefst þess að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna greiði 250 milljónir dollara í skaðabætur fyrir að hafa ofmetið eignir sínar umtalsvert. Þetta á hann að hafa gert til að blekkja banka og tryggingafélög til að fá lán á hagstæðum kjörum. Það er mörgum fullorðnum lokuð bók hvað ungmenni aðhafast á samfélagsmiðlum. Þórður Kristinsson doktorsnemi og framhaldsskólakennari hefur fengið að skoða efni sem unglingar á grunnskólaaldri sjá á TikTok. Hann segir að þau hagi sér með mjög kynjuðum hætti á samfélagsmiðlum. Hann segir að það sé komið nýtt félagslegt handrit - að það megi gráta og segja frá erfiðum upplifunum en það þurfi að fylgja ákveðnu skapalóni til að það sé félagslega samþykkt. Loftslagsþolið Ísland er yfirskriftin á skýrslu sem unnin var fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og birt var í gær. Skýrslan inniheldur tillögur stýrihóps á vegum ráðuneytisins fyrir gerð landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Rætt er við Önnu Huldu Ólafsdóttur, sem á sæti í stýrihópnum og er yfir skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon. Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Flestir strokulaxarnir sem Hafrannsóknarstofnun hefur greint, voru kynþroska. Þetta er óvenjulegt, en í laxeldi er kynþroska laxa seinkað til þess að auka gæði fiskanna. Valur Grettisson ræddi við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra hjá Hafrannsóknastofnun. Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá danska karlmenn í tengslum við umfangsmikið smygl á hundrað fimmtíu og sjö kílóum af hassi. Þeir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu úti fyrir Garðskaga í lok júní. Málaflokkur fatlaðra hefur verið vanfjármagnaður um 42 milljarða króna á fjögurra ára tímabili. Formaður Borgarráðs Reykjavíkurborgar segir það ekki ganga að ríki og sveitarfélög séu í reiptogi um svo viðkvæman málaflokk. Valur Grettisson ræddi við Einar Þorsteinsson formann borgarráðs Reykjavíkur. Starfsemi Landsbankans í höfuðstöðvunum í Austurstræti í Reykjavík er lokið. Þar var skellt í lás í síðasta sinn klukkan fjögur í dag. Gréta Sigríður Einarsdóttir sagði frá og talaði við Jósep Gíslason, starfsmann bankans, Helga Teit Helgason framkvæmdastjóra einstaklingssviðs og viðskiptavininn Sigríði. Að minnsta kosti þrír voru handteknir í aðgerð sérsveitar ríkislögreglustjóra í Flúðaseli í Reykjavík í dag. Ekki hefur gengið sem skyldi að finna réttu leiðina til að virkja rödd almennings við breytingar á stjórnarskrá að dómi Jóns Ólafssonar, prófessors í heimspeki. Hann telur hæpið að þrjár greinargerðir lögfræðinga sem birtust í síðustu viku verði upphaf að gefandi samtali. Hagstofan hefur gefið út áður óbirt manntal. Það var tekið 1981 og er 42 ára gamalt. Ragnhildur Thorlacius tók saman. Flóð færast sífellt í aukana í Miami í Flórída og víðar í suðurhlutanum. Vísindamenn telja að þriðjungur ríkisins verði orðinn umflotinn vatni um næstu aldamót. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Við fjölluðum um hafið í dag. Nýverið voru sagðar fréttir af óvenju háu hitastigi sjávar; Höfin hafa að meðaltali aldrei verið jafn heit og í nýliðnum ágústmánuði. Sólveig Rósa Ólafsdóttir, hafefnafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, er nýkomin úr leiðangri á Bjarna Sæmundssyni; hitastig sjávar og selta voru könnuð; Sólveig kom til okkar og sagði okkur frá ástandi sjávar við Íslandsstrendur og við ræddum einnig almennt um þessa hlýnun sem sumsé nær ekki bara til loftsins heldur líka hafsins. Í næsta mánuði fara fram kosningar í Póllandi, þar sem kosið verður um öll þingsæti bæði í efri og neðri deild pólska þingsins. Kosningarnar gætu orðið sögulegar, og samhliða þeim á að ráðast í umdeilda þjóðaratkvæðagreiðslu. Björn Malmquist fréttamaður er kominn til Varsjár, hann sagði okkur frá stóru málunum og harðri kosningabaráttu. Og svo er það Zetan. Fimmtíu ár eru í dag síðan hún var felld út úr ritmálinu. Þetta var heilmikið mál á sínum tíma; um það voru fluttar innblásnar ræður á Alþingi og fræðimenn viðruðu skoðanir sínar á síðum dagblaðanna. Það gerði fólkið í landinu líka. Alda Möller þekkir vel sögu Zetunnar. Hún er nýbúin að slá inn síðasta punktinn í meistararitgerð um bókstafinn. Z ævisaga, nefnist hún. Alda kom í þáttinn. Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir Tónlist: Bítlavinafélagið - Rúllukragapeysan mín. Fitzgerald, Ella - Blue moon. Edda Magnason - Monicas vals. Edda Magnason - Du.

Hafrannsóknastofnun kynnti fyrir helgi úttekt sína á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Og þar er sjálfbær nýting lykilhugtak. Ákveðnar tegundir eru í aðalhlutverki þarna sem fyrr, þorskur og ýsa eru t.d. í betra standi en í fyrra - það er lögð til aukning um 1% í aflamarki þorsks og heil 23% í ýsu. En líka samdráttur í ýmsum öðrum tegundum. Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar ætlar að ræða við okkur um ráðgjöfina, vísindin þar að baki og markmiðið um sjálfbæra nýtingu. Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor í umhverfisrétti og Gunnlaug Helga Einarsdóttir efnafræðingur hafa kært heilbrigðisnefnd Reykjavíkur til innviðaráðuneytisins fyrir aðgerðaleysi í tengslum við mikla loftmengun í Reykjavík - við ræðum við Aðalheiði í þættinum og heyrum hvaða leiðir þær eru að þræða til að koma málinu í farveg en það er óhætt að segja að ekki sé verið að gera almennum borgurum einfalt að bregðast við ógn gegn lýðheilsu. Málfarsráðunautur RÚV kemur svo til okkar í spjall um orðatiltæki, sem fólk ruglast oft á, til dæmis algengt að tveimur orðatiltækjum sé slegið saman - það getur verið fyndið - og vandræðalegt, en stundum kemur bara eitthvað nýtt og fallegt út úr þessu öllu saman.
Spegillinn 9. Júní 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Nýliðun er slök í mjög mörgum sjávarnyjategundum, segir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Þorskstofninn er þó hægt vaxandi og ýsustofninn stendur vel. Benedikt Sigurðsson talaði við hann. Margrét Gísladóttir, talsmaður Mjólkursamsölunnar, segir að fréttir af óendurunnum fernum hafa komið sér á óvart. Fyrirtækið harmi mjög hvernig fór og að þau hafi treyst verkferlum. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps fer fram á við Skipulagsstofnun að fresta ákvörðun um landnotkun vegna uppsetningar vindorkugarðs í Búrfellslundi um allt að 10 ár. Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri segir nærumhverfið ekki njóta ávinnings af virkjuninni. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir talaði við hann. Stríðandi fylkingar í Súdan hafa samþykkt sólarhrings vopnahlé frá og með morgundeginum. Ástandið í landinu er slæmt og farið að bera á skorti á aðföngum í höfuðborginni Khartoum og í Darfur-héraði. Ástrós Signýardóttir sagði frá. Héraðssaksóknari hefur fellt niður kæru á hendur Vítalíu Lazarevu. Hún var sökuð um að hafa reynt að kúga fé út úr þeim Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni. Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kemur fyrir alríkisdómstól í Flórída þar sem honum verður birt ákæra. Hún hefur enn ekki verið opinberuð en er sögð vera í sjö liðum, þar á meðal um brot á lögum um njósnir. Ásgeir Tómasson sagði frá. Það stórsér á trjám og garðagróðri á Suðvesturlandi eftir kaldan og hretviðrasaman maí. Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur telur þó ótímabært að fella þau tré sem verst urðu úti. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann.

Viðræður um sameiningu Íslandsbanka og Kviku um sameiningu eru að hefjast. Samruninn myndi stækka efnahagsreikning Íslandsbanka um 20 prósent. Um tuttugu þúsund manns hafa fundist látin í Tyrklandi og Sýrlandi vegna jarðskjálftana á mánudag. Mikil eyðilegging blasir við íslenskum björgunarsveitarmönnum sem eru í Tyrklandi. Enn finnst fólk á lífi í rústunum Síðasta vaxtahækkun Seðlabankans er í boði ríkisstjórnarinnar og kyndir undir verðbólgubálinu, segir miðstjórn ASÍ. Hagfræðingur samtakanna segir það pólitíska ákvörðun að láta aðgerðir gegn verðbólgu bitna á alþýðu manna frekar en stöndugum stórfyrirtækjum. Sviðsstjórar hjá Hafrannsóknarstofnun fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar. Bæta þurfi í fé til rannsókna og eftirlits með sjókvíaeldi Eitt fremsta og afkastamesta popptónskáld heims, Burt Bacharach er látinn, 94 ára að aldri. ------ Þúsundir hafa látist vegna jarðskjálfta í Tyrklandi á mánudaginn. Enn fleiri töpuðu öllu sínu - björgunarstarf stendur yfir og er hvergi nærri lokið. Fjöldi hjálparsamtaka sendi liðsauka til landsins í þeirri von að bjarga fólki úr rústum húsa sem hrundu. Meðal þeirra er níu manna hópur frá Íslandi sem vinnur að samhæfingu aðgerða. Þau lögðu af stað fyrr í vikunni og eru nú komin til Hatay Expo. Sólveig Þorvaldsdóttir fer fyrir hópnum. Við skulum heyra lýsingu hennar á störfum hópsins. Eftir síðustu hækkun eru stýrivextir Seðlabankans 6,5 prósent og hafa ekki verið hærri síðan 2010. Stýrivextir voru í lágmarki í apríl 2021, 0,75 prósent, - hafa því hækkað um 5,75 prósentustig og þannig nær sexfaldast á innan við tveimur árum. Þessi síðasta hækkun, sem nam 0,5 prósentustigum, hefur verið harðlega gagnrýnd, jafnt af stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins, og þótt yfirlýstur tilgangur stýrivaxtahækkana sé að hamla gegn verðbólgu er hækkunin nú sögð virka sem olía á verðbólgubálið sem brennur þó glatt fyrir, en verðbólga mælist nú 9,9 prósent. Og matarkarfan hækkar og hækkar. Auður Alfa Ólafsdóttir er sérfræðingur ASÍ í neytendamálum. Ríkisendurskoðun fer hörðum orðum um stjórnsýslu, eftirlit og umsjón með sjókvíaeldi hér á landi í skýrslu sem gefin var út í vikunni. Gagnrýni hefur komið úr ýmsum áttum, bæði frá veiðifélögum, siðfræðingum, náttúruverndarsamtökum og fleirum og er hún yfirleitt á þá lund að stjórnkerfið sé veikburða og jafnvel að pólitísk spilling hafi sett mark sitt á greinina. Landvernd og Landssamband veiðifélaga hafa kallað eftir að sjókvíaeldi verði hætt án tafar. Bjarni Rúnarsson ræddi við Guðna Guðbergsson sviðstjóra ferskvatns og eldissviðs Hafrann

Spegillinn 23. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Atkvæðagreiðsla um verkfall 300 félagsmanna í Eflingu sem vinna á Íslandshótelum byrjar á morgun. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar býst við að verkfallsboðun fyrir 7. febrúar verði samþykkt. Kristófer Oliversson formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir ótrúlegt að beina eigi verkfalli að nánast einni kennitölu. Bjarni Pétur Jónsson talaði við þau. Lögreglumönnum mega bera rafbyssur frá og með deginum í dag. Jón Gunnarsson, (D) dómsmálaráðherra segir að í nágrannalöndum hafi slysum á fækkað til muna við að lögregla beri rafvarnarvopn. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, (P) bar fyrirspurn um rafbyssurnar upp á Alþingi í dag. Starfshópur leggur til að almennur byggðakvóti verði afnuminn og einnig skel- og rækjubætur ásamt línuívilnun. Þessar heimildir yrðu frekar nýttar í sértækan byggðakvóta sem þykir skila betri árangri eða til að auka strandveiðar. Rúnar Snær Reynisson tók saman. Fimm skip á vegum Hafrannsóknastofnunnar héldu í dag út til mælinga á stærð loðnustofnsins. Niðurstöðurnar gætu haft talsverð áhrif á veiðar á þessari vertíð. Pétur Magnússon ræddi við Guðmund Óskarsson, sviðsstjóra uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun. Þrjátíu og fimm kindur brunnu inni eftir að eldur kviknaði í útihúsum á Syðri-Hömrum í Ásahreppi í gær. Guðjón Björnsson bóndi segir skelfilegt að missa allan fjárstofn sinn. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hann. --------------- Í hverri viku koma þrjú til fjögur börn leita á bráðamóttöku vegna nikótíneitrunar. Nikótínpúðar eru algengasta orsökin; sala þeirra hefur margfaldast á örfáum árum. Bjarni Rúnarsson ræðir við Lilju Sigrúnu Jónsdóttur heimilislækni sem hefur lengi unnið að tóbaksvörnum. Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvík segir að huga þurfi vel að breytingum á 5,3% kerfinu sem rætt er um í tillögum starfshópa menntamálaráðherra um stefnumótun í sjávarútvegi. Hann er hlynntur breytingu en ekki byltingu, miklu skipti að ljóst sé hvað eigi að taka við og þá til langs tíma ráðist menn í breytingar. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkja ræða í Brussel um hvort senda eigi Úkraínumönnum árásarskriðdreka. En ekki er sátt um málið á alþjóðavettvangi. Ásgeir Tómasson tók saman. Mateusz Morawiecki forsætisráðherra Póllands, Annalena Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands og Adam East, fréttamaður breska ríkisútvarpsins BBC í

Spegillinn 4.október 2022 Fjöldahjálparstöð sem verið er að opna í Borgartúni í Reykjavík getur tekið á móti fyrsta flóttafólkinu í kvöld eða á morgun. Stjórnvöld voru uppiskroppa með húsnæði og neyddust til að biðja Rauða krossinn um aðstoð. Rússar viðurkenndu í dag ósigra á nokkrum vígstöðvum í Úkraínu. Bandaríkjaforseti lofar Úkraínu frekari hernaðaraðstoð Hávær mótmæli hafa staðið yfir í Menntaskólanum við Hamrahlíð frá því í gær. Varaformaður nemendafélagsins segir ótækt- að þolendur ofbeldis mæti aðgerðaleysi skólastjórnenda Hundruð hugmynda hafa borist í hugmyndasöfnunina Hverfið mitt. Hugmyndir reykvískra skólabarna eru einu orði sagt skrautlegar. Staða svissneska bankans Credit Suisse hefur valdið óróa á fjármálamörkuðum. Hlutabréfaverð í bankanum hefur hríðlækkað síðustu misseri og bankinn áformar fjöldauppsagnir. Greinendur segja kaup í bankanum aðeins fyrir þá djörfu. Ekki er þó ástæða til að óttast um of áhrifin á íslenskan markað, segir hlutabréfagreinandi. Hafrannsóknastofnun lagði í morgun til að loðnukvóti fyrir komandi vertíð verði ekki meiri en rúm 218.000 tonn. Það er 180 þúsund tonnum minna en upphafsráðgjöf gaf til kynna eftir mælingar í fyrrahaust. Þá var talið óhætt að veiða um 400.000 tonn á komandi vertíð og á síðustu vertíð var gefinn út kvóti upp á tæp 870 þúsund tonn sem var með allra mesta móti í áraraðir. Þessu koma sjávarbyggðir landsins til með að finna fyrir á komandi vetri með færri störfum og áhrifin á efnahagskerfið óhjákvæmileg. Það gefur augaleið að það kemur minna í kassann. Spegillinn ræddi við Guðmund J Óskarsson, sviðstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar. Sameinuðu þjóðirnar fara fram á rúmlega átta hundruð milljónir dollara vegna neyðarástands í Pakistan af völdum flóða síðastliðið sumar. Stór hluti landsins er enn umflotinn vatni og erfiðleikar íbúanna aukast stöðugt. Fjárhæðin er fimm sinnum hærri en áður var talin þörf á- til að koma íbúunum til hjálpar. Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Markús Hjaltason Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Erla Bolladóttir fær mál sitt vegna sakfellingar fyrir rangar sakargiftir ekki endurupptekið. Dómstóll sem fjallaði um málið segir að engin ný gögn hafi komið fram og ekkert sýni fram á að brotið hafi verið á henni eða sönnunargögn ranglega metin. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá. Rússneskir embættismenn á hernumdum svæðum í fjórum héruðum Úkraínu hafa boðað til atkvæðagreiðslna um hvort héruðin verði hluti af Rússlandi. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá. Innheimta veggjalda á höfuðborgarsvæðinu á að hefjast eftir tvö ár. Gjaldtakan mun skila um fimm til sex milljörðum á ári og fjármagna samgönguframkvæmdir á svæðinu. Útfærslan liggur enn ekki fyrir. Davíð Þorláksson er framkvæmdastjóri Betri samgangna. Alexander Kristjánsson talaði við hann. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni hefur óskað eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu leggi mat á hvort aðgerðir lögreglu gagnvart honum og þremur öðrum blaðamönnum standist lög. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkar milli mánaða, í fyrsta sinn frá því í maí 2019. Hagfræðingur segir vaxtahækkanir Seðlabankans hafa dregið úr eftirspurn. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir ræddi við Unu Jónsdóttur, forstöðumann hagfræðideildar Landsbankans. Þorpið vistfélag hefur keypt JL húsið við Hringbraut af Myndlistarskólanum í Reykjavík og Íslandsbanka. Til stendur að útbúa um fjörutíu íbúðir í húsnæðinu og gert er ráð fyrir að þær verði tilbúnar eftir þrjú ár. Urður Örlygsdóttir ræddi við Áslaugu Guðrúnardóttur, hjá Þorpinu vistfélagi. Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, og ríkisstjórn hennar ætla að leggja fram sína fyrstu skattastefnu á föstudaginn. Með henni vill hún styrkja samkeppnisstöðu Bretlands og gera landið að álitlegri stað fyrir alþjóðlega fjárfesta. Pétur Magnússon sagði frá. Sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun kallar eftir umhverfisvænni veiðarfærum í íslenskan sjávarútveg. 94% rusls sem fannst á hafsbotni við ísland yfir 15 ára tímabil var veiðafærarusl. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Petrúnu Sigurðardóttur. Mikill uppgangur er í Norður-Svíþjóð vegna nýs, loftslagsvænni iðnaðar. Erfiðlega hefur þó gengið að manna störf. Kári Gylfason í Gautaborg segir frá atvinnuástandinu í norðurhluta landsins. Umsjónarmaður: Alexander Kristjánsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn útsendingar fréttahluta: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Elísabet Englandsdrottning er látin, hún var 96 ára og ríkti lengur en nokkur þjóðhöfðingi Englands. Heyrist í Huw Edwards, fréttaþul BBC. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir frá Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra tekur undir með formanni BHM um að skynsamlegt sé að hefja viðræður vegna komandi kjarasamninga sem fyrst. Hann er bjartsýnn á viðræðurnar fram undan en yfir 300 kjarasamningar eru lausir á næstunni. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttur talaði við hann. Um þúsund jarð skjálftar hafa mælst við Grímsey frá því í nótt. Virknin hefur verið stöðug í allan dag. Sigríður Kristjánsdóttir náttúruvársérfræðingur segir þetta hefðbundna virkni. Urður Örlygsdóttir tók saman. Leiðsögumenn með hreindýraveiðum lögðu til um miðjan ágúst að öll veiði yrði stöðvuð á einu helsta veiðisvæði hreindýra vegna þess hve fá dýr finnast á svæðinu. Ekki var orðið við því og nú leggja leiðsögumenn til að nær enginn kvóti verði þar á næsta ári. Rúnar Snær Reynisson sagði frá og talaði við Jón Hávarð Jónsson formann leiðsögumanna. -------------- Milljörðum dollara verður varið til að styrkja varnir Úkraínu og grannríkjanna. Þúsundir almennra borgara hafa fallið í stríðinu við innrásarlið Rússa. Ásgeir Tómasson sagði frá. Heyrist í Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Igor Konashenkov, talsmaður varnarmálaráðuneytis Rússlands og Rosemary DiCarlo, aðstoðaraðalframkvæmdastjóri hjá Sameinuðu þjóðunum. Áhugi á landeldi hefur aukist mjög og það talið geta leyst helstu umhverfisvandamálin sem af sjóeldinu stafa en það hefur ekki gengið vandræðalaust. Hér eru í undirbúningi stór verkefni í landeldi. Í nýútkominni skýrslu Hafrannsóknastofnunar er fjallað um lax á landi. Leó Alexander Guðmundsson, líffræðingur og höfundur skýrslunnar, segir að álíka magn af fiski sé úr eldi og veitt er úr hafinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann. Norðmenn búast við að gúrku- og tóamatakrísa verði skollin á í landinu þegar fyrir jól. Eigendur gróðurhúsa hafa ekki efni á að kynda hús sín og hafa þar ljós. Þessu veldur himinhátt orkuverð. Gísli Kristjánsson sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.