Sumargjöf Rásar 2 inniheldur valda þætti úr dagskrá stöðvarinnar frá upphafi.
„Ég er hvorki tófusprengur né skylmingaþræll,“ segir Þorsteinn Davíð Stefánsson, lögregluþjónn á Ísafirði, í stuttu viðtali í upphafi þáttar. Hann ræðir störf lögreglunnar og áhugamál sín. Aðalheiður Ámundadóttir, fréttastjóri á Fréttablaðinu, ræðir meðal annars æskuárin á Húsavík, svaðilför á Snæfellsjökul og útilegu með systur hennar þar sem einungis mátti tala saman í bundu máli. Feðgarnir Ágúst Guðjónsson og Guðjón Ragnar Jónasson fara um víðan völl. Þeir ræða sveit og borg, sumarvinnu ungmenna og ferðir þeirra feðga um Suður-Jótland og Þýskaland. Umsjón: Jakob Birgisson

„Ég hef verið eins og villuráfandi hundur meira og minna allt mitt líf,“ segir Árni Vil, listamaður. Hann ræðir menntaskólaárin og stúdentsprófið sem hann hlaut nýverið, fertugur að aldri. Sumarstörf, sviðslistahópurinn Kriðpleir og árin í FM Belfast eru krufin. Bergþór og Snorri Mássynir halda úti vinsælu hlaðvarpi sem nefnist Skoðanabræður. Þeir ræða sumur æskunnar og skynsemi foreldra þeirra í peningamálum. Íslenska djammið er reifað og þeir segja frá því þegar Hróar nokkur braust inn til þeirra þegar þeir voru unglingar, eða rambaði öllu heldur inn, að öllum líkindum í ölæði. Umsjón: Jakob Birgisson

Þórdís Gísladóttir, rithöfundur, ræðir bælingu tilfinninga, starfsmenn háskólans, kókaínfíkla á auglýsingastofum og ljóðlistina. Auk þess ræddi hún menntaskólaárin og þegar hún mætti þunglynd til námsráðgjafa sem hló að henni. Eva María Jónsdóttir og Guðrún Sóley Gestsdóttir ræða jöklaferðir, jóga, göngur og skemmtilega áningarstaði, svo fátt eitt sé nefnt. Umsjón: Jakob Birgisson.

Rætt við tónlistarfólk sem leikið hefur á munnhörpur og mandólín. Sögur af hvoru tveggja og létt tónlist þar sem hljóðfærin tvö eru í áberandi hlutverki. Umsjón: Karl Hallgrímsson.
Ferð Hljómsveitar Björgvins Halldórssonar til Sovétríkjanna 1982. Umsjón: Guðmundur Pálsson og Andri Freyr Viðarsson. Í þættinum er fjallað um ótrúlega ferð sem Hljómsveit Björgvins Halldórssonar fór í um Sovétríkin árið 1982. Í þættinum segja þeir Björgvin Halldórsson, Magnús Kjartansson, Björn Thoroddsen og Hjörtur Howser frá ævintýrum þeirra austan járntjaldsins. Umsjón: Guðmundur Pálsson og Andri Freyr Viðarsson.

Það er sagt að fólk eyði þriðjungi ævinnar sofandi. En hvað er svefn? Afhverju sofum við og hvað getum við gert til að ná góðum svefni? Umsjón: Guðmundur Pálsson og Vilhelm Anton Jónsson.

Saga bananans rakin og gerð grein fyrir stöðu bananans í nútíð fortíð og framtíð. Viðmælendur: Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur, Stefán Pálsson sagnfræðingur, Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor við LHÍ, Þorbjörg Marínósdóttir ritstjóri matarvefs mbl.is, Þórhallur Halldórsson prófessor í næringafræði og Anna Svava Knútsdóttir leikkona. Umsjónarmenn: Guðmundur Pálsson og Vilhelm Anton Jónsson.
Umsjón: Guðmundur Pálsson og Vilhelm Anton Jónsson
Umsjón: Guðmundur Pálsson og Vilhelm Anton Jónsson Gervigreind, hvað er það? 1. hluti: Gervigreind, hvað er það? Kristinn R. Þórisson pælir í hugtakinu gervigreind, Finnur Pálmi Magnússon og Renata Sigurbergsdóttir tala um samfélagsleg áhrif gervigreindar og Stefanía Halldórsdóttir fjallar um samspil gervigreindar og tölvuleikja. 2. hluti: Heimur gervigreindar. Salvör Nordal hugleiðir siðferðislegar spurningar sem vakna með nýrri tækni, Helga Þórisdóttir veltir fyrir sér persónverndarsjónarmiðum og Kristinn R. Þórisson rýnir í framtíðina.
Seinni hluti. Hversu mikið mál er að senda fólk til Mars? Hvað tekur það langan tíma? Er hægt að snúa til baka? Hvernig er veðrið þar? Er hægt að halda sönsum í svona ferðalagi? En líkamlegri heilsu? Hvað með vatn, súrefni, mat...? Og hvernig er hægt að nota geimfarakúk til að verjast geimgeislum? Guðmundur Pálsson og Vilhelm Anton Jónsson velta þessum spurningum (og miklu fleiri) fyrir sér. Þeir ræða við sérfræðinga í geimferðum, stjörnufræði, læknisfræði, sálfræði og ræktun matvæla, á milli þess sem þeir spila skemmtilega geimtónlist.
Fyrri hluti. Hversu mikið mál er að senda fólk til Mars? Hvað tekur það langan tíma? Er hægt að snúa til baka? Hvernig er veðrið þar? Er hægt að halda sönsum í svona ferðalagi? En líkamlegri heilsu? Hvað með vatn, súrefni, mat...? Og hvernig er hægt að nota geimfarakúk til að verjast geimgeislum? Guðmundur Pálsson og Vilhelm Anton Jónsson velta þessum spurningum (og miklu fleiri) fyrir sér. Þeir ræða við sérfræðinga í geimferðum, stjörnufræði, læknisfræði, sálfræði og ræktun matvæla, á milli þess sem þeir spila skemmtilega geimtónlist.
Guðmundur Pálsson og Vilhelm Anton Jónsson fara yfir undarlegar, úreltar og afsannað vísindakenningar á léttum nótum. Þeir fá til sín sérfræðinga á ýmsum sviðum, sem ræða um og segja frá skrýtnun kenningun innan vísindanna sem voru sumar í hávegum hafðar en reyndust hið mesta bull. Þeir fjalla meðal annars um: kommúníska líffræði, höfuðlagsfræði og ígræðslu apa eista í karlmenn.

Doddi litli rifjar upp allskonar tónlist frá árinu 1983, þegar Rás 2 fór fyrst í loftið. Íslenskir tónspekulantar ræða um árið og nokkrar stjörnur ársins 1983 eru teknar tali. Meðal þeirra eru Martin Ware stofnandi Human League og Heaven 17, Mark King söngvari og bassaleikari Level 42, Holly Johnson söngvari Frankie Goes To Hollywood og Neil Arthur, söngvari Blancmange. Viljir þú upplifa árið 1983 er tilvalið að halla sér aftur og hlusta í tvo og háflan klukkutíma. Góða ferð og góða skemmtun. Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.

Bubbi Morthens ræðir við Ragnar Bjarnason, söngvara. Fjórði þáttur. Fjallað um feril Ragga frá 1940-2009. Meðal annars er rætt um 60 ára sviðsafmæli Ragnars, aðdraganda þess að Sumargleði tók til starfa, ferð hennar um landið frá byrjun til loka. Spiluð eru lög frá þeim tíma af plötu Sumargleðinnar sem kom út 1981 sem og lög af safnplötu Ragga, Komdu í kvöld sem var gefin út í tilefni 75 ára afmælis kappans.
Bubbi Morthens ræðir við Ragnar Bjarnason, söngvara. Þriðji þáttur. Fjallað um feril Ragga frá 1940-2009. Lög spiluð af safndiskinum Komdu í kvöld. Öll bestu lög Ragga Bjarna 1953-2009. (Upphaflega á dagskrá 18. janúar 2010)
Bubbi Morthens ræðir við Ragnar Bjarnason, söngvara. Annar þáttur. Fjallað um feril Ragga frá 1940-2009. Lög spiluð af safndiskinum Komdu í kvöld. Öll bestu lög Ragga Bjarna 1953-2009. (Upphaflega á dagskrá 11. janúar 2010)
Bubbi Morthens ræðir við Ragnar Bjarnason, söngvara. Fyrsti þáttur. Fjallað um feril Ragga frá 1940-2009. Lög spiluð af safndiskinum Komdu í kvöld Öll bestu lög Ragga Bjarna 1953-2009. (Upphaflega á dagskrá 4. janúar 2010)

Farið yfir feril Ragnhildar Gísladóttur í tali og tónum í tilefni af 60 ára afmæli þessarar fjölhæfu tónlistarkonu fyrr á árinu. Meðal hljómsveita sem koma við sögu á viðburðaríkum ferli Röggu eru: Grýlurnar, Stuðmenn, Strax, Brunaliðið, Lummurnar, Brimkló, Heimilistónar, The Human Body Percussion Ensemble, Ragga & Jack Magic Orchestra, Human Body Orchestra o.fl. að ógleymdum ótal sóló- og samstarfsverkefnum. Viðmælendur í þættinum, auk Ragnhildar, eru Jónatan Garðarsson, Jakob Frímann Magnússon, Linda Björk Hreiðarsdóttir, Inga Rún Pálmadóttir, Herdís Hallvarðsdóttir, Egill Ólafsson, Andrea Jónsdóttir og Björgvin Halldórsson. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson, Hulda Geirsdóttir og Ásgeir Eyþórsson Áður á dagskrá rásar 2 árið 2016
Umsjón: Gunnlaugur Jónsson, Hulda Geirsdóttir og Ásgeir Eyþórsson Farið verður yfir feril Ragnhildar Gísladóttur í tali og tónum í tveimur þáttum í tilefni af 60 ára afmæli þessarar fjölhæfu tónlistarkonu fyrr á árinu. Meðal hljómsveita sem koma við sögu á viðburðaríkum ferli Röggu eru Grýlurnar, Stuðmenn, Strax, Brunaliðið, Lummurnar, Brimkló, Heimilistónar, The Human Body Percussion Ensemble, Ragga & Jack Magic Orchestra, Human Body Orchestra o.fl. að ógleymdum ótal sóló- og samstarfsverkefnum. Viðmælendur í þættinum, auk Ragnhildar, eru Jónatan Garðarsson, Jakob Frímann Magnússon, Linda Björk Hreiðarsdóttir, Inga Rún Pálmadóttir, Herdís Hallvarðsdóttir, Egill Ólafsson, Andrea Jónsdóttir og Björgvin Halldórsson. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson, Hulda Geirsdóttir og Ásgeir Eyþórsson Áður á dagskrá rásar 2 2016