POPULARITY
Ísland skipar 17.sætið á heimsvísu þegar kemur að frelsi fjölmiðla á meðan Noregur trónir á toppnum níunda árið í röð samkvæmt nýlegri úttekt samtakanna Blaðamenn án landamæra. Er fækkun og hnignun fjölmiðla undanfarin ár um að kenna eða er versnandi samband milli stjórnmálafólks og fjölmiðla ástæða þessarar niðurstöðu, í samanburði við hin Norðurlöndin? Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, komu í þáttinn í dag og ræddu þetta ásamt því að greina frá niðurstöðum svokallaðs Lausnamóts sem haldið var á vegum félagsins með fólki úr blaðamannastétt og öðrum stéttum samfélagsins til að leita lausna við þeim vanda sem nú steðjar að íslenskum fjölmiðlum. Við fræddumst svo um það hvað þarf að leggja á sig til að verða lama, eða andlegur kennari í Tibet búddisma, en Ringu Tulku er einmitt hátt settur tíbetskur lama og er á leiðinni til Íslands. Gunnar L. Friðriksson kom til okkar í dag en hann er í Félagi tíbetbúddista á Íslandi og sagði frá Ringu Tulku og Hugleiðslu- og friðarmiðstöðinni í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Tætum og tryllum / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Þorparinn / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson) Þúsund sinnum segðu já / Grafík (Helgi Björnsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR
Á sunnudaginn mun forseti Íslands setja Stóra plokkdaginn og svo verður haldið upp á daginn um allt land með tilheyrandi plokki. Stóri plokkdagurinn hefur verið haldinn frá árinu 2018 og hefur hann vaxið og dafnað síðan. Fólk er hvatt til að skipuleggja plokk í sínu nágrenni, eða bara hvar sem er með því að sameinast í útiveru og plokka rusl. Rótarý hreyfingin, í samstarfi við Landsvirkjun og Umhverfisráðuneytið standa að Stóra plokkdeginum og til okkar komu í dag þau Jón Karl Ólafsson, forseti Rótarý hreyfingarinnar á Íslandi og Elín Birna plokkari á Eyrarbakka, sem verður sérstakur gestur setningarathafnarinnar á sunnudaginn. Karl Hallgrímsson kom svo til okkar, en hann vann útvarpsþætti sem verða fluttir á Rás 2 á næstunni og bera heitið Röfl um mengi og magann á beljum og eru hluti af meistarrannsókn þar sem úrtakið er um sextíu dægurlagatextar íslenskra höfunda og gerði Karl eigindlega rannsókn á innihaldi þeirra, dró fram svipmyndir og viðhorf sem þar birtast til skólans, námsins og tilheyrandi þátta. Við fengum að lokum póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Kort dagsins segir af páskahaldinu á Spáni, en Magnús hefur dvalið alla dymbilvikuna í Alicante. Páskahaldið einkennist af íburðarmiklum skrúðgöngum, háværri tónlisti og skrautlegum búningum. Risastór og þung líkneski eru borin um stræti og torg alla dagana og gríðarlegur fjöldi manna tekur þátt í hátíðarhöldunum. Tónlist í þættinum í dag: Berum út dívanana/Stuðmenn(Jakob Frímann-Þórður Árnason) Öll þín tár / KK, Ólöf Arnalds og Önnu Jónu Son (Kristján Kristjánsson, Haraldur Ingi Þorleifsson og Ólöf Helga Arnalds) Fallinn / Tívolí (Stefán S. Stefánsson) Nú liggur vel á mér / Ingibjörg Smith og Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar (Óðinn G. Þórarinsson, texti Númi Þorbergsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Miðvikudagur 23. apríl Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin. Við hefjum samræðuna við Rauða borð kvöldsins á Reynsluboltunum. Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín fína gesti, þau Oddnýju Harðardóttur, Lárus Guðmundsson, Jakob Frímann og Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Þau ræða um mannlífið, pólitíkina hér og erlendis og margt annað, veiðigjöld, skólamat, páfa. María Lilja tók miðbæjarbúana tali á síðasta vetrardegi og spurði um sumar-áform og skil. Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mætir til Björns Þorlákssonar sem óþekkti þingmaðurinn í kvöld. Ólafur er nýr þingmaður og hefur frá mörgu að segja. Við fræðumst síðan um Dýrið, nýstofnuð hagsmunasamtök mótmælenda en María Lilja fær til sín Daníel Thor Bjarnason en hann er einn af nímenningunum sem kærðu ríkið, sem var síðar sýknað, fyrir lögregluofbeldi á mótmælum í Skuggasundi. Í bridgeþætti Samstöðvar verður rætt við þá Ómar Olgeirsson og Guðmund Snorrason, sem báðir hafa spilað í íslenska landsliðinu. Þeir eru jafnframt báðir að fara að spila í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni sem hefjast á morgun. Í spjalli við Björn Þorláks ræða þeir félagar það helsta í undankeppninni á dögunum. Þá verða tvö sagnvandamál krufin.
Við héldum áfram að skoða heimilisfjármálin í dag og skoðuðum í dag þætti sem hafa verið í sýningu á Stöð 2 og kallast Viltu finna milljón. Þar taka þrjú pör, eða þrjár fjölskyldur, þátt í að taka í gegn heimilisbókhaldið, þau fá ýmis verkefni og áskoranir með það að markmiði að bæta fjárhag sinn og að búa til venjur til framtíðar þegar kemur að fjármálunum. Í upphafi skoða þau til dæmis tekjur heimilisins og útgjöld og að lokum, eftir fimm mánuði er farið yfir stöðuna og hvaða árangri þau hafa náð í að bæta stöðu heimilisins. Hrefna Björk Sverrisdóttir og Grétar Halldórsson sömdu samnefnda bók og Hrefna, sem er annar stjórnandi þáttanna, kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þáttunum og hversu miklu er hægt að breyta á tiltölulega skömmum tíma. Félag trérennismiða á Íslandi fagnar í ár 30 ára afmæli og heldur af því tilefni sérstakan listviðburð í samstarfi við Hönnun & Handverk (H&H) að Eiðistorgi. Í aprílmánuði mun félagið taka yfir sýningarrými Handverks og hönnunar. Þar munu félagar setja upp fullbúna vinnustofu þar sem þeir vinna svo að trérenniverkum á staðnum og fólk getur komið og skoðað handverkið þegar það verður til. Edda Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar, og Andri Snær Þorvaldsson, formaður Félags trérennismiða á Íslandi komu í þáttinn. Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús er núna staddur á Spáni þar sem hann bjó um hríð fyrir nokkrum árum. Hann segir okkur frá þeirr góðu tíð sem ríkir á Spáni þar sem hagvöxtur er sá mesti í Evrópu. Sem þykir merkilegt því þar stjórna sósíalistar sem hingað til hafa ekki verið taldir snjallir i kapitalisma. Hann segir aðallega frá Alicante, borginni sem hann bjó í á sínum tíma og þykir ennþá vænt um. Tónlist í þættinum í dag: Verðbólgan / Brimkló (Björgvin Halldórsson, texti Kjartan Heiðberg) Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Þórður Árnason, texti Þórður Árnason) Augun mín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Jennifer Juniper / Donovan (Donovan) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var enginn annar en Bjarni Arason söngvari sem tók þátt í Söngvakeppninni um síðustu helgi og stóð sig glimrandi vel. Bjarni va elsti þáttakandinn í ár og lagið sem hann söng, Aðeins lengur, mun hann sennilega syngja aðeins lengur því síminn hefur varla stoppað hjá Bjarna eftir keppnina. Bjarni hóf feril sinn mjög ungur, söng 16 ára Elvis lög í sjónvarpi og vann ári síðar söngvakeppnina Látúnsbarkann og varð landsfrægur á augabragði. Við fórum með Bjarna yfir söngvasviðið og lífið í þættinum. Matarspjallið var svo að helgað bolludeginum og sprengideginum sem eru eftir helgi. Það skoðuðum við eilífðarspurninguna; hvort ertu vatnsdeigs- eða gerbollur betri? Og eru allir spenntir fyrir saltkjöti og baunum? Bollur, saltkjöt og túkall í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti. Tónlist í þættinum í dag: Hringur og Bítlagæslumennirnir / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Aðeins lengur / Bjarni Arason (Jóhann Helgason, texti Björn Björnsson) Beautiful Maria / Bjarni Arason (Robert Kraft, texti Arne Glimcher) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Miðvikudagur 5. febrúar Spilling, vítissódi, vextir, leiklist, reynsluboltar og neytendamál Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, kemur og bregst við stýrivaxtalækkun Seðlabankans. Er til góðs að ný ríkisstjórn leggi fram nýtt búvörufrumvarp? Breki svarar því. Sigurjón Magnús Egilsson fær landslið reynslubolta til að ræða ýmis mál. Þau Jakob Frímann Magnússon, Erna Indriðadóttir, fyrrum fréttakona og Einar Kárason rithöfundur láta gamminn geysa – ekki missa af því. Einnig verður áhugaverð menningarumfjöllun í þættinum. Gunnar Smári ræðir við Björk Jakobsdóttur leikstjóra, Óla Gunnar Gunnarsson leikara og handritshöfund og Vigdísi Höllu Birgisdóttur leikkonu. Leikverkið Tóm hamingja verður til umfjöllunar, leikrit sem Gaflaraleikhúsið hefur sett upp í Borgarleikhúsinu. Þorvaldur Logason heimspekingur og rithöfundur og Hallfríður Þórarinsdóttir doktor í menningarmannfræði koma og ræða hvaða áhrif geta orðið af umfjöllun um spillingu á þessu litla og skrýtna skeri okkar. Þorvaldur er höfundur Eimreiðarelítunnar, sem vakið hefur mikla athygli. Við endum Rauða borðið á áhugaverðu deilumáli í Hvalfirði. Þar á að setja mikið magn af vítissóda í sjóinn innan skamms og sýnist sitt hverjum um ágæti þess. Haraldur Eiríksson sem hefur hagsmuna að gæta kemur og ræðir við okkur.
Þorrinn er hafinn og eins og undanfarin ár standa landssamtökin Geðhjálp fyrir geðræktarátakinu G-vítamín á þorranum með það að markmiði að setja geðrækt á oddinn. Af því tilefni gefa þau út geðræktardagatal, svona borðdagatal upp á gamla mátann, þar sem er einn skammtur af G-vítamíni á hverjum degi á þorranum, sem sagt ráðlagður dagskammtur. Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá starfseminni og dagatölunum. Við héldum svo áfram að tala um heilsueflingu og úrval leiða til að efla líkamlega og andlega heilsu. Í dag heyrðum við í Ólafi Guðmundssyni leikara og leiklistarkennara en hann kennir Qigong og Taiji. Hann fór til Tíbet og Kína síðasta sumar og við heyrðum af því og svo sagði hann okkur frá Qigong ot Taiji, en hann verður með námskeið í febrúar þar sem hann blandar þessu tvennu saman. Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Það hefur verið ótíð að undanförnu í Vestmannaeyjum og víst er að brælurnar verða fleiri og fleiri. Veðurfarið hefur truflandi áhrif á samgöngur eins og Magnús segir frá í póstkorti dagsins. En eyjamenn halda sínu striki hörkuduglegir hvort sem er í leik eða starfi. Magnús segir líka af ferðalagi sínu til Póllands í fyrrasumar og heimsókn til Auschwitz, en þar var þess minnst á mánudaginn að áttatíu ár eru síðan hermenn Rauða hersins frelsuðu þá sem eftir lifðu í þessum alræmdu útrýmingarbúðum nazista. LEIÐRÉTTING: Fyrir mistök sagði Magnús í póstkortinu að hersveitin sem kom fyrst að frelsun útrýmingarbúðanna í Auschwitz hefði verið úkraínsk en ekki rússnesk, sem hún var vissulega. Hann biðst einlæglega afsökunar á að hafa ekki kannað betur bakgrunn hersveitarinnar. Tónlist í þættinum: Hæ Mambó / Haukur Morthens (Merril, texti Loftur Guðmundsson) Að vera í sambandi / Stuðmenn (Tómas Magnús Tómasson, Valgeir Guðjónsson og Jakob Frímann Magnússon) Léttur í lundu / Bítlavinafélagið (Karl Hermannsson) On the Road Again / Canned Heat (Alan C Wilson & Floyd V Jones) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Los Angeles brennur; Jakob Frímann Magnússon, fyrrum þingmaður og tónlistarmaður er sérfræðingur í málefnum borgarinnar sem aldrei sefur, nema kannski á verðinum yfir loftslagsvánni ræðir stórbrunann og afleiðingar hans við Maríu Lilju. Þá taka við þau Oddný Eir og Jón Helgi Þórarinsson, tölvuleikjasmiður sem áður bjó í Grænlandi hvar eiga sér nú stað miklar vendingar í pólitíkinni varðandi sjálfstæði þjóðarinnar. Gísli Örn Garðarsson leikstjóri, Gunnlaugur Briem trommari og tónskáld og leikararnir Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors ræða jólasýningu Þjóðleikhússins, Yermu, erindi verksins og umfjöllunarefni. Helga Arnalds og Sólveig Guðmundsdóttir segja okkur frá þverfaglega tilraunabrúðuleikhúsinu Tíu fingur sem setur á svið heilandi og má segja terapískar leiksýningar fyrir börn og fullorðna, nú síðast Líkaminn er skál í Tjarnarbíói en Tíu fingur fagna nú tíu ára afmæli með áhugaverðri dagskrá sem snertir mörg ólík svið lífs, lista og fræða.Í lokin koma Ólafur J. Engilbertsson menningarmiðlari og Kári Schram kvikmyndagerðarmaður og segja okkur frá Samúel Jónssyni og verkum hans, byggingum og líkneskjum sem finna má í Selárdal.
Krabbameinsfélagið Framför, félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra og aðstandendur. Krabbameinsfélagið Framför starfar á landsvísu sem sjálfstætt stuðnings- og áhugamannafélag. Nú í nóvember er verið að selja Bláa trefilinn til styrktar félaginu og við fengum þá Stefán Stefánsson framkvæmdastjóra og Guðmund Pál Ásgeirsson formann í spjall í dag. Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni og vinkill dagsins var að þessu sinni víðs fjarri dægurþrasi um stjórnmál, væntanlegar kosningar, möguleg og ómöguleg úrslit þeirra, eldgos og aðrar hamfarir bæði í tíma og rúmi, því austur í Innri Mongólíu eru borgarrústir sem vöktu áhuga Guðjóns. Hvaða fólk byggði staðinn og hvers vegna þarna í miðri eyðimörk? Hvernig stóð á því að staðurinn fór í eyði? Og hverjum datt í hug að grafa borgina upp úr sandinum? Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ragnheiður Jónsdóttir rithöfundur og íslenskufræðingur. Hún hlaut glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir fyrstu bók sína, Blóðmjólk, en nú er komin út ný bók eftir hana, Svikaslóð. Við fengum hana til að segja okkur aðeins frá þeirri bók, en svo auðvitað aðallega frá þeim bókum sem hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum: Fönn fönn fönn / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og texti Þórður Árnason) Ástarorð / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Á skíðum skemmti ég mér / Bogomil Font (B.Berg, G. Rucher & H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Fimmtudagurinn 31. október Kosningar, samkeppni, verkfall, Bandaríkin og klassíkin Spennan í íslenskum stjórnmálum vex. Héðinn Unnsteinsson stefnumótunarfræðingur, Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar taka stöðuna. Við ræðum samkeppnismál í aðdraganda kosninga: Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna, Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins og Gísli Tryggvason lögmaður og fyrrum talsmaður neytenda ræða hvað stjórnvöld þurfa að gera til efla samkeppni og styrkja hag neytenda. Guðjón Hreinn Hauksson formaður Félags framhaldsskólakennara, Haraldur F. Gíslason formaður Félags leikskólakennara, Sigrún Grendal Jóhannesdóttir formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins koma á verkfallsvakt kennara. Jón Ólafsson prófessor og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi ræða forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og Magnús Lyngdal Magnússon sagnfræðingur segir okkur frá bók sinni um Klassíska tónlist.
Handbókin Ertu klár í kynlífið? var nýlega gefin út á vegum Samtaka um kynheilbrigði. Handbókin er ætluð ungum karlmönnum á aldrinum 16-24 ára. Tilurð þessarar handbókar má rekja til frásagna ungra karlmanna hér á landi en hún svarar ákalli þeirra eftir meiri fræðslu um kynheilbrigði. Bókin fjallar um sex viðfangsefni, sjálfsöryggi, samskipti, samþykki, sambönd, smokkanotkun og það að stunda kynlíf. Tvær af höfundum bókarinnar, Lóa Guðrún Gísladóttir, aðjúkt og doktorsnemi, og Sóley S. Bender, formaður samtaka um kynheilbrigði og prófessor emerita, komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá henni. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fór aðeins á dýpið í dag, pistlahöfundur fékk það verkefni fyrir nokkru að rifja upp minningar úr bernsku sem var áhugaverð lífsreynsla og kannski mannbætandi. Tilgangurinn var að afla efnis fyrir listamanninn Ólaf Svein Gíslason, sem nú um stundir sýnir verkið „Undirliggjandi minni“ í Félagslundi, Flóahreppi. Eftir svona mikla naflaskoðun var svo notalegt að fá nokkrar vísur og skáldkonan Erla, Guðfinna Þorsteinsdóttir, fylgdi okkur inn í daginn. Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Aníta Rut Kristjánsdóttir, læknir í sérnámsgrunni. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum lífið. Aníta Rut talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Lady Tan's Circle of Women e. Lisa See The Wolf Den e. Elodie Harper Snerting e. Ólaf Jóhann Ólafsson Out e. Natsuo Kirino Percy Jackson sería e. Rick Riordan og Howl's Moving Castle e. Dianna Wynne Jones. Tónlist í þættinum: Glaðasti hundur í heimi / Friðrik Dór Jónsson, Dr. Gunni og vinir hans (Gunnar Lárus Hjálmarsson) Að vera í sambandi / Stuðmenn ( Tómas M. Tómasson, Valgeir Guðjónsson, Jakob Frímann Magnússon) Manstu ekki eftir mér / Ragnhildur Gísladóttir og Trabant ehf. (Ragnhildur Gísladóttir, texti Þórður Árnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við héldum áfram yfirferð okkar um leik- og sviðslistahúsin, hvað verður á fjölum þeirra í vetur. Í dag var það Þjóðleikhúsið, Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóri, kom og sagði okkur allt um það hvernig leikveturinn verður þar á bæ. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Að þessu sinni fjallaði vinkillinn um forystufé. Það mun vera sérstakur fjárstofn, með sérstaka eiginleika sem útlistaðir verða. Auk þess verður gluggað í bók sem skrifuð var um miðja síðustu öld með það fyrir augum að varðveita sögur af forystufé, auk þess sem eins slík fær að fljóta með. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Signý Pálsdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri menningarmála Reykjavíkurborgar, Signý sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Signý talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: The Covenant of Water e. Abraham Verghese Fátækt fólk, Baráttan um brauðið og Fyrir sunnan, allar e. Tryggva Emilsson Þetta rauða það er ástin, e. Rögnu Sigurðardóttur Biblían Salka Valka e. Halldór Laxness Laxdæla og Íslendingasögurnar Tónlist í þættinum: Út í kvöld / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) One of these days / Solveig Slettahjell (Sjur Miljeteig) The Girl from Ipanema / Frank Sinatra (Antonio Carlos Jobim, Vinicius Demoraes, Norman Gimbel) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Jakob Frímann Magnússon is a musical chameleon, wearing many hats in the Icelandic music scene and beyond. Born in Denmark but raised in Iceland, Jakob co-founded the legendary Icelandic band Stuðmenn back in his high school days, and they've been rocking since the 1970s. Jakob also has a solid solo career, dabbling in jazz fusion... The post Jakob Frímann Magnússon, Jack Magnet Science / Stuðmenn / Composer appeared first on The Keyboard Chronicles.
Sunnudagur 15. sept Synir Egils: Fjárlög, vaxtaokur og fallvölt ríkisstjórn Gestir verða Bogi Ágústsson, Ingibjörhg Sólrún Gísladóttir, Jakob Frímann Magnússon og Ólafur Þ. Harðarson. Vettvangur dagsins, Bogi, Ingibjörg og Jakob. Pólitík dagsins, vaxtaokur bankanna, aðför að heimilum, fjárlög. Seinni hluti Ólafur. Staða ríkisstjórnarinnar, lifir hun eða deyr. Heldur Samfylkingin fylginu eða hrapar hún? Hvað með flokkanna sjálfa? T.d. Sósíalistaflokkinn?
Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Jakob Frímann Magnússon er maður sem hefur marga fjöruna sopið. Ungur var hann kominn á samning sem tónlistarmaður erlendis á tímum þegar afar fáir Íslendingar reyndu fyrir sér erlendis. Ein af aðalsprautunum í Stuðmönnum, Miðborgarstjórinn, formaður Stefs og svo framvegis og svo framvegis. Í þættinum ræða Sölvi og Jakob um ótrúlegan feril og magnaðar sögur, lykilinn að því að halda sér ungum í anda og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er tónlistarmaðurinn og þingmaðurinn Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður með meiru. Jakob stígur fram á Listahátíð í Reykjavík hinn 8. júní næstkomandi. Þá verður flutt hið dularfulla og splunkunýja spádómsverk Future Forecast af hljómsveitinni Jack Magnet Science sem skipuð er einvalaliði tónlistarmanna. Auk alls sem hann hefur gert í tónlistinni hefur hann gert margt á sviði menningarmála, verið menningarfulltrúi sendiráðs Íslands í London og menningarráðunautur utanríkisráðuneytisins, miðborgarstjóri Reykjavíkur og margt fleira. Við fáum Jakob til að fara með okkur aftur í æskuárin, á Akureyri og í Hlíðunum. Við stiklum svo á stóru með honum í gegnum lífið til dagsins í dag, með viðkomu meðal annars í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Los Angeles. Í matarspjallinu í dag kemur Sigurlaug Margrét eins og venjulega til okkar og við ætlum að tala um pönnukökubakstur. Við veltum fyrir okkur hvernig er best að komast hjá því að pönnukökurnar festist við pönnuna. Hvað er best að setja á pönnukökurnar, hvað er best að bera fram með þeim og svo framvegis. Pönnsuspjall! Tónlist í þættinum í dag: Hvílík þjóð / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Old Jack Magnet / Jack Magnet (Jakob Frímann Magnússon og John Lang) Extra Polation / Jack Magnet Science (Jack Magnet Science) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Jakob er aðjunkt við menntavísindasviðs HÍ hann ræddi útimenntun og útinám og tengsl okkar við náttúruna.
Við fáum stundum ábendingar eða óskir frá dyggum hlustendum um umfjöllunarefni í þáttinn og nýlega barst ein slík um stöðuna á heilsugæslunni. Það er að segja viðkomandi var að reyna að fá tíma hjá heimilislækni og fékk tíma í júní. Þriggja mánaða bið. Hvað veldur? Læknaskortur og aukið álag er eitthvað sem við heyrum reglulega. Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn og fór með okkur yfir stöðuna. Stóri plokkdagurinn verður haldinn í sjöunda sinn um allt land sunnudaginn 28.apríl. Það er Rótarýhreyfingin á Íslandi sem skipuleggur daginn. Markmiðið er að fyrirtæki, vinnufélagar, nágrannar, húsfélög, heilu hverfin eða jafnvel sveitarfélögin geta skipulagt hreinsunarátak á þeim degi í nágrenni sínu og sínu nærumhverfi. Það þarf ekki mikið til, kannski bara hanska og/eða tangir og glæran poka til að safna ruslinu sem plokkað er af jörðinni. Ómar Bragi Stefánsson umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi kom í þáttinn og sagði okkur meira frá plokkdeginum og aðkomu Rótarý hreyfingarinnar. Að lokum kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Hann hefur nýlega sagt okkur frá Berta Möller, Erlu Stefánsdóttur, Sigrúnu Jónsdóttur, Bergþóru Árnadóttur og fleirum. Í dag fræddi hann okkur um Finn Eydal tónlistarmann og klarinettuleikara frá Akureyri. Finnur var gríðarlega hæfileikaríkur tónlistarmaður og fjölhæfur, hann lést langt fyrir aldur fram aðeins 56 ára gamall. Tónlist í þættinum: Mikki / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Sleðaferð / Magnús Þór og KK (Magnús Þór Sigmundsson) Bjórkjallarinn / Hljómsveit Finns Eydal (Ludwig Fischer) Stakir Jakar / Hljómsveit Ingimars Eydal (Finnur Eydal) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Frumvarp um kaup á heimilum Grindvíkinga er komið inn í þingið og sitt sýnist hverjum. Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, og Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ræddu við okkur um stöðu íbúa og fyrirtækja í Grindavík. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, var líka með okkur og flutti tíðindi úr ferðaheiminum. Svo töluðum við um ágæti þess að syngja. “Söngurinn göfgar og glæðir,” segir einhvers staðar. Tilefnið er frétt um nýstofnaðan kór alþingismanna. Inga Sæland hafði forgöngu um stofnun þingmannakórsins og kórstjóri er vitaskuld flokksbróðir hennar Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður. En hvaða áhrif hefur söngurinn á okkur - það að syngja með öðru fólki í kór. Er það rétt að söngurinn göfgi og glæði? Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona og kórstjóri kom á Morgunvaktina. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Shore, Dinah - The nearness of you. Víkingur Heiðar Ólafsson - Variatio 15 Canone alla Quinta. A 1 Clav. Andante. Swift, Taylor - cardigan. Léttsveit Reykjavíkur Kvennakór, Jóhanna V. Þórhallsdóttir, Aðalheiður Þorsteinsdóttir Píanól. - Mas que nada. Lögreglukórinn - Undir Stórasteini.
Lilja Lind Pálsdóttir, viðskipta- og hagfræðingur og sérfræðingur í lífeyrismálum, stýrir námskeiðinu Á tímamótum - fjármál við starfslok hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Markmið námskeiðsins er að aðstoða fólk við að undirbúa sig fyrir starfslok og þær breytingar sem verða eftir að störfum lýkur. Það er ýmislegt sem hafa ber í huga og mikilvægt er að skoða hvaða möguleikar eru í boði og hvað ber að varast. Lilja Lind sagði okkur meira frá þessu í þættinum. Hjartans mál er heiti á heildstæðu verki sem samanstendur af 12 lögum, sérstök fjölskylduplata þar sem áhersla er lögð á hvíld, tilfinningar og tengsl. Boðskapurinn er fallegur og uppbyggjandi og við forvitnuðumst nánar um þetta verkefni hjá Hólmfríði Samúelsdóttur í dag. Í Heilsuspjallinu talaði Jóhanna Vilhjálms um bólgur sem eru undirliggjandi í öllum helstu sjúkdómunum, um bólguminnkandi og bólguaukandi mat og krónískar bólgur. Hvað veldur og hvernig spilar fæðan okkar í þetta? Tónlist í þættinum í dag: Út á stoppustöð / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Your Long Journey / Allison Krauss & Robert Plant (Arthel Lane Watson & Rosalie Watson) Pínu eins og... / Hófí Samúels og TÖFRAR VERÐA TIL (Hólmfríður Samúelsdóttir) Latin snowfall / Henry Mancini and his orchestra (Henry Mancini) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona er mikil áhugamanneskja um heilsu og hefur um árabil sökkt sér niður í rannsóknir á heilsu og forvörnum gegn sjúkdómum og hún er einnig höfundur tveggja heilsubóka út hafa komið hér á landi undir heitinu Heilsubók Jóhönnu: Eiturefnin og plastið í daglegu lifi okkar og Heilsubók Jóhönnu: Matur, lífsstíll, sjúkdómar. Jóhanna verður hjá okkur annað slagið í vetur og byrjaði í dag. D-vítamín var umræðuefni dagsins. Tónlistarhátíðin Líf og dauði verður haldin í fjórða sinn nú á laugardaginn í Gamla Bíói. Svanlaug Jóhannsdóttir söngkona fer yfir það í tónum og tali hvernig hugmyndir Dags hinna dauðu í Mexíkó gætu nýst okkur til þess að gæða lífið meiri dýpt og gleði.Lifum brosandi til þess að deyja glöð segir fólk í Mexíkó. Þau gleðjast yfir þeim sem á undan hafa farið, fagna lífinu, dauðanum og minnast fólksins síns með litríkri gleði og veisluhöldum. Svanlaug kom í þáttinn í dag. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og veðrið í Eyjum var Magnúsi hugleikið í þetta sinn. Hann segir frá haustlægðinni sem olli fjögurra daga stormi í liðinni viku. Í framhaldinu segir af vinsælustu dýrlingum kaþólsku kirkjunnar og einnig af vondri spá um loftslagsbreytingar. Í lokin kemur svo aðeins upplífgandi frétt af tilraunum vestan hafs með jarðvarma en þær lofa góðu með framhaldið. Tónlist í þættinum í dag: Þau gengu tvö / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir og Hannes Pétursson) Bráðum vetur / KK (KK) Mexico / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Gunnar Árnason hljóðmaður er 5 faldur Edduverðlaunahafi og er með yfir 35 ára reynslu í sínu fagi. Nú vill hann deila þessari reynslu og kenna eftirvinnslu hljóðs í kvikmyndum og leiknu sjónvarpsefni. Hann byrjaði sem hljóðmaður á Hótel Sögu og færði sig svo hægt og rólega frá dansleikjum, tónleikum og leikhúsum fyrst yfir í auglýsingar og svo í sjónvarps- og kvikmyndagerð þar sem hann hefur starfað síðustu 20 ár. Gunnar segir að það vantar fólk í fagið, því vilji hann taka þátt í að þjálfa nýliða. Gunnar kom í þáttinn í dag. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag eins og aðra mánudaga. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn við súkkulaði- og kakóbaunaframleiðslu í hverfulum heimi. Svo var það auðvitað lesandi vikunnar, sem í þetta sinn var Gunnar Alexander Ólafsson heilsuhagfræðingur og áhugamaðu um bókmenntir. Og það er ekki ofsögum sagt að segja að hann sé áhugamaður um bókmenntir, því hann lætur sér ekki nægja að lesa mikið af bókum, heldur skrifar hann um þær allar á facebook síðu sinni að lestri loknum. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Fátækt fólk e. Tryggva Emilsson. Allt hold er hey e. Þorgrím Þráinsson Saga borgaraættarinnar e. Gunnar Gunnarsson Sextíu kíló af sólskini og Sextíu kíló af kjaftshöggum e. Hallgrím Helgason Þar sem Djöflaeyjan rís, Gulleyjan og Fyrirheitna landið e. Einar Kárason Karlar sem hata konur, Stúlkan sem lék sér að eldinum og Loftkastalinn sem hrundi e. Stieg Larsson Fransí Biskví eftir Elínu Pálmadóttur. Að lokum talaði hann um bækur Halldórs Laxness, glæpasögur Ragnars Jónassonar og bókinaOddaflug eftir Guðrúnu Helgadóttur. Tónlist í þættinum í dag: Honey will you marry me / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon og Valgeir Guðjónsson) Dirty Old Town / The Pogues (Ewan MacColl) Afi súkkulaði / Egill Ólafsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Leikin eru lög af safnplötunni Hrif 2 sem kom út á vegum ÁÁ hljómplatna fyrir jólin 1975. Jakob Frímann Magnússon var upptökustjóri á flestum laganna. Lögin sem hljóma í þættinum eru eftirfarandi: Moving On og Where Are You? með Hvítárbakkatríóinu. Panola, Egils appelsín og It's Only Me með Spilverki þjóðanna. Lucifer's Carnival og River Boulevard með Nunnunum. Sólarlag og Ég sakna þín með Pónik og Þrá og Ég elska með Bergþóru Árnadóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Við fræddumst í dag um ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna sem hafa tekið gildi hér á landi. Þessi lög eru ný nálgun í þjónustu við börn og barnafjölskyldur og eiga að tryggja að börn og fjölskyldur þeirra falli ekki milli kerfa. Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri Farsældarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá þessum nýju lögum. Svo heyrðum við um kórahátíð sem fer fram í Hörpu um helgina. Hingað til lands kemur til dæmis ein stærsta stjarna kórtónlistar í heiminum í dag, Eric Whitacre, sem hefur meðal annars byggt upp kórasamfélag á netinu sem hefur fengið gífurlega þáttöku og áhorf. Það er Landssamband blandaðra kóra og Félag íslenskra kórstjóra sem stendur að hátíðinni og Margrét Bóasdóttir mun sagði okkur meira frá henni í þættinum. Þorleifur Gaukur Davíðsson kom svo til okkar. Hann fór til Bandaríkjanna í hinn virta Berklee tónlistarháskólann í Boston á fullum styrk og var fyrsti munnhörpuleikarinn sem fékk slíkan styrk við skólann. Í dag býr hann í Nashville og starfar sem tónlistarmaður í þessari borg þar sem nánast allt snýst í kringum tónlistarbransann. Í kjölfar föðurmissis samdi hann tónlist til að vinna úr sorginni og tilfinningunum sem komu í kjölfarið. Um helgina verður frumsýnd stuttmyndin Sorgarstig, þar sem Þorleifur Gaukur spilar þessa tónlist ásamt píanóleikaranum Davíð Þór Jónssyni og bassaleikaranum Skúla Sverrissyni. Þorleifur Gaukur kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá stuttmyndinni, lífinu í Nashville, munnhörpunni og spilað fyrir okkur í beinni lag úr myndinni. Tónlist í þættinum Mikki / Stuðmenn (Jakob Frímann) Glad calypso om våren / Glenn Sundberg (Olle Adolphson) Það sýnir sig / Una Torfadóttir (Sigurður Guðmundsdóttir) Pabbavals / Þorleifur Gaukur Davíðsson (Þorleifur Gaukur Davíðsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Gestir Vikulokanna voru Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vg, og Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokks fólksins. Rætt var um þingsetningu í vikunni, bakslag í viðhorfum gagnvart hinsegin fólki og hatramma umræðu um kynfræðslu í grunnskólum, mörk hatursorðræðu og tjáningarfrelsis, tímabundna stöðvun hvalveiða vegna brota á skilyrðum fyrir áframhaldandi veiðum, og fjárlög. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson Tæknimaður: Davíð Berndsen

Við kynntum okkur starfsemi Gleymmérei styrktarfélags sem er til staðar fyrir þau sem verða fyrir missi á meðgöngu og í eða eftir fæðingu. Félagið er á sínu tíunda starfsári og framundan eru til dæmis samverustundir í Sorgarmiðstöðinni annan hvern fimmtudag nú í haust. Þær Ingunn Sif Höskuldsdóttir, stjórnarformaður Gleymmérei og Hólmfríður Anna Baldursdóttir, sem situr í stjórn félagsins, komu í þáttinn í dag og fræddu okkur um starfsemina, samverustundirnar og árlega minningarstund sem verður haldin 15.október. Við héldum áfram í dag að fara yfir leikveturinn sem er að hefjast. Í þetta sinn kom til okkar Sara Martí Guðmundsdóttir leikhússtjóri í Tjarnarbíói. Hún sagði okkur frá því hvað verður á döfinni í Tjarnarbíói í vetur, þar sem frjálsu leik- og sviðlistahóparnir hafa blómstrað. Og svo að lokum heyrðum við í Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðingi sem í dag var stödd í Malmö í Svíþjóð en þar þinga veðurfræðingar víðs vegar úr heiminum. Þar er til dæmis verið að skoða það nýjasta í veðurtunglum og hvernig þau nýtast veðurfræðingum. Tónlist í þættinum Pólstjarnan / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Ágúst Pétursson og Kristján frá Djúpalæk) Gong-oh / Paolo Conte (Paolo Conte) Che cossè l'amor / Vinicio Caposella (Vinicio Caposella) Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Þórður Árnason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Hagvöxtur og ámóta mælikvarðar eru gjarnan notaðir til að mæla ástand þjóðar og bera þjóðir saman. Mikilvægt er að mæla líka aðra þætti samfélagsins, svokölluð óáþreifanleg verðmæti sem eru t.d. líðan, heilbrigði og félagsauður. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, hefur rannsakað mælingar á hagsæld í víðum skilningi og telur rétt að slíkar mælingar verði teknar upp með formlegum hætti og setta fram með svipuðu móti og hagvöxturinn. Valdarán hafa verið framin í sjö Afríkuríkjum á síðustu þremur árum, nú síðast í Gabon og Níger. Geir Konráð Theodórsson býr í Eþíópíu en bjó áður í Níger. Hann sagði frá þessum valdaránum og ástandi mála í nokkrum ríkjanna. Flest eiga þau sameiginlegt að hafa verið nýlendur Frakka en þrátt fyrir sjálfstæði fyrir um 60 árum hafa Frakkar ekki alveg sleppt hendinni af stjórn landanna og meðferð auðlinda þeirra. Á húsnæðisþingi í síðustu viku var Arnhildur Pálmadóttir arkitekt heiðruð fyrir störf sín á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar og -hönnunar. Hún ræddi vítt og breitt um efnið en brýnt er að hennar mati að huga að vistlegum þáttum á öllum stigum byggingaframkvæmda og endurnýta byggingarefni. Tónlist: The last farwell - Roger Whittaker, Kvennaskólapía - Ríó tríó, Umboðsmenn drottins - Jakob Frímann Magnússon. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson

Árið 1909 bauð Einar Jónsson myndhöggvari íslensku þjóðinni öll verk sín að gjöf með því skilyrði að landssjóður kostaði flutning þeirra til landsins og annaðist varðveislu þeirra. Hafist var handa við að byggja Hnitbjörg og Listasafn Einars Jónssonar var svo vígt árið 1923, og varð um leið fyrsta íslenska safnið í eigin byggingu. Safnið var einnig vinnustaður Einar og eiginkonu hans, Önnu Marie Mathilde Jónsson. Síðan er liðin heil öld og því verður fagnað í safninu á laugardaginn. Við ræðum um safnið við Ölmu Dís Kristinsdóttur, sýningarstjóra. Teitur Magnússon kynnir okkur fyrir gleymdum snillingi, tónlistarmanninum Kevin Ayers sem var virkur í bresku tónlistarsenunni á sjöunda áratugnum og samdi sín þekktustu verk á Miðjarðarhafseyju sem dró til sín skemmtanaglatt fólk um þetta leiti og gerir enn, Ibiza. Teitur ræðir jafnframt við Jakob Frímann Magnússon sem deilir áhuga hans á Ayers og lék með honum bæði í hljóðveri og fór með honum á tónleikaferðalag. Og í Y gallery í gömlu bensínstöðinni í Hamraborg opnaði fyrir skemmstu myndlistarsýning Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur, Manneskjur vonandi. Sýningin stendur yfir til og með 24. júní og lýkur með gjörningi. Ásta Fanney kom í heimsókn og sagði okkur frá þeim hugmyndinni að sýningunni, skynjun okkar á tímanum og stjörnu sýningarinnar sem er sambland af venusarfígúru og garðálfi.

Nýlega birtist á Vísi pistillinn Stígðu fram og taktu pláss eftir Grace Achieng, sem er stofnandi og framkvæmdastjóri tískufyrirtækisins Gracelandic, en Grace var nýlega kosin í stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu. Hún er fyrsta svarta konan til að sitja í stjórn félagsins og önnur konan af erlendum uppruna. Í pistlinum segist Grace tengja við konuna sem hefur alltaf setið til hliðar, hikandi við að stíga fram og tala af ótta við að segja eitthvað vitlaust. Hún vill nota vettvang sinn í FKA til að vera ástríðufullur talsmaður þess að trúa á sjálfa sig og að fara óttalaus eftir draumum sínum og til að endurskilgreina fjölbreytileika í samfélaginu. Grace var gestur Mannlega þáttarins í dag. Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni, skúffuskáldi og þjóðfræðiáhugamanni úr Flóanum. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn að málnotkun og mótorhjólum. Svo var það lesandi vikunnar, sem í þetta sinn var Luciano Domingues Dutra. Hann fæddist í Brasilíu og kom fyrst til Íslands árið 2002. Hann hefur þýtt fjölmargar bækur af íslensku og öðrum norðurlandamálum yfir á portúgölsku og var annar tveggja sem hlaut heiðursviðurkenninguna Orðstír, sem Forseti Íslands afhendi honum í apríl, fyrir störf sín við þýðingar á íslenskum bókmenntum.Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Luciaon talaði um eftirtaldar bækur og höfunda: Mörkrets Makter e. Bram Stoker / A-e Merking e. Fríðu Ísberg Ef þetta er maður e. Primo Levi Í fangabúðum nasista og Býr Íslendingur hér e. Leif Muller og svo talaði hann um Jorge Luis Borges, en í gegnum ljóðin hans kynntist hann Íslendingasögunum sem vöktu fyrst áhuga hans á íslenskunni og íslenskum bókmenntum. Tónlist í þættinum: Morgunsól / GDRN, Magnús Jóhann Ragnarsson (Guðrún Ýr Jóhannesdóttir, Magnús Jóhann Ragnarsson og Ármann Örn Friðriksson) Falling Behind / Laufey (Laufey Lín Bing Jónsdóttir og Stewart Spencer) Ferðalag / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon, Tómas M. Tómasson og Gunnar B. Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Við höfum fjallað talsvert undanfarið í þættinum um áföll og afleiðingar áfalla og áfallastreitu og meðferðarúrræði. Í þeim umræðum, við sálfræðinga og sérfræðinga í úrvinnslu og greiningu áfalla hefur EMDR meðferð oft verið nefnd. En hvað er EMDR meðferð? Dr. Gyða Eyjólfsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um EMDR meðferðir. Helena Jónsdóttir leikstjóri, dansari og listakona kom svo í þáttinn, en hún hefur sett saman dagskrá alþjóðlegra stuttmynda fyrir Stockfish kvikmyndahátíðina sem verða sýndar 23. mars til 2. apríl víðs vegar um borgina. Helena hefur nýverið gengið í gegnum missi á eiginmanni, móður, systur og bestu vinkonu á tiltölulega stuttum tíma, en listin hefur sannarlega verið henni stuðningur í þessu ferli. Stuttmyndirnar sem hún valdi á hátíðina hafa til dæmis haft sömu áhrif á hana eins og hughreystandi ljóð eða bók. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í sitt vikulega veðurspjall. Hún sagði okkur frá alþjóðlega veðurfræðideginum sem er á fimmtudaginn og svo sagði hún einnig frá nýrri skýrslu í loftslagsmálum frá Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Tónlist í þættinum í dag Hvítu mávar / Helena Eyjólfsdóttir (Walter Lange, texti Björn Bragi Magnússon) Ástarsæla / Júníus Meyvant (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) Jón á Gili / J.M. kvartettinn og Steinunn Bjarnadóttir (Reg Connelly, Frederick Hollander, Böðvar Guðmundsson) Söngur fjallkonunnar / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var Matthías Matthíasson söngvari eða Matti Matt eins og hann er oftast kallaður. Matti hefur komið víða við í tónlistarbransanum og var ungur þegar hann steig fyrst fram á svið. Hann var til dæmis meðlimur í eftirfarandi hljómsveitum: Reggea on Ice, Dúndurfréttum, Pöpum o.fl. Hann söng líka öll lögin fyrir íþróttaálfinn í Latabæ, bæði á íslensku og ensku og svo er það hæfileikinn sem hann uppgötvaði ekki fyrr en á fullorðins aldri, að geta farið með heilu setningarnar afturábak nánast án þess að þurfa að hugsa um það. Síðustu misserin hefur hann klárað húsasmíðanám og nú síðast opnað nýstárlega búð sem selur náttúrulegar svefnvörur. Sigurlaug Margrét var stödd í Vestmannaeyjum hvar hún kannaði matarmenninguna sem hún sagði okkur frá í matarspjalli dagsins. Þar er auðvitað að finna dásamlegt ferskt sjávarfang og miklu fleira sem Sigurlaug tæpti á í þættinum. Tónlist í þættinum í dag Út í eyjum / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon) A Better day / Matti Matt (Matthías Matthías og Helgi Reynir Jónsson) Í berjamó / Reggea on Ice (Matthías Matthíasson, Stefán Örn Gunnlaugsson og Hrólfur Sæmundsson) It must have been love / Roxette (Per Gessle) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Valur Freyr Halldórsson var nú nýlega ráðinn fag- og verkefnisstjóri hjá Sjúkraflutningaskólanum en hann er menntaður hjúkrunarfræðingur og bráðatæknir og hefur starfað hjá Slökkviliði Akureyrar síðastliðin 21 ár. Valur var í þættinum í dag og sagði okkur frá Sjúkraflutningaskólanum. Það er mánudagur og þá fengum við vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni úr Flóanum. Í dag bar Guðjón vinkilinn að hádegismat fyrr og nú. Og svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ágústa Eir Gunnarsdóttir ráðgjafi á Sjónstöð Íslands og kattafræðingur. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ágústa Eir talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Plómur e. Sunnu Dís Másdóttir Skólaljóðin og Í gegnum ljóðmúrinn (safn ljóða frá 20.öld) Dropi úr síðustu skúr e. Anton Helgi Jónsson Guli kafbáturinn e. Jón Kalmann Var, er og verður Birna e. Ingibjörg Hjartardóttir Systraklukkurnar e. Lars Mytting Markús Árelíus e. Helga Guðmundsson Beðið eftir barbörunum e. J.M. Coetzee) Tónlist í þættinum í dag: Ferðalag / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon, Gunnar B. Jónsson og Tómas M. Tómasson) Enginn veit / Sigrún Harðardóttir (McCartney & Lennon, Eysteinn Jónasson) Smile / Susanne Kessel (Charles Chaplin) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í Rokklandi í dag skoðum við lögin sem eru tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár, besta lag frumsamið fyrir kvikmynd en Óskarsverðlaunin verða afhent í nótt í Los Angeles. Jakob Frímann Magnússon kemur í heimsókn í seinni hluta þáttarins og segir okkur frá plötunni Jack Magnet sem kom út árið 1981 og hann ætlar að flytja í heild sinni ásamt frábærri hljómsveit í Bæjarbíói 25. mars nk. Og svo er það hljómsveitin Langi Seli og Skuggarnir sem fór næstum alla leið í Eurovison núna um síðustu helgi, lentu í öðru sæti á eftir söngkonunni Dilja sem fer til Liverpool fyrir okkar hönd. Við rifjum upp þegar hljómsveitin heimsótti std 12 árið 2019.

Jakob rifjar upp æsku sína á Akureyri þar sem hann fylgdi afa sínum hvert fótspor. Jakob talar um þingstörfin og svo auðvitað tónlistina.
Jakob rifjar upp æsku sína á Akureyri þar sem hann fylgdi afa sínum hvert fótspor. Jakob talar um þingstörfin og svo auðvitað tónlistina.
8. júní 2022 Grínland Popp byggir á nákvæmlega sömu uppskrift og eldri Grínlönd. Viðmælendur segja frá sér og sínum alveg frá fyrstu minningu með áherslu á skemmtilegu hlutina. Sigrar, töp, skrítið og vandræðalegt. Munurinn á þessari seríu og eldri seríum er að í stað skemmtikrafta eru það popparar sem ræða við Doddi litla. Þá er meira um tónlistarklippur í Poppinu en áður. Gestur þessa þáttar er Jakob Frímann Magnússon